Kvíða systkin sem finnst gaman að tala um allskonar málefni
*TW* Talað er um sjálfsvíg og sjálfsvígshugsanir í þættinum. Í þættinum ræðum við um þunglyndi, okkar upplifun af því, hvað er hægt að gera til að fá hjálp og margt fleira.
Hugmyndalausu við vissum ekkert hvað við ættum að taka fyrir í þessari viku en ákváðum að segja frá tímanum þegar við bjuggum í sveit í Noregi og þau ævintýri sem við lentum í þar.
Er hollt að eiga leyndarmál? Af hverju eigum við leyndarmál? - Í þættinum ræðum við um leyndarmál þar sem Elvar segir Sonju frá hlutum sem hún hefur ekki heyrt áður!
Í þættinum ræðum við um hvernig skömm getur birst og hvernig við upplifum skömm
*TW* - Við viljum vara við umræðuefni þáttarins þar sem m.a. er rætt um sjálfsvígshugsanir, fíkn o.fl. Í þessum þætti förum við á mikið trúnó og ræðum um áföll sem við höfum lent í og hvernig við tókumst á við þau.
Það er vel við hæfi að taka upp einn þátt um kvíða! Við biðjumst velvirðingar á kúkasögunum sem koma heheee
Í þessum þætti ræða systkinin um menntun og vinnu og hvað við erum almennt að gera í lífinu.
Í þessum fyrsta þætti fáiði að kynnast stjórnendum þáttarins, við tölum á persónulegu nótunum og blöðrum svolítið mikið um allt og ekkert. intro song: HookSounds.com