POPULARITY
Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, hitti leiðtoga Evrópusambandsins og gaf lítið fyrir kröfur um að banna olíu og gasvinnslu á norðurslóðum. Umhverfissamtök vilja banna þessa vinnslu, en Evrópa reiðir sig á gas og olíu frá Noregi. Neyðarbirgðir olíu milduðu höggið þegar stríðið í Íran hófst en nú fara þær þverrandi og endalok stríðsins ekki í augsýn. Fleiri lönd en nokkru sinni keppa á heimsmeistaramóti karla í fótbolta.
Hannes Björnsson sálfræðingur kom til okkar í dag. Hann hefur starfað sem sálfræðingur frá 2009 en var áður sóknarprestur á Vestfjörðum og prestur Íslendinga í Noregi. Hann vinnur mikið í greiningu og klínískri meðferð þunglyndis, kvíða, áfalla og ADHD fullorðinna. Hannes er einnig formaður Dáleiðslufélags Íslands, sem á 25 ára afmæli þessa dagana og hann sagði okkur frá félaginu, ráðstefnu sem fer fram í lok maí og hvernig dáleiðsla nýtist hans starfi. Skólakór Öldutúnsskóla fagnar 60 ára afmæli með afmælistónleikum í Hörpu sunnudaginn 24. maí. Egill Friðleifsson, stjórnandi kórsins vann þrekvirki því hann hélt kórnum úti árum saman og þurfti sífellt að þjálfa upp nýjar raddir og náði að halda uppi gæða söngstarfi. Brynhildur Auðbjargardóttir tók við þegar Egill hætti, en hún var nemandi í Öldutúnsskóla á sínum tíma og söng með kórnum meðal annars inn á vísnaplöturnar vinsælu með Björgvini Halldórssyni og Gunnari Þórðarsyni. Fyrrverandi kórfélagar munu koma fram á tónleikunum ásamt núverandi kór, en það hafa ýmsir fyrrum nemendur skólans haldið áfram að fást við tónlist eins og þær Brynhildur, Margrét Eir og t.d. Guðrún Árný ofl. Margrét Eir og Bryndhildur komu í þáttinn í dag. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag sagði hann okkur frá Gunnari Ormslev saxófónleikara. Gunnar má telja meðal máttarstólpa íslenskrar djasstónlistar á upphafsárum hennar en stundum er sagt að hann hafi komið með djassinn með sér til Íslands frá Danmörku. Jónatan sagði okkur meira frá hans merkilega ferli í þættinum í dag. Tónlistin í þættinum: Sólin er komin / Mugison (Örn Elías Guðmundsson) Klappa saman lófunum / Björgvin Halldórsson og Kór Öldutúnsskóla (Gunnar Þórðarson, íslensk þjóðvísa) Frá Vermalandi / Gunnar Ormslev (sænskt þjóðlag) Lady be Good / Tríó Jóns Páls Bjarnasonar (George & Ira Gerschwin) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Það er kjördagur og Heimskviður fjalla um samgöngumál, húsnæðismál og þjóðfélagsumræðuna, reyndar með sínu nefi. Allra augu eru á Downingstræti 10 þessa dagana. Þetta hefur verið erfið vika hjá Keir Starmer forsætisráðherra Breta, og margir sem spá því að hann verði ekki langlífur í embætti. Ég ætla aðeins að skoða hvers vegna hann er svona óvinsæll og hvað taki við. Kjördagur í dag og annar dagur síðar í sumar þar sem landsmenn þurfa að gera upp hug sinn og nýta kosningaréttinn. Það er raunhæft að óttast tilraunir utanaðkomandi aðila til að hafa áhrif á þjóðmálaumræðuna hér á landi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við Evrópusambandið. Þetta segja sérfræðingar sem fást við upplýsingaóreiðu og svokallaðar fjölþáttaógnir - sem eru sífellt stærri hluti af því sem öryggisstofnanir fást við. Ógnir af þessu tagi eru hins vegar daglegt brauð í ríkjum sem standa okkur tiltölulega nærri; til dæmis í Noregi - og Eistlandi - þangað sem Björn Malmquist ætlar að fara með okkur í Heimskviðum í dag. Síðar á þessu ári verður hinn goðsagnarkenndi þjóðvegur 66 í Bandarikjunum hundrað ára og tímamótanna minnst með ýmsum hætti. Það má alveg halda því fram að hluti sögu Bandaríkjanna liggi í malbikinu á þessum 4000 km vegi sem liggur þvert yfir landið. Birta skoðaði sögu þessa líklega þekktasta þjóðvegar heims, sem lifir nú meira á fornri frægð en sem samgönguæðin sem honum var upphaflega ætlað að vera.
Miðvikudagur 6. maí Kjarasamningar, strandeldi, skólar, mengun, viðsnúningur og bekkurinn Gunnar Smári ræðir við Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra um kjarasamningana, verðlagsákvæði þeirra og hvað ríkisstjórnin getur gert svo samningunum verði ekki sagt upp í haust. Katrín Oddsdóttir lögmaður og náttúrusinni mætti til Sigurjóns. Saman töluðu um skuggahliðar laxeldis í sjó. Bæði hér heima sem og í Noregi. Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins ræðir við Gunnar Smára um það samfélagslega stórhrun sem Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra boðaði ef skólastefnunni yrði ekki umbylt. Andrjes Guðmundsson formaður Lungnasamtakanna ræðir það sem gleymist að mestu leyti að ræða fyrir sveitarstjórnarkosningarnar; pólitískar bráðaaðgerðir sem varða loftgæði og svifryk. Umhverfismálin ættu að vera framar í samgönguumræðunni. Björn Þorláks ræðir við hann. Sturlaugur Sturlaugsson mannvinur og forvígismaður á Akranesi breytti um stefnu í lífinu eftir 50 ára stjórnunarstörf í sjávarútvegi og tók við stöðu forstöðumanns Fjölsmiðjunnar. Hann vill að Ísland verði boðberi friðar og að stofnað verði friðarráðuneyti. Búið er að leika fimm umferðir í efstu deild karla. KR-ingar hafa slegið í gegn. Unnið alla sína leiki og skorað grimmt. Víðir Sigurðsson mætti í viðtal um Íslandsmótið. Hann segir að stuðið á KR-ingum sé með því besta sem sést hefur í byrjun móts í áratugi.
Starlight gav í fjør síni tvey fyrstu løg út og í ár er ætlanin at koma við enn fleiri. Tann fyrsta útgávan í framhaldinum í 2026 er rokkballadan 'Dreymaland', sum Niclas Johannesen hevur framleitt og Óli Poulsen ljóðblandað. Við at trýsta á pílin niðanfyri hoyrir tú fyrst aðru lagútgávuna frá í fjør, 'Rótasúpan', síðani samrøðuna við Jóhan Martin Jacobsen, Jákup Hansen, og Fimmboða Lisberg, og at enda tann nýggja sangin frá 28. mars 2026. Bólkurin Starlight er upprunaliga frá 1979 og mannaður við suðuroyingum burturav, harav Sámal Samuelsen býr í Noregi og Kári Lisberg í Danmark. Hinir tríggir búgva í Havn, so ein kann siga, at øll Starlight manningin býr í útlegd, men kortini ber væl til at savnast og taka løg upp saman við Niclasi Johannesen. Fyrra lagið í fjør, 'Knáir gamlir menn', var á Top 10, tá Ársins útvaprshitt 2026 skuldi veljast í samband við Faroese Music Awards (FMA) '26. Um nakrar vikur ætlar Starlight at útgeva tann næsta sangin í røðini, sum vit her í Plátubarrini eisini fara at leggja dent á tá. Plátubarrin 28.3.2026
Frumplátan hjá diskobólkinum Boney M. við løgum sum 'Daddy Cool' og 'Sunny', og føroyska hittinum 'No Woman No Cry'. Hetta fyrsta heildarverkið hjá Boney M., hvørs 50 ára útgávudagur er í 2026, hevði størstu søluna í Spania og Fraklandi, har 300.000 eintøk vórðu seld í hvørjum landi. Sølan á týska heimamarknaðinum var 250.000 útgávueintøk. Í Svøríki fóru 100.000 plátur og kassettubond um søludiskin, hvat roknað út eftir fólkatalinum gevur størstu undirtøkuna av øllum. Í Bretlandi knógvaði 'Take the Heat off Me' akkurát Top 40. 'Daddy Cool' var stóra singleplátuhittið. Tað var plettskot í londum sum Svøríki, Noregi og Belgia, men eisini á stóru plátumarknaðunum í Vesturtýsklandi, Fraklandi, og Spania, meðani tað rakk til nr. 6 á UK Singles Chart. Hinvegin varð onnur singleplátan frá útgávuni, lagið 'Sunny', nr. 3 í Bretlandi. Av stóru londunum var 'Sunny' plettskot í Vesturtýsklandi og Fraklandi. Í Føroyum spældi Útvarp Føroya løg frá sjálvari LP-plátuni. Millum annað hevði tað við sær, at endurinnspælingin hjá Boney M. av Bob Marley sanginum, 'No Woman No Cry', bleiv kend millum manna her á landi. Talan er um europeiskan diskotónleik við góðum ljóði og nógvum fiólum. Týskarin, Frank Farian, átti Boney M., og at hjálpa sær at leggja til rættis hevði hann annan týskan tónleikamann, Stefan Klinkhammer, ið eins og Frank Farian ikki livir meira. Teir dugdu sítt handverk, tí eisini við nútíðar oyrum ljóðar útgávan avbera væl. Eykaløg í sendingini eru: 'Love for Sale' (album: Love for Sale), 'King of the Road' (album: Nightflight to Venus), 'Two of Us' (album: Oceans of Fantasy). Plátubarrin 21. mars 2026
Veðrið, valstríð og skógareldur í Noregi. Gestir hesa ferð: Turid Laksá Niels Uni Dam Fróði Jacobsen
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um stöðu Noregs í danska konungsríkinu fyrir 1814.Danska konungsríkið, sem Ísland var hluti af, var fjölþjóðlegt og samsett konungsríki. Ríkið var stóð saman af Danmörku - með nýlendum sínum, Noregi - ásamt hjálendunum Íslandi, Grænlandi og Færeyjum, og hertogadæmunum Slésvík og Holtsetalandi. Noregur og Danmörk gengu í eina sæng á miðöldum og frá 1537 var Noregi stjórnað beint frá Kaupmannahöfn. Með Kílarsamningnum 1814 var Noregur svo færður frá Danmörku til Svíþjóðar frekar skyndilega eftir ósigur Dana í Napóleonsstyrjöldunum.Þrátt fyrir oft hvassa orðræðu norskra þjóðernissinna um "nóttina löngu" 1537-1814 var samband Dana og Norðmanna mjög náið. Ólíkt hjálendunum og nýlendunum var Noregur miðlægur hluti danska Aldinborgarríkisins, enda var samruni fornu konungsríkjanna tveggja langt kominn þegar skilnaðurinn átti sér stað 1814.Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu við Boga Ágústsson um Epstein-skjölin og afleiðingar birtingar upplýsinga sem fram koma í þeim. Peter Mandelson hrakist úr starfi sendiherra Breta í Bandaríkjunum og Keir Starmer, forsætisráðherra Breta, gæti misst stöðu sína vegna þess að hann skipaði Mandelson í sendiherraembættið. Í Noregi vill tæplega helmingur þjóðarinnar ekki að krónprinsessan Mette-Marit verði drottning vegna náinna tengsla hennar við Jeffrey Epstein eftir að hann var dæmdur fyrir barnaníð.
Erla Friðgeirsdóttir í Noregi um mál Mette-Marit krónprinsessu sem var í tygjum við Jeffrey Epstein Eyþór Víðisson öryggis- og löggæslufræðingur Símatími Smári Kristjánsson vörubílsstjóri um kílómetragjaldið Magnús Scheving Latabæ um offitu barna Tímavélin við rifjuðum upp nokkur gömul mál sem hafa verið tekin fyrir í Reykjavík síðdegis Sigurður Þ. Ragnarsson Siggi Stormur hjá vedur ehf um febrúarveðrið sem hefst með hlýindum fyrir sunnan en skítakulda víða í Evrópu.
Við fjölluðum um blóðfitu, eða kólesteról, í þættinum í dag og til okkar kom hjartalæknirinn Hilma Hólm. Há blóðfita er áhættuþáttur hjarta- og æðasjúkdóma og þeir eru algengasta dánarorsök Íslendinga. Þessir sjúkdómar gera miklar kröfur til heilbrigðiskerfisins enda er meðferð oft flókin og kostnaðarsöm. Í þessu samhengi er oft talað um „vonda kólesterólið“ (LDL) og „góða kólesterólið“ (HDL). Að hluta til er há blóðfita arfgeng, því geta tveir einstaklingar sem lifa á nákvæmlega sama mataræði og hreyfa sig jafnmikið haft gjörólíkar blóðfitur. Mikið hefur verið fjallað um mataræði og blóðfitur á undanförnum árum og hvað er rétt og hvað er rangt. Sumir segja að blóðfitulækkandi lyf séu ofnotuð á meðan aðrir segja að þetta séu lífsnauðsynleg lyf. Hilma fór með okkur yfir þetta í dag. Út eru komin hreyfispjöld til heilsueflingar. Þetta eru 50 einfaldar og fjölbreyttar styrktar- og liðleikaæfingar sem auka kraft, þol og jafnvægi. Hverri æfingu fylgja myndir og skýrar leiðbeiningar. Æfingarnar eru framkvæmdar án áhalda og þær er hægt að gera hvar sem er og henta fólki á öllum aldri. Höfundarnir eru Anna Björg Björnsdóttir og Gerður Jónsdóttir, íþrótta- og heilsufræðingar og afrekskonur í íþróttum, þær komu í þáttinn í dag. Og lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Margrét Eggertsdóttir rannsóknarprófessor á menningarsviði hjá Árnastofnun. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Margrét talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Fóstur e. Claire Keegan, þýðandi: Helga Soffía Einarsdóttir. Með minnið á heilanum e. Þórhildi Ólafsdóttur Jeg vil: en forfatters portræt af Sigrid Undset (1882–1949) e. Idu Jessen Hamingjudagar heima í Noregi e. Sigrid Undset, þýðing úr ensku á íslensku Brynjólfur Sveinsson Allt sem við hefðum getað orðið e. Sif Sigmarsdóttur Tónlist í þættinum í dag: Meira, meira / Ríó tríó (Gunnar Þórðarson, texti Jónas Friðrik Guðnason) Crossroads / Helgi Jónsson & Emilíana Torrini (Emilíana Torrini, Helgi Jónsson og Philipp Steinke) High Sierra / Linda Ronstadt (L.Harley Allen) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Þáttur vikunnar er seinni hluti viðtalsins við Björn Daníel Sverrisson. Þátturinn byrjar á stuttum hljóðbrotum við fyrrum þjálfara og vini Björns en svo tekur Björn við að segja frá stórkostlegum ferli sínum á Íslandi, Noregi og í Danmörku.Njótið!
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður og fyrrverandi landsliðmaður í handbolta. Hann er staddur í Kristianstad í Svíþjóð, hvaðan hann mun lýsa í beinni útsendingu fyrsta leik íslenska karlalandsliðsins í handbolta á móti Ítalíu á Evrópumótinu sem fram fer í Svíþjóð, Noregi og Danmörku. Þjóðin fylgist alltaf spennt með þegar íslenska landsliðið keppir á stórmótum og væntingarnar eru yfirleitt meiri í handbolta en í flestum öðrum liðsíþróttum, enda hefur landsliðið náð virkilega góðum árangri aftur og aftur. En því fylgir auðvitað pressa og það var gaman að ræða við Einar Örn um þá reynslu sem hann hefur persónulega af því að taka þátt í svona mótum sem leikmaður og svo að lýsa leikjunum ofan úr stúku. Og svo fengum við hann auðvitað til að spá aðeins í gengi strákanna okkar á þessu móti og hann var bara nokkuð jákvæður. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í þetta sinn voru það hrogn, nætursaltaður fiskur og hvernig á að undirbúa veislu samkvæmt næstum fimmtíu ára gamalli matreiðslubók. Tónlist í þættinum: Flugvélar / Nýdönsk (Jón Ólafsson, texti Björn Jörundur Friðbjörnsson) Gerum okkar besta / Valgeir Guðjónsson og íslenska karlalandsliðið í handbolta 1988 (Valgeir Guðjónsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Það er margt að ræða eftir síðustu leiki í enska boltanum. Guðmundur Aðalsteinn kom sér vel fyrir í Pepsi Max stúdíóinu ásamt bræðrunum Magnúsi Hauki og Hinriki Harðarsonum núna þegar þrír dagar eru til jóla. Hinrik er atvinnumaður í Noregi en er mættur heim í jólafrí og fékk að láta gamminn geysa um sína menn í Liverpool. Liverpool lagði Tottenham í tíðindamiklum leik og þrjú efstu lið deildarinnar unnu öll. Manchester City er farið að líta ógnvænlega út á meðan Arsenal er að harka út sigra. Leny Yoro átti þá erfiðan dag á skrifstofunni gegn Morgan Rogers. Snert er á öllum leikjum helgarinnar en við óskum ykkur, hlustendum góðir, gleðilegra jóla.
Síðsta Jambalajasending undan jólum. Hugnaligir jólasangir og -sálmar vera at hoyra. Eldri amerikanskar upptøkur, men eisini spennandi upptøkur úr Kanada, Írlandi, Íslandi, Noregi og Føroyum. Gleðilig jól.
Bogi Ágústsson, Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu í Heimsglugga vikunnar um stöðuna í friðarviðræðum í Úkraínu. Rússar hafa ekki hvikað frá ítrustu kröfum sínum svo litlar líkur virðast á vopnahléi eða friði á næstunni. Í Noregi og Danmörku eiga leiðtogar Jafnaðarmanna og forsætisráðherrar landanna í nokkrum erfiðleikum. Litlu munaði að norska stjórnin félli vegna deilna um fjárlög og staða Mette Frederiksen hefur veikst verulega eftir sveitarstjórnarkosningarnar í nóvember.
Forsvarsmenn HS Veitna og Bláa lónsins komu af fjöllum þegar þeim barst matsbeiðni frá lögmanni fjármálaráðuneytisins, um kostnað af björgunaraðgerðum í Grindavík og mögulega þátttöku þeirra í þeim. Beiðninni er beint að HS Orku, HS Veitum, Náttúruhamfaratryggingum og Bláa lóninu. Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, segist ekki vera að rjúfa neina þjóðarsátt um almannavarnir. Afar mikilvægt væri að meta ábatann af aðgerðum gegn eldgosavá þegar kæmi að því að verja hagsmuni Íslands í endurtryggingum á mögulegum tjónum. Ofbeldisbrotum gegn öldruðum hefur fjölgað síðustu ár. Í um helmingi tilfella, þar sem eru náin tengsl milli gerenda og brotaþola, eru það börn sem brjóta gegn foreldri. Þá eru kynjahlutföll í þessum málum nokkuð önnur en almennt gerist í brotum í nánum samböndum. Marta Kristín Hreiðarsdóttir, deildarstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir fjölgun ofbeldisbrota að vissu leyti í takt við aldurssamsetningu þjóðarinnar. Aukinn ágangur rússneskra úlfa í Noregi og Finnlandi er dæmi um áhrif af innrásarstríði Rússa í Úkraínu. Í Lapplandi hafa á bilinu 30 til 50 úlfar verið skotnir á ári, nærri rússnesku landamærunum, þessa þrjá vetur sem stríðið hefur geisað. Margfalt fleiri en fyrir stríð. Rannsókn á erfðaefni úlfanna sannar að þeir koma frá Rússlandi. Og í Noregi skutu menn um eða yfir 60 úlfa síðastliðinn vetur. Þeir eru reyndar langflestir norskir að ætt og uppruna, en ekki allir.
Ákvörðun Evrópusambandsins (ESB) um að leggja verndartolla á kísilmálm frá Íslandi og Noregi markar þáttaskil í samskiptum EES-ríkjanna. Þrátt fyrir áratugalangt samstarf og aðild Noregs og Íslands að innri markaði Evrópu í gegnum EES-samninginn var hvorugt landið undanþegið tollunum sem eru undir hatti svokallaðra verndartolla. Dr. Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, gagnrýndi ákvörðunina harðlega í viðtali við Morgunblaðið. Hann segir verndartollana gróft brot á EES-samningnum. EES-samningurinn er án nokkurs efa einn mikilvægasti alþjóðasamningur sem Ísland hefur gert. Við Íslendingar lifum á alþjóðaviðskiptum – lífskjör okkar byggjast á greiðum aðgangi að erlendum mörkuðum. Þegar Evrópusambandið tekur einhliða ákvörðun um að útiloka samstarfsríki og gengur gegn grunnhugsun samningsins ætti öllum að vera ljóst að undirstöður EES-samstarfsins eru ekki jafn sterkar og við höfum talið okkur trú um. Og það þjónar ekki hagsmunum okkar að gera lítið úr málinu og tala um hliðarspor, eins og forsætisráðherra gerir eða gefa til kynna að lausnin liggi í því að Ísland gangi inn í Evrópusambandið, líkt og utanríkisráðherra lætur liggja að. En auðvitað kemur það ekki nokkrum manni á óvart að þegar glíma þarf við vandamál eða leysa verkefni sé lausn Viðreisnar alltaf það sama: Evrópusambandsaðild.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Benedikt S Benediktsson framkvæmdastjóri SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir um skýrslu starfshóps varðandi reglur um dvalarleyfi á Íslandi Símatími Ólafur Magnússon tæknistjóri Nova um 2g og 3g senda Páll Höskuldsson í Noregi um verndartolla í Noregi Sigurður Ingi Jóhannsson um verndartolla ESB Óli tölva og gervigreindin sem beitir hótunum til að lifa af Þorvaldur Flemming Jensen um sveitastjórnarkosningar í Danmörku
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir er gestur Helga Fannars í fyrri hluta þáttarins. Þar er farið yfir íslensku landsliðin, Bestu deildirnar og fleira til. Í seinni hlutanum er Freyr Alexandersson, þjálfari SK Brann, í ítarlegu viðtali frá Noregi.
Föstudags Brennsla - Top 10 Íslensku lög sem íslendingar kunna frá upphafi til enda! Helgi Ómars og Sigga Ózk fara í uppgjör vikunnar. Sigga að gefa út nýtt lag sem hún samdi í Noregi. Kristmundur Axel á mjúku nótunum. Þetta og miklu meira til!
Helgi Fannar Sigurðsson og Hörður Snævar Jónsson gera upp vikuna og horfa í framhaldið í boltanum. Sævar Atli Magnússon, landsliðsmaður og leikmaður Brann, er þá á línunni og ræðir fyrstu mánuðina í Noregi, Evrópuævintýri og fleira til.
Draumar eru sammannleg fyrirbæri og draumatúlkun getur hjálpað fólki við að takast á við ýmis viðfangsefni í sínu lífi, hvort heldur sem þau eru tengd tilfinningum, aðstæðum eða jafnvel flóknum úrlausnarefnum og vandamálum. Á námskeiðinu Draumar – spegill sálarinnar sem Arna Ýrr Sigurðardóttir prestur hefur verið með í nokkur ár, byggir Arna á sinni eigin reynslu af því að nota draumavinnu í sálgæslu. Á málþinginu „Hvað ef ég vil vera hér?“ sem fram fer á Höfn í Hornafirði í dag og á morgun er umfjöllunarefnið ungt fólk, byggðafestuna þeirra og framtíð á landsbyggðinni. Á þinginu verður ungt fólk frá Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Íslandi og þau munu deila reynslu sinni. Eyrún Fríða Árnadóttir verkefnastjóri HeimaHafnar var á línunni í þættinum og sagði okkur betur frá málþinginu og stöðu ungs fólks á landsbyggðinni. Svo var það Heilsuvaktin með Helgu Arnardóttur. Hafdís Inga Helgudóttir Hinriksdóttir hefur glímt við langvinn veikindi eftir að hún fékk Covid fyrir þremur árum. Hún upplifði algjöra örmögnun, minnisleysi, mæði, heilaþoku, sjón og heyrnartruflanir, meltingartruflanir og fékk einnig sjúkdóminn Potts. Hafdís þakkar vökvagjöfum, háþrýstimeðferðum og lyfjum að hún sé á betri stað en fyrir ári en hún óttast afleiðingar niðurskurðar hins opinbera. Helga talaði við Hafdísi Ingu í Heilsuvaktinni í dag. Tónlist í þættinum í dag: Heitt toddý / Ellen Kristjánsdóttir (erlent lag, texti Friðrik Erlingsson) Draumalandið / Karlakór Reykjavíkur (Sigfús Einarsson, texti Jón Trausti (duln.f. Guðmund Magnússon)) Tico tico / Les Baxter (Les Baxter) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Charlie Kirk, ungur hægrisinnaður áhrifavaldur, var skotinn til bana á fundi í Utah Valley-háskólanum í Bandaríkjunum í gær. Rætt var um pólitísk morð í upphafi Heimsgluggans. Aðalefnið var þó stjórnmálastaðan í Noregi eftir kosningarnar á mánudag. Hallgrímur Indriðason fréttamaður fylgdist með kosningunum og var gestur Heimsgluggans.
Listakonan Björg Þórhallsdóttir hefur búið í Noregi nánast allt sitt líf og kom núna til Íslands til þess að kynna nýja bók sem hún skrifaði, Gleði Bjargar - Hamingjan er markmið, gleðin er afstaða. Björg er líka höfundur hinna vinsælu dagbóka Tíminn minn, sem komið hafa út hér á landi í rúman áratug. Hún hefur haslað sér völl í Noregi sem myndlistarmaður og rithöfundur og þessi nýja bók hennar var um tíma í efsta sæti bóksölulista þar í landi. Björg kom í þáttinn í dag, beint af flugvellinum, og með henni kom Hildur Blöndal, þerapisti og ráðgjafi en þær vinna saman sem þerapistar í Noregi. Við fengum svo töfrabrögð í beinni í þættinum í dag. En Lalli töframaður, eða Lárus Blöndal Guðjónsson, kemur fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborgarsal Hörpu 20.sept. og verður með sjónhverfingar og töfrabrögð. Sinfóníuhljómsveitin mun spila vinsæl lög úr söngleikjum á borð við Frozen og Mary Poppins. Að auki er að koma út barnabókin Dagur með Lalla, eftir Lalla og hann kom í þáttinn og sagði okkur betur frá bókinni, tónleikunum og töframennskunni. Valdimar Þór Svavarsson, ráðgjafi hjá fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins, kom svo til okkar í dag með það sem við köllum Mannleg samskipti, þar sem við skoðum með honum ýmislegt sem viðkemur mannlegum samskiptum og hvað getur haft áhrif á þau og gert þau flókin. Í dag talaði Valdimar um áföll, sem geta verið gríðarlega margvísleg og fjölbreytt, og áhrif þeirra á okkur, til dæmis í samskiptum okkar við annað fólk, ef við fáum ekki hjálp til að takast á við afleiðingar þeirra. Tónlist í þættinum í dag: Allur lurkum laminn / Bjarni Ara (Hilmar Oddsson) Okkar eigin Osló / Valdimar Guðmundsson (Helgi Svavar Svavarsson og Bragi Valdimar Skúlason) A Woman is a Something Thing / Louis Armstrong (Ira Gershwin and George Gershwin) He Ain't Heavy He's My Brother / The Hollies (Bobby Scott & Bobby Russel) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Rakel Sveinsdóttir ritstjóri Atvinnulífsins á Vísi um vinnumaka Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra um fjárlög næsta árs Símatími Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd Alþingis um skattahækkanir í fjárlagafrumvarpinu Atli Steinn Guðmundsson blaðamaður Morgunblaðsins í Noregi um þingkosningar þar í landi Arnar Pálsson erfðafræðingur og prófessor í lífupplýsingafræði við HÍ Eru kynin tvö?
Rétt rúm 20 ár eru frá einu mesta eignatjóni sem orðið hefur vegna náttúruhamfara í Bandaríkjunum. Það var eftir að fellibylurinn Katrina gekk yfir New Orleans í Louisiana og fleiri nálæg ríki. Hamfarirnar, og viðbragðið við þeim, eða viðbragðsleysi, þóttu sýna svart á hvítu kynþáttaójöfnuðinn í Bandaríkjunum. Það er alltaf fróðlegt að fá sögur þeirra sem voru á staðnum og við heyrum frá Jóni Björgvinssyni og Birni Malmquist fréttamanni okkar sem voru báðir þarna fyrir 20 árum. Björn segir að þetta hafi verið mjög erfið reynsla og erfiðasta fréttaferð sem hann hafi farið í. Svo fjöllum við um spennandi þingkosningar í Noregi á mánudaginn. Það er hnífjafnt milli stærstu fylkinganna og sviptingar í hægri blokkinni því Framfaraflokkurinn mælist stærstur. Kannanir sýna að munurinn á rauðgrænu og borgaralegu blokkunum er lítill og kosningabaráttan hefur tekið mið af því - hún hefur verið afar hörð.
Norðmenn ganga til kosninga um helgina og útlit er fyrir spennandi kosningar þó að margir telji að þokkalegar líkur séu á að Jonas Gahr Støre verði áfram forsætisráðherra. Verkamannaflokkur hans hefur farið með stjórnarforystu síðustu fjögur ár og frá því í febrúar setið einn í minnihlutastjórn. Verkamannaflokkurinn nýtur mests fylgis samkvæmt könnunum, næstur kemur Framfaraflokkurinn. Hann er pópúlískur hægriflokkur. Sylvi Listhaug, formaður flokksins, vill fækka innflytjendum og hún hefur talað fyrir þyngri fangelsisdómum. Flokkurinn hefur, eins og hægripópúlistar í mörgum öðrum löndum, farið mikinn um lög og reglu og vill skera niður fjárveitingar til umhverfis- og velferðarmála og minnka skriffinnsku.
https://solvitryggva.is/ Eiríkur Hauksson er sannkölluð tónlistargoðsögn á Íslandi. Hann fór fyrstur allra fyrir Íslands hönd í Eurovision og átti síðar eftir að endurtaka þann leik og einnig fara fyrir hönd Noregs. Í þættinum ræða Sölvi og Eiríkur um magnaðan feril Eiríks, brjálæðið í kringum Eurovision, lífið í Noregi, erfiðustu tímabilin og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Biofit - https://biofit.is/
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Eiríkur Hauksson er sannkölluð tónlistargoðsögn á Íslandi. Hann fór fyrstur allra fyrir Íslands hönd í Eurovision og átti síðar eftir að endurtaka þann leik og einnig fara fyrir hönd Noregs. Í þættinum ræða Sölvi og Eiríkur um magnaðan feril Eiríks, brjálæðið í kringum Eurovision, lífið í Noregi, erfiðustu tímabilin og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Biofit - https://biofit.is/
Við Turnarnir bjóðum upp á pálínuboð í þætti dagsins. Fannar Freyr Guðmundsson, einn af bestu sonum Hafnarfjarðar, FH-ingur, Liverpoolmaður og þjálfarari Hrottanna á Litla Hrauni kom til okkar. Fáranleg saga af gullmarkinu, bikarævintýri á Íslandi og einkennileg fallbarátta í Noregi koma við sögu!Turnarnir eru í boði Lengjunnar, World Class og okkar besta Budvar!
https://solvitryggva.is/ Guðmundur Ebenezer Birgisson er reyndur sálfræðingur með háskólagráður í 3 greinum, sem sagði upp vel launuðu starfi í Noregi til að elta drauminn og byrja með fyrirtæki sem þróar lausnir í geðheilsu í gegnum internetið. Guðmundur og Sölvi ræða hér mikilvægi þess að þora að elta draumana og setja sér háleit markmið. Þeir fara í þættinum yfir þróun sálfræði og geðheilsu og hvaða lausnir gætu nýst best á komandi árum til að bæta vellíðan og geðheilsu fólks. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Biofit - https://biofit.is/ Exoquad - https://www.exoquad.is
Landsliðskonan vinsæla Sveindís Jane Jónsdóttir gekk á dögunum í raðir Angel City í Bandaríkjunum. Þetta voru skipti sem komu nokkuð mikið á óvart.Hún hefur síðustu ár verið á mála hjá Wolfsburg í Þýskalandi en hefur nú nýjan kafla í borg englanna í Bandaríkjunum í sumar. Þetta er áhugaverð.Sveindís settist niður með fréttamanni Fótbolta.net í Þrándheimi í Noregi í dag og ræddi þar betur um þessi áhugaverðu skipti. Sveindís gerði einnig upp tímann hjá Wolfsburg og ræddi auðvitað um landsliðið líka.Það er óhætt að mæla með þessu spjalli fyrir leik Noregs og Íslands sem er á föstudag.
Það voru vendingar í síðustu umferð Bestu deildar kvenna eins og rætt er um í nýjum þætti af Uppbótartímanum, sérstökum hlaðvarpsþætti um kvennaboltann. Þróttur Reykjavík er á toppnum eftir að FH tókst að leggja Breiðablik að velli í Kaplakrika. Rætt er um síðustu umferð sem er að baki og einnig um mikilvæga leiki sem eru framundan hjá kvennalandsliðinu gegn Noregi og Frakklandi. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur sjá um þáttinn en Hertz er stoltur stuðningsaðili kvennaboltans á Fótbolta.net.
Fyrsta umræða um frumvarp um veiðigjöld hófst í gær og stendur enn. Bæjarstjórinn í Snæfellsbæ fagnar því að ráðherra hafi hlustað á varnaðarorð sveitarfélaga sem reiða sig á lítil og meðalstór sjávarútvegsfyrirtæki. Glæpir geta leitt til réttarhalda og dóma. En hvað ef meintur glæpur snýst um metnað og hörku við að gera syni sína að heimsfrægum afreksmönnum. Um þetta fjalla frægustu réttarhöld í Noregi á síðari tímum. Bræðurnir Ingebrigtsen bera Gjert, föður sinn og þjálfara, þungum sökum. Forsætisráðuneytið þurfti að ítreka við ráðherra að skila hagsmunaskráningu sinni og fæstir ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa uppfært sínar dagbækur þrátt fyrir að ákveðið hafi verið í febrúar að það ætti að gera.
Sérfræðingar í atvinnuvegaráðuneytinu töldu strax í desember að sú breyting að miða verð á uppsjávarfiski við verð á uppboðsmörkuðum í Noregi væri einföld í útfærslu, lagatæknilega séð. Ef vel væri haldið á spilunum væri hægt að koma fram með frumvarp strax á vorþingi. Þeir lögðu líka áherslu á mikilvægi samráðs og að hafa þyrfti í huga að fyrirkomulag veiða og vinnslu í Noregi væri ólíkt því sem tíðkaðist hér á landi. Gerræðisleg vinnubrögð Donalds Trumps og yfirlýsingar um tollheimtu eru ekki líkleg til að laða fjárfestingu að Bandaríkjunum og það á eftir að taka langan tíma fyrir bandarísk stjórnvöld að öðlast traust á ný að dómi hagfræðiprófessor
Íslenska kvennalandsliðið tók tvö stig í leikjum sínum gegn Noregi og Sviss í Þjóðadeildinni. Stelpurnar fara í eiginlegan úrslitaleik við Noreg um annað sætið í riðlinum í næsta mánuði. Það var margt jákvætt í þessum tveimur leikjum en líka heilmargt sem hefði mátt fara betur. Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Sverrir Örn fóru yfir það helsta þegar Ísland á núna þrjá leiki fram að Evrópumóti.
Píanóleikarinn Ólína Ákadóttir segist vera bæði forvitin og hvatvís. Þeir dýrmætu eiginleikar urðu til þess að hún ákvað að fara til Georgíu í skiptinám og dvelja þar í eitt ár, en hún stundar annars framhaldsnám í píanóleik við tónlistarháskólann í Osló. Georgía er um margt ólík Noregi, og Íslandi, og áherslurnar í tónlistarnáminu sömuleiðis. Víðsjá skoraði á Ólínu að mæta í stúdíó 12 og segja hlustendum ferðasöguna í tali og tónum. Hún rúllaði því verkefni upp með glans og afraksturinn er þáttur dagsins; svipmynd af tónlistarnema í Georgíu. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Guðjón Valur Sigurðsson og Kristján Andrésson gera upp HM hjá íslenska landsliðinu í símaviðtali við Sérfræðinginn í beinni frá Þýskalandi og Noregi.
Er það frétt ef amma hringir í framhaldsskóla og grennslast fyrir um skó barnabarns síns? Já, ef amman er ráðherra og vísar til þess í samtalinu. En getur ráðherra einhvern tímann kastað af sér skikkju valdsins og orðið bara amma í leit að týndum skóm? Það er mánuður í landsfund Sjálfstæðisflokksins og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir varð í gær fyrst til að lýsa því yfir að hún vildi verða formaður, hverjar yrðu hennar áherslur verði hún formaður. Norska ríkisstjórnin féll ekki í dag. Það er kom mönnum á óvart eftir yfirlýsingar síðustu daga. Enn á að reyna að ná sátt um orkupakka Evrópusambandsins. En af hverju ekki að rjúfa þing og boða til kosninga? Það má ekki samkvæmt stjórnarskrá landsins.
Gestur vikunnar er Teitur Þórðarson. Teitur breytti þjálfunaraðferðum í knattspyrnu í Noregi, á Íslandi og í Eistlandi. Hann þjálfaði líka í Kanada og spilaði í Svíþjóð, Frakklandi og Sviss. Teitur hefur flutt 27 sinnum! Teitur var frábær leikmaður. Stór, sterkur og fljótur með ríkt dugnaðargen í skrokknum. Við fórum yfir fullt af hlutum. Árin í Noregi, hvernig það var að spila undir Arsene Wenger og hvað skiptir máli til að ná árangri og margt fleira. Við Turnarnir þökkum Nettó, Netgíró, Lengjunni, Hafinu fiskverslun, Fitnessport, Visitor og Budvar fyrir að vera með okkur í liði. Njótið!
Þótt eldgos verði seint hversdagsleg hafa eflaust einhverjir yppt öxlum þegar byrjaði að gjósa á Sundhnúksgígaröðinni á miðvikudagskvöld. Gosstrókarnir voru vissulega tilkomumiklir í vetrarmyrkrinu en þetta var nú einu sinni sjöunda gosið þarna, það sjötta bara á þessu ári. Íslandsstofa vinnur að því að segja við erlenda ferðamenn og ferðaþjónustufyrirtæki að eldgos séu bara hluti af hinu daglega lífi á Íslandi. COP 29, 29. loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem haldin er í Bakú í Aserbaísjan, á að ljúka í dag en það er allt útlit fyrir að hún dragist eitthvað á langinn, enda þátttakendur í vandræðum með að koma sér saman um orðalag lokasamþykktarinnar eins og stundum áður. Þessar ráðstefnur, þar sem þúsundir ráðamanna, sérfræðinga og fulltrúa hagsmuna- og umhverfisverndarsamtaka alstaðar að úr heiminum safnast saman, eru umdeildar - og árangurinn af þeim líka. Möguleg þjóðaratkvæðagreiðsla um umsókn að Evrópusambandinu er komin á dagskrá í kosningabaráttunni, ekki síst vegna stöðu Samfylkingar og Viðreisnar í skoðanakönnunum og ummæla leiðtoga flokkanna að undanförnu. Í Noregi er vel fylgst með þessum umræðum, enda gæti möguleg innganga Íslendinga þýtt endalok samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.
Gestur vikunnar er Jóhann Birnir Guðmundsson, eðalnáungi. Jói æfði eiginlega ekki fótbolta í 3 og 4 flokki því það var ekki lið í Garðinum, þaðan sem kemur. Elton John keypti hann til Watford og þar spilaði hann undir goðsögninni Graham Taylor. Jóhann spilaði svo i Englandi, Noregi og í Svíþjóð áður en hann kom heim til að spila með Keflavík. Eftir ferilinn hefur Jói verið þjálfari Keflavíkur, yfirþjálfari Keflavíkur, afreksþjálfari hjá FH og er nú þjálfari ÍR í Lengjudeildinni.Jói er næst ruglaðisti aðdáandi Man United á Íslandi, rétt á eftir mömmu sinni og er Cristiano Ronaldo kallaður Krissi bróðir í daglegu tali í Garðinum.
Tungurnar reka sig á gat og þurfa að hringja í Vilborgu Davíðsdóttur þegar kemur að hinni miklu Unni Djúpúðgu. Þeir velta sér í heyi með Höskuldi Dala-Kollsyni. Það er ekki annað hægt en að klæja og klóra sér til yfir meðferð hans á Melkorku Mýrkjartansdóttur.
Guðrúnu dreymir fjóra drauma. Þetta er sagan krakkar, takið eftir! Draumarnir eru ráðnir í pottinum í Sælingsdal en Kjartan og Bolli slá í gegn í Noregi. Það sem er hins vegar hættulegt við Noreg er að festast þar og gönguskíða yfir sig. Nú fara leikar að hefjast.
Tólf létust og hátt í 3.000 særðust þegar þúsundir símboða sprungu nánast samtímis í Líbanon í gær og minnst níu hafa látist síðan að labb-rabb-tæki og sólarsellur á þökum íbúðarhúsa tóku að springa líka síðdegis í dag. Og fyrir stundu lýstu Ísraelar því yfir að nýr kafli í stríðinu fyrir botni Miðjarðarhafs væri hafinn, með áherslu á norðurvígstöðvarnar - sem eru við landamæri Líbanons. Evrópsku löggæslustofnanirnar Eurojust og Europol upplýstu í dag að þær hefðu tekið þátt í alþjóðlegum aðgerðum til að uppræta samskiptamiðilinn Ghost. Vefþjónn á Íslandi er talinn hafa hýst samskiptin að einhverju leyti. Ghost virðist hafa verið hannaður gagngert til að gera glæpamönnum og skipulögðum glæpagengjum kleift að eiga dulkóðuð samskipti sín á milli. Í Noregi er núna farið að tala um flótta fólks frá stjórnmálunum. Ungt fólk vill heldur gera eitthvað annað og meira spennandi en að stýra landi og sveitarstjórnum. Stöðugum illdeilum, þrasi og skítkasti á samfélagsmiðlum er auk annars kennt um.
Yfirvöld á Ítalíu hófu í síðustu viku morðrannsókn eftir að lúxussnekkjan Bayesian sökk við strendur Sikileyjar. Sjö létu lífið þegar skipið sökk. þar á meðal auðjöfurinn Mike Lynch, annar eigandi snekkjunnar og átján ára dóttir hans. Nú er unnið að rannsókn á flakinu og vonast er til að hún varpi ljósi á það hvað gerðist og hvernig snekkjan sökk, en saksóknarar beina sjónum að þremur úr áhöfninni sem gætu fengið dóm fyrir manndráp af gáleysi. Svo fjöllum við um umdeild áform stjórnvalda í Noregi sem stefna að umfangsmikilli vinnslu málma af hafsbotni. Norðmenn vonast til þess að vinnslan skapi mikil verðmæti en áformin hafa verið gagnrýnd bæði af vísindamönnum og umhverfissamtökum.
Sveitastjórn Skeiða-og Gnúpverjahrepps tekur á morgun ákvörðun um hvort leyfi Orkustofnunar fyrir Búrfellslundi verði kært til úrskurðarnefndar umhverfis-og auðlindamála. Sveitastjóri hreppsins segir komið að skuldadögum hjá ríkisstjórninni. Að vera annars flokks borgarar og mismunað, þannig líður mörgum Þjóðverjum sem búa í austurhluta landsins og þessa líðan létu íbúar í Þýringalandi og Saxlandi rækilega í ljós í kosningum í sambandslöndunum um helgina Norskar verslanakeðjur eru grunaðar um ólöglegt samráð um verð. Þrjú fyrirtæki ráða um 95 prósentum af dagvörumarkaði. Samkeppniseftirlitið norska hefur ákveðið að sekta þau, en kaupmenn neita að borga.
Ný rannsókn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, bendir til þess að smokkanotkun ungmenna um allan heim hafi dregist saman. Könnun WHO var gerð í Evrópu, Mið-Asíu og Kanada, náði til nemenda í sjötta, áttunda og tíunda bekk og sýndi að hlutfall óvarinna kynmaka hefur ekki verið hærra í þessum aldursflokki síðan 2014. Rætt verður við Ársæl Má Arnarsson, prófessor við menntavísindasvið HÍ. Fylgi við konungsdæmið í Noregi fellur jafnt og þétt vegna hneykslismála. Kannanir sýna að nær helmingi þjóðarinnar mislíkar þetta. Á morgun verður efnt til brúðkaups Mörtu Lovísu prinsessu í Geirangursfirði en hún hefur þegar selt erlendum fjölmiðlum réttinn til að taka myndir við athöfnina. Slíkt hefur aldrei gerst áður í Noregi. Þá verður fjallað um mál Paul Durov, stofnanda Telegram, sem nú sætir farbanni. Um það er deilt hvort handtaka hans sé atlaga að tjáningarfrelsinu
Fleiri deyja vegna neyslu fíkniefna í Skotlandi en nokkru öðru landi í Evrópu. Skotar hafa miklar áhyggjur, vonir eru að neyslurými geti fækkað dauðsföllum. Stjórnvöld í Danmörku og Svíþjóð hafa ákveðið að auka mjög samstarf í baráttu gegn glæpagengjum. Dómsmálaráðherrar landanna og ríkislögreglustjórar hittust og ákváðu aðgerir sem eiga að stoppa að samfélagsmiðlar séu notaðir til að lokka börn og unglinga í Svíþjóð til óhæfuverka í Danmörku, stórauka samstarf dönsku og sænsku lögreglunnar með til dæmis auðveldara aðgengi að upplýsingum og skipti á efni úr eftirlitsmyndavélum. Fíkniefnaneysla á að hluta sök á hneyksli í norsku konungsfjölskyldunni. Marius Borg Höiby, stjúpsonur Hákons krónprins, er sakaður um heimilisofbeldi, var handtekinn fyrr í ágúst. Hann virðist hafa gengið í skrokk á sambýliskonu sinni undir áhrifum kókaíns og áfengis. Fyrri kærustur hans komið með svipaðar ásakanir. Flokksþingi Demókrataflokksins í Bandaríkjunum er að ljúka og hefur verið aðal umfjöllunarefni fjölmiðla. Þeir hafa þó einnig fjallað um Robert F. Kennedy yngri sem hefur boðið sig fram til forsetaembættisins. Hann er sonur Roberts Kennedy, sem var myrtur árið 1968 og bróðursonur Johns F. Kennedy forseta sem var myrtur fimm árum áður. Kennedy yngri er þekktur sem harður andstæðingur bólusetninga og fyrir að trúa á alls kyns samsæriskenningar, meðal annars að flúor í vatni lækki greindarvísitölu fólks og sé krabbameinsvaldandi, að þráðlaus net leiði til „leka úr heilanum“, eins og hann hefur orðað það. Robert Kennedy virðist ætla að hætta við framboð og styðja Donald Trump gegn loforði um embætti ef Trump nær kjör.