Óveðrið 4.-5. febrúar 1968 er eitt versta veður í manna minnum. Í Ísafjarðardjúpi leituðu á þriðja tug togara vars en ísinging hlóðst upp og skipverjar börðu af ísinn fyrir lífi sínu. Tvö skip sukku í hyldýpið og það þriðja strandaði. Eftir sátu fjölskyldur í sárum. Fjallað er um óveðrið, þrautsegju…
Björgun Harry Eddom dró tugi breskra fjölmiðla til Ísafjarðar sem urðu æfir þegar þeir komust að því að The Sun hafði tryggt sér einkarétt að sögu hans. Starfsfólk sjúkrahússins á Ísafirði upplifði umsátursástand þegar það reyndi að verja Harry fyrir ágangi fjölmiðla sem beittu öllum brögðum til að komast að honum. Á meðan syrgðu Bolvíkingar fallna félaga af Heiðrúnu, þar á meðal ekkja eins þeirra sem eignaðist barnið þeirra daginn eftir að hann drukknaði.
Á meðan áhöfn Óðins leitaði Heiðrúnar í Ísafjarðardjúpi barst henni tilkynning um strand Notts County. Ástandið á illa búinni bresku áhöfninni versnaði með hverri mínútunni sem leið og þurftu Óðinsmenn sjálfir að leggja sig í hættu við björgunina. 36 tímum eftir að áhöfn Ross Cleveland hafði verið talin af fann smaladrengur í Seyðisfirði mann sem átti eftir að verða lifandi goðsögn.
Sjómenn börðust fyrir lífi sínu í Ísafjarðardjúpi sunnudaginn 4. febrúar 1968. Fárviðri barði á þeim á meðan þeir reyndu vanbúnir tímunum saman að vinna gegn fordæmalausri ísingu sem hlóðst á skipin og ógnaði lífi þeirra. Menn trúðu vart sínum eigin eyrum þegar skipstjóri Ross Cleveland skilaði hinstu kveðju áhafnarinnar áður en hún mætti örlögum sínum.
Allt lék á reiðiskjálfi þegar bolvískir sjómenn vitjuðu báta sinna sunnudagsmorguninn 4. febrúar 1968. Eitt versta veður sem sést hefur í Ísafjarðardjúpi hafði þá geisað um nóttina og átti veðurofsinn greiða leið í óvarða höfnina. Á meðan sjómennirnir gerðu allt til að bjarga sér og bátunum sátu áhyggjufullir aðstandendur heima og hlustuðu á angistarfull samskipti á bátabylgjunni.
Eftir að hafa haldið til borðhalds í hægu veðri lentu gestir þorrablóts í Hnífsdal árið 1968 í stökustu vandræðum með að komast heim af því. Undir miðnætti byrjaði félagsheimilið að nötra sem var undanfari eins versta óveðurs sem gengið hefur yfir Ísafjarðardjúp. Óveðrið átti eftir að setja mark sitt á sálarlíf íbúa og sjómannssamfélagsins við Humberfljót í Englandi.