POPULARITY
Categories
Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir að gera þurfi miklu meira miklu hraðar, ef Ísland á að ná settu markmiði um 41% samdrátt á samfélagslosun fyrir árið 2030, og segir margt þegar hafa veið gert og fleira í bígerð til að auka líkur á því. Hins vegar er hann efins um að lögbundið markmið um kolefnishlutlaust Ísland fyrir 2040 sé raunhæft. Ekki hefur enn verið skilgreint hvað í þessu hugtaki felst, og það sé því í raun nánast marklaust. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Jóhann Pál. Jens-Frederik Nielsen formanni landsstjórnar Grænlands og Múte B. Egede utanríkisráðherra landsins var vel fagnað þegar þeir komu til Nuuk frá New York í gærkvöld. Þeim var létt: Eftir ítrekaðar yfirlýsingar Donalds Trumps um að Grænland væri öryggi Bandaríkjanna nauðsynlegt og þau þyrftu að ráða því, var samningur milli ríkjanna þriggja um varnir og öryggi í höfn. En hvað felst í honum? Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Erling Erlingsson hernaðarsagnfræðing. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Elín Ósk Óskarsdóttir heldur upp á 40 ára söngafmæli sitt með tónleikum í Salnum í Kópavogi 4.október nk. Elín Ósk hóf tónlistarnám sitt við Tónlistarskóla Rangæinga 11 ára gömul. Hún stundaði svo nám við Söngskólann í Reykjavík frá 1979-1984 og lauk þaðan einsöngvaraprófi. Aðalkennari hennar var hin ástsæla söngkona Þuríður Pálsdóttir og henni við hlið var Jórunn Viðar tónskáld sem sá um undirleikin. Elín Ósk stundaði framhaldsnám á Ítalíu frá 1984-1986 hjá Pier Miranda Ferraro tenór og prófessor í Mílanó. Eftir tveggja ára nám á Ítalíu var Elín kölluð heim til Íslands til að syngja titilhlutverkið í óperunni Tosca í uppfærslu Þjóðleikhússins árið 1986 aðeins 25 ára og var það jafnframt hennar fyrsta hlutverk á sviði. Elín Ósk fór yfir ferilinn með okkur og sagði til dæmis frá því þegar hún missti röddina og ekki fannst orsök þess fyrr en hún loksins fór til kvensjúkdómalæknis sem gat greint hvað var að hrjá hana. Jónatan Garðarsson hélt svo áfram að fræða okkur um okkar frábæra tónlistarfólk. Í dag var komið að Björgvini Halldórssyni, Bo. Björgvin var auðvitað magnaður söngvari, en líka góður lagahöfundur og stjórnaði upptökum á fjölda hljómplatna fyrir aðra. Hann varð gríðarleg stjarna mjög ungur og hélt áfram allan ferilinn að syngja sig inn í hjörtu þjóðarinnar. Við komum ekki að tómum kofanum hjá Jónatani þegar kemur að Björgvini, frekar en fyrri daginn. Tónlist í þættinum: Ég fann þig / Björgvin Halldórsson (bandarískt þjóðlag, texti Jón Sigurðsson) Vissi d'arte / Elín Ósk Óskarsdóttir og Sinfóníuhljómsveit Íslands (Giacomo Puccini, texti Luigi Illica og Giuseppe Giacosa) Þó líði ár og öld / Björgvin Halldórsson (Bob Calili, Michael Brown & Tony Sansone, texti Kristmann Vilhjálmsson (duln.f. Hrafn Gunnlaugsson)) Skýið / Björgvin Halldórsson (Björgvin Halldórsson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Spássían nefnist haustsýning Hafnarborgar 2026. Sýningin felur í sér endurmat á möguleikum sýningarrýmisins, sem er gjarnan nálgast sem hlutlaus bakgrunnur, og skilgreinir það í staðinn sem virkan þátttakanda í sýningunni. Víðsjá ræðir við Daníel Ágúst Ágústsson, einn þeirra listamanna sem eru með verk á sýningunni. Sjöfn Hauksdóttir rýnir í leikverkið Nýtt eldhús eftir máli, eftir Friðgeir Einarsson sem sýnt er í Kassanum um þessar mundir. Og við hugum að góðvini jafnt sem óvini þáttar Bob Dylan.
Vikulok Dr. Football með Gunnari Birgis og Alberti Inga.
Í þætti dagsins fjöllum við um leikræna tilburði stjórnmálafólks. Á Íslandi hafa pólitíkusar framið alls kyns gjörninga til að vekja athygli á þeim málum sem þeir vilja koma á dagskrá. Við förum yfir nokkra slíka og veltum fyrir okkur hvað stóra núll Kristrúnar Frostadóttur merkir í því samhengi. Eftir alvarlegt atvik í júlí óttast nú margir að mannkynið geti ekki haft stjórn á gervigreindinni sem það er að þróa. Meira en 1200 gervigreindar-agentar frá OpenAI sem voru í prófunum fundu leiðir til að eiga í samskiptum sín á milli, hópurinn skipulagði sig, laumaðist út af afmörkuðu æfingasvæði sínu, og hakkaði og gerði óskunda hjá hugbúnaðarsíðunni Hugging Face. Við ræðum málið við Tryggva Frey Elínarson hjá Datera. Brynja Hjálmsdóttir kemur við og segir frá þáttaröðinni Furious. Um er að ræða lögguþætti sem gætu þó höfðað til þeirra sem hafa ekki gaman af lögguþáttum alla jafna.
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta sætið í deildinni er lið Jóhanns Arnar Kjartanssonar sem situr á 216 stigum eftir 2 umferðir. Fresturinn til að gera breytingar fyrir umferð 3 er á föstudaginn kemur kl. 17:30 en umferðin hefst á leik Ipswich og Liverpool kl 19:00 á föstudagskvöld.
Þátturinn er í boði: Húðfegrun - www.hudfegrun.is Sleepy & Vest - www.sleepy.is / www.vest.is Er millennial krísa?
Mánudagur 31. ágúst Eftir kosningar, Stuðlagil, Trump, Landhelgisgæsla og uppsagnir Gunnar Smári ræðir við fólk með víðtæka reynslu úr stjórnmálum og fjölmiðlum um stöðu stjórnmála og samfélags eftir niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandið. Páll Ásgeir Ásgeirsson leiðsögumaður ræðir öryggismál í Stuðlagili. Hann segir samspil nokkurra þátta kunna að skýra banaslys við náttúruperlur. Björn Þorláks ræðir við Pál. Það er stutt í mikilvægar þingkosningar í Bandaríkjunum og við endurvekjum af þeim sökum upp Trumptímann. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur og Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur ræða við Gunnar Smára um Trump, komandi kosningar, áhrif Trump á Evrópu og Evrópusambandið, viðskiptastríð við Kanada o.s.frv. Persónulegt viðtal við forseta Landhelgisgæslunnar, Georg Lárusson, sem útskýrir brestina í röddinni sinni og hvernig hann þarf stundum að berja í borð til að fá hlustun. Georg rifjar upp hvernig var að alast upp í einangrun á prestsetri í Önundarfirði, þar sem varðskip kom oft til bjargar. Hann fagnar 20 ára starfsafmæli og segist vera í draumastarfinu sínu í viðtali við Ásdísi Olsen. Valgeir Þór Jakobsson hjá Samfés ræðir við Björn Þorláks um uppsagnir á velferðar- og frístundasviði hjá borginni. Hann fordæmir öfugþróun og tekur undir áhyggjur lögreglu f vaxandi unglingadrykkju.
Sunnudagurinn 30. ágúst Synir Egils: Dagurinn eftir þjóðaratkvæði Við förum yfir stöðu samfélagsins daginn eftir þjóðaratkvæði um Evrópusambandið. Fyrst með þeim Kristján Kristjánssyni fyrrum umsjónarmanns Sprengisands, nú umsjónarmanns Kastljóss, Aðalsteini Kjartanssyni aðstoðarritstjóra Heimildarinnar og Sirrý Hallgríms fyrrverandi aðstoðarkonu ráðherra. Síðan koma þingkonurnar Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, María Rut Kristinsdóttir, Dagbjört Hákonardóttir og Rósa Guðbjartsdóttir og meta áhrifin af niðurstöðunni. Þá fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
Í tilefni af þjóðaratkvæðagreiðslu Íslendinga um mögulegar aðildarviðræður að Evrópusambandinu fékk Flugvarpið Erlend Gíslason lögmann í viðtal til að ræða stuttlega um hvaða áhrif innganga í ESB hefði fyrir flugið; þessa stóru grein hérlendis sem þúsundir hafa atvinnu af með beinum og óbeinum hætti. Erlendur er einn eiganda LOGOS og hann hefur um árabil sérhæft sig í flugrétti og fjármögnun flugvéla og starfar á því sviði m.a. fyrir flugfélög, flugvélaleigufyrirtæki og fjármögnunaraðila. Í þættinum er líka fjallað stuttlega um ETS umhverfisskattana og hvernig hagsmunagæslu Íslands var óbótavant við innleiðingu kerfisins í gegnum EES á sínum tíma. Þá gagnrýnir Erlendur harðlega hvernig innviðaráðherra setti á afturvirka reglugerð í kjölfarið á falli Play haustið 2025. Reglugerðin hafi komið illa við íslensk fyrirtæki í flugrekstri og rýrt traust og tiltrú í viðskiptum erlendra flugvélaleigusala við Íslendinga.
Það eru áhugaverðir tímar hjá Tottenham þessa stundina. Eftir tvö mjög erfið tímabil, þá er búið að leggja mikið í leikmannahópinn fyrir komandi tímabil. Roberto De Zerbi er á leið inn í sitt fyrsta heila tímabil sem stjóri liðsins og hann ætlar sér stóra hluti. Spurs var hársbreidd frá falli á síðustu leiktíð, en hvað gera þeir núna? Bogi Ágústsson og Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmenn Tottenham, mættu í Coke stúdíóið og fóru yfir allt það helsta hjá Spurs.
Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Þeir Jón Haukur Baldvinsson og Bjarni Gaukur Sigurðsson komu í Coke stúdíóið til að ræða um sitt uppáhalds félag, Aston Villa. Aston Villa vann Evrópudeildina á síðustu leiktíð og fer núna aftur inn í Meistaradeildina. Unai Emery er heldur betur búinn að gera magnaða hluti fyrir félagið.
Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Við byrjum á Manchester City sem endaði í öðru sæti á síðasta tímabili en City hefur gengið í gegnum miklar breytingar í vetur. Pep Guardiola umbreytti félaginu öllu en hann er núna horfinn á braut. Magnús Ingvason og Jón Unnar Viktorsson, stuðningsmenn Man City, mættu í Coke stúdíóið og fóru yfir stöðu mála.
Þátturinn er í boði: Húðfegrun - www.hudfegrun.is Miðbæ Selfoss Oche Reykjavik - https://oche.com/is/reykjavik Hugur Studio - www.hugur.studio Okkur leið eins og það væri heil eilífð síðan við tókum síðast upp, en margt hefur gengið á sem við förum í saumana í. Hvað þýðir antiheist og hvort mundum við frekar? Góð pæling, takk fyrir að hlusta, lovjú.
Ár er liðið frá því að Alþjóðadómstóllinn í Haag birti ráðgefandi álit á skyldum ríkja vegna loftslagsbreytinga. Eftir mikla gagnarýni og langan málflutning komst dómstóllinn að einróma niðurstöðu um að loftslagsmál hefðu áhrif á öllum sviðum mannlegrar tilveru, alstaðar í heiminum, og að öllum ríkjum bæri því skylda til þess að vernda loftslagið af fremsta megni. Bjarni Már Magnússon, doktor í lögfræði og sérfræðingur í þjóðarétti, rýndi í þetta mikla plagg fyrir loftslagsráð. Hann segir það umfangsmesta ráðgefandi álit í sögu dómstólsins, og marka tímamót í þróun þjóðaréttar á sviði loftslagsmála. Þá megi segja að það sé eins konar handbók fyrir fólk sem vill knýja yfirvöld í sínu landi til að gera betur í málaflokknum. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Í tengslum við yfirlýsingar og áhuga Donald Trump um yfirráð og kaup á Grænlandi hefur lítið verið talað um viðskilnað bandaríska hersins á fyrrverandi herstöðvum í landinu. Í þeim efnum er síður en svo allt í sómanum.
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um púnversku stríðin milli Rómar og Karþagó, með sérstaka áherslu á annað púnverska stríðið (218–201 f.Kr.) og leiðtoga Karþagómanna, Hannibal Barca.Hannibal er einn þekktasti herforingi fornaldarinnar og varð ódauðlegur í minni Rómverja fyrir herför sína frá Spáni til Ítalíu. Hann fór yfir Alpana með stríðsfíla og fjölmennan innrásarher og vann hvern stórsigurinn á fætur öðrum gegn Rómverjum á Ítalíu. Þrátt fyrir hernaðarsnilli sína og glæsilega sigra tókst honum þó aldrei að hertaka Róm. Að lokum færðu Rómverjar stríðið til Afríku og sigruðu Karþagómenn.Púnversku stríðin þrjú voru átök tveggja stórvelda sitt hvorum megin við Miðjarðarhafið um yfirráð á svæðinu. Eftir endanlegan sigur Rómverja árið 146 f.Kr., þegar Karþagó var lögð í eyði, stóð ekkert annað veldi jafnfætis Róm. Hefði Hannibal tekist að hertaka borgina má færa sterk rök fyrir því að saga Miðjarðarhafsheimsins hefði orðið allt önnur.Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Doc, Albert Inga og Tómas Guðmundsson eftir hetjulega frammistöðu Víkinga í Ungverjalandi.
Eftir kærkomið sumarfrí er Aukasendingin loksins mætt aftur í tækin og klár í slaginn fyrir nýtt körfuboltatímabil. Í þessum fyrsta þætti eftir pásuna er farið yfir helstu fréttir og hræringar síðustu vikna, en það er af nógu að taka eftir mánuð í dvala. Strákarnir hita rækilega upp fyrir tímabilið 2026-27 og kafa djúpt í leikmannamarkaðinn þar sem rýnt er í hverjir eru komnir, hverjir eru farnir og hvernig styrkleikahlutföllin á milli liðanna hafa breyst.Stærsti hlutinn er þó tileinkaður veglegri og snemmbúinni spá fyrir Bónusdeild karla þar sem farið er yfir hvert einasta lið og möguleika þeirra á komandi vetri. Það er óhætt að segja að spáin sé djörf og muni vafalaust kveikja hressilegar umræður á kaffistofunum á næstunni. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.Hér heimsækir þú Körfuna
Þátturinn er í boði: Húðfegrun - www.hudfegrun.is Miðbæ Selfoss Oche Reykjavik - https://oche.com/is/reykjavik Hugur Studio - www.hugur.studio Það tók við viss geðveiki eftir að hafa svifið um á bleiku skýi eftir brúðkaupið, svona meðal annars. Njótið vel!
Doc, Hjálmar Örn og Daði Laxdal í beinni frá Miami
Doc, Arnór Snær og Hjálmar Örn í Miami
23. júní 2016 ákváðu Bretar í þjóðaratkvæðagreiðslu að Bretland væri betur sett utan Evrópusambandsins, efnahags- og stjórnmálalegs ríkjasambands sem Bretar áttu þó ríkan þátt í að stofna og síðan móta um áratugaskeið. Af könnunum má ráða að meirihluti Breta telji Brexit hafa verið mistök, -ferlið allt hafa verið óttalegt klúður og að Bretland standi hallari fæti nú en áður. Rætt við Jón Daníelsson, prófessor við LSE. Kúrasáar eru fámennasta þjóð sem hefur komist á HM karla í fótbolta og landsmenn eru að rifna úr stolti. Um helgina gerðu þeir jafntefli við Ekvador og markvörður Kúrasá var hetja leiksins, varði 15 sinnum. Sjö - eitt tap fyrir Þjóðverjum í fyrsta leik fyllti menn líka gleði. Halla Fróðadóttir lýtalæknir hefur unnið og búið á Kúrasá undanfarin ár.
Reykvíkingur ársins var kynntur á dögunum, hann er valinn út frá tilnefningum, einstaklingar sem hafa með háttsemi sinni eða atferli verið til fyrirmyndar á einhvern hátt. Eftir yfirferð á tilnefningum var tekin ákvörðun um að veita Jensínu Eddu Hermannsdóttur titilinn, en hún er þekkt fyrir framlag sitt til uppeldismála og jákvæðrar sálfræði í skólastarfi og hefur starfað af heilindum að málefnum barnanna í leikskólanum Laufásborg. Jensína kom í þáttinn í dag. Í sumar eru fjörutíu ár liðin frá því að fyrsta alþjóðlega sumarnámskeiðið í íslenskri tungu og menningu var haldið við Háskóla Íslands. Námskeiðið var sérstaklega hannað fyrir námsmenn sem komu hingað frá erlendum háskólum. Branislav Bédi kom í þáttinn í dag, en hann kemur frá Slóvakíu og er doktor í annarsmálsfræðum við Árnastofnun og hefur kennt íslensku sem annað mál við Háskóla Íslands. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur var svo með okkur í dag í veðurspjallinu í beinni útsendingu úr hitanum í Rómarborg. Í dag horfði hann einmitt til hitabylgjunnar í Evrópu, hvað hefur mælst hár hiti og hverjar eru horfurnar? Í því samhengi fræddi hann okkur um rauða hitaviðvörun, hvað þýðir hún? Hverjar eru ástæður þessa og hvað er hitahvelfing? Og hver er tengingin á milli hitabylgjunnar og kalds sjós og lofts suðvestan Íslands? Í restina fór Einar svo aðeins yfir horfurnar hér heima framundan. Tónlist í þættinum í dag: Í huga mér / Brimkló (Quillan Pierce, texti Jón Sigurðsson) Allt það góða / Helgi Pétursson (Kris Kristoferson, texti Jónas Friðrik Guðnason) Á úthafsins öldum / Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson) Turistens klagan / Cornlis Vreeswijk (Cornelis Vreeswijk) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Þótt meirihluti Grænlendinga vilji ekkert með Bandaríkjamenn hafa gegnir öðru máli um íbúa Narsarsuaq. Þeir binda miklar vonir við að bandaríski herinn komi þar upp herstöð.
Kaflar 31-33 í skólaútgáfuÞáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Njósnar-Helgi fær háðuglega útreið, en ekki verri en Eyjólfur grái þegar feðraveldið fær á snúðinn. Gísla er orðið svo illt í maganum að hann fær sturlaða drauma.
Sjöundu umferð Bestu deildar kvenna er lokið og er kominn tími á nýjan Uppbótartíma. Arnar Páll Garðarsson, Magnús Haukur Harðarson og Snæbjört Pálsdóttir komu saman til að fara yfir leikina. Einnig er snert á landsliðinu sem er að koma saman fyrir mikilvægan leik gegn Úkraínu í undankeppni HM. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
Það styttist í þau tímamót að fimm ár verði liðin frá því að Afganistan féll í hendur talibana. Reglulega hafa borist fréttir af síversnandi aðstæðum Afgana, sér í lagi stúlkna og kvenna. En hvernig er staðan í Afganistan, nú þegar talibana hafa verið við völd í tæp fimm ár ílandinu? Við kynnum okkur það í þættinum og heyrum líka af samruna tveggja af stærstu kvikmyndaverunum í Hollywood. Eftir uppboðsstríð við streymisveituna Netflix tókst Paramount að tryggja sér Warner Bros. á 111 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði um 13.800 milljarða íslenskra króna. Yfirvöld þurfa að samþykkja samrunann en ef af honum verður verða aðeins fjögur stór kvikmyndaver eftir í Bandaríkjunum. Leikarar, framleiðendur, leikstjórar og aðrir hafa áhyggjur af færri tækifærum gangi samruninn í gegn, störfum fækki, kostnaður hækki og að úrval fyrir neytendur verði minna. Sigurjón Sighvatsson framleiðandi sem hefur unnið í Hollywood til áratuga segir að samruninn hafi verið óumflýjanlegur.
Arsenal er Englandsmeistari 2026. Eftir 22 ár af sársauka er Englandsmeistarabikarinn aftur mættur til Norður-London. Stuðningsmenn Arsenal eru í skýjunum og tveir þeirra mættu á skrifstofu Fótbolta.net í kvöld til að fara yfir þetta allt saman. Einnig var rætt um brottför Pep Guardiola frá Manchester City, Xabi Alonso til Chelsea, fallbaráttuna, Spygate og margt fleira. Guðmundur Aðalsteinn stýrir þættinum en með honum í þessum þætti eru Jóhann Fjalar Skaptason og Vignir Már Eiðsson.
Arsenal er Englandsmeistari eftir 22 ára bið. Bournemouth og Man. City gerðu 1-1 jafntefli á Suðurströndinni. Þetta og allt hitt í þætti kvöldsins með frábærum gestum í setti.
Stymmi Klippari, Geiri Sly og Alli Eyjólfs mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp úrslitaeinvígi karla og kvenna. Valur er Íslandsmeistari eftir eins marks sigur á FH á Hlíðarenda. Er verið að sprengja konfetti á vitlausum tímapunktum í leikjum? Ársþing hjá HSÍ framundan og verður spennandi að sjá hvaða breytingar verða. Læti í Vestmannaeyjum og umgjörðin ekki nógu góð? Final 4 er klárt og Álaborg eru einu nýliðarnir. Þetta og svo miklu miklu í nýjasta þætti Handkastsins.
Endurfluttur þáttur frá 2024: Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er fædd í Reykjavík árið 1960 en bjó um árabil í Frakklandi, Ítaliu og Bandaríkjunum. Hún stundaði nám í fatahönnun í París og við Parson School of Design í New York. Eftir útskrift starfaði hún hjá erlendum tískuhúsum á borð við Calvin Klein, Ralph Lauren, La Perla og Gucci, en ákvað árið 2000 að flytja heim til Íslands og stofna sitt eigið merki: Steinunn. Síðan þá hefur Steinunn einnig rekið verslun í verbúðunum á Granda, þar sem hún framleiðir í takt við eftirspurn vel sniðin föt úr hágæðaefnum. Hún segist lifa í núinu þökk sé fjölfötluðum syni sem hefur kennt henni meira um lífið en allt annað, hún klæðist ull frá toppi til táar alla daga, allan ársins hring og helst bara svörtu.
Það hefur verið ófriðlegt í norðurhluta Nígeríu stærstan hluta aldarinnar, meðal annars vegna uppgangs hryðjuverkasamtakanna Boko Haram. Mannrán, morð og önnur ofbeldisverk hafa verið tíð. Eftir að dregið hafði úr ofbeldisverkum blossuðu þau upp aftur í fyrra, og nú er ástandið verra en nokkru sinni. Margir samverkandi þættir skýra ástæðuna, bæði samfélagslegir og efnahagslegir. Hallgrímur Indriðason fer yfir það. Læknar án landamæra eru meðal virtustu mannúðarsamtaka heims. Í rúma hálfa öld hafa starfsmenn þeirra lagt líf sitt að veði til þess að koma þeim allra hjálparlausustu meðal okkar til aðstoðar. Samtökin starfa á mörgum af hættulegustu stöðum í heimi og starfsmenn þeirra hraða sér gjarnan í áttina að hörmungum sem aðrir leggja á sig mikið að flýja. Þessi samtök, sem við heyrum svo oft minnst á í fréttum, eru þekkt fyrir að vera sumpart djarfari en önnur álíka mannúðarsamtök, og veigra sér ekki við því að storka yfirvöldum í þeim löndum sem þau starfa - á meðan önnur samtök starfa þar ekki nema með samþykki yfirvalda. Þessi djarfa nálgun hefur orðið öðrum innblástur og stofnuð hafa verið önnur samtök, með svipaða hugmyndafræði, eins og Blaðamenn án landamæra, Kennarar án landamæra, Lögfræðingar án landamæra og Verkfræðingar án landamæra, svo fáein séu nefnd. En hvernig er að starfa fyrir Lækna án landamæra og hvað er það, sem fær fólk til þess að stofna lífi sínu - síendurtekið - í hættu, til þess að hjálpa öðrum? Oddur Þórðarson ræðir við Íslending sem hefur gert nákvæmlega þetta í heil 10 ár.
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, og Þórður Gunnarsson ræða sjávarútveg og efnahagsmál. Farið er yfir helstu tíðindi af sjávarútvegssýningunni í Barcelona og rýnt í undarlega Facebook-færslu matvælaráðherra í kjölfar hennar. Þá er fjallað um umtalaða umfjöllun danska blaðsins Berlingske, stöðuna í efnahagsmálum og á vinnumarkaði, næstu skref í ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar, hvalveiðar í sumar og margt fleira. Að sjálfsögðu eru síðan hraðaspurningar, hrós vikunnar og bókadómur vikunnar á sínum stað.
https://solvitryggva.is/ Jóhannes Haukur Jóhannesson er einn þekktasti leikari Íslands á erlendri grundu. Eftir að hafa getið sér gott orð í leikhúsi og bíómyndum hér heima lá leiðin út fyrir landsteinana, þar sem hann hefur að mestu alið manninn undanfarin misseri. Í þættinum ræða Sölvi og Jóhannes Haukur íslandsmetið í Covid-prófum, leiklistina og almennt um lífið og tilveruna. Þátturinn er í boði; Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Smáríkið - https://smarikid.is/ Ingling - https://ingling.is/
Gunnar Theódor Eggertsson hefur komist að því að Íslendingar séu að líkindum með þeim allra fyrstu sem skrifuðu dýrasögur á ofanverðri 19. öld. Þá er ekki átt við sögur þar sem dýrin tala eða hafa mjög mannlega eiginleika, heldur er reynt að lýsa ævi þeirra frá þeirra forsendum. Hér verða lesnar tvær sögur, önnur er Heimþrá eftir Þorgils gjallanda og hin Skjóni eftir Gest Pálsson.
https://solvitryggva.is/ Óttar Guðmundsson geðlæknir hefur í áraraðir starfað við að aðstoða fólk með geðsjúkdóma, fíknivanda og fleira. Eftir hann liggur fjöldi bóka, allt frá Ævisögu Megasar yfir í ,,Hetjur og Hugarvíl", þar sem Óttar skoðar geðsdjúkdóma og persónuleikaraskanir helstu hetjanna úr Íslendingasögunum. Óttar hefur auk þess verið yfir kynleiðréttingarteymi landsspítalans frá því það var stofnað. Hér ræða hann og Sölvi um geðsjúkdóma, bækurnar, Covid tímann, það hvort við séum farin að ofgreina allt og alla, hvort samfélagið sé orðið of bómullarvætt og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Smáríkið - https://smarikid.is/ Ingling - https://ingling.is/
ÍA er spáð fjórða sæti Bestu deildarinnar af sérfræðingum Fótbolta.net. Það styttist í sumarið en við fengum Elfu Björk og Brynjólf Þór, stuðningsfólk ÍA, í spjall til að ræða komandi keppnistímabil hjá sínum mönnum.
Rætt er við Arnar Friðriksson framkvæmdastjóra flugfélagsins Norlandair um starfsemi félagins sem er með höfuðstöðvar sínar á Akureyri. Félagið er með 7 flugvélar í rekstri og flug félagsins er gríðarlega mikilvægt ekki bara fyrir Akureyringa heldur landsmenn alla. Félagið er með sjúkraflugsvakt allan sólarhringinn allt árið um kring, sinnir áætlunarflugi innanlands og síðast en ekki síst sinnir það fjölbreyttum leiguflugsverkefnum með Twin Otter flugvélum í krefjandi aðstæðum á Grænlandi. Arnar ræðir vítt og breitt um um flugmálin, innanlandsflugið, útboðsmálin og rekstrarumhverfi fyrir lítið flugfélag eins og Norlandair. Einnig er farið yfir þær aðstæður sem sköpuðust 26. febrúar síðastliðinn þegar margar þotur lentu á Reykjavíkurflugvelli og fyrir vikið varð völlurinn ekki nothæfur um tíma fyrir sjúkra- og áætlunarflug. Áhugavert spjall þar sem hlustendur fá örlitla innsýn í rekstur Norlandair. Viðtalið var tekið upp í lok mars inni í F-27 flugvél Landhelgisgæslunnar á Flugsafni Íslands á Akureyri.
Hallgrímur Indriðason fréttamaður fylgdist með þingkosningunum í Danmörku á þriðjudag og Bogi Ágústsson ræddi við hann í Heimsglugganum um stöðuna í dönskum stjórnmálum. Fyrst ræddi Bogi þó kosningarnar í Færeyjum sem fram fara í dag og nýja skýrslu, ,,State of the Nordic Region“, sem inniheldur mikinn fróðleik um Norðurlönd. State of the Nordic Region hefur verið gefin út annað hvert ár frá 1981. Skýrslan sýnir þróun og stefnur á Norðurlöndum á sviðum eins og lýðfræði, vinnumarkaði og efnahagsmálum. Skýrslan er unnin af Nordregio sem er rannsóknastofnun Norrænu ráðherranefndarinnar.
Íbúar í borginni Kherson í Úkraínu fara síður út þegar veðrið er gott. En þegar það er þoka, rigning og snjór má búast við að sjá fólk á gangi úti við. Og ástæðan? Skyggnið er verra og þá eru minni líkur á að fólk sé sært eða drepið af drónum Rússlandshers. Kherson er í suðurhluta Úkraínu, við ána Dnipro. Hinum megin við ána eru rússneskir hermenn sem herja á borgarbúa alla daga með drónum. Á drónunum er myndavél og sprengiefni. Sá sem stýrir dróna sér því hvert hann stefnir og viljandi er þeim beint að fólki á gangi úti, jafnvel börnum, og að bílum á ferð. Borgarbúar kalla þetta „human safari“ eða mannaveiðar. Það sé eins og Rússarnir séu á eftir almennum borgurum til að særa þá eða drepa. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið. Anthony Kim vann golfmót á dögunum. Kylfinga vinna golfmót vikulega, af hverju er þetta svona merkilegt? Jú kannski vegna þess að Anthony Kim hafði ekki unnið golfmót í að verða 15 ár. Hann var með þeim bestu þegar hann var yngri, rétt rúmlega tvítugur og hann átti framtíðina fyrir sér þegar hann meiddist. Þessi meiðsli höfðu gríðarleg andleg áhrif á hann og hann leiddist svolítið inn á ranga braut í lífinu og hætti alfarið að spila golf. Eftir rúman áratug af áföllum og neyslu nær hann sér aftur á beinu brautina og byrjar aðeins að fikta við golf aftur, þá með hvatningu konu sinnar og lítillar dóttur. En hann á langt í land með að geta orðið góður á nýjan leik. En rétt eins og hann sigraði fíknina þá náði hann að yfirstíga þessa miklu hindrun, að komast aftur í fremstu röð. Þannig þetta er ekki bara saga af einhverjum golfara, heldur þroska- og batasaga einhvers sem hafði gefist upp á lífinu. Og kannski sönnun þess að það sé hægt að snúa við blaðinu, jafnvel í verstu mögulegu aðstæðum. Oddur Þórðarson segir okkur söguna alla.
Reagan Tokes var einhver harðduglegasta unga kona sem sögur fara af. Með skýr markmið og stóra drauma vann hún hörðum höndum að framtíð sínni. Meðfram háskólanámi vann hún í hlutastarfi á veitingarstað en þar hafði hún eytt síðasta kvöldi sínu á lífi. Eftir vaktina hafði hún gengið út í bílinn sinn og síðan ekki sést meir. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Heimaskipulag Steinunn hjá Kosmetik Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Trúir því einhver að einungis Bítlarnir skáka Spice Girls hvað ýmsan árangur í vinældalistaklifri varðar? Eftir miðjan tíunda áratuginn kom þessi stúlknasveit inn í poppheima sem stormsveipur og næstu ár voru undirlögð af æði sem aldrei hafði áður sést - nema kannski í tilfelli Bítlaæðisins. Hér verður farið yfir þessa hluti alla auk þess sem doktorinn stillir frumburði Kryddpíanna fram sem þeirra besta árangri á breiðskífusviðinu.
https://solvitryggva.is/ Kristján Gíslason ákvað fyrir áratug að tími ævintýrann væri runninn upp. Eftir að hafa selt fyrirtæki sem hann byggði upp ákvað hann að fara hringinn í kringum hnöttinn á mótorhjóli einn síns liðs. Síðan þá hefur hann farið einn yfir alla Afríku, farið í syðstu hluta Suður-Ameríku og aftur í kringum hnöttinn, bara aðra leið. Í þættinum fer Kristján yfir ótrúlegar sögur af ævintýrum sínum á mótorhjólinu, hvað hann hefur lært af því að sjá heiminn og margt fleira. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Smáríkið - https://smarikid.is/ Ingling - https://ingling.is/
Heimsglugginn var að mestu norrænn að þessu sinni. Erna Solberg lætur af formennsku í Høyre, norska íhaldsflokknum. Eftirmaður hennar er Ine Eriksen Søreide, sem hefur verið bæði varnarmála- og utanríkisráðherra. Þá var rætt um grein þar sem Bertel Haarder eggjar norræna stjórnmálamenn lögeggjan til að bregðast við breyttri heimsmynd með stóraukinni samvinnu í varnarmálum. Í lokin var rætt stuttlega um kosningar í Danmörku og Svíþjóð sem verða síðar á árinu.
Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair í tilefni af uppgjöri félagisns fyrir árið 2025 sem nú er búið að birta. Þrátt fyrir sterkan fjórða ársfjórðung, góða stundvísi og góða sætanýtingu hjá félaginu þá er niðurstaðan sú að EBIT tapið nam 2,2 milljörðum króna og tap eftir skatta um 1,2 milljörðum. Rætt er um stöðu félagsins og horfurnar framundan, umhverfisskatta, kjarasamninga, flotamálin, hluthafana, innanlandsflugið og margt fleira.
Rætt er við Svein Akerlie stofnanda og forstjóra Avilabs sem er öflugt íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki og sérhæfir sig í þjónustu við farþega þegar raskanir verða á flugi eða það sem kallast ferðarof. Í desember s.l. urðu raskanir á meira en 700 þúsund flugferðum vítt og breitt um heiminn sem kallar á skjóta úrlausn mála fyrir milljónir farþega og þar liggur markaðurinn fyrir lausnir frá AVILABS. Kostnaður flugfélaga við raskanir á flugi telur tugi milljarða dollara á hverju ári og það hvernig úr slíkum málum er unnið getur skilið á milli þess hvort flugfélag skilar hagnaði eða ekki. Sveinn segir hér frá þessari einstöku viðskiptahugmynd og tilurð fyrirtækisins þar sem nú starfa 35 manns í sérhæfðum störfum tengdum flugi.
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Kristján Gíslason ákvað fyrir áratug að tími ævintýrann væri runninn upp. Eftir að hafa selt fyrirtæki sem hann byggði upp ákvað hann að fara hringinn í kringum hnöttinn á mótorhjóli einn síns liðs. Síðan þá hefur hann farið einn yfir alla Afríku, farið í syðstu hluta Suður-Ameríku og aftur í kringum hnöttinn, bara aðra leið. Í þættinum fer Kristján yfir ótrúlegar sögur af ævintýrum sínum á mótorhjólinu, hvað hann hefur lært af því að sjá heiminn og margt fleira. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Smáríkið - https://smarikid.is/ Ingling - https://ingling.is/
Doc, AI og Jói Már með Dr. Football. Þungir í transferum.
Doc, Sigurður Bond og Jói Már á sunnudagskvöldi.