Podcasts about undir

  • 97PODCASTS
  • 496EPISODES
  • 1h 13mAVG DURATION
  • 1WEEKLY EPISODE
  • Jul 18, 2026LATEST

POPULARITY

20192020202120222023202420252026


Best podcasts about undir

Latest podcast episodes about undir

PartyZone, Dansþáttur þjóðarinnar
Party Zone undir diskókúlunni 18. júlí

PartyZone, Dansþáttur þjóðarinnar

Play Episode Listen Later Jul 18, 2026 100:49


Í þætti kvöldsins spilum við hvern dansslagarann á fætur öðrum í órökréttri en fumlausri röð. Í fyrri hlutanum fáum við að sjálfsögðu diskótvennu og förum út í frímínútur með þáttarstjórnendum þar sem þeir handvelja allskonar nostalgíudanssprengjur handa hlustendum. Við kíkjum síðan inn á troðfullan skemmtistaðinn Prikið í kringum aldamótin í fylgd plötusnúðsins Benna B-ruff, förum aftur til dansársins 2004 og fikrum okkur svo auðvitað á barinn og hristum kokteil kvöldsins.

disk undir party zone priki
Spjallið
Fannar í Hipsumhaps sat undir spurningum um Tene giggið!

Spjallið

Play Episode Listen Later Jul 13, 2026 48:58


Þátturinn er í boði Maarud, Fjarþjálfun.is, Nóa Síríus, Blush, Nuun, Beauty barsins, Kristals og Kristals +.

beauty blush nuun undir fannar fjar giggi
PartyZone, Dansþáttur þjóðarinnar
Party Zone undir diskókúlunni 11. júlí

PartyZone, Dansþáttur þjóðarinnar

Play Episode Listen Later Jul 11, 2026 100:31


Diskókúlan snýst í Teitileiti 1 enn á ný á laugardaskvöldum, í þættinum PartyZone: Undir Diskókúlunni. Dansslagarar fortíðar og nostalgia fyrir dansþyrsta hlustendur Rásar 2 og hlaðvarpshlustendur. Í þætti kvöldsins heyrum við diskótvennuna, förum aftur til dansársins 1989 og sömuleiðis heimsækjum við skemmtistaðinn Thomsen sumarið 2001. Lokahnykkurinn er síðan m.a. vel hristur kokteill kvöldsins, íslenska lagið og nýja lagið. Tracklist: Love Sensation (Shep Pettibone 12" mix) - Loleatta Holloway Everybody Dance - Chic Salsa House - Richie Rich Save Our Soul - Bob Sinclar Brighter Days (Underground Trance mix) - Cajmere ft. Dajae I Like To Move It - Reel 2 Real Most Precious Love - Blaze Say No Go (Say No Dope mix) - De La Soul Gold Digger - Kayne West, Jamie Foxx Funky Cold Medina - Tone Loc Dirty Cash - The Adventures of Stevie V Pump Up the Jam - Technotronic Voodoo Ray (Rham on Acid remix) - A Guy Called Gerald Ride On Time - Black Box Pixels - Ubu Sputnik - Stylus Trouble We Come 1 (Rollo & Sister Bliss remix) - Faithless Magic Love - Bent The Acid Never Lies - Riot in Belgium Put Your Hands Together - D Mob Touch Me - Big Sista Unique (NY Underground mix) - Danube Dance ft. Kim Cooper Running (Disclosure remix) - Jessie Ware Round & Round - New Order Dreaming - BT ft. Kirsty Hawkshaw Circles - Adam F Disco (GusGus remix) - Súrefni Rise Up - Maya Jane Coles ft. Rye Rye

Spegillinn
Þúsund manns krefjast skaðabóta af Samherja

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 9, 2026 14:58


Alþjóðasamtökin Transparency International afhentu héraðssaksóknara í dag skaðabótakröfur ríflega eitt þúsund Namibíumanna sem telja sig hafa orðið fyrir tjóni vegna meintra mútubrota og spillingar Samherja í Namibíu. Transparency samtökin hafa lengi hafi barist fyrir því að fórnarlömb spillingar í alþjóðaviðskiptum fái áheyrn og skaða sinn metinn. Samherjamálið hafi haft alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir fjölda fólks og fjölskyldur þeirra. Undir það taka fyrrum sjómenn á togurum Samherja.

Fotbolti.net
HM hringborðið - Azteca stóð undir nafni og falleg vinátta forsetanna

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jul 7, 2026


Það hefur mikið gengið á í HM heimum undanfarna daga. Þeir Óskar Smári Haraldsson og Haraldur Örn Haraldsson voru gestir í hringborðinu að þessu sinni og fóru yfir helstu tíðindi og úrslit.

PartyZone, Dansþáttur þjóðarinnar
Party Zone undir diskókúlunni 4. júlí

PartyZone, Dansþáttur þjóðarinnar

Play Episode Listen Later Jul 5, 2026 100:11


Diskókúlan snýst í Efstaleitinu á laugardagskvöldum í sumar. Dagskrárliðir eins og Diskótvennan, Frímínútur, Dansárið er, Party Zone múmíur og íslenska lagið verða öll á sínum stað og við hristum í góðan kokteil í seinni hlutar þáttar. Í þessum þætti er dansárið árið 1991 þar sem ýmsir reif slagarar hljómuðu ótt og títt á mis löglegum skemmtunum og verða lög frá því frábæra tónlistarári í flestum dagskrárliðum þáttarins. Tracklist: Take Your Time (Do It Right) - The S.O.S. Band Ai No Corrida - Quincy Jones ft. Dune I Can't Wait - Nu Shooz Don't Mess With My Man - Lucy Pearl What Would We Do - DSK With Every Heartbeat - Kleerup & Robyn Party All The Time - Eddie Murphy Holding On - Julio Bashmore ft. Sam Dew Be Free - Basement Jaxx Activ 8 - Altern 8 Hide U - Kosheen A Roller Skating Jam Named Saturdays - De La Soul Everybody´s Free - Rozalla Quadrophonia - Quadrophonia Manila (Ewan Pearson remix) - Seelenluft Picnic Attack - I:Cube Dance the Dream - Desired State Always There (David Morales remix) - Incognito Fuk Dat - Sagat Last Train to Trancentral (Iron Horse) - The KLF Poor Leno - Röyksopp Blue Sunglasses (The Tom Middleton Cosmos re-edit) - Tiga & Zyntherius Silvery Sounds - Sound of K Freak it! - Studio 45 Skyr með rjóma - Sonus Futurae Love Your Bum - Eberg Misbehave - DJ Tennis ft. Campbell King

Víðsjá
Hermeto Pascoal, Jón Arason Hólabiskup og Jeff Parker

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jun 29, 2026 54:14


Í þættinum hugum við að brasilísku tónskáldi sem féll frá síðasta haust, Hermeto Pascoal, en Jazzklúbburinn Múlinn hefur boðað til tónleikatvennu nú á þriðjdag og miðvikudag þar sem leikin verða lög eftir þetta ólíkindatól. Tónleikarnir hafa yfirskriftina Viva Hermeto! og er þar markmiðið að fagna lífi hans, en á dagskránni má heyra ýmsar gerðir brasilískra tónstíla á borð við; samba, choro, baiao, maracatu, marcha og frevo. Sigmar Þór Matthíasson, tónlistarmaður, er í forsvari fyrir þessa tónleika og ræðir við okkur um Hermeto. Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor, endar syrpu sína um íslenska ljóðlist miðalda í dag með Jóni Arasyni Hólabiskup. Jón orti um píslarsögu Krists en átti svo sjálfur eftir að upplifa að vera leiddur til aftöku. Undir lok þáttar kynnum við okkur síðan nýja plötu frá bandaríska tónlistarmanninum Jeff Parker og IVets hans sem nefnist Happy Today.

PartyZone, Dansþáttur þjóðarinnar
Party Zone undir diskókúlunni 27. júní

PartyZone, Dansþáttur þjóðarinnar

Play Episode Listen Later Jun 28, 2026 99:00


Diskókúlan snýst í Efstaleitinu á laugardagskvöldum í sumar. Dagskrárliðir eins og Diskótvennan, Frímínútur, Dansárið er, Party Zone múmíur og íslenska lagið verða öll á sínum stað og við hristum í góðan kokteil í seinni hlutar þáttar. Í þessum þætti er dansárið árið 1996 þar sem meðal annars PartyZone '96 mixdiskurinn kom út og verða lög frá því frábæra tónlistarári í flestum dagskrárliðum þáttarins. Tracklist: Was it all it Was - Jean Carn Stop - Valery Allington Night Moves - Rickster Remember Me - Blue Boy Right on, Right On - Silicone Soul Dark Corners - SWAG Professional Widow (Armand Van Helden mix) - Tori Amos Bel Amour - Bel Amour Bailando - Paradisio Yours - Steffi ft. Virginia What You Want - Mase ft. Total The Search - Trancesetters Keep On Jumpin' - The Lisa Marie Experience Samba Magic - Basement Jaxx Weak Become Heroes (Ashley Beedle remix) - The Streets Packet of Peace - Lionrock Gabrielle - Roy Davis jr. Oh Shit - The Pharcyde Desire (Club mix) - Yello My Moon My Man (Boys Noize remix) - Feist Cry Wolf (Mighty Mouse edit) - Aha The Funk Phenonema - Armand Van Helden Lazy - X-press 2 ft. David Byrne Offshore - Chicane Dreams - Quench Vondur strákur - Rasta Pimps Nothing is Forever (Yuksek remix) - Kraak & Smaak ft. Kosta G

Fotbolti.net
HM hringborðið - Stjörnurnar standa undir nafni

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jun 24, 2026


HM hringborðið á miðvikudegi. Kári Snorrason, Elvar Geir og Sæbjörn Steinke fóru yfir úrslit og atburði síðustu daga á heimsmeistaramótinu.

hm steinke undir standa snorrason
PartyZone, Dansþáttur þjóðarinnar
Party Zone Undir diskókúlunni 20. júní

PartyZone, Dansþáttur þjóðarinnar

Play Episode Listen Later Jun 21, 2026 100:03


Afleggjaraþáttur PartyZone, sem heitir Undir Diskókúlunni er mættur aftur á dagskrá Rásar 2 núna í sumar. Dansbombur fortíðar, öll lögin sem hlustendur muna eftir í nostalgíukasti og upplifðu í tryllingi undir diskókúlu á skemmtistað einhvern tíma. Dagskrárliðir eins og Diskótvennan, Frímínútur, Dansárið er, Party Zone múmíur og íslenska lagið verða öll á sínum stað og við hristum í góðan kokteil í seinni hlutar þáttar. Í þessum þætti er dansárið góðæris árið 2007 og verða lög frá því ári í flestum dagskrárliðum þáttarins.

dans disk undir party zone
Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði
123 - Skálholt: Hinn forni höfuðstaður Íslands

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði

Play Episode Listen Later Jun 9, 2026 66:52 Transcription Available


Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um biskupssetrið Skálholt sem var um sjö aldir einn helsti höfuðstaður landsins.Biskupsstóllinn í Skálholti var stofnaður árið 1056, skömmu eftir kristnitökuna á Íslandi. Skálholt varð miðstöð kirkjulegs valds og þróaðist jafnframt í auðugt stórbýli sem safnaði miklum eignum og varð eitt helsta mennta- og lærdómssetur landsins. Á blómaskeiði Skálholts á 13. öld bjuggu þar tugir manna og má segja að þar hafi verið vísir að þéttbýli.Undir lok 18. aldar færðist stjórnsýsla og áhrifavald í vaxandi mæli til Reykjavíkur, og árið 1801 voru biskupsstólarnir í Skálholti og á Hólum lagðir niður. Þá mátti hinn forni höfuðstaður muna fífil sinn fegurri.Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

Lestin
Ritlistarfnykur og grískir harmleikir

Lestin

Play Episode Listen Later May 27, 2026 55:20


Lestin í dag er að mestu lögð undir umræður um stíl í bókmenntum, svokallaðan ritlistarstíl sem sumir telja sig geta greint í bókum fólks sem er menntað í skapandi skrifum í Amerískum háskólum. Við fáum innlegg frá Eiríki Erni Norðdahl sem reynir að setja fingurinn á þessa fagurfræði, og svo höldum við áfram með rithöfundunum Þórdísi Gísladóttur og Fríðu Ísberg og reynum að setja umræðuna í skandinavískt og íslenskt samhengi. Það eru tæplega 20 ár frá því að byrjað var að kenna skapandi skrif í Háskóla Íslands, og við ætlum að velta því fyrir okkur hvort og þá hvernig þetta nám hefur haft áhrif á íslenskt bókmenntalíf. Undir lok þáttarins hringjum við svo til Kýpur og spjöllum við Övru Sidiropoulou prófessor í leikhúsfræðum um gríska harmleiki. Þessi forna leikhúsgrein nýtur ennþá vinsælda og virðingar en í gær hlaut uppsetning Þjóðleikhússins á Óresteiu eftir Æskilos og í leikstjórn Benedict Andrews flest verðlaun á Grímuhátíðinni.

amer eir undir lestin benedict andrews
Handkastið
Allt undir á fimmtudaginn og ÍBV fengu ekki neyðarlán

Handkastið

Play Episode Listen Later May 4, 2026 81:54


Stymmi Klippari, Kiddi Bjé og Sigurjón Friðbjörn mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum. Það var stórkostlegur leikur í Kaplakrika í kvöld og orðið ljóst að við förum alla leið í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Thea Imani er á leið í atvinnumennsku. Það ræðst í vikunni hvaða lið leika til úrslita í Meistaradeild Evrópu. Handboltaþingið er um helgina og nokkrar breytingartillögur til umræðu. Valur er komið í 1-0 gegn ÍBV í einvígi þeirra um titilinn. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Ekkert að frétta
236 - Íslenski kvikmyndabransinn undir rafeindasmásjá

Ekkert að frétta

Play Episode Listen Later May 4, 2026 101:19


Sara Rut býr djúpt í viðjum kvikmyndabransans á Íslandi og talar hér tæpitungulaust um allt sem við skiptir máli. Enginn sem dregur andan má láta þetta fram hjá sér fara.

Mannlegi þátturinn
Stóri plokkdagurinn, Björgvin Valdimars sjötugur og vísindaspjallið með Eddu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 15, 2026 52:24


Stóri plokkdagurinn verður haldinn um allt land sunnudaginn 26. apríl. Dagurinn er orðinn fastur liður á vorin en hann var fyrst árið 2018. Tilgangurinn er að hvetja almenning, félagasamtök, fyrirtæki og sveitarfélög til að taka höndum saman og hreinsa nærumhverfið draga úr rusli í náttúrunni og vekja athygli á því að litlar aðgerðir margra geta skilað miklum árangri. Björn Skúlason forsetamaki mun setja daginn formlega og hefja opnunarplokkið og hann var hjá okkur í dag ásamt Jóni Karli Ólafssyni, fyrrum umdæmisstjóra Rótarý Ísland, en Rótarý hreyfingin skipuleggur daginn með aðstoð bakhjarla. Laugardaginn 9. maí verða haldnir tónleikar í Íþróttahúsinu Iðu á Selfossi þar sem Sinfóníuhljómsveit Suðurlands mun flytja verk Björgvins Þ. Valdimarssonar tónskálds og kórstjóra en þetta eru 70 ára afmælistónleikar hans og afmælisdagurinn er í dag. Á tónleikunum verða einsöngvarar og margir kórar sem starfa á Suðurlandi en Björgvin sjálfur er Selfyssingur í húð og hár og þar hófst tónlistarferill hans. Við spjölluðum við Björgvin í þættinum í dag. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið. En í dag fræddi hún okkur um muninn á körlum og konum þegar kemur að heilsufarskvillum tengdum offitu. Tónlist í þættinum í dag: Fólkið í blokkinni / Eggert Þorleifsson (Ólafur Haukur Símonarson) Undir dalanna sól / Álftagerðisbræður og karlakór Reykjvíkur(Björgvin Þ Valdimarsson, texti Hallgrímur Jónsson frá Ljárskógum) Það varst þú / Óskar Pétursson (Björgvin Þ Valdimarsson) Smooth Sailing / Horace Henderson and his Orchestra (Thompson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

bj lj karli sinf eggert svo hallgr undir selfossi eddu valdimarsson tilgangurinn
Handkastið
Allt undir á föstudaginn í Hafnarfirði og stelpurnar fara aftur af stað

Handkastið

Play Episode Listen Later Apr 14, 2026 65:01


Stymmi Klippari, Sigurjón Friðbjörn og Gunnar Valur mættur í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum. Snorri Steinn og Arnór Atlason gerðu samning við HSÍ til 2032. Stelpurnar Okkar eru á leiðinni á fjórða stórmótið í röð. Valsmenn sópuðu meiðslahrjáðum KA mönnum út Heimaliðin vinna ennþá í einvígi FH og Hauka. Heldur Stjarnan sæti sínu í deildinni í kvöld? Stelpurnar Fara loksins aftur af stað eftir stuttan undirbúning. Þetta og svo miklu miklum meira í nýjasta þætti Handkastins.

Við Tórði á túri
Við Tórði á túri undir Brúnni í Havn

Við Tórði á túri

Play Episode Listen Later Apr 13, 2026 51:54


Tað er nokk ikki ov nógv sagt, at Dreingjakórið Undir Brúnni hevur verið við til at gera býlingin Undir Brúnni kendan millum fólk. Kórið hevur verið til í mong ár og er framvegbis virkið.   Men hesin býlingurin í Havn frá áttatiárunum er eisini so nógv annað. Á hesum túrinum hitta vit bæði fólk, sum hava búð har frá byrjan av og nýggjar tilflytarar. Ymiskt er á skránni og m.a. verður í hesum døgum arbeitt við at endurnýggja spæliplássið, sum er mitt í býlinginum.   Tey, sum eru við á hesum túrinum, eru: Magni Dalsgaard, Eli Smith, Napoleon Smith, Brita Smith, Gunnar Gaardbo, Kristina á Løgmansbø, Helena Kannuberg, Høgni Waag og Brandur Sjúrðarson.

men havn waag undir tey eli smith
Handkastið
Allt undir hjá Stelpunum Okkar og spennan er í Hafnarfirðinum

Handkastið

Play Episode Listen Later Apr 10, 2026 67:47


Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp handbolta vikuna. Stelpurnar Okkar fengu skell í Færeyjum og eru í úrslitaleik gegn Portúgölum á sunnudaginn. Markmennirnir eru að ráða úrslitum í einvígi FH og Hauka. Valsmenn höfðu reynsluna þegar þeir kláruðu spennutrylli á Akureyri. Stjarnan alltof stór biti fyrir Hörð. 8 liða úrslitin í Meistaradeild Evrópu eru klár og það eru sömu lið þar og í fyrra. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Lestin
Bully, Undir Ísnum, Jóhanna af Örk, fyrsta íslenska útvarpsstöðin

Lestin

Play Episode Listen Later Apr 9, 2026 55:45


Framkoma Kanye West síðustu misseri hefur verið einhvers konar lifandi gjörningur. Svo segir Davíð Roach Gunnarsson tónlistargagnrýnandi Lestarinnar. Hann ætlar að rýna í tólftu breiðskífu brjálaða snillingsins Kanye West, Bully. Við fáum svo dóma um tvær mjög ólíkar nýjar íslenskar kvikmyndir. Undir Ísnum er spennumynd með strákunum úr popptónlistarhópnum Tónhylur í aðalhlutverki, en Jóhanna af Örk er tilraunakennd mynd eftir Hlyn Pálmason. Við kynnum okkur sögu fyrstu íslensku útvarpsstöðvarinnar H.F. Útvarp sem Otttó B. Arnar kom á fót fyrir 100 árum síðan, en útsendingar hófust í mars 1926. Við kíkjum á sýningu í Loftskeytastöðinni þar sem þessari sögu eru gerð skil. Viðmælendur eru þau Anna Diljá Sigurðardóttir, sýningarstjóri, og Sigurður Harðarson rafeindavirki og útvarpsáhugamaður.

Lestin
Ástin á tímum Tinder #6

Lestin

Play Episode Listen Later Apr 8, 2026 54:32


Þekkiru einhvern heterópessimista? Hvernig gengur á Tinder? Er kominn tími til að leggja öppin frá sér og velta því fyrir sér hvort þetta sé yfirhöfuð þess virði? Í þætti dagsins ræðum við við Emblu Ýr Teitsdóttur, sem hefur komist að því að önnur lífsformúla henti sér. Hún hefur lokað Tinder fyrir fullt og allt. Undir lok þáttar fáum við pistil frá Eiríki Erni Norðdahl, sem fékk Macintosh borðtölvu 17 ára gamall.

Gullkastið á Kop.is
Gullkastið – Allt Undir

Gullkastið á Kop.is

Play Episode Listen Later Apr 7, 2026 61:20


Frammistaða Liverpool um helgina var í beinu framhaldi af tímabilinu í heild og því lá við að skoða hvað væri raunverulega í boði á þjálfaramarkaðnum í sumar. Hvaða nöfn eru þetta sem eru efst hjá veðbönkum og er hægt að máta þá stjóra við Liverpool? Verkefni þessarar viku ráða svo líklega úrslitum um þetta tímabil og jafnvel næsta tímabil líka. Ef að Liverpool liðið ætlar að sýna eitthvað baráttuþrek og hjarta í vetur þá þetta tímapunkturinn til að byrja. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf

Víðsjá
Aldrei las ég Laxness / Undir Helgahnúk

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 18, 2026 54:36


Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar, Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga þáttarins er að þessu sinni Undir Helgahnúk sem kom út árið 1924. En verkið skrifaði Halldór í Benediktínaklaustrinu í Clervaux veturinn 1922, þá tvítugur - og hafði kaþólsk trú sterk áhrif á verkið sem er uppvaxtarsaga Atla Kjartanssonar, prestssonar sem gengur í gegnum mikla erfiðleika í æsku, missir bróður og móður, og fer því að missa trúna. Gestir þáttar eru þau Rán Flygenring, rithöfundur og myndhöfundur, og Halldór Guðmundsson, rithöfundur. Klúbburinn Aldrei las ég Laxness er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér nóbelskáldið, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, og/eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Næsta bók sem tekin verður fyrir verður Vefarinn mikli frá Kasmír en fjallað verður um hana í Víðsjá 15. apríl, næstkomandi. Hægt er að taka þátt í umræðum um bækurnar í sérstökum facebook hópi sem má finna hér: https://www.facebook.com/groups/1247768283945537

Frjálsar hendur
Anna á Moldnúpi, Ólafur Jóhann og Ásta vitlausa 1

Frjálsar hendur

Play Episode Listen Later Mar 1, 2026 50:06


Árið 1944 gaf Ólafur Jóhann Sigurðsson út skáldsöguna Fjallið og drauminn sem hlaut yfirleitt mjög góða dóma, þótt sumir væru upp og ofan, t.d. dómur Halldórs Laxness. En ein persóna bókarinnar, niðursetningurinn Ásta vitlausa, varð sérlega umdeild enda lýsing á ævi hennar sérlega ofboðsleg. Undir lok þáttar víkur svo að alþýðukonunni Önnu frá Moldnúpi sem nánar segir af í næsta þætti.

Lestin
1. þáttur: Ástin á tímum Tinder

Lestin

Play Episode Listen Later Feb 25, 2026 52:31


Það hlýtur að hafa einhver áhrif á ástarleitina að við séum með 5 mismunandi öpp til að finna þann eina rétta, þá einu réttu. Hvernig er ástin á tímum Tinder, á tímum tæknikapítalisma, Wolt, ChatGPT og Claude? Fyrsti viðmælandinn er piparsveinn og ljóðskáld, Þorvaldur Sigurbjörn Helgason. Undir lok þáttar fáum við pistil frá Eirikí Erni Norðdahl, um óhreinindi og slaufun.

Handkastið
Allt undir hjá ÍR um helgina og verða Haukar alltaf bestir

Handkastið

Play Episode Listen Later Feb 6, 2026 69:08


Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó-ið og gerðu upp 16.umferðina í Olís deildinni. Stjarnan eru komnir í alvöru fallbaráttu eftir tap gegn Þór. Haukar mættu á Hlíðarenda og pökkuðu Val saman. ÍR verða að vinna um helgina ef þeir ætla ekki að kveðja Olísdeildina. Markvarðaveisla fyrir aðdáendur Olís deildar karla. Haugur af leikjum í Olísdeildum karla og kvenna um helgina í handboltapassanum. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Fotbolti.net
Enski boltinn - Leikhús draumanna stóð undir nafni

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Feb 2, 2026


Arsenal styrkti stöðuna á toppi deildarinnar með sannfærandi sigri á Leeds. Thomas Frank og lærisveinar hans í Tottenham tóku stig gegn City og Benjamin Sesko reyndist hetjan í dramatískum sigri Manchester United á Fulham í leikhúsi draumana. Þá vann Liverpool vann sinn fyrsta deildarleik á árinu og gott gengi Chelsea undir Liam Rosenior hélt áfram. Kári Snorrason, Magnús Haukur Harðarson og Sölvi Haraldsson fóru yfir allt það helsta úr 24. umferð enska boltans ásamt því að fara yfir helstu vendingar janúargluggans.

Óli Björn - Alltaf til hægri
Hugsaðu sjálfstætt: Konan sem ögraði rétttrúnaði fjölmiðla

Óli Björn - Alltaf til hægri

Play Episode Listen Later Jan 13, 2026 22:12


Bari Weiss er án nokkurs vafa ein áhrifamesta fjölmiðlakona Bandaríkjanna. Hún hefur skapað sér áhrifastöðu í bandarísku þjóðlífi með baráttu gegn pólitískri rétthugsun og „wok-isma“, og skýrri hugmyndafræði um grunngildi blaðamennsku: sanngirni, hlutlægni og réttar upplýsingar.  Bari hefur byggt upp eigin fjölmiðil - The Free Press - og sett ný viðmið í fjölmiðlun. Miðillinn byggir á hugmyndum um heiðarleika, sjálfstæði og óttalausa blaðamennsku, og hefur vaxið hratt með yfir 1,5 milljón áskrifenda.  The Free Press hefur laðað að sér fjölbreyttan hóp blaðamanna og rithöfunda og hefur verið vettvangur fyrir opna umræðu um umdeild málefni. Allt undir slagorðinu Think for yourself.  Undir lok síðasta árs tók Bari við sem yfirmaður fréttadeildar CBS og hefur látið hendur standa fram úr ermum.  Margir hafa bent á að Bari sé fulltrúi nýrrar kynslóðar fjölmiðlafólks sem leggur áherslu á sjálfstæði, fjölbreytileika og opna umræðu. Hún hefur staðið vörð um grunngildi blaðamennsku og barist gegn hugmyndafræðilegri einsleitni, bæði í fjölmiðlum og samfélaginu. Og ekki þarf að deila um áhrif hennar á samfélag líðandi stundar. Þrír magnaðir hlaðvarpsþættir á vegum Free Press: Honestly Conversations with Coleman Breaking History

Gudstænastur í útvarpi
Guðstænasta úr Fuglafjarðar kirkju

Gudstænastur í útvarpi

Play Episode Listen Later Jan 11, 2026 65:26


Kirkjutænarar Prestur: Gerhard Jónsson Mikkelsen Deknur: Asbjørn Berthelsen Urguleikari: Heðin Kambsdal Klokkari: Ólavur Poulsen Sálmar 680 – Eingilin við ljósi fer Tað lítla ljós eg fekk Upp á tindar 261 – O, Faðir vár, tín milda hond  42 – Undir tínum veingjabreiði  588 – Boðar tú til allar tjóðir  Ljóðtøkningar eru Høgni Fagraberg og Hans Edward Andreasen    

Gudstænastur í sjónvarpi
Guðstænasta úr Fuglafjarðar kirkju

Gudstænastur í sjónvarpi

Play Episode Listen Later Jan 11, 2026 65:21


Kirkjutænarar Prestur: Gerhard Jónsson Mikkelsen Deknur: Asbjørn Berthelsen Urguleikari: Heðin Kambsdal Klokkari: Ólavur Poulsen Sálmar 680 – Eingilin við ljósi fer Tað lítla ljós eg fekk Upp á tindar 261 – O, Faðir vár, tín milda hond  42 – Undir tínum veingjabreiði  588 – Boðar tú til allar tjóðir  Sjónvarpsframleiðari er Rói Sørensen og ljóðtøkningar eru Høgni Fagraberg og Hans Edward Andreasen

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Arnar Gunnlaugsson

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jan 10, 2026 59:44


Laugardagur 10. janúar Helgi-spjall: Arnar Gunnlaugsson Arnar Gunnlaugsson, landsþjálfari karla í knattspyrnu, er gestur Sigurjóns Magnúsar í Helgispjalli að þessu sinni. Arnar átti glæstan feril sem atvinnumaður. Sem þjálfari hefur hann látið mikið til sín taka. Undir hans stjórn vann Víkingur glæsta sigra. Í þættinum er talað um knattspyrnumanninn Arnar sem og þjálfarann Arnar. Arnar hefur oft þurft að hafna leikmönnum um að spila, sem oft kemur illa við þá sem þurfa að sitja hjá. Auk knattspyrnunnar er talað um gjaldþrot eftir þátttöku í atvinnulífinu og sitthvað fleira. Arnar er hreinskilinn maður og skemmtilegur til viðtals.

Ein Pæling
#501 Þórður Pálsson - Blómaskeið Evrópu var ekki undir ESB

Ein Pæling

Play Episode Listen Later Dec 15, 2025 76:36


Þórarinn ræðir við Þórð Pálsson um stöðuna í efnahagskerfinu og ESB.Þórður telur að líkur séu á því að húsnæðisverð muni lækka og að blikur séu almennt á lofti á ýmsum sviðum, eins og hættumerkjum í tölum um atvinnuleysi.Þórður hefur miklar efasemdir gagnvart Evrópusambandinu og telur ófýsilegt að Ísland gangi þar inn. Hann segir blómaskeið Evrópu ekki hafa verið á tímum Evrópusambandsins og að mjög erfitt sé að ganga þaðan út eftir að þjóðir ganga þar inn.Hann segir einnig að Evran sé mesta sorgarsaga Evrópusambandsins og að ríkari þjóðir greiði fyrir tilvist annarra þjóða sem ekki hafa úr jafn miklu að moða.Rætt er sérstaklega um Draghi skýrsluna og tekist á um gildi þeirrar skýrslu.- Er Trump eða Evrópusambandið að grafa undan alþjóðakerfinu?- Myndi Evrópusambandið aðlaga sig að Íslandi eða öfugt?- Var blómaskeið Evrópu á undan tímum Evrópusambandsins?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270  Samstarfsaðilar:  Poulsen  Happy Hydrate  Bæjarins Beztu Pylsur  Alvörubón  FiskhúsiðDrifa.isPalssonfasteignasala.isHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur (kynningartilboð):500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me

Plátubarrin
TEMAPLÁTAN: 'Difficult to Cure' hjá Rainbow í 1981 + eykaløg

Plátubarrin

Play Episode Listen Later Dec 13, 2025 55:00


Temapláta er 'Diffucult To Cure' hjá Rainbow í 1981. Tá var Joe Lynn Turner komin við at syngja. Vokal-avloysari fyri upprunasangaran i Rainbow, Ronnie James Dio, hevði verið 'Graham Bonnet', men hann sang einans við á 'Down To Earth' í '79. Tað skuldi vísa seg, at Joe Lynn Turner fór at innspæla eins nógvar studioplátur sum Rainbowsangari og Ronnie James Dio, sum fór úr bólkinum í 1978 - tríggjar í part. Graham Bonnet er breti, meðani bæði Joe Lynn Turner og Ronnie James Dio, sáli, vóru føddir í USA. Í 1981 var trummusláarin, Bobby Rondinelli, úr New York City eisni nýggjur í bólkinum, meðan bæði Roger Glover á bassi og Don Airey á tangentum høvdu plátuna frammanundan, 'Down To Earth', sum sína Rainbow-debut. Rainbow varð upployst í 1984 og teir báðir seinast nevndu eru í 2025 við í dagsins Deep Purple. Roger Glover er bæði bassgittaristur og framleiðari, og Don Airey er ein meistari á hammondurgu í rætta tangent-anda John Lords, sála, sum tók stig til Deep Purple. Undir leiðslu av Roger Glover varð 'Diffucult To Cure' tilfarið tikið upp í Sweet Silence Studios í Keypmannahavn og Kingdom Sound Studios, Long Island, New York City. Plátufelagið Polydor gav verkið út tann 9. februar í 1981. Plátubarrin 13.12.25  

Besta platan
#0263 Devo – Oh, No! It's Devo

Besta platan

Play Episode Listen Later Dec 12, 2025 79:43


Artí og ögrandi? Kjánalegt grall? Undur með einn smell? Undir hvaða hatt er best að setja Devo?

Chess After Dark
#270 Halldór Árnason

Chess After Dark

Play Episode Listen Later Dec 1, 2025 144:29


Gestur okkar í kvöld er Halldór Árnason knattspyrnuþjálfari og fyrrum þjálfari Blika.Undir stjórn Blika náði hann eftirfarandi afrekum á undir tveimur árum:ÍslandsmeistariDeildarkeppni EvrópuDeildarbikarMeistarar meistarannaUmræðuefni í þættinum:Tímabilið í ár - undirbúningstímabilið og markmið fyrir tímabiliðTímabilið í heild sinniNýr samningur korter fyrir uppsögnBrottreksturinnAlfreð FinnbogasonLeikmannastefnaVar markmiðið að breyta Breiðablik í elliheimili?FramtíðinBesta deildinLandsliðiðTölfræði í fótboltaRiddaraspurningarÞessi þáttur er í boði:KALDIWOLTÍslandssjóðirSmáríkiðGrillmarkaðurinnLYST Akureyri - tveir fyrir einn af Kalda ef CAD sendi þigOrka NátturunnarDineoutHappatreyjurAPRÓSjöstrandBLUSHLengjanDave&JonsFrumherjiKEMIFrumherjiNjótið vel kæru hlustendur.

Heimsglugginn
Íslendingar eiga allt undir því að alþjóðlegar reglur séu virtar

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Nov 27, 2025 23:05


Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, sækir Ísland heim í dag og Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs – samtaka um vestræna samvinnu, var gestur Heimsgluggans. Umræðuefnið var þátttaka Íslands í NATO og staða heimsmála. Davíð segir meðal annars að Íslendingar eigi allt undir því að alþjóðaskipulag sé virt og aðrar þjóðir viðurkenni að Ísland sé herlaust land. Rússnesk stjórnvöld hafi farið gegn þessu með innrásinni í Úkraínu og taka eigi alvarlega ógnina sem stafi af stjórnvöldum í Kreml.

90 mínútur
Íþróttavikan: Keli og Viktor Unnar gera upp landsleikinn - Fínasta frammistaða en á sunnudaginn er allt undir

90 mínútur

Play Episode Listen Later Nov 13, 2025 64:19


Hrafnkell Freyr Ágústsson og Viktor Unnar Illugason eru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni í þetta skiptið.Landsleikurinn gegn Aserbaísjan er ítarlega gerður upp og horft er í komandi leik gegn Úkraínu. Þá er farið í helstu fréttir liðinnar viku.

Fotbolti.net
Hugarburðarbolti GW 9 Er orðið heitt undir Arne Slot ?

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Oct 27, 2025


Englandsmeistararnir töpuðu sínum fjórða leik í röð í deildinni. Arsenal með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar. Man City og Chelsea töpuðu bæði sínum leikjum um helgina. Man Utd spiluðu sinn besta leik á tímabilinu. Nýliðarnir unnu sína leiki og Bournemouth eru í 2.sæti deildarinnar eftir 9.umferðir.

Lestin
Performative male, Jörðin undir fótum okkar, læknishugvísindi

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 9, 2025 54:46


Lóa Björk og Hanna Sigþrúður Birgisdóttir kryfja internetfyrirbærið performative male, sem er allt í senn brandari, steríótýpa og fatastíll. Við rýnum í heimildarmyndina Jörðin undir fótum okkar eftir Yrsu Roca Fannberg þar sem fylgst er með lífi og dauða á hjúkrunarheimilinu Grund. Kolbeinn Rastrick segir frá myndinni. Og við ræðum af hverju læknanemar ættu að lesa skáldsögur og ljóðlist til að verða betri í starfi sínu. Guðrún Steinþórsdóttir bókmenntafræðingur kemur og ræðir læknahugvísindi.

Flugvarpið
#118 – Ástríða fyrir starfinu einkennir fólk í fluginu segir framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair – góð stundvísi (OTP) er eftirsóknarverð og gefur sýn á hvernig reksturinn gengur en flugöryggið er í fyrsta sæti - Sylvía Krist

Flugvarpið

Play Episode Listen Later Jul 14, 2025 99:14


Rætt er við Sylvíu Kristínu Ólafsdóttur framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Icelandair sem er lang fjölmennasta og stærsta svið innan fyrirtækisins. Undir hennar stjórn hefur náðst góður árangur á mörgum sviðum rekstrarins eins og að lækka einingakostnað, framúrskarandi stundvísi og vel heppnuð innleiðing á Airbus flugvélum. Eins og venjulega eru stöðugt nýjar áskoranir í rekstrinum bæði hér heima og erlendis og Sylvía ræðir hér um hluta af þeim fjölmörgu verkefnum sem hún og hennar teymi eru og hafa verið að vinna að innan félagsins. Skömmu fyrir upptöku þáttarins var tilkynnt um að Sylvía hefði verið ráðin sem nýr forstjóri Nova og mun hún því láta af störfum hjá Icelandair síðar á þessu ári.

Heimsglugginn
Leiðtogafundur NATO og vandræði breska Verkamannaflokksins

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jun 26, 2025 24:27


Bogi Ágústsson og Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs, ræddu niðurstöður leiðtogafundar NATO í Haag í gær. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu svo við Boga um vandræði breska Verkamannaflokksins. Stór hluti þingflokksins hefur lagst gegn frumvarpi stjórnarinnar um breytingar á velferðarkerfinu og niðurskurð um milljarða punda. Undir lokin sagði Björn frá því að Morgunvaktin er að fara í sumarfrí og Heimsglugginn sömuleiðis. Umsjónarmaður Heimsgluggans snýr sér að undirbúningi sjónvarpsþátta um „sögumisskilning“ Íslendinga þar sem leitast verður við að skoða sögu landsins í öðru ljósi en venja er.

Flugvarpið
#115 – Svífa hljóðlaust um loftin blá undir afli náttúrunnar - Svifflugið er heillandi sport, ódýrt en krefjandi - Steinþór Skúlason og Stefán Árni Þorgeirsson

Flugvarpið

Play Episode Listen Later Jun 11, 2025 49:10


Svifflugfélag Íslands stendur fyrir kynningarátaki til að vekja athygli á Sviffluginu og hvetja fólk til að prófa þetta stórmerkilega sport. Félagið býr að glæsilegri aðstöðu uppi á Sandskeiði rétt austan við Reykjavík. Í þættinum er rætt við svifflugmennina Steinþór Skúlason og Stefán Árni Þorgeirsson um þetta merkilega og sögulega sport, aðstöðuna á Sandskeiði og farið er yfir ýmis praktíst atriði sem nýst geta áhugasömum sem vilja prófa Svifflugið.

Lestin
Grok vill tala um þjóðarmorð, skrímslamjólk SiGRÚNar, bréf til frænku

Lestin

Play Episode Listen Later May 28, 2025 55:41


Undir lok síðasta árs kom út platan Monster Milk, sem er fyrsta breiðskífa tónlistarkonunnar Sigrúnar Jónsdóttur, sem á sviðinu kallar sig einfaldlega SiGRÚN. Sigrún er þó alls enginn nýliði heldur hefur gefið út fimm stuttskífur undir eigin nafni undanfarinn áratug, en hún hefur einnig unnið sem hljóðfæraleikari, söngvari og pródúser, og spilað undir með Sigur Rós, Björk og Florence and the machine svo einhverjir séu nefndir. Monster Milk fékk Grammy-verðlaun íslensku grasrótarinnar, Kraumsverðlaunin, og í kvöld fagnar Sigrún plötunni með útgáfutónleikum í Iðnó. Við ræðum við Sigrúnu í Lest dagsins. Einar Hugi Böðvarsson flytur okkur sinn fyrsta pistil í Lestinni. Meðal þess sem kemur við sögu er spjallmennið Grok sem vill aðeins tala um þjóðarmorð á hvítum í Suður Afríku, gervigreindarsmíðaðar bækur á Amazon og lítill vængbrotinn þrastarungi. Næstu vikur ætlum við að fylgjast með bréfaskriftum frænkanna Helgu Daggar Ólafsdóttur og Sölku Snæbrár Hrannarsdóttur. Í fyrsta bréfinu ræða þær meðal annars bréfaskriftir og valdaleysið sem þær upplifa varðandi hryllinginn á Gaza.

Karfan
Aukasendingin: KR stakk undan Keflavík, slúður og allt undir í Síkinu

Karfan

Play Episode Listen Later May 19, 2025 56:29


Aukasendingin kom saman með þjálfaranum Guðmundi Inga Skúlasyni og tónlistarmanninum og körfuknattleiksspekingnum Jóni Frímanns til þess að ræða fréttir vikunnar, slúður og úrslitaeinvígi Tindastóls og Stjörnunnar. Þá er farið yfir einhverja topp fimm lista í upptökunni, meðal annars hverjir séu bestir í að lýsa leikjum í sjónvarpi.Aukasendingin er í boði Bónus deildanna, Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.

Flugvarpið
#111 - Reykjavíkurflugvöllur undir hæl borgarinnar – nýjar skipulagsreglur í vinnslu – borgin vill einkaþotur og þyrlur burt og takmörk í starfsleyfið – Viðar Jökull Björnsson flugvallarstjóri BIRK.

Flugvarpið

Play Episode Listen Later Apr 28, 2025 52:14


Í þessum þætti er rætt við Viðar Jökul Björnsson flugvallarstjóra á Reykjavíkurflugvelli og umdæmisstjóra ISAVIA á Suðurlandi. Á Reykjavíkurflugvelli vinna hundruð manna í sérhæfðum störfum. Völlurinn er miðstöð fyrir Landhelgisgæslu Íslands og er mikilvægasti völlurinn fyrir sjúkraflug í landinu ásamt því að gegna hlutverki sem varaflugvöllur og þar er líka miðstöð fyrir kennsluflug og einkaflug. Nú er unnið að nýjum skipulagsreglum fyrir völlinn sem hafa ekki verið endurnýjaðar síðan 2009. Starfsleyfi heilbrigðiseftirlits borgarinnar þarnast einnig endurnýjunar og á sama tíma óskar borgarráð eftir að takmarka enn frekar umferð um völlinn. Viðar Jökull flugvallarstjóri berst fyrir því að völlurinn geti sinnt sínu hlutverki með sóma og fer hér yfir ýmis mál sem tengjast starfsemi þessa mikilvæga samgöngumannvirkis allra landsmanna.

bj burt reykjav birk kull undir otur borgin landhelgisg
FM957
TRAFFÍKIN! 6.FEBRÚAR.25 #UNDIR PRESSU

FM957

Play Episode Listen Later Feb 10, 2025 71:43


Meira ruglið alltaf

Heimskviður
207 - Bandaríkjaforsetarnir sem vildu kaupa Grænland og norður-kóreskir hermenn á vígvellinum

Heimskviður

Play Episode Listen Later Feb 8, 2025 43:46


Donald Trump er ekki fyrsti forseti Bandaríkjanna sem viðrar hugmyndir um kaup á Grænlandi. Harry Truman vildi kaupa Grænland í upphafi kalda stríðsins og Andrew Johnson skoðaði hugmyndina sömuleiðis á nítjándu öld. En er þá ekki hægt að ekki hægt að líta á hugmyndir Trumps um kaup á Grænlandi með tilvísun í söguna og forvera hans sem höfðu sambærilegan áhuga á þessu nágrannalandi? Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði og blaðamaðurinn Árni Snævarr ræða við Birtu Björnsdóttur um sögulegan áhuga Bandaríkjamanna á Grænlandi og hið flókna samband Danmerkur og Grænlands. Undir lok síðasta árs bárust fregnir af því að Rússum hefði borist liðsauki í stríðinu gegn Úkraínu. Norðurkóreskar hersveitir voru mættar á vígvöllinn. Eins og flest allt sem viðkemur einræðisríkinu Norður-Kóreu eru hlutverk og þátttaka þessara hersveita sveipuð leynd. Ólöf Ragnarsdóttir rýndi í það sem hefur þó komið fram og ræddi við Jón Björgvinsson, sem hefur margoft farið á vígvöllinn í Úkraínu.

Heimsglugginn
Hótanir Trumps um að beita hervaldi til að ná Grænlandi undir Bandaríkin.

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jan 9, 2025 23:37


Donald Trump verðandi forseti Bandaríkjanna segist ekki geta útilokað að beita hervaldi eða efnahagslegum aðgerðum til að ná Grænlandi og Panama undir yfirráð Bandaríkjanna. Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu Grænlandsmál við Boga Ágústsson í Heimsglugganum. Bandaríkjamenn hafa raunar haft herstöðvar á Grænlandi síðan 1951 samkvæmt varnarsamningi milli Bandaríkjanna og Danmerkur. Rætt var um afstöðu Grænlendinga og möguleika á sjálfstæði, einnig um viðbrögð við yfirlýsingum Trumps í Danmörku, á Grænlandi og víðar.

Heimsglugginn
Óvissa í alþjóðamálum í upphafi nýs árs

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jan 2, 2025 22:03


Bogi Ágústsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu stöðu alþjóðamála í upphafi nýs árs. Bogi sagði að ekki yrði sagt að 2024 hafi verið gott ár á alþjóðavettvangi: í kosningum fengu popúlskir flokkar víða byr í seglin, umhverfisráðstefna Sameinuðu þjóðanna skilaði engu og stór hluti heimsins virðist kæra sig kollóttan um sífellt hættulegri hamfarahlýnun. 2024 er heitasta ár sem hefur mælst og það berast æ oftar tíðindi af ýmsum öfgafyrirbærum í veðri, illviðrum, flóðum og þurrkum. Þau ræddu horfur fram undan, óvissu um stefnu Donalds Trumps, verðandi Bandaríkjaforseta, bæði í innanríkis- og utanríkismálum sem hefði mikil áhrif á þróun mála í heiminum öllum. Undir lokin ræddu Þórunn og Bogi stöðu Íslands og mat breska tímaritsins The Economist á þróun efnahagsmála. Blaðið birti um áramót töflu þar sem ritstjórn þess metur hvaða lönd stóðu sig best á síðasta ári. Spánn, Írland, Danmörk, Grikkland og Ítalía eru í efstu sætunum á lista blaðsins. Metnir voru þættir á borð við breytingar á þjóðarframleiðslu, hlutabréfaverði, verðbólgu og þróun atvinnuleysis. Samkvæmt þessum mælikvörðum tímaritsins er Ísland í 14. sæti, milli Svíþjóðar og Lúxemborgar. Bandaríkin eru í 20. sæti en Bretland í 31. sæti. Þetta er ekki yfirlit um ástandið heldur breytingar, þegar auðlegð þjóða er metin er Ísland í sjöunda sæti yfir ríkustu þjóðir heims.

Stundin
Formannaviðtöl #6: „Ég er að leggja allt undir“

Stundin

Play Episode Listen Later Nov 25, 2024


Kristrún Frosta­dótt­ir, formað­ur Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, stefn­ir með flokk sinn í rík­is­stjórn. „Auð­vit­að hef ég brugð­ist sem formað­ur í þess­um flokki ef við end­um með hægri stjórn,“ seg­ir hún. Það hafi skort virka póli­tíska stefnu al­veg frá hruni, póli­tískri ábyrgð hafi ver­ið út­vistað en nú sé tæki­færi til al­vöru breyt­inga.

allt frosta undir kristr
Dr. Football
Vikulok Dr. Football - Arteta má ekki lenda undir

Dr. Football

Play Episode Listen Later Apr 19, 2024 66:16


Jói, Keli og Gunni Birgis á föstudegi í Vikulokum Dr. Football