Hvergiland er útvarpsþáttaröð í fjórum hlutum um útópíur. Þáttastjórnendur, Tómas Ævar Ólafsson og Snorri Rafn Hallsson, heimsækja raunverulega og ímyndaða heima í leit að fullkominni veröld. Þeir rannsaka viðleitni mannsins til að skapa draumalönd sem aldrei urðu eða verða til og draga af þeim lærdóm sem varpar ljósi á stöðu okkar í dag.
Munu sjálfstýring og sólarorka skapa skilyrði útópíu hér og nú? Í þessum fjórða og síðasta þætti Hvergilands eru Tómas og Snorri ekki á neinum förum, heldur bíða þeir eftir útópíunni sem gæti leynst handan við hornið. Viðmælandi: Aaron Bastani. Umsjónarmenn: Snorri Rafn Hallsson og Tómas Ævar Ólafsson.
Er útópía spurning eða svar? Ferðalag eða áfangastaður? Í þriðja þætti Hvergilands fara þeir Snorri og Tómas út í geim á vængjum fönktónlistarinnar og skoða draumaland afrófútúrismans. Og fyrst þeir eru komnir út í geim er um að gera að heimsækja óræða útópíu Úrsúlu K. LeGuin. Viðmælandi: Þórhallur Auður Helgason. Umsjónarmenn: Snorri Rafn Hallsson og Tómas Ævar Ólafsson.
Þurfa útópíur reglur, og gæti verið að konur ímyndi sér annars konar samfélög en karlar? Í öðrum þætti af Hvergilandi fara Tómas og Snorri aftur í tímann og yfir hafið og heimsækja raunverulega útópíu í Ameríku. Viðmælandi: Nanna Hlín Halldórsdóttir. Umsjónarmenn: Snorri Rafn Hallsson og Tómas Ævar Ólafsson.
Hvernig og hvers vegna verða útópíur til? Í þessum fyrsta þætti Hvergilands fara Snorri og Tómas aftur í tímann og út fyrir raunveruleikann, þeir heimsækja Útópíu Tómasar More og Fögruborg Platóns. Viðmælandi: Þorsteinn Vilhjálmsson. Umsjónarmenn: Snorri Rafn Hallsson og Tómas Ævar Ólafsson.