Podcasts about halld

  • 296PODCASTS
  • 3,211EPISODES
  • 1h 21mAVG DURATION
  • 5WEEKLY NEW EPISODES
  • Jun 12, 2026LATEST

POPULARITY

20192020202120222023202420252026

Categories



Best podcasts about halld

Show all podcasts related to halld

Latest podcast episodes about halld

Mannlegi þátturinn
Hörður Magnússon föstudagsgestur og köld tómatsúpa í matarspjallinu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jun 12, 2026 50:00


Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var íþróttafréttamaðurinn Hörður Magnússon. Hann er einn þeirra sem lýsir leikjunum á HM sem hófst í gærkvöldi. Hann var sjálfur mikill markaskorari fyrir FH á löngum ferli og spilaði einnig með A landsliðinu. Hann hefur verið íþróttafréttamaður í um það bil þrjátíu ár og lýsir íþróttakappleikjum af mikilli innlifun. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar í Hafnarfirðinum, upphaf knattspyrnuferilsins, hvernig það kom til að hann fór að vinna í íþróttafréttamennskunni, ást hans á tónlist og margt fleira. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Köld spænsk tómatsúpa er kælandi í sumarhitanum , við kíktum á uppskrift að einni slíkri og flettum svo í Eldhúsbókinni góðu einu sinni sem oftar. Tónlistin í þættinum: Eitt lag enn / Brimkló og Björgvin Halldórsson (erlent lag, texti Ómar Ragnarsson) Herbergið mitt / Brimkló (Arnar Sigurbjörnsson, texti Vilhjálmur frá Skáholti) Ripples / Genesis (Mike Rutherford, Phil Collins, Steve Hackett & Tony Banks) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Víðsjá
Aldrei las ég Laxness / Úngfrúin góða og Húsið

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jun 10, 2026 53:21


Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga mánaðarins er Úngfrúin góða og Húsið en hún er stutt verk sem Halldór skrifar um efri stétt í þorpinu Eyvík og tilraunum hennar til að stjórna narratífunni um sjálft sig. Sagan er talin byggð á raunverulegum atburðum sem og upplifunum Halldórs sjálfs þegar hann sigldi ungur til Kaupmannahafnar. Sögumaður verksins er fjarlægur persónunum, samtöl og senur eru fáar og lesandi þarf sífellt að vera að púsla atburðunum saman í gegnum óbeinar upplýsingar héðan og þaðan svo erfitt er að ákveða hverju maður trúir og hverju ekki. Samlesari klúbbsins að þessu sinni er Elínborg Una Einarsdóttir, blaðamaður hjá Morgunblaðinu, sviðshöfundur og samfélagsrýnir. En síðasta haust birti hún grein í Morgunblaðinu með titilinn „Laxness hverfur úr skólum landsins“ og olli hún nokkru fjaðrafoki í samfélaginu og átti sinn þátt í að kveikja á þessum bókaklúbbi. Bókaklúbburinn Aldrei las ég Laxness hefur það markmið að lesa allar skáldsögur Halldórs Kiljan Laxness í tímaröð. Klúbburinn er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér Laxness, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Næsta verk sem tekið verður fyrir í bókaklúbbnum verður Heimsljós; dagsetning verður nánar auglýst síðar. Grafík; Silvía Sif Ólafsdóttir

Napi evangélium
páros év, évközi idő 9. hét, csütörtök| ** Mk 12,28b-34 **|

Napi evangélium

Play Episode Listen Later Jun 4, 2026 12:37


Ekkor odajárult hozzá az egyik írástudó, aki hallotta őket vitatkozni. Mivel látta, hogy jól megfelelt nekik, megkérdezte őt: ,,Melyik a legelső az összes parancs közül?'' Jézus így felelt neki: ,,Az összes parancs közül a legelső ez: ,,Halld, Izrael! A mi Urunk, Istenünk az egyetlen Úr! Szeresd Uradat, Istenedet teljes szívedből, teljes lelkedből, teljes elmédből és minden erődből!'' Ez az első parancsolat [MTörv 6,4-5]. A második hasonló ehhez: ,,Szeresd felebarátodat, mint önmagadat!'' [Lev 19,18]. Ezeknél nincs nagyobb parancsolat.'' Az írástudó ekkor azt mondta neki: ,,Jól van, Mester! Helyesen mondtad, hogy egy az Isten, és nincs más rajta kívül; és hogy őt szeretni teljes szívből és teljes értelemből és teljes lélekből és teljes erőből, a felebarátot pedig úgy szeretni, mint önmagunkat -- többet ér minden égő és egyéb áldozatnál.'' Amikor Jézus látta, hogy milyen okosan felelt, azt mondta neki: ,,Nem vagy messze az Isten országától.'' Ezután senki sem merte őt többé kérdezni.Olvasmányok, ünnepek a liturgikus naptárban. | Felolvassa: Varga László |

Mannlegi þátturinn
Gervigreind í kennslu með Námfús, histamínóþol kvenna á miðjum aldri og vísindaspjallið með Eddu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jun 3, 2026 54:47


Það er fátt sem hefur verið rætt meira um undanfarin tvö ár en gervigreind og spurningarnar eru óteljandi, margt afskaplega spennandi og einni margt sem vekur ugg. En við kynntum okkur í dag hvernig gervigreindin getur virkað í skólum, bæði fyrir kennara og nemendur. Námfús er íslensk lausn fyrir leikskóla og grunnskóla sem er notuð bæði á Íslandi og Þýskalandi og unnið er að því að aðlaga lausnina fyrir framhaldsskóla. Skúli Thorarensen framkvæmdastjóri Námfús kom í þáttinn í dag við fengum hann til að útskýra fyrir okkur hvernig þetta virkar og hverjir möguleikarnir eru. Næringarþerapía á rætur að rekja til hugmyndafræði functional medicine, þar sem meginmarkmiðið er að styðja líkamann út frá rót vandans. Við ræddum við Sigríði Róbertsdóttur, eða Siggu Róberts, í þættinum í dag, en hún er næringaþerapisti sem lærði fræðin í Bretlandi. Hún segir að líkaminn hafi ótrúlega getu til að ná jafnvægi þegar hann fær réttan stuðning. Hún talaði meðal annars um það af hverju konur á miðjum aldri eru í meiri hættu á histamínóþoli. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá rannsókn á músum þar sem var í fyrsta skipti skoðað hvernig krabbamein og krabbameinslyf virka mismunandi á mismunandi aldurskeiðum þar sem líkaminn og ónæmiskerfi líkama okkar eru berskjaldaðri á efri árum en þegar við erum ung. Tónlistin í þættinum: Þetta loft / Sigurður Halldór Guðmundsson (Sigurður Halldór Guðmundsson) Það sýnir sig / Hjálmar (Sigurður Halldór Guðmundsson) Heiðlóan / Gísli Magna og Co. (Steingrímur M. Sigfússon) Kötturinn sem gufaði upp / Olga Guðrún Árnadóttir (Ólafur Haukur Símonarson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Blákastið Podcast
Blákastið - Vonbrigðartímabil gert upp

Blákastið Podcast

Play Episode Listen Later Jun 3, 2026 86:30


Í þessum þætti fáum við til okkar góðan gest í Halldóri Árnasyni sem gerir upp tímabilið 2025/26 með okkur. Verðlaunaafhending og hvaða væntingar höfum við til Xabi Alonso.

Rauða borðið
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 22

Rauða borðið

Play Episode Listen Later May 29, 2026 96:22


Föstudagur 29. maí Vikuskammtur: Vika 22 Í Vikuskammt að þessu sinni mæta þær Nanna Hlín Halldórsdóttir, Elín Oddný Sigurðardóttir og Valgerður Árnadóttir til að ræða fréttir vikunnar með Laufeyju Líndal. Nýir borgar- og sveitarstjórnarmeirihlutar, samstarfssáttmálar, þjóðaratkvæðagreiðsla, vafasamar fyrirmyndir, hvalveiðar, netárásir og fordómar verða til umræðu.

Mannlegi þátturinn
Gullmoli frá 1946, veðurspjall um hita og hret og Birna lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 26, 2026 52:11


Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV kom til okkar í dag með gullmola af safni RÚV. Í þetta sinn var það efni úr útvarpsþættinum Um daginn og veginn frá árinu 1946 þar sem Vilhjálmur S. Vilhjálmsson blaðamaður fjallar um nýafstaðnar kosningar í Reykjavík, þáttöku, framkvæmd talninga og áróðusaðferðir, með áherslu á nauðsyn siðfágaðrar kosningabaráttu. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Hann byrjaði í dag á að tala um hitana í Evrópu og ástæðu þeirra. Svo voru það horfurnar hjá okkur og spár um jafnvel vorhret í byrjun júní. Og í því samhengi rifjaði hann upp með okkur upp sumarhret á sama tíma í fyrra og ekki síst hitteðfyrra. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Birna Hjaltadóttir kennari í Brúarskóla við Dalbraut, en hún er einnig með meistaranám í ritlist. Við fengum hana til að segja okkur frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Birna talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Frumbyrjur e. Dag Hjartarson Huldukonan e. Fríðu Ísberg Formaður húsfélagsins e. Friðgeir Einarsson Tók ég eftir því þá eða tók ég eftir því eftir á e. Höllu Birgisdóttur Jakobína, saga skálds og konu e. Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur. Salka Valka e. Halldór Laxness Tónlistin í þættinum: Það er svo ótalmargt / Ellý Vilhjálms (Jackie Smith & Derry Lindsay, texti Jóhanna G. Erlingsson) Angelía / Vilhjálmur Vilhjálmsson (W. Meisel, texti Theódór Einarsson) Northern Sky / Nick Drake (Nick Drake) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON

Rauða borðið
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 21

Rauða borðið

Play Episode Listen Later May 22, 2026 95:08


Föstudagur 22. maí Vikuskammtur: Vika 21 Í Vikuskammt til Björns Þorlákssonar mæta þau Steinunn Ólína leikkona, Bragi Páll rithöfundur, Halldór Ólafsson kvikmyndagerðarmaður og Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur. Þau ræða m.a. pólitík, löggur sem skjóta fólk, dýrtíð, menningu og menningarleysi.

Mannlegi þátturinn
Dáleiðslufélag Íslands 25 ára, Skólakór Öldutúns 60 ára og Jónatan um Gunnar Ormslev

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 21, 2026 50:00


Hannes Björnsson sálfræðingur kom til okkar í dag. Hann hefur starfað sem sálfræðingur frá 2009 en var áður sóknarprestur á Vestfjörðum og prestur Íslendinga í Noregi. Hann vinnur mikið í greiningu og klínískri meðferð þunglyndis, kvíða, áfalla og ADHD fullorðinna. Hannes er einnig formaður Dáleiðslufélags Íslands, sem á 25 ára afmæli þessa dagana og hann sagði okkur frá félaginu, ráðstefnu sem fer fram í lok maí og hvernig dáleiðsla nýtist hans starfi. Skólakór Öldutúnsskóla fagnar 60 ára afmæli með afmælistónleikum í Hörpu sunnudaginn 24. maí. Egill Friðleifsson, stjórnandi kórsins vann þrekvirki því hann hélt kórnum úti árum saman og þurfti sífellt að þjálfa upp nýjar raddir og náði að halda uppi gæða söngstarfi. Brynhildur Auðbjargardóttir tók við þegar Egill hætti, en hún var nemandi í Öldutúnsskóla á sínum tíma og söng með kórnum meðal annars inn á vísnaplöturnar vinsælu með Björgvini Halldórssyni og Gunnari Þórðarsyni. Fyrrverandi kórfélagar munu koma fram á tónleikunum ásamt núverandi kór, en það hafa ýmsir fyrrum nemendur skólans haldið áfram að fást við tónlist eins og þær Brynhildur, Margrét Eir og t.d. Guðrún Árný ofl. Margrét Eir og Bryndhildur komu í þáttinn í dag. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag sagði hann okkur frá Gunnari Ormslev saxófónleikara. Gunnar má telja meðal máttarstólpa íslenskrar djasstónlistar á upphafsárum hennar en stundum er sagt að hann hafi komið með djassinn með sér til Íslands frá Danmörku. Jónatan sagði okkur meira frá hans merkilega ferli í þættinum í dag. Tónlistin í þættinum: Sólin er komin / Mugison (Örn Elías Guðmundsson) Klappa saman lófunum / Björgvin Halldórsson og Kór Öldutúnsskóla (Gunnar Þórðarson, íslensk þjóðvísa) Frá Vermalandi / Gunnar Ormslev (sænskt þjóðlag) Lady be Good / Tríó Jóns Páls Bjarnasonar (George & Ira Gerschwin) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

adhd bj gu gar hannes hann natan eir halld danm svo margr egill noregi gunnari mugison klappa vestfj brynhildur fyrrverandi
Bylgjan
Reykjavík síðdegis - miðvikudagur 20. maí 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later May 20, 2026 80:05


Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Halldór Karl Hermannsson hafnarstjóri Reykjaneshafnar og Halldór Karl Hermannsson hafnarstjóri Reykjaneshafnar um Hantaveiruskipið sem kemur ekki til Íslands eins og áætlað var Óli Björn Kárason fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins Símatími Dagur B. Eggertsson fyrrverandi borgarstjóri og þingmaður Samfylkingarinnar Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri um stýrivaxta hækkkunina Atli Stefán Yngvason framtíðarstjóri Mílu og einn umsjónarmanna Tæknivarpsins Þór Pálsson framkvæmdastjóri Rafmenntar sem á og rekur Kvikmyndaskólann

bj sj reykjav halld eggertsson samfylkingarinnar
Mannlegi þátturinn
Ljósmyndir af hversdagsleikanum, íslenski refurinn og vísindaspjall með Eddu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 20, 2026 53:42


Á morgun verður opnuð ljósmyndasýning í Ljósmyndasafni Reykjavíkur Hjartaþræðir: nándin í hversdeginum, ljósmyndir eftir Þórdísi Erlu Ágústsdóttur. Þórdís hefur myndað fólk, sem flest er henni náið eða vel kunnugt, yfir löng tímabil. Myndirnar segja sögur af ólíku fólki sem hún hefur fylgt eftir og velur stundir úr hversdeginum, lítil augnablik sem segja stærri sögu. Þórdís kom í þáttinn í dag og sagði frá. Við fræddumst svo um íslenska refinn í dag en Ester Rut Unnsteinsdóttir spendýrafræðingur á Náttúrufræðistofnun hefur rannsakað tófuna um árabil og á næstunni verður haldið málþing á vegum Náttúrufræðistofnunar þar sem verður einmitt rætt um íslenska refinn, sérstöðu stofnsins, svipgerðir, erfðafræði og fleira. Ester sagði okkur frá refnum og málþinginu í dag. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur, en í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem bendir til þess að góðgerlar sem finnast í kimchi geti hjálpað til við að losa líkamann við nanoplast. Tónlistin í þættinum: Sólarsamba / GÓSS (Magnús Kjartansson, texti Halldór Gunnarsson) Í sól og sumaryl / Stebbi & Eyfi (Gylfi Ægisson) Hr. Reykjavík / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson) Daglega fer mér fram / Mannakorn (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frjálsar hendur
Séra Halldór Jónsson á Kleppi

Frjálsar hendur

Play Episode Listen Later May 17, 2026 50:05


Halldór Jónsson (1873-1953) var prestur að Reynifelli og tónskáld. Á efri árum veiktist hann á geði og þurfti að leggjast inn á geðspítalann Klepp um tíma. Frá því sagði hann svo í æviminningabók sem út kom skömmu fyrir andlát hans og nefndi Ljósmyndir 1. Mjög sjaldgæft var að fólk talaði um þær mundir opinskátt um glímu sín við geðsjúkdóma og því er hin hispurslausa frásögn Halldórs mjög óvenjuleg.

Víðsjá
Aldrei las ég Laxness / Salka Valka

Víðsjá

Play Episode Listen Later May 13, 2026 56:47


Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga dagsins er stórvirkið Salka Valka sem kom út í tveimur bindum árin 1931 og 1932, og segir verkið sögu Salvarar Valgerðar Jónsdóttur, sem er kölluð Salka Valka, en hún elst upp á Óseyri við Axlarfjörð, á miklum umbrotartímum í lífi íslensku þjóðarinnar. Samlesari Sölku Völku og sérstakur gestur þáttar er Bergur Ebbi, rithöfundur og fyrirlesari. Bókaklúbburinn Aldrei las ég Laxness hefur það markmið að lesa allar skáldsögur Halldórs Kiljan Laxness í tímaröð. Klúbburinn er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér Laxness, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Næsta verk sem tekið verður fyrir í bókaklúbbnum verður smáskáldsagan Úngfrúin góða og húsið; dagsetning verður nánar auglýst síðar.

halld aldrei salka laxness valka bergur ebbi
Bylgjan
Bítið - þriðjdagur 12. maí 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later May 12, 2026 67:29


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Halldór Jörgen Olesen er ritstjóri Verðbólguvaktarinnar, verdbolga.net, og hefur tekið saman kostnað við sex stærstu kosningaloforðin. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri FF7, ræddi við okkur um ferðamannabransann og flugið. Elísabet Ingunn Einarsdóttir er í 2.sæti fyrir Sjálfstæðisflokk á Seltjarnarnesi og Skafti Harðarson, oddviti Miðflokks á Nesinu, settust niður með okkur. Goðsagnirnar Magnús Kjartansson og Jakob Frímann ræddu útitónleika í Keflavík næstu helgi. Milla Ósk Magnúsdóttir, eiginkona Einars Þorsteinssonar, oddvita Framsóknar í Reykjavík, gefur öðrum mökum frambjóðenda góð ráð.

Mannlegi þátturinn
Aldin samtökin og kórinn, leikhús í bíó og veðurspjallið með Einari

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 12, 2026 54:50


Við kynntumst aðeins starfi Aldin, samtaka eldri aðgerðarsinna gegn lofslagsvá í þættinum í dag. Sólveig Baldursdóttir og Halldór Reynisson eru félagar í Aldin og þau komu til okkar og sögðu frá tilurð samtakanna, starfinu, samnefndum kór og þýðingu hans í þeirra starfi. Í lokin fengum við svo að heyra upptöku af kóræfingu. National Theatre Live er framtak Breska Þjóðleikhússins þar sem margar af bestu sýningum leikhússins eru sýndar í völdum kvikmyndahúsum um allan heim. Bíó Paradís er samstarfsaðili NTL á Íslandi og meðal sýninga framundan er uppfærsla Breska Þjóðleikhússins, All My Sons, eða Allir synir mínir eftir Arthur Miller, sem sýnd verður 25.maí. Ása Baldursdóttir dagskrárstjóri í Bíó Paradís og Sigríður Jónsdóttir, verkefnastjóri á leikminjasafni Þjóðminjasafnsins, komu í þáttinn og fóru til dæmis yfir hvaða sýningar verða í boði. Einar Sveinbjörnsson kom svo til okkar í dag í veðurspjallið. Hann byrjaði á veðurútlitinu og veðurhorfum fram á kjördag og mikilvægi þess að almennar kosningar á landinu eru tímasettar á þeim árstíma þegar auðvelt er að komast leiðar sinnar. Svo fjallaði hann um muninn á veðri, tíðarfari, veðurfari og loftslagi. Að lokum voru það svo El-Nino og La-Nina, sem eru fyrirbæri í Kyrrahafinu og Einar skýrði fyrir okkur hver munurinn á þeim er og tengsl þeirra við veður á jörðinni og hnattræna hitann. Tónlistin í þættinum: Og co. / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Þór Sigmundsson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson) Jörðin mín / Aldin kór (Jón Ásgeirsson, texti Ludvig Guðmundssyni) Glaumbær / Dúmbó og Steini (Jóhann G. Jóhannsson) Ítalskur calypso / Erla Þorsteinsdóttir (Monte & Merrell, texti Loftur Guðmundsson) Landsímalína / Spilverk þjóðanna (Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

bj lands monte gar magn samt el nino hann arthur miller einar la nina sigur merrell halld svo sigr rinn allir vilhj erla all my sons aldin ntl national theatre live baldursd einari leikh reynisson sigmundsson breska einar sveinbj valgeir gu
Víðsjá
Gabríela Friðriksdóttir, Hinsegin Salka Valka, Haukur Þorgeirs pistill #7

Víðsjá

Play Episode Listen Later May 11, 2026 52:47


„Ef maður er ekki alltaf að, þá er hjartað manns ekki opið fyrir tækifærunum. Í gamla daga voru menn oft að vinna bara fyrir ákveðnar sýningar, en ég held að þetta sé öfugt. Þú bara gerir og gerir og þá kemur sýningin til þín. Þetta er þannig sem þetta virkar,“ segir Gabríela Friðriksdóttir. Í vikunni verður sýndarveruleika innsetningin Playing with Fire, sem hún gerði í samstarfi við píanóstjörnuna Yuja Wang og leikstjórann Pierre-Alain Girraud, frumsýnd í Cannes, en verkið er tilnefnt til Gullpálmans í flokki alltumlykjandi innsetninga. Verkið var frumflutt í Fílharmóníunni í París fyrr í vetur og verður sýnt víða um heim í framhaldinu, en Gabríela segir það vera einskonar mannkynssögu fyrir skilningarvitin. Meira um það í þætti dagsins. Ásta Kristín Benediktsdóttir, bókmenntafræðingur, lítur einnig við og segir frá hinsegin lestri á skáldsögunni Sölku Völku eftir Halldór Laxness, og Haukur Þorgeirsson veltir fyrir sér raunveruleikanum á bak við helgikvæði um konur sem dóu fyrir trúarsannfæringu sína.

Mannlegi þátturinn
Systkinin í Blood Harmony, um Húsmæðraskólann frá 1948 og Friðrik lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 11, 2026 53:07


Blood Harmony er samstarfsverkefni systkinanna Arnar, Aspar og Bjarkar Eldjárn sem hófst snemma árs 2021 þegar heimsfaraldurinn skall á og þau voru flutt í heimahagana fyrir norðan. Þau umbreyttu kjallaranum á æskuheimilinu Tjörn í upptökustúdíó og hófu að taka upp lög. Nú, fimm árum síðar er loksins komið að því að fagna útgáfu plötunnar sem kemur út á vínyl þau halda upp á með útgáfutónleikum á miðvikudaginn. Þau komu þrjú til okkar í dag. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, kom svo til okkar í dag með enn einn gullmolann af safni RÚV. Í þetta sinn af lakkplötu, brot frá 1948 úr þættinum Úr skólalífinu. Þar fengum við að heyra kynningu á starfi Húsmæðraskóla Reykjavíkur og framsetningin var mjög áhugaverð. Nokkrar stúlkur úr skólanum leiklesa handrit þar sem þær léku sig sjálfar að segja frá því hvað þær eru að gera í skólanum og starfinu þar. Í rauninni leikin kynning á starfi skólans. Helga Lára sagði okkur betur frá þessu og leyfði okkur að heyra. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var svo Friðrik Sólnes, en hann er rafvirki og kennir rafvirkjun í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Við fengum hann til að segja okkur frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Friðrik talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Fátækt fólk e. Tryggva Emilsson Svartfugl e. Gunnar Gunnarsson Heimsljós e. Halldór Laxness Kæri fáviti e. Virginie Despentes A Confederacy of Dunces e. John Kennedy Toole 2666 e. Roberto Bolaño Tónlistin í þættinum: Betri tíð / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson og Þórður Árnason) Way Home / Blood Harmony (Örn Eldjárn Kristjánsson) Landsímalína / Spilverk þjóðanna (Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Rauða borðið
Rauða borðið 11. maí - Bandaríkin, ungliðar, sjávarútvegsstefna ESB, sorg og sérframboð

Rauða borðið

Play Episode Listen Later May 11, 2026 263:31


Mánudagur 11. maí Bandaríkin, ungliðar, sjávarútvegsstefna ESB, sorg og sérframboð Gauti B. Eggertsson hagfræðiprófessor í Brown-háskóla ræðir við Gunnar Smára um Bandaríki Trump, framtíð Nató, varnarsamninginn og fleira. Þrír formenn pólitískra ungliðahreyfinga ræða hlutskipti ungs fólks og um hvað verður kosið á laugardaginn. Þeir Illugi Gunnarsson, Vinstrinu 18 ára gamall, Halldór Ísak Ólafsson 26 ára sósíalisti og Jóhannes Óli, 22ja ára í Samfylkingunni, leggja spilin á borðið með Birni Þorláks. Úlfar Hauksson sjómaður og aðjúnkt í stjórnmálafræði, ræðir við Gunnar Smára um ESB og sjávarútveg. Það fylgir því sársauki að elska af öllu hjarta, segir Anna Ingólfsdóttir sem upplifði stórfenglegar tilfinningar þegar hún missti manninn sinn. Hún ræðir við Ásdísi Olsen. Þórhallur Jónsson sem klauf sig út úr Sjálfstæðisflokknum á Akureyri og stofnaði sérframboð ræðir við Björn Þorláks um hvernig það er að standa einn og utan hins gamla valdaflokks.

Piątka z literatury w RMF Classic
11.05 bajki, baśnie i gawędziarze

Piątka z literatury w RMF Classic

Play Episode Listen Later May 11, 2026 1:53


Ann Schmiesing – Bracia Grimm. Biografia Cornelia Funke – Atramentowa krew Halldór Kiljan Laxness – Zuchwaliada Paweł Kozioł – Azard Komiks: Hiroshi Hirata - Satsuma gishiden t.1. Legenda o wiernych wasalach Satsumy

Endalínan
322. Þáttur - "Þú hittir hér helvítið þitt" (Leikur 1 í lokaúrslitum) Feat. Óli Helgi

Endalínan

Play Episode Listen Later May 10, 2026 86:55


Það var skortur á mannskap en enginn skortur á gæðum eða fjöri á Endalínunni í kvöld!Halldór fékk sinn gamla liðsfélaga Ólaf Helga Jónsson sem stendur í ströngu með lið sitt kvenna megin til að fara yfir leik eitt í viðreign Grindavíkur og Tindastóls í lokaúrslitum.Allt í boði Marion, Comfyballs, Hótel Kef, Brons og Viking Lite (Léttöl)

Dr. Football
Vikulok Dr. Football - Eru KR-ingar bara keeper frá því að keppa um titilinn? Eða er Halldór með'etta?

Dr. Football

Play Episode Listen Later May 8, 2026 81:35


Doc, Gunnar Birgisson og Hrafnkell Freyr

Mannlegi þátturinn
Undirskriftarlisti gegn brottfararstöð, hæglætisstefna í leikskólum og Jónatan um Önnu Vilhjálms

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 7, 2026 50:00


Frumvarp dómsmálaráðherra um brottfarastöð hefur hlotið gagnrýni, meðal annars vegna heimildar til að vista þar börn. Umboðsmaður barna segir frumvarpið vera andstætt Barnasáttmálanum og brjóta gegn réttindum barna. Yfir tvö þúsund manns hafa skrifað nöfn sín á undirskriftarlista á Ísland.is til að mótmæla þessu frumvarpi. Í gær bárust fréttir af breytingartillögu á frumvarpinu og mátti skilja á fréttum að börn yrðu ekki vistuð á brottfararstöðinni, en Alma Mjöll Ólafsdóttir, sem kom í þáttinn í dag, segir að það líti samt út fyrir að ekki sé næg breyting, það sé aðeins verið að færa til úrræðið fyrir börn, en að það muni vera frelsissvipting engu að síður. Alma sagði okkur frá þessu í dag, en hún er ábyrgðarmaður undirskriftarlistans. Á ráðstefnunni Að finna taktinn koma saman bæði alþjóðlegir fræðimenn og starfandi leikskólakennarar til að varpa ljósi á hæglæti í leikskólastarfi frá ólíkum sjónarhornum. Meðal fyrirlesara eru íslenskir leikskólakennarar sem segja frá eigin reynslu af þróunarverkefninu Stilla, þar sem hæglæti hefur verið innleitt í daglegt starf fjögurra leikskóla. Niðurstöðurnar sýna meðal annars að þegar börn fá meiri tíma og rými eykst sjálfstjórn þeirra, félagsfærni og sköpun og leikur þeirra verður dýpri og merkingarbærari. Anna Lilja Sævarsdóttir, leikskólastjóri á Iðavöllum Akureyri og Agnes Gústavsdóttir, leikskólastjóri Aðalþings í Kópavogi komu í þáttinn í dag. Jónatan Garðarson, okkar gamli samstarfsfélagi, ætlar að koma til okkar næstu fimmtudaga og fræða okkur um íslenskt tónlistarlíf, hljómsveitir, lög, tónlistarfólk og fleira. Það eru ekki margir sem vita meira um íslenska tónlist en Jónatan og því mikil forréttindi að fá að ausa úr hans viskubrunni hér í Mannlega þættinum. Hann byrjaði í dag á því að segja okkur frá Önnu Vilhjálms, það eru ekki til mörg lög hljóðrituð með henni, en Jónatan mun fræddi okkur um hana og hennar feril í dag. Tónlistin í dag: Á berjamó / Björgvin Halldórsson og Ragnhildur Gísladóttir (Gunnar Þórðarsson, texti Stefán Jónsson) Jamaica Farewell / Harry Belafonte (Irving Burgie og Burgess) Ég bíð við bláan sæ / Anna Vilhjálms og Vilhjálmur Vilhjálmsson (Phil Spector, texti Jón Sigurðsson) Fráskilin að vestan / Anna Vilhjálms (Kolbrún Hjartardóttir og Linda Björk) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Bylgjan
Bítið - miðvikudagur 6. maí 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later May 6, 2026 77:04


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari.  Bergþóra Halldórsdóttir, yfirlögfræðingur Borealis Data Center gagnavers, ræddi við okkur vítt og breitt um gagnaver. Hulda Hallgrimsdóttir, viðskipta- og þróunarstjóri hjá Basalt Arkitektum, ræddi við okkur um arkitektúr og skipulag. Guðjón Ólafsson, lektor við Læknadeild HÍ, doktor í sameindalíffræði og stofnandi Gleipnis lífssmiðju og Henný Adolfsdóttir, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Gleipnis lífssmiðju, settust niður með okkur. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, brást við framúrkeyrslu ríkisins uppá 57 milljarða. Rúnar Hroði Geirmundsson, tilvonandi Járnkarl, ræddi við okkur um söfnun sem hann stendur fyrir. Mörður Moli Gunnarsson Ottesen ræddi við okkur um stafrænt garðyrkjudagatal sem er í smíðum.

Mannlegi þátturinn
Málþing um læsi og námsorðaforða, Minecraft tónlist í Hjallakirkju og Anna María á Heilsuvaktinni

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 5, 2026 53:04


Á morgun verður haldið málþing um læsi og námsorðaforða, að frumkvæði Íslenskrar málnefndar, þar sem farið verður yfir stöðu mála í íslenskukennslu. Þar verða flutt erindi þar sem meðal annars verður skoðað hrakandi læsi nemenda, staða barna með íslensku sem annað mál og hvernig sé gagnlegt að styðja kennara í þessum flóknu verkefnum og hvers konar verkefni virka. Doktor Sigríður Ólafsdóttir, dósent við Menntavísindasvið HÍ og dr. Elín Þöll Þórðardóttir, sem starfar við McGill háskóla í Quebec í Kanada og kennir talmeinafræði hjá HÍ, komu í þáttinn og sögðu betur frá stöðunni. Á morgun verða einnig tónleikar í Hjallakirkju í Kópavogi þar sem tónlistin úr tölvuleiknum Minecraft verður flutt á orgel og píanó. Kristján Hrannar Pálsson organisti kirkjunnar leiðir tónleikana ásamt píanónemendum úr Tónlistarskóla Kópavogs. Hann segir að þetta sé sennilega í fyrsta skipti sem þessi tónlist sé flutt í lifandi flutningi á Íslandi. Kristján segir að börn geti uppgötvað klassíska tónlist og klassísk hljóðfæri í gegnum tölvuleiki og að píanónemendur um víða veröld biðji oft um að fá að spila þessa tónlist. Við hittum Kristján Hrannar við orgelið í Hjallakirkju. Svo var það Heilsuvaktin með Helgu Arnardóttur. Það er líf eftir geðrof, segir Anna María Jónsdóttir sem greindist fyrir rúmu ári með geðhvarfasýki eða bipolar eins og sjúkdómurinn er oftast kallaður. Anna sem er rúmlega fertug segir margt í sínum lífstíl hafa hjálpað sér til að lifa góðu lífi með geðhvörf. Hún nefnir fyrst og fremst hugleiðslu sem hún stundar daglega og jafnvel oftar, auk þess sem hún hreyfir sig mikið, passar sykurneyslu og borðar næringarríkan mat. Hún segist einnig vera heilög með svefninn og setur sér markmið um að ná alltaf 8 tíma nætursvefni. Helga ræddi við Önnu Maríu í kaldri vorgolunni á dögunum. Tónlist í þættinum í dag: Í fjarlægð - Björgvin Halldórsson (Karl O. Runólfsson, texti Cæsar, eða Valdimar Hólm Hallstað) Vor í Vaglaskógi / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Jónas Jónasson, texti Kristján frá Djúpalæk) Minecraft / C418 (Danieal Rosenfeld) Allt í gúddí / Ólöf Arnalds (Ólöf Arnalds) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Besta platan
#0277 Frímínútur – Björgvin Halldórsson (1951 - 2026)

Besta platan

Play Episode Listen Later May 1, 2026 51:00


Í þessum þætti heiðrum við minningu hins eina sanna Björgvins Halldórssonar sem varð bráðkvaddur á heimili sínu í Hafnarfirði þann 9. apríl síðastliðinn. Blessuð sé minning þessa risa íslenskrar dægurtónlistar.

Endalínan
319. Þáttur - Örlagastund (Feat. Rúnar Ingi og Arnór Ingi) Leikdagur 3 í 4 liða úrslitum

Endalínan

Play Episode Listen Later May 1, 2026 77:53


Það var spilað og Halldór fékk Arnór Inga og Rúnar til að fara yfir leikina og allt sem mögulega gæti gerst í undanúrslitum.Allt í boði Brons, Comfyballs, Hótel Kef, Marion Herrafataverslun og Viking Lite (Léttöl)

Bylgjan
Reykjavík síðdegis - 30. apríl 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Apr 30, 2026 72:40


Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Halldór Jörgen Olesen áhugamaður um borgarskipulag Guðni Ágústsson fyrrverandi landbúnaðarráðherra og Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda um innflutt eða íslenskt lambakjöt. Símatími Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar um 1. maí Diljá Mist Einarsdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins Guðmundur Ingi Þóroddsson oddviti Flokk fólksins í Reykjavík Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka um fækkun starfsmanna og gervigreind

Mannlegi þátturinn
kynferðisofbeldi í samböndum ungmenna, Hrafnhildur Reykjalín um gildi og lokakafli mannlegra samskipta

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 30, 2026 53:43


Undanfarna viku hefur staðið yfir vitundarvakningin ÉG LOFA á vegum Barnaheilla. Markmiðið var að vekja athygli á umfangi kynferðisofbeldis gegn börnum með því að miðla upplýsingum og fræðslu. Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnisstýra ofbeldis- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum kom í þáttinn í dag og sagði okkur aeðins frá þessu átaki og einnig frá ungmennaþingum sem haldin voru á sex stöðum á landinu þar sem rætt var um kynferðisofbeldi í nánum samböndum ungmenna og það sem þar kom fram á þessum þingum er vægast sagt sláandi. Hrafnhildur Reykjalín er starfandi heilsuráðgjafi á Akureyri, hún er kennari í markþjálfun með diplómu í jákvæðri sálfræði auk fjölbreyttrar menntunar í andlegri og líkamlegri heilsu og önnur eigenda Sjálfsræktar heilsumiðstöðvar. Í jákvæðri sálfræði og markþjálfun er unnið markvisst með gildi sem grunn að vellíðan og stefnu í lífinu. Hrafnhildur sagði okkur betur frá þessu í þættinum í dag. Svo var komið að síðasta skiptinu í bili sem Valdimar Þór Svavarsson kemur til okkar til að ræða mannlegu samskiptin. Hann hefur verið með okkur alla fimmtudaga í vetur og í síðustu viku fór hann yfir það helsta sem hann hefur talað um og í dag fór hann yfir nokkur góð ráð til að brjóta upp mynstur og venjur sem eru ekki að þjóna okkur. Tónlist í þættinum í dag: Létt / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarson, texti Jónas Friðrik Guðnason Mig dreymir / Björgvin Halldórsson (Björgvin Halldórsson, texti Jónas Friðrik Guðnason) Kastað á glæ / Geirfuglarnir (Halldór Gylfason) Þér við hlið / Regína Ósk Óskarsdóttir (Magnús Þór Sigmundsson, texti Trausti Bjarnason) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

bj gu sj reg magn mig hann halld samb kasta svo akureyri kolbr valdimar markmi hrafnhildur gylfason sigmundsson undanfarna
Mannlegi þátturinn
Jazzþorpið í Garðabæ, Sindri Sparkle og regnbogafánar og veðurspjallið með Einari

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 28, 2026 52:14


Í tilefni 50 ára afmælis Garðabæjar stendur Jazzþorpið á Garðatorgi í 4 daga. Ómar Guðjónsson er listrænn stjórnandi dagskrárinnar sem verður óvenju vegleg í tilefni afmælisins og gestir geta látið fara vel um sig og jafnvel keypt húsgögn og vörur sem flutt hafa verið á Garðatorgið frá Góða hirðinum. Ómar Guðjónsson og Ólöf Breiðfjörð fyrsti menningarfulltrúi Garðabæjar komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá Jazzþorpinu. Pláss fyrir alla: Regnbogafánar fyrir byrjendur og lengra komna er uppistandssýning í Tjarnarbíói sem rekur sögu hinna ýmsu fána á gamansaman en fræðandi hátt. Regnbogafánar hafa verið mikið í umræðunni undanfarið Sindri Freyja Bjarnabur, líka þekkt sem Sparkle, er grínisti, rithöfundur og grafískur hönnuður og hún kom í þáttinn í dag og sagði betur frá sýningunni og því hvernig þessi umræða hefur þróast undanfarið og áhrifin sem hún finnur glöggt fyrir á eigin skinni í kjölfarið. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Í dag talaði Einar um sjávarhita fyrir norðan landið, sem er hár miðað við árstíma og hefur áhrif á hafís og gefur mögulega fyrirheit um íslenska sumarið. Svo var dagurinn í gær líklega fyrsti raunverulegi sumardagurinn en hvað er átt við með því? Og hvað er kóngsbænakast? Að lokum herjar ógnvænleg hitabylgja á Indlansskaga, meiri en oft áður snemmsumars. Þetta og fleira var í veðurspjallinu með Einari í dag. Tónlist í þættinum í dag: Manstu þá / Björgvin Halldórsson (Allan Jackson, texti Karl Mann (eða Friðrik Erlingsson) Manstu / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir) Manstu / Hjálmar (Hjálmar, texti Þorsteinn Einarsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Segðu mér
Hannes Þór Halldórsson og Allan Sigurðsson leikstjórar

Segðu mér

Play Episode Listen Later Apr 22, 2026 40:46


Þeir Hannes og Allan ræða húmor og hugmyndir, Iceguys og Góða Íslendinga.

Mannlegi þátturinn
Ónæmisgallar, upprifjun í mannlegum samskiptum og býflugur í vísindaspjallinu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 22, 2026 54:44


Þessa vikuna er vitunarvakning hjá Lind, félagi fólks með ónæmisgalla. En markmið félagsins er að stuðla að öflugum forvörnum, greiningu og meðferð meðfæddra ónæmisgalla. Hrefna Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur á ónæmisdeild Landspítalans kom í hljóðver og Guðrún Jóna Hreggviðsdóttir var á línunni frá Ítalíu, en sonur hennar fæddist með ónæmisgalla. Hún deildi með okkur þeirra sögu og Hrefna fræddi okkur um ónæmisgalla, vitundarvakningavikuna og félagið Lind. Svo kom Valdimar Þór Svavarsson til okkar, í þetta sinn á miðvikudegi, því mannlegu samskiptin eru svo áhugaverð að tala um við hann að það kom ekki til greina að missa hann út þessa vikuna þó að það sé ekki þáttur á morgun, Sumardaginn fyrsta. Ekki nóg með það heldur er þetta næst síðasta skipti sem hann kemur til okkar í bili, því stiklaði hann á stóru í dag og rifjaði upp það sem hann hefur verið að fræða okkur um mannleg samskipti í vetur. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá ákveðnu afbrigði af býflugum sem eru þrautseigari gegn sníkjudýrum og sýklum og gætu því verið með lausnina til að bjarga býflugnastofninum sem hefur verið í hnignun. Tónlist í þættinum í dag: Sveitin mín / Haukur Morthens (Jóhann Helgason) Here Comes the Sun / The Beatles (George Harrison) Okkar ástarvor / Björgvin Halldórsson og Sigurjón Brink (erlent lag, texti Friðrik Erlingsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

bj brink gu halld ekki svo sigurj valdimar landsp hrefna sveitin hreggvi
Mannlegi þátturinn
Græn samskipti, Græna gangan og Auður Bjarnadóttir á heilsuvaktinni

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 21, 2026 54:45


Græn, gul og rauð samskipti og samspil við taugakerfið er nokkuð sem við skoðuðum í þættinum í dag. Hvernig streita hefur áhrif á öll samskipti og hvernig við skynjum okkur sjálf og aðra ólíkt eftir því hvort við erum í jafnvægi eða í streitu. Gyða Dröfn Tryggvadóttir kom í þáttinn, en hún er með meistaragráðu í stjórnun heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu frá Háskólanum í Reykjavík og hefur einnig lokið námi í uppeldis- og áfallafræðumn Piu Mellody. Talandi um græn samskipti, þá töluðum við um Grænu gönguna sem fer fram á fimmtudaginn á Sumardaginn fyrsta. Og ekki nóg með það, heldur verður hátíðarsamkoma í lok göngunna í Hljómskálagarðinum, svo er það svokallaður Grænn pallur, þar sem frambjóðendur í sveitastjórnarkosningunum framundan munu ræða grænu málin og svo er það hápunkturinn, tónlistarveislan Hálendishátíð í Iðnó þar sem þekkt tónlistarfólk leggur náttúrunni lið með sinni tónlist. Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar og Snæbjörn Guðmundsson jarðfræðingur og formaður Náttúrugriða komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá þessu. Að lokum var það Heilsuvaktin. Að þessu sinni talaði Helga Arnardóttir við Auði Bjarnadóttur dansara, leikstjóra og jógakennara sem hefur kennt jóga í tæp 30 ár og verið ein af frumkvöðlum á sviði meðgöngujóga sem hefur verið afar vinsælt. Auður hefur líka kennt hundruðum kvenna að verða jógakennarar undanfarna tvo áratugi. Hún segir þær ekkert endilega allar verða kennarar en námið nýtist þeim í að ná tökum á streitu, jafnvel kulnun og hreinlega jafnvægi í lífinu. Tónlist í þættinum í dag: Í grænum mó / Ellý Vilhjálms og Hljómsveit Svavars Gests (Sigfús Halldórsson, texti Gestur Guðfinnsson) Bíldudals grænar baunir / Jolli & Kóla (Valgeir Guðjónsson) Græna byltingin / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

bj gu sn gy reykjav halld hvernig hlj bjarnad tryggvad samskipti landverndar jolli ell vilhj helga arnard valgeir gu
Mannlegi þátturinn
Minningarsteinninn Eilífð, enn um höfnunarótta og Hrólfur Sæmundsson

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 16, 2026 53:43


Við fræddumst um svokallaðan minningarstein í þættinum, en fjórir ungir menn tóku þátt í frumkvöðlakeppni þar sem þeirra vara var minningarsteinninn Eilífð. Á hverjum og einum steini er QR kóði sem leiðir inn á vefsíðu þar hægt verður að sjá myndir og myndbönd af þeim sem hefur fallið frá. Baldur Orrason Gröndal og Jóel Þeyr Kárason komu í þáttinn og útskýrðu betur fyrir okkur hvernig þetta virkar. Valdimar Þór Svavarsson kemur til okkar á fimmtudögum og fræðir okkur um mannleg samskipti. Síðustu tvo fimmtudaga var hann að tala um höfnunaróttann sem herjar á marga og getur verið snúið að glíma við. Hann hélt áfram á þeim nótum og fýr dýpra í þær í dag. Það eru spennandi verkefni framundan hjá Hrólfi Sæmundssyni óperusöngvara. Hann er að fara að syngja sjálfan Óðinn, í fyrstu heildaruppfærslu Eistlendinga á Niflungahringnum. Æfingar byrja í maí en fáir Íslendingar hafa sungið það hlutverk en það þykir eitt mest krefjandi hlutverk óperubókmenntanna.Við heyrðum í Hrólfi í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Þó líði ár og öld / Björgvin Halldórsson (erlend lag, texti Hrafn Gunnlaugsson) Mamma / Björgvin Halldórsson (Þórunn Franz, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson) Ég fann þig/Björgvin Halldórsson (Amerískt þjóðlag, texti Jón Sigurðsson) Selja litla / Björgvin Halldórsson (Jón Jónsson frá Hvanná, texti Guðmundur Ingi Kristjánsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Víðsjá
Aldrei las ég Laxness / Vefarinn mikli frá Kasmír

Víðsjá

Play Episode Listen Later Apr 15, 2026 56:16


Bókaklúbbur Víðsjár heldur áfram: Vefarinn mikli frá Kasmír gaf Halldór Kiljan Laxness út árið 1927 við alls konar undirtektir. Sagan hverfist um unga manninn Stein Elliða sem haldinn er miklu hugarvíli og núrótík og leitar lausna við kvillum sínum í stóru hugmyndakerfum heimsins. Í þættinum ræða Tómas og Natasha S., skáld og rithöfundur, bókina sín á milli.

Bylgjan
Bítið - þriðjudagur 14. apríl 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Apr 14, 2026 95:14


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs hjá Vegagerðinni, ræddi við okkur um ráðstefnu á morgun á vegum Vegagerðarinnar. Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, ræddi íþróttaiðkun barna og kostnað við hana. Guðmundur Árni, oddviti Samfylkingar í Hafnarfirði og Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði, ræddu um það sem brennur á íbúum í aðdraganda kosninga. Ragnar Sigurðsson, oddviti Sjálfstæðisflokks í Fjarðabyggð og formaður bæjarráðs, var á línunni og ræddi gjaldskrárlækkanir í Fjarðabyggð. Valdimar Óskarsson frá Keystrike ræddi nýjustu vendingar í gervigreindinni. Kamilla Mía Briem, Stefán Snær Sigurðsson Kaldalóns, Halldóra Mjöll Snorradóttir, Patrekur Sigurðsson og Sunna Björg Sigurðardóttir, ungir frumkvöðlar úr Menntaskólanum við Sund, ræddu um Sjávardjásn, sjávardjásn.is.

mj gu sj stef sn sigur sund halld hafnarfir valdimar briem menntask heimi snorrad fjar vegager
The Icelandic Roundup
RIP Bo Hall, Municipality Elections, Westman Islands Flyover, Grindavík & Inflation

The Icelandic Roundup

Play Episode Listen Later Apr 13, 2026 54:44 Transcription Available


Are you enjoying this? Are you not? Tell us what to do more of, and what you'd like to hear less of. The Reykjavík Grapevine's Iceland Roundup brings you the top news with a dash of local views. In this episode, Grapevine publisher Jón Trausti Sigurðarson is joined by Grapevine editor-in-chief Bart Cameron, and Grapevine friend and contributor Sindri Eldon to roundup the stories making headlines in the past week. On the docket this week are: Pop Legend Björgvin Halldórsson PassesBjörgvin Halldórsson passed on April 9th last week, a week short of his 75th birthday. Björgvin, or “Bo” may be a bit hard to explain to non-Icelandic audiences, but he started out as Iceland's first teen pop-star in the late 60s, and went on to have a prolific music career and series of hits, along with becoming a larger-than-life character in Icelandic life.Eleven “parties” in the running in Reykjavík's upcoming municipality elections. One “party” in the town of VopnafjörðurThe municipality elections will take place for all municipalities in Iceland, on 16 May. Excitement seems to vary between places, as eleven entities turned in a candidate list for the elections in Reykjavík, while one such list of candidates was sent in for the elections in Vopnafjörður, east Iceland.Icelandair Pilot On Last Flight, “Hedgehops” Over HometownLast Friday, an Icelandair passenger jet flying to Keflavík from Frankfurt, made a very low and unauthorized flyover over the Westman Islands. The pilot was celebrating his last flight, by flying low over his home town, and as is reported, much to the satisfaction of the passengers onboard, but to the chagrin of the residents of the Westman Islands. Man Wakes Up, Sees Notice Of Own Demise In NewspaperSölvi Guðmundarson woke up last Friday to the unpleasant experience of reading about his own death in Iceland's last remaining daily paper, Morgunblaðið.Government Announces Three Pronged Plan To Battle InflationIn short, the government announced that they'd be 1) lowering VAT on fuel from 25% to 11%, 2) more diligently watching changes in prices, 3) Spending 500 million ISK to increase access to EV charging stations. Opposition members were unsurprisingly unimpressed, but so were union leaders.New Report On The Town Of Grindavík, Advices Against Families With Children Moving To The Town. The report was met with little enthusiasm by some of the Support the show------------------------------------------------------------------------------------------SHOW SUPPORTSupport the Grapevine's reporting by becoming a member of our High Five Club: https://grapevine.is/high-five-club/Or donate to the Grapevine here:https://support.grapevine.isYou can also support the Grapevine by shopping in our online store:https://shop.grapevine.is------------------------------------------------------------------------------------------This is a Reykjavík Grapevine podcast.The Reykjavík Grapevine is a free alternative magazine in English published 18 times per year, biweekly during the spring and summer, and monthly during the autumn and winter. The magazine covers everything Iceland-related, with a special focus culture, music, food and travel. The Reykjavík Grapevine's goal is to serve as a trustworthy and reliable source of information for those living in Iceland, visiting Iceland or interested in Iceland. Thanks to our dedicated readership and excellent distribution network, the Reykjavík Grapevine is Iceland's most read English-language publication.You may not agree with what we write or publish, but at least it's not sponsored content.www.grapevine.is

Bylgjan
Bítið - mánudagur 13. apríl

Bylgjan

Play Episode Listen Later Apr 13, 2026 103:28


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Sveinn Akerlie, einn af stofnendum AviLabs, ræddi við okkur um lausn á vandamálum flugfélaga er varðar ferðarof. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, ræddi flugið yfir Eyjar og samgöngur almennt. Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands og Jón Þór Víglundsson, fyrrverandi formaður handknattleiksdeildar KR, ræddu kostnað við íþróttaiðkun barna. Dagmar Valsdóttir og Eva Lind Matthíasdóttir, Grindvíkingar ræddu málefni Grindvíkinga eftir nýjustu tilmæli Grindavíkurnefndar. Kristjan Ingi Mikaelsson, sjóðstjóri hjá Visku sjóðum, ræddi við okkur um nýjustu vendingar í gervigreindinni. Aron Guðmundsson, íþróttafréttamaður Sýnar, ræddi umferðina í enska boltanum. Guðmundur Einar Arason, Halldór Óli Arnarsson, Ísak Rökkvi Davíðsson og Valur Rúnarsson Bridde eru ungir frumkvöðlar úr Verzunarskóla Íslands og stofnuðu fyrirtækið Grásíða, grasida.is.

kr gu dav halld grindav vestmannaeyjum heimi arnarsson
Mannlegi þátturinn
Að kunna að hlaupa hægt, hlustunarvenjur frá 1947 og Júlíus lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 13, 2026 49:47


Arnar Péturs er þrautreyndur landsliðshlaupari og hlaupaþjálfari. Hann hefur 73 sinnum orðið Íslandsmeistari og sigrað Laugaveginn tvisvar. Hann á einnig Íslandsmetið í 100 km hlaupi. Arnar skrifaði Hlaupabókina sem inniheldur þekkingu sem hann hefur aflað sér með því að æfa með bestu hlaupurum og þjálfurum í heiminum. Arnar kom í þáttinn í dag, en hann segir að allt sé hægt ef maður kann að fara nógu hægt. Svo kom Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, til okkar í dag með gullmola úr safni útvarpsins. Í þetta sinn leyfði hún okkur að heyra upptöku frá árinu 1947 úr tónlistarþætti í umsjón Jóns Þórarinssonar, þar sem hlustendum er kennd listin að hlusta á útvarp, þar er talað um góðar og slæmar hlustunarvenjur í ýmislegt fleira til að bæta hlustunarupplifun. Mjög áhugaverður bútur sem við heyrðum og Helga Lára sagði okkur betur frá í þættinum. Svo var það lesandi vikunnar sem í þetta sinn var Júlíus Ó. Einarsson, en hann var að senda frá sér nýja bók sem heitir Í framlínu - lögreglumenn segja frá. Hann tók viðtöl við tugi lögreglumanna, sem segja frá reynslu sinni, upplifun af starfinu í bókinni. Við fengum hann til að segja okkur frá þessari bók, en svo auðvitað aðallega frá þeim bókum sem hann hefur verið að lesa undanfarið og þeim höfundum og bókum sem hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Júlíus talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Hollendingurinn fljúgandi e. Frederick Marryat Konungs skuggsjá, höf. ókunnur A short History of the World according to Sheep e. Sally Coulthard Prisoners of Geography e. Tim Marshall The Story of Russia e. Orlando Figes Enid Blyton Tónlist í þættinum í dag: Vertu ekki að kvarta / South River Band (Ólafur Þórðarson, texti Kormákur Bragason) Ég skal syngja fyrir þig / Björgvin Halldórsson (G. Sklerov & Phyllis Molinary, texti Jónas Friðrik Guðnason) Words / Bee Gees (Maurice, Robin og Barry Gibb) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

The Eurovision Showcase on Forest FM
From Reykjavík to Eurovision: Celebrating Björgvin Halldórsson - 12th April 2026

The Eurovision Showcase on Forest FM

Play Episode Listen Later Apr 12, 2026 61:08


Mannlegi þátturinn
Hannes Óli föstudagsgestur og portúgalskt matarspjall

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 10, 2026 50:00


Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Hannes Óli Ágústsson. Frá því hann útskrifaðis frá Listaháskóla Íslands árið 2009 hefur hann leikið mikinn fjölda hlutverka á sviði og fyrir framan kvikmyndavélar, til dæmis í fjölmörgum áramótaskaupum og svo nú síðast í gamanþáttaröðinni Hæst sem er sýnd hjá Sjónvarpi Símans, en hann er einn handritshöfunda auk þess að leika annað aðalhlutverkið. Við ræddum við hann um lífið og tilveruna, ferðuðumst með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar í Breiðholtinu og stikluðum á stóru í gegnum lífið til dagsins í dag. Svo var auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti á sínum stað. Í dag ræddum um portúgalskan mat, saltfisk, sjávarrétti, skrýtna samloku og sætabrauð. Tónlist í þættinum í dag: Í útvarpinu / Björgvin Halldórsson og HLH flokkurinn (Björgvin Halldórsson, texti Jónas Friðrik) Berghain / Rosalia & Björk & Yves Tumor (Rosalia Vila Tobella, Noah Goldstein & Dylan Wiggins) Bankrobber / The Clash (Joe Strummer) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

bj port sj hannes brei halld svo hlh listah sigurlaugu margr
Segðu mér
Hjalti Halldórsson kennari og rithöfundur

Segðu mér

Play Episode Listen Later Apr 8, 2026 40:00


Hjalti mætir í þáttinn og les fyrir grunnskólabörn smásöguna Hetja dagsins í tilefni af degi barnabókkarinnar.

Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn - Stóri upphitunarþátturinn fyrir Bestu

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Apr 4, 2026


Halldór Árnason, fyrrum þjálfari Breiðabliks, er sérstakur álitsgjafi en hitað er rækilega upp fyrir Bestu deildina. Elvar Geir og Tómas Þór stýra þættinum og fara yfir spá Bestu deildarinnar með Halldór sem sérfræðing. Í seinni hluta þáttarins er svo Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, gestur.

Fotbolti.net
Niðurtalningin - Pressan í Garðabænum meiri en áður

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Apr 1, 2026


Stjörnunni er spáð þriðja sæti í spánni hér á Fótbolta.net, liðið endaði einnig í þriðja sæti á síðasta tímabili en stefnir nú hærra. Stjörnumennirnir tveir, Kristján Másson og Halldór Orri Björnsson, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og ræddu komandi sumar í Garðabænum.

Þjóðmál
#408 – Dymbilvikan með Halldóri Benjamín

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Mar 31, 2026 71:30


Halldór Benjamín Þorbergsson, þá framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, var fyrsti gestur í hlaðvarpi Þjóðmála fyrir rétt rúmum fimm árum. Hann mætir nú aftur og fjallar um íslenska hagkerfið, viðhorfið til atvinnulífsins, um traustið sem þurfti að mynda á milli atvinnurekenda og launþegahreyfinga, nýsamþykkt frumvarp sem gæti falið í sér ein mestu hagstjórnarmistök sögunnar, boðað aðlögunarferli að Evrópusambandinu og margt fleira.

Víðsjá
Tilfinningasteinar, Auðlindagarðar og Jón Nordal tónleikar Caput

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 19, 2026 51:55


Samsýningin Auðlindagarðar fjallar um venslin á milli stóriðju og stafrænna innviða samtímans, þar sem stórar ákvarðanir um náttúruauðlindir eru teknar í sterílu skrifstofuumhverfi og sú náttúra sem flest okkar sjá er á skjáhvílum vinnutölvanna okkar. Listamennirnir, þau Agnes Ársælsdóttir, Hrafkell Tumi Georgsson, Sölvi Halldórsson og Eleni Iermia, vinna staðbundið inn í Slökkvistöðina, sem var áður hluti af Áburðarverksmiðju ríkisins. Við lítum þar við í síðari hluta þáttar. Tumi Árnason fjallar um nýafstaðna tónleika Caput hópsins í tilefni af 100 ára fæðingarafmæli Jóns Nordal. Og við komum við í Höggmyndagarðinum þar sem myndlistarkonan Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnason sýnir um þessar mundir skúlptúra sem hún kallar Tilfinningasteina, en þeir eru afsprengi rannsóknar hennar á tilfinningalegum orðaforða, sem hún segist ekki vera neitt sérstaklega góð í sjálf.

Víðsjá
Aldrei las ég Laxness / Undir Helgahnúk

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 18, 2026 54:36


Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar, Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga þáttarins er að þessu sinni Undir Helgahnúk sem kom út árið 1924. En verkið skrifaði Halldór í Benediktínaklaustrinu í Clervaux veturinn 1922, þá tvítugur - og hafði kaþólsk trú sterk áhrif á verkið sem er uppvaxtarsaga Atla Kjartanssonar, prestssonar sem gengur í gegnum mikla erfiðleika í æsku, missir bróður og móður, og fer því að missa trúna. Gestir þáttar eru þau Rán Flygenring, rithöfundur og myndhöfundur, og Halldór Guðmundsson, rithöfundur. Klúbburinn Aldrei las ég Laxness er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér nóbelskáldið, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, og/eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Næsta bók sem tekin verður fyrir verður Vefarinn mikli frá Kasmír en fjallað verður um hana í Víðsjá 15. apríl, næstkomandi. Hægt er að taka þátt í umræðum um bækurnar í sérstökum facebook hópi sem má finna hér: https://www.facebook.com/groups/1247768283945537

Frjálsar hendur
Anna á Moldnúpi, Ólafur Jóhann og Ásta vitlausa 1

Frjálsar hendur

Play Episode Listen Later Mar 1, 2026 50:06


Árið 1944 gaf Ólafur Jóhann Sigurðsson út skáldsöguna Fjallið og drauminn sem hlaut yfirleitt mjög góða dóma, þótt sumir væru upp og ofan, t.d. dómur Halldórs Laxness. En ein persóna bókarinnar, niðursetningurinn Ásta vitlausa, varð sérlega umdeild enda lýsing á ævi hennar sérlega ofboðsleg. Undir lok þáttar víkur svo að alþýðukonunni Önnu frá Moldnúpi sem nánar segir af í næsta þætti.

Saga Thing
Episode 41c - Víga-Glúm's Saga (chapters 10-15)

Saga Thing

Play Episode Listen Later Feb 25, 2026 100:18


In this episode, Glúm continues to establish himself as a leading figure in southern Eyjafjörður. We start with a brief overview of the many marriages that take place at this stage of the saga, including: Glúm - Halldóra Thórir of Espihóll - Thórdís Thórarinn of Espihóll - Thorgerd Thorvald Hook of Espihóll - Thorkötla Of course, the real trouble starts when Thórir's son Thorgrím sets his heart on the lovely Thórdís. Things get interesting from there. Check out the Víga-Glúms saga genealogy Andy's been building here. All these marriages naturally result in the arrival of many new characters to the saga. Among them are Már, the son of Glúm and Halldóra, and two special little cousins, Arngrím and Steinólf. These two boys get along better than anyone in Iceland. Surely they have a bright future ahead of them. Right? We also dive into a fun little story about Ingólf, a very large man who finds a home at Þverá with Már and Glúm. Through no fault of his own, Ingólf gets caught up in a somewhat precarious feud between Glúm and a no-good neighbor known as Kalf of Stokkahlaðir. There's a horse fight, some hurt feelings, and then thing leads to another. Before you know it, there's a lawsuit against Ingólf at the Althing. As usual, we've got plenty of digressions to distract you from the story. We talk about ice storms in Mississippi, snow storms in Massachusetts. We go on for too long about formalist approaches to the structure of Víga-Glúms saga and how we approach building an episode of Saga Thing. This actually leads to a brief discussion of the role of minor characters in the sagas, a subject that the great Ármann Jakobsson covers in his new book (grab a copy here): We discuss the fascinating subject of children and toys in medieval Iceland. While there's not much info out there, we found just enough to get John excited about a possible Saga Brief on the subject ;). At some point, I mention a small toy carving found at Seydisfjordur (a great spot to visit in the East fjords). What kind of animal is this? Read the article in Smithsonian for more information. As you'll hear, this episode is very digression heavy as we work our way through a transitional moment in the saga. There are many many references to Gabriel Turville-Petre's edition of the saga, which provides plenty of useful insights and discussion points for us. Listen and let us know what you think: Sagathingpodcast on Facebook Sagathingpodcast on Instagram Sagathingpodcast on Bluesky Saga Thing's unofficial official Discord Music Credits Intro Music – “Prelude and Action” by Kevin MacLeod Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/ Outro Music – “Stormfront” by Kevin MacLeod Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/  

Frjálsar hendur
Ásta vitlausa og Anna á Moldnúpi 1

Frjálsar hendur

Play Episode Listen Later Feb 8, 2026 50:00


Árið 1944 gaf ungur og efnilegur rithöfundur, Ólafur Jóhann Sigurðsson, út skáldsöguna Fjallið og drauminn. Hún þótti ævi metnaðarfull og fékk yfirleitt mjög góða dóma þótt Halldór Laxness væri beggja blands í sinni gagnrýni. En svo steig fram lítt þekkt kona, Anna Jónsdóttir (1901-1979) frá Moldnúpi og var aldeilis ekki sátt við lýsingu höfundar á persónunni Ástu vitlausu.

Dr. Football
Sagan öll með Stefáni Pálssyni - Kraftaverkið í Verona 84/85 ítalski boltinn í byrjun níunda áratugarins

Dr. Football

Play Episode Listen Later Feb 4, 2026 67:31


Stefán Pálsson og Kanslarinn sjálfur Halldór Örn Kristjánsson ræða kraftaverkið í Verona 1984-85 og ítalska boltann á þeim árum.