Podcasts about umsj

  • 110PODCASTS
  • 11,791EPISODES
  • 54mAVG DURATION
  • 3DAILY NEW EPISODES
  • Aug 12, 2026LATEST

POPULARITY

20192020202120222023202420252026

Categories



Best podcasts about umsj

Show all podcasts related to umsj

Latest podcast episodes about umsj

Spegillinn
Sólmyrkvinn

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 12, 2026 20:00


Spegill miðvikudagsins 12. ágúst var helgaður almyrkva á sólu. Rætt var stuttlega við Runólf Þórhallsson sviðsstjóra Almannavarna hjá ríkislögreglustjóra um viðbúnað vegna sólmyrkvans og þess fjölda gesta og viðburða sem honum tengjast. Síðan var komið að myrkvanum sjálfum og rætt við Gunnlaug Björnsson stjarneðlisfræðing og prófessor við Háskóla Íslands, en hann fór fyrir hópi þeirra sem reiknuðu út nákvæmlega hvenær sólmyrkvinn yrði, hversu langur og hvar. Farið var yfir sögu sólmyrkvafræða, aðferðir við að reikna þá út og hvað það er sem vísindamenn eru helst að rannsaka í tengslum við viðburði sem þessa. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Fram og til baka
Hinsegin gleði, Leikur einn og Hvanneyrarhátíð

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Aug 8, 2026 197:00


Hinsegin dagar ná hápunkti um helgina og settu sinn svip á lagavalið í þætti dagsins hjá Felix og Nönnu. Í tilefni hátíðarinnar fengu þau til sín tónlistarmanninn Torfa sem ætlar einmitt að koma fram á Pride balli í Gamla bíó í kvöld ásamt Páli Óskari, Álfgrími og fleiri góðum gestum. Þá leit uppistandarinn og fræðarinn Sóley Kristjánsdóttir einnig við og ræddi við þau um ferilinn og spennandi verkefni á döfinni. Þá voru auðvitað fleiri hátíðir í gangi víða um land. Umsjónarmenn þáttarins hringdu vestur á Suðureyri í Elfar Loga Hannesson sem kemur að skipulagningu hátíðarinnar Act Alone sem fer fram um helgina. Þá slógu þau einnig á þráðinn hjá Ragnhildi Helgu Jónsdóttur sem sagði þeim frá Hvanneyrarhátíð sem fer fram um helgina.

Spegillinn
Sólmyrkvinn og veðrið

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 7, 2026 9:53


Tugir þúsunda bíða spenntir eftir sjónarspilinu mikla, sólmyrkvanum, næstkomandi miðvikudag. Upplifunin mun óhjákvæmilega markast mjög af veðrinu, heiðskír himinn er óskastaðan en dumbungur öllu verri, að ekki sé minnst á svargráa og regnbólgna kólgubakka. En það er ekki bara veðrið sem hefur áhrif á upplifun fólks á almyrkvanum - hann hefur líka áhrif á veðrið. En hvernig? Spegillinn bar það undir Trausta Jónsson veðurfræðing. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Íslenskir bændur og ESB

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 6, 2026 10:00


Íslenskur landbúnaður stendur á krossgötum, segir í skýrslu Bændasamtakanna um mögulega aðild að Evrópusambandinu. Bændur hafa boðað aukabúnaðarþing 14. ágúst og þar á að ræða og álykta um þessi mál. Í skýrslunni sem kynnt var í morgun er á um 130 síðum og í átta köflum farið yfir hvort í ESB-aðild fælist fyrst og fremst tæknileg breyting eða kerfisbreyting fyrir íslenskan landbúnað og sjónum beint að ákvörðunarvaldi, stuðningskerfi, markaðsvernd, heilbrigði búfjár og sérstökum framleiðsluskilyrðum. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Sigurbjörgu Ottesen, formann milliþinganefndar Bandastamtakanna, en nefndinni var falið að greina áhrif mögulegrar ESB-aðildar og aðildarviðræðna á íslenskan landbúnað. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Skyldur Íslands í loftslagsmálum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 5, 2026 10:01


Í ráðgefandi áliti Alþjóðadómstólsins í Haag á skyldum ríkja vegna loftslagsbreytinga frá því í fyrra kemur skýrt fram að þar sem loftslagsmál hafi áhrif á öllum sviðum mannlegrar tilveru, alstaðar í heiminum beri öllum heimsins ríkjum skylda til þess að vernda loftslagið af fremsta megni. Bjarni Már Magnússon, doktor í lögfræði og sérfræðingur í þjóðarétti, rýndi í álitið fyrir Loftslagsráð. Hann segir það hafa mikla þýðingu fyrir Ísland, íslenska löggjöf og samskipti Íslands við önnur ríki og alþjóðastofnanir. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Ábyrgð og skyldur ríkja í loftslagsmálum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 4, 2026 9:55


Ár er liðið frá því að Alþjóðadómstóllinn í Haag birti ráðgefandi álit á skyldum ríkja vegna loftslagsbreytinga. Eftir mikla gagnarýni og langan málflutning komst dómstóllinn að einróma niðurstöðu um að loftslagsmál hefðu áhrif á öllum sviðum mannlegrar tilveru, alstaðar í heiminum, og að öllum ríkjum bæri því skylda til þess að vernda loftslagið af fremsta megni. Bjarni Már Magnússon, doktor í lögfræði og sérfræðingur í þjóðarétti, rýndi í þetta mikla plagg fyrir loftslagsráð. Hann segir það umfangsmesta ráðgefandi álit í sögu dómstólsins, og marka tímamót í þróun þjóðaréttar á sviði loftslagsmála. Þá megi segja að það sé eins konar handbók fyrir fólk sem vill knýja yfirvöld í sínu landi til að gera betur í málaflokknum. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Vikulokin
Hermann Guðmundsson, Kolbrún Bergþórsdóttir og Jónas Hagan

Vikulokin

Play Episode Listen Later Aug 1, 2026 57:57


Gestir Vikulokanna eru Hermann Guðmundsson framkvæmdastjóri Kemi og fyrrverandi forstjóri N1, Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður, bókmenntagagnrýnandi og pistlahöfundur og Jónas Hagan Guðmundsson fjárfestir, frumkvöðull og stjórnarmaður í hreyfingunni Já til að sjá. Þau ræddu meðal annars komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildaviðræður Íslands við ESB, minnkafár í Mosfellsbæ og viðtal forsætisráðherra við breska hlaðvarpið Rest is Politics. Umsjón: Urður Örlygsdóttir Tæknimaður: Þráinn Steinsson

Spegillinn
Baráttan um boltann - FIFA og EUFA takast á

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 30, 2026 10:20


Þetta er Spegillinn. Umsjónarmaður er Ævar Örn Jósepsson. Öll aðildarsambönd Evrópska knattspyrnusambandsins ætla að sniðganga HM í fótbolta ef áform forseta sambandsins um að selja 20 prósenta hlut í mótinu ná fram að ganga. Þetta var samþykkt á neyðarfundi evrópska sambandsins í dag. Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur eftir ónefndum heimildarmönnum að andrúmsloftið á fundinum hafi verið baneitrað, slík var reiði og andstaða fundarfólks við áform Giannis Infantino, forseta FIFA. En um hvað er barist? Alexander Kristjánsson ræðir það við Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafa og sparkspeking. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

bbc fifa bj gu hm evr umsj eufa breska berg gunnarsson
Spegillinn
Minkar á Íslandi - lausir og villtir

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 29, 2026 9:56


Hundruðum og jafnvel þúsundum minka var sleppt úr búrum sínum á síðasta minkabúi landsins, Dalsbúi í Mosfellsdal, á miðvikudag og einhver hundruð hið minnsta sluppu út úr húsi. Svo virðist sem fæstir þeirra hafi komist út fyrir öryggisgirðingu sem umlykur búið, en fregnir hafa þó borist af dýrum utan hennar. Eldisminkar eru um margt frábrugðnir villtu minkunum, sem þó eru allir afkomendur fyrri eldisminka. En hver er munurinn og hvað þarf fólk að hafa í huga, gangi það fram á mink á kvöldrölti sínu? Spegillinn bar það undir Róbert Arnar Stefánsson, forstöðumann Náttúrustofu Vesturlands og sérfræðing í minkum, atferli þeirra og afkomu. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Spegillinn
Stéttarfélög og ESB

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 28, 2026 10:00


Síðast þegar íslensk stjórnvöld sóttust eftir inngöngu í Evrópusambandið var drjúgur meirihluti innan Alþýðusambands Íslands hlynntur þeirri vegferð. Sú afstaða kom meðal annars fram í ræðum, ályktunum og samþykktum á þingum ASÍ, og það ítrekað. En hvernig er þetta í dag? Hólmfríður María Ragnhildardóttir kannar málið og ræðir við Finnbjörn Hermannsson, forseta ASÍ. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

gu evr umsj hermannsson
Spegillinn
Sprenging í net- og símaglæpum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 27, 2026 9:44


Óhætt er að segja að sannkölluð sprenging hafi orðið á sviði net- og símglæpa af öllu tagi, á allra síðustu árum. Skipulögð, fjölþjóðleg glæpasamtök hafa komið sér upp stærðarinnar úthringi- og tölvuverum, sem gera ekki annað en að reyna að svíkja fé af fólki alstaðar í heiminum allan daginn alla daga allan ársins hring með hinum fjölbreytilegustu aðferðum. Og sækist það giska vel. Raktar eru sláandi niðurstöður nýrrar skýrslu SÞ um umfang net- og símglæpa í Austur- og Suðaustur Asíu, Ástralíu og Nýja Sjálandi og rætt við Agnesi Ósk Marzellíusardóttur lögreglufulltrúa um stöðu mála hér á landi. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason

sj helgason umsj agnesi austur
Vikulokin
Aðalsteinn Baldursson, Arnheiður Jóhannsdóttir og Karl Frímannsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jul 25, 2026 57:59


Gestir Vikulokanna eru Aðalsteinn Baldursson, formaður Framsýnar, stéttarfélags Þingeyinga, Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands og Karl Frímannsson skólameistari Mennatskólans á Akureyri. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir Tæknimaður: Þráinn Steinsson

marka akureyri umsj frams baldursson anna krist arnhei
Spegillinn
Kjarnorkusamningar Bandaríkjanna og Sádi-Arabíu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 23, 2026 10:00


Orkumálaráðherrar Bandaríkjanna og Sádi-Arabíu skrifuðu í gærkvöld undir tvo samninga um kjarnorkumál, um samvinnu ríkjanna um nýtingu Sáda á kjarnorku til orkuframleiðslu og eftirliti með henni Samningurinn er til þrjátíu ára og er ætlað að uppfylla „orkuþörf“ olíuveldisins Sádi-Arabíu, samkvæmt tilkynningu bandaríska orkumálaráðherrans, Chris Wright, en í langtíma efnahagsáætlun Sáda er gert ráð fyrir töluverðri raforkuframleiðslu með kjarnorku svo þeir geti aukið olíuútflutning að sama skapi. Margir hafa orðið til að gagnrýna samninginn, og enn virðist ýmislegt á reiki um hvað í honum felst. Spegillinn fékk Guðmund Hálfdánarson prófessor emeritus til að reifa það helsta sem þó er vitað. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Markús Hjaltason

Spegillinn
Sýrland í dag

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 22, 2026 10:21


Nýjum forseta Sýrlands hefur tekist að ná og halda stjórn í landinu frá því að hann tók völdin í ársbyrjun 2025, eftir árangursríka sókn fjölda uppreisnarsveita undir hans forystu gegn stjórnarher Assads, þáverandi forseta. Hann hefur styrkt stöðu sína og tökin á valdatökunum síðan, frekar en hitt. En hvernig er lífið í Sýrlandi í dag? Spegillinn grennslaðist fyrir um það og rætt var við Magneu Marínósdóttur alþjóðastjórnmálafræðing. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Markús Hjaltason

Spegillinn
Mannfall og mannekla í Úkraínustríðinu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 21, 2026 10:04


Fjórum árum og fimm mánuðum eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu hefur stríðið milli landanna breyst mikið. Drónar hafa að miklu leyti tekið við af hermönnum í fremstu víglínu, en það breytir því þó ekki að mannfall er enn mikið í báðum herjum. Þá hefur mannfall líka stóraukist í röðum almennra borgara, beggja vegna landamæranna. Ein afleiðing þessa er sú að æ erfiðara verður að manna herina og hermálayfirvöld í báðum ríkjum hafa í æ ríkari mæli gripið til æ óvandaðri meðala til að fylla skörð þeirra sem falla og særast. Þær aðferðir mæta æ meiri andstöðu - sérstaklega í Úkraínu. Ævar Örn fjallar um þetta og einnig heyrist í Karli Garðarssyni, fyrrverandi þingmanni, sem verið hefur í Úkraínu að undanförnu. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Spegillinn
Valdaskipti í Bretlandi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 20, 2026 10:00


Húsbóndaskipti urðu í bústað breska forsætisráðherrans að Downingstræti 10 í Lundúnum í dag, þegar Keir Starmer flutti þaðan og Andy Burnham, fyrrverandi borgarstjóri í Manchester og nýkjörinn þingmaður Verkamannaflokksins flutti þar inn. Bretar eru á meðal okkar næstu nágranna og helstu bandalags- og viðskiptaríkja, og því ekki úr vegi að forvitnast aðeins um þessi valdaskipti, ef það er rétta orðið, og þá sem þar eiga í hlut. Hvað gerði Starmer og hvað gerir Burnham? Ævar Örn ræddi þetta við Kristján Guy Burgess alþjóðastjórnmálafræðing, sem þekkir vel til breskra stjórnmála. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Vikulokin
Guðmundur Hálfdánarson, Birna Þórarinsdóttir og Sigrún Davíðsdóttir

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jul 18, 2026 57:58


Gestir Vikulokanna eru Guðmundur Hálfdánarson prófessor, Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi og Sigrún Davíðsdóttir fjölmiðlakona. Þau ræddu meðal annars sviptingar í breskum stjórnmálum, átökin við Persaflóa og loftslagsmál. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Þráinn Steinsson

Spegillinn
Fiskveiðistefna ESB - annar hluti

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 17, 2026 10:00


Hvað felst í sameiginlegri fiskveiðistefnu Evrópusambandsins og er hægt að fá varanlegar undanþágur frá henni? Um þetta er tekist á í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB. Gunnar Þór Pétursson lagaprófessor við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í Evrópurétti segir engan vafa leika á því að mögulegt sé að semja um ýmsar undanþágur og sérlausnir, þótt það verði ekki endilega fyrirhafnarlaust. Fyrir slíku séu fjölmörg fordæmi. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Markús Hjaltason

Spegillinn
Sameiginleg sjávarútvegsstefna ESB

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 16, 2026 10:02


Íslenskur sjávarútvegur, yfirráð Íslendinga yfir auðlindum hafsins í kringum Ísland og nýtingu þeirra - þetta er jafnan eitt mesta hitamálið þegar tekist er á um kosti og galla hugsanlegrar Evrópusambandsaðildar og jafnvel aðildarviðræðna. Áhrif inngöngu í ESB á þessu sviði eru sögð frá því að vera óveruleg allt upp í algjört afsal á stjórn og nýtingarrétti íslenskra fiskistofna til framkvæmdastjórnar ESB í Brussel - og allt þar á milli. En hver er sameiginleg stefna Evrópusambandsins í sjávarútvegsmálum? Spegillinn spurði Jóhann Sigurjónsson, fyrrverandi forstjóri Hafrannsóknastofnunar að því. Hann tók þátt í að undirbúa sjávarútvegskaflann í aðildarumsókn Íslands á árunum 2009 til 2013, en þeim viðræðum var hætt áður en sá kafli var opnaður. Hlutverk Jóhanns var einkum að rýna í Evrópulöggjöfina og bera hana saman við þá íslensku. Hann þekkir því vel til sjávarútvegsstefnu ESB. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Spegillinn
Bílabólgan mikla - bílar stækka og stækka

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 15, 2026 10:14


Bílar - ekki síst fólksbílar - hafa farið sístækkandi á alla kanta síðustu ár og áratugi, á sama tíma og bílunum fer fjölgandi - en meðalfjölskyldan minnkandi. Ný rannsókn á vegum regnhlífarsamtakanna Transport & Environment, sem beita sér fyrir umhverfis- og loftslagsvænni samgöngum, leiðir í ljós að frá aldamótum hafa fólksbílar - að meðaltali - lengst um 1,2 sentimetra á ári og hvorutveggja breikkað og hækkað um hálfan sentimetra á ári. Þetta þýðir að á fyrsta fjórðungi aldarinnar hafa þeir lengst um 30 sentimetra og hækkað og breikkað um 12 - 13 sentimetra - að meðaltali. Áhrif þessarar þróunar eru margvísleg og ekki endilega af hinu góða. Ævar Örn ræðir við Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóra Bílgreinasambandsins. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Spegillinn
Stríð Bandaríkjanna og Írans II

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 14, 2026 10:06


Það sem átti að verða stríð til að steypa klerkastjórninni í Íran hefur að talsverðu leyti þróast út í stríð um þá mikilvægu siglingaleið, Hormússund, sem bæði ríki vilja stjórna allri umferð um og jafnvel rukka fyrir - eða ekki. Annar ásteytingarsteinn, sem nauðsynlegt er að ryðja úr vegi ef nokkur von á að vera um eitthvað í líkingu við varanlegan frið, er árásarstríð Ísraela á Líbanon. Íranar líta á það sem hluta af því sama stríði sem þeir standa í gegn Bandaríkjunum - en Bandaríkjamenn eru á öðru máli. Mikilvægast er þó að semja um kjarnorkuáætlun Írana - og það vill til að til er ágætur samningur frá 2015 sem hægt er að miða við og vinna með - ef núverandi Bandaríkjaforseti fæst til að brjóta odd af oflæti sínu. Þetta segir Magnús Þorkell Bernharðsson prófessor í Miðausturlandafræðum við Williamsháskóla í Massachusetts, í seinni hluta viðtals Spegilsins við hann um stöðu og horfur í Íransstríðinu. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Spegillinn
Stríð Bandaríkjanna og Írans

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 13, 2026 10:00


Skipaumferð um Hormússund lagðist nánast af eftir að Íranar réðust á gámaskip sem siglt var um sundið á laugardag, undir kýpverskum fána. Íranar sögðu árásina á skipið hafa verið fyllilega lögmæta, þar sem stjórnendur þess hefðu ekki fylgt þeirri einu siglingaleið sem þeir heimila. Bandaríkjamenn árásina hins vegar svo gróft brot á gildandi vopnahléssamkomulagi, að þeir hófu árásir að nýju, af jafnvel enn meiri þunga en áður en hlé var gert á þeim fyrir tæpum mánuði með sameiginlegri viljayfirlýsingu og Trump Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að stríðinu væri í raun lokið. Magnús Þorkell Bernharðsson er prófessor í sögu Miðausturlanda. Hann segir það ekki koma á óvart að vopnahléið hafi farið út um þúfur. Það hafi verið á sandi byggt og til þess eins gert að vinna tíma. Hann telur ólíklegt að önnur Persaflóaríki láti draga sig inn í stríðið og að allsherjarstríð brjótist út í Miðausturlöndum. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Vikulokin
Snærós Sindradóttir og Halldór Benjamín Þorbergsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jul 11, 2026 57:56


Gestir Vikulokanna eru Snærós Sindradóttir framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar og Halldór Benjamín Þorbergsson einn stofnanda Áfram-Ísland. Þau ræddu komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við ESB. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Þráinn Steinsson

Spegillinn
Nigel Farage boðar til kosninga

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 8, 2026 9:59


Nigel Farage, formaður breska Umbótaflokksins, sem kosinn var á þing fyrir tveimur árum, sagði í gær af sér þingmennsku og tilkynnti um leið að hann hygðist bjóða sig fram í aukakosningunum sem afsögn hans kallar á. Næsta öruggt má heita að hann fari með sigur af hólmi, enda ætla aðrir helstu flokkar landsins að sniðganga kosningarnar, sem þeir segja ódýrt auglýsingatrix hjá Farage, til þess ætlað að dreifa athyglinni frá ásökunum og rannsóknum um fjármálamisferli hans og flokksins. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Vikulokin
Gunnar Sigurðarson, Kolbrún Halldórsdóttir og Björn Berg Gunnarsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jul 4, 2026 57:57


Gestir Vikulokanna 4. júlí voru Gunnar Sigurðarson, stjórnmálafræðingur og sérfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins, Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi og Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

bj arson samt bhm halld ingvar umsj kolbr gunnar sigur berg gunnarsson
Þú veist betur
Borgarlínan

Þú veist betur

Play Episode Listen Later Jul 4, 2026 43:58


Hvers vegna er Reykjavík ein af fáum borgum á Norðurlöndum sem byggði sig algerlega upp í kringum einkabílinn og hvað kostar það að breyta því núna? Í þessum þætti fæ ég til mín Ólöfu Örvarsdóttur, sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, og Þorstein R. Hermannsson, framkvæmdastjóra Betri samgangna, til að rekja sögu Borgarlínunnar. Hvernig svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins fyrir rúmum áratug markaði fyrstu skrefin, hvers vegna skipulagsákvörðun sjöunda áratugarins um að "þar til allir fullorðnir eigi bíl" mótaði borgina sem við búum í í dag, og hvers vegna BRT-kerfi (hraðvagnakerfi) varð fyrir valinu fram yfir léttlest. Þau fara yfir hinn víðtæka misskilning að verkefnið sé "gegn einkabílnum", þegar helmingur fjármagnsins í samgöngusáttmálanum fer í raun til vegaframkvæmda og við endum á tímalínunni: hvenær fyrstu stöðvarnar opna, og hvenær Borgarlínan verður að fullu komin í gagnið. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælendur: Ólöf Örvarsdóttir og Þorsteinn R. Hermannsson

reykjav brt hvernig umsj hvers betri hermannsson borgarl atli m
Þú veist betur
Fyrri heimstyrjöldin - 2.hluti: Persónur og leikendur

Þú veist betur

Play Episode Listen Later Jul 4, 2026 39:58


Hverjir eru karakterarnir á bak við stærstu ákvarðanirnar í fyrri heimsstyrjöldinni? Ólíkt seinni heimsstyrjöldinni, þar sem Churchill, Roosevelt, Stalín og Hitler eru okkur svo kunnir er erfiðara að festa hendur á því hverjir réðu örlögum heimsins í fyrri stríðinu. Í seinni hluta samtals míns við Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðing tökum við þetta fyrir, og förum þaðan í Versalasamninginn, þann biturleika sem hann sáði í Þýskalandi, og hvernig fasisminn og nasisminn náðu rótum í þeim jarðvegi. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Gunnar Þór Bjarnason

Þú veist betur
Fyrri heimstyrjöldin - Fyrri hluti: Upphaf og ástæður

Þú veist betur

Play Episode Listen Later Jul 4, 2026 49:31


Heimsstyrjöld sem þurfti ekki að skella á, en gerði það nú samt. Í þessum þætti fæ ég til mín Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðing til að fara yfir Evrópu árið 1914: stórveldin, bandalagskerfið, og hvernig morðið á ríkiserfingja Austurríkis-Ungverjalands í Sarajevo varð að heimsstyrjöld á rúmum mánuði. Við förum í skotgrafirnar á vesturvígstöðvunum, austur til Rússlands og byltingarins sem breytti gangi stríðsins, og að þeim atburðum sem á endanum drógu Bandaríkjamenn inn í átökin. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Gunnar Þór Bjarnason

bandar evr umsj bjarnason fyrri austurr upphaf atli m
Þú veist betur
Kapítalismi

Þú veist betur

Play Episode Listen Later Jul 4, 2026 54:15


Hvað er kapítalismi í raun og hvers vegna er svo erfitt að tala um hann án þess að taka pólitíska afstöðu? Í þessum þætti kemur Gylfi Magnússon hagfræðiprófessor til að rekja sögu kerfisins sem mótar daglegt líf okkar. Frá Adam Smith og iðnbyltingunni, í gegnum kommúnismann sem reis upp sem andsvar, og baráttuna gegn auðhringjum eins og Standard Oil í upphafi 20. aldar. Gylfi fer yfir hvernig Ísland og Vesturlönd endaðu með blandað hagkerfi kapítalisma ásamt velferðarkerfi og í lokin ræðum við áhyggjuefni nútímans, vald risafyrirtækja yfir samfélagsumræðunni, takmarkaðar auðlindir jarðar, og hvort kerfið sem við búum við í dag eigi sér framtíð. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Gylfi Magnússon

Þú veist betur
Sjórinn - 2. hluti: Breytingar og framtíðin

Þú veist betur

Play Episode Listen Later Jul 4, 2026 46:33


Hafið er að hlýna og súrna en hvernig vitum við hvað er eðlilegur breytileiki og hvað er afleiðing okkar eigin losunar? Í seinni hluta samtals míns við Steingrím Jónsson, sérfræðing hjá Hafrannsóknastofnun, skoðum við þessar tvær breytingar í hafinu og hvers vegna þær eru ekki það sama, þó þær eigi sér sömu rót. Steingrímur rifjar upp síldarbrestinn 1965 og hvernig erfitt getur verið að greina slíkan náttúrulegan breytileika frá hnattrænni hlýnun af manna völdum. Við förum yfir sérstöðu Íslands í djúpsjávarmyndun heimshafanna, hvað gerðist þegar fyrsta haffræðiferðin var farin árið 1872, og hversu lítill hluti hafsins hefur í raun verið rannsakaður. Í lokin veltum við fyrir okkur hvort Íslendingar séu að forgangsraða hafrannsóknum í samræmi við það hversu mikið þjóðin á undir auðugu lífríki sjávar. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Steingrímur Jónsson

rinn umsj framt hafi steingr breytingar atli m hafranns
Þú veist betur
Sjórinn - 1. hluti: Hvernig hafið virkar

Þú veist betur

Play Episode Listen Later Jul 4, 2026 39:56


Sjórinn þekur 71% af yfirborði jarðar, er að meðaltali 4000 metra djúpur, og við skiljum hann verr en yfirborð Mars. Getur þetta verið? Í næstu tveim þáttum fæ ég til mín Steingrím Jónsson, sérfræðing hjá Hafrannsóknastofnun og prófessor við Háskólann á Akureyri, til að fara yfir grunneðlisfræði þessa risastóra og dularfulla fyrirbæris: hvaðan vatnið kom upphaflega, hvers vegna sjórinn er saltur, og hvernig þrýstingurinn á botninum er svo gríðarlegur að mælitæki þurfa að þola hann sérstaklega. Steingrímur fer með mig í gegnum hafstraumana, hvað drífur Golfstrauminn, hvernig jarðsnúningurinn sveigir hann, og hvers vegna djúpsjávarmyndun við Íslandsstrendur er einstök á heimsvísu. Við endum á því hvernig orka og næringarefni flæða um þetta risastóra kerfi, og hvers vegna stór hluti hafsbotnsins er einfaldlega flatur eyðimörk. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Steingrímur Jónsson

Þú veist betur
Bensín

Þú veist betur

Play Episode Listen Later Jul 4, 2026 52:46


Olía er svarta, þykka efnið sem kemur djúpt úr jörðinni og endar einhvern veginn í öllu sem við gerum en hvernig gerist það í raun? Í þessum þætti fæ ég til mín Brynjólf Stefánsson, sem starfaði í áratug í olíuviðskiptum hjá Morgan Stanley í New York og vinnur núna hjá Íslandssjóðum, til að fara yfir alla leiðina. Frá myndun olíu djúpt í jarðlögum, í gegnum aldargamla valdabaráttu um olíulindir, og að dælunni á bensínstöðinni heima. Við ræðum hvers vegna heimsmarkaðsverð hreyfist svona hratt, hvað OPEC gerir í raun og veru, og hversu háð Ísland er þessari auðlind þrátt fyrir alla grænu orkuna okkar. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Brynjólfur Stefánsson

Þú veist betur

Hvernig fer sólarljós, milljón kílómetra leið í gegnum tómarúm, og endar sem mynd af andlitinu þínu? Í þessum þætti fáum við til okkar Einar Stefánsson augnlækni og lífeðlisfræðing, sem hefur starfað í faginu í hálfa öld, til að fara í gegnum augað frá grunni: hvernig samsetta augað okkar varð til í þróunarsögunni, hvers vegna 20/20-sjón er í raun bara félagslega ákveðinn staðall, og hvernig letiauga myndast hjá börnum sem ekki er hægt að laga eftir tíu ára aldur. Einar segir sögu af því hvernig gerviaugasteinninn varð til eftir seinni heimsstyrjöldina og af sovéska augnlækninum sem skar nærsýni úr augum með hníf. Í lokin ræðum við stærstu áskoranir augnheilsu í heiminum í dag,þar á meðal sykursýki, sem er að verða stærsta orsök blindu á jörðinni og hvers vegna framfarirnar í faginu síðustu áratugi hafa verið svo miklar. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Einar Stefánsson

Þú veist betur

Íslenska kindin er er svo samofin íslenskri sjálfsmynd að við hugsum varla um hana. En hvað er það í raun sem gerir íslenska sauðkindina sérstaka, og hvernig hefur hún í raun haldið lífinu í þessari þjóð frá landnámi? Í þessum þætti fæ ég til mín Ólaf Dýrmundsson, sérfræðing með doktorspróf í greininni og áratuga feril hjá Bændasamtökunum, til að fara yfir uppruna norður-evrópska stuttrófustofnsins sem íslenska féð er af og þá staðreynd að við Íslendingar höfum varðveitt stærsta erfðahópinn af honum í öllum heiminum. Ólafur segir frá forystufénu, dýrum með atferli sem finnst hvergi annars staðar á jörðinni, og fer með mig í gegnum heilt æviskeið kindarinnar allt frá fengitíð til sláturtíðar. Í lokin veltum við fyrir okkur framtíð sauðfjárræktarinnar, hvort ullin gæti leyst gerviefni af hólmi, hvernig fjörubeit dregur úr metanlosun, og hvers vegna erlendir aðilar eru farnir að sækjast eftir íslensku erfðaefni. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Ólafur Dýrmundsson

umsj atli m
Þú veist betur
Fráveitur

Þú veist betur

Play Episode Listen Later Jul 4, 2026 48:31


Hvað gerist eiginlega þegar maður sturtar niður? Hvert fer allt þetta vatn eiginlega? Í þessum þætti fæ ég til mín Laufeyju Lilju Ágústsdóttur, fagstjóra vatnsmiðla hjá Veitum, til að rekja sögu fráveitunnar allt frá rómversku gyðjunni Cloacina og risastóru holræsunum í Róm, til þess hvernig Reykjavík breyttist úr opnum skólprennum og útikömrum í það kerfi sem ber okkar úrgang ósýnilega í dag. Laufey segir frá Knud Zimsen, fyrsta verkfræðingnum sem flutti hugmyndina heim og varð síðar borgarstjóri, og þeirri hörðu andstöðu sem fyrstu fráveituframkvæmdirnar mættu hjá íbúum. Við förum yfir hvernig kerfið virkar í dag varðandi sjálfrennsli, dælustöðvar, hreinsun og endum á stærstu áskorunum framtíðarinnar: hvers vegna blandað kerfi ofanvatns og skólps er vandamál, hvað Evrópusambandið krefst af okkur í þrepahreinsun, og hvernig auknir úrkomutoppar af völdum veðurfarsbreytinga setja allt kerfið á reynslu. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Laufey Lilja Ágústsdóttir

Spegillinn
Olíuverð og rannsókn Rótarinnar á aðstæðum heimilislausra í Reykjavík

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 2, 2026 20:00


Bensín og dísilolía hækkaði áður en opinber gjöld lækkuðu um síðustu áramót og hið sama gerðist rétt áður en virðisaukaskattur var lækkaður tímabundið fyrsta maí. Samkeppniseftirlitið segir það standa upp á olíufélögin að útskýra þessar hækkanir betur og að sveiflur í heimsmarkaðsverði á olíu skili sér ekki eins hér og í flestum öðrum ríkjum. FÍB segir alvarlegast af öllu sé að álagningin hafi stóraukist hér og olíufélögin í raun svíni bara á neytendum. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Runólf Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB. Ný rannsókn Rótarinnar sýnir að 60 prósent af þeim um það bil þúsund manns sem búa eða hafa búið við heimilisleysi í Reykjavík leituðu á bráðamóttökur Landspítalans á fimm ára tímabili. Kristín I. Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Rótarinnar, segir þetta sýna glöggt, að brýnt sé að bæta aðgengi þessa fólks að lágþröskulds-úrræðum - sem myndi allt í senn bæta hag þess, létta á bráðamóttökunum og spara hinu opinbera stórfé. Ævar Örn Jósepsson talaði við Kristínu. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Spegillinn
Glæpir Ísraela gegn palestínskum börnum, upplýsingamiðlun og áróður í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 30, 2026 20:00


„Víðtæk og kerfisbundin dráp og misþyrmingar á börnum hafa verið framin á milli 23. október 2023 og 23. október 2025,“ sagði Srinivasan Muralidhar, formaður alþjóðlegrar rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna um stöðu mannréttinda á hernumdu svæðunum í Palestínu. Nýjasta skýrsla nefndarinnar fjallar sérstaklega um stöðu barna á hernumdu svæðunum og niðurstaðan er blátt áfram hryllingur. Ævar Örn Jósepsson fjallar um málið. Í nýjasta þjóðarpúlsi Gallups þar sem spurt var um atkvæðagreiðsluna í lok sumars kom fram að mjótt er á munum milli þeirra sem hallast að því að segja já og þeirra sem ætla að segja nei. Heldur fleiri segjast öruggir um jáið eða 39% en 35% segjast örugglega munu segja nei. Könnunin var gerð 12. til 24. júní. 26% eru ekki alveg afdráttarlaus en 13% segjast líklega munu segja já og 13% eru á því að líklega verði neiið ofan á. Það eru væntanlega þessi 26%, sem eru ekki tilbúin til að segjast örugglega ætla að kjósa svona eða hinsegin, sem barist er um í sumar. En hvar sleppir upplýsingum og áróðurinn tekur við? Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Jón Gunnar Ólafsson, lektor við Háskóla Íslands. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn - Sá glaðasti og úrvalslið 1-11

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jun 26, 2026


Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi á föstudegi þessa vikuna. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Víkingar voru ekki sáttir þrátt fyrir 4-1 sigur í Kópavogi, úrvalslið umferða 1-11 í Bestu deildinni er opinberað... og líka vonbrigðaliðið! Gestur þáttarins er Óskar Borgþórsson sem hefur verið gjörsamlega frábær með Víkingum. Þá er sigur Íslands gegn Englandi 2016 rifjaður upp og farið yfir gang mála á heimsmeistaramótinu sem nú stendur yfir.

Spegillinn
Þjóðaratkvæðagreiðsla, lögleysa í lóðaleigumálum, hitaörmögnun og hitaslag í hitabylgjum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 25, 2026 20:00


Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra segir að þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst snúist hvorki um að aðild né aðlögum heldur hvort taka eigi skref áfram. Þjóðin taki afstöðu - ekki bara þingmenn, og því sé þetta hárréttur tími fyrir þessa atkvæðagreiðslu. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Hönnu Katrínu. Ekkert bólar á frumvarpi um heildarlöggjöf um lóðaleigusamninga. Víðir Smári Petersen lagaprófessor segir brýnt að setja einhvern lagaramma. Álitaefnum þar sem gríðarlegir hagsmunir eru undir fari fjölgandi í lögleysunni. Æ fleiri lóðaleigusamningar renni út á verðmætum þéttingarreitum borgarinnar og lágmarks leikreglur þurfi að setja sem fyrst. María Sigrún Hilmarsdóttir ræðir við Víði. Tugir og hundruð milljóna Evrópubúa búa við nánast óbærilegan og jafnvel lífshættulegan hita þessa dagana, í annarri hitabylgju sumarsins. Hitamet halda áfram að falla, jafnt á Bretlandi sem meginlandinu, og daglega berast fréttir af dauðsföllum sem rekja má beint eða óbeint til hitans. En hvað er svona hættulegt við hitann? Ævar Örn Jósepsson kannar málið og rætt er við Sasan Má Nobakht bráðalækni. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn - Keli í Dal draumanna og Freysi í Þrándheimi

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jun 20, 2026


Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 20. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir komandi umferð í Bestu deildinni og Þorkell Gunnar ræðir um Fram og stemninguna í Dal draumanna. Freyr Alexandersson nýr þjálfari Rosenborgar er á línunni beint frá Þrándheimi. Þá er rætt um heimsmeistaramótið í fótbolta.

Vikulokin
María Rut Kristinsdóttir, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og Bryndís Haraldsdóttir

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jun 20, 2026 57:26


Gestir Vikulokanna eru María Rut Kristinsdóttir þingmaður Viðreisnar, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir þingmaður Flokks fólksins og Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Jón Þór Helgason

sj helgason umsj kolbr brynd haraldsd baldursd kristinsd
Frjálsar hendur
Stefan Zweig og Veröld sem var 6 - Kynlíf í Vínarborg

Frjálsar hendur

Play Episode Listen Later Jun 14, 2026 50:00


Umsjónarmaður las á síðasta ári margvíslegt efni úr Veröld sem var, æviminningabók Stefans Zweigs sem jafnframt er mögnuð samtímalýsing á árunum fyrir fyrri heimsstyrjöld í Vínarborg og síðan eftirstríðsáranna.

Vikulokin
Ingveldur Anna Sigurðardóttir, Kristján Þórður Snæbjarnarson og Stefán Vagn Stefánsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jun 13, 2026 57:53


Rætt var um þinglok og stóru málin á þingi í Vikulokunum 13. júní. Ingveldur Anna Sigurðardóttir, nýr þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Kristján Þórður Snæbjarnarson, þingmaður Samfylkingarinnar, og Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknar, voru viðmælendur. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

bj sj stef sn sigur kristj ingvar umsj frams vagn samfylkingarinnar
Vikulokin
Pétur Marteinsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jun 6, 2026 57:43


Gestir Vikulokanna voru Pétur Marteinsson, borgarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður velferðarráðs, og Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi og oddviti Vinstrisins. Meðal annars voru til umræðu húsnæðismál, samgöngumál og fánareglur borgarinnar. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Þráinn Steinsson

sj sanna alda vilhj umsj magdalena m ragnhildur marteinsson
Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn - Arnór Ingvi og HM að hefjast

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jun 5, 2026


Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi þessa vikuna. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrsta hluta þáttarins er fjallað um íslenska boltann, val á leikmanni mánaðarins og ýmislegt fleira. Í öðrum hlutanum kemur Arnór Ingvi Traustason, leikmaður KR og fyrrum landsliðsmaður, í heimsókn. Í síðasta hlutanum er svo hitað upp fyrir HM sem hefst á fimmtudaginn. Hverjir eru líklegir til afreka? Kári Snorrason ræðir við Elvar og Tómas.

Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn - Slot rekinn og þrjú lið í Bestu í lagi

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later May 30, 2026


Í þætti dagsins er íslenski boltinn aðalmálið en þátturinn hefst hinsvegar á stóru tíðindunum sem voru að berast. Arne Slot er farinn frá Liverpool. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestasérfræðingur: Baldvin Borgarsson. Rýnt í leiki vikunnar í Bestu deildinni og helstu fréttir skoðaðar. Spáð í næstu leiki og einnig er fjallað um Lengjudeildina. Þá er að sjálfsögðu rætt um úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Vikulokin
Heimir Hannesson, Ólafur Stephensen og Rósa Björk Brynjólfsdóttir

Vikulokin

Play Episode Listen Later May 30, 2026 55:34


Heimir Hannesson, Ólafur Stephensen og Rósa Björk Brynjólfsdóttir voru gestir Vikulokanna að þessu sinni. Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið og myndun nýs meirihluta í Reykjavík voru til umræðu. Umsjón: Magnús Geir Eyjólfsson

Spegillinn
Þjóðaratkvæðagreiðsla samþykkt - hvað nú? Og Ebóla virðir engin landamæri

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 28, 2026 20:00


Þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný var samþykkt a Alþingi í dag. Það er því ljóst að atkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst. Þangað til eru þrír mánuðir - við hverju getum við búist á þeim tíma? Yfirveguðum umræðum um það sem greiða á atkvæði um eða áframhaldandi skotgrafahernaður um kosti og galla ESB og aðildar að því? Ævar Örn Jósepsson ræðir við Eirík Bergmann Einarsson stjórnmálafræðing og sérfræðing í málefnum Evrópu og Evrópusambandsins. Í Ituri-héraði í norðausturhluta lýðstjórnarlýðveldisins Kongó mætast sjúkdómar og átök með hörmulegum afleiðingum, sagði Tedros Ghebreyesus forstöðumaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í yfirlýsingu á X í gær. Engin lyf bíta á það afbrigði ebóluveirunnar sem nú geisar í nokkrum löndum Afríku, einkum Kongó. Anna Kristín Jónsdóttir fjallar um þetta og ræðir við Þórhildi Ólafsdóttur, sem býr með fjölskyldu sinni í Úganda. Umsjón: Ævar Örn Jósespsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Vikulokin
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Diljá Mist Einarsdóttir

Vikulokin

Play Episode Listen Later May 23, 2026 57:54


Gestir Vikulokanna eru Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingmaður Miðflokksins, Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður Samfylkingarinnar og Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks. Þau ræddu meðal annars bæjar- og sveitarstjórnarkosningar, meirihlutaviðræður í Reykjavík, efnahagsmál og boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildaviðræður við Evrópusambandið. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Úlfhildur Eysteinsdóttir

mist sj nanna reykjav evr margr umsj einarsd samfylkingarinnar gunnlaugsd eysteinsd
Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn - Maður mánaðarins og gluggadómar

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later May 2, 2026


Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 2. maí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Umferðin framundan í Bestu deildinni er skoðuð og sérstaklega hitað upp fyrir toppslag Vals og KR. Rætt er við Aron Sigurðarson, leikmann KR, sem hefur verið valinn leikmaður mánaðarins fyrir aprílmánuð. Glugganum hefur verið lokað og stærstu kaupin eru skoðuð og dæmd. Lengjudeildin og Meistaradeildin koma einnig við sögu.