Podcasts about hvernig

  • 224PODCASTS
  • 1,945EPISODES
  • 1h 2mAVG DURATION
  • 5WEEKLY NEW EPISODES
  • Aug 11, 2026LATEST

POPULARITY

20192020202120222023202420252026

Categories



Best podcasts about hvernig

Show all podcasts related to hvernig

Latest podcast episodes about hvernig

Rauða borðið
Rauða borðið 11. ágúst - Skólabyrjun, ESB, menningarbrunnur og sólmyrkvahátíð

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Aug 11, 2026 158:00


Þriðjudagur 11. ágúst Skólabyrjun, ESB, menningarbrunnur og sólmyrkvahátíð Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, var gestur Rauða borðsins. Nú styttist óðum í að skólarnir hefji störf eftir. Hvernig ætli gangi að ráða kennara, hvað með námsgögnin og hvað með einkunnir, með tölustöfum eða bókstöfum. Gunnar Smári ræðir við Gauta B. Eggertsson prófessor í hagfræði við Brown-háskólann í Bandaríkjunum um efnahagsstöðu Evrópu. Halldór Guðmundsson rithöfundur og útgefandi ræðir menningarlegt samband Íslands við meginland Evrópu við Björn Þorláksson. Myndi Laxness segja já eða nei 29. ágúst næstkomandi? Að lokum slær Ásdís Olsen á þráðinn inn á Hellissand, þar sem Jón Bjarni Steinsson, einn af skipuleggjendum Solar Eclipse Festival, gengur með okkur um svæðið og segir okkur frá því sem er að gerast í vikunni og fram á sunnudag.

Bylgjan
Reykjavík síðdegis - mánudagur 10. ágúst 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Aug 10, 2026 76:15


Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Dagbjartur Brynjarsson sérfræðingur á sviði öryggismála hjá ferðamálastoðu Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands Símatími Helgi Gunnlaugsson prófessor í félags- og afbrotafræði við Háskóla Íslands um fjölgun manndrápsmála Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur á Blika.is - Hvernig lítur veðrið út á miðvikudag Ragnar Edvardsson fornleifafræðingur hjá rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Vestfjörðum Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar um rétt fólks að taka myndir á almannafæri

Chess After Dark
#317 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Chess After Dark

Play Episode Listen Later Aug 8, 2026 104:59


Gestur okkar í dag er kona sem settist fyrst á Alþingi árið 1999 og varð ráðherra árið 2003 fyrir 23 árum síðan. Hún hefur verið menntamálaráðherra, sjávarútvegsráðherra, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, stofnandi og formaður Viðreisnar og er í dag utanríkisráðherra Íslands.Núna þann 29. Ágúst er risa stór stund fyrir Þorgerði en þá verður þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið.Umræðuefni í þættinum:Fréttir vikunnarRíkisfjármálinAf hverju núna?Hvernig fáum við sem bestan samning?Stóru deilumálin: Sjávarútvegur, landbúnaður, evra osfrv.Þessi þáttur er í boði:Margt SmáttKALDIMango ManKringlukráinSvefn og HeilsaKrónanÍslandssjóðirOrka NátturunnarORIGOPAYDAYGIGGÓELKOSESSORFröken ReykjavíkAUTOCENTERLengjanDave&JonsFrumherjiNjótið vel kæru hlustendur.

Bylgjan
Sprengisandur 26.07.2026 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jul 26, 2026 94:32


Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Sjávarútvegur/Evrópumál Kristján Vigfússon, dr. í stefnumótun við HR Kristján ræðir rannsóknir sínar á íslenskum sjávarútvegi og forskoti hans í alþjóðlegum samanburði og veltir upp möguleikum á auknum umsvifum íslenskra fyrirtækja ef til kæmi aðild að ESB. Dómsmál Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra Dómsmálaráðherra ætlar ekki að aðhafast neitt í fyrirkomulagi á sölu áfengis, þrátt fyrir miklar breytingar á því og niðurstöður dómstóls um lögmæti þeirra breytinga. Hvernig hyggst hún bregðast við starfsemi erlendra veðmálafyrirtækja á Íslandi og skyldum málum, t.d, tekjuöflun stórra samfélagsmiðlafyrirtækja,  þar sem lögsaga íslenska ríkisins er ekki ótvíræð. Stjórnmál/Evrópumál Sigríður Á Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar Hveru alvarleg mistök voru það hjá utanríkisráðherra að lleiðrétta ekki frétt þar sem haft var ranglega eftir henni að ráðherrann hefði rætt við forsætisráðherra Hollands um varanlega undanþágur fyrir Íslendinga frá sjávartúvegsstefnu ESB? Kjarasamningar Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ  Er orðið ljóst að taka þarf upp kjarasamninga í haust - verðbólgutölur benda til þess en hvað vill forseti ASÍ að gerist. samtökin hafa talað fyrir ráðstöfunum í efnahagsmálum frá í febrúar en litla athygli fengið.

Bylgjan
Reykjavík síðdegis - miðvikudagur 22. júlí 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jul 22, 2026 74:50


Öll viðtöin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Arnar Jökull Agnarsson ábyrgðarmaður þjálfunar flugáhafna hjá Icelandair - um protocol í flugstjórnarklefa Dagur B Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar um skýrslu sem unnin var að frumkvæði og beiðni Alþýðusambandsins, Samtaka atvinnulífsins, Félags atvinnurekenda og Viðskiptaráðs árið 2014 Símatími Davíð O Arnar yfirlæknir hjartalækninga Landspítala - Hvernig á maður að bregðast við gagnvart hitabylgju Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi - um 12 ára gamla skýrslu varðandi ESB inngöngu Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri samtaka um ferðaþjónustu - erum við að nýta Ísland sem svalan vikomustað Krstján Aðalsteinsson formaður málarameistarafélags Íslands Hvernig líður málurum hér á höfuðborgarsvæðinu í rigningunni? Það er afkomubrestur í útimálningu á suðvestur horninu

reykjav esb kristj hvernig icelandair landsp samtaka samfylkingarinnar
Tölvuleikjaspjallið
288. Sony hættir með diska, Xbox rekur fullt af fólki og GTA VI kostar peninga - síðasti þáttur fyrir sumarfrí!

Tölvuleikjaspjallið

Play Episode Listen Later Jul 8, 2026 61:52


Tölvuleikjaspjallið er í banastuði í síðasta þætti sínum fyrir langþráð sumarfrí!Tökum saman stærstu fréttir ársins, helstu leiki og tölum um að þetta er sex ára afmælisár Tölvuleikjaspjallsins!Í haust kemur þáttur númer 300 út! Hvernig eigum við að fagna?Takk fyrir að vera með okkur öll þessi ár

Ekkert að frétta
242 - Hvernig á að stinga lögguna af á Hopp bíl?

Ekkert að frétta

Play Episode Listen Later Jul 6, 2026 75:37


Góður þáttur hjá strákunum þessa vikuna. Slá hvergi af. Hvalveiðar, Hopp bíll og hvaða ráð þú mundir gefa sjálfum þér árið 2016. Top tier dæmi.

Þú veist betur
Borgarlínan

Þú veist betur

Play Episode Listen Later Jul 4, 2026 43:58


Hvers vegna er Reykjavík ein af fáum borgum á Norðurlöndum sem byggði sig algerlega upp í kringum einkabílinn og hvað kostar það að breyta því núna? Í þessum þætti fæ ég til mín Ólöfu Örvarsdóttur, sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, og Þorstein R. Hermannsson, framkvæmdastjóra Betri samgangna, til að rekja sögu Borgarlínunnar. Hvernig svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins fyrir rúmum áratug markaði fyrstu skrefin, hvers vegna skipulagsákvörðun sjöunda áratugarins um að "þar til allir fullorðnir eigi bíl" mótaði borgina sem við búum í í dag, og hvers vegna BRT-kerfi (hraðvagnakerfi) varð fyrir valinu fram yfir léttlest. Þau fara yfir hinn víðtæka misskilning að verkefnið sé "gegn einkabílnum", þegar helmingur fjármagnsins í samgöngusáttmálanum fer í raun til vegaframkvæmda og við endum á tímalínunni: hvenær fyrstu stöðvarnar opna, og hvenær Borgarlínan verður að fullu komin í gagnið. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælendur: Ólöf Örvarsdóttir og Þorsteinn R. Hermannsson

reykjav brt hvernig umsj hvers betri hermannsson borgarl atli m
Þú veist betur

Hvernig fer sólarljós, milljón kílómetra leið í gegnum tómarúm, og endar sem mynd af andlitinu þínu? Í þessum þætti fáum við til okkar Einar Stefánsson augnlækni og lífeðlisfræðing, sem hefur starfað í faginu í hálfa öld, til að fara í gegnum augað frá grunni: hvernig samsetta augað okkar varð til í þróunarsögunni, hvers vegna 20/20-sjón er í raun bara félagslega ákveðinn staðall, og hvernig letiauga myndast hjá börnum sem ekki er hægt að laga eftir tíu ára aldur. Einar segir sögu af því hvernig gerviaugasteinninn varð til eftir seinni heimsstyrjöldina og af sovéska augnlækninum sem skar nærsýni úr augum með hníf. Í lokin ræðum við stærstu áskoranir augnheilsu í heiminum í dag,þar á meðal sykursýki, sem er að verða stærsta orsök blindu á jörðinni og hvers vegna framfarirnar í faginu síðustu áratugi hafa verið svo miklar. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Einar Stefánsson

Þú veist betur
Sjórinn - 1. hluti: Hvernig hafið virkar

Þú veist betur

Play Episode Listen Later Jul 4, 2026 39:56


Sjórinn þekur 71% af yfirborði jarðar, er að meðaltali 4000 metra djúpur, og við skiljum hann verr en yfirborð Mars. Getur þetta verið? Í næstu tveim þáttum fæ ég til mín Steingrím Jónsson, sérfræðing hjá Hafrannsóknastofnun og prófessor við Háskólann á Akureyri, til að fara yfir grunneðlisfræði þessa risastóra og dularfulla fyrirbæris: hvaðan vatnið kom upphaflega, hvers vegna sjórinn er saltur, og hvernig þrýstingurinn á botninum er svo gríðarlegur að mælitæki þurfa að þola hann sérstaklega. Steingrímur fer með mig í gegnum hafstraumana, hvað drífur Golfstrauminn, hvernig jarðsnúningurinn sveigir hann, og hvers vegna djúpsjávarmyndun við Íslandsstrendur er einstök á heimsvísu. Við endum á því hvernig orka og næringarefni flæða um þetta risastóra kerfi, og hvers vegna stór hluti hafsbotnsins er einfaldlega flatur eyðimörk. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Steingrímur Jónsson

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði
124 - Ríki, vald og realismi: Hvernig haga ríki sér?

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði

Play Episode Listen Later Jun 24, 2026 87:08 Transcription Available


Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um raunsæisstefnuna í alþjóðastjórnmálafræði sem greiningartæki til að skilja sögulega hegðun ríkja.Ólafur las bókina How States Think: The Rationality of Foreign Policy eftir John Mearsheimer og Sebastian Rosato og segir frá nálgun þeirra við að skilja ákvarðanatöku ríkja með gleraugum raunsæisstefnunnar.Mearsheimer hefur verið mikið í umræðunni vegna þeirra miklu sögulegu breytinga í heimsmálunum sem nú hafa verið að ganga í garð, en raunsæið er ásamt frjálslyndisstefnunni annar helsti skóli alþjóðastjórnmálafræði á 20. öld og heimspekilegur grunnur hennar nær aftur til fornaldar.Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

Rauða borðið
Rauða borðið 23. júní - Þjóðaratkvæðisgreiðslan, lagaleg álitamál, myndlæsi og heiður

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jun 23, 2026 225:26


Þriðjudagur 23. júní Þjóðaratkvæðisgreiðslan, lagaleg álitamál, myndlæsi og heiður Óðinn Freyr Baldursson formaður Ungra Evrópusinna og Þórhildur Pálsdóttir stjórnarkona í Ungum gegn ESB útskýra fyrir Gunnari Smára hvers vegna þjóðaratkvæðagreiðslan í lok ágúst skiptir máli. Gísli Tryggvason lögmaður fer yfir lagaleg álitamál í fréttum líðandi stundar. Utanvegaakstur, hvalveiðar, réttur fólks til að lifa af hitabylgjur og fleira verður til umræðu í spjalli Gísla við Björn Þorláks. Hvernig við munum og lærum er til umræðu í viðtali Ásdísar Olsen við dr. Unni Óttarsdóttur. Hún bendir á að stór hluti mannkyns hugsi fyrst og fremst í myndum fremur en orðum og að skólakerfið taki ekki nægilegt mið af því. Ásdís Thoroddsen kvikmyndagerðarmaður var í hópi Íslendinga sem hlutu fálkaorðu á þjóðhátíðadeginum. Hún fer yfir áherslur sínar í samtali við Björn Þorláks.

Helgaspjallið
216 - Hvað er Enneagram og afhverju er það svona MAAAGNAÐ?

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Jun 16, 2026 94:02


Þátturinn er í boði: Miðbæ Selfoss Oche Reykjavik - https://oche.com/is/reykjavik Hugur Studio - www.hugur.studio Við byrjum á Birgittu Haukdal, við förum í rútínu, og loks - Enneagram - Afhverju breytti það lífi mínu? Hvað er þetta? Hvað getum við lært? Hvernig getum við nýtt okkur þetta til þess að verða háþróaðasta og mennskasta útgáfan af okkur, kannski bara frelsað okkur. Nei ég segi svona, erum ekki alveg þarna. Þetta er samt magnað. Must hlust.

Heimskviður
Sumar-Heimskviður - Tækni

Heimskviður

Play Episode Listen Later Jun 6, 2026 41:24


Hálfleiðara þekkja fæstir en þeir eru engu að síður í lífi okkar allra, nauðsynlegir í öllum helsta tæknibúnaði samtímans. Stærsti hluti þeirra er framleiddur í Taívan. Hvernig tókst Taívan að verða svona framarlega í framleiðslu á þessari tækninauðsyn? Og hvað þýðir þetta fyrir öryggi landsins? Eru meiri líkur á innrás vegna þessarar dýrmætu tæknikunnáttu? Eða virkar hún sem skjöldur? Dagný Hulda segir okkur allt um hálfleiðarana og stöðu Taívan. Íbúar í borginni Kherson í Úkraínu fara síður út þegar veðrið er gott. En þegar það er þoka, rigning og snjór má búast við að sjá fólk á gangi úti við. Og ástæðan? Skyggnið er verra og þá eru minni líkur á að fólk sé sært eða drepið af drónum Rússlandshers. Kherson er í suðurhluta Úkraínu, við ána Dnipro. Hinum megin við ána eru rússneskir hermenn sem herja á borgarbúa alla daga með drónum. Á drónunum er myndavél og sprengiefni. Sá sem stýrir dróna sér því hvert hann stefnir og viljandi er þeim beint að fólki á gangi úti, jafnvel börnum, og að bílum á ferð. Borgarbúar kalla þetta „human safari“ eða mannaveiðar. Það sé eins og Rússarnir séu á eftir almennum borgurum til að særa þá eða drepa. Dagný Hulda segir frá.

sumar dnipro hvernig eru borgarb heimskvi
FM957
Brennslan - 4. júní 2026

FM957

Play Episode Listen Later Jun 4, 2026 78:21


Áslaug Arna sagði af sér þingmennsku í gær eftir 10 ár á þingi. Var hún búin að hugsa þessa ákvörðun lengi? Hvað tekur við? Hvernig var lífið í New York? Össur spjallar við okkur um tattoo á Íslandi, Bjarklind um skjáhættu og Aríel um sjómannadaginn. Þetta og meira til!

Helgaspjallið
213 - Sóley Eiríksdóttir - Grafin í snjóflóði í 9 tíma á Flateyri og andlega vinnan sem tók við seinna á lífsleiðinni

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Jun 2, 2026 84:36


Við Heiðdís settumst niður með Sóleyju Eiríksdóttir en aðeins ellefu ára gömul, þegar hún lá í rúminu sínu og svaf þegar snjóflóð skall á heimilið hennar og var hún grafin í flóðinu í níu klukkustundir. Hún var heppin að lifa af en systir hennar sem var líka í húsinu gerði það því miður ekki. Ég hef fengið þá ánægju að kynnast Sóleyju og frásögnin hennar er í raun ótrúleg að hlusta á. Hvað tekur við eftir svona reynslu? Hvernig vinnur maður úr svona áfalli og hvað á sér stað í kerfinu eftir öll þessu ár? Við spjölluðum um þetta allt saman í þessum þætti. Takk fyrir viðtökurnar! Lovjú

Tölvuleikjaspjallið
284. State of Play með LIVE COMMENTARY!

Tölvuleikjaspjallið

Play Episode Listen Later Jun 2, 2026 77:57


State of Play var að klárast rétt í þessu og við gerðum smá tilraun. Við höfðum sýninguna í gangi og tókum upp þátt á meðan við horfðum! Þannig þetta er live commentary fyrstu viðbrögð Arnórs Steins og Gunnars á öllum kynningunum!Það er smá skrýtið að horfa án samhengis en ekkert ómögulegt ... Ef þið viljið vera á sama stað og við þá skuluð þið horfa á official Sony YT rásar videoið og hafa á pásu á mínútu 29:45 og ýta á play þegar Arnór segir play í þættinum!Hvernig gekk þetta hjá okkur? Endilega látið vita ef þið fíluðuð þetta format eða ekki!

Ein Pæling
#569 Kjartan Örn Sigurðsson - Er Ísland að festast í stöðnun?

Ein Pæling

Play Episode Listen Later May 31, 2026 73:46


Þórarinn ræðir við Kjartan Örn Sigurðsson, forstjóra og eiganda Ormsson. Kjartan skrifaði nýverið grein sem ber sama heiti og þátturinn; er Ísland að festast í stöðnun? Hann telur varhugaverða þróun vera að teiknast upp og til þess að takast á við breytt samfélag í breyttum heimi þurfi að breyta áherslum og hugarfari.Rætt er um greinina en einnig fleiri greinar sem Kjartan hefur skrifað og fjallað um áherslur stjórnmálamanna, mismunandi hugarfar kynslóða, afhverju vinna ber sömu þýðingu og það að sigra, ungt fólk, fjárfestingar, samkeppnishæfni Íslands og margt fleira.- Er Ísland að festast í stöðnun?- Hver er munur hugarfars yngra og eldra fólks?- Hvernig mun framtíð vinnumarkaðar lýta út?Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270  Samstarfsaðilar:  Poulsen  Happy Hydrate  Bæjarins Beztu Pylsur  Alvörubón  FiskhúsiðHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur:500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.meHappy Hydrate kóði: EINPAELING25

Ein Pæling
#568 Jón Pétur Zimsen og Guðmundur Skúli Johnsen - Staðreyndir um skólakerfið hljóma eins og samsæriskenningar

Ein Pæling

Play Episode Listen Later May 29, 2026 73:03


Þórarinn ræðir við Jón Pétur Zimsen, þingmann Sjálfstæðisflokksins og fyrrum skólameistara, og Guðmund Skúla Johnsen, formann lesblindrafélagsins.Fjallað er um stöðu skólakerfisins og hvernig það sé að takast á við þær hindranir innan kerfisins sem berjast gegn nýsköpun og viðhalda óbreyttu ástandi. Þremenningarnir hafa áhyggjur af stöðunni og að brjóta þurfi upp kerfið til þess að koma til móts við hópa með sérþarfir og bæta árangur þeirra barna sem eru ekki innan kerfis sértækra úrræða.- Hvernig má bæta lesskilning?- Hvernig ver kerfið sig?- Hvað gerist að óbreyttu?Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270  Samstarfsaðilar:  Poulsen  Happy Hydrate  Bæjarins Beztu Pylsur  Alvörubón  FiskhúsiðHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur:500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.meHappy Hydrate kóði: EINPAELING25

Spegillinn
Kosið á morgun og ný könnun á fylgi í Reykjavík

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 15, 2026 20:00


Frambjóðendur hafa flengst um í viðtölum og á fundum undanfarið og sérstaklega hert á allra síðustu daga, legið í símanum og jafnvel bankað upp á hjá fólki til að vinna það á sitt band fyrir kosningarnar á morgun. Hvernig hefur baráttan verið og hvað er líklegt að komi upp úr kössunum í sveitarstjórnarkosningunum á morgun? Ný könnun í Reykjavík sýnir vaxandi gengi Sjálfstæðisflokksins. Rætt við Evu Marín Hlynsdóttur prófessor í stjórnmálafræði og Stíg Helgason sem stýrir kosningaumfjöllun Ríkisútvarpsins.

Bylgjan
Sprengisandur 03.05.2026 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later May 3, 2026 95:43


Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Gervigreind Hafsteinn Einarsson, dósent í tölvunarfræði við Háskóla Íslands Umræðan um Mythos gervigreindarlíkan Anthropic fyrirtækisins var engu lík, líkanið var tekið af markaði af hálfu skapara síns vegna þess að það bjó yfir eiginleikum sem enginn sá fyrir. Hvað er á seyði og hvert stefnir í þessu eina stærsta máli samtímans, gerð gervigreindarlíkana sem eiga sér sjálfstætt líf.  Sveitarstjórnarmál, Hafnarfjörður Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingu Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokks Oddvitar helstu fylkinga í Hafnarfirði takast á. Helstu mál, ólíkar áherslur, hvernig lítur framtíðin út í þeirra augum, hvað breytist ef Samfylkingin kemst í lykilstöðu? Stjórnmál Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Halla Gunnarsdóttir, formaður VR Halla hvatti til samstöðu verkalýðshreyfingarinnar 1. maí, en Björn taldi félögin tímaskekkju og rétt að leggja þau niður. Undirliggjandi er djúpstæður ágreiningur um uppbyggingu samfélags.  Landeyjarhöfn Ása Berglind Hjálmarsdóttir, alþingismaður Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmanneyjum  Landeyjahöfn hefur nú verið rekin í 16 ár en enn og aftur sannast hversu erfið starfræksla hennar, hvað er til ráða? Hvað vilja Eyjamenn, hvað getur samgöngunefnd þingsins lagt til? Hvernig verða samgöngur tryggðar til Eyja?

Lestin
Sound of Falling, gljúp dramatúrgía

Lestin

Play Episode Listen Later Apr 28, 2026 53:54


Hvernig kemstu inn í kvikuna á fólki? Við endurheimsækjum samtal við sviðslistakonuna Steinunni Knúts Önnudóttur í þætti dagsins. Við kynnumst gljúpri dramatúrgíu og listrannsóknum Steinunnar, þar sem stóra spurningin er: Hve lítið er nóg? Kolbeinn Rastrick rýnir í kvikmyndina In die Sonne Schauen eða Sound of Falling, eftir þýska leikstjóran Mascha Schilinski sem er sýningu í Bíó Paradís. Myndin hlaut dómnefndarverðlaun á Cannes í fyrra og er mikið listaverk.

FM957
Brennslan - 22. apríl 2026

FM957

Play Episode Listen Later Apr 22, 2026 88:24


Miðvikudags föstudagur! Bolli Már og Egill Ploder spjalla við Andra Björns um stefnumótaforrit ríka og fræga fólksins. 70% ungmenna á Peptides? Aron Kristinn talar um nýja plötu, TakkTakk vörumerkið og meira til. Anna Fríða og Rúnar frá Nóa Siríus um nýtt SumarKropp. Hvernig verðum við sem gamalt fólk á elliheimili? Þetta og meira til!

Mannlegi þátturinn
Græn samskipti, Græna gangan og Auður Bjarnadóttir á heilsuvaktinni

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 21, 2026 54:45


Græn, gul og rauð samskipti og samspil við taugakerfið er nokkuð sem við skoðuðum í þættinum í dag. Hvernig streita hefur áhrif á öll samskipti og hvernig við skynjum okkur sjálf og aðra ólíkt eftir því hvort við erum í jafnvægi eða í streitu. Gyða Dröfn Tryggvadóttir kom í þáttinn, en hún er með meistaragráðu í stjórnun heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu frá Háskólanum í Reykjavík og hefur einnig lokið námi í uppeldis- og áfallafræðumn Piu Mellody. Talandi um græn samskipti, þá töluðum við um Grænu gönguna sem fer fram á fimmtudaginn á Sumardaginn fyrsta. Og ekki nóg með það, heldur verður hátíðarsamkoma í lok göngunna í Hljómskálagarðinum, svo er það svokallaður Grænn pallur, þar sem frambjóðendur í sveitastjórnarkosningunum framundan munu ræða grænu málin og svo er það hápunkturinn, tónlistarveislan Hálendishátíð í Iðnó þar sem þekkt tónlistarfólk leggur náttúrunni lið með sinni tónlist. Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar og Snæbjörn Guðmundsson jarðfræðingur og formaður Náttúrugriða komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá þessu. Að lokum var það Heilsuvaktin. Að þessu sinni talaði Helga Arnardóttir við Auði Bjarnadóttur dansara, leikstjóra og jógakennara sem hefur kennt jóga í tæp 30 ár og verið ein af frumkvöðlum á sviði meðgöngujóga sem hefur verið afar vinsælt. Auður hefur líka kennt hundruðum kvenna að verða jógakennarar undanfarna tvo áratugi. Hún segir þær ekkert endilega allar verða kennarar en námið nýtist þeim í að ná tökum á streitu, jafnvel kulnun og hreinlega jafnvægi í lífinu. Tónlist í þættinum í dag: Í grænum mó / Ellý Vilhjálms og Hljómsveit Svavars Gests (Sigfús Halldórsson, texti Gestur Guðfinnsson) Bíldudals grænar baunir / Jolli & Kóla (Valgeir Guðjónsson) Græna byltingin / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

bj gu sn gy reykjav halld hvernig hlj bjarnad tryggvad samskipti landverndar jolli ell vilhj helga arnard valgeir gu
Þjóðmál
#412 – Kaffispjall – Sigurður Pálsson í Byko – Stærsta áskorunin er núna

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Apr 14, 2026 52:30


Rætt er við Sigurð Pálsson, forstjóra BYKO, sem hefur starfað hjá fyrirtækinu í 26 ár. Sigurður gefur innsýn í rekstur þessa rótgróna félags, fer yfir afkomuna og útskýrir hvernig hægt er að spá fyrir um sölu á árstíðabundnum vörum fyrir komandi sumar. Hann deilir upplifun sinni af púlsinum hjá iðnaðarmönnum og metur hvort bjartsýni eða svartsýni ríki á markaðnum miðað við núverandi efnahagsástand. Sjónum er beint að skipulagsmálum og íbúðaruppbyggingu, málefnum sem Sigurður hefur látið sig varða, auk þess sem hann ræðir áskoranir á vinnumarkaði. Hvernig bregðast stór fyrirtæki við síhækkandi launakostnaði og hvaða svigrúm hafa þau til vaxtar? Að lokum ræðum við starfsferilinn og það að þroskast í starfi innan sama fyrirtækis í aldarfjórðung auk annarra þátta.

Podcast með Sölva Tryggva
Gamalt og gott: Sara Piana með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Apr 8, 2026 95:00


https://solvitryggva.is/ Sara Piana hefur í gegnum árin verið umtöluð á Íslandi, einkum og sér í lagi eftir að hún giftist vaxtarræktarkappanum Rich Piana og af þeim birtust reglulega fréttir. Sara hefur hingað til ekki farið í viðtöl í íslenskum fjölmiðlum, en fannst tími til kominn að segja sögu sína, einkum og sér í lagi þar sem hún er nú alfarið flutt til landsins og ætlar að hefja hér næsta kafla í sínu lífi. Í þættinum segir Sara frá því hvers vegna hún þurfti sem ung kona að flýja land eftir stöðuga ógn. Hvernig hún fór langt inn í Fitness-heiminn eftir að hún flutti til Bandaríkjanna og síðan frá skrautlegu líferni sínu með Rich Piana, sem oft var öðruvísi en það virkaði út á við. Sara lærir nú hjúkrunarfræði og hlakkar til næsta kafla í sínu lífi, eftir að hafa fengið margfaldan æviskammt af dramatík, eins og hún segir sjálf. Þátturinn er í boði; Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Smáríkið - https://smarikid.is/ Ingling - https://ingling.is/

Lestin
Ástin á tímum Tinder #6

Lestin

Play Episode Listen Later Apr 8, 2026 54:32


Þekkiru einhvern heterópessimista? Hvernig gengur á Tinder? Er kominn tími til að leggja öppin frá sér og velta því fyrir sér hvort þetta sé yfirhöfuð þess virði? Í þætti dagsins ræðum við við Emblu Ýr Teitsdóttur, sem hefur komist að því að önnur lífsformúla henti sér. Hún hefur lokað Tinder fyrir fullt og allt. Undir lok þáttar fáum við pistil frá Eiríki Erni Norðdahl, sem fékk Macintosh borðtölvu 17 ára gamall.

Dr. Football
Doc Sports Business - Hvernig Sýn bjó til úrslitakeppnina í körfubolta, Sýn-kúltur og hvernig verður boltinn ´í sumar

Dr. Football

Play Episode Listen Later Mar 30, 2026 55:18


Kjartan Atli Kjartansson þáttarstjórnandi á Sýn og Arnar Jónmundsson mættu til Dr. Football rétt áður en vor geðveikin hefst á Sýn. Hvernig varð karfan svona stór? Getum við enn bjargað handboltanum? Hverjir verða á skjáum í sumar yfir boltanum? Og hvernig virkar þetta nýja skiptiborð í íslenska fótboltanum.

Dr. Football
Sagan öll með Stefáni Pálssyni - Valur - Benfica 0-0 Afhverju er það svona ótrúlegt að 18.243 mæti á leik 1968?

Dr. Football

Play Episode Listen Later Mar 25, 2026 60:15


Stefán Pálsson sagnfræðingur ræðir leik Vals og Benfica sem fram fór í Evrópukeppni Meistaraliða 18. september 1968. Hvernig vissu Íslendingar eitthvað um Eusebio og Benfica? Hvernig bjuggu Valsmenn til allan þennan áhuga? Voru áhorfendur 18.243 áhorfendur allir til friðs?

Grænvarpið
Að borða fíl

Grænvarpið

Play Episode Listen Later Mar 20, 2026 27:28


Hvernig á að flytja 28 vindmyllur í 400 hlutum eftir íslensku vegakerfi án þess að trufla vegfarendur of mikið? Sigurgeir og Gunnar Aron segja okkur allt um vindmylluflutningana frá Þorlákshöfn í Vaðölduver sem byrja núna í vor.Þátturinn á YouTube

Mannlegi þátturinn
ACT nálgunin, heilbrigð vinnustaðamenning og Thelma Björk á Heilsuvaktinni

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 10, 2026 50:00


Við fræddumst í dag um það sem kallast ACT-nálgunin, en samkvæmt Rúnari Helga Andrasyni, er það sálfræðileg nálgun sem snýst í grunninn um það að hætta tilgangslausri baráttu við erfiðar hugsanir og tilfinningar. En Rúnar, sem er sérfræðingur í klínískri sálfræði og er yfirsálfræðingur á Reykjalundi hefur nýtt sér þessa aðferð í starfi sínu bæði á Reykjalundi og hjá VIRK. Rúnar kom í þáttinn og sagði okkur betur frá ACT í dag. Hvernig er hægt að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu? Við heyrðum í þættinum af málþingi sem fer fram á fimmtudaginn þar sem fjallað verður einmitt um vinnustaðamenningu í leik- og grunnskólum í framhaldi af samstarfsverkefni Vinnueftirlitsins, Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Dr. Sigrún Gunnarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, sem hefur leitt verkefnið og stýrt framkvæmd þess var hjá okkur í Efstaleitinu og fyrir norðan í stúdíó RÚVAK var Hafdís Ólafsdóttir, leikskólastýra á Klöppum, Akureyri. En Klappir eru einn af fimm þátttökuskólum verkefnisins og hún mun lýsti reynslu sinni af verkefninu. Og svo var það Heilsuvakt dagsins með Helgu Arnardóttur. Það er sjaldan rætt við fólk sem glímir við langvinnt krabbamein og lifir þokkalegu lífi með sjúkdómnum. Thelma Björk Jónsdóttir fatahönnuður, listgreina- og jógakennari greindist með brjóstakrabbamein fyrir tveimur árum og í ljós kom að meinið var einnig komið í beinin að litlum hluta. Thelma fór ekki í hefðbundna lyfjameðferð eins og flestir gera heldur tekur hún líftæknilyf í hverjum mánuði sem halda sjúkdómnum niðri. Hún var andlit bleiku slaufunnar í fyrra með sína mögnuðu sögu og þar fyrir utan hannaði hún slaufuna sjálfa. Herferðin hét Listin að lifa með krabbameini og hlaut tilnefningu til lúðursins í flokknum almannaheillauglýsingar. Helga hitti hana á dögunum og ræddi við Thelmu um hvað hún gerir til að vera jákvæð og láta ekki óttann stjórna sér. Tónlist í þættinum: Ó, ljúfa líf / Flosi Ólafsson (Pops & Doddoge, texti Flosi Ólafsson) Tasko tostada / Hljómar (Rúnar Júlíusson) Hoppsa bomm (Á skíðum skemmti ég mér ) / Helena Eyjólfsdóttir og Hljómsveit Ingimars Eydal (H. Meyer, texti Ásta Sigurðardóttir og Birgir Marinósson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON

Tæknivarpið
Hvernig á að innleiða gervigreind?

Tæknivarpið

Play Episode Listen Later Mar 5, 2026 50:39


Atli og Gulli fá góða gesti í þáttinn til að ræða innleiðingar á gervigreindartólum. Stefán Gunnarsson og Róbert Helgason eru einmitt að halda námskeið í því fyrir Kjarafélaga viðskipta- og hagfræðinga 11. mars og stikla á stóru úr því efni. 

Lestin
2. Þáttur: Ástin á tímum Tinder + ást fullorðinna

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 4, 2026 52:59


Ása Ninna Pétursdóttir, fjölmiðlakona, hefur gert ástina að sínu helsta viðfangsefni í sinni vinnu. Hún gerði tvær þáttaraðir af Fyrsta blikinu og eina af Sveitarómantík. Hvernig eigum við að leita að ástinni? Hverjir eru gallarnir við Tinder? Og hvað lærði hún um ástarleit á því að gera stefnumótaþætti í íslensku samfélagi. Eiríkur Örn Norðdahl, rithöfundur, er að velta fyrir sér sögu sem hann heyrði. Sagan er af því hvernig eldri kona brást við þegar hún heyrði hvers vegna hjón skildu. Þemað í pistli Eiríks er að þessu sinni ást fullorðinna.

Lestin
Röskun, rýni í Röskun og Dimmalimm, "Wuthering Heights"

Lestin

Play Episode Listen Later Feb 26, 2026 53:14


Röskun í leikstjórn Braga Þórs HInrikssonar er sálfræðitryllir byggður á samnefndri skáldsögu. Lögfræðingurinn Hera flytur inn í nýja íbúð þar sem undarlegir hlutir fara að gerast. Við spjöllum við Braga um klisjur og úrvinnslu úr þeim. Kolbeinn Rastrick rýnir í Röskun og Dimmalimm eftir Mikael Torfason. Hvernig tekst Emerald Fennel til að gera sína aðlögun aö skáldsögu Emely Brontë? Þrjár konur vega og meta það sem tekst til og það sem misferst, en myndin hefur vakið sterk viðbrögð, þá sérstaklega hjá aðdáendum bókarinnar.

Lestin
1. þáttur: Ástin á tímum Tinder

Lestin

Play Episode Listen Later Feb 25, 2026 52:31


Það hlýtur að hafa einhver áhrif á ástarleitina að við séum með 5 mismunandi öpp til að finna þann eina rétta, þá einu réttu. Hvernig er ástin á tímum Tinder, á tímum tæknikapítalisma, Wolt, ChatGPT og Claude? Fyrsti viðmælandinn er piparsveinn og ljóðskáld, Þorvaldur Sigurbjörn Helgason. Undir lok þáttar fáum við pistil frá Eirikí Erni Norðdahl, um óhreinindi og slaufun.

Pitturinn
#126 Hvernig fer 2026 tímabilið?

Pitturinn

Play Episode Listen Later Feb 7, 2026 62:27


AB VARAHLUTIR - SONAX - ASKJA - DOMINOSKristján Einar og Bragi rýna í hvernig 2026 tímabilið fer, stærsta sjokkið? Hvaða keppni verður kosin sú besta? Hver nær surprise verðlaunapalli?

Tölvuleikjaspjallið
273. Ubisoft part 2 - vont verður verra

Tölvuleikjaspjallið

Play Episode Listen Later Jan 28, 2026 69:55


Hvernig gat Ubisoft orðið verra?Reka fólk fyrir að stofna stéttarfélag, kenna starfsfólki um lélegt gengi leikja, slaufa fullt af leikjum og leggja áherslu á live service leiki. Þannig gat það orðið verra.Við gerðum þátt (nr 90) þar sem við fórum yfir sögu Ubisoft og nú þarf að bæta aðeins í. Það er fullt búið að gerast síðan þá og við erum mögulega að horfa upp á stutta framtíð franska risans.

Fotbolti.net
Enski boltinn - Dansað á Emirates og stjórar valtir í sessi

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jan 26, 2026


Manchester United fer býsna vel af stað undir stjórn Michael Carrick. Eftir sigur á Manchester City í síðustu umferð, þá fóru þeir á Emirates í gær og tóku sigur. Matheus Cunha sýndi brasilísk dansspor eftir að hann gerði sigurmarkið. Núna er toppbaráttan aftur orðin spennandi þar sem Aston Villa og Manchester City eru núna bara fjórum stigum á eftir toppliðinu. Liverpool tapaði á dramatískan hátt gegn Bournemouth og áfram gengur ekkert hjá Tottenham. Hvernig er Thomas Frank enn í starfi? Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur Harðarson og Kári Snorrason fóru yfir allt það helsta í Pepsi Max stúdíóinu eftir helgina.

Tölvuleikjaspjallið
272. The Alters - of margir Janar

Tölvuleikjaspjallið

Play Episode Listen Later Jan 21, 2026 48:26


Hvernig væri að hafa afrit af þér til að aðstoða þig við ýmis verk?The Alters fór því miður fram hjá stórum hluta tölvuleikjasamfélagsins á síðasta ári. Þetta er stórskemmtilegur survival leikur þar sem þú spilar sem Jan Dolski og svo sem margar útgáfur af Jan Dolski.Við viljum ekki segja of mikið ... spilið leikinn.Leikurinn kom út 13.júní 2025 á PS5, Xbox X/S og Windows

Spegillinn
Breytt viðhorf til kynferðisbrota, mönnun heilbrigðisstétta og leiðir til að letja Trump frá yfirtöku Grænlands

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 12, 2026 20:00


Kynferðisbrot gegn börnum eru einn viðkvæmasti brotaflokkurinn og það er regla frekar en undantekning að fjölmiðlar fái fyrst veður af þeim þegar ákæra er gefin út eða dómur fallinn. Fátítt er að sakborningar séu nafngreindir. Þetta virðist vera að breytast. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Margréti Valdimarsdóttur afbrotafræðing. Mannekla í heilbrigðiskerfinu hefur verið rædd um árabil. Í nýjum Talnabrunni landlæknis er farið yfir mannaflaþróun nokkurra heilbrigðisstétta undanfarin ár og segir þar að fjöldi starfsfólks með gilt starfsleyfi fylgi mannfjöldaþróun ágætlega og hjá sumum stéttum hafi starfsleyfum fjölgað umfram mannfjölda. Það á við um hjúkrunarfræðinga, lækna og sálfræðinga. En hjá flestum stéttunum er töluverður munur á fjölda starfsleyfa og fjölda starfandi. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir þetta við Unni Berglindi Friðriksdóttur, formann Ljósmæðrafélags Íslands. Undanfarna viku eða svo hefur vart liðið sá dagur að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi ekki ítrekað beinar og óbeinar hótanir sínar um yfirtöku Grænlands með hervaldi, verði Grænlendingar og Danir ekki við kröfu hans um að afhenda Bandaríkjunum full yfirráð yfir þessum næsta nágranna okkar Íslendinga. En hvað er til ráða? Hvernig geta bandamenn Grænlendinga og Dana gert til að letja Trump frá fjandsamlegri yfirtöku Grænlands? Ævar Örn Jósepsson reifar málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

donald trump lj isst bandar gunnarsson hvernig margr umsj danir heilbrig valdimarsd anna krist freyr g undanfarna donald trump bandar
Bylgjan
Sprengisandur 04.01.2026 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jan 4, 2026 95:12


Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Sjávarútvegur Sigurjón Þórðarson, alþ.maður, form. Atvinnuveganefndar s:88930919 Sigurjón gagnrýnir harðlega fiskveiðiráðgjöf á Íslandsmiðum, hyggst kalla til erlenda fiskifræðinga strax í janúar til að endurmeta aðferðafræði Hafrannsóknastofnunar (Haf og vatn). Hann gagnrýnir úthlutun makrílkvóta og telur þann stofn vera vanmetinn og veiða eigi miklu meira.  Alþjóðamál Baldur Þórhallsson prófessor við HÍ Vilborg Ása Guðjónsdóttir, stjórnmálafræðingur Innrási í Venesúla setti allt í uppnám í gær, hverju skiptir hún í stóru myndinni, t.d. varðandi Úkraínu og gildandi alþjóðalög. Hverju skiptir þessi aðgerð Íslendinga og afstöðu okkar til Bandaríkjanna og Evrópusambandsins.  Stjórnmál Sigurður Kári Kristjánsson, fyrrverandi alþ.maður Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus Stefnur og straumar á hægri væng stjórnmálanna - eru hægri flokkar á Íslandi þrír eða bara einn. Hvernig verjast rótgrónir hægri flokkar ásókn popúlískra flokka? Hvað ber nýtt ár í skauti sér í íslenskum stjórnmálum? Skipulagsmál Hlökk Theódórsdóttir, aðjúnkt Ný fræðigrein um mistökin sem gerð voru við veitingu byggingaleyfis ,,græna gímaldsins" við Álfabakka. Hlökk, fyrrverandi skipulagsstjóri ríkisins, fer yfir málið og rökstyður þá kenningu sína að skipulagsvaldið sé í senn veikt og óskýrt. 

Handkastið
Aukakastið - Sverre Andreas Jakobsson

Handkastið

Play Episode Listen Later Dec 24, 2025 99:33


Gestur Aukakastsins í desember er silfurdrengurinn Sverre Andreas Jakobsson. Sverre fer yfir uppvaxtar árin sín, afrekin á körfuboltavellinum og lífið fyrir norðan. Hvernig var að vera í KA í pakkfullu húsi og þegar hann hætti í handboltanum. Ævintýrið í Peking 2008 og lífið í atvinnumennskunni. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Aukakastsins.

Stundin
Þjóðhættir #72: Sjálfbærni og matarhættir

Stundin

Play Episode Listen Later Dec 16, 2025


Hvernig getum við lifað sjálfbærara og betra lífi fyrir okkur sjálf og heiminn þegar kemur að því hvað við látum ofan í okkur? Gestur Þjóðhátta að þessu sinni er Auður Viðarsdóttir, doktorsnemi í þjóðfræði. Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.

Dr. Football
Doc án landamæra - Má bjóða þér fjögur ár? Hvernig fer maður frá FCK til Barcelona?

Dr. Football

Play Episode Listen Later Dec 9, 2025 73:20


Doc, Albert Inga og Sigurður Bond á þriðjudegi.

Dr. Football
Doc án landamæra - Má bjóða þér fjögur ár? Hvernig fer maður frá FCK til Barca

Dr. Football

Play Episode Listen Later Dec 9, 2025 73:20


Doc, Albert Inga og Sigurður Bond.

Steve Dagskrá
Jólaserían Þ2 // x Götustrákar

Steve Dagskrá

Play Episode Listen Later Dec 9, 2025 110:34


Hvernig eru jól Götustráka? Kokteilsósa með brúnni og Bjarni Ólafsson AK 70

Spegillinn
Hvernig verður kosið í Grindavík, ólga í Búlgaríu og þóknun Rio Tinto fyrir dóm

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 2, 2025 20:00


Það eru tvö ár síðan Grindavík var rýmd. 10. nóvember 2023 bjuggu um 3.800 í bænum. Nú eru á níunda hundrað skráðir með lögheimili í Grindavík þó að þeir hafi ekki allir þar næturstað. Grindavíkurnefndin hefur lagt til að í sveitarstjórnarkosningum í vor verði þeim sem áttu lögheimili í Grindavík þegar rýmt var en hafa flutt sig síðan gefinn kostur á að melda sig inn á kjörskrá í Grindavík frekar en að kjósa þar sem þeir nú búa Tugir og jafnvel hundruð þúsunda Búlgara knúðu í gær ríkisstjórn landsins til þess að standa við loforð sem hún gaf þjóðinni í síðustu viku en sveik skömmu síðar. Búlgaríuforseti segir bara eitt í stöðunni: Afsögn ríkisstjórnarinnar og nýjar kosningar - sem yrðu þær áttundu á rúmum fimm árum. Ríó Tinto, sem á álverið í Straumsvík, hefur stefnt íslenska ríkinu og krafist þess að úrskurður yfirskattanefndar fyrir tveimur árum verði felldur úr gildi. Deilan snýst um þóknun sem álverið hefur greitt móðurfélaginu sínu í hálfa öld.

Endalínan
289. Þáttur - ÚrVals Grindvíkingar

Endalínan

Play Episode Listen Later Nov 2, 2025 70:56


Betra seint en aldrei!Endalínan kom saman á Sunnudegi að þessu sinni og fór yfir allt og ekkert. Nýtt Endalínustef eftir þann allra besta, Helga Sæmund!Hvað er að frétta af Hlíðarenda?Voru breytingarnar á Akranesi til góða?Hvernig vinna Þórsarar leik?Verður Ægir að spila alltaf?Hvað geta Ármenningar gert?Allt þetta og miklu meira í Endalínunni í samstarfi við Comfyballs, Bagg.is og Viking Lite (Léttöl)

Dr. Football
Vikulok Dr. Football - Hvernig vinnum við Úkraínu?

Dr. Football

Play Episode Listen Later Oct 10, 2025 68:40


05:10 - Tölvutek spurningin 10:50 - Landsliðið 22:00 - Óskar Hrafn framlenging? 29:00 - Smash eða pass 33.00 - Besta Deildin 34.00 - 5 lyklar Vikes 45:00 - Enskiboltinn 50:00 - Winners n Losers 54:00 - Sameiginlegur Bet Builder á landsleikinn 56:30 - Nei eða Já 01:00:00 - Gunni vs Keli - 60m sprettur 01:01:30 - El Grande

Fotbolti.net
Betkastið - Uppgjör Lengjudeildar

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Sep 22, 2025


Baddi Borgars hinn eini sanni Lengjusérfræðingur mætti í settið! - Afhverju hætti hann með FC Árbæ? - Fórum yfir hvert lið fyrir sig! - Baddi tilkynnti lið ársins að hans mati - Hvernig fer 50milljón króna leikurinn og hver sigrar .net bikarinn?

hvernig afhverju