Podcasts about verki

Eldership in Lithuania

  • 36PODCASTS
  • 198EPISODES
  • 57mAVG DURATION
  • 1EPISODE EVERY OTHER WEEK
  • Mar 17, 2025LATEST
verki

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about verki

Latest podcast episodes about verki

Víðsjá
Innkaupapokinn, kynbundið ofbeldi í þjóðsögum og örvæntingarpistill #3

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 17, 2025 52:55

Innkaupapokinn eftir leikhópinn Kriðpleir og Elísabetu Jökulsdóttur, sem nú er í sýningu í Borgarleikhúsinu, byggir á 30 ára gömlu verki Elísabetar, Mundu töfrana. Verkið hefur fylgt Elísabetu í meira en þrjá áratugi og líka skotið rótum í öðrum verkum hennar. Hún reyndi að koma verkinu á fjalirnar en fékk oftast þau svör að það væri of ljóðrænt og vantaði allan strúktúr. En nú hefur leikhópnum Kriðpleir tekist að móta um það strúktúr og afraksturinn er Innkaupapokinn. Við ræðum við tvo meðlimi Kriðpleirs í þætti dagsins, þau Ragnar Ísleif Bragason og Ragnheiði Maísól Sturludóttur. Við fáum líka til okkar í hljóðstofu þjóðfræðinginn Dagrúnu Ósk Jónsdóttur, sem hefur rannsakað birtingarmyndir kynbundins ofbeldis í íslenskum þjóðsögum og Birnir Jón Sigurðsson flytur sinn þriðja pistil sinn í örvæntingarpistlaröðinni Hvað varð um gæskuna? Pistill dagsins er tileinkaður stjórn, glundroða og mönnum sem reyna bókstaflega að sigrast á dauðanum. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Darraðarljóð á 75 ára afmæli, 60 kílóa þríleikurinn, bókamarkaðurinn

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 6, 2025 55:12

Í kvöld og annað kvöld heldur Sinfóníuhljómsveit Íslands upp á 75 ára afmæli sitt með stapp-uppseldum tónleikum í Eldborg, þar sem öllu verður tjaldað til. Meðal verka á efnisskránni er 60 ára gamalt tónverk Jóns Leifs, Darraðarljóð. Verkið er skrifað fyrir nokkuð stóra hljómsveit og kór, er gífurlega krefjandi og hefur aldrei verið flutt áður. Víðsjá leit við á lokaæfingu í Hörpu í morgun og hitti þar framkvæmdastjóra SÍ, okkar góða Guðna Tómasson, Hildi Ploder Vigfúsdóttur, forvörð á Landsbókasafni og Svanhildi Óskarsdóttur, rannsóknarprófessor við Árnastofnun, til að forvitnast um verkið og tilefnið. Við lítum líka inn á bókamarkaðinn í Holtagörðum og Soffía Auður Birgisdóttir fjallar um sextíu kílóa þríleik Hallgríms Helgasonar. En Víðsjá hefst á tilnefningum til Myndlistarverðlaunanna fyrir árið 2024. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Lietuvos diena
Ar maisto taryba padės rasti kainų sprendimus?

Lietuvos diena

Play Episode Listen Later Feb 4, 2025 53:01

Socialdemokratų partija šaukia koalicijos tarybos posėdį. Premjero teigimu, pirmiausia tarybos posėdis rengiamas dėl pensijų kaupimo pertvarkos ir galimų mokesčių pokyčių, tačiau bus aptarta ir koalicijos partnerių retorika, pasisakymai bei „šiaip bendravimo kultūra“.Pirmasis Maisto tarybos posėdis įvyks vasario 20 d., o išvados galimai bus pateiktos jau pavasarį, sako žemės ūkio ministras Ignas Hofmanas. Anot jo, tarybos darbas prasidės nuo kainų pasiskirstymo maisto prekių tiekimo grandinėje analizės. Premjeras Gintautas Paluckas yra sakęs, kad Maisto taryba rūpinsis kainų skaidrumu, sveikesne visuomenės mityba ir stebės importo konkurenciją su vietos produkcija.JAV prezidento Donaldo Trumpo Europos Sąjungai ketinami įvesti muitai neturėtų didelio tiesioginio poveikio Lietuvai, mano prezidentas Gitanas Nausėda. Tačiau, pabrėžė šalies vadovas, tarifų pasekmės būtų jaučiamos per prekybinius ryšius su didžiosiomis ES valstybėmis.Ukraina turi vienas didžiausių pasaulyje titano ir geležies rūdos atsargų, nepanaudotą ličio telkinį, taip pat didelius anglies telkinius. Apskaičiuota, kad visų šių mineralų vertė siekia dešimtis trilijonų dolerių. Mainais už pagalbą, amerikiečiai Ukrainai siūlo tartis dėl retųjų naudingųjų iškasenų.Į LRT GIRDI kreipėsi Vilniaus Mykolo Lietuvio gatvės gyventojai, skųsdamiesi, kad naujai išasfaltuota gatvė tarp Bajorų ir Verkių rajonų atrodo kaip greitkelis. Beveik tris kilometrus besidriekiančioje gatvėje - nė vienos pėsčiųjų perėjos.Ved. Andrius KavaliauskasRed. Darius Kuodis

Rauða borðið
Rauða borðið 3. feb: Ríkisstjórn, kennaraverkfall, glæpir, rasismi, Mogginn, lágstéttarkona, trú og baskavígin

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Feb 3, 2025 299:00

Mánudagur 3. febrúar Ríkisstjórn, kennaraverkfall, glæpir, rasismi, Mogginn, lágstéttarkona trú og baskavígin Við byrjum á að fara yfir verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar og fáum síðan forystu kennara til ræða yfirstandandi og komandi verkföll: Haraldur Freyr Gíslason, formaður leikskólakennar, Mjöll Matthúasdóttir, formaður grunnskólakennara, Guðjón Hreinn Hauksson formaður framhaldsskólakennara og Sigrún Grendal formaður tónlistarkennara mæta að Rauða borðinu. Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur ræðir um undirheimana og þróun glæpa á Íslandi. Oddný Eir og María Lilja fóru á stúfana og heyrðu hvað fólk á förnum vegi hefur að segja um rasisma, og svo berst talið líka að Grænlandi. Er Morgunblaðið fyrst og fremst í pólitík fremur en sanngjörnum fréttum þessa dagana? Blaðamennirnir Ólafur Arnarson, Jón Ferdinand Esterarson, Oddný Eir Ævarsdóttir og Atli Þór Fanndal ræða málin með Birni Þorláks. Þórey Birgisdóttir leikari og Anna María Tómasdóttir leikstjóra hafa þýtt og staðfært einleikinn Ífigeníu í Ásbrú, sem Þórey leikur snilldarvel í Tjarnarbíói. Verkið fjallar um grimman samtíma okkar, segir sögu stúlku sem við kannski sjáum ekki og viljum ekki sjá. Karlar sækja kirkjuna í auknum mæli, er það jákvæð þróun eða ber það vott um afturhvarf til íhaldsins? María Lilja fær til sín þau Karl Héðinn Kristjánsson og Ingu Auðbjörgu Straumland sem eiga það sameiginlegt að vera forsvarsfólk lífskoðunarfélaga: DíaMat og Siðmenntar. Í Tjarnabíói er annar einleikur um baskavígin, byggður Arisman eftir Tapio Koivukari. Þar fer Elfar Logi Hannesson með hlutverk Jóns lærða sem afhjúpaði glæpa Ara í Ögri (sem Elfar Logi leikur líka). Við fáum hann og dóttur hans, Sunnefu Elfarsdóttur búningahönnuð, ásamt Héðni Birni Ásbjörnssyni formanni Baskasetursins og Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur þjóðfræðing til að ræða verkið og fjöldamorðin á baskneskum skipbrotsmönnum.

Víðsjá
Skógarhögg Thomas Berhard, karókílög Alter-Eyglóar á Ölveri, Ungfrú Ísland/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 27, 2025 57:48

Við lítum inn á eina elstu krá bæjarins, Ölver sportbar, en þar stendur tónskáldið og sviðslistakonan Eygló Höskuldsdóttir Viborg fyrir viðburðum í vikunni í nafni hliðarsjálfsins Alter-Eyglóar. Í tilraun til þess að snúa á alræði streymisveitanna og finna leið til að lifa á tónlistinni ákvað Eygló, sem stundaði framhaldsnám í tónsmíðum í Berklee og NYU, að skella í nokkur poppkennd karókílög. Á Ölveri gefst gestum viðburðarins kostur á að spreyta sig á þessum glænýju karókílögum og fylgja Alter Eygló inn í hugleiðingar um neyslu á tónlist og vinnuna sem liggur að baki. Leikverkið Ungfrú Ísland var frumsýnt í Borgarleikhúsinu þann 17.janúar síðastliðinn. Verkið er byggt á samnefndri skáldsögu Auðar Övu Ólafsdóttur en það eru þau Gréta Kristín Ómarsdóttir og Bjarni Jónsson sem unnu leikgerðina, og Gréta Kristín leikstýrir jafnframt verkinu. Við heyrum hvað einum af leikhúsrýnum þáttarins fannst um þessa leikgerð, en að þessu sinni er það Katla Ársælsdóttir sem rýnir. En við byrjum þáttinn á því að kynna okkur splunkunýja þýðingu á verki sem kom fyrst út í Austurríki árið 1984. Skógarhögg-geðshræring, eftir Thomas Bernhard, olli mikilli ólgu í menningarlífi Vínarborgar þegar hún kom út og var fjarlægð úr bókabúðum vegna átaka um ærumeiðingar. Bókina þýddi Hjálmar Sveinsson, sem segir bókina eiga einstaklega vel við okkar tíma. Tíma sem einkennist af leit okkar, hér í velmegunarþjóðfélögunum, að sannleika, með ýmsum leiðum, því það sé einhver kjarni sem við söknum úr lífinu. Þrá í sannleika, en einnig fegurð, sé að hans mati kjarni bókarinnar. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Ifigenía í Ásbrú, Unnar Örn í Óminnissafni, Moldin heit/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 7, 2025 53:34

Í Glerhúsinu stendur nú yfir sýning sem ber titilinn Óminnissafnið - varðveislu- og rannsóknardeild. Þar sýnir myndlistarmaðurinn Unnar Örn Auðarson afrakstur vangaveltna um tilraunir okkar til að skjalfesta tímann með söfnun og skrásetningu á upplýsingum úr umhverfi og samfélagi. Við hittum Unnar Örn í þætti dagsins. Við heyrum einnig bókarýni en að þessu sinni rýnir Gréta Sigríður EInarsdóttir í skáldsöguna Moldin heit, eftir Birgittu Björgu Guðmarsdóttur, en sú bók hefur verið tilnefnd bæði til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Fjöruverðlaunanna. En við hefjum þáttinn á því að kynna okkur leikverkið Ifigenía í Ásbrú sem verður frumsýnt í Tjarnarbíói í næstu viku. Verkið er einleikur og upprunalegur titill þess er Iphigenia in Splott en þær Anna María Tómasdòttir leikstjóri og Þórey Birgisdóttir leikkona þýddu og staðfærðu verkið fyrir íslenska sviðið.

Lestin
Þau sjá okkur ekki í myrkrinu, japanska nýbylgjan, sovéskar röntgenplötur

Lestin

Play Episode Listen Later Dec 16, 2024 52:34

Kristín Eiríksdóttir, rithöfundur, segir frá nýju útvarpsverki Þau sjá okkur ekki í myrkrinu, sem verður flutt á Rás 1 um jólin. Verkið er skáldverk byggt á viðtölum við tvo Palestínumenn, Fadia og Ahmed, sem eru bæði búsett hér á landi. Þórður Ingi Jónsson fjallar um japönsku nýbylgjuna í kvikmyndagerð út frá myndunum Pale Flower og Woman in the Dunes. Og svo fáum við sendingu frá raftónlistarmanninum Jónasi Þór Guðmundssyni. Hann segir frá sovésku fyrirbæri, því þegar fólk greip til þess að nota röntgen myndir til að gera vínyl-plötur.

Víðsjá
Reykjavík Dance Festival /Ólöf Ingólfsdóttir, Birta Ásmundsdóttir, Listdans á Íslandi/Ingibjörg Björnsdóttir

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 12, 2024 51:50

Reykjavík Dans Festival hefst með pompi og prakt á morgun, miðvikudag, og stendur yfir fram á sunnudag. Hátíðin var stofnuð árið 2002 og hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem einn af hápunktum menningarársins. Síðastliðin ár hefur reykjavík dance festival tengt sig við Lókal svo úr hefur orðið ein allsherjar sviðlistahátíð. Við tökum forsmekk á sæluna í þætti dagsins sem verður undirlagður undir dans. Listdans á sér rúmlega hundrað ára sögu á Íslandi, og nú gefst unnendum og áhugasömum tækifæri til að lesa um sögu danslistarinnar í glænýrri og veglegri bók sem ber titilinn Listdans á Íslandi. Þar rekur Ingibjörg Björnsdóttir, dansari, danshöfundur og sagnfræðingur, sögu þeirra sem ruddu braut listdansins hér á landi á síðustu öld og segir frá stofnun og starfsemi Listdansskóla Þjóðleikhússins. Saga Íslenska dansflokksins, barátta hans, andstreymi og sigrar, er síðan meginefni bókarinnar. Ingibjörg segir söguna af innsæi og þekkingu, enda sjálf þátttakandi í sögu danslistar á Íslandi í sjötíu ár, og hún lítur við í hljóðstofu í lok þáttar. Við hugum líka að tveimur nýjum dansverkum sem frumsýnd verða á hátíðinni, When a duck turns 18 a boy will eat her, eftir Birtu Ásmundsdóttur og Eitthvað um skýin, eftir Ólöfu Ingólfsdóttur. Birta rannsakar mörk kvenleikans með hjálp anda. Hugmyndin kviknaði í París, þar sem Birta, á ferð sinni ein um götur borgarinnar, upplifði hvernig karlmenn horfðu á hana á annan hátt en á Íslandi, og hvað það gat verið þreytandi. Í verkinu Eitthvað um skýin veltir Ólöf Ingólfsdóttir fyrir sér eðli og fjölbreytileika tilfinninga, sem svífa um vitundina og eins og ský yfir himininn. Verkið fléttar saman barokksöng og samtímadansi og markmiðið er að sögn höfundar að heiðra tilfinningar í öllum sínum myndum. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Yo-Yo Ma, Ólafur Sveinn Gíslason, Óskaland/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 15, 2024 56:01

Á laugardaginn næsta í Hörpu munu sellóleikarinn Yo-Yo Ma, í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands, Marvöðu og fjölda annarra listamanna, flytja listgjörningi í anda helgiblóts. Sellóleikarinn heimsfrægi átti frumkvæði að verkinu, sem kemur úr hugsmiðju leikstjórans Arnbjargar Maríu Danielsen og tónskáldsins Viktors Orra Árnasonar. Við ræðum við þau Arnbjörgu og Viktor Orra í þætti dagsins. Við kynnum okkur einnig myndlistaverk eftir Ólafa Svein Gíslason sem sýnt er um þessar mundir í félagsheimilinu Félagslundi í Flóahreppi. Verkið kallast Undirliggjandi minni og er leikið kvikmyndaverk sem byggist á æskuminningum þriggja einstaklinga sem ólust upp í Flóahreppi. Verkið er, líkt og myndlist Ólafs í gegnum tíðina, tilraun til að þenja mörk listarinnar og færa listina nær lífinu sjálfu. Og Trausti Ólafsson rýnir í Óskaland eftir Bess Wohl sem frumsýnt var um liðna helgi í Borgarleikhúsinu.

Lestin
Tapararnir, flókinn fréttaflutningur um stríðið á Gaza

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 9, 2024 55:10

Ef hlustendur Lestarinnar eiga leið hjá finnsku borginni Turku þá standa nú yfir sýningar í sænska leikhúsinu þar í borg, Åbo Svenska Theater, á verkinu Förlorana, Tapararnir, eftir Hallveigu Kristínu Eiríksdóttur. Verkið er útskriftarverkefni Hallveigar úr meistaranámi í leikstjórn frá leikhúsakademíunni í Helsinki. Verkið hefur hlotið þó nokkra umfjöllun í finnskum fjölmiðlum, en það fjallar um sigur og töp á handboltavellinum. Þrír blaðamenn velta fyrir sér flækjunum sem fylgja því að flytja fréttir frá hörmungunum á Gaza. Eðli málsins samkvæmt eru skoðannir almennings á orðavali og innihaldi frétta um þetta stríð, átök, eða þjóðarmorð, sterkari en í öðrum fréttamálum. Viðmælendur eru Aðalsteinn Kjartansson, Heimildinni, Ólöf Ragnarsdóttir, Rúv og Hólmfríður Gísladóttir, Vísi.

Víðsjá
Arnheiður Eiríksdóttir, Gallerí Undirgöng, Ólafur á Söndum

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 3, 2024 52:26

Við förum á Hverfisgötu þar sem Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar sýnir veggverk í Gallerí Undirgöngum. Verkið,sem hún kallar Eftirlits- og hagsmunaaðilar, varpar fram spurningum um opinbera fagurfræði, valdajafnvægi og manngerð kerfi með aðstoð tákna og lógóa. Við komum einnig við í Eddu og hittum þar fyrir þær Margréti Eggertsdóttur og Þórunni Sigurðardóttur, en þær unnu að útgáfu bókar sem kom út í sumar, Söngbók Séra Ólafs Jónssonar á Söndum. Ólafur var meðal vinsælustu skálda í sinni tíð, en hann var prestur í Dýrafirði um aldamótin 1600 og safnaði kveðskap sínum í eina bók sem kölluð er Kvæðabók. Í gærkvöldi hlaut íslenska messósópransöngkonan Arnheiður Eiríksdóttir verðlaun á stærstu óperuverðlaunahátíð heims, í flokknum "Rising Star" - eða rísandi stjarna. Við heyrum í Arnheiði í þætti dagsins.

Víðsjá
Tarotspil norrænna goðsagna, Ólöf Arnalds-Teens, Voðaverk í Vesturbænum-rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 1, 2024 51:42

Á dögunum komu út hjá Bókabeitunni eftirtektarverð tarotspil. Spilin eru eftir hefðbundinni forskrift en höfundur þeirra, Kristín Ragna Gunnarsdóttir, hefur endurhugsað þau út frá norrænni goðafræði, sér í lagi sögnum úr Snorra-Eddu og Eddukvæðum. Kristín Ragna er höfundur myndanna en hefur líka skrifað ítarlega skýringarbók með spilunum, sem inniheldur bæði leiðbeiningar fyrir lagnir og túlkun og mikinn fróðleik um goðin og sögurnar. Melkorka settist niður með Kristínu Rögnu og fékk hana til þess að spá í spilin fyrir sig. Um næstu helgi verður tónverkið Teens - Questions for Teenagers, flutt í Salnum í Kópavogi, en það er innblásið af röddum unglinga og viðtölum sem tekin voru við ungmenni frá Danmörku, Færeyjum, Grænlandi og Íslandi í fyrravetur. Verkið er eftir færeyska tónlistarmannin Teit en samið í samstarfi við kammersveitina Ensemble MidtVest, grænlenska söngvaskáldið Nive Nielsen og Ólöfu Arnalds, sem segir frá verkefninu í þætti dagsins. En við hefjum þáttinn á bókarýni. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í nýútkomna glæpasögu Jónínu Leósdóttur, Voðaverk í Vesturbænum. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Gamta – visų namai
Skiauterėtasis tritonas, įrašytas į Lietuvos Raudonąją knygą, gyvena Verkiuose

Gamta – visų namai

Play Episode Listen Later Aug 3, 2024 29:36

Pavilnių ir Verkių regioninių parkų direkcija, įsikūrusi Verkių dvaro sodyboje, saugo ir atkuria regioninių parkų gamtos ir kultūros paveldo vertybes, skatina pažintinį turizmą, propaguoja kultūros palikimą, kontroliuoja lankymą ir atlieka tyrimus bei tvarkymo darbus.Ved. Selemonas Paltanavičius ir Alvyda Bajarūnaitė

ved lietuvos knyg verki raudon selemonas paltanavi alvyda bajar pavilni
60 minučių
Jungtinės Valstijos atrišo rankas ukrainiečiams smūgiuoti Rusijos teritorijoje

60 minučių

Play Episode Listen Later Jun 21, 2024 53:02

Vokietijos kariai noriai vyksta į Lietuvą, interviu LRT RADIJUI sako Bundestago Gynybos komiteto vadovas Markusas Faberis.Kasdien pranešama apie sėkmingus ukrainiečių smūgius kariniams ir energetiniams taikiniams Rusijos teritorijoje. Jungtinės Valstijos anksčiau savo suteiktą ginkluotę leido naudoti tik prieš taikinius, iš kurių atakuojamas Charkivas, tačiau dabar tokių teritorinių apribojimų nebetaikys. Ar tai padės Ukrainai?Jungtinė Karalystė po mažiau nei dviejų savaičių rinksis prie balsadėžių, o apklausos kol prognozuoja istorinį rezultatą. Po 14 metų pertraukos leiboristai ne tik gali pakeisti konservatorius, tačiau ir užsitikrinti tvirtą daugumą parlamente. Ko galima tikėtis liepos 4-ąją?Lietuvos laivybos istorijoje atverstas naujas puslapis - duotas startas pirmojo šalies istorijoje vandeniliu ir elektra varomo laivo statybai. Jo užsakovė Klaipėdos valstybinio jūrų uosto direkcija. Laivas skirtas atliekoms tvarkyti.Šį savaitgalį Lietuva švęs Jonines. Vilniuje, Verkių rūmų parke, Rasos šventė prasidės jau netrukus. Čia laužai liepsnos jau dvidešimt penktą kartą.Ved. Liepa Želnienė

Víðsjá
Skjóta, hýbýlahollusta og Rótarskot

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jun 13, 2024 52:29

Skjóta nefnist ný íslensk ópera eftir Sigrúnu Gyðu Sveinsdóttur en hún var frumflutt í Ásmundarsal um síðustu helgi. Óperan fjallar um fótbolta og loftslagsbreytingar og hvernig hálfleikur í fótbolta getur verið myndlíking fyrir afmarkaðan tíma, til ákvarðanatöku, í loftslagsmálum. Verkið blandar saman nýklassískum söng og kraftmikilli danstónlist en leikur sér einnig með rýmið í Ásmundarsal á skapandi hátt. Við ræðum við Sigrúnu Gyðu í þætti dagsins. Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, verður einnig með okkur í dag og heldur áfram að fjalla um félagslegt húsnæði og hýbílaprýði hér á landi. Fjölmenningarsamfélag krefst nýrra orða, hugmynda og nálgana. Hvaða orð og hugtök skortir okkur til þess að fanga breyttan veruleika? Getur þróun tungumálsins haldið í við síbreytilegt samfélag? Þessum spurningum og eflaust mörgum fleiri verður velt upp í Eddu, húsi íslenskunnar, í tengslum við listahátið á sunndag. Viðburðurinn kallast Rótarskot og er einskonar stefnumót skálda með innflytjendabakgrunn og fræðafólks frá Árnastofnun. Rithöfundurinn Pedro Gunnlaugur Garcia, sem stýrir viðburðinum, verður gestur okkar í dag, og einnig flytur skáldið Ewa Marcinek ljóð.

Víðsjá
Gildi, Á milli mála, lýðræðisvæðing listanna

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jun 3, 2024 53:03

Við hefjum þáttinn á því að fara niður að Tjörn, þar sem þær Agnes Ársæls og Anna Andrea Winther sýna keramikskúlptúra í tengslum við Listahátíð í Reykjavík. Verkið, sem þær kalla Milli mála er hluti af stærra rannsóknarverkefni þar sem þær rannsaka samband manns við umhverfi sitt og stigveldið sem birtist í fagurfræði og framkomu okkar við dýr. Listamennirnir segjast pínu hræddir um afdrif verkanna við Tjörnina, svona í ljósi sögunnar, en hvað sem gerist verði væntanlegar uppákomur alltaf hluti af verkinu sjálfu. Það vildi einmitt til að í miðju viðtali var reynt að stela hluta verksins svo óhætt er að segja að það sé í stöðugri vinnslu. Freyja Þórsdóttir heimspekingur verður einnig með okkur í þætti dagsins. Í dag fjallar Freyja um gildi og siðferðilegt hugrekki, meðal annars með vísun í Rosu Parks, Audre Lorde og atburði í Reykjavík síðastliðin föstudag þar sem lögreglan beitti valdi gegn friðsömum mótmælendum. Síðastliðinn fimmtudag hélt breski menningarráðgjafinn Steven Hadley erindi í Norræna húsinu á vegum Háskólans á Bifröst. Erindið kallaði hann: Líkt og kynlíf og súkkulaði? - Menning, lýðræði og endalok listanna. Spurningar sem þar voru til grundavallar voru meðal annars: Hvernig hefur gengið að lýðræðisvæða listirnar? Er það eftirsóknarvert í sjálfu sér, eða er nóg að við segjum að allir hafi aðgang? Hafa allir jafnan aðgang að listum og menningu? Og hvað myndi það þýða ef svo væri? Við ræðum við Stephen Hadley í þættinum.

Lietuvos diena
Nacionalinio stadiono statybai galėjo būti pasiskolinta apie 120 milijonų eurų: kokie darbai padaryti?

Lietuvos diena

Play Episode Listen Later May 15, 2024 54:07

Prokuratūra pradėjo ikiteisminį tyrimą dėl COVID-19 vakcinų įsigijimo ir utilizavimo kiekių.Vilniaus miesto taryba šiandien svarstys Nacionalinio stadiono statybos koncesijos sutarties pakeitimus. Projekto kainą siekiama sumažinti beveik 20-čia tūkstančių eurų. Tačiau opozicija teigia, kad sutaupyti būtų galima kelis milijonus. Tuo metu Viešųjų pirkimų tarnyba nustatė, kad už projektą atsakinga įmonė, per trejus pastaruosius metus iš komercinių bankų galėjo pasiskolinti apie 120 milijonų eurų. Už paskolas šiemet teks sumokėti beveik 10 milijonų eurų palūkanų. Tarnybai kyla klausimas, kokie darbai buvo padaryti už šiuos pinigus.Valstybinės teritorijų planavimo ir statybos inspekcijos pareigūnai įpareigojo atkasti galbūt nelegalų pastatą buvusio nušalintojo prezidento Rolando Pakso patarėjo Jurijaus Borisovo valdose.Sakartvelui priėmus prieštaringai vertinamą „užsienio įtakos“ įstatymą, šalyje tęsiasi protestai.Ukraina teigia kai kur Charkivo srityje atitraukusi karius.Statistika rodo, kad Lietuvoje pusė žmonių miršta nuo širdies kraujagyslių ligų ir mirtingumas yra vienas didžiausių Europos sąjungoje. LRT GIRDI aiškinasi kiek ši statistika tiksli, nes anot medikų, tokios mirties priežasties kaip senatvė Lietuvoje nėra, todėl gydytojai dažnai konstatuoja, kad pacientas mirė nuo širdies sutrikimų. Ar tai nėra statistikos klastojimas?Vilniuje, Verkių dvarvietės teritorijoje, archeologai aptiko XIII–XIV amžių kapus.Ved. Andrius Kavaliauskas

Víðsjá
Hundrað þúsund, Í tíma og ótíma og Híbýlaauður

Víðsjá

Play Episode Listen Later May 7, 2024 52:49

Óperan Hundrað þúsund var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu um liðna helgi. Verkið, sem þær Kristín Eiríksdóttir og Þórunn Gréta Sigurðardóttir byggja á gamla Grimmsævintýrinu um spunakonurnar, fjallar um ástandið í samtíma okkar og misskiptinguna sem það ástand skapar. Neyslukapphlaup, stéttaskiptingu og viðhorf til vinnu. Við ræðum við leikstjórann Salvöru Gullbrá Þórarinsdóttur og tónskáldið Þórunni Grétu í þætti dagsins. Við lítum einnig við inn í Hafnarborg þar sem sýningin Í tíma og ótíma opnar um næstu helgi. Þar er sjónum beint að margvíslegum birtingarmyndum tímans í verkum ‏þ‏‏riggja alþjóðlegra samtímalistakvenna, þeim Örnu Óttarsdóttur, Leslie Roberts og Amy Brener. Við ræðum við sýningarstjórann Ingunni Fjólu Ingþórsdóttur í þættinum. Hildigunnur Sverrisdóttir veltir fyrir sér arkitektónískum og hagrænum rannsóknum á húsnæðisuppbyggingu hér á landi. Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Plátubarrin
TEMAPLÁTAN 40: 'Private Dancer', Tina Turner, 1984

Plátubarrin

Play Episode Listen Later May 4, 2024 54:41

Private Dancer var tann fimta útgávan, sum Tina Turner legði navn til einmanna. Plátan kom í 1984 og varð hennara gjøgnumbrot sum solistur. Private Dancer gjørdi Tinu Turner kenda um allan heim, sølutølini, góðar 20 milliónir eintøk, prógva jú tað, og tað er eisini hennara best umtókta pláta nakrantíð. Verkið varð tilevnað í Bretlandi og fýra framleiðslueindir stóðu fyri tilrættaleggingini. Vit kunnu nevna Rupert Hine og Heaven 17 tónleikaran, Craig Marsh, ið eisini var tann sum tók stig til at fáa Turner úr Los Angeles til London at taka upp.

Lestin
Fimm fræknu á Fimmvörðuhálsi, ex.girls klára verkið

Lestin

Play Episode Listen Later Apr 30, 2024 58:19

Við ætlum í fjallgöngu. Fjallgöngu sem mögulega breytir öllu. Fimm vinkonur, fimm fræknar, fóru yfir Fimmvörðuháls seinasta sumar. Upptakan hefur setið ónsert í tölvunni síðan í júlí í fyrra. En nú er kominn tími til að skoða hvað gerðist þegar Fimmvörðuháls varð að Everest. Hljómsveitin ex.girls er í hópi áhugaverðustu rafsveita Reykjavíkursenunnar, og eftir margra ára vinnu leit fyrsta plata þeirra í fullri lengd dagsins ljós á seinni hluta síðasta árs. Platan heitir Verk og á henni leitast sveitin við að varpa ljósi á þetta mannlega og þetta hversdagslega, þetta grámyglulega, reglubundna, fallega og þetta íslenska. Guðlaugur og Tatjana litu við í hljóðveri í dag til að klára verkið. Lagalisti: Feel - Robbie Williams Tuscan Leather - Drake Jammin'- Bob Marley Buffalo Soldier - Bob Marley Fjallganga - Egill Ólafsson ex.girls - Æð ex.girls - 90 Oktan ex.girls - Hundrað í hættunni ex.girls - Vont er það venst ex.girls - Innri ytri ex.girls - Drepa mann ex.girls - Manneskja ex.girls - Halda áfram

Lestin
Gullslegnir útlagar, DJ Shadow, listamenn í forsetaframboði

Lestin

Play Episode Listen Later Apr 29, 2024 55:05

Listafólkið Snorri Ásmundsson og Elísabet Jökulsdóttir eiga það sameiginlegt að hafa boðið sig fram til embættis forseta Íslands. Snorri árið 2004 og Elísabet árið 2016. Elísabet stofnaði Mæðraveldi og fór á puttanum að safna undirskriftum, Snorri lenti í fjölmiðlaskandal sem sneri að fortíð hans. Að gefnu tilefni rifjum við upp framboðstímana. Davíð Roach Gunnarsson, tónlistargagnrýnandi Lestarinnar, fjallar um bandaríska plötusnúðinn DJ Shadow, sem hefur boðað komu sína hingað til lands í sumar. Útlagar eftir Einar Jónsson þykir brautryðjendaverk í íslenskri höggmyndasögu. Verkið hefur staðið við Hólavallakirkjugarð, á horni Hringbrautar og Suðurgötu, í um sextíu ár. Í síðustu viku var styttan spreyuð með gullhúð. Við ræddum málið við Jón Proppé, listheimspeking og gagnrýnanda.

Víðsjá
Eftirpartí, Draumadoc, ást og ástarsorg í Róm

Víðsjá

Play Episode Listen Later Apr 9, 2024 52:13

Ásrún Magnúsdóttir og Forward Youth Company frumsýna verkið Eftirpartí í Tjarnarbíói á fimmtudag. Verkið semur hún líkt og svo oft áður, í samstarfi við dansara verksins, en verk Ásrúnar miða að því að teygja á ríkjandi hefðum innan dansins t.d með því að vinna með fólki sem vanalega dansar ekki, ásamt því að beina sjónum að röddum og líkömum sem komast vanalega ekki upp á svið. Við hittum Ásrúnu tvo meðlimi Forward Youth Company í þætti dagsins. Einnig hugum við að myndlistasýningunni Draumadoc úr smiðju Steingríms Dúa Mássonar, kvikmyndagerðarmanns. Sýningu sem opin er á Facbook og er unnin upp úr draumum Steingríms. Og Jakub Stachowiak, rithöfundur, heldur áfram pistlaröðinni Hjartabrostnar borgir þar sem hann segir frá ferðalagi sem hann hélt í síðasta sumar til Rómar að skrifa skáldsögu og jafna sig á ástarsorg.

Lestin
3 Body Problem og Rómeó hjarta Júlía

Lestin

Play Episode Listen Later Apr 2, 2024 56:25

Vinsælasta þáttaröðin á íslenska Netflix síðan fyrir páska, er átta þátta sería sem nefnist 3 Body Problem - Þriggja hnatta vandinn. Hér er á ferðinni aðlögun á fyrstu bókinni af þremur úr margrómuðum vísindaskáldsagnaflokki, Remembrance of Earth's Past eftir hinn kínverska Cixin Liu. Ingi Markússon, rithöfundur og trúarbragðarfræðingur, er mikill aðdáandi þessara bóka. Svo kíkjum við í heimsókn á æfingu í Borgarleikhúsinu. Íslenski dansflokkurinn er að æfa sýninguna Rómeó hjarta Júlía, eftir þær Ernu Ómarsdóttur og Höllu Ólafsdóttur. Verkið var frumflutt í október 2021 á Stóra sviði leikhússins, nú á að setja það upp á Nýja sviðinu, færa áhorfendur nær, nær vessunum, öskrunum og ástinni.

Lestin
Vampírur á Músíktilraunum og Björk, að sjálfsögðu

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 18, 2024 54:46

Nú á laugardaginn var íslenska leikritið And Björk of course sýnt í síðasta skipti í Samkomuhúsinu á Akureyri, að minnsta kosti í bili. Næst á dagskrá er að setja verkið upp í Borgarleikhúsinu, eftir Páska. Verkið er skrifað af Þorvaldi Þorsteinssyni rithöfundi, leikskáldi og myndlistarmanni, frumsýnt árið 2001 í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. 2004 kom út sjónvarpsmynd, þá var leikstjórn í höndum Lárusar Ýmis Óskarssonar. Og nú er verkið í höndum leikstjórans Grétu Kristínar Ómarsdóttur. Rúm tuttugu ár eru liðin, hvað hefur breyst? Við ræðum sértrúarsöfnuði og ákallið í verkinu við leikstjórann Grétu og leikkonuna Maríu Hebu Þorkelsdóttur sem fer með hlutverk Ástu í verkinu. En við byrjum í Hörpu. Það var margt um dýrðir í Norðurljósasal Hörpu síðastlðið laugardagskvöld á Úrslitakvöldi Músíktilrauna, sem haldnar voru í fertugasta sinn í ár, fjörutíu og tveimur árum eftir að þessi merka hátíð var fyrst sett á laggirnar 1982. Sigurhljómsveitin í ár heitir Vampíra, og leikur nístingskaldan, gotneskan svartmálm.

Plátubarrin
Temaplátan: 'NALJA', Elin & Kári, 1988 + prát við Elina um verkið

Plátubarrin

Play Episode Listen Later Mar 9, 2024 61:21

“NALJA útgávan var væl umtókt millum fólk í Føroyum síðst í 80'unum - ikki bara tí hetta var ein útgáva við góðum sangbærum poppløgum, sum fólk kundu dansa til, men eisini tí útgávan rakti beint niður í tíðarandan tá. 

Víðsjá
Hreinn Friðfinnsson, María Elísabet Bragadóttir, Íslensku myndlistarverðlaunin,Eitruð lítil pillla

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 29, 2024 51:19

Við hittum Styrmi Örn Guðmundsson myndlistarmann við verkið Klett eftir Hrein Friðfinnsson í þætti dagsins. Verkið var fyrst sett upp í Berlín 2017 en er nú til sýnis í Ásmundarsal. Hreinn fæddist á Bæ í Dölum 1943 og útskrifaðist frá Handíða- og myndlistaskóla Íslands 1960. Hann var einn af stofnendum SÚM hópsins og er oft kallaður einn af frumkvöðlum hugmyndalistar hér á landi. Hann fluttist til Amsterdam 1971 þar sem hann hefur búið allar götur síðan. Og þar starfaði Styrmir Örn með honum í rúman áratug. Í hádeginu var tilkynnt um þrettán tilnefningar til Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins og meðal tilnefninganna er bók Maríu Elísabetar Bragadóttur Sápufuglinn. Við tökum Maríu tali um verðlaunin og bókina í þætti dagsins. Einnig rýnir Nína Hjálmarsdóttir í söngleikinn Eitruð lítil pilla sem var frumsýndur var í Borgarleikhúsinu um liðna helgi. En við hefjum þáttinn á því að tilkynna hvaða listamenn eru tilnefndir til Myndlistarverðlauna Íslands.

Víðsjá
Ljósið og ruslið, D vítamín og Kafka

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 23, 2024 54:46

Sýningin D-vítamín verður opnuð gestum næstkomandi föstudag í hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur en þar kemur saman úrval upprennandi listamanna með glæný og nýleg verk í anda þeirrar hefðar sem mótast hefur í áralangri sýningarröð Listasafnsins í D-sal. Við náum tali af Aldísi Snorradóttur, og Björk Hrafnsdóttur, sýningarstjórum í þætti dagsins. Ljósið og ruslið er marglaga sviðs- og tónverk eftir Benedikt Hermann Hermannsson tónskáld og Ásrúnu Magnúsdóttur danshöfund en það verður frumsýnt í Tjarnarbíói núna á fimmtudaginn. Verkið er samið fyrir og flutt af kvennakór og hljómsveit, og samanstendur sýningin af 10 lögum sem hvert felur í sér sitt eigið sögusvið og hljóðheim. Við ræðum við Benna Hemm Hemm og Maríu Rán Guðjónsdóttur, útgefanda, sem er einn kórmeðlima. Við rifjum einnig upp erindi Snorra Rafns Hallssonar um Kafka, skrifræði og draumaland reglnanna og mun hann grípa niður í Réttarhöldin og bók bandaríska mannfræðingsins og anarkistans David Graeber, Utopia of rules.

Lestin
Lúna, tími heimilisþrifa, Á milli

Lestin

Play Episode Listen Later Jan 22, 2024 57:14

Við ræðum við Tyrfing Tyrfingsson leikskáld um nýtt verk hans, Lúna, sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu á dögunum. Verkið var orðið umdeilt löngu fyrir frumsýningu, vegna þess að í titli þess var nafn manns sem hlotið hefur dóm fyrir kynferðisbrot, verkið hét áður Kvöldstund með Heiðari snyrti. Guðrún Úlfarsdóttir er nýr pistlahöfundur í Lestinni. Í sínum fyrsta pistli veltir hún fyrir sér sambandi heimilisþrifa við línulega, kapitalíska tímaskynjun. Í október opnaði nýtt listamannarekið gallerý við Ingólfsstræti í miðbæ Reykjavíkur - Á milli. Katerina Spathi er ein þeirra sem sjá um rýmið. Lagalisti: Norah Jones - Unchained Melody Giovanni Venosta - Woman in Late The cleaners from venus - I fell in love with a cleaner Sault - Air Donnell Pitman - Burning Up

Víðsjá
Glæpur og refsing, Árstíðirnar og Pan Afrikan Peoples Arkestra

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 11, 2024 52:32

Í janúar mun Gunnar Þorri Pétursson, þýðandi og sjálfstætt starfandi fræðimaður bjóða upp á leiðsagnarnámskeið á Hótel Holti um bókina Glæpur og refsing eftir Fjodor Dostojevskíj. Við tökum Gunnar tali um bókina og höfundinn í þætti dagsins. Við fáum líka við til okkar þær Snædísi Lilju Ingadóttur og Valgerði Rúnarsdóttur sem frumsýna nýtt íslenskt dansverk í Borgarleikhúsinu um næstu helgi. Verkið er innblásið af árstíðum Vivaldis og í því mætast 20 ólíkir dansarar. Ólíkir, því þar er að finna bæði atvinnudansara og dansara sem eru á leið í atvinnumennsku, og svo leikara sem eru ástríðudansarar. Einnig kynnumst við hljómsveitinni Pan Afrikan Peoples Arkestra sem hefur verið starfandi í suðurhluta Los Angeles frá árinu 1961.

Víðsjá
Á eigin fótum, Fay Weldon

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 9, 2024 53:55

Um liðna helgi var leikverkið Á eigin fótum frumsýnt í annað sinn í Þjóðleikhúsinu. Verkið var fyrst sýnt 2017 í Tjarn­ar­bíói og hlaut það árið til­nefn­ingu til Grímu­verðlaun­a sem barna­sýn­ing árs­ins. Leikstjórinn Agnes Wild og búninga- og leikmyndahönnuðurinn Eva Björg Harðardóttir verða gestir okkar í þætti dagsins. Einnig rifjum við upp ársgamla umfjöllun um Fay Weldon þar sem þær Dagný Kristjánsdóttir og Elísa Björg Þorsteinsdóttir voru gestir þáttarins. Umsjón: Halla Harðardóttir

Víðsjá
Leyndarmál

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 16, 2023 55:00

Víðsjá fjallar um leyndarmál í dag. Við fáum til okkur danshöfundinn Ásrúnu Magnúsdóttur, höfund Leyndarmáls sem frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu í kvöld í tengslu við Reykjavík Dance Festival. Verkið byggir á leyndarmálum unglinga og með henni í för verða einmitt tveir slíkir, Monika Lárusdóttir og Andrea Sæmundsdóttir. Venting Machine er listgjörningur eftir Herdísi Hlíf Þorvaldsdóttur sem býður fólki að tjá líðan sína í texta og senda á tiltekið símanúmer undir nafnleynd en allar færslur sem sendar eru á númerið birtast síðan á Instagramsíðu listaverksins. Og Rakel Adolphsdóttir, safnstýra kvennasögusafns í þjóðarbókhlöðunni segir frá þeim leyndarmálum sem safninu berst.

Víðsjá
Leyndarmál

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 16, 2023

Vienkartinė planeta
Vienkartinė planeta. Ar pagrįstai vykdomi plynieji sanitariniai kirtimai?

Vienkartinė planeta

Play Episode Listen Later Nov 13, 2023 28:35

Visuomenės susirūpinimas dėl plynai kertamų vadinamosios II grupės ekosistemų apsaugai ir rekreacijai skirtų miškų kilo lapkričio pradžioje.Pasak miškininkų, tokie kirtimai būtini siekiant stabdyti miško kenkėjų plitimą. Bet visuomenininkų teigimu, visoje Lietuvoje išduoti šimtai leidimų, kurie suteikia teisę kirsti ir sveikus medžius atrodo nepagrįsti. Aplinkosaugos koalicija dėl to raštu kreipėsi į Aplinkos ministeriją ir kitas jai pavaldžias institucijas.Įvertinę viešoje erdvėje pasirodžiusią informaciją Vilniaus apygardos prokuratūra savo iniciatyva pradėjo tyrimą dėl galimo viešojo intereso pažeidimo vykdant sanitarinius kirtimus sostinės Verkių miške.Valstybinės miškų tarnybos teigimu, leidimai išduodami vadovaujantis teisės aktais ir įsitikinus, kad „toje vietoje nėra jokių buveinių ar saugotinų teritorijų ir kad kirtimus vykdyti galima.“Kirtimus vykdanti Valstybinė miškų urėdija socialiniuose tinkluose klausimus keliančius visuomenininkus pavadino „priešiškai nusiteikusiais“. Bet greitai suskubo atsiprašyti, susitiko su Aplinkosaugos koalicijos atstovais ir pažadėjo ieškoti sprendimų kartu.Tuo metu Aplinkos ministerija pripažįsta, kad Lietuvos miškuose vis dar vyrauja ūkinis požiūris.Autorė Vaida Pilibaitytė

Víðsjá
Hollvættir á heiði, Pilar Quintana og nostalgía

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 2, 2023

Kólumbíski rithöfundurinn Pilar Quintana kom til landsins í byrjun október og kom fram á litlum viðburði í Veröld, húsi Vigdísar en einnig dvaldi hún á Bifröst við skrif í rúma viku. Við náðum tali af henni á leiðinni aftur út og ræðum feril hennar og skrif í þætti dagsins. Snorri Rafn Hallsson heldur áfram pistlaröð sinni um Nostalgíu, eða fortíðarþrá og að þessu sinni leitar hann aftur fyrir fortíðina til augnabliksins sem tíminn sjálfur fór af stað. Við heyrum einnig af nýju íslensku leikverki, barnaleikritinu Hollvættir á heiði eftir Þór Tulinius, leikara og leikstjóra. Verkið verður frumsýnt í Sláturhúsinu á Egilsstöðum um næstu helgi. Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson

Víðsjá
Hollvættir á heiði, Pilar Quintana og nostalgía

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 2, 2023 55:00

Kólumbíski rithöfundurinn Pilar Quintana kom til landsins í byrjun október og kom fram á litlum viðburði í Veröld, húsi Vigdísar en einnig dvaldi hún á Bifröst við skrif í rúma viku. Við náðum tali af henni á leiðinni aftur út og ræðum feril hennar og skrif í þætti dagsins. Snorri Rafn Hallsson heldur áfram pistlaröð sinni um Nostalgíu, eða fortíðarþrá og að þessu sinni leitar hann aftur fyrir fortíðina til augnabliksins sem tíminn sjálfur fór af stað. Við heyrum einnig af nýju íslensku leikverki, barnaleikritinu Hollvættir á heiði eftir Þór Tulinius, leikara og leikstjóra. Verkið verður frumsýnt í Sláturhúsinu á Egilsstöðum um næstu helgi. Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson

Lestin
Kalt Stálbarn, Volruptus og Skeng, Ást Fedru

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 18, 2023

Þeir Bjargmundur Ingi Kjartansson, Volruptus, og Árni E. Guðmundsson, Skeng, eru í hópi íslenskra listamanna sem búsettir eru í Berlín. Báðir hafa þeir gert það gott á sviði raftónlistar. Steindór Grétar Jónsson kíkir í heimsókn í það sem kalla mætti félagsheimili íslenskra raftónlistarmanna í Berlín, eða íbúð Árna. Myndlistar- og tónlistarmaðurinn Karl Ställborn, sem einnig er söngvari rokksveitarinnar Skrattar, opnaði sýningu sína Kalt Stálbarn í Gallerí 1300° á Bergstaðastræti síðasta föstudag. Myndir Karls eru unnar með trélit á svartan pappír og þar mætast harka og mildi, rafmagn og fígúrur. Lestin leit við hjá honum þar sem hann var í óðaönn við að hengja upp verkin nokkrum tímum fyrir opnun. Við heyrum það hér á eftir. Katrín Guðbjartsdóttir skrifaði lokaritgerðina sína um ofbeldið í Ást Fedru, leikriti Söruh Kane frá árinu 1996. Verkið er í sýningu í Kassanum í Þjóðleikhúsinu í leikstjórn Kolfinnu Nikulásdóttur. Við ræðum ofbeldið og sýninguna við Katrínu.

Lestin
Kalt Stálbarn, Volruptus og Skeng, Ást Fedru

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 18, 2023 55:00

Matthew Barney, Úlfur Eldjárn, Ísak Harðarson

Víðsjá

Play Episode Listen Later May 15, 2023 55:00

Úlfur Eldjárn gaf út nýtt lag í síðustu viku og von er á plötu á næstunni. Lagið ber nafnið Continuum, og gefur forsmekk að því sem koma skal í nýrri plötu, Það er samið fyrir píanó og rafrænan hljóðheim sem er að mestu búinn til úr píanóhljóðum. Úlfur mun setjast við flygilinn í Hannesarholti á miðvikudag og flytja tónlist af væntanlegri plötu, með aðstoð tölvu, hljóðgervla og hljóðfetla og tveggja hljóðfæraleikara. Við setjumst niður með Úlfi í þætti dagsins og fáum að heyra af þessari nýju tónlist. Við könnum líka hvað bandaríski myndlistarmaðurinn Matthew Barney er að bardúsa þessa dagana. Á dögunum opnaði hann sýningu á nýju fimm rása myndbandsverki á vinnustofu sinni, eða öllu heldur í heilmiklu iðnaðarhúsnæði sínu, á Long Island við New York. Verkið hefur með frægt atvik úr bandaríska fótboltanum að gera, alvarlega tæklingu sem er orðin 45 ára og Barney tekur til skoðunar í nýju verki sem hann kallar Secondary. Við heyrum nánar af grófri tæklingu í Víðsjá dagsins. En við ætlum að hefja þáttinn á því að minnast Ísaks Harðarsonar, sem lést fyrir aldur fram síðastliðinn föstudag, þann 12.maí.

Víðsjá
Matthew Barney, Úlfur Eldjárn, Ísak Harðarson

Víðsjá

Play Episode Listen Later May 15, 2023

Mannlegi þátturinn
Íslensku abbadísirnar, Eitthvað rotið og úrkomuspjall

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 18, 2023 50:00

Steinunn J. Kristjánsdóttir fornleifafræðingur og prófessor við fornleifafræðideild HÍ talaði í síðustu viku á ráðstefnu um nýjar nálganir í Klausturrannsóknir í Norgður-Evrópu. Þar fjallaði hún um íslensku abbadísirnar í klaustrum landsins sem hún segir að megi vel setja í hóp merkustu Íslendinga á miðöldum. Þær eru sjaldan eða aldrei nefndar í innlendum sögulegum yfirlitum. Steinunn kom í þáttinn í dag og sagði okkur meira frá þessum merkilegu konum og starfsemi klaustranna í þættinum í dag. 10 ára afmælissýning söngleikjadeildar Söngskóla Sigurðar Demetz er söngleikurinn Eitthvað rotið! (Something Rotten!) sem fékk 7 Tony-tilnefningar á sínum tíma. Verkið er sett upp í fyrsta sinn á Íslandi í glænýrri þýðingu Orra Hugins og Þórs Breiðfjörð. Þetta verður fyrsta áhugamannauppfærsla í heiminum sem fær sýningarleyfi og líklega verður þetta með síðustu sýningum í Gaflaraleikhúsinu áður en það verður rifið. Þór Breiðfjörð kom ásamt Bergþóru Sól Elliðadóttur, nemanda sem tekur þátt í sýningunni, í þáttinn í dag. Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur kom svo til okkar í sitt vikulega veðurspjall. Undanfarið hefur veðrið verið milt og úrkoma, því fræddi Elín okkur meðal annars um úrkomutegundir, til dæmis skúri, rigningu og súld. Tónlist í þættinum í dag: Lóan er komin / Póló og Erla (James Bland og Páll Ólafsson Little one / Red Barnett (Haraldur V. Sveinbjörnsson) Don?t Get Around Much Anymore / Þór Breiðfjörð (Duke Ellington og Bob Russel) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Íslensku abbadísirnar, Eitthvað rotið og úrkomuspjall

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 18, 2023

Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar,Öllum hnútum kunnug, ímyndunarafl

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 1, 2023 55:00

Einn af hápunktum ársins í heimi hönnunar er hönnunarvikan í Stokkhólmi fer fram í febrúar ár hvert. Íslenskir hönnuðir kynntu þar áhugaverkt verkefni í þetta sinn, sem enn er til sýnis í Stokkhólmi, verk sem kallast Knowing the Ropes , eða Öllum hnútum kunnug. Verkefnið er unnið á mörkum hönnunar og myndlistar og skoðar táknræna vídd reipisins í norrænni samtímamenningu, en grunnur þess hverfist um tvær kaðlaverksmiðjur; Hampiðjuna í Reykjavík og Aarhus Possementfabrik í Danmörku. Brynhildur Pálsdóttir hönnuður verður gestur okkar í dag og segir okkur frá verkefninu og því sem hæst bar í Stokkhólmi. Og Freyja Þórsdóttir flytur sinn þriðja pistil á heimspekilum nótum. Að þessu sinni fjallar hún um ímyndunaraflið sem okkar merkilegustu og hættulegustu gjöf og hvaða áhrif það hefur á merkingarbær tengsl okkar við heiminn. En við byrjum í leikhúsinu. Leikhópurinn Alltaf í boltanum stendur að sýningunni Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar sem frumsýnd verður í Tjarnarbíó annað kvöld. Verkið skyggnist inn í hvernig enskir knattspyrnuleikir krydda líf fjögurra íslenskra karlmanna. Tilfinningar þeirra fá lausan tauminn og spennan, innan sem utan vallar, eykst með framvindu leiksins svo úr verður óútreiknanleg atburðarás sem spannar 90 mínútur. Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir leit við á æfingu leikhópsins og ræddi við leikstjórann, Viktoríu Blöndal og einn leikaranna, Albert Halldórsson. Umsjón: Halla Harðardóttir

Víðsjá
Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar,Öllum hnútum kunnug, ímyndunarafl

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 1, 2023

Dr. Phil hættur, ísskápsþrif og ástin í raunveruleikasjónvarpi

Lestin

Play Episode Listen Later Feb 2, 2023 55:00

Vetrarhátíð opnar í dag og stendur fram á laugardag, 150 viðburðir eru í boði fyrir fólk að kostnaðarlausu þar sem mikill fjöldi listamanna sýnir list sína. Einn viðburðurinn heitir Stríðið er raunverulegt / The struggle is real. Þar sýnir Curver Thoroddsen kvikmyndaverk í Höggmyndagarðinum við Nýlendugötu sem hann vann í samstarfi við rússneska kvikmyndagerðamenn. Ísskápurinn eru miðpunktur verksins og Curver sjálfur en hann er ekki í matarleit heldur bograr hann inn í skápinn vopnaður tusku og hreinsiefni. Verkið var gert í Moskvu skömmu fyrir Úkraínustríðið í kjölfar ritskoðunar á öðru verki listamannsins. Curver mætir um borð í Lestina í dag og segir betur frá. Ásdís Sól Ágústsdóttir hefur verið að horfa á raunveruleikasjónvarp um fólk í leit að ástinni og í pistli dagsins fjallar hún um það hvernig ástin birtist í slíkum þáttum, sem nóg er af á streymisveitum þessi misserin. Eftir 21 ár af æsingaráðgjöf um allt á milli himins og jarðar; megrun, vandræðaunglinga, missi, vímuefnanotkun, framhjáhald, og svo framvegis, hefur hinn vinalegi en strangi suðurríkjasálfræðingur Phil McGraw ákveðið að hætta með hina geysivinsælu þætti Dr. Phil. Við ræðum arfleifð þáttanna og sálgæslu í sjónvarpi við Salvöru Gullbrá Þórarinsdóttur og Ragnheiði Thorsteinsson.

Lestin
Dr. Phil hættur, ísskápsþrif og ástin í raunveruleikasjónvarpi

Lestin

Play Episode Listen Later Feb 2, 2023

Hlaðvarp Kjarnans
Í austurvegi – Sýndu þakklæti í verki 感恩图报

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later Dec 1, 2022 10:58

Sagan með málshætti dagsins er frá Vor- og haust tímabilinu, á 6. öld fyrir okkar tímatal. Þegar Dìng konungi af Zhèng bárust fregnir af yfirvofandi árás frá Wú-ríki varð hann skelfingu lostinn. Wú-herinn var þekktur fyrir styrk sinn og sömuleiðis Wǔ hershöfðingi sem leiddi herinn og var persónulegur vinur Sunzi (sem ritið Hernaðarlistin er eignað). Wǔ hershöfðingi hélt að þeirra biði auðveldur sigur en annað kom á daginn. Þátturinn er þýddur og birtur með leyfi Lazlo Montgomery hjá ©Teacup Media.

Góðan morgun Føroyar
VIDEO: Alla orku frá egnum verki

Góðan morgun Føroyar

Play Episode Listen Later Sep 6, 2022 1:16

verki orku
Dr. Football
Doc án Landamæra - Þótt þú hafir byggt loftkastala þarf verkið ekki að vera glatað

Dr. Football

Play Episode Listen Later Mar 22, 2022 55:58

Doc, Keli og Adam Ægir Pálsson fóru um víðan völl.

Heimsglugginn
Nóbelsverðlaunin, ís og loft frá 1765 á loftslagsráðstenunni í Glasgow

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Oct 7, 2021 20:36

Þessa vikuna er verið að tilkynna um þá sem fá Nóbelsverðlaunin, þau vekja alltaf mikla athygli en við leiðum ekki alltaf hugann að uppruna þeirra eða hvenær þau öðluðust þann virðingarsess sem þau hafa. Þetta ræddu Björn Þór Sigbjörnsson, Bogi Ágústsson og Guðrún Hálfdánardóttir í Heimsglugga vikunnar á Morgunvakt Rásar-1. Þá var einnig talað um listaverk eftir Wayne Binitie sem verður á Loftslagsráðstefnunni í Glasgow. Verkið heitir ,,1765-Loft frá Suðurskautslandinu." Listamaðurinn sýnir þar ís og loft sem fengið var af 110 metra dýpi í jöklinum á Suðurskautslandinu. Einnig var stuttlega minnst á þann möguleika að allir forsætisráðherrar Norðurlanda gætu verið konur þegar Magdalena Anderson tekur við af Stefan Löfven í nóvember. Kona hefur aldrei fyrr gegnt embætti forsætisráðherra í Svíþjóð. Erna Solberg er enn forsætisráðherra í Noregi þó að búist sé við að Jonas Gahr Støre taki við innan tíðar. Katrín Jakobsdóttir er sömuleiðis enn forsætisráðherra Íslands. Í Danmörku er Mette Frederiksen forsætisráðherra og Sanna Marin í Finnlandi.

Heimsglugginn
Nóbelsverðlaunin, ís og loft frá 1765 á loftslagsráðstenunni í Glasgow

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Oct 7, 2021