Tímaflakk eru leiknir gamanþættir úr smiðju Bjarna Töframanns, Eyvindar Karlssonar og Þórhalls Þórhallssonar. Fyrsta þáttaröðin var flutt á Rás 2 2006-2007. Önnur þáttaröð er framleidd fyrir internetin. Það gerir hana ekkert skárri.
Eftir að strákasveit Svarthjálmars liðast í sundur ákveður hann að ná heimsyfirráðum til að hefna sín.
Eyvindur og Bjarni svífast einskis til að eyðileggja strákasveit Svarthjálmars og Rakels, en það kemur til með að hafa skelfilegar afleiðingar.
Strákasveit Svarthjálmars stefnir að heimsyfirráðum. Geta Eyvindur og Bjarni stöðvað Svarthjálmar, Rakel, Þórhall og (einhverra hluta vegna) Ásráð áður en þeir ná heimsfrægð? Þurfa þeir að gera það? Varúð. Þórhallur syngur í þessum þætti.
Eftir tíu ára hlé heldur ófögnuðurinn Tímaflakk áfram, nú á netinu. Ævintýrið hefst á því að Svarthjálmar og Rakel, erkióvinir söguhetjanna, ákveða að stofna boyband. Á illska þeirra sér engin takmörk? Tekst vinum okkar að koma í veg fyrir að tónlistargjörningur Svarthjálmars dynji á umheiminum? Eða er úti um okkur öll? Fylgist með.
Svarthjálmar er að stofna nýja strákasveit, og Ásráður mætir í prufu. Sýnishorn úr nýrri þáttaröð af Tímaflakki.
001 Tímaflakkarar leggja í hann by Tímaflakk
Útvarpsþættirnir Tímaflakk hófu göngu sína á Rás 2 þann 2. nóvember 2006. Tíu árum síðar eru þeir enn jafn asnalegir.