POPULARITY
Þriðjudagur 4. febrúar Valdaumskipti á Alþingi, þýskar kosningar, hinsegin barátta, listir, trúmál og öryggi barna Helga Vala Helgadóttir lögmaður og fyrrum þingkona greinir þau miklu umskipti sem hafa orðið í valdatafli landsmanna með því að flokkar sem vanir eru að sitja í ríkisstjórn eru nú í stjórnarandstöðu og öfugt. Alþingi var sett í dag. Við höldum áfram að ræða um trúmál og fáum til okkar fulltrúa andans að Rauða borðinu, Davíð Þór Jónsson þjóðkirkjuprest og Sverri Agnarsson, fjölmiðlaráðgjafa og múslima. Þau ræða meðal annars aukna kirkjusókn, fordóma gagnvart trúarbrögðum, einn guð og feðraveldið. Auðunn Arnórsson stjórnmálafræðingur fer yfir stöðuna í þýskum stjórnmálum í aðdraganda kosninga. Auður Magndís, Ugla Stefanía og Íris Ellenberger ræða bakslag í hinsegin baráttu. Herdís Storgaard fjallar um öryggi barna og viðureignir við kerfið. Ólöf Ingólfsdóttir dansari og söngvari segir okkur frá endurkomu sinni í listina og ræðir verk sitt Eitthvað um skýin.
Reykjavík Dans Festival hefst með pompi og prakt á morgun, miðvikudag, og stendur yfir fram á sunnudag. Hátíðin var stofnuð árið 2002 og hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem einn af hápunktum menningarársins. Síðastliðin ár hefur reykjavík dance festival tengt sig við Lókal svo úr hefur orðið ein allsherjar sviðlistahátíð. Við tökum forsmekk á sæluna í þætti dagsins sem verður undirlagður undir dans. Listdans á sér rúmlega hundrað ára sögu á Íslandi, og nú gefst unnendum og áhugasömum tækifæri til að lesa um sögu danslistarinnar í glænýrri og veglegri bók sem ber titilinn Listdans á Íslandi. Þar rekur Ingibjörg Björnsdóttir, dansari, danshöfundur og sagnfræðingur, sögu þeirra sem ruddu braut listdansins hér á landi á síðustu öld og segir frá stofnun og starfsemi Listdansskóla Þjóðleikhússins. Saga Íslenska dansflokksins, barátta hans, andstreymi og sigrar, er síðan meginefni bókarinnar. Ingibjörg segir söguna af innsæi og þekkingu, enda sjálf þátttakandi í sögu danslistar á Íslandi í sjötíu ár, og hún lítur við í hljóðstofu í lok þáttar. Við hugum líka að tveimur nýjum dansverkum sem frumsýnd verða á hátíðinni, When a duck turns 18 a boy will eat her, eftir Birtu Ásmundsdóttur og Eitthvað um skýin, eftir Ólöfu Ingólfsdóttur. Birta rannsakar mörk kvenleikans með hjálp anda. Hugmyndin kviknaði í París, þar sem Birta, á ferð sinni ein um götur borgarinnar, upplifði hvernig karlmenn horfðu á hana á annan hátt en á Íslandi, og hvað það gat verið þreytandi. Í verkinu Eitthvað um skýin veltir Ólöf Ingólfsdóttir fyrir sér eðli og fjölbreytileika tilfinninga, sem svífa um vitundina og eins og ský yfir himininn. Verkið fléttar saman barokksöng og samtímadansi og markmiðið er að sögn höfundar að heiðra tilfinningar í öllum sínum myndum. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Libby Ran 04/11/2024 - Nordic Fairies - Frisco Beaver - פיות נורדיות 81 Cult Media - Call, No Response (Norway) MØ - Who Said (Denmark) Julie Ellinor - Neon Glow (Denmark) Fig Tape - Take A Walk (Norway) Namelle, andrews' - How It Started (Sweden, USA) Bless You - Home (Denmark) Kappekoff, Jimmy Smash - Warmth (Norway) Katori Walker, Ooyy - Next to You (USA, Sweden) between mermaids and me - Digital Ecstasy (Denmark) Emma Sehested høeg - We Grow (Denmark) Goat - Frisco Beaver (Sweden) Alberta Cross, Katie Melua - Lucy Rider (Acoustic) (Sweden, UK) Anna Ternheim - Orkanen (Sweden) Sigurður Guðmundsson, Björgvin Halldórsson - Eitthvað til að taka með (Iceland) Sjana Rut - Er ég sá þig (Iceland) Sjana Rut - Sögur að handan (Iceland) Birds are better - Walking In The Air (Full Version) (Norway) DYVN, Kristoffer Eikrem - Talk about the weather (USA, Norway)
ClubDub-arinn og athafnamaðurinn Aron Kristinn mætti til okkar í kærkomið spjall, stútfullt af pælingum og vísdómsorðum. Hann er upplýstur, hann horfist í augu við óttann, hann tekur ákvarðanir og stendur við þær. Eitthvað fyrir alla í þessu eyrnakonfekti úr smiðju Undralandsins. Verið góð hvert við annað.
Umsjón: Heiða Eiríks. Plata þáttarins var Your joyous future með hljómsveitinni Muck. Eitthvað af splunkunýju rokki af ýmsum stærðargráðum, til dæmis lag með Drunga sem var að gefa út sína fyrstu breiðskífu og lag af væntanlegri plötu hljómsveitarinnar Castle Rat. Frumflutningur á nýju lagi með Dys sem tekið var upp á tónleikum fyrir nokkrum vikum. Óskalög rokkþystra hlustenda. Lagalisti: Ham hljómsveit - Demetra Spacestation - Sickening Robert Fripp - Breathless Velvet Underground - I'm waiting for the man Muck - Here comes the man (af plötu þáttarins) I Adapt - Sinking ship Rammstein - Du hast Drungi - Þoka Black Sabbath - Sabbath bloody sabbath Ozzy Osbourne - Hellraiser Friðryk - Í kirkju Alice in Chains - It ain´t like that Nirvana - Heart-shaped box Led Zeppelin - Nobody's Fault But Mine Dys - Ég sé sýnir Testament - Careful what you wish for (óskalag úr símatíma) Skid Row - 18 And Alive (óskalag úr símatíma) Muck - My city (af plötu þáttarins) And You Will Know Us By The Trail Of Dead - Another morning stoner Castle Rat - Fresh Fur Rainbow - Since you been gone Siouxsie and the Banshees - Helter Skelter Jesus and Mary Chain - Reverence The Stranglers - Nice 'N' Sleazy Kyuss - Green Machine Iron Maiden - The Clairvoyant
Það eru tíu dagar núna í það að Besta deildin fari af stað! Í dag tökum við fyrir Vestra í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net. Fréttamaðurinn Aron Guðmundsson og Sigurgeir Sveinn Gíslason, goðsögn hjá félaginu, mættu til að fara yfir málin. Þá er Benedikt Warén á línunni í seinni hlutanum en hann skrifaði undir þriggja ára samning við Vestra fyrir síðasta tímabil og hjálpaði liðinu að komast upp.
Viktor Unnar Illugason var á sínum tíma einn efnilegasti fótboltamaður Ísland en í dag er einn efnilegasti þjálfari landsins. Viktor hefur starfað sem yngri flokka þjálfari hjá Breiðabliki undanfarin ár en var í vetur ráðinn til Vals. Þar stafar hann sem þjálfari 2. flokks og 4. flokks, en er einnig með puttana í meistaraflokknum. Viktor Unnar settist niður með Baldvini Má Borgarssyni, fréttamanni Fótbolta.net, eftir leik Vals gegn ÍA í Lengjubikarnum í gær þar sem hann spjallaði um leikinn og sinn metnað í þjálfun.
Aukasendingin fékk Hundtryggan Hraunar Karl og Óla Dós í heimsókn til þess að ræða fréttir vikunnar, síðustu umferð í Subway deild karla, brotthvarf Helenu, fyrstu leiki undankeppni EuroBasket 2025, hvaða þjálfarar væru góðir leikmenn og margt, margt, margt fleira.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway og Lengjunnar.
Kæru Pyngjuhálsar. Það má með sanni segja að þáttur dagsins sé stappaður af djús. Addi segir frá nýju verkefni - Auratal, Fréttir vikunnar krufnar, Launþegi vikunnar, Iddi talar um hrávöruna appelsínusafa og fróðleik úr sjávarútvegi. Eitthvað fyrir alla í dag - góða helgi!
Kæru Undralendingar, þáttur dagsins er allskonar eins og við. Gleðilegan sunnudag.
Verið velkomin til helvítis. Í þætti vikunnar fjalla Arnór Steinn og Gunnar um sín fyrstu hughrif af DIABLO IV. Hann má flokka sem “hell simulator” eða bara sem “fjandi góður leikur.” Classar, bardagakerfi, útlit, spilun og margt fleira. Hér er á ferðinni einn andskoti skemmtilegur leikur. Ef þú ert eitthvað efins um að þetta sé fyrir þig – horfðu þá og við gerum okkar besta að breyta skoðuninni þinni. Hvað fannst þér um Diablo IV? Eitthvað sérstakt sem við eigum að taka fyrir í pt 2? Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano.
Síðasta umferðin fyrir landsleikjaglugga er að baki, ellefu umferðir búnar og allir hafa prófað að spila gegn öllum. Það er því boðið upp á heljarinnar hringborð að þessu sinni. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke, Sverrir Mar og Valur Gunnars fara yfir 11. umferðina í Thule stúdíónu og opinbera val á úrvalsliði Bestu deildarinnar hingað til. Lengjudeildarhornið, landsliðið, bit í 3. deildinni og Fótbolti.net bikarinn koma einnig við sögu.
Það er funheitt föstudagskaffið í dag og hefur sjaldan verið stappaðra. Fréttir vikunnar, Launþegi vikunnar, Neytendavaktin lítur dagsins ljós eftir frí, Hindenburg Research bregður fyrir aftur og við vitum ekki hvað og hvað. Sömuleiðis virðast matsölustaðir vera að ströggla en Arnar gat ekki látið ársreikningana í friði og þuldi upp meðaltals COGS+Laun úr veitingageiranum 2021 og guð má vita að það hefur ekki skánað. Eitthvað fyrir alla í dag svo látið þennan ekki fram hjá ykkur fara. Góða helgi.
Heiðrún Finnsdóttir er gestur Heilsuvarpsins. Heiðrún á ótrúlega sögu. Hún var 105 kg með vefjagigt, þunglyndi, liðagigt og kvíða og ákvað að snúa við blaðinu. Hún var búin að prófa alla kúra þegar hún fór í Polefitness og þaðan lá leiðin í Crosfit og er með Level 1 Crossfit þjálfararéttindi. Síðan hefur margt vatn runnið til sjávar og hún setti á fót hin geysivinsælu Allir geta eitthvað námskeiðin í Sporthúsinu þar sem allir eru velkomnir óháð getu og formi. Heiðrún er ótrúlega hláturmild, með dásamlega nærveru og í alla staði hlý og yndisleg maneskja sem vill hjálpa öðrum sem standa í sömu sporum og hún var og miðla af sinni reynslu. Við förum yfir söguna hennar og um víðan völl í þjálfun og mataræði. @heidrunfinnsdottir Heilsuvarpið er í boði NOW og Nettó @nowiceland @netto.is
Dominos
Steinunn J. Kristjánsdóttir fornleifafræðingur og prófessor við fornleifafræðideild HÍ talaði í síðustu viku á ráðstefnu um nýjar nálganir í Klausturrannsóknir í Norgður-Evrópu. Þar fjallaði hún um íslensku abbadísirnar í klaustrum landsins sem hún segir að megi vel setja í hóp merkustu Íslendinga á miðöldum. Þær eru sjaldan eða aldrei nefndar í innlendum sögulegum yfirlitum. Steinunn kom í þáttinn í dag og sagði okkur meira frá þessum merkilegu konum og starfsemi klaustranna í þættinum í dag. 10 ára afmælissýning söngleikjadeildar Söngskóla Sigurðar Demetz er söngleikurinn Eitthvað rotið! (Something Rotten!) sem fékk 7 Tony-tilnefningar á sínum tíma. Verkið er sett upp í fyrsta sinn á Íslandi í glænýrri þýðingu Orra Hugins og Þórs Breiðfjörð. Þetta verður fyrsta áhugamannauppfærsla í heiminum sem fær sýningarleyfi og líklega verður þetta með síðustu sýningum í Gaflaraleikhúsinu áður en það verður rifið. Þór Breiðfjörð kom ásamt Bergþóru Sól Elliðadóttur, nemanda sem tekur þátt í sýningunni, í þáttinn í dag. Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur kom svo til okkar í sitt vikulega veðurspjall. Undanfarið hefur veðrið verið milt og úrkoma, því fræddi Elín okkur meðal annars um úrkomutegundir, til dæmis skúri, rigningu og súld. Tónlist í þættinum í dag: Lóan er komin / Póló og Erla (James Bland og Páll Ólafsson Little one / Red Barnett (Haraldur V. Sveinbjörnsson) Don?t Get Around Much Anymore / Þór Breiðfjörð (Duke Ellington og Bob Russel) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Í gegnum tíðina höfum við farið yfir alls kyns hluti, hvort sem það eru lifandi eða dauðir hlutir, kenningar eða saga. Til að mynda hef ég fengið til mín sérfræðinga um skammtafræði, svarthol og kjarnorku en að einhverju leyti er hægt að segja að ég hafi byrjað á röngum enda. Því allir þessir hlutir, og þessar vísindagreinar byggja á einhverjum grunni. Sem hefur alltaf komið fram í þáttunum sjálfum en nú fannst mér kominn tími til að fara almennilega í málið og tala um eðlisfræði. Eitthvað sem við erum enn skylduð til að læra í grunnskóla, að minnsta kosti eftir því sem ég best veit, og fram til loka framhaldsskóla stendur okkur til boða að kafa enn betur í lotukerfið og hvaða merkingar búi að baki alls sem þar er. Það getur verið að eitt af því sem fældi mig frá efninu var að ég vissi ekki almennilega hvernig ætti að tala um eðlisfræði, því ég veit ekki nóg. En svo áttaði ég mig á því að það er tilgangur þáttarins, að vita ekki neitt og eiga möguleikann á því að læra meira. Svo ég náði að sannfæra Lárus Thorlacius til að koma til mín og fræða mig um til að mynda lotukerfið, muninn á eðlis og efnafræði, öreindahraðla í Cern og til hvers við erum að þessu öllu saman. Bara svo eitthvað sé nefnt. Þar sem spjallið okkar varð mun lengra en oft vill vera, sem er kannski eðlilegt þegar svona stór svið eru undir, þá skipti ég þættinum í tvennt. Það er líka fínt að matreiða þetta þannig, sumt sem kemur fram í þáttunum er gott að heyra, hugsa svo aðeins um áður en það koma fram nýjir hlutir sem þarf svo að hugsa meira um. Umsjón: Atli Már Steinarsson

Þristurinn ræðir viðtalið við Maté eftir leik gegn Val, erfiða baráttu liða um sæti í úrslitakeppni, hvort Keflavík séu einfaldlega að þykjast vera contenders í ár og margt, margt, margt fleira.Umsjón: Hinrik & RökkviÞristurinn er í boði Subway, Lykils og Kristalls
Ný ríkisstjórn Danmerkur hefur sýnt á spilin; stjórnarsáttmálinn var kynntur í gær. Breyta á heilbrigðiskerfi landsins, lækka hátekjuskatt og draga úr skrifræði. Bogi Ágústsson fór í saumana á áformum nýrrar stjórnar Mette Frederiksen í Heimsglugganum. Árið 2022 hefur einkennst af uppbyggingu víða á Vestfjörðum. Vestfirðir eru í sókn og stefnan er sett á að ná 10 þúsund íbúum á nýjan leik á næsta áratug eða svo. Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu sagði okkur frá áformum um fólksfjölgun og uppbyggingu. Heimsmeistaramótinu í fótbolta lýkur á sunnudag þegar úrslitaleikurinn milli Argentínu og Frakklands fer fram. Mótið er auðvitað sögulegt vegna hins umdeilda gestgjafa og svo er árstíminn óhefðbundinn. En hefur margt gerst á sjálfum fótboltavellinum sem mun rata í sögubækur? Eitthvað á borð við draugamark Englands í úrslitaleiknum 1966? Mark Maradona með hönd Guðs 1986? Eða viðskipti Zidans og Materazzi 2006? Við veltum því fyrir okkur með Stefáni Pálssyni fótboltasagnfræðingi. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Ps. I love you - Bítlarnir Julen är här - Tommy Körberg, Sissel

Fjallað var um viðbrögðin sem skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu ríkisins á hlut í Íslandsbanka í mars hefur fengið úti í samfélaginu og á Alþingi. Vilhjálmur Árnason, prófessor í heimspeki, fór fyrir vinnuhópnum sem skrifaði um siðferði í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um Hrunið. Hann kom í þáttinn og ræddi um stjórnmál og fagmennsku. Kosið var á dögunum í Miðbaugs-Gíneu. Sitjandi forseti, Teodoro Obiang, var endurkjörinn með nánast öllum greiddum atkvæðum. Hann hefur setið frá 1978 og leikið þjóðina grátt, mikil fátækt er í ríkinu og mannréttindi nánast engin en auður Teodoro og fjölskyldu gríðarlegur. Sagt var frá umfjöllun um úrslitaleikinn á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu árið 1958. Brasilía lagði Svíþjóð 5-2 og skoraði hinn sautján ára Pele tvö marka Brasilíumanna. Tónlist: Kling klang - Dátar, Bankaleynd - Einar Scheving, No words - Niel Diamond, Eitthvað undarlegt - Ríó tríó. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Þrír þættir á 7 dögum, tökum því! Yfirferð á leikviku 10 og spá fyrir leikviku 11 á sínum stað. Eitthvað fyrir alla. Tekið upp í Nóa Síríus stúdíóinu hjá Podcaststöðinni. BOLI-TUDDI! Ekkert eðlilega góður, spyrjið bara Val. Léttöl. Keiluhöllin í Egilshöll! Heimili NFL á Íslandi. Geggjað að sjá hvað Jardar og fleiri NFL hausar eru farnir að fjölmenna í Keiluhöllina. Jardatilboð og risaskjáir. What's not to love eins og maðurinn orðaði það.
Liz Truss forsætisráðherra Bretlands fékk ekki stuðning þingflokks íhaldsmanna og valdi sér fjármálaráðherra sem hunsaði hennar stefnu. Fall hennar má rekja til þess að mati Hjartar Guðmundssonar alþjóðastjórnmálafræðings, Ólöf Rún Skúladóttir talaði við hann. Eitthvað verður að gera til að sporna við banaslysum á Kirkjufelli segir landeigandi, en ekki sé auðvelt að banna fólki að fara á fjallið. Sólveig Klara Ragnarsdóttir talaði við Jóhannes Þorvarðarson, landeigenda og Bjarna Sigurbjörnsson bæjarfulltrúa í Grundarfirði. Mörgum skipulögðum brotahópum hér á landi er stýrt af Íslendingum sem eru búsettir erlendis. Þrýstingur við landamærin hefur aukist, að mati greiningardeildar ríkislögreglustjóra. Pétur Magnússon sagði frá. Allir sakborningarnir í saltdreifaramálinu svokallaða voru sakfelldir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Tveir fengu þyngsta dóm sem lög leyfa. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman. Brestir eru þegar komnir í samstöðu nýrrar hægri stjórnar sem enn hefur ekki tekið við völdum á Ítalíu. Ítalskir miðlar greindu í dag frá leynilegum upptökum þar sem Silvo Berlusconi, lykilmaður innan stjórnarinnar, lofsamar Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Alexander Kristjánsson sagði frá. ------------ Snarpir pólitískir vindar hafa blásið í Bretlandi síðustu vikur og mánuði. Segja má að þeir hafi náð styrk fellibyls í dag þegar Liz Truss forsætisráðherra tilkynnti afsögn sína í beinni sjónvarpsútsendingu í hádeginu. Ásgeir Tómasson tók saman. Heyrist í . Til að rjúfa pattstöðu í stjórnarskrármálinu gæti þurft að taka skref til baka og hugsa um hvernig eigi að breyta stjórnarskrá í stað þess að festast í deilum um hvað eigi að standa í henni að mati Ragnars Hjálmarssonar doktors í stjórnarháttum. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann. Fyrir liggja áætlanir gegn einelti en þrátt fyrir það gengur illa að losna við þetta mein úr skólum og tómstundum barna. Í gær sagði ung stúlka sögu sína í fréttum, en einelti gegn henni gekk svo langt að hún reyndi að svipta sig lífi. Og dæmin eru mýmörg. Þorlákur Helgi Helgason er framkvæmdastjóri Olweusaráætlunarinnar, sem notuð er innan skóla til að vinna gegn einelti Bjarni Rúnarsson talaði við hann. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar fréttahluta: Valgerður Þorsteinsdóttir.

ROOOOODNEEYYY loksins mættur á le beach ! Við elskum fáa jafn mikið. Eitthvað um drama, mætti vera meira en jæja! Vika tvö á enda.
Menn urðu þöglumæltir í lok þáttar eftir vikuna sem leið. Auður er víst kominn aftur þökk sé meirihluta samfélagsins. Frægð er tímalína sem þú velur hversu hratt þú brennir, kynlöngun Íslendinga og kynlífsverkfalls vegna kjötáts. Er kolefnisspor karla hærra en kvenna, lögregludagbók og meiri rjóma í kaffið. Við erum jú hér fyrir þig. Góða skemmtun !
Hjálmar er kominn frá Tenerife þar sem hann kynntist mafíósa. Hann öðlaðist virðingu þeirra sem sáu hann loftboxa þegar hann fór að skokka á morgnana. En í ferðinni fékk hann sér 8 bjóra og 3 tekílaskot fyrir fjölskyldumyndatöku. Helgi segir frá laginu "þú hélst að það kæmi sumar í ár" sem mætti fá meiri hlustun á Youtube.IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
Spekingar mættu í studíó á þessum helgidegi. Sesi þó löglega afsakaður en góður gestur í hans stað. Matti með slúðrið að þessu sinni, mjög Frægar línur, Hvort myndir þú frekar og Gull Lite testið. Eitthvað fyrir alla. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
Hvað er goon? Ungi rapparinn Daniil er fyrrum goon en hann gaf á dögunum út lag, Ef þeir vilja beef, sem gladdi eflaust marga íslenska goons. Við rýnum í orðaforða ungu kynslóðarinnar í gegnum rapptexta Daniils. Þegar við lesum texta er það fyrst og fremst innihaldið sem við einbeitum okkur að. En til að merking orðanna komist hiklaust til skila þarf textinn að vera lesanlegur og læsilegur. Allt þarf að samsama sér: bókstafir, stafabil, orð, orðabil, línur, línubil og dálkar. Eitthvað sem venjulegt fólk veltir sjaldan fyrir sér. En nú getur þetta sama venjulega fólk lesið um þetta í lítilli fallegri bók sem kom út hjá Angústúru á dögunum, Fínir drættir leturfræðinnar eftir Svisslenska hönnuðinn Jost Hochuli. Bók sem var fyrst gefin út árið 1987 en hefur nú verið þýdd á íslensku af Birnu Geirfinnsdóttur, Marteini Sindra Jónssyni og Gunnar Þór Vilhjálmsson. Þau tvö fyrrnefndu segja frá í Lestinni. Og við pælum í nýju lagi og myndbandi frá Kendrick Lamar, The Heart part 5, sem kemur í aðdraganda nýrrar breiðskífu frá rapparanum og Pulitzer-verðlaunahafanum, plötu sem kemur út á föstudag og nefnist Mr. Morale & the Big Steppers.

Lenya Rún Taha Karim er fimmti yngsti varaþingmaður í sögu Íslands og hefur verið nokkuð áberandi undanfarna mánuði eða frá því hún var kosin inn á þing en datt svo út eftir talningaklúður. Lenya á kúrdíska foreldra og hefur vegna þess og húðlitar síns fengið að upplifa fordóma, þjóðernishyggju og andúð á eigin skinni. Við ræðum þó ekki bara rasisma heldur einnig stéttaskiptingu, pólitíkina, mikilvægi samtals milli grasrótar, aktívista og stjórnmála, kúrdíska blóðið og kröfuna sem Lenya hefur upplifað að þurfa að velja á milli hvaða hluta hún megi gangast við í sjálfri sér. Af hverju hún geti ekki fengið að vera bæði íslensk og kúrdísk og útensk og hinsegin. Eitthvað sem, að hennar sögn, hávær minnihluti þjóðarinnar elskar að hata. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) The Body Shop, Dominos, Veganbúðin og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.

HVAÐ ER ÞETTA? Eitthvað það rosalegasta handrit sem við höfum heyrt af allavega! Förum yfir uppsetningu þáttana, keppendur og hvað gerist í þessu annars ágæta skemmtiefni!
Nei, ég get nú ekki sagt að ég sé sáttur við þessa spá. Við sýndum í fyrra að við erum með sterkt lið. Ég er allavega ekki sammála þessu orðum það þannig," sagði Ásgeir Sigurgeirsson, fyrirliði KA, í viðtali við Fótbolta.net í dag. Tilefni viðtalsins var spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina en KA er spáð 7. sætinu í sumar.
Hákon Pálsson kvikmyndagerðamaður og ljósmyndari ætlaði að gera heimildamyndaseríu um Hótel Sögu þegar hann komst að því, nýfluttur til landsins eftir langa dvöl erlendis, að byggingin hafði verið mannlaus í marga mánuði. Eftir að hafa eitt þar heilum degi með myndavél komst Hákon að því að hann er mögulega lélegur heimildaljósmyndari. Eitthvað annað en skrásetningu sögunnar var að finna á myndunum, eitthvað óræðara. Og sú útkoma er nú til sýnis í Gallerí Port, undir nafninu Hótel Saga: Óstaður í tíma. Við ræðum við Hákon í þætti dagsins. Skáldsagan Miðnæturbókasafnið eftir breska rithöfundinn Matt Haig segir frá Noru Seed, ungri konu sem er komin að bjargbrúninni í lífinu. Hún hefur misst atvinnuna og köttinn sinn, slitnað hefur upp úr sambandi við hennar nánustu fjölskyldu og vini og Nora er á fremsta hlunn með að velja dauðann þegar til sögunnar kemur bókasafn sem snýr öllum hennar hugsunum á hvolf. Á safninu, sem er einhversstaðar milli tilvistarstiga, gefst Noru að lesa sér til um allar þær ótal útgáfur af sinni eigin ævi sem hefðu orðið. Miðnæturbókasafnið kom út í ágúst 2020 og var vel tekið. Hún náði fljótlega á lista margra af stærstu dagblaða heims yfir metsölubækur og hefur tilnefnd til hinna ýmsu bókmenntaverðlauna. Bókin kom út hér á landi fyrir aðeins örfáum vikum, í íslenskri þýðingu Valgerðar Bjarnadóttur og hún verður gestur Víðsjár hér á eftir. Snorri Rafn Hallsson, pistlahöfundur í Vín, býður okkur aftur velkomin á skrifstofuna. Í viðtali um helgina sagði Helgi S Gunnarsson, forstjóri fasteignafélagsins Regins, að þörfin fyrir skrifstofuhúsnæði hafi ekkert minnkað eftir faraldurinn, fólk muni ekki halda áfram að vinna heima í stórum stíl. En átti heimavinna ekki að vera framtíðin? Hvers vegna breyttist ekki neitt? spyr Snorri og segir okkur frá bókinni Out of Office - the big problems and bigger promise of working from home, eftir Anne Helen Peterson og Charlie Warzel. En við hefjum þáttinn í dag á því að fá til okkar ungan einleikara sem er með tónleika í Salnum í kvöld. Ernu Völu Arnardóttur. Umsjón: Halla Harðardóttir og Jóhannes Ólafsson.

Hvað erum við að fjalla um? Við erum ekki einu sinni viss. Eitthvað er minnst á Disney kontróversíur, don't say gay, og samsæriskenningar í Drag Race. Og Jenny er með Covid btw.
GDRN eða Guðrún Ýr Eyfjörð tónlistarkona og leikkona virðist gædd einhverri náðargáfu. Hún semur texta, lög, spilar á fiðlu og píanó og bar uppi heila þáttaseríu í frumraun sinni sem leikkona. Við spjöllum um fjárhagsleg áhrif covid á tónlistarfólk, Kötlu ævintýrið og að verða skyndilega burðarstykki í Netflix seríu, fullkomnunaráráttuna og sjálfsvinnuna, konur í tónlist og þá tilhneigingu fólks að etja GDRN og Bríet upp á móti hvor annarri. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Þátturinn er í boði Veganbúðarinnar, Dominos, The Body Shop og bakhjarla Karlmennskunnar.

Björn Kristjánsson, leikmaður KR, er viðmælandi í níunda þætti af Undir Körfunni. Björn fer yfir leikferill sinn og öll liðin sem hann hefur spilað fyrir, bikar söfnun hjá KR og bestu augnablikin.Shawn Glover yfirgaf KR fyrir síðustu mánaðamót og Björn kemur inn á viðskilnað Glover við KR liðið. Björn ræðir einnig hvernig stemningin hafi verið hjá KR eftir einvígið gegn Val í úrslitakeppninni á síðasta tímabili og hvað bjargaði vinskap hans og Kristófer AcoxBjörn svarar einnig spurningum af Subway spjallinu og fer stemninguna í klefanum hjá KR. Ásamt því velur draumalið sitt af samherjum og úrvalslið í Subway-deild karla.Umsjón: Atli Arason Undir Körfunni er í boði Subway, Lykils og Kristalls.
Villi og Fjölnir eru ungir og til í útihátíð. Þeir hafa frétt af því að það sé eitthvað að gerast í Keflavík. Eitthvað stórt, eitthvað mikilfenglegt. Keflavík Music Festival, sæll! Sjá alla þessa artista! Vonandi mæta þau öll... eða hvað?
Í Heimskviðum vikunnar höldum við til Danmerkur og Ísraels. Það eru ekki bara minnkar sem rotna í Danaveldi, ó nei; það er fleira rotið í Danaveldi. Á sunnudagskvöld fyrir viku greindi danska ríkisútvarpið frá því að leyniþjónusta danska hersins, Forsvartes Efterretningstjeneste eða FE, hefði aðstoðað þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna, NSA, við njósnir á háttsettum stjórnmála- og embættismönnum í Frakklandi, Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi; þar á meðal njósnir á Angelu Merkel, kanslara Þýskalands og Emannuel Macron, Frakklandsforseta. Borgþór Arngrímsson, fyrrum fréttaritari RÚV í Danmörku, ræðir um þetta forvitnilega mál. Átta stjórnmálaflokkar í Ísrael undirrituðu í vikunni stjórnarmyndunarsamkomulag. Í næstu viku greiðir ísraelska þingið svo atkvæði um hvort þessi átta flokka stjórn verið nýja ríkisstjórnin í Ísrael. Flokkarnir átta skilgreina sig mjög víða á hinu pólitíska litrófi, og virðast fljótt á litið eiga fátt sameiginlegt. Eitt hafa þau þó komið sér saman um, það sem er í raun drifkrafturinn í þessu nýja stjórnarsamstarfi er að halda Benjamin Netanyahu frá völdum. En af hverju liggur þeim svona á að losna við manninn sem hefur verið forsætisráðherra landsins í tólf ár? Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Ég ætla að fá bland í poka fyrir 100kr. Og hvað viltu? Ég vil gulan ópal, frissa fríska, piparpúka og Gosa...þessi með aspartam takk! Eitthvað fleira? Ójá svo miklu miklu meira!