POPULARITY
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma. Árni Friðleifsson aðstoðaryfirlögregluþjónn í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu Björn Ingi Hrafnsson hlaðvarpsstjórnandi Grjótkastsins og aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar fór yfir pólitíska sviðið Símatími Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu félags fanga um dagskrá afmælisráðstefnu félagsins sem fer fram á morgun Atli Stefán Yngvason einn af þáttastjórnendum í hlaðvarpinu Tæknivarpið og samskiptastjóri Mílu um þriggja daga tæknipakkann Bjarni Þór Hannesson grasvallatæknifræðingur um Hybrid grasið á Laugardalsvelli og slátturrobota
Hollar skólamáltíðir fyrir loftslagið og líðan barna er yfirskrift málþings sem verður haldið þann 13. maí í samstarfi Menntavísindasviðs HÍ og Aldins, samtaka eldri borgara gegn loftslagsvá. Meginmarkmiðið er að varpa ljósi á tengsl hollra skólamáltíða, umhverfis og líðan barna í námi og starfi. Málþingið er öllum opið og séstakir gestir koma frá Finnlandi og Svíþjóð og lýsa reynslu sinni af fyrirkomulagi skólamáltíða . Laufey Steingrímsdóttir næringarfræðingur kom í þáttinn og sagði frá. Þörf fyrir samfélagsbreytingar 2025 er yfirskriftin á ráðstefnu og vinnustofum sem Geðhjálp stendur fyrir. Þar munu koma fram fyrirlesarar sem hafa beitt sér á alþjóðavettvangi fyrir breyttri nálgun í geðheilbrigðismálum, nálgun sem hefur skilað árangri. Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar kom til okkar í dag og sagði okkur meðal annars frá áfallameðvituðu fangelsiskerfi og fleiru sem rætt verður um á ráðstefnunni. Upplýsingar um ráðstefnuna má finna hér: https://socialchange.is/ Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og í korti dagsins talaði Magnús um Lundahlaupið, The Puffin Run eins og það heitir opinberlega, en það er nú að baki í Vestmannaeyjum og þótti takast einstaklega vel. Magnús segir frá því að hann missti gersamlega af öllu því tilstandi því hann var að fylgjast með úrslitaleiknum í snóker sem fór fram á sama tíma. Hann segir aðeins frá sögu þessa vinsæla leiks og ennfremur af helstu snókerstjörnu samtímans, Ronnie O'Sullivan sem Magnús segir að sé gallaður snillingur. Tónlist í þættinum í dag: Sjáumst aftur / Páll Óskar (Orlande de Lassus, texti Páll Óskar Hjálmtýsson) Vegbúi / Una Torfa og Elín Hall (KK) Stella í orlofi / Diddú (Valgeir Guðjónsson) Froðan / Jón Jónsson og Ragnar Bjarnason (Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, texti Ásgeir Sæmundsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Blaðamaðurinn Bjarni Helgason er gestur Helga og Kela
Einar Ingi og Gunnar Valur gerðu upp 21.umferð Olísdeildarinnar var gerð upp í Dominos stúdíóinu ásamt Stymma Klippara. Línur heldur betur farnar að skýrast en deildarmeistaratitilinn er ekki ennþá klár. Dagur Árni á leiðinni til Esbjerg?
Hannes Guðrúnarson fékk í upphafi þessa árs styrk úr Íþróttasjóði og Lýðheilsusjóði til að bjóða upp á borðtennisæfingar fyrir fólk með Parkinson en hann hefur starfað sem borðtennisþjálfari og dómari í allnokkur ár og þegar hann heyrði af því að borðtennis hefði jákvæð áhrif á fólk sem glímir við Parkinson ákvað hann að kynna sér málið betur. Hannes er með hóp sem hittist tvisvar í viku í TBR húsinu og hann vonar að borðtennis geti stuðlað að betra lífi hjá þeim því skjálftinn virðist alveg hverfa á meðan þau spila. Við kíktum á æfingu í TBR húsið og töluðum við Hannes þjálfara og Atla Þór sem glímir við Parkison. Georg Lúðvíksson kom aftur í þáttinn, eins og undanfarna mánudaga, með það sem við köllum fjármálin á mannamáli. Í dag ræddi hann um fjárfestingar og sparnað, hvernig er best að ávaxta peningana sína. Svo var það lesandi vikunnar, sem var í þetta sinn Bjarni Jónsson leikskáld, dramatúrg, leikstjóir, þýðandi og framleiðandi. Hann hefur komið að uppsetningu fjölda leikverka út frá framantöldum titlum, nú síðast var hann í hlutverki leikstjóra og dramatúrgs, eða leiklistarráðunautar, í uppsetningu leikritsins Innkaupapokanum, sem leikhópurinn Kriðpleir spinnur umhverfis veröld Elísabetar Jökulsdóttur og leikrit hennar „Mundu töfrana“. En Bjarni sagði okkur auðvitað frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Bjarni talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Min Kamp e. Karl Ove Knausgaard Jóhannes á Borg e. Stefán Jónsson Bækur Halldórs Laxness Leikrit William Shakespeare Tónlist í þættinum í dag: Léttur í lundu / Bítlavinafélagið (Karl Hermannsson) Húsið og ég / Grafík (Helgi Björnsson, Rafn Jónsson, Rúnar Þórisson, Örn Jónsson, texti Vilborg Halldórsdóttir) Uppboð / Valgeir Guðjónsson (Valgeir Guðjónsson, texti Jóhannes úr Kötlum) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Bjarni Benediktsson kveður stjórnmálasviðið um helgina þegar hann hættir sem formaður Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins í Laugardalshöll. Hver verður næsti formaður og hvað ætlar Bjarni að gera? Þá til Þýskalands, þar sem viðræður um myndun nýrrar ríkisstjórnar hófust í dag með fundi fulltrúa frá Kristilegum Demókrötum og Sósíaldemókrötum. Friedrich Merz, leiðtogi Kristilegra demókrata vill ljúka þessum viðræðum fyrir páska; það liggur á, segir hann, að styrk stjórn taki við völdum, ekki síst á viðsjárverðum tímum í Evrópu og annars staðar í heiminum.
Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni var enginn annar en Bjarni Arason söngvari sem tók þátt í Söngvakeppninni um síðustu helgi og stóð sig glimrandi vel. Bjarni va elsti þáttakandinn í ár og lagið sem hann söng, Aðeins lengur, mun hann sennilega syngja aðeins lengur því síminn hefur varla stoppað hjá Bjarna eftir keppnina. Bjarni hóf feril sinn mjög ungur, söng 16 ára Elvis lög í sjónvarpi og vann ári síðar söngvakeppnina Látúnsbarkann og varð landsfrægur á augabragði. Við fórum með Bjarna yfir söngvasviðið og lífið í þættinum. Matarspjallið var svo að helgað bolludeginum og sprengideginum sem eru eftir helgi. Það skoðuðum við eilífðarspurninguna; hvort ertu vatnsdeigs- eða gerbollur betri? Og eru allir spenntir fyrir saltkjöti og baunum? Bollur, saltkjöt og túkall í matarspjalli dagsins með Sigurlaugu Margréti. Tónlist í þættinum í dag: Hringur og Bítlagæslumennirnir / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon, Valgeir Guðjónsson og Egill Ólafsson) Aðeins lengur / Bjarni Arason (Jóhann Helgason, texti Björn Björnsson) Beautiful Maria / Bjarni Arason (Robert Kraft, texti Arne Glimcher) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
In this episode, we take you on an adventure far north—beyond Norway, all the way to Iceland! Host Markus Raupach sits down with two fascinating guests: Bjarni Kristjánsson, a professor at Hólar University and founder of the Icelandic Beer Centre, and Zophonías Jónsson, a molecular biologist and brewing enthusiast. Together, they unravel the unique history of Icelandic beer—from Viking-age brewing to the surprising effects of prohibition that lasted until 1989. We dive into Iceland's vibrant modern beer scene, the rise of microbreweries, and the impact of climate change on local barley production. Plus, we explore how a love for beer sparked a brewing revolution on this remote island! Recorded at the Farmhouse Beer Festival in Norway, this conversation is packed with history, humor, and insider insights into the world of Nordic brewing. Whether you're a beer lover, a history buff, or just curious about Iceland's liquid gold, this episode is for you!
Samtökin '78, Félag íslenskra teiknara og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs standa nú fyrir samkeppni um tákn fyrir kynhlutlaus rými, svo sem salerni, búningsklefa, sturtuaðstöðu o.fl. Fimm ár eru liðin frá því að lög um kynrænt sjálfræði voru samþykkt og Ísland er fremst í flokki hvað varðar lög sem þessi. Hins vegar er vandað og skýrt tákn fyrir kynhlutlaus rými enn ekki til. Samtökin '78 fá margar fyrirspurnir frá fyrirtækjum og stofnunum varðandi táknnotkun, bæði hérlendis og erlendis frá. Anton Jónas Illugason, formaður Félags íslenskra teiknara og Magnús Bjarni Gröndal rekstrarstjóri samtakanna 78 komu í þáttinn í dag. Georg Lúðvíksson, sérfræðingur í heimilisfjármálum, var hjá okkur í dag eins og undanfarna mánudaga með það sem við köllum Fjármálin á mannamáli. Í þetta sinn ætlar hann að velta fyrir sér fjárhagslegu uppeldi og koma með einhver góð ráð í þeim málum. Lesandi vikunnar í þetta sinn var svo Birta Björnsdóttir fréttakona, hún setti sér markmið fyrir nokkrum árum að lesa visst margar bækur á ári, en þurfti svo aðeins að endurskoða þau markmið. Við heyrðum betur af því og svo sagði hún okkur auðvitað frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Birta talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Líkami okkar, þeirra vígvöllur e. Christinu Lamb Sjö fermetrar með lás e. Jussi Adler Olsen Bókasafn föður míns e. Ragnar Helga Ólafsson Isabel Allende, og Hús andanna Einar Kárason, Óvinafögnuður, Killiansfólkið, Djöflaeyjan og Gulleyjan. Tónlist í þættinum í dag: Stúlkan / Todmobile (Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og Andrea Gylfadóttir) Svarthvíta hetjan mín / Dúkkulísur (Gréta Jóna Sigurjónsdóttir) Hún ógnar mér / Flott (Ragnhildur Veigarsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Sunnudagurinn 2. febrúar Synir Egils: Nató-krísan, verkföll, sparnaður, styrkir og VR Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Andrea Sigurðardóttir blaðakona á Morgunblaðinu, Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingkona Samfylkingarinnar og Eva H. Önnudóttir prófessor í stjórnmálafræði og ræða frérttir vikunnar og stjórnmálaástandið. Þeir bræður taka líka púlsinn á pólitíkinni og fá svo frambjóðendur til formanns VR til að ræða félagið, verkalýðsbaráttuna og stöðu launafólks: Bjarni Þór Sigurðsson stjórnarmaður í VR, Flosi Eiríksson viðskiptafræðingur, Halla Gunnarsdóttir formaður VR og Þorsteinn Skúli Sveinsson sérfræðingur hjá Byko setjast að Rauða borðinu.
Það er talið að í dáleiðsluástandi getum við leyst úr ýmsum vandamálum og heilað okkur. Dáleiðararnir og mæðgurnar Ásdís Olsen og Brynhildur Karlsdóttir kenna einfalda sjálfsdáleiðsluaðferð, Simpson Protocol. Á námskeiði hjá þeim læra þátttakendur að komast í dáleiðsluástand þegar þeim hentar, hvort sem er hjá tannlækninum eða á sófanum heima. Ásdís og Brynhildur sögðu okkur meira frá þessu í þættinum í dag. Georg Lúðvíksson, sérfræðingur í heimilisfjármálum, var í annað sinn hjá okkur í dag með það sem við köllum fjármálin á mannamáli. Á mánudögum mun Georg fræða okkur um ýmsar hliðar á fjármálunum og í dag talaði hann um tilfinningar okkar tengdar peningum og samband okkar við peninga. Svo var það lesandi vikunnar, sem í þetta sinn var Bjarni Fritzson rithöfundur og eigandi Út fyrir kassann. Bækur Bjarna um Orra óstöðvandi hafa verið gríðarlega vinsælar og nýjasta bókin um Orra var mest selda barnabókin á landinu á síðasta ári. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Bjarni talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Dauðinn einn var vitni e. Stefán Mána Marrið í stiganum, Strákar sem meiða og Stelpur sem ljúga e. Evu Björgu Ægisdóttur Ég læt sem ég sofi e. Yrsu Sigurðardóttur Kvíðakynslóðin e. Jonathan Haidt Grafarþögn og Mýrin e. Arnald Indriðason Show Dog e. Phil Knight Paulo Coelho (The Zahír, Veronika verður að deyja, Alkemistinn) Why we sleep e. Matthew Walker Raunvitund e. Hans Rosling Villtir svanir e. Jung Chang. Tónlist í þættinum í dag: Gullvagninn / Björgvin Halldórsson (lagahöfundur ókunnur, texti Jónas Friðrik Guðnason) Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig / Ragnar Bjarnason (Monaco, McCarthy & Johnson, texti Jón Sigurðsson) Litla flugan / Sigfús Halldórsson (Sigfús Halldórsson, texti Sigurður Elíasson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Sendu okkur skilaboð!Hið hreinasta hreinlæti er næst á dagskrá. Bjarni Ármanns virðist sjá í framtíðina og er ótvíræður keisari hreinlætis á Íslandi. Við förum yfir söguna, næyjasta ársreikning og fleira til í dag. Góða helgi.
Heute sind sie mit dem14-jährigen Bjarni allein auf dem Hof. Bjarni muss zum Supermarkt fahren, aber alle Fahrräder sind kaputt. Da macht Ronja aus Spaß einen ungewöhnlichen Vorschlag und den findet Bjarni ziemlich gut. (Eine Geschichte von Ulrike Klausmann, erzählt von Sina Reiß)
Imagina tener la oportunidad de descubrir un nuevo continente y grabar tu nombre en los libros de la historia como uno de los exploradores más exitosos e influyentes del mundo. El problema fue que no te diste cuenta de este gran descubrimiento. Acompáñame en este viaje épico para descubrir cómo una pequeña decisión puede cambiar todo el curso de la historia. Esta es la historia de Bjarni Herjólfsson y su 'casi, pero no'. Hoy, nosotros podemos encontrarnos en la misma situación que Bjarni, a punto de conseguir lo que tanto anhelamos, en las costas del éxito. Pero una mala decisión puede alejarnos de la bendición y llevarnos al fracaso. Como dice la Biblia en Proverbios 16:9, 'El corazón del hombre traza su rumbo, pero sus pasos los dirige el Señor.'
Björn Bjarnason, fv. ráðherra, ræðir þá ákvörðun Bjarna Benediktssonar að sækjast ekki eftir endurkjöri sem formaður Sjálfstæðisflokksins, formannstíð Bjarna, stöðu flokksins og almennt yfir stöðuna í íslenskum stjórnmálum. Þá er einnig rætt um stöðuna í alþjóðastjórnmálum, valdatöku Trump síðar í þessum mánuði, veikleika ESB-ríkjanna, stöðuna í Úkraínu og margt fleira.
Nokkuð óvænt tilkynning Bjarna Benediktssonar um miðjan dag um að hann ætlaði ekki að taka sæti á þingi og gæfi ekki kost á sér í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins verður viðfangsefni þáttarins og rætt verður við þær Evu H. Önnudóttur prófessor og Jóhönnu Vigdís Hjaltadóttur fréttamann. Þingmönnum sjálfstæðisflokksins flokksins var brugðið þegar Bjarni sagði þeim frá ákvörðun sinni í dag, líklega er leitun að stjórnmálamanni sem hefur verið jafn umtalaður síðustu ár og áratugi.
Mánudagur 6. janúar Bjarni, veður, leikhús, þrettándinn, Carter Við byrjum á að ræða frétt dagsins, afsögn Bjarna Benediktssonar. Og ræðum síðan veðrið við Trausta Jónsson veðurfræðing. Förum á Köttur á heitu blikkþaki og ræðum sýninguna við aðstandendur: Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri og leikararnir Sigurður Ingvarsson, Hilmir Snær Guðnason og Ásthildur Úa Sigurðardóttir ræða grimm samskipti og leyndarmál. Eru jólasveinar byltingarmenn? Þjóðfræðingarnir Jón Jónsson, Dagrún Ósk Jónsdóttir og Kristinn Schram ræða þjóðfræði þrettándans og ýmsa forna og samtíma galdra. Í lokin segir Tjörvi Schiöth okkur frá Jimmy Carter, fyrrum Bandaríkjaforseta, sem lést nýverið í hárri elli.
====================================================SUSCRIBETEhttps://www.youtube.com/channel/UCNpffyr-7_zP1x1lS89ByaQ?sub_confirmation=1==================================================== DEVOCIÓN MATUTINA PARA JÓVENES 2025“HOY ES TENDENCIA”Narrado por: Daniel RamosDesde: Connecticut, USAUna cortesía de DR'Ministries y Canaan Seventh-Day Adventist Church===================|| www.drministries.org ||===================06 de EneroEl Hombre que no descubrió América«Siembra tu semilla por la mañana, y por la tarde siémbrala también, porque nunca se sabe qué va a resultar mejor, si la primera siembra o la segunda, o si las dos prosperarán». Eclesiastés 11: 6¿Has oído hablar de Bjarni Herjólfsson? Este explorador nórdico del siglo X d.C., cuyo nombre puede resultar complicado de pronunciar, tiene una historia fascinante. Nacido en Islandia, cuando creció Bjarni se trasladó a Noruega y se estableció allí como comerciante. A pesar de vivir en Noruega, cada año hacía una visita a su padre en Islandia.En el verano de 986, Bjarni decidió visitar a su padre, solo para descubrir que este se había mudado a Groenlandia. Sin saber exactamente dónde se encontraba Groenlandia, Bjarni zarpó hacia el oeste, consciente solo de que la tierra de su padre estaba cubierta de nieve y glaciares.Pocos días después de zarpar, un fuerte viento del norte y la niebla llevaron la embarcación a la deriva durante varios días. Cuando el tiempo mejoró, la tripulación avistó tierra, pero no parecía ser Groenlandia; en lugar de nieve y glaciares, se veían árboles y colinas. A pesar de la intención de la tripulación de atracar para buscar madera y provisiones, Bjarni decidió bordear la costa y continuar hacia Groenlandia. Después de varios días, finalmente llegaron a su destino y se reunieron con el padre de Bjarni.¿Sabías que la costa que Bjarni y su tripulación avistaron fue la costa este de lo que hoy conocemos como Canadá? Bjarni Herjólfsson estuvo a punto de descubrir «América» en ese momento, cinco siglos antes que Colón. Si hubiera sido un poco más curioso y aventurero, tal vez el nombre de nuestro continente sería el de Herjólfsson.Este año, te embarcarás en diversos proyectos y, al igual que los vikingos de la historia, te expondrás al riesgo de llegar a costas misteriosas, lugares que no tenías previstos. Cuando te encuentres en esa situación, ¿serás curioso como Cristóbal Colón o temeroso como Bjarni? En el versículo de hoy, Salomón te dice: ¡Lánzate! ¡Explora! No temas sembrar una semilla diferente cuando se presente la oportunidad. El miedo puede detenerte, al igual que le sucedió a Bjarni, mientras que la audacia puede convertirte en el próximo Cristóbal Colón.
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Vigfús Bjarni Albertsson var sjúkrahúsprestur í áraraðir og hefur hjálpað miklum fjölda fólks að glíma við sorg og erfiðleika. Í þættinum ræða Sölvi og Vigfús um Guð, trú, sorg, sigra og stöðuna í íslensku samfélagi. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ H-Berg - https://hberg.is/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/
„Stöðug pressa um að gera allt hraðar hefur þau áhrif að við flýtum okkur í gegnum lífið í stað þess að lifa því í raun og veru. Ef þú gírar þig niður, stígur á bremsuna, nærðu yfirsýn og allt raðast á sinn stað. Þú tengir betur, skapar meira, einbeitir þér betur og afkastar meiru. Þú einfaldlega lifir meira og betur.“ þetta eru orð Carls Honoré, en Hæglætishreyfingin á Íslandi fær hann á næstunni til landsins til að flytja fyrirlestur um hugmyndafræði Hæglætishreyfingarinnar. Þóra Jónsdóttir, formaður hreyfingarinnar á Íslandi kom til okkar og sagði okkur meira frá hreyfingunni og þessum fyrirlestri Carl Honoré. Jónatan Garðarsson kom svo til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um sögu íslensks tónlistarfólks. Í þetta sinn fræddi hann okkur um Öddu Örnólfs, en hún söng inn á fjölmargar plötur á sjötta áratugnum, til dæmis lagið um Bellu símamær sem hefur fyrir löngu orðið sígilt. Hún fæddist árið 1935 á Suðureyri við Súgandafjörð en fluttist ung til Reykjavíkur og var uppgötvuð átján ára. Jónatan sagði okkur meira frá hennar söngferli og ævi í þættinum. Við fengum svo að lokum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Póstkortið berst frá Þýskalandi að þessu sinni. Í því segir frá jólamörkuðum sem eru forn þýsk hefð allt frá fjórtándu öld. Jólamarkaðurinn þykir ómissandi hluti af aðventunni og þar hafa myndast margar skemmtilegar hefðir i gegnum aldirnar og hefur hver borg sinn sérstaka stíl. En það sem er sameginlegt með þeim öllum er hefðbundin matur og drykkur, kökur, sætabrauð og jólaglögg, eða Gluhwein eins og þjóðverjar kalla það. Einnig er fjallað um jólatónlist sem hefur breyst mikið í áranna rás. Tónlist í þættinum: Senn koma jólin / Sigríður Beinteinsdóttir (Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, texti Kristlaug María Sigurðardóttir) Hátíðarfiðringur/Pálmi Sigurhjartarsson og Unnur Birna Bassadóttir(Pálmi Sigurhjartarsson -Herdís Anna Þorvaldsdóttir ) Kom þú til mín / Adda Örnólfs og Hljómsveit Carls Bilich (Kristinn Magnússon, texti Jón Ingiberg Bjarnason) Bella símamær / Adda Örnólfs (lagahöfundur ókunnur, texti Guðmundur Guðmundarson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
This episode is part of my Folklore Friday series where I am sharing a Folklore story every Friday in 2024. To hear other stories, I have shared so far, check them out on my website All Things Iceland The Troll Woman & Bjarni Once upon a time, a farmer named Bjarni lived in Skaftafell. He was known for his skilled craftsmanship and resourcefulness. High in a cave above the Skaftafell Woods, there lived a troll-woman who had become a loyal friend to Bjarni. She watched over his sheep in the mountains and guarded his driftwood along the shore.One harsh winter, the troll-woman visited Bjarni with troubling news: a ship had wrecked on the coast, leaving only one survivor. But this wasn't any ordinary man—it was a wild, dangerous brute, and she feared he would bring ruin to all of southern Iceland if left unchecked. Without hesitation, she took up an axe and accompanied Bjarni down to the shore, where she bravely fought the savage and defeated him.Generations passed, but the troll-woman stayed connected to Bjarni's family, protecting them as she had him. To this day, people say her cave still stands above Skaftafell, with a skylight in its roof and a bed carved right into the stone—a bed so large it could only have belonged to a troll. And they say Bjarni, ever thoughtful, crafted the cave's door and its sturdy fittings to make it a cozy home for his unusual friend. The Troll Woman and Einar Years later, another man named Einar lived in Skaftafell. He, too, knew of a troll-woman. Once, while traveling through thick fog, he suspected the mist was no natural haze. Feeling uneasy, Einar took his axe and threw it far. Instantly, the fog lifted, and he was able to make his way home. But just as he arrived, one of his horses collapsed, and Einar found his axe lying on his doorstep—this time covered in blood.The following year, Einar was setting off to cross the Skeidará river when he met a towering woman. She asked if she could borrow one of his horses to cross the water. At first, he hesitated, remembering how one of his horses had been strained the year before. But then, the woman explained it had been because of a prank he'd pulled. She showed him a scar where his axe had struck her, revealing that she was the one who had lifted the fog.Einar believed her, and they crossed the river safely. During this crossing, the troll woman teased Einar a bit, which he did not take well. To get revenge, he went home and made a cooper gun. After tracking her down, the troll woman apologized for teasing him and they were on good terms again.After that she vowed to do what he wished and his only ask of her was to not let anyone steal his driftwood. And so, the legend of the troll-woman and her friendship with the people of Skaftafell endures to this day, her protective spirit woven into the landscape and the lore of Iceland. Random Fact of the Episode Skaftafell is a stunning nature reserve inside of Vatnajökull National Park. In that area, you can hike to the Svartifoss waterfall or go on a glacier hike/ice climbing adventure. There are many hiking paths in this area and I highly recommend checking it out. During winter, there are ice cave tours avaiable on the glaciers too. If you plan to take a glacier hike here, feel free to use my code Iceland10 with Arctic Adventures to save 10%. Icelandic Word of the Episode goðsögn - legend Share this with a Friend Facebook Email Threads Let's Be Social Youtube Tiktok Instagram Facebook Þakka þér kærlega fyrir að hlusta og sjáumst fljótlega.
Heil og sæl. Í þætti dagsins eru Kristinn Kærnested, Svanhvít og Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari Vals í handbolta í spjalli hjá mér. Besta deildin og öll stóru atriðin um helgina eru tekin fyrir. Meistaradeildin, Evrópudeildin, Víkingur í Sambandsdeildinni, fréttir og slúður og svo Evrópudeildin í handbolta. Ein lítil Krummasaga læðist þarna innan um líka. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins. Takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur.
Auf Rübes Islandpferdehof lernen Ronja und Elif reiten. Das Geld dafür verdienen sie selbst mit Babysitting. Heute wollen sie mit der ersten Reitstunde anfangen. Aber warum ist niemand auf dem Hof, außer einem Jungen mit Sommersprossen und blauen Haaren? (Eine Geschichte von Ulrike Klausmann, erzählt von Sina Reiß)
Ríkisstjórnin er sprungin aðeins viku eftir að Svandís Svavarsdóttir tekur við formennsku í VG. Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson fara yfir atburði dagsins, kosningabaráttuna sem er framundan, stöðu flokkanna, þau hjaðningavíg sem kunna að eiga sér stað innan einstakra flokka og margt annað sem snýr að stjórnarslitum og komandi kosningum.
Við hittum Bjarna Frímann Bjarnason hljómsveitarstjóra og píanóleikara á bílaverkstæði við Smiðjuveg í þætti dagsins. Bjarni mun halda þar tónleika um næstu helgi sem eru hluti af tónlistarhátíðinni State of the Art sem hefst á morgun og stendur til 12.október. Við munum einnig kynna okkur skýrslu sem heitir Framlag menningar og skapandi greina til verðmætasköpunar á Íslandi. Hún er unnin fyrir Menningar- og viðskiptaráðuneytið af Ágústi Ólafi Ágústssyni hagfræðingi. Ágúst Ólafur og Erla Rún Guðmundsdóttir, forstöðukona Rannsóknarseturs Skapandi greina, verða gestir okkar í dag. Nína Hjálmarsdóttir verður einnig með okkur í þætti dagsins, en hún fór að sjá Eltum veðrið, sem frumsýnt var í þjóðleikhúsinu á föstudag.
Á morgun fara fram undanúrslitin í Fótbolti.net bikarnum. Aðeins þarf að vinna einn leik í viðbót til að komast á Laugardalsvöll. laugardagur 21. september 13:00 Selfoss-Árbær (JÁVERK-völlurinn) 13:00 KFA-Tindastóll (Fjarðabyggðarhöllin) Bjarni Jóhannsson, þjálfari Selfoss, ræddi við Fótbolta.net í morgunsárið um sumarið á Selfossi en lið hans flaug upp úr 2. deildinni. Einnig var farið yfir undanúrslitin í þessari keppni sem Bjarni er svo hrifinn af. Hann segir hana stórskemmtilegt fyrirbæri og mikla gulrót fyrir leikmennn að komast á Laugardalsvöll.
In this episode of the Pro Series, Eric sits down with Bjarni Herrera, a seasoned leader with a truly international career spanning banking, finance, and sustainability. Bjarni shares how his Nordic upbringing, Latin American roots, and experiences living in Asia and the US have shaped his unique approach to leadership. From helping restructure Arion Bank after the 2008 financial crisis to co-founding a sustainability consulting firm acquired by KPMG, Bjarni's journey is filled with rich insights. Now the CEO of Accrona and Post50 Ventures, Bjarni discusses the critical role of sustainable finance in today's world, along with his leadership philosophy and talent development strategies. Don't miss this deep dive into global finance and sustainability! Bjarni's website: https://www.bjarniherrera.com/Accrona's website: https://www.accrona.com/ (where Bjarni is CEO & Founder)And a link to buy Bjarni's book, Supercharging Sustainability
What would someone say about you after only knowing you for 5 minutes?Today I want to introduce you to Bjarni, I'm here in Iceland and many of the places we have stayed have been small fishing villages, but our stop in Dalvik was different. From the moment I met Bjarni I knew he was one I wanted to sit down with and learn more about; from the way he was so quick to treat us all like friends, share a coffee, and his towns history with us, I'm so honored to be able to share more of this truly lovely human with you all We chat about what it's like living in and doing what he can alongside his wife to preserve the history and culture of his hometown, how he looks forward and is aspiring to become a full time grandfather, and the fear of outliving another of his children.He shares why he believes the way we view difficulties in life is a choice, how some heartbreaking and trying moments have impacted that view, and the reality of what real problems are in the world We chat about the impact of war and climate change, and how when something is detached from our personal experience we can often struggle to empathize or take action towards righting such wrongsBjarni is one that offers a gentle and yet confident reminder that life is a gift, that sharing space and time with others in this life is of immense value, and that we always have something to give to anotherSo tune in today and meet Bjarni a man that will walk around in shorts and a t shirt when everyone else is in a winter coat, and I think that is not unlike his heart; that maybe when so many of us are closed, needing more, or afraid to let the world see us, Bjarni is filled with the joy of what each day has and is giving him, he is one that will sit with you, share what he knows, and in what I found to be the most precious of all, allows others to know him and feel welcomed around himAnd to you Bjarni thank you, thank you for your hospitality, for the ease in which you show up in the world, for the time you shared in allowing me to hear your story. You are a man filled with integrity, one that is easy to trust and one that is deserving of such trust. I'm so grateful our travels brought us to Dalvik and for the joy in sharing a cup of coffee with you.
Heil og sæl. Í dag eru þrír viðmælendur. Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari karlaliðs Vals í handbolta fer yfir leiki liðsins í evrópukeppninni en Valur var í skrautlegum leik í Króatíu sem tryggði þeim rétt til að leika í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Guðjón Þórðarson fyrrum landsliðsþjálfari í fótbolta er á línunni um landsleikina gegn Svartfjallandi og Tyrklandi og þar er ekki töluð vitleysan skal ég segja ykkur. Að lokum er hún Svanhvít á línunni og við ræðum um aðra leiki í Þjóðadeildinni ásamt því að tala um 21.árs lið Íslands og svo fréttir og slúður úr boltanum. Sigurvegarar BK-tippleiksins eru kunngerðir og sitthvað fleira. Takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur.
Daníel Franz og Benni Bó fá Evrópumeistarann Óskar Bjarna í heimsókn og kryfja Evrópudrauminn okkar í smáeindir. Þetta var sko enginn venjulegur draumur.
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Bjarni Benediktsson er forsætisráðherra Íslands. Hann hefur um árabil verið formaður Sjálfstæðisflokksins og einn umdeildasti stjórnmálamaður Íslands. Í þættinum ræða Sölvi og Bjarni um samfélagsmál, feril Bjarna, gagnrýnisraddir og margt fleira. Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ Gullfoss - https://gullfoss.is/ Fiskikóngurinn - https://www.facebook.com/fiskikongurinn.is/?locale=is_IS Heitirpottar.is - https://heitirpottar.is/ Kjötkompaní - https://kjotkompani.is/
Bjarni gröfumaður, Pétur á Útvarpi Sögu, Marinó og Haukur Guðna ásamt nokkrum vel völdum sáu um þáttinn í dag. Þessi þáttur er uppfullur af skemmtilegum leikþáttum. Verði ykkur að góðu.Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
Join Scott "Shalom" Klein on his weekly radio show, Get Down To Business with guests: Charles Rose Jonathan Stutz Bjarni Herrera Peter Spitz
Gestir Vikulokanna eru Ágúst Bjarni Garðarsson þingmaður Framsóknarflokks, Dagbjört Hákonardóttir þingmaður Samfylkingar og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar. Þau ræddu meðal annars kaup KS á Kjarnafæði/Norðlenska, samkeppni á búvörumarkaði, hæfisreglur þingmanna, fækkun ferðamanna og efnahagsmál. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson.
Sem forsætisráðherra Íslands, sem er eitt af af tólf stofnríkjum Atlantshafsbandalagsins, þá er ég gríðarlega ánægður að fá að sækja fyrsta fundinn þar sem öll Norðurlöndin eru viðstödd þar sem Svíþjóð sækir fundinn með leiðtoga sínum í fyrsta sinn eftir að aðild þeirra varð viðurkennd fyrir ekki svo löngu síðan, sagði Bjarni Benediktsson forsætisráðherra í ávarpi sínu á ráðstefnu Atlantshafsbandalagsins (NATO) rétt í þessu.
Framsóknarmennirnir Ágúst Bjarni og Sigurjón komu í spjall til að fara yfir allt sem viðkemur leik FH og Breiðabliks.
My guest on this month's podcast, Bjarni Dali joined me all the way from the Faroe Islands to talk about his grimdark masterpieces. I first became aware of Bjarni's work on his fantastic Howling Gryphons diorama few years ago and have since come to appreciate all of his gritty, narrative driven dioramas and minis. We talked about where he finds inspiration, how he avoids burnout, and what it takes to paint a model as big as a 28mm Warhound titan!Find Bjarni on Patreon, Instagram, Twitter, and YouTube and be sure to check out his book, The Art of Bjarni Dali, available now.As usual, this podcast was exclusive to Brush Wielders Union members for a few days before being released to general audiences.brushwieldersunion.com
Önnur útgáfan af Fótbolti.net bikarnum hefst á sjálfan þjóðhátíðardaginn á mánudaginn þegar KFA og ÍH mætast. Svo eru hinir leikirnir spilaðir á miðvikudaginn. Í kringum keppnina verða hlaðvarpsþættir hér á síðunni og er þetta fyrsti þátturinn í sumar. Arnar Laufdal og Eysteinn Þorri, leikmenn Augnabliks, mættu í spjall um ástríðuna í Fífunni og fóru yfir leikina í 32-liða úrslitunum. Þá var Bjarni Jóhannsson, þjálfari Selfoss, á línunni undir lok þáttarins en hann er virkilega spenntur að taka þátt í þessu móti í fyrsta sinn.
Við skoðuðum D. E og F riðil auk þess að skoða allar fréttir úr heimi fótboltans.
Gestir Vikulokanna eru Davíð Stefánsson formaður Varðbergs, Bjarni Már Magnússon lagaprófessor og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar. Þau ræddu forsetakosningar, öryggis- og varnarmál, alþjóðamál og stöðu þingmála á Alþingi. Umsjón: Höskuldur Kári Schram. Tæknimaður: Kári Guðmundsson
FH-ingum mistókst að tryggja sér sæti í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins þegar þeir tóku á móti ÍBV. Valsmenn eru komnir í úrslit í Evrópubikarnum eftir auðvelt einvígi gegn Baia Mare. Hiti í umspilinu karlamegin og það verður vel fylgst með skrefunum hjá Haukastelpunum gegn Fram á Verkalýðsdaginn.
Þátturinn um allt og ekkert. Landsliðsumræða - Olís-deild karla - Olís-deild kvenna og miklu meira til. Hvert fer Bjarni Ófeigur? Hvert fer Skarphéðinn Ívar? Hvert fer Ólafur Ægir? Skolphreinsun Ásgeirs fékk frí í vikunni og ætlar að nýta sér styttingu vinnuvikunnar. Á sama tíma var að koma út nýr BodyFuel drykkur - sem Sérfræðingurinn segir vera þann besta hingað til.
Í þessum 50. þætti Ungstirnanna fara þeir Arnar Laufdal og Bjarni Þór Hafstein yfir víðan völl. Ibrahim Diarra (2006) ein skærasta stjarna Afríku. Hann skoraði 5 mörk og gerði 4 stoðsendingar á HM U-17 ára þegar að lið Malí lenti í 3.sæti og segir sagan að hann sé þegar búinn að skrifa undir samning hjá Barcelona. Lucas Bergvall (2006) er efnilegasti leikmaður Svíþjóðar um þessar mundir og einn sá efnilegasti í allri Evrópu. Lið eins og Manchester United, Barcelona, Inter Milan og RB Leipzig eru að fylgjast með kappanum. Endrick er búinn að sýna heiminum afhverju hann var keyptur til Real Madrid á 60 milljónir evra. Við erum að fá að kynnast svo mörgum stjörnum að verða til á HM U-17 ára eins og t.d. Ibrahim Diarra, Agustin Ruberto, Claudio Echeverri og Paris Brunner. Hvaða stórlið ætlar að kaupa Marcos Leonardo frá Santos eftir að þeir féllu úr brasilísku úrvalsdeildinni í fyrsta skipti í sögu félagsins?
Bjarni Ármanns er tölvunarfræðingur að mennt og starfar sem fjárfestir í dag. Hann rekur æskuárin á Akranesi en þrálát heilahimnubólga varð til þess að hann dró sig í hlé frá sjósókn, félagslífi og fótbolta en lærði í stað þess útsaum og las bókmenntir. Í örlagaríkri útskriftarferð nokkrum árum seinna sást til Bjarna prútta á götumörkuðum í Tælandi sem varð til þess að honum var boðin staða í bankageiranum en hann vann sig hratt upp á þeim vígvelli og var orðinn bankastjóri Íslandsbanka fyrir þrítugt. Við köfum í þennan persónulega og þjóðfélagslega uppgang sem átti sér stað um aldamótin en Bjarni gerir vel grein fyrir aðstæðum sem Íslendingar bjuggu við í stöðnunarhagkerfinu hér á árum áður. Bjarni á sér viðburðarríkt líf utan vinnu en hann er fjögurra barna faðir, hefur m.a. klifið Everest, hlaupið maraþon undir þremur tímum margsinnis (54 ára!), klifið 100 hæstu tinda Íslands, 7 hæstu tinda hverrar heimsálfu og aldrei ýtt á snooze takkann.
Um helgina var Start dæmt úr leik í umspilinu um að komast upp í efstu deild í Noregi. Bjarni Mark Duffield er leikmaður Start og ræddi hann við Fótbolta.net í dag. Bjarni fór yfir ástæðuna fyrir því af hverju Start var dæmt úr leik. Heimavöllur liðsins var frosinn og tekin var ákvörðun að kveikja ekki á hitanum undir vellinum til að spara pening. Völlurinn var ekki leikhæfur og liðið dæmt úr leik. Hann segir að hljóðið í mönnum hjá félaginu sé ekki gott, talar um mikla reiði og mikinn pirring.
Doc, Gunni Birgis og Keli í Tuborg Tíunni.