POPULARITY
Categories
Ragnar Freyr Ingvarsson Læknirinn í eldhúsinu var gestur okkar í dag. Hann sagði frá því magnaða sambandi sem hægt er að mynda við hesta en hann frelsaðist þegar hann fór fyrst á hestbak. Hjálmar er ekki mikill kokkur en hann er mikill smakkari.IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe´a!
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um púnversku stríðin milli Rómar og Karþagó, með sérstaka áherslu á annað púnverska stríðið (218–201 f.Kr.) og leiðtoga Karþagómanna, Hannibal Barca.Hannibal er einn þekktasti herforingi fornaldarinnar og varð ódauðlegur í minni Rómverja fyrir herför sína frá Spáni til Ítalíu. Hann fór yfir Alpana með stríðsfíla og fjölmennan innrásarher og vann hvern stórsigurinn á fætur öðrum gegn Rómverjum á Ítalíu. Þrátt fyrir hernaðarsnilli sína og glæsilega sigra tókst honum þó aldrei að hertaka Róm. Að lokum færðu Rómverjar stríðið til Afríku og sigruðu Karþagómenn.Púnversku stríðin þrjú voru átök tveggja stórvelda sitt hvorum megin við Miðjarðarhafið um yfirráð á svæðinu. Eftir endanlegan sigur Rómverja árið 146 f.Kr., þegar Karþagó var lögð í eyði, stóð ekkert annað veldi jafnfætis Róm. Hefði Hannibal tekist að hertaka borgina má færa sterk rök fyrir því að saga Miðjarðarhafsheimsins hefði orðið allt önnur.Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Íslenskur sjávarútvegur, yfirráð Íslendinga yfir auðlindum hafsins í kringum Ísland og nýtingu þeirra - þetta er jafnan eitt mesta hitamálið þegar tekist er á um kosti og galla hugsanlegrar Evrópusambandsaðildar og jafnvel aðildarviðræðna. Áhrif inngöngu í ESB á þessu sviði eru sögð frá því að vera óveruleg allt upp í algjört afsal á stjórn og nýtingarrétti íslenskra fiskistofna til framkvæmdastjórnar ESB í Brussel - og allt þar á milli. En hver er sameiginleg stefna Evrópusambandsins í sjávarútvegsmálum? Spegillinn spurði Jóhann Sigurjónsson, fyrrverandi forstjóri Hafrannsóknastofnunar að því. Hann tók þátt í að undirbúa sjávarútvegskaflann í aðildarumsókn Íslands á árunum 2009 til 2013, en þeim viðræðum var hætt áður en sá kafli var opnaður. Hlutverk Jóhanns var einkum að rýna í Evrópulöggjöfina og bera hana saman við þá íslensku. Hann þekkir því vel til sjávarútvegsstefnu ESB. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
PNL UPRN Seg#88 "Great Pyramids" Guest: Jan Hann with CoHost Rob Shelsky Tue July 14th, 2026 at 5pm EST Guest Bios: PNL Podcast (Paranormal NL) located in Newfoundland and Labrador (NL), Canada with Host Jen Noseworthy -S4/E28-UPRN Segment #88. “Great Pyramid” special Pre-recorded event with a YouTube Live-Chat Watch-Party on UPRN. PNL Host Jen Noseworthy talks with Guest: Janet Fitzpatrick (AKA “Jan Hann”) from England. Co-Host Guest PNL Podcast Alumni-Network member & author Rob Shelsky from North Carolina joins the episode. Guest Janet (AKA Jan Hann) Jan was born in Hampshire, UK, and her first career began in London at 18 in the fashion world illustrating for Vogue, Harper's Bazaar, national newspapers, designing for Ladybird and Rhona Roy. Eventually Jan ran her own haute‑couture boutique in a world of pure material glamour. Later Jan married and for her wedding dress she did something very unusual. Jan unpicked a nun's habit and turned it into her wedding gown. Jan had always wanted to be a nun, and people were telling her it was the first sign of a calling. A few years after her marriage, between 1982 and 1984, Jan left to live in the beautiful county of Herefordshire and encountered Seraphim that changed the direction of her life forever. Discover what the great Pyramids have to offer. (Apologies in advance for Jan's audio as she's new to the Podcasting world). Follow Author Jan Hann on Amazon https://www.amazon.ca/Great-Pyramid-Initiation-Birthright-Inheritance-ebook/dp/B0GG5XTBNK Co-Host Guest: Rob Shelsky was previously on PNL Podcast S3/E10 (UPRN#17);S4/E6 (UPRN#66);S4/E13(UPRN#72);S4/E19(UPRN#79);S4/E22(UPRN#82);S4/E23(UPRN#83);S4/E26(UPRN#86). Check them all out. Shelsky is an author & MUFON field investigator, has written over 80 Paranormal books, and was invited to speak at the Library of Congress, Washington, D.C. Rob has a degree in science, has written a large number of magazine articles, and has been interviewed on a number of shows such as George Noory's Coast-To-Coast AM Radio show. Shelsky was also the on-camera UFO expert for a Travel Channel TV show. Find his books on Amazon Kindle, Smashwords & more. Follow Rob Shelsky on http://robshelsky.blogspot.com/ Shout out to Quantum Health Ascension metaphysical Podcaster Karen Holton who was on PNL S4/E12 (UPRN Seg#72) Big shout out to UPRN Producer and Manager , Michelle Desrochers. Michelle is also host of The Outer Realm Radio & Beyond the Outer Realm on UPRN www.linktr.ee/michelledesrochers_ PNL Podcast is sponsored by the BOG team. It's a “Boots On Ground” (BOG) Paranormal investigation team doing local historic investigations in Newfoundland. BOG had two sold out Public Ghost hunts at the Torbay History House & Museum. PNL & BOG were also highlighted on local TV CBC & NTV news. If you find yourself coming back to the @PNL_BOG Team channel and you Like the content. Comment & Smash that SUBSCRIBE button. Gratitude. It all helps. Follow PNL Podcast & the BOG team on our Linktree https://linktr.ee/paranormalnlpodcast PNL airs every Tue at 5pm EST on all digital platforms of UPRN (United Public Radio Network) 107.7 FM New Orleans & 105.3 Gulf Coast https://www.youtube.com/@PNL_Podcast/streams and https://www.uprntalkradio.com https://www.teepublic.com/stores/paranormal-nl-podcast Get seasonal & customized Merch like hats, hoodies, T-shirts, bags, mugs, logos, pillows, cell phone covers, stickers & more. Logos & Music designed by PNL Podcast Alumni-Network & BOG Team member Robert Dumond. Download the BOG Team Music available now on all streaming music & social media platforms. Follow PNL Podcast & the BOG team on their Linktree & Smash those SUBSCRIBE buttons. Gratitude. It all helps https://linktr.ee/paranormalnlpodcast United Public Radio & UFO Paranormal Radio www.uprntalkradio.com
Árni Vilhjálmsson er genginn í raðir Stjörnunnar á frjálsri sölu frá Al-Taraji í Sádi-Arabíu. Kári Snorrason ræddi við Árna um skrefið heim ásamt því að fara yfir ferilinn úti í atvinnumennsku. Hann ræðir einnig upplifun sína af því að búa og spila í Sádi-Arabíu og Úkraínu á miklum óvissutímum.
Skipaumferð um Hormússund lagðist nánast af eftir að Íranar réðust á gámaskip sem siglt var um sundið á laugardag, undir kýpverskum fána. Íranar sögðu árásina á skipið hafa verið fyllilega lögmæta, þar sem stjórnendur þess hefðu ekki fylgt þeirri einu siglingaleið sem þeir heimila. Bandaríkjamenn árásina hins vegar svo gróft brot á gildandi vopnahléssamkomulagi, að þeir hófu árásir að nýju, af jafnvel enn meiri þunga en áður en hlé var gert á þeim fyrir tæpum mánuði með sameiginlegri viljayfirlýsingu og Trump Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að stríðinu væri í raun lokið. Magnús Þorkell Bernharðsson er prófessor í sögu Miðausturlanda. Hann segir það ekki koma á óvart að vopnahléið hafi farið út um þúfur. Það hafi verið á sandi byggt og til þess eins gert að vinna tíma. Hann telur ólíklegt að önnur Persaflóaríki láti draga sig inn í stríðið og að allsherjarstríð brjótist út í Miðausturlöndum. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Join the brothers as they conclude their in depth look on the Craftworlds, starting with the rather barbaric Saim-Hann, to the tragedy of the Iyanden.
Þórarinn ræðir við Teit Atlason um hælisleitenda og flóttamannamál.Teitur hefur miklar áhyggjur af stöðunni og segir stóran hóp á Íslandi ekki aðlagast íslensku samfélagi. Staðan í evrópu sé orðin hræðileg og Norðurlöndin munu þurfa að svara erfiðum spurningum á næstu árum.Hann varar við því að ef áfram haldi sem horfir muni Ísland lenda á sama stað.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur:500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.meHappy Hydrate kóði: EINPAELING25
Jósef Björnsson (1878-1964) var lengst af bóndi á Svarfhóli í Borgarfirði. Hann var sveitastólpi mikill en í bókinni Æskustöðvar (1954) fjallaði hann fyrst og fremst um foreldra sína og æskuárin. Í þessum þætti lýsir hann foreldrum sínum bæði fallega og hispurslaust.
Sérfræðingur við íhaldssama hugveitu í Washington ráðleggur íslenskum stjórnvöldum að rækta áfram sambandið við embættismenn og stjórnmálamenn í Bandaríkjunum, en ekki endilega æðstu leiðtoga landsins. Hann telur að NATO lifi af ólgusjó. Leiðtogafundur NATO-ríkjanna hefst í Ankara í Tyrklandi eftir helgi. Björn Malmquist verður þar og fer yfir hverju er við að búast. Rétt þjónusta á réttum stað. Þetta er eitt af leiðarstefjum lýðheilsu- og heilbrigðisstefnu íslenskra stjórnvalda. En það vantar töluvert upp á að þetta sé haft að leiðarljósi í heilbrigðisþjónustu við fólk sem býr við heimilisleysi. Rætt við Kristínu Pálsdóttur, framkvæmdastjóra Rótarinnar.
„Slær frá sér eins og blindur risi,“ sagði Bogi Ágústsson um Vladimír Pútín og árásir Rússa á Úkraínu í hefndarskyni fyrir árásir Úkraínumanna á olíuiðnað Rússa. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu líka við Boga um bresk stjórnmál. Keir Starmer lætur senn af embætti forsætisráðherra og allar líkur eru á að Andy Burnham taki við. Starmer þótti óvenjuröggsamur í fyrirspurnartíma forsætisráðherra í þinginu í gær og lét andstæðinga Verkamannaflokksins fá það óþvegið. Í lokin var stuttlega minnst bresk-kanadíska söngvarans David Clayton-Thomas sem lést í síðustu viku. Hann öðlaðist heimsfrægð með hljómsveitinni Blood, Sweat & Tears. Hljómsveitin naut mikilla vinsælda í kringum 1970. Við heyrðum Clayton-Thomas syngja You've Made Me So Very Happy.
Som barn får Göran se en bild på en far han aldrig träffat. Men när han som vuxen tar kontakt kommer han försent. Men snart ställs allt på ända igen. Lyssna på alla avsnitt i Sveriges Radios app. Har du avslöjat en familjehemlighet som förändrat ditt liv? Hör då av dig till programmet och Gunilla Nordlund så kan din berättelse bli ett nytt avsnitt av serien. Maila till familjehemligheten@sverigesradio.seProducent för serien är Ola Hemström. Programmet är gjort 2023.
Herskáir hirðingjar voru liðsmenn Sea Shephard samtakanna kallaðir þegar þeir komu hingað fyrir fjörutíu árum undir forystu Pauls Watsons. Menn og skip á vegum samtakanna sem hann leiðir nú eru þessa stundina vestan við land að leita að hvalbátunum og tilbúnir til að gera hvað sem þarf til að stöðva hvalveiðar, en Watson segir enga hættu steðja að áhöfnum hvalbátanna. Jim Townsend var um áratugaskeið hátt settir í varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna og þekkir Ísland vel. Hann ræðir hugsanlegt brotthvarf Bandaríkjahers frá Evrópu, rússnesk viðbrögð og þýðingu fyrir Ísland. Efla þarf viðnámsþrótt Íslands gagnvart fjölþáttaógnum með því að efla stafræna innviði. Uppbygging gagnavera og aðstaða fyrir skýjaþjónustu er lykilþáttur segir formaður Samtaka gagnavera. Orkunýting og skattaumhverfi þurfi að liggja ljós fyrir.
Gestur okkar í dag er Ísak Bergmann Jóhannesson, leikmaður Köln í þýsku Bundesligunni og einn af lykilmönnum íslenska landsliðsins.Ísak kom síðast til okkar 28. desember árið 2022, í þætti númer 95. Þá var hann tvítugur, samningsbundinn FCK og ósáttur við spiltímann. Hann sagði hreinskilnislega frá því að honum fyndist hann eiga skilið stærra hlutverk og vissi að eitthvað þyrfti að breytast.Nokkrum vikum síðar gekk hann á lán til Fortuna Düsseldorf. Það reyndist vendipunkturinn.Síðan þá hefur ferillinn tekið ótrúlegum breytingum. Hann upplifði vítaspyrnuharmleikinn gegn Bochum þar sem Düsseldorf missti af sæti í Bundesligunni á lokametrunum, var keyptur varanlega til félagsins, varð lykilmaður í tvö tímabil, tók síðan eina umdeildustu ákvörðun sem íslenskur knattspyrnumaður hefur tekið þegar hann gekk til erkifjendanna í Köln, og er í dag orðinn fastamaður í Bundesligunni og íslenska landsliðinu.Í dag ætlum við að rekja þessa vegferð frá því hann gekk út úr þessu stúdíói í desember 2022 og fram til dagsins í dag.Við förum yfir tímann hjá FCK, uppganginn í Düsseldorf, umdeildu skiptin til Köln, lífið í Bundesligunni og stöðuna í landsliðinu. Við ræðum líka FH-liðið sem faðir hans þjálfar, uppeldisfélagið ÍA, Bestu deildina og heimsmeistaramótið sem stendur nú yfir.Þessi þáttur er í boði:HéðinshurðirKALDIKAPPAHLKRÓNANÍslandssjóðirOrka NátturunnarORIGOBAUHAUSPAYDAYGIGGÓELKOSESSORFröken ReykjavíkKvikmyndaskólinnLengjanDave&JonsFrumherjiNjótið vel kæru hlustendur.
Ragnar Freyr varð nýlega fimmtíu ára og hélt auðvitað upp á það með mat og drykk. Hann ræðir einnig atburði liðinna mánaða, sérstakelga eftir að honum var sagt upp á Landspítalanum.
For years, I had a vision in my head of the kind of mom I was going to be. I would be present and patient. I would have snacks ready after school and summers full of creative activities. When I finally became a mom, I struggled to match the realities of the daily motherhood grind and the ideal images of motherhood I had in my head. This week's guest is Amy Marie Hann, author of Master the Mundane. I asked Amy Marie to come on the show because of a Substack article of hers I read all about letting go of "shoulds." Amy Marie shares three big things she finally let go of and what opened up for her once she did. ✨ The difference between liking the idea of something and actually wanting to do it, and how to tell which one you're dealing with ✨ What changed when Amy Marie stopped trying to be the house all the kids wanted to be at ✨ How Amy Marie found a way to work that didn't require choosing between two extremes If you've ever felt like you're forcing yourself into "shoulds" that don't quite match your reality, this one's for you. For full show notes, including takeaways, click here. *** Announcements: If this episode has you thinking about your own "shoulds," my course Motherhood Decluttered walks you through how to figure out what to keep and what to let go of — in a way that fits your life. Use code SUMMER through the end of June to get a 10% discount. Related Episodes: 463: How to Let Go of Mom Guilt 473: How to Get Through a Busy Season 354: Letting Go of Heavy Expectations of Yourself // Sneak Peek from the Declutter Your Motherhood Audio Course Episode Sponsors: First Day: For a limited time only, our listeners are getting an insane deal. Use code 3IN30 to get up to 57% Off at FirstDay.com. Knix Teen: It's not just underwear; it's giving our girls the confidence they deserve. Go to KnixTeen.com and use code 3IN30 for 15 percent off. Quince: Head to Quince.com/3in30 for free shipping on your order and 365-day returns Fodzyme (Kiwi Biosciences): We're so excited to partner with FODZYME and offer you 30% off your first order when you go to icaneatagain.com/3in30.com. Let's Connect! Join me on Instagram! Get weekly-ish emails with BTS of my life Find Your Magic in Motherhood: Free 3-Day Email Course ***
Þór Breiðfjörð tónlistarmaður er nýútskrifaður úr meistaranámi í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Meistararitgerðin hans heitir Vinsældir án vettvangs, staða söngleikjalistformsins á Íslandi sem menningarvettvangs. Þór kom í þáttinn og sagði okkur betur frá efni ritgerðarinnar, enda hefur hann heldur betur lifað og hrærst í söngleikjaforminu í gegnum tíðina. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, kom svo til okkar í dag með gullmola af safni RÚV. Í þetta sinn leyfði hún okkur að heyra hluta af spjalli Stefáns Jónssonar við Gústaf Pálsson borgarverkfræðing úr þættinum Hálftíminn: Um hreinlætið í Reykjavík frá árinu 1968. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Grétar Halldór Gunnarsson, prestur við Kópavogskirkju. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Grétar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Skrifað í sand - æviminningar Karls Sigurbjörnssonar Sálumessa syndara - æviminningar Esra Péturssonar geðlæknis (Ingólfur Margeirsson ritaði) Siddharta e. Hermann Hesse (íslenskuð af Haraldi Ólafssyni) Páll postuli Sigurbjörn Einarsson Tónlist í þættinum í dag: Bjartsýni / Ríó tríó (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) (Café Song) Empty Chairs and Empty Tables / Þór Breiðfjörð (Alain Boublil, texti Claude-Michel Schönberg, Úr Vesalingunum) Út á stoppistöð / Stuðmenn ( Jakob Frímann Magnússon) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Menningarmál/Saga Kristján B. Jónasson, bókmenntafræðingur Fjallað er um flutning beina Jónasar Hallgrímssonar til Íslands árið 1946, eitt undarlegasta mál síns tíma en um leið mál sem snertir sjálfstæðisbaráttu Íslendinga og sjálfstæði með afgerandi hætti. Enginn veit hvort bein Jónasar eru í raun þau réttu. Evrópumál/Evra Baldur Pétursson fyrrverandi framkvæmdastjóri við Norræna Þróunarbankann Baldur er eindreginn stuðningsmaður þess að Íslendingar taki upp evru og telur mikla möguleika felast í því fyrir Íslendinga. Hann andæfir ákveðið þeirri skoðun að það sé rétt að halda í íslenska krónu. Alþjóðmál HIlmar Þór Hilmarsson, prófessor við HA Hvernig verða áhrif Íransstríðsins og eftirmála þess á samband Bandaríkjanna við Evrópuþjóðir? Bandaríkjamenn halda áfram að gagnrýna önnur Natóríki og segja Úkraínustríið ekki koma sér við. Hafa þessar áherslur áhrif á stöðu Íslands og þá hvernig? Öfgaöfl í Þýskaland Helgi Gunnlaugsson, prófessor við HÍ Helgi fjallar um nýlega heimsókn sína til Þýskalands og sívaxandi áhrif öfgaafla þar í landi sem óneitanlega hefur vakið furðu og óhug margra. Hverjar eru skýringar þessarar þróunar?
Lagið Midnight Sun með Zöru Larsson kom út í fyrra á samnefndri plötu, en nýtur enn þvílíkra vinsælda þetta sumarið. Við kryfjum þetta lag sænsku poppprinsessunar undir dyggri leiðsögn Friðriks Margrétar Guðmundssonar. Svo fáum við pistil sendan með flugi frá París, Einar Már Jónsson, rithöfundur, segir frá merkum manni. Marc Bloch var afkastamikill fræðimaður en á miðjum aldri tók hann svo þátt í frönsku andspyrnuhreyfingunni. Hann á sér því merka ævi sem Einar Már rekur í þætti dagsins.
VEM: Marianne MörckYRKE: SkådespelareAVSNITT: 739OM: Livet vid teatern. Att fortfarande bli uppringd. Britt-Marie var här på Scalateatern. Nya inspelningar av Bonusfamiljen. Aversionen mot överdrivna publikapplåder. Friheten som kommer med åldern. Ensamheten som inte känns ensam. Kärleken till städning. Frontning på ICA. Att inte vilja bli störd av bingo och gitarrstund om huvudet en dag börjar svikta. Adoptionen. Vita arkivet och döden som praktiskt projekt. Det oväntade mötet med musikalbarnet från förr. Och en hel del om att svälja en vitlöksklyfta hel så att den sedan äter upp de dumma bakterierna.SAMTALSLEDARE: Kristoffer TriumfPRODUCENT: Mattias ÅsénKONTAKT: varvet@triumf.se och Instagram.Biljetter till Britt-Marie var här: https://www.scalateatern.se/ Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Bresk stjórnvöld kynntu í morgun áform um bann við notkun samfélagsmiðla. Bannið nær til barna undir 16 ára aldri. Sviðsstjóri Netöryggismiðstöðvar Íslands vill sambærilegt bann hér á landi. Dómur var kveðinn upp í dag yfir Mariusar Borg Høiby, stjúpsyni norska krónprinsins. Hann var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir tvær nauðganir og ofbeldi í nánu sambandi. Hann ætlar að áfrýja dómnum. En við byrjum á menguðum jarðveg.
Við heyrðum í Ingu Eydal í dag, hún var í hljóðstofu fyrir norðan og við ræddum við hana um föður hennar Ingimar Eydal tónlistarmann en þessa dagana er einmitt verið að auglýsa tónleika honum til heiðurs, en hann hefði orðið níræður í haust. Ingimar lék á píanó og var einn vinsælasti hljómsveitarstjóri á Íslandi og fjölhæfur tónlistarmaður. Ingimar var einnig vinsæll kennari og tók virkan þátt í bæjarlífinu á Akureyri. Ingimar stofnaði eigin hljómsveit 1962, Hljómsveit Ingimars Eydal sem lék í Sjallanum á Akureyri um margra áratuga skeið. Við skruppum á Þjóðskjalasafn Íslands og töluðum við Brynhildi Ingvarsdóttur fagstjóra miðlunar og útgáfu þar á bæ. Hún sagði frá hinum ýmsu leiðum miðlunar til að almenningur eigi sem greiðastan aðgang að safninu. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Vilhjálmur Pétursson rithöfundur og þýðandi. Hann var að gefa út fyrstu skáldsögu sína, nóvelluna, Harðindi, sem fékk fljúgandi start og vann samkeppnina Nýjar raddir hjá Forlaginu. En svo sagði hann okkur auðvitað frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Vilhjálmur talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Huldukonan e. Fríðu Ísberg Irpa e. Hildi Knútsdóttur Project Hail Mary e. Andy Weir Góðir Íslendingar e. Huldar Breiðfjörð Minnisbók e. Sigurð Pálsson Tónlistin í þættinum: María Ísabel / Hljómsveit Ingimars Eydal (J. Moreno & L. Moreno, texti Ásta Sigurðardóttir) Vor í Vaglaskógi / Hljómsveit Ingimars Eydal (Jónas Jónasson, texti Kristján frá Djúpalæk) Reyndu aftur / Mannakorn (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Sagnfræði Guðmundur Hálfdánarson, prófessor emeritus Guðmundur er nú að láta af störfum við HÍ, orðinn 70 ára og fer yfir ferilinn og helstu hugðarefni, sem einkennt hafa farsælan feril við sagnfræðirannsóknir, sérstaklega hugmyndir um þjóð, þjóðerni, fullveldi og sjálfstæði. Efnahagsmál/evrumál Jón Helgi Egilsson dr. í hagfræði Jón sem er fyrrverandi formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands, ræðir um upptöku evru fyrir Íslendinga og gagnrýnir þá hugmynd harðlega. Hann telur að upptaka evru myndi leiða atvinnuleysi yfir Íslendinga og kostnaðurinn sé því mun meiri en ábati kynni að vera. Menntamál Þórdís Sigurðardóttir, forstjóri Menntamálastofnunar Þórdís ræðir ýmsa þá gagnrýni sem fram hefur komið á menntakerfið hér á landi, m.a. vanrækslu í námsefnisgerð, framlög til skólakerfisins, samræmingu einkunnagjafar á milli skóla og fleira en einnig framfarir sem nýr námsmatsferill á að hafa í för með sér. Velferðarmál Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Kolbrún ræðir málefni barna, m.a. brottfararstöð hælisleitenda og gagnrýni á hana, þingsályktunartillögu um farsæld barna og framkvæmd velferðarlaga barna af hálfu Ríkisendurskoðunar.
Kaflar 20-22 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Ormstungur missa Gísla frá sér og hann hrekst að heiman og fer í leiðinni illa með þrælinn Þórð. Hann er dæmdur sekur og fer að finna fyrir ónotum í maganum.
Kaflar 25-27 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Njósnar-Helgi sýnir hvers hann er megnugur en Gísli er snjallari. Hann er nú orðinn frægur enda enginn hraustari eða hugrakkari. Ekki er hann þó gæfumaður.
Kaflar 28-30 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Þorkell fellur, ekki fyrir eigin hendi en þó fyrir eigin sverði. Gestur hinn spaki er farinn að toga í spotta. Magaverkir Gísla ágerast og valda honum slæmum draumförum. Hann er þó háll sem áll og ólíklegt að Ormstungur geti nokkurn tímann fangað hann.
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var íþróttafréttamaðurinn Hörður Magnússon. Hann er einn þeirra sem lýsir leikjunum á HM sem hófst í gærkvöldi. Hann var sjálfur mikill markaskorari fyrir FH á löngum ferli og spilaði einnig með A landsliðinu. Hann hefur verið íþróttafréttamaður í um það bil þrjátíu ár og lýsir íþróttakappleikjum af mikilli innlifun. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar í Hafnarfirðinum, upphaf knattspyrnuferilsins, hvernig það kom til að hann fór að vinna í íþróttafréttamennskunni, ást hans á tónlist og margt fleira. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Köld spænsk tómatsúpa er kælandi í sumarhitanum , við kíktum á uppskrift að einni slíkri og flettum svo í Eldhúsbókinni góðu einu sinni sem oftar. Tónlistin í þættinum: Eitt lag enn / Brimkló og Björgvin Halldórsson (erlent lag, texti Ómar Ragnarsson) Herbergið mitt / Brimkló (Arnar Sigurbjörnsson, texti Vilhjálmur frá Skáholti) Ripples / Genesis (Mike Rutherford, Phil Collins, Steve Hackett & Tony Banks) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
In preparation for Disclosure Day the bros have been contacted by the US Army to decode the anomoly that is Jóhann Jóhannsson's epic score for the 2016 phenemenon Arrival. Ev's score: 9.1 / Al's score: 8.8 / Ky's score: 9.0Musical term: MultiphonicInstrumental Instrument: VocoderIf you like what you hear, follow us on Spotify and opt-in to get notified when we drop future episodes. Better yet, get in touch and keep up with our score-settling antics on TikTok or Instagram
Á mánudagskvöldið kom stórfrétt í íslenskri golfsögu þegar kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson vann sér inn þátttökurétt á Opna bandaríska meistarmótinu í golfi. Hann verður fyrstur íslenskra karlkylfinga til að keppa á mótinu og annar Íslendingurinn til að keppa á risamóti karla. Gunnlaugur Árni, sem er einungis tvítugur, er gríðarlegt efni. Ólafur Björn Loftsson afreksstjóri Golfsambands Íslands, kom í þáttinn og útskýrði fyrir okkur í dag hversu stórt það er að komast inn á þetta mót og hverju það skiptir fyrir Gunnlaug Árna og íslenskt golf. Ný vitundarherferð er í gangi til styrktar Kvennaathvarfinu undir yfirskriftinni Rjúfum mynstrið. Rúmlega fimm þúsund manns hafa sótt prjónauppskriftina að prjónapeysunni Skjól sem Tinna Laufdal hannaði í samstarfi við Kvennaathvarfið og garn er að seljast upp í verslunum og fjöldi viðburða hefur verið skipulagður víða um land. Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra kom í þáttinn í dag einmitt í einni útgáfu af peysunni Skjól. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið, eins og hún hefur gert á miðvikudögum í vetur. Í dag sagði hún okkur frá rannsóknum á collageni sem fæðubótaefni. Tónlistin í þættinum: Ég veit þú kemur / Ellý Vilhjálms (Oddgeir Kristjánsson, texti Ási í Bæ) Ó borg mín borg / Haukur Morthens (Haukur Morthens, texti Vilhjálmur frá Skáholti) Ástrós / Bubbi Morthens og Bríet (Bubbi Morthens) Ég er kominn heim / Óðinn Valdimarsson (Imre Kálmán, texti Jón Sigurðsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Í Víðsjá dagsins höldum við á Listasafn Íslands og heimsækjum þar listfræðing og forverði til að forvitnast um málverkasafn danska 18. aldar greifans Otto Thott. Meðal þeirra gersema sem hann lét eftir sig voru yfir 30 olíumálverk af íslensku landslagi eftir óþekktan höfund sem hafði greinilega aldrei komið til Íslands því fátt minnir á íslenska náttúru í verkunum. Listasafn Íslands fékk þessi verk að gjöf árið 1928 en eru þau nú sýnd saman í fyrsta sinn í Safnasafninu á Svalbarðsströnd. Sýningin kallast Ísland í fjarska, við heyrum meira um hana í þættinum. Gauti Kristmannsson, bókmenntarýnir, fjallar um ljóðabók sem kom kom út á vordögum, Köngurváfa eftir Arndísi Þórarinsdóttur. Einnig hugum við að austuríska ljóðskáldinu Ingeborg Bachmann. En í ár 2026 eru hundrað ár liðin frá fæðingardegi hennar og af því tilefni birtast þýðingar á tíu ljóðum hennar í nýjasta hefti Skírnis. Kristján B. Jónasson, bókmenntafræðingur, þýðir og ritar stuttan kafla um ævi Bachmanns. Hann heimsækir okkur í hljóðstofu og segir frá þessu mikla skáldi.
Samkvæmt nýrri könnu er viðhorf almennings á Íslandi til dánaraðstoðar að tæp 74 prósent eru mjög hlynnt eða fremur hlynnt henni. Lífsvirðing er félag um dánaraðstoð sem var stofnað árið 2017 og hefur að markmiði að stuðla að opinni, upplýstri og yfirvegaðri umræðu um dánaraðstoð við skýr og ströng skilyrði. Ingrid Kuhlman er formaður félagsins og hún sagði okkur meira frá félaginu, niðurstöðum könnunarinnar og sinni persónulegu reynslu í þættinum í dag, en faðir hennar fékk dánaraðstoð í Hollandi árið 2002. Árbók Ferðafélags Íslands 2026 ber heitið Kjósasýsla og er nr.99 í þessri merku ritröð. Yfir sögusvið bókarinnar gnæfir fjallgarðurinn Esjan sem fylgst hefur með mannlífinu í Kjósarsýslusveitum frá margvíslegum sjónarhornum. Bjarki Bjarnason er höfundur bókarinnar en hann gjörþekkir þetta landsvæði og hefur búið í Mosfellssveit frá barnæsku. Hann kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá bókinni en í henni er að finna áhugaverðar ljósmyndir, jarðfræðikort, gróðurkort og kort sem sýnir staðsetningu á herbúðum sem risu víða í Kjósasýslusveitum í seinni heimsstyrjöldinni. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Í dag ætlar Einar byrjaði á því að kenna okkur nokkrar þumalputtareglur sem ágætt er að hafa í huga þegar kemur að veðrinu. Til dæmis: Hvað getur far skýjanna sagt okkur um það hvort það sé að kólna eða hlýna. Hvað segir blika á suðurhimni okkur um regnhorfur? Hver er munurinn á uppláttarbliku og fyrirstöðubliku? Hvenær verða góðviðribólstar að skúrabúlstrum? Svo hefur mælst sérlega lágur og eftirtektarverður loftþrýstingur fyrir árstímann, sem minnir á júní 1961 eða hvað? Og að lokum skoðaði Einar aðeins veðurhorfurnar framundan. Tónlistin í þættinum: Mexico / Snorri Helgason og Bríet (Snorri Helgason) Tryllta tungl / Brimkló (Barnes og Haggart, Ómar Ragnarsson) Sveitin mín / Haukur Morthens og Mezzoforte (Jóhann Helgason) Tempó Prímó / Uppáhellingarnir og Sigríður Thorlacius (Jón Múli Árnason, texti Jónas Árnason) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Year in Review: Clinical Investigator Perspectives on the Most Relevant New Datasets and Advances in Small Cell Lung Cancer | Faculty Presentation 2: Management of Relapsed/Refractory SCLC; Promising Investigational Agents and Strategies — Christine L Hann, MD, PhD CME information and select publications
Sería Sögufélags er ný ritröð um Íslandssögu þar sem vandaðar rannsóknir eru settar fram í lifandi frásögn. Bækurnar eru ríkulega myndskreyttar og er hver bók um sig nákvæmlega 100 blaðsíður. Ragnheiður Kristjánsdóttir er ein af fyrstu höfundum í þessum nýjum bókaflokki og hún kom til okkar í dag. Bók Ragnheiðar nefnist Þurfamenn fá mannréttindi, en árið 1927 var gerð breyting á íslenskum fátækralögum en fram að því var gert ráð fyrir að þau sem þáðu fátækrastyrk væru svipt ýmsum borgaralegum réttindum, svo sem atvinnufrelsi og kosningarétti. Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV kom til okkar með gullmola af safninu eins og hún hefur gert annan hvern mánudag í vetur. í dag kom hún með tvo fréttaauka frá árinu 1955 frá heimsókn forseta Íslands, Ásgeirs Ásgeirssonar, til Noregs. Fyrst stutt umfjöllunum Bjarna Guðmundssonar blaðaafulltrúa utanríkisráðuneytisins ferðina og svo frá heimkomu forsetahjónanna og móttökunum sem þau fengu, ræðu Auðar Auðuns bæjarstjóra og Ásgeirs sjálfs. Helga Lára sagði okkur meira frá þessu í þættinum. Og lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Andri Fannar Óttósson starfsmaður BUGL, barna- og unglingageðdeildar Landspítalans. Hann ætlar sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Andri talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Ljóðasafn Einars Braga, Lunch Poems e. Frank O'Hara Morgunþula í stráum e. Thor Vilhjálms Faðir vorið Selurinn Snorri Skólaljóðin og Íslendingasögurnar Tónlistin í þættinum: Sól bros þín / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) Negril / Bjartmar Guðlaugsson (Bjartmar Guðlaugsson) Gott er að lifa / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Gunnlaugur Jónsson og Þór Freysson komu til okkar í dag, en þeir hafa verið að gera nýju heimildarþættina um Bubba Morthens, Lögin hans Bubba, þar sem farið er yfir 15 vinsælustu lögin hans að mati þjóðarinnar. Á laugardaginn er komið að sjötugsafmælinu sjálfu, en þriðji og síðasti þátturinn verður í sjónvarpinu á föstudagskvöldi. Í þáttunum er rætt við Bubba auk fjölda samferðamanna hans þar sem lögin og hans helstu tímabil á löngum ferli eru rifjuð upp. Þeir Þór og Gunnlaugur fræddu okkur aðeins um Bubba Morthens í þættinum. Við töluðum snemma í apríl við Einar Guttormsson og Hartmann Guðmundsson sem voru þá á leiðinni í 3.500 km. hjólreiðaferðum vesturströnd Bandaríkjanna á 37 dögum. Nú eru þeir komnir aftur til baka og við heyrðum í dag hvernig ferðin gekk. Markmið ferðarinnar var að vekja athygli á Parkinsonsjúkdómnum og undirstrika mikilvægi líkamlegrar hreyfingar í baráttunni við sjúkdóminn, en Einar er sjálfur með Parkinson. Einar og Hartmann sögðu okkur betur frá hjólreiðaferðinni. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag talaði Jónatan um Stefán Jónsson söngvara Lúdó sextett, eða Stebba í Lúdó. Hann var meðal allra fyrstu rokksöngvara Íslands en hann kom kornungur fram á sjónarsviðið laust fyrir 1960 og varð jafnframt sá fyrsti af þeirri kynslóð rokksöngvara sem söng inn á plötu. Tónlistin í þættinum: Fjórir kátir þrestir / Egill Ólafsson, Edda Heiðrún Backman og Tamlasveitin (erlent lag, texti Jón Sigurðsson) Þrek og tár Fallegur dagur / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) Því ekki að taka lífið létt / Lúdó sextett (Lew Douglas, Cliff Parman & Frank Levere, texti Ómar Ragnarsson) Ólsen Ólsen / Lúdó sextett (Mann & Appel, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Ómar Ólafsson flugstjóri á að baki langan og stórmerkilegan feril í fluginu. Hann fór í flugnám um miðjan sjöunda áratuginn og hefur sinnt ótrúlega fjölbreyttum störfum á langri starfsævi hjá fjölda flugfélaga. Má þar nefna Flugfélagið Þór í Keflavík, flugþjónustu Björns Pálssonar, Vængi, Arnarflug, Transwede ab í Stokkhólmi, Sudflug GmbH og Condor í Þýskalandi. Að loknum atvinnuflugmannsferli réði hann sig til Flugmálastjórnar Íslands, nú Samgöngustofu þar sem hann sinnti eftirliti með flugrekstri í tæpan áratug. Ómar flýgur enn sér til ánægju á Cessnu 185 og stendur að veglegri uppbyggingu ásamt fleirum í Múlakoti í Fljótshlíðinni. Einkar áhugavert spjall við flugstjóra sem hefur upplifað og tekið þátt í gríðarlegum breytingum og þróun atvinnuflugs hérlendis og erlendis um áratuga skeið.
Viðar Örn Kjartansson er gestur Helga Fannars þessa vikuna. Viðar sneri heim á Selfoss í vetur og tekur slaginn með liðinu í 2. deild í sumar. Hann ræðir þessa endurkomu, kaflaskiptan tíma með KA og kemur inn á sína persónulegu baráttu utan vallar í þættinum, svo fá dæmi séu tekin.ComposeWrite to Helgi Fannar Sigurðsson
Í Heimsglugganum heyrðum við í Burkard von Müllenheim-Rechberg sem var hæst settur þeirra sjóliðsforingja sem komust lífs af er orrustuskipinu Bismarck var sökkt 1941. Hann var fyrsti ræðismaður Vestur-Þýskalands á Íslandi eftir stríðið. Peter Murrell, fyrrverandi framkvæmdastjóri Skoska þjóðarflokksins, og eiginmaður Nicolu Sturgeon, fyrsta ráðherra Skotlands, hefur viðurkennt fjárdrátt upp á 166 milljónir króna. Hjónabandi Murrells og Sturgeon er lokið og hún kveðst ekki hafa vitað um fjárdrátt eiginmannsins og rannsókn hafi leitt í ljós sakleysi hennar. Í Svíþjóð hefur stjórnarandstaðan tæplega 10 prósentustiga forskot á stjórnarflokkana en kosið verður til þings 13. september. 53,9 prósent segjast styðja stjórnarandstöðuflokka í nýrri könnun, 44,2 prósent kveðast ætla að kjósa einhvern stjórnarflokkanna. Í lokin var rætt um stöðuna í átökum Bandaríkjanna og Írans og möguleika á friðarsamningum.
https://solvitryggva.is/ Mikael Torfason er einn reyndasti fjölmiðlamaður Íslands, sem hefur í gegnum tíðina ritstýrt 3 af stærstu dagblöðum landsins. Hann breytti landslagi rithöfunda sem ungur maður þegar hann skrifaði bókina ,,Falskan Fugl", þar sem fjallað var um hluti sem aldrei höfðu áður birst í bókum á Íslandi. Mikael hefur alla tíð elskað ritmálið og nú býr hann Bandaríkjunum, þar sem hann vinnur við að skrifa handrit fyrir leikhús, bíómyndir og sjónvarpsþætti. Hér ræða hann og Sölvi um samfélagsmál, trú, Bandaríkin, fjölmiðla og margt fleira. Þátturinn er í boði; Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Ingling - https://ingling.is/ Kush.is - https://www.kush.is/
https://solvitryggva.is/ Parið Gísli Bachman og Elín Kristjánsdóttir hafa gengið í gegnum mikinn storm undanfarin ár eftir að Gísli var nafngreindur og myndbirtur í Kompás-þætti, þar sem hann sagði óviðeigandi hluti í starfi sínu sem stjörnuspekingur. Hann hefur misst sex störf á undanförnum árum vegna þáttarins og álagið á fjölskylduna hefur vægast sagt verið mikið. Í þættinum er sagan öll rakin, sem er skólabókardæmi um hve gríðarleg áhrif opinber umfjöllun getur haft og hvernig afleiðingarnar geta endað úr takti við allt sem gæti þótt eðlilegt. Þátturinn er í boði; Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Ingling - https://ingling.is/ Kush.is - https://www.kush.is/
Karl Alvarsson er fyrrverandi flugumferðarstjóri og lögfræðingur og hefur unnið ýmis sérfræðistörf tengd fluginu. Hann er í dag formaður Fagráðs um flugmál sem er innviðaráðherra til ráðuneytis í málaflokknum og er þar að auki formaður skipulagsnefndar fyrir Keflavíkurflugvöll. Í þættinum er rætt við Karl um skipulagsmálin, þá einkum í Reykjavík. Karl gagnrýnir að alþjóðaflugvöllurinn í höfuðborginni, sem jafnrframt er hjartað í innanlandssamgöngukerfinu, skuli háður starfsleyfi frá heilbrigðiseftirliti borgarinnar. Hann ræðir líka um fyrirkomulag skipulagsmála á Keflavíkurflugvelli og um helstu verkefni sem þar eru framundan. Ásælni flugfélaga í að hafa leyfi til flugrekstrar á Möltu eru líka til umræðu í þættinum og þeirri spurningu varpað fram hvort íslensk stjórnvöld geti gert eitthvað til að efla íslenska flugrekendur í alþjóðlegri samkeppni. Áhugavert spjall fyrir alla þá sem vilja fylgjast með í flugmálum.
https://solvitryggva.is/ Árni Páll Árnason, betur þekktur sem Herra Hnetusmjör skaust upp á stjörnuhimininn sem unglingur. Rapptónlist hans sló strax í gegn og síðan þá hefur hann verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins. Hann var að gefa út bók, sem óhætt er að segja að sér opinská. Hér ræða Sölvi og Herra Hnetusmjör um fíkniefnaneyslu, rapptónlist, bókaskrif og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Ingling - https://ingling.is/ Kush.is - https://www.kush.is/
In this episode, I sit down with my two closest friends, Kelly Karpe and Kate Hann, for an honest conversation about how our parenting has changed over time. We talk about the expectations we had as young moms, how God reshaped our hearts through different seasons, and what it looks like to release control and trust God more as our kids grow.These women have known me for a long time, so we share personal stories about comparison, surrender, friendship in motherhood, the importance of community in raising kids who love Jesus, and our hopes for our families in the years ahead. Resources MentionedMoms, Dads, and Grads Gift GuideSign up for Morning MinuteOpen a LearningRX centerPrefer video? Find this and other episodes on YouTube!The Christian Parenting Podcast is a part of the Christian Parenting Podcast Network. For more information visit www.ChristianParenting.orgPrivacy & Opt-Out: https://redcircle.com/privacy
Þátturinn í dag er eins konar óður til öldunga. Annars vegar fjöllum við um einn virtasta og dáðasta mann samtímans, David Attenborough. Hann veðrur 100 ára þann 8.maí næstkomandi. Anna Lilja Þórisdóttir fer yfir sögu og arfleið Attenborough. Og svo eru það Pete og Bas, Bretar sem eru að nálgast áttrætt en eru að rappa á fullu, nýkomnir frá Bandaríkjunum, eru núna á Evróputúr. Bjarni Pétur segir okkur frá þeim.
https://solvitryggva.is/ Gunnar Nelson er eini Íslendingurinn sem hefur algjörlega lifað af keppni í bardagaíþróttum um árabil. Hann komst ungur í fremstu röð og fékk samning á UFC, þar sem aðeins allra öflugustu bardagamenn heims keppa. Faðir hans Haraldur Dean Nelson hefur stutt við bakið á vegferð sonarins frá fyrsta degi og er jafnframt umboðsmaður hans. Hér ræða þeir feðgar við Sölva um hæðirnar og lægðirnar í UFC, sambandið við Conor McGregor, stressið áður en farið er inn í búrið og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Smáríkið - https://smarikid.is/ Ingling - https://ingling.is/
https://solvitryggva.is/ Guðni Gunnarsson er lífsstílsráðgjafi og einn af helstu frumkvöðlum Íslands á sviði heilsuræktar. Guðni hefur í áratugi unnið með fólki um allan heim þegar kemur að heilsu. Hann snýr aftur í þáttinn, þar sem farið er yfir sjálfsábyrgð, leiðir til að elska sjálfan sig, mátt orða og andlega og líkamlega velferð. Þátturinn er í boði; Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Smáríkið - https://smarikid.is/ Ingling - https://ingling.is/
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Mikael Torfason er einn reyndasti fjölmiðlamaður Íslands, sem hefur í gegnum tíðina ritstýrt 3 af stærstu dagblöðum landsins. Hann breytti landslagi rithöfunda sem ungur maður þegar hann skrifaði bókina ,,Falskan Fugl", þar sem fjallað var um hluti sem aldrei höfðu áður birst í bókum á Íslandi. Mikael hefur alla tíð elskað ritmálið og nú býr hann Bandaríkjunum, þar sem hann vinnur við að skrifa handrit fyrir leikhús, bíómyndir og sjónvarpsþætti. Hér ræða hann og Sölvi um samfélagsmál, trú, Bandaríkin, fjölmiðla og margt fleira. Þátturinn er í boði; Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Smáríkið - https://smarikid.is/ Ingling - https://ingling.is/
Rætt er við Kjartan Briem framkvæmdastjóra AVIANS dótturfyrirtækis ISAVIA, en fyrirtækið annast flugleiðsöguþjónustu á íslenska flugstjórnarsvæðinu, sem er eitt hið stærsta í heimi. Kjartan segir frá breytingum sem orðið hafa í tækni og þjónustu á liðnum árum og ræðir þær áskoranir sem blasa við. Unnið er að því að fjölga í hópi flugumferðarstjóra til að tryggja að ekki verði skortur sem komi niður á þjónustunni eins og stundum hefur gerst á síðustu árum. Hann segir kynslóðaskipti vera að eiga sér stað í hópi flugumferðarstjóra vill sameina krafta krafta starfsfólks um að auka sveigjanleika og tryggja um leið öfluga þjónustu við flugið.
Ágústa var með okkur í dag en hún er að fara halda listasýningu næsta laugardag á Sólheimum. Hjálmar og Ágústa sögðu hvernig samband Helga verður í framtíðinni. Stjörnukortið hans Helga er að segja honum að hann eigi að vera á hápunkti gráa fiðringsins en lífið hans er akkúrat öfugt við það núna.IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe´a!Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is
Do you have a book in you, waiting to be written? Or are you just curious what a developmental editor actually does for an author? To answer those questions, I invited an extra-special guest on the Terri Cole Show: The editor I work with on my very own books, Joelle Hann. We chat about how Joelle has become such a precious part of my book-writing team, how she got her start as a developmental editor, and the growth process authors go through as they face the daunting task of finishing their first books! If you're working on a book and are ready to make it happen, apply to Book Proposal Academy [https://brooklynbookdoctor.com/bpa-tc-show/]. Joelle will personally take a closer look at your book idea and discuss your next best steps! The next cohort starts on April 17th. Read the show notes at terricole.com/816