EINA ÍSLENSKA PODCASTIÐ UM PONDUS EFTIR FRODE ØVERLI. Podcast-ið (í. hlaðvarpið) er í formi örþátta til að byrja með þar sem fjallað er allt á milli Pondus og jarðar. Hægt að er lesa/skoða Pondus í Fréttablaðinu í efnislegu formi og í vefformi á visir.is.
Pondcastið - Íslenska Pondus podcastið
Síðasti þátturinn í seríu 1 af Pondcastinu! Halló, hvað er að gerast? Eitt orð: Stemming. Í þessum þætti er litið yfir þann malaverg sem þættirnir hafa fetað undanfarna fyrstu seríu og skemmtilegar uppákomur rifjaðar upp. Hver hefði haldið að það gætu komið svona margir þættir út? Fáir höfðu trú en við höfuðum þrautseigjuna. Slakið á og leyfið þáttinum að sefa ykkar sársasta sunnudagsþorsta. Já, krakkar mínir. Það er sko byrjað að birta til. Umsjónarmaður: Jóhann V. Hjaltason Gestir: Aðalsteinn Hannesson, Bjarni Benediktsson, Daníel Godsk Rögnvaldsson & Sigmar Darri Unnsteinsson.
Fjallað er um útlitsstaðla og hjálparhellu Drakúla greifa. Umsjónarmaður: Jóhann V. Hjaltason Gestir: Aðalsteinn Hannesson, Sigmar D. Unnsteinsson Tæknimaður: Bjarni Benediktsson
Hæhæ, Aðalsteinn hér, vildi bara aðeins fá að ræða við ykkur um mitt helsta áhugamál, Pondus :)
A VERY SPECIAL EPISODE. Sumardagurinn fyrsti special. Í þættinum í dag er hið svokallaða Stóra Wikipediamál skoðað ásamt Pondusi dagsins að sjálfsögðu. Rýnt er í stöðu tjáningafrelsis á Íslandi og einnig er rætt við vegfarendur um hvað þeim finnist um Pondcastið. Ekki missa af þessum sérstaka þætti gerður í tilefni Sumardagsins fyrsta. Umsjónarmaður: Bjarni Benediktsson Gestir: Jóhann V. Hjaltason, Daníel Godsk Rögnvaldsson Sérstakir gestir: Aðalsteinn Hannesson, Sigmar D. Unnsteinsson
S01E09 - 18. apríl 2018 - Afbrýðisemi by Pondcastið - Íslenska Pondus podcastið
Umsjónarmaður: Bjarni Benediktsson Gestir: Aðalsteinn Hannesson, Daníel Godsk Rögnvaldsson Fjallað um Pondus dagsins 16. apríl.
Ég kann ekkert á þetta forrit?
Jóhann V. Hjaltason fer á stúfana og tekur viðtal við Unu Sóleyju Sævarsdóttur og Atla Pálsson á Loft Hostel. Rætt er um erfiðleikana sem einhentir trommarar þurfa að glíma við og ónefndan Stuðmann.
Fjallað um Pondus dagsins 13. apríl 2018. Umsjónarmaður: Jóhann Viðar Hjaltason. Gestur: Aðalsteinn Hannesson. Fjallað um Pondus dagsins og rætt um þá erfiðleika sem íþróttafréttamenn þurfa stundum að takast á við í sínu daglega lífi og þáttastjórnendur svara við því hver er uppáhalds karkaterinn í myndasögunum fyrir utan Pondus!
Fjallað um Pondusinn 12. apríl 2018. Umsjónarmaður: Bjarni Benediktsson. Gestir: Aðalsteinn Hannesson og Daníel Godsk Rögnvaldsson. Fjallað um samskipti kynjanna í Pondus og rödd lítilmagnans fær að heyrast.
Fjallað um Pondusinn 11. apríl 2018. Umsjónarmaður: Bjarni Benediktsson, Gestir: Jóhann Viðar Hjaltason og Sigmar Darri Unnsteinsson. Erum komnir á ról. Fjallað um heimspekina í Pondus dagsins dag og einnig vísað í verkfræðina á bakvið puntaðstöðu Báru, eiginkonu Pondusar, meðal annars.
Þáttur 1: Fjallað um Pondusinn 10. apríl 2018. Umsjónarmaður: Bjarni Benediktsson. Gestir: Aðalsteinn Hannesson og Sigmar Darri Unnsteinsson. Fyrsti þátturinn er alltaf erfiðastur. Fjallað um verkfræðina á bakvið Pondus, hamborgara og fótbolta.