POPULARITY
Categories
Þórarinn ræðir við Jón Pétur Zimsen, þingmann Sjálfstæðisflokksins og fyrrum skólameistara, og Guðmund Skúla Johnsen, formann lesblindrafélagsins.Fjallað er um stöðu skólakerfisins og hvernig það sé að takast á við þær hindranir innan kerfisins sem berjast gegn nýsköpun og viðhalda óbreyttu ástandi. Þremenningarnir hafa áhyggjur af stöðunni og að brjóta þurfi upp kerfið til þess að koma til móts við hópa með sérþarfir og bæta árangur þeirra barna sem eru ekki innan kerfis sértækra úrræða.- Hvernig má bæta lesskilning?- Hvernig ver kerfið sig?- Hvað gerist að óbreyttu?Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur:500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.meHappy Hydrate kóði: EINPAELING25
Þórarinn ræðir við Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins um stöðu flokksins og hennar sem formanns nú eftir sigur í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum. Fjallað er um landsmálin og hvort að lélegur árangur Samfylkingarinnar sé vísbending um það sem koma skal nú þegar umræður um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið er komið á dagskrá.- Telur Guðrún ríkisstjórnina veika nú eftir sveitarstjórnarkosningar?- Ætlar Guðrún að halda áfram sem formaður á næsta landsfundi?- Mun Sjálfstæðisflokkurinn lækka skatta í 35% fái hann tækifæri?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur:500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.meHappy Hydrate kóði: EINPAELING25
Þórarinn ræðir við Brynjar Níelsson en hann er nú í framboði í kosningum sem háðar eru 16. maí næstkomandi.Fjallað er um borgarmálin, hvað Brynjar telur að þurfi að gera, hverjum hann er til í að starfa með, hvað hann vill gera í rekstrinum, samgöngumálunum, skólamálunum og fleira.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur:500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.meHappy Hydrate kóði: EINPAELING25
Þórarinn ræðir við Pétur Marteinsson, oddvita Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningar.Pétur telur að breytt stefna sé mikilvæg en að almennt séð hafi rekstur borgarinnar gengið vel. Fjallað er um íþróttastefnu, áherslubreytingar Péturs, kulnun, stjórnmálin, hagræðingu í rekstri og margt fleira.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur:500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.meHappy Hydrate kóði: EINPAELING25
Veislan er byrjuð! Besta deildin er farin af stað. Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke eru í hljóðveri. Fjallað er um stórmeistarajafntefli Víkings og Breiðabliks, hitað upp fyrir leiki sunnudagsins og farið yfir helstu fréttir og tíðindi.
Fjallað verður um skrifborðsæfinguna Winter Storm 2030 sem haldin er á vegum Nato í París,þar verður unnið úr sviðsmyndum um það hvernig átök í norðri gætu hafist og þróast, og ekki síst hvernig bregðast ætti við og berjast við ískaldar aðstæður á norðurslóðum. Við fjöllum líka um beinagrind sem fannst nýverið og er talin vera af einni fræknustu hetju franskra bókmennta. Og svo eru það strandsiglingarnar og hvað þarf til að þær hefjist að nýju
Þórarinn ræðir um stjórnmálin, atvinnuleysi, fjölmiðlanefnd, skilvirkni hins opinbera og hvernig þetta allt tengist. Fjallað er um hvernig hið opinbera færist í síauknum mæli í átt að járnbúri Weber þar sem ekkert er ríkinu óviðkomandi og skilvirkni er metin eftir afskiptasemi.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur:500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me
Þórarinn ræðir við Jón Magnús Kristinsson, starfandi aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, en hann hefur einnig mikla reynslu af heilbrigðiskerfinu og starfaði sem yfirlæknir bráðamóttökunnar áður en hann hóf störf í ráðuneytinu.Rætt er um stöðu Landspítalans í samhengi við einkarekstur og opinberan rekstur. Fjallað er um hugmyndafræði, greiðsluþátttöku, nýtingu, hagræðingu, framleiðni og skort.Jón Magnús segir mikilvægt að huga að samfélagssáttmálanum þegar rætt er um heilbrigðiskerfið. Hann telur að almenn sátt liggi á bakvið þá ákvörðun að heilbrigðisþjónusta sé fjármögnuð í gegnum sameiginlega sjóði og ekki eigi að vera hægt að borga sig fram fyrir röðina.Einnig er. rætt um DRG-kerfið, kjarasamninga hjúkrunarfræðinga og lækna, hvata lækna til þess að starfa á Íslandi og fleira.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðPalssonfasteignasala.isHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur (kynningartilboð):500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me
Þórarinn ræðir við Guðlaug Þór Þórðarson, fyrrum ráðherra, um alþjóðastjórnmálin.Fjallað er um hagsmunagæslu Íslendinga í nýjum veruleika, varnarmál, fágætismálma, hagsmunir Íslands í samhengi við hagsmuni til Vesturs og Austurs, skuggabann og margt fleira.Upptaka 15. janúar 2026.Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðDrifa.isPalssonfasteignasala.isHeitirpottar.is
Þórarinn ræðir við Agnas Tómar Möller og Björn Jón Bragason um alþjóðastjórnmál og menningu.Rætt er um samfélagslega lofttæmið sem lengi hefur verið við lýði og hvaða áskoranir muni leita á okkar borð á næstunni.Fjallað er um Grænland, Bandaríkin, sögulegt samhengi og hvort að lífskjör á Íslandi séu afleiðing handahófskenndra atburða.Þá er einnig farið yfir það hvað áhrif lestur og nám hefur áhrif á menningu og hvaða áskoranir eru til staðar í þeim efnum hér á landi.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðDrifa.isPalssonfasteignasala.isHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur (kynningartilboð):500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me
Þórarinn ræðir við Kolbein H. Stefánsson, kennara við félagsfræðideild háskóla Íslands, og Jökul Sólberg, frumkvöðul og sósíalista.Kastljósinu er beint að alþjóðastjórnmálunum og er rætt um það hvaðan uppspretta nýju strauma heimsvaldastefnunnar er að finna. Fjallað er um Venezuela, þjóðernishyggju, peningastefnu Evrópu, Þorgerði Katrínu, Rússland og Úkraínu.- Eru til jákvæðar hliðar þjóðernishyggju?- Væri sanngjarnt að skila einræðisherranum?- Hvaða stöðu ætti Ísland að taka sér?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðDrifa.isPalssonfasteignasala.isHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur (kynningartilboð):500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me
Þórarinn ræðir við Hilmar Frey Gunnarsson, húsasmíðameistara, um húsnæðismál, stjórnsýsluna, Grindavík og fleira.Hilmar telur að kerfið sporni við því að fólk geti byggt eigið heimili og að það sé nær ómögulegt miðað við áherslur stjórnvalda. Fjallað er um þetta í samhengi við aðgerðir stjórnvalda í Grindavík og hugmyndafræðilegan ágreining sem fylgir náttúruhamförum og frelsi íbúa til þess að snúa aftur heim. Byggingarstaðlar eru einnig til umræðu og hvað þyrfti að gera til þess að bæta þá. Þá er einnig rætt um mismunandi sjónarmið og menningu í byggingargeiranum sem hefur fylgt því að erlendir byggingaraðilar komi en hafa minni þekkingu á íslenskri veðráttu og byggingarstöðlum hér á landi.- Afhverju getur maður ekki byggt sitt eigið heimili?- Afhverju fá Grindvíkingar ekki að snúa heim?- Virða erlendir byggingaraðilar íslenska staðla?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðDrifa.isPalssonfasteignasala.isHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur (kynningartilboð):500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me
Þórarinn ræðir við Stefán Mána, rithöfund með meiru.Fjallað er um list, listamannalaun, faraldursárin, Kafka, slaufunarmenningu, hagsmunagæslu stjórnmálamanna, umburðarlyndi, GÍsla Martein og afhverju það er verið að reyna að slaufa Stefáni.- Eru jólin hundaflauta?- Afhverju er verið að reyna að slaufa Stefáni Mána?- Afhverju er Stefáni Mána ekki boðið í Gísla Martein?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðDrifa.isPalssonfasteignasala.isHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur (kynningartilboð):500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me
Þórarinn ræðir við Kolbein H. Stefánsson, kennara við félagsfræðadeild Háskóla Íslands um stefnu, menningu og áhrif akademíunnar á Íslandi.Fjallað er um hvernig akademísk umræða hefur tekið breytingum undanfarin ár í kjölfar mikillar bómullarvæðingar þar sem beinskeyttar umræður voru kveðnar í kútinn til þess að þóknast þeim sem telja slík orðaskipti vera of hvöss. Kolbeinn segir þetta hafa verið óheillabreyting og fráhvarf frá því umhverfi sem hann var í við Oxford háskóla þar sem gagnrýni var fagnað. Slíkt er ekki upp á teningnum víða í dag að hans mati. - Síðan hvenær má engum líða illa?- Hver flutti inn menningarstríðið?- Þurfum við hugmyndafræðilegan fjölbreytileika?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðDrifa.isPalssonfasteignasala.isHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur (kynningartilboð):500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið á Hrafnadalur@proton.me
Þórarinn ræðir við Örnu Láru Jónsdóttur sem er alþingismaður Samfylkingarinnar og formaður viðskipta- og efnahagsnefndar. Í upphafi þáttar er rætt um stöðu Íslands og efnahagskerfið. Arna Lára telur of mikla svartsýni einkenna umræðuna og að hægt sé að horfa björtum augum til framtíðar þrátt fyrir áskoranir sem hún segir vera tímabundnar.Fjallað er um húsnæðispakkkann, kólnun hagkerfisins, hlutdeildarlán, atvinnuleysi, útlendingamál, laxeldi, stjórnmálin, sveitarstjórnarkosningar og margt fleira.- Mun Samfylkingin styðja við laxeldi í sjó?- Styður Samfylkingin að reka afbrotamenn úr landi?- Hver verður oddviti Samfylkingarinnar í borginni?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðDrifa.isPalssonfasteignasala.isHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur (kynningartilboð):500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið á Hrafnadalur@proton.me
Þórarinn ræðir við Jónas Atla Gunnarsson, hagfræðing og teymisstjóra Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar og framtíðarhorfur á fasteignamarkaði.Rætt er um hvaða áhrif húsnæðispakkinn kann að hafa á næstunni og hvernig það mun koma til með að birtast í efnahagskerfinu og á hinum pólitíska vettvangi.Fjallað er um leiguverð, fasteignaverð, óhagnaðardrifin úrræði, eftirlit og óháðar byggingarúttektir, hvort að fasteignir munu leita á kennitölur lögaðila, hlutdeildarlán, vaxtadóm hæstaréttar og stýrivexti.- Mun fasteigna- og leiguverð hækka á næstunni?- Hvaða pólitísku áhrif mun húsnæðispakkinn koma til með að hafa?- Er pólitískur vilji fyrir niðurgreiddu húsnæði óhagnaðardrifna leigufélaga?- Hvaða áhrif mun vaxtadómur hæstaréttar hafa á framtíðina?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðDrifa.isPalssonfasteignasala.isHeitirpottar.is
Þórarinn ræðir við Jökul Sólberg, frumkvöðul og sósíalista, um heimspekileg og hugmyndafræðileg ágreiningsefni.Fjallað er um samþykktan kúltúr, afhverju stjórnmál eru horfin úr tónlist og öðrum listgreinum, Kína, woke-ið, Gísla Martein og margt fleira.- Er Kína með lausnirnar?- Er Gísli Marteinn þverskurður þjóðarinnar?- Afhverju er pólitík horfin úr tónlist?Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðDrifa.isPalssonfasteignasala.isHeitirpottar.is
Fjallað var um Tansaníu í Heimsglugga vikunnar og einnig kosningarnar í Bandaríkjunum sem voru í fyrradag. Jón Geir Pétursson, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við HÍ, þekkir afar vel til í Afríku, hefur búið og starfað í nokkrum löndum álfunnar og er einn höfunda bókarinnar Afríka sunnan Sahara í brennidepli II, sem kom út í fyrra. Tansanía er stórt land og þar búa um 47 milljónir manna en fréttir frá landinu eru ekki daglegt brauð í vestrænum miðlum. Ólga og blóðug mótmæli í tengslum við forsetakosningar þar í síðustu viku hafa verið í fréttum. Samia Suluhu Hassan var endurkjörin forseti með 98 prósentum atkvæða og augljóst að brögð voru í tafli. Jón Geir sagði okkur frá Tansaníu og við byrjuðum fyrir meira en hundrað árum.
Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri Kötlu DMI og fv. formaður SAF, og Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventure, ræða um stöðu og framtíðarþróun ferðaþjónustunnar, samkeppnina við önnur ríki og samkeppnishæfni Íslands, um vöxtinn sem hefur orðið í greininni og hvaða áhrif hann hefur haft á bæði efnahagslífið og samfélagið, hvað megi betur fara, aðkomu stjórnvalda sem virðist ekki alltaf vita hvað þau vilja gera við atvinnugreinina annað en að skattleggja hana og margt fleira.
Þriðjudagur 14. október Biskup Íslands, þúsund ára ríkið, skipulögð glæpastarfsemi og nýtt lífsskoðunarfélag Við hefjum leik á samtali við Guðrúnu Karls Helgudóttir biskup. Ár er liðið síðan hún var vígð í embættið. Hún segist bjartsýn á frið í heiminum þótt tímarnir séu viðsjárverðari en um langt skeið. Hún segist hafa þurft að hugsa sig tvisvar um áður en hún ákvað að blanda sér í umræðuna eftir alræmdan Kastljóssþátt á dögunum þar sem vegið var að minnihlutahópum. Björn Þorláks ræðir við biskup. Fjallað verður um skipulagða glæpastarfsemi. Svala Ísfeld Ólafsdóttir lögfræðingur og dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík og Helgi Gunnlaugsson prófessor í afbrotafræði við Háskóla Íslands ræða við Gunnar Smára um rót skipulagðrar glæpastarfsemi og þróun á Íslandi. Hvað stjórnvöld gera og hvað stjórnvöld gætu gert til að sporna við henni. Bjarni Randver Sigurvinsson trúarbragða- og guðfræðingur ræðir við Gunnar Smára hugmynd þjóðernissinnaða hvíta evangelíska kirkju um þúsund ára ríkið og hvaða áhrif hún hefur á pólitík í Bandaríkjunum og víðar. Svanur Sigurbjörnsson læknir er nú í hléi frá lækningum til að stofna nýtt lífsskoðunarfélag. Viðhorf hans um lífið og tilveruna fóru fyrst að breytast eftir árásina á Tvíburaturnana í New York. Björn Þorláks ræðir við Svan.
Þórarinn ræðir við Uglu Stefaníu Kristjönu- Jónsdóttur um transmálin á Íslandi.Fjallað er um hvernig umræðan hefur breyst, bakslagið, trans börn, hversu mörg kyn það séu, leikjafræði umræðunnar, afhverju transfólk er alltaf vinstrisinnað, hatursorðræðu, búningsklefamálin, hvort að trans konur eigi að vera í kvennaklefa í sundi, hormónameðferðir, stöðuna í Bandaríkjunum og Bretlandi og margt fleira.Ugla segir að á Íslandi sé umræðan almennt betri en gengur og gerist erlendis þrátt fyrir að hafa versnað. Hún telur mikilvægt að viðhalda þeirri stöðu og til þess að gera það þurfi að eiga heilbrigðar samræður. Hún segir internetið valda því að varhugaverðir aðilar nái tökum á umræðunni sem að í kjölfarið auki skautun hjá báðum fylkingum.- Telur Snorri Másson Uglu vera karlmann?- Eru hormónameðferðir afturkræfar?- Er hægt að sannfæra börn um að þau séu trans?- Hvað er hatursorðræða?Þessum spurningum er svarað hér.
Fimmtudagur 9. október Leikskólar, vextir, öryggismál, lögfræði og Trumpland Gunnar Smári heldur áfram umræðu um leikskólana. Að þessu sinni koma þær Halla Gunnarsdóttir formaður VR og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hagfræðingur BSRB og segja hvers vegna þær eru á móti tillögum um styttri vistunartíma á leikskólunum. Finnbjörn A. Hermannsson hjá ASÍ furðar sig á hávaxtastefnu Seðlabankans sem hann segir að valdi miklu tjóni. Þá séu álitamál með krónuna og fleira sem hafi neikvæð áhrif á fólk, einkum hina skuldsettu. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um vopnahlé á Gaza og öryggismál Evrópu, stöðu álfunnar í fjölpóla heimi. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir álitamál í lögfræði tengd fréttum líðandi stundar. Fjallað verður um vændi, hvort líklegt sé að Ísland fái mikilvægar undanþágur með inngöngu í ESB, muninn á málfrelsi og tjáningarfrelsi og rétt eða órétt Ísraela til að handtaka fólk á hafi úti. Björn Þorláks ræðir við Gísla. Gunnar Smári ræðir við Harald Sigurðsson jarðfræðing, sem býr í New Bedford í Massachusetts, um áhrif Trump á bandarískt samfélag. Er Trump að takast að brjóta niður margt af því besta sem byggt var upp í Bandaríkjunum á liðnum áratugum.
Þórarinn ræðir við Bergþór Ólason um stjórn- og samfélagsmál nútímans og snert á ýmsu.Fjallað er um útlendingamál, transmál, fjárlögin, Charlie Kirk, Snorra Másson, ungt fólk sem færir sig í auknum mæli til hægri, tjáningarfrelsi, erlenda glæpahópa, og margt fleira. Bergþór telur að hatursöflin séu betur skipulögð á vinstri væng stjórnmálanna þrátt fyrir það að umræður um þessi mál bendi til hins gagnstæða.- Er munur á líffræðilegu og félagslegu kyni?- Er hatur vinstrivængsins betur skipulagt en á hægrivængnum?- Hvernig vill Miðflokkurinn tækla erlenda glæpahópa?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón Fiskhúsið
Þórarinn ræðir við Kolbein H. Stefánsson um akademískt frelsi, útlendingamál og Háskóla Íslands. Akademískt frelsi hefur verið sérstaklega áberandi umræðuefni undanfarið eftir að Ingólfur Gíslason, aðjúnkt við deild menntunar og margbreytileika, tók þátt í mótmælum sem urðu til þess að ísraelski prófessorinn Gil S. Epstein gat ekki haldið erindi á vegum Háskóla Íslands. Sama dag og hlaðvarpið var tekið upp, þó eftir, brást rektor Háskóla Íslands loks við með því að hvetja til aukinnar umræðu um akademískt frelsi. Sú umræða hefur einnig velt upp spurningum um tjáningarfrelsi og ritskoðun. Auk þess að ræða þessi mál er rætt um útlendingamál og breytta sviðsmynd bæði er varðar umræðu og veruleika þeirra á Íslandi. Fjallað er um aðlögun á íhaldssömum gildum frá Mið-Austurlöndum, hvort ómenntað fólk sé vitlausara en menntað fólk, vísindalegan sannleik, pólitíska slagsíðu innan HÍ, skakkt hvatakerfi HÍ, sjálfsritskoðun kennara, tjáningarfrelsi og um þá staðreynd að aukinn innflutningur fólks til Íslands auki andúð gegn samkynhneigðum á Íslandi. - Eykur innflutningur fólks til Íslands andúð gegn samkynhneigðum? - Er vísindalegur sannleikur til? - Er pólitísk slagsíða innan félagsvísindadeilda Háskóla Íslands? - Er ómenntað fólk vitlausara en menntað fólk? Þessum spurningum er svarað hér.
Þórarinn ræðir við Frosta Sigurjónsson, frumkvöðul og fyrrum alþingismann. Frosti hefur miklar efasemdir um ágæti loftslagsaðgerða og að loftslagsbreytingar séu yfir höfuð af mannavöldum. Hann telur að Ísland nýti tækifæri sín ekki að fullu og að margt megi bæta í því að bæta lífskjör á Íslandi.Fjallað er um loftslagsaðgerðir, faraldurinn, thorium, vindmyllur, stjórnmál á Íslandi og hvort að Ísland eigi að ganga í ESB.- Eru loftslagsbreytingar vegna áhrifa mannsins á lífríkið?- Eru vindmyllur heillvænlegt skref til orkuöflunar á Íslandi?- Á Ísland að ganga í Evrópusambandið?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á:www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón Fiskhúsið
Þórarinn ræðir við Jón Pétur Zimsen, skólamann og þingmann Sjálfstæðisflokksins. Rætt er um veiðigjöldin, umræðuna í kringum þau á Alþingi Íslendinga og áhrif þess á stjórnmál framtíðarinnar. Að því loknu er vikið að bágri stöðu skólakerfisins og afhverju foreldrum er haldið í myrkrinu hvað varðar árangri barnanna.Fjallað er sérstaklega um áhrif skjánotkunar og afhverju erfitt virðist vera að útiloka slík tæki í skólunum. Jón Pétur telur hagsmunaöfl hafa hagsmuni af því að skjánotkun barna minnki ekki. Þetta segir hann vera gríðarlega slæmt vegna þess að framtíð barnanna og velferð þeirra til framtíðar verður verri ef ekki er gripið í taumana strax. Hann vísar máli sínu til stuðnings til rannsókna eins og PISA þar sem niðurstöður íslenskra barna verður verri og verri.- Hvernig verða börn heimskari vegna skjánotkunar?- Hvaða öfl halda skólakerfinuí gíslingu?- Gerði Sjálfstæðisflokkurinn sér óleik í veiðigjaldamálinu?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þessa þætti án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á:www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón Fiskhúsið
Þórarinn ræðir við Jónas Atla Gunnarsson, hagfræðing hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, um uppbyggingu húsnæðis. Fjallað er um þau áhrif á fasteignamarkaðinn sem kunna að eiga sér stað vegna dræmrar sölu á nýbyggingum. Rætt er um ýmsa þætti sem kunna að hafa áhrif á þessa stöðu líkt og hlutdeildarlán, lækkun stofnkostnaðar fyrir óhagnaðardrifna úrræða, stjórnmálin, hvort að HMS sé pólitísk stofnun, fjölskyldumynstur, þróun í Vesturlöndum og margt fleira.- Afhverju seljast ekki nýjar byggingar?- Hvað gerist ef fasteignasala minnkar?- Hvaða áhrif hafa áherslur í íbúðauppbyggingu á fjölskyldumynstur framtíðarinnar?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þessa þætti án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á:www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón Fiskhúsið
Þórarinn ræðir við Jasmínu Crnac sem hefur bæði reynslu af því að vera flóttamaður og starfa með flóttafólki hér á landi. Fjallað er um hinar ýmsu áskoranir sem mæta löndum sem taka á móti flóttafólki og hvaða áhrif almenningsumræður hafa á málaflokkinn. Rætt er um menningu, stjórnmálin, lýðræði, MENAPT löndin, hvort að endurkomubann eigi að vera á afbrotamenn, öfgaöfl á Íslandi, ofþjónustu og fyrirmyndir á Alþingi.- Eru öfgastjórnmálaöfl á Íslandi?- Á að leyfa lýðræðinu að stýra hælisleitendamálunum?- Hvað erum við að gera öðruvísi heldur en á NorðurlöndunumTil að fá þessa þætti án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á:www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón Fiskhúsið
Páll Heiðar er fasteignasali og eigandi stofunnar pallpalsson.is. Í þessum þætti er rætt um fasteignamál og rýnt í virðiskeðju húsnæðisuppbyggingar. Fjallað er um lóðaskort, stjórnmálin, stöðu verktaka, afhverju fólk kýs að nýta þjónustu fasteignasala, hver er munurinn á að selja nýbyggingu og annað húsnæði og hvaða áhrif kulnun á markaði muni koma til með að hafa til lengri tíma og verðbil nýrra bygginga og annars húsnæðis. - Afhverju eru nýbyggingar ekki að seljast? - Hvaða áhrif hefur lóðaskortur sveitarfélaga? - Mun húsnæðisverð hækka á næstu árum? Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þessa þætti án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á:www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón Fiskhúsið
Þórarinn ræðir við Björn Jón Bragason og Agnar Tómas Möller um tengsl þekkingar, efnahagslegs frelsis og pólitísks frelsis. Sérstök áhersla er lögð á menningu og menntakerfið sem undirstöður framfara í nútímasamfélagi. Þremenningarnir vara við að óveðurský séu farin að hrannast upp og að verði ekki gripið í taumana muni þróunin leiða til minni velsældar fyrir komandi kynslóðir.Hugleiðingarnar eru settar í sögulegt samhengi með hliðsjón af Vestur-Evrópu, Bandaríkjunum og Kína. Fjallað er um breytingar á arfleifð ólíkra pólitískra leiðtoga og þá óvissu sem ríkir þegar reynt er að spá um þróun mála í síbreytilegum heimi.- Hvaða áhrif hefur agaleysi innan skólakerfisins?- Hver eru tengsl hugmyndafræði og efnahags?- Mun Íslandi takast að útrýma delluhugmyndum innan skólakerfisins?- Hver er ábyrgð einstaklingsins á eigin vörnum?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þessa þætti án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á:www.pardus.is/einpaelingeðaLeggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: PoulsenHappy HydrateBæjarins Beztu PylsurAlvörubónFiskhúsið
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 21. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Lárus Orri Sigurðsson er tekinn við ÍA en Jón Þór Hauksson, sem var látinn taka pokann sinn eftir síðustu umferð, er á línunni í þættinum. Fjallað er um Mjólkurbikarinn, Bestu deildina, Lengjudeildina og ýmislegt fleira.
Árni Helgason, varaþingmaður og lögmaður, Ólafur Jóhann Borgþórsson, fv. prestur og nú framkvæmdastjóri Herjólfs, og Sveinn Ólafur Melsted, aðstoðarritstjóri Viðskiptablaðsins mæta á helgarvakt Þjóðmála, sem í þetta sinn er tekin upp um borð í nýjasta skipi íslenska skipaflotans, Heimaey VE. Fjallað er um allt það helsta í pólitíkinni, pirringinn í stjórnarmeirihlutanum, hvort að eldhúsdagskrárumræður á þinginu skipti einhverju raunverulegu máli og fleira. Einnig er rætt um nafnabreytinguna hjá Sýn, fyrirhugaðar breytingar á eignarhaldi Play auk þess sem teknir eru ýmsir snúningar á lífinu í Vestmannaeyjum.
Elvar Geir og Baldvin Borgars með sérstaka páskayfirferð í útvarpsþættinum þessa vikuna. Fjallað er um 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins sem hafa boðið upp á óvænt úrslit. Þorlákur Árnason, þjálfari ÍBV sem rúllaði yfir Víking, og Marinó Hilmar Ásgeirsson, leikmaður Kára sem sló út Fylki, verða á línunni. Þá verður fótboltavikan gerð upp og horft í tíðindi hér heima og erlendis. Það er ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum í Evrópukeppnunum.
Donald Trump var aftur til umræðu í Heimsglugganum á Morgunvakt Rásar 1 og við heyrðum í biskupi Washington biðja forsetann um að sýna miskunn. Ummæli Trumps um Panama og Grænland voru einnig á dagskránni er Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu við Boga Ágústsson um erlend málefni. Fjallað var um sögu Panama og skipaskurðinn þar.
Jólaþáttur Fótbolti.net á X977 laugardaginn 21. desember. Gestir eru svo Ari Sigurpálsson og Gísli Gottskálk Þórðarson, hinir ungu leikmenn Víkings. Fjallað er um Evrópuævintýri Víkinga sem ætlar engan enda að taka og rætt við þá um tímabilið, framtíðina, lífið utan vallar, enska boltann og fleira. Farið er yfir fréttir vikunnar, þar á meðal landsliðsþjálfaraleitina. Hver er núna líklegastur til að taka við landsliðinu og hvaða þrjú eru það sem sjá um leitina?
Biden Bandaríkjaforseti gaf Úkraínumönnum um helgina grænt ljós á að nota langdrægar bandarískar eldflaugar - flaugar sem hægt er að senda nokkuð langt yfir landamærinn og inn til Rússalands. Og svo slitnuðu sæstrengir á milli Finnlands og Þýslalands. Og á milli Svíþjóðar og Litáen. Er þetta tilviljun? Eða eru þetta skemmdarverk Rússa. Það er ekki komið í ljós. Það tekur einfaldlega tíma að finna út úr því segir Guðmundur Arnar Sigmundsson, forstöðumaður netöryggissveitarinnar CERTIS. Fjallað er um öryggi sæstrengja sem liggja frá Íslandi. Einnig er rætt við Erling Erlingsson, hernaðarsagnfræðing sem hefur fylgst grannt með framvindu mála í Úkraínustríðinu, sem nú hefur staðið í rétt rúma þúsund daga og hvaða þýðingu ákvörðun Bidens um langdrægu flaugarnar gæti þýtt.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi þessa vikuna. Umsjónarmenn eru Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur þáttarins er Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi. Fjallað er um helstu fréttir úr íslenska boltanum, Evrópuvelgengni Víkings og íslenska landsliðið sem býr sig undir leiki gegn Svartfjallalandi og Wales í Þjóðadeildinni.
Almennt og gegnumgangandi traust Norðurlandabúa til stofnana og næsta manns gerir þá berskjaldaða gagnvart netþrjótum. Þetta kemur fram í nýju sameiginlegu áhættumati norrænna löggæsluyfirvalda. Rætt verður við Ólaf Þór Hauksson, héraðssaksóknara. Fjallað verður um hrottalegt morð á Bretlandseyjum þar sem drengir á þrettánda aldursári voru sakfelldir. Fjölskyldan fórnarlambsins er ósátt með lengd dómanna því drengirnir tveir verða tvítugir þegar þeir ljúka afplánun. Hressilegt og kunnuglegt lag hefur verið notað meira en milljón sinnum undir stutt myndskeið á tiktok, instagram og youtube. Líklega hafa nær allir sem einhvern tíma hafa slæðst inn á þessa miðla heyrt það en færri þekkja líklega höfund þess. Í nýlegri umfjöllun í npr-útvarpinu bandaríska er sjónum og hlustum beint að Kevin MacLeod sem samdi lagið fyrir um tíu árum.
Ólafur Andri Ragnarsson, sérfræðingur í tæknimálum, kemur í Þjóðmálastofuna og ræðir um þá miklu tækniþróun sem hefur átt sér stað á liðnum árum. Fjallað er um gervigreind og hvort að ástæða sé að óttast þær breytingar sem hún hefur í för með sér, notkun dróna og róbóta, af hverju nær öll framþróun í tæknimálum á sér stað utan Evrópu, hvernig iðnbyltingar fara af stað, hvað verður um störfin sem síðar verða unnin af tölvum og margt fleira.
Fjallað verður um nýja rannsókn sem rennir enn frekari stoðum um hversu mikilvæg bóluefnin voru í baráttunni gegn COVID-19 - sóttvarnalæknir telur neikvæða umræðu um þau ekki hafa átt rétt á sér, hún hafi ekki verið byggð á gögnum eða góðum rökum. Síðar í þættinum verður sagt frá gervigreind í tónlist og hvaða áhrif hefur hún haft. Tónlistarfólk, útgefendur og samtök höfundarréttarhafa víða um heim hafa áhyggjur af aukinni notkun gervigreindar í tónlist. Flest vilja nýta tæknina en vara við því að ný forrit geti fært tæknifyrirtækjum tekjur á kostnað höfunda og flytjenda. Og það er hvorki flókið né tímafrekt að nýta gervigreind til að búa til tónlist
Það verður almyrkvi á vesturhluta landsins miðvikudaginn 12. ágúst 2026. Þótt það sé enn langt í þennan atburð eru erlendir ferðamenn þegar farnir að sýna því áhuga að koma til landsins. Látrabjarg gæti orðið vinsælasti staðurinn þar sem almyrkvinn stendur hvað lengst. Fjallað verður um þetta í Speglinum og meðal annars rætt við Sævar Helga Bragason. Fyrst verður hins vegar rætt við Viktor Traustason, einn þeirra tólf, sem eru í framboði til forseta Íslands. Hann setur þrjár reglur á oddinn í framboði sínu og ætlar að fylgjar þeim en ekki eigin geðþótta.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 13. apríl. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fjallað um sigur KR í Garðabænum og hitað upp fyrir aðra leiki umferðarinnar. Gestur þáttarins er Gunnar Jarl Jónsson, fyrrum dómari og nú meðlimur dómaranefndar KSÍ. Dómgæslan hefur verið mikið í umræðunni og ýmislegt að fara yfir.
Fjallað verður um vaxandi þrýsting á Ísraelsstjórn og hvernig árás á hjálparstarfsmenn virðist hafa verið kornið sem fyllti mælinn hjá jafnvel hörðustu stuðningsmönnum Ísraels. En við byrjum á máli málanna hér heima, forsætisráðherra er hættur því hún ætlar að bjóða sig fram í forsetakosningunum í sumar. Spegillinn ræddi við Katrín Jakobsdóttur í Hörpu í dag en fór líka aðeins yfir stöðuna í stjórnarsamstarfinu sem er breytt eftir brotthvarf forsætisráðherra.
VERKFÆRASALAN - ARENA - DOMINOS - BÍLAUMBOÐIÐ ASKJA - SONAX Kristján Einar og Bragi henda í neyðarpitt! Risa fréttir, Lewis Hamilton mun keyra fyrir Ferrari árið 2025. Fjalla líka um Andretti málið.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 9. desember. Í fyrri hluta þáttarins mætir Axel Óskar Andrésson í hljóðver. Fjallað hefur verið um að þessi öflugi varnarmaður Örebro sé að hugsa um að færa sig um set. Þá mætir Aron Elís Þrándarson en hann kom heim til Víkings á liðnu sumri eftir atvinnumennsku og lét heldur betur að sér kveða áður en Víkingar lyftu bikurum tímabilsins.
Það er stórvika hjá strákunum í Handkastinu. Stóri ÍH-dagurinn er framundan og var þátturinn litaður af því. Fjallað var um bæði kynin í þættinum. Strákarnir okkar erlendis eru að gera misgóða hluti og Elliði Snær Viðarsson var á línunni, símalínunni.
Nýjasti þátturinn af Ungstirnunum er kominn út; þátturinn sem kynnir fyrir þjóðinni næstu stórstjörnur fótboltans. Þáttastjórnendur eru þeir Arnar Laufdal og Bjarni Þór Hafstein. Í þessum þætti kynna þeir til leiks Carlos Forbs (2004) sem seldur var til Ajax í sumar frá Man City eftir ótrúleg ár í akademíu þeirra bláklæddu. Fjallað er um Desire Doue (2005) en hann er næsta stórstjarna Rennes í frönsku úrvalsdeildinni líkt og Eduardo Camavinga var á sínum tíma. Viktor Djukanovic, Íslandsvinur (2004) er einnig kynntur til leiks en hann spilaði gegn Breiðabliki árið 2022 með Buducnost frá Svartfjallalandi, Óskar Hrafn þjálfari Blika minntist einmitt á að hann væri besti leikmaður liðsins fyrir einvígið en Djukanovic er að gera ótrúlega hluti fyrir Hammarby í Svíþjóð þessa dagana í sænsku úrvalsdeildinni. Mikið var um að ræða í Skandinavíuhorninu góða, ungir Framarar að gera geggjaða hluti, Benóný Breki með hnífana á lofti, Hákon Arnar mun fá tíma til að láta ljós sitt skína hjá Lille og hversu nettur er Bjarki Steinn í Venezia? Og svo margt margt fleira.
Nýjasti þátturinn af Ungstirnunum er kominn út; þátturinn sem kynnir fyrir þjóðinni næstu stórstjörnur fótboltans. Þáttastjórnendur eru þeir Arnar Laufdal og Bjarni Þór Hafstein. Í þessum þætti kynna þeir til leiks Keito Nakamura (2000) en þetta er japanskur landsliðsmaður sem er mikið líkt við samlanda sinn Kaoru Mitoma en þeir eru báðir teknískir kantmenn . Fjallað er um Yankuba Minteh (2004) en hann var keyptur í sumar til Newcastle og lánaður til Feyenoord, virkilega spennandi kantmaður sem er fæddur í Gambíu. Bilal El Khannous (2004) er einnig kynntur til leiks en hann var einn yngsti leikmaðurinn sem spilaði á HM í Katar en þessi efnilegi miðjumaður byrjaði þriðja sætis leikinn gegn Króatíu en hann hefur verið að gera frábæra hluti með Genk í belgísku úrvalsdeildinni. Hringt er til Belgíu þar sem að Stefán Ingi Sigurðarson er á línunni en Stefán var auðvitað seldur frá Breiðabliki í sumar og leikur í belgísku B-deildinni. Farið var um víðan völl í þessu símtali, allt frá Breiðabliki, háskólaboltanum í Bandaríkjunum og svo margt margt fleira.
Nýjasti þátturinn af Ungstirnunum er kominn út; þátturinn sem kynnir fyrir þjóðinni næstu stórstjörnur fótboltans. Þáttastjórnendur eru þeir Arnar Laufdal og Bjarni Þór Hafstein. Í þessum þætti kynna þeir til leiks Benja Cremaschi (2005) en þessi 18 ára miðjumaður hefur verið að gera frábæra hluti með Lionel Messi og félögum í Inter Miami. Fjallað er um Oscar Gloukh (2004) en hann var keyptur í janúar til Salzburg og er haldið að það sé ástæðan af hverju Hákon Haraldsson fór ekki til Slazburg í janúar. Dujuan Richards (2005) er einnig kynntur til leiks en þetta er leikmaðurinn sem Heimir Hallgrímsson sat undir gagnrýni fyrir að velja í A-landslið Jamaíka, en þessi leikmaður hefur nú skrifað undir samning hjá Chelsea. Í þættinum er farið yfir hvað gerðist í þessum leiðinlega landsleikjaglugga, frammistaða helgarinnar, hvað var að frétta hjá yngri landsliðunum okkar, Stjarnan lang bestir í 2. flokki, Lamine Yamal að gera allt vitlaust með spænska landsliðinu, farið var aðeins yfir NBA og NFL og svo margt margt fleira.
Formaður ÍA, Eggert Hjelm Herbertsson, ræddi við Fótbolta.net í dag. Skagamaðurinn Hákon Arnar Haraldsson var í gær seldur frá FC Kaupmannahöfn til Lille í Frakklandi. Fjallað hefur verið um það í fjölmiðlum að ÍA fái um 20% af söluverðinu og að söluverðið hafi verið 17 milljónir evra þegar allar árangurstengdar greiðslur eru reiknaðar með. Ef það er rétt kaupverð er Hákon bæði næstdýrasti leikmaður sem FCK hefur selt og næstdýrasti íslenski leikmaðurinn í sögunni. Ef það er rétt á ÍA von á tæplega hálfum milljarði eftir söluna á Hákoni. Hvað ætlar ÍA að gera við peninginn? Eggert ræddi um söluna, hvað ÍA vill gera við þær upphæðir sem félagið fær, skrefið hjá Hákoni og ýmislegt annað í þessu tæplega stundarfjórðungs spjalli.