POPULARITY
Fyrsti þáttur hvers mánaðar er í opinni dagskrá. Það er því vel við hæfi að sem flest ykkar nái að heyra fagnaðarerindið. Í þessum þætti velur Flosi nokkrar sögur úr einni af hans uppáhaldsbókum: Biblíunni. Gamla textamentið er í sérstöku uppáhaldi. Enda er nóg af alls konar furðulegum og fyndnum sögum sem þar má finna. Vert er samt að benda á að atriði í þættinum geta valdið óhug. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook
Fyrsti þáttur af Alheimsdraumnum ræddur í þaula.
Filippibrævið Fyrsti partur John Hammer talar
Ólafur Stefánsson, Logi Geirsson og Kári Kristján Kristjánsson sérfræðingar Stofunnar á RÚV fara yfir víðan völl í upphitun fyrir HM í handbolta sem hefst í næstu viku. Fyrsti leikur Íslands á HM er 16. janúar. Umsjónarmaður: Helga Margrét Höskuldsdóttir
Fyrsti þáttur ársins er ekki af verri endanum. Það er það eina sem þið þurfið að vita. Það er okkar einlæga ósk að þú náir að manifesta velgengni á árinu. Gleðilegt nýtt ár elskurnar!
Heiðar og Árni settust niður ræddu landsliðið og svo tóku vörutalningu á liðunum í Bónus deild karla. Hvað vitum við? Ekki neitt?
Í hesum partinum greiðir Sjúrður Joensen, eisini róptur Sjúrður í Koltri, frá ymiskum viðurskiftum í ættarbygdini, sum uttan iva er landnámsbygd. -Koltur hevur verið eitt liviligt pláss. Umframt tað sum oyggin sjálv gav, er stutt til fiskimiðini. Í oynni hava búð upp í 50 fólk, sigur Sjúrður.Nógv fólk aðra staðni frá er komið út í Koltur at vera. Men tey, sum hava búleikast í Koltri, hava eisini veruliga upplivað sterkar náttúrukreftir, tí nakrar ferðir hevur brimið vestanífrá brotið upp um oynna. Frá gamlari tíð vóru fýra festi í oynni. Síðani fór tað niður í tvey festi. Seinastu árini hevur eitt festi verið, og nú er tað Tjóðsavnið, sum hevur ábyrgdina av oynni og hevur fyristøðufólk á staðnum. Tjóðsavnið hevur eina stóra Koltursætlan, sum vit fara at hoyra um í næstu sending úr Koltri.
Karitas M. Bjarkadóttir, umsjónarmaður Krakkaheimskviða, var harmi slegin þegar hún fékk fregnir af því að Liam Payne, meðlimur bresku strákahljómsveitarinnar OneDirection, væri látinn. Sveitin, sem lagði upp laupana árið 2016, er ein af söluhæstu hljómsveitum í heimi, og á sér enn marga, trygga aðdáendur. Fréttir bárust af því í gærkvöldi að Liam hefði fallið til jarðar úr hótelherbergi í Argentínu. Við hringdum í Karítas til þess að fá meiri upplýsingar um Liam, Tara og Silla eru gjörningatvíeyki sem hafa verið að gera gjörninga saman síðan 2017. Þær ásamt Juan Pablo, sem búsettur er í Belgíu, munu halda gjörningakvöld í Ásmundasal á morgun. Þar munu 5 gjörningalistamenn á stokk og endurflytja með sínum hætti, sinn fyrsta gjörning. Planið er að roðna saman. Brynja Hjálmsdóttir er að horfa á nýja þætti úr DC Comics heiminum, The Penguin sem koma úr smiðju HBO. Hinn írski Colin Farrel fer með aðalhlutverkið og þykir nær óþekkjanlegur sem Mörgæsarmaðurinn. Við fögnum 10 ára afmæli plötubúðarinnar og útgáfunnar Reykjavík Record Shop á Klapparstíg. Við ræðum við nýjan eiganda búðarinnar, Jóhann Ágúst Jóhannsson, sem lét gamlan draum rætast og keypti plötubúð á dögunum.
Fyrsti hvítabjörninn sem gengið hefur á land síðan 2016 var felldur í fjörunni á Höfðaströnd í Jökulfjörðum skömmu fyrir klukkan fjögur í dag. Helgi Jensson, lögreglustjóri á Vestfjörðum, segir dýrið hafa verið aflífað eins snyrtilega og hægt var en vill ekki gefa upp hverjir það voru sem felldu björnin en bæði lögreglumenn frá lögreglunni á Vestfjörðum og séraðgerðardeild Landhelgisgæslunnar voru á staðnum, lögreglumennirnir á björgunarbátnum Kobba Lák en sérðagerðardeildin um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við Sigrúnu Ágústsdóttur, forstjóra Umhverfisstofnunar, um verklagið sem er viðhaft þegar hvítabjörn gengur á land á Íslandi. Á fjórða tug létust og á fjórða þúsund særðust, þar af eru nær þrjú hundruð með lífshættulega áverka, þegar þúsundir símboða og talstöðva voru sprengdar í loft upp í Líbanon í gær og fyrradag. Talið er að litlu magni af mjög öflugu sprengiefni hafi verið komið fyrir í tækjunum á einhverju stigi framleiðslunnar, og sprengibúnaðurinn svo virkjaður með því að senda boð í tækin. Allt þykir benda til þess að Ísraelar hafi verið að verki, nánar tiltekið ísraelska leyniþjónustan Mossad. Vesturlandabúar búast flestir við því að allt verði nú vitlaust í herbúðum Hezbollah, sem hyggi á skjótar og grimmilegar hefndir. Guðrún Margrét Guðmundsdóttir mannfræðingur, sem þekkir vel til í Líbanon, segir það misskilning. Ævar Örn Jósepsson ræðir við hana. Tveir karlmenn, sem báðir hafa hagnast vel á rafrettusölu til Íslendinga, hafa verið ákærðir fyrir eitt mesta sígarettusvindl Íslandssögunnar ásamt starfsmanni flutningafyrirtækis. Á árunum 2015 til 2018 eru athafnamennirnir tveir sagðir hafa flutt til landsins rúmlega 125 þúsund karton af sígarettum í gegnum félag án þess að greitt væri tóbaksgjald af vörunum upp á rúmlega 740 milljónir. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Haaland heldur bara áfram sínu striki. Robert Sanchez og Onana vörðu báðir vítaspyrnu í stöðunni 0-0 hjá sínum liðum. Fyrsti sigur Notthingham Forest á Anfield síðan 1969. Arsenal með montréttinn í Norður London eftir helgina og Ollie Watkins er vaknaður. Draumamörk í umferðinni.
Valur, Kalli og Matti ræddu AFC og NFC South í fyrsta upphitunarþætti tímabilsins. Að sjálfsögðu eru Boli, Lengjan og Arena Gaming með okkur!
Já kæru hlustendur nú er svakalegt sumartilboð af beint í bílinn. Fyrsti mánuðurinn á 99kr á beintibilinn.is Matur, frí, kaffi, brandarar, konur, rassamælingar, umgangspestir og bara upp upp og ....
Fyrsti þáttur í seríunni Spurjum lækni þar sem við fjöllum um mismunandi sjúkdóma, sögu þeirra og meðferðir. Í þessum þætti tæklum við Jóhannes Gauti Óttarsson, læknir og tónlistarmaður, sjúkdóminn berkla sem herjar enn á stóran hluta jarðarbúa þrátt fyrir að vera lítið í umræðunni hérlendis.Þátturinn er í opinni dagskrá í boði þeirra sem styðja Heimsendi á Patreon. Takk fyrir stuðninginn og takk fyrir að hlusta!
Í gær kynntumst við tveimur önnum köfnum sviðslistakonum sem eru í óða önn að setja á svið þó nokkrar nýjar leiksýningar í lok mánaðar. Það sem við náðum ekki að skoða í gær, hins vegar, er rýmið sem verkin verða flutt í, en það er borgarbúum að góðu kunnugt þó það birtist okkur nú í nýrri mynd. Sviðslistafélagið Afturámóti hefur tekið við lyklum að Háskólabíói og opnar dyr sínar að fjölbreyttri leikhússtarfsemi þar á bæ yfir sumarið. Davíð Roach Gunnarsson, tónlistargagnrýnandi Lestarinnar, rýnir í tvær nýjar danstónlistarplötur, eina íslenska, og eina erlenda. Sigurður Unnar Birgisson hefur starfað hjá Passamyndum undanfarin 7 ár. Nú hefur hann sagt starfi sínu lausu. Við ræðum við listamanninn Sigurð á þessum tímamótum, en starf hans hjá Passamyndum hefur blætt inn í listsköpun hans, og listin hefur sömuleiðis sett mark á starfsemi Passamynda. Lagalisti: Nobukazu Takemura - mahou no hiroba Stereolab - Diagonals Fievel Is Glauque - Elsewhere Teitur Magnússon - Bara þú Teitur Magnússon - Kamelgult Birnir, Bríet - Juvenile Birnir - Vogur Birnir, Gus Gus - Eða Birnir, Bríet - Fyrsti dagur endans Birnir, Bríet - Lifa af Birnir, Bríet - Andar-drátt Birnir, Bríet - Millikafli 2 Floating Points - Del Toro Floating Points - Vocoder Floating Points - Birth4000
Kosningar að baki og eins og forseti vor sagði orðrétt í viðtali á kosningavökunni á RÚV: "Þetta er fyrir Spekingana að spjalla”. Þeir skorast ekki undan því. Vikan, Slúður, TayTay Hornið, Hvort Myndir Þú Frekar, Myndirðu Fyrir Smá Aur, Topp 3, Kvikmyndaskorið, Snælduvitlausar Staðreyndir og Helgin í lokin.
Fyrsti þriðjungur af deildarkeppni Bestu deildar kvenna - fyrir skiptingu - er lokið og má með sanni segja að deildin sé að spilast á mjög svo áhugaverðan hátt. Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir og Jasmín Erla Ingadóttir, leikmenn Íslandsmeistara Vals, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddu aðeins byrjunina á mótinu, tímann sinn hjá Val til þessa og margt fleira. Guðrún Elísabet er á sínu öðru tímabili með Val og Jasmín er á sínu fyrsta tímabili hjá Íslandsmeisturunum, en þær eru báðar að finna sig vel í öflugu umhverfi á Hlíðarenda.
Við þurftum 200 þætti til að hita upp fyrir þetta meistaraverk. Arnór Steinn suðaði og puðaði og það virkaði! Gunnar er kominn í New Vegas og búinn að spila nóg til að ræða fyrsta helminginn. Deep dive á einum helvíti áhugaverðum leik. Það fylgir stór höskuldarviðvörun þessum þætti; drengirnir ræða ALLT. Companions, sagan, factions, playstyles og margt, MARGT fleira í stút fullum þætti um New Vegas! Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Adam Pálsson og Prettboitjokko og eru glænýjir cohosts VEISLUNNAR
Hvað er í gangi í Sundhnúksgígaröðinni? Þrýstingur eykst og augu jarðvísindamanna eru á mælitækjunum. Rætt var við jarðeðlisfræðinginn Halldór Geirsson. Fyrsti ráðherra Skotlands boðaði afsögn sína í gær, eftir afdrifarík, pólitísk mistök. Við segjum frá áframhaldandi vandræðum Skoska þjóðarflokksins. Við heimsækjum Westminster-höll Játvarðs konungs og kastala Vilhjálms sigursæla, í Normandi - en samt í Gufunesi.
Hinn átján ára gamli Richard Alden lifði nær öllu sínu félagsslífi á Myspace og þegar hann kynntist þar "Horrorcore" samfélaginu, var ekki aftur snúið. Richard var heldur óheppinn þegar kom að stelpum og hafði átt það virkilega erfitt félagsslega síðan hann var ungur. Það breyttist þó á svipstundu þegar hann kynntist ástinni í lífi sínu, hinni sextán ára gömlu Emmu Kelley Niederbrock. Horrorcore sameinaði þau og varð á endanum ástæðan fyrir því að þau hittust í fyrsta sinn. Það er vægt til orða tekið þegar sagt er að hrifing Emmu á Richard var ekki eldurgoldin og átti þessi saklausa Myspace ást eftir að leiða að hinu skelfilegasta morðmáli sem Virgina hefur séð í áratugi. Skráðu þig í illverk áskriftina HÉR Í BOÐI: - SIXT LANGTÍMALEIGA - K18 Á ÍSLANDI Fylgdu Illverk á instagram til að sjá fleiri myndir frá málunum! Smelltu HÉR
Kalli, Maggi og Matti hrundu inn í Nóa síríus studíóið hjá Podcaststöðinni til þess að fara yfir helstu nöfnin í NFL draftinu sem er í haldið í lok apríl. Þeir fóru yfir QB stöðuna og fóru yfir allt það helsta sem þið þurfið að vita fyrir aðalgauranna sem munu eflaust breyta framtíð liðanna í NFL. Allt saman í boði Bola (léttöl), Kansas - Pítan og Saffran, Arena Gaming og Lengjunar!
Í nafnaveislu í Hafnarfirði um helgina, yfir kaffibolla, aspasbrauðrétt og marengstertu, vakna hugleiðingar um nöfn og nafngiftir. Hvað á barnið að heita - og af hverju? Við heyrum alls konar sögur af alls konar nöfnum. Við ræðum við kántrí tónlistarmanninn Axel O sem hefur náð langt í kántrí senunni í Texas, Axel O, og Önnu Marsibil Clausen, um nýútkomna plötu Beyoncé, Cowboy Carter. Fyrsti singúll plötunnar, Texas Hold'em er kántrílag, en hvað með restina af plötunni? Lagalisti: Tyler, The Creator, YoungBoy Never Broke Again, Ty Dolla $ign - WUSYANAME Milkhouse - Say My Name Eminem - My Name Is Spilverk þjóðanna - Hvað á barnið að heita? Beyoncé - Jolene Beyoncé - 16 Carriages Beyoncé - Amen Beyoncé - Texas Hold'em
Í einu rótgrónasta menningarvígi borgarinnar, Mokka við Skólavörðustíg, stendur nú yfir sýning á málverkum eftir Unnar Ara Baldvinsson. Sýningin kallast Hring eftir hring og þar gefur að líta olíumálverk þar sem hringurinn er í aðalhlutverki. Unnar Ari segir okkur frá því úr hverju hringirnir spretta í þætti dagsins. Við ætlum einnig að leiða hugan að kvikmyndaefni sem byggir á bókum en samband bóka og kvikmynda getur verið snúið. Það er oft einhver tilfinning í loftinu fyrir því að dygðugara sé að lesa bókina áður en maður sér kvikmynd unna upp úr téðri bók. Við kynnum einnig til leiks nýjan pistlahöfun í þættinum. Þorleifur Sigurlásson, tónlistarmaður en hann ætlar að vera með okkur næstu vikur og skoða tónlistarstefnur í ólíkum heimshornum sem eiga það sameiginlegt að hafa haft gríðarleg menningarleg áhrif, bæði á stöðum sem þær spretta fram sem og annarsstaðar í heiminum. Fyrsti áfangastaður hans er í listastefnunni Tropicáliu í Brasilíu.
Farið yfir 21.umferðina í Olís-deild karla með Bjarna Fritz þjálfara ÍR sem er mættur á nýjan leik í Olís-deildina.
Þann 1 maí árið 1990 kom hin 23 ára gamla Pamela Ann Smart heim eftir langan dag í vinnunni. Hún bjóst við að eiginmaður hennar Greggory Smart tæki á móti henni og sömuleiðis hundurinn þeirra Halen, sem var alltaf spenntur að fá hana heim. Í staðinn tók á móti henni alger hrollvekja sem átti eftir að koma af stað rannsókn sem hægt og rólega fletti ofan af lygum, svikum, kynlífi og peningum. Ekki er allt sem sýnist ...
Fyrsti gestur þáttarins var Sigurður Ágúst Sigurðsson, nýkjörinn formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni. Einkum var rætt um vöntun á hjúkrunarheimilum en um 250 eru á biðlista. Félagið segir neyðarástand ríkja. Heilbrigðisráðherra hefur lofað uppbyggingu en ljóst er að hún tekur mörg ár. Alþjóðlegi hamingjudagurinn er í dag. Af því tilefni kom Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsu hjá embætti landlæknis, í þáttinn og sagði frá nýjum mælingum á hamingju landsmanna. Fjölgað hefur í hópi hamingjusamra unglinga en minnst er hamingjan meðal fólks á aldrinum 18-24 ára. Yfirvöld í Kólumbíu áforma að hífa af hafsbotni skip sem sökk í byrjun átjándu aldar. Lestir þess voru fullar af gulli, silfri og eðalsteinum. Deilt er um eignarhald á góssinu. Vera Illugadóttir sagði frá. Suður um höfin - Diddi og Reynir, Woman - John Lennon, Højdesyge - Tina Dickow.
Michael Dippolito kynntist ástinni í lífinu sínu árið 2008. Eftir ansi erfitt líf, trúði hann varla hversu heppinn hann var að hafa fundið Daliu Mohammed. Hún er gullfalleg, skemmtileg, ótrúlega sjálfstæð og átti sitt eigið fyrirtæki sem að þénaði vel. Það eru þó ansi mörg rauð flögg sem Michael hunsaði í þessari ástarsögu, hlutir sem áttu eftir að leiða hann á stað sem hann hefði aldrei getað ýmindað sér að vera á. Þú finnur þáttinn í heild sinni í illverk áskriftinni. Hann var upprunalega gefin út: 31 janúar 2024. Í BOÐI: SIXT LANGTÍMALEIGU K18 Á ÍSLANDI WWW.ILLVERK.IS
Ólafur Ólafsson fyrirliði körfuboltaliðs Grindavíkur kíkti til okkar í spjall. Fyrsti þáttur Hæ Hæ þar sem tveir fyrirliðar taka spjallið ásamt Helga. Ólafur sagði frá ástandi Grindavíkur í dag og hvernig lífreynsla það er að búa í bæ sem hefur þurft að berjast fyrir tilveru sinni.IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
Fyrsti gestur þáttarins í dag var Rósa Magnúsdóttir, sagnfræðingur og prófessor við Háskóla Íslands. Á laugardag eru tvö ár síðan Rússar réðust inn í Úkraínu. Langur aðdragandi var að innrásinni; 2014 innlimaði Pútín forseti Krímskaga í Rússland. Ekkert lát er á átökum og margir liggja í valnum. Rósa fó yfir atburðarásina með okkur. Við fjölluðum líka um þær breytingar sem ríkisstjórnin hyggst gera í útlendingamálum. Áformin voru kynnt í gær. Herða á löggjöfina frá því sem nú er, í því augnamiði að fækka því fólki sem hingað kemur og óskar verndar. Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra var gestur okkar eftir Morgunfréttirnar. Netverjar í Chile hafa undanfarnar vikur herjað stíft á samfélagsmiðla British Museum, með kröfur um að safnið skili tveimur steinhöfðum frá Páskaeyju, en eyjan tilheyrir Chile. Þessi gríðarstóru dularfullu steinlíkneski eru þekktasta tákn Páskeyju, og voru sköpuð löngu áður en Chile lagði eyjuna undir sig. Vera Illugadóttir sagði okkur frá þessari afskekktu eyju Páskaeyju, sögu hennar og styttunum frægu. Tónlist: Víkingur Heiðar Ólafsson - Variatio 1 a 1 Clav.. Víkingur Heiðar Ólafsson - Variatio 30 Quodlibet. a 1 Clav.. Þokkabót - Miðvikudagur. Hooker, John Lee - Wednesday evenin' blues. Nunes, Clara - Ilû ayê (Terra da vida).
Í þessari seríu fær Orri til sín þá leikmenn sem hafa náð þeim undraverða árángri að skora yfir 100 mörk fyrir FH. Fyrsti gestur er Steven Lennon sem nýverið lagði skóna á hilluna.
Á dögunum greindist erlendur ferðamaður með mislinga, maðurinn var tiltölulega nýkominn til landsins með flugi og því fjöldi fólks sem kann að hafa orðið útsettur fyrir smiti. Mörg hafa í dag sent fyrirspurnir á heilsuveru, foreldrar barna sem eru of ung til að fá bólusetningu hafa sumir áhyggjur og fólk keppist við að reyna að fá yfirsýn yfir eigin bólusetningar já og barnanna - en það getur verið snúið. Við ræðum aðgengi að bólusetningargögnum og viðbrögð við mislingum við Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar á heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu. Reynir Magnús Jóelsson vinnur hjá ABL-taki við að rífa gömul hús. Þessa dagana er hann að rífa hluta Gamla sjónvarpshússins við Laugaveg í Reykjavík. Við fræðumst um niðurrif bygginga og skoðum aðstæður á vettvangi. Málfarsmínúta í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur málfarsráðunautar - að blóta. Heimsókn á Þjóðskjalasafn Íslands. Sigríður Hjördís Jörundsdóttir skjalavörður sýnir okkur meðal annars elsta falsaða peningaseðilinn sem vitað er um á Íslandi og fer yfir lífshlaup Þorvaldar Þorvaldssonar sem falsaði þann seðil.
Fyrsti þáttur í nýrri seríu af Húðkastinu! Í fyrsta þætti er fjallað um sterka bólulyfið Decutan. Decutan er verulega áhrifarík meðferð við þrymlabólum (acne vulgaris) en það tekur á öllum þáttum sjúkdómsins, fílapenslunum, fitumynduninni og graftarbólunum. Þetta er löng meðferð (6 mánuðir eða meira) sem getur tekið á þar sem lyfið minnkar ekki aðeins fituframleiðslu húðarinnar heldur einnig slímhúðarinnar. Er því mjög algengt að fá varaþurrk og þurrk í húðina almennt á meðan meðferð stendur. í þessum þætti förum við í gegnum allt sem viðkemur Decutan meðferð gegn þrymlabólum.
Þátturinn er í boði Bíó Paradís en ég minni á Patreon fyrir fullan aðgang að öllu efni Heimsendis.Fyrsti þáttur um rithöfundinn og byltingarsinnann Yukio Mishima. Í þessum þætti fjöllum við um uppvöxt Mishima og innreið í japanskt menningarlíf. Við tökum fyrir fyrstu skáldsögurnar, fyrirsætustörf og leiklist ásamt hugmyndafræðinni sem mótaði einn þekktasta rithöfund Japans.
Brot úr nýjasta áskriftarþættinum okkar! Fyrir aðeins 990kr á mánuði getur þú orðið heiðurs Teboðsgestur! Áskriftar besties fá 2-3 auka þætti í mánuði, the inside scoop, Bókaboðið og allskonar skemmtilegt aukaefni bara fyrir ykkur! WWW.TEBODID.IS
16. nóvember 2023 Íslenska er mál málanna á Íslandi í dag eins og alla aðra daga - en alveg sérstaklega í dag, á degi íslenskrar tungu, sem hefur verið haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar síðan 1996. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Sigurrós Eiðsdóttur, formann Félags íslenskukennara, um íslenskukennslu og -áhuga skólabarna og stöðu íslenskunnar. Ljósleiðari er nú líkega í fyrsta sinn nýttur í rauntímamælingum á jarðskjálftum. Kristín Jónsdóttir deildarstjóri á Veðurstofunni stendur fyrir því, í samstarfi við svissneska Tækniháskólann ETH. Ljósleiðarinn, sem er 8 kílómetra langur er á við 150 hefðbundna skjálftamæla segir Kristín. Ragnhildur Thorlacius bað hana að segja frá ljósleiðaranum. Fyrsti fundur forseta Kína og Bandaríkjanna síðan á Balí í nóvember í fyrra var á vinsamlegum nótum. Þeir sammæltust um að reyna að draga úr spennu milli ríkjanna og ákváðu meðal annars að heimila að herlið beggja ríkja tækju upp samskipti að nýju. Ásgeir Tómasson segir frá. Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred.
16. nóvember 2023 Íslenska er mál málanna á Íslandi í dag eins og alla aðra daga - en alveg sérstaklega í dag, á degi íslenskrar tungu, sem hefur verið haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar síðan 1996. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Sigurrós Eiðsdóttur, formann Félags íslenskukennara, um íslenskukennslu og -áhuga skólabarna og stöðu íslenskunnar. Ljósleiðari er nú líkega í fyrsta sinn nýttur í rauntímamælingum á jarðskjálftum. Kristín Jónsdóttir deildarstjóri á Veðurstofunni stendur fyrir því, í samstarfi við svissneska Tækniháskólann ETH. Ljósleiðarinn, sem er 8 kílómetra langur er á við 150 hefðbundna skjálftamæla segir Kristín. Ragnhildur Thorlacius bað hana að segja frá ljósleiðaranum. Fyrsti fundur forseta Kína og Bandaríkjanna síðan á Balí í nóvember í fyrra var á vinsamlegum nótum. Þeir sammæltust um að reyna að draga úr spennu milli ríkjanna og ákváðu meðal annars að heimila að herlið beggja ríkja tækju upp samskipti að nýju. Ásgeir Tómasson segir frá. Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred.
ʟᴜᴄʏ ʟᴇᴛʙʏ: ᴋɪʟʟᴇʀ ɴᴜʀsᴇ │ ғʏʀsᴛɪ ʜʟᴜᴛɪ Þann 3 júlí árið 2018 var hin 33 ára gamla Lucy Letby handtekin, sökuð um að hafa framið skelfilega glæpi gegn þeim allra viðkvæmustu í samfélaginu. Lucy fór úr því að vera "Ljúfa Lucy" sem hafði ástríðu fyrir því að vinna á deild ungabarna á Countess of Chester hospital, yfir í að vera einn skæðasti raðmorðingi Bretlands. ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • ʜᴇɪᴍᴀsᴋɪᴘᴜʟᴀɢ.ɪs • sɪxᴛ ʟᴀɴɢᴛɪᴍᴀʟᴇɪɢᴀ.ɪs • ᴋ
Fyrsti snjórinn fallinn, jólabjórinn kominn í bæ og Airwaves í fullum gangi. Þetta og margt fleira var ekki rætt í þessum endurkomu þætti Hemma frænda eftir langa bið ástkærra hlustenda. Sperrið eyrun og leyfið Hemmanum að flæða.
11. október 2023 Afsögn fjármálaráðherra var lítið rædd í þingsal Alþingis en þeim mun meira á göngum þess. Magnús geir Eyjólfsson þingfréttamaður segir frá stemmningunni á þingi og Linda H. Blöndal ræðir við stjórnarandstöðuþingmennina Guðmund Inga Kristinsson, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og Jóhann Pál Jóhannsson. Fimm sjálfboðaliðar frá Rauða hálfmánanum hafa verið myrtir í stríðinu milli Hamas og Ísraels. Þar af létust fjórir bráðaliðar þegar ráðist var á þau við hjálparstörf í morgun. Valgerður Gréta Gröndal segir frá. Fyrsti snjórinn gæti fallið á höfuðborgarsvæðinu á morgun. Veðurviðvaranir taka gildi í kvöld. Veðurfræðingur á Veðurstofunni segir að veturinn kíki aðeins í stutta heimsókn en sé ekki kominn af fullum þunga. Urður Örlygsdóttir ræðir við Eirík Örn Jóhannsson veðurfræðing. Loðnuvinnslur þurfa mögulega að keyra á olíu í vetur að einhverju leyti, ef ekki rignir duglega næstu vikur og mánuði. Benedikt Sigurðsson ræðir við Hörð Arnarson. ----- Það kom verulega á óvart að öflugt öryggisnet hers og leyniþjónustu Ísraels skyldi bregðast svo illilega sem raun bar vitni þegar stórum hópi vopnaðra manna tókst aðfaranótt síðasta laugardags að ráðast inn í Ísrael á margvíslegum farartæjum, um leið og Hamas lét þúsundum eldflauga rigna yfir sunnanvert landið. Ásgeir Tómasson fjallar um málið. Það er sérstakt að strax sé farið að tala um nýtt ráðuneyti ráðherra sem segir af sér að mati prófessors í stjórnmálafræði og það hafi líka fært athyglina frá áliti umboðsmanns um hæfisbrest fjármálaráðherra við bankasöluna. Þetta segir Eva h. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði. Reynsla Norðmanna af laxeldi í sjó gæti verið Íslendingum lærdómsrík - og víti til varnaðar. Það er skoðun Pauls Larssons, prófessors við norska lögregluháskólann, sem hélt erindi í Háskólanum á Akureyri á dögunum. Þar gerði hann glæpi mannsins gegn náttúru og lífríki að umtalsefni sínu. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir ræðir við Guðmund Oddsson, afbrotafræðing og prófessor í félagsfræði. Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.
11. október 2023 Afsögn fjármálaráðherra var lítið rædd í þingsal Alþingis en þeim mun meira á göngum þess. Magnús geir Eyjólfsson þingfréttamaður segir frá stemmningunni á þingi og Linda H. Blöndal ræðir við stjórnarandstöðuþingmennina Guðmund Inga Kristinsson, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og Jóhann Pál Jóhannsson. Fimm sjálfboðaliðar frá Rauða hálfmánanum hafa verið myrtir í stríðinu milli Hamas og Ísraels. Þar af létust fjórir bráðaliðar þegar ráðist var á þau við hjálparstörf í morgun. Valgerður Gréta Gröndal segir frá. Fyrsti snjórinn gæti fallið á höfuðborgarsvæðinu á morgun. Veðurviðvaranir taka gildi í kvöld. Veðurfræðingur á Veðurstofunni segir að veturinn kíki aðeins í stutta heimsókn en sé ekki kominn af fullum þunga. Urður Örlygsdóttir ræðir við Eirík Örn Jóhannsson veðurfræðing. Loðnuvinnslur þurfa mögulega að keyra á olíu í vetur að einhverju leyti, ef ekki rignir duglega næstu vikur og mánuði. Benedikt Sigurðsson ræðir við Hörð Arnarson. ----- Það kom verulega á óvart að öflugt öryggisnet hers og leyniþjónustu Ísraels skyldi bregðast svo illilega sem raun bar vitni þegar stórum hópi vopnaðra manna tókst aðfaranótt síðasta laugardags að ráðast inn í Ísrael á margvíslegum farartæjum, um leið og Hamas lét þúsundum eldflauga rigna yfir sunnanvert landið. Ásgeir Tómasson fjallar um málið. Það er sérstakt að strax sé farið að tala um nýtt ráðuneyti ráðherra sem segir af sér að mati prófessors í stjórnmálafræði og það hafi líka fært athyglina frá áliti umboðsmanns um hæfisbrest fjármálaráðherra við bankasöluna. Þetta segir Eva h. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði. Reynsla Norðmanna af laxeldi í sjó gæti verið Íslendingum lærdómsrík - og víti til varnaðar. Það er skoðun Pauls Larssons, prófessors við norska lögregluháskólann, sem hélt erindi í Háskólanum á Akureyri á dögunum. Þar gerði hann glæpi mannsins gegn náttúru og lífríki að umtalsefni sínu. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir ræðir við Guðmund Oddsson, afbrotafræðing og prófessor í félagsfræði. Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.
I'm on a boat. Ég bý á ævintýraskipinu National Geographic Resolution og verð þar næstu vikurnar. Við erum að sigla um suðvestur Japan og komum við á stöðum á borð við Naoshima, Ehime, Hiroshima, Nagasaki, Yakushima, Busan (S-Kórea), Hagi og Kanazawa. Í þessum þætti fjalla ég um lífið um borð - hvaða stöðu ég gegni og hvaða skyldum ég þarf að sinna, hvenær ég vakna og hvenær ég sef (ekki oft).
Fyrsti þáttur í nýrri seríu um seinni heimstyrjöldina í Japan. Við byrjum á seinni hluta 19. aldar við Meiji endurreisnina og þræðum japanska sögu í gegnum nútíma- og iðnvæðingu, uppbyggingu hers og þjóðar. Sérstaklega verður tímabilið 1930-1939 tekið fyrir enda markar það upphaf seinni heimstyrjaldar í Japan og hefur óafturkræf áhrif á söguna.Kæri hlustandi, rífðu þig í gang og hentu þér á Patreon. Næstu tveir heimsstyrjaldarþættirnir verða í lokaðri dagskrá þar og eina leiðin fyrir þig til að sjá hvernig stríðið endaði er að skrá þig. Mark my words!
Kalli, Matti og Valur byrja upphitunarseríu 10 jardanna þetta tímabilið. Fréttir vikunnar og fyrsta upphitunin þar sem við byrjum á South riðlum AFC og NFC. Tökum fyrir helstu breytingar, bætingar og hvernig við sjáum liðin koma til leiks á tímabilinu. O/U spá og margt fleira! Allt saman tekið upp í Nóa Síríus stúdíóinu hjá Podcaststöðinni. Boli- TUDDI á sínum stað! Léttöl inní verslunarmannahelgina! Kansas! Alvöru matur hjá Saffran og Pítunni! Það fara allir sáttir heim þaðan, enginn vafi á því!
Fyrsti þáttur eftir langa bið. Tútturnar spjalla um komandi þætti og fara yfir síðustu ár. Ræðum um kynlíf, icks, tantra og margt fleira. https://www.patreon.com/Klikkadarkynlifssogurhttps://www.instagram.com/klikkadarkynlifssogur/https://www.tiktok.com/@klikkadarkynlifssogur
Fyrsti þáttur af Frumkvöðlaseríunni gott fólk! Þessi sería mun innihalda viðtöl við fólk sem hjálpar frumkvöðlum að ná árangi, fjárfesta og fólk sem hefur náð árangri í frumkvöðlalífinu. Við fáum að vita hvernig ferlið er, hvað þetta flotta fólk gerði til þess að ná langt með hugmyndina sína, hvað getur farið úrskeiðis og aaallt þar á milli. Í þessum byrjunarþætti förum við Eva og Sylvía í gegnum okkar reynslu ásamt því að skoða 5 merki sem gefa það til kynna að þú sért tilbúin/n/ð í frumkvöðlastarf, hvað er mikilvægt að hafa í huga þegar kemur að Branding, hversu fast þarf að skrúfa hausinn á herðarnar...:) og margt annað mikilvægt. LETSGO
Það er komið að því kæru hlustendur! Fyrsti þáttur hinnar margumbeðnu ADHD seríu er kominn í loftið. Þessi umræða brennur á mörgum og við byrjuðum á því að eiga gott spjall við Harald geðlækni, en ADHD er eitt af hans helstu áhugasviðum. Hér er stútfullur þáttur af upplýsingum sem gætu breytt miklu fyrir marga. Letsgo.
Fyrsti þáttur um tilraun norska könnuðarins Fridtjofs Nansens til að komast á norðurpólinn á síðasta áratug 19. aldar. Í þessum þætti er fjallað um undirbúning og upphaf leiðangursins, siglingu heimskautaskipsins Fram inn í hafísinn á norðurslóðum.
Fyrsti þáttur um tilraun norska könnuðarins Fridtjofs Nansens til að komast á norðurpólinn á síðasta áratug 19. aldar. Í þessum þætti er fjallað um undirbúning og upphaf leiðangursins, siglingu heimskautaskipsins Fram inn í hafísinn á norðurslóðum.