Ástandsbörn

Follow Ástandsbörn
Share on
Copy link to clipboard

Íslensk ástandsbörn þurftu mörg hver að þola mikla fordóma og erfið uppvaxtarár vegna uppruna síns. Viktoría Hermannsdóttir ræðir við ástandsbörn, börn íslenskra kvenna og erlendra hermanna, og skoðar hið svokallaða Ástand á hernámsárunum, með þeirra augum.

RÚV


    • Dec 26, 2017 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 5 EPISODES


    Latest episodes from Ástandsbörn

    Hálfbróðirinn

    Play Episode Listen Later Dec 26, 2017


    Áður en Bandríkjamaðurinn Roderick Donald Balsam var kallaður heim frá Íslandi eftir tveggja ára herskyldu, fékk hann þær fréttir að hann ætti son með íslenskri konu. Balsam sneri aftur til Bandaríkjanna og hélt lífi sínu áfram þar án þess að vita nokkuð um son sinn. Á dánarbeði Balsams, rúmum sextíu árum síðar, sagði hann syni sínum í fyrsta skipti frá því að hann ætti mögulega hálfbróður hér á Íslandi. Sá bandaríski freistar þess nú að finna íslenskan bróður sinn. Tekst honum það? Í sjálfstæðu framhaldi Ástandsbarna, fylgjumst við með leit bandaríska bróðurins að fjölskyldu sinni á Íslandi. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir.

    Fjórði þáttur

    Play Episode Listen Later Apr 13, 2017


    Íslensk ástandsbörn þurftu mörg hver að þola mikla fordóma og erfið uppvaxtarár vegna uppruna síns. Viktoría Hermannsdóttir ræðir við Vilhjálm Roe, Þór Whitehead og Báru Baldursdóttur um þennan tíma, en það hafa hundruðir Íslendinga leitað feðra sinna með hjálp Samtak stríðsbarna.

    Þriðji þáttur

    Play Episode Listen Later Apr 13, 2017


    Íslensk ástandsbörn þurftu mörg hver að þola mikla fordóma og erfið uppvaxtarár vegna uppruna síns. Viktoría Hermannsdóttir ræðir við Magneu Reynaldsdóttur og Björn Leósson sem áttu bæði bandaríska feður og íslenskar mæður. Þau segja frá reynslu sinni af því að vera börn hermanna og leitina að feðrum sínum.

    Annar þáttur

    Play Episode Listen Later Apr 13, 2017


    Íslensk ástandsbörn þurftu mörg hver að þola mikla fordóma og erfið uppvaxtarár vegna uppruna síns. Viktoría Hermannsdóttir ræðir við Sigurð Einarsson og Baldur Hrafnkel Jónsson, sem áttu sömu móður en sitthvorn föðurinn og ólust ekki upp saman. Þeir segja sögur sínar.

    Fyrsti þáttur

    Play Episode Listen Later Apr 7, 2017


    Viktoría Hermannsdóttir skoðar tíðarandann á hernámsárunum à Íslandi. Fljótlega eftir komu hersins til landsins fór athyglin að beinast að samskiptum hermanna við íslenskt kvenfólk. Hryllingssögur gengu manna á meðal og sérstakt ungmennaeftirlit var sett á til að fylgjast með konum sem taldar voru í ástandinu. En af hverju stafaði þessi ótti? Bára Baldursdóttir, Guðmundur Hálfdánarson og Þór Whitehead sagnfræðingar velta þessu fyrir sér. Vilhjálmur Roe er ástandsbarn, sonur íslenskrar konu og bandarísks hermanns. Við heyrum sögu hans.

    Claim Ástandsbörn

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel