Leikhúsið

Follow Leikhúsið
Share on
Copy link to clipboard

Leikhúsið er vikulegur hlaðvarpsþáttur sem fjallar um allar leiksýningar vetrarins 2019/2020. Þáttastjórnendurnir koma úr ólíkum áttum en Kjartan fer lítið í leikhús á meðan Magnús er sviðslistanemi og starfar sem tæknimaður í leikhúsi.

Hlaðvarp Fréttablaðsins

  • Mar 4, 2020 LATEST EPISODE
  • infrequent NEW EPISODES
  • 43m AVG DURATION
  • 18 EPISODES


Search for episodes from Leikhúsið with a specific topic:

Latest episodes from Leikhúsið

Hans Klaufi

Play Episode Listen Later Mar 4, 2020 34:45


Kjartan fór með systur sinni á Hans Klaufa sem sýnt er í Tjarnarbíó og gerði heiðarlega tilraun til að útskýra hana fyrir Magnúsi. Þátturinn er framleiddur fyrir Hlaðvarp Fréttablaðsins.

Er ég mamma mín?

Play Episode Listen Later Feb 26, 2020 43:58


Er ég mamma mín? Er Kjartan pabbi minn? Er Magnús sonur minn? Þessum spurningum ásamt fleirum verður svarað í þætti vikunnar. Þátturinn er framleiddur fyrir Hlaðvarp Fréttablaðsins.

Helgi Þór rofnar

Play Episode Listen Later Feb 12, 2020 42:39


Annað en Magnús sá Kjartan EKKI Helga Þór rofnar á Nýja sviði Borgarleikhússins. Í þættinum gerir Magnús heiðarlega tilraun til að útskýra sýninguna á meðan Kjartan er að drepast í maganum. Þáttur vikunnar er í boði The Mistress og er framleiddur fyrir hlaðavarp Fréttablaðsins.

Vanja frændi

Play Episode Listen Later Feb 6, 2020 42:10


Kjartan og Magnús sáu Vanja frænda sem sýnt er á Stóra sviði Borgarleikhússins. Þeir fjalla um pissuvandamál í leikhúsi, hvort að titilpersóna verksins heiti Vanja í raun og veru og hvort þetta 100 ára gamla leikrit eigi erindi við samfélagið í dag.

Engillinn

Play Episode Listen Later Jan 29, 2020 39:52


Í þætti vikunnar tala Kjartan og Magnús um Engilinn í Kassanum í Þjóðleikhúsinu. Leikhúsið er framleitt fyrir hlaðvarp Fréttablaðsins.

Meistarinn og Margaríta

Play Episode Listen Later Jan 23, 2020 42:55


Í þætti vikunnar ræða Kjartan og Magnús Meistarann og Margarítu sem er sýnd á Stóra Sviði Þjóðleikhússins.

Um tímann og vatnið

Play Episode Listen Later Dec 11, 2019 48:11


Kjartan og Magnús fengu góðan gest með sér í þátt vikunnar, Melkorku Gunborg, til að tala um fyrirlestur Andra Snæs Um tímann og vatnið í Borgarleikhúsinu. Þátturinn er í boði Fylgifiska og Burro.

Skjáskot

Play Episode Listen Later Dec 4, 2019 49:12


Kjartan og Magnús fóru á fyrirlestur Berg Ebba um Skjáskot á Nýja Sviðinu í Borgarleikhúsinu. Þeir ræddu áhrif tækniframfara síðustu ára á líf okkar, framkomu Magnúsar í Söngvakeppni Sjónvarpsins um árið og af hverju öll leikrit væru ekki bara fyrirlestrar. Þáttur vikunnar er í boði fornbókabúðarinnar Bókin og veitingastaðarins Burro.

Eitur

Play Episode Listen Later Nov 28, 2019 42:05


Kjartan og Magnús sáu Eitur í Borgarleikhúsinu og ræddu úrelt kynjahlutverk, hvað vatnið hjá 101 væri vont og hvað það sé gaman að fá loksins að sjá Hilmi Snæ.

Atómstöðin - endurlit

Play Episode Listen Later Nov 21, 2019 50:18


Kjartan og Magnús fóru á Atómstöðina í Þjóðleikhúsinu og ræddu meðal annars undarlegt atvik sem átti sér stað á meðan á frumsýningunni stóð, fæðingu kapítalismans á Íslandi og klisjuna um sveitastelpuna sem flytur í borgina. Þáttur vikunnar er í boði Burro.

Mamma Klikk

Play Episode Listen Later Nov 14, 2019 43:32


Magnús og Kjartan fóru á Mamma Klikk í Gaflaraleikhúsinu og ræddu minningar um Gunna og Felix, að leggja upp á gangstétt og fordóma gagnvart fólki í hjólastól ásamt því að kynna nýjan dagskrálið til sögunnar: Kvörtunarhorn!

Stórskáldið

Play Episode Listen Later Nov 7, 2019 42:54


Kjartan og Magnús fóru á og ræddu um Stórskáldið á Nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu.

Rocky!

Play Episode Listen Later Oct 31, 2019 42:50


Í þætti vikunnar fóru Kjartan og Magnús á líklega umdeildustu sýningu leikársins, Rocky! í Tjarnarbíó. Þeir ræddu meðal annars um dauð dýr á sviði og hvernig tæknimaður gæti klúðrað heilli sýningu.

Shakespeare verður ástfanginn

Play Episode Listen Later Oct 24, 2019 41:26


Í þetta skipti sáu Kjartan og Magnús Shakespeare verður ástfangin á stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu og ræddu tilfinningar sem þeir höfðu aldrei upplifað áður, að hafa hund á sviði og hvenær Oliver Twist á að hafa gerst. Þáttur vikunnar er í boði Mamma veit best og Burro.

Sex í sveit

Play Episode Listen Later Oct 17, 2019 50:34


Kjartan og Magnús munu fara á allar sýningar leik­árs­ins 2019/2020 og spjalla um þær í viku­legum þátt­um. Þeir koma úr ólíkum áttum en Kjartan fer lítið í leik­hús á meðan Magnús er sviðs­lista­nemi og starfar sem tækni­maður í leik­húsi. Í þess­ari viku fóru þeir á Sex í sveit í Borgarleikhúsinu.

Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur)

Play Episode Listen Later Oct 10, 2019 41:20


Kjartan og Magnús fóru á Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) í Þjóðleikhúsinu og ræddu hvað Kjartan á erfitt með að mæta á réttum tíma í leikhús, hvað lokabreytingar rétt fyrir frumsýningu geta gert gott og hvar munurinn liggur á forsýningum í bíó og leikhúsi.

HÚH! Best í heimi

Play Episode Listen Later Oct 3, 2019 44:36


Kjartan og Magnús fóru á frumsýningu HÚH! Best í heimi í Borgarleikhúsinu og ræddu hvort það væri óviðeigandi að setja á sig headphone í miðri sýningu, hvað devised sýningar eiga sameiginlegt og hvers vegna víkingaklappið væri ekki tekið oftar í leikhúsi.

Independent Party People

Play Episode Listen Later Sep 29, 2019 31:57


Kjartan og Magnús munu fara á allar sýningar á leikárinu 2019/2020 og spjalla um þær í vikulegum þáttum. Þeir koma úr ólíkum áttum en Kjartan fer lítið í leikhús á meðan Magnús er sviðslistanemi og starfar sem tæknimaður í leikhúsi. Í þessari viku fóru þeir á sýninguna Independent Party People í Tjarnarbíó og ræddu þörfina fyrir að láta vita að maður sé ekki rasisti, hvað ljósin voru flott og af hverju það væru ekki komin leðursæti í leikhúsin.

Claim Leikhúsið

In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

Claim Cancel