POPULARITY
Við lítum við á sýningu James Merry, sem opnaði um liðna helgi í Listasafni Íslands og hefur yfirskriftina Ummyndlingar. Þar eru til sýnis grímur sem James hefur búið til á 15 ára tímabili, að stórum hluta í samstarfi við Björk Guðmundsdóttur, en sýning hennar, Echolalia er sýnd í safninu samhliða. Við heyrum líka umfjöllun Trausta Ólafssonar um brúðuleiksýninguna Rót, sem sýnd er í Tjarnarbíói í tilefni af Listahátíð í Reykjavík, og rifjum upp umfjöllun og lestur úr vinningsbók Maístjörnunnar, Mara kemur í heimsókn, eftir Natöshu S.
Miðvikudagur 13. maí Vinur, heimsmálin, kappræður, vond kjör, FÍB, Starmer og einhverfa Sævar Ciesielski var misnotaður af séra Georg í Landakotsskóla og síðan píndur, niðurlægður og útskúfaður af íslensku þjóðinni,“ segir vinur hans, Jón Ármann Steinsson, í viðtali við Ásdísi Olsen um nýja sjónvarpsþáttaröð um Geirfinnsmálið. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um ferð Trump til Kína og áhrif þessara ferðar á heimsmálin. Heimildin reið á vaðið með fyrstu kappræður allra oddvita í Reykjavík í beinni útsendingu úr Tjarnarbíói í gærkvöldi. Sara Stef Hildar, Björn Þorláks og Laufey Líndal skiptast á skoðunum um kappræðurnar, en þau fylgdust með sem áhorfendur úr sal. Kristín Heba Gísladóttir forstöðumaður Vörðu, rannsóknaseturs ASÍ og BSRB, ræðir rannsókn á kjörum launafólks sem sýnir mjög veika stöðu láglaunafólks, einstæðra foreldra og foreldra almennt. Sameining allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu myndi leiða til mestu samgönguúrbótanna. Þetta segir Runólfur Ólafsson hjá FÍB. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur ræðir um stöðu Keir Starmer við Gunnar Smára. Margrét Valdimarsdóttir, foreldri drengs með fötlun, segir að mikið vanti upp á að einhverfum dreng hennar sé sinnt sem skyldi. Óvissa með píanónám drengsins hennar bætist ofan á annað.
Við heyrum um viðburðinn Bratzgat - sem er nýtt samsett orð, Bratz (eins og dúkkurnar) og gat - rassgat. Ísabella Lena og Lára kalla sig Fonky Events, og hafa það eina og háleita markmið að halda góð partý. Á föstudaginn mun Fonky Events taka yfir Lækjargötu 6A og stemmingin verður Bratzgat. Í dag hóf HönnunarMars göngu sína, Sandra Rós Björnsdóttir er ein af þeim sem taka þátt, verkið hennar er á auglýsingaskilti fyrir framan Tjarnarbíó. Hera Guðmundsdóttir hitti hana fyrir hönd Lestarinnar og ræddi við hana um bælda reiði, sem verkin hennar á HönnunarMars fjalla um. Eiríkur Örn Norðdahl man þegar búðarstarfsfólk fór að brosa. Í dag fáum við pistil frá honum um vanlíðan.
Í tilefni 50 ára afmælis Garðabæjar stendur Jazzþorpið á Garðatorgi í 4 daga. Ómar Guðjónsson er listrænn stjórnandi dagskrárinnar sem verður óvenju vegleg í tilefni afmælisins og gestir geta látið fara vel um sig og jafnvel keypt húsgögn og vörur sem flutt hafa verið á Garðatorgið frá Góða hirðinum. Ómar Guðjónsson og Ólöf Breiðfjörð fyrsti menningarfulltrúi Garðabæjar komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá Jazzþorpinu. Pláss fyrir alla: Regnbogafánar fyrir byrjendur og lengra komna er uppistandssýning í Tjarnarbíói sem rekur sögu hinna ýmsu fána á gamansaman en fræðandi hátt. Regnbogafánar hafa verið mikið í umræðunni undanfarið Sindri Freyja Bjarnabur, líka þekkt sem Sparkle, er grínisti, rithöfundur og grafískur hönnuður og hún kom í þáttinn í dag og sagði betur frá sýningunni og því hvernig þessi umræða hefur þróast undanfarið og áhrifin sem hún finnur glöggt fyrir á eigin skinni í kjölfarið. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Í dag talaði Einar um sjávarhita fyrir norðan landið, sem er hár miðað við árstíma og hefur áhrif á hafís og gefur mögulega fyrirheit um íslenska sumarið. Svo var dagurinn í gær líklega fyrsti raunverulegi sumardagurinn en hvað er átt við með því? Og hvað er kóngsbænakast? Að lokum herjar ógnvænleg hitabylgja á Indlansskaga, meiri en oft áður snemmsumars. Þetta og fleira var í veðurspjallinu með Einari í dag. Tónlist í þættinum í dag: Manstu þá / Björgvin Halldórsson (Allan Jackson, texti Karl Mann (eða Friðrik Erlingsson) Manstu / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir) Manstu / Hjálmar (Hjálmar, texti Þorsteinn Einarsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Hin 850 ára saga af Flóres og Blankiflúr var eins konar metsölubók miðalda og gífurlega vinsæl um alla Evrópu, meðal annars hér á landi. Nýverið hafði lítið félag í þorpinu Assenede í Belgíu frumkvæði að því að sagan yrði saumuð út í 93 metra refil og hafði samband við fræðimenn þeirra 12 landa þar sem eldgamlar þýðingar á sögunni hafa fundist. Síðasta árið hafa þrjár íslenskar konur setið við og saumað út senu úr sögunni, sem þær munu afhenda í Belgíu í næstu viku. Við hittum eina þeirra, refilssaumskonuna Kristínu Bjarnadóttur, í síðari hluta þáttar. Trausti Ólafsson rýnir í sýninguna Ég, Jóhanna, sem sýnd er í Tjarnarbíói, og við lítum til Feneyja, því það styttist í opnun á Feneyjatvíæringnum í myndlist. Ásta Fanney Sigurðardóttir fer fyrir Íslands hönd og hefur sýning hennar fengið titilinn Pocket Universe, en verkið samanstendur af vídeóverki, hljóðverki, skúlptúrum og gjörningum. Sýningarstjórar eru þau Margrét Áskelsdóttir og Unnar Örn og við sláum á þráðinn til þeirra í þætti dagsins.
Sigrún Perla Gísladóttir, arkitekt, vill hugsa um arkitektúr sem afl til umbreytinga í átt að meira réttlæti, vellíðan og sjálfbærni. Í tillögu hennar að verndun hafsvæða við landið dregur hún meðal annars fram með sjónrænum hætti neðanjarðarborgir og kórallahella sem eru tengdari okkur en við höldum. Perla mun kynna verkefnið á málþingi um Artivisma í Norræna húsinu á morgun og við ræðum við hana í þætti dagsins. Einnig kynnum við okkur Bókumbók, forvitnilega bókverkabúð og sýningarrými sem opnaði um miðjan febrúar dyr sínar við Njálsgötu 11. Katla Ársælsdóttir rýnir auk þess í óperuna Sæmund Fróða sem sýnd er í Tjarnarbíói.
Elísabet og Aron segja frá leikritinu Jóhönnu af Örk sem þau eru að setja upp í Tjarnarbíói.
Þátturinn er undirlagður af tónlist, þó úr mjög ólíkum áttum sé. Trausti Ólafsson fjallar um uppsetningu Kammeróperunnar á óperu Bizet, Carmen, sem frumsýnd var í Tjarnarbíói um liðna helgi. Við kynnum okkur Gregorssöng, eða sléttsöng, sem sönghópurinn Cantores Islandiae hefur sérhæft sig í og býður áhugasömum að njóta á tónleikum í Breiðholtskirkju á laugardag. En við byrjum á því að hringja til Budapest, þar sem Víkingur Heiðar Ólafsson og eiginkona hans, Halla Oddný Magnúsdóttir, undirbúa sig fyrir tónleika til heiðurs einu merkasta tónskáldi samtímans, György Kurtág, sem fagnar 100 ára afmæli í dag. Kurtág hefur tileinkað Víkingi útsetningar sínar, og Víkingur tileinkaði Kurtág heila plötu, From afar, sem kom út árið 2023, auk þess sem hann frumflytur í kvöld eigin útsetningu á Air eftir Bach, til heiðurs Kurtág. Við hefjum þáttinn á því að heyra rétt aðeins hljóðið í Víkingi og nánar af þessu fallega vináttusambandi.
Frægasta ópera franska tónskáldsins Bizet; Carmen, var frumsýnd í útfærslu Kammeróperunnar um liðna helgi og eins og hópsins er von og vísa er um nýstárlega uppsetningu að ræða. Kristín Sveinsdóttir bregður sér þar í hlutverk Carmen og hún lítur við í hljóðstofu ásamt leikstjóra sýningarinnar, Adolf Smára Unnarssyni. Freyja Þórsdóttir heimspekingur fjallar um það hvernig umhverfið sem við sköpum okkur og eyðum tíma okkar í hefur áhrif á sálarlífið. Við sögu kemur smásagan Gula veggfóðrið og grísk goðsögn um Erós og Psyche. En við byrjum þátttinn á því að kynnast myndlýsingum í íslenskum pappírshandritum og heyrum í höfundi nýrrar bókar um efnið, sagnfræðingnum Kjartani Atla Ísleifssyni.
„Við höfum alltaf horft á Dani sem nýlenduherra en okkur hefur alltaf verið kennt að Danir séu góðir nýlenduherrar. Og sumir trúa því enn,“ segir Katti Fredrikssen bókaútgefandi, skáld og fyrrverandi menningarmálaráðherra Grænlands. Katti er málfræðingur að mennt og hefur um árabil verið ötul talskona grænlenskrar tungu. Víðsjá hitti Katti í Norræna húsinu og ræddi við hana um upphaf ástríðunnar fyrir tungumálinu og um áhrif stjórnmálahræringa síðustu missera á Inúita. Fyrsta þriðjudag hvers mánaðar fer fram viðburður í Tjarnarbíói sem kallast Tilboð mánaðarins. Þetta er leiklestrarröð þar sem vel valdir leikarar flytja æfða leiklestra en listrænir stjórnendur eru þær Anna María Tómasdóttir og Gígja Hilmarsdóttir. Þær líta í hljóðstofu. Katla Ársælsdóttir rýnir í leikverkið Ekki hugmynd, sem Gaflaraleikhúsið sýnir nú á fjölum Borgarleikhússins.
Kosmískt skítamix er nýjasta afurð vináttu og listræns samstarfs Hljómsveitarinnar Evu. Hana skipa þær Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoníasdóttir. Þær hlutu í fyrsta sinn styrk úr sviðslistasjóði fyrir einhverjum árum og sökum veikinda og væntinga um að bjarga heiminum með sviðslistaverki dróst á langinn að búa verkið til. En nú er það tilbúið, og er í sýningu í Tjarnarbíó og hefur hlotið frábærar viðtökur. Rapparinn og pródúsentinn Ízleifur er við það að gefa út sína þriðju plötu sem ber titilinn 100&einn. Jóhannes Bjarki ræðir við hann um skapandi ferlið og við fáum að heyra forsmekk af því sem koma skal.
Það standa yfir læknadagar í Hörpu og ráðstefnan opnaði á mánudeginum með tveimur málþingum um áfengi og lýðheilsu og það hefur vakið athygli í fjölmiðlum og áfram verður fjallað um þetta mikilvæga málefni á opnu málþingi fyrir almenning í kvöld kl.20.00 - Áfengi í alfaraleið. Síðastliðinn mánudag flutti Kristín Sigurðardóttir læknir erindi sem hét Flótti í flöskuna – áhrif álags og áfalla. Kristín starfaði lengi sem bráðalæknir og varð vör við breytingu á afleiðingum áfengisneyslu eftir að hún kom heim úr sérnámi og lenging á opnunartíma öldurhúsa hafði átt sér stað. Kristín fór með okkur yfir þessi mál í þættinum í dag. Sóley Kristjáns og Auðbjörg Ólafs eru, eins og þær orða það sjálfar, tvær miðaldra á breytingarskeiðinu sem eru ferskari og fyndnari en nokkru sinni fyrr, enda konur með reynslu. Þær hafa verið saman með uppistandssýningu sem kallast Af hverju fórum við ekki bara á gönguskíði? sem þær ferðuðust með um landið. Þær eru nú með aðra sýningu í Tjarnarbíói sem þær kalla Konur þurfa bara... í henni fjalla þær um lærdóminn og það skemmtilega sem svona brölti miðaldra kvenna fylgir. Þær sögðu okkur aðeins frá þessu svokallaða brölti í dag. Tónlist í þættinum: Norðurljós / Eyjólfur Kristjánsson (Gunnar Þórðarsson, texti Ólafur Haukur Símonarson) GMF / John Grant (John Grant) Ferry Cross the Mercy / Gerry and the Pacemakers UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Miðvikudagur 21. janúar Vinstrið, velsæld, Trump, svefnlyf og gremjulegur karl Vg og Vor til vinstri, hópur í kringum Sönnu Magdalenu Mörtudóttir, ætla að bjóða saman lista í borgarstjórnarkosningunum í vor. Sanna kemur að Rauða borðinu ásamt Rakel Hildardóttur, Rósu Björk Brynjólfsdóttur og Steinari Harðarsyni og ræðir við Gunnar Smára um borgarpólitíkina. Þau Kristín Vala Ragnarsdóttir jarðfræðingur og Ásgeir Brynjar Torfason hagfræðingur töluðu við Sigurjón Magnús um alþjóðasamtökin Wellbeing Economy Alliance. Trump skaffar okkur alltaf umræðuefni og við höfum Trumptíma á miðvikudögum. Að þessu sinni koma Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi, Brynja Elísabeth Halldórsdóttir dósent og Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir stjórnmálafræðingur og ræða við Gunnar Smára um Trump og áhrif hans á heiminn, samfélagið og huga okkar. Drífa Sigfúsdóttir og Anna Almarsdóttir lyfjafræðingur og prófessor við Kaupmannahafnarháskóla ræða við Sigurjón Magnús um svefnlyf sem hafa mikil áhrif færni fólks, sljóvga hugann og geta beinlínis verið varasöm. Þór Tulinius leikari skrifaði leikritið Bústaðurinn sem sett er upp í Tjarnarbíói. Hann ræðir við Gunnar Smára um verkið ásamt Þórunni Lárusdóttur leikkonu og Ásgeiri Ásgeirssyni tónskáldi.
Nokkuð skæð flensa hefur verið að ganga yfir frá því í haust og hafa talsvert margir lent í henni. Við fengum nokkrar ábendingar frá hlustendum að þau hefðu verið dálítinn tíma að koma sér í gang aftur eftir flensuna því brugðum við á það ráð að hafa samband við Gunnar Svanbergsson sjúkraþjálfara og hann kom í þáttinn og gaf góð ráð til að koma sér í gang eftir svona glímu við flensu. Við notuðum í leiðinni tækifærið og tókum stöðuna á Gunnari sjálfum, hvernig honum gengur í sinni glímu við langvinnt Covid. En hann kom einmitt í þáttinn á síðasta ári og sagði sína reynslusögu, en hann er ekki enn búinn að jafna sig eftir að hafa fengið Covid um jólin 2020. Svo spjölluðum við við Jónmund Grétarsson leikara, hann steig fyrst á sviðið kornungur í Bugsy Malone sem margir muna eftir í Loftkastalanum. Hann lærði leiklist í San Francisco og er stofnandi leikhópsins Elefants, sem hlaut flestar tilnefningar til Grímunnar árið 2023 fyrir Íslandsklukkuna. Hann leikur í Bústaðinum, nýju leikriti eftir Þór Tulinius, sem verður frumsýnt í Tjarnarbíói annað kvöld. Helga Guðrún Gunnarsdóttir lauk BS námi í íþrótta- og heilsufræði árið 2015 frá Háskóla Íslands og fékk skírteinið nánast á 60 ára afmælisdegi sínum. Hún fór strax að þjálfa opinberlega við lok háskólanámsins og stofnaði fljótlega fyrirtækið Ræs ehf. þar sem hún þjálfar fólk í vatni. Hún segir áhrif af vöðvaþjálfun í vatni fjölþætt, aukin vöðvastyrkur, aukin afköst hjarta og æðakerfisins og aukin hreyfigeta vegna minnkandi álags á stoðkerfið. Helga kom til okkar í dag. Tónlist í þættinum: Rólegan æsing / Egill Ólafsson (Egill Ólafsson) Listen to the Music / Doobie Brothers (Tom Johnston) Mary don't you weep / The Swan Silvertons Little By Little / Lay Low (Lay Low) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Heimsókn Laurie Anderson til Íslands markar lok viðamikillar sýningar á verkum Steinu Vasulka í Listasöfnunum í bænum, en líka upphaf afmælisárs Smekkleysu, sem fagnar í ár 40 ára tilveru sinni. Ásmundur Jónsson, eða Ási í Smekkleysu, lítur við í hljóðstofu, til að rifja stuttlega upp fyrir okkur tilurð Smekkleysu og segja okkur af goðsögninni Laurie Anderson. Trausti Ólafsson rýnir í nýja sýningu Brúðubílsins sem frumsýnd var í Tjarnarbíó um jólin, í leikstjórn þeirra Harðar Bent Steffensen og Lárusar Blöndal. En við hefjum þáttinn á því að fara úr húsi og hitta Gunnhildi Þórðardóttur, myndlistarkonu og skáld. Gunnhildur opnaði sýninguna Kerfi í Gallerí Göngum í desember og gaf einnig nýverið út ljóðabók sem kallast Vetrarmyrkur.
Við Vesturós Héraðsvatna um aldamótin 1900 bjó heljarmennið Jón Magnússon sér byrgi, og þar starfaði hann í 40 ár við að ferja menn og skepnur yfir stórfljótið. Ósmann var einstakur karakter, mannvinur, veiðimaður og skáld, og saga hans vakti áhuga rithöfundarins Joachim Schmidt, sem búsettur hefur verið á Íslandi síðustu 20 ár. Joachim segir okkur af skáldsögunni Ósmann í síðari hluta þáttar. Hildigunnur Sverrisdóttir verður einnig með okkur í dag og flytur sinn þriðja pistil af fjórum um samhengi geðheilbrigðis og arkitektúrs, en við hefjum þáttinn á leikhúsinu: Katla Ársælsdóttir fór að sjá Kosmískt skítamix í Tjarnarbíói.
Hreimur mætir með gítarinn og hitar upp fyrir Eldhúspartý. Sigga Ózk frumsýnir nýtt lag. Starfskynning vikunnar þar sem við kynnumst vinnu íþrótta pródusents. Leikarar frá Tjarnarbíói í spjalli um Jónsmessudraumsnætur. Ný uppgötvun um Adolf Hitler. Þetta og meira til.
Parkinson-sjúkdómurinn hrjáir tólf hundruð einstaklinga hérlendis. Parkinson er hæggengur taugahrörnunarsjúkdómur sem hefur áhrif á líkamlega færni. Misjafnt getur verið milli einstaklinga hver sjúkdómseinkennin eru. Enn sem komið er er ekki til nein lækning við sjúkdómnum. Ágústa Karen Andersen, forstöðumaður Takts endurhæfingar hjá Parkinson-samtökunum, og Vilborg Jónsdóttir, sem greindist með sjúkdóminn fyrir tíu árum, settust niður með okkur í húsnæði samtakanna í gær. Konur þurfa bara að vera duglegri… er uppistandssýning Sóleyjar Kristjánsdóttur og Auðbjargar Ólafsdóttur þar sem þær velta fyrir sér öllu því sem konur þurfa bara að vera duglegri í. Í sýningunni fjalla þær um allt það stórkostlega, hversdagslega og fyndna sem drífur á daga miðaldra fjölskyldu-og framakvenna sem þurfa bara að láta allt ganga upp. Sóley og Auðbjörg ætla að segja okkur frá uppistandinu. Umsjón: Ástrós Signýjardóttir. Tónlist þáttarins: CAMERON WINTER - Nausicaa DIJON - Yamaha LILA IKÉ - He loves us both
Hvaða áhrif hefur það á umhverfisbaráttuna að Greta Thunberg beini sjónum sínum frekar í aðrar áttir, og hvaða áhrif hefur endurkjör Donalds Trump á stöðuna í málaflokknum. Við pælum í umhverfispólitík með Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formanni Landverndar. Atli Bollason flytur okkur pistil þar sem hann veltir fyrir sér hugtakinu Sell-out sem þótti mikið skammaryrði í listakreðsum á árum áður. Atli vill að fleiri listamenn hundsi kröfuna um að slá í gegn. Er hægt að halda í látna ástvini með því að gera gervigreindarklón af þeim? Í einleiknum Dead Air, sem Álfrún Rós Gísladóttir sýndi á Edinburgh Fringe hátíðinni og verður sett upp í Tjarnarbíó um helgina, tekst hún á við sorgina að missa pabba sinn. Við ræðum dauðann og gervigreindarspjallmenni við Álfrúnu
Þriðjudagur 4. nóvember New York, kynfræðsla í kirkjum, ástin, stóriðja og gölluð hús Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir stjórnmálafræðingur, ráðgjafi og aðjunkt á Bifrösty ræðir um borgarstjórnarkosningar í New York við Gunnar Smára þar sem kannanir benda til að Zohran Mamdani, yfirlýstur sósíalisti, verði kjörinn borgarstjóri. Skúli S. Ólafsson prestur í Neskirkju og Bjarni Karlsson prestur siðfræðingur á sálgæslustofunni Hafi ræða við Gunnar Smára um kynfræðslu í fermingarfræðslu, dýrðarljómann og holdið. Leikararnir Kristín Þorsteinsdóttir, Heiðdís Hlynsdóttir og Rakel Ýr Stefánsdóttir, María Ellingsen leikstjóri og Snæbjörn Brynjarsson leikhússtjóri Tjarnarbíós ræða um Jónsmessunæturdraum eftir Shakespeare sem sýndur er í Tjarnarbíói. Þórólfur Matthíasson, doktor í hagfræði og prófessor emeritus við HÍ, hefur oft þorað að leggja fram rök, sem valdamiklar blokkir í samfélaginu hafa hafið herferð gegn. Í samtali við Björn Þorláks ræðir hann Grundartanga, stöðu stóriðju, hávaxtastefnuna, kjarasamninga og fleira. Stefán Hrafn Jónsson prófessor í félagsfræði ræðir um galla nýjum húsum við Gunnar Smára, en rannsókn hans bendir til að galli sé í miklum meirihluta nýrra húsa og mikill og kostnaðarsamur í mjög mörgum.
Einkasýning Finnboga Péturssonar á haustsýningu Listasafns Árnesinga heitir Skjálfti, og samanstendur af tveimur innsetningum; annars vegar risastórum spegli, sem er ýmsum eiginleikum gæddur, og svo eldrauðu duftkeri, sem markar syðri enda línu sem sker landið skáhallt, eins og flekamótin undir landinu. Vísanirnar í jarðfræði eru fleiri, og ekki óvanalegar fyrir verk Finnboga, en við bætist andlegri vídd þar sem raunheimar og handanheimar skarast og renna saman. Finnbogi segir okkur nánar af tilurð verksins í Víðsjá dagsins. Við lítum líka inn á tónlistaræfingu feðganna Símons H. Ívarssonar og Ívars Símonarsonar, sem flytja flamenco gítartónlist í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar annað kvöld og heyrum rýni Trausta Ólafssonar í uppsetningu Kammeróperunnar á ævintýraóperunni Hans og Grétu í Tjarnarbíói,
Hildur Sigurbergsdóttir hefur rannsakað sögulegar heimildir um samskipti Íslendinga sem fluttu til Nýja-Íslands fyrir aldamótin 1900 við frumbyggja sem þar bjuggu fyrir. Hildur er meðal fyrirlesara á málþingi um vesturfara sem haldið verður í Eddu á morgun, í tilefni af því að 150 ár eru liðin frá stofnun Nýja-Íslands í Kanada og kemur í hljóðstofu. Hildur Hákonardóttir er ein af okkar fremstu myndlistarkonum og á einnig að baki ritferil þar sem náttúran kemur mikið við sögu. Um helgina gefur hún út bók sem hún kallar Ef ég væri birkitré, þar sem hún vefur saman persónulegum hugleiðingum við sögulegar og hagnýtar upplýsingar um birkið, tré sem hefur mótað landið og menningu okkar frá landnámi. Katla Ársælsdóttir fór á frumsýningu í Tjarnarbíói um síðustu helgi, á Jónsmessunæturdraumi Shakespeare í leikstjórn Maríu Ellingsen og Magnúsar Thorlacius og rýnir í verkið í þætti dagsins.
Mánudags Brennsla! Barna veisla hjá Brennslu brósum. Brjótandi tíðindi í beinni. Dávur í Dölum mætir í spjall um sýningu í Tjarnarbíói. Er unga fólkið ekki tilbúið í vinnumarkaðinn? Heilabrotið á sínum stað og meira til.
Hunda-, katta- og gæludýraeigendur þekkja það að það getur verið snúið að fá pössun fyrir dýrin ef þau þurfa að fara erlendis eða eitthvað slíkt. Arnrún Bergljótardóttir stofnaði Sporið þar sem hún býður upp á heimapössunarþjónustu fyrir gæludýr og þá í leiðinni heimilin, á meðan eigendurnir eru ekki heima. Þar hugsar hún um allar þarfir dýrsins eða dýranna og nú býður hún líka upp á ummönnun og hreyfingu hesta og fleira. Arnrún kom í þáttinn og sagði okkur aðeins frá Sporinu og hvernig þetta kom til. BragðaGarður er tveggja daga hátíð sem fagnar matarmenningu, sjálfbærni og líffræðilegri fjölbreytni og er haldin í Garðskálanum í Grasagarði Reykjavíkur. Hátíðin er haldin af Slow Food hreyfingunni og býður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. Dagskráinn á föstudeginum er sérstaklega sniðin að nemendum á framhaldsskólastigi og nemendur úr matvælagreinum við Menntaskólann í Kópavogi leiða jafningjafræðslu um flest það sem snýr að mat. Dóra Svavarsdóttir, matreiðslumeistari, kennari og formaður Slow Food á Íslandi kom í þáttinn ásamt Haraldi Sæmundssyni framkvæmdastjóra Hótel- og veitingaskólans í MK. Dávur í Dali er fyndnasti Færeyingurinn á Íslandi, a.m.k. sá eini sem við vitum af sem fæst við uppistand. Hann er núna með uppistand í Tjarnarbíó þar sem hann segir í stuttu máli frá sögu Færeyja á grafalvarlegan hátt. Aðalstarf hans er sálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni, það var því um nóg að ræða við hann í dag. Tónlist í þættinum í dag: Af litlum neista / Pálmi Gunnarsson (Guðmundur Ingólfsson og Magnús Haraldsson) Fólkið í blokkinni / Eggert Þorleifsson (Ólafur Haukur Símonarson) Hvað um mig og þig? / Ragnhildur Gísladóttir (Magnús Eiríksson) Ljósvíkingur / Egill Ólafsson (Gunnar Þórðarson, texti Ólafur Haukur Símonarson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Gísli Marteinn Baldursson ræðir brotthvarf Jimmy Kimmel í kjölfar ummæla hans um morðið á Charlie Kirk. Valur Gunnarsson segir frá Leonard Cohen, en á sunnudag stendur hann fyrir tónleika og sagnakvöldi í Tjarnarbíó sem fjallar um Cohen. Friðrik Margrétar Guðmundsson tónlistarspekúlant þáttarins kryfur lagið Lover Girl, af nýútkominni plötu Laufeyjar, A Matter of Time.
Við héldum áfram yfirferðinni um leikhúsin í dag, að skoða það sem verður á fjölunum í vetur. Í síðustu viku var það Tjarnarbíó, nú var komið að Borgarleikhúsinu. Egill Heiðar Anton Pálsson, leikhússtjóri, kom í þáttinn og sagði okkur allt um leikárið framundan í Borgarleikhúsinu. Hinrik Carl Ellertsson, íslenskur matreiðslumaður og kennari við Menntaskólann í Kópavogi, er nýkominn heim úr ferð til Japans. Þar sinnti hann kynningu á norrænni matargerð í Nordic Pavilion á heimssýningunni í Osaka og hélt jafnframt masterclass í hinum virta Tsuji matreiðsluskóla. Á heimssýningunni í Osaka tók Hinrik Carl þátt í að kynna norræna matarmenningu ásamt kokkum frá Færeyjum og vakti þetta mikla athygli, en yfir þrjátíu greinar birtust í japönskum og erlendum fjölmiðlum. Við spjölluðum við Hinrik í dag. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Rósa Ólöf Ólafíudóttir, hjúkrunarfræðingur, djákni og uppeldisfræðingur. Hún er að skrifa bók um bróður sinn Lalla Johns, en hann tók af henni loforð áður en hann dó að hún myndi skrifa bók um hann. Við fengum hana til að segja okkur aðeins frá bókinni, Lalla og söfnuninni fyrir útgáfu bókarinnar á Karolinafund. En svo sagði hún okkur auðvitað líka frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Rósa talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Biblían Ástkær e. Tony Morrison Hind's feet on high places e. Hannah Hurnard barnabækurnar Litla ljót og Láki Jarðálfur Litbrigði jarðarinnar e. Ólafur Jóhann Sigurðsson Ljóð Steins Steinarrs Tónlist í þættinum í dag: Haust / Elly Vilhjálms og Hljómsveit Svavars Gests (Baldur Geirmundsson) Do it / Hera Hjartardóttir (Hera Hjartardóttir) Haust / Stefán Hilmarsson (Heimir Sindrason og Ari Harðarson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Í kvöld verður dansverkið Flækt frumsýnt í Tjarnarbíói. Höfundur er hin franska Juliette Louste en leikstjóri er Kara Hergils. Verkið byggir á persónulegri reynslu Juliette, sem þróaði með sér áráttu- og þráhyggjuröskun eftir að hafa upplifað áföll í æsku og langa vist á barnageðspítala. Saxófónleikarinn Tumi Árnason ætlar að kortleggja tónlistarheiminn með sínu eigin lagi með hálfsmánaðlegum hugleiðingum í haust og leggur upphafslínurnar í þætti dagsins. Í nýjum höfuðstöðvum Marvöðu við Grandagarð verður á laugardag blásið til viðburðar undir yfirskriftinni MAGIC. Þar verða sýnd performatív vídjóverk eftir feminíska frumkvöðla í myndlistarheiminum, þær Joan Jonas og Judy Chicago, ásamt stuttmynd Katrínar Helgu Andrésdóttur, HEX. Við hittum þær Katrínu Helgu, Sóleyju Stefánsdóttur og Arnbjörgu Maríu í Marvöðu í síðari hluta þáttar.
Bráðaskólinn sérhæfir sig annars vegar í skyndihjálparkennslu fyrir almenning og fyrirtæki og hins vegar í ýmsum sérhæfðum námskeiðum fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Sérstaða skólans er einna helst sú að allir kennarar eru heilbrigðisstarfsfólk sem vinnur við bráðar aðstæður í daglegum störfum sínum. Skólinn var stofnaður árið 2011 og hefur síðan þá haldið yfir 580 námskeið af ýmsu tagi og nemendurnir eru orðnir ríflega 7300 talsins. Eigendaskipti urðu á Bráðaskólanum sumarið 2024 og núverandi eigendur Bráðaskólans, hjónin Haukur Smári Hlynsson svæfingahjúkrunarfræðingur og Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir, læknir á Bráðadeild LSH komu í þáttinn í dag. Við ætlum að skoða hvað verður á boðstólnum á leiksviðum leikhúsanna á komandi leikvetri. Við fáum forsvarsfólk leikhúsana til okkar næstu mánudaga og í dag reið á vaðið Snæbjörn Brynjarsson leikhússtjóri Tjarnarbíós. Hann sagði okkur frá því helsta sem verður boðið upp á í Tjarnarbíói í vetur. Svo var það fyrsti lesandi vikunnar þetta haustið, það var Kári Valtýsson, lögfræðingu og rithöfundur. Hann var að senda frá sér sína fjórðu bók, Hyldýpi, sem við fengum hann til að segja okkur aðeins frá og svo fengum við auðvitað að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Kári talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Karítas án titils og Óreiða á Striga e. Kristínu Marju Baldursdóttur, Dolores Claiborne e. Stephen King Konuna í búrinu e. Jussi Adler Olsen Síðasta freisting Krists e. Niko Kazantszakis, Fight Club e. Chuck Palahniuk, The Rules of Attraction e. Bret Easton Ellis, og Charles Bukowski Tónlist í þættinum í dag: Einhversstaðar einhverntíma aftur / Ellen Kristjáns og Mannakorn (Magnús Eiríksson) SOS ást í neyð / Vilhjálmur Vilhjálmsson (erlent lag, texti Ómar Ragnarsson) The last farewell / Roger Whittaker UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Birna Rún Eiríksdóttir leikkona og grínisti var gestur okkar í dag en hún er að fara halda 3 uppistandssýningar í Tjarnarbíó, fyrsta sýning er 20. september og miðar eru inni á Tix.is. Hún er að spila Padel þessa dagana en Hjálmar er sannfærður um að hann sé Padel meistari. Helgi er farinn að lesa bækur aftur til að minnka skjánotkun.IG helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe´a!Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!
Atli Freyr Hjaltason, þjóðfræðingur, segir frá útgáfu á Danslögum Jónasar, handriti frá árinu 1864 sem inniheldur 50 danslög skrifuð fyrir fiðlu af Jónasi Helgasyni. Jónas var vinsæll dansundirleikari í Reykjavík á síðari helming 19. aldar og lék víða fyrir dansi. Mögulega hafa einhver danslaga Jónasar lifað nógu lengi til að hafa verið leikin í félagsheimilum landsins. Svo ótal margt fer fram í þessum byggingum sem oft á tíðum eru kjarninn í samfélögum landsbyggðarinnar. Þessi félagsheimili eru einmitt rauði þráðurinn í ljóðabók sem kom út í vor, Félagslandi eftir Völu Hauks. Þetta er fyrsta ljóðbók Völu en hún hlaut Ljóðstaf Jóns úr vör í fyrra. Vala mætir í hljóðstofu, en auk þess rýnir Trausti Ólafsson í leikverkið 40.000 fet, sem frumsýnt var í Tjarnarbíói fyrir helgi.
Þær Björk Guðmundsdóttir og Diljá Nanna Guðmundsdóttir koma í hljóðstofu og segja okkur frá 10 ára starfsemi Improv Íslands, spunatækni og aðferðum, og henda jafnvel í stuttan útvarpsleikhússpuna. Eftir átta ár á flakki ákvað Eydís Evensen, tónlistarkona, að flytja heim og snúa sér alfarið að tónlistinni. Von er á hennar þriðju plötu, Oceanic Mirror, sem dregur innblástur frá náttúrunni og fjallar um hringrás lífsins. Anna María Björnsdóttir ræðir við Eydísi í þætti dagsins. En við hefjum þáttinn á því að fara niður í bæ og hitta leikkonurnar Birtu Sól Guðbrandsdóttur og Aldís Ósk Davíðsdóttur sem frumsýna annað kvöld leikverkið 40.000 fet í Tjarnarbíói.
Helga Dögg Ólafsdóttir og Salka Snæbrá Hrannarsdóttir binda endi á vikuleg bréfaskrif sín í Lestinni, enda er að koma sumar og komið að kveðjustund. Snæbjörn Brynjarsson, leikhússtjóri Tjarnarbíós, veltir fyrir sér framtíð sviðslista, styrkleika senunnar hér og hlutverk leikhússins.
Vinkonurnar Hildigunnur Einarsdóttir og Sigríður Thorlacius völdu ólíkar leiðir í söngnum en hefur lengið dreymt um að syngja saman. Nú verður sá draumur að veruleika, því á tónlistarhátíðinni Við Djúpið á Ísafirði býðst gestum að hlýða á sérsniðna tónleika með tónlist Kurt Weill í útsetningum Þórðar Magnússonar, þar sem þær stöllur syngja saman og sín uppáhalds númer. Við heyrum af vináttu og verkefni söngvinkvennanna í þætti dagsins. Óskar Arnórsson flytur okkur líka sinn fjórða pistil í nýrri pistlaröð og fjallar um arkitektúr og umhverfi. Þá kynnum við okkur viðburð sem vafalaust verður meðal leikhúsviðburða sumarsins, en í kvöld og annað kvöld verður dansleikhúsverkið Life in this house is over sýnt í Tjarnarbíói. Leikstjóri er hin bandaríska Samantha Shay en verkið er samstarf Grotowski Institute, Pina Bausch Zentrum og Teatr Zar, með miklum fjölda dansara og leikara. Í lok þáttar rifjum við svo upp aðdragandann að kosningarétti kvenna og kjörgengi til Alþingis með kistubroti úr þætti Helgu Birgisdóttur og Brynhildar Heiðar og Ómarsdóttur um sögu íslenskrar kvennabaráttu á 20. og 21. öldinni.
Kolkrabbinn er ný viðburðaröð Ensemble Adapter í samvinnu við Tjarnarbíó. Á Kolkrabbanum má sjá verk sem dansa á mörkum tónlistar, gjörningalistar, dans og leikhúss, einhverskonar tilrauna-tón-leikhús sem er samt ekki ópera. Kolkrabbinn er með alla anga úti og allt í öllu og annað kvöld verður hann í fyrsta sinn á sviði Tjarnarbíós með verk sem heitir Everything Everywhere. Hörpuleikarinn Gunnhildur Einarsdóttir og slagverksleikarinn Matthias Engler eru forsprakkar Kolkrabbans og þau segja okkur nánar af uppátækjum hans í þætti dagsins. Gauti Kristmannsson fjallar um nýútkomna bók í glænýrri ritröð Tunglsins, Svartholi, sú er þýðing Ragnars Helga Ólafssonar á verki Anne Carson og heitir Albertine æfingarnar. Við hugum líka að sígildri nútímatónlist og veltum fyrir okkur hvaða dægurlög lifi af umrót tímans og einnig skoðum við tappa og skrúfur í vegg.
Með áherslu á ferlið, fremur en útkomuna, festu hjónin Steina og Woody Vasulka sig í sessi meðal áhrifamestu vídeólistamanna 20. aldarinnar. Á laugardaginn verður haldið málþing í Norræna húsinu þar sem varpað verður ljósi á varanleg áhrif þeirra brautryðjandi starfs á samtímalistir og tækni. Í ár er 125 ára ártíð og 75 ára dánartíð hins merka þýska tónskálds Kurt Weill. Brynhildur Björnsdóttir blæs til tónleika honum til heiðurs í kvöld og við heyrum frá henni. Við heyrum líka af tónleikum til heiðurs ljóðskáldinu Edith Södergran sem tríó Önnu Kruse stendur fyrir í Norræna húsinu. Katla Ársælsdóttir fjallar um danssýningu Katrínar Gunnarsdóttur, Soft Shell, sem sýnd var í Tjarnarbíói um liðna helgi.
Í dag hefst Hönnunarmars með pompi og prakt og á þriðja tug sýninga af mjög fjölbreyttu tagi. Meðal þeirra er sýningin Stöngin inn, í Hegningarhúsinu, þar sem áhugasamir geta kynnt sér umbreytingar sem framundan eru á Stangarbænum í Þjórsárdal. Verkefnið markar að sögn aðstandenda ákveðin þáttaskil í opinberum byggingum hér á landi og setur Stangarbæinn í sérstöðu sem fyrsta minjastaðinn á Íslandi sem er hannaður heildrænt með áherslu á umhverfislega og félagslega sjálfbærni. Við rifjum upp merkilega sögu Stangarbæjarins í Þjórsárdal og af sýningunni hjá arkitektinum Karli Kvaran í þætti dagsins. Gréta Sigríður Einarsdóttir vinnur líka úr eftirstöðvum jólabókaflóðsins með rýni í skáldsögu Guðrúnar Evu Mínervudóttur, Í skugga trjánna, og við kynnum okkur nýja danssýningu í Tjarnarbíói sem ber yfirskriftina Illgresin hjá danshöfundinum Gígju Jónsdóttur og dansaranum og fulltrúa danshópsins Forward, Diljá Þorbjargardóttur. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Við kynnum okkur Brím, nýja íslenska óperu sem verður frumsýnd í Tjarnarbíói á fimmtudagskvöldið. Höfundur tónlistarinnar, Friðrik Margrétar Guðmundsson og höfundur texta og leikstjóri verksins, Adolf Smári Unnarsson, segjast vilja takast á við samtímann og stóru spurningarnar í verkinu, en ódauðleg list, auðvald og nepótismi eru meðal viðfangsefna þess. Við ræðum einnig við Maó Alheimsdóttur og Hönnu Rós Sigurðardóttur um ferðalag þeirra til Grænlands og Gauti Kristmannsson fjallar um Skartgripaskrínið mitt eftir Ursulu Andkjær Olsen í þýðingu Brynju Hjálmsdóttur.
Í Glerhúsinu stendur nú yfir sýning sem ber titilinn Óminnissafnið - varðveislu- og rannsóknardeild. Þar sýnir myndlistarmaðurinn Unnar Örn Auðarson afrakstur vangaveltna um tilraunir okkar til að skjalfesta tímann með söfnun og skrásetningu á upplýsingum úr umhverfi og samfélagi. Við hittum Unnar Örn í þætti dagsins. Við heyrum einnig bókarýni en að þessu sinni rýnir Gréta Sigríður EInarsdóttir í skáldsöguna Moldin heit, eftir Birgittu Björgu Guðmarsdóttur, en sú bók hefur verið tilnefnd bæði til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Fjöruverðlaunanna. En við hefjum þáttinn á því að kynna okkur leikverkið Ifigenía í Ásbrú sem verður frumsýnt í Tjarnarbíói í næstu viku. Verkið er einleikur og upprunalegur titill þess er Iphigenia in Splott en þær Anna María Tómasdòttir leikstjóri og Þórey Birgisdóttir leikkona þýddu og staðfærðu verkið fyrir íslenska sviðið.
Kappræður Heimildarinnar fyrir kosningarnar fóru fram í Tjarnarbíó í gær. Í þessum þætti Tuð blessi Ísland gerum við upp kappræðurnar, spilum bitastæða búta og ræðum þá þræði sem teiknuðust upp á sviðinu við Tjörnina. Einnig ræðum við nýja könnun Maskínu fyrir Heimildina, sem sýnir meðal annars að fáir kjósendur Viðreisnar virðast vilja stjórn með Sjálfstæðisflokki. Miklum tíma var einnig varið í að ræða Flokk fólksins. Af hverju gagnrýna pólitískir andstæðingar Ingu Sæland nær aldrei? Þemalag þáttarins er Grætur í hljóði með Prins Póló.
Varstu á Twitter árið 2015? Manstu eftir Vematsu? Ekki? Við ræðum við þrjá vini Vematsu og reynum að skilja hversvegna unglingar í MH fóru að spjalla við fullorðinn mann í Japan í frítíma sínum. Kristján byrjaði daginn á því að kíkja niður í Tjarnarbíó. Þar hófst útgáfupartý klukkan 6 í gærkvöldi. Og klukkan tæplega 10 í morgun var annar höfundurinn, Almar Atlason, ennþá að lesa upp úr sinni fyrstu skáldsögu, Mold er bara mold: litla systir mín fjöldamorðinginn, sem er hetjusaga í þremur hlutum um erfiðleika, ofbeldi, afleiðingar, sorgir og glórulaust klúður.
Við lítum við í bláu húsi í gamla vesturbænum og ræðum við Kristínu Ómarsdóttur um nýútkomna bók, Móðurást: Draumþing. Þar segir hún skáldaða sögu langömmu sinnar á ofanverðri nítjándu öld í Biskupstungum, en að sögn Kristínar er bókin líka óður til vatnsins. Draumþing er annar hluti frásagnarinnar sem hófst með Móðurást: Oddnýju fyrir ári síðan, en fyrir hana hlaut Kristín Fjöruverðlaunin. Trausti Ólafsson verður einnig með okkur í dag, og að þessu sinni rýnir hann í glymskrattasöngleikinn Við erum hér, sem leikhópurinn Viðlag sýnir um þessar mundir í Tjarnarbíói. En við hefjum þáttinn á því að taka á móti Margréti Hrafnsdóttur söngkonu. Margrét tekur þátt í óperudögum með viðburði sem kallast Örlagasögur kvenna, ásamt rússneska píanóleikaranum Polinu Fradkina. Báðar hafa þær brennandi áhuga á því að segja sögur, og þá sérstaklega sögur af örlögum kvenna. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Við höfum verið að fjalla undanfarna mánudaga um það hvað verður á fjölunum í leik- og sviðslistahúsunum í vetur. Í dag var komið að Tjarnarbíói, Snæbjörn Brynjarsson nýráðinn leikhússtjóri þar á bæ kom í þáttinn. Tjarnarbíó hefur verið aðalmiðstöð frjálsu leikhópana hér á höfuðborgarsvæðinu og verður það áfram í vetur með fjölbreytta dagskrá sem Snæbjörn sagði okkur frá henni í þættinum. Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Í þetta sinn fjallaði vinkillinn um matargerð sem tekur mið af hnattstöðu Íslands og ekki síður árstíðinni, því nú verður spjallað um kjötsúpu. Hvers vegna er kjötsúpan mismunandi á milli heimila og landa? Má allt í kjötsúpugerð, eða verður að fara eftir uppskrift? Eru einhver leyndarmál sem gera súpuna betri á sumum heimilum en öðrum? Svo var það lesandi vikunnar. Í þetta sinn var það Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skáld og bóksali. Hún rekur bókabúðina Kanínuholan, sem hefur verið kölluð minnsta bókabúð landsins, en búðin er í bílskúrnum hjá henni. Hún sagði okkur auðvitað frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Móheiður talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Mafalda e. Quino, teiknimyndasögur Undir grjótvegg e. Svövu Jakobsdóttur Ariel e. Sylviu Plath (sem Móheiður hefur verið að þýða) Óseldar bækur bóksala e. Shaun Bythell. Things You May Find Hidden in My Ear e. Mosab Abu Toha Og svo talaði hún um bækurnar Mémoire d'une Jeune Fille Rangée / Mémoirs of a Dutiful Daughter og La Femme Rompue / A Woman Destroyed e. Simone de Beauvoir Tónlist í þættinum: Komdu í kvöld / Ragnar Bjarnason (Jón Sigurðsson) Allar mínar götur / Ragnar Bjarnason (Haraldur Reynisson) Barn / Ragnar Bjarnason (Ragnar Bjarnason, ljóð Steinn Steinarr) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Í þætti dagsins verður einmitt boðið upp á svipmynd af nýjum leikhússtjóra Tjarnarbíós. Snæbjörn Brynjarsson er fæddur árið 1984, er með BA-próf í fræðum og framkvæmd frá listaháskóla Íslands og BA-próf í japönsku máli og menningu frá Háskóla Íslands. Hann hefur farið mjög víða á sínum ferli, skrifað fantasíur fyrir ungmenni, ferðast um Evrópu með frönskum leikhópi, starfað sem varaþingmaður og leikhúsrýnir og stofnað og rekið gallerí og listahátíð í Kópavogi. Síðustu árin hefur Snæbjörn verið safnstjóri Listasafns Svavars Guðnasonar sem staðsett er á Höfn í Hornafirði. En nú hefur hann snúið aftur til höfuðstaðarins og tekið að sér stöðu leikhússtjóra Tjarnarbíós. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Víðsjá þáði morgunbolla í sólríkri stofu í miðbæ Reykjavíkur og fékk að heyra ýmislegt um rímnasöng og langspil. Tilefnið er dagur rímnalagsins og þjóðlistahátíðin Vaka, sem fer fram um næstkomandi helgi. Þau Bára Grímsdóttir og Chris Foster segja okkur af starfi Vökufélagsins og flytja vel valdar rímur. Í dag fáum við líka fyrstu leikhúsrýni vetrarsins. Þennan veturinn verða leikhúsrýnarnir þrír, þau Trausti Ólafsson, Nína Hjálmarsdóttir og Katla Ársælsdóttir. Trausti ríður á vaðið, en hann fór að sjá fyrstu frumsýningu vetrarins í Tjarnarbíói síðastliðinn fimmtudag, á leikverkinu Líkaminn er skál, eftir leikhópinn 10 fingur. En þátturinn hefst á inniliti í Gallerí Port við Hallgerðargötu, þar sem Hlynur Hallsson opnaði sýninguna Herbergi með útsýni um liðna helgi. Verk Hlyns fjalla oft á tíðum um pólitík í víðu en um leið persónulegu samhengi, samskipti, tungumál og hversdagsleikann, og verkin á þessari sýningu er engin undantekning. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Send us a Text Message.It's an extra hot Hot Happenings episode this week as we dive in with one of the Grapevine's faves—MSEA joins us in our studio to talk about her release show for her latest album Our Daily Apocalypse Walk (released in September 2023). The concert is Thursday May 9, 20:00 at Tjarnarbíó and tickets cost 3.900 ISK. And since that is the day this episode drops, you better hurry and buy your ticket right away right here on tix.is!Follow MSEA on her socials:Instagram: @mseasikFacebook: MSEA66 Degrees of Sound is a podcast production by The Reykjavík Grapevine, hosted by music editor Jóhannes Bjarkason and listings editor Rex Beckett.Editing and intro music by Rex Beckett.All tracks played on the show are in accordance with STEF, the Composers' Rights Society of Iceland.Check out grapevine.is for the full magazine coverage and events.grapevine.is for more upcoming events. Instagram: @rvkgrapevine Facebook: The Reykjavík Grapevine Youtube: The Reykjavík Grapevine
Á sýningunni Aðgát á Kjarvalsstöðum varpar sýningarstjórinn Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir ljósi á ríflega sex áratuga langan feril Borghildar Óskarsdóttur. Borghildur Óskarsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1942 og á að baki merkan listferil. Hún vakti fyrst athygli fyrir leirverk á áttunda áratugnum en móðir jörð og tengsl okkar mannanna við hana hafa verið Borghildi hugleikin allan hennar feril. Hún vann, og vinnur enn, verk sín í fjölbreytta miðla en leirinn og glerið hafa fylgt henni allan ferilinn. Við hittum sýningarstjórann á Kjarvalstöðum í þætti dagsins. Við kynnum einnig til leiks pistlahöfund hér í Víðsjá. Jakub Stachowiak, rithöfundur, skrifar okkur fjórar esseyjur um hjartabrostnar borgir; ferðalag erlendis sem hann hélt í síðasta sumar til að skrifa skáldsögu og jafna sig á ástarsorg. Pistlarnir verða eins konar framhaldssaga og því munum við heyra þann næsta í röðinni á morgun og svo koll af kolli út vikuna. En við hefjum þáttinn á því að fara í leikhúsið. Trausti Ólafsson sá verkið Félagsskapur með sjálfum mér í Tjarnarbíói.
Hvers vegna er þetta orð 'innviðir' út um allt núna? Hvers vegna eru vinstrimenn farnir að tala eins og hægrimenn í útlendingamálum? Við rýnum í orð Kristrúnar Frostadóttur með Eiríki Bergmann. Anahita Babaei komst í fréttir á síðasta ári þegar hún dvaldi í þrjátíu klukkustundir í mastri hvalveiðiskips í mótmælaskini. Hún tilheyrir samtökunum Hvalavinir en þau, auk Ungra Umhverfissinna, standa fyrir viðburðinum Hvalasöngur í Tjarnarbíói á laugardaginn kemur. Erna Kanema Mashinkila hefur upp á síðkastið flutt pistla og viðtöl sem tengjast birtingarmyndum litaðra íslendinga á leiksviðum og víðar. Að þessu sinni, í þriðja þætti af Sjáumst og heyrumst, ræðir hún við dansarann Luis Lucas. Olga Guðrún Árnadóttir, Ólafur Haukur Símonarson - Það er munur að vera hvalur Mac DeMarco - Change The World (Eric Clapton Cover) Alex G - Whale Cocteau Twins - Whales Tails Jessica Pratt - Life Is
Sýningin D-vítamín verður opnuð gestum næstkomandi föstudag í hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur en þar kemur saman úrval upprennandi listamanna með glæný og nýleg verk í anda þeirrar hefðar sem mótast hefur í áralangri sýningarröð Listasafnsins í D-sal. Við náum tali af Aldísi Snorradóttur, og Björk Hrafnsdóttur, sýningarstjórum í þætti dagsins. Ljósið og ruslið er marglaga sviðs- og tónverk eftir Benedikt Hermann Hermannsson tónskáld og Ásrúnu Magnúsdóttur danshöfund en það verður frumsýnt í Tjarnarbíói núna á fimmtudaginn. Verkið er samið fyrir og flutt af kvennakór og hljómsveit, og samanstendur sýningin af 10 lögum sem hvert felur í sér sitt eigið sögusvið og hljóðheim. Við ræðum við Benna Hemm Hemm og Maríu Rán Guðjónsdóttur, útgefanda, sem er einn kórmeðlima. Við rifjum einnig upp erindi Snorra Rafns Hallssonar um Kafka, skrifræði og draumaland reglnanna og mun hann grípa niður í Réttarhöldin og bók bandaríska mannfræðingsins og anarkistans David Graeber, Utopia of rules.
Í Gerðarsafni var fyrsti fasi sjónlistasýningarinnar Venjulegir staðir opnaður um síðustu helgi. Venjulegir staðir er sýning þar sem sjónarhorn ljósmyndarinnar er kannað með verkum sem vísa í staðleysur, hversdagsleika og brenglun hans. Við ræðum við ljósmyndarann Ívar Brynjólfsson og sýningarstjórann Brynju Sveinsdóttur í þættinum. Einnig fáum við að heyra hvað Trausta Ólafssyni finnst um nýtt íslenskt Dansverk; Árstíðirnar sem frymsýnt var í Borgarleikhúsinu um helgina. Danska verðlaunaverkið Kannibalen, sem frumsýnt verður í Tjarnarbíói í vikunni, fjallar um einn umtalaðasta mannátsglæp síðari ára. Aðstandendur verksins segja það ekki vera neitt hryllingsklám, heldur einlæga leit að skilningi á slíkum verknaði. Ekkert sé skafað af ofbeldinu en jafnvel meira sláandi er það sem mæti áhorfendum þegar kafað sé undir yfirborð þessara einstaklinga. Við ræðum við leikstjórann Adolf Smára Unnarsson og leikarana tvo, Fjölni Gíslason og Jökul Smára Jakobsson, í þætti dagsins.
THEM er verk um karla að díla við eitraða karlmennsku og konur að díla við karla - og öll að reyna bara að fá að vera… bara vera! Fjórar konur frá Íslandi og Finnlandi kafa ofan í heim karla og segja sögur af ást, stolti, föðurhlutverkinu og óttanum við að vera öðrum byrði. Með því að heimsækja líf annarra leitast leikkonurnar við það að skilja sína eigin stöðu í heimi sem ekki er hannaður fyrir þær. Leikverkið THEM er sýnt aðeins einu sinni í viðbót þann 14. mars í Tjarnarbíói (miðar á TIX) og er afrakstur af viðtalsrannsókn við fjölda karla á Íslandi og Finnlandi. Leitast leikarnir við að varpa ljósi á karlmennsku af mýkt og næmni, án þess að dæma en þó þannig að áhorfandinn geti speglað sig og sín eigin viðhorf. Við spjöllum um leikverkið, tilurð þess, áhrif metoo byltingarinnar sem kemur inn í mitt sköpunarferlið og það hvort og hvers vegna konum leyfist að gera leiksýningu um karlmennsku. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Viðmælendur: Bergdís Júlía Jóhannsdóttir og Tinna Þorvalds Önnudóttir leikkonur. Veganbúðin, ÖRLÖ, BM Vallá og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þáttinn. Þú getur gerst bakhjarl á karlmennskan.is/styrkja