Pepp Fundir

Follow Pepp Fundir
Share on
Copy link to clipboard

Pepp Fundir eru ætlaðir að hvetja þig áfram svo að þú getir orðið betri útgáfa af sjálfrum þér.

FitbySigrún


    • Feb 17, 2023 LATEST EPISODE
    • monthly NEW EPISODES
    • 25m AVG DURATION
    • 12 EPISODES


    Search for episodes from Pepp Fundir with a specific topic:

    Latest episodes from Pepp Fundir

    Pepp Fundur 9: Fyrir ykkur sem hafið lent eða eruð í 'sálarlegu stríði'

    Play Episode Play 30 sec Highlight Listen Later Feb 17, 2023 29:38


    Sigrún: Þessi pepp fundur er sérstaklega hugsaður fyrir ykkur sem hafið lent í samskiptum við einstakling sem sýnir narcissistic eiginleika. Hann er ætlaður að hvetja þig að fara í gegnum þá reynslu gracefully og rise above. Hann getur einnig nýst þeim sem hafa lent í erfiðum samskiptum og/eða erfiðum aðstæðum sem hvatning að taka völdin á því eina sem þú hefur stjórn á sem ert þú sjálf/ur.

    Pepp fundur 8: Fyrir göngutúrinn

    Play Episode Play 30 sec Highlight Listen Later Dec 14, 2022 32:38


    Sigrún: Þessi peppfundur er ætlaður að auka meðvitund þína í göngutúrnum við sjálfan þig (líkamann, tilfinningar og hugsanir) og við umhverfið þitt. Hann er einnig ætlaður að byggja þig upp og hvetja þig til þess að losa þig við huglægt rusl sem þú burðast með. Innblástur af þættinum er frá fólki í kringum mig, jóga nidra kennaranámi og dáleiðslunámi. Hlustaðu á hann eins oft og þú þarft til að hver göngutúr verði æfing í að sjá það sem er í kringum þig og styrkja þig sem manneskju. 

    Pepp fundur 7

    Play Episode Listen Later Mar 25, 2022 28:00


    Sigrún: Ertu buguð móðir? Líður þér eins og þú sért komin í algjört þrot og veistu stundum ekki hvernig þú eigir að fara að þessu? Þessi pepp fundur er fyrir þig, elsku móðir, til að halda áfram. Þú ert ekki ein, þú ert mætt og komin þetta langt. Kannski þarftu að játa þig sigraða til að geta haldið áfram og hvetur þessi pepp fundur þig til þess að taka þau skref sem þú þarft til þess að finna þig aftur.

    Pepp fundur 6

    Play Episode Listen Later Apr 20, 2021 26:17


    Sigrún: Finnst þér stundum eins og lífið sé orðið að hálfpartinn kvöð? Finnst þér eins og allt sem þú gerir sé eitthvað sem þú VERÐUR að gera? Þessi pepp fundur er ætlaður að koma með aðra sýn á lífið og þær aðstæður sem þú ert í. Þessi pepp fundur er hugsaður til þess að hvetja þig til þess að breyta orðaforðanum þínum úr því að þú verðir að gera hlutina í að þú VELUR að gera hlutina því allt sem þú gerir er val og það er alltaf einhver ástæða á bakvið valið. 

    Pepp fundur tvö

    Play Episode Listen Later Mar 31, 2021 12:30


    Hvernig talar þú við þig? Hvernig hugsar þú um þig? Gæti verið að þú sért ómeðvitað að skemma fyrir þér með þinni orðræðu í þinn garð? Við líðum oft í gegnum daginn og gagnrýnum allt sem við gerum og höldum að það hafi engin áhrif eða jafnvel að við eigum það skilið.  Það er bara alls ekki þannig því innri orðræða er gríðarlega mikilvæg, hún verður að ytri gjörðum.

    Pepp fundur eitt

    Play Episode Listen Later Jan 15, 2021 14:07


    Hvernig er orkubúskapurinn þinn? Hvernig ert þú að nota þína orku? Þú getur aðeins haft áhrif á þig og hvernig þú bregst við mismunandi hlutum í lífinu. Hlustaðu á þennan pepp fund til þess að minna þig á hvar og hvernig þú getur sótt þína orku.

    Pepp fundur 5

    Play Episode Listen Later Nov 10, 2020 27:02


    Hvort er litlan þín eða besta þín við völdin? Þessi pepp fundur er ætlaður að hvetja þig til þess að verða betri og betri útgáfa af sjálfri þér og þannig halda þér á þinni braut, þeirri braut sem mun skila þér mestum árangri í lífinu. Fundurinn kemur með sýn á því hvernig þú getur hugsað til þín þannig að þú sért oftar og oftar með þér í liði og nærð þannig að halda þér lengur og lengur á brautinni.

    Pepp fundur 4

    Play Episode Play 15 sec Highlight Listen Later Jun 3, 2020 24:12


    Þessi upptaka er fyrir ykkur sem eruð að ganga í gegnum eitthvað erfitt, eitthvað óviðráðanlegt, eða eigið erfitt með að komast yfir eitthvað, eitthvað sem situr í ykkur. Þessi upptaka er ætluð að hvetja þig til þess að trúa og treysta að það sem þú ert að ganga í gegnum og hefur gengið í gegnum er ætlað að vera því það er á einhvern hátt að vinna með þér þótt svo að þú sjáir það ekki núna.

    Pepp fundur 3

    Play Episode Play 18 sec Highlight Listen Later May 15, 2020 34:22


    Eru væntingar uppspretta þinna vandamál? Uppspretta pirrings og reiði? Þessi þáttur fer yfir pirring og reiði og hvernig er hægt að nýta þessar tilfinningar og aðrar tilfinningar sem eru að draga þig niður til þess að vinna með sjálfan þig. Farið er yfir leið við að tækla þessa þætti sem eru hluti af lífinu.

    Þitt Sanna Sjálf Fyrirlestur

    Play Episode Play 16 sec Highlight Listen Later Apr 23, 2020 33:02


    Fyrirlestur sem ég hélt í mars 2019 og birti á rafrænu formi haustið 2019. Í þessum fyrirlestri fer ég yfir hvað þarf til þess að ná árangri og legg fyrir verkefni sem er ákveðið tæki í að finna sjálfan þig - Þitt sanna sjálf eins og ég kalla það. Hlustaðu á þetta ef þú hefur týnt þér, finnst þig vanta stefnu í lífinu eða vilt einfaldlega styrkja þig meira. Hlustaðu á þetta aftur og aftur og aftur til þess að minna þig á þetta og gera þetta hluta af þér.

    Pepp fundur 2

    Play Episode Play 15 sec Highlight Listen Later Apr 3, 2020 20:23


    Ef þú ert oft að leyfa þér að nenna ekki hlutunum skaltu hlusta á þennan pepp fund. Þú getur orðið do-er í öllu, þú ert lausnin í þínu lífi og þú getur tekið völdin. Hættu að gefa þér þann valkost að gera ekki hlutina, hlustaðu á þennan pepp fund til þess að hvetja þig áfram til þess að gera hlutina.Hlusta síðan á hann aftur og aftur og aftur þangað til þú verður do-er.

    Pepp fundur 1

    Play Episode Play 19 sec Highlight Listen Later Mar 14, 2020 20:31


    Ert þú að fara ómeðvitað í gegnum lífið? Allt sem þú ert núna byggist á ákvörðunum sem þú hefur tekið í gegnum ævina, hvort sem þær hafa verið meðvitaðar eða ómeðvitaðar. Hlustaðu á þennan pepp fund til að fá innblástur til þess að taka völdin á þínu lífi og fara meðvitað í gegnum það. Hlustaðu á hann eins oft og þú þarft til þess að hvetja þig áfram, hvetja þig til þess að taka meðvitaða ákvörðun um að taka völdin og verða hver þú í raun og veru ert – fædd í þennan heim með þann eina eiginleika að gefast aldrei upp, að halda alltaf áfram.

    Claim Pepp Fundir

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel