POPULARITY
Categories
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Ragnheiður Stephensen grunnskólakennari Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra um hótanir í garð ráðamanna og breytingar á útlendingalögum Símatími Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka segir ríkið ætla að sækja sex milljarða í viðbótartekjur með bankaskatti á meðan svokallaður vaxtamunur heimila hafi lækkað síðustu tólf mánuði og að þjónustu- og kortagjöld hafi jafnframt lækkað að raunvirði. Björgvin Víkingsson Bónus - lækka verð á 1000 vörum og TAKK appið Samúel Karl Ólason fréttamaður Vísis Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi hjá bjornberg.is. um sparnaðar ráð fyrr jólin
Við héldum áfram yfirreið okkar yfir það sem er að gerast á fjölum leik- og sviðlistahúsanna í vetur. Í þetta sinn var það Íslenski dansflokkurinn, en Lovísa Ósk Gunnarsdóttir er listdansstjóri þar á bæ. Hún sagði okkur frá dansflokknum og dansvetrinum framundan. Svo fengum við gullmola af safni RÚV. Í þetta sinn var brotið sem við fengum að heyra frá árinu 1995, úr þætti Þorsteins J. Vilhjálmssonar „Sumar í Héraði“ þar sem hann hafði farið um sveitina með upptökutæki og rætt við fólk í Dölunum. Þar heyrðum við samtal þriggja kvenna sem eru allar um nírætt þar sem þær sitja og hnýta heklubönd og karpa um allskonar ótengda hluti, peninga, kleinubakstur og skaphöfn hvorrar annarrar. Þetta voru þær Steinunn Gunnarsdóttir Grænumýrartungu í Hrútafirði, Margrét Oddsdóttir Jörfa í Haukadal og Gísla Sigríður Kristjánsdóttir frá Teigi í Hvammssveit. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Gísli Hvanndal íslenskukennari og meðlimur í leshringnum Austurlandahraðlestri. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Gísli talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Svanvængjuð þrá e. Valdimar Tómasson Næsta stríð e. Ásgeir H. Ingólfsson Bók vikunnar e. Snæbjörn Arngrímsson Íslensk óhamingja e. Bragi Páll Sigurðarson bækur Steinars Braga og þjóðsagan Djákninn á Myrká Tónlist í þættinum: Komdu með / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarsson, texti Jónas Friðrik Guðnason) Svantes lykkelige dag / Povl Dissing (Benny Andersen) Nótt / Friðrik Ómar Hjörleifsson (Gunnar Þórðarsson, texti Þorsteinn Erlingsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Við héldum áfram yfirferð okkur um leiksvið landsins, hvað verður á fjölum þeirra þennan leikvetur. Nú var komið að Leikfélagi Akureyrar, Bergur Þór Ingólfsson leikhússtjóri kom til okkar og fór með okkur yfir það sem er framundan hjá þeim, meðal annars 120 ára afmælissýning samkomuhússins, þar sem LA hefur verið til húsa og óteljandi sýningar hafa verið settar upp í og margt fleira. Við kynntumst svo fyrirtæki sem heitir Hoobla, en það er vettvangur þar sem fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög hafa aðgang að neti sérfræðinga, stjórnenda og ráðgjafa til að ráða í tímabundin verkefni, sem sagt eins konar umboðsskrifstofa fyrir fagfólk sem kýs að vinna í því sem hefur verið kallað gigg vinnumarkaðurinn eða hagkerfið. Hoobla er fimm ára um þessar mundir og stofnandi þess, Harpa Magnúsdóttir sagði okkur aðeins betur frá því. Og lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Sigrún Tinna Sveinsdóttir, sem var í beinu sambandi frá Nýju Delí á Indlandi, en hún vinnur fyrir utanríkisþjónustuna þar. Við fengum hana til að segja okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Shuka Saptati, Seventy Tales of the Parrot, höfundur óþekktur Saga af svartri geit e. Perumal Murugan Shattered Lands: Five partitions and the making of modern Asia e. Sam Dalrymple Ráðuneyti æðstu hamingju e. Arundhati Roy A Fine Balance e. Rohinton Mistry Tónlist í þættinum: Jambalaya / Carpenters (Hank Williams) Ég labbaði í bæinn / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Jóhann Helgason, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson) Entre Amigos / Stan Getz og Big band Bossa Nova (Gary Mcfarland)
Páll Magnússon stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Það gustar um dómsmálaráðherrann, Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur; miklar breytingar í útlendingamálum, tillaga um breytta skiptingu þingmanna milli kjördæma, fækkun sýslumanna og lögreglustjóra og fleira. Meira um hvernig menntakerfið er að bregðast börnunum okkar. Sigvaldi Egill Lárusson, formaður Heimilis og skóla, og Trausti Magnússon, Verslunarskólanemi, ræða málið. Er nýsett markmið ríkisstjórnarinnar um hallalausan rekstur ríkisins á næsta ári þegar fallið? Gunnar Haraldsson, hagfræðingur og fyrrum formaður Fjármálaráðs í 10 ár, er líklega sá maður sem þekkir þenna málaflokk best. Hann mætir. Þingmennirnir Ása Berglind Hjálmarsdóttur frá Samfylkingunni og Sigríður Andersen frá Miðflokknum takast síðan á um stjórnmálaástandið almennt.
Sunnudagurinn 20. september Synir Egils: Evrópa og Bandaríkin, skattar, kjarabarátta, húsnæði, pólitík Til okkar koma á vettvang dagsins Árni Helgason þingmaður, Líf Magneudóttir borgarfulltrúi og Margrét Helga Erlingsdóttir sjónvarpskona og ræða fréttir vikunnar og ástand samfélagsins og síðan þeir Jónas Atli Gunnarsson hagfræðingur Húsnæðis og mannvirkjastofnunar, Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra og Yngvi Ómar Sigrúnarson formaður Leigjendasamtakanna að ræða húsnæðismál, en slæm staða þeirra hefur drifið áfram verðbólgu og grafið undan lífskjörum leigjenda mörg undanfarin ár. Er von um breytingu? Í lokin fara þeir bræðir, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
Þessi þáttur er helgaður íslenskri náttúru, rétt eins og dagurinn allur, því dagur íslenskrar náttúru er haldinn hátíðlegur í dag, 16.september. Af því tilefni afhenti umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti í Laugarneskirkju. Viðurkenninguna í ár hlaut Andri Snær Magnason, náttúruverndarsinni, rithöfundur og leikstjóri, sem um árabil hefur unnið ötullega að því að vekja athygli almennings jafnt sem ráðamanna á mikilvægi náttúru- og umhverfisverndar, loftslagsbreytingum og afleiðingum þeirra fyrir náttúruna jafnt sem samfélag manna. Rætt er við Andra Snæ í þættinum, og líka við Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formann Landverndar. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Sunnudagurinn 13. september Synir Egils: Æskan, þingið, kjaramál, utanríkis- og öryggismál Þau koma og ræða fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins þau Rósa Björk Brynjólfsdóttir formaður Vg, Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélags Íslands og Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda; PISA, fjárlagafrumvarp, stefnuræðu, landakort Trump, EES og bókun 35, aðgerðir ríkisstjórnar vegna kjarasamninga, fjölmiðla og fleira. Síðan koma að ræða öryggis- og utanríkismál þau Dagur B. Eggertsson þingmaður, Albert Jónsson fyrrum sendiherra og Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur í ljósi niðurstöðu þjóðaratkvæðis og landakorts og símtals Donald Trump. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Herdís Storgaard, hjúkrunarfræðingur og forstöðumaður Miðstöðvar slysavarna barna, settist niður með okkur. Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands, fór yfir skattareiknivél á vi.is. Lilja Nótt Þórarinsdóttir, leikkona og einn af handritshöfundum seríunnar Boltamömmur og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamaður fóru yfir sviðið. Jón Þórðarson og Rikka Sigríksdóttir - og Sigríkur litli, sögðu okkur frá Sigríði Hrund sem fæddist langt fyrir tímann. Brynjólfur J. Baldursson, stjórnarformaður Reykjabaðanna, ræddu Reykjaböðin við okkur. Guðjón Einar Guðmundsson, bráðatæknir og slökkviliðsmaður og Brynjólfur Pétursson, lýsingahönnuður, tækniteiknari og kerfisstjóri eru báðir í námi við háskólann á Bifröst.
Í þessum þætti: Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra biðst afsökunar. Margeir Jóhannsson einn eigenda bílasölunnar Dísel um bílasöluna eftir kynningu fjárlagafrumvarps. Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss segir launþega í vinnu frá 8 til 17 vinna fyrir sköttum til 11:41. Símatími: Sigurður - Helgi - Jón Yngvi Ómar Sigrúnarson formaður leigjendasamtakanna um fyrirhugaðar lagabreytingar sem eiga að banna mánaðarlegar vísitöluhækkanir leigu. Jóhanna Ýr Bjarnadóttir doktor í stjórnmálafræði er búsett í Berlín og hefur skoðað sérstaklega uppgang AfD í Þýskalandi. Helgi Jóhannesson hæstarréttalögmaður og útivistarmaður um berin. Auður Soffía Björgvinsdóttir læsisfræðingur og aðjúnkt við menntavísindasvið Háskóla Íslands um kennara og lesskilning.
Í þessum þætti: Tryggvi Hjaltason framkvæmdastjóri farsældar-hraðals-félagsins Andvara og áhugamaður um ofurheilsu langlífi og föstur um led ljós. Inga Sæland mennta og barnamálaráðherra og Jón Pétur Zimsen þingmaður um niðurstöður Pisa könnunar. Símatími: Anna Erla - Gunnar - Inga - Palli í Noregi. Albert Jónsson alþjóðastjórnmálafræðingur um sendiherra Rússlands og Bandaríkjanna sem utanríkisráðherra kallaði á teppið. Már Wolfgang Mixa prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands. Sigríður Björk Þormar eigandi og framkvæmdastjóri Sálfræðinganna ehf um ráðstefnuna Þrautseigja í framlínunni. Ingvar Þórðarson framleiðandi um kvikmyndina Fuglar og menn.
Sunnudagurinn 6. september Synir Egils: Ísland og Evrópa, kjarasamningar, fjölmiðlar og Alþingi Drífa Snædal talskona Stígamóta, María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona og Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar mæta á vettvang dagsins og ræða fréttir og stöðu samfélagsins. Síðan kemur Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknar og þingmennirnir Grímur Grímsson, Arna Lára Jónsdóttir og Ólafur Adolfsson og ræða stöðu mála, flokka og ríkisstjórnar við upphaf haustþings. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
Heiðar Guðjónsson og Sigríður Á. Andersen mæta á helgarvaktina og fara yfir eftirmála þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðild að ESB, kröfur um rannsóknir á úrslitunum, viðbrögð þeirra sem lutu í lægra haldi, starfsemi Rúv í aðdraganda kosningarinnar og fleira. Þá er rætt um mögulega skuldakreppu í Frakklandi og skuldasöfnun annarra ríkja, stöðu hagkerfisins hér á landi sem glímir við verðbólgu, háa vexti og kjarasamninga sem kunna að vera í uppnámi, háa bankaskatta og áhrif þeirra, breytingar á fjölmiðlamarkaði og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, bókarýni, hrós vikunnar og hraðaspurningar.
Rikki Blind Rankar yfirmenn. Gummi Kíró og Helena O´Connor fara yfir hvað er inni og úti í tískunni, samfélaginu og lífstílnum. Anna og Sigrún frá Tan.is fræða okkur. Auður spjallar um lífið í LA og tónleika sem eru framundan. Þetta og meira til.
Reykjavík Bear hátíðin fer fram dagana 3.–6. september og sameinar bangsa, vini þeirra og gesti víðsvegar að úr heiminum í fjögurra daga hátíð. Bangsasamfélagið á rætur í menningu samkynhneigðra karla og varð til sem rými fyrir fólk sem fann sig ekki í ríkjandi útlitskröfum. Orðið bangsi hefur gjarnan verið tengt við stórvaxna, skeggjaða eða loðna karlmenn, en samfélagið er mun fjölbreyttara en sú staðalmynd gefur til kynna. Meðal hápunkta er val á Mr. Reykjavík Bear í Austurbæjarbíói laugardaginn. Sigurður Júlíus Guðmundsson, formaður Bangsafélagsins, og Jóhann Örn B. Benediktsson, sem vann titilinn Mr. Reykjavík Bear í fyrra, komu í þáttinn í dag. Svo brugðum við okkur til Síerra Leóne, en Barnaheill hefur staðið að byggingu skóla í þorpi þar. Ákvörðunin um að gera það var tekin eftir að blasti við að börnin á svæðinu gátu ekki nýtt sér aðstoð Barnaheilla því að það vantaði grunnstoðina, skólann. Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, sagði okkur betur frá þessu, verkefnum samtakanna, haustsöfnuninni, Vigdísarstokknum og styrktartónleikum í Salnum í þætti dagsins. Edda Olgudóttir tók upp þráðinn frá miðvikudögum síðasta vetrar og kom í vísindaspjallið í dag. Nú fjallaði hún um rannsóknir sem sýna áhrif sætuefna á þarmaflóruna og fleira, jafnvel í nokkrar kynslóðir. Tónlist í þættinum í dag: Skítaveður / Bogomil Font (Bragi Valdimar Skúlason) Gangi þér allt að sólu / Armundur Ernst Backman Björnsson (Armundur Ernst Backman Björnsson) Seabird / Alessi Brothers (Billy Alessi, Bobby Alessi & Mike Melvoin) Fiskisúpa Sigríðar í Fjörhúsinu / Hilmar Oddsson (Hilmar Oddsson, texti Karl Roth) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Valgeir Sigurðsson, einn af eigendum Vinnuverndar og yfirmaður þjónustusviðs og Sigríður Indriðadóttir, eigandi og stjórnendaráðgjafi hjá Saga Competence, ræddu áhugaverða ráðstefnu á fimmtudaginn. Prófessorinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson settist niður með okkur. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, fór yfir efnahagshorfur á Íslandi. September er gulur í öllum sínum myndum Úlfar Linnet, forstöðumaður einstaklings- og fyrirtækjalausna hjá Orku náttúrunnar, ræddi við okkur um hleðslukvíða. Valgeir Þór Jakobsson, framkvæmdastjóri Samfés og varaformaður Frítímans, ræddi sorgarstund klukkan 10 við ráðhús Reykjavíkur. Nokkur góð sparnaðarráð fyrir haustið
Málið um tær fleiri hundrað grønlendsku kvinnurnar, sum uttan samtykkti fingu snyril uppsettan frá 1960-unum og frameftir, kom fríggjadagin á eitt vegamót. Ein serfrøðingabólkur kom við eini frágreiðing, sum varpaði ljós á, hvør kann ábyrgdast í málinum, og um menniskjarættindi eru brotin. Grønlendingar vilja hava rættvísi, og at øll søgan um Grønland sum hjáland og sum partur av danska ríkinum verður viðgjørd í semjutilgongdini. Við í sendingini: Sigrún Brend, Naja Lybert, Martine Lind Krebs, Anne Pilegaard Petersen, Celine Klint og Ado Holm. Gjørt sendingina: Frants Jensen, Annika Bolton Mortensen, Sigrún Brend og Katrin Petersen, sum eisini var redaktørur. Framleiðari: Bárður Thomsen. Teknikari: Kári Annand Berg.
Sunnudagurinn 23. ágúst Synir Egils: Ísland og Evrópusambandið, staða og horfur Við ræðum fréttir og stöðu samfélagsins við Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur og þrjá prófessora: Sigrún Ólafsdóttur félagsfræðing og stjórnmálafræðingana Evu H. Önnudóttur og Eiríki Bergmann. Síðan reyna þingmennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Pawel Bartoszek að sannfæra okkur að segja nei eða já í þjóðaratkvæðagreiðslunni næsta laugardag. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
Fimmtudagur 20. ágúst Fréttir dagsins, Evrópumál, bráðnun jökla og menntamál Oddný Harðardóttir, fyrrum þingkona, Yngvi Ómar Sigrúnarson formaður Leigjendasamtakanna og Anton Helgi Jónsson skáld ræða Evrópukosninguna fram undan, ofurvexti, Menningarnótt fram undan og fleira. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Ragnar Baldursson stjórnmála- og Kínafræðingur ræðir við Gunnar Smára um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu og stöðu Íslands í breyttum heimi. Guðfinna Aðalgeirsdóttir, prófessor í jarðvísindadeild, segir Gunnari Smára frá rannsóknum sínum á áhrifum loftlagsbreytinga á jökla og afleiðingum af bráðnun jökla. Örn Valdimarsson kennari vill breyta stærðfræðikennslu með tækninýjungum og gervigreind. Hann ræðir við Björn Þorláks.
Præludium: Flemming Christian Hansen: Rind nu op i Jesu navn Fra det G.T.: 2. Mosebog 3, 1-10 Salme: 739, vers 1-3 "Rind nu op i Jesu navn" Fra det N.T.: Matthæus 13, 53-58 Korvers: Gotthard Erythræus: Du værdig lys, din glans os forlen Salme: 739, vers 4-7 Postludium: Johann Gottfried Walther: Concerto del Sigr. Meck - allegro
Í dag er mætt til okkar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og þingmaður Viðreisnar.Hún hefur setið á þingi frá árinu 2020 og í dag ætlum við að fara yfir stóru málin í ráðuneytinu hennar - útlendingamál, fangelsi, lögreglu, mansal - og svo auðvitað hennar hjartans mál þessa dagana: Já-ið sem hún hefur talað fyrir aftur og aftur fyrir 29. ágúst og ýmislegt fleira.Umræðuefni í þættinum:ÚtlendingamálBrottfararstöðinFangelsismálBrottvísun erlendra fangaSkipulögð brotastarfsemi,mansal og vændiSameining embættaEvrópusambandiðAfnám JafnlaunavottunarNetverslun með áfengiRiddaraspurningarÞessi þáttur er í boði:Margt SmáttHappatreyjurKALDIMango ManKringlukráinKRÓNANÍslandssjóðirOrka NátturunnarORIGOPAYDAYGIGGÓELKOSESSORFröken ReykjavíkLengjanDave&JonsFrumherjiNjótið vel kæru hlustendur.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, ræddi við okkur um stýrivaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands á miðvikudag. Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, ræddi við okkur um fánalögin. Þórarinn Hjartarson, stjórnandi hlaðvarpsins Ein pæling og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, fyrrverandi þingmaður og situr í stjórn Evrópuhreyfingarinnar, ræddu innflytjendastefnu Evrópusambandsins. Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir, stjórnendur Skuggavaldsins, ræddu ýmsar kenningar sem hafa kviknað um ESB. Katrín Björk Birgisdóttir, sparnaðarséní og minimalisti, ræddi við okkur um leiðir til að minnka drasl á heimilinu. Sigríður Andersen, þingmaður Miðflokksins, var á línunni.
Í Vikulokunum var farið yfir fréttir vikunnar, almyrkvann og aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar o.fl. Við greinum stöðuna í samfélaginu og ræðum sálarlíf klofinnar þjóðar. Gestir voru Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, Orri Hauksson, verkfræðingur og fjárfestir og Þorsteinn Guðmundsson, leikari og sálfræðingur. Umsjón: María Sigrún Hilmarsdóttir Tæknimaður: Jón Þór Helgason.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, ræddi við okkur um orkumál og ESB. Ólafur Ísleifsson og Ólafur Arnarson skiptust á skoðunum um Evrópusambandið og Evruna. Yngvi Ómar Sigrúnarson, formaður Leigjendasamtakanna og Anna Kristín, varaformaður samtakanna, ræddu við okkur um heimsókn sænska sjónvarpsins og leigumarkaðinn. Embla Bachmann, rithöfundur og dagskrárgerðarkona, settist niður með okkur og ræddi símtalafóbíu unga fólksins. Elko hornið.
Fimmtudagur 13. ágúst Reynsluboltar, vinstri ESB, heilun í stríði, húsnæðismál og landsbyggðin Erna Bjarnadóttir hagfræðingur, Björn Leví Gunnarsson fyrrum þingmaður og Björg Eva Erlendsdóttir, Landvernd, ræða fréttir vikunnar. Sólmyrkvinn og ESB-umræðan verða meðal umfjöllunarefna, Björn Þorláks stýrir þættinum. Stefán Pálsson sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Vinstrisins útskýrir sína afstöðu varðandi ESB fyrir Gunnari Smára. Erla Ólafsdóttir sjúkraþjálfi vinnur með fórnarlömb stríðsins í Úkraínu. Hún ræðir við Ásdísi Olsen. Formaður Leigjendasamtakanna, Yngvi Ómar Sigrúnarson, ræðir húsnæðismál í tengslum við Evrópuumræðu Íslendinga. Björn Þorláks talar við hann. Þóroddur Bjarnason prófessor og landsbyggðasérfræðingur ræðir við Gunnar Smára um áhrif aðildar að ESB á íslenskar landsbyggðir.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Sigríður Á Andersen þingmaður Miðflokksins Halla Hrund Logadóttir þingkona Framsóknarflokksins um ESB Símatími Helga Dís Jakobsdóttir framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Fríhafnarinnar - Um verðlag í Fríhöfninni - Hlustandi nefndi hærra verð í fríhöfninni við komuna en þegar farið er úr landi Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu Bjarni Óskarsson bóndi og berjaræktandi á Völlum í Svarfaðardal
Þriðji þáttur úr endurminningum Jónu Sigríðar Jónsdóttur, Ein á hesti, þar sem hún segir frá ævi sinni. Í þessum þætti er Jóna Sigríður komin um þrítugt og hefur fengist við margvísleg störf um ævina, en hún tekur nú að gerast mikil hestakona og kaupir og selur hross og fer í ýmsar svaðilfarir milli landshluta með hesta sína.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Sjávarútvegur/Evrópumál Kristján Vigfússon, dr. í stefnumótun við HR Kristján ræðir rannsóknir sínar á íslenskum sjávarútvegi og forskoti hans í alþjóðlegum samanburði og veltir upp möguleikum á auknum umsvifum íslenskra fyrirtækja ef til kæmi aðild að ESB. Dómsmál Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra Dómsmálaráðherra ætlar ekki að aðhafast neitt í fyrirkomulagi á sölu áfengis, þrátt fyrir miklar breytingar á því og niðurstöður dómstóls um lögmæti þeirra breytinga. Hvernig hyggst hún bregðast við starfsemi erlendra veðmálafyrirtækja á Íslandi og skyldum málum, t.d, tekjuöflun stórra samfélagsmiðlafyrirtækja, þar sem lögsaga íslenska ríkisins er ekki ótvíræð. Stjórnmál/Evrópumál Sigríður Á Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar Hveru alvarleg mistök voru það hjá utanríkisráðherra að lleiðrétta ekki frétt þar sem haft var ranglega eftir henni að ráðherrann hefði rætt við forsætisráðherra Hollands um varanlega undanþágur fyrir Íslendinga frá sjávartúvegsstefnu ESB? Kjarasamningar Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ Er orðið ljóst að taka þarf upp kjarasamninga í haust - verðbólgutölur benda til þess en hvað vill forseti ASÍ að gerist. samtökin hafa talað fyrir ráðstöfunum í efnahagsmálum frá í febrúar en litla athygli fengið.
Sigríður Á. Andersen og Örn Arnarson fara yfir í heitustu málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Fjallað er um vandræði Þorgerðar Katrínar og upplýsingaóreiðu síðustu vikna, leyndarhyggjuna sem ríkir um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu, meintar undanþágur hvað varðar losunarkvóta og skattahækkanir í gegnum regluverk sem þegar er byrjað að innleiða. Þá er fjallað um „verðlækkunarsumar“ ríkisstjórnarinnar sem virðist þó ekki slá á verðbólgu, fylgi flokkanna, peningahagfræði Dags B. Eggertssonar, arðgreiðslur ríkisfyrirtækja og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, t.d. hrós vikunnar, hraðaspurningar, útilegupælingar og fleira.
Gestir Vikulokanna eru Guðmundur Hálfdánarson prófessor, Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi og Sigrún Davíðsdóttir fjölmiðlakona. Þau ræddu meðal annars sviptingar í breskum stjórnmálum, átökin við Persaflóa og loftslagsmál. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Þráinn Steinsson
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Björg Eva Erlendsdóttir Framkvæmdastjóri Landverndar um lúpínu Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins um hvalveiðar Símatími Yngvi Ómar Sigrúnarson formaður leigjendasamtakanna Eiríkur Finnur Greipsson skrifstofustjóri hjá Frímúrarareglunni Hlynur Hafberg Snorrason yfirlögregluþjónn á Ísafirði ræddi við okkur um sólmyrkvan og framkvæmdir í kringum hann Hjálmar Waag Árnason leiðsögumaður í Færeyjum og „kvart-Færeyingur“
Bandarísk stjórnmál voru á dagskrá Heimsgluggans. Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómari, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson ræddu stöðu og horfur vestra. Sigríður Rut stundaði framhaldsnám í lögfræði í Bandaríkjunum og fylgist afar vel með stjórnmálum þar í landi. Þau ræddu meðal annars deilur innan Repúblikanaflokksins, afleiðingar Íransstríðsins, kosningarnar í nóvember, mögulega vinstri sveiflu innan Demókrataflokksins og óvinsældir Trumps forseta. Sigríður Rut segir mögulegt að vinsældir forsetans geti aukist á ný því að mörgu leyti megi líkja fylgjendum Trumps við sértrúarsöfnuð.
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra segir að þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst snúist hvorki um að aðild né aðlögum heldur hvort taka eigi skref áfram. Þjóðin taki afstöðu - ekki bara þingmenn, og því sé þetta hárréttur tími fyrir þessa atkvæðagreiðslu. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Hönnu Katrínu. Ekkert bólar á frumvarpi um heildarlöggjöf um lóðaleigusamninga. Víðir Smári Petersen lagaprófessor segir brýnt að setja einhvern lagaramma. Álitaefnum þar sem gríðarlegir hagsmunir eru undir fari fjölgandi í lögleysunni. Æ fleiri lóðaleigusamningar renni út á verðmætum þéttingarreitum borgarinnar og lágmarks leikreglur þurfi að setja sem fyrst. María Sigrún Hilmarsdóttir ræðir við Víði. Tugir og hundruð milljóna Evrópubúa búa við nánast óbærilegan og jafnvel lífshættulegan hita þessa dagana, í annarri hitabylgju sumarsins. Hitamet halda áfram að falla, jafnt á Bretlandi sem meginlandinu, og daglega berast fréttir af dauðsföllum sem rekja má beint eða óbeint til hitans. En hvað er svona hættulegt við hitann? Ævar Örn Jósepsson kannar málið og rætt er við Sasan Má Nobakht bráðalækni. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Svava Bjarnadóttir sagði upp vinnunni sinni sem sjúkraliði á geðsviði og opnaði lítinn stað þar sem allt sem viðkemur mannlegri sjálfsrækt er í fyrirrúmi. Hún er sjálf með ýmis námskeið og er nýbúin að kaupa slatta af hengirúmum sem hún notar í hugleiðslur og og stundir fyrir hópa sem vilja slaka á og njóta. Staðurinn er í Hveragerði og við hittum Svövu þar, en hún er andlegur einkaþjálfari, reikimeistari og geðsjúkraliði. Og við stöldruðum lengur í Hveragerði en það eru merk tímamót þegar bæjarfélag fagnar 80 ára afmæli og Hveragerði fagnar einmitt slíku afmæli allt þetta ár og dagskráin er glæsileg. Við hittum menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúa bæjarins, Sigríði Hjálmarsdóttur, en hún hóf störf fyrir þremur árum og á þeim tíma hafa þrír bæjarstjórar vermt bæjarstjórastólinn. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag talaði Jónatan um Ragnar Bjarnason, eða okkar eina sanna Ragga Bjarna, sem var auðvitað einn ástsælasti dægurlagasöngvari íslenskrar tónlistarsögu. Tónlistin í þættinum: Ég skal bíða þín / Helgi Björns og reiðmenn vindanna (Micheal Legrand, texti Hjördís Morthens) Hveragerði / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir) Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig / Ragnar Bjarnason (Monaco, McCarthy & Johnson, texti Jón Sigurðsson) Þannig týnist tíminn / Ragnar Bjarnason og Lay Low (Bjartmar Guðlaugsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Við fengum flotta frumkvöðulinn hana Helgu Sigrúnu til okkar í geggjað spjall um skincare og merkið hennar Dóttir Skin!
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir og Una Jóhannsdóttir staðgengill sendiherra Íslands í París Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Samhjálpar Símatími Arnar Ástráðsson heilaskurðlæknir í sjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn og Nýja Sjálandi sem stundar rannsóknir í Boston um Parkinson Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson bæjarstjóri Stykkishólms Rakel Sveinsdóttir ritstjóri Atvinnulífsins á Vísi Lára Zulima Ómarsdóttir hjá Pipar/TBWA um auglýsingahátíð á Cannes
Kier Starmer varð í morgun sjötti forsætisráðherra Bretlands á tíu árum til að segja af sér. Við hringjum til London og ræðum við Sigrúnu Davíðsdóttur um feril þessa lánlausa leiðtoga Verkamannaflokksins. Hinn skoski Richard Gadd sló í gegn með óvæntu eltihrellisþáttunum Baby Reindeer fyrir tveimur árum. Nú er hann mættur aftur með nýja þætti sem hann skrifar og leikur aðalhlutverkið í, Half Man. Brynja Hjálmsdóttir segir okkur frá þessum átakanlegu þáttum.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Jakob Frímann Magnússon, skipuleggjandi tónlistar- og fjölskylduhátíðarinnar BERGMÁL - KALEO og vinir á Þingvöllum Katrín Oddsdóttir lögmaður og Hólmsteinn Harðarson Símatími Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs um hjólhýsabyggð Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands um fólk í fríi
Á mánudaginn var alþjóðadagur vitundarvakningar um ofbeldi gegn öldruðum af því tilefni kom varaformaður Landssambands eldri borgara, Sigurður Ágúst Sigurðsson, í þáttinn í dag. Hlutfall einstaklinga 60 ára og eldri mun aukast um tæp 40% á heimsvísu frá 2019-2030 og ofbeldi gegn öldruðum er vanmetið og getur birst í margvíslegri mynd. Sigurður sagði okkur betur frá þessu í þættinum í dag. Una Emilsdóttir er sérnámslæknir í atvinnu og umhverfislæknisfræði og er við nám og störf í Danmörku. Una segir mikilvægt að vera upplýstur neytandi og að það skipti máli að forðast skaðleg efnaáhrif á líkama og húð með þekkinguna að vopni. Við heyrðum í Unu í dag og forvitnuðumst til dæmis um hvað atvinnu- og umhverfislæknisfræði felur í sér. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk og í dag var komið að KK eða Kristjáni Kristjánssyni saxófónleikara, en hann er kunnastur fyrir hljómsveit sína KK sextettinn sem hann starfrækti í um fimmtán ára skeið. Sveitin var vinsælasta danssveit landsins og með henni sungu þekktir söngvarar, til dæmis Ragnar Bjarnason og Ellý Vilhjálms. Tónlist í þættinum í dag: Í bláum skugga / Stuðmenn (Sigurður Bjóla Garðarsson) Á Mallorca / South River Band (Ólafur Þórðarson, texti Helgi Þór Ingason) Lukta-Gvendur / Alfreð Clausen, Sigrún Jónsdóttir og KK sextett (N. Simon, texti Eiríkur Karl Eiríksson) 9:20 Special / KK sextett (J. Palmer, Earle Warren & W. Engwick) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Almennar stjórnmálaumræður eða eldhúsdagur er á Alþingi eins og venja er undir þinglok. Samkvæmt dagskrá á síðasti þingfundur vorsins að vera á föstudag en litlar líkur eru taldar á því að það gangi eftir. Þingið var frekar rólegt fram eftir vetri en andtinn breyttist þegar farið var að ræða um þjóðaratkvæðagreiðslu sem verður síðsumars. Umboðsmaður barna segir að enn vanti úrræði fyrir börn sem þurfi mest á samþættri þjónustu og sérúrræðum að halda. Það hafi því miður ekki tekist að tryggja þau með innleiðingu laga um farsæld barna. Ríkisendurskoðandi telur innleiðingu laganna ófullnægjandi. María Sigrún Hilmarsdóttir ræðir við Salvöru Nordal, umboðsmann barna. Það hefur sveiflast nokkuð í gegnum árin hvort sveitarfélög velji að ráða ópólitíska bæjarstjóra eftir sveitarstjórnarkosningar eða hvort þessir framkvæmdastjórar sveitarfélaganna komi úr röðum kjörinna fulltrúa. Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri, segir það frekar bundið við stærstu sveitarfélögin að fara þá leið að ráða pólitískan bæjarstjóra.
Sigurgeir Björn Geirsson yfirverkefnastjóri Vaðölduvers um flutning vindmylla Hildur Björnsdóttir verðandi borgarstjóri Símatími Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir formaður Lyfjafræðingafélags Íslands um Ivermectin Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra Gunnlaugur Már Briem formaður Félags sjúkraþjálfara um stoðkerfisvanda Helgi Gíslason skólastjóri Fellaskóla
Sigrún er krafturinn á bak við Korda Samfónía- hljómsveitina sem er samsett af fólki úr öllum áttum sem eiga það sameiginlegt að vera að glíma við einhvers konar áskoranir. Sigrún býr og starfar í London.
Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar hefur fæðingartíðni aldrei mælst lægri hér á landi. Árið 2025 fæddust að meðaltali 1,56 börn á hverja konu. Fyrir aðeins rúmum áratug hafði sú tala aldrei farið niður fyrir 1,93 börn. Að óbreyttu þýðir þessi fæðingartíðni fólksfækkun. Ingólfur Bjarni Sigfússon fjallar um þetta og talar við Ara Klæng Jónsson ogSigríði Ingibjörgu Ingadóttur. Blikur eru á lofti í heimi fjölmiðla og fréttamennsku í henni veröld, þar sem valdhafar, glæpagengi, stórfyrirtæki, dóms- og löggæslustofnanir vinna leynt og ljóst að því að skerða tjáningar- og fjölmiðlafrelsi. Góðu fréttirnar fyrir okkur eru þær að Ísland færist upp um 5 sæti á nýútgefnum lista yfir fjölmiðlafrelsi í ríkjum heims. Það eru góðar fréttir, sem segja þó ekki alla söguna. Ævar Örn Jósepsson talar við Sigríði Dögg Auðunsdóttur, formann Blaðamannafélags Íslands. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Við veltum fyrir okkur söngleiknum Kabarett og hvernig þemu hans birtast okkur í samfélagi samtímans, með Sigríði Jónsdóttur, leikhúsrýni og sérfræðingi hjá Leikminjasafni Íslands. Frönsk menningarumræða hefur logað síðustu vikurnar vegna fjárfestinga og afskipta milljarðamæringsins Vincent Bolloré. Hera Guðmundsdóttir, blaðamaður Lestarinnar, ræðir við Bergþóru Snæbjörnsdóttur og Jón Kalman Stefánsson um sviftingar í franska bókmenntaheiminum og hlutverk bókmennta á tímum pólitískrar skautunar.
Skortur á áhættumati, skriflegu verklagi og skýrum áætlunum þegar almannavarnastigi er lýst yfir er meðal þess sem starfshópur dómsmálaráðherra um viðbrögð vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga setur út á í áliti sínu, sem birt var í morgun. Viðbragðsaðilar eru þó sagðir hafa unnið þrekvirki og tekið fram að það sé þeim að þakka að ekki fór verr. Alma Ómarsdóttir ræðir niðurstöður nefndarinnar og viðbrögð við þeim við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Eigendur 820 báta hafa tryggt sér rétt til strandveiða og 583 bátar eru komnir á sjó. Í reglugerð segir að veiðarnar megi stunda í 12 daga innan hvers mánaðar, 48 daga samtals. Undanfarin sex ár hafa sjómenn hins vegar ekkii getað klárað leyfilegt strandveiðitímabil því tiltækar veiðiheimildir klárast jafnan áður en komið er að lokadegi. Þetta eru sjómenn ósáttir við, eog þeim brá líka í brún þegar úthlutun fyrir þetta sumar var minni en í fyrra. Ágúst Ólafsson fjallar um þetta, en hann fór á bryggjurölt og hitti sjómenn að máli. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Öðru sinni er borið niður í ævisögu Jónu Sigríðar Jónsdóttur (1899-1997) sem jafnan var frá fullorðinsárum kölluð Trippa-Sigga. Nú segir frá unglingsárum hennar á Snæfellsnesi en síðan vist hennar í Reykjavík, þar sem kunni vel við sig en varð líka fyrir hinni dýpstu sorg.
Íslendingar eiga vasaljós og rafhlöður og telja sig almennt vel undir það búna að takast á við hamfarir, samkvæmt nýrri könnun hugveitunnar Vörðu. Hins vegar virðist vanta töluvert upp á raunverulegan undirbúning og mat á því hvaða hamfarir gætu orðið og hvers konar undirbúning þær gætu kallað á. Ingólfur Bjarni Sigfússon fjallar um þetta og ræðir við þá Kristin Hrobjartsson og Runólf Þórhallsson. Í dag höfðu 1.854 kosið utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí. Þetta eru nærri tvöfalt fleiri en á sama tíma 2022, þegar 942 höfðu kosið. Það eru tvær og hálf vika til kosninga og vinna við undirbúning stendur því sem hæst. Ágúst Ólafsson fjallar um þetta og ræðir við Sigríði Jóhannesdóttur, sem situr í yfirkjörstjórn Langanesbyggðar. Það er ekki aðeins á alþjóðasviðinu sem sótt er að mannréttindum með markvissum hætti. Síauknar árásir eða í það minnsta aðfarir yfirvalda í hinum ýmsu ríkjum að frelsi og réttindindum eigin borgara eru Amnesty líka mikið áhyggjuefni og þessi þróun er langt í frá bundin við ríki sem Vesturlandabúar vilja skilgreina sem einræðis- eða valdstjórnarríki. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Önnu Lúðvíksdóttur, framkvæmdastjóra Íslandsdeildar Amnesty International. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Grindavík og Hveragerði teljast í mesta hættuflokki í nýju mati Veðurstofu Íslands á hraunavá á Reykjanesi og á höfuðborgarsvæðinu sem birt var síðdegis. Hættumatinu er ætlað að kortleggja hvar hættur geta skapast í ljósi gossögu svæðisins. Hildigunnur H. H. Thorsteinsson, Veðurstofustjóri, og Sigrún Karlsdóttir, skrifstofustjóri náttúruvár, greindu frá úttektinni og næstu skrefum. Ósigur Viktors Orbans í kosningunum í Ungverjalandi um þarsíðustu helgi var ofarlega í huga leiðtoga stjórnmálaflokka á hægri væng evrópskra stjórnmála, sem söfnuðust saman í Mílanó á laugardaginn, til hvetja sitt fólk til dáða fyrir komandi kosningar víða í Evrópu. Sama dag hittust leiðtogar á vinstri vængnum í Barcelona þar sem umræðan snerist að miklu leyti um Donald Trump Bandaríkjaforseta, án þess að hann væri nefndur á nafn.
Þær Sigga og Vala úr hjómsveitinni Evu ræða kosmískt skítamix
Sigga Eyrún hefur haft mikið að gera í vetur, staðið á sviði í Þjóðleikhúsinu og hefur einnig verið að kenna .
Hér verður gluggan í ævisögu Jónu Sigríðar Jónsdóttur (1899-1997) sem varð svo fræg fyrir hestamennsku og hestaferðir að hún var jafnan kölluð Trippa Sigga. Hér segir þó fyrst og fremst af uppeldi hennar fram að fermingu en hún ólst upp á Snæfellsnesi og bjó við vægast sagt misjafnt atlæti í æsku. Meðal annars var henni stranglega bannað að læra landafræði.