POPULARITY
Jack Black og Jason Momoa eru í Minecraft myndinni. Takk, 20. öldin.Arnór Steinn og Gunnar fjalla um þessa áhugaverðu mynd í þætti vikunnar.Er hún ömurleg? Kannski. Það eru nokkur góð móment en á heildina litið ...... hlustið bara á þáttinn.Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Hvað er íslenskara en að hoppa upp í pickup bíl, keyra á þjóðvegi 66 strandanna á milli og hlusta á country tónlist á fullum hljóðstyrk? Kannski blóðmör.
Birnir Jón Sigurðsson, sviðslistamaður og rithöfundur, segist ekki hafa átt sterkar fyrirmyndir á unga aldri. En hann dáist almennt að listafólki sem er áhugasamt, jákvætt, spennt og drífandi. Honum líður best í óvissunni, þegar það er ekkert handrit, og planar aldrei langt fram í tímann. Kannski þess vegna er hann svo hrifinn af samsköpun í leikhúsinu. Birnir hefur gefið út bækurnar Strá og Fuglabjargið og meðal annars sett á svið verkin Kartöflur, Fuglabjargið, Sund og Sýslumann dauðans, en það síðasta var afrakstur vinnu hans sem leikskáld Borgarleikhússins. Birnir hlaut hvatningarverðlaun Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins í síðustu viku og hann er gestur Víðsjár í svipmynd dagsins. Við ræðum meðal annars innblástur og útblástur, umhverfismál og hlutverk listamannsins, samhljóm í listinni og töfra samsköpunar.
Hvernig hugsum við um framtíðina? Er hún línuleg? Hringur? Kannski í laginu eins og blóm? Í fyrsta viðtali í framtíðarviðtalsröð Samfélagsins og Borgarbókasafnsins ræðum við við Juan Camilo, fjölmenningarfulltrúa hjá Háskóla Íslands og fræðimann og kennara, í breiðum skilningi þeirra orða, um framtíðina, forvera, menntun og ýmislegt fleira. Síðan fáum við til okkar Eddu Olgudóttur, vísindamiðlara Samfélagsins, sem beinir í dag sjónum sínum að örveraflórunni. Og svo heyrum við viðtal Samfélagsins við Guðrúnu Dröfn Whitehead, safnafræðing, sem tekið var á síðasta ári, um víkingaímyndir, útrásarvíkinga, karlmennsku og pólitískar öfgahreygingar. Tónlist: Lenker, Adrianne - Sadness as a Gift.
Stærsta ár lífs míns? Kannski ekki, en svakalegt ár engu að síður. Fór á nyrsta odda Japans, dó næstum í jarðskjálfta í Taiwan, flutti með kött og barn til Íslands, hitti Jeff Daniels, landaði fiski og lúbarði hyski. Þetta var gott ár en 2025 verður betra.Hentu í follow á hlaðvarpsveitur og Insta fyrir allt það helsta úr smiðju Heimsendis!
Í þættinum er fjallað um orðið kannski. Halla veltir fyrir sér grunnmerkingunni, segir frá hugmyndum um hvenær og hvaðan það kom inn í íslensku og skýrir frá breytingunni sem varð í orðinu á 19./20. öld. //////////////////////// Ásgeir Blöndal Magnússon. (1989). Íslensk orðsifjabók. Orðabók Háskólans. / Barnhart, R. K. (ritstjóri). (1988). Chambers Dictionary of Etymology. Chambers. / Eiríkur Rögnvaldsson. (2021, 8. júní). ske, máske - og kannski. Eiríkur Rögnvaldsson - uppgjafaprófessor í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands. https://uni.hi.is/eirikur/2021/06/08/ske-maske-og-kannski/ / Jóhannes B. Sigtryggsson (ritstjóri). Málfarsbankinn. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. https://malfar.arnastofnun.is/greinar/kannski Sótt í október 2024. / Kristján Árnason. (2005). Málhljóð íslenskunnar. Í Margrét Guðmundsdóttir (aðalritstjóri), Íslensk tunga I - Hljóð (bls. 135-137). Almenna bókafélagið. / Nielsen, N. Å. (1976). Dansk etymologisk ordbog – ordenes historie. Gyldendal. / Ordbog over det norrøne prosasprog (ONP). Aldís Sigurðardóttir (ritstjóri) o.fl. Institut for Nordiske Studier og Sprogvidenskab, Københavns Universitet. Sótt í september 2024. / Ritmálssafn Orðarbókar Háskólans. (2024). Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. https://ritmalssafn.arnastofnun.is/ / Þórdís Úlfarsdóttir (aðalritstjóri). ISLEX. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. https://islex.arnastofnun.is/is/ord/23415/tungumal/DA Sótt í september 2024.
Villi og Fjölnir eru auðvitað líka jólasveinar en það eru MÖRG sem hafa gleymst í gegnum tíðina. Hér förum við yfir þau öll, hverja má bæta við á listann? Það er spurning... Kannski litla-pung.
Kaupa kaffi: https://buymeacoffee.com/jaokÍ þessum þæti tala strákarnir um akveðna hluti sem gaman er að. Kannski fá þeir sér sker ef engin flöga lendir á því. Það er aldrei að vita.
Loks var komið að því óumflýjanlega. Við vissum að þessi dagur kæmi. Þetta var erfitt á marga vegu en við teljum okkur hafa komist nokkuð vel frá þessu, annað en herra Stanley reyndar. Það þurfti nánast að draga forsetann okkar inn í Stúdíó Sannleikans fyrir þessar upptökur. En þegar hann loks mætti þá var hann í sínu fínasta pússi og með plötuna "Now And Then" undir arminum, en það er einmitt platan sem við tökum fyrir að þessu sinni. Paul Stanley notaði COVID stoppið til að skríða inn í hljóðverið ásamt öllum og ömmu þeirra til að hljóðrita þessa plötu undir nafninu "Paul Stanley´s Soul Station". Platan er s.s ekki alslæm, en þáttastjórnendur voru sammála um að hún kemst þó ansi nálægt því. Paul vildi heiðra tónlistarlegar rætur sínar með því að gefa út þessa 14 laga plötu sem inniheldur 5 ný frumsamin lög og 9 gömul tökulög. Kannski var þetta þetta bara eitthvað sem hann varð að koma úr systeminu sínu? Vonum að hann sé búinn að tappa vel af því systemi og að hann geti haldið upp og áfram með þetta að baki sér. Við greinum þessa plötu í þessum þætti sem er númer 92 í röðinni. Góða skemmtun?? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Kannski virðist ekki augljóst hvað það sem nefnt er í fyrirsögninni á sameiginlegt. En eftir að varnarmálaráðherrann nefndi þetta og fleira í ávarpi sem hann flutti fyrir skömmu skilja allir Danir samhengið.
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Sérstakur þáttur um Steve Jobs. Áhrifamesta mann mannkynssögunnar? Kannski. Hérna er stiklað á stóru varðandi ævi og feril meistarans. Hvað gerði hann að svona miklum snilling? Hvernig fór hann að þessu? Hvaða öfl voru að verki? Hvað hafði áhrif á hann? Hvernig hugsaði hann? Hvað getum við lært af honum? Þessu öllu er svarað hérna í þessum sérstaka þætti Skoðanabræðra. Guð blessi ykkur kæra bræðalag.
Hefur það sem við veljum að læra eða starfa við áhrif á velferð okkar og jafnvel lífshamingju? Skiptir máli að starfa við það sem við höfum ástríðu fyrir eða er það aukaatriði í stóra samhenginu. Sif Einarsdóttir, prófessor í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands, ætlar að ræða þetta við okkur en hún fer fyrir stóru alþjóðlegu rannsóknarverkefni, Eldar í iðrum, en markmið þess er að skilja betur hvaða þættir hafa áhrif á þróun starfsferils hjá fólki. Við ætlum að tala um Forbes-listann yfir ríkasta fólk í heimi. Kannski má kalla þetta ríkukallafélagið því þarna raða sér í öll efstu sætin mismiðaldra karlar sem flestir koma úr tæknibransanum. Ekki þó sá sem er í efsta sæti. Hann hefur safnað sínum fáránlega mikla auði með sölu lúxusmerkja; fatnaði, kampavíni, skartgripum og snyrtivörum. Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi og höfundur bókarinnar Peningar, ætlar að renna yfir þennan lista með okkur. Og meira um peninga. Samfélagið frétti af manni sem var að taka til í skúffum og skápum þegar hann fann kassa með gjafabréfum. Þau voru öll útrunnin og verðmæti þeirra reyndist um 200 þúsund krónur. Við tölum um útrunnin gjafabréf, inneignarnótur og önnur verðmæti sem renna fólki úr greipum við Brynhildi Pétursdóttur framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna. Tónlist: EDISON LIGHTHOUSE - Love Grows (Where My Rosemary Goes). ELVIS PRESLEY - Return To Sender.
Þegar spurðist út að formaður Samfylkingarinnar telji nauðsynlegt að breyta stefnunni í málefnum hælisleitenda fóru margir af taugum. Stór orð voru látin falla. Svo mikill var pólitíski skjálftinn innan raða Samfylkinga að tveir gamlir formenn töldu sig nauðbeygða til að taka til varna fyrir Kristrúnu. Össur Skarphéðinsson hafnaði því að Kristrún hafi verið að boða stefnubreytingu og í svipaðan streng tók Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Kristrún hafi bara verið með „almennar vangaveltur um ýmsar hliðar þessara mála. Ingibjörg Sólrún hafði hins vegar áhyggjur af því að hinar almennu „vangaveltur“ Kristrúnar væru að ala á sundrungu innan flokksins: „Látum ekki siga okkur hverju á annað.“ Stefnubreyting eða ekki stefnubreyting? Kannski skiptir svarið ekki öllu en hitt er augljóst að Kristrún Frostadóttir talar með allt öðrum hætti en þingmenn og frambjóðendur Samfylkingarinnar hafa gert á undanförnum árum. Og það er lítill samhljómur með orðum Kristrúnar og ályktana flokksins.
Til þess að skilja nútíðina er mikilvægt að þekkja fortíðina. Þessi setning hefur verið mér hugleikin lengi enda finn ég hvernig ég verð meiri og meiri áhugamaður um sögu eftir því sem líður á ævina. Kannski er það partur af því að verða eldri, ég átta mig ekki almennilega á því. En hvað sem því líður þá á þessi setning vel við varðandi næstu tvo þætti af þú veist betur. Það er nefnilega svæði í suðaustur Evrópu sem er einhverjum hlustendum kunnugt en öðrum ekki. Ég hef gerst svo frægur að ferðast örlítið um þarna, þá helst í Albaníu, sem mér fannst alveg stórkostlegt land. Ég hef samt alltaf haft það á tilfinningunni að ég viti ekki nægilega mikið um löndin á Balkanskaga, hvað hefur gengið þar á í gegnum tíðina og af hverju. Því fékk ég til mín sannkallaðann sérfræðing til að leiða okkur í allan sannleikann um málið og hafði ég sjálfur mjög gaman af að hlusta. Ég vil líta á næstu þætti nánast sem sögustund, þar sem Jón Óskar Sólnes stjórnar ferðinni.
Stjórnmál voru til umfjöllunar í Heimsglugganum í dag og þá ekki síst barátta lýðræðisafla og popúlista um völd. Bogi Ágústsson ræddi stöðu mála í Argentíu, Venesúela, Bandaríkjunum, Póllandi og Slóvakíu svo einhver ríki séu nefnd. Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, og Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, hafa bæði verið við völd í um ár og það var til umræðu líka, sem og Nató-aðild Svía. Valur Gunnarsson rithöfundur var líka gestur okkar. Hann hefur nokkrum sinnum komið til okkar og talað um innrás Rússa í Úkraínu og raunar eitt og annað er varðar fyrrum Sovétlýðveldi. Hann er vel heima í sögu og stöðu í austrinu og hefur skrifað bækur um þau mál. Og nú hefur hann sent frá sér bókina Stríðsbjarmar, Úkraína og nágrenni á átakatímum. Við forvitnuðumst líka um Íslenska fæðuklasann. Hann er hugarfóstur Ingibjargar Davíðsdóttur sem fékk frí frá störfum sínum í utanríkisþjónustunni til að koma honum á fót. Ingibjörg mun tala á fundi ungra bænda í dag; baráttufundi fyrir lífi bænda og sveitanna, eins og hann er kynntur. Kannski aukið samstarf allra sem að matvælaframleiðslu og -sölu koma geti hjálpað bændum? Tónlist: Dorsey, Jimmy and his Orchestra, Armstrong, Louis - Hurdy-gurdy man. King, Carole - Gotta get through another day. Mugison - Kossaflóð.

Það eru allar líkur á því að viðfangsefni síðasta þáttar af þú veist betur hafi áhrif á það kerfi í líkama okkar sem framleiðir dópamín. Þetta orð hefur verið mikið í umræðunni undanfarið og að einhverju leyti á frekar skakkan hátt. Oft snýst þetta um hvort að hinn eða þessi hlutur, í þessu tilfelli boðefni sem verður til í okkur sjálfum, sé gott eða slæmt. Er til dæmis slæmt að dópamín verði til þegar við drekkum kaffi? Líklegast ekki, en það fer auðvitað eftir því hversu mikið kaffi við ætlum okkur að drekka. Við erum líka orðin frekar vör um hvað það er sem fer fram í líkama okkar, fáum sífellt fleiri tæki og tól til að mæla það, svo að sama skapi erum við endalaust að leitast við að vera í jafnvægi. Kannski vantar okkur hitt eða þetta og þessvegna líði okkur eins og raun ber vitni. Það hljóti að vera einhver ástæða fyrir því að ég er svona eða hinsegin, og ef ég finn ástæðuna, get ég haft áhrif á það sem er að gerast. Við erum spendýr sem rankar allt í einu við sér á tækniöld, þar sem þróunin hefur nánast keyrt yfir okkur og við skiljum ekki af hverju okkur líður allt í einu svona illa, orð eins og skjátími, símafíkn og þar fram eftir götunum voru ekki til fyrir ekki meira en 10-15 árum sem dæmi. Dópamín virðist spila stóra rullu í lífi okkar, því er kannski mikilvægt að við áttum okkur á því hvað þetta efni er, hvað það gerir og hvort við þurfum mögulega öll að fara í dópamín föstu. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Þór Eysteinsson

Tónlistarfólkið sem við eigum í ástarsambandi við á svo einatt í ástarsambandi við hljóðfærin sem nýtt eru til að galdra fram ódauðlegar lagasmíðar. Hvaða slaggígjur, trumbur og bassa tekur þetta ágæta fólk með sér upp í rúm? Það kemur allt í ljós í þessum merkisfrímínútum og hver veit? Kannski verður eitt slíkt dregið fram þar og þá?
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Þjóðhátíð! Skoðanabræður lýsa yfir stuðningi. 150 ár af íslenzkum þrælum að dansa í hlekkjunum sínum? Kannski. Þetta er rætt ásamt öðru: Egilssaga, Travis Scott og Kardashian nornirnar, innflytjendur og fegurðarsamkeppnir.
Tónlistarmaðurinn Gunnar Jónsson Collider gaf í gær út sína aðra breiðskífu sem kallast S.W.I.M hjá plötuútgáfunni A strangely isolated place. Þar er á ferð sveimtónlist, ambient tónlist í sex hlutum og tónlistin er enn fremur glædd lífi með vídjóverki eftir listarkonuna Örnu Beth þar sem umhverfin 6 taka á sig draumkennda mynd, ferðalag í gegnum órætt landslag. Við settumst niður með Gunnari í síðustu viku og ræddum sveimtónlist og sterk tengsl hennar við vísindaskáldskap, gervigreind og austurlenska heimspeki. Hvað kemur til að par á miðjum aldri hættir sambandi sínu og fjárhagsstöðu til þess að feta í fótspor feðranna og gerast trillusjómenn? Það er ekki beint mikið um nýliða í stétt strandveiðisjómanna en þau Rut Sigurðardóttir og Kristján Torfi Einarsson ákvaðu að láta slag standa og gera út trilluna Skuld frá Rifi á Snæfellsnesi. Kannski vegna þess að þorskurinn hefur ekki klikkað síðan þjóðin mætti á skerið, eins og Kristján Torfi benti á í spjalli okkar. Þar að auki ákvað Rut að gera heimildamynd um fyrsta ár þeirra á Skuld og afraksturinn var frumsýndur á heimildamyndahátíðinni Skjaldborg um liðna helgi þar sem hún vann hvatningarverðlaun dómnefndarinnar. Þau Rut og Kristján segja ekki nægilega vel hlúð að atvinnugreininni og hafa áhyggjur af stöðu hennar. Myndin átti í fyrstu að vera heimild um þær pólitísku vangaveltur en úr varð persónulegt ferðalag inn í heim strandveiðanna.

Titilbaráttan í ensku úrvalsdeildinni er búin þó að staðfest sviginn sé ekki mættur. Gummi, Steinke og Hlynur Valsson fóru yfir leiki helgarinnar í Enski boltinn hlaðvarpinu. Arsenal tapaði stórt gegn Brighton á heimavelli um helgina á meðan Manchester City fór illa með Everton. City hefur verið óstöðvandi síðustu vikur og eru að sanna sig sem eitt besta lið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Á meðan er Brighton eitt skemmtilegasta lið deildarinnar. Kannski var það blessun í dulargervi fyrir félagið að Graham Potter tók við Chelsea því Roberto De Zerbi hefur lyft liðinu upp á nýtt plan. Rætt var um leiki helgarinnar og ýmislegt annað í hlaðvarpinu. Meðal annars var rætt um þær fréttir að Mauricio Pochettino sé að taka við Chelsea og að Julian Nagelsmann sé ekki að taka við Tottenham.
Moskusuxar voru einu sinni heitasta dæmið á Íslandi, allir vildu moskusuxa frá Grænlandi. Kannski ekki allir en þónokkrir, alveg nógu margir til að þingið þyrfti að ræða það mál í þaular og að lokum gefa undir.Af hverju er sauðnautin ekki til á Íslandi nú til dags? Vildi hún ekki vera hér? Var leigan of há? Þekkti hún of fáa og átti erfitt með að læra tungumálið? Var það kannski útaf því Islendingar drápu svona mikið af foreldrum þeirra? Við skulum upplýsa ykkur!
Hvað myndir þú gera ef þú myndir fara allt í einu fram í tímann 30 mínútur og ekkert hafði breyst? Nema að 30 mínútur hefðu liðið? Kannski myndir þú halda áfram með daginn þinn, eða kannski voru það geimverur. Fólk á þessum tíma var að horfa á FRIENDS, fólk var að horfa á Harrison Ford og fólk voru líka að horfa á geimverur og geimskip.
Gísli Marteinn Baldursson fyrrverandi borgarfulltrúi og þáttastjórnandi vinsælasta skemmtiþáttar landsins, Vikan með Gísla Marteini, var kallaður til viðtals til að létta aðeins á efnistökum hlaðvarpsins í aðdraganda jólanna. Reyndar slysaðist ég aðeins til að kveikja á borgar- og skipulagsmála Marteini en þaðan leiðumst við í umræðu um veganisma, femínisma, byltingar, meint hlutleysi í þögninni, vináttu og hvernig forréttindafullur kallavinahópur á sextugsaldri vinnur úr kröfum samtímans. Kannski ekkert brjálæðislegt léttmeti, en Gísli Marteinn var allavega í jólaskapi. Það er eitthvað. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.
Guðmundur Thoroddsen myndlistarmaður segist vera á ákveðnum krossgötum á sínum ferli, og að verkin sem hangi uppi um þessar mundir í Hverfisgalleríi beri þess vitni. Í nýju verkunum sjáum við enn glitta í litapallettu úr fyrri verkum, en Guðmundur hefur sagt skilið við tákn og myndmál sem vísa út fyrir sjálft verkið. Þess í stað tala litir, áferð, form og andrúmsloft sínu máli. Kannski, kannski er hans þriðja einkasýning í Hverfisgalleríi, en hann var tilnefndur til Íslensku Myndlistarverðlaunanna 2019 fyrir sína aðra sýningu þar. Við heyrum í Guðmundi í þætti dagsins. Og við leiðum hugann að vettvangi sígildrar og samtímatónlistar með Þráni Hjálmarssyni. Þráinn fjallar í pistli dagsins um hlutverk sýningarstjóra, listrænna stjórnenda og stofnana þegar kemur að efnisvali og miðlun á tónlist. Okkur bárust þær fréttir í síðustu viku að Hildigunnur BIrgisdóttir verður fulltrúi Íslands á næsta Feneyjartvíæringi, sumarið 2024. Af því tilefni rifjum við upp samtal við Hildigunni frá því í febrúar síðastliðnum, þegar hún hélt sína aðra einkasýningu í gallerí i8. Á sýningunni sem hún kallaði Frið, velti listakonan fyrir sér ekki minni hugtökum en fegurð og sannleika, en einnig því sem henni er oft svo hugleikið: hversdagsleikanum og hinu alltumlykjandi neyslusamfélagi. Umsjón: Halla Harðardóttir

Nú veit ég ekki hvar fólk hlustar á þú veist betur en það er líklegt að einhver séu á leið eitthvert í bíl. Eða á hjóli. Mögulega flugvél. Kannski er verið að keyra einhvern um í hjólbörum, hvað veit ég. En ég veit þó að án dekkja kæmumst við ekki neitt. Þessi uppfinning olli straumhvörfum í okkar daglega amstri og við könnumst öll við máltækið að það þurfi ekki að finna upp hjólið upp á nýtt. En þó við pælum ekki mikið í þeim fannst mér mikilvægt og mjög áhugavert að athuga aðeins meira. Ég fékk til mín Björn Kristjánsson sem veit meira um dekk en ég í raun hélt að væri hægt að vita. Umsjón: Atli Már Steinarsson

Frumvarp þingmanna Sjálfstæðisflokksins um félagafrelsi á vinnumarkaði hefur valdið titringi meðal margra, jafnt stjórnmálamanna sem forystumanna stéttarfélaganna. Kannski var ekki við öðru að búast en umræðan sem hefur skapast hefur að mestu verið málefnaleg og án stóryrða sem á stundum er gripið til þegar deilt er um þjóðfélagsmál. Rökræðan um félagafrelsi á vinnumarkaði hefur dregið fram hugmyndafræðilegan ágreining sem er og hefur alltaf verið til staðar í íslensku samfélagi. Annars vegar standa þeir sem treysta einstaklingnum til að taka ákvarðanir um eigin hag og hins vegar þeir sem telja nauðsynlegt að hafa vit fyrir einstaklingum – veita honum leiðsögn og leiðbeiningar.
Styddu frjálsa fjölmiðlun inni á www.patreon.com/skodanabraedur Er Kanye búinn að ganga of langt? Kannski, kannski ekki. Það, ásamt trauma-economy, Brennu-Njálssögu, og allskonar allskonar allskonar annað! Godspeed kæra bræðralag.
Hann heitir Davíð og er stofnandi Swapp Agency. Saga þessa fyrirtækis er mjög spennandi. Allt frá því að hugmyndin fæðist einhversstaðar í Asíu og að vera með nokkrar skrifstofur á Norðurlöndunum. Davíð ætlar að kynna fyrirtækið fyrir okkur og í þokkabót fáum við að heyra mjög svo skemmtilegar pælingar varðandi fjarvinnu…og við erum ekki að tala sérstaklega um heimavinnu sem við kynntumst öll í Covid. Ónei, þetta er miklu skemmtilegra concept. Kannski nær því að fara til Bali í mánuð og vinna þar? Frábærir styrktaraðilar eins og alltaf. Akademias, YAY, Moodup og 50skills.
Þessi misserin eru 49 ár síðan fjórir ungir piltar skröltu saman inn í BELL SOUND hljóðverið í New York til að taka upp sína fyrstu plötu. Kannski sína einu? Því enginn vissi þá hvað næstu 50 árin myndu gefa af sér. Í febrúar árið eftir kom þessi frumburður þeirra út og síðar það sama ár leit svo önnur platan þeirra dagsins ljós. Glöggir lesendur hafa þegar kveikt á perunni um hverja er talað hér. Jú, KISS. Síðan þarna hafa komið frá þeim 18 plötur í viðbót sem innihéldu nýtt efni í hvert skipti, samtals 20 hljóðversplötur + 4 sólóplötur undir nafni hvers og eins meðlima bandsins. Við höfum farið yfir allar þessar 24 plötur í þessum þáttum og vel rúmlega það. Í þessum síðasta þætti úr stúdíó sannleikans röðum við þessum plötum og setjum upp í okkar hefðbundnu stigagjöf og freistum þess að finna bestu KISS plötuna. Einnig stöldruðum við aðeins við og litum um öxl, fullir þakklæti og gleði með dassi af stolti yfir því sem við höfum áorkað í hlaðvarpinu okkar góða. ÁFRAM KISS !! VIÐ NEFNILEGA HÖLDUM MEÐ ÞEIM !! Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Kötturinn og Jói Már fara yfir helgina.
Stuðningsmenn Rússa halda því gjarnan fram að eðlilegt sé að Rússar vilji hafa „stuðpúða“ í vestri — það er að segja Úkraínu — því svo margoft hafi rússneska ríkið og rússneska þjóðin verið nánast á heljarþröm eftir grimmar innrásir úr vestri.

Þegar árið 1980 gekk í garð fóru okkar menn að vinna sína næstu plötu sem yrði þá fyrsta platan án allra fjögurra meðlima sveitarinnar. Þarna var Peter hættur í KISS og sló því ekki högg á plötunni og söng ekki eitt einasta lag. Meðlimir voru hér nokkuð hræddir við hvað aðdáendur myndu segja ef þeir vissu að einn af þeim væri hættur og fóru þeir því með þetta eins og mannsmorð, enginn mátti vita að fjarveru Peters. Þetta var jú í fyrsta skiptið sem mannabreytingar voru að eiga sér stað í KISS, en svo sannarlega ekki það síðasta. Anton Fig (eða Figgarinn frægi) fékk það starf að tromma plötuna en Peter var þó skráður fyrir trommuleiknum og prýddi framhlið plötunnar ásamt öðrum meðlimum sveitarinnar. Reyndar var það þó vel ljóst að endirinn var í aðsigi hjá Ace líka, en hann hékk þó aðeins lengur á vagninum. Þó kom hann ekki að öllum lögum þessarar næstu plötu þeirra og var þá restin af gítarleiknum í höndum Paul, Gene og Bob Kulick. Upptökustjórinn Vini Poncia sem þótti skila fínu starfi á plötunni Dynasty ári áður var fenginn aftur til að taka þá upp. Aftur tóku okkar menn upp plötu sem fikrast meira í átt að poppinu fremur en rokkinu en í takt við ákveðin tíðaranda þessa tíma. Að einhverjum ástæðum héldu KISS að poppið væri eitthvað sem þeir þyrftu að halla sér að á meðan bönd eins og AC/DC og Van Halen tættu í sig vinsældarlistana. Kannski voru það mikil mistök en þessi plata varð fyrsta platan síðan „Dressed to Kill“ kom út sem ekki fór í platínum-sölu, heldur náði hún „aðeins“ í gull þann 30.júlí 1980. Engu að síður þá kom þessi plata út þann 20. maí 1980 og náði hún bara í 35. sæti Billboard vinsældarlistans í Bandaríkjunum. KISS voru opinberlega ekki lengur konungar Bandaríska tónlistarmarkaðarins. Þó er það ekki þar með sagt platan Unmasked, sem hér um ræðir, hafi verið hafnað út um allan heim. Hreint alls ekki, því sem dæmi þá elskuðu Ástralskir aðdáendur hreinlega þessa plötu og var þetta sennilegast platan sem gerðu KISS endanlega að guðum þar í landi með brjálæði sem samsvaraði Bítlaæðinu. Sem dæmi varð lagið Shandi mikill hittari þar í landi á sama tíma og ekkert lag af plötunni varð að hittara í heimalandinu. Túrinn sem farið var á var fyrsti túrinn hans Eika Carr með KISS og fór hann allur fram í Evrópu, Ástralíu og Nýja-Sjálandi ef frá er talið einir tónleikar í New York, sem voru þeir fyrstu á Unmasked túrnum. Í þessum þætti sem margir hafa beðið spenntir eftir kíkjum við betur á Unmasked. See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Dominos - www.dominos.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Hressustu pólitíkur landsins Þórdís Lóa og Hera Björk, sem er líka Eurovision og söngdrottning landsins, eru systur. Kannski ekki allir sem vita það. Þær sitja einnig á lista Viðreisnar og þar sem ég vissi lítið um þessar borgarstjórnarkosningar ákvað ég að forvitnast bak og fyrir og út kom frekar ópólitískt og ekkert eðlilega skemmtilegt spjall við þessar tvær. Ég ræddi fyrir mína hönd og hundsins míns en þetta spjall gaf ekkert smá skemmtilega og spennandi mynd á hvernig við þróum landið okkar og borgina til hins betra.
Þegar Valur Freyr Einarsson, leikari og höfundur, fór um miðjan aldur að upplifa fjölda skilnaða í sínu nánasta umhverfi, varð honum ljóst hversu mikil umpólun og dramatísk bylting þetta ferli getur verið í lífi fólks. Kannski ekki síst þegar fyrrum makar halda áfram að vera hluti af nýju lífi. Valur fór að skoða hjónabandið í öllum sínum víddum, taka viðtöl við fólk sem hafði upplifað skilnað og allt sem því umbreytandi ferli fylgir. Útkoman er nýtt leikverk, Fyrrverandi, sem frumsýnt verður um næstu helgi í Borgarleikhúsinu. Við ræðum við samstarfsmennina og hjónin, Val Frey og Ilmi Stefánsdóttur, sem er leikmyndahönnuður sýningarinnar, í þætti dagsins. -Nostalgía er hugsanlega tilfinning okkar tíma, mögulega hefðum við átt að hætta að telja árin eftir 2020, tortryggni gagnvart líðandi stundu og Ikea-líkkistur? Þetta og miklu meira er efni sýningarinnar Stöðufundur sem opnaði um helgina í Gerðarsafni í Kópavogi þar sem veitt er innsýn í hugarheim og væntingar fimm skálda og fimm myndlistarmanna sem eru í fararbroddi sinnar kynslóðar. sem eiga það sameiginlegt að fjalla um samtímann sinn og stöðu ungs fólks í nútímasamfélagi. Við spyrjum sýningarstjóra Stöðufundar nánar út í þetta hér á eftir þau Kristínu Aðalsteinsdóttur og Þorvald Sigurbjörn Helgason. -Ég trúi því samt ekki að Rússar muni rísa upp. Það eru svo margir sem eru undir áhrifum áróðurs. Þeir eru vanir að þola, það er ekkert svo slæmt, þetta eru bara ein óþægindin enn. Sem betur fer erum við enn með heiðan himinn yfir hausnum.- Svo segir Natasha, í sínum öðrum Víðsjárpistli. Pistill Natöshu í dag kallast Járntjaldið. Í honum fjallar Natasha um breytingarnar í Rússlandi frá því að stríðið hófst, ofstæki stjórnavalda, lokun frjálsra fjölmiðla, hækkun á sölu þunglyndsilyfja, verðbólgu, matarskort og fleira. En við byrjum þáttinn í dag á því að líta inn á æfingu í heimahúsi. Herdís Anna Jónasdóttir, sópransöngkona, var tilnefnd til nokkurra verðlauna fyrir störf sín á Íslensku Tónlistarverðlaununum, meðal annars fyrir söng ársins. Hún heldur í tónleika á Ísafirði í dag, í Mývatnssveit 8.apríl, og í Hörpu 10.apríl, ásamt Simon Skigin píanóleikara og Grími Helgasyni klarinettuleikara.

Sigrún: Ertu buguð móðir? Líður þér eins og þú sért komin í algjört þrot og veistu stundum ekki hvernig þú eigir að fara að þessu? Þessi pepp fundur er fyrir þig, elsku móðir, til að halda áfram. Þú ert ekki ein, þú ert mætt og komin þetta langt. Kannski þarftu að játa þig sigraða til að geta haldið áfram og hvetur þessi pepp fundur þig til þess að taka þau skref sem þú þarft til þess að finna þig aftur.
Oddur er fjarri góðu gamni að gamna sér í útlöndum en Hjalti deyr ekki ráðalaus og fær annan Odd og einn Alexander með honum í viðtal. Þeir fara yfir uppfærslu Fjölbrautarskólans í Garðabæ á söngleiknum Gretti. Tungurnar hvetja… nei hreinlega skipa öllum að fara og sjá sýninguna. Auðvitað lesa Grettis sögu fyrst. Og lesa hana svo aftur eftir sýningu. Kannski best að taka hana bara með á sýninguna.
Kæru hlustendur. Endanlínan kemur til ykkar beint úr WhiteFox Stofunni eftir glæsilega Bikarhelgi í Smáranum. Við óskum Stjörnunni og Haukum innilega til hamingju með sína Bikarmeistaratitla ásamt öllum þeim yngri flokka liðum sem unnu glæsilega bikarsigra um helgina. EN þá að því sem skiptir máli - hvernig er landslagið eftir þessa bikarviku ? - Hversu líklegir eru Stjörnumenn í framhaldinu eftir 2 frábæra sigra og með titil í farteskinu ? - Valur , Keflavík og Þór Þ , hvaða lið þarf að hafa mestar áhyggjur inní framhaldið eftir að hafa misst af Bikarnum ? - Kef Dynasty án málms ? Kannski ekkert dynasty eftir allt saman og er þetta orðið sálrænt ? - Hvaða leikmenn verða The Big Dawgs og eigna sér fyrirsagnirnar í Playoffs ? - Hvaða leikmenn eru líklegir að valda okkur vonbrigðum eða standast ekki væntingar í Playoffs ? Endalínan í boði WhiteFox , Cintamani , VikingLite og Kef Restaurant & Diamond Suites
Við eigum enn eftir að átta okkur að fullu á þeim félagslega og efnahagslega kostnaði sem almenningur hefur þurft að greiða vegna heimsfaraldursins og þeirra hörðu sóttvarnaaðgerða sem stjórnvöld hafa gripið til. Vísbendingar eru orðnar nokkuð skýrar um að lokunarstefna sem flestar þjóðir innleiddu reyndist ekki eins árangursrík og vonir stóðu til. Kannski er mikilvægasti og dýrmætasti lærdómur almennings síðustu misseri sá að beita alltaf gagnrýnni hugsun. Ávinningurinn sem stjórnvöld lofa þegar gengið er á réttindi einstaklinga reynist oftar en ekki tálsýn.
Hefur þú velt fyrir þér tengslum textíl og kyns? Sú staðreynd að konur eru í miklum meirihluta þeirra sem framleiða, kaupa, nota, nýta, henda og þvo textíl krefst nánari skoðunar. Í þættinum fæ ég til mín Þorbjörgu Söndru frá Umhverfisstofnun sem teymir mig í gegnum virðiskeðju textíl, svo við getum betur áttað okkur á því hvernig þetta umhverfismál er í raun kynjað. Við fáum aðstoð við hvað við getum gert til að bæta heiminn og karlmenn fá góð ráð til að gera betur í þessum málaflokki. Eftirvinnsla: Unnur Gísladóttir Tónlist: Mr. Silla - Naruto (instrumental) Þátturinn er tekinn upp í stúdíó Macland og er í boði Dominos, Veganbúðarinnar og The Body Shop og bakhjarla Karlmennskunnar (karlmennskan.is/styrkja). Þessi þáttur var auk þess unninn í samstarfi við Umhverfisstofnun til þess að vekja athygli á samangegnsoun.is/textil.

Formaður Starfsgreinasambandsins segir að fyrirtæki sem fengu uppsagnarstyrki en endurráða ekki starfsfólk sitt eigi að beita viðurlögum. Hann segir slík lögbrot vera til skammar. Engar vísbendingar eru að svo komnu um að njósnir Þjóðaröryggissstofnunar Bandaríkjanna hafi beinst að íslenskum hagsmunum. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ræddi í dag við varnarmálaráðherra Danmerkur. Borgarstjóri sér ekki ástæðu til að lækka fasteignaskatta eftir að nýtt fasteignamat var birt í vikunni. Þegar sé búið að lækka fasteignaskatta hjá borginni á seinustu árum. Mikill munur er á heilsu og lifnaðarháttum milli þjóðfélagshópa hér á landi samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar, á vegum embættis Landlæknis. Stofnunum samfélagsins ber að bregðast hratt við að mati skýrsluhöfunda. Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, ætlar að endurgreiða um tvær milljónir króna fyrir mat sem sendur hefur verið í bústað forsætisráðherra í Helsinki. Málið hefur valdið Marin vandræðum en það kom upp örfáum dögum áður en sveitarstjórnarkosningar verða. Nærri allir sem fara inn á hjúkrunarheimili andast þar og til þess að veita fólki líknandi meðferð þarf fagþekkingu, segir prófessor í öldrunarhjúkrun. Fæst hjúkrunarheimili ná lágmarksviðmiði um fagmenntaða starfsmenn. Nokkurra ára gömul rannsókn sýnir að rúmlega 40 prósent dauðveikra á hjúkrunarheimilum þjáist daglega af slæmum eða óbærilegum verkjum. Ragnhildur Thorlacius sagði frá og ræddi við Ingibjörgu Hjaltadóttur prófessor í öldrunarhjúkrun. Um 160 til 170 þúsund manns eru nú með nýja smitrakningarappið í símum sínum. Þeirra á meðal eru líka erlendir ferðamenn. Smitrakningarteymi almannavarna hefur ekki enn borist vitneskja um að einhverjir hafi fengið tilkynningar um að þeir hafi verið nærri smituðum einstaklingum. Arnar Páll Hauksson talar við Álaf K. Ragnarsson og Jóhann Björn Skúlason. Á að skylda fólk til að láta bólusetja sig? Kannski ekki alla en hugsanlega heilbrigðisstarfsfólk og starfsfólk elliheimila? Þetta er ákaft rætt í Bretlandi þar sem bólusetning er farin að hafa áhrif en líka orðinn munur milli landshluta og þjóðfélagshópa eftir því hvort fólk lætur bólusetja sig eða ekki. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.
Þið spurðuð og við svöruðum. Kannski að þetta verði reglulegur liður hjá okkur? Njótið!