POPULARITY
Categories
Í fréttum í gær, 10.júní, fagnaði framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, Anna Lára Steindal, því að íslensk stjórnvöld hafi fullgilt valfrjálsri bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Hún segir það hana vera mikla réttarbót. En hvað er þessi bókun og hvað þýðir hún og hverju breytir hún? Anna Lára kom í þáttinn í dag og fór með okkur yfir það af hverju þetta skiptir svona miklu máli. Nú líður senn að sögulegu afreki Sigurgeirs Svanbergssonar sjósundskappa, en hann ætlar að synda niður Lagarfljót til að vekja athygli á þjónustu Píeta samtakanna á Austurlandi og um land allt. Sigurgeir stefnir á að láta til skara skríða um leið og veður leyfir, vonandi næsta mánudag, 15.júní. Enginn hefur áður reynt slíkt afrek í leirlitu Lagarfljótinu. Björgunarsveitin Brimrún hefur staðið með honum í undirbúningnum og hefur kortlagt fljótið og leiðina sem liggur frá Fljótsdal niður að Lagarfossvirkjun, nærri 50 kílómetrar og áætlað er að sundið taki um 24 klst. Guðrún Birna Le Sage markaðsstjóri Pietasamtakanna sagði okkur betur frá þessu og starfi samtakanna í dag. Svo hélt Jónatan Garðasson áfram að fræða okkur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag talaði hann um Svavar Gests. Líklega hafa fáir ef nokkur komið að íslenskri tónlist með jafn fjölbreytilegum hætti og Svavar gerði en segja má að framlag hans í því samhengi sé ómetanlegt. Jónatan sagði okkur betur frá ferli og lífi Svavars í þættinum. Tónlistin í þættinum: Dís / Ragnheiður Gröndal (Jóhann Jóhannsson, texti Bragi Valdimar Skúlason og Ragnar Kjartansson) Allur lurkum laminn / Bubbi Morthens (Hilmar Oddsson) Þórsmerkurljóð / Ragnar Bjarnason og Hljómsveit Svavars Gests (lagahöfundur ókunnur, texti Sigurður Þórarinsson) Hvert er farið blómið blátt? / Ragnar Bjarnason og Ellý Vilhjálms með Hljómsveit Svavars Gests (Pete Seger, texti Valgeir Sigurðsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
HM hringborðið hefur hafið göngu sína þetta árið og hefur leik á sérstökum upphitunarþætti þar sem farið var yfir helstu lið og spáð í spilin. Sérstakir gestir eru Anton Logi Lúðvíksson, leikmaður Breiðabliks, og Ari Sigurpálsson, leikmaður Elfsborg.
Björg Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi og Ellert Hlöðversson, fjármálastjóri Íslandsbanka, ræða peningalega hegðun Íslendinga, fjárfestingar og stöðuna í efnahagslífinu. Í þættinum er rýnt í sveiflur á innlenda hlutabréfamarkaðnum, hvaða valmöguleika fólk sér í því að ráðstafa sparnaði sínum, hvað má telja sem eðlilega hegðun einstaklinga á hlutabréfamarkaði, hvort að háir vextir dragi úr áhuga fólks á fjárfestingum og fleira í þeim dúr. Gestirnir horfa einnig fram á veginn og meta teikn á lofti um kólnandi hagkerfi, vaxandi atvinnuleysi, brothættan byggingarmarkað og áskoranirnar framundan í íslensku hagkerfi. Þá er einnig fjallað um viðhorf stjórnvalda til atvinnulífsins, til dæmis boðaðar skattahækkanir á fjármálafyrirtæki sem bætist þá við skattahækkanir á sjávarútveg og ferðaþjónustu.
Árið 1967 kom út eitthvað alræmdasta og öfgafullasta rit feministahreyfingarinnar, SCUM manifesto (eða SORI á íslensku) eftir Valerie Solanas. Hún leggur til að öllum karlmönnum verði eytt af jörðinni, en glasafrjóvganir og sjálfvirknivæðing muni viðhalda samfélagi kvenna. Við ræðum bókina við Kristínu Svövu Tómadóttur, sagnfræðing og þýðanda bókarinnar, í bókaklúbbi Lestarinnar. Við ræðum svo um íslenskan sagnaarf og barnamenningu. Við ræðum við Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur um nýja útgáfu hennar af Njálssögu fyrir börn - Njála hin skamma.
Fengum Jóa Ásbjörns og fundum fyrir hann lið til að halda með á HM.
Doc, AI og Brynjar Ben
Funheitur, fjölbreyttur og hæstmóðins Party Zone listi Topp 30 fyrir mars 2026 er mál málanna í þessum þætti. Sem fyrr grömsum við í plötukössum plötusnúðanna ásamt því að skoða það helsta sem er að gerast í helstu suðupottum danstónlistarinnar. Upphafslag þáttarins er surgslari frá hinu herrans ári 2006 og fer í bækur þáttarins sem Múmía kvöldsins. Listinn: 1. Disco Cherry Purple Disco Machine 2. Spiralen DJ Koze 3. Test Press (Aphrohead remix-Erol Alkan re-edit) Felix Da Housecat ft. NEZ & Panther Modern 4. I feel so Free Madonna 5. Come On, Let´s Get it / Passionfruit (AK Cuts vol. 3) Anish Kumar 6. The Happy Hour (Julian Liander remix) Casnik & Gaston Perez 7. Her Certain Uncertainty (Isoleé remix) Leaving Laurel 8. Brass Band (Maceo Plex remix) Etienne de Crecy 9. Real, You Know?! Mano Le Tough & DJ Koze 10. Like Ron Hardy 1985 (Disco Fix version) DJ Pierre 11. Orka andhim 12. Plastic Camelia Olof Dreijer 13. Love 4 You Dandara 14. Together The Avalanches, Nikki Nair 15. IMOVEU (Post Hope EP) Kollektiv Turmstrasse 16. No Rules Notre Dame 17. Take Me As I Am (Moodyman Remix) Dames Brown, Amp Fiddler 18. Then Came You (Jimpster remix) Harley & Muscle ft. India 19. City of Fear ex.girls 20. Dime Algo (Black Science Orchestra remix) Payfone ft. Kyd Nereida 21. Won't Let U Down Folamour ft. LYMA 22. Pawa! (Crazy P Disco Dub) Asha Puthli, She She She 23. Start Motion John Tejada, Plaid 24. Crossed Lines (Mr. Fingers Acid remix) Hercules & Love Affair ft. Hips & Lips 25. Feelin' Good Tonight (DJ Minx remix) Louie Vega pres. Funki Cadets ft. Willy Soul 26. Maynard Ron Basejam 27. Groovejet (not without friends remix) Spiller ft. Sophie Ellis-Bextor 28. Beyond the Speed of Life (The Field remix) Addy Weitzman 29. Connection Daniel Steinberg 30. This Thing We Call Love Thundercat ft. Channel Tres
Þátturinn er í boði Maarud, Fjarþjálfun.is, Blush, Beauty barsins, Kristals, Nuun og Nóa Síríus.
Það er komið að nýjum Uppbótartíma eftir sjöttu umferðina í Bestu deild kvenna. Breiðablik og FH buðu upp á stórskemmtilegan leik þar sem stórkostlegt málefni var styrkt. Það mættu rúmlega 1200 áhorfendur á leikinn sem fengu frábæran fótboltaleik. Jafnt í nýliðaslagnum, Stjarnan og Valur með sterka útisigra og staðan er ekki góð fyrir norðan. Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll Garðarsson og Magnús Haukur Harðarson fóru yfir stöðuna en Maggi þurfti að hlaupa frá eftir 10 mínútur og sáu Guðmundur og Arnar um restina af þættinum. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
Ensku úrvalsdeildinni 2025/26 er formlega lokið. Arsenal er meistari, Sunderland og Bournemouth komust í Evrópudeildina og Tottenham náðu að halda sér uppi. Í lokaþætti tímabilsins af Enski boltinn hlaðvarpinu voru ýmis verðlaun gefin, svo sem lið ársins, leikmaður ársins, besti stjórinn og versti stjórinn. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur sjá um þáttinn sem er í boði Coke.
Síðastliðinn laugardagur – 16. maí – kjördagur – var góður dagur fyrir alla hægrimenn á Íslandi. Haldi forystufólk borgaralegra afla rétt á spilunum geta sveitarstjórnarkosningarnar markað tímamót – orðið straumhvörf í íslenskum stjórnmálum. Fyrir ríkisstjórnarflokkana eru úrslitin hins vegar áfall. Í höfuðborginni var samanlagt fylgi Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins aðeins rétt liðlega 32% á móti rúmlega 51% stjórnarandstöðunnar. Flokkur fólksins þurrkaðist út. Sjálfstæðisflokkurinn er langstærsti stjórnmálaflokkurinn í Reykjavík, undir forystu Hildar Björnsdóttur. Miðflokkurinn fékk góða kosningu en Framsóknarflokkurinn tapaði verulegu fylgi en hélt einum borgarfulltrúa.
Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar hefur fæðingartíðni aldrei mælst lægri hér á landi. Árið 2025 fæddust að meðaltali 1,56 börn á hverja konu. Fyrir aðeins rúmum áratug hafði sú tala aldrei farið niður fyrir 1,93 börn. Að óbreyttu þýðir þessi fæðingartíðni fólksfækkun. Ingólfur Bjarni Sigfússon fjallar um þetta og talar við Ara Klæng Jónsson ogSigríði Ingibjörgu Ingadóttur. Blikur eru á lofti í heimi fjölmiðla og fréttamennsku í henni veröld, þar sem valdhafar, glæpagengi, stórfyrirtæki, dóms- og löggæslustofnanir vinna leynt og ljóst að því að skerða tjáningar- og fjölmiðlafrelsi. Góðu fréttirnar fyrir okkur eru þær að Ísland færist upp um 5 sæti á nýútgefnum lista yfir fjölmiðlafrelsi í ríkjum heims. Það eru góðar fréttir, sem segja þó ekki alla söguna. Ævar Örn Jósepsson talar við Sigríði Dögg Auðunsdóttur, formann Blaðamannafélags Íslands. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Risastórt skref fyrir Grindavík, þeir geta klárað titilinn heima í leik 3!Öll umræða í boði Viking Lite (Léttöl), Marion Herrafataverslun, Brons, Hótel Kef og Comfyballs!Og svo er áhorfspartý á Arena Gaming á Föstudaginn á leik 5, endilega verið með!
Fjórðu umferð Bestu deildar kvenna er lokið og þá er kominn tími á nýjan Uppbótartíma til að fara yfir allt það helsta. Grátleg niðurstaða fyrir Val á Kópavogsvelli þar sem tvö mörk voru skoruð í uppbótartíma, frábærir nýliðar, slakir sóknarmenn og margt fleira til umræðu. Guðmundur Aðalsteinn stýrir þættinum og með honum eru Magnús Haukur Harðarson og Snæbjört Pálsdóttir. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
Stymmi Klippari, Davíð Már Kristinsson og Ásgeir Gunnarsson mættu í Rapyd stúdíó-ið og ræddu handboltann undanfarna daga. ÍBV gerðu sér lítið fyrir og pökkuðu Val saman í leik þrjú hjá þeim. Þórsarar halda áfram að styrkja sig fyrir átökin á næsta ári. Ársþing HSÍ fór fram um helgina og nóg að ræða þaðan. Fyrsta ótímabæra spá næsta tímabils leit dagsins ljós. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Athygli heimsbyggðarinnar var á Venesúela í byrjun árs þegar bandarískir hermenn tóku forseta landsins, Nicolás Maduro og eiginkonu hans Ciliu Flores, höndum og fluttu í fangelsi í New York þar sem þeim er enn haldið. Trump lýsti því yfir að boðað yrði til kosninga og að Bandaríkin tækju yfir olíuframleiðslu landsins. Þrátt fyrir að vera risastórt fréttamál féll það fljótlega í skuggann af öðrum málum, eins og hótunum Trumps um að taka yfir Grænland, árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran og árásum Ísraela á Líbanon, svo fátt eitt sé nefnt. Í Heimskviðum í dag ætlum við að reyna að glöggva okkur á því hvort eitthvað hafi breyst í Venesúela eftir að Maduro var steypt af stóli. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið. Enska fótboltafélagið Brighton and Howe Albion tilkynnti nýlega um byggingu nýs leikvangs sem verður eingöngu fyrir kvennafótbolta. Þetta yrði fyrsti völlur sinnar tegundar í Evrópu en sá fyrsti í heiminum var tekinn í notkun í Kansas City í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum. En hvað gerir þessa velli vænlegri fyrir kvennafótbolta og af hverju er ástæða til hafa slíka velli? Hallgrímur Indriðason, sem hefur horft á ófáa fótboltaleikina um ævina, kannar þetta.
Harkið er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar um 2. og 3. deild karla. Þátturinn kemur út vikulega þar sem farið verður yfir úrslit og hápunkta eftir hverja umferð. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson. Í þessum fyrsta þætti er hitað rækilega upp fyrir 2. og 3. deild karla. Farið var yfir hvert lið fyrir sig og spáð í spilin. - Byrjað var á upphitun fyrir 3. deild - 2. deild upphitun: 1 klst. og 7 mínútur - Spá fyrir fyrstu umferð: 2 klst. og 26 mínútur.
Haukur/Friðrik byrjaði þáttinn með skemmtilegum húsfund. Helgi sagði frá blómakaupum árið 1995. Dóttir Hjálmars verður 30 ára á árinu sem kemur honum mikið á óvart. Strákarnir komust að því að ein nótt á hóteli í kringum sólmyrkvan kostar 750þús krónur. Helgi hringdi í Simma Vill nýjan eiganda blaðsins Mosfellingur.IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
AB VARAHLUTIR - SONAX - ASKJA - KÖLSKI - DOMINOSKristján Einar og Bragi fara yfir þær reglubreytingar sem Formúlan hefur gert og taka í gildi fyrir Miami kappaksturinn.
CAVEMAN - Á FERÐ OG FLUGI - AB VARAHLUTIR - BÍLJÖFUR - BÍLAPUNKTURINN - ÞRÍR FRAKKAR - BÍLL.ISBragi og Gunnar Karl hita upp fyrir rallýtímabilið en það má búast við sögulegum slag á toppnum, allt upp í 10 áþekkir bílar að berjast!
Í nokkrar vikur hefur Lóa verið að ræða við fólk um ástina og ástarleit á stafrænum tímum, í innslögunum ástin á tímum Tinder. En hver voru lögmál ástarinnar í kringum aldarmótin 1900. Sigriður Kristín Þorgrímsdóttir sagnfræðingur, skrifaði bókina Piparmeyjar - Fröken Thora og saga einhleypra kvenna á Íslandi sem er að miklu leiti byggð á bréfaskriftum Thoru Friðriksson (1866 – 1958) til systur sinnar. Systirin Ida var gift og átti börn en Thora var yngsta systirin og hafði það hlutverk að annast aldraða foreldra sína, sem var algengt hlutskipti yngstu systra. Hennar draumar og þrár urðu að víkja fyrir hag stórfjölskyldunnar. Sigríður er gestur í 8. þætti af Ástinni á tímum Tinder, sem við gætum nú kallað Ástin fyrir tíma Tinder. Svo pælum við í tónlist og tímanum. Bjarni Daníel færir okkur innslag þar sem um eitt þekktasta lag bandaríska trompetleikarans og djassöngvarans Chet Baker og hvernig það hefur haft mótandi áhrif hann á þremur ólíkum augnablikum á ævinni. Og svo rifjum við upp goðsagnakennda tónleika Chets Baker í Reykjavík árið 1985. Við heyrum brot úr gömlum þætti eftir Vernharð Linnet þar sem hann ræðir við einn skipuleggjanda tónleikanna, Jónatan Garðarsson, og hljóðfæraleikarana þrjá sem léku með Baker: Kristján Magnússon, Svein Óla Jónsson og Tómas R. Einarsson.
Það er mikil tónlistarveisla framundan hjá Karlakór Reykjavíkur sem fagnar 100 ára afmæli í ár. Frá árinu 1926 hefur kraftur og fallegur samhljómur einkennt kórinn og í tilefni afmælisins verður heil tónleikaröð í Langholtskirkju þar sem kynslóðabilið verður brúað með aðstoð vinakóra úr íslenska og færeyska karlakórssamfélaginu og stórvirki gömlu meistarana verða flutt auk léttari sönglaga. Stjórnandi kórsins Friðrik S Kristinsson og formaður kórsins Bóas Valdórsson komu í þáttinn í dag og sögðu okkur betur frá tónleikunum og kórstarfinu. Við fórum svo í heimsókn á Þjóðskjalasafnið, en þar tók Helga Jóna Eiríksdóttir skjalavörður og sagnfræðingur á móti okkur. En hún deildi með okkur skjölum sem varðveitt hafa verið frá því að Friðrik 8. Danakonungur kom í heimsókn til Íslands árið 1907. Fyrir litla og fámenna þjóð þurfti að lyfta grettistaki, jafnvel mörgum, til þess að geta tekið á móti konungi og fylgdaliði svo sómi væri að. Helga Jóna fór með okkur yfir þessa heimsókn og sýndi okkur heilmargt merkilegt sem varðveist hefur frá henni. Svo var það lesandi vikunnar sem var í þetta sinn Henning Emil Magnússon prestur í Mosfellsbæ. Hann sagði okkur frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Henning talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Bread of Angels e. Patti Smith Leðurblakan og perutréð e. Yosa Buson Missing Person e. Patrick Modiano Glerþræðirnir e. Magnús Sigurðsson Dísa Ljósár Íslandsklukkan Gísla saga Súrssonar Gyrðir Elíasson Tónlist í þættinum á mánudaginn 20.apríl Sólin er komin / Mugison (Mugison e. Örn Elías Guðmundsson) Hraustir menn / Karlakór Reykjavíkur (Sigmund Romberg, texti Jakob Jóhannesson) Allt ljómar / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Mikill fögnuður braust út víða í Ungverjalandi þegar ljóst var að ríkisstjórn Viktors Orbans hefði tapað fyrir Tisza-flokki Peters Magyars. Spegillinn ræddi við Maríönnu Csillaq í Búdapest. Ríkisstjórnin ætlar að styðja sveitarfélagið Múlaþing við að leysa þann vanda sem skapast hefur í atvinnumálum Seyðfirðinga. Hátt í 100 störf hurfu frá Seyðisfirði þegar Síldarvinnslan hætti þar allri útgerð og fiskvinnslu. Nýjasta útgáfa gervigreindarmódelsins Claude er svo fær, að fyrirtækið sem gerði módelið vill ekki birta það almenningi. Það gæti hakkað sig inn í viðkvæmustu tölvukerfi heims og hefur fundið þúsundir hættulegra galla í hugbúnaði.
Þeir Kristján Óli Sigurðsson og Tómas Guðmundsson voru gestir Helga Fannars í þætti vikunnar.Þeir eru fyrrum leikmenn og stuðningsmenn Breiðabliks og Víkings, sem mætast í opnunarleik Bestu deildarinnar á heimavelli síðarnefnda liðsins. Einnig er farið yfir stóru málin úr vikunni.
AB VARAHLUTIR - BÍLAPUNKTURINN - Á FERÐ OG FLUGI - BÍLJÖFUR - 3 FRAKKAR - BÍLL.IS - CAVEMANBragi og Jakob C hita upp fyrir torfærutímabilið, hverjir verða með? Hver tekur titilinn?Mynd: GamliFeitiBitriGaurinn
Halldór Árnason, fyrrum þjálfari Breiðabliks, er sérstakur álitsgjafi en hitað er rækilega upp fyrir Bestu deildina. Elvar Geir og Tómas Þór stýra þættinum og fara yfir spá Bestu deildarinnar með Halldór sem sérfræðing. Í seinni hluta þáttarins er svo Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, gestur.
Íþróttavikan kemur fyrr út í dymbilviku og er með aðeins breyttu sniði. Helgi Fannar og Hörður Snævar opinbera spá 433.is fyrir Bestu deild karla og ræða hvert lið fyrir sig.
Aukasendingin fékk Mumma Jones í kaffi til að fara yfir fréttir vikunnar, verðlaunahátíð KKÍ, úrslitakeppni Bónus deildar karla, hvaða leikmenn félög og þjálfarar fá mesta hitann, hverjir eru raunverulegir sigurvegararar tímabilsins og margt fleira.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.
Benedikt Bóas Hinriksson og Jóhann Alfreð Kristinsson eru gestir Helga Fannars í Íþróttavikunni þennan föstudaginn.Þeir fara yfir fréttavikuna, ræða komandi fótboltasumar, enska boltann og miklu fleira til.
Rætt er við Arnar Þór Stefánsson hæstaréttarlögmann og skiptastjóra þrotabús flugfélagsins Play. Farið er yfir stöðuna í þrotabúinu eftir fall félagsins og þá vinnu sem skiptastjórar hafa unnið til þessa. Heildarkröfur í þrotabúið nema um 20 milljörðum króna, eignir eru afar takmarkaðar og þess vegna ólíklegt er að fáist upp í forgangskröfur. Rætt er um skuldabréfaútboð Play skömmu fyrir gjaldþrotið, dótturfélagið á Möltu, stöðu kærumála hjá Samkeppniseftirlitinu og fleira. Í lok þáttar berst talið að fótbolta, nánar tiltekið dómarastörfum í fótbolta, en áhugamál og annað starf Arnars Þórs er að vera dómari í efstu deild og nú styttist óðum í að nýtt tímabil hefjist.
Stymmi Klippari, Geiri Sly og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerði upp vikuna í handboltanum. Íslenska landsliðið tapaði gegn Svíum 33-35 í æfingarleik. Teitur eru draumur þjálfarans. Reynir Þorsteinn Leó of mikið þegar hann fær sénsinn? Handboltaþing fer fram um helgina. Stjarnan voru rændar marki á mikilvægu augnabliki. Verður fjölgað í 10 lið í Olís deild kvenna á næsta ári? Hvaða lið fellur um helgina? þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Hækkanir á flugfargjöldum og olíu knýja verðbólgu áfram að mati greinenda hjá Arion banka sem búast við því að stýrivextir haldist óbreyttir á morgun. Skiptar skoðanir eru hjá spámönnum bankanna um hvort vextir Seðlabankans hækki eða verði samir áfram. Það hefur verið óvissuástand vegna snóflóðahættu á Tröllaskaga og Vestfjörðum meira og minna í tæpa viku. Á fimmtudag snjóaði mikið í norðaustanátt og þá tóku að falla snjóflóð. Síðan hvessti á sunnudag og þá safnaðist snjór fyrir í hlíðum og lægðum og mörg snjóflóð féllu aftur. Í lok janúar gaf héraðssaksóknari út sextíu ákærur fyrir brot gegn valdstjórninni. Tiltek segir saksóknari hjá embættinu. Oftast eru það lögreglumenn sem verða fyrir barðinu á ofbeldi en líka læknir, hjúkrunarfræðingur, starfsmaður barnaverndar og fangavörður
Um hundrað sjúklingar eru á Landspítalanum en bíða eftir því að komast í hjúkrunarrými og þrátt fyrir að leitað sé logandi ljósi að plássum um allt land hefur lítið gengið undanfarnar vikur. Í sáttmála Sameinuðu þjóðanna um hópmorð er kveðið á um að ríkjum sem eiga aðild að honum beri skylda til að gera sitt til að koma í veg fyrir hópmorð og refsa þeim sem þau fremja. En hvernig eru færðar sönnur á ásetning um hópmorð? Rætt við Þórdísi Ingadóttur prófessor við Háskólann í Reykjavík og sérfræðing í þjóðarrétti.
Síminn og Sýn tilkynntu í morgun að fyrrnefnda félagið hefði hug á að kaupa Vísi.is, annan af tveimur vinsælustu fréttavefjum landsins, og útvarpsstöðva Sýnar, meðal annars FM957 og Bylgjuna. Fyrir eigendur Símans er þetta rökrétt skref á þeirri leið sem félagið hefur verið á; fyrir stjórnendur Sýnar gæti þetta verið leiðin út úr tilvistarkreppunni sem félagið hefur verið í. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Kolbein Tuma Daðason fréttastjóra Sýnar. Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að taka þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag, þar sem farið er fram á að Ísrael verði dæmt brotlegt gegn alþjóðasáttmálanum um þjóðarmorð með hernaði sínum á Gaza. Ísland bættist þar með í hóp nær tuttugu þjóða, sem eiga þátt í málsókn Suður-Afríku með svokallaðri meðalgöngu. Þórdís Ingadóttir prófessor við HR er annar höfunda álitsgerðar Íslands, Ævar Örn Jósepsson talaði við hana.
Íris Líf TikTok-ari og bókhaldssérfræðingur var með okkur í dag. Hún sagði frá því þegar hún flutti til Ekvador 16 ára gömul og fann manninn sinn. Hjálmar sagði frá draumi þar sem kallinn hennar vildi opið samband. Íris sagði okkur frá því hvernig hún sparar í matarinnkaupum.IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
Hjálmar Waag Árnason var gestur Heimsgluggans og ræddi stjórnmál í Færeyjum en frændur okkar og frænkur ganga til kosninga síðar í mars. Hjálmar á ættir að rekja til Færeyja og er þar öllum hnútum kunnugur. Hann telur líklegt að hægri stjórn taki við eftir kosningar en Jafnaðarmenn hafa verið í stjórnarforystu síðustu ár. Þá var rætt um mismunandi yfirlýsingar bandarískra ráðamanna um ástæður árása á Íran þar sem ýmsar skýringar hafa verið á lofti.
Doc, Eiður Smári og Gunnar Birgisson í Vikulokum Dr. Football.
Í lok janúar opnaði nýr samfélagsmiðill og fylltist fljótlega af notendum. Það er svosem ekki í frásögur færandi, nema vegna þess að hann var ekki ætlaður mannfólki heldur vitvélum, gervigreindar-agentum. Tryggvi Freyr Elínarson rekur atburðarásina í kringum hinn umtalaða samfélagsmiðil Moltbook og segir frá tækninni á bakvið hann, agentunum eða stafrænu erindrekunum sem munu hafa gríðarleg áhrif á næstu árum. Eiríkur Örn Norðdahl sendir okkur pistil um leit hans að nýju áhugamáli sem á að veita honum lífsfyllingu. Og við beinum sjónum okkar að vetrarólympíuleikunum og pælum í skíðastökki. Eiríkur Guðmundsson fjallaði um fegurð þessarar mögnuðu íþróttar í innslagi í Lestinni fyrir 8 árum síðan og ræddi þá við Einar Örn Jónsson íþróttafréttamann.
Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair í tilefni af uppgjöri félagisns fyrir árið 2025 sem nú er búið að birta. Þrátt fyrir sterkan fjórða ársfjórðung, góða stundvísi og góða sætanýtingu hjá félaginu þá er niðurstaðan sú að EBIT tapið nam 2,2 milljörðum króna og tap eftir skatta um 1,2 milljörðum. Rætt er um stöðu félagsins og horfurnar framundan, umhverfisskatta, kjarasamninga, flotamálin, hluthafana, innanlandsflugið og margt fleira.
Baldvin Borgars, Nonni Kristjáns og Tonson fóru yfir helgina í enska og íslenska.
Það var rússibanareið í Rapyd stúdíóinu í kvöld eftir afhroð strákanna okkar gegn Sviss í dag. Þegar allt var í svartnætti yfir Íslandi mættu Ungverjar og kveiktu von með jafntefli gegn Svíum í lokaleik dagsins. Sérfræðingurinn og Stymmi klippari fengu Aðalstein Eyjólfsson fyrrum þjálfara Kadetten Schaffenhausen í Sviss og við fórum yfir allt sem hægt var að ræða.
Á morgun verður kosið um nýjan oddvita Samfylkingarinnar í Reykjavík í fyrsta skipti í tuttugu ár, það er líka nokkuð ljóst hverjir vilja leiða eitt elsta stjórnmálaafl Íslands og í gær teiknaðist upp ágætis mynd af því hvernig stjórn og stjórnarandstaða vilja bregðast við breyttri heimsmynd eftir atburði síðustu daga. Magnús Geir Eyjólfsson og Eiríkur Bergmann Einarsson ræða stöðuna. Augu heimsins hafa verið á svissneska bænum Davos síðustu daga, þar sem heimsleiðtogar hafa komið saman, rætt málin og flutt miseftirminnileg erindi um það sem hæst ber í heimsmálunum þessa dagana, átökin um Grænland, stríðið í Úkraínu og þá nýju heimsmynd sem blasir við þegar eitt ár er liðið af seinna kjörtímabili Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Og hann hefur ekki látið sitt eftir liggja við framleiðslu og framreiðslu efnis fyrir fjölmiðla heimsins að moða úr. Eitt af því sem hann lagði af mörkum var formlegur stofnfundur nýs, alþjóðlegs friðarráðs, Board of Peace, í Davos á fimmtudag
Oldschool Tíu Jarda þáttur! Kalli og Valsi í Bolastúdíói Podcaststöðvarinnar ásamt Matta í léttölsstúdíóinu á Egilstöðum.Eftir þær ferlegu fréttir að mánudagsþátturinn væri ónýtur fundum við tíma og mann af bekknum til að ráðast í endalausar þjálfarafréttir, enda af nægu að taka. Tókum svo þétta umræðu um leiki síðustu helgar og undirbúning fyrir Championship weekend. Þökkum þolinmæðina!Allt í boði Bola (léttöl) og Arena Gaming, heimili NFL á Íslandi. Redzone og góður matur alla sunnudaga!#tíujardarnir#NflÍsland
Baldvin Borgars, Kári Snorra og Tonson fóru yfir vikuna í boltanum og hituðu upp fyrir helgina.
Sérfræðingurinn og Stymmi Klippari fóru yfir lokaupphitun fyrir Evrópumótið í Rapyd stúdíóinu en mótið hjá Íslandi hefst á morgun þegar þeir mæta Ítölum í fyrsta leik. Síminn var á lofti hjá strákunum og var slegið á þráðinn til Gaupa, Tedda, Hödda Magg og Mike. Við eigum engar afsakanir eftir, leiðin hefur aldrei verið greiðari og hópurinn búinn að ganga í gegnum mikið saman undanfarin ár. Handkastið heldur til Svíþjóð á morgun og verður með þátt strax annað kvöld eftir leikinn. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Baldvin Borgars, Frankarinn og Nonni Kristjáns fóru vel yfir áramótin í boltanum og helstu fréttir.
Doc, Hjálmar Örn og Gunnar Birgisson rétt fyrir jól.
Doc , Albert Ingason og Jóhann Már
Doc, Albert Ingason og Eiður Smári Guðjohnsen.