Podcasts about hvort

  • 77PODCASTS
  • 202EPISODES
  • 1h 8mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Feb 12, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about hvort

Latest podcast episodes about hvort

Chess After Dark
#220 Arnar Grétarsson

Chess After Dark

Play Episode Listen Later Feb 12, 2025 142:02

Gestur Chess After Dark í kvöld er góðvinur þáttarins Arnar Grétarsson fyrrum atvinnumaður og landsliðsmaður í knattspyrnu og auðvitað einn af okkar færustu þjálfurum.Umræðuefni í þættinum:Alvöru uppgjör á Valstímanum.Hvort liðið var betra Blix eða Vikes?Hvernig er að vera atvinnulaus þjálfari á Íslandi?Draumalið AGSpá fyrir komandi tímabil í Bestu deildinni.Íslenska landsliðið.RiddaraspurningarÞessi þáttur er í boði:AutocenterSerrano - 20 % afsláttur með kóðanum burritoafterdarkOrka NáttúrunnarDokobitTMLengjanKontakt fyrirtækjaráðgjöfSuit UpBúllanBudvarSubwayDave&JonsFrumherjiKEMIBónus

Sterk saman
#132 "Annað hvort fellur þú og drepur þig eða mætir á námskeið"

Sterk saman

Play Episode Listen Later Jan 19, 2025 76:15

33 ára gömul kona sem þróaði með sér fíkn eftir áföll á fullorðinsárum. Lenti í ofbeldissambandi og mætti miklum fordómum hjá lögreglu. Geðdeild var hennar síðasti kostur en þar mætti hún einnig fordómum og mjög vondu viðhorfi.

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
“Við ætlum að heilsa hvort öðru með góðri heilsu” -#536

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Jan 6, 2025 54:39

Helgi ræddi hamingjusamar þarmaflórur. Hjálmar náði að losa síðasta hóstan þetta árið í þættinum og hann ætlar að hefja nýtt megrunarátak og mun verða kominn í gott form í júní. Hjálmar er alltaf með hvíta tusku í bílnum ef hann skyldi þurfa að lenda í neyðarakstri.IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a

Ein Pæling
#364 Guðlaugur Þór Þórðarson (D) - Alþingiskosningar 2024

Ein Pæling

Play Episode Listen Later Nov 18, 2024 66:43

Hér er reynt að fá svör við eftirfarandi spurningum frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni:- Hvort eigum við að halla okkur nær Bandaríkjunum undir stjórn Trump eða Evrópusambandinu?- Hvað gerist ef vinstristjórn tekur við orkumálunum- Mun Gulli bjóða sig aftur fram í formann?

Ólafssynir í Undralandi
How to get rich (quick)

Ólafssynir í Undralandi

Play Episode Listen Later Oct 6, 2024 70:39

Líkt og nafn þáttarins gefur í ljós snýr umfjöllunarefnið að því hvernig á að verða ríkur. Hvort það gerist fljótt er hins vegar spurning sem við getum ekki svarað, en það er þó alltaf möguleiki!

Spekingar Spjalla
266. Spekingar mæta aftur eftir frí

Spekingar Spjalla

Play Episode Listen Later Sep 25, 2024 84:46

Spekingar eru mættir aftur eftir tveggja vikna frí, en þó ekki fullmannaðir. Slúður, Snældu vitlausar staðreyndir, Hver er maðurinn, Topp 3, Hvort myndirðu frekar og helgin. Spekingar taka upp í Podcaststöðinni og eru í boði Gull Lite.

Spegillinn
Ákveða hvort leyfi fyrir Búfellslundi verður kært, pólitík í Þýringalandi og Saxlandi, verðsamráð í Noregi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 3, 2024 20:00

Sveitastjórn Skeiða-og Gnúpverjahrepps tekur á morgun ákvörðun um hvort leyfi Orkustofnunar fyrir Búrfellslundi verði kært til úrskurðarnefndar umhverfis-og auðlindamála. Sveitastjóri hreppsins segir komið að skuldadögum hjá ríkisstjórninni. Að vera annars flokks borgarar og mismunað, þannig líður mörgum Þjóðverjum sem búa í austurhluta landsins og þessa líðan létu íbúar í Þýringalandi og Saxlandi rækilega í ljós í kosningum í sambandslöndunum um helgina Norskar verslanakeðjur eru grunaðar um ólöglegt samráð um verð. Þrjú fyrirtæki ráða um 95 prósentum af dagvörumarkaði. Samkeppniseftirlitið norska hefur ákveðið að sekta þau, en kaupmenn neita að borga.

Podcast með Sölva Tryggva
Halli Hansen með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Jul 18, 2024 112:30

Nálgast má þáttinn í heild sinni án auglýsinga inn á; https://solvitryggva.is/ Halli Hansen er magnaður náungi. Hvort sem það er að sitja í fangelsum, vera heimilislaus, ferðast um heiminn án farangurs, eru það allt hlutir sem Halli hefur prófað á eigin skinni. Í þættinum fara Halli og Sölvi yfir reynslu þessa magnaða manns, hvað hann hefur lært á sínu ferðalagi og hvað framtíðin ber í skauti sér. Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ Gullfoss - https://gullfoss.is/ Fiskikóngurinn - https://www.facebook.com/fiskikongurinn.is/?locale=is_IS Heitirpottar.is - https://heitirpottar.is/ Kjötkompaní - https://kjotkompani.is/

Spegillinn
Tilræðið við Trump og landsþing Repúblikana

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 15, 2024 10:00

Landsfundi Repúblikana, hófstí borginni Milwaukee í Wisconsin-ríki í Bandaríkjunum laust fyrir klukkan átján að íslenskum tíma, Landsfundurinn stendur í fjóra daga. Búist er við að allt að 50.000 manns, þar af eru rúmlega 2.400 kjörmenn, sem hafa það hlutverk að útnefna forsetaframbjóðanda flokksins, Donald Trump, með formlegum hætti, á fimmtudag. Fundurinn er haldinn í skugga banatilræðis við Trump á kosningafundi í Pannsylvaníu á laugardaginn var, þar sem litlu mátti muna að tilræðismanninum tækist ætlunarverk sitt, einn fundargesta lá í valnum og tveir særðust alvarlega, auk þess sem tilræðismaðurinn, ungur maður frá smábæ í Pennsylvaníu, var skotinn til bana. Ráðamenn víða um heim hafa fordæmt tilræðið og það hefur Joe Biden Bandaríkjaforseti líka gert. Eftir tilræðið hafa þeir Trump báðir hvatt til hófstilltari og málefnalegri kosningabaráttu, en hún hefur einkennst af mikilli heift, gifuryrðum og ásökunum á báða bóga. Hvort þessi tilmæli nái í gegn hjá fylgjendum þeirra á eftir að koma í ljós, og skiptar skoðanir eru um, hvort tilræðið auki fylgi Trumps svo um muni. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Jón Óskar Sólnes í Washington. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Spekingar Spjalla
251. Vikan, Hvort Myndir Þú Frekar, Topp 3, Frægar Línur, Kvikmyndaskorið og Helgin

Spekingar Spjalla

Play Episode Listen Later May 30, 2024 103:07

Full mannað þessa vikuna. Fórum yfir vikuna, Hvort Myndir Þú Frekar, Topp 3 motivational quotes, geggjaðar Frægar Línur, kosninga Kvikmyndaskor og Helgin í lokin. Spekingar taka upp í Podcaststöðinni og eru í boði Gull Lite.

Fotbolti.net
Enski boltinn - Viltu að liðið þitt tapi?

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later May 14, 2024

Það er mjög svo spennandi lokaumferð framundan í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag og svo gríðarlega áhugaverður leikur í kvöld sem gæti haft mikil áhrif á það hvaða lið verður meistari. Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmaður Tottenham, og Magnús Valur Böðvarsson, stuðningsmaður Crystal Palace, mættu í heimsókn í dag til að taka stöðuna. Hvort verður Arsenal eða Manchester City enskur meistari?

Þú veist betur
Fæðingar

Þú veist betur

Play Episode Listen Later Apr 14, 2024 72:45

Öll höfum við fæðst, eða er það annars ekki? Mögulega eru til einhver tilfelli eins og klónun eða annað sem ég get ekki ímyndað mér en ég held að þessi staðhæfing haldi vatni. Hvort að við höfum gengið í gegnum það að fæða sjálf eða vera viðstödd fæðingu er hinsvegar annað mál. Ég viðurkenni að sjálfur er ég að fara að ganga í gegnum það ferli ef allt gengur upp bráðlega, svo efni þáttarins er hugsanlega valið út frá persónulegri sjónarmiði en oft áður. En hinsvegar held ég að við höfum öll gott af því að vita meira um fæðingar, um hvað þær snúast og við hverju má búast. Til okkar er komin Birna Gerður Jónsdóttir og saman ætlum við að fara yfir málin, ég má spyrja eins og sá sem ekkert veit og vonandi lærum við eitthvað saman. Við ætlum að byrja á því að horfa aðeins aftur í tímann. Ég minni á póstinn minn atlimar@ruv.is ef það eru einhverjar spurningar eða ábendingar um efni sem þið viljið koma að. Einnig á hlaðvarpið Legvarpið ef fólk vill heyra fleira og meira um allt sem tengist fæðingu, en svo ég vitni í texta hlaðvarpsins: "Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu", endilega leggið við hlustið ef þið hafið áhuga!

Spekingar Spjalla
245. Topp 3, Hvort Myndir Þú Frekar, Hokký Hornið og Tilfinningaskalinn

Spekingar Spjalla

Play Episode Listen Later Mar 29, 2024 76:11

Páskaspecial frá Spekingum. Gleðilega páska kæru vinir. Upptökur fóru fram í ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Nóa Síríus⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Gull Lite⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠.

Karfan
Aukasendingin: Úrslitadagar í Subway, félögum gefin ráð og hvort er það KR eða ÍR

Karfan

Play Episode Listen Later Mar 5, 2024 93:38

Aukasendingin fékk Hallgrím Brynjólfsson í heimsókn til þess að ræða Subway deild karla, síðasta landsliðsglugga, bikarkeppnina, fyrstu deildir karla og kvenna og margt, margt, margt fleira. Þá er farið yfir ráðgjöf til félaga fyrir sumarið, þar sem að Tindastóll, Keflavík, Haukar og fleiri lið fá nokkur ráð gefins.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway, Lengjunnar og Tactica.

Spekingar Spjalla
241. TayTay Hornið, Bjórhornið, Hvort Myndir Þú Frekar, Topp 3, Bjóða Skvetta Neita og Kvikmyndahornið

Spekingar Spjalla

Play Episode Listen Later Mar 2, 2024 139:40

Dagur fyrstu ástar Matta runninn upp en það er dagur bjórsins. Samband þeirra er enn ótrúlega sterkt og hittast þeir flesta daga. Það er því auðvitað bjór þema. Sérlegur gestur þáttarins er Auðjón Guðmundsson. Upptökur fóru fram í ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Nóa Síríus⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Gull Lite⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠.

Mannlegi þátturinn
Heilaheilsa, Hvernig varð ég til, veðurspjallið

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 27, 2024 52:37

Heilaheilsa og þjálfun hugans er nafn á námskeiði sem Ólína G. Viðarsdóttir, sálfræðingur og doktor í líf- og læknavísindum við HÍ stýrir á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands. Á námskeiðinu er fjallað um heilann og hugarstarf og markmiðið er að þáttakendur öðlist þekkingu á hugrænum þáttum og hvaða hlutverki þeir gegna í okkar daglega lífi. Einnig að þeir öðlist betri innsýn í eigin hugræna styrkleika og veikleika og læri leiðir til að þjálfa hugann og efla heilaheilsu. Ólína kom í þáttinn og sagði okkur meira frá heilaheilsu í dag. „Hvernig varð ég til?“ er bók fyrir öll börn sem verða til með aðstoð egg- eða sæðisgjafa. Bókin hentar einstaklingum sem eignast börn ein og einnig samkynja- og tvíkynja pörum. Bókin aðstoðar fjölskyldur við að upplýsa börn um hvernig þau urðu til, þar sem áherslan er á fólk sem fær aðstoð frá egg- eða sæðisgjafa við barneignarferlið. Mikilvægt er að foreldrar séu opinská og heiðarleg gagnvart börnum um hvernig þau urðu til og ekki er alltaf auðvelt að vita hvernig á að bera sig að. Markmiðið með bókinni er að vera ákveðið verkfæri til að aðstoða foreldra við samtalið. Andrea Björt Ólafsdóttir er höfundur bókarinnar kom til okkar í dag. Veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni var svo í dag. Í þetta sinn talaði Einar við okkur um veðurútlitið næstu daga og vikur. Hvort hægt sé að spá með viti í marsveðráttuna og með hvaða aðferðum þá. Hann ætlar líka að rifja upp þegar 1500 manns sátu fastir í bílum sínum í Þrengslunum 27.febrúar árið 2000, þegar fjöldi þusti út til að berja Heklugos augum. Þá hafði verið tilkynnt í fréttum að gos myndi hefjast innan 30 mínútna, en lítið sást til gossins, en í staðinn gerði byl með ófærð. Þetta var ein viðamesta björgunaraðgerð á vegum úti í Íslandssögunni. Tónlist í þættinum: Skólaball / Brimkló (Magnús Kjartansson) Marz / John Grant (John Grant) 4:30 AM / Solveig Slettahjel (Peder Kjellsby & Solveig Slettahjell) Nacho verduzco /Kronos Quartet (Chalino Sanchez) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Lestin
Engar tjaldbúðir, að lýsa íþróttaleik, hver erum við?

Lestin

Play Episode Listen Later Jan 29, 2024 55:45

Hver er kúnstin við að lýsa íþróttaleik? Lóa er að velta því fyrir sér vegna þess að hún fékk það verkefni að lýsa klifurmóti í kvöld. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Gunnar Birgisson, íþróttafréttamenn á RÚV, miðla þekkingu sinni á íþróttalýsingum. Tjaldbúðir sem hafa staðið á móti Alþingishúsinu við Austurvöll í rúman mánuð voru felldar í síðustu viku. Kyrrsetumótmælunum sem þær hýstu er þó hvergi nærri lokið. Við heyrum fimmta og síðasta þátt örseríu Önnu Marsibil Clausen frá 2022, Á samviskunni. Íslensk yfirvöld hafa aldrei beðist afsökunar á eða beinlínis viðurkennt að hafa hafnað gyðingum í seinni heimsstyrjöldinni sökum menningarlegs uppruna þeirra. Hvort vegur þyngra, orð eða gjörðir? Lagalisti: Sabreen - On Man Kanye West - Selah

rv hver erum hvort engar gunnar sigurbj austurv gunnar birgisson
Sterakastið
#113: Harry potter, stómism og hor

Sterakastið

Play Episode Listen Later Dec 11, 2023 79:42

Smá jólastemmari kominn í okkur! Hvort myndiru frekar, vinsælar íþróttir, peningur, harry potter og jólin í Quatar tekin fyrir í þessum frábæra þætti af Sterakastinu. Njótið þess að hlusta og deilið endilega með vinum!

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
“Þið farið alltaf þangað sem gerir ykkur sorgleg” -#432

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Dec 7, 2023 10:57

Heita Sætið er nýtt spil frá Hæ Hæ það er fáanlegt áJunior.is og einnig í helstu stórmörkuðum landsins.Þáttur dagsins var vel þéttur.Eva Ruza og Eva Laufey kíktu í geggjað spjall í dag.Heita Sætið var spilað og kom ýmislegt í ljós þar.Hvort er erfiðara? að hringja eða senda skilaboð?Hvernig höndlar þú midlife crisis? Þessum spurningum ogfleirum verður svarað í þættinum. IG: helgijean & hjalmarorn110Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!

Podcast með Sölva Tryggva
Halli Hansen (brot af því besta)

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Dec 5, 2023 28:34

Halli Hansen er magnaður náungi. Hvort sem það er að sitja í fangelsum, vera heimilislaus, ferðast um heiminn án farangurs, eru það allt hlutir sem Halli hefur prófað á eigin skinni. Í þættinum fara Halli og Sölvi yfir reynslu þessa magnaða manns, hvað hann hefur lært á sínu ferðalagi og hvað framtíðin ber í skauti sér. Brotið er í boði; Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/  

Spekingar Spjalla
228. Vikan, Topp 3, Létt&Laggott, Hvort myndir þú frekar og Kvikmyndaskorið

Spekingar Spjalla

Play Episode Listen Later Nov 2, 2023 83:49

Loksins mættir aftur eftir fjarveru en aldrei verið betri. Farið yfir ástæðu fjarveru okkar í vikunni, Topp 3 skemmtilegustu fríin, Létt&Laggot snúið, Hvort myndir þú frekar þægilegt og trúðamyndir í Kvikmyndaskorinu. Upptökur fóru fram í ⁠⁠⁠Nóa Síríus⁠⁠⁠ stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði ⁠⁠⁠Gull Lite⁠⁠⁠.

Spegillinn
Hvernig verja á innviði í eldgosi? Loftslag, landbúnaður og ræktun

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 30, 2023 10:24

Síðasta sólarhring hefur Ísraelsher gert árásir á 600 skotmörk á Gaza. Forsætisráðherra Ísraels sagði í dag að árangur væri að nást gegn Hamas. Forsætisráðherra Íslands vissi ekki að Ísland myndi sitja hjá við atkvæðagreiðslu um tillögu um vopnahlé á Gaza fyrr en eftir að fundur um hana hófst. Tölvupóstur þess efnis var sendur starfsmanni forsætisráðuneytisins ellefu mínútum áður en fundurinn hófst. Stjórnarandstaðan vill að boðað verði til þingfundar hið fyrsta. Enn rís land á Reykjanesskaga norðvestan við Þorbjörn hjá Svartsengi og skjálftavirkni er viðvarandi. Nýjar gasmælingar sýna engar breytingar og samkvæmt fyrstu drögum að úrvinnslu á glænýjum myndum virðist vera að draga úr landrisi. Kínverska byggingafyrirtækið Evergrande fær fimm vikna frest til að semja við lánardrottna um rúmlega 45 þúsund milljarða króna skuldir. Ella blasir gjaldþrot við. Birna Stefánsdóttir hlýtur Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar í ár. Hvernig er hægt að verja hina mikilvægu innviði við Svartsengi fari að gjósa þar? Hvað tekur langan tíma að reisa varnargarða fyrir Grindavík og jarðvarmavirkjun HS orku í Svartsengi? Hvernig er hægt að verja vatnsból og lagnir? Rætt er við Ara Guðmundsson verkfræðing sem fer fyrir vinnu á vegum almannavarna um varnir innviða á Reykjanesskaga. Hvort er hin fyrirsjáanlega mikla hlýnun og gjörbreyttu aðstæður hér góðar fréttir eða slæmar fyrir íslenskan landbúnað og ræktun almennt? Bjarni Diðrik Sigurðsson, skógvistfræðingur er spurður út í áhrif loftslagsbreytinga. Dómari í Hong Kong gaf í dag stjórnendum kínverska fasteignafélagsins Evergrande fimm vikna frest til að leggja fram áætlun um með hvaða hætti þeir ætluðu að greiða skuldir sínar. Ella yrði það tekið til gjaldþrotaskipta. Evergrande er skuldugasta fasteignafyrirtæki í heiminum. Gjalþrotið gæti haft alvarleg áhrif á þjóðarhag í Kína. Ragnhildur Thorlacius hafði umsjón með Speglinum. Magnús Þorsteinn Magnússon var tæknimaður. Margrét Júlía Ingimarsdóttir stjórnaði fréttaútsendingu.

Spegillinn
Hvernig verja á innviði í eldgosi? Loftslag, landbúnaður og ræktun

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 30, 2023

Sjómennska

Þú veist betur

Play Episode Listen Later Sep 24, 2023 68:49

Í síðasta þætti af Þú veist betur ræddum við ketti, kosti þeirra og galla, hvernig væri best að gera þá hamingjusama og þar fram eftir götunum. Það leiðir okkur eftir ákveðnum krókaleiðum að viðfangsefni dagsins. Mér var nefnilega einu sinni sagt að appelsínugulir kettir hefðu komið til Íslands með víkingum, því þeir væru svo miklir sjókettir. Hvort það sé satt eða ekki þá liggur beinast við að fara frá köttum, til sjómennsku. Það einfaldlega gefur augaleið. Sjómennska er nefnilega eitthvað sem ég held að við höfum öll hugmynd um hvað sé, hvort sú hugmynd sé sú sama á milli okkar allra er frekar ólíklegt enda eru frekar litlar líkur á því að við höfum nokkurtíman stundað sjómennsku sjálf. En þó eru allar líkur á því að við höfum einhverja tengingu, hvort sem það er í gegnum fjarskyldan frænda eða bara foreldra okkar. Sjómennska og fiskveiðar eru okkur í blóð borin, annað væri í raun stórfurðulegt verandi eyja út á miðju Atlantshafi. En hvað þýðir það að vera sjómaður, hvað hefur það þýtt í gegnum tíðina og hvað hefur breyst varðandi sjómennsku á öllum þessum árum síðan fólk kom til þessa lands. Til að svara þessu hef ég fengið til mín Valmund Valmundsson og Hólmgeir Jónsson sem þekkja þetta inn og út, svo við settumst niður og þeir leyfðu mér að spyrja sig eins og landkrabbinn sem ég er. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælendur: Valmundur Valmundsson og Hólmgeir Jónsson

sj umsj hvort atlantshafi atli m

Strengjafræði - 1.hluti

Þú veist betur

Play Episode Listen Later Sep 3, 2023

Við erum sífellt að reyna að skilja hlutina í kringum okkur betur. Hvort sem það er með athugunum, tilgátum, kenningum eða tilraunum viljum við vita af hverju heimurinn í kringum okkur er eins og hann er. Því manneskjan er hugsanlega eina dýrategundin sem á oft erfitt með að upplifa án þess að spyrja af hverju. Okkur hefur gengið frekar vel að svara þessari spurningu í gegnum tíðina, en höfum tekið gríðarlegt stökk á síðustu 100 árum eða hér um bil. Ég hef áður forvitnast um hluti eins og eðlisfræði, skammtafræði, svarthol, stærðfræði og kjarnorku svo einhver dæmi séu nefnd, en það er ein fræðigrein sem sat eftir. Og það var sú fræðigrein sem gerir tilraun til að svara sumum af erfiðustu spurningunum sem við höfum, hvað er það sem gerist við mikla hvell og hvað á sér eiginlega stað inn í svartholum? Mér finnst vert að benda á að auðvitað er hægt að hlusta á fyrrnefnda þætti til að glöggva sig á alls kyns hlutum sem munu líklegast koma sér vel þegar hlustað er á fyrstu tvo þætti nýrrar seríu af Þú veist betur, en þó strengjafræðin sé vissulega snúið viðfangsefni reyndi ég að nálgast og bera efnið fram án þess að það þyrfti að undirbúa sig mikið fyrst. En við skulum öll átta okkur á því að hér er alls ekki skrýtið eða vandræðalegt að skilja ekki, þættirnir tveir gera næstum þá kröfu að við segjum skilið við það sem við héldum að við vissum og opnum hugann fyrir einhverju sem satt best að segja getur vel hljómað eins og vísindaskáldskapur. Eitt lykilorð áður en við byrjum, hið viðtekna líkan (standard model) er eitthvað sem verður nefnt nokkuð oft. Strengjafræðin er grein sem reynir að sameina þyngdarfræði og skammtafræði, sem eiga ekki gott með að tala saman, á hátt sem opnar svo fyrir möguleikann að útskýra hlutina sem ég nefndi áður. Ef þið eruð ekki ringluð ennþá, búið ykkur undir að heyra um víddir sem þið vissuð ekki að gætu verið til, úr hverju rafeindir, róteindir og nifteindir eru búnar til úr og hvernig þegar öllu er á botninn hvolft, erum við öll hugsanlega bara strengir titrandi á ólíkum tíðnum. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Friðrik Freyr Gautason

Þú veist betur
Strengjafræði - 1.hluti

Þú veist betur

Play Episode Listen Later Sep 3, 2023 55:00

Já OK
Kynjaskepnur (seinni hluti)

Já OK

Play Episode Listen Later Aug 30, 2023 41:03

Umræðan um kynjaskepnur heldur áfram. Hvort segir maður fjörulalli eða fjörulalli? Hvað eru fjörulalli og eiturgedda að gera saman? 

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
“Þakið ætlaði að detta af húsinu” -#399

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Aug 14, 2023 45:16

20. Ágúst verður Hæ Hæ Pub-Quiz í Egilshöll.Hjálmar er nýkominn heim frá Tenerife og skemmti hann sér og fjölskyldan stórkostlega. Þar upplifði hann mikið frelsi, börnin voru í pössun og Ljósbrá var ekkert að segja honum hvað hann mátti vera lengi úti. Hvort myndir þú frekar vilja að gera, fara til Tenerife með Hjálmari eða viku nektar retreat með Helga?IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!

Spjallið
Verslóplön & hvort myndir þú frekar vera tannlaus eða lykta eins og prump?

Spjallið

Play Episode Listen Later Aug 1, 2023 47:06

Þátturinn er í boði VitHit og Kúmen í Kringlunni

Spjallið
Að njósna um fyrverandi maka, ertu að ná hámarki og hvort myndir þú frekar?

Spjallið

Play Episode Listen Later Jul 12, 2023 59:21

Þátturinn er í boði Bio-kult, VitHit & Kúmen.

Þjóðmál
#144 – Jörðin skelfur og ríkisstjórnin titrar – Hvort rofnar fyrst?

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Jul 5, 2023 43:40

Andrés Magnússon og Karítas Ríkharðsdóttir ræða um stöðuna í ástlausu hjónabandi ríkisstjórnarinnar, erjurnar sem hafa komið upp á stjórnarheimilinu og hvaða afleiðingar þær kunna að hafa, grein Óla Björns Kárasonar þar sem hann næstum því kallar eftir stjórnarslitum, hvernig næstu vikur og mánuðir kunna að vera og annað skemmtilegt úr stjórnmálum dagsins.

Spekingar Spjalla
215. Vikan, Slúðrið, TayTay hornið, Ekkert slúður, bara múður, Topp 3, Hvaða leik viltu leika, Tilfinningaskalinn

Spekingar Spjalla

Play Episode Listen Later Jun 15, 2023 88:09

Spekingar sakna Sæþórs þessa vikuna, en kúturinn er á fullu að byggja sér og sínum hreiður. Slúðrið fór um víðan völl, TayTay hornið með sturlaða staðreynd, Ekkert slúður, bara múður þar sem kíkt er á afmælisbörn dagsins, Topp 3 tónleikar sem spekingar væru til í að sjá, Hvaða leik viltu leika (HVort myndirðu frekar) og Spekingar enduðu á Tilfinningaskalanum sem er alltaf erfiður liður fyrir Spekinga. Upptökur fóru fram í ⁠⁠Nóa Síríus⁠⁠ stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði ⁠⁠Gull Lite⁠⁠.

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
"Við elskum bæði hvort annað" -#371

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Apr 27, 2023 10:03

Euro Pub-Quiz verður þann 11. Maí kl: 18 í KeiluhöllinniHjálmar útskýrir fyrir Helga sinn fullkomna dag í utanlandsferð.En það kemur í ljós hver þeirra hefur meiri þolinmæði fyrir fullum bretum.Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is! IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!

Þú veist betur
Heilinn - 2.hluti

Þú veist betur

Play Episode Listen Later Apr 2, 2023

Þá höldum við áfram yfirferð okkar um heilann, í síðasta þætti vorum við að ræða söguna aðeins, bæði hvað varðar okkar heila og svo líka þegar kemur á þekkingu okkar á honum. Nú dembum við okkur aftur í spjallið og tökum upp þráðinn þar sem ég er að velta fyrir mér hvernig hlutirnir í heilanum á okkur, eða líkama, það að tala, hreyfa sig, hvað sem það er, gerist svona hratt. Og kannski aðeins stærri spurning, hver stjórnar því yfir höfuð? Er það ég eða heilinn? Hvort kemur á undan, eggið eða hænan? Við spyrjum stórt og sjáum hvort það séu svör. Ekki láta ykkur bregða þó við tökum af stað í 4 gír, það er alltaf hægt að spóla til baka og byrja upp á nýtt ef þið voruð ekki búin að hita ykkur upp. En gefum Pétri Henry Petersen orðið. Umsjón: Atli Már Steinarsson

er ekki umsj hvort steinarsson atli m
Þú veist betur
Heilinn - 2.hluti

Þú veist betur

Play Episode Listen Later Apr 2, 2023 55:00

Þá höldum við áfram yfirferð okkar um heilann, í síðasta þætti vorum við að ræða söguna aðeins, bæði hvað varðar okkar heila og svo líka þegar kemur á þekkingu okkar á honum. Nú dembum við okkur aftur í spjallið og tökum upp þráðinn þar sem ég er að velta fyrir mér hvernig hlutirnir í heilanum á okkur, eða líkama, það að tala, hreyfa sig, hvað sem það er, gerist svona hratt. Og kannski aðeins stærri spurning, hver stjórnar því yfir höfuð? Er það ég eða heilinn? Hvort kemur á undan, eggið eða hænan? Við spyrjum stórt og sjáum hvort það séu svör. Ekki láta ykkur bregða þó við tökum af stað í 4 gír, það er alltaf hægt að spóla til baka og byrja upp á nýtt ef þið voruð ekki búin að hita ykkur upp. En gefum Pétri Henry Petersen orðið. Umsjón: Atli Már Steinarsson

er ekki umsj hvort steinarsson atli m
Samfélagið
Hvar er best að búa, kváradagurinn, málfar og hubba húlle húlle húlle

Samfélagið

Play Episode Listen Later Mar 20, 2023

Hvort er betra að búa á landsbyggðunum eða á höfuðborgarsvæðinu? Við þessari spurningu fæst örugglega ekkert endanlegt svar, sitt sýnist hverjum og margt í mörgu eins og sagt er. Það stöðvar okkur sem þjóð þó ekki í að takast reglulega á um þetta og það er rætt um launamun, og láglauna- og hálaunasvæði, rafmagns- og kyndingarkostnað, leikskólagjöld- og biðtíma, leigu- og húsnæðisverð, vegalengdir og samgöngur og þjónustustig og matvælaverð- og framboð og hvaðeina. Við ræðum við Sigríði Elínu Þórðardóttur forstöðumann þróunarsviðs Byggðastofnunar og Sigurður Árnason sérfræðingur við sama svið, en þar má finna gögn og samatektir um hvaðeina sem tengist þessum eilífðar átökum. Á morgun verður kváradeginum fagnað. Það er dagur kynsegin fólks, kannski dálítið í anda bóndadags og konudags. Hingað koma þau Regn Sólmundur Evu, sem starfar með Q-félagi hinsegin stúdenta og Ólöf Bjarki Antons, sem er formaður Trans Ísland. Þau ætla að ræða við okkur um ýmis mál sem snúa að samfélagi kynsegin fólks og auðvitað um þennan dag - kváradaginn. Málfarsmínúta Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV með upptöku frá 1987 þegar ísraelsku listamennirnir Datner og Kushnir heimsóttu Ísland eftir að hafa slegið í gegn með lag sem er almennt kallað Hubbahulle.

Fotbolti.net
Enski boltinn - Liverpool niðurlægt og Katar eða Ratcliffe?

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Feb 22, 2023

Manchester United og Liverpool voru aðallega til umræðu í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag. Liverpool tapaði 2-5 fyrir Real Madrid í Meistaradeildinni í gær. Ótrúlegur leikur en Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke hringdu í Atla Má Steinarsson, fjölmiðlamann, til að ræða leikinn og tímabilið hjá Liverpool. Þá hringdu þeir einnig í Tryggva Pál Tryggvason, fréttamann á Stöð 2 og Vísi, til að fara yfir tímabilið hjá Manchester United, möguleg eigendaskipti og leikinn gegn Barcelona á morgun. Hvort vill Tryggvi fá Katar eða Sir Jim Ratcliffe í eigendastólinn?

Fotbolti.net
Enski boltinn - Landsbyggðin talar um hugarfarsskrímsli

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jan 24, 2023

Mikið var rætt um sigur Arsenal á Manchester United í þætti dagsins og orðin mentality monsters notuð til að lýsa Arsenal liðinu. Ingimar Helgi Finnsson var á línunni og ræddi um Tottenham og Óskar Smári Haraldsson gasaði um sína menn í Liverpool. Arsenal er með fimm stiga forskot og á leik til góða, en tvær innbyrðisviðrueignir eru eftir við City. Hvort liðið verður meistari? Nær Tottenham Meistaradeildarsæti?

Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn - Úrvalslið HM og Birkir Már um Messi og Mbappe

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Dec 17, 2022

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 17. desember. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke í hljóðveri X977 á Suðurlandsbraut og Tómas Þór beintengdur frá hljóðveri DR í Kóngsins Kaupmannahöfn. Hitað er upp fyrir úrslitaleik HM, úrvalslið mótsins valið, HM leikmenn sendir í ensku úrvalsdeildina og Birkir Már Sævarsson er á línunni. Birkir Már þekkir það að mæta bæði Argentínu og Frakklandi. Hvort er erfiðara að mæta Messi eða Mbappe? Síðasti þáttur fyrir jól. Gleðilega hátíð!

Ólafssynir í Undralandi

Vinnan göfgar manninn sagði einver. Hvort hún hafi göfgað þá Aron og Arnar er alls óvíst en það hefur kennt ýmisa grasa þegar kemur að vinnumálum þeirra félaga. Þátturinn fjallar þó að mestu leiti um starfsferil Arons og vinnu hans fyrir McDonalds. Missið ekki af.

FantasyGandalf
#41 - HMannréttindabrot í Qatar, kúkur í sameign og blessuð sé Bankasýslan

FantasyGandalf

Play Episode Listen Later Nov 18, 2022 60:58

Fösssari í 70min. HM í Qatar byrjar um helgina. Hversu langt á að ganga í að sniðganga þessa keppni...má td. horfa ? Blessuð sé Bankasýlsuskýrslan sem enginn þarf að taka ábyrgð á. Hvort má bjóða þér lífsgæði eða loftlagsmál því ekki er hægt að fá bæði, því miður. Lögregludagbókin og margir sátu eftir með sárt ennið í Smáralind. Góða skemmtun !

Fotbolti.net
Ástríðan - 5. umferð - ÍH og Reynir S. einu stigalausu liðin

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jun 8, 2022

Sverrir Mar, Óskar Smári og Gylfi Tryggva settust niður þrátt fyrir allt og fóru yfir fimmtu umferðina í 2. og 3. deild karla.Meðal umræðuefnis:Pollið á Twitter sagði að Gylfi bullaði mest en hann var með svör við því. Erfitt að lesa í nokkur lið og aðeins tvö lið eru eftir stigalaus. Vanmat hjá Víði? Hvort eru Dalvík eða Sindri besta liðið í 3.deild? Stígandi fyrir austanÞátturinn er í boði Bola, Jako, Ice og Acan.is.Hægt er að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Spekingar Spjalla
165. Slúður, Frægar línur, Topp 3, Hvort myndir þú frekar og Gull Lite testið

Spekingar Spjalla

Play Episode Listen Later May 26, 2022 75:05

Spekingar mættu í studíó á þessum helgidegi. Sesi þó löglega afsakaður en góður gestur í hans stað. Matti með slúðrið að þessu sinni, mjög Frægar línur, Hvort myndir þú frekar og Gull Lite testið. Eitthvað fyrir alla. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.

Þjóðmál
#75 – Hvort sem þú býrð á Seyðisfirði eða í Seattle

Þjóðmál

Play Episode Listen Later May 23, 2022 60:10

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, fjallar um það af hverju rúmlega 500 manns höfðu áhuga á því að hlýða á fyrirlestur þar sem hún fjallaði um áherslur sínar í nýju ráðuneyti, hvort að stjórnvöld hafi raunverulegan áhuga því að efla nýsköpun og útflutningstekjur, hvort að íslenskir háskólar séu nógu góðir til að takast á við framtíðina og hvort að hægt sé að gera betur við að efla atvinnulífið til lengri tíma. Þá er fjallað um samskipti atvinnulífsins og hins opinbera og segir hún að of lengi hafi atvinnulífið þurft að vinna fyrir kerfið þegar það ætti í raun að vera öfugt. Loks er fjallað um stöðuna í stjórnmálunum um þessar mundir og hvort nokkurn tímann gefist tími eða svigrúm til að ræða pólitísk málefni af yfirvegun og með málefnalegum hætti.

Spekingar Spjalla
160. Slúður, Topp 3, Hvort myndir þú frekar og Kaupa eða selja

Spekingar Spjalla

Play Episode Listen Later Apr 15, 2022 70:21

Spekingar hittust í Nóa Síríus stúdíói Podcastststöðvarinnar með Gull Lite og fóru yfir Páskana. Sæþór var vant við látinn og var hans saknað. Spekingar fóru yfir slúðrið þar sem okkar allra besta Kim Kardash kom við sögu. Topp 3 fór yfir helstu páskahefðir Spekinga og liðurinn “hvort myndir þú frekar” kom aftur eftir hlé. Kaupa eða selja var á sínum stað og að lokum fóru Spekingar yfir komandi viku og golfferð Matta og Jóns. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.

Fotbolti.net
Veit ekki hvort Guðjón Orri Carragher Sigurjónsson gefi kost á sér

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Apr 6, 2022

„Nei, það væri ekki ásættanlega niðurstaða. Við ætlum hærra en það. Við erum nýliðar í deildinni og kemur ekki á óvart að okkur sé spáð 9. sæti." „Við erum alveg með okkar markmið um hvað við ætlum að gera og það er eitthvað ofar en 9. sætið, við förum hærra en það og verðum helvíti fúlir með sjálfa okkur ef sú spá rætist." Þetta sagði Eiður Aron Sigurbjörnsson, fyrirliði ÍBV, við Fótbolta.net í gær. Rætt var við hann í tilefni af því að ÍBV er spáð 9. sæti í spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina. Sjá einnig: Spá Fótbolta.net - 9. sæti: ÍBV

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
"Hvernig ætli maður verði karlakarl?" -#263

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Mar 24, 2022 50:04

Hjálmar hefur aldrei séð skattkortið sitt. Hvort myndir þú setja málningarflyksur eða rassahár upp í þig? Hvaða lög vilja strákarnir spila í jarðaförinni sinni? Trúarjátningin og margt fleira í þessum þætti.IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!

Sterakastið
#52: Stripparar, klarinett & Fortnite

Sterakastið

Play Episode Listen Later Oct 11, 2021 72:22

Hvort er betra, pro gamer girlfriend eða pro clarinette girlfriend? Fortnite songs vs Minecraft songs? James Bond vs Spiderman? Let's find out. Þessi þáttur er í boði bestu kynlífstækjabúð heimsins, Blush og skemmtilegasta stefnumóta snjallforrits heims, Smitten!

The Snorri Björns Podcast Show
#94 Ásgeir Jónsson - Seðlabankastjóri Íslands

The Snorri Björns Podcast Show

Play Episode Listen Later Jun 30, 2021 89:15

Ásgeir Jónsson ólst upp í sveit og var illa tekið af samnemendum í grunnskólanum sínum. Hann átti erfitt með tal, var ólæs og lagður í einelti af jafnöldrum sínum. Þegar honum tókst loksins að lesa ákvað hann að fara alla leið í því námi sem hann tæki sér fyrir hendur. Eftir stutta viðkomu í líffræði, læknisfræði, á spítalanum og á sjónum endaði Ásgeir í hagfræði sem leiddi hann í starf aðalhagfræðings Kaupþings og nú Seðlabankastjóra Íslands. Ásgeir er var um sig og lærði fljótt í sínu starfi hjá Kaupþing að allir vildu vera vinir hans þegar vel gekk en önnur var sagan þegar bankinn hrundi. Í viðtalinu er stiklað á risastóru: Greining á Trump Að finna sér ævistarf sem maður elskar og hvað ungt fólk á að læra Að missa systur sína og átta sig á því hvað hann vildi gera við líf sitt Að taka helmingslaunalækkun og yfirgefa bankageirann Stam sem fötlun og ákvörðunin að þola það þegar fólk horfir á sig Framkoma nemenda og íslenskukennsla á Íslandi Ráðleggingar til fólks varðandi fjárfestingar í lágvaxtaumhverfi Hvort áhrif stýrivaxta á fasteignamarkaðinn komu Ásgeiri á óvart Ábyrgðin sem fylgir því að vera Seðlabankastjóri "Only the paranoid survive" Kostur og gallar þess að greina allt sem maður gerir í drasl Hvernig hann klæðir sig sem Seðlabankastjóri Íslands og hvað vasaklúturinn táknar