Hvernig geta sumar konur verið í algjörri tengingu við líkama og tilfinningar og aðrar virðast sigla í gegnum lífið án þess að nokkuð haggi þeim? Eru þær kannski bara að ljúga? Eða hafa kannski aldrei pælt í hvernig þeim líður?Við reynum okkar besta að svara þessari spurningu í þessum laaaanga þætti
Aðventuspjall: part 4| að vera eða vera ekki...heima by HRAUST
Við fórum (óvart) út um víðan völl í spjallinu sem átti að fjalla um líkamleg streitueinkenni. Börn og makar, uppeldi, megrunarhugsanir og samskipti voru meðal þess sem kom upp í tengslum við jólastressið.
Ert þú tilbúin til að taka kröfurnar niður um 50% fyrstu 3 árin?
Þungt spjall í léttum búning. Erum við búin að sjúkdómsvæða sorgina of mikið? Hvað gerist ef við leyfum henni bara að koma? Ert þú nokkuð kletturinn í lífi allra í kringum þig? Ertu að drepa sköpunargleðina þína með rembings-jákvæðni?
Það er flókið að vera foreldri. En það þarf ekkert endilega að vera alltaf erfitt. Þú þarft ekki að vera 100% alls staðar. Minnkum pressuna takk.
Hvað ef æfingaprógrammið þitt gæti aðlagað sig að þér? Þessi þáttur er upphafsspjallið úr nýja prógramminu okkar og eina "æfinga"prógramminu sem við komum til með að bjóða uppá næstu mánuðina. Ef þetta hljómar eins og eitthvað fyrir þig, fylgstu þá með 6. nóvember!
Þegar tvær teprur koma saman og tala um kynlíf þá koma allskonar skemmtilegir hlutir upp á yfirborðið. Við tókum upp spjall um kynlíf fyrir mömmuþjálfunina okkar en okkur fannst það eiga erindi við allar konur. Svo...gjöööriði svo vel!
Okkur langaði að deila með ykkur hluta af nýja námskeiðinu okkar. Þar sem við leiðum þig í gegnum skrefin sem við tókum til að koma okkur útúr vítahring streitu og orkuleysis, í rauninni á hraðleið í kulnun. Í þessu spjalli (úr öðrum hluta námskeiðsins) ræðum við um tilfinningar og allr sem þeim fylgir - góðum og slæmum.
Í þessum þætti spjöllum við um af hverju við gerum ekki hlutina eins og flestir aðrir þjálfarar, af hverju við viljum láta ÞIG ráða ferðinni og hvernig þú gætir kannski komist hjá því að keyra þig í kaf (áður en þú ert komin nálægt því)
Það er ansi vítt, umræðuefni dagsins, gildin í lífinu. Af hverju ertu gerirðu það sem þú gerir, af hverju gerirðu það eins og þú gerir og hefurðu endurskoðað gildin þín í lífinu nýlega?
Förum yfir hugarfar sem við höfum tileinkað okkur (eða vildum að við hefðum tileinkað okkur) á meðgöngu og í kjölfar fæðingar.
Förum yfir það hvernig við tókum upp örlítið chillaðri lífsstíl með líkamsvitund að vopni. Hvað gerist þegar við förum að hlusta á líkamann og fylgja því sem hann segir?
Agnes og Kara fara yfir allt það mikilvægasta sem tengist hreyfingu á meðgöngu og að byrja að hreyfa sig eftir fæðingu.
Agnes og Kara fara yfir algengar hugsanavillur sem hafa skaðleg áhrif á heilsuna