Podcasts about Okkur

  • 88PODCASTS
  • 230EPISODES
  • 1h 10mAVG DURATION
  • 1EPISODE EVERY OTHER WEEK
  • Jun 10, 2026LATEST
Okkur

POPULARITY

20192020202120222023202420252026


Best podcasts about Okkur

Latest podcast episodes about Okkur

Teboðið
#346 - Marketing x Anna Fríða ⭐

Teboðið

Play Episode Listen Later Jun 10, 2026 76:44


Það eru nokkrar MARKETING GEITUR á landinu og Anna Fríða er ein þeirra! What a women!!! Anna Fríða er ekki bara sæt, skemmtileg, klár og dugleg heldur er hún ekkert eðlilega góð í markaðssetningu og hefur verið í stöðu markaðsstjóra hjá mörgum flottustu fyrirtækjum landsins! Okkur hefur lengi langað til að eiga gott marketing spjall við Önnu og leyfa ykkur að kynnast þessum snilling, en núna the stars aligned, því vinkonur hennar heyrðu í okkur og við fengum ekki bara að taka gott viðtal við hana heldur líka vera partur af því að GÆSA hana!!   Þannig fyi ... spurningarnar í endann eru EKKI frá okkur heldur frá vinkonum hennar til að f***a aðeins í henni

Dr. Football
Vikulok Dr. Football - Evrópulönd líklegust á HM, Hjálmar segir okkur frá árinu 1994

Dr. Football

Play Episode Listen Later Jun 5, 2026 74:59


Doc. Gunnar Birgisson og Hjálmar Örn á föstudegi

football doc hj okkur segir gunnar birgisson
FM957
TRAFFÍKIN #27. MAÍ. 26 - Stærstu lygar sem við segjum okkur sjálfum

FM957

Play Episode Listen Later May 28, 2026 79:49


FM957
TRAFFÍKIN #29. APRÍL. 26 - Hvað segir okkur að fólk sé klárt?

FM957

Play Episode Listen Later Apr 30, 2026 69:04


okkur segir
Lestin
Popplagakrufning: Harry Styles, vorlegt rifrildi, Feneyjatvíæringurinn

Lestin

Play Episode Listen Later Apr 30, 2026 52:35


Harry Styles byrjaði í strákahljómsveitinni One Direction en hefur þróast og þroskast á fjórum sólóplötum. Nýlega gaf hann út plöt með athyglisvert nafn: Kiss all the time. Disco, occasionally. Í popplagakrufningunni í þetta skiptið ætlum við fara í saumana á laginu American Girls. Okkur til halds og trausts er að venju Friðrik Margrétar Guðmundsson, tónlistarmaður og tónskáld. Rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl flytur pistil. Hann er í vorskapi, finnur fyrir eigin ódauðleika og langar til að rífast ærlega. Svo fáum nýjustu fréttir af pólitísku deilumálunum á myndlistarhátíðinni Feneyjatvíæringnum sem við röktum fyrir nokkrum vikum í Lestinni. Já, og heyrum um framlag Vatíkansins á hátíðinni.

Ein Pæling
#548 Helgi Magnús Gunnarsson - Gunguskapur stjórnmálamanna hefur komið okkur á þennan stað

Ein Pæling

Play Episode Listen Later Apr 13, 2026 99:39


Þórarinn ræðir við Helga Magnús Gunnarsson, fyrrum vararíkissaksóknara, um stjórnmálin, ESB, útlendingamál, Gaza, kynjamál og fleira.Helgi segir ástandið í útlendingamálum vera til komið vegna stjórnmálamanna sem ekki hafa staðið í lappirnar á undanförnum árum og afleiðingin sé sú að við höfum flutt inn fólk sem vilja ekki aðlagast samfélaginu. Hann segir að fólkið sem hingað er komið hóta embættismönnum og að koma þurfi fjölmörgum úr landi sem hingað hafa leitað. Þetta hafi verið í boði Solaris sem hafi greitt stórfé til að koma fólki yfir landamærin ásamt öðrum meðvirkum félagasamtökum.Auk þess er rætt um ESB, stjórnmálin í breiðum skilningi, femínisma, uppsögn Helga sem vararíkissaksóknara og hvort að maður eigi að eignast börn.- Hefði Helga verið vikið úr embætti væri hann kona?- Höfum við flutt inn hryðjuverkamenn?- Var Stalín öfgavinstrimaður?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270  Samstarfsaðilar:  Poulsen  Happy Hydrate  Bæjarins Beztu Pylsur  Alvörubón  FiskhúsiðHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur:500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.meHappy Hydrate kóði: EINPAELING25

Dr. Football
Doc án landamæra - íslenski boltinn færir okkur sögurnar

Dr. Football

Play Episode Listen Later Oct 21, 2025 76:57


Doc, Keli og Sigurður Bond fara yfir boltann um allan heim.

Dr. Football
Doc án landamæra - Þú verður bara áfram hjá okkur Valdimar

Dr. Football

Play Episode Listen Later Sep 30, 2025 75:01


Doc, Ragnar Bragi og Sigurður Bond á þriðjudegi.

FM957
TRAFFÍKIN #11. SEPTEMBER. 2025 - Fortíðin læðist upp að okkur öllum

FM957

Play Episode Listen Later Sep 12, 2025 58:56


Víðsjá
Algjörar skvísur, Vikuspá og Áður en hrafnarnir sækja okkur

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 1, 2025 52:29


Rithöfundurinn Karítas Hrundar Pálsdóttir hefur gert árstíðir, dagatöl og vikudaga að útgangspunktum í örsagnassöfnum sínum, sem nú eru orðin þrjú. Það nýjasta ber titilinn Vikuspá, og geymir áttatíu og sex sögur á einföldu máli, sem líka eru aðgengilegar þeim sem eru að læra íslensku sem annað eða þriðja mál. Á vordögum kom út úrval úr ljóðum norksa ljóðskáldsins Knuts Ødegård, í þýðingu Gerðar Kristnýar, sem ber yfirskriftina Áður en hrafnarnir sækja okkur. Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í verkið í þætti dagsins. Sýningin Algjörar skvísur er sú fimmtánda í haustsýningarröð Hafnarborgar en að þessu sinni var tillaga þeirra Jösu Baka og Petru Hjartardóttur valin úr fjölda umsagna. Með sýningunni vilja þær kanna þemu sem tengjast mýkt, krafti og kvenlegri orku í samtímalist og við lítum við í Hafnarborg til að taka á þeim púlsinn.

kar baka okkur knut s soff rith algj birgisd kristn
Ein Pæling
#420 Árni Helgason - Umræðan heldur okkur í stanslausu uppnámi

Ein Pæling

Play Episode Listen Later May 24, 2025 105:43


Þórarinn ræðir við Árna Helgason, lögmann og varaþingmann Sjálfstæðisflokksins, um stjórnmál, hugmyndafræði, mannréttindabylgjur og margt fleira. Farið er yfir mismunandi hugðarefni er varðar veiðigjöldin, ríkisstjórnarsamband Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks fólksins, rétttrúnaðinn og hvernig samfélagið missti hausinn og útlendingamál. - Afhverju hefur útlendingaumræður breyst undanfarin ár? - Misstum við hausinn þegar við hlustuðum á Gretu Thunberg? - Eru veiðigjöldin sanngjörn? Þessum spurningum er svarað hér. Til að styðja við þetta framtak má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Ljárdalur.is Alvörubón

Mannlegi þátturinn
Málþingið Hvað um okkur? Og íslenskir ástargerðarmeistarar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 10, 2025 53:36


Á morgun standa Landssamtökin Þroskahjálp og diplómanám HÍ fyrir málþingi þar sem fatlað fólk er í aðalhlutverki. Yfirskrift málþingsins er „Hvað um okkur?“ Þar verða flutt erindi og svo fer fram óformlegt sófaspjall þar sem fólk með fötlun deilir sinni reynslu úr atvinnulífinu, menntun, aðgengismálum og bara lífinu sjálfu. Það eru hindranir og áskoranir á öllum þessum sviðum og þau sem upplifa þær daglega eru auðvitað best í því að miðla því hverjar þær eru. Hekla Björk Hólmarsdóttir og Jóhanna Brynja Ólafsdóttir komu í þáttinn og sögðu frá sinni reynslu og með þeim kom Anna Lára Steindal framkvæmdastjóri Þroskahjálpar. Fyrirtækið Livefood ehf. var stofnað í nóvember 2019 með það að markmiði að framleiða hágæða íslenska grænkera osta. Livefood festi kaup á iðnaðarhúsnæði í Hveragerði sem hefur aðgengi að jarðvarma þar sem þau rækta mikið af því hráefni sem notað er í þeirra vörur. Kartöfluostar eru sérstaða ostanna, eða ástanna, og þróunarvinna hefur staðið í langan tíma þar sem áherslan var lögð á að geta framleitt plöntuost úr íslensku hráefni. Þessa osta er hægt að rífa, sneiða, smyrja og bræða og við fengum Erlend Eiríksson ástagerðarmeistara og Ingólf Þór Tómasson, viðskiptafélaga hans til að segja okkur allt um þetta ævintýri í þættinum í dag. Tónlist í þættinum í dag: Þú komst við hjartað í mér / Hjaltalín (Toggi, Þorgrímur Haraldsson og Páll Óskar Hjálmtýsson) Samferða / Mannakorn (Magnús Eiríksson Þusund sinnum segðu já / Our Lives og Toggi (Rúnar Þórisson, Rafn Jónsson, Helgi Björnsson og Örn Jónsson, texti Helgi Björnsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

ing hva our lives hj kart eir ingi anna l haraldsson okkur brynja fyrirt hverager hjaltal helgi bj steindal
Ekkert að frétta
196 - Ég á mér draum

Ekkert að frétta

Play Episode Listen Later Mar 30, 2025 76:07


Okkur dreymir öll, sum bara meira en önnur. Það er ekkert til að skammast sín yfir.

Heimskviður
214 - Einangrun á Suðurskautinu, pólitískt írskt hip hop og viðburðaríkir dagar á Grænlandi

Heimskviður

Play Episode Listen Later Mar 29, 2025 45:06


Við ætlum heimskautanna á milli í þættinum í dag og einnig að huga að írska tungumálinu. Í síðustu viku bárust fréttir af ásökunum gegn manni sem er í rannsóknarleiðangri þar suðurfrá ásamt öðrum. Hann er sakaður um kynferðisofbeldi og líflátshótanir gegn félögum sínum í rannsóknarleiðangrinum, sem á að standa fram í desember. Okkur langaði að skyggnast betur inn í þennan heim og skoða betur hvaða áhrif algjör einangrun í svona langan tíma getur haft á fólk. Bjarni Pétur ræddi við Ólaf Ingólfsson sem hefur farið í fimm leiðangra á Suðurskautslandið og hann segir að það verði allir pínulítið skrítnir við þessar aðstæður. Getur hip hop bjargað írska tungumálinu? Það er góð spurning og kannski er tríóið Kneecap frá Norður-Írlandi með svarið við því. Írska er að minnsta kosti að ganga í endurnýjun lífdaga í rappi hljómsveitarinnar. Hljómsveitin hefur sagt markmið sitt vera að gera tungumálið aðgengilegra fyrir ungt fólk. En hvað er það við þessa hljómsveit sem hefur vakið nýjan áhuga á tungumálinu? Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir ræddi meðal annars við Áine Mangaong tónlistarfræðing um hljómsveitina, af hverju hún er einstök og írska tungumálið. Þá heyrum við í Hallgrími Indriðasyni, fréttamanni, sem hefur dvalið á Grænlandi síðust daga. Það hafa verið viðburðaríkir dagar þar, í gær kynnti ný ríkisstjórn samstarfssáttmála sinn og varaforseti Bandaríkjanna, J.D. Vance, sótti landið heim.

Naglacastið's Podcast
Stundum þurfum við bara að blaðra...

Naglacastið's Podcast

Play Episode Listen Later Feb 12, 2025 53:44


Send us a textÍ þessum þætti ræðum við allskonar skemmtilegt, hvað er að koma nýtt og hvað er vinsælt þessa dagana. Okkur finnst bara mjög gaman að tala einsog þið ættuð að vita ❤️Support the show

Lestin
Þau sjá okkur ekki í myrkrinu, japanska nýbylgjan, sovéskar röntgenplötur

Lestin

Play Episode Listen Later Dec 16, 2024 52:34


Kristín Eiríksdóttir, rithöfundur, segir frá nýju útvarpsverki Þau sjá okkur ekki í myrkrinu, sem verður flutt á Rás 1 um jólin. Verkið er skáldverk byggt á viðtölum við tvo Palestínumenn, Fadia og Ahmed, sem eru bæði búsett hér á landi. Þórður Ingi Jónsson fjallar um japönsku nýbylgjuna í kvikmyndagerð út frá myndunum Pale Flower og Woman in the Dunes. Og svo fáum við sendingu frá raftónlistarmanninum Jónasi Þór Guðmundssyni. Hann segir frá sovésku fyrirbæri, því þegar fólk greip til þess að nota röntgen myndir til að gera vínyl-plötur.

Fotbolti.net
Innkastið - Eigum að gera okkur vonir um HM 2026

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Nov 20, 2024


Ísland endaði í þriðja sæti í riðli sínum í Þjóðadeildinni eftir 1 - 4 tap gegn Wales í gær. Sjö stig en þau hefðu átt að vera miklu fleiri miðað við frammistöðuna. Baldvin Már Borgarsson og Haraldur Örn Haraldsson settust niður með Guðmundi Aðalsteini og fóru yfir landsleikjagluggann. Einnig rætt lengi um Age Hareide og hans framtíð sem landsliðsþjálfara. Næst er það undankeppni HM 2026 og þó það sé ekki búið að draga, þá megum við leyfa okkur að vona. Liðið er spennandi, en þá aðallega framarlega á vellinum.

Mannlegi þátturinn
Sjálfskaðahegðun unglinga, hvernig líður okkur á safni og listin að vera leiðinlegt foreldri

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 30, 2024 53:15


Unglingar sem stunda sjálfsskaðahegðun nota yfirleitt hegðunina til það ráða við og/eða þola sterkar og erfiðar tilfinningar, segir Kristín Inga Grímsdóttir, sérfræðingur í barna og unglingageðhjúkrun. Algengi sjálfsskaðahegðunar er á bilinu 13-40%, eftir því hvaða aldurshópur er skoðaður. En hverjar eru ástæður sjálfsskaðahegðunar unglinga og hvernig geta foreldrar brugðist við ef þau komast að því að unglingurinn er að skaða sig? Kristín Inga fræddi okkur frekar um þetta í þættinum. Hvernig líður okkur á safni? Hvað er það á safni sem lætur okkur líða vel og hvaða safn er okkur minnistætt hér á landi eða erlendis, þar sem okkur hefur liðið vel. Halldóra Arnardóttir er listfræðingur og stjórnandi verkefnisins Listir og menning sem meðferð við alzheimer. Hún kom til okkar í dag og við töluðum við hana um menningu, miðlun og sýnleika geðrænnar heilsu. Flestir foreldrar kannast við þá klemmu að þurfa að vera „leiðinlega foreldrið“, sem bannar það sem „allir“ aðrir leyfa, sem setur mörk og gerir kröfur. Okkur getur fundist að óþægilega margar setningar okkar sem foreldra byrji á „Nei“ eða „Ekki“. En þessi orð kunna kannski að vera þau mikilvægustu sem foreldrar segja við börn sín. Ársæll Már Arnarsson prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, kom í þáttinn og fræddi okkur um „Listina að vera leiðinlegt foreldri“ og fór með okkur yfir það að setja mörk og hvers vegna. Tónlist í þættinum Leikur að vonum / Mánar (Ólafur Þórarinsson, texti Jónas Friðrik) Haunted / Laufey (Laufey og Spencer Stewart) Á Akureyri / Óðinn Valdimarsson (Óðinn Valdimarsson) Í berjamó / Reggae on Ice (Stefán Örn Gunnlaugsson, Matthías Matthíasson og Hrólfur Sæmundsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

reggae hva nei krist matth halld ekki hvernig okkur listin gunnlaugsson arnarsson flestir arnard leikur valdimarsson menntav
Helgaspjallið
Þáttur 201 - Helgi, Pétur, Ingileif & María fara yfir mál líðandi stunda & viðhald góðs sambands

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Oct 23, 2024 78:18


Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid Iceherbs - Iceherbs.is Það mætti halda að við Pétur höfðum tekið ákvörðun um að kaupa íbúðina okkar vegna nágranna okkar, en hinum megin við götuna búa hjónin María Rut og Ingileif Friðriksdóttir, sem eru líka okkar bestu vinkonur. Okkur hefur lengi langað að taka upp þátt öll saman, en við höfum eytt ófáum stundum saman og rætt mikið saman sem hefði alltaf verið efni í góðan þátt. En í dag eru skemmtilegir hlutir að gerast, María og Pétur eru í framboði í Alþingiskosningunum yfirvofandi og erum við Ingileif auðvitað þeirra stærstu klappstýrur. Við ræðum saman um breytingar sem fólkið vill ásamt því að fara örlítið undir skinnið og ræðum okkar eigin sambönd hvað hefur verið áhrifaríkt til að halda góðu sambandi gangandi. Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
“Við gefum enga kynorku frá okkur” -#514

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Oct 17, 2024 10:57


Jólabingó Hæ Hæ verður Sunnudaginn 1. Desember í beinni útsendingu á pardus.isMagnús hringdi í Útvarp Sögu og sagði frá lífinu í Bolungarvík. Hjálmar er að fara með fjölskylduna til Tenerife og Helgi vill endilega kíkja með. Strákarnir ræddu hvað þeir ætla að kjósa en komust samt ekki að neinni niðurstöðu.IG helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe´a!Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!

Helgaspjallið
Þáttur 199 - María Rut & Pétur Björgvin kæró í gleðigír & fræða okkur m.a um Evrópusambandið

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Sep 30, 2024 67:56


Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid Ég get ekki sagt ykkur hvað er gaman að fá mitt besta fólk til mín í spjall, en á síðustu vikum og mánuðum höfum við María, Ingileif og Pétur eytt miklum tíma saman og bardúsað ýmislegt. Við förum yfir síðustu vikur, almenna gleði, haustþing Viðreisnar sem við sóttum, eftirminnilega ferð til Hrútafjarðar og Pétur og María fara yfir Evrópusambandið, sem ég veit að margir eru áhugasamir um núna þegar við erum vonandi að fara fá nýja ríkisstjórn og vonandi varanlegar breytingar og bætingar í landinu okkar. Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Skoðanabræður
#323 Þeim tekst ekki að brjóta okkur niður! (um Marc Andreessen)

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later Jul 19, 2024 21:05


Í þessum þætti fara bræðurnir yfir Marc Andreessen frumkvöðul frá A til Ö, þannig að þú þarft ekki að vita hver hann er til að byrja að hlusta. Hann skrifaði skjal að nafni Techno-Optimist Manifesto á dögunum, þar sem verulega verðmæta innsýn er að finna. Stjórnmál, fjárfestingar, andlegt ástand almennings, allsnægtahugarfarið, orkumál, allt mögulegt á milli himins og jarðar. Ef þú ert týndur og þér finnst hugmyndafræði þín ekki passa við daglegar athafnir þínar – hlustaðu á þennan þátt og sjáðu hvort þú getir látið þetta passa. 

Inga og Draugsi
50 þáttur - Síðasti þáttur Ingu & Draugsa í bili

Inga og Draugsi

Play Episode Listen Later Jul 8, 2024 18:28


Takk elsku krakkapakkarnir okkar fyrir að hlusta á þættina okkar. Við erum búin að eignast svo marga góða góða vini, búin að læra fullt af nýjum bröndurum og það er alltaf svo gaman með ykkur! Okkur hlakkar til að heyra í ykkur aftur! Haldið áfram að vera svona frábær, sniðug og best í heimi geimi! Knús í hús og fáðu þér Djús Kveðja Inga & Draugsi

Samfélagið
https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5283873D0.mp3Við kynnum okkur fuglastríðið í Garðabæ, stríð sem einna helst beinist gegn Sílamáfnum. Fyrir nokkrum árum fóru að berast fréttir af því að mávar héldu vöku f

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jun 13, 2024 58:01


Við kynnum okkur fuglastríðið í Garðabæ, stríð sem einna helst beinist gegn Sílamáfnum. Fyrir nokkrum árum fóru að berast fréttir af því að mávar héldu vöku fyrir íbúum í Sjálandshverfi og víðar, réðust jafnvel á börn á göngustígum. Bærinn hefur ráðist í aðgerðir vegna þessa og íbúar stofnað sérstakar mávasveitir. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Eirík Sigurðsson sem er meðlimur í einni slíkri mávasveit og Ástu Sigrúnu Magnúsdóttur, samskiptastjóra í Garðabæ. Bárujárn hefur þótt góð klæðning á hús hér á landi í langan tíma, síðan kom steining, sem hefur virkað vel, en undanfarin ár hafa álplötur í öllum regnbogans litum tekið völdin. Við eru plötuð með mismunandi klæðningum á stórum byggingum, þannig að þau líta út eins og mörg hús. Við fórum í bæinn og veltum fyrir okkur misjöfnum klæðningum bygginga með Magneu Guðmundsdóttur arkitekt. Stefáni Gíslasyni, umhverfisstjórnunarfræðingur flutti pistil í lok þáttar. Umsjón: Fanney Birna Jónsdóttir og Lísa Pálsdóttir.

Helgaspjallið
Þáttur 175 - Berglind Hilmars miðill um englaheilun - "Þeir elska að vinna fyrir okkur"

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Mar 31, 2024 79:40


Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Bpro - www.bpro.is Berglind Hilmars er ein stórmagnaðasta manneskja sem ég hef fengið að sitja með. Ég tel mig enn heppinn að hafa verið kynntur fyrir henni og sérstaklega að hafa tekið upp þennan þátt. Berglind er miðill, Usui Reiki master og er einnig með kennararéttindi í englafræði og englaheilun. En þó að við Berglind förum um víðan völl í þessum þætti ræðum við mikið um þetta fyrirbæri. Englar. Eru þeir til? Hvað gera þeir? Hvernig líta þeir út? Hvernig virkar þetta allt saman. Berglind svarar öllum spurningum og rúmlega það, hún tekur okkur í ferðalag í þennan nýja heim, sem að mínu mati er fallegur og vert að skoða fyrir alla. Því hvað ef þeir eru til? Og hvað ef þeir geta hjálpað okkur að umfylla allt sem við óskum okkur? Njótið þáttarins og að hlusta á þessa mögnuðu konu. Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Naglacastið's Podcast
Stundum þurfum við bara að blaðra.

Naglacastið's Podcast

Play Episode Listen Later Mar 31, 2024 53:44


Í þessum þætti ræðum við allskonar skemmtilegt, hvað er að koma nýtt og hvað er vinsælt þessa dagana. Okkur finnst bara mjög gaman að tala einsog þið ættuð að vita

Lífið með Lindu Pé
168. Að njóta vegferðarinnar

Lífið með Lindu Pé

Play Episode Listen Later Feb 28, 2024 24:08


Eitt af því sem ég hef tekið eftir bæði með sjálfa mig og konurnar sem ég er að þjálfa er að við höfum sögu um að markmiðasetning sé alvarlegur hlutur. Okkur þarf að vera dauðans alvara og við þurfum að vera tilbúnar að gefa allt upp á bátinn sem okkur hefur fundist gaman og gott. En hvað ef að það þarf alls ekki að vera svona alvarlegt og gæti verið gaman? →Til þess að fá bæklinginn: 

Samfélagið
Heitavatnsleysi, algóriþminn sem elur okkur upp, tilraunaeldhús Matís og fræskiptamarkaður

Samfélagið

Play Episode Listen Later Feb 9, 2024 55:00


Dregið hefur verulega úr eldgosinu á Reykjanesskaga - en enn er heitavatnslaust og sums staðar kaldavatnslaust. Þorgils Jónsson, fréttamaður sem er búinn að vera á vaktinni á Suðurnesjum í dag verður á línunni hjá okkur. Börn verja mörg miklum tíma á netinu og þar er ýmislegt sem þarf að varast. Skúli Bragi Geirdal, fjölmiðlafræðingur og verkefnastjóri miðlalæsis hjá Fjölmiðlanefnd, hefur undanfarið haldið fyrirlestra með yfirskriftinni - Algóriþminn sem elur mig upp. Hvernig geta foreldrar sett börnum sínum mörk og verndað þau í síbreytilegum stafrænum veruleika - veruleika sem þeir þekkja kannski ekki almennilega sjálfir? Ráða fullorðnir sjálfir við tækin? Við heimsækjum Matarsmiðju Matís sem er suðupottur þegar kemur að nýsköpun á sviði matargerðar. Ræðumvið Óla Þór Hilmarsson, kjötiðnaðarmann og verkefnastjóra og hittum einn af þeim sem nýta smiðjuna, Jón Örvar Geirsson hjá fyrirtækinu Bone and marrow. Nú fer fram fræskiptamarkaður í Borgarbókasafninu í Sólheimum. Lísbet Perla Gestsdóttir, sérfræðingur á Sólheimasafninu, segir okkur frá honum.

Þjóðmál
#194 – Að loknu Viðskiptaþingi – Hvað eru fylgistölur stjórnmálaflokka að segja okkur?

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Feb 8, 2024 82:59


Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson ræða um Viðskiptaþing, hvernig Viðskiptaráð hefur þróast, hvort að stjórnendur í atvinnulífinu eigi að taka þátt í þjóðfélagsumræðunni og þá hvernig, um samskipti einkageirans og hins opinbera, hvort að áhersla fyrirtækja á samfélagsskýrslur fari þverrandi og fleira þessu tengt. Þá er einnig tekin umræða um stöðuna í stjórnmálunum, hvort að ólík afstaða stjórnarflokkanna í mörgum málum geri stjórnarsamstarfið erfiðara en það er nú þegar, um fylgi flokkanna í skoðanakönnunum og hvort það hefur áhrif á stefnur og mannaval – og margt annað í pólitíkinni.

Pyngjan
Föstudagskaffið: Loðnan snertir okkur öll

Pyngjan

Play Episode Listen Later Jan 26, 2024 52:33


Það var stór fréttavikan í þetta skiptið. House of SKEL að taka yfir, húsnæðismarkaður til fjandans, endurgreiðsla vegna kvikmyndagerðar óþörf og fleira til. Góða helgi kæru Pyngjuhálsar!

Handkastið
Heilladísirnar halda okkur inná EM - Algjört afhroð gegn Ungverjum

Handkastið

Play Episode Listen Later Jan 16, 2024 69:00


Svartfjallaland tryggði íslenska landsliðinu sæti í milliriðil á EM fyrr í dag. Farið yfir leik Íslands og Ungverjalands sem tapaðist með átta mörkum. Logi Geirsson var á línunni frá Þýskalandi og fór yfir þetta allt saman með Sérfræðingnum, Ponzunni og Gunnari Birgissyni lýsanda stóru leikjanna á RÚV. Framundan eru fjórir leikir í milliriðli þar sem allt getur gerst. Vonin um verðlaunasæti lifir enn.

rv inns fari okkur halda framundan algj ungverjalands
Normið
238. Halldóra Geirharðs - "Aldrei hætta að vera forvitin"

Normið

Play Episode Listen Later Dec 12, 2023 79:42


*Prentmiðlar og fjölmiðlar hafa ekki leyfi til þess að skrifa upp úr þessu viðtali nema sérstakt leyfi sé gefið af Halldóru sjálfri* Halldóra Geirharðs hefur verið á bucketlistanum okkar yfir viðmælendur í langan tíma og því er einstaklega vel við hæfi að hún sé okkar síðasti viðmælandi. Margt fólk sem hefur komið til okkar í Normið hefur haft orð á því hversu mikil fagkona og viskubrunnur hún er. Við erum hjartanlega sammála því. Okkur þótti óendanlega vænt um að fá að kroppa í huga Halldóru - njótið vel kæru hlustendur. Þessi fer á dýptina. 

Ekkert að frétta
134 - Allt sem pirrar okkur!

Ekkert að frétta

Play Episode Listen Later Oct 23, 2023 132:11


Í þættinum tökum við upp nýtt lag, tölum um allt sem pirrar okkur og að sjálfsögðu top 5 listana sem eru orðnir fastur liður hjá okkur. Mjög hefðbundinn þáttur sem sagt.

Þú veist betur
Strengjafræði - 1.hluti

Þú veist betur

Play Episode Listen Later Sep 3, 2023 55:00


Við erum sífellt að reyna að skilja hlutina í kringum okkur betur. Hvort sem það er með athugunum, tilgátum, kenningum eða tilraunum viljum við vita af hverju heimurinn í kringum okkur er eins og hann er. Því manneskjan er hugsanlega eina dýrategundin sem á oft erfitt með að upplifa án þess að spyrja af hverju. Okkur hefur gengið frekar vel að svara þessari spurningu í gegnum tíðina, en höfum tekið gríðarlegt stökk á síðustu 100 árum eða hér um bil. Ég hef áður forvitnast um hluti eins og eðlisfræði, skammtafræði, svarthol, stærðfræði og kjarnorku svo einhver dæmi séu nefnd, en það er ein fræðigrein sem sat eftir. Og það var sú fræðigrein sem gerir tilraun til að svara sumum af erfiðustu spurningunum sem við höfum, hvað er það sem gerist við mikla hvell og hvað á sér eiginlega stað inn í svartholum? Mér finnst vert að benda á að auðvitað er hægt að hlusta á fyrrnefnda þætti til að glöggva sig á alls kyns hlutum sem munu líklegast koma sér vel þegar hlustað er á fyrstu tvo þætti nýrrar seríu af Þú veist betur, en þó strengjafræðin sé vissulega snúið viðfangsefni reyndi ég að nálgast og bera efnið fram án þess að það þyrfti að undirbúa sig mikið fyrst. En við skulum öll átta okkur á því að hér er alls ekki skrýtið eða vandræðalegt að skilja ekki, þættirnir tveir gera næstum þá kröfu að við segjum skilið við það sem við héldum að við vissum og opnum hugann fyrir einhverju sem satt best að segja getur vel hljómað eins og vísindaskáldskapur. Eitt lykilorð áður en við byrjum, hið viðtekna líkan (standard model) er eitthvað sem verður nefnt nokkuð oft. Strengjafræðin er grein sem reynir að sameina þyngdarfræði og skammtafræði, sem eiga ekki gott með að tala saman, á hátt sem opnar svo fyrir möguleikann að útskýra hlutina sem ég nefndi áður. Ef þið eruð ekki ringluð ennþá, búið ykkur undir að heyra um víddir sem þið vissuð ekki að gætu verið til, úr hverju rafeindir, róteindir og nifteindir eru búnar til úr og hvernig þegar öllu er á botninn hvolft, erum við öll hugsanlega bara strengir titrandi á ólíkum tíðnum. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Friðrik Freyr Gautason

Þú veist betur
Strengjafræði - 1.hluti

Þú veist betur

Play Episode Listen Later Sep 3, 2023


Við erum sífellt að reyna að skilja hlutina í kringum okkur betur. Hvort sem það er með athugunum, tilgátum, kenningum eða tilraunum viljum við vita af hverju heimurinn í kringum okkur er eins og hann er. Því manneskjan er hugsanlega eina dýrategundin sem á oft erfitt með að upplifa án þess að spyrja af hverju. Okkur hefur gengið frekar vel að svara þessari spurningu í gegnum tíðina, en höfum tekið gríðarlegt stökk á síðustu 100 árum eða hér um bil. Ég hef áður forvitnast um hluti eins og eðlisfræði, skammtafræði, svarthol, stærðfræði og kjarnorku svo einhver dæmi séu nefnd, en það er ein fræðigrein sem sat eftir. Og það var sú fræðigrein sem gerir tilraun til að svara sumum af erfiðustu spurningunum sem við höfum, hvað er það sem gerist við mikla hvell og hvað á sér eiginlega stað inn í svartholum? Mér finnst vert að benda á að auðvitað er hægt að hlusta á fyrrnefnda þætti til að glöggva sig á alls kyns hlutum sem munu líklegast koma sér vel þegar hlustað er á fyrstu tvo þætti nýrrar seríu af Þú veist betur, en þó strengjafræðin sé vissulega snúið viðfangsefni reyndi ég að nálgast og bera efnið fram án þess að það þyrfti að undirbúa sig mikið fyrst. En við skulum öll átta okkur á því að hér er alls ekki skrýtið eða vandræðalegt að skilja ekki, þættirnir tveir gera næstum þá kröfu að við segjum skilið við það sem við héldum að við vissum og opnum hugann fyrir einhverju sem satt best að segja getur vel hljómað eins og vísindaskáldskapur. Eitt lykilorð áður en við byrjum, hið viðtekna líkan (standard model) er eitthvað sem verður nefnt nokkuð oft. Strengjafræðin er grein sem reynir að sameina þyngdarfræði og skammtafræði, sem eiga ekki gott með að tala saman, á hátt sem opnar svo fyrir möguleikann að útskýra hlutina sem ég nefndi áður. Ef þið eruð ekki ringluð ennþá, búið ykkur undir að heyra um víddir sem þið vissuð ekki að gætu verið til, úr hverju rafeindir, róteindir og nifteindir eru búnar til úr og hvernig þegar öllu er á botninn hvolft, erum við öll hugsanlega bara strengir titrandi á ólíkum tíðnum. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Friðrik Freyr Gautason

Helgaspjallið
Þáttur 149 - Ágústa Kolbrún um mikilvægi sjálfstals, sjálfsmildi og foreldra okkur sjálf

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Jul 31, 2023 85:13


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Starbucks Take-Away drykkir - fæst í Bónus og N1 Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Ágústa Kolbrún Roberts er mikill brauðryðjandi í andlegum málum á Íslandi, en hún sprakk fyrst á samfélagsmiðlum þegar hún deildi myndböndum árið 2011 með andlegum hugleiðingum og hefur síðan þá tileinkað lífinu sínu í að aðstoða fólk með að tengjast sjálfum sér betur. Ágústa er jóga kennari og heilari og byrjaði vegferð hennar snemma eftir erfiða æsku þegar hún ferðaðist til Ítalíu og naut sína með indjánum í Ameríku aðeins tvítug. Við förum yfir allskonar viðfangsefni, meðal annars hvernig við þurfum að læra og skoða að sitja með okkur, foreldra okkur, tala fallega til okkar og þannig ná tökum á hver við erum innra með okkur. Við tölum um innsæið og andleg ferðalög ásamt svo mörgu öðru. Þið finnið Ágústu á samfélagsmiðlum, Instagram og Tiktok undir nafninu: @agustajoga - Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Dr. Football
Doc án landamæra - Enn niðurlægja Danir okkur í Kópavoginum

Dr. Football

Play Episode Listen Later Jul 25, 2023 75:25


Gunnar Birgisson og Ingó Sig voru mættir til Dr. Football eftir leik Breiðabliks og FCK.

football ing sig fc k brei okkur danir gunnar birgisson
Lestin
Gervigreindar-Lestin #1-2: Hvernig gerum við okkur óþörf?

Lestin

Play Episode Listen Later Jun 26, 2023 55:00


Kristján og Lóa fengu hugmynd: Að framleiða fyrsta íslenska útvarpsþáttinn sem er alfarið búinn til af gervigreind. Það reynist flóknara mál en þau óraði fyrir, bæði hvað framkvæmdina varðar og siðferðislega svo nú eru þau í vandræðum. Getur þátturinn í alvöru orðið að veruleika? Hvað þýðir það að tölva geti talað með röddinni þeirra? Mun tæknin gera þau atvinnulaus? Í þessum fyrsta þætti reyna þau að komast að því hvar þau eiga að byrja. Hver eru fyrstu skrefin? Hvernig gera þau sig óþörf? Þau rekast á hindranir og þurfa að meta stöðuna alveg upp á nýtt.

Lestin
Gervigreindar-Lestin #1-2: Hvernig gerum við okkur óþörf?

Lestin

Play Episode Listen Later Jun 26, 2023


Kristján og Lóa fengu hugmynd: Að framleiða fyrsta íslenska útvarpsþáttinn sem er alfarið búinn til af gervigreind. Það reynist flóknara mál en þau óraði fyrir, bæði hvað framkvæmdina varðar og siðferðislega svo nú eru þau í vandræðum. Getur þátturinn í alvöru orðið að veruleika? Hvað þýðir það að tölva geti talað með röddinni þeirra? Mun tæknin gera þau atvinnulaus? Í þessum fyrsta þætti reyna þau að komast að því hvar þau eiga að byrja. Hver eru fyrstu skrefin? Hvernig gera þau sig óþörf? Þau rekast á hindranir og þurfa að meta stöðuna alveg upp á nýtt.

Lífið með Lindu Pé
134. Dramað í lífinu

Lífið með Lindu Pé

Play Episode Listen Later Jun 7, 2023 17:43


Á hverjum degi skrifa ég niður markmiðin mín. Sama hver markmiðin eru skrifa ég þau niður. Þú vilt aldrei láta heilann gleyma því sem er þér mikilvægast. Okkur finnst auðvelt að einblína á það sem er að eða virkar ekki en ef þú vilt vera manneskjan sem hugsar um markmiðin sín þegar lífið er erfitt, þá þarftu að vera sú sem hugsar um markmiðin sín með virkum hætti og með því að skrifa þau niður á hverjum einasta degi. Flesta daga er það erfitt. Þú nennir því ekki eða finnst þú ekki hafa tíma til þess eða þá að þér finnst framfarirnar ekki nægilega miklar. En það er á þessum augnablikum sem ég segi sjálfri mér að dramað í lífi mínu sé ekki meira virði en markmiðin mín. Þátturinn er upptaka af eldri vinnustofu úr LMLP prógramminu þar sem ég tók fyrir allskyns efni og finnst mikilvægt að deila hér.   LOKAÐ ER FYRIR SKRÁNINGU-BIÐLISTIAðgangsglugginn í LMLP prógrammið er nú lokaður. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA   NÁNARI UPPLÝSINGAR: Magasínið Lífið með Lindu Pé Ókeypis áskrift! Í vikulega rafræna magasíninu mínu ætla ég að fjalla um hvernig ÞÚ getur lifað draumalífinu þínu. Efnistök verða meðal annars; Lífsstíll, heilsa, uppskriftir, fegurð, ferðalög, stíll, viðtöl og svo auðvitað innsýn inn í lífið mitt. Þetta vefrit verður hvatning til þeirra sem það lesa til að bæta eigin lífstíl og gera þær breytingar sem þarf til að lifa draumalífinu. Magasínið Lífið með Lindu Pé á netfangið þitt, alla sunnudaga. Smelltu hér til að skrá þig í ókeypis áskrift.  28 daga Heilsuaáskorun Ertu komin/n með nóg af sykri og unninni færðu? Þá skaltu hreinsa til í mataræðinu með 28 daga Heilsuáskorun. Þeta er einfalt: Þú skiptir út einni máltíð fyrir einn heilsudrykk. Stútfullt efni af ráðum og uppskriftum af allskyns saðsömum þeytingum sem bæta heilsuna. Einfalt, bragðgott og virkar!  HBOM (Hættu að borða of mikið). Hvernig myndi þér líða ef þú grenntist um 5, 10 eða 20 kíló? 4 vikna vefnámskeið, þú lærir nýja aðferð til þess að hætta að borða of mikið. 7 daga áætlun að vellíðan Fáðu aukna vellíðan í þitt daglega líf, meiri lífsgæði og heilsan bætist. Dagleg áætlun, uppskriftir að mataræði í 7 daga, ráð o.mfl. Heimasíða Lindu  Skoðaðu allt sem er í boði og skráðu þig á ókeypis póstlista. LMLP  Prógrammið Lífið með Lindu Pé. Lokað er fyrir skráningu. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA InstagramSendu mér endilega skilaboð og segðu mér hvað þú tókst með þér úr þættinum. I-tunes meðmæli Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!

Lífið með Lindu Pé
128. Viltu vera með okkur?

Lífið með Lindu Pé

Play Episode Listen Later Apr 12, 2023 39:18


Í þessum þætti spjalla þær Linda, Ásthildur og Dögg saman, sem vinna allar í LMLP prógramminu, og segja þér frá því af hverju þeim finnst svo gaman og gefandi að vinna við að hjálpa konum að bæta líf sitt. Þær tala um hvernig þær hafa sjálfar gert breytingar á eigin lífi og hvað þeim finnst skipta mestu máli - og margt fleira. Teymið er með breiða menntun og reynslu og eru sérfræðingar á sínum sviðum.   ✅ Nú er OPIÐ í LMLP prógrammið, en aðeins í örfáa daga! Þú hefur til 16. apríl að skrá þig. Skráðu þig með því að smella hér Aðgangsgluggi LMLP lokar 16. apríl kl.23.59. Gríptu tækifærið núna; Skráðu þig og gerðu breytingarnar á lífi þínu sem þig hefur svo lengi langað til að gera. Ath. Það opnar ekki aftur fyrr en síðar á árinu. https://www.lindape.com/skramig   Þegar þú skráir þig færðu strax aðgang að fjölbreyttu efni sem leiðir þig í átt að markmiðum þínum og draumum. Þú lærir hvernig hugsanir þínar hafa áhrif á líðan þína og í LMLP prógramminu kenni ég þér aðferð til að vinna með og stjórna hugsunum þínum. https://www.lindape.com/skramig  

Helgaspjallið
Þáttur 133 - Nína Hundaþjálfari um hvað hvernig við lærum á okkur í gegnum hunda -

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Mar 30, 2023 90:25


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum Ég var að versla fyrir Noel í versluninni Móra á Nýbýlavegi þegar það labbar inn kona, hún er nett klædd, með tattoo á hökunni, smitandi bros og ekkert eðlilega kröftuga nærveru. Það er Nína hundaþjálfari og er gestur minn að þessu sinni, en ég spurði hana þá og þarna hvort hún hefði áhuga á að koma í hlaðvarpið. Hún að engu leyti valdi vonbrigðum því dældi útúr sér visku og innblæstri bæði í lífinu og í tengslum við hundana, sem við erum sammála um að eru mögnuðustu verur sem við eigum á þessari jörð. Við förum mikið yfir hvað við getum hreinlega lært af hundunum og hversu mikil gjöf þeir eru. Að því leyti hvernig við upplifum þá þegar við eigum þá en einnig bara hvað þeir standa fyrir sem verur. Við förum yfir það og svo margt meira. Njótið vel. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

hvernig podcast st okkur l rum heilsa fjar
Normið
200! SPRENGJUM UPP NORMIÐ

Normið

Play Episode Listen Later Mar 4, 2023 95:02


ÞÁTTUR NÚMER 200 gott fólk!!! Við Eva og Sylvía tókum einn extra hráan þátt í tilefni þess og ræddum hvernig okkur finnst að það megi sprengja upp þetta blessaða norm sem mótar okkur flest. Okkur varð smá heitt í hamsi.. en hvað er það á milli vina.. :)  (Þessi þáttur er örstutt hlé á ADHD seríunni) 

adhd sylv okkur normi
Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
"20 Bretar ætluðu í okkur!" -#356

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Feb 27, 2023 61:50


"20 Bretar ætluðu í okkur!" -#356Hjálmar, Helgi og Ágústa tala um kynlíf og fleira. Hjálmar þurfti að hringja í Ljósbrá og viðurkenna smá slys. Lítill Mexikani með el sobrelo lék Hjálmar grátt. Helgi er sterkur í daðrinu.Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!

Normið
184. Ótakmarkaður aðgangur að gleði!

Normið

Play Episode Listen Later Nov 7, 2022 73:15


Okkur langaði að aðgerðabinda hugtaki gleði, hvernig við finnum fyrir tilfinningunni, hvar við finnum hana og hvað veitir okkur almenna gleði. Þessi þáttur er ávísun á gott þakklæti í hjartað og mikilvægi þess að staldra við og eiga þessa vinnu. Það gerir lífið innihaldsríkara!  Fylgið okkur endilega inná normidpodcast á instagram og ef þið viljið vera extra nice þá væri frábært að fá stjörnur frá ykkur og subscribe inná Podcast appinu eða Spotify!   

Lífið með Lindu Pé
95. Að njóta vegferðarinnar

Lífið með Lindu Pé

Play Episode Listen Later Aug 22, 2022 23:16


Eitt af því sem ég hef tekið eftir bæði með sjálfa mig og konurnar sem ég er að þjálfa er að við höfum sögu um að markmiðasetning sé alvarlegur hlutur. Okkur þarf að vera dauðans alvara og við þurfum að vera tilbúnar að gefa allt upp á bátinn sem okkur hefur fundist gaman og gott. Sérstaklega þegar markmiðið snýst um þyngdarstjórnun. En hvað ef að það þarf alls ekki að vera svona alvarlegt og gæti verið gaman? Hlustaðu til að að læra hvernig þú getur notið vegferðarinnar. - - -  Hvernig myndi þér líða  ef sjálfsmynd þín væri sterk, aukakílóin væru horfin og þú værir að lifa draumalífinu þínu? Smelltu hér. NÁNARI UPPLÝSINGAR: Magasínið Lífið með Lindu Pé Ókeypis áskrift! Í vikulega rafræna magasíninu mínu ætla ég að fjalla um hvernig ÞÚ getur lifað draumalífinu þínu. Efnistök verða meðal annars; Lífsstíll, heilsa, uppskriftir, fegurð, ferðalög, stíll, viðtöl og svo auðvitað innsýn inn í lífið mitt. Þetta vefrit verður hvatning til þeirra sem það lesa til að bæta eigin lífstíl og gera þær breytingar sem þarf til að lifa draumalífinu. Magasínið Lífið með Lindu Pé á netfangið þitt, alla sunnudaga. Smelltu hér til að skrá þig í ókeypis áskrift. 28 daga Heilsuaáskorun Ertu komin/n með nóg af sykri og unninni færðu? Þá skaltu hreinsa til í mataræðinu með 28 daga Heilsuáskorun. Þeta er einfalt: Þú skiptir út einni máltíð fyrir einn heilsudrykk. Stútfullt efni af ráðum og uppskriftum af allskyns saðsömum þeytingum sem bæta heilsuna. Einfalt, bragðgott og virkar!  7 daga áætlun að vellíðan Fáðu aukna vellíðan í þitt daglega líf, meiri lífsgæði og heilsan bætist. Dagleg áætlun, uppskriftir að mataræði í 7 daga, ráð o.mfl. Heimasíða Lindu  Skoðaðu allt sem er í boði og skráðu þig á ókeypis póstlista. LMLP  Hér færðu Lindu sem lífsþjálfa þinn. Vikulegir fundir, þú losar þig við aukakílóin, byggir upp sjálfsmyndina, færð aukið sjálfstraust og trú á þig sjálfa-og þú ferð að lifa draumalífin þínu. Skráðu þig í prógrammið Lífið með Lindu Pé. HBOM (Hættu að borða of mikið). Hvernig myndi þér líða ef þú grenntist um 5, 10 eða 20 kíló? 4 vikna vefnámskeið, þú lærir nýja aðferð til þess að hætta að borða of mikið. InstagramSendu mér endilega skilaboð og segðu mér hvað þú tókst með þér úr þættinum. I-tunes meðmæli Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
"Það besta sem kæmi fyrir okkur væri ef það væru auka jól í júlí" -#293

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Jul 4, 2022 60:41


Bragi Valdimar Skúlason kíkti til okkar. Hann segir okkur hvernig á að halda alvöru jólatónleika, hvernig á ekki að festast á teini í Rússlandi, en hann ákvað snemma að honum langaði bara að gera skemmtilega hluti.Instagram: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!

Hismið hlaðvarp
Lokadans Hismisins - Takk fyrir okkur!

Hismið hlaðvarp

Play Episode Listen Later Jul 1, 2022 64:34


Hismið þakkar fyrir sig og kveður eftir níu góð ár í loftinu. Í lokaþættinum, sem tekinn var upp í beinni í brugghúsinu Ægisgarði að viðstöddum 160 manns, förum við yfir upphafið, söguna, helstu rekstrartölur þáttarins, fáum til okkar góða gesti og gösum um ekkert í síðasti skipti. Takk fyrir okkur!

Lífið með Lindu Pé
87. Talan á vigtinni

Lífið með Lindu Pé

Play Episode Listen Later Jun 27, 2022 15:26


Eitt það erfiðasta sem við gerum þegar við erum að létta okkur er að stíga á vigtina. Það er gjarnan eitt af okkar eitruðustu samböndum. Við förum að trúa því að talan á vigtinni stjórni okkur. Við verðlaunum okkur fyrir að léttast og við borðum til að refsa okkur fyrir að léttast ekki. Okkur er kennt að vigtin sé djöfullinn sjálfur og stundum langar okkur hreinlega að mölva hana. En  það eina sem gerist raunverulega þegar við vigtum okkur er að vigtin sýnir okkur einhverja tölu sem kveikir á hugsun í heilanum. Mörg okkar forðast að vigta sig sem þýðir að við erum í raun að forðast samband við okkur sjálf. Við ímyndum okkur að ef við hunsum það sem kemur okkur í uppnám þá leiði það af sér minna uppnám. Og þegar við hunsum hluti sem koma okkur í uppnám missum við af tækifæri til að breyta samtalinu sem á sér stað í höfðinu á okkar. Hlustaðu til að laga samband þitt við vigtina.   NÁNARI UPPLÝSINGAR: 28 daga Heilsuaáskorun Ertu komin/n með nóg af sykri og unninni færðu? Þá skaltu hreinsa til í mataræðinu með 28 daga Heilsuáskorun. Þeta er einfalt: Þú skiptir út einni máltíð fyrir einn heilsudrykk. Stútfullt efni af ráðum og uppskriftum af allskyns saðsömum þeytingum sem bæta heilsuna. Einfalt, bragðgott og virkar!  7 daga áætlun að vellíðan Fáðu aukna vellíðan í þitt daglega líf, meiri lífsgæði og heilsan bætist. Dagleg áætlun, uppskriftir að mataræði í 7 daga, ráð o.mfl. Heimasíða Lindu  Skoðaðu allt sem er í boði og skráðu þig á ókeypis póstlista. LMLP  Hér færðu Lindu sem lífsþjálfa þinn. Vikulegir fundir, þú losar þig við aukakílóin, byggir upp sjálfsmyndina, færð aukið sjálfstraust og trú á þig sjálfa-og þú ferð að lifa draumalífin þínu. Skráðu þig í prógrammið Lífið með Lindu Pé. HBOM (Hættu að borða of mikið). Hvernig myndi þér líða ef þú grenntist um 5, 10 eða 20 kíló? 4 vikna vefnámskeið, þú lærir nýja aðferð til þess að hætta að borða of mikið. InstagramSendu mér endilega skilaboð og segðu mér hvað þú tókst með þér úr þættinum. I-tunes meðmæli Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!

Fotbolti.net
Ástríðan - 3. umferð - Magnaður Kristófer og ekki tala við okkur um virðingu

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later May 24, 2022


Sverrir Mar og Gylfi Tryggva settust niður og fóru yfir þriðju umferðina í 2. og 3. deild karla.Meðal umræðuefnis:Garðurinn fékk virðingu en fleygði henni, KFG heldur áfram að skora eftir þörfum, Káramenn steinlágu á Króknum, Völlarar rændir og nú þurfa nokkur lið að fara að vakna.Þátturinn er í boði Bola, Jako, Ice, Pizzunnar þar sem hlustendur geta notað afsláttarkóðann "astridan" til að fá 40% afslátt og Acan Wines inná acan.is.Hægt er að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.