Míó minn hundaspjall

Follow Míó minn hundaspjall
Share on
Copy link to clipboard

Hlaðvarpsþáttur um hundatengd málefni. Umsjónarmaður er Freyja Kristinsdóttir dýralæknir og hundaþjálfari.

hundaspjall

  • Jun 17, 2020 LATEST EPISODE
  • monthly NEW EPISODES
  • 32m AVG DURATION
  • 9 EPISODES


Search for episodes from Míó minn hundaspjall with a specific topic:

Latest episodes from Míó minn hundaspjall

#09 Hundafréttir vikunnar

Play Episode Listen Later Jun 17, 2020 13:23


Það var margt að frétta í vikunni. Hundaheimildamynd á RÚV, hundsbit, hundagerði og hundar í Kringlunni. Í þættinum fer ég yfir allar þessar fréttir og umræður um þær á samfélagsmiðlum. 

#08 Hundagerði

Play Episode Listen Later May 7, 2020 40:16


Guðfinna Kristinsdóttir er gestur þáttarins að þessu sinni. Guðfinna er einn stjórnenda Hundasamfélagsins á facebook, og er auk þess í stjórn Félags ábyrgra hundaeigenda. Við ræddum saman um hundagerðin í Reykjavík, meðal annars nýjasta gerðið á teikniborði Reykjavíkurborgar sem á að setja upp í Vesturbænum. Útfærslan á þeirri tillögu er vægast sagt umdeild, eins og við förum yfir í okkar spjalli. Tillaga að breytingu deiliskipulags við Vesturbæjarlaug:https://reykjavik.is/sites/default/files/ymis_skjol/skipogbygg/skjol/vesturbaejarsundlaug_-_hofsvallagata_54_deiliskipul.-_og_skyringaruppdr.pdfBréf FÁH til skipulagsfulltrúa:https://documentcloud.adobe.com/link/track?uri=urn:aaid:scds:US:3c0c335b-c6a7-451e-a56e-f6a5ad15150c

#07 Covid-19 og hundahald

Play Episode Listen Later Mar 30, 2020 12:21


Covid-19 er fyrst og fremst sjúkdómur sem við mannfólkið þurfum að berjast við, en áhrifanna gætir víða, og í þætti dagsins fer ég yfir hvernig Covid-19 hefur mögulega áhrif á hundahald. 

#06 Hundavinir Rauða Krossins

Play Episode Listen Later Mar 25, 2020 23:12


Rauði Krossinn í Kópavogi hefur verið með verkefnið "Heimsóknarvinur með hund" síðastliðin 10 ár. Verkefnið er afskaplega vinsælt, enda gleður það flesta að fá ferfætta loðna vini í heimsókn. Í þessum þætti kíki ég í eina slíka heimsókn og spjalla við Rakeli Árnadóttur og Elísabetu Esther Sigurðardóttur. Síðar í þættinum slæ ég svo á þráðinn til Rauða Krossins og heyri í Sigríði Ellu Jónsdóttur, verkefnastjóra Hundavinaverkefnisins. Rauði Krossinn - Hundavinir

#05 Nýtt sníkjudýr greinist í innfluttum hundi

Play Episode Listen Later Jan 22, 2020 9:45


Leishmaniosis í hundi var greindur nýlega í fyrsta sinn á Íslandi, og greindi Matvælastofnun frá þessu þann 22.janúar 2020. Freyja Kristinsdóttir dýralæknir fjallar um málið í hundaspjallinu. 

#04 Hundahald og Flokkur fólksins

Play Episode Listen Later Jan 15, 2020 41:33


Nokkrir stjórnmálamenn eru farnir að sýna málefnum hundaeigenda áhuga, og einn þeirra stjórnmálamanna er Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks Fólksins. Hún hefur meðal annars lagt þá tillögu fram í borgarráði að fella niður hundaleyfisgjald þeirra öryrkja og eldri borgara sem halda hund. Ég fékk að spjalla við Kolbrúnu um þessa tillögu og ýmislegt fleira sem tengist hundahaldi og hundaleyfisgjöldum. https://kolbrunbaldurs.is/

#03 Innflutningur gæludýra til Íslands

Play Episode Listen Later Jan 3, 2020 61:09


Drög að nýrri reglugerð um innflutning hunda og katta leit dagsins ljós rétt fyrir jól. Það fór því miður framhjá mörgum, meðal annars þáttastjórnanda, að frestur til umsagna var aðeins til dagsins í dag, 3.janúar 2020. Eftir að hafa snarað í umsögn fyrir hönd Félags ábyrgra hundaeigenda, hafði ég samband við Þorgerði Ösp Arnþórsdóttur og bað hana um að koma í spjall um þessa nýju reglugerð um innflutning hunda og katta. SamráðsgáttinSkýrsla MAST: Endurmat á skilyrðum fyrir innflutningi hunda og kattaDr.Preben Willeberg: Nýtt áhættumat 2019 

#02 Hunda-valfag í grunnskóla

Play Episode Listen Later Dec 21, 2019 62:57


Annar þáttur Hundaspjallsins og gestur þáttarins er Halldóra Lind Guðlaugsdóttir. Hún er kennari, hundaþjálfari og hundaatferlisfræðingur, og kennir nokkurs konar hunda-valfag í Hraunvallaskóla. Ég var forvitin og vildi vita meira um þessa hundakennslu fyrir grunnskólanemendur, svo ég bauð henni heim til mín í spjall - hundaspjall. Við fórum út um víðan völl, ræddum um bakgrunn Halldóru sem hundaþjálfari og margt fleira. 

#01 Fyrsti þáttur

Play Episode Listen Later Dec 21, 2019 26:16


Fyrsti þáttur hundaspjallsins hefst á sögu af hundinum Sako og unglingsdrengnum Joseph. Þar næst kynnir þáttastjórnandinn, Freyja Kristinsdóttir, þáttinn og röflar svo eitthvað um sjálfa sig.  Míó Minn Hundaspjall á Facebook

Claim Míó minn hundaspjall

In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

Claim Cancel