POPULARITY
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Guðmundur Ármann Pétursson, formaður Þroskahjálpar, ræddi við okkur um málefni fatlaðs fólks og síðuna flokkahjalp.is. Soffía Ámundadóttir, íbúi í Suðurhlíðum Reykjavíkur, ræddi við okkur um óánægju íbúa með líkbrennsluna. Blaðamennirnir Jakob Bjarnar Grétarsson og Stefán Einar Stefánsson fóru yfir það helsta. Hannes Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, ræddi körfuboltann og evrópska körfuboltaþingið. Helgi Steinar Gunnlaugsson, blaðamaður Viðskiptablaðsins og sérfræðingur í Kína, ræddi heimsókn Donald Trump til Kína. Kolbrún Ósk Pétursdóttir og Hannes Sasi ræddu Hamingjuhlaupið.
Frumvarp dómsmálaráðherra um brottfarastöð hefur hlotið gagnrýni, meðal annars vegna heimildar til að vista þar börn. Umboðsmaður barna segir frumvarpið vera andstætt Barnasáttmálanum og brjóta gegn réttindum barna. Yfir tvö þúsund manns hafa skrifað nöfn sín á undirskriftarlista á Ísland.is til að mótmæla þessu frumvarpi. Í gær bárust fréttir af breytingartillögu á frumvarpinu og mátti skilja á fréttum að börn yrðu ekki vistuð á brottfararstöðinni, en Alma Mjöll Ólafsdóttir, sem kom í þáttinn í dag, segir að það líti samt út fyrir að ekki sé næg breyting, það sé aðeins verið að færa til úrræðið fyrir börn, en að það muni vera frelsissvipting engu að síður. Alma sagði okkur frá þessu í dag, en hún er ábyrgðarmaður undirskriftarlistans. Á ráðstefnunni Að finna taktinn koma saman bæði alþjóðlegir fræðimenn og starfandi leikskólakennarar til að varpa ljósi á hæglæti í leikskólastarfi frá ólíkum sjónarhornum. Meðal fyrirlesara eru íslenskir leikskólakennarar sem segja frá eigin reynslu af þróunarverkefninu Stilla, þar sem hæglæti hefur verið innleitt í daglegt starf fjögurra leikskóla. Niðurstöðurnar sýna meðal annars að þegar börn fá meiri tíma og rými eykst sjálfstjórn þeirra, félagsfærni og sköpun og leikur þeirra verður dýpri og merkingarbærari. Anna Lilja Sævarsdóttir, leikskólastjóri á Iðavöllum Akureyri og Agnes Gústavsdóttir, leikskólastjóri Aðalþings í Kópavogi komu í þáttinn í dag. Jónatan Garðarson, okkar gamli samstarfsfélagi, ætlar að koma til okkar næstu fimmtudaga og fræða okkur um íslenskt tónlistarlíf, hljómsveitir, lög, tónlistarfólk og fleira. Það eru ekki margir sem vita meira um íslenska tónlist en Jónatan og því mikil forréttindi að fá að ausa úr hans viskubrunni hér í Mannlega þættinum. Hann byrjaði í dag á því að segja okkur frá Önnu Vilhjálms, það eru ekki til mörg lög hljóðrituð með henni, en Jónatan mun fræddi okkur um hana og hennar feril í dag. Tónlistin í dag: Á berjamó / Björgvin Halldórsson og Ragnhildur Gísladóttir (Gunnar Þórðarsson, texti Stefán Jónsson) Jamaica Farewell / Harry Belafonte (Irving Burgie og Burgess) Ég bíð við bláan sæ / Anna Vilhjálms og Vilhjálmur Vilhjálmsson (Phil Spector, texti Jón Sigurðsson) Fráskilin að vestan / Anna Vilhjálms (Kolbrún Hjartardóttir og Linda Björk) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Við sögðum í dag frá málþingi sem fór fram fyrir nokkru þar sem leikskólamál voru rædd og yfirskriftin var: Bara pláss? Fagmennska og gæði í leikskólastarfi. Málþingið var hluti af fyrirlestraröð Menntavísindasviðs HÍ, Efst á baugi. Leikskólinn er fyrsta skólastigið og byggir á fagmennsku, þekkingu og skýrum gildum um réttindi barna, leik og vellíðan. Á sama tíma hefur umræða í samfélaginu í auknum mæli snúist um aðgengi, biðlista og rekstrarlegar áskoranir. Kolbrún Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ og Sara Margrét Ólafsdóttir, dósent í menntunarfræðum ungra barna og formaður námsleiðar í leikskólakennarafræðum,komu í þáttinn í dag. Við litum svo við á Þjóðskjalasafni Íslands og hittum fyrir Helgu Lilju Bergmann sem sýndi okkur vef Þjóðskjalasafnsins þar sem hægt er að finna ótrúlega margt, s.s. á slóðinni www.heimildir.is þar sem finna má t.d. gamlar kirkjubækur. Safnið fær margar beiðnir í viku frá fólki sem vill finna heimildir en nú er t.d. búið að skanna inn allar gamlar kirkjubækur fram til 1960-70 svo hægt sé að leita í þeim uppá eigin spýtur. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum var svo Sigurlín Bjarney Gísladóttir kennari og rithöfundur. Við fengum hana til að segja okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sigurlín talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Þúsund og einn hnífur og fleiri sögur frá Írak e. Hassan Blasim í þýðingu Sölva Björns Sigurðssonar Þríleikur (Things I don't want to know, The cost of living og Real estate) e. Deborah Levy The white road:Journey into an obsession e. Edmund de Waal Mountains of the mind: A history of fascination e. Robert MacFarlane Biblían, Þórarinn Eldjárn, Vigdís Grímsdóttir, Kristín Eiríksdóttir og Tomas Tranströmer Tónlist í þættinum í dag: Hvar er tunglið / Kristjana Stefánsdóttir (Sigurður Flosason) Ég vil fara upp í sveit / Ellý Vilhjálms (Carasella, texti Jón Sigurðsson) Töfrar / Silfurtónar (Júlíus Heimir Ólafsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Undanfarna viku hefur staðið yfir vitundarvakningin ÉG LOFA á vegum Barnaheilla. Markmiðið var að vekja athygli á umfangi kynferðisofbeldis gegn börnum með því að miðla upplýsingum og fræðslu. Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnisstýra ofbeldis- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum kom í þáttinn í dag og sagði okkur aeðins frá þessu átaki og einnig frá ungmennaþingum sem haldin voru á sex stöðum á landinu þar sem rætt var um kynferðisofbeldi í nánum samböndum ungmenna og það sem þar kom fram á þessum þingum er vægast sagt sláandi. Hrafnhildur Reykjalín er starfandi heilsuráðgjafi á Akureyri, hún er kennari í markþjálfun með diplómu í jákvæðri sálfræði auk fjölbreyttrar menntunar í andlegri og líkamlegri heilsu og önnur eigenda Sjálfsræktar heilsumiðstöðvar. Í jákvæðri sálfræði og markþjálfun er unnið markvisst með gildi sem grunn að vellíðan og stefnu í lífinu. Hrafnhildur sagði okkur betur frá þessu í þættinum í dag. Svo var komið að síðasta skiptinu í bili sem Valdimar Þór Svavarsson kemur til okkar til að ræða mannlegu samskiptin. Hann hefur verið með okkur alla fimmtudaga í vetur og í síðustu viku fór hann yfir það helsta sem hann hefur talað um og í dag fór hann yfir nokkur góð ráð til að brjóta upp mynstur og venjur sem eru ekki að þjóna okkur. Tónlist í þættinum í dag: Létt / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarson, texti Jónas Friðrik Guðnason Mig dreymir / Björgvin Halldórsson (Björgvin Halldórsson, texti Jónas Friðrik Guðnason) Kastað á glæ / Geirfuglarnir (Halldór Gylfason) Þér við hlið / Regína Ósk Óskarsdóttir (Magnús Þór Sigmundsson, texti Trausti Bjarnason) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Arnar Pétursson hlaupari og margfaldur Íslandsmeistari um hlauparann sem hljóp maraþon á undir tveimur tímum Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík Símatími Óskar H Valtýsson tækniþróunarstjóri hjá Laka Power um strandflutningar Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fyrrverandi utanríkisráðherra og verðandi sendiherra Tímavélin Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi hjá bjornberg.is um ávöxtun lífeyrissjóða
Are you enjoying this? Are you not? Tell us what to do more of, and what you'd like to hear less of. Denmark's Oldest Newspaper Refers To Icelandic Fishing Interests As An “Oligarchy”This past weekend Berlingske Tidende, Denmark's oldest newspaper, ran a story it had been working on for months. The topic: the Icelandic fisheries industry. The conclusion: Iceland is an oligarchy. Man Fined For Hate Speech in ReykjanesbærA man in Reykjanesbær was ruled to pay a 100.000 ISK fine after expressing hate speech online. The hate speech in question was a comment the man made to a Vísir news story, the offender said that the “German showers” needed to be revived because of asylum seekers, and that the Greeks knew how to beat them into submission.Airplane Fuel Reserves in Iceland Good, Says Oil ExecutiveAccording to Skeljungur's CEO Þórður Guðjónsson, fuel reserves in Iceland are in good shape, though the closure of the strait of Hormuz is likely to affect that at some point this spring.Person Busted For Trying To Pay With An 11.000ISK BillAn undisclosed person tried to pay for products with an 11.000ISK bill. As no such nomination of the ISK exist, they bill was a forgery. Details on what person was to be found on the bill are yet not in the public. Former Foreign Minister To Become Ambassador To The UKFormer minister of foreign affairs, Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð, was appointed Iceland's ambassador to the UK on April 20th. Þórdís has been a MP for the Independence Party since 2016, but her views of foreign policy have as of lately been more in line with the current coalition government, rather than her own political party.Windmills Show Up In ÞorlákshöfnThe first shipment of windmills for electricity production for Iceland's state owned energy company Landsvirkjun has arrived by ship in the town of Þorlákshöfn. Recently, roads from Þorlákshöfn to the part of the highlands the windmills are destined to, have been strengthened for the move.Support the show------------------------------------------------------------------------------------------SHOW SUPPORTSupport the Grapevine's reporting by becoming a member of our High Five Club: https://grapevine.is/high-five-club/Or donate to the Grapevine here:https://support.grapevine.isYou can also support the Grapevine by shopping in our online store:https://shop.grapevine.is------------------------------------------------------------------------------------------This is a Reykjavík Grapevine podcast.The Reykjavík Grapevine is a free alternative magazine in English published 18 times per year, biweekly during the spring and summer, and monthly during the autumn and winter. The magazine covers everything Iceland-related, with a special focus culture, music, food and travel. The Reykjavík Grapevine's goal is to serve as a trustworthy and reliable source of information for those living in Iceland, visiting Iceland or interested in Iceland. Thanks to our dedicated readership and excellent distribution network, the Reykjavík Grapevine is Iceland's most read English-language publication.You may not agree with what we write or publish, but at least it's not sponsored content.www.grapevine.is
“Ég er byrjaður að borga meðlag” -#663 Hjálmar er orðinn grænmetisæta og átti andlega upplifun þegar hann fór að versla í morgun. Helgi ákvað að taka nýju föðurhlutverki sínu með meiri alvarleika. Kolbrún lenti í því að vera skráð inni á annara manna tiktok reikningi þegar hún opnaði forritið í símanum.IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!
Sunnudagurinn 19. apríl Synir Egils: Sveitarstjórnir, skólamál og ESB Það verður gestkvæmt í Sonum Egils þennan sunnudaginn. Í fyrri hluta þáttarins, það er Vettvang dagsins, koma fjórar konur: Kolbrún Þorsteinsdóttir kennari, Eyrún Magnúsdóttir ritstjóri, Eva H. Önnudóttir prófessor og Sóley Tómasdóttir kynja- og fjölbreytileikaráðgjafi. Í síðari hluta koma þingmennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Pawel Bartoszek. Þeir skiptast á skoðunum um Evrópusambandið og hvort við eigum erindi þangað eða ekki. Í fyrri hlutanum verður örugglega eitthvað rætt um komandi kosningar, til sveitarstjórna og hvort við eigum að halda áfram viðræðum við ESB eða ekki. Menntamál og Inga Sæland munu örugglega verða til umræðu. Sem og ýmislegt annað.
Páskabingo Hæ Hæ verður 29. Mars klukkan 15 á Pardus.isKolbrún Ást var með okkur í dag en hún er kærasta Helga. Helgi og Kolbrún voru að koma frá Púertó Ríkó og sögðu þau frá ferð sinni þangað. Þau ræddu sambönd fólks og sambönd fólks á Facebook. Hjálmar sagði frá erfiðri reynslu í flugi með hippum. Helgi og Kolbrún lentu í misskilningi á leiðinni út til Púertó Ríkó. Hjálmar yfirheyrði Kolbrúnu til að komast að því hvernig það er að vera með Helga í sambandi.IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
Mánudagur 9. mars VG, einhverfa, gervigreind og kosningar Rósa Björk Brynjólfsdóttir er nýr formaður Vinstri grænna. Hún var kjörin með rússneskri kosningu. Rósa hefur áður verið í VG, en sagði úr flokknum þegar Katrín Jakobsdóttir myndaði ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki. Eyrún Halla Kristjánsdóttir nemi, Guðlaug Svala Kristjánsdóttir, sjúkraþjálfari og einhverfufræðari, Halldóra Hafsteins, stuðningsfulltrúi og aktívisti, Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir hönnuður og kynjafræðingur ræða málefni einhverfra á forsendum einhverfra. Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður er þegar farinn að nota gervigreind í sínum störfum. Hann gerir ráð fyrir að víða verði gervigreind notuð til að dæma í einföldum dómsmálum. Hann segir jafnframt að það vanti löggjöf um hvernig megi nota gervigreind í dómsmálum. Silja Sóley Birgisdóttir oddviti sósíalista, Kristín Kolbrún Waage miðflokki ræða sveitastjórnarkosningarnar.
Umræðan um Evrópusambandið og aðild Íslands að því fer oft í skotgrafirnar, bæði hjá stuðningsmönnum og andstæðingum. Framundan er þriðja umræðan á Alþingi þar sem tekist verður á um stöðu Íslands Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir segir það óumsemjanlegur hluti af friði í Úkraínu að Rússar skili þeim þúsundum barna sem þeir hafa kerfisbundið stolið. Nöfnum barnanna hefur í mörgum tilvika verið breytt og Rússar telja sig vera að vinna góðverk. Súkkulaði er orðið eitt allra vinsælasta þýfi breskra búðarþjófa síðustu mánuði og misseri. Svo rammt er tekið að kveða að þessu, segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins BBC, að nokkrar stórar verslanakeðjur eru farnar að geyma allra vinsælasta súkkulaðið í læstum plast- eða glerskápum í sumum verslana sinna, þannig að viðskiptavinir þurfa að biðja afgreiðslufólk um aðstoð til að komast í góðgætið.
Þriðjudagur 3. mars Ríkisútvarpið, kvennamáttur, ofbeldi og leiklist Brynjar Níelsson skýtur föstum skotum á Ríkisútvarpið og vill stórminnka umfang Rúv en bæta stuðning við einkamiðla. Björn Þorláks ræðir við hann. Jódís Skúladóttir, Sirrý Hallgríms og Kolbrún Halldórsdóttir spjalla við Sigurjón Magnús um sterkar skoðanir kvenna og kvenréttindi. María Lilja ræðir ofbeldi við Eygló Harðardóttur, fyrrum ráðherra. Álfrós Rose og Anna María Tómasdóttir leikhúsmanneskjur ræða einleikinn Dead Air í spjalli við Björn Þorláks, þar sem gervigreind og dauðinn koma við sögu.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Eiríkur Valdimarsson þjóðfræðingur um bolludag sprengidag og öskudag Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda um fyrirhugaðan sykurskatt Símatími Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu - félags fanga á Íslandi um fangelsiskerfi sem á að vera bæði manneskjulegra og ódýrara en þau áform sem nú liggja á borðum um öryggisfangelsið að Stóra-Hrauni. Kolbrún Georgsdóttir formaður félags heilbrigðisfulltra um frumvarp sem á að leggja niður heilbrigðiseftirlit á Íslandi Tímavélin Guðni Kristinsson annar eigenda Kúbuferða
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Inga Sæland barnamálaráðherra um börn í vanda og Bakkakotsmálið úr Kveik Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri um óbreytta vexti í 7,25% Símatími Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra um u-beygjuna framundan í leigubílamálum kílómetragjald og samgönguáætlun Sigurður Örn Hilmarsson Sjálfstæðisflokki og Kolbrún Baldursdóttir Flokki fólksins um markmið að draga úr fátækt með því að tengja greiðslur almannatrygginga við launavísitölu Agnes Ósk Marzelíusardóttir lögreglufulltrúi í fjármunabrotadeild Hjalti Guðmundsson skrifstofustjóri Borgarlandsins um snjómokstur í borginni
Ágústa Kolbrún var með okkur í dag. Helgi var að koma heim frá Tenerife þar sem hann var í 2 vikur. Hjálmar ætlaði að verða prestur þegar hann var 15 ára. Dóttir Hjálmars var að útskrifast úr háskólanum. Ágústa segir hvaða stétt inniheldur mestu pervertana.IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
Kolbrún segist vera fljót til svars, og það hafi komið henni vel í gegnum tíðina.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Jón Sigurðsson, formaður Meistaradeildar SI, og Pétur H. Halldórsson, varaformaður Meistaradeild SI, settust niður með okkur. Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM og Lísa Margrét, formaður LÍS, fóru yfir stöðuna á námslánakerfinu. Daníel O. Einarsson, formaður Frama - félags leigubílstjóra, fór yfir stöðuna á leigubílamarkaði. Guðfinnur Sölvi Karlsson, Finni á skemmtistaðnum LEMMY, fór yfir undarlegt mál er varðar Matvælaeftirlitið. Eva Ruza rýndi í fjölskylduerjur hjá David og Victoriu Beckham. Gulli Tryggir.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Ólöf Embla Einarsdóttir, rekstrarstjóri Straumlindar, ræddi við okkur um rekstur raforkusala. Dönskukennarinn Simon Cramer Larsen býður sig fram sem formaður Félags framhaldsskólakennara. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans, ræddu ferðaþjónustuna og framtíðarhorfur. Sara Rut Arnardóttir, listrænn stjórnandi Improv Ísland, fór yfir undarlegt mál sem tengist samkomuhúsinu Bifröst á Sauðárkróki. Stefán Atli og Atli Már ræddu framtíðina í gervigreind og nýtt verkefni sem heitir Litla kríli. Jóhann Atli Jóhannsson og Andri Geir Jónasson eru stofnendur Eignar sem er nýtt sprotafyrirtæki sem gagnast fólki í fasteignaviðskiptum. Sigrún Valsdóttir og Kolbrún Tómasdóttir settust niður með okkur og ræddu bókina Systir mín sem enginn sér.
Alþjóðamálin eiga sviðið; árás Bandaríkjamanna á Venesúela og brottnám Nicolasar Maduros forseta, viðbrögð alþjóðakerfisins og íslenskra ráðamanna og ekki síst hvort líklegra sé að Bandaríkin innlimi Grænland nú en áður. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra segir fyllstu ástæðu til að taka áhuga Bandaríkjaforseta á Grænlandi alvarlega og telur að það hefði verið flókið fyrir núverandi utanríkisráðherra að kveða sterkar að orði um aðgerðir Bandaríkjanna í Venesúela, öðruvísi en að minna á og ítreka mikilvægi alþjóðlegra laga.
September: Arnhildur Hálfdánardóttir var með pistlaröð um botnvörpuveiðar og stöðu hafsins umhverfis Ísland. Í einum pistlanna ræddi hún við Snjólaugu Árnadóttur, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík og forstöðumann Sjálfbærni- og loftslagsréttarstofnunar Háskólans í Reykjavík um hafréttarmál. Samfélagið hitti Sigríði Gísladóttur, framkvæmdastjóra samtakanna Okkar heimur, og fékk að fræðast um samtökin og stöðu þeirra barna sem alast upp hjá foreldri með geðrænan vanda. Í Árskógum hefur Rauði krossinn boðið upp á hópkennslustundir í íslensku sem leiddar eru af reyndum kennurum í sjálfboðaliðastarfi. Samfélagið fékk að fylgjast með kennslustund og heyrði meira um starfið. Október: Samfélagið fékk að kíkja á æfingu hjá yndislegum hópi fólks með þroskahömlun sem æfir undir leiðsögn Nönnu Guðbergsdóttur í World Class, Ögurhvarfi. Hópurinn gengur undir nafninu Breyttur lífsstíll. 24.október var Kvennafrídagurinn haldinn. Af því tilefni fékk Samfélagið þrjár konur til að ræða stöðuna í jafnréttismálum. Þær Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM, Saga Davíðsdóttir frá Feministafélaginu Emblu við Menntaskólann í Hamrahlíð og Helga Haraldsdóttir, formaður Hinsegin daga, settust niður með Ástrós Signýjardóttur og Elsu Maríu Guðlaugs-Drífudóttur. Elsa María Guðlaugs- Drífudóttir hitti Benedikt Traustason frá Reykjavíkurborg við Tjörnina. Hjá borginni eru uppi áætlanir um að komast að því hversu menguð tjörnin er og grípa til aðgerða til að hjálpa lífríki hennar. Samfélagið kíkti á kóræfingu hjá Happy hour kórnum eitt kvöldið en kórinn hefur verið starfræktur í sex ár. Sigríður Soffía Hafliðadóttir, kórstjóri, segir markmiðið með kórnum að fá konur til að hittast og njóta þess að syngja saman. Nóvember: Fríbúðin er rekin í Gerðubergi í Breiðholti, í henni er allt ókeypis. Pétur Magnússon heimsótti verslunina en þangað getur hver sem er komið við, tekið hluti úr hillum og skilið eftir hluti sem aðrir geta tekið með sér heim. Svæðið við Elliðaárstöð í Elliðaárdal iðar nú af lífi árið um kring.. Gamlar byggingar hafa fengið nýtt hlutverk og saga svæðisins er vel varðveitt. Ástrós Signýjardóttir heimsótti svæðið og hitti Brynhildi Pálsdóttur, hönnuð, sem hafði þá nýverið tekið við Hönnunarverðlaunum Íslands. Laura Sólveig Lefort Scheefer, formaður ungra umhverfissinna, og Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, færðu okkur reglulega pistla um framgang mála á COP30 loftslagsráðstefnunni í Brasilíu. Desember: Pétur Magnússon lagð leið sína í Þjóðminjasafnið og ræddi þar við þjóðfræðinga um jólahefðir, fáheyrða jólavætti og hlýddi á jólatóna. Stefán Gíslason flutti pistil þar sem hann fjallaði um eitraðar rúsínur og aukna notkun þeirra. Við fjölluðum töluvert um rólega aðventu og kíktum í heimsókn á leikskólann Hlíðarenda þar sem unnið er með rólegt umhverfi í kringum börnin í desember.
Ágústa Kolbrún var með okkur í dag en hún sagði frá skiptinu þegar hún þyngdist um 7kg eftir að hafa borðað 3 konfekt kassa. Hjálmar var gagnrýndur af einkaþjálfaranum sínum því hann talar svo mikið. Helgi sagði okkur frábæra leið til að greiða kreditkortareikningana.IG helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe´a!Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands um þagnarskyldu lækna Símatími Steingrímur Birgisson forstjóri Hölds Bílaleigu Akureyrar Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar um bréfið sem aldrei var skrifað Kristinn Andersen prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði við HÍ um neðansjávar dróna og þróun vélmenna Henry Birgir Gunnarsson fréttastjóri íþrótta hjá Sýn
Ágústa Kolbrún listakona og spekingur var með okkur í dag en hún vildi ræða málin með hjálp stjörnuspekinnar en Hjálmar vill bara staðreyndir. Hjálmar sagði frá bestu partýum sem hann hefur farið í. Helgi lenti í fréttunum þegar að Hjálmar birti myndband af Helga kærustum hans að kveðja.IG helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe´a!
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari Helga Nína Heimisdóttir, íbúi í Þingholtunum í Reykjavík, var á línunni og er ekki sátt með sektir sem hún hefur fengið að ósekju. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins, ræddi við okkur um gæludýrin. Theodór Francis Birgisson, klínískur félagsráðgjafi, var á línunni og ræddi nýja rannsókn um ömmur og afa. Íþróttafréttamaðurinn Víðir Sigurðsson fór yfir bókina Íslensk knattspyrnu 2025. Ævar Þór Benediktsson, rithöfundur ræddi við okkur um nýju bókina, Skólastjórann. Guðrún Katrín Jóhannesdóttir, fjölskyldumeðferðarfræðingur hjá Heilsuvernd, ræddi við okkur um nýtt samskiptaspil Let's Connect. Jón Rafnsson og Karl Olgeirsson ræddu nýja plötu með tríóinu DJÄSS. Íþróttafréttamaðurinn Stefán Árni Pálsson fór yfir umferðina í enska boltanum.
16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi er alþjóðleg herferð UN Women sem stendur ár hvert frá 25. nóvember til 10. desember. Herferðin tengir saman alþjóðlegan baráttudag Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi og alþjóðlegan mannréttindadag Sameinuðu þjóðanna. Í ár, þegar 30 ár eru liðin frá undirritun Peking-sáttmálans, er athyglinni beint að stafrænu ofbeldi gegn konum og stúlkum. Sara McMahon, kynningarstjóri UN Women á Íslandi, settist niður með mér í morgun og ræddi við mig um stöðuna, áhyggjuefnin og framtíðina. Síðustu helgi hóf ný þáttaröð göngu sína á Rás 1 sem heitir Fatlist – í þáttunum fjalla Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir og Heiða Vigdís Sigfúsdóttir um birtingarmyndir fötlunar í menningu og listum og kafa ofan í sögu fötlunar, skilgreiningar hennar og hvaða mynd listin dregur upp af fötluðu fólki. Í seinni hluta þáttar ætla Kolbrún Dögg og Heiða Vigdís að setjast hjá okkur og segja okkur meira um Fatlist – en byrjum á alþjóðlegri herferð UN Women. Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Pétur Magnússon. Tónlist þáttarins: Marvin Gaye - Yesterday
Bítið á Bylgjunni með Heimi Lilju og Ómari, Þuríður Sverrisdóttir og Vigdís Gunnarsdóttir hjá bidlisti.is settust niður með okkur. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, fyrrverandi menntamálaráðherra, ræddi við okkur um menntakerfið. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, ræddi við okkur frá Stokkhólmi þar sem verið er að ræða brottflutning Rússa á úkraínskum börnum. Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokks, ræddi skattheimtu nýrrar ríkisstjórnar. Helgi Áss Grétarsson, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og lögfræðingur, ræddi Mjóddina við okkur. Bjartmar Guðlaugsson og Ólafur E. Jóhannsson ræddu hausttónleika í Grafarvogskirkju.
Kraftmikil umræða um pólitíkina og landsmálin í umsjón Kristjáns Kristjánssonar. Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, mætti á Sprengisand Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri SA og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, fyrrverandi umhverfisráðherra ræddu við Kristján á Sprengisandi Þingmennirnir Bergþór Ólason, Þórdís Kolbrún Reykfjörð og Pawel Bartozek ræddu við Kristján á Sprengisandi Eiríkur Bergmann, prófessor á Bifröst og Aðalheiður Ámundadóttir blaðamaður spjölluðu við Kristján á Sprengisandi
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Bogi Ragnarsson, félagsfræðingur og kennari, ræddi við okkur um unglingadrykkju og frétt Ríkissjónvarpsins um málið. Símatími. Sigurjón Kjartansson og Jón Gnarr fóru yfir fréttir vikunnar. Kristín Ása Brynjarsdóttir og Ragnar Másson, eigendur og stofnendur Memore, kíktu til okkar í spjall. Unnar Freyr Jónsson frá Kornax og Kolbrún Haraldsdóttir frá GÓU mættu með fullt af smákökum.
Gestir Vikulokanna eru Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir þingmaður Flokks fólksins, Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokks og Dagbjört Hákonardóttir þingmaður Samfylkingar. Þau ræddur afsögn ríkislögreglustjóra, stöðu efnahagsmála, tollamál, notkun snjallsíma í skólum og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Jón Þór Helgason
“Er ég sá eini hérna inni sem er orðinn graður?” -#622 Sýningin Fjölástir Hæ Hæ var haldin síðasta föstudag og hér er hún í allri sinni dýrð. Ágústa Kolbrún spáði fyrir framtíð gesta. Helgi sagði frá Norskum tvífara og leiddi okkur í gegnum leyndardóma fjölástarinnar. Hjálmar kitlaði salinn á sinn hátt og potaði í Helga. Eva Ruza kallaði úr sal.IG helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe´a!Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is
Sýningin Fjölástir Hæ Hæ verður haldin 7. Nóvember í Arena Gaming Turninum Kópavogi, nælið ykkur í miða á linknum hér fyrir neðan.https://arenagaming.is/hihi/Spákonan Ágústa Kolbrún var með okkur í dag en hún ætlar að spá fyrir fólki á Live Show-inu sem verður á morgun. Strákarnir gagnrýndu svolítið myndgæðin í símanum hennar Ágústu. Við ræddum hvaða áhrifavaldar eru að skapa bestu myndböndin. Ágústa var að skemmta hjá VÍS, þar spáði hún fyrir lífi starfsmanna.IG helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe´a!Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is
Sýningin Fjölástir Hæ Hæ verður haldin 7. Nóvember í Arena Gaming Turninum Kópavogi, nælið ykkur í miða á linknum hér fyrir neðan. https://arenagaming.is/hihi/ Ágústa Kolbrún var með okkur í dag en hún kom með afmælisgjöf handa Hjálmari en Helgi var afbrýðissamur því hann fékk ekkert. Hjálmar fór á 1000 manna Októberfest og skemmti sér konunglega. Ágústa er byrjuð að mæta í veislur að spá í framtíð fólks.IG helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe´a!Sjáið þáttinn í mynd á pardus.is
Katla er að stíga sín fyrstu skref í Þjóðleikhúsinu með einleiknum "Þetta er gjöf" eftir Kolbrúnu Björt Sigfúsdóttur.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, var á línunni og ræddi við okkur um breytingar á búvörulögum. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, formaður velgerðarnefndar Alþingis og þingmaður Flokks fólksins, ræddi við okkur um velferð barna og ungmenna. Vigdís Hauksdóttir og Páll Magnússon fóru yfir það helsta. Theódór Francis Birgisson, klínískur félagsráðgjafi, ræddi við okkur um fíknisjúkdóma og parsambandið. Hilmar Ásgeirsson, handboltaþjálfari hjá Aftureldingu og með BS í hagfræði, ræddi við okkur um ritgerð sem hann skrifaði. Helga Sigrún Hermannsdóttir, eigandi snyrtivörufyrirtækisins Dóttir Skin, ræddi við okkur um fyrirtækið og snyrtivörubransann.
Þórunn Elva framkvæmdastjóri Hæ Hæ Á Íslandi var með okkur í dag ásamt Ágústu Kolbrúnu. Mamma hans Helga brást við fréttunum um að hann eigi 4 kærustur. Hjálmar var beðinn um af lögreglu að framkvæma borgaralega handtöku um daginn. Við hringdum til Dalvíkur og ræddum við vingjarnlegan skipstjóra alveg óvart.IG helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe´a!
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Jói Fel um útlendinga sem elska íslensk bakarí Albert Jónsson um ögranir Rússlands gagnvart NATO Símatími Njáll Trausti Friðbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd og Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, formaður velferðarnefndar um boðaðan niðurskurð til Ljóssins Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins skáldaði upp veitingastaðinn Alda kalda bistró til að láta reyna á leyfisveitingakerfi borgarinnar Ásdís Aðalbjörg Arnalds lektor í félagsráðgjöf um valið barnleysi Atli Stefán Yngvason hjá tæknivarpinu um Meta gleraugum
Annað kvöld verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu nýtt leikverk eftir ungan íslenskan höfund, Þetta er gjöf eftir Kolbrúnu Björt Sigfúsdóttur. Kolbrún er margverðlaunað leikskáld og leikstjóri sem hefur síðastliðinn áratug starfað að mestu á Bretlandseyjum.Verkið er tilbrigði við goðsöguna af Mídasi, sem hlaut þann eiginleika að allt sem hann snerti breyttist í gull, en það er Katla Þórudóttir Njálsdóttir sem leikur. Við fáum leikhöfundinn og leikstjórann Kolbrúnu Björt Sigfúsdóttur í þátt dagsins. Ragna Sigurðardóttir verður einnig með okkur í dag en að þessu sinni fjallar hún um þrjár nýjar sýningar, sem allar fjalla á einhvern hátt um líkamsmynd kvenna og mannslíkamann. Og við ræðum við Margréti Bóasdóttur, formann Landssambands blandaðra kóra um komu breska kórsins Voces8 til landsins og tónleikana sem hann heldur í samstarfi við fjóra íslenska kóra.
. Pólland hefur ekki verið nær stríðsátökum frá lokum seinna stríðs, sagði forsætisráðherra Póllands eftir að drónar frá Rússlandi voru skotnir niður í pólskri lofthelgi. Við ætlum að ræða þá stöðu sem upp er komin í Evrópu við þau Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, þingmann sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, og Erling Erlingsson, hernaðarsagnfræðing en líka Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands í Póllandi.
Ágústa Kolbrún var með okkur í dag. Hún er að fara gefa út nýjar myndir sem fást í Hrím. Hjálmari lýst vel á eina kærustu Helga. Helgi sagði frá rosalegri uppákomu á sauna klefa. Ágústa opnaði sig um ofskynjunarlyf og hvar hún stendur í dag gagnvart þeim. Þau ræddu um ábyrgðarleysi og ábyrgð.IG helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe´a!Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!
Ágústa Kolbrún kom til okkar eftir langt hlé en strákarnir héldu að þeir væru komnir aftur í frost hjá henni. Helgi og hans systkini fóru í reiðtúr í Skagafirði þar sem Helgi var í sveit sem krakki. Ágústa nennir ekki lengur að ferðast með Helga því hann labbar svo hratt.IG helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe´a!
Kennaranámið er í stöðugri deiglu og hlusta verður á gagnrýnisraddir stúdenta um uppbyggingu þess segir Kolbrún Þorbjörg Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Skólarnir eru að byrja þessa dagana og í vesturbæ Reykjavíkur stendur Menntavísindasviðið á tímamótum, starfsemi þess er að hefjast á nýjum stað á Sögu. Iðnaðarmenn eru enn að störfum hér og þar í húsinu en Kolbrún Þorbjörg fagnar flutningnum. Menntavísindasviðið varð til þegar Kennaraháskólinn sameinaðist Háskóla Íslands 2008. Innviðaráðherra kynnti framtíðarsýn sín í samgöngumálum á Innviðaþingi í morgun og fór yfir þær framkvæmdir á innviðum landsins sem eru honum efst í huga - hann boðar nýja samgönguáætlun, vill byrja að bora, moka og sprengja sem allra fyrst, hefja framkvæmdir við Sundabraut og stofna innviðafélag til að halda utanum fjármögnun stærri samgönguframkvæmda.
Rætt um friðarhorfur í Úkraínu eftir fund Donalds Trump og Vladimírs Pútín í Alaska og síðan stöðuna á Gaza. Rætt var við Albert Jónsson sérfræðing í öryggis- og varnarmálum, Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði og Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur alþingismann. Umsjónarmaður var Hallgrímur Indriðason.
Ágústa Kolbrún var með okkur í dag og strákarnir spurðu hana út stóru “hvað ef?” spurningarnar. Hjálmar hefði verið til í að leggja meira á sig í fótboltanum þegar hann var yngri en Helga grunar að hann hafi verið að lesa helgarpóstinn á Rauða Ljóninu þegar hann hefði kannski átt að vera æfa íþróttahæfileikana.IG helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe´a!Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!
Ágústa Kolbrún var með okkur í dag og hún vildi vita hvort Hjálmar ætlar að fara í hárígræðslu. Helgi gagnrýndi atvik sem Ágústa kom sér í um daginn. Hjálmar sagði frá sinni verstu sundferð. Ágústa pakkaði Helga og Hjálmari saman.Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
Ágústa Kolbrún var með okkur í dag. Hún sagði okkur frá hvað hún las um Helga á netinu. Hjálmar fékk spurningar frá hlustendum og strákarnir svöruðu þeim. Ágústa vill ekki að Helgi eigi aðrar konur en hana.Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
Ágústa Kolbrún var með okkur í dag. Hún sagði okkur frá skrítnum stöðum sem hún hefur grátið á. Helgi ræddi mögulegar barneignir en Hjálmar og Ágústa eru aðeins að ýta á hann. Helgi sagði frá gömlu ástinni sem kom næstum aftur inn í lífið hans.IG helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe´a!Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!
Join Thórdís Kolbrún Reykfjörd Gylfadóttir, Iceland's former Minister of Foreign Affairs, and Hoover Senior Fellow H.R. McMaster, as they discuss the evolving U.S.-Iceland relationship, Icelandic-European relations, and the continued security challenges of the Arctic. Appointed as the Special Envoy of Council of Europe Secretary General on the situation of children of Ukraine, Gylfadóttir provides an insight into her vital role in raising awareness of the challenges facing the children of Ukraine, the driving forces behind Putin's behavior, and why sustained support for Ukraine from Europe and the US is critical. Iceland a founding member of NATO, Gylfadóttir discusses the importance of NATO to transatlantic security from an Icelandic perspective, the importance of the transatlantic relationship in the fight against Russia, China, North Korea and Iran, as well as current priorities for the US-Iceland relationship and why Americans should experience a visit to the country of Iceland. ABOUT THE SPEAKERS Thórdís Kolbrún Reykfjörd Gylfadóttir is the Special Envoy of Council of Europe Secretary General on the situation of children of Ukraine. Gylfadóttir previously served as Minister of Foreign Affairs from 2021 to 2023 and once more in 2024, Minister of Finance and Economic Affairs from November 2023 to April 2024, Minister of Justice, and Minister of Tourism, Industry and Innovation from 2017 to 2021. She was the youngest woman to serve as a minister. Since 2016, Gylfadóttir has represented the Independence Party in Iceland's parliament, the Althing, and was appointed vice-chairman of the party in 2018. She holds a master's degree in law from Reykjavik University. H.R. McMaster is the Fouad and Michelle Ajami Senior Fellow at the Hoover Institution, Stanford University. He is also the Bernard and Susan Liautaud Fellow at the Freeman Spogli Institute and lecturer at Stanford University's Graduate School of Business. He was the 25th assistant to the president for National Security Affairs. Upon graduation from the United States Military Academy in 1984, McMaster served as a commissioned officer in the United States Army for thirty-four years before retiring as a Lieutenant General in June 2018.
Ágústa Kolbrún var með okkur í dag. Helgi og Ágústa ræddu stefnumótalífið sitt og skiptið sem þau fóru saman í fjallgöngu. Hjálmar útskýrði lífið fyrir Ágústu og Helga. Ágústa keypti hlut í Amerísku hóteli sem hefði mátt ganga betur.IG helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe´a!Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!
Ágústa hefur breytt nafninu sínu í Ágústa Kolbrún Sólbrún. Helgi fór í heimsókn til Sólheima og sá hversu gott og einfalt lífið getur verið. Hjálmar var með krepptan hnefann á fundi um daginn þegar Helgi byrjaði að taka öndunaræfingar.Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
Ágústa Kolbrún var með okkur í dag. Hún var að koma heim frá New York þar sem hún keypti hamborgara á 70þús krónur. Helgi er að fara halda vorfögnuð um helgina er mikil spenna fyrir því. Hjálmar hélt skemmtilega spurningakeppni fyrir Helga og Ágústu . Helgi var rekinn af Hjálmar þegar þeir unnu saman í Brimborg til að hagræða eftir hrun.Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!