Podcasts about verkefni

  • 49PODCASTS
  • 235EPISODES
  • 1h 6mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Feb 19, 2026LATEST

POPULARITY

20192020202120222023202420252026

Best podcasts about verkefni

Latest podcast episodes about verkefni

Mannlegi þátturinn
Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins, hvað er sagnfræði og örmögnun og öndun í mannlegu samskiptum

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 19, 2026 52:33

Í haust unnu Kópavogsbær og Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins greiningu á áfangastaðnum Kópavogi með það að markmiði að vinna hugmyndir um hvernig hægt sé að efla áfangastaðinn. Verkefnið mun nýtast fyrir framtíðarsýn Kópavogsbæjar í tengslum við ferðaþjónustu og einnig í tenglsum við þróun og markaðassetningu á höfuðborgarsvæðinu. Og það er ekki bara Kópavogur sem Markaðsstofa Höfuðborgarsvæðisins er að skoða heldur hefur hún einnig unnið með Hafnarfjarðarbæ og Seltjarnarnesi. Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri markaðsstofu Höfuðborgarsvæðisins kom í þáttinn í dag. Hvað er sagnfræði? Þessi spurning er heiti málþings sem Sagnfræðingafélag Íslands og Sagnfræðistofnun stendur fyrir á laugardaginn. Þar munu fimm fyrirlesarar leitast við að svara þessari spurningu sem Sagnfræðingafélagið bar upp fyrir um 20 árum í fyrirlestraröð þar sem sagnfræðingar, listafólk, fjölmiðlafólk og stjórnmálafólk spreyttu sig á spurningunni. Ragnhildur Anna Kjartansdóttir, formaður Sagnfræðingafélags Íslands og Súsanna Margrét Gestsdóttir sagnfræðingur komu til okkar í dag og sögðu frá málþinginu og spreyttu sig á að svara spurningunni, hvað er sagnfræði? Svo kom Valdimar Þór Svavarsson til okkar í mannlegu samskiptin eins og alla fimmtudaga í vetur. Það í dag talaði hann um örmögnun, meðvirkni og öndun. Tónlist í þættinum í dag Gleðin með þér / Þuríður Sigurðardóttir (lagahöfundur ókunnur, texti Helgi Pétursson) Ég gef þér allt mitt líf / Björgvin Halldórsson og Ragnhildur Gísladóttir (Jóhann Helgason, texti Jón Sigurðsson) She's Done it Again / Jóhann Helgason (Jóhann Helgason) Rúllukragapeysan mín / Bítlavinafélagið (Jón Ólafsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

bj hva hva er marka sigur halld svo gle margr helgason valdimar verkefni hafnarfjar gestsd seltjarnarnesi ragnhildur g
Spegillinn
Loftslagsmál og sveitarfélög, Kúbustjórn í kröppum sjó, prjónahúfur og pólitík

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 12, 2026 20:00

Aðgerð C10 í byggðaáætlun fjallar um aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga. Verkefni sem Byggðastofnun leiðir í samstarfi við Veðurstofu Íslands, Skipulagsstofnun og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Eins og gefur að skilja er þar verið að undirbúa sveitarfélög í að takast á við nýjan veruleika sem breytt veðurfar hefur í för með sér. Ágúst Ólafsson ræðir við Ragnhildi Friðriksdóttur og Ólaf Þór Ólafsson. Bandaríkjamenn hafa stöðvað nær allan olíuinnflutning til Kúbu, með þeim afleiðingum að allsherjar rafmagnsleysi blasir við og fjölmörg flugfélög hafa ýmist hætt flugi til og frá landinu eða dregið verulega úr því. Markmið Bandaríkjastjórnar er ekkert leyndarmál: Að koma kúbversku stjórninni frá völdum. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Tómas R. Einarsson um ástandið á Kúbu. Rauðar prjónahúfur hafa löngum verið vinsælar en þær geta líka falið í sér dýpri merkingu og hafa jafnvel verið bannaðar. Á vinsælli síðu handavinnufólks, er einföld rauð prjónahúfa með skotti - og slagorði gegn bandarísku innflytjendalögreglunni, ICE, vinsælasta uppskriftin. Anna Kristín Jónsdóttir segir frá þessu. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Grænvarpið
Erlend verkefni Landsvirkjunar

Grænvarpið

Play Episode Listen Later Jan 28, 2026 23:51

Sérþekking Landsvirkjunar í vatnsafli og jarðvarma er eftirsótt víða um heim. Kristján Guðmundsson, forstöðumaður erlendra verkefna, segir okkur frá verkefnum Landsvirkjunar á erlendri grund. Það er nóg af tækifærum en stefna fyrirtækisins er að halda sig við verkefni á norðurslóðum, einkum í Kanada og á Grænlandi. 

Mannlegi þátturinn
Lausnahringur Arnrúnar, Einar krossgátusmiður og seinni hluti Júlíu og járnkallsins

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 13, 2026 54:35

Samtalið fræðsla er ekki hræðsla er forvarnarverkefni með það að markmiði að efla fræðslu og forvarnir gegn ofbeldi og vanrækslu barna. Verkefnið nær til barna, starfsfólks skóla og frístundastarfs, uppalenda og allra áhugasamra sem vilja bæta framtíð barna. Arnrún María Magnúsdóttir leikskólakennari hefur mótað og þróað verkefnið frá aldamótum, en það hefur hlotið fjölda tilnefninga til foreldraverðlauna Heimilis og skóla undanfarin ár. Við fengum Arnrúnu Maríu til að segja okkur betur frá því í þættinum. Krossgátur eru fyrirbæri sem kom fram á 19.öld og þær urðu gríðarlega vinsælar á þriðja áratug síðustu aldar, í bókaformi, tímaritum og dagblöðum. Krossgátur hafa einnig verið vinsælar hér á landi lengi og við rákum augun í eina slíka í Skessuhorni, fréttaveitu Vesturlands og í texta við hana stóð að hún væri eftir Einar G. Pálsson í Borgarnesi, þetta var hans fyrsta krossgáta en hann var sem sagt að taka við af Erlu Guðmundsdóttur sem hafði samið krossgátur í Skessuhorn frá því þær birtust fyrst þar. Einar átti erindi í höfuðborgina í dag og við nýttum tækifærið og fengum hann til að segja okkur aðeins frá krossgátuáhuga sínum og því að semja krossgötur. Og svo í lokin var það fyrsta Heilsuvakt ársins með Helgu Arnardóttur. Við heyrðum sögu Júlíu Þorvaldsdóttur í síðustu Heilsuvakt ársins 2025 þar sem hún sagði frá þrekraun sinni þegar hún keppti í hálfum járnkarli (eða þríþraut) í Portúgal í fyrra. Þar hjólaði hún 90 km, hljóp hálft maraþon og synti 1,9 kílómetra. Við heyrðu í dag seinni hluta vitalsins við Júlíú, í honum segir hún frá undirbúningnum fyrir svona líkamlegt afrek og hvernig hún hefur umbylt lífi sínu að nánast öllu leyti og byrjað fyrir alvöru að gera hreyfingu að stórum hluta í sínu lífi. Júlía þjáist einnig af miklu svefnleysi og hefur gert í nánast aldarfjórðung en segir hreyfingu breyta allri sinni líðan og svefnheilsu. Tónlist í þættinum: Bíldudals grænar baunir / Baggalútur (Valgeir Guðjónsson) Enginn eins og þú / Mannakorn (Magnús Eiríksson) Tico Tico / Les Baxter (Les Baxter) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

port magn einar eir seinni enginn verkefni baggal borgarnesi valgeir gu
Samfélagið
Kenna haflæsi í gegnum leiklist, áhrif samfélagsmiðla á stráka og fjárhættuspilahegðun ungmenna

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 3, 2025 56:48

Þáttur dagsins var allur tileinkaður Menntakviku sem fer fram í Háskóla Íslands 2-4.október. Sjávarsögur til að stuðla að haflæsi í gegnum leiklist er málstofa sem Jóna Guðrún Jónsdóttir og Rannveig Björk Þorkelsdóttir leiða. Verkefnið snýst um haflæsi og vaxandi þörf til að auka vitund og fræðslu um hafið innan skólasamfélagsins. Jóna Guðrún og Rannveig Björk ætla að segja okkur allt um það hvernig þær nýta leiklist til að auka þekkingu á hafinu. Hvernig nota börn samfélagsmiðla og hvaða áhrif hafa samfélagsmiðlar? Þórður Kristinsson, doktorsnemi á menntavísindasviði, er einn þeirra sem er með erindi á Menntakvikunni. Erindi hans fjallar um stráka og samfélagsmiðla, en strákar fá annan veruleika inn á sína miðla en stelpur og önnur skilaboð um hlutverk kynjanna. Þórður ætlar að segja okkur frá þessu. Fjárhættuspilahegðun hjá ungmennum á Íslandi hefur aukist mikið samkvæmt niðurstöðum alþjóðlegu ESPAD rannsóknarinnar. Ragný Þóra Guðjohnsen er með erindi á Menntakviku um niðurstöðurnar, hvað útskýrir þessa aukningu og hvað við getum gert, sem samfélag, til að sporna við aukinni fjárhættuspilahegðun.

Samfélagið
Endurheimt votlendis, ný löggjöf um gervigreind og sjálfboðaliðar kenna íslensku

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 2, 2025 59:08

Verkefnið Peatland lifeline snýr að endurheimt votlendis og stuðningi við líffræðilegan fjölbreytileika. Verkefnið er styrkt af LIFE sjóðnum og Landbúnaðarháskóli Íslands leiðir það. Verkefnið hófst formlega fyrir mánuði síðan og er eitt umfangsmesta verkefni sem Landbúnaðarháskólinn hefur stýrt. Jóhanna Gísladóttir, lektor, kom til okkar og sagði okkur frá þessu áhugaverða verkefni. Hver ætlar að stýra gervigreindinni? Þessi spurning hefur oft ratað á borð löggjafa um heim allan, en nú hefur Kalifornía samþykkt lagafrumvarp um aukið gagnsæi og ábyrgð hjá stórum tæknifyrirtækjum sem þróa gervigreind. Eyrún Magnúsdóttir, gervigreindarfréttaritari Samfélagsins, kom og ræddi þessa löggjöf. Rauði krossinn býður flóttafólki upp á ýmis verkefni til stuðnings íslenskunámi þeirra víða um land. Í Árskógum hefur í fjögur ár verið boðið upp á hópkennslustundir sem leiddar eru af reyndum kennurum í sjálfboðaliðastarfi. Samfélagið fékk að fylgjast með kennslustund og fá að heyra meira um starfið. Tónlist þáttarins: VILHJÁLMUR VILHJÁLMSSON - Lítill Fugl. EDDIE VEDDER - Society. SIGURÐUR GUÐMUNDSSON - Orðin mín

magn hver rau sam f fugl verkefni kaliforn eyr landb
Flugvarpið
#120 – Útköll í fjölbreytt og krefjandi verkefni í þyrlusveit Landhelgisgæslu Íslands – samhent sveit sem í eru 12 flugmenn og þar af er ein kona - Brynhildur Ásta Bjartmarz

Flugvarpið

Play Episode Listen Later Aug 8, 2025 58:12

Brynhildur Ásta Bjartmarz þyrluflugmaður segir hér frá ýmsum áhugaverðum hliðum á starfinu en hún er eina konan í 12 manna hópi þyrluflugmanna Landhelgisgæslu Íslands. Hún segir frá nokkrum af þeim fjölbreyttu verkefnum sem hún og kollegar hennar í flugsveit LHG fást við, ræðir kosti og galla vinnunar og fer yfir ýmis erfið útköll sem hún hefur tekist á við. Brynhildur hefur líka starfað að kjarasamningsmálum fyrir flugmannahópinn gagnvart ríkinu og þar er baráttan stöðug og nýlega þurfti miðlunartillögu sáttasemjara til að höggva á hnútinn og koma á samningi. Áhugavert spjall við brautryðjanda í hópi flugkvenna í þyrlusveit landhelgisgæslunnar.

kona verkefni brynhildur lhg landhelgisg
Víðsjá
Stöngin inn á Hönnunarmars, Illgresin í Tjarnarbíói, Í skugga trjánna/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Apr 3, 2025 50:30

Í dag hefst Hönnunarmars með pompi og prakt og á þriðja tug sýninga af mjög fjölbreyttu tagi. Meðal þeirra er sýningin Stöngin inn, í Hegningarhúsinu, þar sem áhugasamir geta kynnt sér umbreytingar sem framundan eru á Stangarbænum í Þjórsárdal. Verkefnið markar að sögn aðstandenda ákveðin þáttaskil í opinberum byggingum hér á landi og setur Stangarbæinn í sérstöðu sem fyrsta minjastaðinn á Íslandi sem er hannaður heildrænt með áherslu á umhverfislega og félagslega sjálfbærni. Við rifjum upp merkilega sögu Stangarbæjarins í Þjórsárdal og af sýningunni hjá arkitektinum Karli Kvaran í þætti dagsins. Gréta Sigríður Einarsdóttir vinnur líka úr eftirstöðvum jólabókaflóðsins með rýni í skáldsögu Guðrúnar Evu Mínervudóttur, Í skugga trjánna, og við kynnum okkur nýja danssýningu í Tjarnarbíói sem ber yfirskriftina Illgresin hjá danshöfundinum Gígju Jónsdóttur og dansaranum og fulltrúa danshópsins Forward, Diljá Þorbjargardóttur. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir

forward inns gu sigr skugga umsj einarsd verkefni tjarnarb melkorka evu m
Handkastið
Strákarnir okkar komnir á EM! Hausverkur hjá Snorra fyrir næsta verkefni?

Handkastið

Play Episode Listen Later Mar 16, 2025 63:14

Sérfræðingurinn, Klipparinn og Einar Örn Jónsson fóru yfir landsliðsvikuna, Olís-deild karla og Olís-deild kvenna.

Flugvarpið
#106 – Leiguflugið – Air broker Iceland – Næg verkefni og vantar flugvélar - Ásgeir Örn Þorsteinsson og Einar Hermannsson

Flugvarpið

Play Episode Listen Later Mar 7, 2025 38:02

Rætt er við Ásgeir Örn Þorsteinsson og Einar Hermansson sem eiga og stýra nýju fyrirtæki sem heitir Air broker Iceland og er leigumiðlun með flugvélar og þyrlur. Þeir hafa báðir langa og miklar reynslu í störfum við flugið hérlendis síðustu áratugina sem nýtist vel í að afla og sinna margvíslegum leiguverkefnum fyrir kúnna hvaðanæva úr heimunum. Þeir segja verkefnin vera margvísleg og eftirspurnin stundum umfram það sem flugvélar fást til að sinna. Rætt er um ýmsar breytingar í innanlandsfluginu, ríkisstyrki á flugleiðum og áhyggjur af yfirvofandi fækkun flugvéla í flugflotanum samhliða því þegar Icelandair hættir rekstri Dash 200 véla og ýmislegt fleira.

air iceland broker einar icelandair verkefni hermannsson flugv vantar
Flugvarpið
#103 – Um flókið viðhald flugvéla – tæknisvið Iceair með verkefni í öllum heimsálfum – Leifur Guðmundsson

Flugvarpið

Play Episode Listen Later Feb 14, 2025 67:18

Rætt er við Leif Guðmundsson tæknistjóra Icelandair en hann hefur starfað í tækni- og viðhaldsmálum í fluginu allt frá því hann lauk námi í flugvirkjun árið 1998. Flugflotinn sem tæknisvið Icelandair sinnir í dag telur yfir 50 flugvélar út um allan heim og verkefnin eru í öllum heimsálfum. Leifur segir hér m.a. frá því hvernig flókið viðhald á flugvélum er skipulagt, hvað fer í gang þegar flugvél bilar, hvernig viðhaldi nýrra véla versus gamalla er háttað og ýmislegt fleira áhugavert. Tæknisvið Icelandair sem Leifur stýrir telur yfir 400 manns og þar af eru hátt í 300 flugvirkjar í margs konar fjölbreyttum störfum.

llum icelandair heims hald verkefni flugv leifur
Rauða borðið
Synir Egils 12. jan - Verkefni ríkisstjórnar, kjör, vextir og Sjálfstæðisflokkurinn

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jan 12, 2025 152:17

Sunnudagurinn 12. janúar: Synir Egils: Verkefni ríkisstjórnar, kjör, vextir og Sjálfstæðisflokkurinn Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Jovana Pavlović mannfræðingur, Ragnar Þór Ingólfsson þingmaður og Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og ræða vettvang dagsins og stöðu samfélagsins. Þeir bræður taka stöðuna á pólitíkinni. Þorvaldur Logason félagsfræðingur, Jón Kristinn Snæhólm stjórnmálafræðingur og Vilhjálmur Egilsson fyrrum þingmaður ræða síðan stöðu Sjálfstæðisflokksins, hvað sá flokkur hefur verið, er og getur orðið.

sj ing magn ragnar sigurj vilhj egilsson egils verkefni
Rauða borðið
Synir Egils 15. des - Stjórnarmyndun, helstu verkefni og Píratar

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Dec 15, 2024 132:42

Sunnudagurinn 15. desember: Synir Egils: Stjórnarmyndun, helstu verkefni og Píratar Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Helga Jónsdóttir bæjarfulltrúi, Oddný Harðardóttir fyrrverandi þingkona og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og ræða stjórnarmyndun, verkefni nýrrar ríkisstjórnar og fréttir vikunnar. Þeir bræður taka stöðunni á pólitíkinni og reyna síðan að átta sig á stöðu Pírata með fólki úr þeirri hreyfingu: Birgitta Jónsdóttir stofnandi Pírata, Lenya Rún Taha Karim formaður Ungra Pírata, Þórólfur Júlían Dagsson sjómaður og Alexandra Briem borgarfulltrúi fara yfir sögu, erindi og framtíð Pírata.

magn sigurj egils verkefni helstu helga j birgitta j
Rauða borðið
Synir Egils 8. desember: Fréttir og verkefni nýs þings og stjórnvalda

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Dec 8, 2024 130:14

Sunnudagurinn 8. desember: Synir Egils: Fréttir og verkefni nýs þings og stjórnvalda Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Helgi Seljan blaðamaður, María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona og Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB og ræða fréttir og pólitík dagsins. Þeir bræður fara líka yfir sviðið í stjórnmálunum og fá líka til liðs tvo nýja þingmenn flokka sem standa í ríkisstjórnarmyndun. Pawel Bartoszek þingmaður Viðreisnar og Guðmundur Ari Sigurjónsson þingmaður Samfylkingar ræða hvaða verkefni bíða endurskipuðu þingi.

Víðsjá
Ummælagreining, Magga Eddudóttir og Herbergi Giovanni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 8, 2024 52:25

Við kynnum okkur viðamikið verkefni, Ummælagreiningu, sem gefur almenningi tækifæri til að móta færni íslenskrar gervigreindar og stuðla að því að gagnasöfn íslenskra gervigreindarforrita endurspegli íslenskt gildismat og menningu. Verkefnið felst í því að skoða ummæli af internetinu og meta ýmsa þætti eins og tilfinningalegt innihald, kurteisi og það hvað telst óviðeigandi eða særandi orðræða. Þau Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms, og Hafsteinn Einarsson, dósent við verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands, segja okkur frá verkefninu. Gauti Kristmannsson fjallar um skáldsögu James Baldwin, Herbergi Giovannis. Bók Baldwin vakti mikla athygli og braut blað í bókmenntasögunni með sterkum og einlægum lýsingum á ást tveggja karlmanna. Herbergi Giovannis kom nýverið út í þýðingu Þorvalds Kirstinssonar. En við hefjum þáttinn í Listasal Mosfellsbæjar, þar sem myndlistarkonan Magga Eddudóttir sýnir ný verk. Sýninguna kallar hún Please revolt, eða Vinsamlegast gerðu uppreisn. Verkin eru unnin í ólíka miðla; textíl, vatnsliti, kermik og frauðplast. Magga hefur í sinni myndlist unnið mikið með mannslíkamann og tilfinningar sem tengjast frelsi, og hafa mjúkar línur og pastel litapalleta verið einkennandi í verkum hennar, en þau hafa breyst töluvert síðastliðið ár. Undanfarið hefur málstaður Palestínu átt hug hennar allan og segist hún hafa átt erfitt með að bregðast ekki við þjóðarmorðinu í Palestínu í myndlistinni. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

baldwin james baldwin umm umsj palest magga verkefni melkorka gauti kristmannsson
Samfélagið
Hitafundur um Coda Terminal, Stiknun eða króknun? Málfarsspjall um orðmyndanir

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 8, 2024 55:00

Í dag fjöllum við um umdeilt mál í Hafnarfirði. Mikill hitafundur var haldinn í Bæjarbíói í Hafnarfirði í gær, þar sem kynntar voru breytingar á aðalskipulagi sem tengjast Coda Terminal-verkefninu, svokallaða. Verkefnið hefur mætt talsverðri andstöðu íbúa, og það kom bersýnilega í ljós á fundinum í gær Samfélagið var á fundinum í gær og ræddi við kjörna fulltrúa, talsmenn Carbfix, og íbúa Hafnarfjarðar. Króknum við eða stiknum í framtíðinni? Við fáum Halldór Björnsson, loftslagsfræðing á Veðurstofunni til okkar í loftslagsspjall. Styrkur koltvísýrings í andrúmsloftinu stendur nú í 422 milljónahlutum, er á niðurleið eftir sumar á norðurhvelinu. Það er árssveiflan - en grafið fyrir síðustu áratugi sýnir skarpa og stöðuga hækkun og samhliða hækkar meðalhiti á jörðinni. Við ræðum við Halldór um hitamet nýliðins sumars, fellibylji, veltihringrás atlantshafsins og hættuna á kólnun á Íslandi. Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur kemur svo til okkar í málfarsspjall um orðmyndanir og slettur, meðal annars. Tónlist í þættinum: Joplin, Janis - Mercedes Benz.

bj kr ve terminal coda joplin halld hafnarfir verkefni mikill hafnarfjar anna sigr
Fram og til baka
Guðrún Jóna og verkefni lífsins

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Sep 28, 2024 114:00

Gestur dagsins í fimmunni var Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri Lífsbrúar hjá embætti Landlæknis en hún hefur verið forsvarsmaður í gulum september sem er verkefni til að vinna að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Guðrún Jóna sagði sögu sína en hún missti son sinn Orra í sjálfsvígi árið 2010 lagalisti: Gull - Eiríkur Hauksson Yellow - Coldplay On Top Of The World - Imagine Dragons Hallelujah - Leonard Cohen Góðir hlutir gerast hægt - Hipsumhaps Talking about a revolution - Tracy Chapman Meet Cute - Matilda Mann -klippa úr Árið er - Björk Guðmundsdóttir Color Decay - Júníus Meyvant Die with a smile - Lady Gaga og Bruno Mars Mellow Yellow - Donovan Ef ég gæti hugsana minna - Magnús Þór og Jónas Sig Whole again - Daði Freyr Pínulítill karl - Þursaflokkurinn 7 ár síðan - María Bóel Ég er að bíða eftir þér - Erla og Gréta

Víðsjá
Hafnarfest, Listasafn Árnesinga, Taktu flugið beibí-rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 23, 2024 50:50

Í Hafnarhúsi við Tryggvagötu hafa hátt í 300 listamenn, hönnuðir, forritarar, frumkvöðlar og annað skapandi fólk aðsetur í um 90 vinnustofum og samstarfsrýmum undir hatti Hafnar haus. Verkefnið hófst að frumkvæði hóps sem leiddur var af Haraldi Þorleifssyni, frumkvöðli, en á aðeins tveimur árum hefur í hafnarhaus orðið til suðupottur hugmynda og samsköpunar, samfélag forvitni og sköpunargleði, sem leitt er af notendunum sjálfum. Víðsjá kom við á opnu húsi í Hafnarhúsi á laugardag og kynnti sér þá gríðarlegu grósku sem þar fer fram. Trausti Ólafsson leikhúsrýnir verður einnig með okkur í dag, en hann fór að sjá sýninguna taktu flugið, beibí, sem frumsýnd var í Kassanum í Þjóðleikhúsinu 12 september síðastliðinn. En við hefjum þáttinn á því að fara austur fyrir fjall. Í Listasafni Árnesinga í Hveragerði standa nú yfir tvær einkasýningar og fjórar samsýningar. Sigurður Guðjónsson sýnir verkið Hljóðrof í sal eitt, þar sem strúktúr baðaður ljósi og hljóði verður alltumlykjandi í rökkvuðu rýminu. Í næsta sal sýnir sýnir Þórdís Jóhannesdóttir verk sem hún byggir á ljósmyndatækninni, en sýninguna kallar hún Millibil. Í öðrum rýmum safnsins er að samsýningar á verkum eftir íslenska og erlenda listamenn sem allir eiga það sameiginlegt að tengja saman á einhvern hátt listir og vísindi. Safnstjórinn Kristín Scheving er sýningarstjóri sýningarinnar Lífrænar hringrásir í samstarfi við Jennifer Heliu DeFelice og hún tók á móti Víðsjá í safninu. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

gu krist sigur umsj hlj verkefni hverager trausti scheving taktu melkorka
Karfan
Aukasendingin: Hannes ræðir Bónus deildirnar, landsliðin og verkefni KKÍ í upphafi tímabils

Karfan

Play Episode Listen Later Sep 11, 2024 39:03

Aukasendingin fékk Hannes S. Jónsson framkvæmdarstjóra KKÍ og varaforseta FIBA Europe í spjall um Bónus deildirnar, landsliðsumar yngri landsliða, verkefni A landsliða Karla og kvenna á komandi vetri, rödd Íslands í körfuboltaheiminum og margt fleira.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.

kk b nus tactica verkefni upphafi landsli hannes r fiba europe kristalls
Spegillinn
Hver er Keir Starmer og hvaða verkefni bíða?

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 5, 2024 10:00

Hvaða verkefni bíða hins nýja forsætisráðherra Bretlands og nýrrar ríkisstjórnar hans? Halla Gunnarsdóttir hefur lengi fylgst vel með breskum stjórnmálum og starfaði um tíma innan þeirra. Hún bendir á að auka þurfi hagvöxt í landinu og lagfæra mikilvæga innviði, Bretland sé að mörgu leyti illa statt. Ævar Örn Jósepsson fjallar um fortíð Keirs Starmers, lögfræðings sem var öflugur verjandi og baráttumaður í mannréttindum sem varð grjótharður saksóknari. Hann þykir ekki sérlega litríkur og sjarmerandi, en á móti eldklár og rökfastur.

hva keir starmer hver hann og hva verkefni bretlands bretland
Samfélagið
Samtökin Akratorg, hleðsluinnviðir á Vestfjörðum, málfar og súrdeigsbakstur og samlíf fólks og örvera

Samfélagið

Play Episode Listen Later Apr 12, 2024 59:04

Miðbæjarsamtökin Akratorg á Akranesi safna núna undirskriftum í því skyni að fá bæjaryfirvöld til að skoða þann kost að láta breyta gamla húsi Landsbankans við Akratorg í ráðhús. Bjarnheiður Hallsdóttir er í stjórn þessara samtaka. Hún segir okkur nánar frá þessu máli. Svo tölum við aðeins um aðgengi að hleðslu fyrir rafbíla á Vestfjörðum. Hjá Bláma í Bolungarvík er unnið ýmsum verkefnum sem tengjast orkuskiptum í þeim landshluta og nýlega lagði Blámi mat á stöðu hleðsluinnviða á Vestfjörðum. Við ræðum við Þorstein Másson, framkvæmdastjóra Bláma. Við heyrum málfarsmínútu úr smiðju Önnu Sigríðar Þráinsdóttur, málfarsráðunauts, um sögnina fjölhæfu - að bera VIð kynnum okkur svo súrdeigsbrauð, fólk sem bakar það og hvernig bakararnir hugsa um og tengjast örverunum sem eiga stóran þátt í að skapa brauðið. Ragnheiður Maísól Sturludóttir, meistaranemi í þjóðfræði og forfallinn súrdeigsbakari til margra ára, er að rannsaka þetta og flutti erindi á ráðstefnu sem nú stendur yfir í Þjóðminjasafninu. Verkefni hennar er liður í stærra rannsóknarverkefni á vegum Háskóla íslands, svokölluðu öndvegisverkefni þar sem sjónum er beint að samlífi manna og örvera og hinum ýmsu birtingarmyndum þess í daglegu lífi. Tónlist: CROSBY, STILLS, NASH & YOUNG - Teach Your Children. LÓNLÍ BLÚ BOJS - Heim Í Búðardal. GRAFÍK - Bláir fuglar.

stills samt svo sigr saml ragnhei verkefni vestfj sturlud landsbankans bolungarv
Þú veist betur
Bandaríkin - Seinni hluti

Þú veist betur

Play Episode Listen Later Mar 24, 2024 75:36

Í síðasta þætti byrjuðum við á yfirferð okkar um það risastóra verkefni og fyrirbæri sem Bandaríkin eru. Til upprifjunar fórum við yfir stofnun landsins árið 1776, þrælastríðið milli norðurs og suðurs en enduðum svo í kringum seinni heimstyrjöldina og þann tíma þegar Franklin Delano Roosevelt er forseti. Verkefni hans var að reisa landið við eftir seinni heimstyrjöld og mín fyrsta spurning til Silju Báru Ómarsdóttur sem er aftur komin til að fara yfir málin með okkur.

Samfélagið
Jarðkönnun í Grindavík, sjálboðaliðar í dreifbýli og nýr kolkrabbi

Samfélagið

Play Episode Listen Later Feb 23, 2024 55:00

Almannavarnir kynntu fyrr í vikunni stöðuna á jarðkönnunarverkefni sem hefur staðið yfir í nokkrar vikur og er hluti af heildaráhættumati fyrir Grindavík. Verkefnið hefur samkvæmt tilkynningu frá Almannavörnum þann tilgang að auka öryggi einstaklinga með því að rannsaka og kortleggja sprunguhættu. Hjördís Guðmundsdóttir samskiptastjóri Almannavarna segir okkur nánar frá þessu. Má kvenfélagið selja sveitarstjórninni kökur ef það er bakari á staðnum? Hvað finnst fólki um sjálfboðaliðastörf, hvenær finnst því í lagi að gefa vinnu sína og hvaða þýðingu geta þessi störf haft? Eru þau alltaf og alls staðar vinnumarkaðsbrot eða bara stundum og sums staðar? Jónína Einarsdóttir, prófessor í mannfræði hefur rannsakað þann sið að senda börn í sveit frá ýmsum hliðum, í framhaldinu beindi hún sjónum sínum að sjálfboðastörfum fólks sem kemur hingað erlendis frá og því næst rannsakaði hún viðhorf til sjálfboðaliðastarfa almennt, í sveitum og dreifbýli. Við ræðum við hana. Það var sagt frá því í Morgunblaðinu á dögunum að íslenskir vísindamenn hefðu lýst nýrri tegund kolkrabba í grein í tímaritinu Zoological Letters. Kolkrabbi þessi hefur hlotið heitið Ægir, eða Muusoctopus aegir. Steinunn Hilma Ólafsdóttir sjávarlíffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun er einn höfunda greinarinnar. Hún ætlar að segja okkur frá þessari uppgötvun og ræða við okkur um rannsóknir í undirdjúpunum.

gu hva hj eru einarsd grindav morgunbla verkefni hafranns
Morgunvaktin
Málefni útlendinga, Íslendingasamfélagið í Danmörku og verkefni Þjóðskrár

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Feb 20, 2024 130:00

Málefni útlendinga eru fyrirferðarmikil í þjóðfélagsumræðunni þessa dagana og hafa reyndar verið um allnokkurt skeið. Umræðan er óneitanlega nokkuð þvæld eins og gjarnan gerist þegar tilfinningar og skoðanir eru í spilinu; þá vilja staðreyndir og lagabókstafur skolast til. Við glugguðum í lögin sem liggja til grundvallar þeim farvegi sem mál fara í; það eru lög um útlendinga; þau eru viðamikil og jafnvel flókin með skýrskotunum til alþjóðasamninga, alþjóðasamstarfs og reglugerða. Hjá okkur, var Jón Sigurðsson lögmaður og formaður félags talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd. Björn Malmquist fréttamaður, sem í dag er staddur í Kaupmannahöfn, ræddi meðal annars við Árna Þór Sigurðsson sendiherra um lífið í Kaupmannahöfn og samfélag Íslendinga í dönsku höfuðborginni. Í síðasta hluta þáttarins forvitnuðumst við um starfsemi Þjóðskrár. Stofnunin sú er ein af stofnunum ársins í vali, eða kosningu Sameykis, stéttarfélags í almannaþjónustu, þar um. Flest höfum við sjálfsagt einhverjar hugmyndir um hvað þau hjá Þjóðskrá gera en okkur býður í grun að verkefnin séu jafnvel fleiri og fjölbreyttari en margir ætla. Hildur Ragnars forstjóri kom til okkar. Tónlist: Vilhjálmur Vilhjálmsson - Lítill drengur. Plant, Robert, Krauss, Alison - Please read the letter. Tatarar hljómsveit - Dimmar rósir.

Víðsjá
Auglýsingahlé, Satanvatnið og Stella Blómkvist

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 2, 2024 54:59

Ein stærsta myndlistarsýning ársins stendur nú yfir í þrjá daga á auglýsingaskiltum borgarinnar. Verkefni þetta nefnist Auglýsingahlé og er samstarf Billboard ehf., Y gallerý og Listasafns Reykjavíkur. Sýningin sem nú stendur yfir nefnist Ummyndanir og er úr smiðju Haralds Jónssonar myndlistamanns. Við ræðum við Harald í þætti dagsins. Metal ballettinn Satanvatnið er í sýningu um þessar mundir í Tjarnarbíói. Eva Halldóra Guðmundsdóttir gerði sér ferð á sýninguna segir frá upplifun sinni í þætti dagsins. Við opnum líka nýja rannsókn hér í þætti. Leggjum leið upp í Forlag og ræðum við Sigþrúði Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra um hinn dulúðlega rithöfund Stellu Blómkvist. Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson

metal billboard gu harald sig gunnarsd umsj forlag verkefni augl tjarnarb
Víðsjá
Auglýsingahlé, Satanvatnið og Stella Blómkvist

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 2, 2024

Ein stærsta myndlistarsýning ársins stendur nú yfir í þrjá daga á auglýsingaskiltum borgarinnar. Verkefni þetta nefnist Auglýsingahlé og er samstarf Billboard ehf., Y gallerý og Listasafns Reykjavíkur. Sýningin sem nú stendur yfir nefnist Ummyndanir og er úr smiðju Haralds Jónssonar myndlistamanns. Við ræðum við Harald í þætti dagsins. Metal ballettinn Satanvatnið er í sýningu um þessar mundir í Tjarnarbíói. Eva Halldóra Guðmundsdóttir gerði sér ferð á sýninguna segir frá upplifun sinni í þætti dagsins. Við opnum líka nýja rannsókn hér í þætti. Leggjum leið upp í Forlag og ræðum við Sigþrúði Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra um hinn dulúðlega rithöfund Stellu Blómkvist. Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson

metal billboard gu harald sig gunnarsd umsj forlag verkefni augl tjarnarb
Samfélagið
Próf og námsmat, verkefnið eitt barn - öll börn, upptaka frá 1957

Samfélagið

Play Episode Listen Later Dec 18, 2023 57:18

Próf hafa verið svolítið í umræðunni undanfarið; niðurstöður PISA-könnunar, mikilvægi samræmds námsmats og svo er prófatíð margra skóla nýlokið. Við fjöllum um próf og námsmat, eru próflausir skólar framtíðin eða eru próf nauðsynleg? Hvað er leiðsagnarmat? Við tökum púlsinn á fólki á Háskólatorgi og ræðum við Berglindi Gísladóttur, lektor á menntavísindasviði Háskóla Íslands. Benedikt Hallgrímsson, prófessor við háskólann í Calgary í Kanada, kynnti í síðustu viku rannsóknir sínar tengdar heilsu barna. Hann hefur búið þar ytra í um 40 ár og telst nú með fremstu vísindamönnum Kanada. Í fyrirlestrinum sagði hann frá verkefninu One child, every child eða Eitt barn, öll börn sem skoðar heilsu barna í víðu samhengi. Verkefnið fékk stóran, margra ára styrk frá kanadíska ríkinu, þann stærsta sem Calgary-háskóli hefur hlotið. Við ræðum við Benedikt um efni fyrirlestursins. Við bregðum okkur aftur til ársins 1957, hlustum á upptöku úr safni Ríkisútvarpsins um jólaskreytingar í kirkjugörðum.

Samfélagið
Próf og námsmat, verkefnið eitt barn - öll börn, upptaka frá 1957

Samfélagið

Play Episode Listen Later Dec 18, 2023

Próf hafa verið svolítið í umræðunni undanfarið; niðurstöður PISA-könnunar, mikilvægi samræmds námsmats og svo er prófatíð margra skóla nýlokið. Við fjöllum um próf og námsmat, eru próflausir skólar framtíðin eða eru próf nauðsynleg? Hvað er leiðsagnarmat? Við tökum púlsinn á fólki á Háskólatorgi og ræðum við Berglindi Gísladóttur, lektor á menntavísindasviði Háskóla Íslands. Benedikt Hallgrímsson, prófessor við háskólann í Calgary í Kanada, kynnti í síðustu viku rannsóknir sínar tengdar heilsu barna. Hann hefur búið þar ytra í um 40 ár og telst nú með fremstu vísindamönnum Kanada. Í fyrirlestrinum sagði hann frá verkefninu One child, every child eða Eitt barn, öll börn sem skoðar heilsu barna í víðu samhengi. Verkefnið fékk stóran, margra ára styrk frá kanadíska ríkinu, þann stærsta sem Calgary-háskóli hefur hlotið. Við ræðum við Benedikt um efni fyrirlestursins. Við bregðum okkur aftur til ársins 1957, hlustum á upptöku úr safni Ríkisútvarpsins um jólaskreytingar í kirkjugörðum.

Karfan
Aukasendingin: Máté og Óli Gunnar ræða ótímabæra kraftröðun fyrstu deildar karla, Júróstóla og verkefni landsliðsins

Karfan

Play Episode Listen Later Aug 9, 2023 84:31

Aukasendingin fékk gamla vini þáttarins þjálfara Hauka Máté Dalmay og leikmann Chowan Hawks í bandaríska háskólaboltanum Óla Gunnar Gestsson í heimsókn til þess að ræða ótímabæra kraftröðun fyrir fyrstu deild karla, forkeppni Ólympíuleika sem á dagskrá er nú í ágúst og ferð Tindastóls í FIBA Europe Cup. Kraftröðun 8. ágúst 2023 – Fyrsta deild karla:KRXXXXXXSindriXXXXXXXXXXXXÞróttur VogumXXXXXXSnæfellAukasendingin er í boði Kristalls, Lykils og Subway.

sins subway fyrsta fyrstu verkefni landsli kraftr kristalls
Fotbolti.net
Leiðin á Laugardalsvöll - KFG verkefnið og Mike í blíðunni

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jun 15, 2023

Á mánudag fer Fótbolti.net bikarinn, bikarkeppni neðri deilda, af stað. Keppnin er haldin í fyrsta skipti en lið í 2., 3. og 4. deild taka þátt. 31 félag er skráð í keppnina í ár, en úrslitaleikur hennar fer fram á Laugardalsvelli. Fjallað verður vel um keppnina á Fótbolta.net og er hluti af því sérstakt hlaðvarp í kringum keppnina, en þetta er fyrsti þátturinn. Í þættinum ræddu Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke við Arnar Laufdal, leikmann Augnabliks og fréttaritara á Fótbolta.net, um fyrstu umferðina í keppninni. Einnig hringdi Gummi í Kristján Másson, þjálfara KFG, og Mikael Nikulásson, þjálfara KFA, og fékk að heyra þeirra sýn á sumrinu hingað til. Þessi lið eru í toppbaráttunni í 2. deild og mætast í Garðabænum á morgun.

Hlaðvarp Kjarnans
Samtal við samfélagið: Áhrif stefnu­mót­un­ar og for­eldra­menn­ing­ar á barneign­ir á Ís­landi

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later May 30, 2023 49:08

Í fyrsta hlaðvarpinu eftir langt hlé fær Sigrún til sín þau Sunnu Símonardóttur aðjúnkt og nýdoktor í félagsfræði og Ara Klæng Jónsson, nýdoktor. Þau stýra stóru rannsóknarverkefni, sem fékk öndvegisstyrk frá Rannís árið 2022. Verkefnið skoðar áhrif stefnumótunar og foreldramenningar á barneignir á Íslandi. Í stóra samhenginu hefur fæðingartíðni löngum verið há á Íslandi í en hún hefur þó farið hríðlækkandi síðastliðinn áratug. Þau Sunna og Ari sem leiða verkefnið ásamt Ásdísi Arnalds forstöðumanni Félagsvíndastofnunar skoða þessar breytingar og vilja öðlast skilning á ástæðum þeirra. Þau segja Sigrúnu frá verkefninu og ræða um þær niðurstöður sem að komnar eru fram, meðal annars um hvort að fjölskyldustefna á Íslandi styðji nægilega við barnafjölskyldur og fangi síaukinn fjölbreytileika og breyttar þarfir fjölskyldna, ásamt því að greina hvernig foreldramenning mótar ákvarðanir um barneignir.

Stundin
Samtal við samfélagið: Áhrif stefnumótunar og foreldramenningar á barneignir á Íslandi

Stundin

Play Episode Listen Later May 30, 2023

Í fyrsta hlaðvarpinu eftir langt hlé fær Sigrún til sín þau Sunnu Símonardóttur aðjúnkt og nýdoktor í félagsfræði og Ara Klæng Jónsson, nýdoktor. Þau stýra stóru rannsóknarverkefni, sem fékk öndvegisstyrk frá Rannís árið 2022. Verkefnið skoðar áhrif stefnumótunar og foreldramenningar á barneignir á Íslandi. Í stóra samhenginu hefur fæðingartíðni löngum verið há á Íslandi í en hún hefur þó farið hríðlækkandi síðastliðinn áratug. Þau Sunna og Ari sem leiða verkefnið ásamt Ásdísi Arnalds forstöðumanni Félagsvíndastofnunar skoða þessar breytingar og vilja öðlast skilning á ástæðum þeirra. Þau segja Sigrúnu frá verkefninu og ræða um þær niðurstöður sem að komnar eru fram, meðal annars um hvort að fjölskyldustefna á Íslandi styðji nægilega við barnafjölskyldur og fangi síaukinn fjölbreytileika og breyttar þarfir fjölskyldna, ásamt því að greina hvernig foreldramenning mótar ákvarðanir um barneignir.

Lestin
Duftker í Epal, kynlífstæki úr íslenskum hráefnum, slóttugar vélar

Lestin

Play Episode Listen Later May 3, 2023

Bálfarir hafa aukist undanfarin ár og áratugi og eru orðnar meira en helmingur af öllum útförum á Reykjavíkursvæðinu, og gera má ráð fyrir að aukningin eigi eftir að verða meiri á næstu áratugum. Á hönnunarmars sýnir íslenska fyrirtækið Aska Bio Urns nýja hönnun sína, á vistvænum niðurbrjótanlegum duftkerum úr endurunnum pappa. Við kíkjum í Epal og ræðum við stofnanda fyrirtækisins. Getur það verið unaðslegt að bjarga náttúrunni? Hvað ef við hugsuðum um jörðina sem elskhuga fremur en móður? Þær Antónía Bergþórsdóttir og Elín Margot hafa undanfarið ár verið að vinna að því að búa til unaðstæki úr íslenskum hráefnum. Í dag á fyrsta degi Hönnunarmars bjóða þær gesti velkomna inn í ferlið að skoða frumgerðir slíkra tækja og pæla með þeim hvernig slík unaðstæki gætu litið út. Verkefnið heitir Fró(u)n og er hluti af Hönnunarmars í ár - Við fáum vikulegan pistil frá Hauki Má Helgassyni rithöfundi, sem er þessa dagana, eins og svo margir með hugann við gervigreind. Í dag heyrum við um slóttugar vélar og sálfræðinginn og tölvunarfræðinginn Geoffry Hinton sem sagði starfi sínu lausu frá Google til þess að geta varað við þróun gervigreindar án þess að skaða fyrirtækið.

Lestin
Duftker í Epal, kynlífstæki úr íslenskum hráefnum, slóttugar vélar

Lestin

Play Episode Listen Later May 3, 2023 55:00

Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar,Öllum hnútum kunnug, ímyndunarafl

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 1, 2023

Einn af hápunktum ársins í heimi hönnunar er hönnunarvikan í Stokkhólmi fer fram í febrúar ár hvert. Íslenskir hönnuðir kynntu þar áhugaverkt verkefni í þetta sinn, sem enn er til sýnis í Stokkhólmi, verk sem kallast Knowing the Ropes , eða Öllum hnútum kunnug. Verkefnið er unnið á mörkum hönnunar og myndlistar og skoðar táknræna vídd reipisins í norrænni samtímamenningu, en grunnur þess hverfist um tvær kaðlaverksmiðjur; Hampiðjuna í Reykjavík og Aarhus Possementfabrik í Danmörku. Brynhildur Pálsdóttir hönnuður verður gestur okkar í dag og segir okkur frá verkefninu og því sem hæst bar í Stokkhólmi. Og Freyja Þórsdóttir flytur sinn þriðja pistil á heimspekilum nótum. Að þessu sinni fjallar hún um ímyndunaraflið sem okkar merkilegustu og hættulegustu gjöf og hvaða áhrif það hefur á merkingarbær tengsl okkar við heiminn. En við byrjum í leikhúsinu. Leikhópurinn Alltaf í boltanum stendur að sýningunni Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar sem frumsýnd verður í Tjarnarbíó annað kvöld. Verkið skyggnist inn í hvernig enskir knattspyrnuleikir krydda líf fjögurra íslenskra karlmanna. Tilfinningar þeirra fá lausan tauminn og spennan, innan sem utan vallar, eykst með framvindu leiksins svo úr verður óútreiknanleg atburðarás sem spannar 90 mínútur. Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir leit við á æfingu leikhópsins og ræddi við leikstjórann, Viktoríu Blöndal og einn leikaranna, Albert Halldórsson. Umsjón: Halla Harðardóttir

viktor ropes reykjav llum einn umsj hampi alltaf verkefni verki leikh stokkh tjarnarb
Víðsjá
Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar,Öllum hnútum kunnug, ímyndunarafl

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 1, 2023 55:00

Óli Björn - Alltaf til hægri
Varðmenn kerfisins og hagkvæmni ríkisrekstrar

Óli Björn - Alltaf til hægri

Play Episode Listen Later Jan 24, 2023 15:41

Talsmenn ríkisrekstrar þola illa að bent sé á mikla aukningu ríkisútgjalda á umliðnum árum. Og fátt virðist fara verr í þá en þegar spurt er hvort almenningur fái betri og tryggari þjónustu í samræmi við aukin útgjöld ríkisins. Varðmenn ríkisrekstrar – kerfisins – bregðast hart við þegar reynt er að spyrna við fótunum – koma böndum á aukningu ríkisútgjalda og hærri skattheimtu. Í draumaríki þeirra eru lífsgæði mæld út frá hlutfallslegri stærð þeirrar sneiðar sem hið opinbera tekur af þjóðarkökunni – hversu djúpt er seilst í vasa launafólks og fyrirtækja. Því stærri sneið og því dýpra sem er farið, því betra er samfélagið. Engu skiptir þótt kakan verði sífellt minni og krónunum í vösum launafólks fækki. Hlutfallsleg stærð sneiðarinnar er mælikvarðinn, sem allt miðast við. Þessi hugsunarháttur ríkisrekstrarsinna mun fyrr fremur en síðar leiða okkur í ógöngur og draga úr lífskjörum til framtíðar. Verkefni komandi ára er því ekki að auka enn frekar útgjöld ríkisins, heldur að aukna framleiðni í opinberum rekstri og tryggja aukna hagkvæmni.

var menn verkefni
illverk
THE FREEZER MOM (ÁSKRIFT)

illverk

Play Episode Listen Later Sep 1, 2022 5:33

24 mars árið 2015 byrjaði ósköp venjulega fyrir útburðar teymi Detroit borgar. Verkefni dagsins var að bera út leigjanda í litlu húsi. Leigjandinn, sem hét Mitchelle Blair og bjó þarna með börnunum sínum fjórum, skuldaði rúma 2000 dollara í leigu og hafði ekki brugðist við neinum bréfum eða viðvörunum um útburð. Þegar teymið kom að húsinu og bönkuðu var enginn heima. Þau opnuðu því dyrnar og gengu inn. Húsið var viðbjóðslegt, blettir og skítur ásamt drasli þöktu gólfið - Sem var þó ekkert miðað við þau sem þau áttu eftir að finna í frystikistu inní stofu. Á svipstundu, varð mál "The Freezer Mom" eitt það umtalaðasta í Bandaríkjanna. Þessi þáttur er í áskrift. Þú getur hlustað á hann í heild sinni með því að skrá þig í ILLVERK ÁSKRIFT - Við skráningu færð þú aðgang að yfir 150 aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði og þessa fríu vikulegu án auglýsinga. Kynntu þér endilega málið inni á WWW.ILLVERK.IS

detroit www sem freezer bandar skrift verkefni mitchelle blair
Lestin
Drungalegur sumarslagari, Beast, fangelsislist og Gorbachev

Lestin

Play Episode Listen Later Aug 31, 2022 55:00

Undanfarnar viku fór hópur alþjóðlegra listamanna farið daglega inn á fangelsið á Litla Hrauni og unnið list með vistmönnum. Í gær og fyrradag sýndu listamennirnir, bæði fangar og frjálsir, á Litla Hrauni og svo Eyrarbakka. Verkefnið er á vegum Sögu listavinnuseturs og félagasamtakanna Múrar Brotnir. Við ræðum við þrjá skipuleggjendur verkefnisins. Drungalegur sumarslagari sem var saminn og tekinn upp á níunda áratugnum en kom ekki út fyrr en árið 2013 verður undir smásjánni í dag. DJarnir og hljómsveitin Johnny Blaze og Hakki Brakes komu með umrætt lag á USB-lykli og ræddu syntha, ölduhljóð og aðdáun sína á þessu lagi sem þeir spila á dj-settum, áður en gestir mæta, aðallega fyrir sjálfa sig. Baltasar Kormákur sendi nýlega frá sér kvikmyndina Beast, skepnuna, um morðótt ljón sem heldur Idris Elba og fjölskyldu í gíslingu. Ásgeir Ingólfsson skoðar samband manna og ljóna í Hollywood og rýnir í Beast.

Lestin
Drungalegur sumarslagari, Beast, fangelsislist og Gorbachev

Lestin

Play Episode Listen Later Aug 31, 2022

Enski boltinn - Salah pirrar marga, Nallarar missa sig og óvænt verkefni

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Aug 29, 2022

Gummi og Steinke settust niður í dag og fóru yfir fjórðu umferðina í ensku úrvalsdeildinni í hlaðvarpinu Enski boltinn. Það var margt áhugavert sem átti sér stað í umferðinni sem var um helgina. Man Utd er hægt og rólega að hrökkva í gang, Liverpool svaraði með flugeldasýningu, Brighton er á flugi, Chelsea vann einum færri, Haaland í stuði, Nallarar í skýjunum, Tottenham er vél sem mallar og Gerrard verður fyrst rekinn. Þetta og margt fleira í þætti dagsins. Það var jafnframt boðið upp á óvænt verkefni sem þáttastjórnanda datt í hug rétt áður en farið var í upptöku.

Virðing í uppeldi
72. Betri borg fyrir börn

Virðing í uppeldi

Play Episode Listen Later Jun 24, 2022 48:14

Í þessum þætti ræðir Gyða Björg Sigurðardóttir við þrjár konur, þær Karen Lind Gunnarsdóttur, sálfræðing hjá Þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar, Gró Einarsdóttur, doktor í félagssálfræði, og Emblu Vigfúsdóttur, listrænan leikjahönnuð. Þær starfa í teymi sem vinnur að verkefninu „Betri borgar fyrir börn“ sem unnið er í samstarfi milli þjónustu- og nýsköpunarsviðs Reykjavíkurborgar og Bloomberg Philanthropies. Verkefnið felur í sér þjónustuumbreytingu á opinberri þjónustu við börn af hálfu borgarinnar. Á Hönnunarmars var sett upp sýning í Hörpunni þar sem afrakstur rannsóknarvinnunnar var sýnd á listrænan, áþreifanlegan og sjónrænan máta. Við fjöllum um rannsóknaraðferðir, þær áskoranir sem helst komu upp á yfirborðið og hvernig nýta mætti listina til að miðla og túlka þjónustuferli og upplifun fólks. Vonir eru bundnar við að þetta verkefni muni leiða til bættrar þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra til að hjálpa þeim sem lenda í krókaleiðum í kúluspili lífsins.

Flakk
23062022 - Flakk um vistvænan vegvísi í byggingariðnaði

Flakk

Play Episode Listen Later Jun 23, 2022

Byggjum grænni framtíð er samstarfsverkefni stjórnvalda og hagaðila byggingariðnaðarins um vistvænni mannvirkjagerð en það á meðal annars rætur sínar að rekja til aðgerðar C.3 í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum. Verkefnastjórn verkefnisins er skipuð fulltrúum frá Grænni byggð, Samtökum iðnaðarins, Vegagerðinni, Umhverfisstofnun, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, félagsmálaráðuneytinu og HMS. Verkefnið á rót sína að rekja til aðgerðar C.3 í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum og er mikilvægt í ljósi þess að mannvirkjageirinn ber ábyrgð á 30-40% af losun á heimsvísu. Hlutfallsleg auðlindanotkun og orkunýting hans er á svipuðu reiki. Í þessum þriðja hluta verkefnisins er vegvísir til grænni byggðar kynntur Í þættinum er rætt við Jóhönnu Klöru Stefánsdóttur hjá Samtökum Iðnaðarins, Þóru Margréti Þorgeirsdóttur hjá Húsnæðis og Mannvirkjastofnun og Magnús Rannver Rafnsson byggingaverkfræðing.

stef magn samt hms margr verkefni sambandi vegager umhverfisstofnun

Samtal við samfélagið – Staða láglaunakvenna í íslensku samfélagi

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later Apr 25, 2022 43:00

Berglind Hólm Ragnarsdóttir, lektor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri (HA), fer fyrir rannsóknarhópi sem rannsakar um þessar mundir stöðu láglaunakvenna á Íslandi. Verkefnið ber yfirskriftina „Working Class Women, Well-being and the Welfare State: New Evidence from the Icelandic Context“ sem útleggst á íslensku sem „Láglaunakonur, vellíðan og velferðarkerfið í íslensku samhengi.“ Með Berglindi í rannsóknarhópnum eru þær Andrea Hjálmsdóttir, lektor við HA, Bergljót Þrastardóttir, lektor við HA og Valgerður S. Bjarnadóttir, nýdoktor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Samstarfsaðilar verkefnisins eru annars vegar Varða – rannsóknastofnun vinnumarkaðarins og hins vegar RHA – Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri. Markmið rannsóknarinnar er tvíþætt. Í fyrsta lagi rannsakar hópurinn áhrif atvinnu, fjölskyldulífs og félags- og efnahagslegrar stöðu á líkamlega og andlega velferð láglaunakvenna. Í öðru lagi greinir hópurinn reynslu láglaunakvenna af íslensku velferðarkerfi og hvert hlutverk kerfisins er í að viðhalda félagslegum ójöfnuði. Berglind lauk doktorsprófi í félagsfræði frá City University of New York árið 2019 en doktorsrannsókn hennar fjallar einmitt um stéttaskiptingu meðal kvenna á Vesturlöndum og áhrif fjölskyldustefna á stéttaskiptingu kvenna og janfrétti kynjanna. Berglind var nýdoktor við Memphis háskóla skólaárið 2019/2020 og var ráðin til HA árið 2020. Guðmundur Oddsson, dósent í félagsfræði við HA, ræddi við Berglindi Hólm um þessa áhugaverðu rannsókn og ferilinn.

new york var gu city university lagi samtal akureyri sam f berglind bjarnad markmi valger verkefni ragnarsd oddsson menntav berglj
Besta platan
#0133 Dr. Gunni – ... og hans ýmsu sveitir og verkefni

Besta platan

Play Episode Listen Later Apr 15, 2022 97:54

S02E33  – Helstu upplýsingar: www.bestaplatan.com/pistlar  – Heimsækið www.bestaplatan.com fyrir allt eldra efni.

hans heims gunni verkefni helstu
Morgunútvarpið
11. mars - Skemmtiferðaskip, húsnæðismál, ESB, Úkraína, afglæpavæðing

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Mar 11, 2022

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kemur til Reykjavíkur um miðja næstu viku. Hollenskt skip sem tekur um 1.400 farþega, er rúmlega 237 metra langt, 32 metra breitt og tæplega 62 þúsund brútt­ót­onn. Við ræddum við Ernu Kristjánsdóttur, markaðs- og gæðastjóra Faxaflóahafna, um komu farþegaskipa í ár en faraldurinn hafði talsverð áhrif á komur þeirra síðustu tvö sumur. Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, hyggst á næstu dögum skipa stýrihóp til að bregðast við gríðarlegum verðhækkunum á húsnæðismarkaðnum. Hópurinn á að móta húsnæðisstefnu sem unnin verður í víðtæku samráði við hagsmunaaðila víða í þjóðfélaginu, og stefnan verður lögð fyrir Alþingi til samþykktar í formi þingsályktunar. Við ræddum við Sigurð sem segir að ef hans áform ganga eftir verði horft til þess að setja markið á að það verði byggðar allt að tuttugu þúsund íbúðir á næstu fimm árum. Tæplega helmingur landsmanna er nú hlynntur aðild Íslands að Evrópusambandinu, samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Stuðningurinn við aðild viðist hafa aukist verulega á síðustu mánuðum en í mælingum MMR í desember í fyrra voru tæplega 31 prósent hlynnt aðild á meðan rúmlega 44 prósent svarenda voru andvígir aðild Íslands að ESB. Við ræddum Ísland og Evrópusambandið við Loga Einarsson, formann Samfylkingarinnar, og Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, en hún hefur lagt fram þingsályktunartillögu þar sem ríkisstjórnin er hvött til að draga formlega til baka umsókn Íslands um aðild. Á föstudögum förum við yfir fréttir vikunnar og eðli málsins samkvæmt ræddum við einungis eitt mál í dag, innrás Rússa í Úkraínu. Rósa Magnúsdóttir, sagnfræðingur, hefur fylgst vel með framvindu mála og fór yfir stöðuna með okkur. . Covid faraldurinn hefur haft gríðarleg áhrif á atvinnumarkaðinn eins og flestir vita. Ýmis átaksverkefni ríkisins hafa þó komið þar á móti, t.d. verkefnið Hefjum störf. Við ætlum að heyra af áhugaverðu verkefni sem þessu tengist og til okkar kom Sveinn Waage og sagði okkur frá. Verkefnið heitir Leikjavæðum lærdóm og við fengum að vita fyrir hvað það stendur og hvernig tókst að koma því af stað. Í vikunni opnaði neyslurýmið Ylja í Reykjavík. Í rýminu munu einstaklingar, 18 ára og eldri, geta neytt ávana- og fíkniefna í æð undir eftirliti starfsfólks. Rannveig Ernudóttir, fulltrúi í velferðarráði, segir að þó neyslurýmið hafi náð í gegn sé enn réttaróvissa enda hafi hugmyndir um afglæpavæðingu neysluskammta ekki náð í gegn og í raun geti lögregla setið um fólk utan svæðis neyslurýmisins og handtekið það fyrir vörslu neysluskammta. Hún vill taka málið lengra og

Play Episode Listen Later Mar 11, 2022 130:00