POPULARITY
Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins kom í þáttinn í dag og við ræddum við hann um brunaforvarnir og í því fór hann samhengi yfir brunann sem varð í Kringlunni í júní í fyrra og hvað má læra af honum. Með honum kom Sigrún A. Þorsteinsdóttir, sérfræðingur í forvörnum hjá VíS, en hún fræddi okkur um vinnuslys, öryggismál og forvarnir á vinnustöðum. Kristjana Dröfn Haraldsdóttir jógakennari fór í þrot árið 2017 og ákvað í kjölfarið að taka heilsuna í gegn. Í dag vinnur hún sem heilsumarkþjálfi, jógakennari og nuddari og rekur fyrirtækið Nærandi líf þar sem hún hjálpar öðrum að losa sig við streitu og ná tökum á djúpri slökun. Við heyrðum hvernig hún náði að endurstilla hugsanamynstur sem hún var föst í og öðlast betra líf. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Í þessu póstkorti segir Magnús af áhyggjum heimsins vegna bananaræktar sem nú er í hættu vegna þess að ósigrandi sveppur leggst á bananaplöntuna og drepur hana. Þetta er hægfara þróun en óstöðvandi hingað til. Bananinn er einn vinsælasti ávöxtur heims fyrir utan mango og epli og ef ekkert verður við ráðið þá munu bananar hverfa úr verslunum innan aldarfjórðungs. Tónlist í þættinum í dag: Sólarsamba / GÓSS (Magnús Kjartansson, texti Halldór Gunnarsson) Dansað á dekki / Fjörefni (P. Nicholas, texti Ellert Borgar Þorvaldsson) Vor í Reykjavík / Uppáhellingarnir (Andri Ólafsson, texti Þórarinn Már Baldursson) Og co. / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Þór Sigmundsson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Fyrir ofan Nuuk stendur stytta af trúboðanum Hanse Egede, en koma hans til Vestur-Grænlands árið 1721 markar upphaf nýlendutímans í sögu landsins. Styttan hefur margsinnis verið skemmd, hausinn jafnvel fengið að fjúka og á hana krotað; DECOLONIZE. Við skoðum samvirkni grænlensku sjálfstæðisbaráttunnar og tónlistarsögu landsins í þætti dagsins. Nína Hjálmarsdóttir rýnir líka í leiksýninguna Þetta er Laddi, sem frumsýnd var í Borgarleikhúsinu um liðna helgi, og Halla leitar að meðmælum fyrir menningarefni hjá starfsfólki verslana í Kringlunni. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Eitt af verkefnum forseta Bandaríkjanna er að skipa manneskju í stjórn Kennedy Center, sem er ein helsta menningarstofnun þar í landi. Það kom á óvart að Trump tilnefndi ekki manneskju úr menningargeiranum heldur sjálfan sig. Við kynnum okkur nýja fatalínu söngkonunnar M.I.A. en hún er farin að selja álpappírshatta. Á morgun er Valentínusardagur og Una Gíslrún fór í Kringluna í leit að ástföngnu fólki.
Viðmælandi þáttarins er Pétur Þór Halldórsson, forstjóri S4S. S4S rekur skóbúðirnar Steinar Waage, Kaupfélagið, Ecco, Skechers og S4S Premium Outlet, ásamt AIR verslununum og Ellingsen í Reykjavík og á Akureyri. S4S rekur einnig heildverslun og á dótturfélagið S4S Tæki sem er tækjadeild Ellingsen. Það vinna um 180 manns hjá S4S ehf. og veltir fyrirtækið um 5,5 ma kr. Pétur er fæddur árið 1964 og alinn upp í Breiðholtinu og í Vesturbænum. Hann gekk í FB og Kvennó og lauk síðan MBA prófi frá HR árið 2018. Pétur kynntist skóbransanum snemma aðeins 22 ára þegar hann byrjaði að vinna hjá Axel Ó. Hann stofnaði síðan heildsölu árið 1991, fékk Ecco umboðið árið 1997 og stofnaði Ecco búðina 2003. Síðan hefur S4S keypti Steinar Waage, Toppskóinn og Eurosko sem breytt var í Kaupfélgið í Kringlunni. Árið 2014 bættist í Nike Air búðin við og árið 2017 útivistaverslunin Ellingsen. Árið 2022 kom inn Horn framtakssjóður með það fyrir augum að skrá ætti S4S innan nokkurra ára á markað. Pétur kemur einnig að sprotafyrirtækinu Leikbreytir sem er hugbúnaðarfyrirtæki sem þróar rafrænar veskislausnir. Þessi þáttur er í boði Sólar, Arion og KPMG.
Hár blóðþrýstingur getur farið leynt og afleiðingarnar geta verið alvarlegar. Á laugardaginn er Slagdagurinn okkar og af því tilefni verður boðið uppá ókeypis blóðþrýstingsmælingu og ráðgjöf í Kringlunni og á Glerártorgi á Akureyri. Þórir Steingrímsson formaður Heilaheilla og Dr. Anna Bryndís Einarsdóttir, taugasérfræðingur, yfirlæknir Taugadeildar Landspítalans, komu í þáttinn og fræddu okkur um til dæmis merkin sem við verðum að vera vakandi um, sem gætu bent til þess að slag sé hafið, en þau eru S.L.A.G.: Sjóntruflanir, Lömun útlima, Andlitslömun og Glatað mál. Ef þessi merki eiga við hjá okkur skiptir öllu máli að hringja strax í 112 því hver mínúta er mikilvæg í að lágmarka afleiðingar heilablóðfalls. Ofbeldi virðist vera að færast í aukana hjá ungu fólki og veldur áhyggjum, hverjar eru orsakirnar og hvernig getum við brugðist við? Við fengum Soffíu Ámundadóttur, verkefnastjóra Menntafléttunnar og kennara, og Arnrúnu Maríu Magnúsdóttur, leikskólakennara í þáttinn í dag. En þær fræddu okkur um málstofu á vegum Menntafléttunnar sem ber yfirskriftina Ræðum um ofbeldi og lausnir.Soffía hefur rannsakað og fjallað um ofbeldi nemenda í meistararitgerð sinni og Arnrún María rekur eigið fyrirtæki, Samtalið fræðsla ekki hræðsla þar sem hún leggur áherslu á samtalið við börn, sem sagt að fræða en ekki hræða. Í lok þáttar glugguðum við í grein í norska ríkisútvarisins NRK, sem fjallar um hvernig kaffidrykkja getur haft áhrif á kólestrólmagn eða blóðfitu. Það er ekki sama hvernig kaffi við drekkum og hversu mikið af því. En olía í kaffi getur leitt til hækkaðs kólestrólmagns í líkamanum. Tónlist í þættinum Ferðabar / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) Reyndu aftur / Mannakorn (Magnús Eiríksson) Tíu dropar / Moses Hightower (Moses Hightower, texti Andri Ólafsson og Steingrímur Karl Teague) Kaffi til Brasilíu / Stephan Hilmarz og Milljónamæringarnir (Hillard & Miles, texti Stefán Hilmarsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Sumarið er ekki sexy. Kringlan brann, helvíti þarf hönnun að vera dýr á einfaldri brú yfir ylströnd og glænýr kynsjúkdómur sem þú mátt svo sannarlega missa af. En ekki missa af umræðunni um rándýra samloku og auðvitað þurfa æðstu embættismenn landsins að fá launahækkun eins og aðrir. Þetta og nýjustu trendin í rúminu í sumar. Góða skemmtun!
Þátturinn er í boði Maarud & Kúmen í Kringlunni
Bjarni Daníel fer á stúfanna í Kringlunni og veltir fyrir sér vondum jólagjöfum. Viðar Þorsteinsson, heimspekingur, segir frá ítalska heimspekingnum Antonio Negri, sem lést í desember. Hann er einn þeirra hugsuða sem hefur haft hvað mest áhrif á róttækar vinstrihreyfingar á seinni hluta tuttugustu aldar og upp úr aldamótum. Hann var umdeildur, á sér sérstaka sögu, sat í fangelsi og var sendur í útlegð.

Þátturinn er í boði Maarud, Heimadecor, Subway, Frank Body, Kúmen í Kringlunni, Nettó og Happy Hydrate.

Þátturinn er í boði Maarud, Kúmen í Kringlunni, Happy Hydrate, Nettó, Subway og Frank Body.
Þátturinn er í boði Maarud, Kúmen í Kringlunni, Happy Hydrate, Nettó og Subway.

Þátturinn er í boði Maarud, Kúmen í Kringlunni, Happy Hydrate og Nettó!

Þátturinn er í boði Maarud, Kúmen í Kringlunni og Happy Hydrate!
Fyrir nokkrum mánuðum stofnuðu Hafsteinn og Jóhann Leplat Ágústsson, í samstarfi við Sambíóin Kringlunni, bíóklúbbinn Bíótöfra. Klúbburinn sýnir eldri og klassískar kvikmyndir einu sinni í mánuði í Sal 1 í Sambíóunum Kringlunni. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvernig þeim fannst þessar fyrstu fimm sýningar hafa gengið, hvað er framundan, hvaða kvikmynd væri þeirra draumakvikmynd að sýna og margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Verslunarmiðstöðin Kringlan var opnuð í Reykjavík þann 13.ágúst 1987 og við rifjuðum upp hvernig þessir fyrstu dagar í Kringlunni gengu fyrir sig með fyrsta framkvæmdastjóra Kringlunnar Ragnari Atla Guðmundssyni viðskiptafræðingi sem var lokkaður í starfið frá Hampiðjunni hvar hann starfaði áður. Þetta stóð í Helgarpóstinum árið 1987 þann 27.ágúst: Kringlan er verslunarmiðstöð af þeirri gerð sem kallast MALL á ensku. Skipulagið er þannig að tvær stórar verslanir, sem fullvíst er að muni laða til sín mikinn fjölda viðskiptavina, eru settar í sitt hvorn enda. Í þessu tilfelli er um að ræða Hagkaup sem leggur undir sig norðurendann og BYKO sem fyllir þann syðri. Við hittum Ragnar í Kringlunni á 36 ára afmæli Kringlunnar. Guðjón Helgi Ólafsson sendi okkur fyrsta vinkil eftir sumarfrí í dag. Í þetta sinn bar hann vinkilinn að því sem hann kallar þvælingi og þvottavél. Guðjón útskýrði það betur í vinklinum í dag. Svo var það lesandi vikunnar, sem hóf aftur göngu sína á mánudögum í þættinum. Í dag var það Margrét Kjartansdóttir, lögfræðingur og samskiptastjóri hjá Úrvinnslusjóði, sem sagði okkur frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Margrét talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: In Memoriam e. Alice Winn, Tengdadóttirin e. Guðrúnu frá Lundi, Damon Copperhead e. Barbara Kingsolver Jón Odd og Jón Bjarna e. Guðrúnu Helgdóttur, Bróðir Minn Ljónshjarta e. Astrid Lindgren, Austan Eden e. Steinbeck og Frankenstein e. Mary Shelley Tónlist í þætti dagsins: Einu sinni á ágústkvöldi / Magnús Eiríksson og KK (Jón Múli Árnason og Jónas Árnason) It's Only a Paper Moon / Nat King Cole (Billy Rose, E.Y.Harburg & Harold Arlen) For Once in my Life / Stevie Wonder (Orlando Murden & Ron Miller) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Þátturinn er í boði Kúmen í Kringlunni og VitHit
Þátturinn er í boði VitHit og Kúmen í Kringlunni
Þátturinn er í boði Bio-kult, VitHit & Kúmen í Kringlunni.
Jóhann Leplat Ágústsson, stofnandi Facebook grúppunnar Kvikmyndaáhugamenn og Hafsteinn Sæmundsson, stjórnandi Bíóblaðurs, hafa í samstarfi við Sambíóin Kringlunni stofnað glænýjan bíóklúbb sem kallast Bíótöfrar. Markmið klúbbsins er að skapa jákvæða kvikmyndaumræðu og planið er að sýna eldri myndir í Sal 1 í Sambíóunum Kringlunni, einu sinni til tvisvar sinnum í mánuði. Strákarnir ræða þennan spennandi klúbb, helstu markmið og drauma, hvaða kvikmyndir þeir sjá fyrir sér að sýna í framtíðinni og hversu spenntir þeir eru fyrir fyrstu sýningunni sem verður fimmtudaginn 30. mars. Þátturinn er í boði Sambíóanna, Subway og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Heimsendir er okkur hugleikinn í dag og við sökkvum okkur ofan í gullkistu Ríkisútvarpsins, þar sem ýmislegt fróðlegt mátti finna um dómsdag. Við veltum fyrir okkur hugmyndum fortíðar um heimsendi en einnig nútíðar. Hugmyndir um heimsslit hafa fylgt okkur frá örófi alda. Í textum allt aftur í fornöld er að finna sögur um það hver endalok þessa heims eða tilvistar okkar manna gæti orðið. En hvað er átt við með heimsendi? Endalokalýsingar í hinum ýmsu textum, bókmenntum og trúarritum, eru fjölbreyttar og misróttækar. Þær spanna allt frá tortímingu alls lífs á jörðinni, yfir í eyðingu þeirrar veraldar sem við þekkjum og lýsing á gjörbreyttum heimi. Við heyrum brot úr þættinum Í dag frá árinu 1971 þar sem Jökull Jakobsson spyr fólk á förnum vegi hvernig það myndi verja sínum síðasta degi ef dómsdagur kæmi á morgun. Í þeim efnum hefur lítið breyst og við berum það saman við svör fólks við sömu spurningu í Kringlunni árið 2023. Björn Þorsteinsson, prófessor í heimspeki velti heimsendi fyrir sér í nokkrum pistlum í Víðsjá árið 2020. Það er nokkuð ljóst að einhvers konar heimsendir hangir yfir okkur. Ógnin er í það minnsta mikil og hvað gerum við þá? Gæti verið að í heimsendi felist ekki bara takmarkalaus eyðilegging heldur líka tækifæri til að skapa heiminn á ný?

Í gær voru rétt 40 ár frá því Kvennaathvarfið í Reykjavík var opnað af Samtökum um kvennaathvarf. Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, kom í þáttinn í dag og við fengum hana til að fræða okkur um sögu athvarfsins, hvernig þróunin hefur verið á þessum 40 árum og hver staðan er í dag. Það stendur meðal annars yfir söfnun fyrir nýju athvarfi sem á að byggja og þjónustan er sífellt að aukast. Lionsklúbburinn Ægir fór fyrst að Sólheimum árið 1957 með jólagjafir fyrir þau börn sem þar bjuggu. Allar götur síðan, eða í 65 ár, hefur klúbburinn farið á aðventunni og staðið fyrir aðventuskemmtun. Það var ákveðið fyrir tveimur árum að fanga stemninguna og gefa út geisladisk og með sölu hans er verið að safna fyrir Hljóðfærasjóði Sólheima. Næstu helgi er Sólheimamarkaður í Kringlunni þar sem fólkið á Sólheimum kemur í bæinn og selur vörur sem unnar eru á vinnustofum Sólheima. Við töluðum við Magneu Tómasdóttur tónlistar- og söngkonu, sem hefur haldið utan um verkefnið. Við fengum svo að lokum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni og í korti dagsins hélt Magnús áfram að fjalla um fólkið og ástandið á Kúbu, en ferðin hefur greinilega haft mikil og djúp áhrif á hann. Hann hefur ekki trú á að stjórnarfarið geti enst mikið lengur áfram, byltingin er að éta börnin sín og unga fólkið, nýju kynslóðirnar vilja breytingar, enda geta stjórnvöld ekki lengur einokað upplýsingaflæðið nú þegar internetið hefur opnað sýn í aðra og betri veröld en þá sem fólk býr við á Kúbu, en þar ríkir vaxandi fátækt, skortur og kúgun. Tónlist í þættinum í dag: Jólaljósin / Borgardætur (Leveen, Breen, Sampson og Andrea Gylfadóttir) Er líða fer að jólum / Sigurður Guðmundsson og Sigríður Thorlacius (Gunnar Þórðarson og Ómar Ragnarsson) Ó grýla / Björgvin Franz og Sólheimakórinn (D. Barbour og Ómar Ragnarsson) Gleði og friðarjól / Pálmi Gunnarsson (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Á laugardaginn er alþjóðadagur heilablóðfalls, en heilablóðfall er þriðja algengasta dánarorsökin í heiminum og tvær manneskjur fá slag á dag hér á landi. Heilaheill vinnur að velferðar- og hagsmunamálum þeirra er fengið hafa slag eða heilablóðfall og aðstandendum þeirra. Þeir Þórir Steingrímsson, formaður Heilaheilla og Björn Logi Þórarinsson, lyf- og taugasérfræðingur á Landspítalanum, komu í þáttinn og fræddu okkur um heilablóðfall, algengi, að þekkja helstu einkenni og viðbrögð og svo frá dagskránni á laugardaginn þar sem Heilaheill verður með fræðslu og ráðgjöf í Kringlunni, Smáralindinni og á Glerártorgi milli kl.13-15. Við vorum svo í sambandi við Spán, nánar tiltekið Tenerife, sem er orðin ein af uppáhalds eyjum Íslendinga. Við ræddum við Sigvalda Kaldalóns, öðru nafni Svala, en hann hefur búið með fjölskyldunni á eyjunni frá árinu 2017, með smá hléi í heimsfaraldrinum. Þau hjónin, ásamt öðrum eru að byggja upp fyrirtæki í ferðaþjónustu, en um 30 þúsund Íslendingar fara til Tenerife á ári. Svali segir að það sé heilmargt að skoða og upplifa á eyjunni sem ekki margir hafa hugmynd um. Það eru til dæmis 5 gróðurbelti á þessari litlu eyju. Svali fræddi okkur um Tenerife í dag. Tónlist í þættinum í dag: Það styttir alltaf upp / Ragnar Bjarnason (Jón Jónsson) One of These Things First / Nick Drake (Nick Drake) Elmar Hrafn / Geirfuglarnir (Halldór Gylfason) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Þáttaröðin „Er Elon Musk búinn að kaupa Twitter“ heldur áfram ... er Elon Musk búinn að kaupa Twitter? er spurt. Apple hættir framleiðslu iPod eftir 21 ár. Google kynnti fullt af nýjum tækjum og tækni á Google I/O og Elmar er orðinn staurblankur. Þessi þáttur er í boði Macland, Kringlunni. Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.
Nýjasti þátturinn af “Er Elon Musk búinn að kaupa Twitter” heldur áfram að fjalla um hvort Elon Musk sé búinn að kaupa Twitter. Apple hættir framleiðslu iPod eftir 21 ár. Google kynnti fullt af nýjum tækjum og tækni á Google I/O og Elmar er orðinn staurblankur. Þessi þáttur er í boði Macland, Kringlunni. Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.
Hér stóð búð! er heiti á nýrri ljósmyndasýningu sem verður opnuð á Minjasafni Akureyrar næstu helgi og þar verða sýndar gamlar ljósmyndir af kjörbúðum og sjoppum og fólk er hvatt til að koma við á safninu og rifja upp minningar af kynnum sínum af þessum gömlu búðum. Minjasafnið fagnar 60 ára afmæli á þessu ári og þessi sýning er hluti af því. Við ræddum við Harald Þór Egilsson safnstjóra og Hörð Geirsson sem er safnstjóri ljósmyndadeildar. Þátttaka kvenna í krabbameinsskimunum hefur farið minnkandi síðustu ár og er Ísland nú eftirbátur hinna Norðurlandanna í þessum efnum. Það er því mikilvægt að vekja athygli á skimunum og reyna að snúa þeirri þróun við. Þetta er málefni sem snertir okkur öll, ekki bara konur, heldur líka karla sem eiga eiginkonur, dætur, mæður, systur, vinkonur og svo framvegis. Við heyrðum í Sigríði Dóru Magnúsdóttir, framkvæmdastjóra lækninga hjá Heilsugæslunni, til að fræðast um þetta átak og við heyrðum líka í Sigrúnu Waage leikkonu, en hún er ein tólf þjóðþekktra kvenna sem deila persónulegri tengingu sinni við leghálsskimun í ljósmyndasýningunni Er kominn tími á skimun? sem hófst um helgina í Kringlunni. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Bergrún Íris Sævarsdóttir barnabókahöfundur. Hún er þessa dagana stödd í Vatnsdalnum við skriftir á nýrri bók, en í þættinum sagði hún frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og svo frá því hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Podcaststöðin góða þar sem Nóa Síríus stúdíóið gerir upptökur geggjaðar! BOLI - TUDDI - Rautt skal það vera og ekkert annað! American Style - TOUCHDOWN Style! Burgerinn sem kórónar alla borgrara! Altis - frí heimsendig næsta fimmtudag til sunnudag! Hafnafirði, Kringlunni og á altis.is
S01E86 – Esther Talía Casey er leikkona og söngkona, tveggja bara móðir og tískuáhugamanneskja. Hún er hálfur Íri en leiðir hennar og föður hennar skildu þegar hún var tveggja ára. Siðan þá hefur hún hitt hann afar óreglulega og ekki hægt að segja að hann sé hluti af lífi hennar. En það er allt í lagi og allir sáttir. Esther var söngkona hljómsveitarinnar Bang Gang en þurfti að velja á milli hljómsveitarinnar og leiklistarferilsins, vegna þess að einhverjar leiklistarfrekjur fóru fram á það. Hún hefur þurft að berjast fyrir sínu, hefur tvennar sögur að segja af farsæld þess að vinna með sínum nánustu, hefur verið með manninum sínum síðan þau voru í 10. bekk og farið gegnum súrt og sætt með honum. Hún leikur í sýningunni um Bubba Morthens, Níu lífum, sem Borgarleihúsið myndast við að sýna milli heimsfaraldurshrina. Esther finnst gaman að hafa fínt í kringum sinn og rækta garðinn sinn. Hún ferðast mikið utanlands og finnst gaman að væna og dæna. Gott spjall. – Síminn Pay býður upp á STVF. Pay Mathöll hefur nýja árið á sjóðheitu 1.000 króna tilboði. Oumph! grænmetisvefja hjá KORE á aðeins 1.000 krónur! Tilboðið gildir frá þriðjudegi til þriðjudags og þegar þú pantar og greiðir í gegnum Síminn Pay appið. Þú velur svo hvort þú vilt sækja hjá Kore Granda eða Kringlunni. – FlyOver Iceland býður upp á STVF. The Real Wild West er nýjasta sýning FlyOver Attractions. Í henni er flogið yfir Vesturríki Bandaríkjanna, t.d. Utah, Kaliforníu, Arizona og Montana. Hægt er að bóka tíma á vefnum: www.flyovericeland.is – Hljóðkirkjan býður upp á 5 þætti í viku. Dómsdagur á mánudögum, Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum og Listamenn á laugardögum.
Fractal 5 gaf út sitt fyrsta app á Slush nýsköpunarhátíðinni í vikunni: Break. Break er samfélagsmiðill sem ætlar að skipuleggja tækisfærishittinga fyrir fólk. Macland opnar nýja verslun í Kringlunni í dag(3.des)! Við rennum yfir jólabækling Elko og rekum augum í fótanuddtækið sem virðist aldrei ætla deyja. Nýja ríkisstjórnin ætlar að opna sína eigin streymisveitu til að miðla íslensku efni geymt hjá Kvikmyndamiðstöðinni. Er það sniðugt eða á bara að upphala þessu á YouTube? SpaceX er víst á leiðinni á hausinn samkvæmt Elon Musk sjálfum, nema allt starfsfólkið vinni langar vaktir um helgar til að bjarga því. Tesla kynnir fjórhjól fyrir börn sem heitir auðvitað Cyberquad. Meðstofnandi og forstjóri Twitter stígur til hliðar og hleypir nýjum að. Ætli það sé framtíð fyrir Twitter án Trump? Apple virðist hafa dregið úr framleiðslu á iPhone þetta árið en ekki er vitað hvort það sé vegna eftirspurnar eða framleiðslugetu. Þessi þáttur er í boði Elko og Macland. Stjórnendur eru: Atli Stefán, Elmar Torfason og Daníel Ingólfsson
Kringlan heimsótt og rætt við gangandi vegfarendur um kosningarnar. Agnar Freyr Helgason, stjórnmálafræðingur: vengaveltur um áhrif veðurs á hegðun kjósenda. Vísindaspjall: Edda Olgudóttir kemur með nýjustu fregnir af rannsóknum á þarmaflóru í fyrirburum.

Viðbúið er að farið verði að bjóða upp á bólusetningu barna allt niður í hálfs árs aldur eftir áramót, segir barnalæknir. Skynsamlegt sé að forða börnum frá veikindum og langtímaáhrifum covid. Mikil eftirspurn er eftir að komast í hraðpróf sem greina covid-sýkingu á innan við korteri. Nokkur einkafyrirtæki bjóða upp á þau. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst á morgun hjá embætti sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. 23. ágúst verða opnaðir kjörstaðir í Smáralind og Kringlunni. Prófessor í stjórnmálafræði telur það nýnæmi að ríkisstjórn birti gröf og yfirlit yfir árangur sinn í lok kjörtímabils. Taka þurfi yfirlýsingum hennar með fyrirvara enda ákveðinn freistnivandi til staðar þegar pólitíkusar dæma eigið ágæti. Foreldrar og börn verða að ræða hvort þau ætli að þiggja bólusetningu við COVID-19, segir umboðsmaður barna. Hún segir að langflest tólf ára börn ættu að vera nógu þroskuð til að ræða málið af skynsemi og taka verði tillit til skoðana þeirra. Séu foreldrar og börn ósammála megi hugsanlega hinkra með bólusetningu og séu foreldrar innbyrðis ósammála sé hægt að leita ráðgjafar heilbrigðisstarfsfólks. Ragnhildur Thorlacius talar við Salvöru Nordal umboðsmann barna. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hefur skilað heilbrigðisráðherra tillögum um langtímaaðgerðir í baráttunni gegn COVID-19. Hann segir ljóst að grípa þurfi til hertra aðgerða ef Landspítalinn ræður ekki við ástandið. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir spurði Þórólf í dag um hvað felist í tillögunum um langtímasóttvarnaaðgerðir. Hiti á jörðinni hækkar og þar með hækkar verð á losunarkvótum fyrir mengandi orku. Vegna þessa hafa Norðmenn náð selja 10 prósent af sinni raforku beint úr landi það sem af er ári og reikna með tvöföldun á næsta ári. Mengunin í Evrópu eykur áhugann á raforku um sæstrengi frá norðlægum löndum. Gísli Kristjánsson segir frá.

Ingunn Marta Þorsteinsdóttir og Júlía Pálsdóttir, menntaskólanemar: ræða sinn fyrsta vetur í menntaskóla, böll og árshátíðir sem aldrei urðu, pabbapeninga í Versló og nörda í MR. Þórhildur Ólafsdóttir fer á stjá í Kringlunni, með enga grímu, og spyr gesti og gangandi um nýtt líf án grímunnar. Friðrik Páll Jónsson: Stríð Ísraels og Hamas-samtakanna á Gaza breytir engu um stöðuna í Palestínudeilunni, og skilar aðeins dauða og eyðileggingu eins og fyrri átök. En þeir eru til sem telja að eitthvað hafi breyst og sjá vonarglætu.

Dr. Janus Guðlaugsson kom í þáttinn í dag og kynnti fyrir okkur niðurstöður nýrra kannana sem hann hefur gert meðal eldri borgara nú á tímum Covid sem sýna hversu mikilvægar styrktaræfingar og hreyfing eru og ef ekki er sérstaklega er passað upp á það á svona tímum, þá getur aðgerðarleysi leikið eldri borgara grátt. Janus sagði frá þessum mælingum og mikilvægi styrktarþjálfunar og forvarna í þættinum. Í dag opnar sýning í Kringlunni þar sem ólíkar listgreinar skapa eina nýstárlega heild. Um er að ræða tónlist, málverk, danslist og kvikmyndagerð. Á veggjum sýningarinnar verða 12 málverk og við hlið þeirra skjáir með listrænum myndböndum sem innihalda 12 lög. Sýningargestir geta með heyrnartólum á staðnum hlustað á lögin sem málverkin eru um, séð þau verða til í myndbandi og horft samtímis á þau fullsköpuð á sýningarveggnum. Bjarni Hafþór Helgason ssagði nánar frá þessu í þættinum en þessi viðburður er haldin til styrktar Parkisonssamtökunum. Tellington T Touch er tækni sem snýr að þjálfun dýra og er notuð í yfir 40 löndum víða um heim. Markmiðið með henni er að auka vellíðan hesta, hunda, katta og raunar allra dýra sem hafa taugakerfi, þar á meðal manna. Nú hefur þessi aðferðafræði skotið rótum í Flóanum og við fengum að heyra í þættinum þegar Margrét Blöndal að fór að heimsækja Maríu Weiss fiðlukennara og Tellington T Touch þjálfara og fræddist um hugmyndafræðina sem liggur að baki. UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Avril Lavigne – Sk8er Boi Opnaðu ferska dós af tennisboltum (já, tennisboltar eru seldir í dósum og þær opnast með flipa eins og gosdósir og gefa frá sér “ttsss” hljóð). Dragðu djúpt andann og finndu ferskan ilm síðkapítalismans streyma ofan í dýpstu lungnarætur. Farðu í Kringluna og rústaðu Kringlunni. Rústaðu líka kortinu þínu. Kauptu þig […]
Í meira en tvo áratugi hefur fólk getað lagt svokallaða aukagjöf undir jólatréð í Kringlunni sem síðan eru færðar hjálparsamtökum til útdeilingar. Sökum ástandsins í samfélaginu fór gjafasöfnunin hægt af stað í ár, en Hulda kíkti við í Kringlunni og hitti þar Baldvinu Snælaugsdóttur markaðsstjóra sem sagði okkur m.a. frá nýrri sóttfrírri leið til að gefa. Við ræddum við Árna Björn Helgason sem vill heiðra þá sem standa í fremstu línu fyrir okkur öll hin þegar kemur að baráttunni við Covid. Hægt er að tilnefna fólk sem á skilið að fá þakklætis pening og skjal fyrir baráttuna. Framtakið heitir Framverðir og er meðal annars til komið vegna reynslu Árna sem hefur sjálfur fengið Covid. Við slógum á þráðinn til Ragnhildar Þórðardóttur, Röggu Nagla, í Danmörku og ræddum aðeins jólafreistingar, núvitund og sátt á þeim neyslutíma sem framundan er og við spurðum hana í leiðinni út í ástandið í Danmörku þar sem reglur hafa verið hertar enn frekar og stefnir í lágstemmt jólahald líkt og víðast annars staðar. Gunnar Helgason er einn afkastamesti rithöfundur landsins og í ár gefur hann út bókina Barnaræninginn sem líkt og fyrri barnabækur hans hefur slegið í gegn. Linda Ólafsdóttir myndhöfundur myndskreytir bókina og þau kíktu til okkar í morgunkaffi og bókaspjall Síðasta íþróttaspjall okkar á árinu var í dag þegar Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson leit við og við fórum yfir helstu tíðindi úr heimi íþróttanna. Tónlist: Grétar Örvarsson - Á grænni grein. Mugison og GDRN - Heim. Elín Ey - Jólaljósin. Manfred Mann - Blinded by the light. José Feliciano - Feliz Navidad. Þú og ég - Mín jól (eru ætluð þér). Eivör Pálsdóttir - Dansaðu vindur. Andrea Gylfa og Ragnar Bjarnason - Hátíð í bæ. Fleetwood Mac - Gypsy. Dolly Parton - Winter wonderland.

Morgunútvarpið mán. 20.07.2020. Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir og Rúnar Róbertsson Jörð hefur skolfið á Reykjanesskaga frá því í gær og gerir enn. Við heyrðum í Kristínu Maríu Birgisdóttur upplýsinga- og markaðsfulltrúa hjá Grindavíkurbæ sem sagði okkur hvernig nóttin var og hvaða ráðstafanir hafa verið gerðar. Tryggvi Már Sæmundsson, ritstjóri Eyjar.net, var á línunni og sagði okkur frá stöðunni sem er komin upp í Eyjum vegna aflýsingar Þjóðhátíðar. Mun fólk mæta þrátt fyrir allt enda margir búnir að festa gistingu til að mynda? Þá fengum við sýn ritstjórans á vekfall háseta, bátsmanna og þerna á Herjólfi en hann skrifaði eldfiman pistil á síðu eyja.net og talar um taktleysi. Efasemdir eru uppi í röðum bænda um gagnsemi þess að endurheimta votlendi og vísindarök sögð skorta. Þetta hefur meðal annars komið fram í Bændablaðinu og nú síðast í frétt á Stöð2. Einar Bárðarson er framkvæmdastjóri Votlendissjóðs sem sendi frá sér fréttatilkynningu um málið í gær. Einar kom til okkar. Við renndum yfir helstu fréttir af íþróttum helgarinnar. Sambíóin Kringlunni buðu uppá bíósýningu í gær þar sem smáhundar voru leyfðir með í salinn. Var þetta gert í tilefni þess að Kringlan leyfir hunda á sunnudögum. Hörður Fannar Clausen var vaktstjóri í bíóinu í gær og hann fór yfir þetta með okkur. Tónlist: Sváfnir Sig - Líttu aftur. Eagles - New kid in town. GÓSS - Sólarsamba. Albatross - Já það má. Sálin hans Jóns míns - Haltu fast í höndina á mér. Ásgeir Trausti - Hringsól. Emilíana Torrini - Big jumps. Sebastian Tellier - Divine. Elíza Newman - Vaknaðu. Peter Björn og John - Young folks. 2Pac - California love. John Mayer - Carry me away.

Það var margt að frétta í vikunni. Hundaheimildamynd á RÚV, hundsbit, hundagerði og hundar í Kringlunni. Í þættinum fer ég yfir allar þessar fréttir og umræður um þær á samfélagsmiðlum.
Fjórfættir gestir létu sjá sig í Kringlunni í gær þegar smáhundar voru boðnir velkomnir í verslunarmiðstöðina ásamt eigendum sínum. Sigurjón Örn Þórsson framkvæmdastjóri Kringlunnar var á línunni og sagði okkur frá því hvernig þetta kom til og hvernig gekk. Elísabet Margeirsdóttir og Sigurður Kiernan komu til okkar en þau halda utan um veglegt hlaup í Esjunni um næstu helgi. Þar fá þáttakendur að reyna hressilega á sig því í lengsta hlaupinu fara menn 45 km í fjallinu, upp og niður hinar ýmsu brekkur, með samtals 3500 metra hækkun. Að auki eru styttri vegalendir í boði. Fyrir helgi var tilkynnt að MS væri óheimilt að nota nafnið Feta á vörur sínar vegna einkaréttar Grikklands á orðinu. Sunna Gunnars Marteinsdóttir, upplýsingafulltrúi MS, kom til okkar og ræddi það mál ásamt því að fjalla um þróun í umbúðum og önnur heiti á vörumerkjum fyrirtækisins sem kunna að vera varin einkarétti. Yfirvöld hafa um helgina haft í nógu að snúast eftir að tveir Rúmenar sem lögregla hafði afskipti af, greindust með kórónuveiruna. Reynt hefur verið að rekja ferðir þeirra og fleiri sem þeir hafa mögulega verið í samskiptum við. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra, fór yfir þetta með okkur. Við fórum yfir helstu tíðindi af íþróttum helgarinnar með Hauki Harðarsyni íþróttafréttamanni, en fótboltinn er loks farinn að rúlla hér á landi. Tónlist: Mugison - Stingum af. Band of horses - Infinite arms. Dr. Gunni og vinir hans - Glaðasti hundur í heimi. Stereophonics - Have a nice day. Hreimur - Miðnætursól. GDRN - Vorið. Bruce Springsteen - Hungry heart.

Þórhildur Edda eigandi og ráðgjafi hjá Parallel er gestur Óla Jóns í þætti 91. Parallel sérhæfir sig í greiningu og stjórnun stafrænna verkefna, innleiðingu nýrra verkferla og stefnumótun fyrir stafræna umbreytingu. Í þessu viðtalið kryfjum við hvað stafræn umbreyting er, afhverju hún er mikilvæg og fyrir hverja hún er. Þórhildur segir okkur frá ferlinu sem þau hjá Parallel fóru í gegnum með Kringlunni nýverið.
Svaðilför á Langjökul kom mikið við sögu og við ræddum jafnframt lokanir á vegum, litla íslensku í Leifsstöð og rótgróna verslun sem flytur úr Kringlunni inn á netið.
Saga piparkökuhússins er eiginlega frá örófi alda. Ekki fannst mikið um þetta á íslensku en ýmislegt uppá ensku. Piparkökur eða gingerbread var t.d. borðað í Róm til forna, einnig tengist kakan ýmis konar trú, það er bæði talað um kristna og gyðinga, en upphafið var líklega í austurlöndum. Siðurinn færist síðan til Evrópu, á sautjándu öldinni er sagt frá sérstökum félagsskap piparkökubakara, en þeir einir máttu baka piparkökur, nema um jól og páska, þá máttu allir baka þessar sögufrægu kökur eða brauð. Nürnberg var og kannski enn mögulega, útnefnd piparkökuborgin, þar og í fleiri borgum Evrópu er að finna sérstakar búðir sem selja alla vega skrautmuni, nánast listaverk gerð úr piparkökudeigi. Siðurinn að baka piparkökuhús um hátíðar er enn við líði í Evrópu, og við heyrum af því í þættinum í dag. Arkitektafélag Íslands hefur einnig blásið til piparkökukeppni, þar sem þeirra hönnun var bökuð, og um langt skeið stóð Katla fyrir slíkri keppni, og voru listavel smíðuð hús gjarnan til sýnis í Kringlunni á aðventunni. Fjallað um piparkökuhúsabakstur og rætt við Heiðdísi Helgadóttur arkitekt og teiknara sem heldur námsekið fyrir fjölskyldur í verslun sinni á Norðurbakka 1 í Hafnarfirði, Davíð Magnússon bakara hjá Brikk bakarí á Norðurbakka í Hafnarfirði, Ellert Björn Ómarsson arkitekt hjá Trípolí, sem tók þátt í piparkökuhúsakeppni Arkitektafélags Íslands, Eriku Matckovu frá Tékkalandi sem hannar og selur listavelgerð piparkökuhús að Evrópskum síð og Margréti Dórótheu Sigfúsdóttur skólastjóra Hússtjórnarskóla Reykjvíkur og nokkra nema og kennara skólans.

Í Lestinni í dag hittum við Berg Ebba Benediktsson í rúllustiga í Kringlunni og ræðum þar við hann um nýja bók hans Skjáskot, þar sem hann gerir tilraun til að greina hvaða áhrif hinn sítengdi og snjallvæddi samtími hefur á hug okkar og hjörtu. Hvernig á að íslenska hugtakið „Slow Television"? Hægt sjónvarp? Hægvarp? Í öllu falli, þá hefur sólarhringsútsending sjónvarpsþáttarins Landans verið bendluð við þetta hugtak. Það passar einhvern veginn ekki alveg enda er lítil ró yfir Landanum þennan sólarhringinn. Þar er þó eitthvað töfrum slungið í gangi - Anna Marsibil rannsakar málið. Gunnar Theodór Eggertsson rýnir tvær kvikmyndir og ástríðuverkefni, annars vegar kvikmynd Terry Gilliams, The man who killed Don Quixote, og hins vegar nýja íslenska heimildarmynd Kaf. Rætt verður um Emmy sjónvarpsverðlaunin sem voru afhent um helgina Og í pistli sínum í dag skoðar Tómas Ævar Ólafsson þessa einkennilegu strauma, hrif eða bylgjur sem geta skapast á milli fólks og valdið óútskýranlegum óþægindum. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Anna Marsibil Clausen.

Þór Sigfússon sagði frá uppvextinum í Vestmannaeyjum, stórum systkinahópi, síðar árunum í Reykjavík en hann fluttist nokkuð oft með fjölskyldunni og rætur hans liggja þá víða. Hann var lengst af í Álftamýrarskóla, síðar MH og svo í Hí þar sem hann lærði viðskiptafræði. Hann fór í framhaldsnám ásamt eiginkonu sinni Halldóru Vífilsdóttur arkitekt en þau fóru fyrst til Bandaríkjanna og síðar til Finnlands. Þar starfaði Þór m.a. hjá norræna fjárfestingabankanum. Hann sagði frá því sem þau fengust við eftir heimkomu, erfiða tíma hjá Sjóvá sem jafnframt var lærdómsríkur, og síðan sagði hann frá hugmyndinni að Sjávarklasanum, fjölskyldunni áhugamálunum og ýmsu fleiru. Þórdís Rós Harðardóttir ævintýrafíkill og lýsingahönnuður sagði frá uppvextinum í Hafnarfirði, menntaskólaárunum, Þýskalandsdvöl sem barnapía og síðar á Spáni. Hún sagði frá náminu í iðn- og vöruhönnun, starfi sínu hjá stórri íþróttavöruverslun í Kringlunni sem hét Nanoq og síðar hjá 66 °Norður, Hún sagði frá starfi sínu sem lýsingahönnuður en hún starfar mest í útlöndum og segir íslendinga ekki komna eins langt í þeim fræðum eins og aðrar þjóðir. Hún bjó um tíma ásamt eiginmanni Jóni Gunnari Vilhelmssyni og síðar börnum í Þýskalandi, Kanada, í Kína og í Hong Kong hefur ferðast mikið með fjölskyldunni á framandi slóðir og nýtur þess að ferðast í vinnuna á milli þess sem hún stundar Quigong og Taichi leikfimi.

Í þessum fyrsta þætti ársins er horft um öxl á nýliðið bókmenntaárið 2018 á Íslandi, Sunna Dís Másdóttir, Soffía Auður Birgisdóttir, Jón Yngvi Jóhannsson og Einar Kári Jóhannsson ræða um það sem hæst bar, það sem varð undir í flóðinu, um bækur sem nýliðna fortíð að sögusviði og bækur sem gerast einmitt hér og nú sem og svolítið um fræðibókaútgáfu og barnabækur. Einnig eru nokkrir vegfarendum í Kringlunni á fyrsta degi ársins spurðir út í jólabækur sínar.

Efni Lestarinnar í dag: Borgarbókasafnið hefur opnað innpökkunarstöðvar fyrir jólagjafir í Grófinni og Kringlunni. Þar er að finna gamlar bækur og afskrifuð blöð sem gestir geta endurnýtt sem gjafapappír. Rætt verður við Esther Ýr Þorvaldsdóttur, verkefnastjóra kynningar- og markaðsmála hjá Borgarbókasafninu. Og að gefnu tilefni fá hlustendur að heyra af skapandi jólagjafainnpökkun frá tónlistarmanninum Óskari Guðjónssyni. Rætt verður við Sindra Freysson rithöfund um nýja ljóðabók hans, sem nefnist Skuggaveiði. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar um nýjustu mynd Coen bræðra, The Ballad of Buster Scruggs, sex stuttmyndir um grimman heim villta vestursins sem mynda eitt heildstætt verk. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli dagsins um hátíðarofgnóttir. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
Borgarbókasafnið Kringlunni býður upp á fjölskyldustundir fyrir verðandi foreldra og foreldra með ungabörn og börn á leikskólaaldri. Sálgreinirinn Sæunn Kjartansdóttir fjallar um mikilvægi fyrstu áranna, hlutskipti foreldra, og svarar spurningum foreldra um það sem brennur á þeim, í safninu á morgun. Hún er höfundur bókanna Árin sem enginn man og Fyrstu 1000 dagarnir. Sæunn kom í þáttinn í dag. Eitt af verkefnum Íslenskrar málnefndar er að álykta árlega um stöðu íslenskrar tungu. Nú hefur málnefndin sent frá sér sína 13. ályktun og að þessu sinni er yfirskriftin ,,Íslenska á ferðaöld.“ Á Íslandi fer þeim óðum fjölgandi sem ekki hafa íslensku að móðurmáli. Málnefndin bendir á að Íslendingar verði að velta fyrir sér hvaða áhrif þessar nýju aðstæður kunna að hafa á íslenska tungu og kallar eftir vitundarvakningu í samfélaginu um mikilvægi íslensku. Auk þess stendur Íslensk málnefnd fyrir málræktarþingi í Þjóðminjasafninu í dag um þetta efni. Ármann Jakobsson, varaformaður Íslenskrar málnefndar kom í þáttinn. Tímarnir breytast og mennirnir með. Margt sem var alvanalegt fyrir ekki svo mörgum árum, er gjörsamlega horfið, eða svo til, úr samtímanum. Lísa Páls fór í leiðangur í bæinn að leita að ákveðinni vöru, öskubökkum, sem fást nánast ekki í verlsunum í dag. Þóra Sigurðardóttir í Kúnígúnd varð fyrst fyrir svörum. Umsjón Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson
Tvisvar í mánuði hittist hópur kvenna á besta aldri í Borgarbókasafninu í Árbæ, þær skrifa, lesa upp textana sína og gefa hverri annarri gagnrýni og ábendingar. Skrifstofan er opin og ókeypis ritsmiðja á vegum Borgarbókasafnsins í Árbæ, en sams konar smiðja er einnig starfrækt í Kringlunni. Þátttakendur nýta smiðjuna ýmist til að skrásetja endurminningar sínar, vinna úr sárri lífsreynslu í ljóðum, eða virkja ímyndunaraflið og skrifa skáldsögur. Skrifstofan var heimsótt í útvarpsþættinum Lestin á Rás 1. Rætt er við umsjónarmenn ritsmiðjunnar, Jónínu Óskarsdóttur og Kristínu Arngrímsdóttur, en einnig lesa þátttakendur ritsmiðjunnar úr verkum sínum. Þetta eru þær Guðríður Pálmadóttir, Valgerður Tómasdóttir, Erna Reynisdóttir, Hlíf Anna Dagfinnsdóttir, Þórgunnur Þórarinsdóttir, Birna Bergsdóttir og Sigríður Jóhannesdóttir.
Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Ásu Helgu Hjörleifsdóttur kvikmyndaleikstjóra um listina að aðlaga skáldsögur að kvikmyndaforminu en hún heldur á næstunni námskeið um efnið hjá Endurmenntun HÍ. Á námskeiðinu læra þátttakendur að skrifa handrit byggt á bók að eigin vali, og fá einstaka innsýn í þetta listform, aðlögun. Ása segir nánar frá í Lestinni í dag. Marta Sigríður Pétursdóttir kvikmyndagagnrýnandi fjallar um tvær kvikmyndir í þætti dagsins, pólsku myndina Kler eftir Wojciech Smarzowski og Gräns, eða Mæri, eftir íransk/sænska kvikmyndaleikstjórann Ali Abbasi. Tvisvar í mánuði hittist hópur kvenna á besta aldri í Borgarbókasafninu í Árbæ, þær skrifa, lesa upp textana sína og gefa hverri annarri gagnrýni og ábendingar. Skrifstofan er opin og ókeypis ritsmiðja á vegum Borgarbókasafnsins í Árbæ en sams konar smiðja er einnig starfrækt í Kringlunni. Þátttakendur nýta smiðjuna ýmist til að skrásetja endurminningar sínar, vinna úr sárri lífsreynslu í ljóðum, eða virkja ímyndunaraflið og skrifa skáldsögur. Lestin brunar upp í Árbæ og heimsækir ritsmiðju borgarbókasafnsins. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í miðvikudagspistli um hugtök væntingar og ætlunar með hliðsjón af sögunni um Ödipus konung.
Borgarbókasafnið Kringlunni býður í fyrsta sinn upp á fjölskyldustundir fyrir foreldra með ungabörn og börn á leikskólaaldri og á föstudaginn mun Sigga Dögg, kynfræðingur, ríða á vaðið með spjalli um þau áhrif sem nýtt barn hefur á foreldrana og samband þeirra og hvernig fræða má börn frá fæðingu um líkamann, samþykki og ást. Sigga Dögg kom í þáttinn í dag. Dansskóli Guðbjargar Björgvins var stofnaður árið 1982 og hefur síðan þá sinnt dansnámi með sérstaka áherslu á klassískan ballet og nútímadans fyrir unga dansara. Guðbjörg og skólinn standa nú á tímamótum, því hún hefur látið af störfum og komið skólanum í hendur nýrrar kynslóðar. Guðbjörg og Hrafnhildur Einarsdóttir, sem tekur við rekstri skólans, komu í þáttinn. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, fór í heimsókn í Skálholtsvík þar sem hún hitti Birnu Bjarnardóttur sem þar vinnur ásamt eiginmanni sínum og börnum að því að gera upp gamalt og reisulegt hús sem þau tengjast öll sterkum böndum, hvert með sínum hætti. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson
Ég spjalla um minn óhefðbundna vinnudag og um foreldramorgna sem verða í bóksafninu í Kringlunni núna 14.september (föstudagur) næstkomandi! Allskonar og umfram allt, hjartað er galopið og tækifærin leynast víða!

Fram og til baka 20.05.2018 Umsjón Felix Bergsson og Margrét Blöndal Lag dagsins - Cars - Gary Numan frá árinu 1980 Fimman - Máni Svavarsson sem valdi að fjalla um plötur sem hafa lifað með honum í gegnum lífið ABBA - Arrival 1976 Lag: My love, my life Þarna var maður byrjaður að móta sér tónlistarsmekk. Ég man eftir því að hlaupa heim úr skólanum - stelast inn í herbergi eldri systir minnar , taka plötur og hlusta á þær í heild með heyrnatólum - og lesa á umslagið um leið. Hún átti þessa plötu og ég eyðilagði hana næstum því með ofspilun. Þetta lag er ekki þekktasta lagið af plötunni, en lag sem ég man mjög sterkt eftir. KRAFTWERK - Computerworld 1981 Lag: Computer world 14 ára á kafi í nýbylgju rokki og pönki. Á þessum tíma voru spiluð lög á undan fréttum í sjónvarpi - og bara mynd af klukku. Einhver tæknimaður hjá sjónvarpinu spilaði þessa plötu - nokkrum sinnum á undan fréttum. Líf mitt breyttist þegar ég heyrði þetta - fór að kaupa trommuheila og syntha í framhaldinu. PRINCE - Purple rain - 1984 Lag: I would die 4 u Það er svo mikið af tónlist frá þessum tíma sem að hafði áhrif á mann að það er varla hægt að telja það upp. En Prince er einn af þeim fáu sem er ennþá „settur á fóninn“. PREFAB SPROUT - Jordan the comeback 1990 Lag: We let the stars go Á þessum tíma vann ég í fataverslun í Kringlunni. Yfirmaðurinn lét mig fá pening og sagði mér að fara upp í Skífu og kaupa nokkra diska til að spila í búðinni. Ég vissi lítið sem ekkert um Prefab Sprout - en sölumaðurinn sagði mér að þetta væri góður diskur. Hann rúllaði síðan daglega í búðinni - og fljótlega kunni ég hvert einasta lag uppá 10. Þetta er ennþá einn af mínum uppáhalds diskum og ég hlusta á hann reglulega. SÖNGLEIKIR - 2007 Les Miserables - Sweeny Todd - Jersey Boys Lag: Franki Valli and the four seasons - Oh what a night Segi söguna frá því hvernig ég kynntist söngleikjum árið 2007 - og hvernig ég gerði mér grein fyrir því að tónlist getur sagt sögu í gegnum melódíur. Eurovision uppgjör Gestir í hljóðveri: Laufey Helga Guðmundsdóttir Friðrik Ómar Hjörleifsson Einar Bárðarson Símtöl : Þórunn Erna Clausen Sigurður Gunnarsson Helga Möller Our Choice Toy - Netta Fuego - Kýpur Austurríki - Nobody but you Storm - Bretland Moldóva (Friðrik Ómar) Ítalía - non mi avete fatto niente (Einar) Þýskaland - You let me walk alone Búlgaría - Bones Danmörk - Higher Ground Frakkland - Mercy Fram og til baka 1960, 70, 80 og 90 Í tímaflakki dagsins var haldið til áranna 1960, 70, 80 og 90. Við heyrðum útvarpsþátt frá 1960 um þátttöku k

Við förum á Stjörnutorg í Kringlunni og hittum þar fyrir Baldur Jóhannesson, en hann heldur utan um heimspekikaffi sem hittist hálfsmánaðarlega. Næsta sunnudag mun heimspekikaffið hittast við Dominos á Stjörnutorgi til að ræða kosti og galla gróðadrifinna stórfyrirtækja. Svala Arnardóttir menningarfræðingur og pistlahöfundur okkar í Berín ætlar í dag að segja okkur frá Stasi-safninu þar í borg. Við heyrum í Guðmundi Andra Thorsyni, sem er mikill aðdáandi Stefans Zweig og sjálfsævisögu hans, Veröld sem var, en hún er bók vikunnar á Rás1. Og við sláum á þráðinn til Parísar og heyrum af samsýningu í hjarta Parísar. Sigurður Árni Sigurðsson er að setja upp verk sín í flugubúð úti í eyjunni Ile St. Louis
Þátturinn hófst á Lundúnaspjalli Sigrúnar Davíðsdóttur og fyrst á dagskrá var risnukostnaður breskra þingmanna sem komst í hámæli fyrir um áratug. Djúpt var á upplýsingum og þeim var lekið til fjölmiðla áður en þingið breytti reglum en það birtir nú upplýsingar um allan kostnað þingmanna. M.a. kom í ljós að þingmenn höfðu látið þingið borga ýmsa reikninga alls ótengda þingstörfunum, t.d. lagfæringar á tennisvelli í garði eins og fuglahús í tjörn annars. Sigrún sagði líka frá nýafstaðinni öryggisráðstefnu þjóðarleiðtoga í Munchen þar sem May, forsætisráðherra Bretlands, upplýsti m.a. að ESB-borgarar sem flytja til Bretlands munu ekki njóta sömu réttinda og þeir sem þar búa fyrir. Málefni heimilislausra voru líka rædd en kastljós breskra fjölmiðla hefur beinst að þeim eftir að heimilislaus maður fannst látinn við Westminster í síðustu viku. Árni Freyr Stefánsson, verkfræðingur hjá Mannviti, sagði frá ýmsum tæknilegum atriðum varðandi lagningu Miklubrautar í stokk. Áætlað er að framkvæmdin kosti 21 milljarð króna og að verkið geti tekið þrjú ár. Það yrði umfangsmesta einstaka samgönguframkvæmd landsins. Grafa þarf yfir 30 metra breiðan og um 10 metra djúpan skurð eftir Miklubraut, frá Snorrabraut að Kringlunni, og í hann steyptur stokkur. Hugsanlegt er að byggt verði ofan á stokknum. Vera Illugadóttir sagði frá ákærum bandarískra yfirvalda á hendur þrettán Rússum fyrir óeðlileg afskipti af forsetakosningunum í Bandaríkjunum 2016. Meðal ákærðra er maður sem kallaður er "kokkur Pútins" en sá hefur unnið ýmis verkefni fyrir Rússlandsforseta. Hann er talinn forsvarsmaður leynilegrar stofnunar í Sankti Pétursborg sem árum saman hefur dreift áróðri og lygum um internetið í þágu rússneskra stjórnvalda. Fjallað var um kynjahalla í kvikmyndagerð á Íslandi en ný samantekt Hagstofunnar sýnir að karlar hafa leikstýrt níu af hverjum tíu kvikmyndum sem framleiddar hafa verið. Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, vill grípa til margháttaðra aðgerða til að rétta þennan halla af. Leikin voru lögin Paradísarmissir eftir Högna Egilsson og Hollow talk með Choir of Young Believers úr dönsk/sænsku sjónvarpsþáttaröðinni Brúnni.