Náttúrulaus

Follow Náttúrulaus
Share on
Copy link to clipboard

Náttúrulaus er sex þátta sería í umsjón Sigrúnar Eirar sem fjallar um hinar ýmsu hliðar umhverfismála þar sem rauði þráðurinn er umhverfisvitund og einstaklingurinn. Hver þáttur hefur ákveðið þema og gestir deila sinni reynslu og vandamálum sem koma upp þegar leitast er eftir umhverfisvænum leiðum í…

RÚV


    • Feb 18, 2019 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 6 EPISODES


    More podcasts from RÚV

    Search for episodes from Náttúrulaus with a specific topic:

    Latest episodes from Náttúrulaus

    Neysla - framhald.

    Play Episode Listen Later Feb 18, 2019


    Í þættinum má finna nokkrar leiðir til þess að skoða neysluna sína og fikra sig áfram í því að gera lífið aðeins umhverfisvænna.

    Neysla

    Play Episode Listen Later Feb 11, 2019


    Dögg Patricia Gunnarsdóttir er gestur þáttarins en hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands í fyrra sem fatahönnuður. Við ræddum BA ritgerðina hennar þar sem hún skrifaði um mögulega framtíð í textílhönnun þar sem bakteríur koma til sögunnar. Dögg hafði haft áhuga á því að skoða nýjar leiðir til þess að sporna við þessari miklu neyslu sem er í tískuiðnaðinum og fór stuttlega yfir ferlið sem þarf til þess að búa til einn bómullarstuttermabol. Grænþvottur kom eins og svo oft áður til umræðu, en hann spilar stórt hlutverk í blekkingu stórfyrirtækja sem reyna að villa um fyrir neytendanum um uppruna vöru og hvað verður um hana þegar við hættum að nota hana. Þá ræddum við einnig þá hugarfarsbreytingu sem þarf að eiga sér stað og felur í sér hvernig við sem neytendur þurfum að endurhugsa neyslu okkar.

    Plast

    Play Episode Listen Later Feb 4, 2019


    Í þættinum ræði ég við Elfi Sunnu Baldursdóttur, myndlistarnema, en hún búsett í Amsterdam, við ræðum plastneyslu og hún deilir með okkur þeim leiðum sem hún fer til þess að lifa umhverfisvænna lífi. Elfur hefur búið á hinum ýmsu stöðum, þar á meðal Berlín, Amsterdam, Reykjavík og Akureyri og við veltum fyrir okkur hver munurinn er þar á þegar kemur að flokkun á heimilissorpi. Þar eru farnar ólíkar leiðir, en við komumst að því að þessir staðir eigi það sameiginlegt að alltaf er ábyrgðinni komið yfir á neytandan. Hann á að passa upp á að flokka heima hjá sér, en á móti virðist vanta að verslanir og fyrirtæki taki ábyrgð sín megin og hætti að nota plast og aðrar einnota pakkningar í svo miklu mæli.

    Umhverfisvitund.

    Play Episode Listen Later Jan 28, 2019


    Hópurinn Endurhugsa er gestur þáttarins í dag, en hann samanstendur af þeim Ágústu Gunnarsdóttur, Jóhönnu Ásgeirsdóttur og Vigdísi Bergsdóttur og við ræðum umhverfisvitund og verkefni þeirra saman í skapandi sumarstörfum í Kópavogi síðastliðin tvö sumur. Við veltum því fyrir okkur hvað þægindi séu í nútímasamfélagi og hvað við þurfum í raun og veru til þess að lifa af. Einnig ræðum við hversu mikil breyting hefur verið frá því að við vorum í leik- og grunnskóla og hvernig umhverfis-uppeldið er að byrja nú fyrr en áður.

    Fólksfjölgun

    Play Episode Listen Later Jan 21, 2019


    Sóla Þorsteinsdóttir er gesturinn að þessu sinni og við ræðum skrif hennar á veftímaritinu Flóru sem fjalla meðal annars um móðurhlutverkið á tímum loftslagsbreytinga og hvernig við sem erum líklegri til þess að gera eitthvað eða styrkja málefni ef við vitum að við græðum á því sjálf. Við ræðum einnig sinnuleysi stjórnvalda á Íslandi og heiminum öllum og hvað er hægt að gera til þess að sporna við þessu áframhaldandi ástandi, þar sem að stjórnvöld lofa miklu en gera lítið.

    Veganismi

    Play Episode Listen Later Jan 14, 2019


    Eyja Orradóttir er gestur þáttarins og við pælum í veganisma út frá umhverfinu. Þá veltum við fyrir okkur stöðu veganisma á Íslandi sem og vegan fatnaði þar sem að hann er gjarnan búinn til úr gerviefnum (þar á meðal plastefni) sem skila sér í sjóinn við þvott. Einnig ræðum við kjötneyslu og hvort að það þurfi að verða breyting á viðhorfi fólks gagnvart kjöti að því leiti að það verði flokkað sem lúxusvara, vegna þess hve mikil áhrif ræktun dýra hefur á umhverfið.

    Claim Náttúrulaus

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel