Podcasts about Akureyri

  • 190PODCASTS
  • 2,046EPISODES
  • 1h 17mAVG DURATION
  • 5WEEKLY NEW EPISODES
  • Jun 10, 2026LATEST
Akureyri

POPULARITY

20192020202120222023202420252026

Categories



Best podcasts about Akureyri

Show all podcasts related to akureyri

Latest podcast episodes about Akureyri

Spegillinn
Eldhúsdagur, innleiðing farsældarlaga gagnrýnd og fleiri pólitískir bæjarstjórar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 10, 2026 20:00


Almennar stjórnmálaumræður eða eldhúsdagur er á Alþingi eins og venja er undir þinglok. Samkvæmt dagskrá á síðasti þingfundur vorsins að vera á föstudag en litlar líkur eru taldar á því að það gangi eftir. Þingið var frekar rólegt fram eftir vetri en andtinn breyttist þegar farið var að ræða um þjóðaratkvæðagreiðslu sem verður síðsumars. Umboðsmaður barna segir að enn vanti úrræði fyrir börn sem þurfi mest á samþættri þjónustu og sérúrræðum að halda. Það hafi því miður ekki tekist að tryggja þau með innleiðingu laga um farsæld barna. Ríkisendurskoðandi telur innleiðingu laganna ófullnægjandi. María Sigrún Hilmarsdóttir ræðir við Salvöru Nordal, umboðsmann barna. Það hefur sveiflast nokkuð í gegnum árin hvort sveitarfélög velji að ráða ópólitíska bæjarstjóra eftir sveitarstjórnarkosningar eða hvort þessir framkvæmdastjórar sveitarfélaganna komi úr röðum kjörinna fulltrúa. Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri, segir það frekar bundið við stærstu sveitarfélögin að fara þá leið að ráða pólitískan bæjarstjóra.

Lestin
Kæri fáviti, Patti Smith og Einar Már Jónsson

Lestin

Play Episode Listen Later Jun 2, 2026 57:04


Bókaklúbbur Lestarinnar verður í gangi í júní. Fyrsta bókin sem við tökum fyrir er Kæri Fáviti eftir franska rithöfundinn Virginie Despentes. Bókin gerist á internetinu í tölvupóstssamskiptum, og fjallar um Metoo, fíkn, stéttaklifur og ótal margt fleira. Rokkgoðsögnin Patti Smith kom fram í Eldborg í Hörpu um helgina og brunaði svo beint á Akureyri til að spila í Hofi. Við ræðum við Andreu Jónsdóttur, útvarpskonu á Rás 2, um Patti. Einar Már Jónsson sendir okkur pistil frá París.

Bylgjan
Bítið - þriðjudagurinn 2. júní 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jun 2, 2026 94:06


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Björn Rúnar Lúðvíksson, prófessor í ónæmisfræði, ræddi við okkur um ólögleg peptíð. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokks, settist niður með okkur og ræddi efnahagsmálin. Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingar í Reykjavík, fór yfir tillögur meirihlutans sem tekur við í dag. Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokks, fór í lífsstílsbreytingu og sagði okkur frá árangrinum. Fjölmiðlakonan Elín Hirst var á línunni og ræddi gerð heimildarmyndar um Jónas Hallgrímsson. Ragnar Eyþórsson, bíónörd og pródúsent, fór yfir bíómyndasumarið. Örn Árnason, söngvari og leikari, ræddi við okkur um tónleika á Akureyri næstu helgi.

bj gu sj fj hirst akureyri hallgr heimi hafsteinsd marteinsson
Rauða borðið
Rauða borðið 28. maí - Olíuborpallur, reynsluboltar, heimsmálin, innflytjendur og plastbarkamálið

Rauða borðið

Play Episode Listen Later May 28, 2026 249:59


Fimmtudagur 28. maí Olíuborpallur, reynsluboltar, heimsmálin, innflytjendur og plastbarkamálið Steingrímur Ólafsson er einn fárra Íslendinga sem starfar á olíupalli. Hann lýsir þeirri reynslu í samtali við Björn Þorláks og spáir fyrir um framtíð jarðefnaeldsneytis. Aðalsteinn Tryggvason blaðamaður á Heimildinni, Steingerður Steinarsdóttir, blaðamaður, Lifðu núna og Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur ræða fréttir líðandi stundar. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við Háskólann á Akureyri ræðir við Gunnar Smára Egilsson um heimsmálin, Íransstríðið og fleira. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Nuru A. Rashid leikskólakennara frá Singapúr um 30 ár á Íslandi. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir við Björn Þorláksson um lagaleg álitamál, tengd fréttum líðandi stundar.

Arctic Circle Podcast
Time to Mine?

Arctic Circle Podcast

Play Episode Listen Later May 25, 2026 47:43


As interest in Arctic resources grows, so do the questions surrounding their extraction: who benefits, who bears the risks, and what are the security implications of opening the Arctic to mining?Joining the conversation are:Rachael Lorna Johnstone, Professor, University of Akureyri, IcelandAnna Karlsdóttir, Associate Professor, University of IcelandAlexandra Middleton, Assistant Professor, University of Oulu, FinlandGabriela Argüello, Associate Senior Lecturer, University of Gothenburg, SwedenThis discussion was recorded live at the Arctic Circle Rome Forum — Polar Dialogue, held March 3rd–4th, 2026.Arctic Circle is the largest network of international dialogue and cooperation on the future of the Arctic. It is an open democratic platform with participation from governments, organizations, corporations, universities, think tanks, environmental associations, Indigenous communities, concerned citizens, and others interested in the development of the Arctic and its consequences for the future of the globe. It is a nonprofit and nonpartisan organization.  Learn more about Arctic Circle at www.ArcticCircle.org or contact us at secretariat@arcticcircle.orgTWITTER:@_Arctic_CircleFACEBOOK:The Arctic CircleINSTAGRAM:arctic_circle_org

Spegillinn
Stýrivextir og millilandaflug frá Akureyri

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 20, 2026 20:00


Seðlabankinn hækkaði stýrivexti en dugir það vopn í baráttunni þegar lykilástæður eru utan landssteinanna? Rætt við Katrínu Ólafsdóttur, lektor í hagfræði, Bjarna Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins og Höllu Gunnarsdóttur, formann VR. Mælanleg áhrif eru á lífsgæði og atvinnulíf á Norðurlandi eftir að reglubundið flug til útlanda frá Akureyri festi sig í sessi. Rætt við Þórodd Bjarnason, prófessor við Háskóla Íslands.

Mannlegi þátturinn
Ofurhlauparinn Karlotta, bókin Hamingja og Olga Hörn á Heilsuvaktinni

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 19, 2026 49:54


Við töluðum í dag við Karlottu Ósk Óskarsdóttur sem hefur verið kölluð ofurhlaupari og það er ekki fjarri sanni. Hún lætur sér ekki nægja til dæmis bara venjulegt maraþonhlaup, heldur hljóp hún 75 kílómetra að meðaltali á dag, tíu daga í röð, eða samtals 750 kílómetra í Búlgaríu í síðustu viku. Hún hefur slegið sjö Íslandsmet á síðustu níu mánuðum, þar af þrjú í Búlgaríu og það hlaup var lengsta vegalengd sem Íslendingur hefur farið í keppnishlaupi. Við ræddum við Karlottu í þættinum í dag og spurðum hana til dæmis af hverju hún hreinlega er að standa í þessu? Mars Baldurs er verðlaunað ungskáld sem stundar nám á Akureyri og nú í byrjun vors kom út bók eftir hann i pastelritröð Flóru menningarhúss á Akureyri. Bókin heitir Hamingja og við mæltum okkur mót við Mars á kaffihúsi fyrir norðan. Svo var það Heilsuvaktin með Helgu Arnardóttur. Fargufur hafa notið sívaxandi vinsælda síðustu ár og Helga náði tali af einum svokölluðum gusumeistara, Olgu Hörn Fenger, í Rjúkandi fargufu á Ægissíðu, við heyrðum þeirra spjall á Heilsuvaktinni í dag. Tónlistin í þættinum: Frækorn og flugur / Dúmbó og Steini (H. Newman, texti Ellert Borgar Þorvaldsson) Gvendur á Eyrinni / Dátar (Rúnar Gunnarsson, texti Þorsteinn Eggertsson) Heim í Búðardal / Ðe Lónlí blú bojs (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Bylgjan
Sprengisandur 17.05.2026 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later May 17, 2026 90:20


Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Rvk.  Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Rvk.  Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingar í Rvk.  Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokks í Rvk. Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vors til vinstri í Rvk.  Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar í Rvk.  Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingar í Kópavogi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingar Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður VG  Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins Reykjanesbæ Óðinn Svan Óðinsson, oddviti L-lista Akureyri.

bj sj vors magn einar kristj katr akureyri gunnarsd svan brynj frams hafsteinsd torfason reykjanesb rvk marteinsson hildur bj
Bylgjan
Reykjavík síðdegis - mánudagur 11. maí 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later May 11, 2026 61:16


Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Kristín Hrefna Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Hopp Reykjavík Agnes Ósk Marzellíusardóttir, lögreglufulltrúi í fjármunabrotadeild um rúmenska manninn sem er grunaður um að hafa svikið 160 milljónir úr Arion banka Símatími Grétar Þór Eyþórsson prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri um borgarpólitíkina Ómar H Kristmundsson stjórnsýslufræðingur og prófessor emiritus um OHF rekstrarform ríkisins Lísbet Sigurðardóttir lögfræðingur Viðskiptaráðs Kristján Hafþórsson hlaðvarpstjórnandi og fyrirlesari, meistararitgerð í nýsköpun og viðskiptaþróun um hlaðvörp

Rauða borðið
Rauða borðið 11. maí - Bandaríkin, ungliðar, sjávarútvegsstefna ESB, sorg og sérframboð

Rauða borðið

Play Episode Listen Later May 11, 2026 263:31


Mánudagur 11. maí Bandaríkin, ungliðar, sjávarútvegsstefna ESB, sorg og sérframboð Gauti B. Eggertsson hagfræðiprófessor í Brown-háskóla ræðir við Gunnar Smára um Bandaríki Trump, framtíð Nató, varnarsamninginn og fleira. Þrír formenn pólitískra ungliðahreyfinga ræða hlutskipti ungs fólks og um hvað verður kosið á laugardaginn. Þeir Illugi Gunnarsson, Vinstrinu 18 ára gamall, Halldór Ísak Ólafsson 26 ára sósíalisti og Jóhannes Óli, 22ja ára í Samfylkingunni, leggja spilin á borðið með Birni Þorláks. Úlfar Hauksson sjómaður og aðjúnkt í stjórnmálafræði, ræðir við Gunnar Smára um ESB og sjávarútveg. Það fylgir því sársauki að elska af öllu hjarta, segir Anna Ingólfsdóttir sem upplifði stórfenglegar tilfinningar þegar hún missti manninn sinn. Hún ræðir við Ásdísi Olsen. Þórhallur Jónsson sem klauf sig út úr Sjálfstæðisflokknum á Akureyri og stofnaði sérframboð ræðir við Björn Þorláks um hvernig það er að standa einn og utan hins gamla valdaflokks.

Bylgjan
Bítið - fimmtudagur 7. maí 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later May 7, 2026 82:33


Bítið á Bylgjunni með Lilju, Stefáni og Ómari.  Sveinn Brimar Jónsson lauk nýlega við BA-ritgerð í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri þar sem hann fjallar um áhrif og breytingar á íslenskum fjölmiðlum á tímum gervigreindar. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, ræddi við okkur vítt og breitt um flugið. Vigdís Hauksdóttir og Páll Magnússon fóru yfir stóru málin. Theodór Francis Birgisson, Teddinn okkar hjá Lausninni, ræddi um ástina. Fannar Páll Aðalsteinsson, markaðsstjóri 66°Norður, ræddi við okkur um 100 ára afmæli fyrirtækisins.

stef magn akureyri icelandair vigd hauksd theod fimmtudagur
Mannlegi þátturinn
Undirskriftarlisti gegn brottfararstöð, hæglætisstefna í leikskólum og Jónatan um Önnu Vilhjálms

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 7, 2026 50:00


Frumvarp dómsmálaráðherra um brottfarastöð hefur hlotið gagnrýni, meðal annars vegna heimildar til að vista þar börn. Umboðsmaður barna segir frumvarpið vera andstætt Barnasáttmálanum og brjóta gegn réttindum barna. Yfir tvö þúsund manns hafa skrifað nöfn sín á undirskriftarlista á Ísland.is til að mótmæla þessu frumvarpi. Í gær bárust fréttir af breytingartillögu á frumvarpinu og mátti skilja á fréttum að börn yrðu ekki vistuð á brottfararstöðinni, en Alma Mjöll Ólafsdóttir, sem kom í þáttinn í dag, segir að það líti samt út fyrir að ekki sé næg breyting, það sé aðeins verið að færa til úrræðið fyrir börn, en að það muni vera frelsissvipting engu að síður. Alma sagði okkur frá þessu í dag, en hún er ábyrgðarmaður undirskriftarlistans. Á ráðstefnunni Að finna taktinn koma saman bæði alþjóðlegir fræðimenn og starfandi leikskólakennarar til að varpa ljósi á hæglæti í leikskólastarfi frá ólíkum sjónarhornum. Meðal fyrirlesara eru íslenskir leikskólakennarar sem segja frá eigin reynslu af þróunarverkefninu Stilla, þar sem hæglæti hefur verið innleitt í daglegt starf fjögurra leikskóla. Niðurstöðurnar sýna meðal annars að þegar börn fá meiri tíma og rými eykst sjálfstjórn þeirra, félagsfærni og sköpun og leikur þeirra verður dýpri og merkingarbærari. Anna Lilja Sævarsdóttir, leikskólastjóri á Iðavöllum Akureyri og Agnes Gústavsdóttir, leikskólastjóri Aðalþings í Kópavogi komu í þáttinn í dag. Jónatan Garðarson, okkar gamli samstarfsfélagi, ætlar að koma til okkar næstu fimmtudaga og fræða okkur um íslenskt tónlistarlíf, hljómsveitir, lög, tónlistarfólk og fleira. Það eru ekki margir sem vita meira um íslenska tónlist en Jónatan og því mikil forréttindi að fá að ausa úr hans viskubrunni hér í Mannlega þættinum. Hann byrjaði í dag á því að segja okkur frá Önnu Vilhjálms, það eru ekki til mörg lög hljóðrituð með henni, en Jónatan mun fræddi okkur um hana og hennar feril í dag. Tónlistin í dag: Á berjamó / Björgvin Halldórsson og Ragnhildur Gísladóttir (Gunnar Þórðarsson, texti Stefán Jónsson) Jamaica Farewell / Harry Belafonte (Irving Burgie og Burgess) Ég bíð við bláan sæ / Anna Vilhjálms og Vilhjálmur Vilhjálmsson (Phil Spector, texti Jón Sigurðsson) Fráskilin að vestan / Anna Vilhjálms (Kolbrún Hjartardóttir og Linda Björk) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Fotbolti.net
Uppbótartíminn - Geta Vestmannaeyingar leyft sér að dreyma?

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later May 6, 2026


Þriðja umferðin í Bestu deild kvenna kláraðist í kvöld og þá er kominn tími á nýjan Uppbótartíma. Nýliðar ÍBV fóru á Hlíðarenda fóru á Hlíðarenda og tóku þar sigur, eru með fullt hús stiga og spurning hvort Vestmannaeyingar geti leyft sér að dreyma um toppbaráttu í sumar. Breiðablik er einnig með fullt hús stiga eftir sigur í Víkinni. Stjarnan missti sigurinn úr höndum sér á Akureyri, FH tók sinn fyrsta sigur og Þróttur átti góða ferð í Úlfarsárdalinn. Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll Garðarsson og Snæbjört Pálsdóttir voru yfir allt það helsta. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.

Mannlegi þátturinn
kynferðisofbeldi í samböndum ungmenna, Hrafnhildur Reykjalín um gildi og lokakafli mannlegra samskipta

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 30, 2026 53:43


Undanfarna viku hefur staðið yfir vitundarvakningin ÉG LOFA á vegum Barnaheilla. Markmiðið var að vekja athygli á umfangi kynferðisofbeldis gegn börnum með því að miðla upplýsingum og fræðslu. Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnisstýra ofbeldis- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum kom í þáttinn í dag og sagði okkur aeðins frá þessu átaki og einnig frá ungmennaþingum sem haldin voru á sex stöðum á landinu þar sem rætt var um kynferðisofbeldi í nánum samböndum ungmenna og það sem þar kom fram á þessum þingum er vægast sagt sláandi. Hrafnhildur Reykjalín er starfandi heilsuráðgjafi á Akureyri, hún er kennari í markþjálfun með diplómu í jákvæðri sálfræði auk fjölbreyttrar menntunar í andlegri og líkamlegri heilsu og önnur eigenda Sjálfsræktar heilsumiðstöðvar. Í jákvæðri sálfræði og markþjálfun er unnið markvisst með gildi sem grunn að vellíðan og stefnu í lífinu. Hrafnhildur sagði okkur betur frá þessu í þættinum í dag. Svo var komið að síðasta skiptinu í bili sem Valdimar Þór Svavarsson kemur til okkar til að ræða mannlegu samskiptin. Hann hefur verið með okkur alla fimmtudaga í vetur og í síðustu viku fór hann yfir það helsta sem hann hefur talað um og í dag fór hann yfir nokkur góð ráð til að brjóta upp mynstur og venjur sem eru ekki að þjóna okkur. Tónlist í þættinum í dag: Létt / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarson, texti Jónas Friðrik Guðnason Mig dreymir / Björgvin Halldórsson (Björgvin Halldórsson, texti Jónas Friðrik Guðnason) Kastað á glæ / Geirfuglarnir (Halldór Gylfason) Þér við hlið / Regína Ósk Óskarsdóttir (Magnús Þór Sigmundsson, texti Trausti Bjarnason) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

bj gu sj reg magn mig hann halld samb kasta svo akureyri kolbr valdimar markmi hrafnhildur gylfason sigmundsson undanfarna
Rauða borðið
Rauða borðið 30. apríl - Stríðsástand, líf í hjólastól, reynsluboltar, borgarmálin og fyrirmyndir

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Apr 30, 2026 287:19


Fimmtudagur 30. apríl Stríðsástand, líf í hjólastól, reynsluboltar, borgarmálin og fyrirmyndir Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, ræðir fyrst óöryggið í heiminum, alvarlegar afleiðingar Íransstríðsins, krísu Trump og fleira í samtali við Björn Þorláks. Víðir Þorsteinsson hefur verið í hjólastól frá 1980. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við hann og eiginkonu hans, Sigríði Sóleyju Friðjónsdóttur um lífið og tilveruna. Víðir Þorsteinsson hefur verið í hjólastól frá 1980. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við hann og eiginkonu hans, Sigríði Sóleyju Friðjónsdóttur um lífið og tilveruna. Nokkrir efstu fulltrúar Viðreisnar í Reykjavík ræða nokkur kosningamál og áherslur í samtali við Björn Þorláks. Davíð Sól Páls, Arna Magnea Danks og Chaiwe Sól Patiwa Drífudóttir eru öll kennarar í grunnskólum og hafa víðtæka reynslu í að koma til móts við börn með mismunandi bakgrunn og þarfir. Þau tala um skólastarfið, börnin, takmarkanir og áskoranir skólakerfisins í heild, og ekki síst um mikilvægi þess að börn hafi sterkar fyrirmyndir í skólastarfinu og samfélaginu öllu. Laufey Líndal Ólafsdóttir ræðir við þau í lok þáttar.

Rauða borðið
Rauða borðið 22. apríl - Heimskreppa, innsæi, Bieber og kórsöngur

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Apr 22, 2026 177:28


Miðvikudagur 22. apríl Heimskreppa, innsæi, Bieber og kórsöngur Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, ræðir ýmis utanríkismál, pattstöðu í Íransstríðinu, líkur á alvarlegri heimskreppu, skuldir Bandaríkjanna og fleira í samtali við Björn Þorláks. Ásdís Olsen ræðir við Hrund Gunnsteinsdóttur um innsæi. Helga Þórey Jónsdóttir og Arnar Eggert Thoroddsen ræða um Bieber á coachella við Maríu Lilju. Ásta Magnúsdóttir og Lára Ruth Clausen ræðir við Björn Þorláks um kórastarf og listina að syngja sig í gegnum lífið, ekki síst meðal ungs fólks.

Fotbolti.net
Niðurtalningin – Húsvíkingurinn í brúnni á Akureyri

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Apr 16, 2026


Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna. Núna er það Þór/KA sem er spáð sjöunda sæti deildarinnar. Við hringdum til Akureyrar og ræddum við Aðalstein Jóhann Friðriksson, þjálfara Þórs/KA, um komandi tímabil. Alli Jói tók við liðinu í vetur og er spenntur fyrir sumrinu.

Rauða borðið
Mánudagur 13. apríl: Íransstríðið, vinstrið, fíkn, húsbyggingar og sjálfsvinna

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Apr 13, 2026 272:18


Mánudagur 13. apríl Íransstríðið, vinstrið, fíkn, húsbyggingar og sjálfsvinna Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, ræðir fall Orban í Ungverjalandi og fíaskóið sem Íransstríðið virðist vera fyrir Trump. Björn Þorláks ræðir við hann. Svenný Kristins, Davíð Arnar Stefánsson og Esther Bíbí Ásgeirsdóttir ræða við Maríu Lilju sem fulltrúar nýs framboðslista vinstrisins í Hafnarfirði. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Áslaugu Einarsdóttur, móður sem hefur glímt við fíknisjúkdóm og misst bæði forsjá og umgengni við barn sitt. Ingvar Jónsson byggingameistari ræðir við Björn Þorláks í tengslum við breytt landslag húsbygginga hér á landi og ber aumingjaskap landsmanna á góma. Ásdís Olsen ræðir við Helgu Snjólfsdóttur verkfræðing sem opinberaðist sjálfri sér eftir að hafa keyrt á vegg.

Handkastið
Allt undir hjá Stelpunum Okkar og spennan er í Hafnarfirðinum

Handkastið

Play Episode Listen Later Apr 10, 2026 67:47


Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp handbolta vikuna. Stelpurnar Okkar fengu skell í Færeyjum og eru í úrslitaleik gegn Portúgölum á sunnudaginn. Markmennirnir eru að ráða úrslitum í einvígi FH og Hauka. Valsmenn höfðu reynsluna þegar þeir kláruðu spennutrylli á Akureyri. Stjarnan alltof stór biti fyrir Hörð. 8 liða úrslitin í Meistaradeild Evrópu eru klár og það eru sömu lið þar og í fyrra. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Mannlegi þátturinn
Formlegur og óformlegur stuðningur mikilvægur, Barnadjass og enn um höfnunarótta

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 9, 2026 50:32


Við fræddumst í dag um rannsókn sem Þóra Katrín Erlendsdóttir, meistaranemi við í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri vann. En tilgangur rannsóknarinnar var að kanna upplifun ungmenna af stuðningi í kjölfar sjálfsvígs vinar. Þátttakendur voru einstaklingar sem höfðu misst vin í sjálfsvígi. Þóra Katrín var hjá okkur í dag og sagði okkur frá rannsókninni og niðurstöðunum, þar sem til dæmis kom fram mikilvægi formlegs og óformlegs stuðnings. Félagasamtökin Barnadjass standa að hátíðinni Barnadjass í Mosó sem verður haldin í 4. sinn í júní. Þetta er alþjóðleg hátíð þar sem börn á aldrinum 8-16 ára koma fram og spila djass eftir eyranu og spinna. Hátíðin er stofnuð eftir norskri fyrirmynd en listrænn stjórnandi beggja hátíða er Odd André Elveland, norskur djasstónlistarmaður og frumkvöðull í kennslu ungra barna í að spila djass eftir eyranu og spinna. Guðrún Rútsdóttir er formaður félagasamtakanna Barnadjass og hún kom í þáttinn í dag. Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi og stjórnandi Meðvirknipodcastsins kom svo til okkar og hélt áfram að fræða okkur um mannlegu samskiptin. Í dag hélt Valdimar áfram að tala um höfnunarótta. Tónlist í þættinum í dag: Ráðahagur / Moses Hightower (Moses Hightower (Andri Ólafsson, Magnús Trygvason Eliassen & Steingrímur Karl Teague)Texti, Andri Ólafsson & Steingrímur Karl Teague) Pain / Ásgeir Ásgeirsson (Ásgeir Ásgeirsson) Það jafnast ekkert á við jazz / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon) Er það satt sem þau segja um landann / HLH flokkurinn (erlent lag, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Flugvarpið
#150 - Mikil eftirspurn eftir Grænlandsflugi Norlandair – 7 flugvélar í rekstri og tækifærin mörg – þörf á uppbyggingu víðar en í Keflavík – Arnar Friðriksson

Flugvarpið

Play Episode Listen Later Mar 30, 2026 46:29


Rætt er við Arnar Friðriksson framkvæmdastjóra flugfélagsins Norlandair um starfsemi félagins sem er með höfuðstöðvar sínar á Akureyri. Félagið er með 7 flugvélar í rekstri og flug félagsins er gríðarlega mikilvægt ekki bara fyrir Akureyringa heldur landsmenn alla. Félagið er með sjúkraflugsvakt allan sólarhringinn allt árið um kring, sinnir áætlunarflugi innanlands og síðast en ekki síst sinnir það fjölbreyttum leiguflugsverkefnum með Twin Otter flugvélum í krefjandi aðstæðum á Grænlandi. Arnar ræðir vítt og breitt um um flugmálin, innanlandsflugið, útboðsmálin og rekstrarumhverfi fyrir lítið flugfélag eins og Norlandair. Einnig er farið yfir þær aðstæður sem sköpuðust 26. febrúar síðastliðinn þegar margar þotur lentu á Reykjavíkurflugvelli og fyrir vikið varð völlurinn ekki nothæfur um tíma fyrir sjúkra- og áætlunarflug. Áhugavert spjall þar sem hlustendur fá örlitla innsýn í rekstur Norlandair. Viðtalið var tekið upp í lok mars inni í F-27 flugvél Landhelgisgæslunnar á Flugsafni Íslands á Akureyri.

reykjav eftir akureyri einnig arnar keflav twin otter mikil flugv landhelgisg
Bylgjan
Reykjavík síðdegis - föstudagur 27. mars 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Mar 27, 2026 54:16


Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Finnur Aðalbjörnsson sem rekur verktakafyrirtæki á Akureyri um lokanir vega Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins Símatími Birna Mjöll Atladóttir annar eigandi Hótels Breiðavíkur Gunnar Hilmarsson, fatahönnuður tónlistarmaður og tískugúrú um tískuna sem fer í hringi

The Icelandic Roundup
Singer Laufey Sets A Record, Snowpocalypse Weekend & EU Debate

The Icelandic Roundup

Play Episode Listen Later Mar 24, 2026 51:22 Transcription Available


Are you enjoying this? Are you not? Tell us what to do more of, and what you'd like to hear less of. The Reykjavík Grapevine's Iceland Roundup brings you the top news with a healthy dash of local views. In this episode, Grapevine publisher Jón Trausti Sigurðarson is joined by Heimildin journalist Aðalsteinn Kjartansson, and Grapevine friend and contributor Sindri Eldon to roundup the stories making headlines in recent weeks. On the docket this week are: 500 Travelers Stuck In North Iceland Because Of A Blizzard  While weather conditions remained fairly uninteresting in Reykjavík a blizzard closed the road between Reykjavík and Akureyri this Sunday, which meant that up to 500 people had to unexpectedly had to spend the night in various hotels and guesthouses, and for dozens, the local schools were opened up to shelter people. Nordic PMs Meet To Hang Out With Canadian PM Mark CarneyThe Nordic PMs met in Oslo on Saturday, along with Mark Carney, who's stature in the international political landscape risen significantly over the past months, and dramatically after a speech he gave in Davos earlier this year. The speech in question was also probably on Iceland's MP Kristrún Frostadóttir mind when she commented after the meeting, that “We have had concerns about Greenland, we have concerns about the situation in Europe regarding Ukraine, but we are not afraid. We also see this as a way to reshape alliances. Although we are not excluding anyone, we are also just broadening our horizons, and I think this group, together with Canada, shows that there are great opportunities out there."EU Debate Takes Over Icelandic DiscourseThe upcoming EU referendum has been heavily debated over the past week, and we've already had enough.Laufey Lín Performed For 36.000 Icelanders This WeekendWith two concerts in a hall that takes 18.000 guests, Musical Superstar Laufey Lín, may have shattered a national record.Tourists Cause More Serious Road Accidents Than Drunk Or Young DriversAccording to Reynir Bjarni Egilsson, of the insurance company VÍS, who said, last week that "There is often talk of perhaps dangerous groups such as young drivers and drunk drivers, but foreign tourists are causing more serious and fatal accidents per year than these groups that are most often discussed. We think it is well worth drawing attention to them in order to generate debate about whether iSupport the show------------------------------------------------------------------------------------------SHOW SUPPORTSupport the Grapevine's reporting by becoming a member of our High Five Club: https://grapevine.is/high-five-club/Or donate to the Grapevine here:https://support.grapevine.isYou can also support the Grapevine by shopping in our online store:https://shop.grapevine.is------------------------------------------------------------------------------------------This is a Reykjavík Grapevine podcast.The Reykjavík Grapevine is a free alternative magazine in English published 18 times per year, biweekly during the spring and summer, and monthly during the autumn and winter. The magazine covers everything Iceland-related, with a special focus culture, music, food and travel. The Reykjavík Grapevine's goal is to serve as a trustworthy and reliable source of information for those living in Iceland, visiting Iceland or interested in Iceland. Thanks to our dedicated readership and excellent distribution network, the Reykjavík Grapevine is Iceland's most read English-language publication.You may not agree with what we write or publish, but at least it's not sponsored content.www.grapevine.is

Mannlegi þátturinn
Áfall, hvað svo? Ný bók eftir Dr.Sigrúnu Sigurðardóttur og Heilsuvaktin

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 24, 2026 53:21


Hver eru helstu einkenni áfalla, hverjar eru afleiðingar og hver eru úrræði út frá fræðum og reynslu. Út er komin bókin Áfall, hvað svo? eftir Dr. Sigrúnu Sigurðardóttur, prófessor við háskólann á Akureyri, og fjallar um áföll, afleiðingar þeirra og úrræði. Bókin byggir á fræðilegum grunni og eigin reynslu höfundar og í henni kynnir Sigrún leiðir til bata. Hver eru helstu einkenni áfalla, hverjar eru afleiðingar og hver eru úrræði út frá fræðum og reynslu? Sigrún fræddi okkur um þetta í þættinum í dag. Helga Arnardóttir var með Heilsuvaktina hjá okkur í dag eins og annan hvern þriðjudag. Lilja Kjalarsdóttir lífefnafræðingur vissi í rúman áratug að hún væri með bracca genið sem getur valdið lífshættulegu krabbameini. Móðir hennar greindist með bracca krabbamein og lést eftir erfiða baráttu árið 2022. Í langan tíma hikaði Lilja við að fara í fyrirbyggjandi aðgerð til að minnka líkurnar á að hún fengi sjúkdóminn. Hún var í eftirliti um langa hríð en einn daginn eftir samveru með konum í Bracca samtökunum tók hún ákvörðun og lét verða af því að fara í tvöfalt brjóstnám og hyggst láta fjarlægja eggjastokkana þar á eftir. Með tvöföldu brjóstnámi minnkuðu líkurnar á krabbameini úr 60-80% prósentum niður í tvær prósentur. Helga ræddi við hana skömmu eftir aðgerðina. Tónlist í þættinum í dag: Gleym mér ei / Sigrún Hjálmtýsdóttir (Valgeir Guðjónsson) Appelsínugult myrkur / Una Torfa (Una Torfa og Hafsteinn Þráinsson) Gleymmérei / Bríet og KK (Bríet Ísis Elfar, Lárus Örn Arnarson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

hj hver sigur appels lilja eftir sigr akureyri hafsteinn helga arnard valgeir gu gleym
Spegillinn
Vaxtaákvörðun Seðlabankans, samstarf við ESB í varnarmálum og undanþágur í aðildaviðræðum við ESB.

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 18, 2026 20:00


Meginvextir Seðlabankans voru hækkaðir úr 7,25% í 7,50% í dag og einhugur ríkti innan peningastefnunefndar að vaxtahækkun væri nauðsynleg. Það ræðst á næstu 167 dögum hvort forsendur kjarasamninga haldist og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, viðurkennir að hann hafi meiri áhyggjur en áður af forsenduákvæði kjarasamninga. Hann vill þó ekki spá um hvort stefni í harða kjarabaráttu í haust. Yfirlýsing um samstarf Íslands og Evrópusambandsins var staðfest í dag í Brüssel af þeim Þorgerði Katrínu Gunnardóttur, utanríkisráðherrra, og Kaju Kallas, utanríkismálastjóra ESB. Undirritun yfirlýsingarinnar hafði verið frestað í nóvember út af ákvörðun ESB um verndaraðgerðir vegna málmblendis. Þorgerður Katrín hitti embættismenn hjá NATO í morgun og átti einnig fund með framkvæmdastjóra viðskipta hjá ESB um undanþágur vegna losunarheimilda í ETS kerfinu. Það er flókið en ekki ómögulegt að fá undanþágur eða sérlausnir þegar ríki gerir samning við Evrópusambandið. Þetta sagði Gunnar Pétursson, prófessor í Evrópurétti við Háskólann í Reykjavík, í erindi sem hann hélt á Akureyri í dag. Hann segir eðlilegt að mörgum þyki erfitt að skilja hvað felist í að fara í viðræður um aðild að ESB. Umræðan geti verið óskýr.

nato ets hann reykjav esb umr katr akureyri evr undan samtaka bjarni benediktsson gunnar p yfirl samstarf
Víðsjá
Dómur Finns Arnars, Ljóðamót á Akureyri og Mömmó/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 17, 2026 54:50


Dómur kallast sýning Finns Arnars Arnarssonar í Ásmundarsafni, þar sem hann hefur búið í tjaldi síðustu vikur og varið dögunum í að mála kúlulaga hvelfinguna á eftri hæð safnsins. Finnur er nýfluttur úr tjaldinu en vistarverurnar standa eftir sem vitnisburður um líf listamannsins og í kúlunni birtast okkur hugmyndir um karlmennsku og hlutverk okkar í jarðvistinni. Við lítum við í síðari hluta þáttar, en hefjum leikinn fyrir norðan, þar sem Ljóðaklúbbur Akureyrar undirbýr Ljóðamót kvöldsins í fornbókabúðinni Svörtum bókum. Þá rýnir Katla Ársælsdóttir í leiksýninguna Mömmó, sem frumsýnd var í Borgarleikhúsinu fyrir helgi.

finns sv lj katla akureyri akureyrar borgarleikh arnars
The Inspired Painter with Jessica Libor
Episode 195: How to show at an art museum in Iceland and more with project manager for exhibitions at the Akureyri Art Museum, Freyja Reynisdottir

The Inspired Painter with Jessica Libor

Play Episode Listen Later Mar 15, 2026 40:16


Recorded in Iceland! In this episode we chat about how to show at an art museum in Iceland, overcoming health obstacles, painting from your personal experience and more with project manager for exhibitions at the Akureyri Art Museum, Freyja Reynisdottir .Check out Freyja's work on her instagram here: CLICK HERE.Submit your work to the NYC exhibition I am curating, She in the Tower, with a deadline of April 10: ⁠CLICK HERE⁠Experience my FREE masterclass, Awakening the Heroine: aligning energy and action for artistic acclaim, flow, and fortune, by ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠CLICKING HERE! ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Sign up for my coaching program, The Luminary Artist Academy, before April 1 for guaranteed inclusion in a NYC May exhibition I am curating, "She in the Tower" Sign up and learn more here: ⁠⁠⁠⁠⁠LUMINARY ARTIST ACADEMY⁠⁠⁠⁠⁠Meet with me for 15 minutes to make sure the program is right for you: ⁠⁠⁠⁠⁠CALENDLY LINK⁠⁠⁠⁠⁠Enter the Creative Heroine podcast contest! Winner gets a podcast interview. To enter, write a 5 star review on Apple Podcasts, screenshot it and send it to me on IG at @thecreativeheroines or email jlibor@jessicalibor.com . Read & subscribe to my substack, Painting the Realm of Forms: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠https://jessicalibor.substack.com/⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠And join our Discord here: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠https://discord.gg/SB2YY5NrnF⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Check out all of our courses and coaching: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠www.thecreativeheroines.com⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠You can explore my art here! ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠www.jessicalibor.com⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Thanks for listening!!

Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn - Bjartara á Brekkunni og heitir í enska

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Mar 14, 2026


Farið er yfir fréttir vikunnar úr íslenska boltanum og Valur Gunnarsson er á línunni beint úr Garðabænum þar sem Stjarnan og KR mætast í undanúrslitum Lengjubikarsins. Það voru stór tíðindi frá Akureyri þar sem KA kynnti tvo nýja leikmenn. Rætt er við Hallgrím Jónasson, þjálfara liðsins. Þá er spáð í spilin fyrir seinni leikina í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson fer yfir hvaða leikmenn eru þeir heitustu í ensku úrvalsdeildinni um þessar mundir. Elvar Geir og Tómas Þór eru umsjónarmenn þáttarins.

The Inspired Painter with Jessica Libor
Episode 194: My residency in Iceland at the Akureyri Art Museum

The Inspired Painter with Jessica Libor

Play Episode Listen Later Mar 12, 2026 43:55


In this episode I share my experience of exploring Iceland and my artist residency at the Akureyri Art Museum.⁠Submit your work to the NYC exhibition I am curating, She in the Tower, with a deadline of April 10: CLICK HEREExperience my FREE masterclass, Awakening the Heroine: aligning energy and action for artistic acclaim, flow, and fortune, by ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠CLICKING HERE! ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Sign up for my coaching program, The Luminary Artist Academy, before April 1 for guaranteed inclusion in a NYC May exhibition I am curating, "She in the Tower" Sign up and learn more here: ⁠⁠⁠⁠LUMINARY ARTIST ACADEMY⁠⁠⁠⁠Meet with me for 15 minutes to make sure the program is right for you: ⁠⁠⁠⁠CALENDLY LINK⁠⁠⁠⁠Enter the Creative Heroine podcast contest! Winner gets a podcast interview. To enter, write a 5 star review on Apple Podcasts, screenshot it and send it to me on IG at @thecreativeheroines or email jlibor@jessicalibor.com . Read & subscribe to my substack, Painting the Realm of Forms: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠https://jessicalibor.substack.com/⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠And join our Discord here: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠https://discord.gg/SB2YY5NrnF⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Check out all of our courses and coaching: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠www.thecreativeheroines.com⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠You can explore my art here! ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠www.jessicalibor.com⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Thanks for listening!!

Mannlegi þátturinn
ACT nálgunin, heilbrigð vinnustaðamenning og Thelma Björk á Heilsuvaktinni

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 10, 2026 50:00


Við fræddumst í dag um það sem kallast ACT-nálgunin, en samkvæmt Rúnari Helga Andrasyni, er það sálfræðileg nálgun sem snýst í grunninn um það að hætta tilgangslausri baráttu við erfiðar hugsanir og tilfinningar. En Rúnar, sem er sérfræðingur í klínískri sálfræði og er yfirsálfræðingur á Reykjalundi hefur nýtt sér þessa aðferð í starfi sínu bæði á Reykjalundi og hjá VIRK. Rúnar kom í þáttinn og sagði okkur betur frá ACT í dag. Hvernig er hægt að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu? Við heyrðum í þættinum af málþingi sem fer fram á fimmtudaginn þar sem fjallað verður einmitt um vinnustaðamenningu í leik- og grunnskólum í framhaldi af samstarfsverkefni Vinnueftirlitsins, Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Dr. Sigrún Gunnarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, sem hefur leitt verkefnið og stýrt framkvæmd þess var hjá okkur í Efstaleitinu og fyrir norðan í stúdíó RÚVAK var Hafdís Ólafsdóttir, leikskólastýra á Klöppum, Akureyri. En Klappir eru einn af fimm þátttökuskólum verkefnisins og hún mun lýsti reynslu sinni af verkefninu. Og svo var það Heilsuvakt dagsins með Helgu Arnardóttur. Það er sjaldan rætt við fólk sem glímir við langvinnt krabbamein og lifir þokkalegu lífi með sjúkdómnum. Thelma Björk Jónsdóttir fatahönnuður, listgreina- og jógakennari greindist með brjóstakrabbamein fyrir tveimur árum og í ljós kom að meinið var einnig komið í beinin að litlum hluta. Thelma fór ekki í hefðbundna lyfjameðferð eins og flestir gera heldur tekur hún líftæknilyf í hverjum mánuði sem halda sjúkdómnum niðri. Hún var andlit bleiku slaufunnar í fyrra með sína mögnuðu sögu og þar fyrir utan hannaði hún slaufuna sjálfa. Herferðin hét Listin að lifa með krabbameini og hlaut tilnefningu til lúðursins í flokknum almannaheillauglýsingar. Helga hitti hana á dögunum og ræddi við Thelmu um hvað hún gerir til að vera jákvæð og láta ekki óttann stjórna sér. Tónlist í þættinum: Ó, ljúfa líf / Flosi Ólafsson (Pops & Doddoge, texti Flosi Ólafsson) Tasko tostada / Hljómar (Rúnar Júlíusson) Hoppsa bomm (Á skíðum skemmti ég mér ) / Helena Eyjólfsdóttir og Hljómsveit Ingimars Eydal (H. Meyer, texti Ásta Sigurðardóttir og Birgir Marinósson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON

Flugvarpið
#147 – Mildi að varaflugvellirnir virkuðu þann 26. febrúar 2026 – samantekt um veðrið, flugreksturinn, flugvellina og fólkið - Einar Sveinbjörnsson, Ásgeir Gunnar Stefánsson og Sigrún Björk Jakobsdóttir

Flugvarpið

Play Episode Listen Later Mar 4, 2026 64:58


Í þættinum er fjallað um atburðina þann 26. febrúar þegar veðurskilyrði í Keflavík breyttust undraskjótt sem olli því að margar farþegaþotur og fleiri flugvélar urðu frá að hverfa og neyddust til að lenda á sínum varaflugvöllum í Reykjavík og á Akureyri og á Egilsstöðum. Varaflugvellirnir sönnuðu svo sannarlega gildi sitt þennan dag og á allt starfsfólk í fluginu sem að kom mikið hrós skilið fyrir fagleg vinnubrögð á öllum stigum. Í þættinum er rætt við Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing um veðrið sem skall á suðvesturhorni landsins þennan dag, um veðurspárnar og hvenrig megi mögulega bæta þær. Ásgeir Gunnar Stefánsson aðstoðar-yfirflugstjóri Icelandair fer yfir viðbrögð félagsins þegar 15 farþegaþotur þess urðu frá að hverfa í Keflavík og loks er rætt við Sigrúnu Björk Jakobsdóttur framkvæmdastjóra innanlandsflugvalla ISAVIA um viðbrögð á varaflugvöllunum og hvað læra megi af þessum viðburði.

Mannlegi þátturinn
Þorbjörg og breytingaskeiðið, Þorvaldur Lúðvík segir sína sögu og vísindaspjall Eddu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 4, 2026 53:57


Hormónar, breytingaskeiðið, mataræði og ýmislegt fleira sem snýr að heilsu kvenna. Þorbjörg Hafsteinsdóttir hjúkrungarfræðingur og næringarþerapisti er komin til landsins og við spjölluðum við hana um þessi mikilvægu mál í dag. Fyrir ári greindist Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson athafnamaður á Akureyri með erfitt krabbamein í vélinda og hefur í kjölfarið þurft á aðgerð að halda, einu sinni í viku, til að halda fæðuvegi opnum. Þær aðgerðir voru framkvæmdar á sjúkrahúsinu á Akureyri en fyrir skemmstu hefur hann þurft að sækja þessa þjónustu til Reykjavíkur. Hann skrifaði nýlega grein í fjölmiðla þar sem hann setur spurningamerki við þessa löngu leið í aðgerðina og reiknaði út að árið 2024 færi fólk af landsbyggðinni 25-30 þúsund ferðir til höfuðborgarinnar til að sækja læknisþjónustu á Landspítalann og kostnaðurinn við það væri rúmur milljarður. Þorvaldur spyr hvort það borgi sig virkilega að Sjúkratryggingar, þ.a.l. ríkið og skattgreiðendur, greiði fyrir allar þessar ferðir til Reykjavíkur til að sækja þangað læknisþjónustu sem í mörgum tilvikum væri hægt að framkvæma á landsbyggðinni? Við ræddum við Þorvald Lúðvík í dag. Eva Olgudóttir kom í þáttinn með vísindaspjall sitt eins og undanfarna miðvikudaga. Í þetta sinn sagði hún okkur frá því hvaða áhrif krabbamein í æsku getur haft á fólk seinna meir í lífinu. Tónlist í þættinum Þú trumpar ekki ástina / Bogomil Font og Greiningardeildin (Bragi Valdimar Skúlason) Jag har det så travlt / Tina Dickow (Tina Dickow) Dont Blame It on That Girl / Matt Bianco (Mark Reilly & Mark Fisher) Harvest / Rufus Wainwright, Chris Stills og Andrew Bird (Neil Young) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

sj jag hann reykjav fyrir horm akureyri sigurj landsp segir eddu hafsteinsd bogomil font
The Icelandic Roundup
Grapevine Needs Support, Davíð Oddsson Dies, Reynisfjara Beach Is Still There, Greenland Takeover & More

The Icelandic Roundup

Play Episode Listen Later Mar 2, 2026 60:02


Are you enjoying this? Are you not? Tell us what to do more of, and what you'd like to hear less of. The Reykjavík Grapevine's Iceland Roundup brings you the top news with a healthy dash of local views. In this episode, Grapevine publisher Jón Trausti Sigurðarson is joined by Heimildin journalist Aðalsteinn Kjartansson, and Grapevine friend and contributor Sindri Eldon to roundup the stories making headlines in recent weeks. On the docket this week are: The Reykjavík Grapevine Was In The NewsThe Reykjavík Grapevine was in the Icelandic news this past week because of layoffs at its editorial office. The layoffs, which are both sad and difficult for such a small, tight-knit workplace, were undertaken to ensure the future publication of the magazine. Give us a hand at support.grapevine.isDavíð Oddsson, Former Prime Minister Of Iceland, Dies At 78Davíð Oddsson, former Prime Minister of Iceland, Mayor of Reykjavík, Governor of the Central Bank of Iceland, and Editor-in-Chief of Iceland's daily newspaper Morgunblaðið since 2009, passed away yesterday, Sunday, March 1. He was 78.Reynisfjara beach Is Not Closed And Has Not DisappearedReynisfjara beach was in the news recently for having “disappeared” and for being “closed”. Neither of which is true. The Reykjavík Grapevine went on location yesterday (video report forthcoming) to investigate.Half Of Tourist Say That Portrayal Of Icelandic Landscapes In Movies And TV Shows, Affect Their Decision To Visit IcelandA recent report reveled that half of all tourists that visit Iceland cite portrayal of Iceland's landscapes in popular culture as affecting their decision to visit.46% Of Icelanders Worried That The US Might Take Over GreenlandA recent poll reveled that 46% of Icelanders are worried that the USA will take over Greenland, while 36% said they didn't worry much about it, and 18% neither worried much nor little.Iceland's Main Hospital Stops Using Icelandic ButterThe main hospital in Reykjavik announced last week that it had exchanged the locally supplied dairy based butter Smjörvi in its cafeterias for the Italian Bertoli alternative. This caused some outrage.Keflavik Bound Flights Rerouted To Other Icelandic Airports Due To WeatherBad weather around Keflavik Airport last week led to flights to Iceland being rerouted to Akureyri and Egilsstaðir Airport.Support the show------------------------------------------------------------------------------------------SHOW SUPPORTSupport the Grapevine's reporting by becoming a member of our High Five Club: https://grapevine.is/high-five-club/Or donate to the Grapevine here:https://support.grapevine.isYou can also support the Grapevine by shopping in our online store:https://shop.grapevine.is------------------------------------------------------------------------------------------ This is a Reykjavík Grapevine podcast.The Reykjavík Grapevine is a free alternative magazine in English published 18 times per year, biweekly during the spring and summer, and monthly during the autumn and winter. The magazine covers everything Iceland-related, with a special focus culture, music, food and travel. The Reykjavík Grapevine's goal is to serve as a trustworthy and reliable source of information for those living in Iceland, visiting Iceland or interested in Iceland. Thanks to our dedicated readership and excellent distribution network, the Reykjavík Grapevine is Iceland's most read English-language publication. You may not agree with what we write or publish, but at least it's not sponsored content.www.grapevine.is

Bylgjan
Reykjavík síðdegis - föstudagur 27. febrúar 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Feb 27, 2026 64:48


Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Anton Örn Karlsson - deildarstjóri félagsmálatölfræði hjá Hagstofu Íslands Grétar Þór Eyþórsson prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri um borgarpólitíkina Símatími Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka um verðbólgu Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins um nýstofnað Krabbameinsráð

anton ey karlsson reykjav akureyri febr krabbameinsf bjarki bentsson
Mannlegi þátturinn
Lausa skrúfan, Karlar í skúrum og mannlegu samskiptin með Valdimari

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 26, 2026 53:12


Lausa Skrúfan er vitundarvakning á vegum Grófarinnar Geðræktar á Akureyri. Markmið hennar er að auka meðvitund fólks um að gæta vel að andlegri heilsu sinni, efla forvarnir í geðheilbriðismálum og minnka fordóma gagnvart andlegum veikindum. Enn fremur, að hvetja fólk til þess að leita sér aðstoðar þegar þess er þörf og veita upplýsingar um hvar stuðning er að finna í samfélaginu okkar. Inga Bryndís Árnadóttir og Sonja Rún Sigríðardóttir frá Grófinni sögðu okkur betur frá í þættinum. Við brugðum okkur svo í Helluhraunið í Hafnarfirðinum og kynntumst áhugaverðum félagsskap sem kallar sig Karlar í skúrum. Þetta verkefni er starfrækt á nokkrum stöðum á landinu og er opið fyrir alla karlmenn og gefur þeim stað og stund itl að hittast, spjalla og vinna að ýmsum sameiginlegum verkefnum sem þeir sjálfir ákveða. Þar er unnið í ýmis konar handverki, smíðum, útskurði, járnsmíði, leðurvinnslu og mörgu fleiru. Við fengum að skoða aðstöðuna og ræddum í kaffistofunni þar við Þórarinn Klemensson, Sigurjón Elíasson og Hallgrím Guðmundsson. Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni ráðgjafa. Í framhaldi af spjallinu síðasta fimmtudag þá tókum við nú upp þráðinn og Valdimar sagði okkur frá þremur leiðum sem meðvirkir einstaklingar nota oft til að bregðast við erfiðleikum í lífinu. Tónlist í þættinum í dag Herbergið mitt / Brimkló (Arnar Sigurbjörnsson, texti Vilhjálmur frá Skáholti) Vor við flóann / GÓSS (Leon René, texti Jón Sigurðsson) Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson og Atli Bollason) Í stóru húsi / Hildur Vala (Halldór Gylfason) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Handkastið
Aukakastið - Ásbjörn Friðriksson

Handkastið

Play Episode Listen Later Feb 25, 2026 88:55


Ásbjörn Friðriksson er nýjasti gestur Aukakastsins þar sem Stymmi Klippari og Kiddi Bjé fá til sín handboltafólk og gerir upp feril þess allt frá fyrstu æfingu. Ási eins og hann er oftast kallaður fer yfir uppvaxtarárin á Akureyri, árin í atvinnumennsku og hvort þau hefði getað verið fleiri og tíma sinn í FH. Skemmtileg ferðalög sem hann fór í með FH gegnum árin eins og þegar þeir flugu til Rússland eingöngu til að taka fimm víti í evrópukeppninni. Það er óhætt að mæla með hlustun á þennan frábæra þátt fyrir allt handboltaáhugafólk en Ási kemur með marga frábæra punkta sem ungir iðkendur ættu að tileinka sér sem vilja ná lagt í boltnaum.

fh akureyri skemmtileg
Samfélagið
Reykjavík Grapevine, Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis og May Morris

Samfélagið

Play Episode Listen Later Feb 25, 2026 58:16


Rekstur dagblaðsins Reykjavík Grapevine er í járnum. Dagblaðið, sem kemur út á ensku, einu sinni til tvisvar í mánuði og hefur gert frá árinu 2003, hefur neyðst til að segja upp þremur blaðamönnum, en biðlar nú til almennings að halda því á lífi. Jón Trausti Sigurðarson, útgefandi, settist niður með okkur og fór yfir reksturinn, söguna og stöðu íslenskrar fjölmiðlaflóru. Við förum líka í heimsókn í nýtt húsnæði Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. Þar tók á móti okkur Eva Björg Óskarsdóttir, verkefnastjóri hjá félaginu og sagði frá starfseminni. Í lok þáttar rifjum við upp ársgamalt viðtal við Brynjar Karl Óttarsson, sögukennara við Menntaskólann á Akureyri. Hann var þá búinn að rannsaka gamlar bækur og skjöl bæði í kjallara Amtsbókasafnsin á Akureyri og í hirslum Menntaskólans - og þessa yfirlega skilaði nokkrum forvitnilegum uppgötvunum sem tengjast sögu ensku merkiskonunnar May Morris. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir og Fanney Birna Jónsdóttir.

morris grapevine hann reykjav akureyri umsj akureyrar menntask eva bj krabbameinsf
The Icelandic Roundup
Brushfires, Snowstorm, Kayak Iceberg, Hospital Ship & Easter Egg Tasting

The Icelandic Roundup

Play Episode Listen Later Feb 23, 2026 52:09


Are you enjoying this? Are you not? Tell us what to do more of, and what you'd like to hear less of. Brushfires On The Outskirts Of ReykjavíkSunday saw a massive brushfire near Elliðavatn, on the outskirts of Reykjavík. South Iceland has been having a dry spell and the brushfires spread as a result of that. According to Veitur, the company that takes care of providing water to the city of Reykjavik, the water supply to the city, located next to where the main brushfire raged, escaped the worst, but only because of a favorable wind direction. All of the fire departments in the Capital Area had to be called out to deal with the situation and to put out the fire. Over the weekend, two other brushfires had to be put out, one in Kjalanes, and another one in Norðlingaholt, both within the boundaries of ReykjavíkSnowstorm On The South CoastThe Road just west of the town of Vík, and all the way west to Seljalandsfoss, was closed for two hours during a snowstorm on Sunday, which both saw a truck drift drift off the road, closing it, and a bus with 27 tourists running of the road and into a ditch, nobody was hurt. Traffic was severely interrupted, and farmers in the general area of the south coast helped the SAR with tractors, in pulling out cars that had skid off the road or got stuck in snow.Kayak Turns Out To Be A Small IcebergThe Police in Reykjavík were called on location because of what was thought to be a kayak upside down in Skerjafjörður. After the police arrived on a boat with a drone, it turned out that the supposed kayak was a lump of ice.Skiing Slopes In Akureyri OverflowedThe police had to be called out to control traffic in the ski area of Akureyri, Hlíðafjall. Icelandic schools had a winter break on Thursday and Friday, which saw thousands of parents take their kids skiing in the north. The caretaker of the skiing area was asked if he had any advice for the skiers. His reply? “No, but I'd like to point out to the municipalities to maybe not all have the winter break during the same week.”Reykjavík's Emergency Rooms Still OverflowingThis ongoing story has gone nowhere, although the Ministry of Health is reportedly trying to negotiate with a private health care company, Klínikin, for space for about 10-20 patients, of the around 100 spaces needed the elevate the overflow at the emergency facilities in Fossvogur hospital.Icelandic EastSupport the show------------------------------------------------------------------------------------------SHOW SUPPORTSupport the Grapevine's reporting by becoming a member of our High Five Club: https://grapevine.is/high-five-club/Or donate to the Grapevine here:https://support.grapevine.isYou can also support the Grapevine by shopping in our online store:https://shop.grapevine.is------------------------------------------------------------------------------------------ This is a Reykjavík Grapevine podcast.The Reykjavík Grapevine is a free alternative magazine in English published 18 times per year, biweekly during the spring and summer, and monthly during the autumn and winter. The magazine covers everything Iceland-related, with a special focus culture, music, food and travel. The Reykjavík Grapevine's goal is to serve as a trustworthy and reliable source of information for those living in Iceland, visiting Iceland or interested in Iceland. Thanks to our dedicated readership and excellent distribution network, the Reykjavík Grapevine is Iceland's most read English-language publication. You may not agree with what we write or publish, but at least it's not sponsored content.www.grapevine.is

Bylgjan
Bítið - föstudagur 20. febrúar 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Feb 20, 2026 75:22


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari.   Ingibjörg Ísaksen, þingflokksformaður Framsóknar, ræddi við okkur um stöðuna á sjúkrahúsinu á Akureyri. Sigurdís Haraldsdóttir, yfirlæknir krabbameinslækninga við Landspítalann og dósent við læknadeild Háskóla Íslands, ræddi við okkur um ristilkrabbamein.   Einar Bárðarson og Jógvan Hansen fóru yfir fréttir vikunnar. Júlíana Sara Gunnarsdóttir, leikkona og þáttarstjórnandi í Bakaríinu, ræddi óhugnalega reynslu sem dóttir hennar og vinkonur lentu í.   Guðný Ósk Laxdal, The Royal Icelander, ræddi við okkur um handtöku Andrew Mountbatten-Windsor. Jón Erik Sigurðsson, skíðakappi settist niður með okkur nýkominn af Ólympíuleikunum.

hansen gu sigurd bakar akureyri febr ingibj frams landsp haraldsd heimi einar b
Flugvarpið
#145 - Skipulagsvald borgarinnar yfir Reykjavíkurflugvelli í öngstræti. Borgin vill starfsemina burt 2032 án tillits til þjóðarhagsmuna. Spjallað við Njál Trausta alþingismann um innanlandsflugvellina, samgönguáætlun o.fl. - Njáll Trausti

Flugvarpið

Play Episode Listen Later Feb 19, 2026 62:37


Í þættinum er rætt við Njál Trausta Friðbertsson alþingismann og flugumferðarstjóra um ýmis atriði sem tengjast fluginu í nýrri samgönguáætlun og nú er í meðförum Alþingis. Njáll Trausti hefur fylgst vel með flugmálum á síðustu árum og verið ötull talsmaður uppbyggingar á flugvöllum landsins, einkum til að auka flugöryggi. Í nýlegri umsögn Reykjavíkurborgar um samgönguáætlun er varað við allri uppbyggingu á flugvellinum í Vatnsmýri því flugstarfsemi sé ekki á skipulagi þar eftir árið 2032. Njáll Trausti telur að afstaða borgarinnar byggi á afar þröngum hagsmunum og hefur velt upp þeirri hugmynd að skipulagsvaldi yfir vellinum yrði breytt enda um þjóðarhagsmuni að ræða. Í þættinum er einnig spjallað um mögulega staðsetningu björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri, varaflugvallagjaldið og framkvæmdir á alþjóðaflugvöllum landsins og um samkeppnishæfni Evrópu í tengslum við ETS viðskiptakerfi Evrópusambandsins.

burt ets reykjav akureyri evr yfir samg trausti borgin spjalla trausta landhelgisg
Samfélagið
Gervigreind forritar gervigreind, virk efri ár og vetrarklippingar

Samfélagið

Play Episode Listen Later Feb 18, 2026 59:10


Við byrjum þáttinn á gervigreindinni. Eyrún Magnúsdóttir gervigreindarfréttaritari Samfélagsins ætlar að kíkja til okkar og segja okkur frá því sem ber hæst í gervigreindarumræðunni þessa dagana. Í dag segir hún okkur frá meintum tímamótum í þróun gervigreindar, þegar gervigreindin byrjaði að forrita sjálfa sig – og hvaða áhrif það gæti haft á daglegt líf fólks sem tengist gervigreind ekki neitt. Þá fáum við að kynnast verkefninu "Virk efri ár" á Akureyri sem er verkefni sem er ætlað íbúum Akureyrarbæjar sem eru 60 ára og eldri. Gígja Hólmgeirsdóttir ræddi við Héðin Svarfdal, verkefnastjóra lýðheilsumála hjá Akureyrarbæ. Svo ætlum við að rifja upp garðyrkjupistil frá árinu 2011 þar sem rætt var um vetrarklippingar á trjám. Tónlist úr þættinum: PAUL SIMON - 50 Ways To Leave Your Lover. Rae, Corinne Bailey - He Will Follow You With His Eyes (Radio Edit) (bonus track wav). Teitur Magnússon - Kamelgult.

paul simon magn svo virk akureyri sam f eyr ways to leave your lover teitur magn
Samfélagið
Ávaxtaflugur, grænlenskur atvinnurekstur og kaffinördismi

Samfélagið

Play Episode Listen Later Feb 12, 2026 58:17


Í byrjun þáttar fáum við til okkar Valgerði Jakobínu Hjaltalín, nýdoktor við Háskóla Íslands, til að fræða okkur um ávaxtaflugur. Svo heimsækjum við Christian Keldsen, framkvæmdarstjóra Sulisitsisut, félag atvinnurekenda í Grænlandi. Og að lokum rifjum við upp heimsókn okkar á kaffinördakaffihús á Akureyri sem farin var í október 2024. Tónlist úr þættinum: Canadian Brass - The flight of the bumblebee. Baker, Julien - A Dreamer's Holiday BIG THIEF - Mythological Beauty. DUSTY SPRINGFIELD - Spooky.

svo akureyri valger hjaltal
Samfélagið
Bitcoin á niðurleið, listnám háskólastigi á Akureyri og fiskiflugan

Samfélagið

Play Episode Listen Later Feb 11, 2026 55:00


Verð á rafmyntinni Bitcoin hefur sveiflast duglega niður á við síðustu mánuði. Í síðustu viku rifjuðum við upp samtal sem við áttum fyrir nokkrum árum við hagfræðinginn Björgvin Inga Ólafsson um rafmyntina, sem þá hafði risið mjög hátt. Nú er þessu öfugt farið og ætlum við að ræða aftur við Björgvin um ástæður þessarar niðursveiflu, traust á rafmyntum og um breytingar á notkun Bitcoin yfirleitt. Á Akureyri hefur lengi verið rætt um möguleika þess að bjóða uppá listnám á háskólastigi í bænum. Lítið hefur gerst í þeim efnum, þar til nú. Nú hafa Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri hafið samstarf og bráðlega verðuð boðið upp á námskeið í listum í háskólanum fyrir norðan. Gígja Hólmgeirsdóttir leit við á opnum kynningarfundi og forvitnaðist um verkefnið. Að endingu rifjum við upp úr Samfélaginu í nærmynd svokallað meindýrahorn sem var dagskrárliður í þættinum um skeið. Guðmundur Óli Scheving mætti til að ræða um fiskifluguna sem hér á landi má finna í fjórum mismunandi tegundum.

bitcoin bj gu akureyri sam f listah scheving listn
Víðsjá
Tumi Magnússon/svipmynd

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 28, 2026 47:56


Tumi Magnússon er fæddur í Reykjavík 1957 en ólst upp við jaðar Mosfellsbæjar í stórum bræðrahóp. Á heimilinu var myndlist upp um alla veggi og hugur Tuma stefndi alltaf í þá átt. Hann fór í Myndlista og handíðaskólann en ákvað að hætta eftir fornámið og klára námið í Hollandi. Hann langaði í nýtt umhverfi en svo hafði það líka áhrif að faðir hans, myndlistarmaðurinn Magnús Pálsson, var þarna orðin lykilmaður í kennslu við skólann. Magnús varaði son sinn reyndar við því að feta þessa leið en Tumi tók ekki mikið mark á því. Hann er ekki mikið gefinn fyrir að staðsetja sig á einum stað í listinni, en aðspurður segist hann kannski alltaf vera á slóðum konseptlistarinnar, og að kannski megi líka tengja hann við Fluxus hreyfinguna. Tími, skynjun og hversdagslegar athafnir eru meðal hans helstu viðfangsefna og oft má greina leikgleði og húmor í verkunum. Meðfram listinni hefur Tumi kennt bæði við Listaháskóla Íslands og við Konunglegu dönsku listaakademínuna en hann hefur búið í Kaupmannahöfn síðustu 20 árin. Frá sinni fyrstu sýningu á Akureyri 1981 hefur Tumi verið ötull í sýningarhaldi, hér á landi og víða um heim. Um þessar mundir sýnir hann í Listasafni Reykjanesbæjar og kallast sýningin Héðan þaðan þangað hingað.

Bylgjan
Bítið - mánudagur 19. janúar 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jan 19, 2026 99:35


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari.   Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, ræddi við okkur um svokölluð verktakalán. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, ræddi við okkur um framtíðina á íslenskum vinnumarkaði.   Gunnar Gíslason, forstöðumaður Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, ræddi við okkur um lestrarkennslu og byrjendalæsi.   Sandra Sif Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri DISACT og Sólveig R. Gunnarsdóttir, stjórnarformaður DISACT, ræddu þetta íslenska nýsköpunarfyrirtæki. Hannes Heimisson, aðalræðismaður Íslands í Þórshöfn, ræddi handboltaáhuga Færeyinga.   Ágúst Orri Arnarson, íþróttafréttamaður Sýnar, fór yfir umferðina í enska boltanum. Hálfdán Helgi Matthíasson, annar bróðirinn í VÆB, fór yfir allt sem er á döfinni hjá hljómsveitinni.

vr vb akureyri gunnarsd heimi gunnar g neytendasamtakanna breki karlsson
Víðsjá
Ólöf frá Hlöðum, Didda les bréf Ólafar, Freyja Þórsdóttir pistill

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 19, 2026 52:53


Ólöf frá Hlöðum er meðal umfjöllunarefna í þætti dagsins. Tilefnið er að út er komin í bókarformi grein sem hún skrifaði við upphaf síðustu aldar, og sem birtist fyrst í Eimreiðinni árið 1906. Bernskuheimilið mitt kallast þessi litla fallega græna bók sem Flóra menningarhús á Akureyri gaf út í haust. Og af þessu tilefni verður endurfluttur pistill sem önnur skáldkona, Didda, flutti hér í Víðsjá árið 2021. Þann veturinn fjallaði Didda hér um ólíkustu hluti undir yfirskriftinni listin að þrífast og í eitt skiptið rifjaði hún upp bréfaskriftir Ólafar frá Hlöðum við ekkju Þorsteins Erlingssonar. Og svo ljúkum við þætti dagsins á því að heyra nýjan pistil frá Freyju Þórsdóttur, heimspekingi, en hún verður með mánaðarlega hugleiðingar hér í þættinum fram á vorið. Að þessu sinni fjallar Freyja um framfarahugsun, tæknivæðingu og ljóðræna skynjun á heiminn. Við sögu kemur gervigreindar paradísin Ísland og ljóð eftir Mary Oliver og Emily Dickinson.

Spegillinn
Aftökum fjölgar í heiminum, réttindi frumbyggja á norðurslóðum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 29, 2025 20:00


Mun fleiri sakamenn hafa verið teknir af lífi á þessu ári en í fyrra, og það þrátt fyrir að 2024 hafi verið óvenju blóðugt ár á dauðadeildum fangelsa heimsins. Vitað er um hátt í tvö þúsund aftökur það sem af er þessu ári, samanborið við um 1.500 í fyrra. Þessi þróun er þvert á þróun síðustu ára, þar sem aftökum hefur fækkað jafnt og þétt í takt við fækkun þeirra ríkja sem enn eru með dauðarefsingu í refsilöggjöf sinni. Ástæðan er einkum mikil fjölgjun aftaka í örfáum einræðisríkjum - og Bandaríkjunum. Ævar Örn Jósepsson fjallar um málið. Um 50 hópar frumbyggja eiga heima á norðurslóðum. Margvísleg hætta steðjar að búsvæðum þeirra og framtíð, svo sem deilur um land og auðlindir, árásir á menningu þeirra sögu, tungumál tapast og mikill tími fer í málaferli og kröfur um úrbætur. Á síðari árum standa frumbyggjar einnig frammi fyrir því að tapa heimilum sínum vegna áhrifa loftslagsbreytinga. Rachael Lorna Johnstone, prófessor í lögfræði við Háskólann á Akureyri og sérfræðingur í heimskautarétti, hefur lengi rannsakað aðstæður frumbyggja og hefur sjálf upplifað þessar ógnir margar hverjar. Ágúst Ólafsson talar við hana. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Bæjarstjórnarmálin á Akureyri og afkastamiklir ráðgjafar ráðgjafarfyrirtækisins Athygli.

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 22, 2025 20:00


Hvað gerir ráðherra þegar hann þarf að takast á við erfiðar spurningar frá fjölmiðlum, vill ganga úr skugga um að ræðan sem hann á að flytja sé skiljanleg og að réttar áherslur sé að finna í fréttatilkynningu sem senda á út? Ef marka má kaup ráðherra ríkisstjórnarinnar á ráðgjafarþjónstu er líklegast að ráðherrann leiti til ráðgjafarfyrirtækisins Athygli eftir svörum. Línur eru aðeins farnar að skýrast í bæjarpólitíkinni á Akureyri nú þegar nálgast sveitarstjórnarkosningar í vor. Örlög meirihluta bæjarstjórnar gætu ráðist af því hvað L-listi Bæjarlista Akureyrar gerir að mati Grétars Þór Eyþórssonar, stjórnmálafræðings og prófessors við HA. Sjálfstæðisflokkur, L-listinn og Miðflokkur hafa starfað saman í meirihluta á Akureyri þetta kjörtímabil.

Spegillinn
Áform Niceair 2,0 um Akureyrarflug, minnkandi framlög til neyðaraðstoðar og fjárhagsstuðningur ESB við Úkraínu.

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 18, 2025 20:00


Martin Michael, forstjóri Niceair 2,0, virðist ekki sérlega þekktur í flugheiminum og efasemdir hafa heyrst eftir kynningarfund hans á Akureyri á þriðjudag. Eins og hann hefur kynnt áform um að hefja flug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar er ekki um að ræða flugfélag í eiginlegum skilningi, eða einhvers konar flugrekstur, segir Jón Karl Ólafsson, sem hefur áratuga reynslu af flugrekstri og ferðaþjónustu. Heldur sé þetta söluskrifstofa sem selji flugsæti í leiguflug. Meginástæða þess að framlög til neyðaraðstoðar í heiminum fara minnkandi er upplausn í alþjóðastjórnmálum, segja alþjóðlegu mannúðar- og hjálparsamtökin International Rescue Committee. Ný, reglubundin heimsskipan tuttugustu aldar hefur vikið fyrir nýrri heimsupplausn, með skelfilegum afleiðingum. Þessi heimsupplausn einkennist af vaxandi ágreiningi og átökum á alþjóðasviðinu, óstöðugum og síbreytilegum hagsmunablokkum, og auknu vægi hrossakaupa og baktjaldamakks. Lungann úr deginum sátu leiðtogar Evrópusambandsríkja og Volodímír Selenskí, forseti Úkraínu, á rökstólum í Brussel og ráðguðust um hvort og hvernig fjárhagsstuðningi ESB við Úkraínu yrði háttað næstu árin. Og sambandsríkin eru ekki á eitt sátt um hvort eigi að setja frystar eignir Rússa að veði fyrir láni til Úkraínu. Talað hefur verið um að ESB láni Úkraínustjórn 90 milljarða evra og fái þá endurgreidda, þá og þegar Rússar borga þeim stríðsskaðabætur.

The Icelandic Roundup
Physicians, Investigating Investigations, Hot Dog TikTok, North Korea

The Icelandic Roundup

Play Episode Listen Later Nov 24, 2025 65:35


Are you enjoying this? Are you not? Tell us what to do more of, and what you'd like to hear less of. The Reykjavík Grapevine's Iceland Roundup brings you the top news with a healthy dash of local views. In this episode, Grapevine publisher Jón Trausti Sigurðarson is joined by Grapevine Editor-In-Chief Bart Cameron, and Grapevine friend and contributor Sindri Eldon to roundup the stories making headlines in recent weeks. On the docket this week are: Too Few Physicians In North IcelandIt was reported before the weekend, that the Akureyri hospital in north of Iceland was hardly operational because too few physicians currently work there. Three doctors quit because they were overworked. The situation is also connected to how hospitals and health clinics have been staffed over the past decade or so, which is to hire doctors as  short term contractors, a practice which has turned out not to be strictly legal. Staffing generally is a problem in the Icelandic health care system, and the Reykjavík hospitals have been running in an emergency mode for over a year.Half of Municipalities In Iceland Without Policy Towards Disabled PeopleFifteen years ago, municipalities in Iceland took over responsibility for services to disabled people. Since then, only half of them have even taken up a policy regarding those services. This has in legalistic terms, not been a problem, but just recently Althingi ratified the UN's Convention on the Rights of Persons with Disabilities, which in turn will make some of those lackluster policies regarding disabled persons, illegal.55% of Icelanders Want An Investigation Of The State's Special Prosecutor The office of Special Prosecutor, setup after the 2008 economic collapse, has had tumultuous moments, and now 55% of Icelanders want that particular office, to be investigated. This recalls some parliamentarians interest in investigating the investigation committee that wrote a report for Althingi in 2010, on the reasons for the economic collapse. Investigate the investigation is a perpetual motion machine, of sorts.CEO Of Beloved Hot Dog Stand Shares Questionable Videos On TikTokLocal news outlet Heimildin reported on Bæjarins Bestu CEO having reposted a TikTok video which defends the actions of one Adolf Hitler. The CEO in question said he did not remember reposting the video.North Korea Is A Prosperous Country According To One IcelanderLast week it saw a report on Icelander Kristinn Hannesson, who visited North Korea for the 80th anniversary of that country's communist party. The former socialist------------------------------------------------------------------------------------------SHOW SUPPORTSupport the Grapevine's reporting by becoming a member of our High Five Club: https://steadyhq.com/en/rvkgrapevine/You can also support the Grapevine by shopping in our online store: https://shop.grapevine.is------------------------------------------------------------------------------------------ This is a Reykjavík Grapevine podcast.The Reykjavík Grapevine is a free alternative magazine in English published 18 times per year, biweekly during the spring and summer, and monthly during the autumn and winter. The magazine covers everything Iceland-related, with a special focus culture, music, food and travel. The Reykjavík Grapevine's goal is to serve as a trustworthy and reliable source of information for those living in Iceland, visiting Iceland or interested in Iceland. Thanks to our dedicated readership and excellent distribution network, the Reykjavík Grapevine is Iceland's most read English-language publication. You may not agree with what we write or publish, but at least it's not sponsored content.www.grapevine.is