POPULARITY
Á undanförnum árum hefur umræða um einhverfu kvenna aukist en þær fá oft ekki greiningu fyrr seint á ævinni. Í áratugi var einhverfa skilgreind út frá drengjum og stúlkur féllu utan rammans og fullorðnar konur enn frekar. Þegar greiningin kemur, oft á þrítugs- eða fertugsaldri og stundum eftir fimmtugt, lýsa margar konur henni eins og þar hafi þeim loksins verið gefin hin rétta skýring á eigin lífi. Skýringu á því hvers vegna ákveðnir hlutir voru alltaf erfiðari, hvers vegna félagsleg samskipti voru alltaf lýjandi og hvers vegna einföld dagleg verkefni gátu á stundum tekið alla orku frá þeim. Við ræddum við Vigdísi M Jónsdóttur sálfræðing í dag. Við fórum svo í heimsókn á Þjóðskjalasafnið og hittum þar fyrir Njörð Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörð. Hann sýndi okkur einkaskjöl sem Jónas Jónsson frá Hriflu lét geyma á safninu eftir að hann lét af störfum. Hann fór fram á það að skjölin skyldu vera lokuð frá afhendingu 1966 til 1.maí árið 1985, en þá hefði hann orðið 100 ára. Njörður sagði okkur frá þessum skjölum sem geymd eru í fimm öskjum á safninu, en þau voru talsvert persónuleg. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Úlfar Jökull Eyjólfsson nemandi í MR. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Úlfar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Himnaríki og helvíti e. Jón Kalman Þrúgur reiðinnar e. john steinbeck Gamli maðurinn og hafið e. Ernest Hemingway Behind the shades (ævisaga Bob dylans) e. Clinton Heylin. Náðarstund e. Hannah Kent Harry Potter bækurnar. Tónlistin í þættinum: Á ferðalagi / Ragnar Bjarnason (D. Darst, texti Ómar Ragnarsson) The Girl from Ipanema / Stan Getz og Astrud Gilberto (Carlos Antoni Jobim, Vinicius de Moraes & Norman Gimbel) Kóngur einn dag / KK og Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Freyja Jónsdóttir, dósent við lyfjafræðideild Háskóla Íslands og Adam Bauer, réttarefnafræðingur á Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla Íslands og doktorsnemi, ræddu við okkur um ópíóða og verkjalyfjameðferðir í íslensku samfélagi. Símatími Páll Magnússon og Vigdís Hauksdóttir veltu vöngum yfir nýjum meirihluta í Reykjavík. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, er á hringferð um landið.
Þriðjudagur 26. maí Náttúruhamfarir, dýrtíð, einhverfa og hamingja Margt bendir til að eldgosahrinunni sé lokið á Reykjanesi og að besta sviðsmynd allra möguleika verði ofan á. Öryggi og nægur jarðvarmi. Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur ræðir við Björn Þorláksson. Dýrtíð innanlands er í hæstu hæðum. Framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, Þórður Snær Júlíusson, ræðir í samtali við Björn Þorláks hvaða breyting yrði á samkeppni með aðild að ESB. Gunnar Smári ræðir við Vigdísi M. Jónsdóttur sálfræðing á Sálfræðistöðinni Höfðabakka um einhverfar konur og hvers vegna þær fela svo vel einhverfu sína. Og svo ræða þau svokallaða fúla karla, eldri menn sem lifa einangruðu lífi og verða einmana. Hrefna Guðmundsdóttir vinnu-og félagssálfræðingur ræðir hamingjuna á þriðja æviskeiði við Ásdísi Olsen.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokks í Reykjanesbæ, fór yfir úrslit kosninga. Þóra Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Maskínu, ræddi við okkur um úrslit kosninga í tilliti til skoðanakannana. Páll Magnússon og Vigdís Hauksdóttir fóru yfir úrslit sveitastjórnarkosninga. Kristín Edwald, formaður landskjörsstjórnar, ræddi við okkur um rafræna kjörskrána og fleira varðandi kosningar. Enski boltinn. Símatími.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Þorsteinn Geirsson, framkvæmdastjóri og eigandi Atomika, ræddi við okkur um nýja tækni sem getur margborgað sig. Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur fór yfir stöðuna á stríðinu í Úkraínu. Páll Magnússon og Vigdís Hauksdóttir spáðu í spilin fyrir sveitastjórnarkosningar. Við opnuðum símann um sveitastjórnarkosningarnar. Fréttamennirnir Sunna Sæmundsdóttir og Elísabet Inga Sigurðardóttir ræddu kappræðurnar í kvöld á Sýn og Vísi. Leikararnir Bjarni Snæbjörnsson og Hólmfríður Hafliðadóttir ræddu við okkur um Improvision.
Ljóðskáldið Heiða Vigdís Sigfúsdóttir gaf nýverið út ljóðabókina Í hæfilegu magni hjá Forlaginu. Þar fylgir lesandi konu sem virðist í upphafi falla að öllum helstu viðmiðum samfélagsins, en reynist eftir því sem á líður búa yfir fjölbreyttari karaktereinkennum en þar rúmast. Við ræðum við Heiðu í þætti dagsins og kynnum okkur einnig nýja leturgerð sem kallast Rúna en það er grafíski hönnuðurinn og myndlýsarinn Elías Rúni sem hannaði letrið upp úr handskrift listakonunnar Rúnu, en hún féll frá 99 ára að aldri í byrjun mánaðarins. Og Gauti Kristmannsson fjallar um skáldsöguna Mzungu, eftir Þórunni Rakel Gylfadóttur og Simon Okoth Aora, sem kom út hjá Angustúru fyrr í vetur
Bítið á Bylgjunni með Lilju, Stefáni og Ómari. Sveinn Brimar Jónsson lauk nýlega við BA-ritgerð í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri þar sem hann fjallar um áhrif og breytingar á íslenskum fjölmiðlum á tímum gervigreindar. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, ræddi við okkur vítt og breitt um flugið. Vigdís Hauksdóttir og Páll Magnússon fóru yfir stóru málin. Theodór Francis Birgisson, Teddinn okkar hjá Lausninni, ræddi um ástina. Fannar Páll Aðalsteinsson, markaðsstjóri 66°Norður, ræddi við okkur um 100 ára afmæli fyrirtækisins.
Við sögðum í dag frá málþingi sem fór fram fyrir nokkru þar sem leikskólamál voru rædd og yfirskriftin var: Bara pláss? Fagmennska og gæði í leikskólastarfi. Málþingið var hluti af fyrirlestraröð Menntavísindasviðs HÍ, Efst á baugi. Leikskólinn er fyrsta skólastigið og byggir á fagmennsku, þekkingu og skýrum gildum um réttindi barna, leik og vellíðan. Á sama tíma hefur umræða í samfélaginu í auknum mæli snúist um aðgengi, biðlista og rekstrarlegar áskoranir. Kolbrún Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ og Sara Margrét Ólafsdóttir, dósent í menntunarfræðum ungra barna og formaður námsleiðar í leikskólakennarafræðum,komu í þáttinn í dag. Við litum svo við á Þjóðskjalasafni Íslands og hittum fyrir Helgu Lilju Bergmann sem sýndi okkur vef Þjóðskjalasafnsins þar sem hægt er að finna ótrúlega margt, s.s. á slóðinni www.heimildir.is þar sem finna má t.d. gamlar kirkjubækur. Safnið fær margar beiðnir í viku frá fólki sem vill finna heimildir en nú er t.d. búið að skanna inn allar gamlar kirkjubækur fram til 1960-70 svo hægt sé að leita í þeim uppá eigin spýtur. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum var svo Sigurlín Bjarney Gísladóttir kennari og rithöfundur. Við fengum hana til að segja okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sigurlín talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Þúsund og einn hnífur og fleiri sögur frá Írak e. Hassan Blasim í þýðingu Sölva Björns Sigurðssonar Þríleikur (Things I don't want to know, The cost of living og Real estate) e. Deborah Levy The white road:Journey into an obsession e. Edmund de Waal Mountains of the mind: A history of fascination e. Robert MacFarlane Biblían, Þórarinn Eldjárn, Vigdís Grímsdóttir, Kristín Eiríksdóttir og Tomas Tranströmer Tónlist í þættinum í dag: Hvar er tunglið / Kristjana Stefánsdóttir (Sigurður Flosason) Ég vil fara upp í sveit / Ellý Vilhjálms (Carasella, texti Jón Sigurðsson) Töfrar / Silfurtónar (Júlíus Heimir Ólafsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins, settist niður með okkur og ræddi fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar. Guðmundur Kristjánsson í Brimi svaraði formanni smábátaeigenda sem dró upp dökka mynd af stórútgerðinni. Páll Magnússon og Vigdís Hauksdóttir fóru yfir stóru málin. Guðríður Helgadóttir hjá Garðyrkjuskólanum í Hveragerði var á línunni. Jói Fel, bakari leiddi okkur í sannleikann um súrdeigsbrauð. Anna Fríða Gísladóttir og Rúnar Kristmannsson frá Nóa Siríus komu með nýtt nammi. Guðmundur Viðarsson, formaður Ljósmyndarafélags Íslands og Rán Bjargardóttir, stjórnarkona í félaginu, ræddu 100 ára afmæli félagsins.
Vigdís Hafliðadóttir söngkona, leikkona, grínisti, handritshöfundur og ýmislegt fleira var föstudagsgesturinn okkar. Hún nam heimspeki við Háskóla Íslands og hefur t.d. leikið í kvikmyndinni Ljósvíkingar, áramótaskaupum og nú síðast í þáttunum Tuttugu og eitthvað, en hún er einnig einn höfunda, en fyrsti þátturinn verður sýndur á RÚV í kvöld. Hún hefur einnig notið mikilla vinsælda sem kynnir skemmtiþáttarins Kappsmáls á RÚV og Vigdís er meðlimur í hljómsveitinni FLOTT sem stofnuð var árið 2020 og hefur svo sannarlega slegið í gegn. Það var um nóg að tala við Vigdísi í dag, en við fórum auðvitað líka með henni aftur í tímann á æskuslóðirnar eins og við gerum yfirleitt með föstudagsgestinum. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag talaði hún um salat og sólskin. Sumardagurinn fyrsti er næsta fimmtudag og sólin hækkar á lofti sem kallaði á salatspjallið í dag, þar sem komu fyrir hrásalöt, majonessalöt og fersk salöt eins og grískt salat. Tónlist í þættinum í dag: Dagar / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg) Hvergiland / Leikhópurinn Ekki hugmynd (Vigdís Hafliðadóttir og Egill Andrason) Visa från Utanmyra / Jan Johanson (Jan Johanson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, ræddi við okkur beint frá Alaska. Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, fór yfir víðan völl og kom með mikil og jákvæð tíðindi úr orkuheimum. Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokks og Snorri Másson, þingmaður Miðflokks, fóru yfir menntamálin og ræðu Ingu Sæland sem gerði allt vitlaust. Sigurður Ágúst Sigurðsson, formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, settist niður með okkur. Elín Vigdís Guðmundsdóttir, formaður SÁTTar, samtaka um átraskanir og tengdar raskanir, settist niður með okkur. Arinbjörn Hauksson, markaðsstjóri Elko, ræddi við okkur um tæki sem aðstoða við vorhreingerningar. Ragnheiður Thorsteinsson, formaður Stangveiðifélags Reykjavíkur, ræddi fund sem félagið stendur fyrir í kvöld. Krista og Snorri frá Eldum rétt komu í heimsókn.
Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna kom í þáttinn í dag og við skoðuðum með honum nýtilkomnar leiðir sem eru í boði í íbúðarkaupum þar sem til dæmis byggingafyrirtæki, verktakar eða fjármálaþjónustur bjóða fólki upp á að leggja t.d. einungis fram 10% af kaupverði, seljandinn, eða annar aðili, leggja til allt að 20% og svo eru þá 70% húsnæðislán. Neytendasamtökin segja að þessir samningar séu varhugaverðir og óljósir, þar sem ekki sé búið að kanna frá öllum hliðum lögmæti þeirra og hver raunveruleg staða kaupend sé. Breki fór yfir þessi mál hjá okkur í dag. Við héldum svo áfram að grúska í safni Ríkisútvarpsins með Helgu Láru Þorsteinsdóttur safnstjóra og í dag kom hún með frásögn Sigurðar Helgasonar, tónskálds frá Blaine Washington, sem var tekin var upp árið 1947 þegar hann var nýkomin aftur til Reykjavíkur eftir 57 ára dvöl í vesturheimi, en hann fór frá Íslandi 1890. Stórmerkileg upptaka og frásögn þar sem hann til dæmis talar um framfarir og breytingar sem hafa orðið í Reykjavík og margt fleira. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Auður Þórhallsdóttir barnabókahöfundur. En hún er einmitt nýbúin að gefa út fjórðu bókina um Miðbæjarrottuna. Við spurðum hana aðeins út í hana og svo sagði hún okkur auðvitað frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Auður talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Einsamræður e. Birtu Ósmann Snyrtistofan e. Mario Bellatin Þessir djöfulsins karlar e. Andrev Walden Móðurást- sólmánuður e. Kristínu Ómarsdóttur En hvað það var skrýtið e. Pál. J Árdal Alkemistinn e. Paulo Coelho Minningarbók e. Vigdísi Grímsdóttur Tónlist í þættinum í dag: Skítaveður / Bogomil Font og Greiningadeildin (Bragi Valdimar Skúlason) Pínu sein / GDRN og Tómas R. Einarsson (GDRN og Tómas R. Einarsson) Skín við sólu Skagafjörður / Liljukórinn (Sigurður Helgason, texti Matthías Jochumsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Hlustendur veltu vöngum yfir dýrtíðinni. Hjörtur Gíslason, meltingafæraskurðlæknir á Landspítala og í Svíþjóð, ræddi við okkur um sína hlið á efnaskiptaaðgerðum á Íslandi. Vigdís Hauksdóttir og Ólafur Arnarson fóru yfir pólitík og efnahagsmál. Sólveig Ólafsdóttir, rannsakandi við Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands, ræddi við okkur um áhugavert námskeið um matarvenjur Reykvíkinga á 20. öld. Ástrós Erla Benediktsdóttir leiddi okkur í allan sannleikann um orkulækningar. Elfar Logi Hannesson og Rakel Björk Björnsdóttir, leikarar sýningarinnar Heilsugæslan, settust niður með okkur. Guðni Ágústsson og Gissur Páll ræddu við okkur um Brennju-Njáls sögu.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Jón Gunnar Þórðarson, framkvæmdastjóri Bara tala, fór yfir nýjungar í starfseminni. Linda Karen Gunnarsdóttir, hestafræðingur og formaður Dýraverndarsamband Íslands og Anna Margrét Áslaugardóttir, formaður Dýrfinnu, ræddu breytingar á almannavarnarlögum. Páll Magnússon og Vigdís Hauksdóttir fóru yfir stóru málin. Jórunn Oddsdóttir og Steinunn Zophoníasdóttir, ljósmæður hjá Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, ræddu vítt og breitt um getnaðarvarnir. Eva Ruza kom með brakandi ferskar ástartölur. Veðurfræðingurinn Einar Sveinbjörnsson var á línunni.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur hjá HMS og Jónína Þóra Einarsdóttir, leiðtogi í sjálfbærni, öryggi og gæðum hjá Steypustöðinni, ræddu ráðstefnu á morgun. Eygló Harðardóttir, verkefnastjóri afbrotavarna hjá ríkislögreglustjóra, ræddi við okkur um ofbeldi meðal barna og framið af börnum. Páll Magnússon og Vigdís Hauksdóttir fóru yfir efnahagsmálin og pólitíkina. Birta Ísólfsdóttir, forstöðumaður markaðssviðs hjá Origo og Sævar Helgi Bragason, almyrkvaunnandi og vísindamiðlari ræddu UT messuna. Diljá Mist Einarsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokks, settist niður með okkur. Guðmundur Birgir Halldórsson, verkefnastjóri viðburða hjá Reykjavíkurborg, ræddi við okkur. Græjuhornið.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Jens Bjarnason, framkvæmdarstjóri Frumunnar líftækniseturs, settist niður með okkur og ræddi líftækni. Theodór Francis Birgisson, Teddinn okkar, ræddi fjölskylduerjur og hvað er til ráða. Vigdís Hauksdóttir og Páll Magnússon veltu vöngum yfir pólitíkinni. Finnur Pind, framkvæmdastjóri Treble, fræddi okkur um starfsemi íslenska hugbúnaðarfyrirtækisins Treble sem er að gera góða hluti. Sigurður Þyrill Ingvason er í þorrablótsnefnd og ræddi við okkur um þorrablótið um helgina.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Brynja Ingadóttir, prófessor við ljósmóður- og hjúkrunarfræðideild og sérfræðingur í hjúkrun á Landspítala og Helga Dagný Sigurjónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og framkvæmdastjóri Icepharma Velferð, ræddu við okkur um heilsulæsi. Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur ræddi við okkur um stöðuna í Íran og heiminum öllum. Páll Magnússon og Vigdís Hauksdóttir fóru yfir ráðherraskipti og pólitíkina heilt yfir. Kristján Berg, fiskikóngurinn ræddi við okkur um atvik sem kom upp í versluninni hans. Símatími.
Sunnudagurinn 11. janúar Synir Egils: Oddvitar, hótanir, Evrópa, Grænland og Trump Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði, Vigdís Häsler lögfræðingur og Þóra Arnórsdóttir forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun og ræðir fréttir vikunnar og ástand mála í samfélagi og pólitík. Síðan ræðum við heimsmálin á tímum Donald Trump, hvort heimsmynd sé að líða undir lok og hvernig sú verður sem kemur í staðinn. Sóley Kaldal áhættuöryggisverkfræðingur, Kristinn Hrafnsson blaðamaður og ritstjóri Wikileaks og Dagbjört Hákonardóttir þingkona Samfylkingarinnar og fulltrúi í utanríkismálanefnd ræða breyttan heim. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Ragnar Eyþórsson, framleiðandi og kvikmyndanörd, fór yfir árið 2025 þegar kemur að kvikmyndum. Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, gerði upp árið í boltanum. Vigdís Hauksdóttir og Páll Magnússon spáðu í pólitíkina. Sveppi og Pétur Jóhann, mennirnir á bak við Beint í bílinn, fóru yfir stóru málin. Spákonan Sigurjóna Björgvinsdóttir horfði inn í framtíðina og spáði fyrir um árið.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Gyða Hjartardóttir og Stefanía Dögg Jóhannesdóttir, sérfræðingar á gæðasviði hjá Barna- og fjölskyldustofu, kíktu við. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, ræddi samgönguáætlun, markrílveiðar og jólin. Páll Magnússon og Vigdís Hauksdóttir fóru yfir stöðuna í pólitíkinni í borginni og ríki. Lilja Eivor Gunnarsdóttir Cederborg, höfundur bókarinnar Gunnar í Vinalandi og Indíana Björk Birgisdóttir, teiknarinn settust niður með okkur. Tónlistarkonan Klara Einarsdóttir ræddi við okkur um tónlistina.
16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi er alþjóðleg herferð UN Women sem stendur ár hvert frá 25. nóvember til 10. desember. Herferðin tengir saman alþjóðlegan baráttudag Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi og alþjóðlegan mannréttindadag Sameinuðu þjóðanna. Í ár, þegar 30 ár eru liðin frá undirritun Peking-sáttmálans, er athyglinni beint að stafrænu ofbeldi gegn konum og stúlkum. Sara McMahon, kynningarstjóri UN Women á Íslandi, settist niður með mér í morgun og ræddi við mig um stöðuna, áhyggjuefnin og framtíðina. Síðustu helgi hóf ný þáttaröð göngu sína á Rás 1 sem heitir Fatlist – í þáttunum fjalla Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir og Heiða Vigdís Sigfúsdóttir um birtingarmyndir fötlunar í menningu og listum og kafa ofan í sögu fötlunar, skilgreiningar hennar og hvaða mynd listin dregur upp af fötluðu fólki. Í seinni hluta þáttar ætla Kolbrún Dögg og Heiða Vigdís að setjast hjá okkur og segja okkur meira um Fatlist – en byrjum á alþjóðlegri herferð UN Women. Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Pétur Magnússon. Tónlist þáttarins: Marvin Gaye - Yesterday
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar Múlaþings, var á línunni og er ekki skemmt yfir nýrri samgönguáætlun. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður fjárlaganefndar, ræddi við okkur um fjárlögin. Vigdís Hauksdóttir og Páll Magnússon fóru yfir helstu mál líðandi stundar. Bergþóra Þorsteinsdóttir, áhrifavaldur sem glímir við kaupfíkn, ræddi við okkur um fíknina. Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, ræddi við okkur um 1100 ára afmæli Alþingis árið 2030. Sóley Rós Þórðardóttir og Árdís Eva Bragadóttir frá Moon veitingum og Ari Friðfinnsson, markaðsstjóri Emmessís, kíktu í heimsókn. Katrín Halldóra og Örn Árnason ræddu við okkur um Kærleiksjól í Sólheimakirkju á sunnudagskvöld.
Í bók sinni, Þegar múrar falla, fjallar Hörður Torfason um persónuleg og samfélagsleg mál, reynslu og átök hans við samfélagið síðastliðin 50 ár. Hann segir að hann hafi þurft að brjóta niður þá múra sem voru innra með honum til þess að geta tekist á við ytri múra. Það gerði hann með sýnileika og hugrekki. Hörður kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá bókinni og innri og ytri múrum. Sigurður Þorri Gunnarsson fjölmiðlamaður og Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir fréttakona verða saman með jólaþætti á aðventunni, Uppskrift að jólum. Markmiðið er að hafa það huggulegt á aðventunni, elda mat, kynnast skemmtilegu fólki, og þau velta fyrir sér jólatónlist og kynna sniðugar jólahugmyndir. Fyrsti þátturinn er einmitt á á dagskrá annað kvöld. Á síðustu árum hefur Óður getið sér gott orð fyrir skemmtilegar sýningar þar sem ungt og hæfileikaríkt tónlistarfólk færir sígilda tónlist í nýjan búning. Óður hefur sýnt 57 sýningar af fjórum óperuuppfærslum frá stofnun árið 2021. La bohéme eftir Puccini er ein vinsælasta ópera allra tíma og birtist í þeirra flutningi fyrsta sinn á íslensku í nýrri þýðingu. Sagan segir frá ungum listamönnum í París á 19.öld þar sem heit ástríða þeirra fyrir lífinu glímir við kaldan raunveruleikann. Ragnar Pétur Jóhannsson og Níela Thibaud Girerd komu í þáttinn í dag. Tónlist í þættinum í dag: Sleðaferð / Skapti Ólafsson (Leroy Anderson, texti Jólakettir) Gjöfin / Hörður Torfason (Hörður Torfason) Jólakveðjur / Eyjólfur Kristjánsson (Þorgeir Ástvaldsson, texti Þorsteinn Eggertsson) Hvít jól / Vilhjálmur og Ellý Vilhjálms (Irving Berlin, texti Stefán Jónsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Bítið á Bylgjunni með Heimi Lilju og Ómari, Þuríður Sverrisdóttir og Vigdís Gunnarsdóttir hjá bidlisti.is settust niður með okkur. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, fyrrverandi menntamálaráðherra, ræddi við okkur um menntakerfið. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, ræddi við okkur frá Stokkhólmi þar sem verið er að ræða brottflutning Rússa á úkraínskum börnum. Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokks, ræddi skattheimtu nýrrar ríkisstjórnar. Helgi Áss Grétarsson, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og lögfræðingur, ræddi Mjóddina við okkur. Bjartmar Guðlaugsson og Ólafur E. Jóhannsson ræddu hausttónleika í Grafarvogskirkju.
Vankunnátta þegar kemur að gervigreind kostar fyrirtæki dýrmæt tækifæri og fjármuni og fyrir almenning er þekking á netöryggi nauðsynleg t.a.m. varðandi vernd persónulegra upplýsinga. Þær Saga Úlfarsdóttir og Vigdís Helga Eyjólfsdóttir ætla að koma til okkar og fræða okkur um gervigreind og netöryggi. Næstu vikur fáum við hér í Samfélaginu póstkort frá Brasilíu. Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar og Lára Sólveig Lefort Scheefer, forseti ungra umhverfissinna eru í brasilísku borginni Belém á COP30 loftslagsráðstefnunni – og þær ætla að segja okkur frá því sem þar fer fram í örpistlum sem fluttir verða nokkrum sinnum í viku hér í þættinum. Við flytjum fyrsta pistilinn í þætti dagsins. Og í lok þáttar heimsækjum við þjóðskjalasafnið og fylgjum Símoni Hjalta Sverrissyni í gegnum áhugaverð skjöl um frægt skipbrot við Borgarfjörð árið 1936. Umsjón þáttar: Ástrós Signýjardóttir og Pétur Magnússon. Tónlist þáttarins: Big Thief - Words. Mestre Verequete - Alô Belém Brigitte Bardot - Un jour comme un autre Björgin og Hjartagosarnir - Þetta reddast allt
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Gottlieb Konráðsson, Gotti mokari, var á línunni og ræddi snjómokstur í Reykjavík. Stefán Hrafn Jónsson, prófessor í félagsfræði, ræddi við okkur um áhugaverða rannsókn um galla í nýbyggingum. Páll Magnússon og Vigdís Hauksdóttir fóru yfir sviðið. Sigurður Þ. Ragnarsson, Siggi Stormur, ræddi veðrið í dag og síðustu dag og sendir Veðurstofu Íslands pillu. Signý Kolbeinsdóttir, yfirhönnuður og stofnandi Tulipop og Bjarnveig Birta Bjarnadottir, rekstrarstjóri Tulipop, ræddu um ævintýraheim Tulipop og nýja bíómynd. Steinar Hermannsson í björgunarsveitinni Víkverja var á línunni.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Ólafur Adolfsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, ræddi innviðagjald á skemmtiferðaskip. Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, ræddi við okkur um hætturnar á netinu. Páll Magnússon og Vigdís Hauksdóttir fóru yfir aðalmál líðandi stundar. Karl Örvarsson kom með fréttir af Hunangi og gamalt lag í nýjum gervigreindar búningi. Theodór Francis Birgisson, Teddinn okkar, mætti í spjall um paranámskeið sem hann heldur í næstu viku. Alltaf nóg að gera hjá Óla Palla. Leikarinn Stefán Þór Þorgeirsson spjallaði við okkur um sýningu sem hann samdi um lífið í Japan. Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir ræddi við okkur um kökudeig og fleira.
Þegar Vigdís Grímsdóttir varð sjötug var blásið til fögnuðar henni til heiðurs og að óvörum. Þar stigu fram margar góðar skáldkonur og héldu ræður og sungu, og í framhaldinu var bæði haldið málþing og myndlistarsýning. Nú tveimur árum síðar er enn verið að fagna, og full ástæða til. Hausthefti Tímarits Máls og menningar er helgað Vigdísi spjaldanna á milli og í kvöld verður útgáfuboð Vigdísarheftisins haldið í Gunnarshúsi. Víðsjá dagsins er forsmekkur að því teiti, líka tileinkaður þessari grallaralegu galdrakonu og góða rithöfundi, Vigdísi Grímsdóttur.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, var á línunni og ræddi við okkur um breytingar á búvörulögum. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, formaður velgerðarnefndar Alþingis og þingmaður Flokks fólksins, ræddi við okkur um velferð barna og ungmenna. Vigdís Hauksdóttir og Páll Magnússon fóru yfir það helsta. Theódór Francis Birgisson, klínískur félagsráðgjafi, ræddi við okkur um fíknisjúkdóma og parsambandið. Hilmar Ásgeirsson, handboltaþjálfari hjá Aftureldingu og með BS í hagfræði, ræddi við okkur um ritgerð sem hann skrifaði. Helga Sigrún Hermannsdóttir, eigandi snyrtivörufyrirtækisins Dóttir Skin, ræddi við okkur um fyrirtækið og snyrtivörubransann.
Tvö viðfangsefni hafa áhrif á okkur öll hvort sem við höfum áhuga á þeim eða ekki: heilsa og peningar. Fólk hefur mjög mismunandi viðhorf til peninga og hegðun okkar þegar kemur að fjármálum fer gjarnan frekar eftir tilfinningum okkar til þeirra en því sem við mögulega kunnum og vitum. Hjónin Georg Lúðvíksson og Kristrún Tinna Gunnarsdóttir þýddu saman bókina Sálfræði peninganna eftir Morgan Housel sem er nýkomin út. Þau komu til okkar í dag og sögðu okkur frá bókinni og þeirra sameiginlega áhugamáli, en eins og þau segja sjálf þá er fjármálanördar hugtak sem á ágætlega við um þau. Ragnheiður Gröndal tónlistarkona var ein af þeim sem hlaut starfslaun til eins árs, sem tónskáld og tónlistarflytjandi. Hún segir að það hafi verið kærkomið að fá næði og rými til eigin tónsmíða og er með mörg járn í eldinum. Við heyrðum í henni í þættinum og hún leyfði okkur að heyra nýtt lag sem er ekki enn komið út. Svo var það Heilsuvaktin. Akureyrarklíníkin hefur á einu ári frá stofnun tekið á móti rúmlega fimm hundrað manns sem greinst hafa með langvinnan Covid sjúkdóm. Friðbjörn Sigurðsson einn úr læknateyminu þar segir sjúkdóminn einkennast af mikilli örmögnun og ofsaþreytu og að sjúklingar sem greinist með hann hafi hvað mesta sjúkdómsbyrði af öllum sjúkdómum sem Friðbjörn hefur komist í kynni við sem fyrrverandi krabbameinslæknir. Hann sé enn ólæknanlegur og læknar viti ekki hvaða lyf og meðferðir reynist bestar fyrir sjúklinga. Það sé þó von því mikil vitundarvakning hafi orðið undanfarin misseri um sjúkdóminn. Friðbjörn segist hafa trú á því að lækning eða lyf finnist samhliða auknum rannsóknum í náinni framtíð. Helga talaði við Friðbjörn á Heilsuvaktinni í dag. Tónlist í þættinum í dag: Verst af öllu / Ríó Tríó (Evert Taube, texti Jónas Friðrik Guðnason) Allar mínar götur / Halli Reynis og Vigdís Jónsdóttir (Halli Reynis) Ég þakka / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Hljómsveitin Eva var einu sinni efnileg framúrstefnuhljómsveit og sviðslistahópur en þarf nú að horfast í augu við raunveruleikann; andleg veikindi, dauðann, adhd greiningar, snemmbúið breytingaskeið og þá staðreynd að þær hafa ekki samið nýtt lag í fimm ár. Svona hljómar kynning á verkinu Kosmískt skítamix sem þær stöllur Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoníasardóttir, sem einmitt skipa Hljómsveitina Evu, munu frumsýna á föstudaginn. Í verkinu munu þær segja fólki frá því sem á daga þeirra hefur drifið í þessum grátbroslega en kosmíska tónleik. Vala og Sigríður komu í þáttinn í dag. Við kláruðum svo í dag yfirferð okkar um sviðslistahúsin til að kynna okkur hvað verður á fjölum þeirra í vetur. Nú er komið að Íslenska dansflokknum. Lovísa Ósk Gunnarsdóttir er listdansstjóri þar og hún var með okkur í dag og sagði frá því hvað er á döfinni hjá ÍD þennan veturinn. Svo var það lesandi vikunnar, sem í þetta sinn var Guðrún Steinþórsdóttir bókmenntafræðingur og aðjúnkt við Menntavísindasvið HÍ. Guðrún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Guðrún talaði um eftirafarandi bækur og höfunda: Atburðurinn e. Annie Ernaux Móðurást: Oddný og Móðurást: Draumþing e. Kristínu Ómarsdóttur Gervigul e. Rebecca F. Kuang Fyrir vísindin e. Önnu Rós Árnadóttur Tove Janson, Astrid Lindgren, Guðrún Helgadóttir, Vigdís Grímsdóttir, Steinunn Sigurðardóttir, Isabel Allende og Toni Morrison. Tónlist í þættinum í dag: Kiddi Kadilakk / Mannakorn (Magnús Eiríksson) Ævilagið / Hljómsveitin Eva (Jóhanna Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoníasardóttir) Good Vibrations / The Beach Boys (Brian Wilson & Mike Love) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Næstu vikur ætlum við að ferðast um höfuðborgarsvæðið og skoða byggingar sem eiga samkvæmt skipulagi að hverfa úr borgarlandslaginu. Við heimsækjum þessar byggingar með minjaverði Reykjavíkur, Henný Hafsteinsdóttur, og fáum að heyra af sögu þeirra og samhengi. Leiðangurinn hefst í þætti dagsins, í Grjótmulningsstöðinni á Höfða. Óskar Arnórsson, arkitekt, flytur líka pistil undir yfirskriftinni Arkitektúr og fötlun og í tilefni af afmælishátíð til heiðurs Svövu Jakobsdóttur rifjum við upp viðtal við Vigdísi Finnbogadóttur. Þar segir hún frá Svövu, konunni, pólitíkusnum og rithöfundinum, en einnig frá vináttu þeirra, sem hófst í barnæsku.
Herdís Stefánsdóttir kvikmyndatónskáld hefur komið víða við í heimi kvikmyndanna og gert tónlist við bæði erlendar og íslenskar myndir, nú síðast Eldana sem nýlega var frumsýnd en þar áður við þættina um Vigdísi sem sýndir voru hér á RÚV við góðar undirtektar. Svo hefur hún samið tónlist við tvær kvikmyndir M. Night Shyamalan, leikstjórann heimsfræga. Herdís er búsett hér á landi og eignaðist sitt annað barn fyrir skömmu og er í raun í sínu fyrsta fríi í langan tíma þar sem hún hefur verið uppbókuð í verkefni langt fram í tímann. Á meðan hefur hún einbeitt sér að því að semja sína eigin tónlist og fyrirhugað er að gefa út tvær plötur á næstu misserum. Herdís ræddi við okkur um kvikmyndatónsmíðar og fleira í dag. Við fræddumst svo aðeins um Sæmund Hólm Magnússon, sem fæddist árið 1749 og var fyrsti háskólamenntaði listamaður íslensku þjóðarinnar. Hann átti mjög merkilega og viðburðarríka ævi og þær Dagbjört Höskuldsdóttir, fyrrverandi banka-útibússtjóri, kaupfélagsstjóri og bóksali í Stykkishólmi og Sigrún Magnúsdóttir, fyrrverandi kaupmaður, safnstjóri, borgarfulltrúi, alþingismaður og ráðherra, hafa kynnt sér líf Sæmundar komu í þáttinn og sögðu okkur frá honum, en þær ætla einmitt að halda fyrirlestur um hann í næstu viku í húsakynnum Færeyska Sjómannafélagsins í Skipholti. Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi var svo hjá okkur með það sem við köllum Mannleg samskipti, en þau geta einmitt verið talsvert flókin. Hann hefur fjallað undanfarna fimmtudaga um áföll og afleiðingar þeirra, sem til dæmis hafa áhrif á samskipti. Svo talaði hann um meðvirkni, og í dag ræddi hann meðvirkni til dæmis í uppeldi og þau áhrif sem geta fylgt. Tónlist í þættinum í dag: Eldarnir / Herdís Stefánsdóttir (Herdís Stefánsdóttir) Sveitin milli sanda / Ellý Vilhjálms (Magnús Blöndal Jóhannsson) Bíldudals grænar baunir / Jolli & Kóla (Valgeir Guðjónsson) Heima / Haukur Morthens og hljómsveit Jörn Grauengaard (Oddgeir Kristjánsson, texti Ási í Bæ) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikkonan Vigdís Hrefna Pálsdóttir. Hún hefur auðvitað leikið fjölda hlutverka á sviði og fyrir framan myndavélar og nú síðast leikur hún aðalhlutverkið, jarðskjálftafræðinginn Önnu í kvikmyndinni Eldarnir, sem byggð er á bók Sigríðar Hagalín Björnsdóttur. Við spurðum hana út í myndina og hlutverkið og fórum með henni aftur í tímann á æskuslóðirnar og svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag. Svo var matarspjallið með Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur á sínum stað. Við ræddum í dag um hvað stendur uppúr hjá okkur matarlega séð eftir sumarið. Sigurlaug talaði um crepe suzette, Gunnar gaf upp dásamlega uppskrift fyrir kjúklingabringur og Guðrún nefndi steikt brokkolini. Tónlist í þættinum í dag: Litla stúlkan við hliðið / Ellý Vilhjálms (Freymóður Jóhannsson, 12.september) Snögglega Baldur / Edda Heiðrún Bachman og Leifur Hauksson (Alan Menken, Howard Ashman, íslenskur texti Megas) I Threw It All Away - Take 1 / Bob Dylan (Bob Dylan) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Skömmu fyrir miðnætti í gær sleit Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins og fimmti varaforseti Alþingis, þingfundi, án samráðs við forseta Alþingis. Þetta varð til þess að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti sérstakt ávarp við upphaf þingfundar í morgun, þar sem hún sagði nýja og fordæmalausa stöðu komna upp í íslenskum stjórnmálum, þar sem stjórnarandstaðan neitaði í raun að viðurkenna úrslit þingkosninga með því að halda þinginu í gíslingu með lengra málþófi en dæmi séu um í sögunni. Hún lauk svo máli sínu á yfirlýsingu um að hún og ríkisstjórnin hygðust verja Lýðveldið Ísland, stjórnskipan landsins og heiður Alþingis. Stór og þung orð, og umræðan í kjölfarið einkenndist líka af stórum orðum og þungum, þar sem stjórnarliðar hafa gengið svo langt að saka Hildi um atlögu að lýðræðinu og jafnvel líkt þessu við valdaránstilraun, en stjórnarandstæðingar saka stjórnina um yfirgang og skort á samráðs- og samningsvilja. Svona hélt þetta áfram þar til fundi var frestað klukkan fimm, vegna fundar flokksformanna. Ævar Örn Jósepsson ræddi þá stöðu sem uppi er við þau EIrík Bergmann Einarsson prófessor í stjórnmálafræði og Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur, sem var þingfréttamaður RÚV um margra ára skeið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Við heyrðum í dag í Sæunni Vigdísi Sigvaldadóttur, þroskaþjálfa á Egilsstöðum og býflugnabónda í Hallormsstaðaskógi. Sæunn er stödd í Seattle í Bandaríkjunum þar sem hún ætlar að læra tæknifrjóvgun býflugnadrottninga. Áætlunin er að gera Ísland sjálfbært í býflugnarækt til þess að draga úr innflutningi á býflugum, sem reynist sífellt erfiðara sökum býsjúkdóma. Við fengum Sæunni í dag til að segja okkur meðal annars frá því hvernig það kom til að hún fór út í býflugnarækt, hvað þarf til þess að fara út í ræktun og hvernig Ísland hentar fyrir býflugnarækt. Hvað tekur við að loknu kvikmyndanámi hérlendis og hvaða tækifæri bíða ungs kvikmyndagerðarfólks? Vigdís Howser Harðardóttir og Alvin Hugi Ragnarsson voru í fyrsta árgangi nýrrar kvikmyndadeildar við Listaháskóla Íslands og útskrifast um miðjan júní, en þau sögðu okkur frá lokaverkefnum sínum ásamt því að ræða kvikmyndasenuna hér á landi og hvernig þau ætla að setja mark sitt á hana. Í framhaldi af því ræddum við stöðu sviðslista á Íslandi og hverjar áskoranir og hlutverk þeirra eru við Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóra Sviðslistamiðstöðvar Íslands, en á föstudaginn fór fram Bransadagur Sviðslistanna í Borgarleikhúsinu þar sem staðan var rædd og þátttakendur deildu hugmyndum og sýn sinni á framtíð sviðslista. Tónlist í þættinum í dag: Býflugan / Geirfuglarnir (Þorkell Heiðarsson) The Birds And The Bees / Jewel Akens (Herbert Newman) Sumarvísa / Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir (Mats Paulson, texti Iðunn Steinsdóttir) Heitt toddý / Ellen Kristjánsdóttir (H. Hendler & R. Flanagan, texti Friðrik Erlingsson) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
Viljum við að færri fái krabbamein? Það ætti að vera auðvelt að svara þessari spurningu, en hún er einmitt yfirskriftin á málþingi sem Krabbameinsfélagið stendur fyrir næsta laugardag. Þar verður rætt um hvort það séu vannýtt tækifæri til þess að fækka þeim sem fá krabbamein í íslensku samfélagi og sóknarfæri í forvörnum. Sigrún Elva Einarsdóttir, sérfræðingur og teymisstjóri fræðslu og forvarna hjá Krabbameinsfélaginu, og Vigdís Eva Guðmundsdóttir, sérfræðingur í fræðslu og forvörnum hjá Krabbameinsfélaginu, komu í þáttinn í dag, en þær halda báðar erindi á málþinginu. Við heyrðum svo í Ívari Dagssyni, en hann rekur 20 osteopatastofur í Danmörku og 140 osteopatar starfa fyrir fyrirtækið. Hann stofnaði fyrirtækið fyrir 11 árum, eftir að hann lauk námi. Hann áformar nú að opna stofur í fleiri löndum og sína fyrstu osteopata stofu á Íslandi í júní. En það er ekki víst að allir viti hvað osteopatar gera, því fengum við Ívar til að segja okkur allt um það og frá velgengninni í Danmörku og víðar. Að lokum fengum við póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni. Í korti dagsins fjallar Magnús fyrst um fyrrum forseta Urugays, sem lést fyrir nokkrum dögum. Hann varð frægur um allan heim fyrir látlausan lífstíl og róttækar umbætur sem hann gerði í heimalandi sínu. Í seinni hlutanum segir frá vaxandi sniðgöngu á bandarískum vörum og framleiðslu vegna tollapólitíkur bandaríkjaforseta. Tónlist í þættinum í dag: Hinn elskulegi garðyrkjumaður / Kristjana Stefánsdóttir (Páll Torfi Önundarson) Í sól og sumaryl / Stebbi og Eyfi (Gylfi Ægisson) Sumarlandið / Jón Jónsson og KK (Jón Jónsson, texti Jóns Jónsson og Martina Vigdís Nardini) Sumargestur / Ásgeir Trausti (Ásgeir Trausti Einarsson, texti Einar Georg Einarsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari Frosti Sigurjónsson, rekstrarhagfræðingur ræddi við okkur um hlutverk og fjárfestingar lífeyrissjóðanna. Helga Þórðardóttir, formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar og oddviti Flokks fólksins, settist niður með okkur og ræddi skólamál. Spekingarnir tveir, Páll Magnússon og Vigdís Hauksdóttir, ræddu um Sjálfstæðisflokkinn og heimsmálin. Guðmundur Tómas Sigurðsson, flugrekstrarstjóri og flugstjóri hjá Icelandair, er kennari á flugfælninámskeiðum og ræddi við okkur um það. Tinna Þórudóttir Þorvaldar, heklari er eini atvinnuheklari landsins. Þóra Rós Guðbjartsdóttir, jógakennari ræddi við okkur um jóga fyrir börn og fullorðna.
Við minnumst eins áhrifamesta kvikmyndaleikstjóra samtímans David Lynch í þætti dagsins, en hannlést í lok síðustu viku, rétt fyrir 79 ára afmælisdaginn sinn - sem er í dag. Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi, sest um borð í Lestina og segir frá vini sínum og samstarfsmanni. Í gær fór í loftið síðasti þáttur af nýrri leikinni sjónvarpsþáttaröð frá Vesturporti sem byggir á ævi Vigdísar Finnbogadóttur. Eins og allir aðrir horfði Brynja Hjálmsdóttir, sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar, og flytur okkur pistil um Vigdísarþættina. Í dag leikur Ísland sinn þriðja leik á heimsmeistaramótinu í handbolta karla, við Slóveníu. Ísland vann tvo fyrstu leikina örugglega og ríkir því mikil bjartsýni um gengi liðsins á mótinu. Fyrir þrjátíu árum síðan ríkti líka mikil bjartsýni og stórhugur meðal íslenskra handboltaunnenda, en þá, árið 1995 hélt Ísland einmitt heimsmeistaramótið í handbolta - fyrsta og eina skiptið sem Ísland hefur haldið stórmót í boltaíþrótt. Að þessu tilefni ætlum við að endurflytja örseriuna “Þegar Ísland hélt stórmót” sem við Kristján og Anna Marsibil Clausen gerðum í Lestinni fyrir nokkrum árum um þetta sögulega mót - mót sem var mjög umdeilt á sínum tima, og er það kannski enn.
Nokkuð óvænt tilkynning Bjarna Benediktssonar um miðjan dag um að hann ætlaði ekki að taka sæti á þingi og gæfi ekki kost á sér í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins verður viðfangsefni þáttarins og rætt verður við þær Evu H. Önnudóttur prófessor og Jóhönnu Vigdís Hjaltadóttur fréttamann. Þingmönnum sjálfstæðisflokksins flokksins var brugðið þegar Bjarni sagði þeim frá ákvörðun sinni í dag, líklega er leitun að stjórnmálamanni sem hefur verið jafn umtalaður síðustu ár og áratugi.
Helgi sá Jóhönnu Vigdísi um daginn og sagði hann frá þeirri skemmtilegu reynslu. Hjálmar hitti ameríska frænku sína í laufabrauði og hún sagði honum hvað Þjóðverjar voru að brasa í suðurheimskautinu í seinni heimsstyrjöldinni.IG helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe´a!
https://solvitryggva.is/ Vigdís Hauksdóttir var um árabil bæði Alþingismaður og borgarfulltrúi og oft á tíðum gustaði mjög um hana, enda þekkt fyrir að segja sínar skoðanir. Í þættinum ræða Sölvi og Vigdís um stjórnmálin, ferilinn, lífið eftir stjórnmál, fjölmiðla, hugrekki og margt fleira. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ H-Berg - https://hberg.is/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/
Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og fyrrverandi formaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs mætti í viðtal í dag, reyndar bæði á RÚV og stöð2. Fyrstu viðtölin að segja má frá því í forsetakosningunum í vor. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við hana fyrr í dag. Það hefur ekki heyrst mikið í Katrínu síðustu mánuði en það er ekki vegna þess að ekki hafi verið eftir því falast. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman. Bashar al-Assad Sýrlandsforseti flúði land á sunnudaginn, þegar við blasti að sveitir uppreisnarmanna væru að taka öll völd í landinu eftir aðeins nokkurra daga, óvænta leiftursókn. Assad flúði til Rússlands, þar sem honum hefur verið veitt hæli af mannúðarástæðum, eins og nafnlaus heimildarmaður úr rússneska stjórnkerfinu orðaði það við rússnesku fréttatofuna Interfax. Með þessu lauk rúmlega hálfrar aldar valdatíð al-Assad fjölskyldunnar. Ævar Örn Jósepsson stiklar á stóru í valdatíð Bashar al-Assads. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
On an expedition to Madagascar, Matjaž Gregorič and his research team came upon a damaged termite nest that had a few other invertebrate visitors. When they experimentally damaged the nest again, they found two unexpected things: spiders ballooning in to prey on the termites as they rebuilt, and hopeful ants standing by to steal termites from those spiders. It created what the authors called “a perilous Malagasy triad”, a three-way predator-prey-kleptoparasite interaction that tells a very interesting story about chemical signaling and arthropod behavior. As a bonus, they identified the spider involved as a brand new genus and species, named Vigdisia praesidens to honor Vigdís Finnbogadóttir, Iceland's first female president. Listen in as researcher Matjaž Gregorič gives us the full story, as well as his thoughts on why it's important to pursue science for science's sake. Matjaž Gregorič's paper “A perilous Malagasy triad: a spider (Vigdisia praesidens, gen. and sp. nov.) and an ant compete for termite food” is in the July 14th issue of New Zealand Journal of Zoology. It can be found here: https://doi.org/10.1080/03014223.2024.2373185 A transcript of this episode can be found here: Matjaž Gregorič - Transcript New Species: Vigdisia praesidens More on Vigdís Finnbogadóttir, the world's first democratically-elected female president (Iceland, 1980-1996): https://www.councilwomenworldleaders.org/vigdiacutes-finnbogadoacutettir.html An article about this paper: https://www.icelandreview.com/news/new-spider-species-named-after-icelandic-president/ Videos of the kleptoparasitic behavior: https://www.youtube.com/@ezlab7631/videos Episode image credit: Matjaž Gregorič Be sure to follow New Species on Twitter (@PodcastSpecies) and Instagram (@NewSpeciesPodcast) and like the podcast page on Facebook (www.facebook.com/NewSpeciesPodcast) Music in this podcast is "No More (Instrumental)," by HaTom (https://fanlink.to/HaTom) If you have questions or feedback about this podcast, please e-mail us at NewSpeciesPodcast@gmail.com If you would like to support this podcast, please consider doing so at https://www.patreon.com/NewSpeciesPod
Bonnie continues Scandinavian Gal Month with the first woman in the world to be democratically elected as president. Learn about Vigdís Finnbogadóttir the president of Iceland from 1980-1996.
27 börn hafa greinst með eiturmyndandi Ecoli í hópsýkingu á leikskólanum Mánagarði í Reykjavík. Verið er að rannsaka hvernig börnin veiktust en grunurinn hefur einna helst beinst að nautahakki. Þetta er alvarlegasta hópsýking af þessu tagi frá því fyrir fimm árum, og þá sem nú voru það börn sem veiktust. Freyr Gígja Gunnarsson kynnti sér málið og ræddi við Vigdísi Tryggvadóttur sérgreinadýralækni hjá Matvælastofnun. Starf eða embætti héraðslæknis er ekki jafn eftirsótt og það eitt sinn var. Í vikunni bárust fréttir af því að sveitarfélög á Vesturlandi vilji leggja heilbrigðisstofnunum lið við að manna lítt eftirsóttar stöður og vinnuálagið er til umræðu í kjarabaráttu lækna. Gréta Sigríður Einarsdóttir ræðir við Sigurð Einar Sigurðsson framkvæmdastjóra lækninga hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands og Steinunni Þórðardóttur formann Læknafélagsins. Ásakanir um pólitískt vændi fjúka milli stjórnarflokkanna. Forsætisráðherra skammar dómsmálaráðherrann fyrir ljótt orðbragð. Þannig er staðan við ríkisstjórnarborðið í Ósló. En dugar þetta til að stjórnin falli ári áður en kjörtímabili lýkur rétt eins og gerðist á Íslandi? Gísli Kristjánsson, fréttaritari í Ósló, er með meira um ástandið í konungsríki frænda okkar austan Atlantsála. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Vigdís Hauksdóttir var um árabil bæði Alþingismaður og borgarfulltrúi og oft á tíðum gustaði mjög um hana, enda þekkt fyrir að segja sínar skoðanir. Í þættinum ræða Sölvi og Vigdís um stjórnmálin, ferilinn, lífið eftir stjórnmál, fjölmiðla, hugrekki og margt fleira. Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ Gullfoss - https://gullfoss.is/ Fiskikóngurinn - https://www.facebook.com/fiskikongurinn.is/?locale=is_IS Heitirpottar.is - https://heitirpottar.is/ Kjötkompaní - https://kjotkompani.is/ H-Berg - https://hberg.is/
Slovakia Today, English Language Current Affairs Programme from Slovak Radio
In this edition of the Slovakia Today programme, we introduce Sofia Zahova from the Vigdís Finnbogadóttir Institute of Foreign Languages at the University of Iceland. Sofia explains the intricacies of Romani literature not only on the Slovak literary scene, but abroad as well. A great part of Romani literature consists of "paramisa" - fairy tales. We invite you to listen to Melalo and Death, a fairy tale written by a famous Slovak-Romani writer and activist Elena Lacková.
In October 1975, 90% of women in Iceland took part in a nationwide protest over inequality.Factories and banks were forced to close and men were left holding the children as 25,000 women took to the streets.In 2015, Vigdís Finnbogadóttir, later Iceland's first female president, told Kirstie Brewer about the impact of that day.(Photo: Women take to the streets. Credit: The Icelandic Women's History Archives)