POPULARITY
Categories
Í Víðsjá dagsins höldum við á Listasafn Íslands og heimsækjum þar listfræðing og forverði til að forvitnast um málverkasafn danska 18. aldar greifans Otto Thott. Meðal þeirra gersema sem hann lét eftir sig voru yfir 30 olíumálverk af íslensku landslagi eftir óþekktan höfund sem hafði greinilega aldrei komið til Íslands því fátt minnir á íslenska náttúru í verkunum. Listasafn Íslands fékk þessi verk að gjöf árið 1928 en eru þau nú sýnd saman í fyrsta sinn í Safnasafninu á Svalbarðsströnd. Sýningin kallast Ísland í fjarska, við heyrum meira um hana í þættinum. Gauti Kristmannsson, bókmenntarýnir, fjallar um ljóðabók sem kom kom út á vordögum, Köngurváfa eftir Arndísi Þórarinsdóttur. Einnig hugum við að austuríska ljóðskáldinu Ingeborg Bachmann. En í ár 2026 eru hundrað ár liðin frá fæðingardegi hennar og af því tilefni birtast þýðingar á tíu ljóðum hennar í nýjasta hefti Skírnis. Kristján B. Jónasson, bókmenntafræðingur, þýðir og ritar stuttan kafla um ævi Bachmanns. Hann heimsækir okkur í hljóðstofu og segir frá þessu mikla skáldi.
Þorkell Máni Pétursson og Magnús Haukur Harðarson voru gestir í Besta spjallinu að þessu sinni.Í þættinum var farið yfir maímánuð í Bestu deildinni og væntanlegar vendingar. Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér að ofan eða á YouTube. Einnig má hlusta á hann á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Sjöundu umferð Bestu deildar kvenna er lokið og er kominn tími á nýjan Uppbótartíma. Arnar Páll Garðarsson, Magnús Haukur Harðarson og Snæbjört Pálsdóttir komu saman til að fara yfir leikina. Einnig er snert á landsliðinu sem er að koma saman fyrir mikilvægan leik gegn Úkraínu í undankeppni HM. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
„Það sem bókmenntin hefur er að draga fólk saman. Við getum ekki elskað það sem við kunnum ekki. Þannig að það er minn heiður að geta gefið eitthvað út frá Venesúela, sem kannski kynnir fyrir Íslendingum hvernig við erum sem þjóð í Venesúela,“ segir Helen Cova rithöfundur og bókaútgefandi hjá Karíba útgáfunni, en hún var að gefa út fyrstu íslensku þýðinguna á skáldsögu frá Venesúela, Mamma mjöll og minningar hennar eftir Teresu da la Parra í þýðingu Kristínar Guðrúnar Jónsdóttur. Þær verða báðar gestir okkar í dag en á morgun verða þær einnig með erindi í Veröld á viðburði um bókmenntir Venesúela og svo aftur um helgina á Bókmenntahátíð Flateyrar. Meira um hana og Mömmu Mjöll í þætti dagsins. Einnig er sviðslistakonan Steinunn Knúts Önnudóttur heimsótt og Haukur Þorgeirsson flytur pistil um rímur frá 15.öld um frúna Ólíf
Áttunda umferð Bestu deildarinnar er aðalmálið í þættinum. Elvar Geir og Valur Gunnars eru í hljóðveri og sérstakir gestasérfræðingar frá Akranesi mæta; Sverrir Mar Smárason og Andri Júlíusson. Kári Snorrason og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson gefa skýrslur úr tveimur leikjum. Einnig er fjallað um Lengjudeildina í þættinum og Daníel Geir Moritz, stuðningsmaður Arsenal, velur úrvalslið tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni og ræðir um landsliðsval Tuchel.
Arsenal er Englandsmeistari 2026. Eftir 22 ár af sársauka er Englandsmeistarabikarinn aftur mættur til Norður-London. Stuðningsmenn Arsenal eru í skýjunum og tveir þeirra mættu á skrifstofu Fótbolta.net í kvöld til að fara yfir þetta allt saman. Einnig var rætt um brottför Pep Guardiola frá Manchester City, Xabi Alonso til Chelsea, fallbaráttuna, Spygate og margt fleira. Guðmundur Aðalsteinn stýrir þættinum en með honum í þessum þætti eru Jóhann Fjalar Skaptason og Vignir Már Eiðsson.
Í þættinum flytur Steinunn Ketilsdóttir, danshöfundur og framkvæmdastjóri Dansverkstæðisins, ávarp í tilefni af Alþjóðlega dansdeginum 2026. Einnig endurflytjum við svipmynd sem Víðsjá gerði af feneyjafara Íslands í ár Ástu Fanneyju Sigurðardóttur. Svipmyndin er frá 2024.
Þórarinn ræðir við Einar Jóhannes Guðnason, oddvita Miðflokksins í Kópavogsbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar sem fram fara 16. maí næstkomandi.Í upphafi er rætt um spjaldtölvuvæðingu en Einar hefur miklar áhyggjur af því hvaða stefnu Kópavogsbær hefur tekið í þeim efnum en Einar telur að taka þurfi til í menntakerfinu og meðal annars snúa alfarið af braut skóla án aðgreiningar og endurvekja skóla með aðgreiningu.Einnig er rætt um borgarlínuna, útlendingamál, stjórnmálin á Íslandi, menningu, hinseginfræðslu samtakanna 78 og margt fleira.Einar telur að félagasamtök eigi ekki að standa í fræðslu fyrir börn og að Samtökin 78 séu þar með talin. Hann segir að fólk megi vera eins og það er en það þýði ekki að samtök eigi að hafa greitt aðgengi að börnum sama um hvaða skilaboð ræðir.- Er verið að Reykjavíkurvæða Kópavogsbæ?- Afhverju eiga Samtökin 78 ekki að fræða í skólum Kópavogsbæjar?- Þarf að taka í handbremsuna á borgarlínunni?Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur:500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.meHappy Hydrate kóði: EINPAELING25
Sigrún Perla Gísladóttir, arkitekt, vill hugsa um arkitektúr sem afl til umbreytinga í átt að meira réttlæti, vellíðan og sjálfbærni. Í tillögu hennar að verndun hafsvæða við landið dregur hún meðal annars fram með sjónrænum hætti neðanjarðarborgir og kórallahella sem eru tengdari okkur en við höldum. Perla mun kynna verkefnið á málþingi um Artivisma í Norræna húsinu á morgun og við ræðum við hana í þætti dagsins. Einnig kynnum við okkur Bókumbók, forvitnilega bókverkabúð og sýningarrými sem opnaði um miðjan febrúar dyr sínar við Njálsgötu 11. Katla Ársælsdóttir rýnir auk þess í óperuna Sæmund Fróða sem sýnd er í Tjarnarbíói.
Þeir Kristján Óli Sigurðsson og Tómas Guðmundsson voru gestir Helga Fannars í þætti vikunnar.Þeir eru fyrrum leikmenn og stuðningsmenn Breiðabliks og Víkings, sem mætast í opnunarleik Bestu deildarinnar á heimavelli síðarnefnda liðsins. Einnig er farið yfir stóru málin úr vikunni.
„Þegar nánar er að gáð þá finnum við hvernig tilfinningarnar ólga undir yfirborðinu, þó enginn hafi kannski beint orð á þeim,“ segir Brynja Þorgeirsdóttir, lektor við íslensku og menningardeild HÍ, en hún stendur, ásamt fleiri fræðimönnum, að nýlegu greinasafni sem hverfist um tilfinningar í forn-norrænum bókmenntum sem við fræðumst nánar um í þætti dagsins. Einnig segir Trausti Ólafsson frá sterkri leikhúsupplifun í Helsinki og Katla Ársælsdóttir rýnir í einleikinn Salka - ástin og dauðinn, sem sýndur er í Landnámssetrinu í Borgarnesi, í samstarfi við Þjóðleikhúsið.
Þórarinn ræðir við Kolbein H. Stefánsson um heimspekileg álitamál er varðar umræðuhefð.Kolbeinn telur íslenska samfélagsumræðu vera á skrýtnum stað og að hún eigi margt sameiginlegt við umræðu í Evrópu fyrir fáeinum árum síðan. Hann segir umræðustrúktúrinn vera hugsanaslævgandi og að áframhaldandi átakafælni kunni að leiða okkur í ógöngur.Einnig er rætt um útlendingamál í þessu samhengi og rætt um hatur, vísindaleg vinnubrögð, skrif Timur Kuran um samfélagsumræðu, afhverju fjölmenning er útilokandi og afhverju það gengur erfiðlega að taka á móti fólki frá Mið-Austurlöndum.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur:500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.meHappy Hydrate kóði: EINPAELING25
Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair í tilefni af viljayfirlýsingu sem félagið hefur skrifað undir um að hefja viðræður um möguleg kaup á 49% hlut í félaginu Fly Play Europe, sem er skráð á Möltu og er með flugrekstrarleyfi þar. Félagið var stofnað af íslenska flugfélaginu Play þegar það var í rekstri og er í eigu íslenskra fjárfesta, þar á meðal lífeyrissjóða. Bogi Nils fer yfir hvers vegna þetta er talið álitlegt fyrir Icelandair og um möguleika sem þetta skapar í að víkka út starfsemi félagsins. Einnig er stuttlega komið inn á ástand heimsmála, hækkun eldsneytisverðs og íslenskan vinnumarkað.
Þórarinn ræðir við Brynjar Níelsson og Jón Gunnarsson.Í fyrstu er rætt um borgarstjórnarmálin en Brynjar hyggst ætla sér í framboð og telur mikilvægt að Reykjavíkurborg breyti sinni stefnu undir forystu nýs meirihluta.Spurt er hver beri ábyrgð á eyðimerkurgöngu Sjálfstæðisflokksins og hvort að til sé sá veruleiki að flokkurinn verði hið nýja varadekk Samfylkingarinnar í borgarstjórn.Einnig er rætt um Evrópusambandið og versandi samkeppnisstaða álfunnar og afhverju þetta sé nú komið á dagskrá en tvímenningarnir telja ástæðuna vera að ríkisstjórninni hafi ekki tekist að takast á við verðbólguna og atvinnuleysið.Að lokum er rætt um útlendingamál og spurt hvort að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, Vinstri grænna og Framsóknarflokksins hafi verið varaðir við því að taka á móti ákveðnum einstaklingum frá Palestínu líkt og Helgi Magnús, fyrrum vararíkissaksóknari hefur fullyrt.- Vöruðu Ísraelar íslensk stjórnvöld við?- Verður Sjálfstæðisflokkurinn nýja varadekk Samfylkingarinnar í borginni?- Á hvern skrifast eyðumerkurganga Sjálfstæðisflokksins?
Sagan gerð upp. Farið er yfir hetjuskap og kvarði smíðaður til að meta hann í Íslendingasögunum. Hjalti kveður Odd í kútinn. Hvaða máltíð væri Gunnlaugs saga? Hvaða lag? Stóru spurningunum er svarað í þessum rosalega uppgjörs þætti! Einnig lagðar línur fyrir framtíðina.
Þórarinn ræðir um frumhlaup utanríkisráðherra í umræðum sínum um aðildaviðræður við Evrópusambandið og hvaða áhrif það mun hafa á borgarstjórnarskosningar sem fram fara 16. maí næstkomandi.Einnig er fjallað um síðastliðna tvo þætti Silfursins og farið yfir frammistöðu mismunandi oddvita þeirra flokka sem hafa fengið til þess tækifæri.Að því loknu er talað um húsnæðismál, lífskjör og fleira.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur:500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.meHappy Hydrate kóði: EINPAELING25
Rætt er við Arnar Friðriksson framkvæmdastjóra flugfélagsins Norlandair um starfsemi félagins sem er með höfuðstöðvar sínar á Akureyri. Félagið er með 7 flugvélar í rekstri og flug félagsins er gríðarlega mikilvægt ekki bara fyrir Akureyringa heldur landsmenn alla. Félagið er með sjúkraflugsvakt allan sólarhringinn allt árið um kring, sinnir áætlunarflugi innanlands og síðast en ekki síst sinnir það fjölbreyttum leiguflugsverkefnum með Twin Otter flugvélum í krefjandi aðstæðum á Grænlandi. Arnar ræðir vítt og breitt um um flugmálin, innanlandsflugið, útboðsmálin og rekstrarumhverfi fyrir lítið flugfélag eins og Norlandair. Einnig er farið yfir þær aðstæður sem sköpuðust 26. febrúar síðastliðinn þegar margar þotur lentu á Reykjavíkurflugvelli og fyrir vikið varð völlurinn ekki nothæfur um tíma fyrir sjúkra- og áætlunarflug. Áhugavert spjall þar sem hlustendur fá örlitla innsýn í rekstur Norlandair. Viðtalið var tekið upp í lok mars inni í F-27 flugvél Landhelgisgæslunnar á Flugsafni Íslands á Akureyri.
Þórarinn ræðir við Hilmar Veigar Pétursson, forstjóra CCP. Hilmar hefur áhyggjur af nýsköpunarumhverfi á Íslandi en telur samt sem áður að með einföldum ákvörðunum sé hægt að margfalda afköst hans. Hann segir að með núverandi ríkisstjórn hafi áherslurnar beyst sem hafi haft áhrif á menningu innan iðnaðarins.Hann segir að með lítilli breytingu á fyrirkomulagi lífeyrissjóða væri hægt að skapa nýja lífæð fyrir nýsköpunarfyrirtæki sem að með réttum hvötum sé í raun takmarkalaus. Menningin innan geirans hafi dalað og að það hafi meiri áhrif en margan grunar og að "stemningin" innan geirans hafi mikil áhrif á það hvort að hann blómstri eður ei.Einnig er rætt um Eve-online en það er að sjálfsögðu langstærsta afurð CCP. Rætt er um leikinn í samhengi við hagkerfi heimsins og hvaða skörun er á milli hagkerfisins í leiknum og hagkerfisins á Íslandi. Að lokum er rætt um orkumál, bæði hérlendis en einnig í Evrópu. Hilmar segir að orka sé mikilvæg stoð í nýjum heimi gervigreindar og að hægt væri að nota innviði álveranna í gagnaver en það gæti einnig verið til hagsbóta í öðrum kimum heimsins eins og í Afríku.- Hvernig geta orkumál valdið samfélagslegu harakiri?- Afhverju er lífeyrissjóðakerfið að mestu leyti að fjármagna nýtækniiðnað í Bandaríkjunum?- Hver eru sameiginleg einkenni hagkerfa Eve-online og Íslands?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur:500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.meHappy Hydrate kóði: EINPAELING25
Heiðrún Lind Marteinsdóttir og Örn Arnarson rýna í atburði líðandi stundar. Það er af nógu að taka í efnahagsmálum og pólitík þessa vikuna. Við ræðum um hitann í kringum ESB-umsóknina sem er að aukast, rýnum í villandi málflutning, óskýr svör ráðherra og hvers vegna Inga Sæland neitar að gefa upp afstöðu sína. Við ræðum einnig harðari tón frá Seðlabankanum sem hækkaði stýrivexti í vikunni, veltum því upp hvort að Seðlabankinn sé einni í liði í verðbólgubaráttunni og gaslýsingar ríkisstjórnarinnar í kjölfar vaxtahækkunar. Einnig er rætt um atvinnulífið og innviði, loðnuvertíð sem nú er að klárast, hrós vikunnar, hraðaspurningar og margt fleira.
Í þættinum ræði ég hvað raunverulega skapar árangur – að taka ákvörðun um að fara alla leið og útiloka möguleikann á að gefast upp. Ég fjalla um mikilvægi þess að grípa til aðgerða sem byggja á trú á eigin sýn og getu, frekar en kvíða eða efasemdum. Einnig tala ég um skuldbindingu, fjárfestingu í eigin vexti og heiðarleika í sjálfsskoðun. Þegar við hættum að bíða eftir fullkomnum aðstæðum og höldum áfram þrátt fyrir hindranir, verður árangur til. Skrá mig á námskeiðið 5 atriði í netrekstri, frá hugmynd til fyrstu tekna. Smella hér Viltu fá upplýsingar um að fá Lindu sem viðskipta mentor? Sendu henni einkaskilaboð á Instagram, smelltu hér LOKAÐ FYRIR SKRÁNINGAR Í LMLP- BIÐLISTI Nú er LOKAÐ fyrir skráningar í LMLP prógrammið. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. SKRÁ MIG Á BIÐLISTA Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum. ➡️ YOU TUBE ➡️ INSTAGRAM ➡️ FACEBOOK ➡️ TAKTU SKREFIÐ FB GRÚPPA ➡️ HEIMASÍÐA ✔️ LÍFSÞJÁLFASKÓLINN ✔️LMLP PRÓGRAMMIÐ ✔️ NÁMSKEIÐ ✔️ VÖRUR ✔️ MAGASÍNIÐ M/LINDU PÉ (ókeypis) P.s. Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir! Smelltu hér til þess.
Elín Elísabet Einarsdóttir hefur um árabil starfað sem teiknari en í Covid ákvað hún að nú væri komin tími á að gefa myndlistinni meira pláss. Og þegar hún fór að mála úti í náttúrunni var ekki aftur snúið. Líkt og æðarkollan sem sækir í sama hreiður kynslóð eftir kynslóð sækir Elín Elísabet í staði á landinu sem hún tengist fjölskylduböndum. Þar vappar hún um í kyrrð og einveru með fuglum og plöntum og upplifir staðinn, allt þar til ákveðin sjónarhorn byrja að færast yfir á strigann. Ferlið skapar ástand sem Elín Elísabet líkir við hálfgerðan trans. Við hittum listakonuna í gallerí Þulu á Hafnartorgi þar sem hún sýnir ný verk. Einnig rýnum við, að gefnu tilefni, í eitt lag af The Wall, plötu Pink Floyd og skoðum textatengsl þess við breska dægurlagatónlist á fjórða áratug síðustu aldar. Og Trausti Ólafsson rýnir í leikverkið Gæðablóð sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu.
Í þessum þætti ræði ég „frelsi fyrst", nálgun sem ég er að innleiða í mínu persónulega lífi og í fyrirtæki mínu. Ég er sjálf að fara í gegnum endursköpun og segi frá því hér. Einnig ræði ég hvað það þýðir að hækka standardinn — jafnvel þegar við teljum okkur nú þegar með háan standard. Að lokum kynni ég nýja og spennandi leið til að vinna með mér fyrir þau sem vilja auka tekjur sínar. Skrá mig á námskeiðið 5 atriði í netrekstri, frá hugmynd til fyrstu tekna. Smella hér Viltu fá upplýsingar um að fá Lindu sem viðskipta mentor? Sendu henni einkaskilaboð á Instagram, smelltu hér
Þórarinn ræðir við Jón Magnús Kristinsson, starfandi aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, en hann hefur einnig mikla reynslu af heilbrigðiskerfinu og starfaði sem yfirlæknir bráðamóttökunnar áður en hann hóf störf í ráðuneytinu.Rætt er um stöðu Landspítalans í samhengi við einkarekstur og opinberan rekstur. Fjallað er um hugmyndafræði, greiðsluþátttöku, nýtingu, hagræðingu, framleiðni og skort.Jón Magnús segir mikilvægt að huga að samfélagssáttmálanum þegar rætt er um heilbrigðiskerfið. Hann telur að almenn sátt liggi á bakvið þá ákvörðun að heilbrigðisþjónusta sé fjármögnuð í gegnum sameiginlega sjóði og ekki eigi að vera hægt að borga sig fram fyrir röðina.Einnig er. rætt um DRG-kerfið, kjarasamninga hjúkrunarfræðinga og lækna, hvata lækna til þess að starfa á Íslandi og fleira.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðPalssonfasteignasala.isHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur (kynningartilboð):500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me
Hörður Ágústsson er lykilpersóna í íslenskri menningarsögu. Hann var í framvarðarsveit myndlistar á síðustu öld, leiðandi rödd módernismans og lykilmaður í þróun abstraktsins hér á landi. Hörður var einnig mikilvirkur fræðimaður á sviði íslenskrar húsagerðalistar og brautryðjandi í bókahönnun og auglýsingagerð. „Í mér eru arkitekt og ljóðskáld, og þeir eru sífellt að rífast,“ sagði hann eitt sinn, en á nýrri sýningu um listamanninn í Gerðarsafni er fókusinn settur á arkitektinn Hörð, og dregin fram verk sem sýna fyrst og fremst nálgun hans á form og litafræði. Sýningarstjórar eru þau Brynja Sveinsdóttir forstöðumaður Gerðarsafns og grafísku hönnuðurnir Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Geirfinnsdóttir. VIð hittum þau á safninu í þætti dagsins. Einnig rýnir Gauti Kristmannsson í Dúkkuverksmiðjuna eftir Júlíu Margréti Einarsdóttur og við þjófstörtum Aldrei las ég Laxness bókaklúbbinum.
Við heimsækjum bókabúðina Skáldu þar sem útgáfu nýs bókverks var fagnað um síðustu helgi. Bókverkið kallast Á milli mála: fiður, fingur, fálmarar og höfundar eru þær Agnes Ársælsdóttir og Anna Andrea Winther. Bókin er hluti af listrannsókn sem hófst með kexi fyrir bæði hunda og menn. Einn hluti verksins voru keramíkskúlptúrar sem settir voru upp við Tjörnina í Reykjavík í tengslum við Listahátíð 2024. Víðsjá ræddi við þær um skúlptúrana á sínum tíma þar sem þær sögðust vera dáldið hræddar um, svona í ljósi listasögunnar við Tjörnina. Og það vildi einmitt til að í miðju samtali sáum við unga drengi reyna að stela hluta af verkinu, en það er sennilega í eina skiptið sem listrán hefur átt sér stað í beinni útsendingu á Rás1. Við rifjum ránið upp í þætti dagsins og heyrum af nýju bókinni. Einnig rifjum við að gefnu tilefni upp umfjöllun um fyrstu grænlensku heimildamyndina, Sumé-The sound of Revolution og Gauti Kritsmannsson rýnir í Minnisblöð veiðimanns eftir Túrgenev.
Bambusinn þjónar mikilvægu hlutverki í handritasögu Kínverja, sem skrifuðu gjarnan frekar á bambus en silki, áður en pappírinn var fundinn þar upp. Prentlistina eigum við líka Kínverjum að þakka, en elstu minjar um skrifað mál eru frá því um 13 öldum fyrir okkar tímatal. Jón Egill Eyþórsson er einn okkar fremsti sérfræðingur á sviði austur-asískra fræða og uppfræðir okkur um kínverska handritamenningu. Konungsdóttirin Mábil sterka frá var ein af fræknustu hetjum íslenskra bókmennta í 500 ár. Hún var öðrum fremri í riddaralistum og drýgði miklar hetjudáðir í bardögum. Hetjudáðir hennar voru sagðar í Mábilar rímum sem komu fyrst fram í handriti á fimmtándu öld, en mjög fá dæmi eru um konur sem aðalpersónur í rímum þess tíma. Nú hafa þessar rímur birst í fyrsta sinn á prenti, í bókinni Meyjar og völd - Rímur og saga af Mábil sterku, eftir Valgerði Kr. Brynjólfsdóttur, sem einnig er gestur í þætti dagsins. Einnig fáum við pistil frá Magneu Guðmundsdóttur, arkitekt.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er tekinn upp á bóndadeginum. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Það eru tveir gestir þessa vikuna. Sá fyrri er landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson sem ræðir um verkefni ársins 2026 og um þróun liðsins undir hans stjórn. Svo kemur Eyjólfur Héðinsson, nýr yfirmaður fótboltamála hjá Breiðabliki. Hann ræðir um ýmislegt tengt Kópavogsliðinu og sínu starfi. Einnig er rætt aðeins um sameinað Breiðholt.
Rikki G og Bolli fengu lögregluna í heimsókn þar sem farið var yfir alvöru áskorun sem Rikki og Egill tóku þátt í. Einnig mætti Hjálmar Örn á svæðið og síðan var farið í bíómyndir sem fólk grét yfir á sínum tíma.
Rikki og Bolli brölluðu ýmislegt þennan þriðjudag. Þeir hringdu til Tyrklands og fengu að heyra hvernig gengi í ígræðslunni hjá Ploder. Einnig fengu hlustendur að kynnast Bolla Má frekar og þær mjúku á sínum stað
Una Björk Kjerúlf hlaut í gær Ljóðstaf Jóns úr Vör, en verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 2001 í minningu skáldsins Jóns úr Vör. Ljóð Unu Bjarkar kallast Framlag mitt í minningabanka nærri útdauðra ljóðaen í rökstuðningi dómnefndar segir að það sé listilega lipurt og leikandi en efni þess sé nokkuð kvíðablandið þegar betur er að gáð. Við ræðum við Unu Björk Kjerúlf í þætti dagsins. Einnig minnumst við fyrstu útvarpssendingarinnar á Íslandi sem fór fram í Fríkirkjunni í Hafnarfirði fyrir 100 árum síðan. Þetta var fyrir daga ríkisútvarpsins en Ottó B. Arnar símfræðingur hafði fengið leyfi til að stofna og starfrækja útvarpsfélag og stóð að þessari útsendingu. Til að minnast þessa stórviðburðar höfðu þeir Sigurður Harðarson, rafeindavirki og formaður Hollvina um sögu útvarps á Íslandi og Birgir Arnar, sonur Ottós B Arnar, frumkvæði að því að útvarpsguðsþjónustu frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði verður útvarpað beint hér á Rás 1 á 100 ára afmælinu næstkomandi sunnudag. Þeir verða gestir okkar í dag. Einnig flytur Tumi Árnason pistil þar sem meðal annars ný plata Sölva Kolbeinssonar kemur við sögu.
Heil og sæl. Í þætti dagsins er aðalmálið landsleikurinn í kvöld, Ísland-Unvergjaland á EM í handbolta. Einnig er vel farið yfir gang mála í fótboltanum, bæði utanlands sem og hér heima. Bónusdeildin í körfubolta er á sínum stað og margt fleira. Viðmælendur eru; Siggi Sveins, Haraldur Hróðmarsson, Einar Jónsson, Þórhallur Dan og Svanhvít Valtýs. Njótið og takk fyrir að hlusta.
Saga múslima á Íberíuskaga spannar níu aldir, en lauk árið 1614 þegar hundruð þúsunda múslima höfðu verið flutt nauðungaflutningum frá Spáni. Áhrif þessa tíma má sjá um gervallann skagann, bæði á Spáni og í Portúgal, en þrátt fyrir það hefur ekki alltaf ríkt sátt um umfang þessara áhrifa eða þýðingu. Nýlega kom út hjá Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur smáritið Al-andalus, saga múslima á Íberíuskaga. Höfundur bókarinnar, Þórir Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræðum og arabísku við Háskóla Íslands, er gestur þáttar. Einnig heimsækjum við Listamenn gallerí við Skúlagötu til að ræða við myndlistarmanninn Helga Hjaltalín um einkasýningu hans, Skuggi sem mælieining. Þar fer Helgi í hugmyndaferðalag um hernumin svæði Evrópu, trúarbrögð, allskonar elda og stórkarlalegan hugsunarhátt.
Þeir Arnar Daði og Styrmir Sigurðsson mættu til Helga Fannars og hituðu upp fyrir EM í handbolta.Einnig er farið yfir helstu fréttir vikunnar úr fótboltanum.
Við erum flest hver meðvituð um að hugarfarið skiptir miklu máli þegar kemur að líðan en við gerum okkur ekki alltaf grein fyrir því, hversu mikið það hefur að segja um hvað gerist í lífi okkar. Niðurstöður rannsókna í þessum efnum hafa sýnt að það að virkja hugann betur í jákvæðri hugsun til þess að breyta lífinu og ná betri stjórn á hvaða skilaboð við sendum frá okkur. Við rædddum þetta við Hrefnu Guðmundsdóttur, en hún er menntuð í náms- og starfsráðgjöf, stjórnmálafræði og heimspeki og er auk þess jógakennari og markþjálfi. Katrín Björk Birgisdóttir vakti athygli á síðasta ári fyrir myndbönd þar sem hún sýndi hvernig henni tókst að komast af með nokkur þúsund krónur í vikumatseðil fyrir fjölskylduna. Einnig sagði hún frá markmiðum sínum fyrir árið 2025 en meðal þeirra var að greiða tíu milljónir inn á húsnæðislánið fyrir áramót. Við forvitnuðumst í dag um það hvernig hún fór að þessu og hvernig gekk. Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni. Hann tók upp þráðinn frá því síðast og hélt áfram að tala um það sem fólk sér eftir því að hafa gert, eða ekki gert, þegar það lítur um öxl þegar komið er á lokastöð ævinnar. Það er áhugavert að heyra hverju fólk sér eftir því það getur gefið okkur vísbendingar um það sem skiptir mestu máli í lífinu. Tónlist í þættinum: Reyndu aftur / Mannakorn (Magnús Eiríksson) Ósvikin ást/ Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson og Aðalsteinn Ásberg) Þú ert mín / Valdimar Guðmundsson og Helgi Júlíus (Helgi Júlíus Óskarsson) Moist / PPCX (Chiwon Lee, Jihan Jeon & Kiik) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Rithöfundurinn Fríða Ísberg segir útgangspunkt skáldsögunnar Huldukonunnar hafa verið klisjan og að fjörðurinn, 20.öldin, sveitarómantíkin og hið eilífa sumar hafi svo komið í eðlilegu framhaldi. En tilfinningin um klisjuna átti þó eftir að umbreytast í sköpunarferlinu og rannsóknin hafi breyst í mikla glímu, ekki síst vegna innbyggðra fordóma Fríðu sjálfrar gagnvart því hvað alvöru bókmenntir eru. Við ræðum við Fríðu í þætti dagsins um Huldukonuna, sem nýverið hreppti verðlaun bóksala sem besta skáldsaga ársins. Einnig heyrum við rýni Rögnu Sigurðardóttur í tvær sýningar í Marshallhúsinu, samsýningu 9 ungra listamanna í Kling og Bang, Frásögnin er dregin í hlé, og sýningu Helgu Páleyjar Friðþjófsdóttur í Gallerí Þulu, Í hringiðu alls. En við hefjum þáttinn á bókarýni, Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í Lausaletur Þórdísar Helgadóttur.
„Listamenn eru eins og prestar,” segir Sigurður Ámundason myndlistarmaður, sem fylgir Víðsjá út í Gróttuvita í dag. „Við fjöllum um mannlega breiskleika, samfélagið og tölum um tilfinningar. Munurinn á myndlistarmönnum og prestum er að myndlistarmenn predika ekki. Við felum alltaf það sem við erum að reyna að segja.” Sigurður sýnir um þessar mundir í vitanum og vitavarðahúsinu. Sýningin sem kallast Úthverfavirki er sú fimmta í sýningarröð LIstasafns ASÍ þar sem listamaður er valin til að sýna á tveimur stöðum á landinu. Við ræðum aðferðir hans í myndlistinni og verkin í Gróttu þar sem klassísk viðfangsefni listasögunnar birtast í samspili manns og náttúru. Sigurður hefur mikinn áhuga á þessu samspili segist stöðugt reyna að túlka samtímann í gegnum þetta samspil. Hann vill vera í núinu og forðast nostalgíuþ. Einnig ræðum við samskiptaerfiðleika mannskepnunnar en Sigurður segir mannleg samskipti vera sitt leiðarljós í myndlistinni.
Umferðin var erfið fyrir Liverpool og Manchester United en þessi félög koma ekki vel undan landsleikjahléi. Guðmundur Aðalsteinn settist niður í Pepsi Max stúdíóinu með nöfnunum Magnúsi Hauki Harðarsyni og Magnúsi Þór Jónssyni. Farið var vel yfir Liverpool sérstaklega. Einnig var mikið rætt um stórleik umferðarinnar þar sem Arsenal valtaði yfir ömurlegt Tottenham lið og þá var snert á öllum öðrum leikjum í skemmtilegri umræðum.
Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir það helsta frá Hátíðarkvöldi Þjóðmála. Einnig er rætt um stýrivaxtalækkun Seðlabankans og kólnun hagkerfisins, slök viðbrögð ríkisstjórnarinnar við tollum Evrópusambandsins, uppstillta mynd af forsætisráðherra tala í símann, nýtt slagorð Viðreisnar, nýja könnun sem sýnir Miðflokkinn stærri en Sjálfstæðisflokkinn, hátt setta ríkisstarfsmenn sem klúðra málum en fá bara nýtt starf á sömu launum, möguleg kaup Símans á fjölmiðlahluta Sýnar, og sitthvað fleira.
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu í Heimsglugganum við Boga Ágústsson um vandræði breska ríkisútvarpsins vegna mistaka í fréttaskýringaþættinum Panorama sem fjallaði um Donald Trump. Einnig ræddu þau um minningarathafnir um kristalsnóttina svokölluðu í nóvember 1938 þegar nasistar réðust á heimili, eignir og samkunduhús gyðinga. Kristalsnóttin er talin hafa markað tímamót í ofsóknum gegn gyðingum.
Robert átti hreint út sagt hræðilega æsku, sem kom til með að móta fullorðinsárin hans. Hann hafði óbeit fyrir barnaníðingum, og þar með fór hann að drepa þá enda taldi hann að það væri öllum fyrir bestu að losna við þá. Hann sá aldrei eftir því sem hann gerði, en sá samt til þess að hann fengi þá refsingu sem hann átti skilið fyrir ætlunarverk sín. Kóðinn morðskúrinn veitir ykkur 15% afslátt af öllum vörum hjá Define The Line Sport. Kóðinn morðskúrinn veitir ykkur 20% afslátt á ávaxtasýrumeðferð hjá Steinunni á snyrtistofunni Kosmetik. Giggó - snilldar app til að óska eftir og fá aðila í verk sem hafa setið á hakanum. Einnig er hægt að nýta sína þekkingu í að taka að sér verkefni og fá auka tekjur í kjölfarið. Inni á www.pardus.is/mordskurinn getið þið fengið yfir 200 þætti fyrir aðeins 1.390kr.- á mánuði!
Við hefjum þáttinn á því að hringja til Danmerkur og kynna okkur bók sem var að koma út hjá Angústúru, skáldsöguna Maðurinn í skiltinu eftir chileska rithöfundinn María Jose Ferrada. Jón Hallur Stefánsson þýddi og segir frá höfundi og verki. Einnig fjallar Óskar Arnórsson fjallar um tengsl arkitektúrs og kapítalisma og Ásgeir Ásgeirsson segir frá heimi tyrkneskrar ottóman tónlistar.
Þessar fréttir komu eflaust einhverjum á óvart .. en ekki endilega öllum, því Rockstar er nýbúið að reka yfir 30 manns fyrir að ganga í stéttarfélag.Arnór Steinn og Gunnar fara vel yfir stöðuna. Af hverju er leiknum að seinka? Verða fleiri seinkanir? Hvað þýðir þetta fyrir Rockstar?Einnig fréttir um PS Portal og aðrar seinkanir!Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Það er alvöru þáttur af Uppbótartímanum í dag þegar tímabilið er gert upp. Nik Chamberlain, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Breiðabliks, mætir í þáttinn og ræðir stórkostlegan árangur og næsta skref sem er í Svíþjóð. Hann er að kveðja íslenskan fótbolta eftir mörg ár hér á landi. Þá mætir Adda Baldursdóttir í seinni hlutann og gerir upp tímabilið með Guðmundi Aðalsteini og Magnúsi Hauki. Einnig er snert á landsliðinu.
Sjötti maðurinn tók upp eftir fjórðu umferð Bónus deildar karla og ræddi málin. Þátturinn var tekinn upp á Selfossi þar sem Öddi var í Bandaríkjunum. Helstu málefni þáttarins voru, hvernig unnu KR-ingar ekki í Grindavík, hvers vegna eru Ármann svona boring, eru Keflavik besta liðið í deildinni og hvað er í gangi í Garðabænum? Einnig er farið yfir hvaða ungu leikmenn hafa heillað hingað til.Þetta og margt margt fleira í þætti vikunnar. Sjötti maðurinn er í boði Bónus deildarinnar, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi á föstudegi. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Haldið er sérstakt lokahóf í Pepsi Max hljóðverinu og opinberað val á liði ársins, leikmanni ársins, þjálfara ársins, besta unga leikmanninum og dómara ársins. Hitað er upp fyrir lokaumferðina í Bestu deildinni. Hvaða lið munu falla? Mun Breiðablik stela Evrópusætinu af Stjörnunni? Einnig er rætt um þjálfarakapalinn, Íslendinga í Evrópukeppnum og skoðað hvaða leikir eru um helgina í enska boltanum.
Síðasti þáttur Leiðin úr Lengjunni þetta árið þar sem farið er yfir úrslitaleik umspilsins. Einnig er farið í hin allskyns verðlaun og lið tímabilsins að mati þáttarins. Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson og Haraldur Örn Haraldsson sáu um þennan loka þátt.
Loka umferð Lengjudeildarinnar fer fram á Laugardaginn klukkan 14:00 þar sem þrjú lið geta unnið deildina. Þrjú lið eru í hættu á að missa af umspili, og fjögur lið geta endað í fallsæti. Haraldur Örn og Sverrir Örn fóru yfir þetta ásamt Þróttaranum Jóni Ólafssyni sem var sérstakur gestur í þættinum. Einnig var hringt í Sæbjörn Steinke og Stefán Martein.
Besta deildin verður bara áhugaverðari og áhugaverðari. Innkastið eftir 19. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Tómas Þór. Skipin hafa verið sett í slipp, Framarar stimpla sig í fallbaráttuna, ÍA er fallið, frábær umferð fyrir Víkinga, hörmulegur varnarleikur í Kópavogi, gamlir draugar gera vart við sig hjá Val og umdeildur dómur í Garðabæ. Einnig rætt um bikarúrslitaleikinn framundan og Lengjudeildarhornið er á sínum stað.
Það var nóg að ræða í Uppbótartímanum í dag þar sem Besta deild kvenna sneri aftur eftir langa EM pásu. Í þættinum í dag ræddu þeir Magnús Haukur og Guðmundur Aðalsteinn um sigur Englands á Evrópumótinu og árangur Íslands í Sviss, sigur Breiðabliks á Þrótti í toppslag, framtíðarlandsliðskonur á Sauðárkróki og margt fleira. Einnig var snert á Lengjudeildinni og 2. deild kvenna í lok þáttar.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 26. júlí. Elvar Geir og Tómas Þór stýra þættinum og með þeim er Valur Gunnarsson. Gestur þáttarins er Nikolaj Hansen, sóknarmaður Víkings, en Víkingar eru nýkomnir frá Albaníu þar sem þeir töpuðu 2-1 í fyrri leik sínum gegn Vllaznia í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Farið er yfir Evrópuleiki vikunnar, fréttir og slúður úr íslenska boltanum, Bestu deildina og Lengjudeildina. Sæbjörn Steinke er á línunni. Einnig er rætt um VAR en Þóroddur Hjaltalín og Gunnar Jarl mæta.