POPULARITY
Um næstu helgi verður opnuð sýning á Kjarvalsstöðum; Smáborg, háborg –Reykjavík í mynd. Þetta er yfirlitssýning á verkum sem endurspegla Reykjavíkurborg frá sjónarhorni listamanna á því 240 ára tímabili sem hún hefur verið til sem kauptún. Við gerum okkur ferð á Kjarvalsstaði í þættinum og náum tali af sýningarstjórunum þeim Markúsi Þór Andréssyni, Sigurði Trausta Traustasyni og Sunnu Ástþórsdóttur. Freyja Þórsdóttir fjallar í pistli dagsins um listagyðjuna, innblástur, andatrú og ævintýri. Við sögu koma myndlistarkonan Tracy Emin og rithöfundurinn Astrid Lindgren. Einnig kynnum við okkur sýningu á ævistarfi Hallsteins Sigurðssonar á vinnustofu hans í Ystaseli 37. Sýningin kallast Endurlit og þar gefur að líta ólík verk úr áli, járni og steinsteypu ásamt skissum, heimildum og áður óséðu efni sem varpa ljósi á hugmynda vinnu og efnisrannsóknir. Það er Myndhöggvarafélagið í samstarfi við minningarsjóð Hallsteins og Listahátíð í reykjavík sem standa að sýningunni og sýningarstjórar eru Sean Patrick O'Brien og Ólöf Bóadóttir. Við ræðum við Ólöfu í þættinum.
Föstudaginn 12. júní var Lestin tekin upp í Klúbbi Listahátíðar í Iðnó. Við veltum fyrir okkur stöðu listarinnar í samtímanum - á tímum snjallsíma, samfélagsmiðla, gervigreindar, á tímum þegar lýðræðið á undir högg að sækja, á stríðstímum, verðbólgutímum, á tímum Trump og tækni-kapítalisma. Getur listin sagt eitthvað nýtt og áhugavert um þessa tíma, getur hún haft einhver alvöru áhrif, þegar hún þarf stöðugt að keppa við alla aðra afþreyingu á netinu, á samfélagsmiðlum, í athyglishagkerfinu. Við ræðum við tvo listamenn, Cristophe Meierhans og Mat Dryhurst.
Í Hvelfingu Norræna hússins stendur yfir sýningin Himna; Goðsagnir & skáldskapur úr jörðu. Sýningin er samsýning átta listamanna sem koma víðsvegar að en verk þeirra skoða endurnýjun jarðvegs sem grundvallarferli sem gerir jörðina byggilega og lífi kleift að kvikna, dafna og endurnýja sig. Í þætti dagsins gerum við okkur ferð í Norræan húsið og tökum sýningarstjórann Thomas Pausz tali um Himnu. Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor, segir okkur frá skáldunum sem sömdu Íslendingasögurnar og endar á Njáls sögu. Var höfundurinn einhver frændi Snorra Sturlusonar - eða kannski frænka hans? Gallerí Kichin var stofnað af þeim Skúla Thayer og Silju Rún Högnadóttur en upphafi miðaðist galleríið við eina óræða mublu sem þau fundu í Góða hirðinum. Mublan fékk heimili í vinnustofu þeirra í Listaháskólanum og með tímanum umbreyttist hún í sýningarrými. Í fyrra fór Kichin svo í samstarf við listahátíð í Reykjavík og úr urðu sex sýningar sem hófu göngu sína við upphaf listahátiðar og opna með viku millibili fram í júlí. Í þættinum lítum við inn í Kling og Bang og fáum að heyra af verkefninu.
Í þættinum sláum á þráðinn til Flateyjar og ræðum við, rithöfundinn og bókaútgefandann, Ragnar Helga Ólafsson sem siglir þar milli eyja, klifrar í klettum og vitjar fugla með fuglafræðingum. Við kynnum einnig til leiks nýjan myndlistarrýni. Vala Sigþrúðar Jónsdóttir verður reglulega með okkur fram á sumarið og næsta vetur, og deilir með okkur upplifun sinni af sýningum sem okkur þykja einstaklega spennandi. Í dag heyrum við af sýningu sem sett var upp í Nýlistasafninu í tengslum við Listahátíð. Hún kallast Óður til gleðinnar og að baki henni stendur úkraínski listahópurinn Open Group. Við hugum einnig að Tónlistarhátíðinni Við Djúpið. Hátíðin hefst í næstu viku á Ísafirði og að vanda verður flutt fjölbreytt klassísk tónlist úr ólíkum áttum. Greipur Gíslason er stjórnandi hátíðarinnar í ár og Sæunn Þorsteinsdóttir er listrænn stjórnandi. Við ræðum við Greip um hátíðinaí þættinum.
Örn Gauti er forsprakki og söngvari rokkhljómsveitarinnar HASAR, sem eru nýbúnir að senda frá sér plötu, Nýjasta tíska. Við ræðum pönk, Kalla á þakinu og skeitera á göngutúr um hverfið með Erni Gauta. Listir og velferð er nýtt nám á meistarastigi í Listaháskóla Íslands og nokkrir nemendur í því námi munu standa fyrir dagskrá á morgun í Klúbb Listahátíðar, sem fer fram undir yfirskriftinni Samfélag, listir og líðan. Alexía Björg kom í Lestina, en hún mun leiða leiki í Klúbbnum á morgun.
Við lítum við á sýningu James Merry, sem opnaði um liðna helgi í Listasafni Íslands og hefur yfirskriftina Ummyndlingar. Þar eru til sýnis grímur sem James hefur búið til á 15 ára tímabili, að stórum hluta í samstarfi við Björk Guðmundsdóttur, en sýning hennar, Echolalia er sýnd í safninu samhliða. Við heyrum líka umfjöllun Trausta Ólafssonar um brúðuleiksýninguna Rót, sem sýnd er í Tjarnarbíói í tilefni af Listahátíð í Reykjavík, og rifjum upp umfjöllun og lestur úr vinningsbók Maístjörnunnar, Mara kemur í heimsókn, eftir Natöshu S.
Björk Guðmundsdóttir og James Merry opnuðu um helgina sýningu í Listasafni Íslands, Echolalia og Ummyndlingar. Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík og stendur yfir fram á haust. Við fáum Björk í heimsókn og ræðum við hana um samstarfið við James, sköpunarferlið, umhverfisbaráttu og gervigreind. Svo fáum við heyra nýtt lag með Skröttum, Stressed, og pistil frá Eiríki Erni Norðdahl, sem er að þessu sinni að rífast um liti.
„Það er í raun mjög fyndið að við höfum öll farið þessa leið,“ segja systurnar Lilja, Ingibjörg og Sigurrós Birgisdætur um leiðina inn í myndlistina, en þær stofnuðu ásamt Jónsa bróður sínum ilmhúsið Fischersund sem hefur sprungið út sem hálfgerð sköpunarverksmiðja þar sem ilmvörur en líka myndlist og tónlist streyma út. „Pabbi er vélsmiður og mamma sjúkraliði, en það er kannski þetta traust og þetta frelsi sem að þau veita okkur sem gerir þetta að verkum. Þau eru ofboðslega skapandi og án þess að vera beint að skapa listaverk, þá eru þau lausnamiðuð og gera hlutina sjálf.“ Fischer systur eru gestir Víðsjár í dag og við ræðum ilmtónleika og hugmyndir að baki ilmi Listahátíðar Reykjavíkur en líka allt milli himins og jarðar; æskuna í Mosfellssveti, landasala, húsanda, útiveru og skapandi leiki. Lyktina af náttúru Íslands, minningarnar sem hún kveikir og lífið sem hún hefur gefið fjölskyldunni í formi sköpunarverka en einnig samveru og nýrra minninga.
Sameiginleg bein útsending Víðsjárog Lestarinnar frá Iðnó, sem hefur nú verið umbreytt í klúbb Listahátíðar í Reykjavík. Viðmælendur í þættinum eru Lára Sóley Jóhannsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar, Hrefna Lind Lárusdóttir, Eygló Höskuldsdóttur, Kjartan Hólm, Rósa Jóhannesdóttir, Helgi Zimsen, Jóhannes Zimsen, Viðar Eggertsson, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Anna Rún Tryggvadóttir, Chloe Loftus og Florent Devlesaver.
Sameiginleg bein útsending Víðsjár og Lestarinnar frá Iðnó, sem hefur nú verið umbreytt í klúbb Listahátíðar í Reykjavík. Viðmælendur í þættinum eru Lára Sóley Jóhannsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar, Hrefna Lind Lárusdóttir, Eygló Höskuldsdóttur, Kjartan Hólm, Rósa Jóhannesdóttir, Helgi Zimsen, Jóhannes Zimsen, Viðar Eggertsson, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Anna Rún Tryggvadóttir, Chloe Loftus og Florent Devlesaver.
Húsvíkingurinn Lára Sóley Jóhannsdóttir er komin með mikla reynslu af stjórnun menningarviðburða þrátt fyrir ungan aldur og starfar nú sem listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík. Hennar fyrsta hátíð er einmitt að byrja í dag og Lára Sóley kom í fimmu í tilefni dagsins. Þar ræddi hún fimm listviðburði sem hafa haft áhrif á líf hennar og það fór frá Tónlistarveislu á Húsavík yfir í Víking Heiðar á Proms Svo hringdum við í Samúel Jón Samúelsson en hann á stórt tónverk með 500 krakka lúðrasveit á opnunarhátíð Listahátíðar í dag
Gestur minn þessa vikuna er Þráinn Þórhallsson. Þráinn er með BA gráðu í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands, tónlistarmaður, stjórnandi tónlistarsmiðja hjá MetamorPhonics, meðlimur í stjórnendateymi Kordu Samfóníu og margt fleira. Hann er gjörsamlega frábær og magnaður. Við ræddum meðal annars um jákvæðni, hugrekki, áskoranir, tónlist, Kordu Samfóníu, tónleikana í Hörpu þann 26. maí nk., lífið og tilveruna. Korda Samfónía er með útgáfutónleika þriðjudaginn 26. maí í Hörpu https://tix.is/event/21380/rythmisk-satt-korda-samfonia-utgafutonleikar og var Korda Samfónía að gefa út plötu https://kordasamfonia.bandcamp.com/album/n-v-dd Þú ert frábær! Ást og friður. Jákastið er í boði: - Dressmann - Pizza Popolare - Egils Kristall
Í gær hófst 11 daga ljóðahátíðin Skáldaþing, með viðburðum á Egilsstöðum, Hallormsstað og Seyðisfirði, en á hátíðinni verða ýmsar ljóðatengdar uppákomur og viðburðir, myndlistarsýningar og gjörningar. Víðsjá byrjaði daginn á því að hlusta á ljóðalestur í sundi á Egilsstöðum og ræða við þær Kötlu Rut Pétursdóttur og Gunnhildi Þórðardóttur, skáld, myndlistarkonur og verkefnastjóra ljóðahátíðanna Skáldasuðs og Skáldaþings, og forstöðumann Sláturhússins á Egilsstöðum, Ragnhildi Ásvaldsdóttur. Við heyrum einnig í meðlimum Listvinnzlunnar sem opna sýninguna Ómur, í Selárdal í Arnarfirði um helgina, í tengslum við Listahátíð í Reykjavík. Og Nína Hjálmarsdóttir flytur pistil um Feneyjatvíæringinn þar sem hún spyr meðal annars; Geta lönd átt í diplómatískum samskiptum á sviði listarinnar í skugga þjóðarmorðs?
Kammerkórinn Huldur var stofnaður fyrir um fimm árum síðan. Kórinn samanstendur að mestu af fyrrverandi meðlimum kórs Menntaskólans við Hamrahlíð en stofnandi kórsins og kórstjóri er Hreiðar Ingi Þorsteinsson. Huldur hefur nú gefið út plötu sem kallast Í fossgljúfri en meirihluti verkanna er saminn af meðlimum kórsins. Við fáum tvo þeirra til að segja okkur frá plötunni, þá Kormák Loga Bergsson og Arvid Ísleif Jónsson Schirmacher. Rót er ný ljóðræn brúðuleiksýning fyrir alla fjölskylduna sem sýnd verður á Listahátíð í Reykjavík. Verkið er úr smiðju Handbendi, margverðlaunaðs brúðuleikhúss á Norðvesturlandi sem stofnað var árið 2016 af Gretu Clough leikstjóra, leikara og flytjanda. Þau Sigurður Arent Jónsson, leikari og brúðuleikari heimsækja hljóðstofu. Nína Hjálmarsdóttir, menningarrýnir, segir okkur frá sinni upplifun af Feneyjatvíæringnum, en hún er nýkomin heim eftir að hafa verið á svæðinu að skoða myndlist í heila fimm daga.
Devil Wears Prada 2 er ein af stóru myndum vorsins, Hera Guðmundsdóttir, hönnuður og blaðamaður lestarinnar fór að sjá hana á dögunum og fór í kjölfarið að velta fyrir sér tískuprentmiðlum. Myndin er sjálfstætt framhald fyrstu myndarinnar, sem kom út fyrir tveimur áratugum, Devil Wears Prada. Sú mynd byggir á bók sem fyrrum aðstoðarkona Önnu Wintour skrifaði. Hera ræddi við Önnu Clausen sem er listrænn stjórnandi og aðjúnkt við fatahönnunardeild Listaháskólans. Við kíkjum í heimsókn á Grandann, þar eru meðlimir tóma rýmisins í óða önn að koma sér fyrir í nýju húsnæði. Tóma rýmið var áður til húsa í Skerjafirðinum, en starfseminn sprengdi það húsnæði utan af sér. í tóma rýminu eru sviðslistir iðkaðar og er það rekið af sjálfstætt starfandi sviðslistafólki.
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Hannes Óli Ágústsson. Frá því hann útskrifaðis frá Listaháskóla Íslands árið 2009 hefur hann leikið mikinn fjölda hlutverka á sviði og fyrir framan kvikmyndavélar, til dæmis í fjölmörgum áramótaskaupum og svo nú síðast í gamanþáttaröðinni Hæst sem er sýnd hjá Sjónvarpi Símans, en hann er einn handritshöfunda auk þess að leika annað aðalhlutverkið. Við ræddum við hann um lífið og tilveruna, ferðuðumst með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar í Breiðholtinu og stikluðum á stóru í gegnum lífið til dagsins í dag. Svo var auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti á sínum stað. Í dag ræddum um portúgalskan mat, saltfisk, sjávarrétti, skrýtna samloku og sætabrauð. Tónlist í þættinum í dag: Í útvarpinu / Björgvin Halldórsson og HLH flokkurinn (Björgvin Halldórsson, texti Jónas Friðrik) Berghain / Rosalia & Björk & Yves Tumor (Rosalia Vila Tobella, Noah Goldstein & Dylan Wiggins) Bankrobber / The Clash (Joe Strummer) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Víðsjá leit við í Listaháskólanum og ræddi við nema á fyrsta ári um arkitektúr framtíðarinnar. Þau Gylfi Halldórsson og Urður Ýr Þorsteinsdóttir segjast finna fyrir mikilli ábyrgð verandi í þessu námi og að þau séu að mörgu leyti sammála gagnrýnni umræðu síðustu missera um arkitektúr, þó margt sé vel gert. „Við vitum að við getum gert þetta vel, en það þarf að vera vilji fyrir því að borga fyrir góðan og fallegan arkitektúr. Ef við gefum okkur aðeins lengri tíma í hönnunina þá fáum við góðan arkitektúr í staðinn.“ Við kynnum okkur einnig Ísmús vefinn með yfirumsjónarmanni vefsins, þjóðfræðingnum og forritaranum Trausta Dagssyni. Og Katla Ársælsdóttir rýnir í leikverkið Jötungíma kveður sem leikhópurinn Díó sýnir í Elliðaárstöðinni.
Það er föstudagur og gul viðvörun í gangi víða. Við látum það ekki á okkur fá og fögnum föstudagsgesti dagsins og sá er dósent við sviðslistadeild Listaháskóla Íslands. Hann er einnig leikstjóri og höfundur, hann stofnaði Leynileikhúsið á sínum tíma og er, eins og vinir hans segja, alltaf önnum kafinn náungi. Núna í vetur leikstýrði hann leikritinu Mömmó sem sýnt er í Borgarleikhúsinu. Við töluðum við Agnar Jón Egilsson. Svo er það Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur, í dag velti hún fyrir sér fyndnum mat. Tónlist í þættinum í dag: Landbúnaðar Lísa / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson) You Make Me Feel / Jimmy Sommerville Lithium / Nirvana UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUÐMUNDUR PÁLSSON
Orri Guðmundsson er tvítugur kvikmyndagerðarmaður í námi í Listaháskóla Íslands. Hann er að taka þátt í Sprettfisk, keppni á Stockfish hátíðinni, og framlagið hans er heimildarmynd um Guðmund Emil Jóhannsson. Myndin heitir Íslenskur Herkúles og veitir innsýn í hversdagsleika Gumma Emil. En hvernig er að gera mynd um manneskju sem hefur nú þegar myndað lífið sitt og birt það á netinu? Svo flytjum við samtal við Björn Þór Vilhjálmsson, kvikmynda- og bókmenntafræðing, um Óskarsverðlaunamyndina One Battle After Another.
Við heimsækjum bókabúðina Skáldu þar sem útgáfu nýs bókverks var fagnað um síðustu helgi. Bókverkið kallast Á milli mála: fiður, fingur, fálmarar og höfundar eru þær Agnes Ársælsdóttir og Anna Andrea Winther. Bókin er hluti af listrannsókn sem hófst með kexi fyrir bæði hunda og menn. Einn hluti verksins voru keramíkskúlptúrar sem settir voru upp við Tjörnina í Reykjavík í tengslum við Listahátíð 2024. Víðsjá ræddi við þær um skúlptúrana á sínum tíma þar sem þær sögðust vera dáldið hræddar um, svona í ljósi listasögunnar við Tjörnina. Og það vildi einmitt til að í miðju samtali sáum við unga drengi reyna að stela hluta af verkinu, en það er sennilega í eina skiptið sem listrán hefur átt sér stað í beinni útsendingu á Rás1. Við rifjum ránið upp í þætti dagsins og heyrum af nýju bókinni. Einnig rifjum við að gefnu tilefni upp umfjöllun um fyrstu grænlensku heimildamyndina, Sumé-The sound of Revolution og Gauti Kritsmannsson rýnir í Minnisblöð veiðimanns eftir Túrgenev.
Verð á rafmyntinni Bitcoin hefur sveiflast duglega niður á við síðustu mánuði. Í síðustu viku rifjuðum við upp samtal sem við áttum fyrir nokkrum árum við hagfræðinginn Björgvin Inga Ólafsson um rafmyntina, sem þá hafði risið mjög hátt. Nú er þessu öfugt farið og ætlum við að ræða aftur við Björgvin um ástæður þessarar niðursveiflu, traust á rafmyntum og um breytingar á notkun Bitcoin yfirleitt. Á Akureyri hefur lengi verið rætt um möguleika þess að bjóða uppá listnám á háskólastigi í bænum. Lítið hefur gerst í þeim efnum, þar til nú. Nú hafa Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri hafið samstarf og bráðlega verðuð boðið upp á námskeið í listum í háskólanum fyrir norðan. Gígja Hólmgeirsdóttir leit við á opnum kynningarfundi og forvitnaðist um verkefnið. Að endingu rifjum við upp úr Samfélaginu í nærmynd svokallað meindýrahorn sem var dagskrárliður í þættinum um skeið. Guðmundur Óli Scheving mætti til að ræða um fiskifluguna sem hér á landi má finna í fjórum mismunandi tegundum.
Tumi Magnússon er fæddur í Reykjavík 1957 en ólst upp við jaðar Mosfellsbæjar í stórum bræðrahóp. Á heimilinu var myndlist upp um alla veggi og hugur Tuma stefndi alltaf í þá átt. Hann fór í Myndlista og handíðaskólann en ákvað að hætta eftir fornámið og klára námið í Hollandi. Hann langaði í nýtt umhverfi en svo hafði það líka áhrif að faðir hans, myndlistarmaðurinn Magnús Pálsson, var þarna orðin lykilmaður í kennslu við skólann. Magnús varaði son sinn reyndar við því að feta þessa leið en Tumi tók ekki mikið mark á því. Hann er ekki mikið gefinn fyrir að staðsetja sig á einum stað í listinni, en aðspurður segist hann kannski alltaf vera á slóðum konseptlistarinnar, og að kannski megi líka tengja hann við Fluxus hreyfinguna. Tími, skynjun og hversdagslegar athafnir eru meðal hans helstu viðfangsefna og oft má greina leikgleði og húmor í verkunum. Meðfram listinni hefur Tumi kennt bæði við Listaháskóla Íslands og við Konunglegu dönsku listaakademínuna en hann hefur búið í Kaupmannahöfn síðustu 20 árin. Frá sinni fyrstu sýningu á Akureyri 1981 hefur Tumi verið ötull í sýningarhaldi, hér á landi og víða um heim. Um þessar mundir sýnir hann í Listasafni Reykjanesbæjar og kallast sýningin Héðan þaðan þangað hingað.
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Þórunn Sigurðardóttir leikkona, leikstjóri. Hún var lengi stjórnandi Listahátíðar og hefur stjórnað stórum menningarverkefnum eins og þegar Reykjavík var valin ein af menningarborgum í Evrópu og nú síðast var hún formaður undirbúningsstjórnar þjóðaróperu. Við fórum með henni aftur í tímann skoðum hvar hennar rætur liggja og svo sagði hún okkur frá ferlinum, hvernig það æxlaðist að hún fór að leikstýra og svo stjórna þessum stóru menningarverkefnum. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var auðvitað á sínum stað í dag. Það er bóndadagur sem markar upphaf þorrans, því komumst við ekki hjá því að ræða um þorramatinn, súrmetið, pungana, sviðakjammana, rófustöppuna og allt það. Tónlist í þættinum í dag: Það er svo ótalmargt / Ellý Vilhjálms (Smith & Lindsay, texti Jóhanna G. Erlingsson) Miriam Makeba / Pata Pata (J. Rogovoy, Jerry Ragovoy & Miriam Makeba) Unu Torfadóttir / Fyrrverandi (Una Torfadóttir) MANNLEGI ÞÁTTURINN FÖSTUDAGUR 23.JANÚAR 2026 UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Una Þorleifsdóttir var í hópi þeirra sem kom á fót nýju BA-námi í sviðslistum sem hét þá fræði og framkvæmd, en heitir í dag sviðshöfundabraut. Á morgun verður kynnt nýtt meistarnám í sviðslistum í Listaháskólanum og að því tilefni kom Una og ræddi sviðslistir, nám og samfélagslegt mikilvægi sviðslistaverka. Þórir Baldursson, tónlistarmaður, hefur unnið með fjölda þekktra tónlistarmanna. Hann á sér merkilega sögu sem Jóhann Sigmarsson sá að tilefni var til að segja í heimildarmynd. Sú mynd hefur litið dagsins ljós og heitir Maðurinn sem elskar tónlist. Jóhann og Þórir ræða við Jóhannes Bjarka.
Föstudagsgestir Mannlega þáttarins í þetta sinn voru tveir, eða öllu heldur tvær, leikkonurnar Ásthildur Úa Sigurðardóttir og Ebba Katrín Finnsdóttir. Þær útskrifuðust með árs millibili úr leikaranámi frá Listaháskóla Íslands og hafa báðar vakið mikla athygli fyrir góða frammistöðu í hinum ýmsu hlutverkum síðan. Þær leika báðar í Óresteiu, hátíðarsýningu Þjóðleikhússins sem var frumsýnd 2. í jólum og það er óhætt að segja að sýningin hefur fengið frábærar móttökur og allur leikhópurinn fyrir sitt framlag. Við spjölluðum við þær um sýninguna, lífið og tilveruna, ferðuðumst með þeim aftur í tímann og skoðuðum hvernig nýja árið leggst í þær. Í matarspjallinu með Sigurlaugu Margréti veltum við fyrir okkur afgöngum til dæmis af kalkúni og svo kom fæða guðanna einni við sögu. Tónlist í þættinum: Skammdegisvísur /Ólafur Þórðarson, Magnús Þór Sigmundsson og Ragnhildur Gísladóttir (Blysfaradans þjóðlag, ljóð Jón Ólafsson, Álfadans/ lag Helgi Helgason, ljóð Sæmundur Eyjólfsson Nú er frost á fróni / þjóðlag, ljóð Kristján Jónsson) Somewhere / Pascal Pinon (Ásthildur Ákadóttir og Jófríður Ákadóttir) Hypnotize / Notorious B.I.G. (Lawrence, Wallace, Combs, Alpert, Angelettie & Armer) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Úlfar Þormóðsson kemur til okkar með nýja bók. Bókina sendi hann frá sér fyrir stuttu en til þess þurfti hann að leita til annars forlags en því sem vanalega hefur verið með hans bækur á sínum snærum. Í bókinni fjallar Úlfar um endurkomu stóra málverkafölsunarmálsins inn í íslenska umræðu; segir frá viðbrögðum sínum og tilfinningum en einnig ýmsu fleiru og sumu átakanlegu. Blaka er nýjasta hugarsmíð Ránar Flygenring, og er mögulega hennar hryllilegasta bók hingað til, þó hún hafi alls ekkert átt að vera hryllingssaga. Rán er auðvitað einn af okkar fremstu höfundum, hefur skrifað og teiknað bækur og verk af ólíkum toga. Síðasta bók hennar, Tjörnin, hlaut fjölmörg verðlaun og fyrir bókina þar á undan, Eldgos, fékk hún Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs. Rán verður gestur okkar í dag. Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt og fyrrum deildarforseti arkitektúrs við Listaháskólann, var með fasta pistla hér í Víðsjá fyrir 2 árum síðan, og nú er hún mætt aftur til leiks með fjögurra pistla seríu. Nú veltir hún fyrir sér samhengi geðheilbrigðis og arkitektúrs,
Svavar Jónatansson vinnur við prufuverkefni hjá Hrafnistu þar sem hann hefur nýtt sér tækni sýndarveruleika til þess að færa heimilisfólkinu á Hrafnistu í aðstæður sem þau ættu annars erfitt með að komast í. Hann sem sagt fer með 360° myndavél á kóræfingu og svo getur heimilisfólk sett á sig sérstök sýndarveruleikagleraugu, eða töfragleraugu eins og hann kallar þau, og þá eru þau nánast komin á staðinn og geta jafnvel sungið með í kórnum. Möguleikarnir eru óendanlegir í því hvernig hægt er að nýta þessa tækni og Svavar útskýrði betur fyrir okkur hvernig þetta gengur fyrir sig. Að jóðla er ákveðin söngkúnst og ekki á allra færi en nú stendur til að halda jóðlkeppni, nánar tiltekið í desember, Jóðlageitina 2025. Bragi Þór Valsson tónlistarmaður kom í þáttinn og sagði okkur frá jóðli og keppninni í dag. Svo fræddumst við um Textílmiðstöð Íslands á Blönduósi, en þar verður viðburður í dag sem kallast Saman við sitjum og saumum inni í stóru húsi. Þar munu fatahönnunarnemendur í Listaháskólanum bjóða til vinnustofu og sýna áhugaverð dæmi og aðstoða þáttakendur við að breyta, bæta og jafnvel skapa nýja flíkur úr gömlum. Elsa Arnardóttir forstöðumaður Textílmiðstöðvar sagði okkur betur frá þessu í þættinum í dag. Tónlist í þættinum i dag: Lítið og væmið / Valdimar (Valdimar Guðmundsson) Hærra minn guð / Kór Lindarkirkju (Lowell Mason, texti Matthías Jochumsson) Yodel-blús / Smaladrengirnir (Bragi Þór Valsson) Reiðlag / Þuríður Sigurðardóttir (S. Bogus, texti Jónas Friðrik Guðnason) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Tónlistarblaðamenn Lestarinnar lögðu leið sína á Airwaves um nýliðna helgi. Katrín Helga Ólafsdóttir hefur þáttinn á pistli sínum um hátíðina. Davíð Roach fer því næst yfir sína hápunkta í samtali, að hans mati stóð hljómsveitin Mermaid Chunky upp úr. Á miðvikudag hefst svo næsta hátíð, danshátíðin Reykjavík Dance Festival. Þau Bertine og Leevi útskrifuðust af alþjóðlegu samtímadansbrautinni í Listaháskólanum í vor og sýna útskriftaverkin sín í tvíhleypu á Dansverkstæðinu á hátíðinni.
Comeback frá sjúklingnum! Rikki G aldrei orðið svona veikur. Uppgjör vikunnar með Evu Ruzu. Hræðilegustu atriðin í horror myndum í tilefni Hrekkjavöku. Joey Christ í spjalli um nýja plötu. Erla Lind og Jökull frá Listaháskóla Íslands og Guðjón og Jóna setja Brennslu brósa í "er þetta framhjáhald?"
Rosaleg Brennsla í dag! Gerum upp Grafarvogs myndbandið af hjólaranum og bílnum. Leynigestur vikunnar á margar skemmtilegar sögur. Teddi Ponza á línunni að fara yfir vináttulandsleik Íslands í handbolta. Kynnumst nemendum í fatahönnun við Listaháskóla Íslands. Vanmetnustu súkkulaðin. Þetta og meira til!
Þær hindranir sem fatlað fólk mætir í námi á háskólastigi og leiðir til umbóta með áherslu á listnám er viðfangsefni málþings sem verður haldið á laugardaginn á vegum Listaháskóla Íslands. Við fáum til okkar í þáttinn Kristínu Eysteinsdóttur rektor LHÍ og Heklu Björk Hólmgeirsdóttur aðjúnkt við Háskóla Íslands, sem stýrir málþinginu. Fólk hefur lengi verið meðvitað um áskoranir þess að flytja til nýs lands og aðlagast framandi menningu en fólk þekkir síður þær áskoranir sem mæta fólki þegar það flytur aftur til heimalandsins og þarf að enduraðlagast samfélaginu þar. Karitas Hrundar Pálsdóttir gaf nýverið út bók sem fjallar um snúbúa-bókmenntir, það er skáldskap sem lýsir upplifun snúbúa—fólks sem hefur búið erlendis og flutt aftur til heimalandsins—af menningarsjokki og enduraðlögun. Karitas kíkir til okkar. Maó Alheimsdóttir ætlar, í lok þáttar, að flytja okkur pistil um krukkuhefðir, um venjur að varðveita mat í krukkum og minningar tengdar því. Umsjón þáttarins: Ástrós Signýjardóttir og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir. Tónlist þáttarins: Bombay Bicycle Club - Always Like This. ÁSGEIR TRAUSTI - Afterglow. ÖNNU JÓNU SON - Almost over you.
„Fyrir mér er kóreógrafía allt sem hefur að gera með tíma og rými. Að setja hluti saman í tíma og rými, og hvernig þeir hreyfast og flæða,“ segir Rósa Ómarsdóttir danshöfundur, sem hefur teygt hugtakið kóreógrafíu yfir á meira en mannslíkamann í sínum verkum. Rósa lærði dans í Listaháskólanum en fór í framhaldsnám til Brussel þar sem hún lærði hversu teygjanlegt danshugtakið er. Eitt ár varð að tíu enda gott að vera dansari í Belgíu. Rósa er höfundur sem vinnur á mörkunum. Verk hennar afmá línurnar á milli dans, leikhúss og myndlistar. Hún hefur kannað samband manns og náttúru í verkum sínum og leitast við að skapa ómannhverfar frásagnir, oft með femínískri dramatúrgíu. Hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir dansinn, en líka tónlist og sviðsmynd, nú síðast í fyrra sem danshöfundur ársins fyrir Moltu sem sýnt var í Gerðarsafni. Hún frumsýnir nýtt verk á Reykjavík Dance Festival sem kallast Sérstæðan, en í því hefur hún tekið mannslíkamann alveg úr verkinu. Rósa Ómarsdóttir er gestur Svipmyndar í Víðsjá dagsins.
Gréta Kristín Ómarsdóttir, leikstjóri og dósent í Listaháskóla Íslands, ræðir sviðslistir, samsköpun, bakslagið og verkið Skammarþríhyrninginn sem nú er á fjölum Borgarleikhússins. Og hvernig 1 plús 1 verður 3. Við byrjum á sama stað og vanalega, hvaða sviðslistaverk hreyfði síðast við þér. Þórður Ingi Jónsson er með pistil í tilefni Hrekkjavökunnar, hann hefur verið að sökkva sér ofan söguna um dularfullt leynifélag, Bræðralag Satúrnusar, Fraternas Saturni, sem hafði nokkur áhrif í Þýskalandi á millistríðsárunum.
Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón að þessu sinni hafa Auður Viðarsdóttir doktorsnemi og Kristinn Schram dósent í þjóðfræði. Hljóðjöfnun: Egill Viðarsson.
Matthías Rúnar Sigurðsson myndhöggvari er fæddur í Reykjavík 1988. Sem barn sat hann mikið við eldhúsborðið og teiknaði en það var eftir að hann hóf nám í Listaháskólanum sem hann fór að höggva í stein. Þrívíddinn kallaði og sökum peningaleysis ákvað hann að höggva í alveg ókeypis stein. Úr grjótinu sem hann vinnur spretta sögur og líf sem taka á sig alls kyns form en Matthías sækir fyrst og fremst innblástur í íslenskan bókmenntaarf. Frá útskrift hefur hann sýnt víða og höggmyndir hans má finna í helstu söfnum landsins. Þessa dagana vinnur hann að nýju útilistaverki fyrir Listasafn Reykjavíkur, verk sem prýða mun Urðartorg í Úlfarsárdal. Víðsjá heimsækir Matthías á vinnustofuna í þætti dagsins.
Kristín Eysteinsdóttir er rektor Listaháskóla Íslands, leikstjóri og fyrrverandi Borgarleikhússtjóri. Lóa Björk fær Kristínu í samtal um framtíð sviðslista. Við hringjum á Ísafjörð og forvitnumst um kvikmyndahátíðina PIFF sem fer fram í fimmta sinn í dag. Atli Bollason heldur áfram að setja purningamerki við þrá nútímamannsins eftir viðurkenningu og ríkidæmi, í pistlaröð sinni Ekki slá í gegn.
Tryggvi M. Baldvinsson lærði ungur á píanó en fannst píanónámið einmanalegt og lét sig dreyma um að spila frekar á saxófón. Það þótti foreldrum hans líkleg leið í sukk og svínarí en honum bauðst hins vegar að spila á túbu og það opnaði fyrir honum heim lúðrasveitarinnar. Áður en Tryggvi hélt sem ungur maður í tónsmíðanám til Vínar lýsti hann því yfir í blaðaviðtali að útskrifaður úr framhaldsnámi vildi hann geta gert allt í tónlist. Hann hefur sannarlega fylgt því markmiði eftir með breiðum og fjölbreyttum ferli, því auk þess að vera afkastamikið tónskáld hefur hann verið atkvæðamikill í ýmsum félagsmálum og sinnt bæði kennslu og stjórnunarstörfum. Hann var deildarforseti í tónlistardeild Listaháskólans í áratug en tók í fyrra við stöðu listræns ráðgjafa hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. Tryggvi M Baldvinsson er gestur svipmyndar í Víðsjá dagsins.
Rúrí kom með skelli inn í íslenskt listalíf á Listahátíð árið 1974 þegar hún rústaði gylltri Bensbifreið með sleggju. Með gjörningnum vildi hún vekja fólk til umhugsunar um efnishyggjusamfélagið og hið eilífa lífsgæðakapphlaup. Hún er algjör frumkvöðull á sviði gjörningalistar hér á landi, og þó víðar væri leitað, en hefur alla tíð unnið sín verk í ólíka miðla þar sem hugmyndin er ávallt grunnforsendan. Að hennar mati dýpkar það listina að hún hafi hugmyndafræðilegt inntak. Rúrí er gestur Víðsjár í dag þar sem hún ræðir ferilinn, inntak verka sinna, fossa, förur og regnboga, fasisma, einelti og ranglæti svo sitthvað sé nefnt. Og auðvitað verkefnin framundan en Rúrí sýnir um þessar mundir í SIND galleríi og undirbýr sýningar í Vilnius og Sao Paolo.
Hildur ólst upp á Þórshöfn á Langanesi, hefur frá útskrift úr Listaháskóla Íslands unnið málverk, skúlptúra og gjörninga en listsköpun hennar gefur einlæga sýn inn í mannlegan reynsluheim. Hún afbyggir aktíft hugmyndir um fullkomnun og rannsakar persónuleg tengsl sem fólk skapar sín á milli, líkamlega og tilfinningalega. Hún hefur sýnt víða, meðal annars í Hafnarborg, Gerðarsafni, Listasafni Akureyrar og á sýningum í Berlín, London og Antwerpen. Nýverið opnað hún sýningu í Gallerí undirgöngum á Hverfisgötunni. Við mælum okkur mót við listakonuna og fáum að skyggnast inn í líf hennar og list. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir
Við heyrðum í dag í Sæunni Vigdísi Sigvaldadóttur, þroskaþjálfa á Egilsstöðum og býflugnabónda í Hallormsstaðaskógi. Sæunn er stödd í Seattle í Bandaríkjunum þar sem hún ætlar að læra tæknifrjóvgun býflugnadrottninga. Áætlunin er að gera Ísland sjálfbært í býflugnarækt til þess að draga úr innflutningi á býflugum, sem reynist sífellt erfiðara sökum býsjúkdóma. Við fengum Sæunni í dag til að segja okkur meðal annars frá því hvernig það kom til að hún fór út í býflugnarækt, hvað þarf til þess að fara út í ræktun og hvernig Ísland hentar fyrir býflugnarækt. Hvað tekur við að loknu kvikmyndanámi hérlendis og hvaða tækifæri bíða ungs kvikmyndagerðarfólks? Vigdís Howser Harðardóttir og Alvin Hugi Ragnarsson voru í fyrsta árgangi nýrrar kvikmyndadeildar við Listaháskóla Íslands og útskrifast um miðjan júní, en þau sögðu okkur frá lokaverkefnum sínum ásamt því að ræða kvikmyndasenuna hér á landi og hvernig þau ætla að setja mark sitt á hana. Í framhaldi af því ræddum við stöðu sviðslista á Íslandi og hverjar áskoranir og hlutverk þeirra eru við Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóra Sviðslistamiðstöðvar Íslands, en á föstudaginn fór fram Bransadagur Sviðslistanna í Borgarleikhúsinu þar sem staðan var rædd og þátttakendur deildu hugmyndum og sýn sinni á framtíð sviðslista. Tónlist í þættinum í dag: Býflugan / Geirfuglarnir (Þorkell Heiðarsson) The Birds And The Bees / Jewel Akens (Herbert Newman) Sumarvísa / Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir (Mats Paulson, texti Iðunn Steinsdóttir) Heitt toddý / Ellen Kristjánsdóttir (H. Hendler & R. Flanagan, texti Friðrik Erlingsson) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
Við ræðum við listamanninn Odee Friðriksson, um námið í Bergen og Samherja-gjörninginn. Mál Samherja gegn listamanninnum hefur nú staðið yfir í um tvö ár. Ástæða málsóknarinnar er lokaverkefni Odee úr Listaháskóla Íslands, þar sem hann þóttist vera Samherji og baðst afsökunar. Við hlýðum svo á pistla, Kolbeinn Rastrick færir okkur kvikmyndagagnrýni um myndina A Different Man og Guðrún Úlfarsdóttir syrgir eldhúsið.
Samtalið um framtíð sviðslista heldur áfram, að þessu sinni ræðum við við tvo unga útskriftarnemendur af Sviðshöfundabraut Listaháskólans. Marta Ákadóttir og Grímur Smári Hallgrímsson eru fulltrúar ungu kynslóðarinnar, fulltrúar framtíðar sviðslista á Íslandi.
Jóhann Kristófer Stefánsson lærði sviðslistir í Listaháskóla Íslands. Ásamt því að gera tónlist gerir hann meðal annars sjónvarpsþætti og sá nýjasti heitir Sviðið og fjallar hann um íslensku sviðslistasenuna. Við höldum áfram að velta fyrir okkur framtíð leikhússins og stöðuna í leikhúsunum í dag. Kolbeinn Rastrick segir frá The Brutalist úr smiðju Brady Corbet, sem Adrien Brody hlaut Óskarinn fyrir á dögunum. Katrín Helga Ólafsdóttir flytur pistil í pistlaröð sinni um hvali.
Ástin mun svífa yfir vötnum í þætti dagsins. Á morgun er dagur heilags Valentínusar og af því tilefni hefur Kvennasögusafnið boðað Dag ástarbréfsins, í Landsbókasafninu á degi ástarinnar, í samstarfi við Ástarsögufélagið, Ástarrannsóknarfélagið og fleiri. Þar mun fara fram fjölbreytt dagskrá, þar sem meðal annars verða sýnd ástarbréf úr safnkosti og flutt örerindi um ástarbréf. Meðal þeirra sem flytja erindi er Guðrún Friðriksdóttir, þjóðfræðingur og meðlimur í ástarsögufélaginu og hún verður gestur okkar í dag. Segir okkur frá sínum hugmyndum um ástarbréf og les eitt slíkt fyrir okkur. Einnig munu Lóa Björk Björnsdóttir og Baldur Örlygsson. starfsmenn hér í Ríkisútvarpinu segja okkur sína skoðun á þessu fyrirbæri, ástarbréfinu. Það er ekki til rómantískari byrjun á febrúarmorgni í Reykjavík en að bjóða sér í heimsókn hjá ungu pari sem sérhæfir sig í flutningi á barokktónlist frá Ítalíu. "Sólveig er ástin mín, en svo kemur lútan", sagði lútuleikarinn Sergio Coto Blanco, sem undirbýr ásamt hörpuleikaranum Sólveigu Thoroddsen og sópransöngkonunni Ievu Sumeja tónleika sem þau flytja í Einarssafni á sunnudag og nefna Grátandi steinar. Við fáum útskýringu á nafngiftinni hér síðar, en á efnisskránni eru meðal annars sönglög eftir tvær stórmerkilegar konur, þær Barböru Strozzi og Fransescu Caccini, sem voru meðal mikilvægustu barokktónskálda á Ítalíu upp úr aldamótunum 1600. En við hefjum þáttinn á fréttum frá menningarvígi Austurlands, Seyðisfirði. Víðsjá sló á þráðinn til Sesselíu Hlínar Jónasardóttur, en hún var í mörg ár ein af hvatamanneskjunum á bak við Lunga, Listahátíð ungs fólks á Austfjörðum, en stendur líka að baki annari menningarveislu sem hefst á morgun og kallast List í ljósi. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Hjálmar H Ragnarsson er fæddur og uppalinn á Ísafirði, sonur Sigríðar Jónsdóttur Ragnar og Ragnars H Ragnar. Faðir hans var skólastjóri tónlistarskólans á Ísafirði, sem þá var hýstur að stórum hluta á heimili þeirra, svo Hjálmar ólst bókstaflega upp umkringdur tónlist. Hann segir þó að ýmislegt annað hafi komið til greina, þegar hann velti fyrir sér framtíðinni, því á heimilinu voru hin ýmsu mál rædd og krufin og áhugasviðin mörg og djúp. Baráttuandi, ástríða og forvitni hafa leitt Hjálmar áfram og hugur hans ekki síst leitað á jaðarinn, til þess smæsta og hins stærsta. Hann hefur alla tíð tekið virkan og leiðandi þátt í félagsstarfi listamanna og menningarpólitík og var fyrsti rektor Listaháskóla Íslands. Hjálmar hlaut námsstyrk til að stunda háskólanám í tónlist í Brandais háskólanum í Boston snemma á áttunda áratugnum. Þar kynntist hann raftónlist, sem átti hug hans allan á þeim árum þegar ein tölva fyllti heilt herbergi og tónskáld og áhugafólk um hljóðgjafa voru að taka fyrstu tunglskrefin á sviði raftónlistar. Eftir námsdvöl í sónólógíu í Utrecht í Hollandi snéri hann þó aftur til Bandaríkjanna, þar sem hann lauk námi í tónfræði og tónsmíðum við Cornell háskólann og vann mikilvægt frumkvöðlastarf með rannsóknum sínum á tónlist Jóns Leifs. Hjálmar H Ragnarsson hefur verið atkvæðamikill sem tónskáld hér á landi allt frá námslokum og verkaskrá hans er gífurlega fjölbreytt. Á sunnudaginn flytur Cantoque ensemble úrval kórverka Hjálmars á tónleikum Myrkra músíkdaga í Hallgrímskirkju og frumflytur þar glænýtt verk úr smiðju Hjálmars, sem hann samdi við ljóð Snorra Hjartarsonar, Vakir, vakir þrá mín. Hjálmar H Ragnarsson er gestur svipmyndar í Víðsjá dagsins. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Flóð ógna nýrri skólphreinsistöð í Árborg og á Austfjörðum er fólk farið að velta fyrir sér framtíð opinna vatnsbóla vegna kólí-gerla í jarðvegi. Vaxandi öfgar í veðurfari; þurrkar, flóð og miklar rigningar hafa neikvæð áhrif á fráveitukerfi sem víða um land eru komin til ára sinna. Samorka blés í dag til fundar um þessa ógn. Samfélagið ræddi við þrjá af fyrirlesurum fundarins þá Hlöðver Stefán Þorgeirsson, ráðgjafa, Ágúst Þór Bragason, forstöðumann hjá þjónustumiðstöð Árborgar og Aðalstein Þórhallsson, framkvæmdastjóra HEF-veitna á fljótsdalshéraði. Svo fáum við til okkar Ásdísi Birnu Gylfadóttur og Maríönnu Dúfu Sævarsdóttur, meistaranema í listum og velferð við Listaháskóla Íslands. Þær ætla að segja okkur frá því hvernig þær nálgast samfélagslistir og velferð, framtíðina og táknin sem við notum fyrir framtíðina. Viðtalið er það fimmta í viðtalsröð Samfélagsins um framtíðir og framtíðarýnir, í samstarfi við framtíðarfestival Borgarbókasafnsins. Og að lokum heyrum við í Páli Líndal, pistlahöfundi Samfélagsins. Í dag fjallar hann um græna gímaldið við Álfabakka, þéttingu byggðar og almenningssamgöngur. Tónlist og stef í þættinum: OTIS REDDING - Respect. MUSIC MACHINE - Talk Talk. Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
Bára Gísladóttir tónskáld og kontrabassaleikari er fædd í Reykjavík árið 1989. Fjölskyldan fluttist í nokkur ár til Noregs þegar Bára var fimm ára og það var þar sem hún hóf nám á fiðlu. Hún segist þó aldrei hafa náð tengingu við fiðluna og það var ekki fyrr en hún kynntist kontrabassanum 17 ára gömul í Nýja Sjálandi að hún upplifði djúpa og sterka tengingu við hljóðfæri. Bára nam tónsmíðar við Listaháskóla Íslands, Verdi Akademíuna í Mílanó og Konunglegu tónlistarakademíuna í Kaupmannahöfn og hún hefur búið í Kaupmannahöfn síðastliðin 10 ár. Tónsmíðar Báru þykja einstakar, nýstárlegar og djarfar. Sjálf segir Bára sína tónlist byggja á hugmyndinni um hljóðið sem lífveru. Verk hennar eru margverðlaunuð og hafa verið flutt víða, bæði af stórum hljómsveitum sem og minni kammerhópum auk þess að vera flutt á tónlistarhátíðum víðsvegar um heiminn. Fjöldi tónlistarmanna, tónlistarhópa og hljómsveita hafa pantað hjá henni verk, en Bára sjálf er einnig virkur flytjandi. Meira um það í þætti dagsins. Og Soffía Auður Birgisdóttir um ljóðabókina Flaumgosa eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur.
Fyrir nokkrum árum síðan varð myndlistarkonan Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir vör við fjölgun flóttamanna í heimabæ sínum, Hafnarfirði. Hún tók líka eftir því að þar var fátt sem greip fólkið og ákvað að hafa frumkvæði að því að búa til vettvang þar sem fólk með ólíkan bakgrunn hefði tækifæri til þess að kynnast og taka þátt í samfélaginu. Úr varð fjölbreytt starf með reglulegum listasmiðjum, viðburðum og samverustundum og stofnun hjálparsamtakanna GETU, sem styður við flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd í Hafnarfirði, Kópavogi og nágrenni. Hafnarborg er meðal samstarfsaðila GETU og þar verður á laugardag boðið upp á fjöltyngda listasmiðju þar sem arabísk leturtákn verða innblástur fyrir listræna sköpun, undir leiðsögn listamannanna Yöru Zein og Ingunnar Fjólu. Við lítum við á vinnustofu þeirra í hafnarfirði og heyrum af viðburðinum og samstarfinu. Sinfóníuhljómsveit unga fólksins var stofnuð fyrir 20 árum og heldur upp á það með tvennum tónleikum í Langholtskirkju um helgina. Sveitin var stofnuð um það leyti sem sett var tónlistardeild við Listaháskóla Íslands því það vantaði vettvang fyrir nemendur Gunnsteinn Ólafsson hljómsveitarstjóri er einn stofnenda hljómsveitarinnar og verður gestur okkar í þætti dagsins. Reykjavík Dance Festival lauk eftir nokkurra daga veislu síðastliðinn sunnudag. Katla Ársælsdóttir og Nína Hjálmarsdóttir fóru á nokkrar sýningar sem þær munu rýna í, í þætti dagsins og í næsta þætti. Katla ríður á vaðið í dag með umfjöllun um Konukroppa og When a duck turns 18 a boy will eat her. En við hefjum þáttinn á símtali við semballeikarann Halldór Bjarka Arnarson, sem búsettur er í Sviss, en heldur tónleika undir yfirskriftinni Tónlist fyrir okkar eirðarlausu tíma, í Breiðholtskirkju á laugardag. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Við hefjum þátt dagsins á nýju tónverki af plötu sem kom út í síðustu viku, Neige éternelle, five pieces for solo cello, eftir tónskáldið Veronique Vöku, í flutningi Sæunnar Þorsteinsdóttur. Veronique Vaka hefur búið hér á landi frá því að hún útskrifaðist með meistarpróf í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands og eru verk hennar innblásin af íslenskri náttúru. Á þessari nýju plötu er að finna fimm verk en hvert og eitt þeirra túlkar eitt skeið í myndun jökuls. Þær Sæunn hafa starfað saman í nokkurn tíma en þessi plata sprettur úr sellókonstertinum Gemæltan sem Veronique samdi sérstaklega fyrir Sæunni og sem var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna í fyrra. Við kynnum okkur nýútkomið stórvirki, Börn í Reykjavík, eftir Guðjón Friðriksson. Bókin er stór og vegleg, vandlega upp sett og hana prýða hátt í sex hundruð ljósmyndir. Börn í Reykjavík var skrifuð að beiðni Barnavinafélagsins Sumargjafar, í tilefni af 100 ára afmæli félagsins, og er skrásett saga barna í Reykjavík frá því seint á 19. öld og fram til okkar daga. Þar er sagt umhverfi barna, námi þeirra og skyldum, leikjum, skemmtunum og félagsstarfi, auk þess sem fjallað er um þróun í barnaverndar-, uppeldis- og skólamálum. Guðjón lítur við í hljóðstofu og segir okkur aðeins af bókinni. Prjónavetur í Listasafni Sigurjóns í Laugarnesi er röð sýninga og viðburða sem hófust um liðna helgi um munu standa fram á vor. Þær Brynhildur Pálsdóttir, hönnuður og ein af stofnendum Vík Prjónsdóttur, og Andrea Fanney Jónsdóttir, klæðskeri og prjónahönnuður, standa að baki verkefninu en markmiðið er að varpa ljósi á þá prjónahönnun sem hefur verið framleidd á Íslandi síðustu ár og einnig velta upp stöðu prjónaiðnaðarins, sem þær telja að standi höllum fæti. Prjónaveturinn hefst með sýningunni För, þar sem Andrea Fanney sýnir flíkur sem hún hefur hannað og framleitt síðustu ár. Flíkurnar eru innblásnar af fuglalífi höfuðborgarinnar en hver flík er sprottin úr minningum af fuglum og manneskjum sem þeim tengdust. Staðsetning sýninga og viðburða í Listasafni Sigurjóns er engin tilviljun því Andrea tengist Laugarnesinu sterkum böndum og er ein þeirra sem berst gegn uppbyggingu Faxaflóahafn og Veitna á svæðinu. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Ásrún leggur áherslu á að útvíkka hugmyndir okkar um dans, kóreografíu og sviðslist. Hún segir frár verkinu Dúettar sem frumsýnt verður á Listahátíð