POPULARITY
Uppbótartíminn heilsar í hljóð og mynd að þessu sinni en Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll Garðarsson og Magnús Haukur Harðarson komu sér fyrir í Coke stúdíóinu eftir 1-6 tap Íslands gegn heimsmeisturum Spánar í undankeppni HM í kvöld. Rætt var um þetta rúst á Laugardalsvelli í byrjun þáttarins í kvöld og farið yfir framhaldið hjá landsliðinu. Svo var farið yfir í Bestu deildina og staðan tekin eftir sjö leiki, öll liðin fengu einkunn og rýnt var í næstu leiki. Þá var auðvitað rætt um heimkomuna hjá Söru Björk Gunnarsdóttur í Hauka undir lok þáttarins.
Á mánudagskvöldið kom stórfrétt í íslenskri golfsögu þegar kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson vann sér inn þátttökurétt á Opna bandaríska meistarmótinu í golfi. Hann verður fyrstur íslenskra karlkylfinga til að keppa á mótinu og annar Íslendingurinn til að keppa á risamóti karla. Gunnlaugur Árni, sem er einungis tvítugur, er gríðarlegt efni. Ólafur Björn Loftsson afreksstjóri Golfsambands Íslands, kom í þáttinn og útskýrði fyrir okkur í dag hversu stórt það er að komast inn á þetta mót og hverju það skiptir fyrir Gunnlaug Árna og íslenskt golf. Ný vitundarherferð er í gangi til styrktar Kvennaathvarfinu undir yfirskriftinni Rjúfum mynstrið. Rúmlega fimm þúsund manns hafa sótt prjónauppskriftina að prjónapeysunni Skjól sem Tinna Laufdal hannaði í samstarfi við Kvennaathvarfið og garn er að seljast upp í verslunum og fjöldi viðburða hefur verið skipulagður víða um land. Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra kom í þáttinn í dag einmitt í einni útgáfu af peysunni Skjól. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið, eins og hún hefur gert á miðvikudögum í vetur. Í dag sagði hún okkur frá rannsóknum á collageni sem fæðubótaefni. Tónlistin í þættinum: Ég veit þú kemur / Ellý Vilhjálms (Oddgeir Kristjánsson, texti Ási í Bæ) Ó borg mín borg / Haukur Morthens (Haukur Morthens, texti Vilhjálmur frá Skáholti) Ástrós / Bubbi Morthens og Bríet (Bubbi Morthens) Ég er kominn heim / Óðinn Valdimarsson (Imre Kálmán, texti Jón Sigurðsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Árið 1967 kom út eitthvað alræmdasta og öfgafullasta rit feministahreyfingarinnar, SCUM manifesto (eða SORI á íslensku) eftir Valerie Solanas. Hún leggur til að öllum karlmönnum verði eytt af jörðinni, en glasafrjóvganir og sjálfvirknivæðing muni viðhalda samfélagi kvenna. Við ræðum bókina við Kristínu Svövu Tómadóttur, sagnfræðing og þýðanda bókarinnar, í bókaklúbbi Lestarinnar. Við ræðum svo um íslenskan sagnaarf og barnamenningu. Við ræðum við Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur um nýja útgáfu hennar af Njálssögu fyrir börn - Njála hin skamma.
Miðvikudagur 3. júní Ofbeldi, öryrkjar, fánar, íbúðamarkaður og sundlaugar Hrundið hefur verið af stað landsátaki gegn kynbundnu ofbeldi næstu fimm árin. Linda Dröfn Gunnarsdóttir ræðir í samtali við Björn Þorláks átakið, flutning athvarfsins, samstöðu og stuðning en einnig ökklabönd og kyrkingartök. Unnur Hrefna Jóhannsdóttir blaðakona og öryrki ræðir við Gunnar Smára um stöðu öryrkja í samfélaginu, hvernig fordómar og vanvirðing dregur niður lífskjör þeirra ekki síður en sjúkdómar, fötlun og fátækt. Ingólfur Gíslason lektor við Háskóla Íslands ræðir þá ákvörðun borgaryfirvalda að hætta að flagga fánum erlendra ríkja. Nýr meirihluti fer illa af stað, að mati Ingólfs. Sigurður Sigurðsson byggingarverkfræðingur segir Gunnari Smára frá pólitísk svik stjórnmálafólksins við ungu kynslóðina, einkum varðandi húsnæðismarkaðinn sem þjónar síst af öllu ungu fólki. Rán Flygenring, myndlistarmaður og rithöfundur, er mikil sundmanneskja og upp á síðkastið hafa gestir í sundlaugum rekið augun í myndlist hennar á sundlaugarbökkum Reykjavíkur. Rán ræðir við Björn Þorláks um þjóðareinkenni Íslendinga, útisundlaugina.
Í nýjasta þætti Umræðunnar fara Una Jónsdóttir og Hjalti Óskarsson yfir nýjustu vendingar í efnahagsmálum með Kristínu Gunnarsdóttur. Stýrivextir voru hækkaðir, hagvöxtur mældist 2,7% á fyrsta ársfjórðungi, verðbólga mældist 5,1% í maí en undir yfirborðinu má sjá merki um kólnandi hagkerfi. Rætt er um áhrif gagnavera á hagvöxt, stöðu húsnæðismarkaðar, verðbólguþróun og horfur næstu mánaða.
Maria Csizmás, ábyrgðarmaður undirskriftalista gegn kílómetragjaldinu - Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi hæstaréttardómari Símatími Ari Edwald oddviti Miðflokksins Jón Ármann Steinsson Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra Lilja Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins um fæðingartíðni
Stærstu útgerðarfyrirtæki landsins hafa safnað stóru eignasafni samkvæmt úttekt Hagfræðistofnunar fyrir Atvinnuvegaráðuneytið. Helgi Seljan skoðar gögnin. Það hriktir í stoðum NATO og þungt var í utanríkisráðherrum bandalagsins á fundi í Svíþjóð í dag, þar sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, var stödd. Spegillinn ræddi við hana. Stjórnarmyndun í Danaveldi er í hnút. Lars Lökke Rasmussen neitaði síðdegis að styðja hægristjórn Troels Lund Poulsen, formanns venstre. Nú gæti komið að Mette Frederiksen á ný.
Upptaka frá ”live podcast” viðburði Icelandair sem haldinn var í samvinnu við Flugvarpið 7. maí 2026. Rætt er við þau Lindu Gunnarsdóttur director chief pilots office, Snorra Tómasson director network and scheduling og Guðberg Ólafsson manager operations control center. Spjallað er um starf þeirra hjá Icelandair og hvernig mismunandi deildir félagsins vinna í sameiningu við að halda tengimiðstöðinni í Keflavík og öllu flugi félagsins í gangi, alla daga allt árið um kring. Áhugavert spjall sem veitir örlitla innsýn í flókin verkefni við rekstur Icelandair.
Seðlabankinn hækkaði stýrivexti en dugir það vopn í baráttunni þegar lykilástæður eru utan landssteinanna? Rætt við Katrínu Ólafsdóttur, lektor í hagfræði, Bjarna Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins og Höllu Gunnarsdóttur, formann VR. Mælanleg áhrif eru á lífsgæði og atvinnulíf á Norðurlandi eftir að reglubundið flug til útlanda frá Akureyri festi sig í sessi. Rætt við Þórodd Bjarnason, prófessor við Háskóla Íslands.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Rvk. Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Rvk. Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingar í Rvk. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokks í Rvk. Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vors til vinstri í Rvk. Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar í Rvk. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingar í Kópavogi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingar Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður VG Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins Reykjanesbæ Óðinn Svan Óðinsson, oddviti L-lista Akureyri.
Föstudagur 8. maí Vikuskammtur: Vika 19 Eins og venja er á föstudögum kemur saman gott fólk að ræða fréttir vikunnar í Vikuskammti við Rauða borðið. Að þessu sinni mæta þau Guðmundur Auðunsson, María Hjálmtýsdóttir, Margrét Lísa Gunnarsdóttir og Unnar Þór Sæmundsson til að ræða sveitarstjórnarkosningar, mótmæli, gömul og ný þrætuepli og ýmsar furðufréttir með Laufeyju Líndal. Þátturinn er tekinn upp í beinni útsendingu.
Horfur eru á að sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið muni vara lengur en áður var spáð, samkvæmt nýrri hagspá Landsbankans (setja link). Hagvöxtur verður hóflegur og einkum drifinn áfram af þjónustuútflutningi. Útlit er fyrir að verðbólga verði 4,8% í ár og sennilegt er að stýrivextir verði hækkaðir upp í 8,25% á þessu ári. Una Jónsdóttir og Hjalti Óskarsson úr greiningardeild Landsbankans ræða hagspána við Kristínu Gunnarsdóttur í nýjasta þætti Umræðunnar.
Árið 2009 var sett á fjalirnar pólitísk leiksýning sem stóð yfir tæp fjögur ár. Þá, líkt og nú, var reynt að telja almenningi trú um að um sérstakar samningaviðræður milli Íslands og Evrópusambandsins væri að ræða. Byggt var undir þá von að Íslendingar gætu samið um breytt regluverk Evrópusambandsins – að Evrópusambandið myndi aðlaga sig að sérþörfum Íslendinga. Forystumenn vinstri stjórnarinnar vissu betur og þá ekki síst utanríkisráðherra en á upplýsingasíðu utanríkisráðuneytisins sagði meðal annars: „Hvor aðili um sig, umsóknarríkið og ESB, hafa sín samningsmarkmið og af hálfu umsóknarríkis snúa þau vanalega fyrst og fremst að því að fá að njóta ákveðins sveigjanleika við að taka upp lög og stefnumið ESB.“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var sem nefndarmaður í utanríkismálanefnd árið 2009 sannfærð um að engar líkur væru á því að Ísland gæti fengið varanlegar undanþágur frá meginreglum Evrópusambandsins.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor og ráðstefnustjóri Vísinda á vordögum, ræddi við okkur um ráðstefnuna. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, ræddi við okkur um skýrslu samtakanna um vátryggingamarkaðinn. Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans og Pétur Óskarsson, formaður SAF, ræddu fyrirhugaðar skattahækkanir á baðlón og ferðaþjónustuna almennt. Þorgerður Elíasdóttir er á leið til Kenýa í hjálparstarf. Hún ræddi við okkur um ferðina og með henni kom Ingveldur Ýr, formaður Íslensku barnahjálparinnar. Andri Már Kristinsson og Arnar Gísli Hinriksson, stofnendur Digido, ræddu við okkur um auglýsingapeningana sem renna út úr landi. Guðmundur Atli Hlynsson leikstjóri heimildarmyndarinnar 1949 ræddi við okkur um myndina.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Eyjólfur Eyvindarson, Sesar A, formaður VÍK, Vináttufélags Íslands og Kúbu, er í Kúbu og tekur þátt í loftbrú með hjálpargögn. Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, ræddi við okkur um virkjanamál. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra ræddi við okkur um erlenda glæpamenn. Hvað getum við bætt í krabbameinsmeðferðum? Sigríður Gunnarsdóttir, prófessor í krabbameinshjúkrun við Háskóla Íslands og forstöðumaður Rannsóknaseturs Krabbameinsskrár hjá Krabbameinsfélagi Íslands og Sigurdís Haraldsdóttir, yfirlæknir krabbameinslækninga á Landspítala og prófessor við læknadeild HÍ, ræddu við okkur um árangur í krabbameinsmeðferðum. Yngvi Ómar Sigrúnarson, formaður Leigjendasamtakanna, ræddi ástandið á leigumarkaði.
Icelandic international Sara Björk Gunnarsdóttir has played for some of the biggest clubs in women's football, from VfL Wolfsburg, Olympique Lyonnais and Juventus. Now, she finds herself on a new adventure in Saudi Arabia with the ambitious Al Qadsiah. In an open and revealing interview for The Asian Game Podcast, she discusses her initial hesitance to the Saudi offer, her new life in the Kingdom and how things really are for the players. Be sure to follow The Asian Game on all our social media channels: X: https://twitter.com/TheAsianGame IG: https://instagram.com/theasiangame Facebook: https://facebook.com/TheAsianGamePodcast
Mánudagur 23. mars Opinberir starfsmenn, kulnun, listin og sagan Sonja Ýr Þorgeirsdóttir, BSRB og Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, ræða neikvætt viðhorf gegn opinberum starfsmönnum og atlögu að vernd þeirra í starfi. Inniskór koma við sögu. Björn Þorláks ræðir við þær.Flosi Þorgeirsson, gítarleikari í Ham með meiru, ræðir eigin kulnun og hlaðvarpið Draugar fortíðarinnar í samtali við Björn Þorláks.Unnur Elísabet Gunnarsdóttir ræðir framtakið Segðu þína sögu. Hvernig vekur maður tilfinningu hjá öðrum með frásögn? Björn Þorláks ræðir við hana. Sóley Smáradóttir fiðluleikari lýkur framhaldsstigi á fiðlu innan skamms. Hún ræðir við Björn Þorláks um listir, heiminn, Ísland og rasisma.
On a joyous night for Japanese football, the Nadeshiko have cemented their place at the summit of Asian football with a hard-fought 1-0 win over Japan. Paul Williams was in Sydney for the history making final, bringing you all the colour and atmosphere before the game, while also speaking with players and officials from both sides after the game including: Tsuneyasu Miyamoto, JFA President Nils Nielsen, Japan coach Joe Montemurro, Australia coach Maika Hamano, Japan Saki Kumagai, Japan Plus, we also talk about the growth of women's football in Saudi Arabia with Icelandic international Sara Björk Gunnarsdóttir, who has spent the past 18 months with Al Qadsiah after a decorated career in Europe. Be sure to follow The Asian Game on all our social media channels: X: https://twitter.com/TheAsianGame IG: https://instagram.com/theasiangame Facebook: https://facebook.com/TheAsianGamePodcast
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Páll Ágúst Þórarinsson veðurfræðingur Ragnar Sigurður Kristjánsson hagfræðingur Viðskiptaráðs um breiðu bökin Símatími Ingrid Kuhlman leiðbeinandi og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun um hamingju Íslendinga Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra svaraði spurningum hlustenda Jón Jóhannsson rekstrarstjóri Skúbb ísgerðar og einn eiganda vegna frétta um að engin rjómi sé í rjómaís hjá öðrum framleiðendum
Við fræddumst í dag um það sem kallast ACT-nálgunin, en samkvæmt Rúnari Helga Andrasyni, er það sálfræðileg nálgun sem snýst í grunninn um það að hætta tilgangslausri baráttu við erfiðar hugsanir og tilfinningar. En Rúnar, sem er sérfræðingur í klínískri sálfræði og er yfirsálfræðingur á Reykjalundi hefur nýtt sér þessa aðferð í starfi sínu bæði á Reykjalundi og hjá VIRK. Rúnar kom í þáttinn og sagði okkur betur frá ACT í dag. Hvernig er hægt að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu? Við heyrðum í þættinum af málþingi sem fer fram á fimmtudaginn þar sem fjallað verður einmitt um vinnustaðamenningu í leik- og grunnskólum í framhaldi af samstarfsverkefni Vinnueftirlitsins, Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Dr. Sigrún Gunnarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, sem hefur leitt verkefnið og stýrt framkvæmd þess var hjá okkur í Efstaleitinu og fyrir norðan í stúdíó RÚVAK var Hafdís Ólafsdóttir, leikskólastýra á Klöppum, Akureyri. En Klappir eru einn af fimm þátttökuskólum verkefnisins og hún mun lýsti reynslu sinni af verkefninu. Og svo var það Heilsuvakt dagsins með Helgu Arnardóttur. Það er sjaldan rætt við fólk sem glímir við langvinnt krabbamein og lifir þokkalegu lífi með sjúkdómnum. Thelma Björk Jónsdóttir fatahönnuður, listgreina- og jógakennari greindist með brjóstakrabbamein fyrir tveimur árum og í ljós kom að meinið var einnig komið í beinin að litlum hluta. Thelma fór ekki í hefðbundna lyfjameðferð eins og flestir gera heldur tekur hún líftæknilyf í hverjum mánuði sem halda sjúkdómnum niðri. Hún var andlit bleiku slaufunnar í fyrra með sína mögnuðu sögu og þar fyrir utan hannaði hún slaufuna sjálfa. Herferðin hét Listin að lifa með krabbameini og hlaut tilnefningu til lúðursins í flokknum almannaheillauglýsingar. Helga hitti hana á dögunum og ræddi við Thelmu um hvað hún gerir til að vera jákvæð og láta ekki óttann stjórna sér. Tónlist í þættinum: Ó, ljúfa líf / Flosi Ólafsson (Pops & Doddoge, texti Flosi Ólafsson) Tasko tostada / Hljómar (Rúnar Júlíusson) Hoppsa bomm (Á skíðum skemmti ég mér ) / Helena Eyjólfsdóttir og Hljómsveit Ingimars Eydal (H. Meyer, texti Ásta Sigurðardóttir og Birgir Marinósson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON
Uppbótartíminn, hlaðvarp um kvennaboltann á Íslandi, heilsar á mánudegi. Íslenska landsliðið byrjaði undankeppnina fyrir HM á því að mæta tveimur sterkustu þjóðum Evrópu og það gekk heldur brösulega. Það er einn og hálfur mánuður í Bestu deildina og nóg til að ræða um í tengslum við hana. Svo er spurning hvort Sara Björk Gunnarsdóttir, ein besta fótboltakona í sögu Íslands, sé á heimleið. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur fóru yfir allt það helsta.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Alþjóðamál/Íran Kjartan Orri Þórsson sérfræðingur ræðir sögu Írans og afskipti heimsvelda af innanríkismálum sem hafa verið tíð og afdrifarík síðustu 120 árin a.m.k. Utanríkismál Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ræðir fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB. Efnahags- og atvinnumál Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins ræðir sýn sína á framtíð íslensks iðnaðar og atvinnulífs.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Eiríkur Svavarsson, varaþingmaður Miðflokksins og lögmaður, settist niður með okkur og ræddi þjóðaratkvæðagreiðsluna. Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokks, ræddi við okkur um nýja mælistiku fyrir leshraðapróf í grunnskólum. Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, kynningarstjóri Akraness og Kristín Gunnarsdóttir, stjóri upplýsingamiðlunar Landsbankans, fóru yfir fréttir vikunnar. Hallgrímur Björnsson, fjármála- og rekstrarstjóri Lauf Cycles og Dana Rún Hákonardóttir, forstöðumaður markaðs-og kynningarmála hjá Lauf, ræddu fyrirtækið og það sem er framundan. Lára Hafliðadóttir, doktosnemi í HR og Hafrún Kristjánsdóttir, sálfræðingur og deildarforseti íþróttafræðideildar HR, ræddu nýtt verkefni sem nefnist Konur í íþróttum. Helena Marteinsdóttir, markaðsstjóri Freyju og Pétur Thor Gunnarsson, framkvæmdastjóri Freyju, settist niður með okkur.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Snædís Ögn Flosadóttir, forstöðumaður hjá mörkuðum hjá Arion banka, ræddi við okkur um langtímaátakið Konur fjárfestum. Erlingur Erlingsson, hernarðarsagnfræðingur var á línunni og ræddi Íran. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra settist niður með okkur og fór um víðan völl. Karen Stephensen settist hjá okkur með Leo Karenarson Amiri frá Íran sem hún hefur nánast tekið að sér.Íþróttafréttamaðurinn Aron Guðmundsson fór yfir umferðina í enska boltanum.
Diljá Mist Einarsdóttir og Kristín Gunnarsdóttir fara yfir það helsta úr liðinni viku og ræða um bollur og fyrirhugaðan óhollustuskatt, stöðu barnafjölskyldna, ráðherra sem skóla hagfræðinga til í hagfræði, nýjan formann Framsóknarflokksins, ryk á götum Reykjavíkur, pirring starfsmanns Rúv yfir því að forsetinn hafi sótt Viðskiptaþing og margt fleira.
Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar: „Hvernig get ég orðið ríkur?“ spyr ég Kareni Áslaugu aðalhagfræðing Seðlabankans og bið Höllu Gunnarsdóttur formann VR um að útskýra verðbólgu eins og ég væri 12 ára, af því ég skil ekki peninga. En ég veit það þó að ég skulda meira í dag en fyrir nokkrum árum og það tengist einhvern veginn verðbólgu, vöxtum og vísitölu neysluverðs. En hvernig? Þessi þáttur er fyrir fólk sem er ekki viðskiptafræðimenntað og skilur tæplega hvað öll þessi hugtök þýða. Viðmælendur Karen Áslaug Vignisdóttir aðalahagfræðingur Seðlabankans [tekið upp í desember 2025] Halla Gunnarsdóttir formaður VR [tekið upp í febrúar 2026].
Unnur Guðný María vann lengi sem flugfreyja, er veiðileiðsögumaður og vinnur með kaþósku kirkjunni. í dag starfar hún einnig sem myndlistarmaður.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Sólveig Ragnheiður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri og ráðgjafi hjá Strata Advisory, ræddi við okkur um erfiða stöðu lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Benedikta Eik Eiríksdóttir, stofnandi samtakanna Mitt DNA - Samtök rangfeðraðra, settist niður með okkur. Þórir Garðarsson, framkvæmdastjóri og Alexandra Briem, formaður Borgarráðs, ræddu Borgarlínu. Sigga Heimis, iðnhönnuður og fagstjóri nýrrar deildar í Háskólanum í Reykjavík, settist niður með okkur. Guðrún Árný og Heiðar í Botnleðju ræddu Britpop veislu í Bæjarbíói.
Samtök atvinnulífsins tilkynntu í morgun að þau hefðu ráðið Bjarna Benediktsson sem nýjan framkvæmdastjóra. Bjarna þarf ekki að kynna til leiks; hann sat á Alþingi í 22 ár og var einn aðsópsmesti en um leið umdeildasti stjórnmálaforingi landsins. Sem fjármálaráðherra í áratug var hann áhrifamikill í íslensku efnahagslífi og hafði sterkar skoðanir á mikilvægi aðila vinnumarkaðarins fyrir stöðugleika. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Bjarna - og Hölku Gunnarsdóttur, formann VR, og Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar. Þriggja umferða kosningum lauk í Mjanmar í gær, sunnudag. Þetta voru fyrstu kosningarnar þar frá því að herinn steypti lýðræðislega kjörinni stjórn af stóli, enn einu sinni, eftir tíu ára lýðræðistilraun. Herforingjastjórnin segir kosningarnar leið til aukins lýðræðis og sátta, en gagnrýnendur segja þær skrípaleik, til þess gerðan að treysta enn völd hersins í landinu. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Gestir Vikulokanna eru Halla Gunnarsdóttir formaður VR, Kristján Þórður Snæbjarnarson þingmaður Samfylkingar og Davíð Stefánsson formaður Varðbergs. Þau ræddu alþjóðamál, varnar- og öryggismál, efnahagsmál, stöðuna á vinnumarkaði og komandi sveitar- og borgarstjórnarkosningar. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Bítið á Bylgjunni með Lilju, Sigmari og Ómari. Sigurveig Þ Sigurðardóttir, yfirlæknir ónæmis- og ofnæmislækninga við Landspítalann, ræddi rannsóknir á ofnæmislyfinu Xolair. Magnús Kári, handboltadómari ræddi við okkur um dómgæsluna í leik Íslands og Ungverjalands. Fyrrverandi þingmennirnir Brynjar Níelsson og Helga Vala Helgadóttir fóru yfir hið pólitíska svið. Dóra Björt Guðjónsdóttir, Samfylkingu ræddi við okkur um húsnæðismarkaðinn. Berglind Rós Magnúsdóttir, prófessor í uppeldis- og menntunarfræði, ræddi nýja bók um ástarkraft. Ásthildur Gunnarsdóttir, forstöðumaður samskipta í Háskólanum í Reykjavík, ræddi við okkur um Framadaga. Henry Birgir Gunnarsson, fréttastjóri íþróttamála hjá Sýn, var á línunni frá Svíþjóð.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, ræddi við okkur um svokölluð verktakalán. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, ræddi við okkur um framtíðina á íslenskum vinnumarkaði. Gunnar Gíslason, forstöðumaður Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, ræddi við okkur um lestrarkennslu og byrjendalæsi. Sandra Sif Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri DISACT og Sólveig R. Gunnarsdóttir, stjórnarformaður DISACT, ræddu þetta íslenska nýsköpunarfyrirtæki. Hannes Heimisson, aðalræðismaður Íslands í Þórshöfn, ræddi handboltaáhuga Færeyinga. Ágúst Orri Arnarson, íþróttafréttamaður Sýnar, fór yfir umferðina í enska boltanum. Hálfdán Helgi Matthíasson, annar bróðirinn í VÆB, fór yfir allt sem er á döfinni hjá hljómsveitinni.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Henry Birgir Gunnarsson fréttastjóri íþrótta hjá Sýn um EM í handbolta Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra um stöðuna á Grænlandi Símatími Pétur Marteinsson frambjóðandi í oddvitasæti Samfylkingar í Reykjavík Hafsteinn Dan Kristjánsson sérfræðingur í stjórnsýslurétti og prófessor við lagadeild HR um hvort hægt sé að neita að greiða sektir sem ekki koma frá ríkinu Halla Hrund Logadóttir þingkona Framsóknarflokksins um þróunina á norðurslóðum Karl Gauti Hjaltason þingmaður Miðflokksins um starfslokasamninga Bjartur Guðmundsson frammistöðuþjálfi um hvort makinn sé oft neikvæður
Kerfið hefur alfarið og algjörlega brugðist börnunum okkar sagði Inga Sæland formaður Flokks fólksins og nýorðinn mennta- og barnamálaráðherra um menntakerfið fyrir helgi. Orð Ingu hafa vakið mikla umræðu um málaflokkinn og eru ekki allir sammála um hvort þau máli rétta mynd af stöðunni. Sigrún Blöndal, kennari á Egilsstöðum finnst þau ekki endurspegla það sem hún sér í vinnunni á hverjum degi og vill minna á að á heildina litið gangi börnunum vel. Við spjöllum við Sigrúnu í upphafi þáttar. Og við höldum áfram að ræða menntamálin þegar Lísa Margrét Gunnarsdóttir, forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta, kemur til okkar. Hún ætlar að fara með okkur yfir það helsta í hagsmunabaráttu stúdenta, meðal annars rannsóknir á áhrifum námslánakerfisins á stúdenta. Helga Lára Þorsteinsdóttir hefur grafið upp gimstein úr lakkplötusafni RÚV til að spila fyrir okkur. Að þessu sinni er það ódagsett viðtal Baldurs Pálmasonar við Sigríði Eiríksdóttur hjúkrunarkonu. En við byrjum á menntamálunum. Umsjón: Pétur Magnússon og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir Tónlist: Lose control - VÖK Old moon - BSÍ
Nokkuð skæð flensa hefur verið að ganga yfir frá því í haust og hafa talsvert margir lent í henni. Við fengum nokkrar ábendingar frá hlustendum að þau hefðu verið dálítinn tíma að koma sér í gang aftur eftir flensuna því brugðum við á það ráð að hafa samband við Gunnar Svanbergsson sjúkraþjálfara og hann kom í þáttinn og gaf góð ráð til að koma sér í gang eftir svona glímu við flensu. Við notuðum í leiðinni tækifærið og tókum stöðuna á Gunnari sjálfum, hvernig honum gengur í sinni glímu við langvinnt Covid. En hann kom einmitt í þáttinn á síðasta ári og sagði sína reynslusögu, en hann er ekki enn búinn að jafna sig eftir að hafa fengið Covid um jólin 2020. Svo spjölluðum við við Jónmund Grétarsson leikara, hann steig fyrst á sviðið kornungur í Bugsy Malone sem margir muna eftir í Loftkastalanum. Hann lærði leiklist í San Francisco og er stofnandi leikhópsins Elefants, sem hlaut flestar tilnefningar til Grímunnar árið 2023 fyrir Íslandsklukkuna. Hann leikur í Bústaðinum, nýju leikriti eftir Þór Tulinius, sem verður frumsýnt í Tjarnarbíói annað kvöld. Helga Guðrún Gunnarsdóttir lauk BS námi í íþrótta- og heilsufræði árið 2015 frá Háskóla Íslands og fékk skírteinið nánast á 60 ára afmælisdegi sínum. Hún fór strax að þjálfa opinberlega við lok háskólanámsins og stofnaði fljótlega fyrirtækið Ræs ehf. þar sem hún þjálfar fólk í vatni. Hún segir áhrif af vöðvaþjálfun í vatni fjölþætt, aukin vöðvastyrkur, aukin afköst hjarta og æðakerfisins og aukin hreyfigeta vegna minnkandi álags á stoðkerfið. Helga kom til okkar í dag. Tónlist í þættinum: Rólegan æsing / Egill Ólafsson (Egill Ólafsson) Listen to the Music / Doobie Brothers (Tom Johnston) Mary don't you weep / The Swan Silvertons Little By Little / Lay Low (Lay Low) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Are you enjoying this? Are you not? Tell us what to do more of, and what you'd like to hear less of. The Reykjavík Grapevine's Iceland Roundup brings you the top news with a healthy dash of local views. In this episode, Grapevine publisher Jón Trausti Sigurðarson is joined by Heimildin journalist Aðalsteinn Kjartansson, and Grapevine friend and contributor Sindri Eldon to roundup the stories making headlines in recent weeks. On the docket this week are: The Icelandic Annual End-Of-Year Skit ShowThe last joint cultural event all of Iceland collectively enjoy, to various degrees, takes place on New Years's Eve. We try to explain what it is. Greenland and Venezuela Last night Iceland's PM Kristrún Frostadóttir wrote on her Facebook “Greenland is a part of the Kingdom of Denmark. Nothing about Greenland without Greenland. Iceland stands in full solidarity behind our friends.” This morning, Iceland's Foreign Minister, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, wrote an Op-Ed on visir.is saying, opening with “It is clear that the international system we have lived with since the end of the Second World War is shaking at its foundations. At work are what can rightly be called the threatening forces of history, generating uncertainty far beyond what we have been accustomed to and creating dangers that would have seemed implausible only a few years ago.” Both of these statements are responses the USA's seizure of Venezuela's president, and Trump's subsequent comments about taking over Greenland.Gas Prices Drop By A ThirdThe price of gas dropped by a third on the first day of the year, subsequent to changes in how the Icelandic state collects tax from automobiles. An Icelander Dies On The Front Lines In UkraineA 51 year old Icelander, Kjartan Sævar Óttarsson, died on the front lines in Ukraine in and around the 20th of December, according to the man's brother. Kjartan had travelled to Ukraine on December 7th from Gothenburg Sweden, and neither what he was tasked with on the front lines, nor what lead to his death, has been reported on as of yet.What's Coming Up In 2026?The show's host ponder what this new year will bring us.------------------------------------------------------------------------------------------SHOW SUPPORTSupport the Grapevine's reporting by becoming a member of our High Five Club: https://grapevine.is/high-five-club/Or donate to the Grapevine here:https://support.grapevine.isYou can also support the Grapevine by shopping in our online store:https://shop.grapevine.is------------------------------------------------------------------------------------------ This is a Reykjavík Grapevine podcast.The Reykjavík Grapevine is a free alternative magazine in English published 18 times per year, biweekly during the spring and summer, and monthly during the autumn and winter. The magazine covers everything Iceland-related, with a special focus culture, music, food and travel. The Reykjavík Grapevine's goal is to serve as a trustworthy and reliable source of information for those living in Iceland, visiting Iceland or interested in Iceland. Thanks to our dedicated readership and excellent distribution network, the Reykjavík Grapevine is Iceland's most read English-language publication. You may not agree with what we write or publish, but at least it's not sponsored content.www.grapevine.is
Í Víðsjá dagsins rifjum við upp þátt frá því í mars á þessu ári, þar sem við fjölluðum um myndlistarkonuna, rithöfundinn og gagnrýnandann Drífu Viðar. Þá var verið að leggja lokahönd á stóra og veglega bók um Drífu, bók sem nú hefur komið út og sem er tilnefnd til Fjöruverðlauna í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis. Þær Elísabet Gunnarsdóttir, Kristín Guðrún Jónsdóttir og Auður Aðalsteinsdóttir eru ritstjórar bókarinnar og þær eru allar viðmælendur í þættinum, auk þess sem leikin er tónlist og rifjað upp gamalt efni úr safni Ríkisútvarpsins.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar var gestur okkar þennan aðfangadagsmorgun. Við töluðum þó ekki við hana um stjórnmál í dag, þess í stað töluðum við um jólin og hátíðirnar. Við rifjuðum upp jólahald á hennar æskuheimili, jólahefðirnar og jólamatinn og hvað af því hún tók með sér í jólahaldið með eiginmanni og börnum. Þorgerður og fjölskylda bjuggu til dæmis erlendis í mörg ár og héldu jólin nokkrum sinnum erlendis. Svo var ekki hægt að komast hjá því að ræða um handbolta, enda er hann fyrirferðamikill á heimili þeirra og framundan er evrópumeistaramót landsliða þar sem sonur hennar Gísli Þorgeir verður í eldlínunni. Jól, matur og handbolti með Þorgerði Katrínu í dag. Og svo ákváðum við að hafa matarspjallið í dag þar sem það verður ekki þáttur á föstudaginn og maturinn er auðvitað ómissandi hluti af jólunum og þá ekki síst sósurnar. Í dag voru það sem sagt aðallega sósur sem áttu sviðið í matarspjallinu með Sigurlaugu Margréti. Tónlist í þættinum í dag: Yfir fannhvíta jörð / Pálmi Gunnars (Miller & Wells, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson) Notalegt / Sigurður Guðmundsson og Sigríður Thorlacius (Sigurður Guðmundsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Rætt er við Lindu Gunnarsdóttur yfirflugstjóra Icelandair um fyrirhugaðar ráðningar flugmanna í millilandaflug félagsins. Á annað hundrað flugmenn misstu vinnuna þegar Play fór í þrot í haust og nú auglýsir Icelandair eftir fólki með reynslu á þotu. En hvað á að ráða marga og hvaða vélum eiga þeir að fljúga? Linda svarar þessum spurningum og fleirum í þættinum þar sem farið er stuttlega yfir ferlið framundan, inntökuprófin, þjálfanir, "cadet" prógrammið og fleira.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Þórhallur Bjarni Björnsson nemi í skipulagsfræðum í svíþjóð um Arkitektúruppreisnina Sigurður Már Jónsson blaðamaður segir að það hafi verið opinn tékki vegna loftslagsmála Símatími Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur Kristbjörg Gunnarsdóttir heyrnarfræðingur heyrnar og talmeinastöð Íslands um nýja meðferð gegn Tinnitus Hans Rúnar Snorrason kennari og annar eiganda fyrirtækisins Kunnátta ehf sem heldur úti studera.is Sigrún Þóra Sveinsdóttir sálfræðingur með námskeiðið Passaðu púlsinn í desember
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Dr. Gunnar Már Zoega augnlæknir um hornhimnusýkingar Jón Gunnarsson þingmaður XD um afsökun Þórunnar Sveinbjarnardóttur vegna blótsyrða sinna í þingsal Símatími Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra María Fjóla Harðardóttir forstjóri hjúkrunarheimilisins Hrafnistu um meintan skort á þvotti heimilsmanna á hjúkrunarheimilum Tímavélin Bryndís Loftsdóttir framkvæmdastjóri félags bókaútgefenda um bókajólin
Kristín Gunnarsdóttir og Stefán Einar Stefánsson fara yfir allt það helsta á helgarvaktinni. Við ræðum um allt milli himins og jarðar, í orðsins fyllstu – meðal annars um pólitík, tilraunir Þjóðkirkjunnar til að bæta ásýnd sína, breytingar hjá Sjálfstæðisflokknum, hreinsanir ríkisstjórnarinnar í skólakerfinu, ríkisfyrirtæki í Viðskiptaráði, sjálfsmat ríkisstjórnarinnar og margt fleira.
Guðmundur Ingi Kristinsson hefur ákveðið á víkja farsælum og vinsælum skólameistara úr starfi. Þegar forsaga málsins er höfð í huga er illa hægt að komast að annarri niðurstöðu en að baki ákvörðun ráðherrans sé hefndaraðgerð – misnotkun á pólitísku valdi til að koma þeim frá sem er ráðherra og félögum hans í Flokki fólksins ekki þóknanlegur. Það má hafa nokkra samúð með forsætisráðherra sem ítrekað kemst í þá stöðu að þurfa að verja verk ráðherra sem misbeita valdi sínu og virðast ekki hafa burði til að gegna ráðherraembættum þannig að sæmilegur sómi sé að. En spurningin er hversu lengi forsætisráðherra ætlar að sætta sig við framgöngu ráðherra Flokks fólksins og misbeitingu valds, til þess eins að tryggja líf ríkisstjórnarinnar og eigin stól í forsætisráðuneytinu. Kannski eru þolmörkin óendanleg þegar kemur að því að verja ráðherrastólana. Það er nöturlegt hlutskipti fyrir Samfylkinguna og Viðreisn, fyrir Kristrúnu og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, að vera pólitískir gíslar Ingu Sælands og Flokks fólksins.
It's the last place any woman anticipates ever landing, but far too often, a woman's shelter is the only haven for mothers and children fleeing abuse at home. Linda Dröfn Gunnarsdóttir is the executive director of the Association for Women's Shelters in Iceland. Linda's reputation as an innovator and leader landed her on the BBC 100 Women to Watch list — a listing reserved for women around the world making a difference for others. We talk with Linda about Iceland being globally celebrated as a woman's paradise due to policies that advance equality, when every day she sees women victims of gender-based violence forced into homelessness.
Bítið á Bylgjunni með Heimi Lilju og Ómari, Þuríður Sverrisdóttir og Vigdís Gunnarsdóttir hjá bidlisti.is settust niður með okkur. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, fyrrverandi menntamálaráðherra, ræddi við okkur um menntakerfið. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, ræddi við okkur frá Stokkhólmi þar sem verið er að ræða brottflutning Rússa á úkraínskum börnum. Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokks, ræddi skattheimtu nýrrar ríkisstjórnar. Helgi Áss Grétarsson, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og lögfræðingur, ræddi Mjóddina við okkur. Bjartmar Guðlaugsson og Ólafur E. Jóhannsson ræddu hausttónleika í Grafarvogskirkju.
Utanríkisráðherrar EES ríkjanna verða á morgun í Brussel á fundi ráðherraráðs Evrópska efnahagssvæðisins. Fundurinn er haldinn í skugga þeirrar ákvörðunar um verndarráðstafanir sem Evrópusambandið ákvað á þriðjudaginn. Björn Malmquist fréttamaður ræddi þessi mál við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra sem kom til Brussel í dag. Seðlabanki Íslands lækkaði í dagstýrivexti um 0,25 prósentustig. Anna Kristín Jónsdóttir leitaði álits Katrínar Ólafsdóttur deildarforseta viðskipta- og hagfræðideildar Háskólans í Reykjavík, á þessari ákvörðun og mögulegum afleiðingum hennar. Ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu fundaði með Sigríði Björk Guðjónsdóttur þáverandi ríkislögreglustjóra undir fjögur augu nokkrum dögum áður en hún sagði af sér embætti. Fundurinn var haldinn á heimili ráðuneytisstjórans að loknum vinnudegi. Forsætisráðherra segir ráðuneytisstjórann ekki hafa farið með nein skilaboð frá henni inn á fundinn. Freyr Gígja Gunnarsson fjallar um málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Guðni Sigurðsson upplýsingafulltrúi Icelandair Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins um verndartolla ESB Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra um verndartolla ESB Símatími Steinunn Þórðardóttir öldrunarlæknir og formaður Læknafélags Íslands um rannsókn frá Ástralíu um að yngra fólk en áður er að greinast með minnisglöp líklega vegna samfélagsmiðla og skjánotkunar Stefán Einar Stefánsson um myndband sem er í dreifingu á Tik Tok Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðslokksins um verndartolla ESB Lára Zulima Ómarsdóttir fyrrverandi fréttamaður og almannatengill um frétta-sjónvarpsstöðina NFS sem fór í loftið fyrir 20 árum Skúli Bragi Geirdal varaþingmaður Framsóknarflokksins og sviðsstjóri hjá Netvís netöryggismiðstöðvarinnar um netöryggi barna
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri var í hópi þeirra forstjóra ríkisstofnana sem fengu dreifibréf frá fjármálaráðuneytinu í ágúst á síðasta ári þar sem stofnanir ríkisins voru beðnar um að forðast alla gerviverktöku; hún væri ólögmæt. Eini starfsmaður Intru ráðgjafar, sem ríkislögreglustjóri var í tugmilljóna viðskiptum við og nánast eini verkkaupi, var með tölvu og netfang hjá embættinu og aðgang að innra neti þess. Ráðherrar hafa kynnt fyrsta hluta aðgerða í húsnæðismálum. Von á öðrum pakka í byrjun næsta árs sem er ætlað er að lækka fasteignaverð og fjölga íbúðum. Rætt við Höllu Gunnarsdóttur formann VR og Ragnar Þór Ingólfsson Flokki fólksins sem leiddi þingmannanefnd um húsnæðismál.
Langsam gesprochene Nachrichten | Deutsch lernen | Deutsche Welle
20.10.2025 – Langsam Gesprochene Nachrichten – Trainiere dein Hörverstehen mit den Nachrichten der DW von Montag – als Text und als verständlich gesprochene Audio-Datei.
Are you enjoying this? Are you not? Tell us what to do more of, and what you'd like to hear less of. The Reykjavík Grapevine's Iceland Roundup brings you the top news with a healthy dash of local views. In this episode, Grapevine publisher Jón Trausti Sigurðarson is joined by Heimildin journalist Aðalsteinn Kjartansson, and Grapevine friend and contributor Sindri Eldon to roundup the stories making headlines in recent weeks. On the docket this week are: 00:00:55 Overview Of This Weeks Stories00:04:00 Strange Place Names In IcelandicWe discuss a random assortment of strange names of places in Iceland00:11:00 A Drunk Man Arrested For Taking A Nap On A Coast Guard ShipThe police arrested a man who had “taken up residence” in the the Icelandic coast guard ship Thor (Þór) this weekend. No further details were given about the incident.00:16:50 Iceland And Germany Sign A Defense AgreementOn Sunday, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Iceland's Minister for Foreign Affairs, and Boris Pistorius, Germany's Minister of Defense, signed a bilateral declaration of intent on defense matters in connection with Pistorius' visit to Iceland. According to the declaration Iceland will build up infrastructure to accommodate military submarines and aircraft as a part of Iceland's membership in NATO. 00:21:40 Julian Assange Visits IcelandJulian Assange, the founder of Wikileaks, visited Iceland this weekend and was spotted at Vitabar, having a burger and fries. Assange, who was more or less in detention for 15 years was set free a year ago and now lives in Australia. 00:24:30 Drugs On A FerryThe only ferry to sale to Iceland on schedule, Norræna, which harbors in Seyðisfjörður, east Iceland, has been in the news recently for drugs. At the beginning of September, 7 kilos of cocaine were apprehended in a car on the ferry and two men arrested. Later in September, 15 kilos of Ketamine and 5 kilos of MDMA war found in another car on the ferry. Three people were arrested in the latter case.00:29:00 52% Think Church And State Should Be SeparatedA poll conducted recently tells us that 52% of Icelanders think that church and state should be separated. 27% are neither for nor against the motion, and 21% are opposed to separation. 00:39:40 Women's Strike 50th AnniversaryThis Friday, October 24th the famous 1975 Women's Strike turns 50. Tens of thousands are expected to celebrate this with a strike, and gather in downtown Reykjavík. ------------------------------------------------------------------------------------------SHOW SUPPORTSupport the Grapevine's reporting by becoming a member of our High Five Club: https://steadyhq.com/en/rvkgrapevine/You can also support the Grapevine by shopping in our online store: https://shop.grapevine.is------------------------------------------------------------------------------------------ This is a Reykjavík Grapevine podcast.The Reykjavík Grapevine is a free alternative magazine in English published 18 times per year, biweekly during the spring and summer, and monthly during the autumn and winter. The magazine covers everything Iceland-related, with a special focus culture, music, food and travel. The Reykjavík Grapevine's goal is to serve as a trustworthy and reliable source of information for those living in Iceland, visiting Iceland or interested in Iceland. Thanks to our dedicated readership and excellent distribution network, the Reykjavík Grapevine is Iceland's most read English-language publication. You may not agree with what we write or publish, but at least it's not sponsored content.www.grapevine.is