Söngleikir samtímans

Follow Söngleikir samtímans
Share on
Copy link to clipboard

Söngleikir hafa alveg sérstakt aðdráttarafl. Í söngleikjum samtímans fjallar Karl Pálsson um nýja söngleiki sem settir hafa verið upp beggja megin Atlantshafsins síðustu fimm árin. Við hlýðum á brot úr þeim og kynnumst umfjöllunarefnunum í nýjustu og ferskustu verkunum á West End og Broadway. Umsjón…

RÚV


    • Jan 30, 2022 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 13 EPISODES


    Search for episodes from Söngleikir samtímans with a specific topic:

    Latest episodes from Söngleikir samtímans

    Rokkarinn og rótarinn

    Play Episode Listen Later Jan 30, 2022


    Söngleikur dagsins er frumraun eins farsælasta söngleikjaleikara landsins, þar sem hann semur sinn eiginn söngleik frá grunni. Þór Breiðfjörð hefur verið með þennan söngleik í maganum í fjöldamörg ár og loksins vaknar hann til lífs á sviðinu. Söngleikur dagsins er Rokkarinn og rótarinn. Viðmælendur: Þór Breiðfjörð, Orri Huginn Ágústsson og Davíð Sigurgeirsson

    Hlið við hlið

    Play Episode Listen Later Jan 23, 2022


    Söngleikur dagsins er annar glymskratta-söngleikur en höfundarnir Höskuldur Þór og Berglind Alda sækja aftur í lagabanka okkar bestu tónlistarmanna. Seinast voru það Ðe lónlí blú bojs og núna er það Frikki Dór. Söngleikur dagsins er Hlið við hlið. Viðmælendur: Höskuldur Þór Jónsson, Berglind Alda Ástþórsdóttir og Agla Bríet Bárudóttir

    Góðan daginn faggi

    Play Episode Listen Later Jan 16, 2022


    Söngleikur dagsins er sjálfsævisögulegt verk um baráttu Bjarna Snæbjörnssonar við hugsanir sínar og annarra um samkynhneigð sína. Söngleikurinn sló gegn í Þjóðleikhúskjallaranum og hlaut einróma lof gagnrýnenda. Söngleikur dagsins er Góðan daginn faggi. Viðmælendur: Bjarni Snæbjörnsson, Axel Ingi Árnason og Gréta Kristín Ómarsdóttir

    Pálmar

    Play Episode Listen Later Jan 9, 2022


    Söngleikur dagsins varð til í Skapandi sumarstörfum í Garðabæ en þrátt fyrir ungan aldur settu þær Guðrún Ágústa og Tinna Margrét söngleikinn saman á mettíma og sýndu fjölda sýninga með fagmannlegheitin í fyrirrúmi. Efniviðurinn var mögulega óvenjulegur en söngleikurinn er um afa Tinnu, arkitektinn og tónlistarmanninn Pálmar Ólason. Söngleikur dagsins er Pálmar. Viðmælendur: Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir, Tinna Margrét Hrafnkelsdóttir og Hrafnkell Pálmarsson

    9 líf

    Play Episode Listen Later Jan 2, 2022


    Söngleikur dagsins er verk sem þurfti að fresta vegna heimsfaraldurs og hefur leikhúsfólk mátt bíða eftirvæntingarfullt eftir þessum nýja söngleik frá Ólafi Agli Egilssyni. Fyrst kom Ellý og nú er það Bubbi. Söngleikur dagsins er 9 líf. Viðmælendur: Ólafur Egill Egilsson, Halldóra Geirharðsdóttir og Bubbi Morthens

    Kynningarþáttur

    Play Episode Listen Later Dec 26, 2021


    Í þessum fyrsta þætti förum við hratt yfir söngleikina fimm sem fjallað verður um í seríunni og fáum smá forsmekk af því sem koma skal.

    Þáttur 7 af 7

    Play Episode Listen Later Dec 15, 2019


    Í þessum lokaþætti fá jólin að setjast hásætið og kíkjum við á það hvernig þau hafa birst í söngleikjum í gegnum tíðina.

    Þáttur 6 af 7

    Play Episode Listen Later Dec 8, 2019


    Í þætti dagsins er farið á handahlaupum yfir söngleikjasögu Íslands. Allt frá uppsetningum á erlendum söngleikjum til söngleikja sem samdir eru hér á landi.

    Þáttur 5 af 7

    Play Episode Listen Later Dec 1, 2019


    Í þessum þætti eru tveir söngleikir sem eru nánast alveg bleikt og blátt. Þetta eru The Band's Visit sem segir frá egypskri lögregluhljómsveit sem villist í lítið ísraelskt þorp og Mean Girls sem er byggð á vinsælu kvikmyndinni frá 2004 eftir Tinu Fey.

    Þáttur 4 af 7

    Play Episode Listen Later Nov 24, 2019


    Í þessum þætti kynnumst við gríska harmleiknum um Orfeus og Evridísi sem varð óvænt að verðlaunasöngleiknum Hadestown og Waitress þar sem ofurkonan Sara Bareilles semur tónlistina.

    Þáttur 3 af 7

    Play Episode Listen Later Nov 17, 2019


    Í þætti dagsins er fjallað um söngleikina Dear Evan Hansen og Something Rotten. Dear Evan Hansen er frá einu stærsta höfundadúói samtímans og Something Rotten sýnir okkur nýja hlið á William Shakspeare.

    Þáttur 2 af 7

    Play Episode Listen Later Nov 10, 2019


    Í þessum þætti kíkjum við á söngleikina Hamilton og Six sem taka fyrir klassísk og söguleg efni en með ferskum og nýstárlegum blæ. Hamilton segir sögu Alexander Hamilton, eins af stofnendum og fyrsta fjármálaráðherra Bandaríkjanna og í Six er fjallað um sex eiginkonur Hinriks áttunda, en hér stofna þær kvennasveit og sameinast gegn húsbónda sínum.

    Þáttur 1 af 7

    Play Episode Listen Later Nov 3, 2019


    Í þessum fyrsta þætti ætlum að við að skoða söngleikinn Beetlejuice sem byggður er á samnefndri kvikmynd Tim Burton og frumsýndur var í fyrra og söngleikinn Come From Away sem segir aðra sögu af hryðjuverkaárásunum þann 11. september. Atburðarrás í bænum Gander á Nýfundnalandi þar sem 39 flugvélar þurftu að lenda vegna árásanna á austurströnd Bandaríkjanna.

    Claim Söngleikir samtímans

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel