POPULARITY
Fyrsti þáttur Ómars og Kolbeins um bækur. Umræður og pælingar um lestur bóka. Hugmyndin um hlaðvarp rædd og lagt línurnar að næsta þætti og valið bók til að taka fyrir. Heimspeki, saga, lífsspeki, sjálfshjálp, framtíðarfræði, tækni og almenn. Bók valin sem tekin verður til umræðu í næsta þætti. Tekið upp í Kompunni, hlaðvarps upptökuveri í Borgarbókasafni Reykjavíkur, Grófinni.
Guðrún Baldvinsdóttir, Maríanna Clara Lúthersdóttir og Vala Björg Valsdóttir hittust í Kompunni og ræddu hvaða bækur þær lásu í sumarfríinu, en einnig um rósaræktun, vatnsræktun og sjálfsrækt(un).
Heiðar og Árni settust niður í Kompunni og fóru yfir lokaeinvígið þar sem KR tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik karla. ÍR-ingum og fleirum þakkað fyrir góðan vetur sem verður væntanlega lengi í minnum hafður.
Fjórum Fjórðungum er lokið en það er ekki komin niðurstaða og því þarf að framlengja og það er líklegt að það þurfi nokkrar framlengingar til að leiða þetta mót til lykta. Heiðar og Árni settust niður fyrir framan hljóðnemana í Kompunni og ræddu söguleg átta liða úrslit Íslandsmótsins í körfuknattleik karla. Einnig var rætt um hvernig undanúrslitin líta út og spáð fyrir um hvernig þau myndu enda og hvaða lið það eru sem munu leika til úrslita.
Í nýjasta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins áttu Esther, Guðrún og Ingi saman sorgarstund í Kompunni þegar þau ræddu föstudagsfjörs spurninguna; Hvaða bækur fá tárin til að renna?
Bókaspæjarinn er bókasafnsglæpasaga úr smiðju Veru Illugadóttur. Þátturinn var gerður sérstaklega fyrir Borgarbókasafnið og tekinn upp í Kompunni, hlaðvarpsstúdíói Borgarbókasafnsins í tilefni af opnun þess.Hljóð og tónlist í þætti Veru er fengin frá Bensound.comViltu taka upp viðtal við langömmu þína? Ræða nýjustu fréttir við besta vin þinn? Taka upp þriggja tíma einræðu um skósmíðar? Kíktu í Kompuna – þar er, merkilegt nokk, pláss fyrir alla. Bókaðu Kompuna með því að senda okkur tölvupóst á hladvarp@borgarbokasafn.is