Bókabræður - Bókaklúbbs hlaðvarp

Follow Bókabræður - Bókaklúbbs hlaðvarp
Share on
Copy link to clipboard

Bókaspjall. Rætt um og farið yfir bækur í ýmsum flokkum. Saga, heimspeki, tækni, heilsa o.fl. Bókabræður skora á alla að lesa komandi bók og taka þátt í lærdómsferli hverrar bókar.

Bókabræður


    • Oct 12, 2022 LATEST EPISODE
    • monthly NEW EPISODES
    • 1h 26m AVG DURATION
    • 30 EPISODES


    Search for episodes from Bókabræður - Bókaklúbbs hlaðvarp with a specific topic:

    Latest episodes from Bókabræður - Bókaklúbbs hlaðvarp

    #030 : Extreme Ownership - Jocko Willink & Leif Babin

    Play Episode Listen Later Oct 12, 2022 66:43


    Extreme Ownership - How U.S. Navy SEALS Lead and Win. Til að vera leiðtogi í þínu lífi þarft þú að taka fullt eignarhald á öllum aðstæðum í þínu lífi - engar afsakanir í boði! Í þessari bók er áralangri reynslu tveggja reyndra liðsforingja úr Navy Seals miðlað á hnitmiðaðan og auðskilinn hátt.  Bókin er bland af ótrúlegum sögum frá stríðinu í Írak og lexíum sem hægt er að nýta í okkar daglega lífi, hvort sem það er í viðskiptum eða hverju öðru teymi sem þú tilheyrir. Mögnuð bók sem allir ættu að kynna sér sem vilja leiða til að sigra!

    #029 : The Four Agreements - Don Miguel Ruiz

    Play Episode Listen Later Sep 22, 2022 72:55


    Stutt og auðlesin bók með skilaboðum sem eiga vel við alla. Höfundurinn miðlar visku ævagamallar menningar Toltec frumbyggja frá Mexíkó og dregur fram fjögur ný samkomulög sem við ættum að gera við sjálf okkur til að verða betri og heilli manneskjur.  Samkvæmt sögu Toltec indíánanna upplifum við lífið eins og að horfa á spegil gegnum reyk, og með aðferðum höfundarins ættum við að geta séð betur gegnum reyk blekkinga og rangra ályktana sem halda aftur af okkur. Með þessum fjórum nýju samkomulögum náum við að þjálfa okkur í að upplifa betri draum um lífið, himnaríki á jörðu.

    #028 : Factfulness - Hans Rosling

    Play Episode Listen Later Apr 13, 2022 77:09


    Tíu ástæður fyrir því að við sjáum heiminn í röngu ljósi. Heimurinn er betri en þú heldur og höfundur sýnir fram á það með tölfræðilegum staðreyndum. Hans Rosling ásamt Ola Rosling og Önnu Rosling Rönnlund telja upp þau atriði sem helst valda því að við sjáum heiminn í oft verra ljósi en hann er.  Þátturinn er tekinn upp í Rabbrýminu, Bókasafni Hafnarfjarðar.

    #027 : The Simple Path to Wealth - JL Collins

    Play Episode Listen Later Mar 23, 2022 64:37


    Your road map to financial independence and a rich, free life. Einfaldur leiðavísir á mannamáli inn í fjármálaheiminn sem allir geta fylgt. Hvar á að fjárfesta, hvers vegna, hvaða áætlun er hagkvæmust og hvaða kostir og gallar eru við hinar ýmsu fjárfestingarleiðir. Þetta og margt fleira byggir höfundurinn á áratuga reynslu í fjármálaheiminum sem honum tekst að miðla á mjög aðgengilegan máta. Hvort sem þú ert með reynslu eða að stíga þín fyrstu skref, þá er þessi bók góður leiðavísir að fjárhagslegu sjálfstæði og hvernig þú getur komið þér upp "F-You Money". Tekið upp í Rabbrýminu, upptökuveri Bókasafns Hafnarfjarðar.

    #026 : Digital Minimalism - Cal Newport

    Play Episode Listen Later Mar 14, 2022 76:19


    Choosing a Focused Life in a Noisy World Erum við að nota tæknina eða er tæknin að nota okkur? Samfélagsmiðlar, netmiðlar, streymisveitur og stöðugt aðgengi að upplýsingum hefur breytt lífsstíl okkar töluvert. En hverjar eru neikvæðu afleiðingarnar? Hvað ættum við að gera? Cal Newport leggur til að takmarka aðgengi okkar að þessum efnisveitum með góðum og gagnlegum ráðum. 

    #025 : Life Force - Tony Robbins, Peter Diamandis & Robert Harari

    Play Episode Listen Later Mar 2, 2022 97:21


    How New Breakthroughs in Precision Medicine Can Transform the Quality of Your Life & Those You Love. Þessi þétta bók fer yfir flest það sem viðkemur því að lifa lengur, sjúkdómalaus og eymslalaus. Tæknin í dag lofar ótrúlegum framförum í læknavísundum sem er farið vel yfir. Læknigar á krabbameini, Alzheimer, hjartasjúkdómum, erfðasjúkdómum, öldrunarsjúkdómum, ræktun líffara og ótal öðru er hratt að ryðjast fram. Þekking er máttur og hér er frábær handbók um undur tækninnar sem allir ættu að geta haft gagn af.

    #024 : AI 2041 - Kai-Fu Lee & Chen Quifan

    Play Episode Listen Later Dec 6, 2021 93:04


    AI 2041 - Ten Visions for Our Future Gervigreind (AI) mun móta þróun 21. aldarinnar. Innan tveggja áratuga mun daglegt líf verða gjörbreytt. Í þessari bók eru settar fram 10 dæmisögur úr framtíðinni með vísindalegum skáldskap og greiningu á þeirri tækni sem er að brjótast fram. Hvað getum við lært? Hvernig getum við undirbúið okkur fyrir allt það góða og slæma sem þessi bylting stefnir í að færa okkur?  

    #023 : Why We Sleep - Matthew Walker

    Play Episode Listen Later Nov 20, 2021 71:15


    Einn mikilvægasti, og oft vanmetnasti hluti góðrar heilsu er án efa svefninn. Matthew Walker, svefn-vísindamaður, tekur fyrir allt sem tengist svefni í þessari mikilvægu bók og opinberar ný vísindi um allt sem tengist svefni og draumum. Mismunandi stig svefns, draumar, ábatar góðs svefns og öll þau lífsstíls vandamál sem slæmar svefn venjur geta haft á heilsu okkar, langlífi, geð og framistöðu.

    #022 - Breath (James Nestor) & The Oxygen Advantage (Patrick McKeown)

    Play Episode Listen Later Oct 25, 2021 71:05


    Hvernig við öndum er eitthvað sem fæstir pæla sérstaklega í þó svo að hún sé það sem heldur okkur á lífi. Hvernig við öndum skiptir miklu máli; hvort við öndum inn um nefið eða munninn, hversu oft við öndum, hve djúpt ofl. Bækurnar tvær, sem ræddar eru í þessum þætti, taka sama viðfangsefni en mismunandi nálgun. Báðar leitast þær við að leiðrétta heilsukvilla sem munnöndun getur ollið og útlista öndunaræfingar, sjálfspróf og aðferðir sem geta hjálpað okkur með allt það sem titill Oxygen Advantage gefur til kynna. Þátturinn er tekinn upp í Rabbrýminu, hlaðvarpsrými Bókasafns Hafnarfjarðar.

    #021 : Talking To Strangers - Malcom Gladwell

    Play Episode Listen Later Sep 10, 2021 62:55


    Í bókinni Talking To Strangers veltir höfundurinn því fyrir sér hvers vegna við eigum það til að misskilja hvort annað í samskiptum okkar. Hvers vegna eigum við það til að trúa þeim sem eru óheiðarlegir? Hvað veldur því að við dæmum fólk ranglega?  Stundum verða afleiðingar þess að við skiljum ekki ókunnuga, eða drögum rangar ályktanir, skelfilegar og að því er virðist ófyrirsjáanlegar. Malcom Gladwell tekur margar dæmisögur úr nútímanum tengt efni bókarinnar og varpar fram kenningum um samhengi umhverfis og aðstæðna (coupling). Þátturinn var tekinn upp í Rabbrýminu, Bókasafni Hafnarfjarðar.

    #020 : So Good They Can't Ignore You - Cal Newport

    Play Episode Listen Later Aug 19, 2021 62:24


    Cal Newport, höfundur bókarinnar, skorar á lesandann til að endurskoða hin algengu meðmæli sem eru að ,,elta ástríðu sína” þegar kemur að starfsferli og kemur með aðra nálgun. Hann heldur því fram að elta ástríðuna sína sé gölluð hugmyndafræði. Ef þú vilt gera það sem þú elskar, þarftu eitthvað sem er sjaldgæft og dýrmætt (career capital) á móti. Góð leið til að ávinna þér starfsframa inneign (carreer capital) er að tileinka sér handverks hugarfar (craftsman mindset) og einsetta æfingu (deliberate practice). Þátturinn er tekinn upp í Rabbrýminu, Bókasafni Hafnarfjarðar

    #019 : The Art of Resilience - Ross Edgley

    Play Episode Listen Later Jul 1, 2021 73:34


    Íþróttafræðingurinn og ævintýra-íþróttamaðurinn Ross Edgley er hér með sína aðra bók. Hann lýsir upplifun sinni af því að synda umhverfis Bretlandseyjar árið 2019 og deilir hugleiðingum sínum á leiðinni ásamt því að fara yfir undirbúningsferlið, heimspekina á bakvið Stoic Sport Science, afrekssögur sem hann byggir sína þekkingu á og aðrar reynslusögur. Þátturinn er tekinn upp í Rabbrýminu, Bókasafni Hafnarfjarðar

    #018 : How To Avoid a Climate Disaster - Bill Gates

    Play Episode Listen Later Jun 11, 2021 65:56


    Hlýnun Jarðar og allt það ójafnvægi sem mengun mannsins hefur valdið á síðustu áratugum er að ná þolmörkum. CO2 útblástur er nú um 51 milljarðar tonna á ári hverju og fer hækkandi. Afhverju? Hvað er hægt að gera? Hvernig? Hvenær? Hvað átt þú að gera í því? Þessum spurningum og fjölda annara reynir Bill Gates, í bók sinni ,,How To Avoid a Climate Disaster", að svara. Þátturinn er tekinn upp í Rabbrýminu, Bókasafni Hafnarfjarðar

    #017 : Beyond Order - Jordan B. Peterson

    Play Episode Listen Later Mar 31, 2021 119:31


    Hér ræðum við nýjustu bók Jordan Peterson, Beyond Order. Bókin er rituð sem mótvægi við hans fyrri bók, 12 Rules For Life - An Antidote for Chaos (sem við ræddum um í þætti #012). Með sína gríðarlega yfirgripsmiklu þekkingu og reynslu af klínískri sálfræði og sagnfræði að baki hefur JP dregið saman 12 nýjar reglur fyrir lífið. Bókin er hugsuð sem leiðarvísir að innihaldsríku og merkingarfullu lífi. Bókin er í góðum samhljómi við hans fyrri 12 reglur en þó með áherslu óreiðuna vs of mikillar reglu. Þátturinn er tekinn upp í Rabbrýminu, hlaðvarps upptökuveri Bókasafns Hafnarfjarðar.

    #016 : Lifespan - David A. Sinclair PhD

    Play Episode Listen Later Mar 1, 2021 105:07


    Er öldrun sjúkdómur sem er hægt að lækna? Er hægt að koma í veg fyrir algenga öldrunarsjúkdóma og lifa lengur við betri heilsu? Samkvæmt því sem David Sinclair heldur fram í bókinni Lifespan er svarið já. Hann heldur því fram að öldrun sé sjúkdómur sem hægt er að lækna og byggir það á rannsóknarvinnu sem hann hefur verið hluti af í 30 ár og fer meðal annars yfir allt um líffræði öldrunar, hvernig má hægja á öldrun og meira að segja snúa öldrun við. David Sinclair er leiðandi í rannsóknum á öldrun og stýrir meðal annars Department of Aging hjá Harvard Medical School og vinnur við genarannsóknir í átta mismunandi fyrirtækjum sem hann hefur stofnað. Hann á 35 einkaleyfi fyrir uppgvötanir sínar. Tekið upp í Rabbrýminu, Bókasafni Hafnarfjarðar.

    #015 : Ábyrgðarkver - Gunnlaugur Jónsson

    Play Episode Listen Later Feb 4, 2021 93:00


    Hvað varð til þess að bankahrunið átti sér stað 2009? Hvaða lærdóm getum við dregið af því og hvernig má koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig? Gunnlaugur Jónsson ávarpar þetta viðfangsefni í bók sinni Ábyrgðarkver sem kom út árið 2012. Bókin er stutt og skorinort. Þetta er ekki bara bók um bankahrunið sjálft heldur þá persónulegu ábyrgð sem hvert og eitt okkar ber að taka í okkar lífi.  Í þættinum ræddum við hugmyndafræði bókarinnar og fórum víða. Fjármál, persónuleg ábyrgð, uppeldi, heimspeki, trú. Þetta er fyrsti þátturinn okkar með höfundaspjalli og erum Gunnlaugi mikið þakklátir fyrir það. Þátturinn er tekinn upp í Rabbrými Bókasafns Hafnarfjarðar.  

    #014 : Never Split The Difference - Chris Voss

    Play Episode Listen Later Jan 19, 2021 91:42


    Samningatækni er eitthvað sem allir hafa gott af að kynna sér. Chris Voss er meðal helstu sérfræðinga á þessu sviði, en hann starfaði um árabil fyrir FBI sem aðal samningamaðurinn í gíslatökum og stórum valdaránum. Reynslu sína hefur hann yfirfært yfir á önnur svið eins og í mannauðsmálum, viðskiptum og persónulegum.  Bókin er aðgengileg, skemmtileg og einstaklega áhugaverð. Við Bókabræður mælum heilshugar með þessari góðu bók. Þátturinn er tekinn upp í Rabbrýminu, sem er upptökuver í Bókasafni Hafnarfjarðar.

    #013 : The Black Swan - Nassim Nicholas Taleb

    Play Episode Listen Later Jan 7, 2021 84:50


    The Black Swan er bók um handahófs lögmálið sem Nassim Taleb kryfur til mergjar. Hugmyndin er að óvæntir atburðir hafi meiri áhrif á líf okkar en við gerum ráð fyrir og er byggð á því að við höfum of mikla trú á svokallaðar staðreyndir. Í þættinum eru kenningar Taleb ræddar og tengdar við viðburði dagsins í dag. Hvað er svarti svanurinn og hvernig berum við kennsl á hann? Hvar eru hugsanavillur okkar? Hvaða blekking felst í tölfræði? Hvernig hefur meðaltalskúrvan (The Gaussian Curve) ruglað sýn okkar á heimssýn, stjórnmál, fjármálageirann og væntingar okkar til framtíðarinnar? Þátturinn er tekinn upp í Rabbrýminu sem er hljóðupptökuver Bókasafns Hafnarfjarðar.

    #012 : 12 Rules for Life - Jordan Peterson

    Play Episode Listen Later Nov 25, 2020 181:45


    Í nýjasta þætti Bókabræðra ræðum við bókina 12 Rules For Life: An Antidote to Chaos (12 Lífsreglur: Mótefni við glundroða) eftir klíníska sálfræðinginn og prófessorinn Jordan B. Peterson. Markmið Peterson með bókinni er að fræða lesandann um þau atriði sem hann telur hvað mikilvægust að hver manneskja viti, til þess að geta lifað ábyrgðarfullu og ánægjulegu lífi sem lágmarkar gremju, reiði og biturð út í annað hvort náungann, lífið sjálft eða jafnvel bæði. Hann leggur þessi atriði fram í 12 mismunandi reglum og dregur innblástur og rök fyrir þeim úr sálfræði, siðfræði, goðafræði, trú, hinum ýmsu sögum, öðrum bókmenntum, sínu eigin lífi og einnig starfi sínu sem klínískur sálfræðingur. Farið er um ansi víðan völl í bókinni, en Peterson tekst vel til að binda saman hinar ýmsu heimildir og sögur til þess að sýna fram á nytsemi reglna sinna, en það er okkar álit að allir geti fundið eitthvað fyrir sinn snúð í þessu riti. Hlustendur eru hvattir til að kynna sér betur efni frá Jordan Peterson á www.jordanpeterson.com Tekið upp í heimahúsi með Audio Technica AT2020 hljóðnemum sem fást í Origo.

    #011 : How To Win Friends and Influence People - Dale Carnegie

    Play Episode Listen Later Nov 5, 2020 118:30


    Hér er tekin fyrir ein allra þekktasta og mest lesna sjálfshjálparbók til þessa. Hún kom út árið 1936 og hefur selst í yfir 30 milljónum eintaka.  Við Bókabræður ræðum þessar 90 ára gömlu (en samt tímalausu) hugmyndir Dale Carnegie um mannleg samskipti, framkomu og áhrif. Þátturinn var tekinn upp gegnum cleanfeed.net. Við biðjumst velvirðingar á hljóðtruflunum og sambandsbresti. Við þökkum svo Hrannari hjá Origo fyrir lánið á Audio Technica AT2020 hljóðnemanum.

    #010 : The Obesity Code - Jason Fung

    Play Episode Listen Later Oct 2, 2020 98:34


    Jason Fung er meðal fremstu sérfræðinga um áunna lífsstílssjúkdóma í heiminum í dag. Hvers vegna fitnum við? Hvers vegna er sykursýki 2 svona útbreidd? Hvað veldur flestum áunnum lífsstílssjúkdómum? Hvaða lausnir eru í boði? Þessum og ótal fleiri spurningum svarar Jason Fung í mjög svo fróðlegri bók, ,,The Obesity Code", sem við rýnum í í þessum þætti.

    #009 : The Happiness Hypothesis - Jonathan Haidt

    Play Episode Listen Later Sep 16, 2020 118:07


    Happiness Hypothesis, eða "Tilgátan um hamingju,, eins og þýðist á íslensku, er yfirgripsmikil bók sem fjallar um hamingju okkar mannanna. Hún veltir upp tildrögum óhamingju okkar og hvað það er sem veitir okkur hamingju og merkingu í lífinu með því að grafa í sögubókunum og yfirfæra kenningarnar í nútímann. Bókin er fróðleg á margan hátt. Höfundurinn ber kennsl á lykilþætti sem við getum veitt meiri athygli til að byggja upp merkingarfyllra, innihaldsríkara og hamingjusamara líf. Þátturinn er tekinn upp í Rabbrýminu í Bókasafni Hafnarfjarðar.

    #008 : Sapiens - Yuval Noah Harari

    Play Episode Listen Later Aug 27, 2020 103:37


    Sapiens - A Brief History of Humankind er bók sem opnar huga lesandans fyrir mannkynssögunni með gagnrýnni og óheflaðari frásögn. Sagnfræðingurinn Yuval Noah Harari rekur uppruna mannskepnunnar frá því að vera “hunter gatherers” fyrir 100.000 árum fram til dagsins í dag þegar tegundin okkar stjórnar örlögum alls lífs á jörðinni. Tekið upp í Rabbrýminu, Bókasafni Hafnarfjarðar

    #007 : Atomic Habits - James Clear

    Play Episode Listen Later Aug 12, 2020 91:58


    Atomic Habits eftir James Clear er leiðandi bók í vanastjórnun. Lífið okkar byggist upp á þeim venjum sem við höfum tamið okkur, meðvitað eða ómeðvitað, sumar góðar en aðrar slæmar. James Clear er talinn einn helsti sérfræðingur í venjum (habits), hann hefur verið með vinsælt blogg og fréttapósta frá 2002 og hefur í gegnum árin fundið mjög einfaldar og skilvirkar leiðir til að fá aðra til að skilja hvernig við byggjum upp góðar venjur og losum okkur við slæmar. Við þræðum gegnum innihald bókarinnar og vörpum okkar sýn á efnið.

    #006 : Range - David Epstein

    Play Episode Listen Later Jun 9, 2020 87:07


    Bókabræður 006 Range er bók sem rannsóknarblaðamaðurinn David Epstein skrifaði um það hvernig einstaklingar með breiða reynslu og þekkingu ná oft lengra en þeir sem hafa þröngsýnni nálgun, eins konar mótsvar við 10.000 tíma reglunni sem hefur oft verið kastað fram. Við ræddum um margt af því sem Epstein tekur fyrir í bókinn og köstuðum inn okkar sýn og reynslu af því sem víðsýni hefur hjálpað okkar. Þátturinn var tekinn upp í Rabbrýminu, sem er hlaðvarps upptökuver í Bókasafni Hafnarfjarðar. Þess má geta að þessi þáttu er sá allra fyrsti sem er tekinn upp í þessari frábæru aðstöðu. 

    #005 : Can't Hurt Me - David Goggins

    Play Episode Listen Later May 29, 2020 101:29


    Bókin Can't Hurt Me eftir David Goggins er bók sem hefur haft mikil áhrif á okkur þáttarstjórnendur. David Goggins er fyrrum Navy SEAL hermaður með ótrúlega afrekaskrá í mörgum af erfiðustu hlaupum heims, á heimsmet í upphífingum og er almennt líklega harðasti maður sem Guð hefur skapað. Bókin er æviágrip þar sem hann fer í gegnum allar þær ótrúlegu hindranir sem hann hefur þurft að yfirstíga, bæði mótlæti og líkamlegar áskoranir. Úr þessu hefur hann dregið lexíur sem hann miðlar í bókinni. Sérstakar þakkir til Sonik Tækni (www.sonik.is) sem útveguðu okkur upptökubúnað meðan öll önnur upptökuver voru lokuð. Sonik er tækjaleiga og ráðgjöf fyrir allt sem tengist hljóð og myndbúnaði.

    #004 : The Power of Now - Eckhart Tolle

    Play Episode Listen Later Apr 18, 2020 81:36


    Hin mjög svo magnaða bók, The Power of Now, eftir Eckhart Tolle hefur verið metsölubók í hinum andlega geira í fjöldamörg ár.  Þetta er eins konar andlegur sjálfshjálpar leiðavísir í samræðuformi. Við ræddum um innihald og skilaboð bókarinnar og okkar hlið á málunum. Sérstakar þakkir til Sonik Tækni (www.sonik.is) sem útveguðu okkur upptökubúnað meðan öll önnur upptökuver voru lokuð. Sonik er tækjaleiga og ráðgjöf fyrir allt sem tengist hljóð og myndbúnaði.

    #003 : How To Be a Stoic - Massimo Pigliucci

    Play Episode Listen Later Apr 4, 2020 68:37


    Stóísk heimspeki rædd og skoðuð með hliðsjón af bókinni How To Be A Stoic eftir Massimo Pigliucci. Bókin er eins konar kynning á þessari tegund heimspeki og byggist að mestu á Discourses eftir Epictetus, sem er oftast nefndur sem einn af þremur helstu forsögulegu heimspekingum sem vitnað er í í stóisisma. Sérstakar þakkir til Sonik Tækni sem lánaði okkur upptökubúnað meðan allt annað er lokað. Einnig til CrossFit Reykjavik fyrir að leyfa okkur að taka upp þennan og síðasta þáttt. Næst verður tekið fyrir bókina The Power of Now eftir Eckhart Tolle. Sú bók ætti að vera fáanleg í flestum bókabúðum en einnig á Kindle og Audible.

    #002 : Man's Search For Meaning - Viktor Frankl

    Play Episode Listen Later Mar 24, 2020 52:35


    Bókin Man's Search For Meaning eftir Viktor Frankl var umræðuefni þessa þáttar.  Hún fjallar um upplifun höfundarins af útrýmingabúðum nasista í seinni heimsstyrjöldinni sem hann lifði af og lógóþerapíu, sem er form sálfræðimeðferða sem hann lagði grunninn að. Man's Search For Meaning - Viktor Frankl Í þættinum förum við yfir nokkur atriði sem okkur fannst standa uppúr í bókinn og reynum að heimfæra þær lexíur sem við drógum úr lestrinum. Umræðan tók svig í kringum bókina og við veltum fyrir okkur hvernig þessi bók á við í dag.  Sérstakar þakkir til CrossFit Reykjavík fyrir að hýsa upptöku þáttarins meðan öll bókasöfn og kaffihús eru í sóttkvíi og Sonik Tækni fyrir að útvega okkur upptökubúnað. Næsta bók: How to Be a Stoic: Using Ancient Philosophy to Live a Modern Life - Massimo Pigliucci Sérstakar þakkir til: Sonik tækni fyrir að lána okkur upptökubúnað CrossFit Reykjavík fyrir að lána okkur aðstöðu til að taka upp

    #001 - Bókabræður

    Play Episode Listen Later Mar 12, 2020 26:41


    Fyrsti þáttur Ómars og Kolbeins um bækur. Umræður og pælingar um lestur bóka. Hugmyndin um hlaðvarp rædd og lagt línurnar að næsta þætti og valið bók til að taka fyrir. Heimspeki, saga, lífsspeki, sjálfshjálp, framtíðarfræði, tækni og almenn. Bók valin sem tekin verður til umræðu í næsta þætti. Tekið upp í Kompunni, hlaðvarps upptökuveri í Borgarbókasafni Reykjavíkur, Grófinni.

    Claim Bókabræður - Bókaklúbbs hlaðvarp

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel