Hlaðvarp Borgarbókasafnsins

Follow Hlaðvarp Borgarbókasafnsins
Share on
Copy link to clipboard

Hlaðvarp Borgarbókasafnsins hóf göngu sína í júní 2017 með þáttaröðinni Um allt land, þar sem starfsfólk safnsins - annálaðir bókaormar - fjalla um safnkost sem tengist hringferð um landið á einn eða annan hátt. Stöðugt bætist í sarpinn - viltu vita meira um bækurnar á leikfjölunum? Hvað er nýtt á…

Borgarbókasafn Reykjavíkur


    • Feb 7, 2022 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 28m AVG DURATION
    • 53 EPISODES


    Search for episodes from Hlaðvarp Borgarbókasafnsins with a specific topic:

    Latest episodes from Hlaðvarp Borgarbókasafnsins

    Fræðakaffi | Að vera biskupsfrú (Hildur Hákonardóttir)

    Play Episode Listen Later Feb 7, 2022 43:57


    Upptaka frá Fræðakaffi í Spönginni, maí 2021. Hildur Hákonardóttir listakona og rithöfundur segir frá rannsóknum sínum á sögu löngu horfinna biskupsfrúa og fyrirkvenna, en árið 2020 kom út bók hennar "Hvað er svona merkilegt við það að vera biskupsfrú?" hjá bókaútgáfunni Sæmundi.Bókin kom út í framhaldi af rannsóknum Hildar á níu biskupsfrúm í Skálholti á árunum 1510-1623. Fáar beinar heimildir eru til um þær sjálfar, en Hildur hefur kafað ofan í texta sem varðveist hafa m.a. um eiginmenn þeirra, feður og syni og fundið þaðr ýmsan fróðleik. Saga kvennanna er dregin fram „úr myrkviði horfinna alda, enda er oftlega fjallað um konur fortíðar nánast eins og um væri að ræða vel þekkta, meinlausa dýrategund sem deilir landinu með körlum.“ (H.H.)

    Sviðsetning sannleikans | Sögustund / Opinn hljóðnemi

    Play Episode Listen Later May 6, 2021 38:54


    Lokakvöld námskeiðsins Sviðsetning sannleikans sem haldið var á vegum Borgarbókasafnsins í Gerðubergi. Þátttakendur flytja sögur á sviði, sögur sem byggja á sannleikanum. Flytjendur: Ásrún Magnúsdóttir, Kara Hergils, Sigurður Arent, Bjargey Ólafsdóttir, Jóhannes Árnason, Eyþór Gylfason.Umsjónarmaður og kynnir: Halla Þórlaug Óskarsdóttir.

    Bergþóra og Bragi Páll | Húslestur - seinni hluti

    Play Episode Listen Later Apr 13, 2021 28:03


    Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Bragi Páll Sigurðarson héldu húslestur í Gerðubergi 20. janúar 2021. Þar lásu þau upp úr eigin textum og annarra sem hafa veitt þeim innblástur í gegnum ferilinn. Þetta er seinni hluti þáttarins, en hér beina þau sjónum að nýjustu bókum sínum sem komu út á árunum 2017-2019 og textum sem veittu þeim innblástur þá. Bækurnar eru Flórída, Austur og Svínshöfuð.

    Bergþóra og Bragi Páll | Húslestur - fyrri hluti

    Play Episode Listen Later Apr 13, 2021 30:18


    Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Bragi Páll Sigurðarson héldu húslestur í Gerðubergi 20. janúar 2021. Þar lásu þau upp úr eigin textum og annarra sem hafa veitt þeim innblástur í gegnum ferilinn. Þetta er fyrri hluti þáttarins, en hér fjalla þau um texta sem þau lásu á námsárum sínum og fyrstu bækur sínar.

    Sannar sögur og skáldaður sannleikur | Auður Jónsdóttir og Pétur Gunnarsson

    Play Episode Listen Later Mar 18, 2021 36:02


    Rithöfundarnir Auður Jónsdóttir og Pétur Gunnarsson ræða við Einar Kára Jóhannsson, bókmenntafræðing og útgefanda, um ævisagnaritun, skáldsögur, sannleika, Halldór Laxness, Rousseau, Proust, falsfréttir og ýmislegt fleira. Upptaka í Borgarbókasafninu í Grófinni í desember 2020. Umsjónarmaður hlaðvarps: Halla Þórlaug Óskarsdóttir.

    Hrekkjavökuganga Borgarbókasafnsins 2020

    Play Episode Listen Later Oct 30, 2020 37:21


    Aðstæður í samfélaginu gera að verkum að ekki er hægt að fagna hrekkjavökunni með hefðbundnum hætti í ár. Borgarbókasafnið býður fjölskyldum því upp á hrekkjavökugaman í formi rafrænnar bókmenntagöngu sem hægt er að fara saman, hvar og hvenær sem er. Sunna Dís Másdóttir les úr skuggalegum, draugalegum, já og stundum hreint út sagt hryllilegum bókum íslenskra barna- og unglingabókahöfunda.Lesið er úr eftirfarandi bókum: Bölvun Múmíunnar eftir Ármann JakobssonDrauga-Dísa eftir Gunnar Theodór EggertssonDúkka eftir Gerði KristnýjuEitthvað illt á leiðinni er, ritstjóri Markús Már Efraím. Höfundar sögunnar: Ronja Björk Bjarnadóttir og Matthea Júlíusdóttir Skóladraugurinn eftir Ingu Mekkín Beck Vetrarfrí eftir Hildi Knútsdóttur

    Sleipnir og stórhættulega fjölskyldutréð - fimmti lestur

    Play Episode Listen Later Apr 27, 2020 32:06


    Ævar Þór Benediktsson les framhaldssöguna Sleipnir og stórhættulega fjölskyldutréð sem hann skrifaði fyrir Bókmenntaborgina Reykjavík. Fimmti og síðasti lestur.

    Sleipnir og stórhættulega fjölskyldutréð - fjórði lestur

    Play Episode Listen Later Apr 26, 2020 17:21


    Ævar Þór Benediktsson les framhaldssöguna Sleipnir og stórhættulega fjölskyldutréð sem hann skrifaði fyrir Bókmenntaborgina Reykjavík. Fjórði lestur af fimm.

    Sleipnir og stórhættulega fjölskyldutréð - þriðji lestur

    Play Episode Listen Later Apr 25, 2020 30:55


    Ævar Þór Benediktsson les framhaldssöguna Sleipnir og stórhættulega fjölskyldutréð sem hann skrifaði fyrir Bókmenntaborgina Reykjavík. Þriðji lestur af fimm.

    Sleipnir og stórhættulega fjölskyldutréð - annar lestur

    Play Episode Listen Later Apr 24, 2020 29:32


    Ævar Þór Benediktsson les framhaldssöguna Sleipnir og stórhættulega fjölskyldutréð sem hann skrifaði fyrir Bókmenntaborgina Reykjavík. Annar lestur af fimm.

    Sleipnir og stórhættulega fjölskyldutréð - fyrsti lestur

    Play Episode Listen Later Apr 23, 2020 9:44


    Ævar Þór Benediktsson les framhaldssöguna Sleipnir og stórhættulega fjölskyldutréð sem hann skrifaði fyrir Bókmenntaborgina Reykjavík. Fyrsti lestur af fimm.

    Skrimslavarpid

    Play Episode Listen Later Nov 5, 2019 22:38


    Í tilefni Hrekkjavöku hertu starfsmenn Borgarbókasafnsins upp hugann og ræddu helstu skrímsli hryllingsbókmenntar, allt frá Dracula og skrímsli Frankensteins til Pennywise Stephens Kings - með viðkomu hjá Greppikló og Litla og stóra skrímslinu.

    Hryllingshlaðvarpið

    Play Episode Listen Later Oct 25, 2019 22:20


    Björn Unnar, Jóhannes, Maríanna Clara og Vala eru að komast í Hrekkjavökugírinn og spjalla um hrylling í ýmsu formi.

    Bókstaflegir titlar!

    Play Episode Listen Later Oct 4, 2019 18:51


    Maríanna Clara og Björn Unnar rýna í „bókstaflega titla" - þar sem fólk lýsir bók án þess að nota nafnið - og giska á hvaða bók er talað um. Spyrill þáttarins er Esther.

    Byggt á bók

    Play Episode Listen Later Sep 27, 2019 27:18


    Maríanna Clara, Björn Unnar, Ólöf og Ingi spjalla um myndir og þætti sem byggja á skáldsögum.

    Kvikmyndatónlistarspurningaleikurinn!

    Play Episode Listen Later Sep 19, 2019 18:44


    Í tilefni þess að Hildur Guðnadóttir vann Emmy verðlaunin fyrir tónlist sína í þáttunum Chernobyl tók Esther þá Inga og Jóhannes í örstuttan kvikmyndatónlistarspurningaleik. Esther spilaði stutt brot úr hinum ýmsu kvikmynda- og þáttatónlistarverkum og Ingi og Jóhannes giskuðu á höfund og þátt/kvikmynd.

    Skólabækur og fingrasetning

    Play Episode Listen Later Sep 13, 2019 19:14


    Jóhannes Árnason, Maríanna Clara Lúthersdóttir og Vala Björg Valsdóttir ræða um bækurnar sem framhaldsskólanemum er gert að lesa. Leslistarnir eru að einhverju leyti fjölbreyttir, eins og reynsla þáttastjórnenda. Á meðan þau yngri gerðu stuttmyndir byggðar á Galdra-Lofti lærði fulltrúi eldri kynslóða á ritvél.

    Hvað lásum við í sumar?

    Play Episode Listen Later Sep 7, 2019 19:10


    Guðrún Baldvinsdóttir, Maríanna Clara Lúthersdóttir og Vala Björg Valsdóttir hittust í Kompunni og ræddu hvaða bækur þær lásu í sumarfríinu, en einnig um rósaræktun, vatnsræktun og sjálfsrækt(un). 

    Bækur að kvikmyndum

    Play Episode Listen Later Jun 22, 2019 24:57


    Ingi, Björn Unnar og Jóhannes skeggræða (að Inga utantöldum) hvaða bækur væri gaman að gera að bíómyndum!

    Giskaðu á bókina

    Play Episode Listen Later Jun 15, 2019 14:10


    Ingi spurði Guttorm og Esther spjörunum úr um daginn þegar Stjörnustríðið var tekið fyrir í hlaðvarpinu. Í þættinum í dag nær Esther fram hefndum þegar hún lætur Inga og Björn Unnar giska á bókatitla út frá aðeins sex orðum!

    Sumarlestrarbækur Sunnu!

    Play Episode Listen Later Jun 8, 2019 22:07


    Hvað myndi Sylvía Nótt, Ali G eða Amy Schumer lesa í sumar? Hvað myndum við lesa í sumar? Hvað munt þú lesa í sumar? Getur þú yfir höfuð lesið yfir sumarið?Við svörum (næstum því) öllum þessum spurningum í nýjasta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins!

    Ævisögulegir titlar Guttorms

    Play Episode Listen Later May 31, 2019 16:25


    994 titlar eru ræddir í þaula í nýjasta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins. Sunna Dís, Guttormur og Guðrún ræða gamlan föstudagsfésbókarpóst þar sem fólk gat fengið titilinn á óútgefna ævisögu sína út frá upphafstöfum nafn síns!

    Skylduáhorf í skóla lífsins

    Play Episode Listen Later May 17, 2019 18:40


    Hvað eiga Amélie de Poulain, Trainspotting og Michael Mann sameiginlegt? Sunna, Jóhannes og Björn Unnar spjalla um svörin sem bárust á Facebook þegar við spurðum fylgjendur okkar hvaða kvikmynd ætti að vera skylduáhorf fyrir alla. Þráðinn má finna hér: http://bit.do/eSDvb

    Síðbúinn fermingagjafaþáttur

    Play Episode Listen Later May 10, 2019 15:10


    Björn, Jóhannes og Guðrún ræða hvaða bækur má gefa fermingarbörnum og komast að misgáfulegum niðurstöðum!

    Alþjóðlegi Star Wars dagurinn - May(hew) the fourth be with you!

    Play Episode Listen Later May 3, 2019 30:26


    Flest erum við nú farin að tengja 4. maí við einn frægasta vísindaskáldskap heims, Star Wars. Í tilefni af þessum merkisdegi ákváðu Esther, Guttormur og Ingi að setjast niður í Kompuna og spjalla um Star Wars í bland við föstudagsstuðið þar sem fylgendur okkur á Facebook voru spurðir út í þær vísindaskáldsögubækur og -bíómyndir sem væru í uppáhaldi hjá þeim. Þátturinn var tekinn upp 2. maí en daginn eftir bárust fregnir af andláti leikarans Peter Mayhew sem var hvað helst þekktur fyrir túlkun sína á Chewbacca, eina ástsælustu persónu kvikmyndaseríunnar. Því var tekinn upp formáli á þáttinn og hann tileinkaður Mayhew.

    Bókmenntahátíð í Reykjavík

    Play Episode Listen Later Apr 27, 2019 30:31


    Sunna Dís og Guðrún Baldvins rétt fara yfir dagskrá Bókmenntahátíðar í Reykjavík í einum lengsta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins!

    Hefðalaust páskafrí

    Play Episode Listen Later Apr 16, 2019 20:59


    Við spurðum Fésbókarvini hver leiðarendinn væri ef þeim áskotnaðist flugmiði um páskana til bókarinnar sem þeir væru að lesa þessa stundina. Áfangastaðirnir voru af misjöfnum toga, sumir voru ansi heppnir en aðrir síður. Þau Sunna Dís, Guðrún Baldvins og Jóhannes á Borgarbókasafninu ræddu þessi ímynduðu ferðalög og svo að sjálfsögðu hvað yrði lesið og horft á í páskafríinu.

    Atvinnutækifæri í barnabókum

    Play Episode Listen Later Apr 12, 2019 14:02


    Föstudagsstuðsumræðan að þessu sinni er afar barnabókavæn í tilefni af Barnamenningarhátíð. Fyrst var spurt hvaða barnabók væri í uppáhaldi hjá fylgjendum Borgarbókasafnsins á Facebook og því næst áttu svarendur að velja sér starfstitil í bókinni. Skemmtilegar umræður spunnust út frá stuðinu svo þær Guðrún Baldvins, Þorbjörg Karls og Esther Þorvalds ræddu og grínuðust hressilega í þessum dulitla hlaðvarpsþætti.

    Eftirminnilegasta setningin!

    Play Episode Listen Later Apr 5, 2019 12:53


    Esther, Tobba og Droplaug ræða eftirminnilegar setningar úr íslenskum bókum og orðagrín á splunkunýjum pokum Borgarbókasafnsins í nýjasta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins!

    Bækur sem fá tárin til að renna

    Play Episode Listen Later Mar 28, 2019 19:28


    Í nýjasta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins áttu Esther, Guðrún og Ingi saman sorgarstund í Kompunni þegar þau ræddu föstudagsfjörs spurninguna; Hvaða bækur fá tárin til að renna?

    Smáskilaboðaforeldrahandbókin

    Play Episode Listen Later Mar 22, 2019 15:43


    Í nýjasta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins ræða Guðrún, Esther og Jóhannes svör við föstudagsfjörinu á facebook síðu safnsins þar sem spurt var; „Síðustu skilaboð sem þú sendir foreldri þínu eða barni eru titillinn á foreldrahandbókinni sem þú ert að skrifa. Hvað heitir hún?".

    Eyðieyjugögnin

    Play Episode Listen Later Mar 8, 2019 17:23


    Alræmda eyðieyjan var til umræðu á Facebook síðu borgarbókasafnsins um daginn þegar við spurðum fólk hinnar erfiðu spurningar; Ef þú mættir bara taka með þér eina bók, vínyl eða bíómynd á eyðieyju, hvað yrði fyrir valinu?Sérstakir eyðieyju sérfræðingar bókasafnsins, Guðrún, Jóhannes og Ingi ræddu þetta mál og svör fólks í þaula - ásamt því að velja sín persónulegu eyðieyjugögn - í nýjasta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins!

    Bíómyndaþýðingar

    Play Episode Listen Later Feb 22, 2019 11:31


    Veturinn er mikill hámhorfstími hjá Íslendingum. Við spurðum ykkur fyrir nokkru hvort þið væruð nokkuð orðin samgróin sjónvarpssófanum. Erlendar bíómyndir hafa margar fengið hreint dásamlega íslenska titla í þýðingu, og þeir eru ágætis skemmtun svona einir og sér. Fylgjendur Borgarbókasafnsins á Facebook höfðu margt til málanna að leggja og í nýjasta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins ræða þau Esther, Ingi og Jóhannes um nokkrar skemmtilegar hugmyndir sem fæddust í spjallþræðinum!

    Bókaspjall - Janúarbækur

    Play Episode Listen Later Jan 30, 2019 18:21


    Hafið þið ekki öll lesið einhverja bók sem þið lokið með bros á vör, sól í hjarta, syngjandi englakór og endurnýjaðri trú á mannkynið? Við teljum það siðferðislega skyldu okkar á þessum tíma ársins að létta borgarbúum lund – og fengum þar góða aðstoð fylgjenda okkar á Facebook! Hér setjast þau Ingi, Esther og Guðrún og spjalla um svörin sem bárust í föstudagsstuði Borgarbókasafnsins þann 4. janúar 2019. Spurt var: Hvaða bók myndir þú ávísa til þess að létta lund og bæta geð?

    Jóladagatal 2018 - Sögur af Zetu: Ullarsokkar í jólasnjó - Allir þættirnir

    Play Episode Listen Later Dec 24, 2018 59:17


    Velkomin í Jóladagatal Borgarbókasafnsins 2018!Á hverjum degi til jóla opnast nýr gluggi með spennandi kafla í jólasögu Evu Rúnar Þorgeirsdóttur um bókaveruna Zetu og vini hennar. Myndskreytt af Ninnu Þórarinsdóttur. Lesið hér: https://bit.ly/2Q8Yyhz Lestur: Eva Rún ÞorgeirsdóttirUpptaka: Ingi Þórisson

    Björgunarhringurinn: Sögur úr bókaflóði 1. hluti

    Play Episode Listen Later Nov 8, 2018 24:55


    Bókaflóðið er að skella á okkur en það er engin ástæða til að örvænta - Björgunarhringurinn er innan seilingar! Guðrún Baldvinsdóttir og Sunna Dís Másdóttir fara hratt yfir sögu og gera flóðbókum og öðrum bókum skil í Hlaðvarpi Borgarbókasafnsins. Í fyrsta þætti er fjallað um: Sálumessa e. Gerði KristnýjuMúmínálfarnir (Litlu álfarnir og flóðið mikla; Halastjarnan; Pípuhattur galdrakarlsins) e. Tove JanssonOrlando e. Virginíu WoolfHeimför e. Yaa Gyasiog sömuleiðis minnst á: Ör e. Auði Övu Ólafsdóttur Begynnelser e. Carl Frode Tiller (til á bókasafni Norræna hússins) Jeg har ennå ikke sett verden e. Roskva Koritzinsky (til á bókasafni Norræna hússins) Velsignelser e. Caroline Albertine Minor (til á bókasafni Norræna hússins)

    Sumarlesturinn - 4. þáttur: Af uppistandi, hundshjörtum og Gljúfrasteini

    Play Episode Listen Later Oct 9, 2018 42:35


    Í fjórða og síðasta þætti Sumarlestursins (því við erum með sól í hjarta þótt það sé löngu komið haust!) bregðum við okkur til Írlands, höldum upp í Mosfellsdal og höfum svo langa viðkomu í Rússlandi. Þau Guðrún Baldvinsdóttir, Guttormur Þorsteinsson og Ólöf Sverrisdóttir spjalla um eftirtaldar bækur: Okkar á milli – Sally Rooney Hundshjarta – Mikhaíl Búlgakov Eftir að þú fórst – Jojo MoyesFyrir fallið – Noah Hawley We – Jevgeníj Ívanovítsj ZamjatínElsku Drauma mín – Sigríður Halldórsdóttir og Vigdís GrímsdóttirEnn fremur er talað um: Meistarinn og Margaríta – Mikhaíl Búlgakov Ég fremur en þú – Jojo Moyes

    Plötuspjallið

    Play Episode Listen Later Sep 6, 2018 33:58


    Starfsfólk Borgarbókasafnsins skrafar um vínyl - allt frá Samaris til World Narcosis. Í þættinum koma fram þau Esther Þorvaldsdóttir, Ingi Þórisson og Ingvi Þór Kormáksson. Eftirfarandi plötur eru til umræðu: Mixtúrur úr MósebókÁsgeir Trausti - Here it comesSamaris - SilkidrangarEik - Hríslan og straumurinnWorld Narcosis - World CodaDrýsill - Welcome to the showHljóðmaður: Ingi ÞórissonGóða hlustun!

    Bókabíllinn Höfðingi

    Play Episode Listen Later Aug 17, 2018 19:08


    Bókabíllinn Höfðingi hefur ekið um götur borgarinnar síðan árið 1969 og Bjarni Björnsson bókabílstjóri hefur keyrt hann frá upphafi. Guttormur Þorsteinson bókavörður fékk hann til að ljóstra upp leyndarmálum bílsins áður en hann sest í helgan stein.

    Sumarlesturinn - 3. þáttur: Sögumenn, krúnuleikar og hvíta tjaldið

    Play Episode Listen Later Jul 25, 2018 58:49


    Í þriðja þætti Sumarlestursins 2018 eru þau Sunna Björk Þórarinsdóttir, Jón Páll Ásgeirsson og Esther Ýr Þorvaldsdóttir stödd í Englandi, N-Ameríku, Mexíkó og Frakklandi.Sunna þykist hafa fundið fyrirmyndirnar af hinum ýmsu persónum úr A Game of Thrones í sagnfræðibókum um hin svokölluðu Rósastríð, Jón Páll skoðar óáreiðanlega sögumenn í Síle og Frakklandi og Esther skoðar bækur sem seinna hafa orðið að sjónvarpsþáttum og leikritum. Bækurnar sem eru til umræðu í þættinum:Lancaster and York eftir Alison WeirRichard III eftir Paul Murray KendallThe Wars of the Roses eftir John Ashdown-HillVerndargripur eftir Roberto BolanoSvo þú villist ekki í hverfinu hérna eftir Patrick ModianoSaga þernunnar eftir Margaret Atwood (þættirnir The Handmaid's Tale í framleiðslu Hulu, rafbók á íslensku á Rafbókasafninu: https://rafbokasafnid.overdrive.com/media/3864411 ) 13 Reasons Why eftir Jay Asher (þættirnir 13 Reasons Why í framleiðslu Netflix, hljóðbók á ensku á Rafbókasafninu: https://rafbokasafnid.overdrive.com/media/138814 )The Wonderful Wizard of Oz eftir L. Frank Baum (leiksýningin Galdrakarlinn í Oz í uppsetningu Leikhópsins Lottu, rafbók á ensku á Rafbókasafninu: ttps://rafbokasafnid.overdrive.com/media/785174 )Hljóðmaður: Ingi ÞórissonGóða hlustun og góðan lestur!

    Sumarlesturinn - 2. þáttur: Af anarkíu, bakaríum og fótbolta

    Play Episode Listen Later Jul 11, 2018 62:33


    Í hlaðvarpi Borgarbókasafnsins skrafar starfsfólk safnsins um sínar hjartans bækur. Í öðrum þætti Sumarlestursins 2018 höfum við viðkomu á anarkísku tungli, í Plymouth og á fótboltavellinum. Þau Guttormur Þorsteinsson, Ólöf Sverrisdóttir og Sunna Dís Másdóttir spjalla um eftirfarandi bækur: Ancilliary þríleikurinn eftir Ann Leckie The Dispossessed eftir Ursulu Le GuinUnfinished Tales eftir Tolkien Litla bakaríið við Strandgötuna eftir Jenny ColganSlepptu mér aldrei eftir Kazuo IshiguroSummerhill-skólinn eftir A.S. NeillMálavextir eftir Kate AtkinsonCall Me By Your Name eftir André AcimanFótboltasögur (tala saman strákar) eftir Elísabetu JökulsdótturHljóðmaður: Ingi ÞórissonGóða hlustun og góðan sumarlestur!

    Sumarlesturinn - 1. þáttur: Um Ítalíu, kvenhetjur og kirkjugarða

    Play Episode Listen Later Jun 27, 2018 45:50


    Í hlaðvarpi Borgarbókasafnsins skrafar starfsfólk safnsins um sínar hjartans bækur. Í fyrsta þætti Sumarlestursins 2018 komum við við á Ítalíu, í aldagömlum kirkjugarði og í blokk í Vesturbænum. Þau Björn Unnar Valsson, Guðrún Baldvinsdóttir og Hildur Baldursdóttir ræða um eftirfarandi bækur: Dagar höfnunar eftir Elenu FerranteEf að vetrarnóttu ferðalangur eftir Italo CalvinoMálverkið eftir Ólaf Jóhann Ólafsson Lincoln in the Bardo eftir George Saunders Blood Meridian eftir Cormac McCarthyThe Last Ringbearer eftir Kirill Eskov Lífsnautnin frjóa eftir Anne B. RagdeKapítóla eftir E.D.E.N. SouthworthEddubækurnar eftir Jónínu Leósdóttur: Konan í blokkinni, Stúlkan sem enginn saknaði og Óvelkomni maðurinn The Last Ringbearer má nálgast á pdf formi hér: https://bit.ly/2Krsajz Hljóðmaður: Ingi ÞórissonGóða hlustun og góðan sumarlestur!

    Bókaspæjarinn - bókasafnsglæpasaga úr smiðju Veru Illugadóttur

    Play Episode Listen Later May 22, 2018 14:53


    Bókaspæjarinn er bókasafnsglæpasaga úr smiðju Veru Illugadóttur. Þátturinn var gerður sérstaklega fyrir Borgarbókasafnið og tekinn upp í Kompunni, hlaðvarpsstúdíói Borgarbókasafnsins í tilefni af opnun þess.Hljóð og tónlist í þætti Veru er fengin frá Bensound.comViltu taka upp viðtal við langömmu þína? Ræða nýjustu fréttir við besta vin þinn? Taka upp þriggja tíma einræðu um skósmíðar? Kíktu í Kompuna – þar er, merkilegt nokk, pláss fyrir alla. Bókaðu Kompuna með því að senda okkur tölvupóst á hladvarp@borgarbokasafn.is

    Jólabarnabókaspjallið - Þáttur 3

    Play Episode Listen Later Feb 23, 2018 25:44


    Við fengum tvo lestrarhesta til viðbótar í heimsókn í hlaðvarpið um daginn og Sunna spjallaði við þær um bækurnar sem þær völdu sér fyrir jól. Við röbbum líka um jólagjafabækur, laumulestur á kvöldin og dagbækur. Tobba, verkefnastjóri barnastarfs, leit líka í heimsókn og spjallaði um bækur skrifaðar í dagbókarstíl, Önnu Frank og krúsípúsí fuglasteikur, meðal annars. Í þættinum koma fram:Lilja Karen SigurðardóttirRagnheiður Eyja ÓlafsdóttirSunna Dís MásdóttirÞorbjörg KarlsdóttirSpjallað er um eftirfarandi bækur:Kvöldsögur fyrir uppreisnagjarnar stelpur e. Elenu Favilli og Francescu CavalloDagbók Kidda klaufa: furðulegt ferðalag e. Jeff Kinney Dagbók drápskattar e. Önnu FineDagbók Ólafíu Arndísar e. Kristjönu FriðbjörnsdótturÁ puttanum með pabba e. Kolbrúnu Önnu BjörnsdótturDagbók prinsessu e. Meg CabotÉg sakna þín e. Peter Pohl og Kinnu Gieth Peð á plánetunni Jörð e. Olgu Guðrúnu ÁrnadótturDoddi - Bók sannleikans! e. Þórdísi Gísladóttur og Hildi Knútsdóttur Hljóðmaður: Ingi Þórisson

    Jólabarnabókaspjallið - Þáttur 2

    Play Episode Listen Later Dec 14, 2017 37:57


    Bíðið þið jafn spennt eftir Bókatíðindum og við? Merkið þið við bækurnar sem þið viljið helst finna í pökkunum undir trénu? Eða eruð þið að velta því fyrir ykkur hvaða bók þið ættuð að gefa krökkunum í kringum ykkur?Í Jólabarnabókaspjallinu heyrum við beint frá lestrarhestum á aldrinum 8-11 ára sem hafa tekið að sér að lesa jólabækurnar fyrir Borgarbókasafnið, sem og barnabókavörðum safnsins.Í þættinum koma fram:Axel Daðason, 5. bekk í AusturbæjarskólaHannes Þórður Hafstein, 3. bekk í AusturbæjarskólaSunna Dís MásdóttirÓlöf SverrisdóttirIngibjörg Ösp ÓttarsdóttirSpjallað er um eftirfarandi bækur:Getur Doktor Proktor bjargað jólunum? eftir Jo Nesbø Henri hittir í mark eftir Þorgrím ÞráinssonAmma óþekka - Klandur á Klambratúni eftir Jenný Kolsöe, Bergrún Íris Sævarsdóttir myndskreytir Vertu ósýnilegur - Flóttasaga Ishmaels eftir Kristínu Helgu GunnarsdótturMuggur, saga af strák eftir Elfar Loga Hannesson og Marsibil G. KristjánsdótturFjölskyldan mín eftir Ástu Rún Valgerðardóttur og Láru GarðarsdótturGulbrandur Snati og nammisjúku njósnararnir eftir Brynhildi Þórarinsdóttur, Bergrún Íris Sævarsdóttir myndskreytirÁfram Sigurfljóð eftir Sigrúnu Eldjárn.Hljóðmaður: Ingi Þórisson

    Jólabarnabókaspjallið - Þáttur 1

    Play Episode Listen Later Dec 7, 2017 28:09


    Bíðið þið jafn spennt eftir Bókatíðindum og við? Merkið þið við bækurnar sem þið viljið helst finna í pökkunum undir trénu? Eða eruð þið að velta því fyrir ykkur hvaða bók þið ættuð að gefa krökkunum í kringum ykkur? Í Jólabarnabókaspjallinu heyrum við beint frá lestrarhestum á aldrinum 8-11 ára sem hafa tekið að sér að lesa jólabækurnar fyrir Borgarbókasafnið, sem og barnabókavörðum safnsins. Í þættinum koma fram:Dagur ThorsHögni HalldórssonSteinunn Margrét HerbertsdóttirHrafnhildur OddgeirsdóttirSunna Dís MásdóttirGuðrún BaldvinsdóttirRut RagnarsdóttirSpjallað er um eftirfarandi bækur:Þitt eigið ævintýri eftir Ævar Þór BenediktssonAmma Best eftir Gunnar HelgasonEr ekki allt í lagi með þig eftir Elísu Jóhannsdóttur Galdra-Dísa eftir Gunnar Theodór EggertssonLitla skrímslið og Stóra skrímslið - Skrímsli í vanda eftir Áslaugu Jónsdóttur, Rakel Helmsdal og Kalle GüettlerÉg lærði ekki heima af því að... eftir Davide Cali og Benjamin ChaudMig langar svo í krakkakjöt eftir Sylviane Donnio og Dorothée de MonfreidHljóðmaður: Ingi Þórisson

    Bókmenntir augnabliksins - Tjarnarbíó

    Play Episode Listen Later Dec 2, 2017 29:30


    Þáttur um leikverk í Tjarnarbíói í haust. Rætt er við Ragnheiði Hörpu um brúðu- og barnaleiksýninguna Íó.Fram komaÓlöf Sverrisdóttir, Björn Unnar Valsson og Ragnheiður Harpa.Hljóðmaður: Ingi Þórisson

    Bókmenntir augnabliksins - Borgarleikhúsið.

    Play Episode Listen Later Nov 9, 2017 37:29


    Í þessum þætti er fjallað um leikrit Borgarleikhússins þetta leikárið og Medea eftir Evripídes sérstaklega tekin fyrir.Rætt er við leikstjóra Medeu, Hörpu Arnardóttur.Í þættinum koma fram: Björn Unnar Valsson, Ólöf Sverrisdóttir og Harpa ArnardóttirHljóðmaður: Ingi Þórisson

    Bókmenntir augnabliksins - Þjóðleikhúsið.

    Play Episode Listen Later Oct 19, 2017 25:39


    Í Þættinum koma framÓlöf Sverrisdóttir og Ragnar Bragason.Lauslega er fjallað um eitthvað af leikritum Þjóðleikhússins leikárið 2017 – 18en ýtarlegri umfjöllun fær leikritið Risaeðlurnar og viðtal tekið við Ragnar Bragason, höfund og leikstjóra verksins.Spilað er örlítið brot úr Risaeðlunum.Hljóðmaður: Ingi Þórisson

    Lestur er vestur, Vesturland

    Play Episode Listen Later Jun 21, 2017 63:28


    Í þættinum Lestur er vestur koma fram: Björn Unnar Valsson, verkefnastjóriSunna Dís Másdóttir, verkefnastjóriÞórður Sævar Jónsson, bókavörður og húsvörðurSpjallað er um eftirfarandi bækur:Svartfugl eftir Gunnar GunnarssonÉg man þig eftir Yrsu SigurðardótturGerpla eftir Halldór LaxnessIllska eftir Eirík Örn NorðdahlHeimska eftir Eirík Örn NorðdahlFiðrildi, mynta og Spörfuglar Lesbíu eftir Magnús SigurðssonÞorpið eftir Jón úr VörLjóðasafn Steins SteinarrHögni vitasveinn eftir Óskar AðalsteinGóða ferð og góða hlustun!Hljóðmaður: Ingi Þórisson

    Út og Suður - Suðurland

    Play Episode Listen Later Jun 21, 2017 45:20


    Í þættinum Út og Suður koma fram: Björn Unnar Valsson, verkefnastjóriIngibjörg Ösp Óttarsdóttir, deildarbókavörður Ólöf Sverrisdóttir, verkefnastjóriSunna Dís Másdóttir, verkefnastjóriSpjallað er um eftirfarandi bækur: Blátt blóð: Í leit að kátu sæði eftir Oddnýju Eir ÆvarsdótturSkegg Raspútíns eftir Guðrúnu Evu MínervudótturGuð hins smáa eftir Arundhati RoyVetrarhörkur eftir Hildi KnútsdótturGaldrastafir og græn augu eftir Önnu Heiðu PálsdótturOrmhildarsaga eftir Þórey Mjallhvíti H. ÓmarsdótturEineygði kötturinn kisi og hnakkarnir eftir Hugleik DagssonGóða ferð og góða hlustun!Hljóðmaður: Ingi Þórisson

    Claim Hlaðvarp Borgarbókasafnsins

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel