Föngum viðskiptavini saman [Key of Marketing]

Follow Föngum viðskiptavini saman [Key of Marketing]
Share on
Copy link to clipboard

Auglýsingastofan Key of Marketing heldur úti hlaðvarpinu Föngum viðskiptavini saman. Spjallað verður við skemmtilegt fólk í markaðsgeiranum þar sem verður farið yfir nýjar fréttir, sögur og hvað er sniðugt að gera.

Key of Marketing


    • Apr 14, 2022 LATEST EPISODE
    • monthly NEW EPISODES
    • 40m AVG DURATION
    • 9 EPISODES


    Search for episodes from Föngum viðskiptavini saman [Key of Marketing] with a specific topic:

    Latest episodes from Föngum viðskiptavini saman [Key of Marketing]

    #9 Stafrænt Ísland - Vigdís Jóhannsdóttir

    Play Episode Listen Later Apr 14, 2022 48:51


    Vigdís segir okkur frá starfsemi hjá Stafrænu Íslandi Vigdís Jóhannsdóttir er markaðsstjóri hjá Stafrænu Íslandi, stjórnarformaður Hannesarholts, formaður handknattleiksdeildar Víkings og í stjórn FKA eða Félag kvenna í atvinnulífinu. Áður starfaði hún hjá auglýsingastofunni Pipar, 365 miðlum og var kosningastjóri Höllu Tómasdóttur í forsetakosningunum árið 2016. - Key of Marketing

    #8 Nökkvi Fjalar

    Play Episode Listen Later Jan 26, 2022 40:00


    Tony Robbins Íslands, hann hann Nökkvi Fjalar Orrason kom til okkar í hlaðvarpið Föngum viðskiptavini saman. Nökkvi hefur verið í sviðsljósinu á Íslandi fyrir hitt og þetta, á ferlinum hefur stefnan verið að hjálpa fólki að vera besta útgáfan af sjálfu sér. Í dag rekur hann Swipe sem er áhrifavalda umboðsskrifstofa sem leggur áherslu á TikTok. Nökkvi segir okkur frá ferlinum, 12:00, Áttunni, leikaraferlinum, áhrifavaldamarkaðssetningu, Swipe og hvernig Nökkvi Fjalar brandið varð Nökkvi Fjalar brandið. - Key of Marketing

    #7 1819 Torgið - Föngum viðskiptavini saman

    Play Episode Listen Later Dec 19, 2021 62:10


    Við fengum Stefán Atla markaðsfulltrúa og Franz Gunnarsson sviðsstjóra hjá 1819 Torginu í heimsókn. Torgið er ný eining innan 1819 sem hefur verið í þróun síðustu 2 ár. Þeir segja okkur nánar frá því en Torgið er nýr viðskiptavettvangur þar sem þú færð allt sem þig vantar á besta verðinu. Þú getur náð þér í appið strax í dag Við fórum svo aðeins út fyrir efnið og töluðum um Metaverse, NFT og mögulega framtíð samfélagsmiðla. - Key of Marketing

    Föngum viðskiptavini saman – 6. þáttur – Gísli Þorsteinsson

    Play Episode Listen Later Nov 16, 2021 58:57


    Föngum viðskiptavini saman – 6. þáttur – Gísli Þorsteinsson Í þætti 6 af „Föngum viðskiptavini saman” fengum við hann Gísla Þorsteinsson til okkar, markaðsstjóra Gæðabakstur / Ömmubakstur. Gísli á farsælan feril að baki og starfaði m.a. í fleiri ár hjá Origo sem markaðsstjóri. Í þættinum segir hann okkur t.d. frá endurmörkun Nýherja sem við þekkjum í dag sem Origo ásamt fullt af góðum bransasögum og kemur inn á gagnleg ráð þegar kemur að markaðssetningu. - Key of Marketing

    Föngum viðskiptavini saman – 5. þáttur – Ósk Heiða

    Play Episode Listen Later Sep 30, 2021 34:54


    Í þætti 5 af „Föngum viðskiptavini saman” fengum við hana Ósk Heiðu Sveinsdóttur til okkar, for­stöðumann þjón­ustu og markaða hjá Póst­in­um. Ósk er forvitin, orkumikil og hugmyndarík, í þættinum segir hún okkur frá leyndarmálinu sínu á bakvið að koma öllum þessum hugmyndum áfram og í framkvæmd. Hún hefur yfirgripsmikla reynslu af sölu og markaðsmálum meðal annars úr hátækni, ferðaþjónustu og smásölu. Ósk Heiða er með MSc gráðu í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands og BSc í alþjóðamarkaðsfræði frá Tækniháskóla Íslands. - Key of Marketing

    Föngum viðskiptavini saman – 4. þáttur – Óli Jóns

    Play Episode Listen Later Aug 19, 2021 50:06


    Í þætti 4 af „Föngum viðskiptavini saman” fengum við hann Ólaf Jónsson til okkar, sérfræðing í stafrænni markaðssetningu. Óli Jóns eins og hann er kallaður er einstaklega skemmtilegur gestur í hlaðvarpið og þekkir það vel, enda heldur hann sjálfur úti hlaðvarpsþáttum sem snúast um markaðsmál. Hann starfar í dag sem markaðsráðgjafi hjá Jons.is og er í hlutastarfi hjá Birtingahúsinu. Óli Jóns á afar farsælan feril að baki, hann hefur verið lykilmaður í markaðsstarfi hjá þekktum fyrirtækjum í mismunandi geirum, unnið sjálfstætt og í stærri teymum. Í þættinum segir Óli frá því hvernig hann fór frá því að vera bílstjóri hjá Íslenska Gámafélaginu yfir í að vera eftirsóttur markaðsráðgjafi á Íslandi. - Key of Marketing

    Föngum viðskiptavini saman - 3. þáttur - Elfa Ragnarsdóttir

    Play Episode Listen Later Aug 5, 2021 19:16


    Í þætti 3 af „Föngum viðskiptavini saman" fengum við hana Elfu Ragnarsdóttur til okkar. Elfa tekur þátt í uppbyggingu á nýrri bókunarsíðu fyrir ferðaiðnaðinn sem sölustjóri Ferðaeyjunnar. Í þættinum förum við yfir hugmyndina á bakvið Ferðaeyjuna, hvernig þau sinna kynningarmálum og fáum innsýn inn í frumkvöðlastarfið. - Key of Marketing

    Föngum viðskiptavini saman - 2. þáttur - Anna Bára Teitsdóttir

    Play Episode Listen Later Jun 30, 2021 34:03


    Í þætti 2 af „Föngum viðskiptavini saman" fengum við hana Önnu Báru til okkar. Anna Bára starfar við markaðsþróun hjá Eflu sem er ein stærsta verkfræðistofa landsins. Í þættinum förum við yfir teymisvinnu, efnismarkaðssetningu, LinkedIn, stafræna markaðssetningu og margt fleira. - Key of Marketing

    Föngum viðskiptavini saman - 1. þáttur - Oddur Jarl & Ægir Hreinn

    Play Episode Listen Later Jun 10, 2021 14:52


    Í þessum þætti kynna Oddur og Ægir hlaðvarpið „Föngum viðskiptavini saman" til leiks og spjalla um uppruna Key of Marketing. „Successinn mátti sjá á ÍMARK þegar Dóri DNA opnar kvöldið og segir Ég heiti Dóri DNA og er frá Key of Marketing og allir fóru að hlæja"

    Claim Föngum viðskiptavini saman [Key of Marketing]

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel