POPULARITY
Það hefur verið sólríkt á landinu síðustu daga og það virðist ætla að vera það áfram og af því tilefni ætlum við að ræða við tvo læknisfræðilega eðlisfræðinga hjá Geislavörnum ríkisins til að velta fyrir okkur útfjólubláum geislum og hvenær þurfi að huga að sólarvörn. Edda Lína Gunnarsdóttir og Eyjólfur Guðmundsson setjast hjá okkur í upphafi þáttar til að spjalla um þetta. En síðan ætlum við að huga að mat og mataræði. Í liðinni viku stóð Matís fyrir málþingi um neytendur framtíðarinnar – þar sem meðal annars var fjallað um upplýsingaóreiðu í tengslum við matvæli. Þóra Valsdóttir og Kolbrún Sveinsdóttir, matvælafræðingar og verkefnastjórar hjá Matís, ætla að kíkja í heimsókn á eftir og ræða aðeins við okkur.
VÆB bræðurnir tveir, Hálfdán og Mattías Mattíassynir stíga á Eurovisionsviðið í kvöld ásamt dönsurum og syngja lagið Róa. Þeir voru sérstaklega valdir til að vera fyrstir af því stjórnendur keppninnar vildu að kvöldið myndi byrja með miklu stuði. Fararstjóri íslenska hópsins er sem fyrr Felix Bergsson og við vorum með hann á línunni í dag og fengum nýjustu fréttir frá Basel. Miðvikudagsbíó hefur verið vinsælt í vetur í Bíó Paradís, þessar sýningar voru hugsaðar fyrir eldra fólk, fólk sem vinnur á kvöldin og bara hvern sem vildi koma um miðjan dag í bíó. 28.maí verður lokaviðburður miðvikudagsbíósins með frumsýningu á gamanmynd og boðið verður upp á diskóball fyrir eldri borgara strax eftir sýninguna. Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Bíó Paradísar, og Katrín Þorsteinsdóttir, dyggur aðdáandi miðvikudagsbíósins og kvikmynda yfir höfuð, komu til okkar og sögðu betur frá þessu í þættinum. Svo kom Einar Sveinbjörnsson til okkar í veðurspjallið í dag. Í þetta sinn talaði hann um lýsingar á veðri, orðfæri og tungutak. Þ.e.a.s. hann bar saman hvernig veðrinu var lýst á 19.öld af Erlendi Björnssyni og hvernig það yrði orðað í dag og hvernig mun þetta mögulega þróast áfram inn í framtíðina. Svo rýndi Einar í langtímaútlitið út maí og jafnvel aðeins inn í júní. Tónlist í þættinum í dag: Never Ever Let You Go / Rollo and King (Sören Poppe, Stefan Nielsen og Thomas Brekling) Róa (Jazz útgáfa) / VÆB (Hálfdán Helgi Matthíasson, Matthías Davíð Matthíasson, Gunnar Björn Gunnarsson og Ingi Þór Garðarsson) Bara Bada Bastu / Kaj (Anderz Wrethov, Axel Åhman, Jakob Norrgård, Kevin Holmström, Kristoffer Strandberg, Robert Skowronski) Calm After the Storm / The Common Linnets (Ilse Delange, JB Meijers, Rob Crosby, Matthew Crosby og Jake Etheridge) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Eftir Auði Sveinsdóttur Laxness liggur fjöldi textílverka og greinaskrifa um hannyrðir og textíl, en mörg af verkum hennar eru varðveitt á Gljúfrasteini. Safnafræðingurinn Marta Guðrún Jóhannesdóttir segir okkur frá verkum hennar, en hún vann um þau sýningu og útvarpsþætti árið 2014. Soffía Auður Birgisdóttir fjallar um verðlaunabók Ingunnar Ásdísardóttur, Jötnar hundvísir, Norrænar goðsagnir í nýju ljósi, og við hugum að skáldskap Þóru Jónsdóttur, sem varð 100 ára fyrr á þessu ári. Dætur Þóru, þær Kirstín og Elín Flygenring, líta við í hljóðstofu til að lesa og fjalla um skáldskap móður sinnar, en á sunnudaginn verður haldin ljóðadagskrá Þóru til heiðurs í Gunnarshúsi.
Þann 6. desember 1982 var Kvennaathvarfið opnað og það var magnaður hópur kvenna sem stóð að baki athvarfinu. Ein þeirra var Álfheiður Ingadóttir og hún kom til okkar í dag ásamt þeim Elísabetu Sveinsdóttur og Guðnýju Pálsdóttur, en átakið Á allra vörum er hafið og nú er það átakið „Byggjum nýtt Kvennaathvarf“. Þær stöllur Guðný, Elísabet og Gróa Ásgeirsdóttir standa að baki „Á allra vörum“ og hafa styrkt mörg góðgerðarsamtök og félög. Þær hrundu átakinu af stað með því að gefa upphafskonum Kvennaathvarfsins fyrstu varasettin en átakið í þetta sinn snýst um að vekja athygli á málefni Kvennaathvarfsins með því að selja varasett frá danska merkinu Gosh, þar sem gloss, varalitur og blýantur eru saman í pakka. Svo hittum við unga drengi, sextán ára, sem eru búnir að stofna markaðsfyrirtæki, markaðsstofuna Haen, sem vinnur í stafrænum markaðsmálum þar sem þeir nýta innsýn sína í menningu og hegðun ungs fólks til að ná betri árangri til dæmis á samfélagsmiðlum og eru nú þegar komnir með nokkra viðskiptavini. Þeir eru fjórir sem standa að Haen og tveir þeirra, Dagur Jónsson og Nataníel Máni Stefánsson komu í þáttinn í dag og sögðu okkur betur frá þessu ævintýri í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Hér á ég heima / Fjallabræður og Sverrir Bergmann (Magnús Þór Sigmundsson, texti Tómas Jónsson) Ástrós / Bubbi Morthens og Bríet (Bubbi Morthens) Hver hefur rétt / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir) Heimur allur hlær / Stefán Hilmarsson (Hallgrímur Óskarsson og Stefán Hilmarsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Íslenski danflokkurinn frumsýnir á föstudaginn Hringir Orfeusar og annað slúður, nýtt verk eftir Ernu Ómarsdóttur. Ýmis tungumál eru notuð í verkinu, þar á meðal íslenskt táknmál sem er blandað inn í hreyfingar dansanna. Diljá Sveinsdóttir dansari í dansflokknum, missti heyrnina mjög ung og hefur notað táknmál frá barnsaldri og hún dansar alltaf með heyrnatæki, en hún hefur stundað dans nánast allt sitt líf. Diljá kom í þáttinn og sagði okkur sína sögu og frá sýningunni. Kváradagurinn er í dag. Kvár eru þau sem skilgreina sig utan kynjatvíhyggjunnar, eða hvorki sem karl né konu. Flest fólk hugsar lítið sem ekkert út í kynvitund sína því hún samræmist því kyni sem því var úthlutað við fæðingu. Það er kallað að vera sískynja. Annað fólk efast eða er fullvisst um að það kyn sem því var úthlutað við fæðingu sé ekki þess rétta kyn. Það er kallað að vera trans. Það trans fólk sem upplifir kyn sitt hvorki sem karl eða konu heldur utan tvíhyggju kynjakerfisins er kallað kynsegin. Ólöf Bjarki Antons stjórnmálafræðingur kom til okkar í dag í tilefni af Kváradeginum. Ingunn Gubrandsdóttir, jógakennari og heilsuþjálfi, fannst fullt tilefni til að ræða meira um streitu og áhrif hennar og stofnaði hópinn Streitutips á Facebook í því augnamiði að minna fólk á einföld ráð við streitu og hvernig við getum komist hjá henni í amstri dagsins. Hún segir djúpa öndun það allra mikilvægasta þar sem við gleymum hreinlega að anda djúpt í miklum önnum og stressi, en hreyfing og viðvera í náttúrunni og jafnvel með gæludýr draga líka verulega úr áhrifum streitu. Helga Arnardóttir ræddi við Ingunni á dögunum sem við heyrðum á Heilsuvaktinni í dag. Tónlist í þættinum í dag: Ég veit þú kemur / Ellý Vilhjálms (Ási í Bæ og Oddgeir Kristjánsson) Töfrar / Silfurtónar (Júlíus Heimir Ólafsson) Í fjarlægð / Björgvin Halldórsson (Karl O. Runólfsson, texti Cæsar, eða Valdimar Hólm Hallstað) Puppet on a String / Sandie Shaw (Bill Martin & Phil Coulter) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
„Ég lærði dáldið mikið seint, að ef maður er hræddur við eitthvað, þá á maður að gera það. En ég var hrædd lengi,“ segir Þórunn Þórunn Elísabet Sveinsdóttir, myndlistarkona og margverðlaunaður búninga- og sviðsmyndahönnuður. Þórunn Elísabet er fædd árið 1952 á Siglufirði. Hún stundaði myndlistarnám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og árið 1982 hélt hún sína fyrstu einkasýningu í Nýlistasafninu í Reykjavík. Allar götur síðan hefur hún unnið að myndlist meðfram því að hanna búninga og sviðsmyndir fyrir leikhús og kvikmyndir. Þórunn hefur haldið einkasýningar og tekið þátt fjölda samsýninga en um þessar mundir sýnir hún á Listasafninu á Akureyri, verk þar sem 100 slæður blökta og gefa frá sér ólíka ilmi. Í verkum sínum vinnur Þórunn Elísabet með efniskennd hlutanna, söguna, endurvinnslu, handverkið, dagdrauma og ekki síst alltumlykjandi kvennaarfinn. Heimili Þórunnar Elísabetar er eins og eitt stórt listaverk og þar tekur hún á móti Víðsjá í Svipmynd vikunnar.
Frá 1870-1914 yfirgáfu um 16 þúsund Íslendingar heimaland sitt og hófu nýtt líf í Norður-Ameríku, þetta var um fjórðungur þjóðarinnar. Snorri West er menningarskiptaverkefni milli Íslands og afkomenda Íslendinga í Norður-Ameríku. Eitt þeirra er fjögurra vikna reisa ungra Íslendinga vestur um haf þar sem heimsóttar eru slóðir vesturfaranna og samfélög afkomenda þeirra. Sigfús Haukur Sigfússon sagði okkur í dag frá sinni reynslu, en hann tók þátt í slíkri ferð árið 2022 og með honum kom Atli Geir Halldórsson verkefnastjóri Snorra West. Gítarveisla Björns Thoroddsen verður haldin í 21.sinn 21. febrúar. Sérstakur gestur verður sænski stórgítarleikarinn Janne Schaffer, en hann lék með ABBA nær allan þeirra starfsferil og hann hefur verið í fremstu röð í sænsku tónlistarsenunni í rúma fimm áratugi. Þeir Björn Thoroddsen og Jón Rafnsson sögðu okkur nánar frá Janne og tónleikunum í dag. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni og kort dagsins barst að þessu sinni frá Grænhöfðaeyjum þar sem Magnús er núna staddur ásamt kátum ferðafélögum í höfuðborginni Praia. Hann sagði okkur aðeins af sögu eyjanna og framtíðarmöguleikum íbúanna, en líka af ýmis konar vanda sem við er að glíma þar suður frá. Magnús heillaðist af hinni miklu tónlistarhefð sem eyjaskeggjar hafa skapað og hann sagði okkur aðeins af þessari einstöku blöndu af afrískri og evrópskri tónlist. Tónlist í þættinum í dag: Meiriháttar / Rósa Guðrún Sveinsdóttir (Rósa Guðrún Sveinsdóttir) Manitoba / Gunnar Þórðarson (Gunnar Þórðarson) Eagle / ABBA (Benny Anderson og Björn Ulveus) Vegir liggja til allra átta / Ellý Vilhjálms (Sigfús Halldórsson, texti Indriði G. Þorsteinsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Við hefjum þáttinn á því að hringja í nýbakaðan Grammy-verðlaunahafa, Víking Heiðar Ólafsson. Þær Kristín Sveinsdóttir söngkona og Þórunn Guðmundsdóttir verða einnig gestir okkar í dag. Kristín syngur í Hliðarspori, nýrri óperu Þórunnar sem fruflutt verður á fimmtudag, og í Brúðkaupi Fígarós, sem Kammeróperan sýnir nú í Borgarleikhúsinu. Báðar óperurnar, og reyndar Rakarinn í Sevilla sem Óður sýnir í Sjálfstæðishúsinu, eru byggðar á leikritum sama leikskálds og fjalla að miklu leyti um sömu persónurnar, en þó á ólíkum tímum. Við ræðum þessa óperuveislu í þætti dagsins. Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í Strá fyrir straumi, bók Erlu Huldar Halldórsdóttur um ævi Sigríðar Pálsdóttur. Trausti Ólafsson rýnir í Árið án sumars, sem Marmarabörnin frumsýndu í Borgarleikhúsinu um helgina.
Föstudagurinn 24. janúar Vikuskammtur: Vika 4 Í Vikuskammt við Rauða borðið koma í dag þau Gunni Hilmars tísku og tónlistarmaður, Heiða Eiríksdóttir, tónlistarkona og heimspekingur, Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri og Símon Birgisson kennari og leiklistargagnrýnandi og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af framrás fasisma, komandi verkföllum og handbolta.
,,Ég treysti sjálfri mér og hef trú á þessu tæki sem listmeðferðin er. Hún er tæki til að tjá tilfinningar sínar og vinna með og losa sig við erfiðar tilfinningar. Myndsköpunin er þá notuð til að vinna með sig persónulega og til að þroskast í gegnum." - er meðal þess sem haft er eftir myndlistarkonunni og listþerapistanum Sigríði Björnsdóttur í bók þeirra Ágústu Oddsdóttur og Egils Sæbjörnssonar um ævistarf Sigríðar, Art can Heal. Á fimmtudag verður blásið til málþings um listmeðferð til heiðurs Sigríði, á vegum Listasafns Íslands og Myndlistarmiðstöðvar. Þau Ágústa og Egill koma við í hljóðstofu og segja okkur frá eiginleikum listmeðferðar og starfi Sigríðar. Við fáum líka pistil frá Gauta Kristmannssyni, sem að þessu sinni fjallar um ljóðasafn norska stórskáldsins Olav Hauge, Undir eplatrénu. Ljóðasafnið er að mestu fengið úr síðustu þremur bókum Hauges en Gyrðir Elíasson íslenskaði og ritaði formála. Við höldum líka áfram umfjöllun um kvikmyndaleikstjórann David Lynch. Lynch málaði heiminn í sterkum, dulúðugum og súrrealískum litum, sem virðast á stundum koma úr annari vídd, og bjó til andrúmsloft sem hefur einfaldlega verið kallað lynchían. Við ætlum að velta þessari lynchian tilfinningu fyrir okkur í þætti dagsins með Rúnari Rúnarssyni kvikmyndaleikstjóra, Ásgrími Sverrissyni kvikmyndagerðamanni, Hrönn Sveinsdóttur framkvæmdastýru bíó paradís og Evu Rún Snorradóttur rithöfundi og sviðslistakonu. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Laugardagur 11. janúar Helgi-Spjall: Ragna Sigrún Sveinsdóttir Ragna Sigrún Sveinsdóttir, leiðsögumaður og lektor emerita segir okkur frá pælingum sínum um keltnesk áhrif á Íslandi og um allan heim, hún hefur um árabil ferðast um landið og heiminn og séð ólík upprunaeinkenni birtast í tengslum við skipulag, ástríðu, listir og stríð ... Hún bjó lengi í París og segir okkur frá lífinu þar og á Víkingavatni í æsku, frá áhrifavöldum lífs síns, rannsóknum á þróun tungumála og vináttunnar.
Iceland has a stunning landscape with glaciers galore … but is more properly fire island. Lava, earthquakes eruptions and volcanoes dominate life and world headlines. Before Christmas 2023, an eruption forced people from their homes in the fishing port of Grindavik. One year and six eruptions later – the townspeople are back. But another eruption nearby is spewing lava across the car park of the famous Blue Lagoon. By the time you hear this podcast, that eruption could be over… or much worse.Yet despite all the risk and uncertainty, many Icelanders say they live here because of their volcanoes not despite them. Why? That's what this podcast is all about. CreditsThanks to Easyjet for flights – direct to Reykjavik every weekday from Edinburgh. Lesley travelled to the Westman Islands in a Europcar vehicle (complete with winter tyres) from Keflavik airport, took the dual fuel Herjolfur ferry (government owned and council run) courtesy of Business Iceland and stayed at the Hotel Vestmannaeyjar thanks to Visit South IcelandAccommodation in Reykjavik was kindly provided by podcast listener Scott Riddell. Big thanks also to interviewees – Laufey Sif Lárusdóttir who runs a pizzeria and Ölverk brewery using geothermal steam in Hveragerði with husband Elvar. She also manages to be mum to three small boys.Páll Zóphóníasson was once Mayor of Heimaey (main town on Westman Islands) and town engineer at the time of the 1973 eruption. Tax office staff, Jóhanna Kristín Gunnlaugsdóttir and Ròsa Sveinsdòttir were just children at the time.Kári Valgeirsson is Science Communicator at the Hellisheiði power plant – one of the largest single-site geothermal power plants on the planet. Daily tours available via https://www.on.is/en/geothermal-exhibition/Thanks also to Limma and Gudrun Hannesdottir, Researched, recorded and produced by Lesley RiddochEdited by Pat Joyce ★ Support this podcast ★
Mánudagurinn 25. nóvember Kosningar, umhverfi, ungir kjósendur, sósíalismi, strandeldi og sirkus Esther Bíbí Ásgeirsdóttir bassaleikari, Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri, Kristjana Guðbrandsdóttir fjölmiðlakona og Borgar Magnússon tónskáld fara yfir stöðuna í pólitíkinni, nú þegar kosningabaráttan er komin á yfirsnúning. Fjórir nemendur úr MR sem eru að fara að kjósa í fyrsta sinn, þau Uni Níls Gunnlaugsson, Freyja Rúnarsdóttir, Björn Diljan Hálfdánarson og Herdís Sigurðardóttir Busson, ræða um misheppnaðar tilraunir stjórnmálaflokkanna til að ná til unga fólksins. Þorgerður María Þorbjarnardóttir formaður Landverndar og Árni Finnsson formaður stjórnar Náttúruverndarsamtaka Íslands segja okkur fréttir frá nýjustu alþjóðaráðstefnum á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Þorsteinn Bergsson oddviti Sósíalista í Norðaustri segir frá sér og sósíalismanum. Ísadóra Ísfeld Finnsdóttir og Ida Karólína Harris eru ungir umhverfissinnar sem hyggjast beita verkfallsaðgerðum og ganga úr tíma á föstudaginn til að mótmæla laxeldi í sjó. Birta Benónýsdóttir sirkuskona segir okkur frá sirkuslífinu.
Mánudagurinn 4. nóvember Pólitíkin, flóttafólk, geðheilbrigði, kjósendur, verkfall, landflótti og Gaza Lilja Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra, Pétur Tyrfingsson sálfræðingur, Helga Arnardóttir fjölmiðlakona og Páll Ásgeir Ásgeirsson fjallamaður ræða stöðuna í pólitíkinni í aðdraganda kosninga. Hvernig verður fólki við þegar manneskjur sem dvalið hafa hér misserum saman eru allt í einu fangelsaðar með hótun um brottvísun. Ragnar Magnússon framhaldsskólakennari segir frá. Við tökum fyrir geðheilbrigðismál, verða þau kosningamál? Elín Ebba Ásmundsdóttir iðjuþjálfi í Hlutverkasetri, Guðbjörg Sveinsdóttir geðhjúkrunarfræðingur, Svava Arnardóttir formaður Geðhjálpar og Sigurþóra Bergsdóttir frá Berginu headspace ræða stöðuna. Við förum í Kringluna og ræðum við kjósendur og tvær unglingsstúlkur sem eru í kennaraverkfalli: Lena Louzir og Þórdís Sigtryggsdóttir. Jack Hrafnkell Danielsson er fluttur til Noregs. Hann er í heimsókn hér á landi en honum líst hvorki á pólitíkina né umferðina. Í lokin verður Radíó Gaza. María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp ræðir við mótmælendur: Pétur Eggertz, Sigtrygg Ara Jóhannsson, Guðbjörgu Ásu Jóns-Huldudóttur og Möggu Stínu.
Um næstu helgi opnar á Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ sýning sem beinir kastljósinu að sambandi manna og örvera. Þrátt fyrir að þetta samband sé okkur alla jafna dulið þá er það í meira lagi margslungið, á sér til að mynda stað innan og utan líkamans, innan og utan heimilis, og innan og utan á matnum okkar. Örverur á heimilinu er ein af afurðum þverfaglega rannsóknarverkefnisins Samlífi manna og örvera í daglega lífinu undir stjórn dr. Valdimars Tr. Hafstein. Ragnheiður Maísól Sturludóttir, tók þátt í rannsókninni og er jafnframst sýningarstýra sýningarinnar. Við hittum hana og nokkrar örverur í þætti dagsins. Rithöfundurinn Atef Abu Saif hefur starfað sem menningarmálaráðherra palestínskra stjórnvalda og skrifað skáldsögur, smásögur og bók um stjórnmál. Þegar sprengjum tók að rigna yfir Gaza síðastliðið haust ákvað hann og sonur hans að halda kyrru fyrir, í stað þess að flýja, og Abu Saif tók að skrásetja lífið á Gaza. Brot úr Dagbók frá Gaza birtust reglulega í vestrænum fjölmiðlum frá upphafi árása Ísraelshers og eru meðal mikilvægustu vitnisburða sem þaðan hafa borist. Síðastliðið vor voru skrif hans frá fyrstu fjórum mánuðum árásanna gefin út á bók í 11 löndum og hér á landi kom hún út hjá Angústúru, í þýðingu Bjarna Jónssonar. Gauti Kristmannsson rýnir í Dagbók frá Gaza í þætti dagsins. En við hefjum þáttinn á innliti frá einum virkasta kammerhóp landsins, Cauda Collective. Hópurinn tekur á sig ýmsar myndir, er breytilegur að stærð og tekst á við verkefni sem tilheyra hinum ýmsu stílum og tegundum tónlistar. Listrænir stjórnendur Cauda Collective eru þær Sigrún Harðardóttir, Björk Níelsdóttir, Þórdís Gerður Jónsdóttir og Þóra Margrét Sveinsdóttir og þær Sigrún og Björk litu við í Efstaleiti til þess að segja okkur aðeins af verkefnum vetrarins. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Föstudagurinn 20. september Vikuskammtur: Vika 38 Í Vikuskammt við Rauða borðið koma í dag þau Aníta Sóley Scheving Þórðardóttir nemi, Bergþór Másson umboðsmaður og hlaðvarpari, Kristín Sveinsdóttir kennari og söngkona, Margrét Hugrún Gústavsdóttir Björnsson verkefnastjóri við HÍ og Marinó G. Njálsson ráðgjafi og samfélagsgreinir og ræða fréttir vikunnar sem einkennast af hörmungarfréttum, brottvísun, mótmælum og átökum
Föstudagurinn 5. júlí Vikuskammtur: Vika 27 Í Vikuskammti við Rauða borðið koma í dag þau: Birgir Örn Steinarsson sálfræðingur og tónlistarmaður, Birta Karen Tryggvadóttir hagfræðingur, Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri og Þorbjörg Þorvaldsdóttir verkefnastjóri Samtakanna '78 og bæjarfulltrúi í Garðabæ og ræða við Oddnýju Eir Ævarsdóttur um fréttir vikunnar sem einkenndust af pólitískum skjálfum vestan hafs og austan. Og líka hér heima.
Skjóta nefnist ný íslensk ópera eftir Sigrúnu Gyðu Sveinsdóttur en hún var frumflutt í Ásmundarsal um síðustu helgi. Óperan fjallar um fótbolta og loftslagsbreytingar og hvernig hálfleikur í fótbolta getur verið myndlíking fyrir afmarkaðan tíma, til ákvarðanatöku, í loftslagsmálum. Verkið blandar saman nýklassískum söng og kraftmikilli danstónlist en leikur sér einnig með rýmið í Ásmundarsal á skapandi hátt. Við ræðum við Sigrúnu Gyðu í þætti dagsins. Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, verður einnig með okkur í dag og heldur áfram að fjalla um félagslegt húsnæði og hýbílaprýði hér á landi. Fjölmenningarsamfélag krefst nýrra orða, hugmynda og nálgana. Hvaða orð og hugtök skortir okkur til þess að fanga breyttan veruleika? Getur þróun tungumálsins haldið í við síbreytilegt samfélag? Þessum spurningum og eflaust mörgum fleiri verður velt upp í Eddu, húsi íslenskunnar, í tengslum við listahátið á sunndag. Viðburðurinn kallast Rótarskot og er einskonar stefnumót skálda með innflytjendabakgrunn og fræðafólks frá Árnastofnun. Rithöfundurinn Pedro Gunnlaugur Garcia, sem stýrir viðburðinum, verður gestur okkar í dag, og einnig flytur skáldið Ewa Marcinek ljóð.
Hrönn Sveinsdóttir ólst að miklu leiti upp í Austurbæjarbíói þar sem amma hennar starafði. Í dag er Hrönn bíóstjóri Bíó Paradísar. Andri Freyr ræðir við hana um starfið, uppvaxtarárin og hennar framlag til sjónvarpsþáttar og heimildarmyndagerðar.
Föstudagur, 3. mai Vikuskammtur - Vika 18 Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri, Freyr Eyjólfsson tónlistarmaður, Ellen Kristjánsdóttir söngkona og Jón Ferdínand Estherarson blaðamaður og ræða fréttir vikunnar sem voru litaðar af mikilli umfjöllun um forsetakosningar og lítilli um Júróvision, af deilum um hver ætti að eiga firðina, af landrisi á Reykjanesi og pólitísku sigi Vg.
Rætt er við Steinunni Maríu Sveinsdóttur safnstjóra Flugsafns Íslands. Flugsafnið hefur vaxið og dafnað á síðustu árum og stór verkefni blasa við á næstunni, en safnið fagnar 25 ára afmæli í vor. Steinunn segir hér frá fjölmörgum áhugaverðum verkefnum til þessa og hvernig ætlunin er að þróa starf safnsins enn frekar í þá átt að ekki eingöngu að varðveita muni og sögu heldur einnig að opna heim flugsins fyrir þeim sem ekki þekkja. Hún segir mikinn velvilja gangavart Flugsafninu og þar fer Örninn hollvinafélagið einna fremst í flokki. Viðtalið var tekið upp á Flugsafni Íslands um borð í TF-SYN gömlu Fokker flugvél Landhelgisgæslunnar.
Við ræðum um saltfisk við Kolbrúnu Sveinsdóttur, verkefnastjóra hjá Matís - er lífið enn saltfiskur? Fiskneysla hefur dregist verulega saman svo að kannski er það ekki raunin en Kolbrúnu dreymir um að þessari afurð verði hampað í meiri mæli og að gómsætir saltfisksréttir verði á hvers manns borði, reglulega. Við ætlum að ræða fiskneyslu við Kolbrúnu og aðgerðir Matís og fleiri fyrirtækja til að auka hana. Space X skaut í gær á loft Starship geimfari sínu. Þetta er stórt og mikið ferlíki, 120 metrar að lengd og þótti skotið heppnast með ágætum þó enn þurfi að sníða af einhverja vankanta. Sævar Helgi Bragason ætlar að segja okkur betur frá þessu. Eins og stundum á föstudögum verðum við með dýraspjall. Að þessu sinni heimsækjum við Dýraþjónustu Reykjavíkur í Húsdýragarðinum, skoðum nokkra fugla sem eiga þar athvarf og tölum við Þorkel Heiðarsson, deildarstjóra. Tónlist: Bubbi Morthens & Stórsveit Reykjavíkur - Ísbjarnarblús. Allra meina bót - Mamma gefðu mér grásleppu.
Jasmina Vajzovic vakti mikla athygli í umræðuþættinum Torgið sem var í beinni útsendingu fyrir rúmri viku hér í Sjónvarpinu. Þar var rætt um hvernig okkur hefur gengið í inngildingu þegar kemur að innflytjendum, auk þess sem rædd voru málefni umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttafólks. Jasmina er stjórnmálafræðingur og hefur áralanga reynslu af því að vinna í þessum málefnum innflytjenda, hælisleitenda og flóttafólks, bæði hjá Reykjavíkurborg og svo rekur hún nú eigið ráðgjafafyrirtæki. Hún var alin upp í gríðarlega fjölbreyttu fjölmenningarsamfélagi í Bosníu og þegar hún var táningur þurfti fjölskylda hennar að flýja heimkynni sín undan stríðsátökum og eftir erfitt ferðalag voru þau stöðvuð á landamærum, þegar þau héldu að þau væru komin í örugga höfn en voru send aftur til baka á stríðsátakasvæði, áður en þau á endanum komust til Íslands. Jasmina sagði okkur sína sögu og ræddi við okkur um stöðuna í þessum málefnum af innsýn og reynslu sem fáir hafa. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og það barst frá Vestmannaeyjum að þessu sinni. Magnús er kominn heim frá Grænhöfðaeyjum en hugurinn er ennþá þar. Hann segir frá hinni miklu uppbyggingu sem á sér stað á eyjunum, ekki bara vegna vaxtar í ferðaþjónustunni, ekki síður vegna fjárausturs stórveldanna Kína, Bandaríkjanna og Evrópusambandsins sem öll seilast eftir áhrifum á Grænhöfðaeyjum vegna legu eyjanna sem þykir hernaðarlega mikilvæg. Hann segir í lokin frá ungri söngkonu sem varð að velja á milli fastrar vinnu eða hugsanlegs frama í tónlistinni. Tónlist í þættinum í dag: Í draumum og söng / Ellý Vilhjálms og Raggi Bjarna (Ásta Sveinsdóttir og Magnús Pétursson) White rabbit / Jefferson Airplane Við Mánagötu í mýrinni / Egill Ólafsson (Egill Ólafsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Skiptar skoðanir eru um frumvarp ríkisstjórnarinnar um uppkaup á eignum Grindvíkinga, en frumvarpið er meðal þess sem við ræddum þegar Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, kom í þáttinn. Einnig var rætt um aðrar framkvæmdir á Reykjanesi, um kjarasamningsviðræður sem nú hefur verið slitið og um uppgjör stórra fyrirtækja, sem nú tínast inn eitt af öðru. Olaf Scholz kanslari Þýskalands átti fund með Joe Biden Bandaríkjaforseta á dögunum, sem gæti hafa verið þeirra síðasti fundur. Arthúr Björgvin Bollason sagði okkur frá fundinum og ýmsu fleiru í Berlínarspjalli. Háskólinn á Hólum og Háskóli Íslands verða brátt hluti af svokallaðri háskólasamstæðu. Hólmfríður Sveinsdóttir rektor Háskólans á Hólum kom til okkar í síðasta hluta þáttarins og rædd um þetta nýja fyrirkomulag í háskólastarfi hér á landi. Umsjónarmenn eru Eyrún Magnúsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Litla sæta ljúfan góða - Hljómsveit Ingimars Eydal, Vilhjálmur Vilhjálmsson Þú kysstir mína hönd - Ragnhildur Gísladóttir, Tómas R. Einarsson Jack and Diane - Mellencamp, John .
Gestir Felix í Fram og til baka voru þau Áskell Heiðar Ásgeirsson og Hrönn Sveinsdóttir Borgfirðingurinn Áskell Heiðar er einn af forvígismönnum Bræðslunnar og hann kom í Fimmuna. Þar voru fimm viðburðir til umræðu og fór allt frá U2 í Dublin í gegnum Bræðsluna og Landsmót hestamanna. Svo kom framkvæmdastjóri Bíó Paradís, Hrönn Sveinsdóttir, í spjall en húsið iðar af lífi þessa dagana
Mikil umræða um sniðgöngu um þessar mundir í tengslum við framferði Ísraelshers á gaza undanfarnar vikur. Stuðningsfólk Palestínu hér á landi hefur reynt að beita þrýstingi á fólk, fyrirtæki og stofnanir til að sniðganga Ísrael eða þá sem styðja árásir ísraelska hersins á Gaza. Þessi krafa nær inn á nánast öll svið samfélagsins: menntakerfið, íþróttir og menningu. Við tileinkum Lestina í dag hugtakinu sniðganga. Við fáum sjónarhorn frá Kristínu Sveinsdóttur, Ásgeiri Brynjari Torfasyni, Tómasi Þór Þórðarsyni, Oddnýju Eir Ævarsdóttur og Boris Grebenschikov.

Hulda G. Geirsdóttir ræddi við Hrönn Sveinsdóttur framkvæmdastjóra hjá Bíó Paradís. Þær ræddu ævintýragirni, uppreisn og áskoranir á fjölbreyttri lífsins leið Hrannar sem fór frá því að vera uppreisnargjarn unglingur yfir í að verða blússuklæddur siðameistari í sendiráði. Hrönn sagði frá uppvextinum í Kópavogi og sveitadvöl frá unga aldri, ævintýrinu í kringum þátttöku hennar í Ungfrú Ísland.is og gerð myndarinnar Í skóm drekans, sem endaði í réttarsal. Þá ræddi hún námsárin í New York og fleiri viðkomustaði hennar í lífinu, en undanfarin ár hefur Hrönn leitt starfsemi Bíó Paradísar, tekist á við ótal áskoranir og lætur ekkert stoppa sig.

Nýjasta tónleikaferð bandarísku poppsöngkonunnar Taylor Swift er nú þegar komin í sögubækur tónlistariðnaðarins. Tekjuhæsta tónleikaferð konu frá upphafi og hún verður að öllum líkindum tekjuhæsta tónleikaferð allra tíma, óháð kyni tónlistarmanns. Kvikmynd unnin upp úr tónleikum hennar í Inglewood, í Kaliforníu í ágúst er orðin vinsælasta tónleikakvikmynd allra tíma. Eldheitir aðdáendur, Swifties, um allan heim, meðal annars hér á Íslandi, flykkjast á myndina, skreyttir glitrandi gervidemöntum og vinaböndum, og öskursyngja með einni allra stærstu poppstjörnu samtímans. Í Lestinni í dag ætlum við ekki að sökkva okkur í lögin eða textana heldur að rýna í markaðsvélina sem hefur spilað stóran þátt í velgengi Taylor Swift með Eydísi Blöndal. Við höldum í ferðalag um tónlistarsenuna í okkar næsta nágrannalandi, Grænlandi. Þar rekumst við meðal annars á sleðahunda, mosuxa, lengsta orð grænlensku og rokksveitin Sumé. Leiðsögumaður okkar er tónlistarkonan Katrín Helga Ólafsdóttir. Ef þú hefur ekki séð Duggholufólkið þá hefur þú ekki lifað, segir Hrönn Sveinsdóttir, en þessi sígilda barnamynd sem gagnrýndi snjallsímafíkn fyrir tíma snjallsímans er ein af þeim sem verður sýnd á Alþjóðlegri barnakvikmyndahátíð í Reykjavík. Við hringjum í Bíó Paradís og heyrum um hátíðina.

Ævar Sigmar Hjartarson Formaður húsfélags í húsi við Hvaleyrarbraut, sem brann í gær, segist sjálfur ítrekað hafa bent bæjaryfirvöldum á að ólögmæt búseta væri í húsinu. Leigusalar virðast fela fyrir nágrönnum sínum að þeir leigi út rými í atvinnuhúsnæði til búsetu. Landmæraverðir í Sádi-Arabíu fremja fjöldamorð á flóttafólki frá Eþíópíu sem reynir að komast inn í landið, samkvæmt nýrri skýrslu Mannréttindavaktarinnar. Um 850 er enn saknað eftir mikla gróðurelda á Havaí. Eldarnir eru þeir mannskæðustu í Bandaríkjunum í meira en öld. Staðfest er að 114 hafa látist. Bandaríkjaforseti sækir eyjarnar heim í dag. Grænþörungar í vatnsbóli Skagamanna ollu að öllum líkindum óbragði af drykkjarvatni þar. Vatnsbólið hefur verið hreinsað. Steingrímur Örn Ingólfsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins Kvarna sem selur sorpkvarnir segir eftirspurn og áhuga á kvörnunum hafa aukist merkjanlega eftir að nýtt flokkunarkerfi var tekið í gagnið á höfuðborgarsvæðinu. Jón Trausti Kárason forstöðumaður vatns og fráveitu hjá Veitum segir veitukerfið ekki í stakk búið til þess að taka á móti lífrænum úrgangi. Neyðarástand ríkir í húsnæðismálum Háskólans á Hólum, segir Hólmfríður Sveinsdóttir rektor. *** Í byrjun árs í fyrra er talið að tæplega tvö þúsund hafi búið í ósamþykktu atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Líklegt er að þeir séu mun fleiri í dag. Stefnt er að því að breyta regluverki svo fólk geti tímabundið skráð lögheimili sitt í atvinnuhúsnæði. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Regínu Valdimarsdóttur, teymisstjóra á brunavarnasvið Húsnæðis -og mannvirkjastofunar. Miðað við nýútkomna tölfræði Hagstofunnar má gera ráð fyrir að rúm 60% þeirra sem hefja nám á framhaldsskólastigi núna ljúki því innan sex ára. Það er í það minnsta raunin með þá sem hófu nám haustið 2017. Nú er byrjað að greina sérstaklega hvort innflytjendur klára framhaldsskólann. Þá kemur í ljós að tæp 67% þeirra sem fluttu til landsins fyrir sjö ára aldur, og byrjuðu í framhaldsskóla luku náminu, en aðeins tæp 37% þeir sem fluttu til landsins sjö ára eða eldri. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Stellu Blöndal dósent við HÍ. Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, var hrærður þegar hann þakkaði Dönum á þeirra eigin tungu fyrir að ætla að gefa Úkraínuher nítján F-16 orrustuþotur. Jafnframt taka Danir að sér að þjálfa úkraínska flugmenn, flugvirkja og starfslið til að þjónusta þoturnar. Ásgeir Tómasson sagði frá. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Jón Þór Helgason. Fréttaútsendingu stjórnaði Margrét Júlía Ingimarsdóttir.

Ny?tt leikverk eftir leikhópinn Elefant byggt á einni ástsælustu skáldsögu þjóðarinnar, Íslandsklukku Halldórs Laxness. Leikhópurinn Elefant samanstendur af ungum íslenskum leikurum sem í samvinnu við Þorleif Örn Arnarsson leikstjóra frumsýna á fimmtudaginn í Kassanum í Þjóðleikhúsinu.María Thelma Smáradóttir, sem leikur Snæfríði Íslandssól í sýningunni kom í viðtal í dag og sagði okkur meðal annars frá því að þetta hefði verið draumahlutverkið hennar frá því hún var unglingur og las söguna fyrst. Við forvitnuðumst svo um sérstakar kvikmyndasýningar í Bíó Paradís, en þar er hefur verið unnið undanfarið að því að bæta aðgengi fyrir hreyfihamlaða að allri aðstöðu og bíósýningarnar hafa verið aðlagaðar til dæmis fyrir blinda, heyrnaskerta og einhverfa og boðið hefur verið upp á bíósýningar á óhefðbundnum tímum fyrir þau sem það vilja. Hrönn Sveinsdóttir framkvæmdastjóri Bíó Paradís kom í þáttinn í dag. Svo komu þær saman til okkar í veðurspjall, Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur og Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur Ríkisútvarpisins. Við ræddum við þær saman um íslensk veðurhugtök. Þau geta verið mjög lýsandi, falleg, fyndin, skrýtin og mjög oft mjög áhugaverð. Það var skemmtilegt spjall um íslensku veðurhugtökin með Önnu Sigríði og Elínu Björk í dag. Tónlist í þættinum í dag Kúst og fæjó / Heimilistónar (Heimilistónar) Almost Over You / Önnu Jónu Son (Haraldur Ingi Þorleifsson) Allt að gerast / Ásgeir Ásgeirsson Trio (Ásgeir Ásgeirsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

In this episode we critically unpack Tracing Fragments with curator Daría Sól Andrews and Brynja Sveinsdóttir, Director of Gerðarsafn. We discuss exhibition themes, Gerðarsafn's unique position within the Icelandic art and museum community, and the inner workings of independent curating in public institutions. Tracing Fragments includes works by Kathy Clark, Sasha Huber, Hugo Llanes, Frida Orupabo, Inuuteq Storch and Abdullah Qureshi. Through their works, these artists provide potential tools for emancipation and possibilities for healing by revisiting notions of identity ridden with complex legacies of dissociated, violent, and dispossessed experiences — themes and practices of unlearning, revising and reclaiming personal and shared histories that are relevant to our changing time. From Daría's curatorial text: The artists of Tracing Fragments examine the complicated histories behind colonial and racial violence, repossessing terms like power and victimhood. Realizing brown, indigenous, and queer body on their own terms, each artist imagines what forms this body and history can take. Tracing Fragments opened on the 4th of February at Gerðarsafn, Kópavogur Art Museum and is on view until the 21st of May, 2023. // Created and produced by the Icelandic Art Center, Out There brings co-hosts Becky Forsythe @beforsythe and Þórhildur Tinna Sigurðardóttir @tindilfaetta in conversation with artists, curators and art professionals at the @101liveradio. #OutTherePodcast #IcelandicArtCenter #IcelandicArt #IcelandicArtist #Iceland #VisualArt #ContemporaryArt #InspiredByIceland #IcelandicArt
Við hefjum þáttinn á rýni Evu Halldóru Guðmundsdóttur í leikverkið Ex, sem frumsýnt var í Þjóðleikhúsinu síðastliðna helgi. Heimili segja margt um ábúendur, og uppröðun og munir innan heimila geta sagt margt um tíðarandann. Til að mynda erum við hætt að kalla vinnuherbergi húsbóndaherbergi og eldhúsið, sem áður var vinnuherbergi húsfrúnnar, hefur i nútímasamfélagi öðlast sess sem samverustaður fyrir alla fjölskylduna. Á morgun opnar ný sýning í Hönnunarsafni Íslands sem kallast Hönnunarsafnið sem heimili, þar sem verða til sýnis um 200 ólíkir munir sem tengjast heimilinu. Við lítum inn á safnið í þætti dagsins og ræðum við einn af sýningarstjórunum, Sigríði Sigurjónsdóttur, forstöðumann safnsins. Samkvæmt stjörnuspekingum hefur nú gengið í garð öld vatnsberans, sem á að einkennast af mikilli endurskipulagningu á heimsmynd mannanna, fyrst með niðurbroti og svo með enduruppbyggingu, en einnig af vaxandi víðsýni mannshugans. Af því tilefni heldur kammerhópurinn Cauda Collective tónleika í Norðurljósasal Hörpu nú um helgina, og flytur þar þrjú tónverk sem öll tengjast stjörnumerkjum. Við fáum tvo meðlimi hópsins, þær Þórdísi Gerði Jónsdóttur og Þóru Margréti Sveinsdóttur, til þess að segja okkur nánar af þessu dularfulla verkefni í lok þáttar. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Spegillinn 10.okt 2022 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Mark Eldred Skotmörk í hefndarárásum Rússa á Úkraínu í dag voru mikilvægir innviðir og fjölfarnir staðir á háannatíma. Minnst ellefu fórust og um hundrað særðust. Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir vegna mögulegs jökulhlaups úr Grímsvötnum Þar sem vatnsstaða í Grímsvötnum er lág er ekki búist við stóru hlaupi og mannvirki eru ekki talin í hættu. Mennirnir sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna hryðjuverkarannsóknar lögreglu ræddu sín á milli um morð á verkalýðsleiðtogum, meðal annars Sólveigu Önnu Jónsdóttur formanni Eflingar. Hún segir ömurlegt að upplifa slíkt. Formaður fjárlaganefndar Alþingis segir það vekja spurningar um fagmennsku að starfsmenn Bankasýslunnar hafi þegið veitingar og tækifærisgjafir frá Íslandsbanka og fleirum við sölu á hlut ríkisins í bankanum. Dómsmálaráðherra telur að laga þurfi vankanta í útlendingalögum með því að ganga lengra en hefur verið gert. Hann ætlar að gera ríkisstjórninni grein fyrir tillögum þess efnis. Lengri umfjöllun: Það mátti glögglega skynja spennu hjá þeim 300 fulltrúum verkalýðsfélaga sem mættir voru á 45. þing Alþýðusambands Íslands í Reykjavík í morgun. Þing sambandsins stendur yfir í þrjá daga og verður ný forysta ASÍ kjörin á miðvikudag. En hver eru brýnustu verkefni verkalýðshreyfingarinnar á næstu vikum? Óttast hinn almenni félagsmaður átök og sundrung innan hreyfingarinnar? Kristján Sigurjónsson ræddi við nokkra þingfulltrúa fyrir þingsetningu í morgun, þar á meðal Hörð Guðbrandsson hjá Verkalýðsfélagi Grindavíkur og Halldóru Sigríði Sveinsdóttur formann Bárunnar á Suðurlandi. Hitabylgjur verða svo ofsafengnar á næstu áratugum í nokkrum heimshlutum að þeir verða óbyggilegir fólki. Grípa verður til enn harðari aðgerða en hingað til ef koma á í veg fyrir enn frekari hlýnun jarðar af völdum gróðurhúsalofttegunda. Samhæfingarskrifstofa aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) og Alþjóðaráð Rauða krossins (IFRC) birtu í dag sameiginlega skýrslu um ástand og horfur í loftslagsmálum í aðdraganda Loftslagsráðstefnu SÞ. Ásgeir Tómasson tók saman. Íslenskur vinnumarkaður er mjög kynskiptur og ekki eru öll störf lögð að jöfnu. Lög um að allir skuli fá sömu laun fyrir sömu vinnu hafa verið í gildi í meira en sextíu ár á Íslandi en þrátt fyrir það er enn launamunur milli kynja. Viðkvæðið um að ekki megi bera saman epli og appelsínur dugir ekki til að fanga allt sem felst í launa- og tekjumun að mati Heiðar Margrétar Björnsdóttur hagfræðings BSRB, sem fór fyrir starfshóp um endurmat

Í þættinum verður forvitnast um starfsemi þriggja menntastofnana. Við heimsækjum fyrst Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Raghildur Helga Jónsdóttir aðjúnkt og safnstjóri Landbúnaðarsafns Íslands segir okkur frá staðnum og starfsemi safnsins. Því næst er ferðinni heitið í Tónlistarskóla Borgarfjarðar og ræðum þar við Árna Frey Jónsson tónlistarkennara en hann fer fyrir nýjum áfanga við skólann sem nýtir hljóðver sem hljóðfæri. Að lokum er ferðinni heitið á Hóla í Hjaltadal þar sem Hólmfríður Sveinsdóttir nýr rektor skólans segir okkur frá sjálfri sér og skólanum. Umsjón: Gígja Hólmgeirsóttir

Orkusalan áformar að reisa tvær 150 til 160 metra háar vindmyllur við Lagarfossvirkjun sem gætu framleitt tæp 10 megavött af raforku. Einhverjir íbúar óttast hins vegar bæði sjón- og örplastsmengun frá vindmyllunum. Við ræddum þetta við Björn Ingimarsson, sveitarstjóra Múlaþings. Í dag er svokallaður Svartur föstudagur eða Black Friday upp á ensku. En aukinni neyslu fylgir aukið rusl og við veltum aðeins upp þeirri hlið mála með Gunnar Dofra Ólafssyni hjá Sorpu sem gaf góð ráð varðandi endurvinnslu og fleira. Aukinni netverslun fylgja líka auknir póstflutningar, en pósturinn hefur þurft að takast á við ýmsar áskoranir í heimsfaraldrinum og hægt hefur á póstþjónustu. Við ræddum við Ósk Heiðu Sveinsdóttur forstöðumann þjónustu- og markaða hjá Póstinum. Á föstudögum förum við yfir fréttir vikunnar með góðum gestum og á því var engin undantekning í dag. Við fengum til okkar Guðrúnu Ólu Jónsdóttur, blaðamann á Vikunni, og Björn Inga Hrafnsson á Viljanum. Alþingi staðfesti í gærkvöldi öll útgefin kjörbréf og því ljóst að seinni talning í NV kjördæmi stendur. Þetta hefur áhrif á nokkra sem höfðu áður komist inn á þing, miðað við fyrstu talningu í kjördæminu, m.a. Guðmund Gunnarsson sem sagt hefur að hann muni fylgja málinu eftir og jafnvel kæra málið til Mannréttindadómstóls Evrópu. Guðmundur leit við hjá okkur. Við enduðum vikuna á léttum nótum þegar Freyr Gígja Gunnarsson leit við og færði okkur tíðindi af ríka og fræga fólkinu í hégómavísindahorninu. Þar komu Bítlarnir, Hringadróttinssaga, breska konungsfjölskyldan og Grammy verðlaunin við sögu. Tónlist: Jón Jónsson - Fyrirfram. The Cardigans - For what its worth. Retro Stefson - Glow. Patti Smith - Because the night. Karen Ósk og Friðrik Dór - Haustið. E.L.O. - Evil woman.
Landspítalinn leysir ekki einn og sér úr því alvarlega vandamáli að starfsfólk hættir þar vegna álags segir Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á spítalanum. Anna Lilja Þórisdóttir talaði við hana. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra er bjartsýn á að ný ríkisstjórn verði mynduð, stjórnarsáttmáli kynntur og fjárlagafrumvarp lagt fram fyrir mánaðamót og gefur lítið fyrir tal stjórnarandstöðu um seinagang. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við Katrínu. Börnum yngri en 12 ára verður boðin kórónuveirubólusetning hér á landi ef það verður samþykkt af Evrópsku sóttvarnastofnuninni. Þetta segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, Anna Lilja Þórisdóttir tók saman. Stjórnvöld í Bresku Kólumbíu í Kanada hafa lýst yfir neyðarástandi vegna óveðurs sem gekk þar yfir um síðustu helgi. Erfitt er að koma aðstoð til fólks sem einangraðist í illviðrinu. Ásgeir Tómasson sagði frá. Ríflega helmingur þeirra sem hafa sótt um aðstoð á þessu ári hjá umboðsmanni skuldara býr í leiguhúsnæði. Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður segir að þessi hópur hafi farið stækkandi á undanförnum árum. Höskuldur Kári Schram ræddi við hana. ------------ Leigjendum hefur fækkað og leiga hélst nokkuð stöðug í fyrra en hún hefur hækkað síðustu mánuði. Anna Kristin Jónsdóttir ræddi við Karlottu Halldórsdóttur, hagfræðing hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Mikill meirihluti aldraðra á hjúkrunarheimilum þjáist vegna tannvandamála sem ekki eru meðhöndluð. Arnhildur Hálfdánardóttir tók saman. Viðæmælendur: Eva Guðrún Sveinsdóttir, tannlæknir. Hólmfríður Guðmundsdóttir, tannlæknir hjá Embætti landlæknis og Aðalheiður Svana Sigurðardóttir, doktorsnemi í tannsmíði, Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmunsdóttir.
Umsjón: Rúnar Róbertsson og Gígja Hólmgeirsdóttir Stjórn Votlendissjóðs vinnur nú að því að fá alþjóðlega vottun á kolefniseiningum sem verða til við endurheimt votlendis á vegum sjóðsins. Markmiðið er að innan fárra missera geti Votlendissjóður boðið íslenskum fyrirtækjum og fyrirtækjum á alþjóðamarkaði vottaðar einingar sem nota má til kolefnisjöfnunar eða til að minnka kolefnisspor viðkomandi. En hvað þýðir þetta á mannamáli? Einar Bárðason framkvæmdastjóri Votlendissjóðs útskýrði málið fyrir okkur. ECPO, evrópsk samtök sem berjast fyrir fólk sem lifir með offitu hefur tekið í gagnið myndabanka fyrir fjölmiðla og aðra sem vilja nýta sér efni frá þeim sem lifa með offitu í leik og starfi. Sólveig Sigurðardóttir er forseti ECPO, sem stendur fyrir European coalition for people living with Obesity, og athafnakona kom til okkar til að kynna okkur þennan myndabanka og hvaða þýðingu hann hafi. Með henni kom Erla Gerður Sveinsdóttir, heimilislæknir og lýðheilsufræðingur sem hefur starfað við sérhæfða offitumeðferð í áratug. Hún sagði okkur frá fræðslunni sem er komin af stað innan Heilsugæslunnar en stefnt er að opna móttöku fyrir fólk sem lifir með offitu. STEF, sem hluti af Samráðshópi tónlistariðnaðarins, sendi fyrir helgi bréf til bæði forsætisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra þar sem farið er fram á margvíslegar aðgerðir til endurreisnar tónlistarlífs eftir covid-19. Á meðan flestöll þau lönd sem Ísland vill bera sig saman við boða risastór framlög til menningar og hafa um leið bætt tónlistarfólki að miklu leyti það tap sem það varð fyrir í faraldrinum heyrist ekkert frá ríkisstjórn Íslands. Við fengum Guðrúnu Björk Bjarnadóttur, framkvæmdastjóra STEFs, til okkar til að ræða bréfið og hvað samráðshópurinn leggur til. Og í lok þáttar þá litum við yfir íþróttir helgarinnar með Helgu Margréti Höskuldsdóttur. Tónlist: Lay Low - Little by little Sycamore tree - Storm Thin Jim and the castaways - Confession Hákon - Barcelona Ellen Kristjánsdóttir og Þorsteinn Einarsson - Hluthafi í heiminum Magnús og Jóhann - Þar sem ástin býr Abba - I still have faith in you Starsailor - Goodsouls Ný dönsk - Ég kýs
Eyfirski safnadagurinn verður haldinn á sunnudaginn. Þar gefst fólki tækifæri á að heimsækja flestöll söfn á Eyjafjarðarsvæðinu og sjá og upplifa það helsta í safnastarfi á svæðinu. Til að segja okkur betur frá þessu fengum við til okkar þau Steinunni Maríu Sveinsdóttur, safnstjóra á Flugsafni Íslands, og Harald Þór Egilsson, safnstjóra Minjasafnsins á Akureyri. Á morgun eru 20 ár frá því að árás var gerð á Bandaríkin og Tvíburaturnarnir í New York féllu eftir að flugvélum hafði verið flogið á þá. Við ætlum að skoða hvernig og hvort þessir atburðir breyttu heiminum. Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, skoðaði þetta með okkur og var á línunni hjá okkur. Í Vatnsdal í Austur-Húnavatnssýslu er hefð fyrir því að reka til réttar snemma morguns á sjálfan réttardag. Þá er safnast saman við bæinn Haukagil, sem er innst í dalnum, og féð rekið að Undirfellsrétt, þar sem réttarstörf hefjast stundvíslega klukkan 13:00 í dag. Við freistuðum þess að taka smá þátt í stemmningunni og slógum á þráðinn til bóndans og fjallskilastjórans Egils Herbertssonar, eða Valda á Haukagili, eins og hann er jafnan kallaður. Í Fréttir vikunnar að þessu sinni fengum við til okkar reynslumikla fréttahauka sem hafa unnið saman, verið á þingi fyrir sitthvorn flokkinn og verið fréttastjórar. Þau Elín Hirst, sjónvarpsframleiðandi og Sigmundur Ernir Rúnarsson, ritstjóri Fréttablaðsins komu til okkar í fréttaspjall. Haustin eru tíminn þegar leikhúsin fara aftur af stað og byrja að kynna leikárið sem er fram undan. Að þessu sinni er sviðslistafólk sérstaklega spennt að draga tjöldin aftur frá, enda búin að starfa við takmarkanir í rúma 18 mánuði. Við fengum til okkar Brynhildi Guðjónsdóttur, leikhússtjóra Borgarleikhússins, sem ætlar að segja okkur allt um hvað sé fram undan hjá þeim þetta leikárið. Tónlist: Snorri Helgason - Haustið 97 Nýdönsk - Frelsið Land og synir - Terlín Duran Duran - More joy Bubbi Morthens - Blindsker Abba - Don't shut me down
Gestir í vikulokin á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí voru Halldóra Sigríður Sveinsdóttir, formaður Bárunnar, Sandra Franks formaður Sjúkraliðafélags Íslands og Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis. Umsjónarmaður: Anna Kristín Jónsdóttir Tæknimaður: Jón Þór Helgason