Podcasts about ragnarsd

  • 45PODCASTS
  • 280EPISODES
  • 58mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • May 31, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about ragnarsd

Latest podcast episodes about ragnarsd

Heimskviður
223 - Tónlist í fangelsum og flækingshundar í Tælandi

Heimskviður

Play Episode Listen Later May 31, 2025 43:20

Hvað gerist þegar fangar fá að koma saman til að búa til tónlist. Getur það jafnvel stuðlað að jákvæðum breytingum og hjálpað föngum að aðlagast aftur að samfélaginu? Þetta eru vísindamenn við háskólann í Osló í Noregi að rannsaka í þremur löndum, meðal annars á Íslandi. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir ræddi við tvo þeirra og fékk að vita allt um þetta áhugaverða verkefni. Hvað verður til þess að írskur athafnamaður ákveður að helga lífi sínu því að bjarga flækingshundum í Taílandi? Og af hverju hefur starf hans vakið athygli víða um heim? Ólöf Ragnarsdóttir ætlar að segja okkur sögu þessa manns og hunda sem sumir voru nær dauða en lífi en hafa eignast ný heimili víða um heim.

Poppland
Fimmtudagur í starfskynningu

Poppland

Play Episode Listen Later May 8, 2025 195:00

Árni Matt og Júlía Aradóttir fjölluðu um plötu vikunnar, ...letters of my past með Silju Rós. Jóhann Helgason sendi inn póstkort með nýjasta lagi sínu Stay. Elsa og Bjartey frá Vestmannaeyjum voru í starfskynningu og stóðu sig með prýði. Tónlist frá útsendingarlogg 2025-05-08 NÝDÖNSK - Frelsið. Greiningardeildin, Bogomil Font - Þú trumpar ekki ástina. Eilish, Billie - Birds of a Feather. DEPECHE MODE - Just can't get enough. Árnason og Co., Unnsteinn Manuel Stefánsson - Sprettur. Júníus Meyvant - Raining Over Fire. Chappell Roan - The Giver. BOTNLEÐJA - Þið eruð frábær. Del Rey, Lana - Blue jeans. QUEEN - Don't Stop Me Now. Silja Rós Ragnarsdóttir - The way u... - Kynning Plata vikunnar 2025 19. vika. Silja Rós Ragnarsdóttir - The way u.... ENSÍMI - Atari. BILLY JOEL - The Longest Time. Holy Hrafn, Vigdís Vala Valgeirsdóttir - Tjarnarbófarnir. Taylor Swift - Blank Space. SÓLSTRANDARGÆJARNIR - Rangur maður. HARRY STYLES - Watermelon Sugar. Laddi, Hljómsveit mannanna - 19 gráður. Björk Guðmundsdóttir - Big Time Sensuality REMIX. RAGNHEIÐUR GRÖNDAL - Dís. Páll Óskar Hjálmtýsson, Benni Hemm Hemm - Allt í lagi. HILDUR - I'll Walk With You. Cake - Short skirt/Long jacket [Radio edit]. Wuh Oh, Ellis-Bextor, Sophie - Hypnotized (bonus track wav). Bubbi Morthens - Strákarnir á Borginni. ÁSGEIR TRAUSTI - Heimförin. YEAH YEAH YEAHS - Maps. Silja Rós Ragnarsdóttir - Lemons.... Silja Rós Ragnarsdóttir - Share U. Silja Rós Ragnarsdóttir, Bergrós Halla Gunnarsdóttir - Love & Affirmation. Silja Rós Ragnarsdóttir - Honey.... Weather Girls, The - It's raining men. Balu Brigada - The Question. GUS GUS - Within You. MANNAKORN - Einhverstaðar Einhverntíman Aftur. Ásdís - Touch Me. PJ HARVEY - Good Fortune. ELÍN HALL - Rauðir draumar. Joel, Billy - Vienna. Jóhann Helgason Tónlistarmaður, Gammar - Stay. Doechii - Anxiety. Laufey - Silver Lining. Kelis - Milkshake. ABBA - Voulez-Vous. Röyksopp - The girl and the robot. MARK RONSON feat. ALEX GREENWALD - Just.

Poppland
Lögin við vinnuna og Laddinn við vinnuna

Poppland

Play Episode Listen Later May 7, 2025 195:00

Plata vikunnar er ...letters from my past með Silju Rós. Laddi kemur einnig í heimsókn með nýtt lag. Tónlist frá útsendingarlogg 2025-05-07 HIPSUMHAPS - Lsmlí (Lífið sem mig langar í). PÁLL ÓSKAR OG MILLJÓNAMÆRINGARNIR - Negro José. EDWARD SHARPE & THE MAGNETIC ZEROS - Home. Holy Hrafn, Vigdís Vala Valgeirsdóttir - Tjarnarbófarnir. FLEETWOOD MAC - Little Lies. EMILÍANA TORRINI - Perlur Og Svín. Teddy Swims - The Door. Sigríður Beinteinsdóttir, Celebs - Þokan. Skakkamanage, Skakkamanage og Prins Póló, Prins Póló - Partíþoka. CHAKA KHAN - Ain't nobody. Fender, Sam - Little Bit Closer. TOM JONES & MOUSSE T - Sexbomb. R.E.M. - Losing My Religion. Silja Rós Ragnarsdóttir - The way u... - Kynning Plata vikunnar 2025 19. vika. Silja Rós Ragnarsdóttir - The way u.... Lizzo - Still Bad. WILL SMITH - Men In Black (Album Version). FOCUS - Hocus Pocus. RÚNAR JÚLÍUSSON - Gott Er Að Gefa. Bríet - Rólegur kúreki. Ward, Anita - Ring my bell. Ngonda, Jalen - Just as Long as We?re Together. STJÓRNIN - Allt Í Einu. Balu Brigada - The Question. JÓNAS SIGURÐSSON - Ofskynjunarkonan (#2). Dacus, Lucy, Hozier, Dacus, Lucy, Hozier - Bullseye. BJARNI ARA - Karen. CMAT - Running/Planning. Laddi - Stórpönkarinn. Laddi - Viðtal Laddi, Hljómsveit mannanna - 19 gráður. THE CARDIGANS - Sick And Tired. ALL SAINTS - Never Ever. BOGOMIL FONT OG GREININGARDEILDIN - Trumpar ekki ástina. Snorri Helgason - Ein alveg. SOFT CELL - Tainted Love. Silja Rós Ragnarsdóttir - Curtain Call. - Kynning Plata vikunnar 2025 19. vika. Silja Rós Ragnarsdóttir - Curtain Call.. Tommy Roe - Dizzy. Lorde - What Was That. Raffaella Carra - Pedro John Lennon - Instant karma!. Oh Land - Son of a Gun Nemendur í Verslunarskóla Íslands - Kvöldin í bænum. Sheeran, Ed, Sheeran, Ed - Azizam. FM Belfast - Underwear. EURYTHMICS - Sweet Dreams (Are Made of This) (80).

Poppland
Dúett í Popplandi í dag

Poppland

Play Episode Listen Later May 5, 2025 195:00

Margrét Erla Maack og Hulda Geirsdóttir skiptu með sér Popplandinu í dag og buðu upp á fjölbreytta blöndu tónlistar. Lagalisti: Emilíana Torrini - Big Jumps. Stuðmenn - Ofboðslega Frægur. Emmsjé Gauti og Króli - 10 Þúsund. Uppáhellingarnir - Vor í Reykjavík. Inspector Spacetime - Dansa og Bánsa. Elton John - I'm still standing. Miriam Makeba- Pata Pata. Chappell Roan - The Giver. Amy Winehouse - Will You Still Love Me Tomorrow. Silja Rós Ragnarsdóttir - The way u... - Kynning Plata vikunnar 2025 19. vika. Silja Rós Ragnarsdóttir - The way u.... The Turtles - Happy together. Laufey - Silver Lining. Barbra Streisand - Woman In Love. CMAT - Running/Planning. Wet Leg - Catch These Fists. Stereolab - Aerial Troubles. Billy Joel - Uptown girl. Muse - New born. BECK - Tropicalia. Jalen Ngonda - Just as Long as We're Together. The Kinks - All day and all of the night. Daði Freyr - I don't wanna talk. Caribou - Odessa. GDRN, Friðrik Dór, Moses Hightower og Stórsveit Reykjavíkur - Springur út. Wings - Live And Let Die. Ásdís - Touch Me. Grace Jones - I've seen that face before. Árnason og Co., Unnsteinn Manuel Stefánsson - Sprettur. Mumford and sons - I Will Wait. Damiano David - Born With A Broken Heart. Run DMC & Aerosmith - Walk This Way. Warmland - The Very End of the End (The Beginning of Something Great). Jón Jónsson Tónlistarm., Una Torfadóttir - Vertu hjá mér. Lana del Rey- Henry, come on. Silja Rós Ragnarsdóttir, Bergrós Halla Gunnarsdóttir - Love & Affirmation - Kynning Plata vikunnar 2025 19. vika. Silja Rós Ragnarsdóttir, Bergrós Halla Gunnarsdóttir - Love & Affirmation. Páll Óskar Hjálmtýsson, Benni Hemm Hemm - Allt í lagi. Pulp - Spike Island. Marvin Gaye - I Heard It Through The Grapewine. Cake - Never there. Steinunn Jónsdóttir - Stiklað á stóru. Wallen, Morgan - Love Somebody. Lenny Kravitz - The Chamber. Adele - Rolling In The Deep. Ellen Kristjánsdóttir og Mannakorn - Litla Systir. My Morning Jacket - Time Waited. CMAT - Running/Planning. Krummi - Stories To Tell. Simply Red - Stars.

love affirmations kr hj run dmc mumford reykjav upp something great wallen vertu margr bergr i will wait ragnarsd gdrn aerosmith walk this way stikla moses hightower emmsj gauti steinunn j adele rolling in the deep ofbo
Heimskviður
215 - Stríðshrjáð svæði - Úkraína og Sýrland

Heimskviður

Play Episode Listen Later Apr 5, 2025 47:33

Stríðið í Sýrlandi tók snöggan endi eftir tæplega 14 ár í byrjun desember. Eftir situr þjóð í sárum, helmingurinn á flótta og heil kynslóð sem ólst upp við borgarastríð. Þótt síðustu mánuðir hafi ekki verið friðsamlegir með öllu eru Sýrlendingar farnir að þora aftur heim að vitja heimila sinna. Ólöf Ragnarsdóttir ræddi við mann sem býr hér á Íslandi en er í Sýrlandi núna eftir meira en áratug á flótta. Við heyrum hans sögu. Svo förum við til Úkraínu með Birni Malmquist, en hann fór nýlega til Kyiv og reyndar víðar um Úkraínu. Í borginni Poltava hitti hann Tetiönu Bardinu, sem er aðstoðarborgarstjóri í Poltava. Hún lýsir mannskæðri árás Rússa á skóla í borginni í fyrra og segir erfitt að búa við það að önnur slík árás geti verið gerð á hverri stundu. Björn hitti líka Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands í Póllandi og einnig gagnvart Úkraínu. Hann lýsir þeim verkefnum sem Ísland styrkir í Úkraínu. En síðustu þrjú ár hafa íslensk stjórnvöld varið um ellefu og hálfum milljarði króna í stuðning við Úkraínu, rúmlega helmingur þess hefur farið í hernaðarlega aðstoð og hinn helmingurinn í mannúðar- og efnahagslegan stuðning.

Heimskviður
207 - Bandaríkjaforsetarnir sem vildu kaupa Grænland og norður-kóreskir hermenn á vígvellinum

Heimskviður

Play Episode Listen Later Feb 8, 2025 43:46

Donald Trump er ekki fyrsti forseti Bandaríkjanna sem viðrar hugmyndir um kaup á Grænlandi. Harry Truman vildi kaupa Grænland í upphafi kalda stríðsins og Andrew Johnson skoðaði hugmyndina sömuleiðis á nítjándu öld. En er þá ekki hægt að ekki hægt að líta á hugmyndir Trumps um kaup á Grænlandi með tilvísun í söguna og forvera hans sem höfðu sambærilegan áhuga á þessu nágrannalandi? Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði og blaðamaðurinn Árni Snævarr ræða við Birtu Björnsdóttur um sögulegan áhuga Bandaríkjamanna á Grænlandi og hið flókna samband Danmerkur og Grænlands. Undir lok síðasta árs bárust fregnir af því að Rússum hefði borist liðsauki í stríðinu gegn Úkraínu. Norðurkóreskar hersveitir voru mættar á vígvöllinn. Eins og flest allt sem viðkemur einræðisríkinu Norður-Kóreu eru hlutverk og þátttaka þessara hersveita sveipuð leynd. Ólöf Ragnarsdóttir rýndi í það sem hefur þó komið fram og ræddi við Jón Björgvinsson, sem hefur margoft farið á vígvöllinn í Úkraínu.

Spegillinn
Forsetakjör í Bandaríkjunum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 6, 2024 20:00

Donald Trump, sem vann sigur í forsetaskosningum í Bandaríkjunum í gær segir það árangur stórkostlegrar stjórnmálahreyfingar og nú taki við að græða Bandaríkin og laga það sem misfarist hafi síðustu ár. Til þess þurfi að sameina Bandaríkjamenn. Kamala Harris frambjóðandi Demókrata ætlar að ávarpa stuðningsfólk sitt í kvöld. Hún hefur enn ekki brugðist við sigri Trumps. Sigur Trumps var ekki beinlínis óvæntur en virðist verða meira afgerandi en kannanir höfðu gefið til kynna. Hafsteinn Birgir Einarsson stjórnmálafræðingur og Ólöf Ragnarsdóttir fréttamaður ræða um niðurstöður kosninganna vestra og við hverju megi búast þegar Trump tekur við.

Spegillinn
Löggjöf Ísraelsþings fordæmd, E.coli-hópsýking og skoðanakannanir

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 29, 2024 20:00

Lög sem ísraelska þingið í samþykkti í gær gætu orðið til þess að starfsemi Palestínuflóttamannahjálparinnar, UNRWA, leggist af á Gaza. Ef það gerist getur allt hjálparstarf á Gaza fallið um sjálft sig. Þetta segir Gréta Gunnarsdóttir skrifstofustjóri UNRWA í New York, Ólöf Ragnarsdóttir ræddi við hana. Á fimmta tug barna hefur veikst eftir E.coli hópsýkingu á leikskóla í Reykjavík í síðustu viku. Tíu börn eru á spítala og þar af eru fimm alvarlega veik á gjörgæslu. Rúmlega tuttugu börn eru undir daglegu eftirliti á barnaspítala Hringsins. Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir þetta með alvarlegustu hópsýkingum sem hér hafi komið upp. Næstu daga og vikur dynja skoðanakannanir á landsmönnum - þær gefa kjósendum vísbendingu um hvar flokkarnir standa fyrir þingkosningar sem verða eftir rúmlega þrjátíu daga. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Agnar Frey Helgason, dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.

Heimskviður
195 - Raddir frá átakasvæðum og Ástralíuferð Karls Bretakonungs

Heimskviður

Play Episode Listen Later Oct 19, 2024 42:19

Við ætlum að fjalla um stríð og frið. Það er víst nóg af því fyrrnefnda sérstaklega eins og við sjáum í fréttum alla daga, bæði í Evrópu og Mið-Austurlöndum. Við heyrum í þremur viðmælendur sem lýsa því hvernig er að búa við stríð og það þekkja þau vel. Þau eru frá Palestínu, frá Líbanon og frá Úkraínu. Ólöf Ragnarsdóttir ræddi við þau öll, og ekki bara um stríð, heldur líka frið og friðarhorfur. Karl þriðji Bretakonungur er kominn til Ástralíu. Opinber heimsókn hans og Camillu drottningar hófst í gær. Þetta er í sautjánda sinn sem Karl ferðast til Ástralíu en þetta er fyrsta heimsóknin frá því hann varð konungur. Líka í fyrsta sinn sem Bretakonungur kemur til Ástralíu og kannski líka í það síðasta, því þessar heimsóknir kóngafólksins vekja alltaf upp umræðuna í Ástralíu, hvort Ástralar þurfi yfir höfuð að vera undir bresku konungsfjölskyldunni. Bjarni Pétur Jónsson fjallar um málið.

Mannlegi þátturinn
Saga björgunarskipsins Maríu Júlíu og fatlað fólk í tæknivæddri framtíð

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 16, 2024 51:03

Björn Erlingsson hafeðlisfræðingur kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá sögu hins fornfræga björgunarskips Vestfirðinga, Maríu Júlía BA 36, sem kom var safnað fyrir og að lokum smiðað í Danmörku. Skipið kom til Íslands árið 1950 og nýttist á fjölbreyttan hátt næstu áratugina, til dæmis er talið að áhafnir skipsins hafi bjargað um tvö þúsund manns og í skipinu var sérútbúin rannsóknarstofa fyrir fiskifræðinga og fyrir sjómælingar. Skipið var því fyrsti vísir að hafrannsóknarskipi á Íslandi. Í dag er skipið komið til hafnar á Húsavík en ætlunin er að gera það upp enda er skipið nú friðað með lögum. Björn sagði okkur merkilega sögu Maríu Júlíu í þættinum. Á laugardaginn fer fram málþing um fatlað fólk í tæknivæddri framtíð. Hugmyndafræði og ákvæði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem er nú í lögfestingarferli á Íslandi, nýtast sem grunnviðmið til að meta bæði áhættu og tækifæri sem skapast með aukinni notkun gervigreindar og starfrænnar tækni. Í grundvallaratriðum er samningnum ætlað að tryggja fötluðu fólki jafnrétti og jafnræði á öllum sviðum. Heimsmarkmið SÞ eru sett fram með það að meginmarkmiði að skilja engan eftir og í þeim felst hugsjón um að búa til samfélag þar sem allir, þar á meðal fatlað fólk, njóti jafnra tækifæra og jafnréttis á öllum sviðum. Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar og Magga Dóra Ragnarsdóttir, stafrænn hönnunarleiðtogi Mennskrar ráðgjafar komu í þáttinn og sögðu okkur frá því um hvað verður rætt á þinginu og hvað ber helst að hafa í huga í þessum málum svo að tæknivædd framtíð og gervigreind geti nýst öllum. Tónlist í þættinum: Horfðu til himins / Nýdönsk (Daníel Ágúst Haraldsson og Jón Ólafsson) Farmaður hugsar heim / Ragnar Bjarnason og Elly Vilhjálms (lagið eftir Þórunni Franz og textinn eftir séra Árelíus Níelsson) One of these things first / Nick Drake (Nick Drake) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Lestin
Tapararnir, flókinn fréttaflutningur um stríðið á Gaza

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 9, 2024 55:10

Ef hlustendur Lestarinnar eiga leið hjá finnsku borginni Turku þá standa nú yfir sýningar í sænska leikhúsinu þar í borg, Åbo Svenska Theater, á verkinu Förlorana, Tapararnir, eftir Hallveigu Kristínu Eiríksdóttur. Verkið er útskriftarverkefni Hallveigar úr meistaranámi í leikstjórn frá leikhúsakademíunni í Helsinki. Verkið hefur hlotið þó nokkra umfjöllun í finnskum fjölmiðlum, en það fjallar um sigur og töp á handboltavellinum. Þrír blaðamenn velta fyrir sér flækjunum sem fylgja því að flytja fréttir frá hörmungunum á Gaza. Eðli málsins samkvæmt eru skoðannir almennings á orðavali og innihaldi frétta um þetta stríð, átök, eða þjóðarmorð, sterkari en í öðrum fréttamálum. Viðmælendur eru Aðalsteinn Kjartansson, Heimildinni, Ólöf Ragnarsdóttir, Rúv og Hólmfríður Gísladóttir, Vísi.

Víðsjá
Íslenski bærinn / Svipmynd

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 9, 2024 49:06

Að Austur-Meðalholtum í Flóa stendur einn af fáum varðveittum torfbæjum landsins. Myndlistarmennirnir Hannes Lárusson og Bryndís Hrönn Ragnarsdóttir búa í Austur-Meðalholti og reka þar Íslenska bæinn. Hann hefur að geyma, auk gamla torfbæjarins, sýningarrými, samkomustað, vinnustofur, verkstæði, timburhús af þeirri tegund er spratt úr torfbænum, og einnig hýbýli þeirra sjálfra. Við heimsækjum þau Hannes og Bryndísi Hrönn í þætti dagsins og drögum upp svipmynd af torfbænum.

Spegillinn
Magnús Þorkell um stöðuna í Miðausturlöndum og íbúðarkaup ungs fólks

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 1, 2024 20:00

Ísraelar hafa gert fjölda loftárása á Líbanon síðustu daga og innrás Ísraelshers á jörðu niðri er hafin. Hátt í þúsund manns hafa fallið í Líbanon á síðustu dögum og hundruð þúsunda eru á flótta. Eins og fram kom í fréttum hefndu Íranir árásanna á Hezbollah og drápsins á leiðtoga samtakanna með eldflaugaárás síðdegis í dag. Ólöf Ragnarsdóttir fréttamaður ræddi við Magnús Þorkel Bernharðsson sérfræðing í málefnum Miðausturlanda skömmu áður en þær árásir hófust spurði hvernig hann mæti stöðu mála í Líbanon. Hvorki veður né náttúruvá útiloka að flugvöllur verði gerður í Hvassahrauni. Starfshópur sem hefur verið að störfum frá því sumarið 2020 kynnti í morgun niðurstöður sínar og þar er lagt til að frekari rannsóknir verði gerðar til að mynda á ókyrrð, unnið verði áhættumat vegna fjárfestingar og að tekið verði frá svæði upp af Hvassahrauni fyrir tvær allt að þriggja kílómetra langar flugbrautir og þá þriðju sem yrði einn og hálfur kílómetri. Hlutfall ungs fólks með íslenskt ríkisfang sem á fasteign er með mesta móti miðað við undanfarin 15 ár. Þetta kemur fram í nýlegu minnisblaði fjármálaráðuneytisins. Þetta segir þó aðeins hálfa söguna því meirihluti fyrstu kaupenda virðist njóta fjárhagslegrar aðstoðar og vísbendingar eru um að hún sé meiri en nokkru sinni áður.

hezbollah magn ragnarsd bernhar mi austurl starfsh
Heimskviður
191 - Konurnar í Afganistan og þrítugir Vinir

Heimskviður

Play Episode Listen Later Sep 21, 2024 46:27

Það er sem betur fer ekki víða í heiminum sem konum er bannað með lögum að tala og syngja á almannfæri. En þannig er staðan í Afganistan, nú rétt rúmum þremur árum eftir valdatöku talibana. Ólöf Ragnarsdóttir fjallar um stöðu kvenna í Afganistan sem versnar með hverjum deginum. Hún ræðir meðal annars við Írisi Björgu Kristjánsdóttur sem nýverið sat fund með konum frá Afganistan, konum sem nú hefur verið bannað að tala á almannafæri en berjast fyrir betri framtíð fyrir sig og dætur sínar. Á morgun, 22. september, eru 30 ár síðan fyrsti þátturinn af gamanþáttaröðinni Friends var sendur úr á NBC sjónvarpsstöðinni. Í vor voru 20 ár síðan lokaþátturinn fór í loftið, nánar tiltekið þann 6.maí. Friends eru enn þann dag í dag einir vinsælustu sjónvarpsþættir sögunnar og áhorfið á þá á streymisveitum mikið og stöðugt enn þann dag í dag. Þrátt fyrir vinsældirnar er deilt um það hvort þeir standist tímans tönn. Þá er það aðallega hvernig fjallað var um transfólk og samkynhneigð í þáttunum, en einnig hversu skjannahvít ásjóna þáttanna var. Birta segir okkur nú sögu Friends.

Spegillinn
Nýr forseti í Íran og ísbjarnafár á Grænlandi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 29, 2024 10:00

Nýr forseti tekur við völdum í ÍRan á þriðjudag. Hann hefur lofað breytingum sem Magnús Þorkell Bernharðsson, prófsesor í Mið-Austurlandafræðum, segir að gæti orðið erfitt að standa við. Ólöf Ragnarsdóttir ræðir við Magnús Þorkel. Ísbirnir eru til vaxandi vandræða í byggð á Grænlandi. Lögum hefur verið breytt til að auðvelda fólki að skjóta svokallaða vandræðabirni, sem láta sér ekki segjast þótt þeir séu marghraktir í burtu frá mannabyggðum heldur snúa ítrekað aftur á sömu slóðir. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Heimskviður
Sumar-Heimskviður / Sprengjuárás í Madrid og Baby Reindeer

Heimskviður

Play Episode Listen Later Jul 20, 2024 34:48

Í mars voru 20 ár liðin frá mannskæðasta hryðjuverki í Evrópu á þessari öld. Þá voru sprengdar 10 sprengjur í og við Atocha-lestarstöðina í miðborg Madrid, höfuðborgar Spánar. Þessa ódæðis var minnst á Spáni fyrr á þessu ári en atburðurinn markaði djúp sár í spænska þjóðarsál og hafði einnig gríðarleg áhrif á spænsk stjórnmál vegna atburðarásarinnar í kjölfar hryðjuverksins. Jóhann Hlíðar Harðarson rifjaði upp söguna með okkur. Einir vinsælustu sjónvarpsþættir ársins hér á landi eru án efa Netflix þáttaröðin Baby Reindeer. Ólöf Ragnarsdóttir kynnti sér sögu þáttanna og vinsældirnar í Heimskviðum í maí, en þættirnir byggja á sannri sögu eins og flest vita.

Heimsglugginn
Bretar kjósa nýtt þing

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jul 4, 2024 22:37

Guðrún Hálfdánardóttir og Vera Illugadóttir ræddu við Boga Ágústsson um bresku þingkosningarnar sem eru í dag. Við heyrðum í sir John Curtice, helsta kosningaskýranda BBC. Ólöf Ragnarsdóttir fréttamaður ræddi við hann um stöðuna í breskum stjórnmálum. Þá var Ólöf með, beint frá Lundúnum, og sagði frá andrúmsloftinu í höfuðborg Bretlands þar sem allir búast við stórsigri Verkamannaflokksins.

Heimskviður
Sumar-Heimskviður / Líf í geimnum og mannát

Heimskviður

Play Episode Listen Later Jun 29, 2024 43:28

Við fjöllum um það sem gerist úti í heimi í þessum þætti alla jafna en ætlum að seilast aðeins lengra í upphafi þáttar. Nánar tiltekið út í geim. Geimrannsóknarstofnun Bandaríkjanna - NASA - vill breyta umræðu um fljúgandi furðuhluti og færa á hærra plan. Nær vísindum og frá æsingu og samsæriskenningum. Og liður í því er einmitt að hætta að kalla þessi óþekktu fyrirbæri fljúgandi furðuhluti. Ólöf Ragnarsdóttir spurði, er sannleikurinn þarna úti. Mannát hefur, kannski ótrúlegt en satt, komið við sögu í Heimskviðum allavega tvisvar. Nú ætlum við að rifja upp umfjöllun Dagnýjar Huldu frá því í vetur, og kannski alveg óhætt að vara við lýsingum í pistlinum hér á eftir. Í vetur var leikritið Kannibalen sýnt hér landi, en það er byggt á sönnum atburðum. Í stuttu máli fjallar það um mann sem langar til að borða annan mann og kemst í kynni við mann sem vill láta borða sig. Þrátt fyrir að það sé ekkert blóð í leikritinu þá eru lýsingarnar í því svo ítarlegar að á frumsýningu verksins í Danmörku ældi áhorfandi og hér á landi féll einn í yfirlið. En sem fyrr segir þá er þetta saga sem gerðist í raun og veru og það fyrir ekki svo löngu.

Heimskviður
Sumar-Heimskviður / Stríð vegna vatns og Óperudraugurinn

Heimskviður

Play Episode Listen Later Jun 15, 2024 41:08

Í Sumar-Heimskviðum rifjum við upp efni út þáttum vetrarins og búum til nýja þætti úr áður fluttu efni okkar. Öldum saman hafa stríð verið háð vegna auðlinda og hver er ein dýrmætasta auðlind veraldar? Það er vatnið. Það þrifist ekki líf á plánetunni jörð án þess. Staðbundin átök, skærur eða deilur milli hópa vegna vatns eru algeng en ekki hefur enn brotist út stríð milli ríkja eingöngu vegna vatns. Gæti það gerst í náinni framtíð? Ólöf Ragnarsdóttir leitaði svara við því. Þegar ellefu hljóðfæraleikarar tóku að sér hlutverk í hljómsveitinni fyrir söngleikinn um óperudrauginn á Broadway árið 1988 grunaði þá líklega fæsta að þarna væri ævistarfið komið. Þrjátíu og fimm árum, og hátt í fjórtán þúsund sýningum síðar, var komið að lokasýningunni. Þetta var í apríl í fyrra. Vinsældir söngleikja eru stundum samofnar því sem er að gerast í samfélaginu. Til dæmis þótti söngleikurinn Mamma Mia kærkominn þegar hann var frumsýndur í New York stuttu eftir hryðjuverkaár ásirnar þar í borg. Birta skoðaði sögu söngleikja, ástæður vinsælda þeirra og framtíðarhorfur.

Heimskviður
182 - Baby Reindeer og skæð fuglaflensa

Heimskviður

Play Episode Listen Later May 4, 2024 38:08

Sjónvarpsþættirnir Baby Reindeer njóta mikilla vinsælda hér á landi og eru þeir vinsælustu á streymisveitunni Netflix um þessar mundir. Þættirnir segja sanna sögu ungs manns sem lendir í eltihrelli. Ólöf Ragnarsdóttir skoðaði fyrirbærið og þættina vinsælu. Skæð fuglaflensa, eða H5N1 eins og núverandi afbrigði er kallað, er vaxandi áhyggjuefni meðal heilbrigðisyfirvalda víða um heim. Vísbending er um að vírusinn sem veldur flensunni hafi mögulega stökkbreyst og geti smitast milli spendýra. Það eru fjölmörg dæmi um að fólk hafi smitast af fuglaflensu og dánartíðnin er uggvænleg; af 889 tilfellum um smit í fólki síðustu 12 mánuði dóu fjögur hundruð sextíu og þrír, eða rúmlega helmingur, sagði yfirmaður hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni um miðjan þennan mánuð. Björn Malmquist skoðaði málið.

Icelandic Art Center — Out There
HK Rannversson: Queen of Hearts, Numbers, Places and Art Theory in Iceland

Icelandic Art Center — Out There

Play Episode Listen Later Apr 30, 2024 83:19

In this episode of Icelandic Art Center's Out there podcast we spoke to the curator Heiðar Kári Rannversson who has been keeping busy with a few exhibitions recently opened locally in Iceland. We discuss the exhibition spring that has sprung in Iceland with a couple of exciting solo exhibitions having opened in Kling & Bang; Andri Björgvinsson and Tara & Silla and the National Gallery; Anna Rún Tryggvadóttir, Þóra Sigurðardóttir and the new iteration of Steina Vasulka's Borealis Installation from 1993 now on display. Heiðar Kári @hkrannversson is an independent curator, art historian and most recently he held a position at the Nordatlantens Brygge in Kobenhavn 2018 - 2022.  He has curated multiple shows across Iceland; The Living Art Museum, the National Gallery and for the Icelandic Art Center. In the episode his most recent exhibitions and projects were discussed including:  Sóley Ragnarsdóttir @soleygendary is a Danish/Icelandic artist that lives and works in Thy, Denmark. Ragnarsdóttir has a sculptural approach to painting, and her works, painted and ornamented with both synthetic and organic materials, hover between figuration and abstraction. She mixes acrylic and epoxy with shells, amber and sea-sanded shards of glass on surfaces of wood, canvas and napkins. Her solo exhibition “Queen of Hearts” curated by HK  is now on display at Gerðarsafn. Þór Vigfússon @arslonga_djupivogur is an artist that lives and works in Iceland. He creates powerful objects with colour, texture, and reflection using prefabricated industrial materials. His deceptively simple works, primarily made of glass, plexiglass, mirrors, and Formica with monotone colour fields, push the boundaries between two- and three-dimensional works. Architecture and space play a vital role in their presentation.His solo exhibition “Numbers, Places” curated by HK is now on display at Gerðarsafn. Outside Looking In, Inside Looking Out is an exhibition that has been traveling around the world and will continue in the coming year with the stopa in Tokyo, Oslo and Paris this Autumn. The exhibition showcases works by established and emerging artists from Iceland. This exhibition project is a collaborative platform between the Icelandic Art Center, the Ministry of Foreign Affairs & Business Iceland, promoting visual art from Iceland abroad. This episode ends with the exhibition of the month segment which is dedicated to the one and only Venice Biennale and its 60th international art exhibition curated by Adriano Pedrosa. Special mentions from the main exhibition include Ahmed Umar's work “Talitin, The Third” (2023) and the Mataaho Collective's installation “Takapau” (2024). For the national pavilions Becky and Tinna briefly discussed the following; Pakui Hardware at the Lithuanian Pavilion, Eimear Walshe's installation at Ireland at Venice, the Nigerian Pavilion with a star-studded artist roaster, Canadian Pavilion's exhibition with Kapwani Kiwanga's installation, Archie Moore's installation at the Australian Pavilion curated by Ellie Buttrose and more! Listen in for a quick review of the cacophony at the Biennale. // Created and produced by the Icelandic Art Center, Out There brings co-hosts Becky Forsythe @beforsythe and Þórhildur Tinna Sigurðardóttir @tindilfaetta in conversation with artists, curators and art professionals at the bokasamlagid.

Mótorvarpið
#184 Rallynuts 2024

Mótorvarpið

Play Episode Listen Later Apr 17, 2024 69:48

AB VARAHLUTIR - BÍLJÖFUR - BÍLAPUNKTURINN - Á FERÐ OG FLUGI Bragi fær til sín Hönnu Rún Ragnarsdóttur, Gunnar Karl Jóhannesson og Valgarð Thomas Davíðsson. Þau tóku öll þátt í Rallynuts Severn Valley Stages rallinu í Wales um helgina.

Víðsjá
Hjartabrostnar borgir, Hjartadrottning og Möguleg æxlun

Víðsjá

Play Episode Listen Later Apr 11, 2024 54:48

Í þættinum förum við í Gerðarsafn í Kópavogi og ræðum við Sóleyju Ragnarsdóttur um sýninguna Hjartadrottning sem verður opnuð næsta laugardag. Hún segir okkur frá servíettusafni ömmu sinnar og hvernig það hefur orðið að innblæst fyrir myndlistarverk og plastdrasli sem hún hefur týnt á ströndum Danmerkur þar sem hún er búsett. Jakub Stachowiak, rithöfundur, hefur verið að flytja okkur esseyjuseríuna hjartabrostnar borgir þar sem hann segir frá ferðalagi sínu til Ítalíu til að skrifa skáldsögu og jafna sig á ástarsorg. Í síðustu pistlum heyrðum við af sárri höfnun sem Jakub varð fyrir þegar hann reyndi að taka þráðinn upp aftur með sínum fyrrverandi í Róm. Og af því þegar hann til borgarinnar Napólí til að reyna að dreifa huganum frá sorginni. Í síðasta pistli sínum í dag heldur hann til Amsterdam en er ekki svo heppinn með veður. Einnig náum við tali af myndlistarmanninum Brák Jónsdóttur um sýninguna Möguleg æxlun eða Possible Oddkin sem hún hlaut hvatningarverðlaun Íslensku myndlistarverðlaunanna fyrir í mars. Að mati dómnefndar þóttu skúlptúrar Brákar og gjörningatengsl hennar við marga þeirra slái áhugaverðan tón í myndlistinni og að í þeim kjarnist margar af mikilvægari spurningum samtímans um tengsl manns og náttúru.

Heimskviður
178 - Týndu börnin í tónlistarmyndbandinu og Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna

Heimskviður

Play Episode Listen Later Apr 6, 2024 43:55

Árið 1993 kom út tónlistarmyndband við lagið Runaway Train með bandarísku hljómsveitinni Soul Asylum. Í myndbandinu voru sýndar myndir af börnum sem lýst hafði verið eftir. Mörg þeirra gáfu sig fram í kjölfar sýningar myndbandsins auk þess sem vinsældir myndbandsins skiluðu því að vitað varð um afdrif margra barnanna til viðbótar. Birta Björnsdóttir fjallar um þetta áhrifaríka tónlistarmyndband og tók viðtal við söngvara Soul Asylum, Dave Pirner. Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna bregður reglulega fyrir í fréttum. Það þótti sögulegt þegar það náði loks saman ályktun um tafarlaust vopnahlé á Gaza. En síðan hafa liðið tæpar tvær vikur og hún hefur litlu breytt. En hvað er hlutverk Öryggisráðsins og skiptir það einhverju máli? Ólöf Ragnarsdóttir ætlar svara því.

Heimskviður
174 - Stríð vegna vatns og hvarf flugvélar Malaysian Airlines

Heimskviður

Play Episode Listen Later Mar 2, 2024 44:28

Öldum saman hafa stríð verið háð vegna auðlinda og hver er ein dýrmætasta auðlind veraldar? Það er vatnið. Það þrifist ekki líf á plánetunni jörð án þess. Staðbundin átök, skærur eða deilur milli hópa vegna vatns eru algeng en ekki hefur enn brotist út stríð milli ríkja eingöngu vegna vatns. Gæti það gerst í náinni framtíð? Ólöf Ragnarsdóttir reynir að svara því. Í næstu viku verða tíu ár liðin frá því að flugvél Malaysian Airlines hvarf af ratsjám á leið sinni frá Kuala Lumpur til Peking. Og hún hvarf ekki bara af ratsjám, lítið sem ekkert hefur fundist af vélinni síðan og ófáar kenningar um hvað þarna gerðist. Birta kafaði ofan í þessa dularfullu sögu.

Podcast með Sölva Tryggva
Ragga Ragnars (brot af því besta)

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Jan 25, 2024 23:46

Nálgast má þáttinn í heild sinni án auglýsinga inn á; https://solvitryggva.is/ Ragnheiður Ragnarsdóttir var ein öflugasta sundkona Íslands um árabil og fór meðal annars á tvenna Olympíuleika. Fyrir nokkrum árum venti hún kvæði sínu í kross og setti allt sitt í leiklistina. Hún landaði einu af aðalhlutverkunum í sjónvarpsseríunni Vikings sem hefur farið um allan heim. Hér ræða hún og Sölvi um stórmerkilegan feril Röggu í sundinu og leiklistinni, mikilvægi þess að þora að elta ástríðurnar og margt margt fleira. Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Biobú - https://www.biobu.is/

Heimskviður
167| Hvað er framundan árið 2024?

Heimskviður

Play Episode Listen Later Dec 16, 2023 41:49

Í þessum síðasta þætti ársins 2023 horfa Heimskviður til framtíðar, nánar tiltekið til ársins 2024 sem er handan við hornið. Við förum yfir sviðið með góðkunningjum þáttarins, Birni Malmquist, Dagnýju Huldu Erlendsdóttur, Hallgrími Indriðasyni, Oddi Þórðarsyni og Ólöfu Ragnarsdóttur og skoðum flestar heimsálfurnar. Hvernig þróast átökin sem geisa í heiminum og hvaða áhrif hafa þau utan átakasvæða? Hvað verður efst á baugi á Norðurlöndunum og í Afríku? Verður tekist á um þátttöku Ísrael í Eurovision og á Ólympíuleikunum, eins og var með Rússland í fyrra? Hvernig lítur árið 2024 út utan Íslands? Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Heimskviður
167| Hvað er framundan árið 2024?

Heimskviður

Play Episode Listen Later Dec 16, 2023

Í þessum síðasta þætti ársins 2023 horfa Heimskviður til framtíðar, nánar tiltekið til ársins 2024 sem er handan við hornið. Við förum yfir sviðið með góðkunningjum þáttarins, Birni Malmquist, Dagnýju Huldu Erlendsdóttur, Hallgrími Indriðasyni, Oddi Þórðarsyni og Ólöfu Ragnarsdóttur og skoðum flestar heimsálfurnar. Hvernig þróast átökin sem geisa í heiminum og hvaða áhrif hafa þau utan átakasvæða? Hvað verður efst á baugi á Norðurlöndunum og í Afríku? Verður tekist á um þátttöku Ísrael í Eurovision og á Ólympíuleikunum, eins og var með Rússland í fyrra? Hvernig lítur árið 2024 út utan Íslands? Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Vikulokin
Þorvaldur Þórðarson, Páll Ketilsson og Ólöf Ragnars

Vikulokin

Play Episode Listen Later Nov 11, 2023 55:00

Gestir Vikulokanna eru Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði, Páll H. Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta, og Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona og Vestmannaeyingur. Sunna Valgerðardóttir ræðir við þau um hamfarirnar á Suðurnesjum, söguna, túristagosin þrjú og hamfarirnar í Eyjum, mikilvægi sáluhjálpar og hvers vegna Íslendingar eru slakir í forvörnum. Lydía Grétarsdóttir stýrir útsendingu.

Vikulokin
Þorvaldur Þórðarson, Páll Ketilsson og Ólöf Ragnars

Vikulokin

Play Episode Listen Later Nov 11, 2023

Gestir Vikulokanna eru Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði, Páll H. Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta, og Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona og Vestmannaeyingur. Sunna Valgerðardóttir ræðir við þau um hamfarirnar á Suðurnesjum, söguna, túristagosin þrjú og hamfarirnar í Eyjum, mikilvægi sáluhjálpar og hvers vegna Íslendingar eru slakir í forvörnum. Lydía Grétarsdóttir stýrir útsendingu.

Spegillinn
Aðstæður á Gaza, stytt nám til stúdentsprófs, Taylor Swift

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 10, 2023

Föstudagur 10. nóvember 2023 Aðstæður á Gaza eru hryllilegar og eiga eftir að versna áður en þær skána, segir Jan Egeland framkvæmdastjóri norska flóttamannaráðsins. Egeland, sem eitt sinn stýrði hjálparstarfi Sameinuðu þjóðanna, gagnrýnir íslensk stjórnvöld fyrir að tíma ekki að aðstoða fólk í neyð. Dagný Hulda Erlendsdóttir talaði við hann. Ragnhildur Thorlacius tók saman. Er þriggja ára framhaldsskólanám skilvirkara til stúdentsprófs? Hver er reynsla háskólanema og kennara af styttingu námstímans úr fjórum árum í þrjú? Ragnhildur Thorlacius ræddi stöðuna við Guðrúnu Ragnarsdóttur, dósent á menntavísindasviði Háskóla Íslands. Hún vinnur að rannsóknum á stefnubreytingum í menntamálum. Bandaríska tónlistarkonan Taylor Swift er ein skærasta stjarnan á hinum alþjóðlega dægurtónlistarhimni um þessar mundir. Eras tónleikaferð hennar er sögð styrkja efnahag Bandaríkjanna um 5,7 milljarða dollara. Ásgeir Tómasson sagði frá. Umsjón: Ásgeir Tómasson. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon.

Spegillinn
Aðstæður á Gaza, stytt nám til stúdentsprófs, Taylor Swift

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 10, 2023 20:00

Föstudagur 10. nóvember 2023 Aðstæður á Gaza eru hryllilegar og eiga eftir að versna áður en þær skána, segir Jan Egeland framkvæmdastjóri norska flóttamannaráðsins. Egeland, sem eitt sinn stýrði hjálparstarfi Sameinuðu þjóðanna, gagnrýnir íslensk stjórnvöld fyrir að tíma ekki að aðstoða fólk í neyð. Dagný Hulda Erlendsdóttir talaði við hann. Ragnhildur Thorlacius tók saman. Er þriggja ára framhaldsskólanám skilvirkara til stúdentsprófs? Hver er reynsla háskólanema og kennara af styttingu námstímans úr fjórum árum í þrjú? Ragnhildur Thorlacius ræddi stöðuna við Guðrúnu Ragnarsdóttur, dósent á menntavísindasviði Háskóla Íslands. Hún vinnur að rannsóknum á stefnubreytingum í menntamálum. Bandaríska tónlistarkonan Taylor Swift er ein skærasta stjarnan á hinum alþjóðlega dægurtónlistarhimni um þessar mundir. Eras tónleikaferð hennar er sögð styrkja efnahag Bandaríkjanna um 5,7 milljarða dollara. Ásgeir Tómasson sagði frá. Umsjón: Ásgeir Tómasson. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon.

Heimskviður
159| Landamæri og kosningar í Póllandi og söguslóðir bardaga í Belgíu

Heimskviður

Play Episode Listen Later Oct 21, 2023 40:00

Meðferð flóttafólks á landamærum Póllands og Belarús er eins og andstyggilegur borðtennisleikur, segir aðgerðarsinni sem hefur veitt mannúðaraðstoð á svæðinu. Við ætlum að fjalla um þetta ástand og nýafstaðnar kosningar í Póllandi sem fara líklega í sögubækurnar, ekki síst fyrir metkosningaþátttöku. Ólöf Ragnarsdóttir fór til Varsjár síðustu helgi og segir okkur frá. Stjórnvöld í velflestum ríkjum Evrópu hafa sameinast, undir hatti Evrópusambandsins og Atlantshafsbandalagsins, um að styðja úkraínsk stjórnvöld og milljónir flóttafólks frá Úkraínu hafa fengið skjól í öðrum ríkjum. Innrásin hefur líka haft víðtæk áhrif á hvernig íbúar og stjórnvöld í Evrópuríkjum líta á öryggismál, Finnland lét af áratugalangri stefnu um hlutleysi og fékk aðild að NATO, og Svíþjóð er á sömu vegferð þangað. Háværar raddir innan Evrópusambandsins þrýsta nú á um bjóða fleiri þjóðum, þar á meðal Úkraínu, í þennan klúbb sem upphaflega var stofnaður til að tryggja friðsamleg samskipti þjóða sem iðulega höfðu borist á banaspjótum, síðast fyrir um áttatíu árum. Að þeim tímapunkti ætlum við að beina sjónum okkar í þættinum í dag, nánar tiltekið til Belgíu, á vetrarmánuðum ársins 1944. Okkar maður í Brussel, Björn Malmquist, fór á söguslóðir einnar stærstu einstöku orystu Bandamanna í Evrópu, sem háð var í suðurhluta Belgíu, um það leyti sem jólin voru að ganga í garð fyrir sjötíu og níu árum. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Heimskviður
159| Landamæri og kosningar í Póllandi og söguslóðir bardaga í Belgíu

Heimskviður

Play Episode Listen Later Oct 21, 2023

155| Líf í geimnum og ólíft á ferðamannastöðum

Heimskviður

Play Episode Listen Later Sep 23, 2023

Við reynum að svara erfiðum spurningum í Heimskviðum í dag, um líf á öðrum hnöttum og hvers vegna við hópumst öll á sömu örfáu ferðamannastaðina. Geimrannsóknarstofnun Bandaríkjanna - NASA - vill breyta umræðu um fljúgandi furðuhluti og færa á hærra plan. Nær vísindum og frá æsingu og samsæriskenningum. Og liður í því er einmitt að hætta að kalla þessi óþekktu fyrirbæri fljúgandi furðuhluti. NASA birti nýverið skýrslu um þessi óútskýrðu fyrirbæri, Ólöf Ragnarsdóttir kafaði ofan í hana og við spyrjum; Er sannleikurinn þarna úti. Svo fjöllum við afleiðingar massatúrisma og hvaða leiðir yfirvöld á vinsælustu ferðamannastöðunum eru að skoða til að bregðast við honum. Borgaryfirvöld í Feneyjum ætla á næsta ári að byrja að rukka ferðamenn fyrir að koma. Þar hefur íbúum fækkað hratt síðustu áratugi á meðan ferðamönnum sem koma til borgarinnar bara fjölgar. Viðkomustaðirnir eru fleiri en Feneyjar, meðal annars alpaþorpið Hallstatt. Þar búa átta hundruð manns en þangað koma stundum rúmlega tíu þúsund ferðamenn á dag yfir sumarið. Heimamenn hafa haft horn í síðu ferðamanna lengi, því þorpið er lítið og þolir illa þennan mikla áhuga og áganginn sem honum fylgir. Og þar er líka verið að grípa til aðgerða. En það þarf að finna milliveg því margir íbúar lifi á ferðaþjónustunni, og án hennar myndi harðna á dalnum í Hallstatt og í Feneyjum og fleiri vinsælum ferðamannastöðum um allan heim. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

er nasa bandar svo umsj ragnarsd bjarni p feneyjum heimskvi
Heimskviður
155| Líf í geimnum og ólíft á ferðamannastöðum

Heimskviður

Play Episode Listen Later Sep 23, 2023 40:00

Skuldir aukast í bygginggeiranum og Bretar draga úr loftslagsaðgerðum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 20, 2023 9:49

Hægari sala fasteigna hefur valdið því að skuldir byggingageirans við bankana hafa aukist um 68 milljarða króna síðustu tólf mánuði. Það er ekki áhyggjuefni enn sem komið er, segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Volodymyr Zelenskí forseti Úkraínu vill að Rússar verði sviptir neitunarvaldi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Þeir hafi gert ráðið gagnslaust með beitingu neitunarvaldsins. Barnahús metur öll tilvik sem barnaverndarnefndir senda til hennar vegna mögulegra kynferðisbrota barna, segir Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu. Sum mál eigi ekki heima í Barnahúsi. Matvælastofnun boðar afléttingu á tímabundnu banni við hvalveiðum Hvals 8, að uppfylltum skilyrðum. Það er allt uppávið í uppsjávarfiski og gósentíð segir Hjörvar Ólafsson, skipstjóri á Berki, sem landaði 1.700 tonnum af síld í Neskaupstað í fyrrinótt eftir rúmlega sólarhrings veiðiferð. NIðurrif Íslandsbankahússins á Kirkjusandi verður boðið út á næstu vikum. Margt þarf að gera til að tryggja að myglugró berist ekki víða, það þarf að huga að vindátt og mögulega væta húsið segir Kjartan Smári Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða. -------------- Forsætisráðherra Bretlands segist ætla að milda aðgerðir til að ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2050 og fylgja raunsærri nálgun en hingað til. Ákvörðun hans mælist misjafnlega fyrir. Þar á meðal er forseti neðri málstofu þingsins sagður ævareiður. Krakkar og klám, unglingar og kynlíf, þetta eru óþægileg umræðuefni og vandræðaleg. Við viljum eðlilega leyfa börnum að vera börn sem lengst og hlífa þeim. En við viljum kannski líka hlífa okkur við tilhugsuninni og samtalinu. Kristín Blöndal Ragnarsdóttir veitir forstöðu verkefni Hafnarfjarðarbæjar um kynja- og kynfræðslu og kennir í Lækjaskóla. Spegillinn hitti Kristínu og spurði hana hvað krakkar, bæði börn og unglingar sæju á netinu. Mikill styr hefur staðið um sameiningaráform Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra um framhaldsskólana á Akureyri. Karli Frímannssyni, skólameistara MA líst fremur illa á sameining en Sigríður Huld Jónsdóttir skólameistari í VMA telur að einn og öflgur skóli væri til bóta. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir tók saman. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Jón Þór Helgason. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir

Spegillinn
Skuldir aukast í bygginggeiranum og Bretar draga úr loftslagsaðgerðum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 20, 2023

Suðurnesjalína samþykkt, börnum á flótta fjölgar, skógareldar í Kanada

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 30, 2023

Spegillinn 30. júní 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Kári Guðmundsson Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Fulltrúar Landsnets og Sveitarfélagsins Voga skrifuðu í dag undir samkomulag um lagningu Suðurnesjalínu 2, eftir rúmlega tíu ára harðvítugar deilur, sem margoft rötuðu fyrir dómstóla. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við Gunnar Axel Axelsson, bæjarstjóra í Vogum og Guðmund Inga Ásmundsson, forstjóra Landsnets. Reykjavíkurborg gerir ráð fyrir að yfir 400 börn á flótta komi inn á leik- og grunnskóla á næsta skólaári. Borgin þarf meira fé frá ríkinu sem þarf að gera betur, segir Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar í viðtali við Ólöfu Ragnarsdóttur. Landlæknisembættið leggur til að heilbrigðisráðuneytið breyti reglugerð um aðgengi að lyfjagátt í apótekum. Benedikt Sigurðsson ræddi málið við Ölmu Möller landlækni. Meirihluti lækna sem reka eigin starfsstofur samþykktu samning Sjúkratrygginga Íslands og Læknafélags Reykjavíkur sem var undirritaður í vikunni. Yfir 81 þúsund ferkílómetrar skóg- og gróðurlendis hafa orðið eldi að bráð í Kanada. Reykský frá eldunum valda gríðarlegri loftmengun. Ásgeir Tómasson sagði frá. Fyrsta skrefið í átt að sögulegum sættum í stjórnmálum hefur verið stigið í Noregi. Gísli Kristjánsson sagði frá. Bíósýningum verður hætt í Háskólabíói í kvöld. Síðasta sýningin í 62 ára sögu kvikmyndahússins er þegar klukkuna vantar tíu mínútur í níu. Karitas M. Bjarkadóttir sagði frá. Réttarhöldum yfir kvikmyndaleikaranum Kevin Spacey var fram haldið í dag. Ástrós Signýardóttir sagði frá. Sextán prósent þeirra sem tóku afstöðu í Þjóðarpúlsi Gallup telja íslenskt samfélag hafa gengið of langt í samþykkja trans fólk. Karitas M. Bjarkadóttir tón saman.

Spegillinn
Suðurnesjalína samþykkt, börnum á flótta fjölgar, skógareldar í Kanada

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 30, 2023 9:08

Ábyrgð stjórnenda Íslandsbanka og traust til kerfisins

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 27, 2023

Spegillinn 27. júní 2023. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra telur ekki að stjórnvöld hafi verið of bláeyg með því að treysta stjórnendum Íslandsbanka fyrir sölu á hlut í bankanum. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir að fólk sem ítrekað brjóti lög, blekki vísvitandi og ljúgi, njóti ekki trausts og þurfi að íhuga stöðu sína. Útleiga hoppukastala er ekki leyfisskyld starfsemi og ekkert formlegt eftirlit er með leigunni. Elva Rakel Jónsdóttir, staðgengill forstjóra umhverfisstofnunnar segir að breyta eigi reglugerðum. Ásta Hlín Magnúsdóttir talaði við hana. Yfirvöld í Póllandi, Lettlandi og Litáen óttast komu Wagner-málaliðahreyfingarinnar til Belarús. Þau hvetja NATO til þess að efla viðveru sína í austustu bandalagsríkjunum til að gæta öryggis þeirra. Róbert Jóhannsson sagði frá. Kynntar hafa verið hugmyndir í ríkisstjórn um að fjárfesta í færanlegum einingum til að koma mögulegum móttökubúðum flóttamanna á fót hér á landi. Þetta segir Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra. Ekkert lát er á hitabylgju sem hefur plagað Texas-búa í meira en tvær vikur. Hiti fór upp í 40 gráður í gær og áfram er spáð steikjandi hita út vikuna. Ólöf Ragnarsdóttir sagði frá. Þreifingar hafa verið á milli Árvakurs og Sýnar um kaup Árvakurs á Bylgjunni. Vefurinn Vísir.is er líka falur. Valur Grettisson sagði frá. ------------ Trúverðugleiki og traust eru orð sem hafa verið mörgum á tungu síðustu daga þegar rætt er um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka og þann áfellisdóm sem felldur er í skýrslu fjármálaeftirlitsins um söluna og þátt bankans sjálfs. Guðmundur Jónsson prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands hefur fjallað um hagsögu og efnahagskreppur, og telur það skipta miklu hvort fólk treystir bönkum og fjármálakerfi en traust sé margþætt. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann Fresta þarf þúsundum læknisaðgerða ef af fimm daga verkfalli unglækna á sjúkrahúsum á Englandi verður í næsta mánuði. Ásgeir Tómasson sagði frá. Steven Barclay, heilbrigðisráðherra. Robert Laurenson unglæknir. Norðurlöndin eiga að verða samþættasta svæði heims og unnið er að því hörðum höndum í ráðherranefndum á vegum Norðurlandaráðs að tryggja að svo verði segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Guðmund Inga um Norðurlandsamstarf, flutning, ferðalög og nám Norðurlandabúa milli landa og stjórnsýsluhindranir sem ryðja þarf úr vegi. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Markús Hjaltason. Stjórn útsendingar: Sandra Silfá Ragnarsdóttir.

Spegillinn
Ábyrgð stjórnenda Íslandsbanka og traust til kerfisins

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 27, 2023 9:33

Hlaðvarp Kjarnans
Samtal við samfélagið: Hvers vegna virð­is­mat starfa?

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later Jun 13, 2023 44:24

Gestur vikunnar er Helga Björg Ragnarsdóttir, framkvæmdarstýra Jafnlaunastofu. Helga Björg er með BA-próf í félagsfræði og MS-próf í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands. Jafnlaunastofa er sameignarfélag í eigu Sambands íslenskra sveitafélaga og Reykjavíkurborgar og hefur það hlutverk að stuðla að launajafnrétti starfsfólks sveitarfélaga og veita stjórnendum stuðning við að framfylgja slíku jafnrétti. Aðferðafræði sveitafélaganna er að leggja áherslu á virðismat starfa en sú leið virðist skila árangri, en árið 2019 var óleiðréttur launamunur kynjanna 14,8% á almennum vinnumarkaði, 14% hjá Ríkinu og 7,4% hjá sveitarfélögunum. Í hlaðvarpinu ræða þær Helga og Sigrún af hverju það hefur reynst svona erfitt að ná launajafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og hvaða leiðir eru færar til að bregðast við kynjuðum launamun með sérstaka áherslu á hvers vegna virðismat starfa sé líklegra til að skila árangri en ýmsar aðrar leiðir.

Stundin
Samtal við samfélagið #3: Hvers vegna virðismat starfa?

Stundin

Play Episode Listen Later Jun 13, 2023

Gestur vikunnar er Helga Björg Ragnarsdóttir, framkvæmdarstýra Jafnlaunastofu. Helga Björg er með BA-próf í félagsfræði og MS-próf í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands. Jafnlaunastofa er sameignarfélag í eigu Sambands íslenskra sveitafélaga og Reykjavíkurborgar og hefur það hlutverk að stuðla að launajafnrétti starfsfólks sveitarfélaga og veita stjórnendum stuðning við að framfylgja slíku jafnrétti. Aðferðafræði sveitafélaganna er að leggja áherslu á virðismat starfa en sú leið virðist skila árangri, en árið 2019 var óleiðréttur launamunur kynjanna 14,8% á almennum vinnumarkaði, 14% hjá Ríkinu og 7,4% hjá sveitarfélögunum. Í hlaðvarpinu ræða þær Helga og Sigrún af hverju það hefur reynst svona erfitt að ná launajafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og hvaða leiðir eru færar til að bregðast við kynjuðum launamun með sérstaka áherslu á hvers vegna virðismat starfa sé líklegra til að skila árangri en ýmsar aðrar leiðir.

Spegillinn
Milljarðadómur í makrílmáli og eyðilegging Kakhovka-stíflunnar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 6, 2023 10:46

Spegillinn 6. júní 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kári Guðmundsson. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir Ríkið var í dag dæmt til að greiða tveimur útgerðarfélögum um hálfan milljarð hvoru í bætur úthlutunar makrílheimilda á árunum 2011 til 18. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá. Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra vill áfrýja dómnum. Ráðamenn víða um heim hafa fordæmt eyðileggingu Kakhovka-stíflunnar í Úkraínu. Ástrós Signýjardóttir tók saman. Heyrist í Volodymyr Zelenskí forseta Úkraínu og Antonio Guterres framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Meirihluti fjárlaganefndar Alþingis leggur til að fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar verði samþykkt óbreytt. Málið var afgreitt úr nefndinni í dag. Jóhann Páll Jóhannsson (S) sakar ríkisstjórnina um að blekkja almenning. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) um sýndarmennsku. Náttúrufræðistofnun rannsakar fjöldadauða fugla á Vesturlandi og Suðvesturhorninu. Ekki liggur fyrir hvað dró fuglana til dauða en veður hafa verið óvenjuvond segir Sunna Björk Ragnarsdóttir, sviðsstjóri rannsókna og vöktunar hjá Náttúrufræðistofnun, Ísak Regal talaði við hana. Íslensk erfðagreining rannsakar erfðaefni úr beinum Páls Jónssonar biskups sem lést snemma á 13. öld. Kista hans var opnuð í Skálholtskirkju í morgun. Anna Lilja Þórisdóttir talaði við Kristin Björnsson vígslubiskup og Joe Wallace Walser sérfræðing í mannabeinum á Þjóðminjasafni Íslands. --------- Vatn úr uppistöðulóni við Kakhovka-stífluna í suðurhluta Úkraínu fossar óheft niður Dnipro-fljót eftir að hún var sprengd í nótt. Raforkuver í bænum Nova Kakhovka eyðilagðist og stíflan er sögð gjörónýt. Ásgeir Tómasson tók saman. Heyrist í Tymofiy Mylovanov, ráðgjafa Úkraínustjórnar, Vitaly Shevchenko, fréttamanni, Dmytro Kuleba utanríkisráðherra Úkraínu, Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna og Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra NATÓ. Samtök atvinnulífsins telja of mikla áherslu lagða á tekjuöflun ríkissjóðs umfram útgjaldahliðina í aðgerðum sem eiga að slá á verðbólgu. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Önnu Hrefnu Ingimundardóttur, aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins.

Spegillinn
Milljarðadómur í makrílmáli og eyðilegging Kakhovka-stíflunnar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 6, 2023

139| Konurnar og ISIS liðarnir og háleynilegur hálsmenafundur

Heimskviður

Play Episode Listen Later Mar 11, 2023 40:00

Hvernig má það vera að samtök sem eru einna helst þekkt fyrir hrottalegt ofbeldi, hryðjuverk og illa meðferð á konum heilli konur sem búa á Vesturlöndum? Hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við íslamskt ríki, hið alræmda ISIS, lokkuðu til sín metfjölda kvenna frá vestrænum ríkjum - miðað við sambærilega hópa. En hvaða konur voru þetta? Voru þetta upp til hópa ungar áhrifagjarnar konur sem létu gelpjast af áróðursmaskínu samtakanna eða kannski harðsvíraðir hryðjuverkamenn? Ólöf Ragnarsdóttir fjallar um málið. Í síðari hluta þáttarins fáum við að heyra af hálsmeni úr skíragulli sem fannst í jörðu í Warvíkurskíri í Bretlandi fyrir rúmum þremur árum. Gullmenið er merkt Hinriki áttunda Englandskonungi og fyrstu eiginkonu hans, hinni spænskættuðu Katrínu af Aragorn. Þau voru gift í yfir tuttugu ár og skilnaður þeirra var afdrifaríkur fyrir breska menningarsögu. Sérfræðingar hjá Þjóðminjasafni Bretlands, British Museum, hafa legið yfir þessum dýrgrip síðan hann fannst og hafa nú rakið uppruna hans til hátíðahalda sem Hinrik áttundi hélt í febrúar annað hvort 1520, eða 1521. Það ríkti svo mikil leynd yfir rannsókninni að Rachel King, sérfræðingurinn sem stjórnaði henni mátti ekki einu sinni segja eiginmanni sínum af þessu. Björn Malmquist ræddi við Rachel og einnig Önnu Agnarsdóttur, prófessor í sagnfræði, um ævi, ástir og eiginkonur Hinriks áttunda. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

Heimskviður
139| Konurnar og ISIS liðarnir og háleynilegur hálsmenafundur

Heimskviður

Play Episode Listen Later Mar 11, 2023

Karlmennskan
115. „Klám er helsta kynfræðsla barna, sem vinnur gegn kynfrelsi“ - María, Kristín og Eygló

Karlmennskan

Play Episode Listen Later Feb 15, 2023 48:25

Bylting framhaldsskólanema gegn kynferðisofbeldi og gagnrýni á viðbragðsleysi skólastjórnenda ýtti undir kröfu um aukna kyn- og kynjafræðikennslu í skólum auk almennilegra viðbragða þegar kynferðisbrot koma upp. Skólameistarar ruku sumir hverjir upp og bundu vonir við að fram kæmu leiðbeiningar til að tækla slík mál. Sérfræðingar í jafnréttis- og ofbeldisforvarnarmálum sögðu þó hægan hægan. Engin skyndilausn væri við jafn flóknum og útbreiddum vanda sem kynferðisofbeldi er, auk þess sem skólar geti ekki tekið að sér hlutverk réttarkerfisins. Finna þurfi aðra og betri nálgun. Í raun algjöra kerfisbreytingu.   María Hjálmtysdottir, Kristín Blöndal Ragnarsdóttir og Eygló Árnadóttir hafa starfað við jafnréttismál, kynjafræðikennslu, sitja í stjórn félags kynjafræðikennara og mynda fagteymi utan um fræðslu og forvarnir framhaldsskóla vegna kynferðisofbeldis. Þær fara yfir ástæður þess að skyndilausnar-viðbragð við kynferðisofbeldis virkar ekki í skólakerfinu, útskýra hversu mikilvægt er að samþætta kyn- og kynjafræðikennslu og stórefla hana, ræða alvarleika kláms og áhrifamikilla karlrembna í samskiptum ungs fólks og gefa okkur innsýn í menningu ungmenna í dag.    Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs)   Veganbúðin, ÖRLÖ, BM Vallá ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar (karlmennskan.is/styrkja) bjóða upp á þennan þátt.

Inside with Brett Hawke
#267 Vikings actress Ragga Raggnar on manifesting goals & the discipline swimming taught her

Inside with Brett Hawke

Play Episode Listen Later Aug 22, 2022 66:07

Ragga Ragnars (Ragnheiður Ragnarsdóttir) is a 2x Olympic swimmer and actress from Iceland. You might recognise her from the hit television show, Vikings. Brett & Raggna talk about swimming in Iceland, manifesting goals, using the discipline she learned from swimming in her acting, and how to swing a sword. Iceland has the world's best swimming curriculum. One third of their physical education classes are swimming. All Icelanders know how to swim extremely well and therefore have almost no drownings year after year. 00:00 Bratter PA, Immigration Law 00:05 Hello Ragga Raggnar 00:15 Midnight Sun 01:55 Parents 04:00 Actress in Vikings + Olympic Swimmer 05:45 Swimming in Iceland 06:55 Growing up swimming 11:37 Swimming in college? 14:10 For the love of swimming 16:15 Manifesting realistic goals 19:00 Sprinting 20:55 Dara Torres 22:55 Athens or Beijing? 25:00 Usain Bolt 27:00 Social media 28:38 Acting questions 30:15 Discipline from Swimming 36:30 Learning how to swing a sword 39:25 Vikings role 41:50 Audition pressure 45:00 Levels of actors 46:24 Anthony Hopkins 50:00 Death of Gunnhild 52:27 Fame in Iceland? 54:15 Move to America? 59:00 Top tier 01:00:30 Not craving fame Our Sponsors: BRATTER PA IMMIGRATION LAW: Exclusive immigration representation of athletes, entrepreneurs, artists, investors, and entertainers. SWIM ANGELFISH: Receive the tools and skills needed to teach swimmers with autism, physical disabilities, anxiety, sensory and motor conditions with Swim Angelfish, the global leader in adaptive swim. Get certified online today! BEINE WELLNESS BUILDING: Individualize your nutrition with genetic testing and personalized plans. Eat, supplement, and recover based on your genetics. VASA: Essential dryland for stronger, better, faster swimmers. Save 10% using the code "brett" at checkout! DESTRO SWIM TOWERS: Save $150 per double swim tower by using the code "brett" at checkout! SWIMNERD: Big and small digital pace clocks, virtual scoreboards, and live results. Subscribe to the Swimnerd Newsletter at swimspam.com Subscribe & Listen: Apple Podcasts Google Spotify YouTube Produced by: SWIMNERD