POPULARITY
Við ætlum að fjalla um tækni og heilbrigðiskerfið. Stafrænar lausnir í heilbrigðisþjónustu eru margar en eru þær góðar? Virka þær? Skjólstæðingar heilbrigðiskerfisins þurfa að flakka á milli appa og forrita til þess að nálgast nauðsynlegar upplýsingar. Við ætlum að ræða við Eyrúnu Magnúsdóttur um för hennar í gegnum þann frumskóg forrita sem notendur heilbrigðisþjónustu villast í þegar þeir veikjast. Þessa dagana er haldið upp á tuttugu ára afmæli fötlunarfræða. Að því tilefni hafa samtök fatlaðs fólks, fatlað listafólk og fræðasamfélagið tekið höndum saman með það að marki að fagna framlagi fötlunarfræða og fatlaðs fólks til menningar og lista í íslensku samfélagi. Við fáum til okkar Margréti Norðdahl, listrænn stjórnandi Embla Guðrúnar Ágústsdóttur, sviðslistakona, aktívisti Og í lok þáttar flytjum við pistil eftir Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðing og pistlahöfund Samfélagsins um rannsóknir á áhrifum loftmengunnar. Tónlist í þættinum: FLEETWOOD MAC - The Chain. Lafourcade, Natalia - Hasta la Raíz. Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund). THE BEACH BOYS - The Man With All the Toys.
Á föstudaginn fer fram málþing á vegum Mennta- og barnamálaráðuneytisins og Háskóla Íslands um hættuna á misnotkun gervigreindar og tækninýjuna til að brjóta kynferðislega á börnum. Með nýrri tækni blasir við nýr veruleiki sem vekur upp spurningar um það hvernig sé rétt að bregðast við. Sérfræðingar munu tala á málþinginu um það hvernig gervigreind og önnur stafræn tækni er misnotuð til að brjóta á börnum, hverjar birtingamyndir brotanna eru, hvernig tekist er á við slíkt og til hvaða forvarnaraðgerða er gripið. Páll Magnússon, sem starfar hjá fastanefnd Íslands í Genf og stýrir málþinginu, kom í þáttinn ásamt Regínu Jensdóttur, sérfræðingi í mannréttindum barna í Evrópu, en hún heldur erindi á þinginu. Við fræddumst um starfssemi Nýrnafélagsins í dag en markmið þess er meðal annars að styðja alla þá sem veikjast af langvinnum nýrnasjúkdómum og aðstandendur þeirra og að fræða almenning og sjúklinga um nýrnasjúkdóma, meðferð þeirra og félagsleg vandamál sem þeim fylgja. Helga Jóhanna Hallgrímsdóttir formaður Nýrnafélagsins kom í þáttinn. Svo fengum við póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og pólitíkin var til umfjöllunar í upphafi póstkortsins. Magnús sagði frá pólitík sem hann upplifði í ýmsum Evrópulöndum þar sem hann hefur búið. Í seinni hlutanum sagði hann frá athygliverðum rannsóknum bandarísks sagnfræðiprófessors sem hefur rannsakað svefnvenjur fólks á miðöldum. Hann komst að því að fyrir iðnbyltinguna svaf fólk svokölluðum tvífasa svefni. Það þýðir að það vaknaði eftir um það bil þriggja tíma svefn, vakti í tvo tíma og svaf svo aftur í þrjá til fjóra tíma. Tónlist í þættinum í dag: Fyrir þig / Dátar (Rúnar Gunnarsson, texti Þorsteinn Eggertsson) Veldu stjörnu / Ellen Kristjánsdóttir og John Grant (Ellen Kristjánsdóttir, texti Bragi Valdimar Skúlason) Ryðgaður dans / Valdimar (Valdimar Guðmundsson og Ásgeir Aðalsteinsson) Á æðruleysinu / KK (Kristján Kristjánsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Rafræn skilríki eru notuð víða - hvort sem þú þarft að skrá þig inn í netbankann, á Ísland.is nú eða endurnýja líkamsræktarkortið. Stafrænt Ísland hefur séð um þessa þjónustu og hingað til hefur enginn þurft að borga en nú verður breyting á. Eldri innskráningarþjónusta Stafræns Íslands lokar og hófst það ferli í gær. Íslykillinn er úr sögunni, auðkenningarþjónusta ríkisins nú einungis í boði fyrir hið opinbera en fyrirtæki og félagasamtök þurfa að leita annarra lausna. VIð ætlum að ræða þessar breytingar við Birnu Írisi Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Rafræns Íslands, og Ólaf Pál Einarsson, framkvæmdastjóra Dokobit á Íslandi. Við höldum áfram að fjalla um veruleika mæðra í Íslensku samfélagi. Elín Ásbjarnardóttir Strandberg, heimspekinemi, ætlar að kíkja til okkar og segja okkur frá rannsóknum sínum um sjálfsmynd mæðra eftir barnsburð. Edda Olgudóttir, sérstakur vísindamiðlari Samfélagsins, kíkir til okkar í vísindaspjall. Hún er vikulegur gestur hjá okkur í Samfélaginu.
Það var ringulreið á flugvöllum heimsins, mörgum hverjum, í dag, raðirnar hlykkjuðust um og biðin var löng; um miðjan dag var búið að aflýsa á annað þúsund flugferðum sem og fjölda skurðaðgerða, truflun varð á sjúkrahúsum, í fjármálastarfsemi og hjá fjölmiðlum vegna galla í hugbúnaðaruppfærslu frá fyrirtækinu Crowdstrike sem hafði svo áhrif á stýrikerfi frá Microsoft. Birna Íris Jónsdóttir framkvæmdastjóri Stafræns Íslands segir að áhrifin hér hafi ekki verið víðtæk en vissulega bregði mönnum við slíkar fréttir. Ófrjósemisaðgerðum á ungum Bandaríkjamönnum hefur snarfjölgað frá því að Hæstiréttur Bandaríkjanna sneri niðurstöðu sinni í hinu víðfræga máli Roe gegn Wade, og felldi úr gildi stjórnarskrárvarin réttindi kvenna til þungunarrofs. Ragnhildur Thorlacius segir frá.
Glamúrinn á hinu víðfræga Met Gala-kvöldi í New York í síðustu viku hefur farið öfugt ofan í netverja síðan í síðustu viku. Myndir af stórstjörnum í skrautlegum og íburðarmiklum tískufatnaði fara um miðlana eins og eldur í sinu, og er gjarnan stillt upp andspænis myndum af hryllingi stríðsátaka og hungursneyðar. Nú er kallað eftir því að við blokkerum stjörnur og áhrifavalda á öllum helstu samfélagsmiðlum. Hvers vegna? Baldur og Erla Hlín kynntust í djasshljómfræðitíma í MÍT, og stofnuðu í kjölfarið hljómsveitina Amor Vincit Omnia, sem kemur til með að senda frá sér sitt fyrsta lag á föstudaginn. Við tökum púlsinn á Baldri og Erlu, og frumflytjum lagið. Gervigreindin færist inn á sífellt fleiri svið lífs okkar, það getur bæði vakið spennu og forvitini. Í sumum tilfellum vekur það upp siðferðislegar spurningar eða jafnvel ótta. Í dag er hægt að leita sér hjálpar við andlegum kvillum sínum, sækja meðferð hjá gervigreindarspjallmennum sem hafa þá sérhæfingu að leiða fólk í gegnum allskonar sjálfsvinnu eða þerapíu. Og ein slík þjónusta er á vegum íslendings, Gunnars Jörgens Viggósonar og heitir Heartfelt services.
Henný Björk Birgisdóttir hjúkrunarfræðingur kom til okkar í dag og fræddi okkur um stafræna heilbrigðistækni en hún hefur nýtt sinn hjúkrunarfræðigrunn og er að vinna með fyrirtækinu Helix með stafræna lausn í smáforritinu Iðunni sem Helix er að þróa og getur sparað hjúkrunarfræðingum töluverðan tíma svo þeir hafi meiri tíma að til að sinna sjúklingum. Semsagt vísir að ákveðinni byltingu í störfum hjúkrunarfræðinga sem í dag eyða stórum hluta vinnunnar í tímafreka skriffinnsku. Henný Björk sagði okkur meira frá þessu í dag. Alla miðvikudaga í maí verður boðið upp á menningar- og fræðslugöngur í Skálholti. Um er að ræða fræðsluerindi og göngur sem tengjast Skálholti á einhvern hátt. Á á laugardaginn mun Tómas Grétar Gunnarsson, fuglafræðingur á Laugarvatni og forstöðumaður rannsóknaseturs HÍ á Suðurlandi, leiða gesti um Skálholtslandið og fræða þá um þá fugla sem þar finnast. Tómas sagði okkur frá fuglum á þessu svæði og göngunni í dag. Jónatan Garðarsson kom aftur til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag sagði hann okkur frá leik- og söngkonunni Soffíu Karlsdóttur. Hún varð þekkt í tengslum við revíu- og kabarettsýningar, svo ekki sé minnst á nokkur lög sem urðu gríðarlega vinsæl um miðja síðustu öld, til dæmis Bílavísur og Það er draumur að vera með dáta. Soffía leit sjálf ekki á sig sem söngkonu, en eins og Jónatan sagði okkur frá í dag þá eru hún engu að síður meðal allra fyrstu dægurlagasöngkvenna Íslands. Tónlist í þættinum í dag: Dagar / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson og Aðalsteinn Ásberg) Segðu mér satt / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson) Það er draumur að vera með dáta / Soffía Karlsdóttir (Edward Brink, texti Bjarni Guðmundsson) Bílavísur / Soffía Karlsdóttir (Holmes, texti Jón Sigurðsson) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Barnaheill – Save the Children á Íslandi eru frjáls félagasamtök sem hafa í 35 ár unnið að mannréttindum barna víðs vegar um heiminn. Tótla I. Sæmundsdóttir, nýr framkvæmdastjóri Barnaheilla kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá helstu verkefnum samtakanna um þessar mundir, til dæmis á vettvangi í Gaza og Tyrklandi, eftir að stóri jarðskjálftinn reið þar yfir. Hún er nýkomin af fundi framkvæmdastjóra samtakanna í Istanbul þar sem verið var að leggja línurnar fyrir árið og þau verkefni sem samtökin ætla að leggja á og hún sagði okkur frá því í viðtalinu. Ástvaldur Zenki Traustason kom svo í þáttinn og talaði við okkur um heilsuna, Zenbúddisma og tónlist. Hann er með tónleika sem hann nefnir Stefnumót við lífið. Hann sagði okkur betur frá þessu. Að lokum kom til okkar Dr. María Rún Bjarnadóttir, yfirmaður netöryggismála hjá ríkislögreglustjóra, en hún kynnti í gær rannsóknarniðurstöður frá Íslandi, Danmörku og Svíþjóð þar sem varpað var ljósi á gerendur í málum sem snúa að stafrænu kynferðisofbeldi. Gerendur voru kortlagðir út frá aldri, kyni og tengslum þeirra við þolendur og svo voru hvatarnir á bak við brotin skoðuð. María Rún sagði okkur frá helstu niðurstöðunum í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Borð fyrir tvo / Hjálmar (Bragi Valdimar Skúlason) Faðmlag / Kristjana Stefánsdóttir ( Kristjana Stefánsdóttir og Bergur Þór Ingólfsson) Gleym mér ei / Lay Low (Bubbi Morthens) Hagi / Þorgrímur Jónsson (Þorgrímur Jónsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Að hve miklu leyti getur gervigreindin komið í stað þjónustufulltrúa? Samskipta almennt? Stefnir í að flest samskipti okkar við stjórnvöld verði samskipti við spjallmenni gædd spunagreind? Og hvenær hætta þau að segja okkur að baka súkkulaðikökur? Birna Íris Jónsdóttir tölvunarfræðingur og framkvæmdastjóri Stafræns Íslands, ræðir við okkur um kosti og galla gervigreindar í samskiptum hér rétt á eftir. Við ræðum við gistihúsaeiganda sem bjó í Grindavík um stöðuna, íbúafundinn í gær og kröfuna, sem verður sífellt háværari, um að ríkið grípi Grindvíkinga og borgi þá út. Málfarsmínúta. Vísindaspjall með Eddu Olgudóttur, við ræðum áhrif sveltis á heilann. Tónlist: ÁRNÝ MARGRÉT & JÚNÍUS MEYVANT - Spring. PAUL McCARTNEY - Calico Skies.
Október er alþjóðlegur vitundarmánuður fólks með ADHD og ADHD samtökin eiga að auki 35 ára afmæli í ár. Samtökin hafa minnst tímamótanna undir yfirskriftinni Betra líf með ADHD í 35 ár sem er einmitt yfirskrift alþjóðlegrar ráðstefnu á Grand Hótel 26. og 27. október sem haldin verður á vegum samtakanna. Gera má ráð fyrir að um það bil 20 þúsund Íslendingar séu með ADHD greint eða ógreint, börn og fullorðnir. Þeir Hrannar Björn Arnarsson, framkvæmdastjóri samtakanna, og Vilhjálmur Hjálmarsson formaður samtakanna komu í þáttinn í dag. Á fimmtudaginn efna Samtök ungra bænda til baráttufundar fyrir lífi sínu og sveitanna, eins og þau orða það. Ungir bændur segjast standa flestir frammi fyrir fjárhagslegum ómöguleika og að ungt fólk sem hefja vill hefðbundinn búskap eigi enga möguleika. Mikil ógn steðji að nauðsynlegri nýliðun í stétt bænda, sem setji um leið fæðuöryggi þjóðarinnar í uppnám. Ísak Jökulsson, bóndi og stjórnarmeðlimur í samtökunum, kom í þáttinn og fór yfir stöðuna og sagði frá fundinum sem fer fram í Salnum í Kópavogi. Við forvitnuðumst svo um fugla með fuglaáhugamanninum Árna Árnasyni. Hann er grunnskólakennari á eftirlaunum og myndar fugla um allt land við hvert tækifæri. Hann hefur áður gefið út bókina Stafróf fuglanna og nú er komin út ný bók eftir hann sem heitir Lesum um fugla, smekkfull af fallegum ljósmyndum. Árni kom í þáttinn með ljósmyndavél með gríðarstórri linsu og lítinn hátalara sem hann notar til að kalla í hinar ýmsu fuglategundir. Hann sagði okkur í þættinum frá þessum mikla fuglaáhuga sínum og nýju bókinni. Tónlist í þættinum í dag: Í löngu máli / Una Torfadóttir (Una Torfadóttir) Hún ógnar mér / Flott (Ragnhildur Veigarsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir) Veldu stjörnu / Ellen Kristjánsdóttir og John Grant (Ellen Kristjánsdóttir og Bragi Valdimar Skúlason) From the Start / Laufey (Laufey & Spencer Stewart) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON

Það er stór stund í Lestinni í dag. Kristján fær loksins að hitta átrúnaðargoð sitt, rússneska rokktónlistarmanninn Boris Grebenshchikov úr hljómsveitinni Aquarium. Boris, sem hefur verið kallaður afi rússneskrar rokktónlistar eða hinn sovéski Bob Dylan, er nú í útlegð eftir að hafa talað gegn stríðinu í Úkraínu og hefur verið settur á lista Putins yfir erlenda útsendara. Við ræðum rokk og pólitík við eina mestu goðsögn rússneskrar rokktónlistarsögu. Ástralski hundurinn Bluey, eða Blæja á íslensku, nýtur mikilla vinsælda meðal barna í dag. En það eru ekki síður foreldrarnir sem elska sjónvarpsþættina. Anna Marsibil Clausen rýnir í snilldina við Blæju og útskýrir af hverju þetta er besta barnaefnið í sjónvarpinu í dag. Í nútímanum býðst fólki að eiga stafrænt framhaldslíf. Ættingjar geta varðveitt einkenni ástvina eins og rödd, útlit og persónuleika inn í eilífiðina. Þetta er meðal þess sem María Guðjohnsen skoðar í nýrri sýningu í gallerí Þulu, Stafrænt framhaldslíf. Júlía Margrét Einarsdóttir kíkir við og spjallar við Maríu.

Björk Þorgrímsdóttir hefur verið að horfa á sjónvarpsþættina Love is Blind, en síðasti þáttur í fimmtu seríu þáttanna kom nú um helgina. Björk fékk til sín Hauk Inga Jónasson, sálgreini og kennara, til að velta fyrir sér blindri ást fyrir allra augum. Við förum í ferðalag um Færeyjar og spenanndi tónlistarlíf sem blómstrar þar. Fararstjórinn okkar er Katrín Helga Ólafsdóttir. Og að lokum veltum við fyrir okkur stafrænum hugvísindum, með Eiríki Smára Sigurðssyni, heimspeking og formanni miðstöðvar stafrænna hugvísinda og lista.

I just got back from a week in Iceland so naturally I had to make a mix with music from Icelandic artists. The usual suspects are here - Sigur Ros, Johann Johannsson, Bjork, Olafur Arnalds, along with some new additions. It still boggles my mind that the tiny island has produced such amazing music. But now, having been there, I guess it makes a bit more sense because the place is unique. The landscape and spirit seeps into your mind and body like hot water through porous volcanic rock. It's impossible not to fall in love with the people and the natural beauty. Hopefully this mix can be your own mini vaca to Iceland. Cheers! T R A C K L I S T : 00:00 Sigur Rós - Blóðberg (ÁTTA 2023) 07:03 Jóhann Jóhannsson - A Prayer to the Dynamo pt. 1 (Spectral Symphony 2023) 13:50 Friðþjófur Johnson - Black Sand Blues 19:10 Rökkurró - Svanur (Í Annan Heim 2010) 24:20 Björk - Vokuro (Medulla 2004) 27:18 Ólafur Arnalds feat Ella McRobb - And we'll leave it there (2023) 30:47 Valgeir Sigurðsson - Eva's Lament (Kvika 2021) 32:17 Kiasmos - Looped (Kiasmos 2014) 36:00 Friðþjófur Johnson - Sambólúsí 40:50 Yagya - The Downpour (Faded Photographs 2023) 44:33 Múm - Faraway Swimmingpool (Finally We Are No One 2002) 47:00 Frakkur - Dream Fyrir John (Pling pong) 52:33 Ruxpin & Stafrænn Hákon - Dark Rift (Meet Me In Forever 2023) 56:14 Jóhann Jóhannsson - Stuk (Elegy for Lost Time 2023) 58:35 Ólafur Arnalds - Spiral (some kind of peace 2020) 61:54 end
Við ræðum hér á eftir við Margréti Lilju Guðmundsdóttur þekkingarstjóra hjá Planet youth um skjátíma og nauðsyn þess að setja á stafrænan útivistartíma á börn og ungmenni, jafnvel fullorðna. En eins og aðrar rammar sem foreldrar og skólar og samfélagið hafa komið upp tekur ákveðinn tíma að ná lendingu og finna út úr þessu, en tæknihraðinn er slíkur að það er nú ærið tilefni til að bregðast hratt við. Við endurflytjum efni frá því síðasta vetur hér í Samfélaginu. Kristbjörg Gunnarsdóttir og Kristbjörg Pálsdóttir eru báðar heyrnarfræðingar og leiða okkur í gegnum nokkrar upptökur sem leyfa hlustendum að heyra hvernig mismunandi heyrnarskerðingar hljóma. Málfarsmínúta er á sínum stað og ruslarabb Svo fáum við að heyra aftur pistil frá Ester Rut Unnsteinsdóttur spendýravistfræðingi en þar sagði hún okkur athyglisverðar fréttir af landnámi hagamúsa í Vestmannaeyjum.

Föstudagskaffið er sjóðheitt þennan morguninn en gestur þáttarins er Sigurður Már sem hefur verið djúpur í heimi stafrænnar markaðssetningar um nokkurt skeið og nú nýlega í gervigreind. Iddi er vant við látinn í dag enda framlengdi hann páskunum í könglaparadísinni fyrir austan en Addi var á staðnum og tók spjallið við Sigurð. Stórmerkilegt spjall sem allir ættu að hlusta á. Sigurður er aðgengilegur á netfanginu siggi@arcade.is eða á instagram undir nafninu @siggim. Góðar stundir
Við röltum um friðland fugla í Vatnsmýri, með Ólafi Karli Nielsen fuglafræðingi, sem hefur ásamt fleirum í áratugi vaktað bæði þar sem og í kringum Reykjavíkurtjörn. Það hafa orðið töluverðar breytingar í gegnum tíðina, fuglategundir sem áður flykktust að þessum svæðum í miðbæ höfuðborgarinnar sjást þar ekki lengur - hvað veldur? Við ætlum að velta fyrir okkur nýjungum í heilbrigðistækni. Háskólinn í Reykjavík mun næsta haust bjóða upp á nýtt nám í stafrænni heilbrigðistækni þar sem leitast verður við að að mennta sérfræðinga með þekkingu í að nýta gögn úr heilbrigðiskerfinu til góðs eins og það er orðað. Til okkar kemur Anna Sigríður Islind dósent við tölvunarfræðideild skólans og forstöðukona nýja meistaranámsins. Málfarsmínúta er á sínum stað og við fáum líka dýraspjall, sem er í formi pistils í dag, en Ester Rut Unnsteinsdóttir dýravistfræðingur segir okkur stórfréttir úr heimi músanna - en hagamýs eru víst að nema land í Vestmannaeyjum. Missið ekki af því.

Í sjónvarpsfréttum í gærkvöldi kom fram hjá ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar að Ísland stæði verr að vígi en aðrar þjóðir þegar kemur að netöryggi og að það gæti ógnað þjóðaröryggi. Aðstoðaryfirlögregluþjónn á greiningardeild ríkislögreglustjóra sagði í sömu frétt að yfirvöld yrðu að vera viðbúin netárás á mikilvæga innviði. Guðmundur Arnar Sigmundsson er forstöðumaður netöryggissveitar CERT-IS en sú sveit er hluti af viðbragði yfirvalda við öryggisógn á netinu. Hann ræðir þessi mál við okkur. Við kynnum okkur róbótavæðingu í Samfélaginu í dag. Við könnumst flest við róbótafjós, en færri hafa kannski heyrt um róbótagróðrarstöð. En nú verður breyting þar á. Við skruppum í heimsókn í gróðrastöðina Sólskóga sem er staðsett í Kjarnaskógi við Akureyri, en þau munu bráðlega taka í notkun róbót sem mun gjörbreyta starfseminni. Við forvitnuðumst um þessar breytingar hjá Katrínu Ásgrímsdóttur, framkvæmdastjóra Sólskóga. Málfarsmínútan er á sínum stað og við fáum líka heimsókn frá Þjóðskjalasafni Íslands en undanfarið höfum við reglulega fjallað um starfsemina þar og fengið að skoða safnkostinn. Að þessu sinni kemur til okkar Unnar Ingvarsson, fagstjóri stafrænnar endurgerðar. Hann ætlar að segja okkur frá því hvernig skjöl eru gerð stafræn, meðal annars til birtingar á vefnum og sýna okkur áhugaverð skjöl sem þar er að finna.

Kristján Þórður Snæbjarnarson, forseti Alþýðusambandsins, fór yfir stöðuna í kjaraviðræðum Eflingar og Samtaka atvinnulífsins, líkur á verkbanni og inngripi stjórnvalda. Miðstjórn ASÍ styður Eflingu en ekki hefur verið ákveðið hvort sambandið muni beita sér í verkfallinu sem hófst á miðnætti. Kristjáni líst ekki á verkbann og segir það ótímabæra ráðstöfun. Ásgeir Brynjar Torfason, sérfræðingur í fjármálum, ræddi efnahagsleg áhrif af stríðinu í Úkraínu, bæði í Úkraínu og Rússlandi. Eins áhrif viðskiptaþvinganna sem kannski hafa bitið minna er vonast var eftir fyrir ári síðan. Ekkert lát er á stríðinu og eru efnahagsáhrifin mikil og alvarleg í Úkraínu en lítil í Rússlandi. Adeline Tracz, verkefnastjóri nýþróunar á heilbrigðis- og upplýsingatæknideild Landspítala, sagði frá þeim tækninýjungum sem spítalinn hefur staðið fyrir undanfarin ár. Þar á meðal nýtt kerfi varðandi tilvísanir milli heilsugæslunnar og spítalans þar sem komið er í veg fyrir að tilvísanir lendi á milli skips og bryggju. Eins smáforrit fyrir sjúklinga og aðstandendur og smáforrit fyrir starfsmenn Landspítalans. Samkvæmt heilbrigðisstefnu stjórnvalda til ársins 2030 er gert ráð fyrir stóraukinni hlutdeild tækninnar. Adeline hefur búið á Íslandi í tæpa þrjá áratugi en hún kom hingað fyrst í sumarvinnu þegar hún var í námi í rafmagnsverkfræði. Hún heillaðist strax af landi og þjóð og ákvað að hér vildi hún festa rætur sem hún hefur svo sannarlega gert. Tónlist: Istanbul (not Constantinopel) - Haukur Morthens, Góða tungl - Tríó Björns Thoroddsen, Stormy Weather - Billie Holiday, C'est le vent, Betty - Gabriel Yared. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Við kynntum okkur starfsemi Parkinsonsamtakanna í þættinum í dag. Hvað er parkinson, hver eru einkennin og hvað er hægt að gera til að halda einkennum sjúkdómsins í skefjum? Parkinsonsamtökin á Íslandi verða fjörutíu ára á næsta ári og við fengum Ágústu Kristínu Andersen, forstöðumann Takts miðstöðvar Parkinsonsamtakanna og Ernu Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra samtakanna til okkar í dag til að segja okkur betur frá þeirra starfsemi og sjúkdóminum. Hulda Birna Baldursdóttir er viðskiptafræðingur með meistarapróf í stjórnun og hún er sérfræðingur í markaðssetningu á samfélagsmiðlunum. Hún hefur stýrt markaðsherferðum og sá t.d. um verkefnið Stafrænt skjáskot fyrir Nýsköpunarmiðstöð Íslands og hefur unnið með yfir 250 fyrirtækjum til að efla þau í stafrænni þróun. Við töluðum við Huldu um markaðssetningu á samfélagsmiðlum í dag. Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur kom svo í sitt vikulega veðurspjall í dag og þrátt fyrir að nú sé farið að kólna þá talaði hún um methlýindi í nýliðnum nóvembermánuði. Tónlist í þættinum í dag: Anda inn / Heimilistónar (Katla Margrét Þorgeirsdóttir) Inní nóttina / Sigga Eyrún (Karl Olgeirsson) Jólin eru tíminn / Álfgrímur og Þorgerður Ása Aðalsteinsbörn (Álgrímur Aðalsteinsson og Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir) Ilmur af jólum / Hera (Tore As og Sigurður Rúnar Þórsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Fjórði þáttur af fimm í stafrófs-þáttaseríunni! Inga & Dragsi fara yfir stafrófið á skemmtilegan máta með því að segja smásögur um hvern og einn bókstaf. Á instagramsíðu Ingu & Draugsa má sjá litríkt og lýsandi myndefni tengt þættinum. Íþróttaæfingin góða og brandarahornið eru svo auðvitað á sínum stað! Inga & Draugsi eru áskriftarþættir. Sérstaklega hannaðir til að halda athygli barna, kenna þeim slökun og fræða um hina ýmsu hluti, svosem stafina og framkomu við aðra svo eitthvað sé nefnt - með dass af gríns, glens og prumpubröndurum! Áskriftin kostar 550,-kr á mánuði (þættir koma út alla sunnudaga) SKRÁÐU BARNIÐ ÞITT Í ÁSKRIFT HÉR: INGA & DRAUGSI
Prins Póló og Gunnar Lárus Hjálmarsson koma í heimsókn í Rokkland í dag, en Prinsinn er búinn að taka upp 2 ný lög með uppáhalds hljómsveitinni sinni S.H. Draumi. Prinsinn var gestur Rokklands snemma í sumar og þar kom þessi hugmynd upp sem nú er orðin að veruleika. Við frumflytjum lögin Draumaprinsessan og Sjoppan í dag. Stórsveit Reykjavíkur heldur upp á 30 ára starfsafmæli með tónleikum í Eldborg í kvöld kl. 8 og það er ókeypis inn. Sigurður Flosason formaður Stórsveitarinnar kemur í heimsókn í Rokkland. Jarðarbunga heitir hljómplata sem væntanleg er núna í haust. Þar etja saman músíkölskum gáfum sínum og reynslu þeir @Björgvin Gíslason og Sigurður Bjóla tvær hetjur úr íslensku músíklífi undanfarna áratugi. Björgvin Gíslason var í Pelican, Pops, Nattúru, Friðryk og mörgum öðrum hljómsveitum auk annara verka, Sigurður Bjóla lykilmaður í Stuðmönnum og Spilverki Þjóðanna auk þess sem hann hefur gert ótal margt annað í músík undanfarna áratugi. Við frumflytjum 3 lög af Jarðarbungu í dag. Og svo ætlum við líka að heyra aðeins um hljómsveitina Stafrænan Hákon sem sendi frá sér enn eina plötuna í sumar og Ólafur Örn Josephsson forsprakki hljómsveitarinnar kemur í heimsókn. Nick Cave, Dire Straits og Willie Nelson koma líka aðeins við sögu.

Það er spenna í þjóðarbúinu; kröftug umsvif í þjóðarbúskapnum, segir peningastefnunefnd Seðlabankans sem vaktar mælana. Við eyðum víst of miklu og afleiðingin, með öðru, er bullandi verðbólga sem bankinn reynir að hemja með vaxtahækkunum. Peningamál komu út í síðustu viku, við drógum fram meginlínurnar með Þórði Snæ Júlíussyni, ritstjóra Kjarnans. Sífellt er unnið að því að gera þjónustu við okkur, borgarana í landinu, stafræna í auknum mæli. Það er markmið stjórnvalda að megin samskiptaleið fólks við hið opinbera sé stafræn, það einfaldi líf þeirra sem búa og starfa á Íslandi. En svo er til fólk sem á erfitt með, eða getur bara ekki, nýtt sér þessa stafrænu þróun - í Danmörku hefur verið talið að það sé allt að fjórðungur landsmanna. Og hvað þá? Við ræddum um þessi mál við Andra Heiðar Kristinsson, forstjóra Stafræns Íslands. Arthúr Björgvin Bollason sagði okkur frá sendiherra Úkraínu í Berlín, sá ku vera skrítin skrúfa og frá hugmyndum að leiðum til að spara orku en stungið hefur verið upp á að Þjóðverjar fari helst ekki í sturtu í vetur heldur þvoi sér með þvottapoka. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Seven years - Norah Jones Tiger rags - The New Orleans Rhythm Kings Tin roof blues - The New Orleans Rhythm Kings Á rauðu ljósi - Mannakorn

Már Gunnarsson hefur vakið talsverða athygli undanfarin ár, en hann hefur verið meðal fremstu blindu sundmönnum heims auk þess að stunda tónlist. Flest ættu að muna eftir honum úr Söngvakeppninni í ár þar sem hann söng ásamt systur sinni, Ísold, í dúettnum Amarosis, en þau höfnuðu í þriðja sæti. Hann hefur ákveðið að leggja sundskýluna á hilluna, aðeins 22 ára gamall og einbeita sér að tónlisinni. Hann komst í virtan tónlistarháskóla í Englandi og heldur nú tónleikaröð sem hann kallar Sjáumst, sem er liður í að fjármagna námið í Englandi, þeir fyrstu verða í kvöld og verður sérstakur gestur á þeim Páll Óskar Hjálmtýsson. Már kom, ásamt leiðsöguhundinum Max, í þáttinn og sagði okkur frá þessum tímamótum og tónleikunum. Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur verður hjá okkur einu sinni í viku á næstunni með mannlegt veðurspjall. Veður er alltaf vinsælt umræðuefni hér á landi og víðar og í mannlega veðurspjallinu munum við velta fyrir okkur áhugaverðum fyrirbærum í veðri með Elínu Björk og í dag sagði hún okkur meðal annars frá kuldakasti í Suður Ameríku sem rekja má til eldgoss. Árni Árnason Hafstað kom svo til okkar og fræddi okkur um lestrarkennslu og fugla, en hann gaf nýlegi út bók sína Stafróf fuglanna hjá Bókaútgáfunni Hólum. Í bókinni eru tvær flugur slegna í einu höggi, því þar geta börn lært stafina og kynnst og lært um algenga fugla sem sjást í náttúru landsins. Tónlist í þættinum í dag: Negro José / Páll Óskar Hjálmtýsson (erlent lag, texti Páll Óskar Hjálmtýsson) Þú ert / Már Gunnarsson (Þórarinn Guðmundsson og Guðmundur Björnsson) Út í veður og vind / Stuðmenn (Egill Ólafsson og Valgeir Guðjónsson) Núna / Pálmi Gunnarsson (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

María Rún Bjarnadóttir er doktor í lögfræði og móðir og hefur haft stefnumarkandi áhrif á hvernig tekið er á stafrænum kynferðisbrotamálum hér á landi hin síðustu ár. Hún þekkir málaflokkinn sömuleiðis vel vegna núverandi starfa sinna hjá ríkislögreglustjóra sem verkefnisstjóri stafræns ofbeldis hjá ríkislögreglustjóra.Þær Guðrún Inga Torfadóttir nutu þess afskaplega vel að leyfa umræðunni að fara út um allar trissur og bera saman bækur sínar hvað viðkemur stafrænu uppeldi barna, fræðslu til þeirra og eftirlit með þeim, fyrirmyndir og mörk. Þær ræddu m.a. um hvernig er hægt að styðja við örugga netnotkun barns og hvenær rétti aldurinn er til að gefa barni snjalltæki, leiðir til að barnið njóti stuðnings og tengsla við foreldri sitt lengi framan af en sé á sama tíma leyft að njóta frelsis og réttinda sinna samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.Mögulega er kjarni spjallsins alls að setja okkur vel inn í stafrænan veruleika barna - sem hefur runnið saman við hinn efnislega heim þeirra - með því að kynna okkur hin mismunandi öpp og leiki og taka virkan þátt á þessu sviði með barninu eftir að við höfum seinkað stafrænu ferðalagi þeirra sem mest við megum og gefið þeim ítarlega fræðslu. Á sama tíma beri okkur að forðast að hafa með höndum sérstakt eftirlit til dæmis um hvar barn er statt hverju sinni heldur treysta því - og þeim mun meira eftir hækkandi aldri þeirra. Minnst var á:̶ Soniu Livingstone, prófessor við London School of Economics sem hefur haft með höndum rannsóknir á m.a. hvernig er að alast upp sem barn á stafrænni öld.̶ Bókin Delete eftir Viktor Mayer-Schönberger.̶ Bókin Hold On To Your Kids eftir dr. Gabor Maté og dr. Gordon Neufeld.̶ RIE-uppeldisstefnu Mögdu Gerber og dr. Emmi Pikler.̶ Robin Einzig og Visible Child.̶ „Farsældarlögin“, lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021.Að lokum hvetjum við ykkur til að heimsækja vefsíðurnar 112.is/netoryggi og 112.is/ofbeldi/oryggi-i-netsamskiptum-barna
Í þessum seinni þætti af útboði Nova koma til okkar þau Margrét Tryggvadóttir forstjóri og Magnús Árnason yfirmaður stafrænnar þróunar og markaðsmála. Við förum yfir söguna, reksturinn og framtíðarhorfur í skemmtilegu spjalli sem enginn Pyngjuunnandi ætti að láta framhjá sér fara!
Matvælaráðherra heimilaði innflutning á gæludýrum fólks á flótta undan stríðinu í Úkraínu í mars og nú tekur Matvælastofnun við umsóknum frá þeim sem vilja koma með gæludýr frá Úkraínu til Íslands. Hrund Hólm deildarstjóri hjá MAST. Hvernig er hægt að nýta stafræna tækni til miðlunar, skráningar og varðveislu menningararfsins? Skúli Björn Gunnarsson forstöðumaður Gunnarsstofnunar skipuleggur málþing um stafrænan menningararf. Eiríkur Örn Þorsteinsson hjá Sorpu segir okkur hvert við eigum að fleygja snakkpokunum í ruslarabbi dagsins. Páll Líndal umhverfissálfræðingur flytur okkur pistil um áhrif veðurs á sálarlífið.

Vigdís segir okkur frá starfsemi hjá Stafrænu Íslandi Vigdís Jóhannsdóttir er markaðsstjóri hjá Stafrænu Íslandi, stjórnarformaður Hannesarholts, formaður handknattleiksdeildar Víkings og í stjórn FKA eða Félag kvenna í atvinnulífinu. Áður starfaði hún hjá auglýsingastofunni Pipar, 365 miðlum og var kosningastjóri Höllu Tómasdóttur í forsetakosningunum árið 2016. - Key of Marketing
Nýsköpunar- og frumkvöðlahátíðin Iceland Innovation Week fer fram í þriðja sinn í næsta mánuði. Hátíðin er markaðsgluggi íslenskrar nýsköpunar ætlaður frumkvöðlum, stofnunum og fyrirtækjum. Við fengum til okkar Eddu Konráðsdóttur frá Nýsköpunarvikunni og Andra Heiðar Kristinsson framkvæmdastjóra hjá Stafrænu Íslandi. Til stendur að skerða þjónustu Strætó vegna aðhaldsaðgerða í rekstri félagsins en tekjur þess hafa minnkað um allt að einn og hálfan milljarð króna á síðustu tveimur árum. Við ræddum við Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóra Strætó. Við vorum rétt búnar að ákveða að fjalla um vorverkin í garðinum þegar fór að snjóa í gær - en við gefum það ekki eftir og ætlum að forvitnast um hvað, ef eitthvað, er hægt að byrja að gera til að undirbúa garðinn og gróðurinn fyrir sumarið. Vilmundur Hansen leit við hjá okkur og fræddi okkur um vorverk í íslenskri veðráttu. Við höfum fjallað svolítið um nýtt útlendingafrumvarp sem hefur verið í bígerð frá Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra á kjörtímabilinu. Um tíma var í því heimild til að skikka hælisleitendur í læknisskoðun hér á landi, með það að augnamiði að senda það svo úr landi að henni lokinni, og eitt og annað fleira hefur verið mjög gagnrýnt. Nú er búið að snikka frumvarpið til og á Jón von á því að það verði samþykkt á vorþinginu. Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata var harðorður á Alþingi í gær og lýsti frumvarpinu meðal annars sem ógeðslegu. Hann kom til okkar. Gleðskapur Framsóknarflokksins á Búnaðarþingi á fimmtudag fór heldur betur úr böndunum en eitt umdeildasta atvikið var sannarlega þegar Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra gerði húðlit framkvæmdastjóra Bændasamtakanna að umfjöllunarefni og virðist hafa kallaði hana "þá svörtu". Við ræddum þetta mál við Brynju Dan Gunnarsdóttur varaþingkonu Framsóknarflokksins og Kristínu Loftsdóttur prófessor við Háskóla Íslands en hún hefur rannsakað kynþáttafordóma á Íslandi, og birtingarmynd þeirra, um langa hríð. Sævar Helgi Bragason kom til okkar með sinn hálfsmánaðarlega vísindafróðleik, þar sem hann kom við í Egyptalandi m.a. Tónlist: Hljómar - Ástarsæla. Hildur Vala - Hard to be alone. The Cure - Just like heaven. Bríet - Flugdreki. Stefán Hilmarsson - Þú ferð mér svo ósköp vel. Gus Gus og Vök - Is it true. Emilíana Torrini - To be free. Aldous Harding - The barrel.

María rún Bjarnadóttir er lögfræðingur og verkefnisstjóri gegn stafrænu ofbeldi hjá Ríkislögreglunni (rls). RLS fóru af stað með herferð þar sem karlmenn eru hvattir til að vera ekki “þessi gaur”. Þetta snýst ekki um að allir karlar séu kynferðisafbrotamenn. Karlar þurfa að vera virkir í því að brjóta upp þessi samfélagsmynstur og staðalmyndir vegna þess að það er ekki bara skaðlegt fyrir konur, það er líka skaðlegt fyrir karla. Við ræðum einnig um síðuna umtöluðu, þar sem verið er að óska eftir nektarmyndum af stelpum. María segir lögregluna ekki hafa lagaheimildir til þess að taka síðuna niður þrátt fyrir lög um stafrænt ofbeldi. Lögreglan hefur bara leyfi til þess að taka niður heimasíður hýstar léni sem er “.is” og bara ef það sem kemur fram á síðunni, varðar við sex ára fangelsi eða meira. Þátturinn er í boði: https://omnom.is/
Ung kínversk kona drukknaði við Reynisfjöru í dag eftir að hún barst út með öldunni. Maður á sextugsaldri lést í morgun þegar rafskúta sem hann var á og létt bifhjól skullu saman. Þetta er fyrsta banaslysið tengt rafskútum hér á landi. Guðbrandur Sigurðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir bæði hjólin nú til rannsóknar, og hvort þeim hafi verið breytt til að þau kæmust hraðar Ekki er nógu langt gengið í samningsdrögunum sem lögð eru fram á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra en horfa verði fram á veg og góður andi ríki á ráðstefnunni. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir ræddi við hann. Örvunarskammtaátak hefst í Laugardalshöllinni eftir helgi. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir segir að ekki takist að gefa öllum örvunarskammt fyrir áramót því minnst fimm mánuðir þurfa að líða frá seinni sprautunni. Þórdís Arnljótsdóttir tók saman. Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, lagði í dag fram afsagnarbeiðni sína. Almennt er búist við að Magdalenu Andersson fjármálaráðherra verði falið að mynda stjórn. Ásgeir Tómasson sagði frá. Jóhanna Sigurðardóttir fyrrverandi forsætisráðherra hlýtur brautryðjendaverðlaunin Trail Blazers Award á Heimsþingi kvenleiðtoga sem haldið er í Hörpu. Hún sagði í ræðu sinni að heimurinn allur nyti góðs af því ef konur ættu jafnan þátt í því að taka ákvarðanir. ------------- Undir merkjum Stafræns Íslands er unnið að því að meginsamskiptaleið fólks og fyrirtækja við hið opinbera verði stafræn. Stöðugt stærri hluti samskipta við banka er um netið og notkun á Heilsuveru, þar sem fólk getur átt samskipti við heilbrigðisstarfsfólk, sótt sér vottorð og endurnýjað lyfseðla, hefur margfaldast. Allt er þetta gert til að einfalda líf fólks en þarna getur fólk með þroskahömlum rekist á hindranir og jafnvel orðið af hlutum venga þess að það getur ekki fengið rafræn skilríki nema sækja sjálft um þau. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við s Ingu Björk Margrétar Bjarnadóttur verkefnisstjóra hjá Þroskahjálp, Unni Helgu Óttarsdóttur formann Þroskahjálpar og Andra Heiðar Kristinsson, framkvæmdstjóra Stafræns Íslands. 2,7 gráður - svo mikið mun meðalhitinn á jörðinni aukast frá því sem var fyrir iðnbyltingu, ef áfram verður haldið á sömu braut. Miklu meira en þær 2 gráður, eða helst 1,5 gráða sem þjóðir heims stefna að samkvæmt Parísarsamkomulaginu. Í París, fyrir sex árum lofuðu þjóðarleiðtogar aðgerðum en nýjar rannsóknir sýna að aðeins örfá lönd hafa efnt þessi loforð. Jafnvel Svíþjóð - ríkt land með þróað hagkerfi og stóra endurnýjanlega orkug
Fyrir fjórum árum bjuggu rúmlega 1.000 manns í óskráðum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Á næstu mánuðum á að kortleggja hve margir búa nú í atvinnuhúsnæði og huga að brunavörnum. Sóttvarnalæknir segir ekki annað mögulegt en að herða sóttvarnaaðgerðir ef fram heldur sem horfir og ástandið á Landspítalanum heldur áfram að þyngjast. Flestir, eða tæp áttatíu prósent, vilja að Framsóknarflokkurinn verði í næstu ríkisstjórn, samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup. Þar á eftir koma Vinstri græn og Sjálfstæðisflokkur. Tveggja daga réttarhöld standa yfir í Bretlandi þar sem bandarísk stjórnvöld reyna enn að fá Julian Assange framseldan. Vestra á hann ævilangt fangelsi yfir höfði sér. Bresku fjárlögin voru lögð fram í dag, í anda bjartsýni ríkisstjórnarinnar, en vaxandi verðbólga gæti sett strik í þjóðhagsreikninga næstu missera. Næstu mánuðina á að kortleggja hve margir búa og hvar í atvinnuhúsnæði í borginni. Gengið verður í hús í iðnaðarhverfum og rætt við íbúa um brunavarnir og félagslegar aðstæður þeirra. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu leiðir verkefnið í samstarfi við sveitarfélögin og Alþýðusamband Íslands. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Aleksöndru Leonardsdóttur og Jón Viðar Matthíasson. Að jafnaði hafa landsmenn skráð sig 430 þúsund sinnum á mánuði inn á Heilsuveru á þessu ári. Notendur í ár eru um 250 þúsund, mikill meirihluti landsmanna. Heilsuveru-vefurinn hefur komið í veg fyrir að símkerfi Heilsugæslunnar færi á hliðina í faraldrinum, segir Auður Harðardóttir verkefniastjóri rafrænna heilsbrigðislausna hjá Landlæknisembættinu. Stafræn heilbrigðisþjónusta sé framtíðin og að aukin þjónusta sé í bígerð í Heilsuveru. Ragnhildur Thorlacius ræðir við Auði Harðardóttur. Bresku fjárlögin sem voru lögð fram í dag, lofa meiri útgjöldum í opinbera þjónustu sem á að fjármagna með skattahækkunum. Rishi Sunak fjármálaráðherra heldur þó fast í fyrri loforð um að minnka ríkisumsvif og lækka skatta síðar á kjörtímabilinu. En á tímum vaxandi verðbólgu og minni hagvaxtar á næstu árum gæti raunin þó orðið önnur en loforð fjármálaráðherra benda til. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Frambjóðendur sem ekki hrepptu þingsæti eftir endurtalningu í Norðvesturkjördæmi vilja ýmist að kosið verði aftur á landsvísu eða að fyrri talning í kjördæminu standi. Frambjóðandi sem kærði til lögreglu vill ekki munnhöggvast við formann yfirkjörstjórna í NV. Anna Lilja Þórisdóttir ræddi við Karl Gauta Hjaltason (M) og Lenyu Rún Taha Karim (P). Á níunda þúsund störf voru laus á þriðja ársfjórðungi og það segir Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar merki um bata. Drífa Snædal, forseti Alþýðusambandsins segir að stór hópur þurfi enn aukinn stuðning. Markús Þór Þórhallsson tók saman. Sjúkratryggingar Íslands hafa ákveðið að endurskoða ákvarðanir sem tengjast bótagreiðslum úr sjúklinga- og slysatryggingum vegna miska eða læknisfræðilegra örorku síðustu fjögur árin. Höskuldur Kári Schram ræddi við Maríu Heimisdóttur, forstjóra Sjúkratrygginga. Afar ólíklegt er að aðeins púðurskot hafi verið í byssu sem bandaríski leikarinn Alec Baldwin hleypti af með þeim afleiðingum að kvikmyndatökumaður lést. Þetta segir Ármann Áki Jónsson formaður Skotvíss, Kristín Sigurðardóttir talaði við hann. Það verður mikið rokkað á Akureyri um helgina á tónlistarhátíðinni Eyrarrokki en þar spila meðal annars hljómsveitir sem hafa ekki heyrst í mörg ár. Ágúst Ólafsson hitti Rögnvald Braga Rögnvaldsson, einn þeirra sem standa fyrir Eyrarrokki. ----- Líklegast er að kjörbréfin sem Landskjörstjórn gaf út eftir alþingiskosningarnar verði látin standa segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði; lagalega gangi að kjósa aftur í einu kjördæmi - en ekki pólitískt. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann. Innan tíðar gæti tekið nokkrar sekúndur að fá skjölum þinglýst, til að mynda vegna fasteignakaupa. Nú getur það tekið langan tíma. Andri Heiðar Kristinsson framkvæmdastjóri Stafræns Íslands segir að ferlið sé eins öruggt og mögulegt er og öruggara en gamla pappírsvinnan. Ragnhildur Thorlacius ræddi við hann. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.
Við byrjuðum á að forvitnast um málþing sem haldið verður á morgun á vegum lagadeildar Háskólans á Akureyri. Yfirskrift málþingsins er Uppreist æru, afplánun og réttindi borgaranna. Við fengum til okkar þau Hrannar Má Hafberg, lektor við lagadeild Háskólans á Akureyri, og Jóhönnu Ósk Jónasdóttur, laganema, en þau munu bæði flytja erindi á þinginu. Næstsíðasti kjördæmafundurinn verður sendur út í beinni hér á Rás 2 seinna í dag, eða kl. 17:30. Nú er það forystufólk í Suðurkjördæmi sem mætist og verður fundurinn sendur út frá Reykjanesbæ. Við hér í Morgunútvarpinu höldum áfram að hita upp fyrir fundina og rýndum í Suðurkjördæmi með hjálp Guðmundar Karls Sigurdórssonar, ritstjóra hjá sunnlenska.is. Hið vikulega málfarshorn var á sínum stað með málfarsráðunaut Ríkisútvarpsins, Önnu Sigríði Þráinsdóttur. Rúm vika er nú til stefnu þegar gengið verður til Alþingiskosninga. Einhverjir eru þegar búnir að ákveða sig en margir eru enn í vafa um hvert verður val þeirra. Til þess að aðstoða kjósendur við valið hefur RÚV sett upp kosningapróf á vefnum ruv.is. Þar getur þú borið saman afstöðu þína til nokkurra fullyrðinga við afstöðu frambjóðenda. En hvernig virkar þetta? Fréttamaðurinn Birgir Þór Harðarson veit allt um málið og kom til okkar. Valdimar Sigurðsson, prófessor í viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og kennara í námskeiðinu Stafræn markaðssetning og viðskipti á netinu hjá Opna háskólanum, segir að vinsældir hlaðvarpa séu meðal vísbendinga um að fólk sé farið að leita í meiri ró í fjölmiðlum aftur og dýpt. Við fengum Valdimar til okkar og ræddum þetta og þróun hegðunar fólks á netinu almennt. Tónlist: Hjálmar - Yfir hafið Nilsson - Everybody's talking Big red machine ásamt Taylor Swift - Renegade Bjarni Arason - Þegar sólin sýnir lit Emilíana Torrini - Jungle drum Hipsumhapps - Á hnjánum Fugees - Ready or not Abba - The name of the game GDRN, Flóni og Sinfó - Lætur mig Black pumas - I'm ready
Persónuvernd gerir alvarlegar athugasemdir við rangfærslur í skýrslu sjávarútvegsráðherra um eignarhald útgerðafélaga. Helga Þórisdóttir, fForstjóri Persónuverndar segir persónuverndarlög notuð sem skálkaskjól til að leyna gögnum. Hildur Margrét Jóhannsdóttir tók saman. Bardagar hafa staðið undanfarna daga í Pansjír-dal norðan höfuðborgar Afganistans. Rótgróin andstaða er við talibana í dalnum. Bogi Ágústsson segir frá. Heyrist í Samir Abu Eid, fréttamanni SVT og hermanni sem berst gegn talibönum. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra segist ekki vita til þess að nokkur hafi reynt að villa á sér heimildir með stafrænum ökuskírteinum í utankjörfundaratkvæðagreiðslu. Skannar verða á öllum kjörstöðum segir Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands. Dagný Hulda Erlendsdóttir tók saman. Slysavarnafélagið Landsbjörg fær þrjú ný skip í flotann á næstu tveimur árum. Meðalaldur skipa björgunarsveitanna er um 35 ár og eru þau án allra helstu grunnþægind.Örn Smárason verkefnisstjóri sjóbjörgunar hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg segir óspennandi til lengdar að fara í útkall eftir útkall á illa búnum skipum. Sunna Valgerðardóttir ræddi við hann. Vegglistaverkið Flatus Lifir, við Esjurætur, tekur stakkaskiptum á næstu dögum. Listakonan, Edda Karólína Ævarsdóttir, segist ætla að halda textanum en hafa vegginn litríkari. Ólöf Rún Erlendsdóttir talaði við hana. ------------- Í fyrra leituðu 24 til samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs eftir að hann tók til starfa um vorið. Í ár hafa þegar borist 40 mál og viðbúið að þeim fjölgi í ljósi umræðu um íþróttahreyfinguna, segir Sigurbjörg Sigurpálsdóttir sem sinnt hefur þessu starfi í rúmt ár. Til ráðgjafans geta allir í skipulögðu íþrótta og æskulýðsstarfi leitað finnist þeim á sér brotið án þess að óttast afleiðingar. Sigur talíbana í Afganistan gæti fyllt íslamska öfgamenn víða eldmóði og aukið líkur á hryðjuverkum, þótt sérfræðingar búist ekki við ódæðum á við þau sem framin voru í Bandaríkjunum fyrir bráðum 20 árum. Ragnhildur Thorlacius segir frá. Extinction Rebellion eru orðin alþjóðleg samtök sem hafa andæft undanfarið í London, upptaktur fyrir umhverfisráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow í nóvember. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.