Hjónin Svandís og Jóhann fjalla um glæpi, á léttari nótunum. Svandís er með B.Sc í sálfræði, með sérstakan áhuga á afbrotasálfræði og Jóhann er starfandi læknir með sérstakan áhuga á réttarmeinafræði. Við viljum minna á að þetta er ekki endilega fyrir viðkvæma.
Síðasti þáttur annarar seríu...Við fáum til okkar hana Tinnu Björk Kristinsdóttur, þáttastjórnanda hlaðvarpanna "Þarf alltaf að vera grín" og "Misteríu" til að ræða við okkur um mál Madeleine McCann. Við förum saman yfir atburðarásina þetta örlagaríka kvöld, þeim helstu grunuðum, og veltum upp mögulegum skýringum.
Í þessum þætti förum við yfir meinta morðkvendið, Elizabet Bathory, sem var uppi í kringum árið 1600. Hundruðir ungra kvenna úr nálægum sveitum fóru að hverfa, og fóru að hreyast sögur af ægilegra grimmd Elizabeth, sem baðaði sig í blóði ungra meyja og pyntaði á hrottafengna vegu. Við förum aftur í tímann, og spáum í kenningar Freud og Skinner, um af hverju við fremjum glæpi.
Við förum yfir líkelga fyrsta net-költinn, og hina umdeildu Teal Swan sem honum stýrir.Hún býr yfir yfirnáttúrulegum öflum, og allri heimsins þekkingu í leið sinni að hjálpa fólki. Við skoðum í minningar, bældar minningar og hvernig falskar minningar geta orðið til. Jói fer svo yfir Stóra Fjárafelmtrið (e. satanic panic) sem stóð yfir í Bandaríkjunum um um 10 ára skeið.
Við förum yfir mál John List, fjölskylduföðurs sem hvarf. Fjölskylda hans fannst myrt í húsi þeirra, og John var horfinn. Allar ljósmyndir af honum voru horfnar, og virtist engin leið til að finna hvar hann var niðurkominn. Við kíkjum einnig aftur í tímann, og spjöllum um brautryðjanda í afbrota- og afbrotasálfræði, hana Pauline Tarnowsky.
Við reimuðum á okkur hámenningarskóna og fórum í leikhús!Við förum yfir mál Ísdalskonunnar, sem fannst illa brunnin í afskekktum dal í Noregi árið 1970, og dularfull atriði hrannast upp um sögu þessarar konu. Við tökum í lokin viðtal við leikskáld, og aðalleikara leikritsins sem byggir á ferðalagi hans á staðinn sem þessi atburður átti sér stað og hans eigin rannsókn á málinu sem leikritið fjallar um.
Í þessum þætti förum við yfir morðin á Banaheia í Noregi, umdeilda sakfellingu og jafnvel minnumst á hvernig lík eru geymd á búgörðum...
Í þættinum förum við yfir mál Honey Malone. Hún fannst látin í íbúð við undarlegar aðstæður í Atlanta. Málið virtist ekki ganga og sett til hliðar í allmörg ár áður en nýjar upplýsingar koma í ljós. Við fáum einnig ráðgjöf lögfræðings í þættinum.
Við fjöllum eitthvað um mál Debbie Wolfe, sem fannst í tunnu út í litlu vatni. Einbeitingin er mögulega verri en vanalega, og tölum einnig um matarstell,jólamyndir, drukknun, nýjan sponsor, jólagjafir, óhapp á Tinder o.fl. o.fl...
Í þættinum í dag fáum við til okkar unga konu, sem í mörg ár bjó við ofbeldisfullt samband. Hún segir frá lífi sínu, ofbeldinu, óttanum og reynum að skyggnast inn í hugarheim geranda í slíkum samböndum.
Þessi þáttur er með breyttu sniði. Við ætluðum að taka viðtal við unga konu, og heyra sögu hennar úr ofbeldissambandi, en veðrið lék okkur grátt og þurftum að fresta.Því er þetta óundirbúinn þáttur (því við vildum ekki svekkja ykkur með engum þætti) þar sem við leyfum hlustendum aðeins að kynnast okkur og spjalla um hitt og þetta.
Í þessum þætti förum við yfir ótrúlegt mál Gipsy Rose og móður hennar. Við ræðum persónugreiningar á grundvelli þess hverskonar bíl maður á, og rifjum upp hvernig vampírur á sjöunda áratug síðustu aldar tala...
Hinn víðsfrægi Al Capone er efni þáttarins í dag. Eins og hefðin er, þá höldum við okkur algjörlega við efnið og missum aldrei þráðinn. Svo er þarna líka allt sem þú vildir ekki vita um sýfilis...
Hrekkjavaka? Hrekkjavaka...Förum yfir draugasögur og atburði úr hinum stóra heimi, og eigin lífi, sem ekki er alltaf auðvelt að útskýra á hefðbundinn hátt, nema kannski með heimagerðum bjór...
Við, ásamt Móeiði, förum í gegnum seinni hluta málsins um Adnan Sayed.Það kemur einnig í ljós hver er minnugastur af hópnum... Jói vinnur engin verðlaun fyrir það...
Við förum yfir gríðarlega stórt mál Adnan Sayed, og fáum til liðs við okkur hana Móeiði sem hefur kynnt sér þetta mál vel. Það sem meira er, að loksins tökum við fyrir fiskiflugur, og hagnýtingu þeirra í glæparannsóknum og hötum svolítið hrossaflugur í leiðinni.
Í þessum þætti förum við yfir eitt alræmdasta glæpapar sögunnar, þau Bonnie og Clyde.
Tvöfaldur afmælisþáttur, þar sem Svandís á afmæli í dag!Við tökum fyrir trúðinn Pogo, sem einnig þekkist sem John Wayne Gacy, einn alræmdasti fjöldamorðingi bandaríkjanna. Varúð, þungur þáttur á köflum. Við förum yfir víðan völl og í fræðsluhorninu (sem í dag heitir sannleikshornið, afmælisgjöf Jóa til Svandísar) þá förum við yfir sameiginlegan völl sálfræðinnar og læknisfræðinnar, eða persónuleikaraskanir og lögð sérstök áhersla á andfélagslega hegðun (sem einnig er kallað siðblinda). Svandís segir frá rannsókn sem hún gerði á börnum o.fl o.fl.
Í þessum þætti förum við yfir H.H.Holmes, eiganda hins fræga "morðkastala" í Chicago, rétt fyrir aldamótin 1900. Mikið hefur verið skrifað og fjallað um þetta mál, og reynum að komast eins nærri sannleikanum og við getum. Hver er annars munurinn á horni og klefa?
Í þessum þætti förum við yfir mál Charles Fain, skoðum hvernig vísindalegum aðferðum var beitt á síðustu öld, og fjöllum um hvernig erfðaefni er nýtt í rannsóknum nútímans.
Við snúum aftur með aðra þáttaröð af Myrkraverk. Í þessum fyrsta þætti af nýrri seríu, þá förum við yfir einn frægasta raðmorðingja sögunnar, sem aldrei náðist, eða Kobba Kviðristi (e. Jack the Ripper). Fræðsluhornið er á sínum stað, og förum yfir það sem við mannfólkið eigum sameiginlegt með kóalabjörnum.
Í dag förum við yfir umdeilt mál. Kendrick Johnson finnst látinn, ofaní upprúllaðri dýnu í íþróttasal skólans. Var þetta hræðilegt slys, eða býr eitthvað meira þarna að baki?
Jaycee Dugard var rænt ellefu ára gamalli, og haldið af hjónum í átján ár...
Í þessum þætti fjöllum við um hvarf ungrar stúlku. Hver er þar að baki?Er það faðir hennar, eða er þetta alþjóðlegt samsæri rafvirkjasamtaka?
Eru cults á Íslandi? Svarið er já, og í dag fáum við tvær konur í viðtal, sem að lýsa sinni reynslu úr því að vera í íslenskum sértrúarsöfnuði, hvernig þær komust úr þeim, og hvað gekk á á bakvið tjöldin.
Í þættinum dag komumst við að því hversu mörg handklæði Jói og Svandís eiga. Já, og svo fjöllum við um morð, þar sem mögulega saklaus maður situr inni, og lögreglumaður er sterklega grunaður um glæpinn.
Ung kona hverfur sporlaust. Kærastin hennar með vafasama fortíð. Og já, er ekki eðlilegt að vera með plan fyrir árás uppvakninga?
Hverjum hefur ekki dottið í hug að geyma nokkur lík inn í eldhúsi hjá sér? Förum yfir mál fjöldamorðingja sem var virkur í kringum stríðsárin í Bretlandi, og fræðsluhornið verður á sínum stað!
Baneitrað samband, dauði í sturtubaði, hvað þarf meira?
Förum yfir sértrúarsöfnuði, sálfræðina þar að baki og tökum dæmi um slíkan söfnuð.
Hvað gerist þegar að heilbrigðisstarfsfólk drepur?Förum yfir tvö mál, og svo af sjálfsögðu, fræðsluhornið.
Förum yfir mál sem teygist yfir 19 ár, og inniheldur hvarf, lygar og svik.
Tim Masters sat saklaus inni í 10 ár, eftir viðamikið samsæri saksóknara, lögreglunnar og fleira.
Lauren Agee finnst látin, eftir djamm með vinum. Aðstæður og skoðun hennar er afar grunsamlegt, en lögreglan og dómskerfið virðist halda fast í að halda því fram að þetta hafi einfaldlega verið slys...
Í þessum þætti förum við yfir konur sem drepa, tökum fyrir tvö mál og veltum upp aðferðum, fórnarlömbum o.fl.Instagram: MyrkraverkPodcastFacebook: MyrkraverkPodcast
Við fjöllum um unga konu, er finnst í vatnstanki hótels, og ýmsar kenningar er hafa sprottið upp í tengslum við það mál.
Í þættinum fáum við til okkar Jóhönnu og Ingvar. Þau eru fyrrverandi lögregluþjónar með yfir 25 ára reynslu í lögreglustörfum. Jóhanna er þar að auki sérfræðingur í þjálfun m.a leitarhunda sem nýttir eru í störfum lögreglu, björgunarsveita o.fl. Við fáum þeirra innsýn og punkta varðandi mál Shannon Matthews, sem er níu ára stúlka sem hvarf. Við förum yfir leitaraðferðir lögreglu, beitingu leitarhunda o.fl.
Við tökum fyrir mál frá tveim fylkjum Bandaríkjanna, Alabama og Flórída, og keppum um sérstökustu málin. Stigagjöfin verður á facebook síðu Myrkraverks.
Við skoðum hvarf tveggja ungra stúlkna. Þessi þáttur er í aðeins þyngri kantinum varðandi málið sem slíkt. Við skoðum merkileg vísindi er áttu ómetanlegan þátt í að verða þeim seka að falli. Hljóðgæði í þessum þætti eru öllu betri en áður.
Ef maður játar glæp, framdi maður glæpinn?Jói og Svandís fjalla um mál, og velta upp ástæðum falskra játninga.
Hér förum við yfir morðið á Joanna Yeates, rýnum í málið og meinafræðina ásamt vangaveltum um verknaðinn og glæpinn sem slíkan.