POPULARITY
https://solvitryggva.is/ Haraldur Erlendsson er þrautreyndur geðlæknir sem vann um árabil í Bretlandi. Í þættinum ræða Sölvi og Haraldur um kerfin, geðheilsu, lýðræði, ábyrgð einstaklingsins og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Kaja Organic - https://www.kajaorganic.com/ Biofit - https://biofit.is/
Föstudagur 2. maí Vikuskammtur: Vika 18 Stór fréttavika að baki og margt að ræða. Ásamt Maríu Lilju mæta til borðs þau: Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar, samtaka gegn kynbundu ofbeldi, Pétur Eggerz tæknistjóri og aðgerðasinni, Birkir Fjalar Viðarsson, metalhaus og þreyttur faðir og Helga Þórey Jónsdóttir, kennari og menningarfræðingur. Saman fara þau yfir þetta helsta og áhugaverðasta eins og t.d. rasisma og falsfréttir, bænastað á Keflavíkurflugvelli og furðulega andstöðu við iðkun trúarbragða á meðal leigubílstjóra. Við ræðum um opinn fund Sjórnskipunar -og eftirlitsnefndar um meðferð mála tengdum Ásthildi Lóu. Kveikur afhjúpaði njósnir lögreglumanna fyrir auðmenn, írsku rapparana í Kneecap og tónleika þeirra á Coachella sem orðnir eru að utanríkismáli í Bretlandi og Bandaríkjunum. Förum yfir nýafstaðna kröfugöngu á 1. maí, rafmagnsleysi á Spáni og fregnir af því að Kári Stef hafi látið af störfum fyrir Erfðagreiningu. Nágrannar hafa fengið nóg af ólykt og öskufalli sem fylgir líkbrennslu í Fossvogi. Þá undirrituðu Bandaríkin og Úkraína milli sín auðlindasamning sem á sér fáar hliðstæður, Ísrael brennur og Palestína bauð fram aðstoð við að ná tökum á skógareldum. Það er ekkert lát á brottvísunum flóttafólks, ástandið á Gaza komst einhvernveginn á nýjan botn í hryllingi. Dómur yfir unglingsdreng sem varð Bryndísi Klöru að bana og undrun margra fjölmiðlaneytenda yfir skipun Heimis Más, fjölmiðlafulltrúa Flokks fólksins í stjórn RÚV. Allskonar að frétta sumt sorglegt annað vont, skrítið eða skemmtilegt.
Eftir grandprixsigurin við Waterloo tíðliga í apríl 1974 og stóru undirtøkuna og umrøðuna í tess kjalarvørri, dalaði undirtøkan aftur. ABBA visti ikki rættiliga, hvussu framhaldið fór at vera, ella um eitt framhald var gjørligt. Í november fóru teir fýra svenskararnir á konsertferð í Europa, men úrslitið livdi ikki upp til væntaninar, tí flestu konsertirnar vóru ikki útseldar. Um sama mundið seint í 1974 royndu tey seg í Bretlandi við singleplátuni 'So Long', og aftur um summarið 1975 við aðrari nýggjari singleplátu, 'I do I do I do I do I do', men sama skilið, BBC Radio 1 hevði ikki hug at spæla hesi løg og tað sást aftur á hittlistanum. Men tá LP-sjálvheitisplátan Abba varð send á bretska og aðrar marknaðir saman við einari singleplátu seint í 1975, raknaðu bretar og onnur við, og ferð kom á karrieruna hjá ABBAfólkunum. Nú var tað ikki longur 'Another Town, Another Train' í ørkymlan. Skýggini vóru rýmd. AllMusic dátustovnurin segði plátuna og bólkin bilsna, tí ongantíð fyrr var tað hent, at ein poppbólkur úr einum landi við øðrum tungumáli enn enskum hevði gjørt ein so stóran vørr á heimsmarknaðinum. Í samband við endurútgávu í 2012 skrivaði BBC, at tað var eitt sindur løgið, at hetta var plátan, ið gav ABBA tað stóra gjøgnumbrotið, tí hon vevjist í ymsum ymiskum sjangrum við onkrum hitti mitt í. Plátubarrin 19. apríl 2025
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Haraldur Erlendsson er þrautreyndur geðlæknir sem vann um árabil í Bretlandi. Í þættinum ræða Sölvi og Haraldur um kerfin, geðheilsu, lýðræði, ábyrgð einstaklingsins og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Kaja Organic - https://www.kajaorganic.com/ Biofit - https://biofit.is/
Í Jambalaja í dag hoyra vit einans sangir, sum komu út fyri fimmti árum síðani. Vit hava tikið nakrar av teimum bestu plátunum í Jambalaja-stíli frá 1975, og hoyra dømir burtur úr teimum. Tað verður tónleikur úr bæði USA og Bretlandi at hoyra í dag.
Størstu hittini eru 'All That She Wants' og 'The Sign', tí amerikanarar keyptu hesi stakløg sera nógv. Seinni vóru 'Lucky Love' og 'Beautiful Life' frá aðrari útgávu eisini hitt vestan hav og tey verða spæld sum eykaløg í hesum tátti. Happy Nation er á listanum yvir hundrað tær mest seldu tónleikaútgávurnar yvirhøvur. Onkustaðni stendur, at hon er seld í 21 milliónum eintøkum, aðrastaðni stendur 23 milliónir seld eintøk. Men tá er amerikanska versjónin av verkinum, The Sign, ikki tikin við. Og sum eg dugi at síggja á yvirlitinum yvir platin, tað er ein markørur fyri eitt ávíst, stórt tal av seldum eintøkum, hava US-búgvar og kanadiubúgvar keypt The Sign einar 10 milliónir ferðir. Útgávan var eisini nummar eitt í USA. Í Bretlandi hevði fyrra útgávan av Happy Nation megnað eitt 21.pláss á albumlistanum fyrr á árinum í 1993, men tá so Happy Nation (U.S. Version) varð givin út í september við sínum hitt-eykaløgum, streyk eisini henda útgávan av aktuella heildarverkinum upp á fyrstaplássið á UK Albums Chart. Plátubarrin 1. februar 2025
Hetta er net-útgávan av hesi sending. Net-útgávan er meira fullfíggjað enn tað, ið sent varð í Plátubarrini. Øll løgini verða spæld í fullari longd. Talan er um sjeynda og eisini mest selda Whitesnake albumið. Tað er tað seinna við John Sykes, sála, á gittarinum. Sera kend løg eru 'Is This Love' og 'Here We Go Again '87'. Hetta er meira áttatiára-glam ella hármetall-rokkur enn tað Whitesnake hevði verið kent fyri. John Sykes doyði 20. januar, 65 ára gamal, og henda sendingin er tí partvíst honum til minnis. Útgávan Whitesnake varð nummar tvey á amerikanska popplistanum, US Billboard 200, og nummar átta á bretska UK Album Charts. Í Europa umframt Bretlandi varð hon nevnd '1987', í Japan kallaðist útgávan 'Serpens Albu's, meðan hon bæði í Bretlandi og USA bara varð kallað 'Whitesnake'. Stóra undirtøkan av verkinum hevði tann ringvirkning, at sølutøluni fyri plátuna frammanundan frá 1984, 'Slide It In', fleirfaldaust. Plátubarrin 25. januar 2025
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu erlend málefni við Boga Ágústsson eins og jafnan á fimmtudagsmorgnum á Morgunvaktinni. Samið hefur verið um vopnahlé á Gaza eftir grimmdarleg átök, þar sem talið er að nærri 50 þúsund Palestínumenn hafi beðið bana og á annað þúsund Ísraelsmenn. Forsætisráðherra Dana ræddi í síma í gær við verðandi Bandaríkjaforseta og lagði áherslu á að Grænlendingar ættu að ráða eigin framtíð. Leynistríð Rússa gegn vestrænum ríkjum var til umræðu. Ríki við Eystrasalt hafa miklar áhyggjur af skemmdarverkum á neðansjávarköplum. Þau ætla að stórefla gæslu á Eystrasalti gegn svokölluðum skuggaflota Rússa. Finnar handtóku áhöfn skips úr þeim flota, Eagle S. Allt bendir til þess að skipverjar hafi dregið akkeri yfir kapla á milli Eistlands og Finnlands. Verkamannaflokkurinn vann stórsigur í þingkosningum á Bretlandi í fyrra. Hálfu ári síðar hefur flokkurinn misst traust stórs hluta kjósenda sinna og á undir högg að sækja. Í gær þurfti ráðherra að segja af sér vegna mögulegra tengsla við spillingarmál í Bangladess. Þykir háðulegt að ráðherrann bar ábyrgð á baráttu gegn spillingu í bresku stjórninni.
TikTokstjarnan Sigurður Anton vakti mikla athygli í aðdraganda nýliðinna alþingiskosninga þar sem hann ræddi um fasisma, stjórnmálin, nýfrjálshyggju og fleira.Í þessum þætti er rætt um þau mál ásamt fyrirtækjaeign verkafólks, kynferðisafbrotahringi í Bretlandi, kynjamál og margt fleira.Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
Tvítugur flautuleikari braust inn í náttúruminjasafn í Bretlandi og stal þaðan fjöðrum og fuglshömum af útdauðum fuglum. Þeir voru úr 150 ára gömlu safni manns sem nefndur er faðir lífeðlisfræðinnar. Ránsfenginn ætlaði flautuleikarinn að selja fluguhnýtingarmönnum um heim allan. Úr varð ein undarlegasta glæpasaga síðari tíma. Birta skoðaði málið og ræddi við Kirk Wallace Johnson, bandarískan rithöfund sem skrifaði bók um þessa merkilegu sögu. Þá er einnig rætt við Sigþór Stein Ólafsson, laxveiðileiðsögumann og umsjónarmann hlaðvarpsins Hylurinn.
Guðbjörg Thoroddsen leikkona hefur gefið út bókina Baujan sem býr yfir einfaldri sjálfsstyrkingaraðferð og byggir á meðvitaðri öndun í tengslum við tilfinningavinnu, úrvinnslu áfalla og áfallastreitu. Guðbjörg eða Bauja eins og hún er kölluð hefur starfað sem ráðgjafi innan skólakerfis og utan samhliða leiklistinni í fjöldamörg ár og miðar bók hennar að því að hafa stjórn á líðan sinni og tileinka sér núvitund. Guðbjörg kom til okkar í dag. Það eru 20 ár liðin frá því Kolbrún Björnsdóttir opnaði Jurtaapótekið en Kolbrún hefur starfað við grasalækningar frá því hún útskrifaðist úr grasalæknaskólanum í Bretlandi árið 1993.Hugmyndir Kolbrúnar með stofnun Jurtaapóteks var að fræða fólk um lækningamátt jurta og áhrif betri fæðu. Með þetta að leiðarljósi væri auðveldara fyrir hvern og einn að taka sjálfstæðar ákvarðanir varðandi heilsu sína og lífstíl. Við ræddum við Kolbrúnu í þættinum í dag. Ingunn Sigurjónsdóttir fæddist árið 1906 og smitaðist ung af berklum og dvaldist síðustu árin sem hún lifði á heilsustofnunum. Bréfin sem hún sendi þaðan foreldrum sínum og systkinum lýsa lífinu þar, lækningaaðferðum, andlegu ástandi berklasjúklinga, löngunum og þrám. Úlfar Bragason safnaði bréfunum saman og út er komin bók sem heitir Ykkar einlæg. Við ræddum við Úlfar. MANNLEGI ÞÁTTURINN - FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG HELGA ARNARDÓTTIR Tónlistin í þættinum Ragnar Bjarnason, Elly Vilhjálms - Jólin alls staðar. Þór Breiðfjörð - Allt er svo þögult (heilaga nótt). Erna Hrönn Ólafsdóttir, Pálmi J. Sigurhjartarson Tónlistarm. - Jól.
Tómas Dagur Helgason segir hér frá fjölbreyttum ferli í fluginu. Það varð honum mikið áfall að missa heilbrigðisvottorðið og þar með flugréttindin vegna sykursýki fyrir um áratug síðan, en hann hefur æ síðan barist ötullega fyrir því að fá reglum breytt í Evrópu í þá átt að heimila sykursjúkum að fljúga að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Hann hefur haldið ótrauður áfram í fluginu og flýgur í dag einkaflug á grundvelli skírteinis frá Bandaríkjunum og hefur viðhaldið fyrsta flokks heilbrigðisvottorði útgefnu í Bretlandi. Tómas Dagur er í dag flugrekstrarstjóri Norlandair og var áður flugrekstrarstjóri Bláfugls. Þar að auki á hann að baki þrjá áratugi sem flugmaður og flugstjóri hjá Icelandair. Tómas Dagur er líka formaður DC-3 Þristavinafélagsins sem í eru hátt í fjögur hundruð manns sem vilja viðhalda Þristinum. Það er því af nógu að taka þegar rætt er við Tómas Dag um flugmálin.
Umfangi heimilisofbeldis gegn konum á Bretlandseyjum hefur verið lýst sem neyðarástandi. Talið er að tvær milljónir breskra kvenna verði fyrir einhvers konar ofbeldi á ári hverju. Undanfarin ár er að meðaltali ein kona drepin þriðja hvern dag á Bretlandseyjum. Blaðamaður hjá Guardian, sem hefur tekið saman upplýsingar um kvennamorð það sem af er ári, segir að refsingar við morði innan veggja heimilis séu alla jafna mun vægari en þegar konur eru drepnar á götum úti. Svo heyrum við af heimsókn Björns Malmquist fréttamanns á belgíska náttúruminjasafnið í Brussel þar sem hann stóð augliti til auglitis við síðasta geirfuglinn, sem talið er að hafi verið drepinn í Eldey fyrir rúmum 180 árum - sumarið 1844. Björn talaði við Gísla Pálsson, fyrrverandi prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands, sem hefur fjallað ítarlega um sögu og útdauða geirfuglsins. Hann segir geirfuglinn og sögu hans svo mikilvæga því hún sannfærði menn um að aldauði af mannavöldum væri stórt vandamál og því þyrfti að snúa vörn í sókn.
Rúnar Guðbrandsson hafði ekki þolinmæði fyrir einsleitninni á Íslandi á kaldastríðsárunum, ákvað strax eftir menntaskóla að fara eins langt og hann kæmist, og endaði á því að fara að mestu gangandi frá Danmörku, til Indlands og upp í Himalya fjöllin. Útrásin og forvitnin fyrir því því sem er handan hornsins, handan götunnar, hafa verið leiðarstef í lífi hans og hann varð snemma spenntur fyrir leiklist. Sýn Rúnars á leikhús umbreyttist þegar hann 17 ára sá tvær óhefðbundnar leiksýningar í Danmörku. Eftir nám og störf á því sviði þar í landi bættist við margvísleg þjálfun í leiktækni í Póllandi, Ítalíu, Bretlandi, Rússlandi og víðar. Rúnar hefur áralanga reynslu sem leikhúslistamaður bæði á Íslandi og erlendis. Auk þess að starfa sem leikari, höfundur og leikstjóri hefur Rúnar kennt leiktúlkun og fengist við ýmis konar tilraunstarfsemi á vettvangi sviðslista og kvikmynda. Hann stofnaði leikhópinn Lab -Loka árið 1992, sem hefur undir stjórn Rúnars hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna, og Heimilislausa leikhúsið 2015, sem leiddi af sér ýmis leikhúsverkefni á jaðrinum í Evrópu, m.a. með föngum og kynlífsverkafólki. Rúnar lítur á leikhúsið sem orkustöð. Hann segir aðferðafræðina skipta höfuðmáli því það vanti aldrei hugmyndir; leikhúsið sé farvegur til að nema ný lönd. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Kosningarnar í Georgíu á morgun gætu orðið þær afdrifaríkustu síðan þetta fyrrum Sovétlýðveldi lýsti yfir sjálfstæði fyrir meira en þrjátíu árum. Framtíð landsins er í húfi, segir Salome Zourabichvili forseti Georgíu. Bretar státa sig gjarnan af því að eiginlegt þrælahald hafi aldrei tíðkast á Bretlandi. Þeir tala minna um það, að þegar mest lét voru þeir allra þjóða umsvifamestir í þrælakaupmennsku, í skjóli yfirburðastöðu sinnar á heimshöfunum. Og í þættinum verður rætt við tvo unga frambjóðendur í komandi þingkosningum.
Illugi Jökulsson rekur hér harmsögu um Önnu drottningu á Bretlandi sem bókstaflega varð að eignast barn, hvað sem það kostaði.
Saga Edgar Ochoa er ein nærri átta milljóna sem flóttamenn frá Venesúela hafa að segja af ástandinu í heimalandinu. Hann kom til Íslands fyrir um tveimur árum og hlaut íslenskan ríkisborgararétt nýverið. Hann fór til Venesúela í sumar og tók þátt í forsetakosningum, þar sem kjörstjórn lýsti Nicolas Maduro sigurvegara. Þriðja kjörtímabil hans er nýhafið og má segja að stjórnartíð hans hafi verið ansi stormasöm. Róbert Jóhannsson skoðaði sögu Venesúela og þá staðreynd að júlunum var hleypt af stokkunum þar fyrr en áður til að reyna að friða ósátta íbúa landsins. Fimm milljón Legó-kubbar eða stykki úr Legó-leikfangasettum enduðu í sjónum austur af Bretlandi í febrúar 1997, þegar flutningaskipið Tokyo Express fékk á sig brotsjó og meira en sextíu vörugámar féllu útbyrðis. Næstu vikur og mánuði fóru allskonar Legó hlutir að finnast á ströndum í suðvesturhluta Bretlands og víðar, og reyndar eru þeir enn að dúkka upp. Stóra Legóslysið, eins og þetta óhapp hefur verið kallað, hefur ekki aðeins snert taugar þeirra sem ólust upp við að leika sér að Legói heldur líka beint enn frekar athyglinni að þeim milljónum tonna af plasti sem rekur um heimsins höf. Björn Malmquist segir okkur frá.
Almennt og gegnumgangandi traust Norðurlandabúa til stofnana og næsta manns gerir þá berskjaldaða gagnvart netþrjótum. Þetta kemur fram í nýju sameiginlegu áhættumati norrænna löggæsluyfirvalda. Rætt verður við Ólaf Þór Hauksson, héraðssaksóknara. Fjallað verður um hrottalegt morð á Bretlandseyjum þar sem drengir á þrettánda aldursári voru sakfelldir. Fjölskyldan fórnarlambsins er ósátt með lengd dómanna því drengirnir tveir verða tvítugir þegar þeir ljúka afplánun. Hressilegt og kunnuglegt lag hefur verið notað meira en milljón sinnum undir stutt myndskeið á tiktok, instagram og youtube. Líklega hafa nær allir sem einhvern tíma hafa slæðst inn á þessa miðla heyrt það en færri þekkja líklega höfund þess. Í nýlegri umfjöllun í npr-útvarpinu bandaríska er sjónum og hlustum beint að Kevin MacLeod sem samdi lagið fyrir um tíu árum.
Stjórnmálaflokkar í Bretlandi halda landsfundi þessar vikurnar, Frjálslyndir demókratar í síðustu viku, Verkamannaflokkurinn í þessari og Íhaldsflokkurinn í næstu viku. Hamingja og eindrægni ríkti hjá Frjálslyndum sem fengu 72 þingmenn kjörna í þingkosningunum í júlí. Ekki hafa setið fleiri Frjálslyndir í neðri málstofunni í heila öld. Ætla hefði mátt að sigurgleði ríkti einnig á landsfundi Verkamannaflokksins sem vann stórsigur í sumar og fékk 404 þingsæti. Því var ekki að heilsa, flokksmenn samþykktu ályktun um að hætta við að skerða húshitunarstyrk sem allir eldri borgarar hafa fengið. Ný stjórn Verkamannaflokksins hyggst aðeins greiða þeim allra fátækustu húshitunarstyrk og hefur sú ákvörðun valdið mikilli óánægju. Búist er við að leiðtogakjör verði efst á baugi á þingi Íhaldsflokksins í næstu viku þar sem fjórir frambjóðendur hafa tækifæri til að kynna sig. Moderaterne í Danmörku hafa átt í vandræðum frá því að nokkrir starfsmenn á skrifstofu flokksins klöguðu til danska vinnueftirlitsins í ágúst. Sögðu þau vinnuumhverfið mjög slæmt, fólk lagt í einelti og framkoma yfirmanna fjarri öllu lagi. Uppsagnir og hreinsanir hafa fylgt og í gær hætti Kirsten Munch Andersen, framkvæmdastjóri flokksins. Ný þjóðhagsspá danska seðlabankans gerir ráð fyrir lítilli verðbólgu og viðunandi hagvexti. Í Svíþjóð voru stýrivextir lækkaðir og seðlabankastjóri vill auka einkaneyslu til að vinna gegn samdrætti og auknu atvinnuleysi. Maria Malmer Stenergard, nýr utanríkisráðherra Svía, segir í viðtalið við Dagens Nyheter að innflytjendur séu minna vandamál ef „þeir líkjast okkur“. Norska stjórnin hefur boðað strangari innflytjendastefnu.
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Í þættinum ræða Sölvi og Frosti um helstu atburði líðandi stundar í samfélagsmálum. Hlutdrægni fjölmiðla. óeirðirnar í Bretlandi, hatursorðræða, forsetakosningarnar í Bandaríkjunum og margt margt fleira Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ H-Berg - https://hberg.is/
Samfélagið sendir út frá alþjóðlegu Mývatnsráðstefnunni - Mývatn Conference 2024 - sem haldin er í félagsheimilinu Skjólbrekku í Mývatnssveit. Lífríki Mývatns er einstakt og hefur verið rannsakað í þaula í hálfa öld og kannski má segja að þessi ráðstefna sé uppskeruhátíð. Hér er fjöldi vísindamanna saman kominn frá ýmsum löndum, Íslandi, Bretlandi, Finnlandi og eflaust fleirum - og í erindunum er farið vítt og breitt. Hornsíli koma meðal annars við sögu, fuglarnir, kúluskíturinn og að sjálfsögðu mýið. Við byrjum þáttinn á að ræða við Bjarna Kristófer Kristjánsson, prófessor við Háskólann á Hólum og Guðna Guðbergsson, sviðsstjóra ferskvatns- og eldissviðs á Hafró. Næst fáum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi, sem ætlar að fjalla um loftslagskvíða. Í lok þáttar færum við okkur svo inn á svið hugvísindanna, án þess að skilja náttúruvísindin alveg eftir. Við fáum til okkar Auði Aðalsteinsdóttur, forstöðumann Rannsóknarseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit, og Sigurlínu Tryggvadóttur, verkefnastjóra hjá náttúruhugvísindasetrinu Huldu, til að spjalla um náttúru- og umhverfishugvísindi. Tónlist úr þættinum: ARLO PARKS & PHOEBE BRIDGERS - Pegasus. Pálmi Gunnarsson - Á áfangastað. Dina Ögon - Oas.
Viðmælandi þáttarins er Tryggvi Björn Davíðsson, meðstofnandi Indó sparisjóðs. Indó kom inn á fastmótaðan bankamarkað í byrjun síðasta árs og hefur hrist upp í markaðnum með því að bjóða upp á nýja einfalda bankaþjónustu á góðum kjörum. Tryggvi er fæddur árið 1973 og ólst upp í vesturbæ Reykjavíkur. Hann gekk í Menntaskólann á Akureyri og lauk B.S. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.S. gráðu í fjármálum frá Université Sciences Sociales í Frakklandi og MBA gráðu frá INSEAD í París. Tryggvi á að baki áratuga reynslu á fjármálamarkaði, bæði hérlendis sem og erlendis og hefur búið og starfað í Frakklandi, Indónesíu, Singapore og Bretlandi. Þessi þáttur er í boði Skaga og Indó.
Seðlabankinn ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum, í 9,25 prósentum. Finnbjörn A. Hermannsson forseti ASÍ segir það vonbrigði að Seðlabankinn skuli ekki hafa þorað að stíga inn í þann spíral sem við erum í. Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir marga krafta halda verðbólgunni uppi. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við þau um tíðindi dagsins. Búið er að dæma um fimm hundruð bullur og óeirðaseggi fyrir sinn þátt í óeirðum í Bretlandi í byrjun mánaðarins, og hundruð til viðbótar bíða dóms. Vandinn er að það er ekkert pláss fyrir þá í fangelsum landsins. Uppgjör á orlofi Dags B. Eggertssonar sem borgarstjóra er ekki einsdæmi þegar skoðuð eru starfslok sveitarstjóra í öðrum stórum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Lára V. Júlíusdóttir érfræðingur í vinnumarkaðsrétti segir ekki óalgengt að stjórnendur safni upp orlofi enda sé nánast gert ráð fyrir að þeir séu alltaf á vaktinni. Freyr Gígja Gunnarsson fjallar um málið og ræðir við Láru. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, og Stefán Einar Stefánsson ræða um lækkun tolla sem gætu bætt hag heimilanna til muna, námsmat í grunnskólum og umræðu um menntamál, hvort að þörf sé á því að skólamáltíðir og námsgögn séu ókeypis, vindorku og það hver á rétt á því að virkja vindinn, allt of stórt framkvæmdavald og þann gífurlega fjölda sem starfar hjá stofnunum með eftirlitshlutverk, nýja opinbera verðlagsnefnd um leigumarkað, óeirðir í Bretlandi og fangelsisdóma þar sem tjáningarfrelsið er skert til muna og margt fleira.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands um loftslagsmál. Ásmundur Einar Daðason barna- og menntmálaráðherra um menntamál. Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari um dómsmál. Ingibjörg Þórðardóttir fyrrverandi fréttastjóri CNN um uppþot og óeirðir í Bretlandi.
Á fimmta hundrað manns hafa verið handtekin og yfir eitt hundrað ákærð í tengslum við óeirðir sem brotist hafa út í Bretlandi í kjölfar morðs á þremur telpum í borginni Southport í fyrri viku. Óeirðaseggirnir beina reiði sinni einkum að innflytjendum, löglegum jafnt sem ólöglegum, þrátt fyrir að fyrir liggi að ódæðismaðurinn sé fæddur í Bretlandi. Hallgrímur Indriðason ræðir við Sigrúnu Davíðsdóttur í Bretlandi. Norðmenn fagna góðu ferðasumri því ferðamenn í leit að kulda og hrolli sækja þangað sem aldrei fyrr og gengi norsku krónunnar er óvenju hagstætt. Fjöldi erlendra ferðamanna í Noregi hefur tvöfaldast frá því að Covid-faraldurinn gekk niður 2021, og allt stefnir í að þeim fjölgi enn meira í ár, öfugt við það sem gerst hefur á Íslandi. Gísli Kristjánsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred.
Indverjar náðu þeim merka áfanga fyrr á þessu ári að verða fjölmennasta þjóð heims. Og það er ekkert smá umstang þegar fjölmennasta ríki heims gengur til kosninga, eins og var raunin nú í vor. Enda tóku kosningarnar margar vikur. Fyrr í vetur fjallaði Guðrún Hálfdánardóttir um Indland í Heimskviðum, svolítið til að gefa innsýn inn í í hvaða umhverfi þessar umfangsmiklu kosningar fara fram. Mörg af efnuðustu löndum heims keppast við að koma á viðskiptum við Indland enda hvergi í heiminum jafn mikill hagvöxtur og þar. Land þar sem upplýsingaóreiða og um leið hatursorðræða í garð minnihlutahópa fær að blómstra og dafna í skugga þjóðernisflokks hindúa. Þá ætlum að huga að fortíðinni og fornminjum, nánar tiltekið hálsmeni úr skíragulli sem fannst í jörðu í Warvíkurskíri í Bretlandi fyrir um fjórum árum. Gullmenið er merkt Hinriki áttunda Englandskonungi og fyrstu eiginkonu hans, hinni spænskættuðu Katrínu af Aragorn. Þau voru gift í yfir tuttugu ár og skilnaður þeirra var afdrifaríkur fyrir breska menningarsögu. Sérfræðingar hjá Þjóðminjasafni Bretlands, British Museum, hafa legið yfir þessum dýrgrip síðan hann fannst og hafa nú rakið uppruna hans til hátíðahalda sem Hinrik áttundi hélt í febrúar annað hvort 1520, eða 1521. Það ríkti svo mikil leynd yfir rannsókninni að Rachel King, sérfræðingurinn sem stjórnaði henni mátti ekki einu sinni segja eiginmanni sínum af þessu. Það var Björn Malmquist sem fjallaði um þetta.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þingmaður, Halla Gunnarsdóttir og Magnús Skjöld varaþingmaður um stjórnmál í Bretlandi. Sigríður Mogensen sviðsstjóri Samtökum iðnaðarins um Evrópumál. Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Jón Ingi Hákonarson bæjarfulltrúi um Carbfix verkefnið. Haraldur Benediktsson bæjarstjóri og Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness um stöðuna á Akranesi.
Dræm þátttaka eldra fólks í covid- og flensubólusetningum er áhyggjuefni. Hún jókst í faraldrinum en hefur fallið aftur og er komin undir 50%. Barnabólusetningar, til dæmis við mislingum, eru líka nokkuð undir viðmiðum sóttvarnalæknis. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Kamillu Sigríði Jósefsdóttur, yfirlækni á sóttvarnasviði landlæknis. Sinn er siður í landi hverju, segir máltækið, og það á líka við um kosningar, þar á meðal um það, á hvaða vikudegi þær eru haldnar. Bretar kjósa jafnan á fimmtudögum - Ævar Örn Jósepsson rýnir í mögulegar ástæður þeirrar hefðar.
Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um lausn Julians Assange úr fangelsi í Bretlandi og við heyrðum hluta úr frétt Kristins Hrafnssonar í sjónvarpsfréttum 2010 þegar birt var myndband af árás bandarískrar þyrlu á fréttamenn Reuters í Bagdad. Það var meðal gagna sem Wikileaks birtu og leiddu til þess að bandarísk yfirvöld ákærðu Assange fyrir njósnir. Evan Gershkovich, blaðamaður Wall Street Journal, er fyrir rétti í Katrínarborg í Rússlandi. Rússnesk yfirvöld saka hann um njósnir, en hann sjálfur, Wall Street Journal og bandarísk stjórnvöld harðneita því. Wall Street Journal segir Gershkovich hafa stundað hefðbundna fréttaöflun. Vladimír Pútín hefur gefið sterklega í skyn að mögulegt sé að skipta á Gershkovich og Vadim Krasikov, rússneskum njósnara sem afplánar ævilangan fangelsisdóm í Þýskalandi fyrir morð á andstæðingi Pútíns. Alræðisstjórnvöld hafa víðar handtekið saklausa útlendinga til að fá eigin borgara lausa á fangelsum í vestrænum ríkjum. Nýlega sleppti klerkastjórnin í Íran þannig tveimur Svíum úr haldi í skiptum fyrir Hamid Nouri. Svíarnir voru handteknir eftir að Nouri var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð á pólitískum föngum 1988. Þá voru allt að 30 þúsund myrtir. Það þykir skjóta skökku við að Evrópska knattspyrnusambandið hafi samþykkt að sex af þrettán aðalkostendum EM í Þýskalandi skuli tengdir ríkjum þar sem mannréttindi og jafnrétti og önnur ,,evrópsk gildi" eru ekki virt. UEFA skuldbatt sig í samningi við Evrópusambandið til að hafa slík gildi að leiðarljósi. Í lokin var rætt um kappræður Keirs Starmers og Rishis Sunaks í BBC. Þeir eru forsætisráðherraefni stóru flokkanna í Bretlandi þar sem kosið verður til þings eftir viku.
Eftir rúma viku rennur upp kjördagur á Bretlandi og í kvöld mætast Keir Starmer leiðtogi Verkamannaflokksins og Rishi Sunak forsætisráðherra Íhaldsflokksins í sjónvarpskappræðum í Nottingham. Kosningaspár gera ráð fyrir stórsigri Verkamannaflokksins. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Höllu Gunnarsdóttur alþjóðastjórnmálafræðing, sem stödd var í Lundúnum. Forstjóri Hvals kvartaði undan stjórnsýslueftirliti með félaginu og sagði samskipti á köflum vera í of djúpum skotgröfum og einkennast af tortryggni. Úr þessu mætti gjarnan bæta þar sem fjölmörg dæmi væru um uppbyggileg og skilvirk samskipti. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. Talið er að rekja megi allt að þriðjungi losunar gróðurhúsalofttegunda til landbúnaðargeirans, þar af kemur helmingurinn frá búpeningi en hinn helminginn má rekja til landnotkunar, orkunotkunar og annarra þátta. Danska ríkisstjórnin hefur nú gert það sem öðrum hefur ekki tekist: Að semja við alla hagsmunaaðila um gjaldtöku vegna losunar frá landbúnaði. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Gestir Vikulokanna eru Líf Magneudóttir borgarfulltrúi Vinstri grænna, Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði og Friðjón Friðjónsson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og varaþingmaður. Þau ræddu meðal annars vantrauststillögu á matvælaráðherra, stöðuna í íslenskum stjórnmálum og komandi kosningar í Frakklandi og Bretlandi. Umsjónarmaður: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Andrés Magnússon og Stefán Gunnar Sveinsson frá Morgunblaðinu fara yfir stöðuna í Evrópu í kjölfar kosninga til Evrópuþingsins sem fram fóru um helgina, yfirvofandi kosningar í Bretlandi og í Frakklandi þar sem mikil kergja ríkir – þó af ólíkum ástæðum. Þá er farið yfir þau hugtök sem notuð eru um ólíka stjórnmálaflokka og stjórnmálastefnur, hvort að stjórnmálamenn og eftir tilvikum embættismenn hafa hunsað áhyggjur almennings á liðnum árum og hvaða afleiðingar það hefur, auk þess sem rætt er um hvaða áhrif þetta hefur hér heima fyrir. Loks er rætt um gíslabjörgun Ísraelshers um helgina, sem meðal annars bjargaði gísl sem var í haldi hjá fjölmiðlamanni.
Jón Ormur Halldórsson stjórnmálafræðingur segir að óvænt fylgistap BJP, flokks Narendra Modis forsætisráðherra Indlands, sé í raun sigur lýðræðis. Hann ræddi við Boga Ágústsson um úrslit kosninga í Suður-Afríku og á Indlandi. Í Suður-Afríku tapaði Afríska þjóðarráðið, ANC, meirihluta á þingi í fyrsta sinn frá því að aðskilnaðarstjórn hvíta minnihlutans féll. Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi ræddu svo kosningabaráttuna í Bretlandi.
Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu óánægju Grænlendinga með stöðu sína í norrænu samstarfi. Múte B. Egede, formanni landsstjórnar Grænlands, var ekki boðið á fund forsætisráðherra Norðurlandanna í Stokkhólmi. Grænlendingar og Færeyingar hafa óskað eftir sjálfstæðri aðild að Norðurlandaráði en það strandar á því að löndin eru ekki sjálfstæð fullvalda ríki. Einnig var rætt um kosningabaráttuna á Bretlandi og að lokum var söngkonan Mama Cass til umræðu. Hún var þekktust fyrir veru sína í The Mamas and the Papas. 50 ár eru liðin frá andláti hennar og lengi hafa verið sögusagnir um að hún hafi kafnað er hún var að borða samloku. Staðreyndin er hins vegar að hún fékk hjartaáfall.
Gestir Vikulokanna eru Sigmundur Ernir Rúnarsson rithöfundur og sjónvarpsmaður, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata og Birgir Þórarinsson þingmaður Sjálfstæðisflokks. Þau ræddu komandi þingkosningar í Bretlandi, ástandið á Gaza, forsetakosningarnar í Bandaríkjunum, stöðu Julian Assange ritstjóra Wikileaks, netverslanir með áfengi og forsetakosningar á Íslandi. Umsjón: Höskuldur Kári Schram. Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Hundblautur í hellirigningu fyrir utan Downing-stræti 10 boðaði Rishi Sunak forsætisráðherra til nýrra þingkosninga í Bretlandi 4. júlí. Fram að tilkynningu Sunaks höfðu breskir miðlar verið undirlagðir af vitnisburði Paulu Vennells, fyrrverandi forstjóra póstsins. Rannsóknarnefnd kannar það sem kallað hefur verið stærsta réttarfarshneyksli í sögu landsins þegar tæplega eitt þúsund útibússtjórar í pósthúsum voru sóttir til saka fyrir skjalafals og þjófnað og á áttunda hundrað voru sakfelldir. Næstum öll voru saklaus. Sökudólgurinn var Horizon, gallað bókhaldskerfi sem Fujitsu bjó til fyrir breska póstinn. Ný gögn benda til þess að Vennells hafi vitað um gallana í bókhaldskerfinu og að málsóknir væru vafasamar þegar hún fullyrti í þingnefnd 2015 að ekkert væri athugavert við tölvukerfið eða málareksturinn gegn útibússtjórunum.
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Klara Elías varð vægast sagt þjóðþekkt fyrir tvítugt sem söngkona í hljómsveitinni Nylon. Eftir að hafa verið með líf sitt nánast í raunveruleikaþætti fyrir framan alþjóð fór hljómsveitin í víking og gerði góða hluti í Bretlandi. Eftir það lá leiðin til borg englanna í Los Angeles, þar sem Klara hefur verið síðasta áratuginn. Nú er hún komin heim eftir vægast sagt skrýtið ár í Bandaríkjunum. Í þættinum ræða Sölvi og Klara um Nylon ferðalagið, ástríðuna fyrir tónlistinni, stöðuna í Bandaríkjunum og margt fleira. Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ Gullfoss - https://gullfoss.is/
150 eru síðan Íslendingar fengu stjórnarskrá og héldu þjóðhátíð og verður fjallað um það í Frjálsum höndum síðla sumars. Þetta er fyrri þáttur af þeim sem eru einskonar formáli og er lesið úr erlendum fréttum Skírnis frá árinu 1874. Í þessum þætti eru lesnar fréttir um kosningar á Bretlandi, siglingu skipsins Polaris um heimskautaslóðir Kanada og Grænlands þar sem leiðangursstjórinn Hall dó með dularfullum hætti og loks er sagt frá herferð Rússa inn í Mið-Asíu þar sem þeir sigruðu kónginn í Kheva og lögðu undir sig lönd hans. Fyrir utan spennandi frásagnir eru hinar gömlu fréttir mjög til marks um hvernig Vesturlandamenn litu í þá daga á umheiminn.
Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra segir það slæm - og röng skilaboð, sem Donald Trump fyrrverandi forseti Bandaríkjanna sendi um helgina, þegar hann sagði að undir sinni stjórn myndu Bandaríkin ekki koma þeim NATO-ríkjum til varnar, sem ekki hefðu varið nægu fé til varnarmála. Þessi umræða var í bakgrunni tveggja daga fundar varnarmálaráðherra NATO sem Bjarni sat fyrir hönd Íslands. Björn Malmquist fréttamaður í Brussel ræddi við Bjarna eftir fundinn. Ef kvika heldur áfram að safnast saman undir Svartsengi með sama hraða og nú má gera ráð fyrir að í lok febrúar eða í byrjun mars aukist líkur á kvikuhlaupi eða eldgosi verulega, samkvæmt tilkynningu Veðurstofunnar fyrr í dag. Stöndum við mögulega frammi fyrir því að það gæti gosið á þessum slóðum á þriggja vikna fresti mánuðum saman? Ragnhildur Thorlacius fréttamaður spurði Halldór Geirsson dósent við Jarðvísindadeild HÍ að því. Efnahagskreppa er skollin á í Bretlandi. Enginn hagvöxtur mældist þar í níu mánuði í fyrra og raunar samdráttur á síðari hluta ársins. Hann var núll komma þrjú prósent síðustu þrjá mánuði ársins, núll komma eitt prósent næstu þrjá mánuðina þar á undan og stóð á núlli í apríl, maí og júní. Ásgeir Tómasson fjallar um málið.
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Haraldur Erlendsson er þrautreyndur geðlæknir sem starfaði um árabil í Bretlandi og síðar sem forstjóri Heilsustofnunar í Hveragerði. Í þættinum ræða Sölvi og Haraldur um fjórða valdið, hugvíkkandi efni, lífsstílssjúkdóma, stöðuna í samfélaginu og margt fleira. Þátturinn er í boði; Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Biobú - https://www.biobu.is/
Björn Þór Sigbjörnsson ræddi við Boga Ágústsson um eitt mesta réttarfarshneyksli síðari ára í Bretlandi. Síðustu daga hefur allt verið á öðrum endanum í Bretlandi vegna sjónvarpsþátta um það sem kallað hefur verið alvarlegasta hneyskli í breskri réttarfarssögu á síðari árum, þar sem hundruð saklausra voru dæmd fyrir fjárdrátt og þjófnað. Þáttaröðin nefnist Mr Bates vs. The Post Office. Þar er fjallað rangar ákærur og sakfellingu meira en 700 útibússtjóra í breskum pósthúsum. Fólk missti æruna, margir urðu gjaldþrota, sumir fóru í fangelsi og fjórir sviptu sig lífi. Seinna kom í ljós að það sem marga póststarfsmenn grunaði var rétt. Bókhaldskerfið sem pósturinn notaði var gallað. Þetta hefur verið vitað í allnokkurn tíma en eins og einn útibússtjóranna, Michael Rudkin, sagði var það mikil kaldhæðni að það hefði ekki verið fyrr en sjónvarpsstöðin ITV sýndi þættina um hátíðarnar að allur almenningur áttaði sig á hversu umfangsmikið og alvarlegt málið var, það hefði verið reynt að vekja athygli á ranglætinu í 20 ár.
Klara Elías varð vægast sagt þjóðþekkt fyrir tvítugt sem söngkona í hljómsveitinni Nylon. Eftir að hafa verið með líf sitt nánast í raunveruleikaþætti fyrir framan alþjóð fór hljómsveitin í víking og gerði góða hluti í Bretlandi. Eftir það lá leiðin til borg englanna í Los Angeles, þar sem Klara hefur verið síðasta áratuginn. Nú er hún komin heim eftir vægast sagt skrýtið ár í Bandaríkjunum. Í þættinum ræða Sölvi og Klara um Nylon ferðalagið, ástríðuna fyrir tónlistinni, stöðuna í Bandaríkjunum og margt fleira. Brotið er í boði; Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/
Bresk stjórnmál voru á dagskrá þegar Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu við Boga Ágústsson í vikulegu Heimsgluggaspjalli. Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra, sat fyrir svörum í gær hjá nefnd sem rannsakar viðbrögð við COVID-19 faraldrinum. Johnson var auðmjúkur og byrjaði á að biðjast afsökunar, sagði að með því að horfa í baksýnisspegil mætti sjá að mistök hefðu verið gerð. Johnson ber áfram vitni í dag. Íhaldsflokkurinn, sem Boris Johnson veitti forystu uns hann hrökklaðist frá í fyrra, er í verulegum vandræðum vegna innri deilna. Suella Braverman, sem var rekin úr embætti innanríkisráðherra í nóvember, veittist harkalega að Rishi Sunak forsætisráðherra í neðri málstofu breska þingsins í gær. Hún sagði að Íhaldsflokkurinn stæði frammi fyrir að vera þurrkaður út í kosningum á allra næstu mánuðum ef hann leggi fram enn eitt frumvarpið um málefni hælisleitenda sem ekki nái tilgangi sínum. Íhaldsflokkurinn vill senda hælisleitendur til Rúanda og hafa gert samning við stjórnvöld þar. Hæstiréttur Bretlands dæmdi samninginn ólöglegan því Rúanda væri ekki öruggur staður fyrir hælisleitendur. Rishi Sunak boðaði þá nýja lagasetningu og frumvarpið var kynnt í gærkvöld. Braverman taldi upp skilyrði sem hún (og væntanlega harðasti hægrikjarni Íhaldsflokksins) setji fyrir að styðja frumvarpið. Lögin yrðu að tryggja að yfirvöld gætu handtekið fólk og flutt úr landi án þess að mannréttindalög, mannréttindasáttmáli Evrópu, flóttamannasáttmálinn eða nokkur önnur alþjóðalög gætu stöðvað það. Braverman spurði hver stjórnar Bretlandi, hvar liggur endanlegt úrskurðarvald í málefnum Breta? Er það breska þjóðin sem ræður og kjörnir fulltrúar hennar eða eru það óljós, breytileg og óábyrg hugmynd um alþjóðleg lög? Braverman sagði að mannréttindalög sem hefðu verið þanin út frá mannréttindasáttmálanum og endurtekin í mannréttindalögum sem Verkamannaflokkurinn hefði komið í gegn, væru túlkuð afar teygjanlega bæði innlendum og útlendum og kæmu bókstaflega í veg fyrir að Rúanda-stefnan hefði orðið að veruleika. Svo virðist sem hægriarmur Íhaldsflokksins sætti sig ekki við frumvarpið sem kynnt var í gærkvöld því Robert Jenrick, ráðherra málefna flóttamanna, sagði af sér embætti og sagðist ekki telja það ganga nægilega langt.
Bresk stjórnmál voru á dagskrá þegar Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu við Boga Ágústsson í vikulegu Heimsgluggaspjalli. Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra, sat fyrir svörum í gær hjá nefnd sem rannsakar viðbrögð við COVID-19 faraldrinum. Johnson var auðmjúkur og byrjaði á að biðjast afsökunar, sagði að með því að horfa í baksýnisspegil mætti sjá að mistök hefðu verið gerð. Johnson ber áfram vitni í dag. Íhaldsflokkurinn, sem Boris Johnson veitti forystu uns hann hrökklaðist frá í fyrra, er í verulegum vandræðum vegna innri deilna. Suella Braverman, sem var rekin úr embætti innanríkisráðherra í nóvember, veittist harkalega að Rishi Sunak forsætisráðherra í neðri málstofu breska þingsins í gær. Hún sagði að Íhaldsflokkurinn stæði frammi fyrir að vera þurrkaður út í kosningum á allra næstu mánuðum ef hann leggi fram enn eitt frumvarpið um málefni hælisleitenda sem ekki nái tilgangi sínum. Íhaldsflokkurinn vill senda hælisleitendur til Rúanda og hafa gert samning við stjórnvöld þar. Hæstiréttur Bretlands dæmdi samninginn ólöglegan því Rúanda væri ekki öruggur staður fyrir hælisleitendur. Rishi Sunak boðaði þá nýja lagasetningu og frumvarpið var kynnt í gærkvöld. Braverman taldi upp skilyrði sem hún (og væntanlega harðasti hægrikjarni Íhaldsflokksins) setji fyrir að styðja frumvarpið. Lögin yrðu að tryggja að yfirvöld gætu handtekið fólk og flutt úr landi án þess að mannréttindalög, mannréttindasáttmáli Evrópu, flóttamannasáttmálinn eða nokkur önnur alþjóðalög gætu stöðvað það. Braverman spurði hver stjórnar Bretlandi, hvar liggur endanlegt úrskurðarvald í málefnum Breta? Er það breska þjóðin sem ræður og kjörnir fulltrúar hennar eða eru það óljós, breytileg og óábyrg hugmynd um alþjóðleg lög? Braverman sagði að mannréttindalög sem hefðu verið þanin út frá mannréttindasáttmálanum og endurtekin í mannréttindalögum sem Verkamannaflokkurinn hefði komið í gegn, væru túlkuð afar teygjanlega bæði innlendum og útlendum og kæmu bókstaflega í veg fyrir að Rúanda-stefnan hefði orðið að veruleika. Svo virðist sem hægriarmur Íhaldsflokksins sætti sig ekki við frumvarpið sem kynnt var í gærkvöld því Robert Jenrick, ráðherra málefna flóttamanna, sagði af sér embætti og sagðist ekki telja það ganga nægilega langt.
Heimsglugginn á Morgunvaktinni á Rás 1 fjallaði um átök í stjórnmálum á Bretlandi og í Portúgal. Rishi Sunak forsætisráðherra Bretlands gerði verulegar breytingar á ríkisstjórn sinni á mánudag. Suella Braverman innanríkisráðherra var rekin, James Cleverly tók við embætti hennar og David Cameron varð utanríkisráðherra í stað Cleverlys. Braverman birti afar harðort bréf daginn eftir brottreksturinn, þar sem hún sakaði Sunak um svik við sig, hann væri huglaus, óhæfur og umboðslaus. Fréttaskýrendur sögðu bréf hennar illgjarnt, grimmilegt og ofsafengið. Einar Logi Vignisson var svo gestur Heimsgluggans og sagði frá sviptingum í stjórnmálum í Portúgal. Einar Logi er framkvæmdastjóri RÚV Sölu en hefur búið í Portúgal og þekkir afar vel til þar. Forsætisráðherra Portúgals, Antonio Costa, sagði af sér í síðustu viku, eftir að einn nánasti ráðgjafi hans var handtekinn í tengslum við spillingarrannsókn. Forseti Portúgals, Marcelo Rebelo de Sousa, ákvað að efna yrði til nýrra þingkosninga en ekki fyrr en á næsta ári. Hann skipaði Costa forsætisráðherra fram að kosningum.
Heimsglugginn á Morgunvaktinni á Rás 1 fjallaði um átök í stjórnmálum á Bretlandi og í Portúgal. Rishi Sunak forsætisráðherra Bretlands gerði verulegar breytingar á ríkisstjórn sinni á mánudag. Suella Braverman innanríkisráðherra var rekin, James Cleverly tók við embætti hennar og David Cameron varð utanríkisráðherra í stað Cleverlys. Braverman birti afar harðort bréf daginn eftir brottreksturinn, þar sem hún sakaði Sunak um svik við sig, hann væri huglaus, óhæfur og umboðslaus. Fréttaskýrendur sögðu bréf hennar illgjarnt, grimmilegt og ofsafengið. Einar Logi Vignisson var svo gestur Heimsgluggans og sagði frá sviptingum í stjórnmálum í Portúgal. Einar Logi er framkvæmdastjóri RÚV Sölu en hefur búið í Portúgal og þekkir afar vel til þar. Forsætisráðherra Portúgals, Antonio Costa, sagði af sér í síðustu viku, eftir að einn nánasti ráðgjafi hans var handtekinn í tengslum við spillingarrannsókn. Forseti Portúgals, Marcelo Rebelo de Sousa, ákvað að efna yrði til nýrra þingkosninga en ekki fyrr en á næsta ári. Hann skipaði Costa forsætisráðherra fram að kosningum.
Tveir pólitískir skandalar í grannlöndum okkar voru til umræðu í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu við Boga Ágústsson. Annars vegar ráðvillt bresk ríkisstjórn og fálmkennd viðbrögð í upphafi COVID-faraldursins eins og komið hefur fram í vitnaleiðslum nefndar sem falið var að rannsaka viðbrögð breskra stjórnvalda við farsóttinni. Hins vegar njósnamálið í Danmörku þar sem Claus Hjort Frederiksen, fyrrverandi varnarmálaráðherra; Lars Findsen, sem var yfirmaður leyniþjónustunnar; og fleiri voru ákærðir fyrir landráð. Ákæruvaldið hefur fellt málið niður og Mette Frederiksen og ráðherrar í stjórnum hennar mega sitja undir mjög harðri gagnrýni stjórnarandstöðunnar vegna þess hvernig haldið var á málinu.
Tveir pólitískir skandalar í grannlöndum okkar voru til umræðu í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu við Boga Ágústsson. Annars vegar ráðvillt bresk ríkisstjórn og fálmkennd viðbrögð í upphafi COVID-faraldursins eins og komið hefur fram í vitnaleiðslum nefndar sem falið var að rannsaka viðbrögð breskra stjórnvalda við farsóttinni. Hins vegar njósnamálið í Danmörku þar sem Claus Hjort Frederiksen, fyrrverandi varnarmálaráðherra; Lars Findsen, sem var yfirmaður leyniþjónustunnar; og fleiri voru ákærðir fyrir landráð. Ákæruvaldið hefur fellt málið niður og Mette Frederiksen og ráðherrar í stjórnum hennar mega sitja undir mjög harðri gagnrýni stjórnarandstöðunnar vegna þess hvernig haldið var á málinu.
Afmælisþáttur Dr. Footabll með Viktori Unnari Illugasyni og Gunnari Birgissyni. Vikulokin: 4:49 Spurningin með Tölvutek. 6:22 Power-rank í boði Dineout. 11:10 Farið yfir fréttir vikunnar. Óskar Hrafn til Haugesund? 15:39 Umræða um nýju Beckham þættina í boði Wunderbar. 22:46 Menningarhorn Dr. Football með Nettó. 24:37 Yngri boltinn með Nóa Siríus. 33:29 Rætt um EM 2028 í Bretlandi og Írlandi með Einari Á. 36:05 Besta lið skipað rauðhærðum leikmönnum. 39:41 Umræða um íslenska karla landsliðið. 45:05 Farið yfir leiki gærdagsins í EM umspilinu. 49:17 Besta deildin. 52:35 Enski boltinn. 1:01:58 El Grande með Poulsen.