Raunveruleikinn

Follow Raunveruleikinn
Share on
Copy link to clipboard

Hjónin Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir ræða hina ýmsu fleti mannlegrar tilveru. Í Raunveruleikanum er ekkert undanskilið og einlægnin, húmorinn og berskjöldunin í fyrirrúmi.

Ingileif & María


    • Oct 28, 2020 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 59m AVG DURATION
    • 24 EPISODES


    Search for episodes from Raunveruleikinn with a specific topic:

    Latest episodes from Raunveruleikinn

    Leggur þú þitt af mörkum?

    Play Episode Listen Later Oct 28, 2020 53:10


    Hvað gerir þú til að leggja þitt af mörkum í þágu umhverfisins? Við getum öll gert betur, og í þessum þætti ræða Ingileif og María það sem þær hafa gert og hvernig við getum tekið skref í átt að grænni framtíð.  Þátturinn er í boði ChitoCare og Playroom.is

    hva playroom ingileif
    Hver er skjátíminn þinn?

    Play Episode Listen Later Oct 21, 2020 66:23


    Hver er skjátíminn þinn? Er það fyrsta sem þú gerir þegar þú vaknar að opna símann þinn, og það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa? Hvers vegna erum við öll svona miklir fíklar miðlanna? Ingileif og María ræða skuggahliðar samfélagsmiðla og hvernig við getum passað okkur að nota þá bara til góðs. Þátturinn er í boði ChitoCare og Playroom.is

    21. Leiðist þér?

    Play Episode Listen Later Oct 13, 2020 54:38


    Á tímum eins og þeim sem við lifum núna er mjög auðvelt að leiðast, enda mjög margt leiðinlegt í gangi í heiminum. Hvernig getum við unnið með þetta og látið okkur síður leiðast? Ingileif og María ræða hvað hefur hjálpað þeim í að komast í gegnum síðustu vikur og mánuði. Þátturinn er í boði ChitoCare og Playroom.is

    playroom hvernig ingileif
    20. Hvað eru draumar?

    Play Episode Listen Later Oct 12, 2020 50:25


    Hvað eru draumar og af hverju dreymir okkur? Ingileif og María ræða um drauma, heilann og allt það undarlega sem við mannfólkið vitum svo ótrúlega lítið um. Þátturinn er í boði ChitoCare og Playroom.is

    hva playroom ingileif
    19. Ert þú með sóttkvíða?

    Play Episode Listen Later Oct 6, 2020 46:16


    Þvo hendur og spritta, setja upp maska, knúsa engan, forðast mannamót, snerta ekkert og halda sig heima. Það er nú ekki að furða að þetta allt saman valdi einhvers konar kvíða hjá okkur öllum! Ingileif og María ræða um hinn svokallaða sóttkvíða, hvenær hann er farinn að vera úr hófi og hvernig er best að díla við hann.  Þátturinn er í boði ChitoCare og Playroom.is.

    playroom ingileif
    18. Pælir þú í pólitík?

    Play Episode Listen Later Oct 1, 2020 59:18


    Af hverju er mikilvægt að við pælum í pólitík? Ingileif og María fara yfir það hvers vegna það er nauðsynlegt að mynda sér skoðun, kjósa og taka þátt í lýðræðissamfélagi. Þátturinn er í boði Chito Care og Playroom.is.

    af playroom ingileif
    17. Elskar þú þig?

    Play Episode Listen Later Sep 15, 2020 52:42


    Hvernig getum við elskað okkur meira og hvað er sjálfsást í raun? Ingileif og María reyna að finna svörin við því, sem þær eru samt enn að leita að. Þátturinn er í boði ChitoCare og Playroom.is

    playroom hvernig ingileif
    16. Hvernig líður þér?

    Play Episode Listen Later Sep 8, 2020 49:42


    Hvernig líður þér í dag? Tilfinningar eru alls konar og það er allt í lagi að líða eins og manni líður. Ingileif og María ræða tilfinningar og hvernig þeim finnst best að tækla sínar tilfinningar. Þátturinn er í boði Chito Care og Playroom.is.

    playroom hvernig ingileif
    15. Hver er þín upplifun?

    Play Episode Listen Later Sep 1, 2020 48:23


    Hvers vegna upplifum við hlutina ólíkt? Og hvers vegna platar minnið okkur stundum? Ingileif og María velta upp ýmsum pælingum um upplifanir, og afhjúpa sannleikann á bakvið stórhættulega lífreynslu og sprenghlægilega upplifun á gamlársdag.  Þátturinn er í boði Chito Care og Playroom.is.  

    playroom hvers ingileif
    14. Ferðu eftir því sem þér er sagt?

    Play Episode Listen Later Aug 25, 2020 60:19


    Hvers vegna hlýðum við yfirvaldi og förum eftir því sem okkur er sagt? Hlýðni og fylgispekt eru viðfangsefni dagsins, þar sem María fer yfir áhugaverðar rannsóknir og þær Ingileif ræða ýmsa vinkla hlýðni og fylgispektar í samfélaginu, á tímum Covid. Þátturinn er í boði Chito Care.

    covid-19 hl hvers ingileif
    13. Er þér sama?

    Play Episode Listen Later Aug 19, 2020 39:31


    Af hverju erum við stöðugt að velta okkur upp úr því hvað öðru fólki finnst? Eigum við ekki bara öll að vera nákvæmlega eins og við erum í friði, hvað svo sem öðrum finnst um það? Ef við viljum ganga með kúrekahatt alla daga, vera alltaf í grænum skóm, já eða baða okkur nakin útí læk - þá skulum við bara gera það! Ingileif og María ræða það hvers vegna við ættum öll að hætta að pæla í öðru fólki og fara að láta okkur vera aðeins meira sama. 

    af ef ingileif
    12. Hvað er svona og hvað er hinsegin?

    Play Episode Listen Later Aug 11, 2020 62:47


    Hvað er að vera svona og hvað er að vera hinsegin? Ingileif og María ræða hinseginleikann í tilefni Hinsegin daga sem fóru fram á dögunum. Hvernig er það að vera hinsegin einstaklingar á Íslandi í dag, og hvers vegna skilgreinum við okkur hinsegin þegar við erum ekkert öðruvísi en næsta manneskja? 

    11. Hvað er fjölskylda?

    Play Episode Listen Later Jul 21, 2020 72:40


    Fjölskyldur eru alls konar. Í þessum þætti fara Ingileif og María yfir mismunandi fjölskylduform og mikilvægi þess að búa til pláss fyrir alls konar fjölskyldur í samfélaginu - ásamt því að ræða sína upplifun af því að skapa fjölskyldu saman.   Þátturinn er í boði Domino's og Chito Care. 

    domino fj ingileif
    10. Sannleikurinn eða kontór?

    Play Episode Listen Later Jul 16, 2020 70:10


    Í 10. þætti Raunveruleikans fara Ingileif og María um víðan völl og leyfa flæðinu að ráða. Þátturinn er með aðeins öðru sniði en vanalega, og laus í reipunum - en það er líka sumar og það má! Þær rifja upp ýmis bernskubrek og vandræðaleg augnablik, í bland við hinn víðfræga sannleikann eða kontór, SPK - já eða rússneska póstinn. Meira um það í þættinum! Þátturinn er í boði Domino's og Chito Care. 

    domino meira spk ingileif
    9. Viltu giftast mér?

    Play Episode Listen Later Jul 7, 2020 78:34


    Eftir fjölda áskorana ákváðu Ingileif og María, í tilefni af tveggja ára brúðkaupsafmæli sínu, að helga nýjasta þátt Raunveruleikans þeirri mannlegu athöfn að gifta sig. Giftingar geta verið alls konar og eru jafn mismunandi og fólkið sem kýs að innsigla ást sína með þeim hætti. Hjónurnar fara um víðan föll, ræða eigið brúðkaup og umstangið sem því fylgdi auk þess að rifja upp ýmsar minningar því tengdu. Þátturinn er í boði ChitoCare og Dominos og var tekinn upp í „stúdíó-ömmu“ á Flateyri. 

    8. Viltu koma í ferðalag?

    Play Episode Listen Later Jun 30, 2020 68:33


    Ferðasumarið 2020 er hafið og í þetta skiptið munu líklegast flestir ferðast innanlands. En hvert er skemmtilegast að fara, hvar eru bestu náttúrulaugarnar og er hringurinn í raun hringurinn án mikilvægasta landshlutans? Ingileif og María fara á léttum nótum yfir ferðalög um landið og deila sögum af sínum ferðalögum. Gleðilegt ferðasumar!

    fer gle ingileif
    7. Hvað er hamingja?

    Play Episode Listen Later Jun 23, 2020 73:50


    Við leitum mörg hver allt lífið að hinni einu sönnu lífshamingju. En hvað raunverulega gerist þegar við setjum hamingjuna á slíkan stall? Erum við of upptekin við að leita að einhverju, og gleymum að sjá hvað er beint fyrir framan okkur? Ingileif og María ræða um hamingjuna, hvað hún er og hvernig við getum séð hana allt í kringum okkur, ef við erum tilbúin að horfa.

    erum ingileif
    6. Hvað er það erfiðasta sem þú hefur gengið í gegnum?

    Play Episode Listen Later Jun 16, 2020 85:59


    Kemst einhver í gegnum lífið án þess að lenda í áföllum? Það eru hverfandi líkur á því. Áföll móta okkur og eru oft rót ýmissar hegðunar hjá okkur öllum. María opnar sig upp á gátt um sitt stærsta áfall, og hvernig henni hefur tekist að vinna sig út úr því. Hjónin fara svo yfir það hvað áföll geta kennt okkur og hvernig við getum unnið úr þeim. 

    5. Ertu með fordóma?

    Play Episode Listen Later Jun 9, 2020 64:28


    Fordómar eru víða og eiga sér ýmsar birtingarmyndir. En hvernig upprætum við þá? Í þessum þætti Raunveruleikans ræða Ingileif og María mikilvægi þess að horfast í augu við eigin fordóma, hvers vegna fjölbreytileikinn er mikilvægur og hvernig forréttindi okkar geta oft blindað okkur. 

    ingileif
    4. Er ég góð manneskja?

    Play Episode Listen Later Jun 2, 2020 62:17


    Hvað er það sem gerir fólk að góðum manneskjum? Viljum við verða bestu manneskjur í heimi? Ingileif og María ræða ýmsar manngerðir, hvernig hægt er að leggja sig fram við að verða betri og velta því upp hvað það er sem raunverulega skiptir máli í þessu lífi. 

    hva ingileif
    3. Hvað er ástin?

    Play Episode Listen Later May 26, 2020 63:08


    Ástin er stórkostleg og mögnuð en oft erfið og flókin. Ingileif og María ræða ýmsar hliðar ástarinnar og opna sig upp á gátt um sína eigin veikleika, vonir og væntingar. 

    ingileif
    2. Hver er þinn mesti ótti?

    Play Episode Listen Later May 19, 2020 61:25


    Öll óttumst við eitthvað, hvort sem sá ótti er rökréttur eða órökréttur. Myrkfælni, flughræðsla, innilokunarkennd og lofthræðsla er til dæmis ótti sem margir kannast við. Ingileif og María opinbera sinn mesta ótta, þar sem sumt er vissulega órökréttara en annað.  Lag: Þormóður Eiríksson

    eir ingileif
    1. Erum við öll að feikaða?

    Play Episode Listen Later May 12, 2020 79:14


    Í fyrsta þætti Raunveruleikans ræða Ingileif og María um sjálfsmynd, leitina að sjáfum sér og því hvort við séum öll að feikaða. Lag: Þormóður Eiríksson

    lag eir ingileif
    Kynning

    Play Episode Listen Later May 5, 2020 3:01


    Hjónin Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir kynna til leiks Raunveruleikann! 

    Claim Raunveruleikinn

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel