Podcasts about Flateyri

Village in Northwest Constituency, Iceland

  • 24PODCASTS
  • 151EPISODES
  • 1h 21mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • May 14, 2025LATEST
Flateyri

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about Flateyri

Latest podcast episodes about Flateyri

Stundin
Þjóðhættir #63: Flateyri, sveppasósur og svæðisvitund

Stundin

Play Episode Listen Later May 14, 2025

Gestur þáttarins er Sæbjörg Freyja Gísladóttir þjóðfræðingur. Sæbjörg Freyja er búsett á Flateyri sem var vettvangur meistararitgerðar hennar í þjóðfræði. Þar rannsakaði Sæbjörg hvað felst í svæðivitund þeirra sem búsettir eru á Flateyri og samskipti ólíkra hópa samfélagsins. Sæbjörg hefur enn gaman að því að velta fyrir sér samfélaginu sem hún býr í og hvað hefur áhrif á viðhorf íbúanna þar.

Samfélagið
Lýðskólinn á Flateyri fer í sumarfrí

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 9, 2025 59:45

Samfélagið heilsar frá Flateyri. Í dag kynnum við okkur starfsemi Lýðskólans á Flateyri, ræðum við fólkið sem í honum starfar og fræðumst um nám og nemendur við Önundarfjörð. Við heimsækjum líka Náttúrustofu Vestfjarða í Bolungavík og heyrum ýmislegt um náttúrurannsóknir á Vestfjörðum. Tónlist úr þættinum: Simon and Garfunkel - Keep the customer satisfied. Larkin Poe - Kick the blues. K.ÓLA - Keyrum úr borginni.

sam f vestfj flateyri vestfjar
Rauða borðið
Rauða borðið 4. mars - Trump, Nató, Háskólinn, þingkona og gleymdar konur

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Mar 4, 2025 280:25

Þriðjudagur 4. mars Trump, Nató, Háskólinn, þingkona og gleymdar konur Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um hvort Trump takist að sveigja Úkraínustjórn og Evrópu undir sín markmið. Við förum síðan í Múlakaffi með Maríu Lilju og hefjum svo viðræðu um háskólasamfélagið við þau sem hafa boðið sig fram til rektors. Magnús Karl Magnússon prófessor í læknadeild ríður á vaðið og ræðir við Gunnar Smára. Björn Þorláks ræðir síðan við Maríu Rut Kristinsdóttur, þingkonu Viðreisnar, baráttukonu frá Flateyri. Hún fjallar hispurslaust um kynferðislegt ofbeldi sem hún varð fyrir og snjóflóðið á Flateyri svo nokkuð sé nefnt. Loks ræðir María Lilja við þær Kristínu I. Pálsdóttur og Halldóru R. Guðmundsdóttur forstöðukonur Rótarinnar og Konukots um vanda heimilislausra kvenna og konur með fíknivanda.

Hjjj
79. Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri ⁠Prís

Hjjj

Play Episode Listen Later Jan 27, 2025 85:26

Viðmælandi þáttarins er Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís matarverslunarinnar. Gréta er fædd árið 1980 og alin upp á Flateyri og síðar í Seljahverfinu í Reykjavík. Hún fór í Menntaskólann í Reykjavík áður en hún fór út í skiptinám til Bandaríkjanna og útskrifaðist síðan úr Menntaskólanum við Hamrahlíð. Gréta María er með BS og MS próf í verkfræði frá Háskóla Íslands. Gréta hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og hefur starfað í ýmsum greinum en hefur vakið mesta athygli fyrir störf sín á smásölumarkaði. Eftir útskrift starfaði hún þó í fjármála- og upplýsingatæknigeiranum, m.a. sem forstöðumaður hagdeildar Arion áður en fór í smásölugeirann, þar sem hún starfaði sem fjármálastjóri Festi og framkvæmdastjóri Krónunnar. Þátturinn er í boði Arion, Sólar, Festu - miðstöðvar um sjálfbærnig og KPMG.

Víðsjá
Reggie Watts og hlaðvörp

Víðsjá

Play Episode Listen Later Apr 30, 2024 50:52

Bandaríski uppistandarinn, tónlistarmaðurinn og leikarinn Reggie Watts hefur getið sér gott orð víða um heim fyrir sýningar sem blanda saman tónlist, improvi, uppistandi, eftirhermum og einkennilegum hugvekjum. Reggie Watts hélt um helgina tvær uppistandssýningar hér á landi. Annars vegar í Samkomuhúsinu á Akureyri og hins vegar í Gamla bíói í Reykjavík en hann mun síðan halda aðra sýningu á Flateyri þann um næstu helgi. Við ræðum við hann og Margréti Erlu Maack í þætti dagsins. Við kynnum okkur einnig sístækkandi menningarfyrirbærið hlaðvarp. Það er um áratugur síðan hlaðvarpið sprakk út og miða margir þá blómstrun við hið feikivinsæla bandaríska hlaðvarp; Serial. Við ræðum við hlaðvarpsritstjóra Rúv, og aðra starfsmenn í efstaleiti um uppáhaldshlaðvörp.

Samfélagið
https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5283796D0.mp3Samfélagið sendir út frá þremur stöðum á landinu. Frá Efstaleiti þar sem Jón Þór Helgason tæknimaður situr, frá Flateyri þar sem Guðmundur Pálsson er og frá Ak

Samfélagið

Play Episode Listen Later Feb 16, 2024 58:36

Samfélagið sendir út frá þremur stöðum á landinu. Frá Efstaleiti þar sem Jón Þór Helgason tæknimaður situr, frá Flateyri þar sem Guðmundur Pálsson er og frá Akureyri - þar er Arnhildur Hálfdánardóttir. Og efni þáttarins kemur líka úr þremur áttum. Við byrjum á Akureyri, þar er skýjað, kalt og frekar stillt, vettlingaveður og við ætlum að tala um tré. Akureyri er stundum kölluð bærinn í skóginum og það eru mörg gömul og tignarleg tré sem setja mark sitt á bæinn. Sniðgötubirkið, Þríforkslerkið við Bjarmastíg, Asparrisinn við Oddeyrargötu svona svo dæmi séu nefnd. Við förum í gönguferð um Akureyri með Bergsveini Þórssyni, garðyrkju- og skógfræðingi, ræðum um einstök tré, eðli trjáa og framtíðina - en tré verða víst ekki eilíf - og við spyrjum: Verður enn gróðursælt á Akureyri eftir 30 ár? Og á Flateyri er heiðskírt og logn og 3-4 stiga frost. Afskaplega fallegt veður. Og það er snjór yfir öllu. En það sem umsjónarmönnum Samfélagsins finnst umtalsverður snjór þykir Ívari gröfukalli, sem sinnir snjómokstri á Flateyri varla vera neitt neitt. Hann er stöðugt á ferðinni að halda götunum hreinum og við reynum að grípa hann. Svo eru það íþróttir í lok þáttar. Vera Illugadóttir ætlar að segja okkur frá nýafstaðinni keppni í Japan. Keppni sem margir hlustendur hafa eflaust beðið spenntir eftir að fá fréttir af. Það er keppni í þaulsetu flóðsvína í heitri laug.

Rauða borðið
Skammtímaleiga, kvóti, sorp, launavinna og Venesúela á Flateyri

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Nov 27, 2023 206:38

Mánudagurinn 27. nóvember Skammtímaleiga, kvóti, sorp, launavinna og Venesúela á Flateyri Við ræðum Airbnb og skammtímaleigu til ferðafólks: Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR, Sigrún Tryggvadóttir formaður Íbúasamtaka miðborgarinnar og Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna greina stöðuna og benda á lausnir. Hvað finnst Sigurjóni Þórðarsyni varaþingsmanns um nýja sjávarútvegsstefnu Svandísar Svavarsdóttur? Hvers vegna eru höfuðborgarbúa langt á eftir öðrum í flokkun sorps, langt á eftir fólki í öðrum löndum? Kjartan Valgarðsson segir okkur hvers vegna. Við ræðum við Ævar Kjartansson um sósíalisma '68-kynslóðarinnar og þá sérstaklega um áþján launavinnunnar og þörf á lýðræðisvæðingu atvinnulífsins. Í lokin kemur Helen Cova og segir okkur frá þremur bókum sem hún tengist á þessu ári,. hvernig það er að yrkja og semja á íslensku fyrir konu á Flateyri sem ættuð er frá Venesúela.

Jóns
Margeir Haraldsson Arndal Lýðskólanum Flateyri

Jóns

Play Episode Listen Later Aug 28, 2023 55:47

Margeir Haraldsson Arndal Verkefnastjóri markaðs- og tæknimála hjá Lýðskólanum á Flateyri Í þessu viðtali ræðir Óli Jóns við Margeir Haraldsson Arndal um lífið á landsbyggðinni, um Lýðskólann á Flateyri, um skapandi hugsun, um markaðsmál og margt fleira. Margeir sem býr á Flateyri með sinni fjölskyldu starfar hjá Lýðskólanum á Flateyri við markaðssmál ásamt því að sjá um tæknimál skólans. Margeir er líka með önnur járn í eldinum s.s. framleiðslufyrirtæki með tvíburabróður sínum. Á vef Lýðskólans lydflat.is segir; Hvað er lýðskóli? Nám við lýðskóla er ólíkt því sem við eigum að venjast í hefðbundnum framhaldsskólum. Í lýðskóla fá nemendur og kennarar tækifæri til að vera við leik og störf og prófa sig við ólík viðfangsefni án þess að þurfa að sökkva sér niður í fræðilegar kenningar og skólabækur. Samtöl og samvinna, verklegt nám og vettvangsferðir eru lykilorð. Námsmat og endurgjöf í lýðskólum er ekki fengið með hefðbundnum prófum og einkunnum heldur í gegnum fundi og samtöl. Þetta gefur lýðskólum frelsi til að mennta og þroska nemendur með óhefðbundnum en árangursríkum leiðum.

Mannlegi þátturinn
Handboltakempur, Grensásdeild 50 ára og kuldakast

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 25, 2023

Áhorfendur hafa fylgst spenntir með þáttunum Aftureldingu sem sýndir eru í sjónvarpinu á sunnudagskvöldum. Þar sjáum við kvennalið í meistaraflokki í handbolta æfa við töluvert lélegri aðbúnað en karlaflokkarnir og þjálfarinn kannski ekki alveg með hlutina á hreinu. Það er margt sem vekur upp spurningar í þessum þáttum, til dæmis hvort þetta hafi í raun og veru verið svona og ekki fyrir svo löngu og hefur þetta breyst? Við fengum tvær handboltakempur sem hafa reynslu, bæði úr fortíðinni þegar þær voru sjálfar að æfa og spila, svp eru þær einnig tengdar við handboltastarfið eins og það er í dag. Harpa Melsteð og Hjördís Guðmundsdóttir, fyrrverandi landsliðskonur, komu í þáttinn í dag. Í ár eru 50 ár frá því að Grensásdeild Landspítalans tók til starfa. Deildin sinnir fjölbreyttum hópi sjúklinga sem eiga það sameiginlegt að hafa tapað færni, tímabundið eða varanlega vegna slysa eða veikinda. Tvær stjörnur er hálsmen sem Katrín Björk Guðjónsdóttir frá Flateyri hannaði í tilefni afmælisins og er selt til styrktar Grensásdeild. Katrín stundaði nám við Háskóla Íslands þegar hún fékk alvarlega heilablæðingu tuttugu og tveggja ára að aldri. Hún hefur þurft að kljást við mikla líkamlega fötlun síðan og hefur verið í stöðugri endurhæfingu. Katrín hefur dvalið á Grensásdeild og notið góðs af því mikilvæga starfi þar er unnið. Við heyrðum í dag hugmyndina á bak við hálsmenið hjá Katrínu og aðeins af reynslu hennar af þjónustu Grensásdeildar, Halla Harðardóttir dagskrárgerðarkona las upp svör Katrínar. Guðrún Pétursdóttir, formaður stjórnar Hollvina Grensásdeildar kom svo í þáttinn og fræddi okkur um Grensásdeildina og hollvinafélagið. Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur kom svo til okkar í vikulega veðurspjallið. Þar ræddum við kuldakastið sem heimsækir landið þessa dagana, hversu lengi ætlar það að stoppa og er von á meira vorhreti. Tónlist í þættinum: Take your time / Jóhann Helgason (Jóhann Helgason) Aðeins eitt kyn / Hjálmar (Þorsteinn Einarsson) Cant take my eyes of you/ Frankie Valli (Bob Guadio og Bob Crewe) Patience / Take That (Gary Barlow, Howard Donald, Jason Orange, John Shanks & Mark Owen) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Handboltakempur, Grensásdeild 50 ára og kuldakast

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 25, 2023 50:00

Barnaspítalinn 20 ára, nemendagarðar á Flateyri og lénsreikningar

Samfélagið

Play Episode Listen Later Apr 24, 2023 55:00

Við ætlum að heimsækja Barnaspítala Hringsins sem fagnaði því fyrr í þessum mánuði að 20 ár eru liðin frá því að starfsemi hófst í þá glænýju húsi. Við spjöllum þar við Ingibjörgu Pálmadóttur sem var heilbrigðisráðherra í aðdraganda þess að spítalinn var reistur, Önnu Björk Eðvarsdóttur formann Hringsins sem hefur lagt til mörg hundruð milljónir í rekstur hans og Ásgeir Haraldsson prófessor og yfirlækni. Samfélagið var um helgina statt á Vestfjörðum, þar á meðal á Flateyri, þar sem nú er risið nýtt hús. Það eru nemendagarðar fyrir Lýðskólann þar. Runólfur Ágústsson formaður stjórnar skólans sýnir okkur húsið og segir okkur frá. Svo heimsækjum við í lok þáttar Þjóðskjalasafn Íslands eins við gerum reglulega. Að þessu sinni ræðum við við Kristjönu Kristinsdóttur skjalavörð sem hefur rannsakað lénsreikninga frá 17. öld sem safnið varðveitir. Hún dregur fram forn skjöl og sýnir okkur þau.

Samfélagið
Barnaspítalinn 20 ára, nemendagarðar á Flateyri og lénsreikningar

Samfélagið

Play Episode Listen Later Apr 24, 2023

Við ætlum að heimsækja Barnaspítala Hringsins sem fagnaði því fyrr í þessum mánuði að 20 ár eru liðin frá því að starfsemi hófst í þá glænýju húsi. Við spjöllum þar við Ingibjörgu Pálmadóttur sem var heilbrigðisráðherra í aðdraganda þess að spítalinn var reistur, Önnu Björk Eðvarsdóttur formann Hringsins sem hefur lagt til mörg hundruð milljónir í rekstur hans og Ásgeir Haraldsson prófessor og yfirlækni. Samfélagið var um helgina statt á Vestfjörðum, þar á meðal á Flateyri, þar sem nú er risið nýtt hús. Það eru nemendagarðar fyrir Lýðskólann þar. Runólfur Ágústsson formaður stjórnar skólans sýnir okkur húsið og segir okkur frá. Svo heimsækjum við í lok þáttar Þjóðskjalasafn Íslands eins við gerum reglulega. Að þessu sinni ræðum við við Kristjönu Kristinsdóttur skjalavörð sem hefur rannsakað lénsreikninga frá 17. öld sem safnið varðveitir. Hún dregur fram forn skjöl og sýnir okkur þau.

Samfélagið
Orkubú vestfjarða, bændageð, umræður um orð og umhverfispistill

Samfélagið

Play Episode Listen Later Feb 23, 2023

Þáttur dagsins er sendur út frá tveimur stöðum, frá Akureyri og Flateyri. Á Vestfjörðum er ekki mikið af heitu vatni en hér er engu að síður hitaveita. Orkubú Vestfjarða rekur kerfi sem notar rafmagn til að hita vatn sem svo er dreift til íbúa á svæðinu. Samfélagið tók hús á Elíasi Jónatanssyni Orkubússtjóra í morgun og fékk að vita allt um fjarvarmaveitu. Við ætlum að fræðast um verkefnið bændageð en andleg vanlíðan, streita og kvíði er algeng meðal bænda hér á landi segir í kynningu á verkefninu og hafa síðustu ár reynst mörgum bændum erfið. Því var ákveðið að bregðast við með forvörnum, fræðslu og aðgengi að upplýsingum og samtali um andlega heilsu Guðrún Birna Brynjarsdóttir, sérfræðingur hjá bændasamtökunum segir okkur frá þessu. Og svo er það mál málanna síðustu daga - þessar breytingar á enskum verkum Roald Dahls þar sem móðgandi orðalag er fjarlægt eða breytt. Þessu hefur verið misjafnlega tekið eins og við var að búast, en munu þau viðbrögð og umræðan sem á sér stað vera gagnleg og skipta máli? Það er spurning, sem meðal annarra, við leggjum fyrir Eirík Rögnvaldsson prófessor emiritus í íslenskri málfræði hér á eftir, en á facebook síðu hans Málspjallið, sköpuðust líflegar og upplýsandi umræður. Svo er umhverfispistill á sínum stað, að þessu sinni er hann í höndum Bryndísar Marteinsdóttur.

Samfélagið
Orkubú vestfjarða, bændageð, umræður um orð og umhverfispistill

Samfélagið

Play Episode Listen Later Feb 23, 2023 55:00

Bókabúð á Flateyri, skessur, málfar og fiskakvarnir

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jan 13, 2023

Við verðum með annan fótinn hér á Vestfjörðum, nánar tiltekið á Flateyri við Önundarfjörð. Við höfum komið okkur fyrir í bókabúðinni þar, en hún er sögð vera elsta upprunalega verslun á Íslandi. Við ætlum að spjalla við kaupmanninn, Eyþór Jóvinsson, sem er langafabarn stofnanda verslunarinnar ?Bræðranna Eyjólfsson?. Við ætlum svo að ræða um tröll, sérstaklega skessur, birtingarmyndir þeirra, hvað þær geta táknað, hver merking þeirra er og hvernig henni er beitt. Það mættu tröll, sérstaklega ein skessa, á þrettándahátíð Eyjamanna fyrir viku - og það er búið að kýta töluvert yfir því hvað hún táknaði, hvort þarna var á ferð húmor eða rasismi, kvenfyrirlitning, persónuníð. Til að rýna í allar þessar ólíku og flóknu táknmyndir kemur til okkar skessufræðingur, þjóðfræðingurinn Dagrún Ósk Jónsdóttir, og ræðir um rasisma, kvenfyrirlitningu, vald, húmor - og tröll. Málfarsmínúta Rætt við sérfræðing hjá Hafrannsóknarstofnun sem les í kvarnir til aldursgreina fiska, frekar flókið ferli en afskaplega forvitnilegt, og það mun koma ykkur á óvart hvað sumir fiskar verða gamlir, Aðalbjörg Jónsdóttir heitir hún og er í dýraspjallinu í dag.

ey eyj dagr vestfj flateyri hafranns
Samfélagið
Bókabúð á Flateyri, skessur, málfar og fiskakvarnir

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jan 13, 2023 55:00

Spegillinn
Verkbann mögulegt, frestun verkfalls, hjúkrunarrými og sérsveit Nato

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 11, 2023

Spegillinn 11. janúar 2023 Umsjónamaður: Hafdís Helga Helgadóttir Tæknimaður: Mark Eldred Atvinnurekendur geta gripið til verkbanns, að senda launalaust fólk heim, til að bregðast við verkföllum. Framkvæmdastjóri Kynnisferða segist styðja verkbann ákveði Samtök atvinnulífsins að fara þá leið. Flóttafólk hefur nú þegar komið sér fyrir í húsi sem Grindarvíkurbær segir Vinnumálastofnun hafa leigt undir fólkið í leyfisleysi. Grindavíkurbær og Vinnumálastofnun greinir á um heimild stofnunarinnar að hýsa flóttamenn á hóteli í bænum. Loftmengun í Reykjavík er nú yfir heilsuverndarmörkum. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að áfram sé gert ráð fyrir slæmum loftgæðum. Pakkaferðir á heimsmeistaramótið í handbolta hafa rokselst. Gríðarlegur áhugi er á íslenska karlalandsliðinu, sem leikur sinn fyrsta leik á mótinu gegn Portúgal á morgun. 120 ferðamenn voru lagðir inn á sjúkrahúsið á akureyri á síðasta ári. Sjúkrahúsið hefur aldrei sinnt eins mörgum erlendum ferðamönnum og á nýliðnu ári. Snjóflóðaratsjá Veðurstofunnar á Flateyri nam allstórt flóð sem féll í Miðhryggsgili, innan við Flateyri, í gærkvöld. Flóðið stöðvaðist um fjörutíu metra ofan við veg. Lögregla í Brasilíu hefur aukið viðbúnað eftir að fylgismenn Jairs Bolsonaro Brasilíuforseta boðuðu til mótmæla í helstu borgum landsins á morgun. ------------------------------------------------------- Staðan í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins er þröng eftir að Efling sleit viðræðum í gær. Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, vinnumarkaðsfræðingur og dósent við Háskóla Íslands veltir fyrir sér hvort æskilegt væri að sáttasemjari hefði heimild til að fresta verkfalli í stað þess að Alþingi gripi inn í vinnudeilur með lagasetningu. Reglur um verkfallsboðun eru skýrar. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Gylfa Dalmann Aðalsteinsson. Vandi Landspítalans og bráðamóttökunnar hefur varla farið fram hjá nokkrum manni. Hvorki að undanförnu né undanfarin ár, jafnvel áratugi. Líkt og vandamálið sjálft, er lausnin auðsjáanleg. Nokkuð sem tíðrætt hefur verið um í áraraðir. Það er yfirfull nýting á leguplássum spítalans vegna fráflæðisvanda eða útskriftarvanda aldraðra. Eldra fólk sem kemur til aðhlynningar á spítalann en kemst ekki þaðan út, jafnvel svo mánuðum skiptir, vegna skorts á úrræðum fyrir þau. Öldruðum kemur til með að fjölga hratt á næstu áratugum. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra um stöðuna. Evrópusambandið og Atlantshafsbandalagið ætla að stofna sérsveit sem ætlað er að koma í veg fyrir að skemmdir verði unnar

Spegillinn
Verkbann mögulegt, frestun verkfalls, hjúkrunarrými og sérsveit Nato

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 11, 2023 11:27

Hljóðrýmishermun, Gamla bókabúðin og kuldaveðurspjall

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 13, 2022 50:00

Sprotafyrirtækið Treble Technologies hefur safnað 8 milljónum evra, eða jafnvirði 1,2 milljarða króna, frá fjárfestum til að koma á markað nýrri tækni í hljóðhönnun. Tæknin sem Treble Technologies þróar þykir bylting í því hvernig hægt er að hanna hljóð og skapa hljóðupplifanir og nýtist í mörgum greinum. Finnur Pind, doktor í hljóðverkfræði, er stofnandi og framkvæmdastjóri Treble, kom í þáttinn í dag og útskýrði fyrir okkur hvað þetta er sem þau eru að hanna og söguna á bak við hugmyndina. Bræðurnir Eyjólfsson er einstök verslun á Flateyri sem hefur verið í rekstri frá árinu 1914 og er elsta upprunalega verslun Íslands. Allar innréttingar eru upprunalegar, sem og mörg verslunartæki sem eru enn í notkun. Verslunin er rekin af Eyþór Jóvinssyni, hann er langafasonur stofnanda verslunarinnar og er því fjórði ættliður fjölskyldunnar sem tekur við rekstrinum. Auk þess að selja notaðar bækur eftir vigt er verslunin með gott úrval nýrra bóka ásamt vestfirskum gæðavörum. Þá flytur verslunin inn mörg erlend vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að hafa starfað í meira en 100 ár. Í Gömlu bókabúðinni er einnig hægt að ferðast 70 ár aftur í tímann með því að heimsækja kaupmannsíbúðina sem er í sama húsnæði, en hún hefur haldið sér nánast óbreytt frá því að verslunarstjórinn Jón Eyjólfsson lést árið 1950. Við hringdum í Eyþór Jóvinsson í þættinum í dag. Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur kom svo í sitt vikulega veðurspjall í dag. Í dag talaði hún við okkur um kuldakastið þessa dagana og svo litum við aðeins til jólaveðursins. Tónlist í þættinum í dag: Allt er gott um jólin / Bjarni Arason (Bjarni Arason og Kristinn G. Bjarnason) Tendrun / Katrín Halldóra Sigurðardóttir (Hjörtur Ingvi Jóhannsson og Katrín Halldóra Sigurðardóttir) Christmas time is coming / Dolly Parton (Benjamin Franklin Logan) And so it goes / Tommy Emmanuel (Billy Joel) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Hljóðrýmishermun, Gamla bókabúðin og kuldaveðurspjall

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 13, 2022

Mental ráðgjöf, karlahópar Hugarafls og Edda S. Jónasdóttir

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 24, 2022

Helena Jónsdóttir sálfræðingur og fyrrverandi skólastjóri Lýðskólans á Flateyri kom í þáttinn í dag, en hún rekur ráðgjafafyrirtækið Mental ráðgjöf þar sem hún hjálpar vinnustöðum og stjórnendum að styðja við geðheilbrigði starfsfólks. Ómeðhöndlaður geðvandi getur haft miklar afleiðingar með tilheyrandi kostnaði, veikindafjarvistum, minnkandi framleiðni, aukinni veltu á starfsfólki svo ekki sé talað um skerðingu á lífsgæðum. Helena sagði okkur betur frá þessu í þættinum. Við sendum beint út frá starfsemi Hugarafls í Síðumúla í gær og kynntumst því starfi sem þar fer fram og er öllum að kostnaðarlausu. Við heyrðum hversu margir koma þangað í mikilli vanlíðan og hvernig sameiginleg reynsla og samtal getur hjálpað fólki að ná bata. Við náðum ekki að segja frá karlahópi sem hittist reglulega til að ræða um sína andlegu líðan því fengum við Grétar Björnsson, sem sagði sögu sína í gær, til að koma til okkar í dag og segja okkur frá. Edda S. Jónasdóttir hefur komið víða við í matargerð, hún fékk fyrst áhuga á matreiðslu þegar hún fór sem skiptinemi til Bandaríkjanna og kynntist þá framandi hráefnum eins og ferskum ananas og hnetusmjöri. Hún eldaði ofan í laxveiðimenn, bjó í Skotlandi og hefur safnað uppskriftum héðan og þaðan um ævina í bókina, Eftirlætis réttir Eddu, sem hún gefur sjálf út fyrir jólin. Tónlist í þættinum í dag: Vetur rís / Brek (Jóhann Ingi Benediktsson, Harpa Þorvaldsdóttir, Guðmundur Atli Pétursson og Sigmar Þór Matthíasson) Vetur / Egill Ólafsson (Egill Ólafsson) Næsta vetur / South River Band (Kormákur Þráinn Bragason) Vetur / Rósa Guðrún Sveinsdóttir (Rósa Guðrún Sveinsdóttir og Sveinn Kristinsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Mental ráðgjöf, karlahópar Hugarafls og Edda S. Jónasdóttir

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 24, 2022 50:00

Sæunnarsundið, útivera við dvalarheimili og Vala lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Aug 22, 2022

Árið 1987 synti kýrin Harpa þvert yfir Önundarfjörðinn, frá Flateyri, og kom í land hinum megin við fjörðinn við Kirkjuból í Valþjófsdal. Hún hafði slitið sig lausa við sláturhúsdyrnar og stökk í sjóinn. Hjónin á Kirkjubóli ákváðu að verðlauna henni þrautseigjuna með því að taka hana að sér í stað þess að senda hana aftur til slátrarans. Harpa hóf þannig nýtt líf á Kirkjubóli undir nýju nafni og var nú nefnd Sæunn, með tilvísun í sjósundið mikla. Bryndís Sigurðardóttir, Sæunnarsundstjóri, kom í þáttinn og sagði okkur frá Sæunnarsundinu sem þreytt verður í fjórða sinn á laugardaginn til minningar um þetta mikla afrek Hörpu. Við sögðum svo frá lokaverkefni Jóns Arnar Sverrissonar í landlagsarkitektúr, en í því leggur hann áherslu á að umhverfi dvalarheimila fyrir aldraða verði þannig úr garði gert að heimilisfólkið geti notið útiveru á sem fjölbreyttastan hátt í gróðursælu umhverfi. Hann segir aðstöðuleysi vera almennt við dvalarheimili og að það sé víða eins og það sé ekki reiknað með að fólk á þessum aldri njóti útiveru, þó auðvitað sé það víða í lagi. Hann vann sjálfur á Dalbæ, dvalarheimili aldraðra á Dalvík, og notar það umhverfi í lokaverkefni sínu auk þess að leggja spurningalista fyrir starfsfólk og heimilisfólk um hvað það vilji. Jón Arnar sagði okkur frá þessu í þættinum. Lesandi vikunnar í þetta sinn var leikkonan og handritshöfundur Vala Þórsdóttir. Við fengum að vita hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Vala talaði um bækur eftir Alexander McCall, Isabel Dalhousie og Elísabetu Jökulsdóttur. Svo nefndi hún tvær sjálfshjálparbækur: Boundary boss, e. Terry Cole og Árin sem enginn man e. Sæunni Kjartansd. Þegar Vala svo leit til baka þá nefndi hún Línu Langsokkur og smásögur Svövu Jakobsdóttur, sem stóðu sérstaklega upp úr og hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Tónlist í þættinum í dag: Borð fyrir tvo / Hjálmar (Sigurður Halldór Guðmundsson og Bragi Valdimar Skúlason) Sundhetjan / Sigríður Thorlacius, Bogomil Font og hljómsveit Tómasar R. Einarssonar (Tómas R. Einarsson) Einsemd / Snorri Helgason (Snorri Helgason og Guðmundur Óskar Guðmundsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Play Episode Listen Later Aug 22, 2022 50:00

Sögur af landi
Matargjafir, snjóflóðaleitarhundur og nytjamarkaður Rauða krossins

Sögur af landi

Play Episode Listen Later Jul 1, 2022

Við hittum þrjá einstaklinga og einn hund, í þremur landshlutum, sem eru virk í sjálfboðaliðastarfi. Við byrjum á Akureyri þar sem við hittum Sigrúnu Steinarsdóttir Ellertsen sem hefur haldið úti Facebook-síðunni Matargjafir á Akureyri og nágrenni í átta ár. Og frá Akureyri höldum við til Flateyrar en eftir að snjóflóð féll á Flateyri í janúar 2020 ákvað Konráð Ara Skarphéðinsson að þjálfa hundinn sinn, Ask, sem snjóflóðaleitarhund. Að lokum höldum við svo á nytjamarkað Rauða krossins á Egilsstöðum og hittum Berglindi Sveinsdóttur sem stendur þar vaktina. Efni í þáttinn unnu: Þórgunnur Oddsdóttir, Halla Ólafsdóttir og Rúnar Snær Reynisson. Umsjón: Halla Ólafsdóttir.

Orkudrykkjaneysla, minningar.is og hænsnarækt

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 19, 2022 50:00

Skýrsla Áhættumatsnefndar atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins á sviði matvæla frá því í fyrra leiddi í ljós að orkudrykkjaneysla íslenskra ungmenna í 8. til 10. bekk sé með því mesta sem þekkist í Evrópu. Hilmar Þór Sigurjónsson er framhaldsskólakennari og vinnur einnig við íþróttaþjálfun. Hann hefur skrifað pistla í fjölmiðla um orkudrykkjaneyslu unglinga og áhyggjur sínar af afleiðingum þess að drekka marga slíka drykki á dag en dæmi eru um að krakkar drekki allt að 8-9 á dag og sofi örfáa klukkutíma á sólarhring. Þetta sé vítahringur sem þurfi að hjálpa þeim að rjúfa. Hilmar Þór kom í þáttinn í dag. Við fræddumst svo um vefinn minningar.is sem var opnaður af forseta Íslands skömmu fyrir jól. Á www.minningar.is getur fólk stofnað minningarsíður, tilkynnt um andlát og skrifað minningargreinar um látna ástvini og birt myndir. Sirrý Arnardóttir er talsmaður minninga.is og hún kom í þáttinn til að segja okkur frá þessari minningarsíðu og nýjung á vefnum þar sem hún tekur viðtöl við fólk sem vill minnast látinna ástvina og hægt verður að horfa eða hlusta á viðtölin á minningar.is. Kristín okkar Einarsdóttir ætlar að koma sér upp hænsnakofa og leitaði sér því upplýsinga hjá fróðu fólki um hænsnarækt. Fyrst hringdi hún í Sæbjörgu Freyju Gísladóttur sem býr á Flateyri og er þar með þrjár tegundir af hænum. Því næst lagði Kristín leið sína í Bæ á Selströnd þar sem hjónin Bjarni Þórisson og Marta Guðrún Jóhannesdóttir búa. Þar í garðinum er hænsnakofi og fjórar hænur spranga um hlaðið með hananum en ein hænan er komin á aldur og dvelur í góðu yfirlæti alla daga á sínu hænsnapriki. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Orkudrykkjaneysla, minningar.is og hænsnarækt

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 19, 2022

Spegillinn 20. janúar 2022

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 20, 2022

Spegillinn 20. janúar 2022 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Smitum fjölgar enn hjá íslenska karlalandsliðinu á Evrópumótinu í handbolta í Búdapest. Sex leikmenn eru úr leik fyrir viðureignina við Dani í kvöld. Frelsið bítur í skottið á sér, sagði heilbrigðisráðherra þegar hann varaði við því að of geyst væri ráðist í afléttingu sóttvarnaráðstafana. Þingmaður Sjálfstæðisflokks sagði löngu kominn tíma til að stjórnvöld leiddu þjóðina út úr ógöngum. Þrátt fyrir mikinn fjölda smita í samfélaginu er þróun mála á Landsspítalanum ánægjuleg segir sóttvarnarlæknir. Andstaða fyrirtækis á Flateyri varð til þess að fiskeldisfyrirtækið Arctic Fish ákvað að byggja laxasláturhús í Bolungarvík. Bæjarfulltrúi í Ísafjarðarbæ segir þetta vonbrigði. Í janúar á næsta ári taka í gildi lög um bann við urðun á lífrænum úrgangi. Akureyrarbær hefur unnið moltu úr lífrænum úrgangi í rúman áratug en þrátt fyrir það þarf sífellt að minna á mikilvægi flokkunarinnar og stendur nú yfir átak því til áminningar. Það spáir vonskuveðri á vestan- og norðanverðu landinu seint í kvöld og gul- eða appelsínugul viðvörun er í gildi frá miðnætti, fram eftir degi á morgun og alveg fram á aðfaranótt laugardags. Lengri umfjöllun: Undanfarnar kosningar hefur reynst erfitt að manna sveitarstjórnir sums staðar, jafnvel í þokkalega stórum sveitarfélögum og Eva Marín Hlynsdóttir prófessor í stjórnmálafræði við HÍ býst við því að svo gæti farið líka í ár og mannaskipti í sveitarstjórnum verði jafnvel 65%. Eftir um fjóra mánuði, síðasta laugardaginn í maí, þann 28. verður kosið til sveitarstjórna í um öllum sveitarfélögum landsins. Þau eru mörg og misfjölmenn, frá því minnsta með um 40 íbúa, upp í höfuðborgina með um 130 þúsund. Sveitarstjórnarstigið er eitt en sveitarfélögin næstum jafn ólík og þau eru mörg. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Evu Marín. Sprengigosið í Tonga eyjum í Kyrrahafi er hið stærsta á jörðinni síðastliðin 30 ár að mati jarðvísindamanna. Þegar gosið hófst með gríðarlegum hvelli á laugardag fylgdi flóðbylgja og mikið óskufall sem hefur haft mikil áhrif á daglegt líf íbúa eyríkisins. Þeir eru einangraðir, öll samskipti við umheiminn eru erfið og óttast er að marga daga og vikur taki að rjúfa þá einangrun að fullu. Á meðan er óljósar fréttir að fá af líðan þeirra og þörf fyrir hjálpargögn. Þau eru þó farin að berast því flugvélar frá bæði Ástralíu og Nýja Sjálandi hafa á síðasta sólarhring lent á stærstu eyjunni Tona-ga-tapu með neyðarbúnað. Kristján Sigurjónsson segir frá sögu og íbúum eyjanna.

sex sj magn tona kristj eftir evr eva mar sigurj umsj frelsi flateyri anna krist landssp bolungarv lengri
Spegillinn
Spegillinn 20. janúar 2022

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 20, 2022 10:23

sex sj magn tona kristj eftir evr eva mar sigurj frelsi flateyri anna krist landssp bolungarv lengri
Morgunútvarpið
13. des - fjarvinna, líðan ungmenna, eignir ríkisins, Vogur o.m.fl

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jan 13, 2022

Þessar vikurnar vinna ansi margir heiman að frá sér og flest fyrirtæki eru orðin ansi sjóuð í því að láta fjarvinnu starfsfólks ganga vel upp. Á Flateyri opnaði í haust fjarvinnufyrirtækið Skúrin sem býður fólki að leigja skrifstofuaðstöðu í svokölluðu samvinnurými. Við slógum á þráðinn til Katrínar Maríu Gísladóttur, rekstraraðila Skúrinnar á Flateyri. Fyrirhugaðar eru endurbætur á kísilverksmiðjunni í Helguvík. Verksmiðjan var starfrækt frá nóvember 2016 til september 2017 en Umhverfisstofnun stöðvaði reksturinn vegna mengunar. Við heyrðum í Guðbrandi Einarssyni, forseta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, sem er vonsvikinn með ákvörðun Skipulagsstofnunar um að veita aftur starfsleyfi fyrir fyrsta áfanga kísilverksmiðjunnar. Ólafur Guðmundsson geðlæknir kom til okkar en hann hefur verulegar áhyggjur af andlegri líðan barna og ungmenna í faraldrinum og telur bæði fjölmiðla og sóttvarnayfirvöld að sumu leyti mála of dökka mynd af ástandinu í faraldrinum, vissulega til að tryggja það að allir fylgi settum reglum, en slík orðræða og ofuráhersla á faraldurinn hafi neikvæðar afleiðingar fyrir unga fólkið. Íslenska ríkið á yfir fjörutíu fyrirtæki og þar á meðal eru fjölmiðill, þ.e. Ríkisútvarpið, áfengisverslun, happdrætti, póstdreifing og ferðaþjónustufyrirtæki. Þetta þykir þingmanni Sjálfstæðisflokksins, Óla Birni Kárasyni, of mikið en hann hefur áhyggjur af því að fyrirtækin skili lítilli arðsemi. Óli spyr einfaldlega til hvers ríkið sé að eiga fyrirtæki og félög. Sjúkrahúsið Vogur opnar aftur í dag eftir að hafa þurft að loka í viku vegna hópsmits. Fjörutíu og tveir sjúklingar þurftu ýmist í sóttkví eða einangrun vegna smitsins og verulegur fjöldi starfsfólks sjúkrahússins sömuleiðis. Við heyrðum í Valgerði Rúnarsdóttur yfirlækni. Fjölskylda sex ára stelpu sem slasaðist alvarlega í hoppukastalaslysinu á Akureyri síðasta sumar - þegar hoppukastali tókst á loft með yfir hundrað börnum innbyrðis - stofnaði nýlega áheita- og styrktarsíðu á Facebook, sem ber heitið Áfram Klara. Við ræddum við Auðbjörgu Björnsdóttur, frænku Klöru, um endurhæfinguna og styrktarsíðuna. Tónlist: Frelsið - NýDönsk Eins og það var - Regína Ósk Watermelon Sugar - Harry Styles Oh My God - Adele On Melancholy Hill - Gorillaz Vogur - Birnir Going to a town - Rufus Wainwright Love is back - Celeste Respect - Aretha Franklin Because of You - Mono Town

Morgunútvarpið
13. des - fjarvinna, líðan ungmenna, eignir ríkisins, Vogur o.m.fl

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jan 13, 2022 130:00

Vita- og sjóslysasýning á Reykjanesi. Uppbygging á Flateyri.

Sögur af landi

Play Episode Listen Later Oct 8, 2021

Í þættinum heyrum við af nýrri vita- og sjóslysasýningu sem verið er að setja upp við Reykjanesvita. Einnig er fjallað um uppbyggingu á Flateyri. Viðmælendur í þættinum eru Eiríkur P. Jörundsson, Magnús Einar Magnússon, Bjarnheiður Ívarsdóttir og Guðjón Guðmundsson. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir og Halla Ólafsdóttir. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Betri helmingurinn með Ása
#08 - Ingileif & María

Betri helmingurinn með Ása

Play Episode Listen Later Jun 9, 2021 115:29

Ingileif Friðrikdsóttir og María Rut Kristinsdóttir eru  sannkallaðar kjarnakonur sem búa yfir þeim eiginleika að segja alveg einstaklega skemmtilegar sögur og hafa þær lent í allskonar ævintýrum á tíma sínum saman.  Ingileif og María hafa verið saman síðan 2013 en þær giftu sig eftirminnilega á Flateyri árið 2018 og eiga þær saman tvo stráka. Það væri auðveldlega hægt að henda í góða bók um alla þá flottu hluti sem þær hafa gert í gegnum tíðina hvort sem það er í tengslum við pólitík, fjölmiðla, bókaútgáfu, aktivisma, og svo lengi mætti telja.  Í þættinum sögðu þær mér meðal annars frá ansi skrautlegum fyrstu kynnum Maríu við tengdarforeldra sína,  óþæginlegri tilraun Ingileifar til þess að vera rómantísk í karaoke og fyrstu kynnum þeirra í leigubíl síðla nætur árið 2013 en hafa þær verið óaðskiljanlegar síðan þá. Þátturinn er í boði:Blush.is -     https://blush.is/Ajax -            https://verslun.ojk.is/#stockitems/src:ajaxSpaðinn -    https://spadinn.is/

ajax blush flateyri ingileif
Vikulokin
Joanna, Kjartan Hreinn og Runólfur

Vikulokin

Play Episode Listen Later Feb 13, 2021

Gestir þáttarins eru Joanna Marcinkowska, forstöðumaður nýrrar Ráðgjafastofu innflytjenda, Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis, Runólfur Ágústsson, verkefnastjóri Þorpsins og stjórnarmaður í Lýðskólanum á Flateyri. Rætt var um samning við Pfizer um hjarðónæmistilraun sem ekkert varð af, nýja ráðgjafastofu fyrir innflytjendur, húsnæðismál, ólgu í forvali Samfylkingarinnar og kosningabaráttuna framundan. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson

Vikulokin
Joanna, Kjartan Hreinn og Runólfur

Vikulokin

Play Episode Listen Later Feb 13, 2021 55:00

Gestir þáttarins eru Joanna Marcinkowska, forstöðumaður nýrrar Ráðgjafastofu innflytjenda, Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis, Runólfur Ágústsson, verkefnastjóri Þorpsins og stjórnarmaður í Lýðskólanum á Flateyri. Rætt var um samning við Pfizer um hjarðónæmistilraun sem ekkert varð af, nýja ráðgjafastofu fyrir innflytjendur, húsnæðismál, ólgu í forvali Samfylkingarinnar og kosningabaráttuna framundan. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson

Sögur af landi
Björgunarsveitarmaður rifjar upp snjóflóð. Rafíþróttir

Sögur af landi

Play Episode Listen Later Jan 22, 2021

Í þætti dagsins er rætt við Magnús Einar Magnússon, formann björgunarsveitarinnar Sæbjargar á Flateyri. Magnús rifjar upp snjóflóðin sem féllu þann 14. janúar 2020 og talar um lífið á Flateyri. Í þættinum verður auk þess fjallað um rafíþróttir og farið í heimsókn til nýstofnaðs rafíþróttafélags í Bolungarvík, þar sem rætt verður við Þorberg Haraldsson, formann Rafíþróttadeildar Bolungarvíkur. Einnig er rætt við Sigrúnu Jónu Hauksdóttur, hjá Rafíþróttadeild Hattar á Egilsstöðum. Efni í þáttinn unnu Elsa María Guðlaugs Drífudóttir, Halla Ólafsdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Spegillinn
Forsætisráðherra vill breyta stjórnarskrá

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 14, 2021 30:00

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra ætlar að leggja fram frumvarp um breytingar á stjórnarskrá. Í því verður vikið að auðlindum í þjóðareign, umhverfis- og náttúruvernd, íslenskri tungu, forseta og framkvæmdavaldi. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir talaði við hana. Skipstjórinn á Júlíusi Geirmundssyni var í dag dæmdur til sektar og sviptur skipstjórnarréttindum í fjóra mánuði. Karl Ingi Vilbergsson lögreglustjóri á Vestfjörðum segir að þar með sé málinu lokið. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir talaði við hann. Dauðsföll af völdum COVID-19 eru orðin rúmlega tíu þúsund í Svíþjóð. Engin teikn eru á lofti um að úr þeim dragi á næstunni. Ásgeir Tómasson sagði frá. Tollverðir á Keflavíkurflugvelli eru ósáttir við að vera ekki skilgreindir í forgangshóp fyrir bólusetningu gegn COVID-19. Guðbjörn Guðbjörnsson, yfirtollvörður segir vettvangsmenn tollsins vera áhyggjufulla vegna nándar við veiruna á landamærunum. Birgir Þór Harðarson talaði við hann. Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu skoðar hvort rétt sé að kanna sjúkrasögu þeirra sem taka þátt í fjöldabólusetningu, og hvort þeir hafi áður fengið ofnæmisviðbrögð við bólusetningu. Arnhildur Hálfdánardóttir tók saman. Eitt ár er liðið frá því snjóflóð féllu í Önundarfirði og Súgandafirði á Vestfjörðum. Flóðin ollu talsverðu tjóni. Á Flateyri fóru þau yfir varnargarða, kaffærðu hús og sökktu sex bátum í höfninni. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir ræddi við Hrefnu Valdemarsdóttur og Steinunni Einarsdóttur. ------------ Utanlandsferðum Íslendinga fækkaði um nærri 80% í fyrra. Í apríl fóru aðeins rétt rúmlega 300 Íslendingar til útlanda miðað við yfir 60 þúsund á sama tíma árið 2019. Arnar Páll Hauksson tók saman og talaði við Þórunni Reynisdóttur. Illa hefur gengið að koma böndum á kórónuveirufaraldurinn í víða um heim, ekki síst þar sem hið svokallað breska afbrigði hefur náð fótfestu. Staðan í útlöndum endurspeglast í fjölgun smita á landamærunum og því verða Íslendingar að halda vöku sinni. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir og Sigurgeir Sigmundsson, yfirlögregluþjónn flugstöðvardeildar Lögreglunnar á Suðurnesjum ræddu um aðerðir á landamærum og lagastoð þeirra á almannavarnafundi. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segja að nýjar reglur verði kynntar á morgun og endurskoðun sóttvarnalaga verði unnin eins hratt á Alþingi og unnt er . Anna Kristín Jónsdóttir tók saman. Vaxandi óánægju gætir í Noregi með framgöngu stjórnvalda við bólusetningar gegn Covid-19 veirunni. Norðmenn hafa ákveðið að keppa ekki við aðrar þjóðir um að ka

Spegillinn
Ekki þörf á að bregðast við dómi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 1, 2020 30:00

Ekki er þörf á að bregðast við dómi yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu í Landsréttarmálinu segir dómsmálaráðherra. Landsréttur sé löglega skipaður samkvæmt íslenskum lögum. Dómar Mannréttindadómstólsins séu ekki lagalega bindandi hér á landi. Dómur Mannréttindadómstólsins í máli gegn íslenska ríkinu markar tímamót, segir lögmaður manns sem höfðaði málið. Dómstóllinn hafi slegið skjaldborg um sjálfstætt dómsvald í Evrópu. Tólf sambærileg mál bíða afgreiðslu dómstólsins. Rúmlega ellefu milljarða króna halli verður á rekstri Reykjavíkurborgar á næsta ári. Borgarstjóri segir blásið til sóknar með auknum fjárfestingum. Oddviti Sjálfstæðisflokksins lýsir áhyggjum af skuldsetningu. Nýtt snjóflóðahættumat fyrir Flateyri í Önundarfirði færir fjölda húsa inn á hættusvæði og alla höfnina sömuleiðis. Heildarkostnaður Húnaþings vestra vegna kórónuveirufaraldursins er nú orðinn tæpar níutíu milljónir króna. Í tillögum að nýjum sóttvarnareglum sem sóttvarnalæknir dró til baka var meðal annars heimilt að opna sundstaði aftur að hluta og að samkomubann yrði miðað við 20 manns í stað 10. Arnar Páll Hauksson sagði frá. Styttri vinnuvika felur í sér aukin lífsgæði starfsfólks og stuðlar að hamingjusamara samfélagi segir á vef BSRB. Í samningum við ríki og sveitarfélög í vor var samið um styttingu vinnuvikunnar í allt að 36 tíma hjá dagvinnufólki en allt að 32 hjá vaktavinnufólki. Vinnan við útfærslu fyrir dagvinnufólk er langt komin, enda á hún að taka gildi um áramótin en í vor hjá vaktavinnufólki. Stytting vinnutímans er sögulegur áfangi segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Sonju Ýr. Brexit var auðvelda leiðin ef marka mátti boðskap leiðandi Brexit-sinna fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna sumarið 2016 um aðild Breta að Evrópusambandinu. Nú er einn þeirra við stjórnvöl þjóðarskútunnar og freistar þess að semja um viðskipti við ESB og daglega búist við fréttum af útkomunni. En af hverju hefur verið svona erfitt að semja um viðskipti til framtíðar? Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.

Morgunútvarpið
24. nóv. - Styrkir, Flateyri, Kristjana, iðngreinar og tækni

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Nov 24, 2020 130:00

Félagsmálaráðuneytið gerir nú tekjulágum fjölskyldum kleift að sækja styrki upp á 45.000 krónur vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna fædd á árunum 2005-2014. Styrkirnir koma til viðbótar hefðbundnum íþrótta- og tómstundastyrkjum sveitarfélaga. Alls verður um 900 milljónum króna varið í verkefnið árin 2020 og 2021. Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, segir aðgerðir stjórnvalda mikilvægt innlegg gegn neikvæðum áhrifum COVID-faraldursins og hjálpi til við að gera öllum kleift að vera með og taka þátt í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Auður var á línunni. Í gær var haldinn íbúafundur á Flateyri þar sem fulltrúar viðbragðsaðila fóru yfir aðgerðir sem gripið hefur verið til í kjölfar snjóflóðanna 14. janúar sl. og viðbrögð við uppfærðu hættumati og rýmingaráætlun. Helena Jónsdóttir verkefnastjóri á Flateyri var á línunni og sagði okkur frá stöðu mála. Kristjana Arnarsdóttir íþróttafréttamaður hefur dvalið á Spáni og víðar í Evrópu undanfarna mánuði og líkar vel. Hún birti færslu um daginn þar sem hún hvatti fólk til að pakka niður og drífa sig suður á bóginn. Við hringdum til hennar á Spáni og heyrðum af lífinu þar. Skýrsla OECD, Efnahags og framfarastofnunar Evrópu, sem kynnt var á dögunum hefur fallið í grýttan jarðveg hjá iðngreinunum. Lagt er til að löggilding fyrir t.d. ljósmyndara og bakara verði lögð niður. Bakarar segja að OECD virðist hvorki hafa kynnt sér aðstöðu bakaraiðnarinnar né aðgengi að námi og nemasamningum þegar stofnunin lagði til að löggildingin yrði lögð af. Sigurður Már Guðjónsson í Bernhöftsbakaríi segir tillögurnar grófa aðför að gæðum og fagmennsku í landinu og að verið sé að lögleiða fúsk. Við heyrðum í Sigurði. Við kíktum í tæknihornið í dag þegar Guðmundur Jóhannsson heimsótti okkur með tíðindi af tækni og ræddi þar samfélagsmiðla. Tónlist: Ásgeir Trausti - Bernskan. Thin Jim and the Castaways - Leaves still green. Duffy - Warwick Avenue. Queen - Somebody to love. Herbert Guðmundsson - Lífið. Dikta - Thank you. Christine and the Queens - People, Ive been sad. Coldplay - Viva la vida.

covid-19 gu oecd alls sigur evr lagt umf kristjana queen somebody helena j flateyri coldplay viva efnahags herbert gu kristjana arnarsd
Sögur af landi
Nýsköpun á Flateyri. Ungur tónlistarmaður. Bændur á Hranastöðum.

Sögur af landi

Play Episode Listen Later Nov 20, 2020

Í Sögum af landi verður rætt við verkefnastjórann Helenu Jónsdóttur á Flateyri um styrki úr Þróunarverkefnasjóði sem nýlega var úthlutað til 15 nýsköpunarverkefna sem talið er að munu hafa jákvæð áhrif á atvinnulíf og samfélagið á Flateyri. Í þættinum verður einnig flutt ítarlegra viðtal við Ásgeir Braga Ægisson, sauðkrækinginn unga, sem hefur á skömmum tíma orðið einn mest spilaði tónlistarmaður landsins á streymisveitunni Spotify. Að lokum í Sögum af landi verður farið í heimsókn á bæinn Hranastaði í Eyjafjarðarsveit, þar sem hjónin Ásta Arnbjörg Pétursdóttir og Arnar Árnason hafa búið í 20 ár og eru þar nú með ríflega 100 mjólkandi kýr og stórt eggjabú. Innslög í þáttinn unnu Halla Ólafsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson og Ágúst Ólafsson. Umsjón: Gígja Hólmgeirdóttir

Morgunútvarpið
16. sept. - Sæunn, brottvísun, meindýr, Jakob Bjarnar og tækni

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Sep 16, 2020 130:00

Við heyrðum í Eyþóri Jóvinssyni bóksala á Flateyri. Hann hefur skrifað barnabók um kúna Sæunni sem tók á rás og stökk í hafið og synti út á fjörð þegar til stóð að slátra henni og bjargaði með því lífi sínu. Magnús Norðdahl, lögmaður Egypsku fjölskyldunnar, sem vísa á úr landi og mikið hefur verið fjallað um í fjölmiðlum, kom til okkar. Hann segist vera yfirbugaður af sorg og reiði út í kerfið og stjórnmálamenn eftir ferli málsins lauk í gær hjá kærunefnd. Það hafa borist fréttir af mink og rottum við Ráðhús Reykjavíkur að undanförnu og borgarfulltrúar meðal annars birt myndir af dýrunum. Við ræddum við Steinar Smára, meindýraeyði. Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður á Vísi, kom í þáttinn en hann gagnrýnir harðlega úrskurð siðanefndar blaðamannafélagsins um að vefmiðillinn Fótbolti.net hafi gerst brotlegur við siðareglur þegar nafn fótboltakonu sem kom Covid smituð frá bandaríkjunum var birt. Hann telur einnig að fólk hafi ranghugmyndir um eðli fjölmiðla. Guðmundur Jóhannsson mætti í tæknihornið sitt.

Morgunútvarpið
5. ágúst - Sæunnarsund, mótmæli, sveppir, veltutrygging og Hebbi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Aug 5, 2020 130:00

Sæunnarsundið á Flateyri er fastur liður í ágústlok. Þar syndir fólk í klaufspor kýrinnar Sæunnar frá Flateyri yfir í Valþjófsdal. Bryndís Sigurðardóttir veit allt um þetta forvitnilega mál og hún var á línunni. Jóhannes Loftsson kom til okkar en hann, ásamt fleirum, undirbýr nú mótmæli gegn aðgerðum stjórnvalda vegna kórónuveirufaraldursins. Hann telur að aðgerðirnar takmarki um of frelsi fólks og að samkomutakmarkanir með tilheyrandi truflunum á atvinnustarfsemi séu of íþyngjandi og geri samfélaginu meira ógagn en gagn. Talsverð umræða varð í hópi sveppaáhugafólks á Facebook eftir að viðmælandi í Sumarlandanum sagði að fólk fyndi það á bragðinu hvort sveppir væru eitraðir eða ekki og að ekki fyndust margir eitraðir sveppir á Íslandi. Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, sveppafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands segir þetta ekki rétt og hún fræddi okkur frekar um það. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri samtaka ferðaþjónustunnar, kom til okkar og rýndi í stöðuna nú þegar hert hefur verið á takmörkunum í samfélaginu og horfur á vægast sagt þungum vetri fyrir ferðaþjónustufyrirtæki. Við ræddum einnig við hann um svokallaða veltutryggingu kortafyrirtækja en Borgun tilkynnti á dögunum þeim fyrirtækjum sem skipta við fyrirtækið að 10 prósentum af heildarfjárhæð færslna verður haldið eftir í sex mánuði en SF og fleiri hafa mótmælt þessu harðlega. Kórónuveirufaraldurinn hefur komið illa við listafólk og þá sem lifa af því að koma fram. Sköpunarkrafturinn hefur þó blómstrað og margir samið og gefið út, bæði tónlist og fleira. Herbert Guðmundsson lætur sjaldan slá sig út af laginu og við heyrðum hvernig hefur gengið hjá honum og heyrðum líka nýjasta lag kappans. Tónlist: Bjartmar og Bergrisarnir - Negril. KK - Þetta lag er um þig. Paul McCartney og Wings - Maybe Im amazed. Þórunn Antonía - Play me. Bubbi og Hjálmar - Þöggun. Harry Styles - Adore you. Pink - A million dreams. Herbert Guðmundsson - Lífið. Albatross - Já það má.

Spegillinn
Spegillinn 20. apríl 2020

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 20, 2020 30:00

Spegillinn 20.apríl 2020 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Mark Eldred Unglingspiltarnir sem bjargað var úr höfninni í Hafnarfirði í janúar voru í hjartastoppi í tvo tíma. Þeir eru einu Íslendingarnir sem hafa lifað af svo langt hjartastopp. Þeir eru nú báðir komnir heim af spítala. Ekki er tímabært að hefja mótefnamælingar vegna COVID-19 hér á landi vegna þess að ekki hefur fengist úr því skorið hvaða aðferð gagnist best. Þetta segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Aðeins tvö tilfelli greindust síðasta sólarhring, bæði á Vestfjörðum. 10 hafa nú látist vegna COVID-19 sjúkdómsins hér á landi. Hertum aðgerðum verður aflétt á Suðureyri, Flateyri, Súðavík og Þingeyri eftir viku. Þá munu sömu takmarkanir gilda þar og annars staðar á landinu. Strangari aðgerðir verða áfram í gildi í Bolungarvík, á Ísafirði og í Hnífsdal til 4. maí hið minnsta. Verð á tunnu af bandarískri hráolíu fór í síðdegis niður fyrir tvo dollara. Það hefur ekki verið jafn lágt í áratugi. Páll Matthíasson forstjóri Landspítalans þakkaði erlendu starfsfólki spítalans fyrir framlag þess á upplýsingafundi almannavarna, fólki sem bæði starfar sem fagmenn og einnig þeim sem sinna þrifum og fleiru. Ekkert staðfest smit er nú á Norðurlandi vestra og einungis þrír eru í sóttkví. Þar með er stórum áfanga náð en fyrstu tilfelli fjórðungsins komu upp fyrir nákvæmlega mánuði, 20. mars í Húnaþingi vestra. Tvær tegundir af örplasti fundust í drykkjarvatni á Akureyri samkvæmt rannsóknum við Háskólann á Akureyri. Töluvert meira plast mældist í sjávarseti í Eyjafirði en við Stafangur í Noregi, sem er tíu sinnum fjölmennara svæði. Lengri umfjöllun: Íslendingar eru ánægðastir með frammistöðu stjórnvalda vegna COVID-19 samkvæmt alþjóðlegri könnun Gallups. 92% Íslendinga telja að útbreiðsla kórónuveirunnar hafi orðið með náttúrulegum hætti. Arnar Páll Hauksson segir frá. Breytt staða blasir við mörgum stéttarfélögum í COVID-19 faraldrinum. Félagsmenn hafa misst vinnu, starfa í skertu starfshlutfalli og margir hafa þurft að sinna vinnu heiman frá sér. Í vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar á síðasta ársfjórðungi síðasta árs kom fram að þriðjungur launafólks á aldrinum 25-64 ára vinnur aðalstarf sitt venjulega eða stundum heima. Bráðabirgðatölur fyrir fyrsta ársfjórðung 2020 sýna nokkra aukningu á fjarvinnu launafólks af völdum COVID-19 en endanlegar niðurstöður ársfjórðungsins liggja ekki fyrir. Framhaldsskólakennarar hafa ekki þurft að óttast atvinnumissi en vinnan þeirra hefur gjörbreyst. Kristján Sigurjónsson ræðir við Guðjón Hrein Hauksson

Spegillinn
Fall á mörkuðum, staða Icelandair og snjóflóðahætta fyrir vestan

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 16, 2020 30:00

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair segist sannfærður um að félagið geti staðið af sér það áfall sem útbreiðsla COVID-19 veirunnar hefur í för með sér. Flugfélög um allan heim hafa boðað fordæmalausan samdrátt í flugi. Miklar lækkanir urðu í kauphöllum í dag. Magnús Geir Eyjólfsson ræddi við Boga. 12 ný kórónaveirusmit hafa greinst á Íslandi í dag. Meira en tvö þúsund eru í sóttkví og þrír á sjúkrahúsi, þar af tveir á gjörgæslu. Alma Ómarsdóttir sagði frá og heyrist í Þórólfi Guðnasyni, sóttvarnalækni af upplýsingafundi Almannavarna. Hættustig er í gildi vegna snjóflóðahættu á Patreksfirði og Flateyri og þar hafa nokkur íbúðarhús verið rýmd. Óvissustig er í gildi á Vestfjörðum, þar hefur mikið snjóað og í nótt bætir enn í. Appelsínugul viðvörun er í gildi fram á kvöld á morgun vegna norðaustan stórhríðar. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir segir frá Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Ursula von der Leyen, leggur til bann við ónauðsynlegum ferðum inn á Schengensvæðið í þrjátíu daga. Stefnan er að bannið nái einnig til ríkja sem eiga aðild að Schengen en ekki ESB, eins og Íslands. Dagný Hulda Erlendsdóttir tók saman. Yfirvöld í Týról hunsuðu viðvaranir frá Íslandi um að COVID-19 veiran væri þar á sveimi. Hefðu yfirvöld brugðist við af meiri festu hefði verið hægt að hægja á útbreiðslu veirunnar enn frekar í Evrópu. ----- Áhrifa COVID-19 faraldursins í atvinnulífinu gæti víða, óveðursblikur á lofti víða um heim. Drífa Snædal, forseti Alþýðusambandsins hefur vakið athygli á því að aðstæður fólks til að takast á við sóttkví og einangrun eru misjafnar og þá þurfi að gæta þess að kostnaður við heimavinnu lendi ekki á launþegum. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Drífu. Fastlega má búast við einhverjum kjaraviðræðum verði frestað vegna COVID-19. Fækkað hefur verið í samninganefndum og fjarfundabúnaður er notaður á sumum fundum. Arnar Páll Hauksson sagði frá. Jónína Einarsdóttir leikstjóri á Stakkaborg, segir að börnin eigi eftir að verða breytinga vör í fyrramálið. Þeim er skipt upp í hópa og bara helmingurinn í skólanum í einu og tíminn styttur. , vináttubangsarnir hafa til dæmis verið settir í geymslu og stór hluti leikfanga fjarlægður. Arnhildur Hálfdánardóttir talar við Jónínu. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson. Stjórn útsendingar: Björg Guðlaugsdóttir.

Spegillinn
Spegillinn 2.mars 2020

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 2, 2020 30:00

Spegillinn 2.mars 2020 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tækninmaður: Magnús þorsteinn Magnússon Sex hafa nú greinst smitaðir af COVID-19 veirunni hér á landi. Öll smituðust á Norður Ítalíu. Alls hafa 55 smit verið staðfest á Norðurlöndum. Óróleirki er við landamæri Tyrklands og Grikklands. Þúsundir flóttamanna reyna að komast yfir landamærin frá Tyrklandi til Grikklands. Búnaðarþing var sett í dag. Sitjandi formaður bændasamtakanna fær mótframboð á þinginu. Formlegar samningaviðræður Breta og Evrópusambandsins um framtíðarviðskiptasamband hófust í morgun. Deilendur virðast hafa ólíkar hugmyndir um hvað stefnt sé að þó byggt sé á fyrri samningum. Aríel Pétursson sjómaður úr Hafnarfirði er meðal æðstu manna á danska herskipinu Triton, sem lagðist að bryggju í Reykjavíkurhöfn í dag. Að loknu námi í Stýrimannaskólanum stundaði hann sjóinn, en þegar konan hans fór í framhaldsnám í Danmörku ákvað hann að sækja um inngöngu í sjóliðsforingjaskólann og nú er hann yfirstýrimaður og ábyrgur fyrir leit og björgun sem og því er lýtur að hernaðaraðgerðum, einkum æfingum. Daði og Gagnamagnið sigruðu með yfirburðum í úrslitum Söngvakeppninnar á laugardagskvöldið og var með meirihluta atkvæða í báðum símakosningum sem og flest stig alþjóðlegrar dómnefndar. Lengri umfjöllun: Samkomulag virðist hafa náðst um styttingu vinnuvikunnar hjá vaktavinnufólki. Það dugir þó ekki til að leysa yfirstandandi kjaradeilur og koma í veg fyrir verkföll. Víðtæk verkföll gætu hafist eftir viku. Sáttafundur hefur ekki verið boðaður í deilu Eflingar og Reykjavíkurborgar. Verkfall hefur nú staðið yfir í tvær vikur. Arnar Páll Hauksson segir frá. Það er óhætt að segja að veðurfarið í vetur hafi ýtt hressilega við landsmönnum og stjórnvöldum. Í ljós hefur komið að ýmsir innviðir, eins og raforkukerfið, stóðu ekki eins traustum fótum og talið var. Snjóflóðin á Flateyri og í Súgandafirði 14. janúar urðu einnig til þess að endurskoða þurfti hraðann á framkvæmdum við ofanflóðavarnir. Fyrir helgi kynnti ríkisstjórnin aðgerðir þar sem 27 milljörðum króna verður varið til þess að flýta framkvæmdum í flutnings- og dreifikerfum raforku og í ofanflóðavörnum. 15 milljarðar af þessum 27 fara í ofanflóðavarnir. Fasteignaeigendur borga ár hvert 2,7 milljarða króna í sérstakan skatt sem upphaflega var ætlað að færi í ofanflóðasjóð. Reyndin hefur hins vegar verið sú að einn milljarður fer í þennan sjóð, en ekki 2,7. Halldór Halldórsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Ísafirði og fyrrverandi borgarfulltrúi í Reykjavík situr í stjórn Ofanflóðasjóðs, tilnefndur a

Vikulokin
Guðmundur, Gylfi og Steinunn Guðný

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jan 18, 2020 55:00

Vikulokin voru send út frá Gunnukaffi á Flateyri, þar sem mannbjörg varð í þegar snjóflóð féll fyrir ofan bæinn fyrr í vikunni og olli stórtjóni. Rætt var við þau Guðmund Gunnarsson, bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar, Gylfa Ólafsson, forstöðumann Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og Steinunni Guðnýju Einarsdóttur, gæðastjóra og íbúa á Flateyri. Umsjón: Sigríður Dögg Auðunsdóttir Tæknimaður: Jóhannes Jónsson

Vikulokin
Guðmundur, Gylfi og Steinunn Guðný

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jan 18, 2020