POPULARITY
Hættumat Veðurstofu Íslands vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga helst óbreytt. Töluverðar líkur eru á eldgosi og kvika í kvikuhólfinu undir Svartsengi á Reykjanesskaga er komin að neðri þolmörkum og því gæti gosið á Sundhnúksgígaröðinni í þessari eða næstu viku. Kvikan sem hefur safnast fyrir í kvikuhólfinu undir Svartsengi síðan síðasta eldgosi lauk er örlítið meiri en kvikan sem fór út þá. Þorvaldur Þórðarson prófessor í eldfjalla- og bergfræði kom í þáttinn og spáði í stöðuna og nýjustu tölur. Hinsegin fólk býr almennt við verri heilsu og líðan en þau sem eru ekki hinsegin og það þarf að bregðast við því. Þetta sýna niðurstöður rannsóknarinnar Heilsa og líðan hinsegin fólks sem er hluti af aðgerðaráætlun lýðheilsustefnu Reykjavíkur. Sérstaklega var skoðuð reynsla af ofbeldi, áfengis- og vímuefnaneyslu og geðheilsu. Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir, sérfræðingur í málefnum hinsegin fólks og Harpa Þorsteinsdóttir, verkefnastjóri lýðheilsumála á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, komu í þáttinn og sögðu okkur frá niðurstöðum rannsóknarinnar og hvernig þær verða nýttar. Svo í lok þáttar fræddumst við um street dans, eða götudans, og Dance Battle, eða dansslag, sem er eins konar hólmganga í dansi þar sem dansarar sýna færni sína til að skáka andstæðingi sínum. Það mátti til dæmis sjá slíka keppni á síðustu Ólympíuleikum þar sem keppt var í breikdansi. Í gær mættust dansarar úr Íslenska dansflokknum og Ice Crew í Borgarleikhúsinu og var áhorfendum meðal annars boðið að taka þátt. Erna Gunnarsdóttir, dansari hjá dansflokknum, og Mikael Christopher Grétarsson, úr danshópnum Ice Crew, komu í þáttinn og sögðu okkur hvernig fór í gær og frá nýrri sýningu dansflokksins þar sem dansarar úr flokknum mæta street dönsurum í verki eftir íranska danshöfundinn Hooman Sharifi. Tónlist í þættinum í dag: Clementine / Hraun (Svavar Knútur Kristinsson) Until I Met You / Manhattan Transfer (Freddie Green & Don Wolf) Everything is beautiful / Ray Stevens (Ray Stevens) Í góðu skapi / Sniglabandið (Pálmi J. Sigurhjartarson, Þorsteinn Marel Júlíusson og Björgvin Ploder) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Þriðjudagur 4. febrúar Valdaumskipti á Alþingi, þýskar kosningar, hinsegin barátta, listir, trúmál og öryggi barna Helga Vala Helgadóttir lögmaður og fyrrum þingkona greinir þau miklu umskipti sem hafa orðið í valdatafli landsmanna með því að flokkar sem vanir eru að sitja í ríkisstjórn eru nú í stjórnarandstöðu og öfugt. Alþingi var sett í dag. Við höldum áfram að ræða um trúmál og fáum til okkar fulltrúa andans að Rauða borðinu, Davíð Þór Jónsson þjóðkirkjuprest og Sverri Agnarsson, fjölmiðlaráðgjafa og múslima. Þau ræða meðal annars aukna kirkjusókn, fordóma gagnvart trúarbrögðum, einn guð og feðraveldið. Auðunn Arnórsson stjórnmálafræðingur fer yfir stöðuna í þýskum stjórnmálum í aðdraganda kosninga. Auður Magndís, Ugla Stefanía og Íris Ellenberger ræða bakslag í hinsegin baráttu. Herdís Storgaard fjallar um öryggi barna og viðureignir við kerfið. Ólöf Ingólfsdóttir dansari og söngvari segir okkur frá endurkomu sinni í listina og ræðir verk sitt Eitthvað um skýin.
Annað kjörtímabil Donalds Trump í embætti Bandaríkjaforseta hófst með sannkölluðu forsetatilskipanaflóði. Á síðustu viku hefur hann meðal annars tekið ákvarðanir um innflytjendamál, loftslagsmál og rekstur hins opinbera, en eitt af því sem hefur vakið athygli eru tilskipanir Trumps sem tengjast kynjamálum og réttindum hinsegin fólks, sem gætu haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir hinsegin fólk í Bandaríkjunum. En hvaða áhrif gætu þessar tilskipanir haft? og… Skiptir það máli fyrir okkur hér á Íslandi? Í dag fáum við til okkar Bjarndísi Helgu Tómasdóttur, formann Samtakanna 78, og Reyn Alpha Magnúsdóttur, forseta Trans Ísland, til að ræða þessi mál. Og síðan bregðum við okkur vestur á land, og heimsækjum eina af grunnstoðum vesturlenskrar ferðaþjónustu í Borgarnesi. Við kíkjum í Landnámssetrið, fræðumst um starfsemina þar, og kynnum okkur íslendingasögurnar sem þær Sigríður Margrét Guðmundsdóttir Helga Margrét Friðriksdóttir vinna við að miðla. Tónlist úr þættinum Waxahatchee - Lilacs.
Í dag fjöllum við um stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði. Oft er talað um glerþakið þegar rætt er um hindranir sem konur mæta á vinnumarkaði; þá sérstaklega hvað varðar kjör og stöðuhækkanir. Hindrar glerþakið líka uppgang hinsegin fólks á atvinnumarkaði? Við ræðum þetta og fleira við Vilhjálm Hilmarsson, hagfræðing hjá stéttarfélaginu Visku. Árum saman hafa dýrahræ verið urðuð hér á landi, þvert á lög og reglur. Nú - eða í það minnsta á næstu árum stendur til bóta. Við ætlum að ræða áform um líforkuver á Dysnesi við Eyjafjörð. Kristín Helga Schiöth, framkvæmdastjóri Líforkuvers ehf. kemur til okkar og segir okkur frá stöðunni og því hvað þarf að gerast í náinni framtíð - og það er mikið í húfi - því verði ekki breytingar gætu íslensk matvæli verið stimpluð óörugg á meginlandi Evrópu. Er hið opinbera of duglegt að styrkja verkefni sem eru skaðleg fyrir umhverfið? Erum við að fjármagna okkar eigin útrýmingu? Þetta er á meðal þess sem Stefán Gíslason, umhverfisstjórnarfræðingur og pistlahöfundur Samfélagsins, fjallar um í pistli dagsins. Edda Olgudóttir, kemur svo til okkar í vísindaspjall og ræðir nýjar rannsóknir sem benda til þess að neysla á rauðu kjöti auki líkurnar á því að fólk fái sykursýki af gerð tvö. Tónlist: Otis Redding - Wonderful World. GDRN - 10 dropar (Upptaka úr Tónatal).
Miðvikudagurinn 21. ágúst: Skólinn, Vg, hinsegin bækur, ME-sjúkdómur, Frosti & Smári Þórdís Sigurðardóttir sem veitir Miðstöð menntunar og skólaþjónustu forstöðu tekur undir margt af þeirri alvarlegu gagnrýni sem komið hefur fram á grunnskólakerfið. Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við Orra Pál Jóhannsson þingflokksformann um Vg. Rithöfundarnir Kristín Ómarsdóttir og Halla Þórlaug Óskarsdóttir segja frá Queer bókmenntahátíð og Helga Edwardsdóttir varaformaður ME félagsins segir frá þessum sjúkdómi og ráðum við honum. Í lokin spilum við viðtal Frosta Logasonar við Gunnar Smára Egilsson um efnahagsmál og kynusla.
Á matseðlinum var afsökunarbeðni Prittýboy tjokkó, þjórfé sé lúsmý og kaup lögreglunar á búnaði fyrir leiðtogafund. Í eftirrétt bjóðum við uppá 13 kynlífstæki sem koma sér vel í fjarsamböndum og jafnvel líka ekki í fjarsamböndum ásamt helling af öðru góðu stöffi. Góða skemmtun!
Gestur í fimmunni var aðstoðarframkvæmdastjóri Nasdaq á Íslandi Þóra Björk Smith en hún er líka félagi í hinni lesbísku ofursveit Úkulellum. Þóra talaði um fimm ákvarðanir sem tengdust hinseginleikanum og höfðu djúp áhrif á líf hennar Þemað í tónlistinni voru litir regnbogans í tilefni af Hinsegin dögum lagalisti Rauða fjöðrin - Cosa Nostra Hope there's someone - Antony and the Johnsons Ég er eins og ég er - Páll Óskar Top of the World - Sykurmolarnir Hold með closer - Elton og Britney Purple Rain - Prince Fjólublátt ljós við barinn - Þorgeir Ástvalds Trouble - Pink Gleðivíma - Rán og Páll Óskar Graði Rauður - Mannakorn Appelsínugul viðvörun - Baggalútur Á köldum kvöldum - Steinunn Jónsdóttir og Steini Hjálmur Hr Reykjavik - Stuðmenn Stattu upp fyrir sjálfum þér - Blár Ópal Græna byltingin - Spilverk þjóðanna Mellow Yellow - Donovan ITSAHELL - Bashar Murad Regnbogans stræti - Bubbi Morthens
Gestur Felix í Fram og til baka um Verslunarmannahelgi voru þau Margrét Rán Magnúsdóttir tónlistarkona í Vök og Gus Gus og Elfar Logi Hannesson leikhúsmaður á Ísafirði. Margrét Rán kom í fimmuna og sagði af fimm ártölum sem hafa haft djúp áhrif á líf hennar. Hún hóf leik á árinu 2008 en það var árið sem hún mætti á Hinsegin daga í fyrsta sinn, 15 ára gömul, og kom út úr skápnum fyrir vinum og fjölskyldu. Síðasta ártalið var svo 2023 en þá fæddist henni dóttir sem hefur breytt lífinu til frambúðar. Elfar Logi talaði um einleikjahátíðina Act Alone sem fagnar 20 ára afmæli um þessar mundir og verður haldin dagana 7-10. ágúst.
Hve mikinn þátt í sigri Höllu Tómasdóttur átti sókn hennar á nýjum miðlum þar sem sérstaklega var höfðað til yngri kjósenda? Breytingar á íslensku samfélagi endurspeglast í fangelsum landsins, í fyrra sættu 242 frá 40 löndum gæsluvarðhaldi og hafa aldrei verið fleiri. Fangelsismálastjóri segir þróun samfélagsins endurspeglast í fangelsunum og það þarf að hlúa betur að hinsegin nemendum í smærri byggðum landsins segja talsmenn Hinsegin lífsgæða.
Í síðustu viku var fundur á vegum norrænu samtakanna NIKK, þar sem fjallað var um stöðu hinsegin eldra fólks á Norðurlöndunum og hvað væri hægt að gera til að bæta hana. Á fundinum voru kynntar tvær skýrslur um stöðuna og við fengum Þorbjörgu Þorvaldsdóttur, verkefnastjóri hjá Samtökunum '78 og Ragnhildi Sverrisdóttur, sem var fundarstjóri á norræna fundinum til þess að segja okkur frá því hvað kom fram í þessum skýrslum og á fundinum um stöðu hinsegin eldra fólks á Norðurlöndunum. Í nóvember síðastliðnum fór íslenska jólamyndin Jólamóðir í bíó. Hún er gefin út í nýrri útgáfu fyrir þessi jólin og verður sýnd alveg fram á þrettándann í völdum kvikmyndahúsum víðsvegar um landið. Og af fleiri jólaævintýrum, Ævintýri í Jólaskógi er farið af stað fjórða árið í röð, þar er um að ræða vasaljósaleikhús í Guðmundarlundi og alltaf með nýjum sögum í hvert skipti. Og eins og þetta sé ekki nóg, þá opnaði Jólalundur í Kópavogi við hátíðlega athöfn þar sem fjölskyldum gefst tækifæri á að mæta frítt á jólaball, fara í ratleik og fleira skemmtilegt. Anna Bergljót Thorarensen kemur að öllum þessum viðburðum og við ræddum við hana í þættinum í dag. Meistaranemar í ritlist við Háskóla Íslands hafa undanfarin ár verið í samstarfi við Rás 1 í desember vegna útgáfu Jólabókar Blekfjelagsins út en Blekfjelagið er nemendafélag Ritlistar. Þetta er í tólfta sinn sem þetta er gert, fyrst voru sögurnar 100 orð en svo fækkar orðunum með hverju árinu og nú eiga sögurnar því að vera nákvæmlega 89 orð hver og þemað í ár er Órói. Við heyrðum höfundana sjálfa lesa þriðja og síðasta hluta þessara örsagna í þættinum í dag. Höfundarnir voru í dag Karólína Rós Ólafsdóttir, Katrín Mixa, Guðrún Friðriks, Valgerður Ólafsdóttir, Birgitta Björk Bergsdóttir, Áslaug Ýr Hjartardóttir, Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir, Birgitta Björg Guðmarsdóttir og Svala Jónsdóttir. Tónlist í þættinum í dag: Jólin eru dásamleg / Jóhann Sigurðarson og Þór Breiðfjörð (Guðmundur Jónsson) The girls from Grindavik / Matti Kallio (Matti Kallio) Have Yourself a Merry Little Christmas / Laufey & Norah Jones (Hugh Martin & Ralph Blane) Jólabros í jólaös / Egill Ólafsson og barnakór Kársnesskóla (Ingibjörg Þorbergs) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Við ætlum að ræða við einn fyrirlesaranna, Jón Gunnar Ólafsson, nýdoktor í fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands, um fjölmiðlun, - nánar tiltekið um helstu rannsóknir á stöðunni í upplýsingaheiminum með tilliti til lýðræðisumræðu, samfélagsmiðla, upplýsingaóreiðu og gervigreindar. Í vikunni varð gestur á ráðstefnu um hinsegin málefni fyrir grófri líkamsárás í miðborg Reykjavíkur. Málið er rannsakað sem hugsanlegur hatursglæpur. Við ræðum við Álf Birki Bjarnason, formann samtakanna 78 um þetta atvik og aukna andúð á hinsegin fólki í samfélaginu og hvernig hún birtist. Ljúkum svo þættinum á því að bregða okkur á málstofu um eldra fólk og loftslagsmál á Norðurlöndunum, en þar eru staddir aðgerðasinnar úr hópi eldri borgara sem hafa tengslanet, tíma og þekkingu og vilja leggja unga fólkinu lið í baráttunni fyrir aðgerðum í loftslagsmálum.

Gestir Vikulokanna voru Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, Mars M. Proppé, stærðfræðikennari og meðstjórnandi í Samtökunum 78, og Valdimar Víðisson, skólastjóri í Öldutúnsskóla og formaður bæjarráðs í Hafnarfirði. Rætt var um Hinsegin daga og Gleðigönguna, réttindabaráttu hinsegin fólks og bakslag í henni, símanotkun í grunnskólum, erlend heiti á íslenskum vörumerkjum, útlendingalög og umdeilda framkvæmd þeirra og umræðu um bólusetningu sem skaut aftur upp kollinum í vikunni. Tæknimaður er Úlfhildur Eysteinsdóttir

Samtökin 78 bjóða fyrirtækjum og stofnunum að öðlast svokallaða Hinsegin vottun. Í því felst úttekt á menningu, fyrirlestrahald og fleira. Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna, sagði frá. Enn vöknum við (flest) í björtu en það líður að því að næturnar lengist og myrkrið nái yfirhöndinni. Sævar Helgi Bragason, jarðfræðingur og stjörnufræðikennari, rabbaði um sólarganginn og útskýrði þá krafta og lögmál sem gilda um jörðina, sólina og tunglið. Norræna þjóðbúningaþingið hefur staðið síðustu daga í Reykholti í Borgarfirði. Kristín Vala Breiðfjörð, formaður Heimilisiðnaðarfélags Íslands, sagði frá þinginu og ræddi um íslenska þjóðbúninginn. Tónlist: Swing down sweet chariot - Elvis Presley, Something?s gotten hold of my heart - Gene Pitney og Marc Almond. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Í upphafi þáttar var flett í gegnum Tímarit Hinsegin daga, sem kom út í vikunni, með ritstjóra þess, Bjarndísi Helgu Tómasdóttur. Tímaritið hefur aldrei verið eins efnismikið og í ár, þar kennir ýmissa grasa og bæði alvarleg málefni og léttari tekin fyrir. Bjarndís segir ritið mikilvægan vettvang fyrir umræðu hinsegin fólks. Bogi Ágústsson hélt áfram umfjöllun um eftirlætis hlaðvörp sín í Heimsglugga vikunnar. Í þetta sinn fjallaði hann um hlaðvörp um annað en fréttamál. Bogi sagði líka frá merkilegum leiksigri færeysks knattspyrnuliðs, frá formannskjöri í grænlenska stjórnmálaflokknum Siumut og nýjustu vendingum í dómsmálum Donalds Trump. Valdarán var framið í Afríkuríkinu Níger í liðinni viku. Níger er eitt fátækasta land álfunnar þrátt fyrir að vera auðugt af ýmsum auðlindum. Geir Konráð Theodórsson bjó um tíma í Níger. Hann var á línunni frá öðru Afríkulandi, Eþíópíu, og sagði frá ástandinu í Níger, landi og þjóð. Í lok þáttar var Dóra Svavarsdóttir matreiðslumeistari gestur Morgunvaktarinnar. Hún ræddi um mat, um mat sem gott er að hafa með sér í útilegur eða sumarbústaðinn, nýjar kartöflur og fleira gómsætt. Tónlist: I Left My Heart in San Francisco - Tony Bennett Oh, What a Beautiful Morning - Lou Rawls Vegurinn heim - Mannakorn Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Vera Illugadóttir.

Engin niðurstaða varð á samningafundi BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga í dag. Verkföll í leik- og grunnskólum halda áfram á morgun. Ásthildur Kristín Björnsdóttir móðir þiggja barna í Mosfellsbæ segir að verkfallið hafi haft áhrif á þau öll, í viðtali við Benedikt Sigurðsson. Alexander Kristjánsson sagði frá. Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir fyrir mest allt landið á morgun. Fólk er hvatt til þess að festa trampólín, grill og aðra lausamuni áður en stormurinn skellur á Sunna Karen Sigurþórsdóttir ræddi við Marcel De Vries veðurfræðing. Héraðssaksóknari hefur ákært starfsmann í úrræði fyrir að hafa árið 2021 nauðgað manni með þroskahömlun. Átta aðildarríki Evrópusambandsins hafa lagst gegn löggjöf sem takmarkar losun gróðurhúsaloftegunda í umferðinni. Ríkin segja að löggjöfin geti komið niður á fjárfestingum bílaiðnaðarins. Ísak Regal sagði frá. Íslensk kona um fimmtugt er alvarlega særð eftir hnífstungu á heimili sínu í Lundi í Svíþjóð á laugardag. Manni, sem var í fyrstu grunaður um verknaðinn, hefur verið sleppt úr haldi. Þorleifur Þorleifsson, sem hljóp 335 kílómetra í Bakgarðshlaupi í Þýskalandi um helgina, segist hafa það fínt en hlakkar til að nærast og hvílast. Sunna Karen Sigurþórsdóttir ræddi við hann. Lyfjameðferð sem dregur úr taugaskaða, með því að virkja kæliferil frumna varð hlutskörpust í samkeppninni um Nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands. Pétur Magnússon ræddi við Hans Tómas Björnsson prófessor. Funi Sigurðsson framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Barna og fjölskyldustofu hefur áhyggjur af auknum vopnaburði ungmenna. Ragnhildur Thorlacius ræddi við hann í framhaldi af fréttum um fjölgun tilkynninga til Barnaverndar Reykjavíkur um ofbeldi barna gegn öðrum börnum. Ákvörðun Bandaríkjastjórnar um að vopna Úkraínuher með F-16 orrustuþotum hefur víða verið vel tekið, þar á meðal í höfuðstöðvum Evrópusambandsins. Ásgeir Tómasson sagði frá. Lagalega hefur staða hinsegin fólks batnað síðustu misseri og er nú einhver sú sú besta í Evrópu, samkvæmt nýjasta Regnbogakorti Evrópusamtaka hinsegin fólks. Á sama tíma virðist hafa orðið nokkuð bakslag í samfélaginu og fordómar og hatursumræða farið vaxandi á ný, sérstaklega í garð transfólks. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Álf Birki Bjarnason formaður Samtakanna '78. Ragnhildur Thorlacius hafði umsjón með Speglinum, tæknimaður var Mark Eldred og Margrét Júlía Ingimarsdóttir stjórnaði fréttaútsendingu.

Hinsegin félagsmiðstöð Samtakanna 78 og frístundamiðstöðvarinnar Tjarnarinnar er fyrir öll ungmenni á aldrinum 10-17 ára sem eru hinsegin eða tengja við hinsegin málefni á einn eða annan hátt. Markmið starfseminnar er að vinna markvisst að því að bæta lýðheilsu hinsegin barna, unglinga og ungmenna og vinna gegn fordómum, mismunun og einelti sem beinist gegn hinsegin börnum í skóla og frístundastarfi. Hrefna Þórarinsdóttir forstöðukona félagsmiðstöðvarinnar og Andreas Tinni og Nóam Óli sem eru 17 ára og hafa tekið virkan þátt í starfinu frá 13 ára aldri segja okkur frá reynslu sinni og upplifun, veita innsýn í reynsluheim hinsegin barna og ungmenna og hvaða þýðingu hinsegin félagsmiðstöðin hefur fyrir þá. Hrefna lýsir sínum innri átökum við að taka að sér starf forstöðukonu félagsmiðstöðvarinnar og hvernig mætingin fór úr 10-15 börnum í 120 á hverja opnun. Þrátt fyrir blómlegt starf þá telja Tinni og Nóam að unglingar í dag séu jafnvel fordómafyllri en ungmenni og rekja það til áhrifa samfélagsmiðla og bakslags í baráttu hinsegin fólks. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, Anamma og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.
"Söfnin á Íslandi eru búin að stunda útilokun á hinsegin fólki, í sínu karllæga veldismunstri, svo lengi sem sögur herma. Og ef að karlar þurfa að vera að kvarta yfir því að einhver hópur ætli að taka sér pláss, þá verða þeir bara að gjöra svo vel að kyngja því." Þetta er skoðun Yndu Eldborgar, sem er ein sýningarstýra sýningarinnar Til sýnis: Hinsegin umfram aðra , sem nú stendur yfir í Nýlistasafninu. Sýningin er sú fyrsta í íslensku safni sem ávarpar stöðu og sýnileika hinsegin myndlistarfólks, nú og í sögulegu samhengi. Í júlí árið 1518 fór af stað sérkennilegur faraldur á svæði sem nú tilheyrir Frakklandi. Faraldurinn upphófst hjá konu sem einn heitan sumardag steig út á stræti Strausburgar og byrjaði að dansa. Enn þann dag í dag leita leiknir og lærðir skýringa á því sem svo gerðist. Í tilefni þess að á morgun hefst nokkurra daga danshátíð í Reykjavík ætlum við að minnast þessa sérkennilega atburðar í sögu Evrópu. En við hefjum þáttinn í leikhúsinu, en nýtt íslenskt verk, Eyja, var frumsýnt um liðna helgi. Eva Halldóra Guðmundsdóttir rýnir í sýninguna í þætti dagsins. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Í þætti dagsins í dag verður farið víða að vanda. Við heyrum pistil frá nýjum pistlahöfundi Víðsjár, Erni Elvari Arnarssyni. Við hittum líka sviðshöfundinn Hákon Örn Helgason, og heyrum af fyrstu frumsýningu haustsins í Tjarnarbíói, Jesú er til og hann spilar á banjó. Þá förum við í heimsókn í Hverfisgallerí neðst á Hverfisgötu, en þar sýnir Edda Jónsdóttir myndlistarkona verk sín á sýningu sem hún kallar Teikningar. Við ræðum við Eddu í galleríinu og líka sýningarstjórann, Hildigunni Birgisdóttur. Í Kakalaskála í Kringlumýri fara reglulega fram merkileg málþing. Á laugardaginn verður eitt slíkt, og hefur yfirskriftina Náttúran. Fundarstjóri málþingsins er Guðrún Ingólfsdóttir en fyrirlesararnir eru fjórir, þau Ásta Kristín Benediktsdóttir, lektor, Skúli Skúlason, prófessor, Astrid Ogilvie, vísindamaður og Viðar Hreinsson, sérfræðingur á Náttúruminjasafni Íslands. Fyrirlestur Viðars ber titilinn 'Þú hafðir ekki skyn á skapara þínum' og Ásta Kristín fjallar um íslenska hálendið sem hinsegin rými. Við fengum þau bæði í viðtal. Umsjónarmaður: Melkorka Ólafsdóttir

Í þættinum er ofurkrúttlegi kisuleikurinn Stray tekinn fyrir en leikurinn hefur náð að heilla marga spilara upp úr skónum og hefur auk þess verið nokkuð áberandi á netinu og samfélagsmiðlum. Fyrst þarf þó að klæða sig í gulu gúmmíhanskana þar sem háþrýstiþvottur í PowerWash Simulator verður tekinn fyrir og enginn skítur skilinn eftir! Farið er yfir reynslusögur af því að steyma leikjum beint í gegnum PlayStation-leikjatölvuna og rætt um fréttir sem tengjast PlayStation 5, PSVR2 og Quest 2 sýndarveruleikagleraugunum. Í lok þáttar er fjallað um bílaleikinn Hot Wheels Unleashed sem býður spilurum meðal annars upp á það að búa til sínar eigin brautir. Allt þetta og fleira í fertugasta og þriðja þætti af Leikjavarpinu, hlaðvarpsþætti Nörd Norðursins! Efni þáttar: Hvað er verið að spila? Háþrýstiþvottur í PowerWash Simulator Kisuleikurinn Stray Hvernig virkar að streyma PS-leikjum? PS5 með stuðning við 1440p skjái PSVR2 upplýsingar og Quest 2 hækkar í verði Hot Wheels Unleashed Myndir úr Stray og PowerWash Simulator, Pride fáninn ásamt digital töfrum Bjarka Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
Í þættinum er fjallað um ýmis orð sem tilheyra hinsegin-orðaforðanum. //////////////// Ari Páll Kristinsson, Halldóra Jónsdóttir og Steinþór Steingrímsson (ritstjórar). (2016). Málið. Reykjavík: Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Sótt af https://malid.is/ /// Ásgeir Blöndal Magnússon. (1989). Íslensk orðsifjabók. Mál og menning. /// Halldóra Jónsdóttir og Þórdís Úlfarsdóttir (ritstjórar). (2013). Íslensk nútímamálsorðabók. Reykjavík: Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Sótt af https://islenskordabok.arnastofnun.is/ /// Harper, Douglas (ritstjóri). (2001). Online Etymology Dictionary. Sótt af https://www.etymonline.com/ //// Hoad, T. F. (1990). The Oxford Library of Words and Phrases. Í T. F. Hoad (ritstjóri), Word Origins: 3. bindi. London: Guild Publishing. /// OTILA.is. (2022, 6. ágúst). Hinsegin frá Ö til A. Sótt af https://otila.is/ ///
Um helgina fara í loftið nýir sjónvarpsþættir á RÚV sem heita Náttúran mín. Lára Ómarsdóttir, sem er umsjónarmaður þáttanna, kíkti til okkar og sagði okkur meira af þessum þáttum þar sem maður og náttúra og samspil þeirra leika aðalhlutverk. Við heyrðum af heilmiklum framkvæmdum í Árneshreppi, en þar er margt í gangi, m.a. ljósleiðaravæðing, hafnarframkvæmdir og hitaveita. Skúli Gautason er verkefnastjóri hjá Áfram Árneshreppi sem heyrir undir brothættar byggðir og við slógum á þráðinn til hans og forvitnuðumst um gang mála. Ragnhildur Gísladóttir heldur sína fyrstu stórtónleika í Eldborg þann 1. október næstkomandi þar sem hún flytut lög frá sínum litríka tónlistarferli. Þetta heyrir til tíðinda enda er hún ein virtasta tónlistarkona og tónskáld landsins og sannanlega brautryðjandi þegar kemur að konum í tónlist. Ragga Gísla kom til okkar í drottningaviðtal eins og henni sæmir. Hápunktur Hinsegin daga er iðulega Gleðigangan og hún fer fram á morgun. Til að heyra allt um skipulag, götulokanir og fjölda þátttakenda hringdum við í göngu- og öryggisstjórann, Evu Jóhannsdóttur. Undanfarna föstudaga höfum við fengið til okkar lífskúnstnerinn, hárgreiðslumeistarann og Eyjamanninn Óla Bogga Heiðarsson til að fara aðeins yfir það sem er að gerast hjá landanum í mannlífi, menningu og mat, strauma og stefnur. Óli Boggi kíkti við. Tónlist: Sycamore tree - La flamme. Elvis Presley - Suspicious minds. Miley Cyrus - Midnight sky. Birgir Hansen - Poki. Sniglabandið - Í góðu skapi. Björgvin Halldórsson og Ragnhildur Gísladóttir - Dagar og nætur (brot) Grýlurnar - Sísí (brot) Stuðmenn - Manstu ekki eftir mér (brot) Páll Óskar - Allt fyrir ástina. Vök - Illuminating. Raggi Bjarna - Flottur jakki.

Umsjón: Rúnar Róbertsson og Felix Bergsson Valur Gunnarsson, rithöfundur og sagnfræðingur, er á ferð um Úkraínu og sendi okkur pistla þaðan þar sem hann lýsir upplifun sinni. Í dag talaði hann um mikinn fjölda brúðkaupa þessi dægrin í Úkraínu. Sigríður Kristjánsdóttir náttúruvársérfræðingur á Veðurstofunni fór yfir atburði næturinnar á Reykjanesskaganum. Tónlistarhátíðin Seigla fer fram í Hörpu um næstu helgi. Erna Vala Arnardóttir, listrænn stjórnandi hennar stofnaði hana í fyrra með því markmiði að stuðla að frjóu listasamfélagi, styðja við íslenskt tónlistarfólk og skapa tækifæri til að koma þýðingarmiklum verkefnum á sviði tónlistar á framfæri. Þetta árið standa sextán tónlistarflytjendur að baki fimm tónleikum sem fara fram í Eldborg yfir þessa þrjá daga, ásamt tveimur viðburðum í Hörpuhorni á opinni dagskrá hátíðarinnar. Kammer- og söngtónlist eru í fararbroddi á dagskrá hátíðarinnar þetta árið og er áhersla lögð á fjölbreytta og aðgengilega viðburði. Erna Vala kom til okkar til að segja okkur meira. Á Hinsegin dögum ætla þau Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir og Unnsteinn Jóhannsson að leiða málstofu undir yfirskriftinni Fjölástir og fjölbreytileikinn. Fjallað verður um ólík sambandsform og góðir gestir munu deila sinni upplifun. Þetta er ein af fjölmörgum málstofum sem boðið er upp á þessa vikuna. Unnsteinn kom til okkar og við ræðum fjölbreytileika í samböndum. Verðbólga í heiminum er að ná hæstu hæðum og talið er að hún nái tveggja stafa tölu fyrr en síðar hér á landi. En hvað getur hinn almenni borgari gert til að forðast áhrif verðbólgunnar? Eru hagfræðingar með einhver ráð handa heimilum landsins þegar verðbólgan veldur kaupmáttarrýrnum og allt verður dýrara? Katrín Ólafsdóttir hagfræðingur og dósent við Háskólann í Reykjavík kom í morgunkaffi. Valdimar Guðmundsson og Ásgeir Aðalsteinsson eru meðlimir í hljómsveitinni Valdimar og hljómsveitinni Lón, það er sem sagt nóg að gera. Þeir félagar komu til okkar í morgunkaffi en Lón eru nýkomnir frá Bandaríkjunum þar sem þeir spiluðu fyrir heimamenn. Þá eru þeir að fara að spila á vestfjörðum í vikunni. Vestra kynntust þeir til að mynda Walter America, en hver er það?

Snarpir skjálftar voru í nótt og við fengum Markús Þórhallsson fréttamann til að fara aðeins yfir tíðindi næturinnar með okkur. Jörð hefur skolfið undanfarna daga, ekki síst í Grindavík og heimamenn endurupplifa aðdraganda gossins í Fagradalsfjalli. Eins og um hefur verið fjallað í fréttum eru vangaveltur uppi um hvert framhaldið verður og við slógum á þráðinn til Fannars Jónassonar bæjarstjóra í Grindavík og heyrðum af viðbrögðum og viðbúnaði heimamanna. Í dag hefjast Hinsegin dagar í Reykjavík og er mikið um dýrðir í dagskránni nú sem endranær. Hátíðin fagnar fjölbreytileikanum með fjölbreyttum viðburðum á sviði menningar og fræðslu. Gunnlaugur Bragi Björnsson, formaður Hinsegin daga, kom til okkar í spjall. Reykjavíkurborg er ennþá borg í mótun, við þekkjum umræður um þéttingu byggðar, mikilvægi grænna svæða, lýsingu, hávaða og umferð, svo eitthvað sé nefnt. Nú eru framundan miklar framkvæmdir við Hlemm, sem hefjast í vikunni með tilheyrandi lokunum næstu misserin. Við fengum Eddu Ívarsdóttur borgarhönnuð til okkar til að fara aðeins yfir þær breytingar sem eru í kortunum og hvernig framkvæmdum verður háttað. Act alone, elsta leiklistarhátíð landsins, verður haldin á ný á Suðureyri núna ágúst og hefst á fimmtudaginn, en hátíðin var fyrst haldin 2004. Dagskráin er einstaklega vegleg og um leið alþjóðleg. Yfir 20 viðburðir og eitthvað fyrir alla í leiklist, dans, tónlist og allskonar list. Sá sem veit allt um málið var á línunni, hann heitir Elfar Logi Hannesson. Guðmundur Jóhannsson kom til okkar í Tæknihornið og í dag einblíndi hann á í hvaða átt samfélagsmiðlar eru að þróast. Tónlist: Una Torfadóttir - En. Pearl Jam - Just breathe. Mannakorn - Einhvers staðar, einhvern tíma aftur. Lay Low - Little by little. Wings - Another day. Bjarni Snæbjörnsson - Næs (Lag Hinsegin daga 2022). Valdimar Guðmundsson - Okkar eigin Osló. Bill Withers - Lovely day. Paolo Nutini - Through the echoes. Prins Póló - Átján og hundrað.

Gestur vikunnar er Íris Ellenberger, dósent á menntavísindasviði Háskóla Íslands. Íris lauk doktorsprófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 2013 en í ritgerð sinni beindi hún sjónum að samfélagslegri stöðu danskra innflytjenda á Íslandi 1900-1970 og þá sérstaklega hvernig staða þeirra breytist með sjálfsstæðisbaráttu Íslendinga. Hún hefur einnig skoðað hinsegin sagnfræði á Íslandi og meðal annars skoðað sögu félagsins Íslensk-lesbíska og hinsegir ástir kennslukvenna um 1900. Þær Sigrún spjalla um rannsóknir hennar og ferlinn en einnig mikilvægi þess að víkka út þá söguskoðun sem hefur verið ráðandi í fræðaheiminum, en það er meðal annars hægt að gera með því að skoða heiminn út frá hinsegin fræðum.
Viðar Eggertsson leikstjóri og eldri borgari skrifaði áhugaverða grein í Fréttablaðið í gær þar sem hann talaði um hættuna sem væri á því að hinsegin fólk af hans kynslóð þyrfti að fara aftur inn í skápinn þegar á dvalarheimili væri komið. Viðar var gestur okkar í upphafi þáttar. Óljósar fregnir hafa borist af því að mögulega hyggist Rússar beita efnavopnum í innrás sinni í Úkraínu auk þess sem vísbendingar þykja uppi um að slíkum vopnum hafi verið beitt í borginni Mariupol þrátt fyrir að Vlodomir Zelensky, Úkraínuforseti, segist ekki geta staðfest það með óyggjandi hætti. Til að ræða þessi mál fengum við til okkar Kristínu Ólafsdóttur dósent við HÍ og deildarstjóri rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði. Kveikur fjallaði í gær um óhóflega skjánotkun barna og unglinga sem er orðið samfélagslegt vandamál sem landsmenn þurfa að takast á við í sameiningu að mati geðlæknis á Landspítalanum sem rætt var við. Við ræddum þessi mál við Arnar Ævarsson, framkvæmdastjóra Heimila og skóla, landssamtaka foreldra, um þessi mál. Páskarnir eru handan við hornið og margir því á faraldsfæti í dag. Veðrið lítur best út á Akureyri og á það stóla starfsmenn Hlíðafjalls. Við heyrðum í Brynjari Helga Ásgeirssyni forstöðumanni Hlíðafjalls upp úr klukkan átta. Við heyrðum í Óskari Hallgrímssyni, ljósmyndara sem búsettur er í Kænugarði, en hann var í gær í borginni Borodjanka þar sem ekki stendur steinn yfir steini lengur. Á laugardag fer fram húðflúrveisla í Iðnó til minningar um Fjölni Geir Bragason húðflúrara sem lést í desember síðastliðnum. Við fengum til okkar skipuleggjanda herlegheitanna, Pál Scheving Þorsteinsson. Það eru líklega margir sem ætla að leggja af stað eitthvað út á land í dag og búast má við að umferðin þyngist talsvert þegar líða fer á daginn. Við heyrðum í Árna Friðleifssyni, aðalvarðstjóra í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um páskatraffíkina. Tónlist: Huginn - Geimfarar Boy meets girl - Waiting for a star to fall Deee-Ltle - Groove is in the heart Gus Gus - David Fleetwood Mac - Dont Stop Nick Cave and the bad seeds - Do you love me? Harry Styles - Adore you

Gestur vikunnar er Jón Ingvar Kjaran, prófessor við deild menntunnar- og margbreytileika á menntavísindasviði Háskóla Íslands. Rannsóknir Jón Ingvars eru á sviðum kynjafræði, hinsegin fræða og réttindum samkynhneigðra, en hann beitir þverfaglegu sjónarhorni í sínum rannsóknum en leitar oft í smiðju félagsfræðinnar. Þau Sigrún ræða rannsóknir hans sem að tengjast meðal annars upplifun hinsegin nemenda í íslenska skólakerfinu og ofbeldi, bæði út frá reynslu þolenda og gerenda. Að auki ræða þau rannsóknir hans þar sem alþjóðlegur veruleiki kemur við sögu og hefur hann þar til að mynda borið saman íslenskan veruleika við Suður-Afríku og skoðað kyn og kynhneigð í Íran.
Umhverfisstofnun metur árlega ástand áfangastaða á friðlýstum svæðum með tilliti til ágangs ferðamanna. Ný skýrsla kom út í síðustu viku og við heyrðum í Kristínu Ósk Jónasdóttur, sérfræðingi í teymi náttúruverndar og heyrðum helstu niðurstöður. Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna verða endurvakin á morgun. Margt hefur áunnist í jafnréttisbaráttunni á knattspyrnuvellinum, en betur má ef duga skal og vonast aðstandendur til þess að samtökin verði sameiningarafl í þeirri baráttu. Anna Þorsteinsdóttir og Ingunn Haraldsdóttir sögðu okkur frá. Öllum sóttvarnaaðgerðum innanlands og á landamærunum verður aflétt aðfaranótt föstudags. Margir fagna þessu eflaust en starfandi forstjóri Landspítalans segir að ráðlegra hefði verið að fara hægar í sakirnar í afléttingu sóttvarnatakmarkana. Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítalans, ræddi stöðuna. Vladimír Pútín Rússlandsforseti fyrirskipaði hernaðaríhlutun í Úkraínu í morgun að staðartíma og örfáum mínútum síðar voru sprengjuárásirnar gerðar á Úkraínu. Sprengingar hafa kveðið við nærri höfuðborginni Kíev og hraðbrautir eru tepptar af farartækjum fólks sem flýr borgina. Við heyrðum í Óskari Hallgrímssyni, ljósmyndara sem er búsettur í Kænugarði, um stöðuna. Á Íslandi hafa gilt ein hjúskaparlög frá árinu 2010 en innan Þjóðkirkjunnar var blessun hjónabands samkynhneigðra lengi vel bitbein og hinsegin fólk ekki alltaf upplifað að það sé velkomið í kirkjunni. Bjarndís Helga Tómasdóttir, stjórnarkona í Samtökunum 78 hefur í um tvö ár safnað persónulegum sögum hinsegin fólks af framkomu Þjóðkirkjunnar í þeirra garð. Hún sagði okkur frá. Við ræddum heim tölvuleikjanna við Davíð Kjartan Gestsson, menningarblaðamann og vefritstjóra og þar komu leikirnir Cyberpunk 2077 og Elden Ring við sögu. Leikverkið Ég hleyp, verður frumsýnt í kvöld, en þar er leitast við að svara því hvernig við getum lifað áfram eftir barnsmissi. Við spjölluðum við Gísla Örn Garðarsson sem tekst á við þetta krefjandi hlutverk í leikstjórn Hörpu Arnardóttur, en það er óhætt að segja að mikið hafi verið að gera hjá honum undanfarið. Tónlist: Grafík - Bláir fuglar. Chris Rea - Road to hell. Kalli Tomm - Kyrrþeyrinn andar. Red Hot Chili Peppers - Black summer. The Beatles - Blackbird. Hope Sandoval og Kurt Vile - Let me get there. Elín Ey - Ekkert mál. Snorri Helgason - Ingileif.

Gestir þáttarins eru Stefán Hrafn Hagalín upplýsingafulltrúi Landspítalans, Sigmundur Ernir Rúnarsson, nýráðinn ritstjóri Fréttablaðsins og Þorbjörg Þorvaldsdóttir formaður samtakanna 78. Rætt var um Hinsegin daga, sem féllu niður annað árið í röð vegna heimsfaraldursins og staðan tekin á réttindabaráttu hinsegin fólks, umdeilt bréf sem Stefán Hrafn skrifaði starfsfólki LSH um samskipti við fjölmiðla, stöðu heilbrigðiskerfisins, óvissu um skólahald o.fl. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson

„Við erum að sjá börn og ungmenni koma snemma út úr skápnum í faðmi fjölskyldu og vina og geta áttað sig á tilfinningum sínum með þeim.“, segir Ásgeir Helgi Magnússon formaður Hinsegin daga sem fara fram dagana 3. til 8. ágúst með allskyns viðburðum, þrátt fyrir að ekkert verði af Gleðigöngunni vegna samkomutakmarkanna. Þótt Ísland standi framarlega í jafnréttismálum segir Ásgeir Helgi að enn vanti margt upp á í lagaumhverfinu, sem tengist hinsegin fólki og að við þurfum stöðugt að vera á varðbergi fyrir mannréttindum fólks. Það sjáist best á löndum á borð við Pólland og Ungverjaland þar sem verulega er vegið að hinsegin fólki. Hinsegin dagar, árangur og bakslag í baráttu hinsegin fóks, hómófóbía, fordómar og leiðir sem gagnkynhneigt fólk getur farið til að styðja við mannréttindi og hinsegin fólk er umræðuefni 44. þáttar Karlmennskunnar. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson (Karlmennskan) Intro/outro: ON (instrumental) - Jói P. og Króli Þátturinn er í boði Macland, Veganbúðarinnar og The Body Shop.